POPULARITY
Rappararnir Blaffi og Jói Dagur kíktu til Hafsteins til að fara í skemmtilegan leik. Hafsteinn samdi tíu fullyrðingar sem hann varpaði á sjónvarpið í stúdíóinu. Strákarnir skiptust síðan á því að segja hvort fullyrðingin væri rétt eða röng. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvernig Blaffi myndi lemja Ghostface en myndi líklegast vera stútað af Michael Myers, hversu mikið Jói Dagur elskar The Big Lebowski, hvort Omni-Man gæti drepið Superman, hvort Samuel L. Jackson sé svalari en Denzel Washington og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Snævar Sölvi Sölvason er kvikmyndagerðarmaður sem hefur gert indie kvikmyndir á borð við Albatross og Eden. Snævar er nýbúinn að gera sjónvarpsseríu fyrir RÚV sem heitir Skaginn en serían fjallar um fótboltalið ÍA og þeirra sigurgöngu á árunum 1992 til 1996. Snævar kíkti til Hafsteins til að ræða seríuna og íþróttamyndir. Strákarnir ræða meðal annars myndirnar Happy Gilmore, The Wrestler, Raging Bull, Any Given Sunday, Free Solo og margar aðrar. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Rapparinn Kilo er einn af fastagestum Bíóblaðurs og einn sá vinsælasti. Stærri og skemmtilegri persónuleika er erfitt að finna og Hafsteinn var því spenntur að fá hann aftur í heimsókn. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hver er versta streymisveitan, hvaða mynd strákarnir ættu að horfa á saman í fyrsta commentary þætti Bíóblaðurs, hversu mikil áhrif Erika Eleniak hafði á þá þegar þeir voru unglingar, hvort Invincible sé betri en The Boys, hversu gamlir strákarnir eru orðnir, Blue Eye Samurai og hversu sturluð sú sería er og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Hrafnkell Hugi er tónlistarmaður og mikill kvikmyndaáhugamaður. Hrafnkell er meðlimur hljómsveitarinnar Celebs en hljómsveitin tók þátt í undankeppni Eurovision fyrr á árinu með laginu sínu Dómsdags Dans. Keli kíkti til Hafsteins í fjölbreytt og skemmtilegt bíóspjall. Í þættinum ræða þeir meðal annars Conan the Barbarian, Marvel og DC, hvernig kvikmyndaiðnaðurinn hefur breyst, möguleg áhrif A.I. á listgreinar, Pixar og teiknimyndir, af hverju í ósköpunum Uwe Boll fær ennþá að gera bíómyndir og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða Mission Impossible kvikmyndaseríuna. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir Mission Impossible, Mission Impossible II, Mission Impossible III og Mission Impossible: Ghost Protocol. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða Mission Impossible kvikmyndaseríuna. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir Mission Impossible: Rogue Nation, Mission Impossible: Fallout og Mission Impossible: Dead Reckoning. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndaáhugamennirnir Gummi Sósa, Oddur Klöts og Kristinn Reyr kíktu til Hafsteins til að ræða einn skemmtilegasta hryllingsmyndaleikstjóra allra tíma, John Carpenter. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars hversu mikið meistaraverk The Thing er, hvort The Fog sé jafngóð og Jaws, hversu klikkuð In the Mouth of Madness er, hversu leiðinleg The Ward er, hvort hægt sé að kalla Carpenter B-mynda leikstjóra, hversu góð Cigarette Burns hefði verið ef hún hefði verið í fullri lengd og margt, margt fleira. Þátturinn er 2 klukkutímar. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
Kvikmyndaáhugamennirnir Gummi Sósa, Oddur Klöts og Kristinn Reyr kíktu til Hafsteins til að ræða einn skemmtilegasta hryllingsmyndaleikstjóra allra tíma, John Carpenter. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars hversu leiðinleg Halloween er, hvort They Live sé virkilega góð eða ekki, hversu töff James Woods er í Vampires, hversu mikið Gummi hatar Village of the Damned, hvort Ghosts of Mars sé lélegasta Carpenter myndin og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Lovísa Lára er uppistandari, kvikmyndagerðarkona, hlaðvarpsstjórnandi og stofnandi hryllingsmyndahátíðarinnar, Frostbiter. Lovísa er mikill hryllingsmyndaaðdáandi og Hafsteini fannst því upplagt að fá hana til sín í október og ræða alls konar hrylling við hana. Í þættinum ræða þau meðal annars true crime podcöst, fjöldamorðingja og mannlegt eðli, heitustu hryllingsmynd ársins Talk to Me, af hverju hryllingsmyndir eru svona skemmtilegar, ást Lovísu á Evil Dead kvikmyndaseríunni, hversu átakanleg Martyrs er, hversu mikið Lovísa elskar Peter Jackson og hans eldri splatter myndir og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Kvikmyndaáhugamennirnir Jökull Jónsson, Pétur Ragnhildarson og Hörður Ásbjörnsson kíktu til Hafsteins til að ræða eina merkilegustu slasher seríu allra tíma, Friday the 13th. Friday the 13th serían er auðvitað þekktust fyrir að hafa kynnt heiminum fyrir fjöldamorðingjanum Jason Voorhees og strákarnir kafa djúpt í þessa seríu og ræða allar tólf myndirnar. Í þessum fyrri hluta ræða þeir meðal annars fyrstu sex myndirnar í seríunni, hvernig kvikmyndaeftirlit Bandaríkjanna lét klippa margar af þessum myndum, hver er þeirra uppáhalds Friday mynd, hver er versta myndin, hversu vel heppnuð fyrsta myndin er sem ódýr hryllingsmynd, hvers vegna slasher myndir eru skemmtilegar og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Imma Helga er áhættuleikari, MMA keppandi og margfaldur Íslandsmeistari í hnefaleikum. Hún hefur unnið mikið við áhættuleik síðastliðin ár en stunt bransinn á Íslandi hefur stækkað gríðarlega á stuttum tíma. Imma Helga hefur bæði unnið mikið við íslenska kvikmynda/sjónvarpsþátta framleiðslu en einnig hefur hún tekið þátt í erlendum verkefnum sem hafa verið tekin upp hér á landi. Imma kíkti til Hafsteins og sagði honum meðal annars frá sínum bakgrunni í bardagaíþróttum, hver er besta sjálfsvörnin, hvernig hún hefur sérhæft sig sérstaklega í háum föllum, þegar hún slasaðist mikið við tökur á hryllingsmyndinni Dead Snow 2, hversu gott er að vinna með Jóni Viðari en þau reka fyrirtækið Icelandic Stunts saman og hversu flottur áhættuleikari Jackie Chan er. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Bjarki Ómarsson, betur þekktur sem Bomarz, er tónlistarmaður og upptökustjóri. Bomarz er einnig mikill kvikmyndaáhugamaður og hann kíkti til Hafsteins í fjölbreytt og skemmtilegt spjall um bíómyndir og sjónvarpsþætti. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Christopher Nolan sé ofmetinn leikstjóri, hversu leiðinleg Oppenheimer er, hvort James Bond eigi að vera ljóshærður, af hverju Batman myndirnar gerast alltaf í nútímanum, hvort Friends sé betri sería en Seinfeld, hvernig poppbransinn hefur þróast, hversu mikið Bomarz elskar 80's myndir og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndanördarnir Helgi, Haukur og Patrekur eru rosalegir Spider-Man aðdáendur og þeir kíktu til Hafsteins til að ræða þennan merkilega karakter. Í þessum þætti er einblínt á Tobey Maguire Spider-Man myndirnar en Hafsteinn stefnir á að gera sér þætti fyrir Andrew Garfield og Tom Holland. Í þessum þætti ræða strákarnir meðal annars hversu gamall Tobey var þegar hann lék í fyrstu myndinni, hversu frábær Willem Dafoe er sem Green Goblin, hversu vel Spider-Man 2 sýnir hversu stressandi það væri að vera ofurhetja eins og Spider-Man, Alfred Molina og hans frammistöðu sem Doc Ock, hvernig Raimi hefði mögulega getað nýtt Kristen Dunst betur sem Mary Jane, hversu gölluð en skemmtileg Spider-Man 3 er, hvernig Topher Grace stóð sig sem Eddie Brock/Venom og margt, margt fleira. Þátturinn er rétt tæpir 3 klukkutímar. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
Christopher Nolan er einn merkilegasti og vinsælasti kvikmyndagerðarmaður okkar tíma. Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki, Máni Freyr og Teitur Magnússon kíktu til Hafsteins til að ræða Nolan og hans kvikmyndir. Í þessum fyrsta hluta ræða þeir meðal annars hvað það er sem einkennir Nolan sem leikstjóra, hversu vel heppnuð Oppenheimer var, hvort Tenet sé góð eða slæm mynd, hversu mikilvæg persónusköpun er í kvikmyndum, hvernig Cillian Murphy stóð sig sem Oppenheimer og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Jason Thompson is a tattoo artist and the owner of Black Kross Tattoo, a tattoo shop in Kópavogur. Jason is originally from Ohio but has lived in Iceland for almost 20 years with his wife and kids. Jason is not only an artist but he is also a self-described “Movie Ninja”. Jason wrote down his ten favorite movies and shared them with Hafsteinn. Among the things the guys talk about is Jason's background, the time when he decided to leave America and move to Iceland, his time living in the deep South, his love for Martin Scorsese, how cool Jason Statham movies are (apart from the Meg), how Joe Pesci is the acting gift that keeps on giving, how Jason doesn't enjoy movies that make him sad or make him think, his love for Quentin Tarantino movies and much, much more. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Óli Bjarki kíkti til Hafsteins til að ræða eina bestu sjónvarpsseríu allra tíma, Succession. Succession kemur frá HBO og hefur unnið til margra verðlauna. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvort þetta séu bestu þættir sem hafa verið framleiddir, húmorinn í þáttunum, hversu gott tvíeyki Tom og Greg eru, Jeremy Strong og hans frammistöðu sem Kendall Roy, hvernig Óla fannst endirinn vera, hvort það hefði verið sniðugt að halda áfram og gera seríu 5, Brian Cox og hans frammistöðu sem Logan Roy og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Skúli Júlíusson er vinur Hafsteins og mikill kvikmyndaáhugamaður. Skúli kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Steven Seagal sé í alvörunni töff gaur, hversu sturluð Prisoners er, hvort Skúli eigi eftir að klára allar Succession seríurnar, Denzel Washington og hans frammistöðu í Training Day, ást Skúla á Reservoir Dogs, hversu mikið Skúli elskar The Shining og margt, margt fleira. Þátturinn er 103 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
Fyrir nokkrum mánuðum stofnuðu Hafsteinn og Jóhann Leplat Ágústsson, í samstarfi við Sambíóin Kringlunni, bíóklúbbinn Bíótöfra. Klúbburinn sýnir eldri og klassískar kvikmyndir einu sinni í mánuði í Sal 1 í Sambíóunum Kringlunni. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvernig þeim fannst þessar fyrstu fimm sýningar hafa gengið, hvað er framundan, hvaða kvikmynd væri þeirra draumakvikmynd að sýna og margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Leikkonan og samfélagsmiðlastjarnan Donna Cruz kíkti til Hafsteins með sinn topp 10 lista. Í þættinum ræða þau meðal annars Tucker and Dale vs. Evil, Flipped, Grand Budapest Hotel, Spirited Away, sjónvarpsseríuna From, hversu æðislegur Tom Hiddleston er, hvort það sé í lagi að horfa á döbbaðar myndir, hvort það sé í lagi fyrir kvikmyndanörda að fara ekkert í bíó í þrjá mánuði, hversu skemmtileg She's the Man er og margt, margt fleira. Þátturinn er 99 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða nýjustu Indiana Jones myndina, The Dial of Destiny. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort myndin sé algjört klúður, hversu illa/vel James Mangold stóð sig, hversu illa/vel Kathleen Kennedy hefur staðið sig eftir að hún tók við Lucasfilm, hvort það hafi verið sniðugt að de-age-a Harrison Ford, hvort það hefði verið sniðugra að fara aðra leið með söguna og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Kári Trevor og Patrekur Thor eru ungir og spennandi kvikmyndagerðarmenn en strákarnir hafa í sameiningu gert nokkrar stuttmyndir og stefna á að gera kvikmynd í fullri lengd. Þeir kíktu til Hafsteins til að ræða Edgar Wright og hans myndir. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir myndirnar Scott Pilgrim vs. The World, Baby Driver og Last Night in Soho. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Kári Trevor og Patrekur Thor eru ungir og spennandi kvikmyndagerðarmenn en strákarnir hafa í sameiningu gert nokkrar stuttmyndir og stefna á að gera kvikmynd í fullri lengd. Þeir kíktu til Hafsteins til að ræða Edgar Wright og hans myndir. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir hinn svokallaða Cornetto þríleik en það eru myndirnar Shaun of the Dead, Hot Fuzz og The World's End. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Sjómaðurinn Anthony Evans Berry, leikarinn Hansel Eagle og matgæðingurinn Snorri Guðmundsson kíktu til Hafsteins til að ræða eina þekktustu kvikmyndaseríu allra tíma, Lethal Weapon. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hver er besta Lethal Weapon myndin, hversu miklar bíómyndalöggur Riggs og Murtaugh eru, hversu gott chemistry er á milli Gibson og Glover, Rene Russo og hennar innkomu í Lethal Weapon 3, hvort einhver annar en Joe Pesci hefði getað leikið Leo Getz, hversu svalur Jet Li er sem vondi kallinn í Lethal Weapon 4 og margt, margt fleira. Þátturinn er 145 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
Í tilefni þess að HBO hefur gefið út risa seríurnar Game of Thrones og House of the Dragon, þá datt Hafsteini í hug að fjalla aðeins um þennan merkilega heim. Fire and Blood er skáldsaga eftir George R.R. Martin sem fjallar um Targaryen fjölskylduna og hvernig hún náði völdum í Westeros. Aron Andri er mikill fantasíu áhugamaður og hefur lesið heilan helling af fantasíu bókum og Hafsteini fannst upplagt að fá hann til sín og ræða þessa risa bók. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars House of the Dragon seríuna, atburði sem gerast eftir fyrstu seríuna, hvað við munum mögulega sjá í næstu seríum og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki og Máni Freyr eru miklir Evil Dead menn og Hafsteini fannst því upplagt að fá þá til sín og ræða þessa fimm mynda seríu. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars hversu ódýr The Evil Dead var, hversu hræðilegt hárið á Bruce Campbell var í fyrstu myndinni, hvernig ungur Sam Raimi náði að gera svona kraftmikla mynd, hversu mikið Raimi var búinn að þroskast sem leikstjóri þegar hann gerði Evil Dead II, hversu áberandi það er að Evil Dead II var með betra handrit en fyrsta myndin og margt, margt fleira. Þátturinn er 96 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
Í tilefni þess að HBO hefur gefið út risa seríurnar Game of Thrones og House of the Dragon, þá datt Hafsteini í hug að fjalla aðeins um þennan merkilega heim. Fire and Blood er skáldsaga eftir George R.R. Martin sem fjallar um Targaryen fjölskylduna og hvernig hún náði völdum í Westeros. Aron Andri er mikill fantasíu áhugamaður og hefur lesið heilan helling af fantasíu bókum og Hafsteini fannst upplagt að fá hann til sín og ræða þessa risa bók. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars Aegon, fyrsta konung Westeros, syni hans Aenys og Maegor the Cruel, hversu öflugir drekarnir eru, Valyrian steel sverðin og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Ahd Tamimi er leikari sem hefur bæði leikið á sviði, í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Ahd lærði leiklist í Skotlandi en fyrir utan það að vinna í bransanum þá er Ahd líka grjótharður kvikmyndaáhugamaður. Hann kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá sínum bakgrunni og hvernig það var að læra leiklist í Skotlandi. Strákarnir ræða einnig Marvel, Woke fyrirbærið og gagnrýnina sem hefur fylgt því, hversu mikið Ahd elskar The Descent og Buffy the Vampire Slayer, hvort method leikur sé sniðugur og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Vinkonurnar Stella Björk Guðmundsdóttir og Lára Guðmundsdóttir eru miklir true crime aðdáendur og í kjölfarið byrjuðu þær með hlaðvarp sem kallast Morðaforði. Stelpurnar fjalla þar um alvöru fjöldamorðingja og önnur hryllileg mál. Hafsteinn fékk þær í heimsókn til sín til að ræða kvikmyndamorðingja og fá þeirra álit á þeim. Hafsteinn bjó til leik handa þeim þar sem Stella og Lára þurfa að gefa þekktum kvikmyndamorðingjum einkunn út frá því hversu ógnvekjandi þeim finnst þeir vera. Í þættinum ræða þau einnig Jeffrey Dahmer seríuna, Barbarian, Memories of Murder, Paradise Lost, hversu scary Jason Vorhees er, hvort Stella myndi treysta sér til að eiga Chucky dúkkuna og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndaáhugamaðurinn og 90's sérfræðingurinn Bjarni Thor kíkti til Hafsteins til að ræða nokkra 90's Gullmola. Strákarnir völdu 10 myndir á mann og skiptust á að rökstyðja sitt val. Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar The Siege, Cop Land, Red Rock West, Clifford, Split Second, Bordello of Blood, Fair Game og margar fleiri. Þátturinn er 180 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki, Máni Freyr og Teitur Magnússon kíktu til Hafsteins til að fagna hundrað ára afmæli Warner Bros. Í þættinum ræða strákarnir 70's, 80's, 90's, 00's og 10's Warner Bros myndir. Í þessum seinni hluta ræða þeir meðal annars myndirnar The Departed, Blade Runner 2049, Unforgiven, Man on the Moon, Mystic River og margar fleiri. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Dungeons & Dragons er spil sem flestir nördar hafa spilað eða í það minnsta heyrt um. Fyrr á árinu kom út kvikmyndin Dungeons & Dragons: Honor Among Thieves en myndin fékk frábæra dóma og vakti mikla athygli. Í tilefni þess þá datt Hafsteini í hug að fá til sín þrjá nörda til að útskýra spilið og söguna á bakvið það. Björn Elíeser, Sigurður Trausti og Davíð Máni eru miklir D&D áhugamenn og hafa þar að auki séð myndina. Í þættinum ræða þeir meðal annars reglurnar í spilinu, söguna á bakvið sjálft spilið, hversu lélegar gömlu myndirnar eru, hversu vel heppnuð nýja myndin er og margt fleira. Þátturinn er 140 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki, Máni Freyr og Teitur Magnússon kíktu til Hafsteins til að fagna hundrað ára afmæli Warner Bros. Í þættinum ræða strákarnir 70's, 80's, 90's, 00's og 10's Warner Bros myndir. Í þessum fyrri hluta ræða þeir meðal annars myndirnar Dirty Harry, Above the Law, The Exorcist, Never Say Never Again, Blade Runner og margar fleiri. Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Arnar Freyr Tómasson er kvikmyndaáhugamaður og kvikmyndagerðarmaður. Arnar hefur gert nokkrar stuttmyndir sem hafa vakið athygli og hann stefnir á í framtíðinni að gera kvikmynd í fullri lengd. Arnar mætti með topp 10 listann sinn til Hafsteins og þeir ræða hann í sameiningu. Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar Dune, Cars, The Amazing Spider-Man 2, Prisoners, Django Unchained og margar fleiri. Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndaáhugamennirnir Helgi Edwald Einarsson og Haukur Bjarnason kíktu aftur til Hafsteins og í þetta skiptið vildu strákarnir ræða lélegar myndir og góðar myndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar Battlefield Earth, Batman and Robin, La La Land, The Room, X-Men: First Class og Bullet Train. Þátturinn er 140 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Rögnvaldur Brynjar Rúnarsson er mikill kvikmyndaáhugamaður og hefur lengi vel fylgst með Bíóblaðri. Rögnvaldur kíkti til Hafsteins til að ræða nýjustu Evil Dead myndina, Evil Dead Rise. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hversu vel Alyssa Sutherland stendur sig sem Ellie, hversu gróf myndin er, hvort Rögnvaldur sé ánægður með þessa nýju stefnu sem framleiðendurnar byrjuðu með 2013 útgáfunni og margt, margt fleira. Þátturinn er 60 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
Marteinn Úlfur Gunnarsson er 22 ára gamall áhættuleikari sem hlotið hefur herþjálfun í Bandaríkjunum. Marteinn er einnig mikill kvikmyndaáhugamaður og hann mætti til Hafsteins með sinn topp 10 lista. Í þættinum ræða þeir meðal annars þessa miklu stríðsdellu sem Marteinn er með, hvernig herþjálfunin var, hvernig Marteinn endaði á að starfa sem áhættuleikari, hversu mikið hann elskar stríðsmyndir, hver er hans uppáhaldsbyssa sem hann hefur skotið úr, sverðið sem Marteinn á úr myndinni Kingdom of Heaven, af hverju sumir yfirmenn voru með Thompson vélbyssur í seinni heimsstyrjöldinni og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Framleiðandinn Björgvin Harðarson kíkti til Hafsteins með sinn topp 10 lista. Bjöggi og Hafsteinn hafa þekkst í 35 ár og Bjöggi er einn af fastagestum Bíóblaðurs. Bjöggi hefur samt aldrei komið í topp 10 þátt áður og Hafsteini fannst alveg tímabært að ræða uppáhalds myndirnar hans Bjögga. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvernig í ósköpunum Doc Brown og Marty McFly kynntust, hvort Saving Private Ryan sé besta stríðsmynd sem hefur verið gerð, hversu vel Seven eldist, hversu mikið Bjöggi elskar 90's myndir og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Sigurður Trausti Traustason er deildarstjóri safneignar og rannsókna hjá Listasafni Reykjavíkur og mikill áhugamaður um draugamyndir. Siggi er einnig einn af æskuvinum Hafsteins og Bíóblaðurs fastagestur. Siggi mætti með sinn topp 10 draugamyndalista en Siggi setti aðallega fókus á svokallaðar haunted house myndir. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars myndirnar The Conjuring, The Changeling, Housebound, House on Haunted Hill, The Shining og margar fleiri. Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Kvikmyndaáhugamaðurinn Guðmundur Bjarnason hefur lengi fylgst með Bíóblaðri og Hafsteinn var því spenntur að fá hann loksins til sín sem gest. Gummi mætti með sinn topp 10 lista og strákarnir fara yfir hann í sameiningu. Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar The Aviator, Mad Max: Fury Road, The Incredibles, Drive og Forrest Gump. Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Ritstjóri hun.is, Kidda Svarfdal, kíkti til Hafsteins til að ræða erótíska þrillera. Í þættinum ræða þau myndirnar Basic Instinct, Sliver, Jade og Color of Night en þessar myndir voru þó nokkuð vinsælar á tíunda áratugnum. Þau ræða einnig hversu mikill aldursmunur var á Michael Douglas og Sharon Stone í Basic Instinct, hversu hræðilegur söguþráðurinn er í Color of Night, hversu ágengur Tom Berenger var í Sliver, hversu algengar reykingar voru á þessum tíma, kynlífsatriðin, hvort svona myndir séu í rauninni eitthvað kynþokkafullar og margt, margt fleira. Þátturinn er 135 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
Kvikmyndaáhugamaðurinn Ásgeir Kolbeins er mikill John Wick aðdáandi og hann kíkti til Hafsteins til að ræða nýjustu John Wick myndina sem er nýkomin í bíó. Strákarnir ræða meðal annars hvort þessi mynd sé besta John Wick myndin, hversu sturlað topp skot atriðið er, hvað er uppáhalds atriðið hans Hafsteins í myndinni, hvort Reeves og Stahelski eigi eftir að gera númer 5 og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndaneminn Egill Andri er rosalegur The Last of Us aðdáandi og hann kíkti til Hafsteins til að ræða hina vinsælu HBO seríu sem hefur vakið mikla lukku meðal áhorfenda og gagnrýnenda. Strákarnir ræða einnig tölvuleikinn, The Last of Us Part II, hversu góð Pedro og Bella eru í sínum hlutverkum, hvort það hefði ekki mátt vera aðeins meiri hasar í seríunni, hvort peningurinn hafi klárast í síðasta þættinum, hversu góð aðlögun serían er og margt, margt fleira. Þátturinn er 130 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
Magnús Þorkell Bernharðsson prófessor í sögu Mið-Austurlanda við Williams-háskólann í Bandaríkjunum ræddi mótmælin í Íran, Katar og fleiri málefni Mið-Austurlanda. Íslendingar hefja keppni á heimsmeistaramóti karla í handbolta klukkan 19:30 í kvöld og fyrsti leikurinn er við Portúgal. Það er ?einu sinni sem oftar- talsverð bjartsýni um gott gengi íslenska liðsins. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður og fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta er í Svíþjóð og ræddi við okkur. Helgi Laxdal, fyrrverandi formaður Vélstjórafélags Íslands og fyrsti formaður sameiginlegs verkalýðsfélags vélstjóra og járniðnaðarmanna sem stofnað var 2006, hefur ritað margar greinar í sjómannablaðið Víking um síðutogara Íslendinga. Við töluðum við hann um þennan merka þátt í sjósóknarsögu Íslendinga, en alls eignuðust Íslendingar 137 síðutogara á 67 árum. Á morgun hefst norræn kvikmyndahátíð í Reykjavík, þar sem aðeins verða sýndar myndir eftir konur. Kolbrún Ýr Einarsdóttir og Lea Ævarsdóttir komu til okkar í lok þáttar. Umsjón: Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir Tónlist: You shook me - Jeff Beck Baraye - Shervin Hajipour Sakta vi går genom stan - Edda Magnason

Kaffi, helgin rædd, Kvikmyndir, Gunnþór, hlustendur á Facebook og allt hitt
Hringadróttinssaga eftir J.R.R. Tolkien hefur ekki verið fáanleg í íslenskri þýðingu um árabil. Í þætti dagsins reynum við að komast að því hvað veldur því að þessar geysivinsælu bækur eru horfnar úr bókabúðum hér á Íslandi. Guðrún Elsa Bragadóttir, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar lá andvaka yfir nýjum lista, frá Sight and Sound yfir bestu myndir allra tíma. Hún veltir fyrir sér tilgangi slíkra lista, fyrir hvern þeir eru gerðir og hvaða hugmyndum, fagurfræði og hópum þeir hampa. Listinn hefur komið út með 10 ára fresti frá því árið 1952, þannig að þetta er alltaf svolítill viðburður. Nýi listinn hefur vakið miklar umræður vegna þess að það eru óvenju miklar breytingar á honum síðan síðast, meiri fjölbreytileiki og mynd eftir konu í fyrsta sæti. Bandaríska tónlistarkonan SZA hefur látið aðdáendur sína bíða lengi eftir nýrri plötu en komin eru 5 ár síðan platan CTRL kom út. Platan SOS kom út þann 9. desember síðastliðinn, og SZA syngur einlægt og opinskátt um mótsagnakenndan veruleika ungra sjálfstæðra kvenna.

Við kunnum vel að meta græna nýsköpun hér í morgunútvarpinu. Malbiksstöðin og Sorpa hafa gert með sér samning um kaup Malbikstöðvarinnar à milljón rúmmetrum af metan sem notað til að framleiða malbik í staðinn fyrir olíu. Vilhjálmur Þór Matthíasson framkvæmdastjóri og eigandi Malbikstöðvarinnar var á línunni. Bíótekið er heiti á röð kvikmyndasýninga og viðburða sem Kvikmyndasafn Íslands stendur fyrir og hefst í Bíó Paradís um helgina. Hulda hitti Ester Ásgeirsdóttur verkefnisstjóra hjá Kvikmyndasafninu og fékk að vita meira um Bíótekið og starfsemi Kvikmyndasafnsins. Við ræddum við Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra í gær og þar bar á góma möguleikinn að lögreglan tæki upp notkun rafbyssa, eða svokallaðra tazera sem einhverskonar millistig vopns á milli skotvopns og kylfu. Amnesty International hefur lagst gegn notkun opinberra aðila á rafbyssum og meðal annars talað um sársaukaiðnað. Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Amnesty á Íslandi, kom til okkar. Við renndum svo yfir það sem hæst bar í fréttum vikunnar með þeim Auði Tinnu Arinbjarnardóttur lögmanni og Davíð Þorlákssyni framkvæmdastjóra . Nú þegar skemmtanalífið fer að taka á sig eðlilega mynd fara leigubílaraðirnar í miðborginni einnig að lengjast og margir hugsa hlýlega til næturstrætó sem hefur legið í dvala frá upphafi kórónuveirufaraldursins. Við ræddum við Sindra Frey Ásgeirsson, forseta Umhverfis- og samgöngunefndar Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Samtök evrópska kvikmyndahúsa hafa valið íslensku kvikmyndina Berdreymi, eftir leikstjórann Guðmund Arnar Guðmundsson, sem bestu evrópsku kvikmyndina í Panorama flokki kvikmyndahátíðarinnar í Berlín þar sem hún var frumsýnd á föstudag. Guðmundur kom til okkar. Tónlist: Slow me down - Bergrós Girls on film - Duran Duran Rocky trail - Kings of Convenience Stórir hringir - Írafár Beautiful life - Michael Kiwanuka Ready or Not - Fugees Mess it up - Quarashi Do it To it - Cherish