Atli & Elías

Follow Atli & Elías
Share on
Copy link to clipboard

Einn heitir Atli, hinn heitir Elías, og saman ræða þeir opinskátt um það að vera inni, útúr, og við jaðarinn á kvikmyndabransanum á Íslandi. Hlaðvarp.

Atli Oskar Fjalarsson


    • Jan 13, 2025 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 1h 8m AVG DURATION
    • 58 EPISODES


    Search for episodes from Atli & Elías with a specific topic:

    Latest episodes from Atli & Elías

    56. Þáttur - Þurrt og blautt comeback!

    Play Episode Listen Later Jan 13, 2025 56:46


    Atli & Elías snúa aftur, einn þurr og annar blautur þennan dimma janúarmánuð. Svokallaður 'catch up þáttur' (ekki tómatsósan) eftir áralangt hlé. Farið er yfir hvaða verkefni seljast í dag á íslenskum markaði, fyrsta þáttinn af nýju þáttaröðinni Vigdís, og margt fleira. Tvöföld gullkorn í lokin til að afsaka hlé.

    55. Þáttur - Spjall við Hannes Þór Halldórsson

    Play Episode Listen Later Mar 22, 2024 89:24


    Leikstjóri, höfundur, klippari og framleiðandi (og jújú, landsliðsmaður í fótbolta en hver er það ekki?) Hannes Þór Halldórsson kíkir til okkar í spjall niður í Kompu. Þrír prúðir drengir og þrír bjórar á mann. Við ræðum IceGuys, Leynilögguna, Séð&Heyrt og Óróa og allt þar á milli nema það að verja víti frá Lionel Messi -- Í staðinn verjum við tíma okkar í að ræða DVD safnið hans á skrifstofu Atlavík.

    54. Þáttur - Hlaupandi hádegismatur

    Play Episode Listen Later Feb 15, 2024 69:41


    Elías er rekinn. En það varir ekki lengi. Drengirnir rifja markmiðin sem þeir settu sér í byrjun síðasta árs og hvernig gekk að ná þeim. Flest eru brostin en örfáum þeirra var náð og því má vera stoltur af! Elías talar um áskoranir þess að vera með of mörg járn í eldinum á meðan Atli leggur orð í belg um framleiðslufyrirtæki sem standa ekki í skilum og potar svo í séríslenskt fyrirkomulag sem eflaust einhverjir þekkja sem "running lunch".

    flest atli drengirnir
    53. Þáttur - 2023 í hnotskurn

    Play Episode Listen Later Jan 22, 2024 70:29


    Þunglyndasti dagur ársins og mikil gleði! Talað er um vinnuálag síðasta árs og vonir og drauma þess nýja... Atli er loksins byrjaður að skrifa lokaritgerðina sína á meðan Elías lýsir ferli sínu við að endurskrifa kvikmynd.

    52. Þáttur - Minning um sól

    Play Episode Listen Later Jan 22, 2024 62:50


    „Nei sko! Ætli það séu ekki afleiðingar gjörða minna?“ Rúmu hálfu ári síðar ákveður Atli að girða sig í brók og klippa þáttinn. Sem þá var stútfullur af ferskum umræðum og sumargleði en er nú orðin sorgleg minningarsúpa um sól sem einhverntíman skein. Ókei. Þetta er kannski ekki alveg svona hádramatískt... Við erum allavega mættir aftur!

    51. Þáttur - Þurrkur

    Play Episode Listen Later May 19, 2023 57:24


    Það var ekki lengi kalt á toppnum hjá Atla & Elíasi eftir mikilfenglegt LIVE EXTRAVAGANZA. Hér ræðum við þurrk og dali í verkefnum okkar, sem alltof margir geta kannski tengt aðeins við. Því miður. En engar áhyggjur! Atli er búinn að gera fullt í dag!

    50. Þáttur - Afmælisþáttur í Bíó Paradís í beinni (á þeim tíma)

    Play Episode Listen Later May 12, 2023 99:55


    Strákarnir eru í sannkölluðu afmælisstuði enda er þetta FIMMTUGASTI þátturinn af Atla & Elíasi. Vá... Þeir fá til sín góða gesti í sérstakan live þátt í Bíó Paradís í samvinnu við Stockfish kvikmyndahátíðina. Tommi Valgeirs kvikmyndagagnrýnandi með meiru og Einar Pétursson (eftir allt saman EKKI eini hlustandi þáttarins) heiðra drengina og áhorfendur með nærveru sinni. Bjór og gleði, fjórir míkrafónar, live áhorfendur og versta martröð klipparans*. *Það skal tekið fram að eftir rúman mánuð og vægt taugaáfall Atla við eftirvinnslu þáttarins bauðst Tommi Valgeirs af einskærri góðmennsku til að klippa þáttinn. Sem hann gerði á listilegan hátt. Ef þið sjáið hann, í guðanna bænum gefið honum knús!

    49. Þáttur - Tölvuleikir, Svörtu Sandar & Leyndarmál

    Play Episode Listen Later Feb 18, 2023 100:42


    ALDÍS AMAH HAMILTON sest niður með okkur og ræðir þá marga bolta sem hún heldur á lofti, en nú er hún í miðjum skrifum á SVÖRTU SANDAR II

    48. Þáttur - Árið sem kom of seint

    Play Episode Listen Later Feb 10, 2023 75:53


    Atli klippti. Þið vitið hvað það þýðir. Allt sem við tölum um í þættinum eru úreltar fréttir. En þó ná drengirnir að kreista út góðum þætti þar sem farið er yfir bestu hluti sem gerðust á árinu og markmið fyrir árið í ár. Þeir deila fræðandi áhorfstölum um hlustendur þáttarins, Elías kveður langt verkefni og rekur sig á í nýju handritaherbergi og Atli leggur niður næstu skref framleiðsluferilsins.

    47. Þáttur - Logi Staðgengill

    Play Episode Listen Later Dec 23, 2022 78:51


    Atli & Elías tala um nýjar reynslur af setti, annar sem staðgengill og hinn sem allt á milli himins og sjávar. Óh! Og Robbi ljósamaður (með meiru) hringir óvart inn.

    46. Þáttur - & Baldvin fokking Zeta

    Play Episode Listen Later Aug 18, 2022 111:15


    Loksins loksins loksins bjóðum við hinum umtalaða Baldvini Z í hlaðvarpið! Leikstjóri, trommari, hraðskákmeistari á Akureyri í unglingaflokki og skítsæmilegur golfari en fyrst og fremst gamall og góður vinur. Við förum um víðan völl og ruglum saman ártölum, kvikmyndum og Line Producerum í þessari epísku yfirferð um gamla tíma, framtíðina og jaðarinn þar á milli.

    45. Þáttur - Cannes prógram ungra framleiðanda

    Play Episode Listen Later Jun 29, 2022 108:58


    Djöfullega langur þáttur (sem á það alveg skilið) um prógram ungra famleiðanda á Cannes Film Festival sem Atli tók þátt í. Margt annað er rætt en hér er þetta prógram eins og það leggur sig. Hinn almenni Einar Pétursson lærir allt sem Atli lærði í þessu prógrami við það að hlusta á þennan þátt.

    44. Þáttur - Vegurinn til Cannes er olíuborinn

    Play Episode Listen Later May 17, 2022 75:44


    Mögulega er kominn tími til að horfast í augu við að þetta sé mánaðarlegt podcast en ekki vikulegt. Fyrsta skrefið í átt að betrun er að viðurkenna vanmátt sinn (eða svo höfum við allavega heyrt). Atli er á leiðinni á kvikmyndahátíðina í Cannes og Elías segir okkur loksins frá seríunni sinni sem hafa prýtt innantóm loforð hans síðastliðna mánuði (er annað skrefið ekki annars að bæta upp fyrir gjörðir sínar?). Verkefni Elíasar hlýtur Eddutilnefningu og gullkorn dagsins snúa að stórvægilegu smygli húsmæðra í Fossvoginum.

    43. Þáttur - Ungur framleiðandi á Cannes

    Play Episode Listen Later Apr 6, 2022 55:06


    Atli var valinn á námskeið ungra framleiðanda á kvikmyndahátíðinni í Cannes og við hringjum í Dag Benedikt leikstjóra, ljósamann og handritshöfund og spyrjum hann spjörunum úr en hann sótti sama prógramm 2018. Einnig ræðum við Stockfish og misheppnaða tilraun Elíasar við að koma vel fram í útvarpsviðtali. Til að toppa þetta fer Atli með undurfagurt ljóð í Gullkornum dagsins. PS. Því miður fundum við ekki þáttinn sem við vitnum í, um Berlinale shooting stars prógramið hans Atla, en það er vegna þess að við erum ömurlegir í að skrifa nákvæmar lýsingar á hverjum þætti eins og við erum að skrifa hér.

    42. Þáttur - Engin þöggun í skúrnum

    Play Episode Listen Later Mar 10, 2022 65:51


    Drengirnir hittast aftur eftir langa fjarveru. Atli talar EKKI um vinnutörn sem hann var að ljúka við hjá Truenorth en heit umræða á Facebook-síðu kvikmyndagerðarfólks er krufin til mergjar. Hvað er til bragðs ef verkefnið manns er sett á ís?

    41. Þáttur - Sá úrelti

    Play Episode Listen Later Mar 4, 2022 67:07


    Tekinn upp á óræðum tíma í janúar en gefinn út í mars. Þetta gæti verið nýtt met í frestunaráráttu Atla. En hann er þó með ágæta afsökun í þetta skiptið. Verbúðin, Svörtu Sandar og svo margt margt fleira.

    40. Þáttur - 2021 í hnotskurn

    Play Episode Listen Later Dec 13, 2021 79:03


    Við horfum aftur til Janúar 2021, og veltum fyrir okkur hvernig ár við sáum fyrir okkur í samanburði við það ár sem við fengum. Persónulegri þáttur svona rétt fyrir jól, og örlítil sjálfsást sem fylgir því að lesa lítil fanmail sem barst okkar -- Það í samanburði við póst sem Atli fékk frá stalker þegar Órói var ný og vinsæl mynd.

    39. Þáttur - Labbaðu upp á þetta fjall

    Play Episode Listen Later Dec 3, 2021 69:41


    Drengirnir eru komnir aftur eftir alltof langa pásu. Elías hefur ferðast heimshorna á milli og smitaðist af Covid fyrir vikið á meðan Atli mætti seint á fyrirlestur Kvikmyndamiðstöðvar um umsóknarferlið þeirra. Strákarnir drulla EKKI yfir Ófærð og Atli segir frá erlendu tökuteymi sem gjörsamlega gekk frá honum.

    38. Þáttur - RIFF '21: Blaðamannapassinn

    Play Episode Listen Later Oct 13, 2021 68:30


    Alþjóðlega kvikmyndahátíð Reykjavíkur er í fullu fjöri á meðan við tókum upp þennan þátt, Eddu-styttur ársins búnar að finna sín heimili, og Atli og Elías eru aftur komnir í þægilegri stöðu bara tveir. Engir gestir. Bara þægindi.

    37. Þáttur - Ninna Pálma, Áratugur í bransanum

    Play Episode Listen Later Oct 5, 2021 59:51


    Leikstýran Ninna Pálmadóttir fór strax að vekja athygli þó hún væri enn ekki útskrifuð úr Tisch School of the Arts með myndunum sínum Blaðberinn og Allir hundar deyja. En hún vann bæði Edduna og RIFF fyrir Blaðberann. Við ræðum við Ninnu um uppkomu hennar í bransanum og yfirþyrmandi drauma um að verða leikstjóri sama hvað það kostaði.

    36. Þáttur - Birna Rún, Eddustyttur og stuttmyndir

    Play Episode Listen Later Sep 13, 2021 71:52


    Leikkonan Birna Rún Eiríksdóttir tekur að sér fyrsta gesta hlutverk hjá okkur eftir að Covid tók yfir, og hún veit margt um það að vera inní, útúr, og við jaðarinn á kvikmyndabransanum á Íslandi -- og þau Atli bera saman Eddu-upplifanir sínar. Bónus topic um stuttmynda-skriftir og strúktúr í lokin!

    35. Þáttur - Einar Pétursson

    Play Episode Listen Later Jul 31, 2021 59:34


    Drengirnir uppgötva tæknina til að hringja í fólk í miðjum þætti og auðvitað nýta þeir nýfengna krafta sína hóflega og aðeins til góðs..

    einar drengirnir
    34. Þáttur - Ekki vera hálfviti á setti

    Play Episode Listen Later Jul 9, 2021 69:19


    Í dag ræðum við toxic hegðun á kvikmyndasettum, og segjum hvað okkur fannst um KÖTLU á Netflix.

    33. Þáttur - Handritateymið í Skuggahverfinu

    Play Episode Listen Later Jun 28, 2021 64:43


    Fyrir langa löngu tóku drengirnir upp þátt. En svo komu afléttingar og allir duttu í það í marga marga daga. Okkur rámar í að þessi þáttur fjalli um Shadowtown sem Atli leikur í og svokallað writer's room sem Elías var ráðinn í á dögunum.

    32. Þáttur - Stútfullur þáttur með tannpínu

    Play Episode Listen Later Jun 3, 2021 65:52


    Atli gerist svo brattur að segjast vera með alveg stútfullan þátt í dag. Hann fjallar um styrkveitingu handritasjóðs KMÍ, stuttmyndakeppni Stockfish, áhugaverða umræðu á Kvikmyndagrúppu Facebook, nýja íslenska streymiveitu, og fleira var það ekki. Nema ein sársaukafull saga frá tannlækninum.

    31. Þáttur - Sellát á Skriðuklaustri

    Play Episode Listen Later May 24, 2021 62:17


    Elías snýr aftur til siðmenningar og ræðir um listamannasetrið á Skriðuklaustri þar sem hann dvaldi í mánuð. Atli reynir sitt besta til að fela biturleika sinn gagnvart Eddunni og drengirnir tilkynna stórar breytingar á umgjörð hlaðvarpsins.

    30. Þáttur - Tónlistarmyndbönd 101

    Play Episode Listen Later Mar 31, 2021 52:36


    Í vikunni ræðum við framleiðslu tónlistarmyndbanda og fögnum þrítugasta þættinum af Atla & Elías!

    29. Þáttur - Íslensk framleiðsla 2021

    Play Episode Listen Later Mar 15, 2021 63:40


    Í vikunni er farið yfir úthlutanir úr Kvikmyndasjóði til að sjá við hverju megi búast í íslenskri framleiðslu yfir árið.

    28. Þáttur - Blái máninn & Opalferðin

    Play Episode Listen Later Mar 8, 2021 58:13


    Strákarnir ræða sín allra fyrstu verkefni, sem flest enduðu ofan í skúffu, en kenndu þeim þó margt.

    27. Þáttur - Samningaviðræður 101

    Play Episode Listen Later Feb 1, 2021 54:07


    Í þessum þætti förum við út í það sem við höfum lært að passa okkur á þegar skrifað er undir samninga fyrir ný verkefni. Eða reynum að gera það að minnsta kosti.

    26. Þáttur - Zen í seinni tíð

    Play Episode Listen Later Jan 26, 2021 53:31


    Drengirnir ræða horfur til ársins 2021, erfiða ráðgjafa hjá kvikmyndamiðstöð og það stefnulausa ráf sem þessi þáttur er.

    seinni drengirnir
    25. Þáttur - Í mynd með George Clooney

    Play Episode Listen Later Jan 11, 2021 69:48


    Atli lék í kvikmyndinni THE MIDNIGHT SKY, sem er fáanleg á Netflix og við ræðum hans ferli í þeirri mynd ásamt öðrum gersemum sem komu út á árinu.

    24. Þáttur - Comeback Atla

    Play Episode Listen Later Sep 17, 2020 69:29


    "Þú getur kallað það comeback en hann fór bara í skóla". Strákarnir fara yfir þann aragrúa íslenskra verkefna á árinu og ræða um þau sem hljóma mest spennandi.

    23. Þáttur - Framleiðslustyrkir stuttmynda 101

    Play Episode Listen Later Aug 14, 2020 66:43


    Elías spyr Atla spjörunum úr varðandi ferlið að sækja um framleiðslustyrk stuttmynda hjá Kvikmyndasjóði Íslands.

    22. Þáttur - Einkamál, opnist ekki

    Play Episode Listen Later Jul 22, 2020 63:49


    Drengirnir eru töluvert undirbúnari í þetta skiptið en hætta sér kannski of langt yfir opinberunarlínuna. Því ætti enginn að hlusta á þennan þátt. Þökkum skilninginn.

    ekki drengirnir
    21. Þáttur - Kompan opnar aftur!

    Play Episode Listen Later Jul 8, 2020 61:50


    Nú hefur kompan opnað aftur og Atli & Elías hafa snúið aftur og vita ekkert hvað þeir eiga að tala um, rétt eins og venjulega.

    20. Þáttur - Einir heima

    Play Episode Listen Later Apr 5, 2020 62:09


    Í þessum sérkennilega þætti reyna Atli & Elías að taka upp í sitthvoru lagi. Strákarnir ræða vinnuhagræðingar sínar á tímum veirunnar og áhrif ástandsins á kvikmyndagerð í heild.

    19. Þáttur - 2019 í hnotskurn

    Play Episode Listen Later Dec 17, 2019 60:53


    Atli og Elías eru í jólaskapi, með jólabjór, og þræða síðasta ár saman, en gaman!

    18. Þáttur - Vigfús Þormar um leikaraval og Bergmál

    Play Episode Listen Later Nov 27, 2019 75:02


    Vigfús Þormar Gunnarsson kíkir í heimsókn og tekur stórskemmtilegt spjall um sinn feril og fyrirtæki sitt Doorway Casting, sem hefur séð um leikaraval í mörgum af stærri verkefnum landsins síðustu ár.

    17. Þáttur - Viktor Bogdanski um bókhald

    Play Episode Listen Later Nov 20, 2019 47:32


    Viktor Bogdanski sem að heldur námskeið um bókhald í kvikmyndagerð sest niður með okkur.

    16. Þáttur - Davíð Már skrifar Kötluseríu

    Play Episode Listen Later Nov 12, 2019 68:20


    Davíð Már Stefánsson handritshöfundur kíkir í heimsókn og spjallar um vinnu sína við nýjustu sjónvarpsseríu Baltasars Kormáks, sem gerist einu ári eftir að Katla gýs. Óvæntur gestur hringir inn og er mikið niðri fyrir. Strákarnir skúbba leiðindamáli úr bransanum sem gæti leitt til málaferla.

    15. Þáttur - Atli & Elías í 10 ár

    Play Episode Listen Later Oct 24, 2019 58:34


    Í dag eru 10 ár liðin síðan tökum hófst á kvikmyndinni ÓRÓI, en þar kynntust Atli og Elías. Hér þræða þeir í gegnum þau verkefni sem aldrei komu út, en á sama tíma mynduðu það vinasamband sem bjó til þetta forláta hlaðvarp.

    Reykjavík Creative Hub: Lilja Ósk & Anton Máni

    Play Episode Listen Later Oct 19, 2019 91:08


    14. Þáttur - Margt og Appelsín

    Play Episode Listen Later Oct 10, 2019 56:09


    13. Þáttur - Atli & Viktor smíða stuttmynd

    Play Episode Listen Later Sep 17, 2019 79:32


    Strákarnir fá til sín góðan vin, Viktor Sigurjónsson, sem ræðir samstarf sitt og Atla í gegnum ferlið að gera heila stuttmynd. Lífið á Eyjunni.- Umsagnir um Viktor -"Very unpleasant to work with"

    12. Þáttur - Aðstandendur RVK Creative Hub

    Play Episode Listen Later Sep 9, 2019 56:56


    Aðstandendur Reykjavík Creative Hub í IÐNÓ svara sínum eigin spurningum sem þau Baldvin Z og Silja Hauksdóttir fengu þann 18.Ágúst, og þá með heilum helling af útúrsnúningum!

    Reykjavík Creative Hub: Baldvin Z & Silja Hauksdóttir

    Play Episode Listen Later Sep 2, 2019 98:28


    Upptaka frá IÐNÓ, þann 18.Ágúst 2019, pallborðsumræður með kvikmyndaleikstjórum.

    11. Þáttur - Þorsteinn Bachman man aldrei hver ég er

    Play Episode Listen Later Aug 27, 2019 54:03


    Einn heitir Atli, hinn heitir Elías, og ræða þeir opinskátt um það að vera inni, útúr, og við jaðarinn við kvikmyndabransann á Íslandi.

    10. Þáttur - VFX & Skapandi Hittingur í IÐNÓ

    Play Episode Listen Later Aug 17, 2019 61:56


    9. Þáttur - Tónlistarleyfi í kvikmyndum & RIFF (eða: Myrkvi 2)

    Play Episode Listen Later Jul 17, 2019 63:35


    8. Þáttur - Nákvæmlega ekki neitt

    Play Episode Listen Later Jul 9, 2019 43:05


    Claim Atli & Elías

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel