POPULARITY
Leikstjóri, höfundur, klippari og framleiðandi (og jújú, landsliðsmaður í fótbolta en hver er það ekki?) Hannes Þór Halldórsson kíkir til okkar í spjall niður í Kompu. Þrír prúðir drengir og þrír bjórar á mann. Við ræðum IceGuys, Leynilögguna, Séð&Heyrt og Óróa og allt þar á milli nema það að verja víti frá Lionel Messi -- Í staðinn verjum við tíma okkar í að ræða DVD safnið hans á skrifstofu Atlavík.
Leikkonan Vivian Ólafsdóttir lék eitt aðalhlutverkanna í grín/spennumyndinni Leynilöggan árið 2021 og lék aðalhlutverkið í hryllingsmyndinni It Hatched sem kom út árið 2022. Nú fyrir stuttu kom út hennar nýjasta mynd en það er spennumyndin Napóleonsskjölin sem byggð er á samnefndri skáldsögu eftir Arnald Indriðason en í myndinni leikur Vivian aðalhlutverkið. Hafsteinn fékk Vivian til sín í skemmtilegt spjall og spurði hana aðeins út í þessa íslensku stórmynd. Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.
“Ég mætti í viðtal og hraunaði yfir allt, nýútskrifaður pjakkur, sagði að allt væri ömurlegt og að fólk þyrfti að rífa sig í gang. Eldri stórleikarar sögðu við mig: Þú ert bara game over kallinn minn.” Björn Hlynur hefur ekki farið framhjá þér síðustu misseri með stórleik í Verbúðinni, Ófærð, Leynilöggu, The Witcher, Eurovision Song contest og fleiri kvikmyndum. Björn lætur ekki leiklistina nægja, hann skrifar, leikstýrir og rekur einn ástsælasta sportbar landsins á hliðarlínunni.
Kvikmyndaáhugamaðurinn Ásgeir Kolbeinsson kíkti til Hafsteins og fór yfir árið 2021 með honum. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu frábær myndin Nobody var, hversu flottur hljóðheimurinn er í Dune, hversu mikla sénsa þeir tóku með James Bond, hina gríðarlega vinsælu sjónvarpsseríu Squid Game, hversu vel heppnuð myndin Leynilögga var og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóanna.
Andrea og Steindór ræða mynd Hannesar Þórs Halldórssonar frá 2021, Leynilögga.

Í veipskýi í Egilsstofu á Útvarpi 101 ræddu Salka og Lóa við reyndan podcastara, Skoðanabróðir, ábyrgðarking og dyggan hlustanda Athyglisbrests, Bergþór Másson. Kveiksþátturinn með Þóri Sæm, Leynilöggan og samskipti kynjanna. Geta karlmenn elskað konur eins og þeir elska karlmenn? Vita perrar að þeir eru perrar?
Jóhann Kristófer Stefánsson og Tatjana Dís eru að sitja upp leiksýninguna Sýningin Okkar í Þjóðleikhúsinu. Skoðanabræður höfðu svo gaman af sýningunni að þeir vildu ræða hana frekar og fengu kings í þáttinn. Joey ætti að vera bræðralaginu kunnur - þetta er tíunda framkoma hans í Skoðanabræðrum, en annars er hann sviðshöfundur og rappari. Tatjana er sviðshöfundur og raftónlistarkona. Hérna er talað um: kakóhægrið, Leynilögguna, áföll, fjölmiðla, samfélagsmiðla, seremóníur, hlutverk listar og allt þetta helsta sem gaman er að tala um. KING þáttur hér á ferð!
Hannes Þór Halldórsson er fótboltamaður og leikstjóri. Hann er nýbúinn að leikstýra hasar/grínmyndinni Leynilögga sem er sýnd þessa dagana í Sambíóunum. Hannes kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá því hvernig gekk að búa til þessa kvikmynd. Strákarnir ræða einnig Christopher Nolan, hvernig True Lies er stærsta 90's hasarmyndin og margt, margt fleira. ATH! Það eru léttir Leynilöggu spoilerar í þessum þætti. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóanna.
Það er fámennt en góðmennt r í klefanum í dag. Anna Marsibil Clausen ræðir við Baldvin Albertsson, leikstjóra og stofnandi Vita Games, og Sigríði Jónsdóttur sérfræðing við Leikminjasafn Íslands sem og leikhúsgagnrýnanda Fréttablaðsins. Til umræðu eru kvikmyndin Leynilögga, Mannamyndasafnið og nýjasta plata rapparans Birnis sem ber nafnið Bushido.
Halló! In this BONUS episode Rob and Ellie journey to the remote countryside of northern Iceland as well as the 'big' city of Reykjavík by way of the BFI London Film Festival! In a non-spoiler discussion, they chat about the two rather different Icelandic movies that were shown as part of the festival in 2021. LAMB Directed by Valdimar Jóhannsson Written by Sjón and Valdimar Jóhannsson Starring Noomi Rapace, Hilmir Snær Guðnason and Björn Hlynur Haraldsson Cop Secret Directed by Hannes Þór Halldórsson Written by Auðunn Blöndal, Egill Einarsson and Hannes Þór Halldórsson Starring Auðunn Blöndal, Egill Einarsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir and Björn Hlynur Haraldsson Please subscribe, rate and review and Follow us on Twitter @KVIKMYNDAPOD and Instagram kvikmyndapod Artwork designed by Sophie Watts (justahappyspace) Music by Branches Bare ('Half-light' from the EP 'In the Origami Folds of the Night You Rip the Seam of Sleep Wide Open)
Hjá mörgum íþróttafélögum tíðkast inntökuvígslur af einhverju tagi. Yfirleitt er nýliði þá látinn gera eitthvað sem honum er erfitt eða er niðurlægjandi. Í samfélagsumræðunni hefur áherslan einna helst verið á slíkar vígsluathafnir hjá karlmönnum en Ingólfur Vilhjálmur Gíslason - prófessor í félagsfræði við háskóla Íslands, hefur verið að rannsaka busanir kvennaliða. Tónleikaröðin Björk Orkestral fer fram þessa dagana í Hörpu en þar flytur Björk Guðmundsdóttir berstrípaðar útgáfur af lögum sínum. Í dag flytjum við okkur seinni hluta viðtals okkar við Björk, þar sem við ræddum meðal annars samstarf, útsetningar, metoo og birtingarmyndir kvenna í tónlistarbransanum. Gunnar Ragnarsson kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar tekur fyrir tvær myndir í dag. Annars vegar sigurvegara kvikmyndahátíðarinnar í Cannes, Titane eftir Juliu Ducournau og hinsvegar Leynilöggu, sem átti á dögunum stærstu frumsýningarviku Íslandssögunnar. Myndin hefur hlotið góða dóma erlendis, meðal annars fyrir afbökun á heterónormatívum hasarmyndarstílnum, en Gunnari þykja ástarsenurnar fremur dauflegar.

Hannes Þór talar um innsæið, þrjóskuna, örlítið um Messi auðvitað og kvikmyndina Leynilögguna sem sýnd er í bíóhúsum við góðan orðstýr.

Í kvöld verður söngleikurinn Fyrsti kossinn frumsýndur í Frumleikhúsinu í Keflavík. Um er að ræða verk, eins og nafnið bendir til, þar sem tónlist Rúnars Júlíussonar heitins er í forgrunni, en höfundar verksins eru parið Brynja Ýr Júlíusdóttir, barnabarn Rúnars, og Guðlaugur Ómar Guðmundsson. Hulda heimsótti þau, ásamt Guðnýju Kristjánsdóttur móður Brynju og leikkonu, í hið sögufræga hljóðver Geimstein í Keflavík og fékk að vita meira um verkið og starfsemi Leikfélags Keflavíkur sem fagnar 60 ára afmæli um þessar mundir. Í dag er dagur verkfræðinnar og af því tilefni blása verkfræðingar til samkomu þar sem boðið verður upp á ýmis konar fróðleik og verðlaunaafhendingar. Hörn Hrafnsdóttir vatnsauðlindaverkfræðingur hjá Verkís er á meðal fyrirlesara en hún ræðir innviði á Reykjanesskaga og verkfræðileg úrlausnarefni vegna eldgosa. Hörn kom til okkar. Drengurinn sem dó úr leiðindum er titillinn á nýrri barnabók eftir Guðríði Baldvinsdóttur, en Guðríður er ekki bara rithöfundur heldur er hún líka sauðfjárbóndi, frumkvöðull og skógfræðingur. Við slógum á þráðinn til Guðríðar sem býr á bænum Lóni II í Kelduhverfi. Fréttir vikunnar voru á sínum stað og gestir okkar að þessu sinni voru þau Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður á Stundinni og Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona og leikstjóri. Kvikmyndin Leynilögga var frumsýnd í vikunni hér á landi og óhætt að segja að viðbrögðin hafi verið góð. Fólk hefur streymt í bíó síðustu daga til að sjá myndina, ýmist í útgáfu fyrir 12 ára og eldri eða 16 ára og eldri, og stefnir í metaðsókn þessa fyrstu viku. Að auki hefur myndin vakið lukku á kvikmyndahátíðum erlendis og eru fleiri slíkar á dagskrá. Við fengum Auðunn Blöndal sem leikur aðalhlutverkið til okkar í spjall. Tónlist: Sigurður Guðmundsson - Kartöflur. Rúnar Júlíusson - Það þarf fólk eins og þig. Adele - Easy on me. Baggalútur - Ég á það skilið. Faith no more - Easy. Nýdönsk - Hjálpaðu mér upp. Ed Sheeran - Shivers.

Leikkonan Vivian Ólafsdóttir leikur aðal vondu konuna í kvikmyndinni Leynilöggan sem byrjað er að sýna í Sambíóunum. Vivian mætti til Hafsteins og ræddi við hann meðal annars um Leynilögguna, hvernig það var að fá svona góð viðbrögð við henni á erlendum kvikmyndahátíðum, hversu gaman það er að leika í slagsmálasenum og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóanna.
429.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í fyrra viðtali dagsins ræðum ég og Þórhallur Dan um sportið vítt og breytt. Körfuboltinn hér heima, stjórn KSÍ og kosning varaformanns, ÍTF (íslenskur toppfótbolti), kvennalandslið sem mætir tékkum í kvöld í undankeppni HM, Mourinho og hans menn voru teknir í kennslustund af Bodo/Glimt í gær, enski boltinn, þýski handboltinn, fréttir og slúður og margt margt fleira. Tippari vikunnar er Egill Einarsson(Gillzenegger). Við ræðum um myndina Leynilögga ásamt því að Egill tippar á 5 leiki á Lengjunni. Njótið helgarinnar og takk fyrir að hlusta þessa vikuna.
Míuverðlaunin eru verðlaun sem heiðra þau sem koma að þjónustu langveikra barna á einn eða annan hátt. Hægt er að tilnefna heilbrigðisstarfsmann í hvaða starfstétt sem er, hvar á landinu sem er. Þær Þórunn Eva G. Pálsdóttir og Fríða Björk Arnardóttir komu til okkar í morgunkaffi til að segja okkur meira, en þær vita allt um málið. Talið er að um 10 milljónir efna bætist við á hverju ári í hóp efna sem skaðleg eru fólki og rannsóknir taka sinn tíma, svo niðurstöður liggja ekki alltaf strax fyrir. Það leiðir til þess að stjórnvöld ná ekki að setja reglur til að takmarka eða banna framleiðslu og notkun þeirra nógu tímalega. Í hádeginu í dag er opinn fyrirlestur um skaðleg efni á heimilinu á vegum Umhverfisstofnunar og við fengum Bergdísi Björk Bæringsdóttur, sérfræðing á sviði efna, eftirlits og veiðistjórnunar til að segja okkur aðeins af þessu. Við veltum fyrir okkur aldurstakmörkunum á kvikmyndum, en athygli vekur að íslenska kvikmyndin Leynilögga sem frumsýnd er í þessari viku, er í boði annars vegar fyrir 12 ára og eldri og hins vegar 16 ára og eldri. Í hverju liggur munurinn og hverjar eru reglurnar? Er regluverkið hér það sama og erlendis eða annað? Hallgrímur Kristinsson formaður Félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði kom til okkar og fræddi okkur um þetta. Í sjónvarpþættinum Kveik í gærkvöldi á RÚV kom fram að nærri 60 prósent stelpna í 10. bekk hafa verið beðnar um að senda af sér nektarmynd eða ögrandi mynd og rúm 30 prósent hafa þegar gert það. Í þættinum var talað við tvær grunnskólastúlkur sem seldu af sér kynferðislegar myndir og notaðar nærbuxur í fyrrasumar, þá 13 ára. Mörgum er brugðið eftir umfjöllunina og foreldar vilja vita hvernig bregðast á við og fræða börn sín, af öllum kynjum. Foreldrar hafa verndarskyldu gagnvart börnum, en vankunnátta og skortur á þekkingu kemur oft í veg fyrir að hún skili sér. Til að ræða þessi mál kom til okkar Margrét K. Magnúsdóttir forstöðumaður Barnahúss. Ragnhildur Þórðardóttir, sálfræðingur og einkaþjálfari, einnig þekkt sem Ragga Nagli, er einn þekktasti heilsu ráðgjafi landsins. Hún er þó ekki búsett á Íslandi, heldur í Danmörku, en er stödd á landinu um þessar mundir og við gripum því tækifærið og fengum hana í heimsókn í smá heilsuspjall að hausti. Tónlist: Geiri Sæm og Hunangstunglið - Er ást í tunglinu? GDRN - Næsta líf. Lorde - Mood ring. Adele - Easy on me. Gugusar - Röddin í klettunum. U2 - Pride in the name of love. Dua Lipa - Love again. Herbert Guðmundsson - Með stjörnunum. Lenny Kravitz - Let love rule. Lón - Earthquake.
Lilja Ósk Snorradóttir hefur unnið hjá framleiðslufyrirtækinu Pegasus í fjölda mörg ár og hefur framleitt bæði kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Lilja er ein af framleiðendum myndarinnar Leynilögga sem verður frumsýnd í Sambíóunum í dag. Hafsteinn fékk Lilju til sín til að ræða þessa spennandi mynd og ferlið á bakvið gerð myndarinnar. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóanna.
Míuverðlaunin eru verðlaun sem heiðra þau sem koma að þjónustu langveikra barna á einn eða annan hátt. Hægt er að tilnefna heilbrigðisstarfsmann í hvaða starfstétt sem er, hvar á landinu sem er. Þær Þórunn Eva G. Pálsdóttir og Fríða Björk Arnardóttir komu til okkar í morgunkaffi til að segja okkur meira, en þær vita allt um málið. Talið er að um 10 milljónir efna bætist við á hverju ári í hóp efna sem skaðleg eru fólki og rannsóknir taka sinn tíma, svo niðurstöður liggja ekki alltaf strax fyrir. Það leiðir til þess að stjórnvöld ná ekki að setja reglur til að takmarka eða banna framleiðslu og notkun þeirra nógu tímalega. Í hádeginu í dag er opinn fyrirlestur um skaðleg efni á heimilinu á vegum Umhverfisstofnunar og við fengum Bergdísi Björk Bæringsdóttur, sérfræðing á sviði efna, eftirlits og veiðistjórnunar til að segja okkur aðeins af þessu. Við veltum fyrir okkur aldurstakmörkunum á kvikmyndum, en athygli vekur að íslenska kvikmyndin Leynilögga sem frumsýnd er í þessari viku, er í boði annars vegar fyrir 12 ára og eldri og hins vegar 16 ára og eldri. Í hverju liggur munurinn og hverjar eru reglurnar? Er regluverkið hér það sama og erlendis eða annað? Hallgrímur Kristinsson formaður Félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði kom til okkar og fræddi okkur um þetta. Í sjónvarpþættinum Kveik í gærkvöldi á RÚV kom fram að nærri 60 prósent stelpna í 10. bekk hafa verið beðnar um að senda af sér nektarmynd eða ögrandi mynd og rúm 30 prósent hafa þegar gert það. Í þættinum var talað við tvær grunnskólastúlkur sem seldu af sér kynferðislegar myndir og notaðar nærbuxur í fyrrasumar, þá 13 ára. Mörgum er brugðið eftir umfjöllunina og foreldar vilja vita hvernig bregðast á við og fræða börn sín, af öllum kynjum. Foreldrar hafa verndarskyldu gagnvart börnum, en vankunnátta og skortur á þekkingu kemur oft í veg fyrir að hún skili sér. Til að ræða þessi mál kom til okkar Margrét K. Magnúsdóttir forstöðumaður Barnahúss. Ragnhildur Þórðardóttir, sálfræðingur og einkaþjálfari, einnig þekkt sem Ragga Nagli, er einn þekktasti heilsu ráðgjafi landsins. Hún er þó ekki búsett á Íslandi, heldur í Danmörku, en er stödd á landinu um þessar mundir og við gripum því tækifærið og fengum hana í heimsókn í smá heilsuspjall að hausti. Tónlist: Geiri Sæm og Hunangstunglið - Er ást í tunglinu? GDRN - Næsta líf. Lorde - Mood ring. Adele - Easy on me. Gugusar - Röddin í klettunum. U2 - Pride in the name of love. Dua Lipa - Love again. Herbert Guðmundsson - Með stjörnunum. Lenny Kravitz - Let love rule. Lón - Earthquake.
Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítalanum, segir eðlilegt að horfa til Landspítalans þegar kemur að tilslökunum á sóttvarnareglum. Hver geta samfélagsins er að takast á við faraldur eins og Covid. Hún tekur undir neyðaróp hjúkrunarfræðinga og annarra starfsmanna vegna ástandsins á Landspítalanum en þar leikur mannekla og skortur á úrræðum fyrir aldraða lykilhlutverk. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, fór yfir fjölgun ítalskra ferðamanna á haustdögum og gistimöguleika bæði hér og í Kaupmannahöfn. Það kostar yfir 100 þúsund að gista á hótelum í miðborg Reykjavíkur um næstu helgi. Nýtt hótel hóf starfsemi í vikunni en það er staðsett við Hörpu og er fyrsta fimm stjörnu hótelið í Reykjavík. Lilja Ósk Snorradóttir, kvikmyndaframleiðandi og framkvæmdastjóri Pegasus, tekur vel í hugmyndir Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknarflokksins um að fjölga störfum í kvikmyndageiranum á næstu tíu árum. Nú starfa um 2.600 við kvikmyndagerð á Íslandi en Sigurður Ingi vill fjölga þeim í 10 þúsund á tíu árum. Veltan í kvikmyndageiranum nam um 18 milljörðum í fyrra. Lilja framleiðir kvikmyndina Leynilögga sem verður frumsýnd í kvikmyndahúsum 22. október. Tónlist: Stefið úr Bleika pardusnum, Önnur sjónarmið með Eddu Heiðrúnu Backman, Stella í Orlofi með Diddú og Hjálpaðu mér upp með Ný danskri. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Komnir e smá pásu, S undir stýri ,ýmislegt rætt, Leynilögga í London og þvottur á fólki, og allt hitt. Allt í boði Aktu Taktu!
NOW AVAILABLE!!! www.fowlplayersradio.comEinar Haraldsson is a former Icelandic police officer turned actor. Born in 1955 to a Danish mother and Icelandic father, Einar attended the School of Art in Iceland. Einar has been in several Icelandic TV series as well as the upcoming film “Ride the Wanted Trail”.FILM CREDITS Sistershood, Stella Blómkvist 2, Vitjanir, Verbúðin, Berdreymi, Black Sands, Leynilöggan, Copperhead Creekhttps://www.einarharaldsson.com/Subscribe for free at www.fowlplayersradio.com or listen wherever you find podcasts online.No matter what platform you listen on, you can help us greatly by giving us a fair review and a 5 star rating!Also- be sure to visit our page on patreon.com- www.patreon.com/fowlplayersradio!Follow us on Facebook, Instagram, and Twitter!!The Fowl Players of Perryville are back and have many shows booked for the fall and winter of 2021-22! See our schedule on www.fowlplayersofperryville.com. For bookings, we can be reached by phone at 443-600-0446 or by email at fowlplayersperryville@yahoo.com.
Í Víðsjá í dag verður sagt frá gullna naglanum sem rekinn var niður til að festa síðasta járnbrautarteininn í járnbrautinni milli stranda Bandaríkjanna fyrir rétt ríflega 150 árum. Bók vikunnar er skáldsagan Rotturnar eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur, en hana mætti til dæmis flokka sem spennusögu eða ungmennabók á mörkum vísindaskáldskapar. Rotturnar komu út í fyrra og voru þá tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, í flokki barna- og ungmennabóka. Nú hefur bókin verið tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í sama flokki. Rætt verður við höfundinn, Ragnheiði Eyjólfsdóttur, í þætti dagsins og við heyrum brot lesið upp úr bókinni. Spurt verður hvort við lifum á öld aðgerðarsinna þegar Hallur Þór Sigurðsson lektor við Háskólann í Reykjavík verður gestur þáttarins en hann er einn þeirra sem taka til máls á tilrauna-málstofu um aktivisma sem fer fram við skólann á morgun. Nú á föstudag verður frumflutt í Tjarnarbíói nýtt íslenskt tónleikhúsverk eftir Gunnar Karel Másson sem nefnist Iður. Verkið fjallar um breska lögreglumanninn Mark Kennedy sem vakti heimsathygli fyrir tæpum áratug þegar upp komst að hann hafði villt á sér heimildir og njósnað meðal umhverfissinna víðsvegar um Evrópu, í meira en sjö ár, meðal annars á Íslandi. Rætt verður við Gunnar Karel, og Sögu Sigurðardóttur, dramatúrg verksins.