SLAYGÐU

Follow SLAYGÐU
Share on
Copy link to clipboard

Hugleikur Dagsson og Sandra Barilli (Hullow og Xandra) horfa á Angel og hljóðrita þátt um hvern einasta þátt.

Hugleikur Dagsson & Sandra Barilli


    • Jun 28, 2022 LATEST EPISODE
    • weekly NEW EPISODES
    • 47m AVG DURATION
    • 331 EPISODES
    • 3 SEASONS


    Search for episodes from SLAYGÐU with a specific topic:

    Latest episodes from SLAYGÐU

    Bingó í Vinabæ (When Harry Met Sally…)

    Play Episode Listen Later Jun 28, 2022 102:12


    Harry og Sally kynnast ung að árum þegar þau keyra samferða til New York, sem má sjá eins og þriðja karakter myndarinnar. Þau hittast öðru hverju á förnum vegi og verða loks nánir vinir. Þrátt fyrir fjölda elskhuga og langtímamaka virðast hugar þeirra beggja leita smátt og smátt hvorir til annars.

    Alein 2: Fleiri en ein (Aliens)

    Play Episode Listen Later Jun 21, 2022 80:34


    Ripley rekur loks á slóðir mannfólks en hún hefur verið sofandi í fleiri tugi ára. Á meðan hún svaf og sveif um geiminn réðust stórfyrirtæki í að byggja upp samfélag á plánetunni þar sem hún hafði fyrst komist í kynni við Xenomorph. Hún fer því í leiðangur með

    Hundfúlt eftir hádegi (Dog Day Afternoon)

    Play Episode Listen Later Jun 14, 2022 58:11


    Þrír bankaræningar hefja bankarán án þess að plana það neitt sérstaklega í þaula. Einn þeirra heltist úr lestinni áður en hasarinn hefst og undir hinum tveimur er þá komið að halda andliti. Lögreglan umkringir svæðið og fjöldi fólks dregst að til að fylgjast með framvindu mála.

    Bragðarefur í Borgartúni (The Wolf of Wall Street)

    Play Episode Listen Later Jun 7, 2022 92:04


    Verðbréfasalinn Jordan Belford fær vinnu hjá eftirsóttu fyrirtæki í fjármálageiranum og hann er ekki lengi að komast upp á lagið með að afla sér tekna á vafasaman máta. Fljótlega kemur hann upp sínu eigin fyrirtæki sem stóreykur umsvif á markaðnum á skömmum tíma. Myndin er byggð á raunverulegri sögu af verðbréfabraskara sem kunni sér ekki...

    Fenris laus úr læðingi (Ferris Bueller’s Day Off)

    Play Episode Listen Later May 31, 2022 79:50


    Þó að Ferris sé með flottar einkunnir og elskaður og dáður af samnemendum sínum hefur hann gaman að því að taka lífinu létt og skólanum ekki allt of alvarlega. Hann skipuleggur skrópdag og dregur með sér vin sinn og kærustu og þau keyra um á illa fengnum bíl og lenda í mörgum ævintýrum í borginni.

    Ljómandi (The Shining)

    Play Episode Listen Later May 24, 2022 94:24


    Faðir, móðir og ungur sonur þeirra flytja á hótel til að gæta þess yfir vetrartímann á meðan það er lokað. Þau komast fljótlega að því að einangrunin sem og hryllileg saga hússins veldur þeim öllum miklu hugarangri.

    Strætóinn sem gat ekki hægt á sér (Speed)

    Play Episode Listen Later May 17, 2022 94:38


    Sérsveitarmaður sem sérhæfir sig í sprengjuleitum þarf að bjarga farþegum í strætisvagni frá hræðilegum dauðdaga, en vagninn þeirra er útbúinn hraðasprengju sem virkjast um leið og hraðinn fer undir 80 km á klukkustund. Farþegarnir leggjast öll á eitt að koma sér úr þessum vanda, með dyggri aðstoð sérsveitarmanna.

    Regnboginn (Cinema Paradiso)

    Play Episode Listen Later May 10, 2022 86:50


    Lítill og lævís drengur hangir mikið í bíóhúsinu í smábænum sínum á Sikiley, þar sem sýningarstjórinn kennir honum helstu tökin í bíóhúsabransanum. Þar fæðist ást hans á kvikmyndum og eftir hörmulegt slys í húsinu fær hann vinnu sem sýningarstjóri sjálfur þrátt fyrir ungan aldur.

    Stjörnustríð – Kafli VI: Jedúddamía (Return of the Jedi)

    Play Episode Listen Later May 3, 2022


    Nú þegar Logi Geimgengill hefur lokið framhaldsnáminu sínu í Væringjafræðum ákveður hann að herja á Keisaraveldið og föður sinn í leiðinni, en hann er þar innsti koppur í búri. Þau Logi, Leia og Hans Óli þurfa þó fyrst að flýja undan illmenninunu Jabba sem ætlar sér ekki að láta þau komast upp með það.

    Barningur í Bjarnarborg (Der Himmel über Berlin)

    Play Episode Listen Later Apr 26, 2022


    Í samfélagi fólks svífa verndarenglar um og heyra hugsanir þeirra og óskir. Einn þeirra er þó sjálfur með þrár um að upplifa heiminn eins og manneskja og eiga í ástarsambandi, drekka kaffi og fara úr skónum undir borði og teygja úr berum táslunum.

    Bandaríski bjáninn (American Psycho)

    Play Episode Listen Later Apr 19, 2022


    Maður sem vinnur óræða vinnu á verðbréfamörkuðum í New York borg þráir umfram allt viðurkenningu frá vinnufélögum sínum. Hann hefur þó hættulega hneigð til þess að myrða fólk og stundar það samhliða því að reyna að ganga í augun á samstarfsmönnum sínum.

    Vandamál og kínakál (Big Trouble in Little China)

    Play Episode Listen Later Apr 12, 2022


    Kurt Russell leikur djúpt þenkjandi bílstjóra með sterka réttlætiskennd. Þegar ástkonu vinar hans er rænt á flugvelli smalar hann saman í lið til að hafa upp á henni. Bílstjórinn og gengið hans lúskrar á yfirnáttúrulegum bardagahetjum og kynnist dularfullum undirheimum Litlu Kína.

    Transdans (The Rocky Horror Picture Show)

    Play Episode Listen Later Apr 5, 2022


    Brad og Janet eru nýtrúlofuð og ástfangin upp fyrir haus. Þau eru á ferðalagi og sprengja dekk á bílnum sínum, og leita því aðstoðar í nágrenni. Þar koma þau að kastala þar sem mikil veisluhöld eru í gangi og þau sogast inn í dans og leik, en þegar dansinn dunar sem hæst sjá þau að...

    Denni dæmalausi (Donnie Darko)

    Play Episode Listen Later Mar 29, 2022


    Elsti sonurinn á venjulega ameríska heimilinu bjargast á undraverðan hátt frá óútskýrðu flugslysi, og hrindir af stað undarleg atburðarrás. Hann rannsakar tímaferðalög og er sannfærður um að heimsendir sé í nánd.

    Þú ert drekinn (Enter the Dragon)

    Play Episode Listen Later Mar 22, 2022


    Bruce Lee leikur bardagakappa sem er sendur af dularfullri bandarískri nefnd á úthafseyju til að rannsaka lát fjölda ungra kvenna. Hann kemst fljótt að því að háttsettur eigandi eyjarinnar er með eitthvað gruggugt í pokahorninu.

    Saga Borgarættarinnar (The Royal Tenenbaums)

    Play Episode Listen Later Mar 15, 2022


    Stórfjölskylda sem misst hefur allt samband innbyrðis finnur sig knúna til að endurnýja kynnin þegar fjölskyldufaðirinn veikist. Hann er einnig orðinn gjaldþrota og því kemur það sér vel fyrir hann að flytja aftur inn á gamla heimilið sitt á meðan fyrrverandi kona hans og börn sinna honum.

    Galdrakarlinn í DOS (The Matrix)

    Play Episode Listen Later Mar 8, 2022


    Það er oft gríðarlega erfitt að standa undir væntingum annarra en Thomas Andersson, eða Neo eins og hann kallar sig í netheimum, gerir sitt besta til að bjarga mannfólki úr gíslingu véla undir handleiðslu lærimeistara síns.

    Mömmó (Psycho)

    Play Episode Listen Later Mar 1, 2022


    Ástfangin kona tekur lítið ígrundaða ákvörðun að ræna seðlabúntum frá viðskiptavini fyrirtækisins sem hún vinnur hjá og stinga af. Hún keyrir út úr borginni samdægurs og mætir hornauga lögreglunnar sem fælir hana að afskekktu gistiheimili.

    Eistnaflug (Top Gun)

    Play Episode Listen Later Feb 22, 2022


    Tom Cruise leikur ungan spaða í flughernum sem sýnir ótrúlega hæfileika í loftinu, þó ekki sé hann hár í loftinu. Mynd sem sannarlega fær þig til að grípa andann á lofti.

    Barnaland (Raising Arizona)

    Play Episode Listen Later Feb 15, 2022


    Skemmtileg og óvenjuleg grínmynd um hjón sem langar að eignast barn og taka upp á því að nappa einu af ríkum hjónum. Ungi drengurinn sem þau ræna heillar alla upp úr skónum, og keppast því enn fleiri aðilar um umsjá hans.

    Alein (Alien)

    Play Episode Listen Later Feb 8, 2022


    Í vöruflutningarskipi sem ferðast geimshorna á milli er hópur fólks sem óskar einskis heitar að komast heim eftir langan leiðangur. Þau verða vör við varúðarkall frá nálægri plánetu og eins og þeim er skylt athuga þau málið og komast þá í kynni við áður óþekkta tegund af geimveru.

    Reykjavík Derrière (Sódóma Reykjavík)

    Play Episode Listen Later Feb 1, 2022


    Eirðarlaus bifvélavirki er dreginn inn í skrýtna atburðarás þegar hann reynir að aðstoða móður sína að finna nýja fjarstýringu fyrir sjónvarpið hennar. Hann lendir í miðjum kjarna á glæpagengi í Reykjavík og reynist honum þrautin þyngri að hrista það af sér.

    Sverðgarnir sjö (Seven Samurai)

    Play Episode Listen Later Dec 28, 2021


    Nokkrir bændur úr smáþorpi í Japan sem fæst aðallega við kornrækt komast á snoðir um að ribbaldar ætli sér að ræna uppskerunni. Þeir bregða á það ráð að hóa saman nokkrum samúræjum til að vernda þorpsbúa og uppskeruna. Samúræjarnir eru bæði reyndir og óreyndir og fylgjumst við með samstarfi þeirra við bæjarbúana.

    Fólasaga (Scrooged)

    Play Episode Listen Later Dec 21, 2021


    Bill Murray leikur illa innrættan yfirmann á sjónvarpsstöð sem finnur ekki fyrir anda jólanna. Gamlir draugar bregða þá á það ráð að sýna honum fortíð hans, nútíð og framtíð með áframhaldandi þvermóðsku. Hann virðist læra af þeirri reynslu og ákveður að verða betri maður.

    Ástarpungar (Love Actually)

    Play Episode Listen Later Dec 14, 2021


    Smásögur um ástir og örlög íbúa Londonarborgar fléttast saman í þessari heimsþekktu jólamynd. Við fylgjumst meðal annars með forsætisráðherra Bretlands, gamalgrónum tónlistarmanni, ungum konum og eldri konum hugsa sinn gang í aðdraganda jólanna.

    Harðlífi (Die Hard)

    Play Episode Listen Later Dec 7, 2021


    John McClane heimsækir eiginkonu sína í aðdraganda jólanna en hjónabandið þeirra hefur gengið brösulega. Hann er starfandi lögreglumaður í New York borg en um leið og hann kemur óvænt í jólaboðið sem haldið er í fyrirtækinu hennar þá mæta þangað þrjótar sem ætla sér að ræna bankahvelfingu byggingarinnar. John þarf að taka á honum stóra...

    Blúbbs (Splash)

    Play Episode Listen Later Nov 30, 2021


    Tom Hanks leikur ungan mann sem sér um vöruflutninga og þykir lítið til lífsins og ástarinnar koma. Hann kynnist þá konu sem kemur úr óvæntri átt og segir honum fátt um uppruna sinn. Með þeim takast ástir og lífið leikur við þau þangað til hann kemst að raunverulegu eðli konunnar.

    Eggert (Blade)

    Play Episode Listen Later Nov 23, 2021


    Ofurhetjan Blade er fæddur sem afkvæmi manns en með eiginleika vampíru. Hann nýtir ofurkraftana sína til að berjast gegn þessari vá sem herjar á íbúa New York borgar. Hann reynir eins og hann best getur að stöðva upprisu illmenna sem ætla sér að beita bellibrögðum til að öðlast guðlega krafta.

    Geimskutlan (Barbarella)

    Play Episode Listen Later Nov 16, 2021


    Barbarellu er falið það verkefni að hafa upp á illmenninu Duran Duran. Hún lendir í ótrúlegum ævintýrum á ferðalagi sínu um geiminn og passar að vera alltaf viðeigandi í klæðaburði.

    Heilinn hans Jóns míns (Being John Malkovich)

    Play Episode Listen Later Nov 9, 2021


    Mjög hæfur brúðuleikari sem hefur því miður ekki náð langt í list sinni, finnur fyrir einskæra tilviljun göng á vinnustaðnum sínum sem leiða hann í ævintýralega upplifun á lífi leikarans John Malkovich. Hann ákveður þá ásamt samstarfskonu sinni að selja aðgang að göngunum en um leið og hr. Malkovich sjálfur kemst að þessum leyndardóm eru...

    Feðraveldið slær til baka (The Empire Strikes Back)

    Play Episode Listen Later Nov 2, 2021


    Luke hefur fundið kraftinn innra með sér og leitar á náðir meistara Yoda til að þjálfa hann. Á meðan er samstarfsfólk hans, Leia Prinsessa, Hans Óli og Chewbacca, að beita öllum brögðum til að fela sig fyrir Svarthöfða með dyggri aðstoð vélmennisins C3PO.

    Grímuskylda (Halloween)

    Play Episode Listen Later Oct 27, 2021


    Aukaþáttur í tilefni af Hrekkjavöku, Hulla og Söndru félagið horfir á hryllingsmynd þar sem ungur drengur myrðir systur sína og er vistaður á geðsjúkrahúsi í framhaldi. Hann sleppur út þegar hann er kominn til vits og ára og ræðst á ungar barnapíur í gamla hverfinu sínu.

    Dýrin í Haglaskógi (Bambi)

    Play Episode Listen Later Oct 26, 2021


    Líf dýranna í skóginum er ekki alltaf dans á rósum, sérstaklega þegar óboðni gesturinn mætir þangað. Við fylgjumst með Bamba og vinum hans stíga sín fyrstu skref og átta sig á umhverfi sínu með tilheyrandi gleði og áföllum .

    Heimskveldið (Idiocracy)

    Play Episode Listen Later Oct 19, 2021


    Hvað ætli gerist í heimi þar sem illa gefnu fólki fjölgar svo að þau útrýma því gáfaða? Meðaljón Ameríku vaknar úr dái í framtíðarríki þar sem hann, fullkomlega áreynslulaust, er orðinn best gefni þjóðfélagsþegninn. Hann kynnir betri aðferðir við ræktun korns og er gerður að forseta Bandaríkjanna stuttu eftir það.

    Mektarmenn (Goodfellas)

    Play Episode Listen Later Oct 12, 2021 127:36


    Glæpagengi í Brooklyn elur upp meðlimi frá unga aldri. Henry litli sinnir hinum ýmsu störfum fyrir glæpóna hverfisins og uppsker ríkulega. Þegar hann er orðinn háttsettur ákveður hann að færa út kvíarnar en kemst í hann krappann þegar hann verður of sólginn í innflutningsvörur sínar.

    Stimpilklukkustundir (9 to 5)

    Play Episode Listen Later Oct 5, 2021 90:52


    Þrjár ungar skutlur vinna á kontórnum á daginn undir gríðarlega þrúgandi nærveru yfirmanns sem hlutgerir þær og hamlar þeim frekari starfsþróun. Eftir röð tilviljana enda þær á að halda honum föngnum í hans eigin húsi og á meðan fá þær frið til að besta vinnustaðinn og hlúa að starfsfólki.

    Síðasta veiðiferðin (Predator)

    Play Episode Listen Later Sep 28, 2021 88:17


    Sjálfstætt starfandi hermaður og hans hópur er fenginn til að ráða niðurlögum á óþekktri veru sem virðist vera að leggja frumskóginn undir sig með því að herja á fólk. Skepnan beitir ýmsum brögðum til að ögra fólkinu og hamflettir nokkra einstaklinga og þá eru góð ráð dýr.

    Lokað fyrir Páli (Pelle Erobreren)

    Play Episode Listen Later Sep 21, 2021 87:05


    Myndin segir frá sænskum feðgum sem ráða sig í vist á lítilli eyju sunnan af Skáni. Þrátt fyrir að þeir búi við bágar aðstæður þá missir sonurinn Pelle ekki trúnna á að hann geti öðlast frelsi og komið sér í burtu.

    Ná-granninn (Beetlejuice)

    Play Episode Listen Later Sep 14, 2021 64:52


    Barnlaus hjón lenda í bílslysi og drukkna en í staðinn fyrir að kveðja veraldlega heiminn snúa þau aftur í húsið sitt sem draugar. Þau hefja þá ómarkvissar tilraunir til að hrekja á brott nýja eigendur hússins.

    Með fátt á hreinu (Dazed and Confused)

    Play Episode Listen Later Sep 7, 2021 78:32


    Við fylgjumst með unglingum í sjöunni í vernduðu umhverfi í Bandaríkjunum sletta úr klaufunum eftir skólaslit að sumri. Yngstu bekkingar þurfa að þola busun af hendi hinna eldri meðan að önnur leita að partýjum og drykkjufélögum.

    Sjomli (Oldboy)

    Play Episode Listen Later Aug 31, 2021 69:51


    Dae-su virðist vera mikil fyllibytta og ónytjungur og er fangelsaður í fimmtán ár þrátt fyrir að hafa ekki sýnilega brotið af sér. Þegar hann sleppur úr fangelsinu einsetur hann sér að finna kvalara sinn en sú leit leiðir hann á óvæntar slóðir.

    Flugmaðurinn (Superman)

    Play Episode Listen Later Aug 24, 2021 76:35


    Þegar nýfæddur Kal-El er sendur aleinn frá deyjandi plánetunni sinni lendir hann á Jörðinni þar sem eldri hjón taka hann að sér og ala hann upp. Honum gengur vel í hinu daglega lífi en þegar hann nær unglingsárum áttar hann sig á að hann er ekki eins og flest fólk heldur býr hann yfir ofurkröftum...

    Fellarnir í Fellunum (Boyz n the Hood)

    Play Episode Listen Later Aug 17, 2021 80:10


    Þrír vinir sem kynnast á unga aldri feta saman lífsins veg gegnum erfiðleika, fátækt og lögregluofbeldi. Tímamótamynd sem er byggð að einhverju leyti á upplifunum höfundar og veitti á sínum tíma gríðarlega innsýn inn í líf svartra í hverfum Los Angeles.

    Skarkári (Poltergeist)

    Play Episode Listen Later Aug 10, 2021 64:49


    Amerísk vísitölufjölskylda flytur í fallegt hús í úthverfi í Kaliforníu og hyggur á huggulegt líf þegar undarlegir andar fara að láta á sér kræla. Yngsta dóttirin verður þeirra fyrst vör og smátt og smátt taka þeir yfir heimilið. Óhugnaðurinn virðist engan enda ætla að taka og foreldrarnir leita ráða vítt og breitt um samfélagið til...

    Flottar á flótta (Thelma & Louise)

    Play Episode Listen Later Aug 3, 2021 92:45


    Tvær ungar skjátur ákveða að skella sér í helgarfrí til að losna aðeins frá sínu daglega amstri. Þeim tekst ekki betur til en svo að í upphafi ferðalagsins verður önnur þeirra fyrir hrottalegri árás og hin tekur lögin í sínar hendur og saman breyta þær stefnu helgarfrísins í flótta undan lögreglunni.

    Olnbogarými (Office Space)

    Play Episode Listen Later Jul 27, 2021 72:12


    Metnaðarlaus ungur maður vinnur á skrifstofu með erfiðum yfirmanni og þykir fátt til lífs síns koma, þangað til að hann tekur þátt í dáleiðslutíma sem fer örlítið úrskeiðis. En þrátt fyrir mislukkaða dáleiðsluna nær hann að öðlast nýtt viðhorf gagnvart yfirmönnum sínum, vinnu og einkalífi.

    Hörundsár (Scarface)

    Play Episode Listen Later Jul 20, 2021 100:19


    Ungur flóttamaður frá Kúbu kemur sér í mjúkinn hjá eiturlyfjainnflytjanda í Miami. Þrátt fyrir ungan aldur og litla reynslu er hann þó ekki lengi að taka yfir stórveldið hans og eftir það liggur beinast við að stækka við sig. En eins og oft er með fyrirtæki sem opna mörg útibú er auðvelt að missa tökin...

    Tóti á móti (My Neighbour Totoro)

    Play Episode Listen Later Jul 13, 2021 63:39


    Lítil fjölskylda flytur yfir sumartímann í sveitir Japans, til að dreifa huganum á meðan að móðirin liggur á spítala. Dæturnar tvær kynnast nágrönnum, dýrum og alls kyns furðuverum sem dvelja þar líka.

    Bíbí fríkar út (The Birds)

    Play Episode Listen Later Jul 6, 2021 88:57


    Gáskafull og hvatvís kona hittir heillandi mann í smáfuglabúð í stórborginni, en þegar hann þarf skyndilega að rjúka ákveður hún að elta hann uppi með þá tvo fugla sem hann óskaði systur sinni í afmælisgjöf. Þegar hún mætir óvænt í bæinn til verður uppi fótur og fit þegar aðrir fuglar byrja að sýna af sér...

    Reimholt (Ghost World)

    Play Episode Listen Later Jun 29, 2021 77:17


    Tvær ungar og nýútskrifaðar stelpur fylgjast með fólki í kringum sig og reyna að finna sinn stað í lífinu. Önnur þeirra kynnist hljómplötuáhugamanni meðan að hin vinnur og leitar að íbúð fyrir þær tvær að leigja saman. Þetta er mynd um mótunarár unglingsstúlkna og sumarið sem breytir öllu.

    Hugguleg án heimanmunds (Pretty Woman)

    Play Episode Listen Later Jun 22, 2021 88:52


    Ung og glæsileg kona aðstoðar aðkomumann í Rauða hverfi Los Angeles við að komast aftur heim á hótelið hans. Maðurinn óskar eftir að hún veiti honum sína nærveru- og kynlífsþjónustu meðan hann er í viðskiptaerindum í borginni og gera þau ýmsa hluti saman, meðal annars að versla, horfa á kappreiðar og elskast.

    Claim SLAYGÐU

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel