Podcasts about skri

  • 43PODCASTS
  • 103EPISODES
  • 1h 2mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Feb 6, 2026LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026

Best podcasts about skri

Latest podcast episodes about skri

Spegillinn
Vont orðið verra, Vesturbakkinn og hagsmunirnir við Hítará

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 6, 2026 20:00

Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, vonar að komið sé að vendipunkti í þessari umræðu. Heilbrigðiskerfið hafi verið vanfjármagnað í lengri tíma og í því samhengi nefnir hún skýrslu Ríkisendurskoðunar um Landspítalann sem kom út fyrir rúmu ári. Þar hafi verið bent á lausatök og úrræðaleysi, að yfirsýn skorti og fjármagnaða heildaraðgerðaáætlun. Það vita færri - en þó allir sem vilja - að staðan á hernumdum Vesturbakkanum er líka skelfileg þótt hún sé til allrar hamingju fjarri því jafn slæm og á Gaza. ­Þar halda Ísraelar áfram að ræna landi Palestínumanna sem Ísraelum, sem hernámsaðilum, ber þó skýr lagaleg skylda til að verja. Þvert á móti leggjast þar allir á eitt, Ísraelsher, ísraelsk stjórnvöld og svo landræningjarnir sjálfir, bæði þeir um það bil 700.000 sem fyrir eru og þeir sem hyggja á nýtt landrán Allt frá því að gríðarstór skriða féll í Hítará árið 2018 hefur verið rætt um hvort tilefni sé til að endurheimta fyrri farveg árinnar. Skriðan er farartálmi fyrir laxa á leið heim á hrygningarstöðvarnar og nýi farvegurinn er torfær fyrir laxinn. Kostnaðurinn við að grafa gegnum skriðuna gæti hlaupið á hundruðum milljóna en fyrir landeigendur í dalnum eru talsverðir hagsmunir í húfi.

gaza vont verra palest landsp heilbrig skri
K veci
Turečák: Sú Národné obranné sily len výkladnou skriňou armády? Výkladná skriňa alebo skutočný výcvik? (28.1.2026 18:31)

K veci

Play Episode Listen Later Jan 28, 2026 5:48

Sú Národné obranné sily vstupnou bránou do armády, alebo skôr „výkladnou skriňou“? A ako vyzerá realita ubytovania, presunov, prísahy a kontaktu civilov s profesionálmi? Ako fungujú Národné obranné sily v praxi, čo majú ukázať civilistom a kde sa končí „výkladná skriňa“ armády. Reportáž vznikla počas výcviku Národných obranných síl, ktorý sledoval pre Rádio Slovensko redaktor Slovenského rozhlasu Peter Madro. | Turečák: Sú Národné obranné sily len výkladnou skriňou armády? Výkladná skriňa alebo skutočný výcvik? | Autor: Peter Madro. | Bonus podcastu. | K veci pripravuje Slovenský rozhlas, Rádio Slovensko, SRo1.

Multiply Your Success with Tom DuFore
284. The Small Business Competitive Edge—Skri Kaza, Author

Multiply Your Success with Tom DuFore

Play Episode Listen Later Nov 17, 2025 34:44 Transcription Available

Do you view your closeness or proximity to your customers as a strategic advantage? Or said differently, have you thought about that before? Our guest today is Mr. Sri Kaza, who shares with us his Underdog formula that he has found in small businesses. TODAY'S WIN-WIN:What makes your business unique?LINKS FROM THE EPISODE:Schedule your free franchise consultation with Big Sky Franchise Team: https://bigskyfranchiseteam.com/. Attend our Franchise Sales Training Workshop:  https://bigskyfranchiseteam.com/franchisesalestraining/You can visit our guest's website at: https://www.sri-kaza.com/Connect with our guest on social:https://linkedin.com/in/srikazaABOUT OUR GUEST:Sri Kaza is a business leader and small business advocate with a career spanning corporate strategy, entrepreneurial ventures, and dedicated support for small businesses. After earning degrees from the University of Michigan and Northwestern University, he began his career at McKinsey & Co., advising Fortune 500 companies. This was followed by executive roles focused on supporting small businesses, including serving as CEO of ForwardLine Financial, where he helped tens of thousands of small businesses achieve their goals. Through his extensive experience working with both large corporations and small businesses, Sri developed the Underdog Principles — a framework that helps small businesses leverage their inherent advantages to compete and thrive in any market.ABOUT BIG SKY FRANCHISE TEAM:This episode is powered by Big Sky Franchise Team. If you are ready to talk about franchising your business you can schedule your free, no-obligation, franchise consultation online at: https:// The information provided in this podcast is for informational and educational purposes only and should not be considered financial, legal, or professional advice. Always consult with a qualified professional before making any business decisions. The views and opinions expressed by guests are their own and do not necessarily reflect those of the host, Big Sky Franchise Team, or our affiliates. Additionally, this podcast may feature sponsors or advertisers, but any mention of products or services does not constitute an endorsement. Please do your own research before making any purchasing or business decisions.

Víðsjá
Sellókonsert Önnu Þorvalds, Nautnir Mario Bellatin og arkitektúr í Kópavogi

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 2, 2025 52:25

Á fimmtudag verður Íslandsfrumflutningur á sellókonsertinum Before we fall eftir Önnu Þorvaldsdóttur á upphafstónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Konsertinn er skrifaður fyrir sellóstjörnuna Johannes Moser en innblásturinn að verkinu er að sögn Önnu sú tilfinning að standa á brúninni, að vera við það að bresta en finna að lokum jafnvægi undir fótunum. Birta Ósmann Þórhallsdóttir er einn af tveimur starfsmönnum bókaútgáfunnar Skriðu, en auk þess að gefa út og prenta er hún líka ötull þýðandi úr spænsku. Við ræðum við hana um þýðingu hennar á skáldsögunni Nautnir eftir Mario Bellatin. Óskar Arnórsson fjallar um þróun Kópavogsbæjar, og hlut Benjamíns Magnússonar í þeirri þróun, en Benjamín fékk það hlutverk, þá nýkominn úr námi, að hanna fyrsta miðbæ Íslands sem var skipulagður sem slíkur: Hamraborgina.

magn benjam arn sinf konsert arkitekt birta skri johannes moser mario bellatin
Karfan
Sjötti maðurinn X Frikkibeast: Langþráður sigur Álftnesinga, Valsarar komnir á skrið, ólseigir Njarðvíkingar og gestagangur

Karfan

Play Episode Listen Later Oct 27, 2024 60:17

Það var gestagangur hjá Sjötta manninum í dag en þeir fengu í heimsókn hinn eina sanna Friðrik Heiðar betur þekktan sem Frikka Beast. Farið er vel yfir Bónus deild karla í bland við fasta liði. Einnig er bikarkeppnin rædd stuttlega og margt, margt, margt fleira.Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils

Víðsjá
Ófeigur Sigurðsson um Skrípið, Magnea Guðmundsdóttir-pistill, ljóðabækur Skriðu

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 21, 2024 51:34

Í skáldsögunni Skrípinu, eftir Ófeig Sigurð, segir frá ónefndu og ástríðufullu tónskáldi sem ætlar sér að endurskapa sögulega tónleika píanóleikarans Vladimirs Horowitz með heilmyndarflutningi á Eldborgarsviði Hörpu. Tónskáldið dreymir um endurreisn evrópskrar menningar og finnst að allt hafi verið betra árið 1986, þegar fólkið var ekki eins sjúkt í deyfð og flatneskju og stjórnmálamenn hlustuðu á tónlist og lásu bókmenntir. Víðsjá mælti sér mót við rithöfundinn Ófeig Sigurðsson á koníakstofunni á Hótel Holti í morgun. Magnea Guðmundsdóttir arkitekt fjallar um arkitektúr í fortíð og framtíð, skjái, gler, vindhviður og táknmyndir í módernískum arkitektúr. Á dögunum komu út tvær ljóðabækur hjá Skriðu bókaútgáfu sem staðsett er á Patreksfirði. Það eru bækurnar Svefnhof eftir Svövu Þorsteinsdóttur og Heimkynni eftir Þórð Sævar Jónsson. Báðar bækur eru afar fallegir gripir sem prentaðir eru á prentverkstæði Skriðu fyrir vestan. Tómas Ævar tekur höfunda bókanna tali í þætti dagsins. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

sv skr sigur umsj skri melkorka patreksfir
Rauða borðið
Rauða borðið 26. ágúst - Skriður, skólastefna, stjórnmál í USA, fíkniefnadjöfullinn og Gaza

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 26, 2024 206:30

Mánudagur 26. ágúst Skriður, skólastefna, stjórnmál í USA, fíkniefnadjöfullinn og Gaza Þarf að endurskoða búsetu, mannvirkjagerð og umferð hér á landi vegna aukinnar úrkomu og hnattrænnar hlýnunar? Þorsteinn Sæmundsson jarðfræðingur svarar því og ræðir sérstaklega slysið óhuggulega þar sem erlendir ferðamenn týndu lífinu undir ís. Magnús Helgason sagnfræðingur fer yfir stöðuna í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Við höldum umræðu um skólamál áfram með Kristjáni Kristjánssyni, prófessor í Birmingham. Íslensk börn skortir samhygð og forvitni. Hvernig bætum við úr? Ívar Örn Katrínarson skrifaði endurminningar sínar og nefndi þær: Ég ætla að djamma þar til ég drepst. Hann kemur og rekur ferð sína til helvítis dópheimsins og leiðina til baka. Og í lokin fer Magga Stína yfir fréttir frá Gaza og ræðir auk þess níðingsverk gegn föfluðu barni sem augljóslega er brot á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

skrivarpodden - för dig med författardrömmar

Stöd mitt arbete med skrivarpodden genom att swisha till 0722-093 789 eller bli patreon här: https://www.patreon.com/kerstinonnebo Av: Kerstin Önnebo, Musik: Maria Eggeling

skriv kring bok litteratur skriva bibliotek skrivande skri bibliotekarier bibliotekarie skrivarpodden
skrivarpodden - för dig med författardrömmar
222 Om publicering och förlag, del 2

skrivarpodden - för dig med författardrömmar

Play Episode Listen Later Apr 11, 2024 15:53

Stöd mitt arbete med skrivarpodden genom att swisha till 0722-093 789 eller bli patreon här: https://www.patreon.com/kerstinonnebo Av: Kerstin Önnebo, Musik: Maria Eggeling

skriv bok skriver litteratur skriva bibliotek skrivande skri publicering bibliotekarier bibliotekarie skrivarpodden
All Things Iceland Podcast
Skriðuklaustur – A Hidden Monastery Discovered in East Iceland

All Things Iceland Podcast

Play Episode Listen Later Mar 14, 2024

Today's episode focuses on the historic site of Skriðuklaustur, which offers a captivating glimpse into Iceland's rich Icelandic culture, history, and literature. This enchanting destination, nestled amidst the rugged beauty of the Icelandic landscape, serves as a bridge between the past and the present, inviting visitors to explore the layers of stories etched within this museum. The Origins of Skriðuklaustur Monastery Skriðuklaustur, a landmark of rural eastern Iceland, and has origins tracing back to a 16th-century monastery. Revealed through an extensive archaeological excavation from 2002 to 2012, the ruins of this Augustinian cloister tell a tale of resilience, spirituality, and compassion.Established around 1493, this monastery served as a refuge for the sick and the poor. Its existence, cut short by the Reformation in the mid-16th century, marks a significant chapter in Iceland's religious and social history. The Link Between Skriðuklaustur Monastery & Gunnar Gunnarsson The monastery's story is interwoven with the life of Gunnar Gunnarsson, one of Iceland's most renowned literary figures. Gunnarsson, born in 1889, emerged as a prolific writer whose works resonated with readers across the globe.His decision to write in Danish brought his stories to an international audience, earning him acclaim and raising questions about his cultural identity. Gunnarsson's legacy is complex, marked by his literary success and the controversies surrounding his public appearances in Nazi Germany.In 1939, Gunnarsson returned to Iceland, making Skriðuklaustur his home. The mansion he built, a testament to his ambition and unique architectural vision, now stands as a cultural beacon. Designed by the German architect Fritz Höger, the mansion reflects a blend of Icelandic and European influences.Today, it houses exhibitions on Gunnarsson's work, offering visitors a window into the life of a man whose storytelling left an indelible mark on Icelandic literature.I share some insight into Gunnar Gunnarsson's and Halldór Laxness' friendship and eventual falling out in a previous podcast episode. More Than Just a Historic Site Skriðuklaustur is more than a historic site; it is a living museum that continues to inspire and educate. The monastery ruins, accessible to visitors year-round, offer a tangible connection to Iceland's monastic heritage. The site's archaeological significance is underscored by the extensive research conducted over a ten-year period, which shed light on the daily lives of the monks, their literary endeavors, and the monastery's role as a hospital.The findings from the cloister cemetery are particularly fascinating because they reveal the hardships faced by those who sought refuge within the monastery's walls. The study of nearly 300 individuals buried on the site provides invaluable insights into the health and social conditions of 16th-century Iceland. The presence of graves belonging to patients, the disabled, and even the unbaptized stillborn highlights the monastery's inclusive approach to care and compassion.Skriðuklaustur's archaeological excavation also unearthed over 13,000 artifacts, offering a glimpse into the material culture of the time. Among the treasures discovered was a fragmented statue of Saint Barbara, symbolizing the spiritual life that once flourished within the monastery's walls.The application of photogrammetry technology has allowed these artifacts to be explored in detail, further enriching our understanding of this historic site. An East Iceland Gem As Skriðuklaustur opens its doors for the 2024 season, visitors are invited to immerse themselves in the site's history and beauty. The upcoming art exhibition "Polyphony" by Björg Eiríksdóttir, alongside a new exhibit by Gunnar Gunnarsson's son, promises to be a highlight, showcasing the ongoing dialogue between past and present.Skriðuklaustur stands as a testament to Iceland's rich cultur...

Morgunvaktin
Aðventa Gunnars er fáanleg á arabísku

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 29, 2023 130:00

Boðið var upp á bland í poka á síðustu Morgunvakt ársins. Sagt var frá stofnun Verslunarfélags Steingrímsfjarðar fyrir 125 árum og tíðarfari, aflabrögðum og landbúnaði á Ströndum 1898. Leikið var viðtal frá í sumar við Gísla Einarsson sjónvarpsmann um mun á landsmönnum eftir búsetu. Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar, talaði frá Hallormsstað um Skriðuklaustur og Gunnar Gunnarsson skáld og konu hans Franzisku. Í máli hans kom m.a. fram að bækur Gunnars hafa verið gefin út víða um heim á síðustu árum og Aðventa t.d. þýdd á Ítölsku og arabísku. Þá var leikið brot úr Áramótaskaupi Útvarpsins 1982. Smooth operator - Sade, Vetrarsól - Björgvin Halldórsson og Sinfóníuhljómsveit Íslands, Halló, halló, halló - Stuðmenn, Andar í útlegð - Mógil, Hvað ertu að gera á gamlárs? - Sigurður Guðmundsson og Sigríður Thorlacius, Í löngu máli - Una Torfadóttir. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Morgunvaktin
Aðventa Gunnars er fáanleg á arabísku

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 29, 2023

Dr. Football
Vikulok Dr. Football - Blikar skriðu svo önnur íslensk lið gætu gegnið

Dr. Football

Play Episode Listen Later Dec 15, 2023 56:47

Doc, Gunnar og Sigurður á föstudegi.

Spegillinn
Skriðuhætta, offittuaðgerðir, áfengið hækkar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 18, 2023

Gripið hefur verið til rýmingar á Seyðisfirði vegna mikillar úrkomu á Austurlandi. Appelsínugul veðurviðvörun tekur gildi á Austfjörðum á miðnætti og hættustig er í gildi vegna hættu á skriðuföllum. Rætt var við Dagnýju Erlu Ómarsdóttur fulltrúi sveitarstjóra á Seyðisfirði Sífellt fleiri fara í efnaskiptaaðgerðir á eigin vegum á einkastofum hér á landi eða erlendis þar sem skilyrði til að mega gangast undir aðgerð á borð við magaermi eða hjáveitu eru færri en á Landspítalanum. Undirbúningi og eftirfylgni er oft ábótavant og afleiðingarnar geta verið alvarlegar, segir Hildur Thors, yfirlæknir offituteymis Reykjalundar. Farið sé að líta á efnaskiptaskurðaðgerðir sem útlitsaðgerð. Fjölmörg skilyrði eru sett fyrir áframhaldandi urðun sorps í Álfsnesi í nýju samkomulagi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar segist ætla að fylgja fast eftir að þau verði uppfyllt. Bandaríkin og Íran skiptust í dag á fimm föngum, á grundvelli samkomulags sem var gert með milligöngu Katar. 700 millilítra flaska af vodka hækkar um tvö hundruð krónur við hækkun áfengisgjalds um áramót Breski leikarinn og uppistandarinn Russel Brand hefur verið kærður vegna kynferðisbrots sem á að hafa átt sér stað í Lundúnum árið 2003. Íslendingar ávísuðu fleiri undanþágulyfjum en Svíar á árunum 2020 og 2021. Slíkar ávísanir geta valdið neytendum erfiðleikum. Úkraínska hernum tókst í gærkvöld að rjúfa varnarlínu rússneska innrásarliðsins í grennd við borgina Bakhmút í Donetsk-héraði í austurhluta landsins eftir harða bardaga undanfarna mánuði. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Magnús Þorsteinn Magnússon. Annalísa Hermannsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

sl sv lund reg katar magn fj donetsk fari russel brand appels bandar sey d'agn umsj landsp skri mosfellsb hermannsd austurlandi undirb erlu breski austfj
Spegillinn
Skriðuhætta, offittuaðgerðir, áfengið hækkar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 18, 2023 9:28

Gripið hefur verið til rýmingar á Seyðisfirði vegna mikillar úrkomu á Austurlandi. Appelsínugul veðurviðvörun tekur gildi á Austfjörðum á miðnætti og hættustig er í gildi vegna hættu á skriðuföllum. Rætt var við Dagnýju Erlu Ómarsdóttur fulltrúi sveitarstjóra á Seyðisfirði Sífellt fleiri fara í efnaskiptaaðgerðir á eigin vegum á einkastofum hér á landi eða erlendis þar sem skilyrði til að mega gangast undir aðgerð á borð við magaermi eða hjáveitu eru færri en á Landspítalanum. Undirbúningi og eftirfylgni er oft ábótavant og afleiðingarnar geta verið alvarlegar, segir Hildur Thors, yfirlæknir offituteymis Reykjalundar. Farið sé að líta á efnaskiptaskurðaðgerðir sem útlitsaðgerð. Fjölmörg skilyrði eru sett fyrir áframhaldandi urðun sorps í Álfsnesi í nýju samkomulagi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar segist ætla að fylgja fast eftir að þau verði uppfyllt. Bandaríkin og Íran skiptust í dag á fimm föngum, á grundvelli samkomulags sem var gert með milligöngu Katar. 700 millilítra flaska af vodka hækkar um tvö hundruð krónur við hækkun áfengisgjalds um áramót Breski leikarinn og uppistandarinn Russel Brand hefur verið kærður vegna kynferðisbrots sem á að hafa átt sér stað í Lundúnum árið 2003. Íslendingar ávísuðu fleiri undanþágulyfjum en Svíar á árunum 2020 og 2021. Slíkar ávísanir geta valdið neytendum erfiðleikum. Úkraínska hernum tókst í gærkvöld að rjúfa varnarlínu rússneska innrásarliðsins í grennd við borgina Bakhmút í Donetsk-héraði í austurhluta landsins eftir harða bardaga undanfarna mánuði. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Magnús Þorsteinn Magnússon. Annalísa Hermannsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

sl sv lund reg katar magn fj donetsk fari russel brand appels bandar sey d'agn umsj landsp skri mosfellsb hermannsd austurlandi undirb erlu austfj
Steve Dagskrá
Ping pong Gummi, Liverpool komnir á skrið og kona fann sig á Íslandi.

Steve Dagskrá

Play Episode Listen Later Mar 7, 2023 60:04

Víðsjá
Skriða, Visitors, verkföll í Egyptalandi

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 6, 2023 55:00

Bókaútgáfan Skriða var stofnuð á Hvammstanga árið 2019, en hefur síðan flutt sig yfir á Patreksfjörð. Skriða er sennilega eina útgáfa landsins þar sem köttur er titlaður útgáfustjóri en útgáfan er einnig nefnd í höfuðið á kettinum, Skriðu. Það er einn starfsmaður í vinnu hjá Skriðu, og það er ljóðskáldið Birta Ósmann Þórhallsdóttir. Birta hefur gefið út tvær bækur hjá Skriðu, nú síðast ljóðabókina Spádóm fúleggsins, auk þess að hafa þýtt skáldsöguna Snyrtistofan eftir mexíkóska höfundinn Mario Bellantín. Við heyrum í Birtu í þætti dagsins, af hennar nýjustu ljóðabók, samstarfinu við Skriðu og lífinu utan Reykjavíkur. Að gefnu tilefni grípum við líka niður í viðtal sem hljómaði hér í Víðsjá fyrir áratug, árið 2013, en þar sagði Ólafur Gíslason frá hugmyndum sínum um tengsl íslenskrar samtímalistar og fornra goðsagna, eða nánar til tekið hvernig þær, til dæmis sögnin um dauða Adonisar, gríska goðsins og ástmanns Afródítu, tengdist myndlistarverkinu The Visitors eftir Ragnar Kjartansson, en það verk er nú búið að setja upp í Listasafninu á Akureyri og verður hægt að njóta þar næstu mánuði. The Visitors frá árinu 2012 er þekktasta verk Ragnars, rómað að endemum og hefur farið sigurför víða um heim á þeim rúma áratug síðan listamaðurinn vann það með vinum sínum á herragarðinum Rokeby farm í New York fylki. Í síðustu viku hóf Ragnheiður Gyða Jónsdóttir að segja frá fornum verkföllum í pistlaröð sinni og byrjaði á goðsögulegu verkfalli í Mesópótamíu, í dag liggur leiðin suður í Nílardal að fyrsta, skráða, verkfalli sögunnar.

new york visitors mes gy reykjav afr ragnhei ragnars birta skri ragnar kjartansson rokeby egyptalandi hvammstanga
Víðsjá
Skriða, Visitors, verkföll í Egyptalandi

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 6, 2023

Heimsglugginn
Skriðdrekar til Úkraínu og vandræði Rishi Sunaks

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jan 26, 2023 23:07

Fréttaskýrendur telja margir að ákveðin skil hafi orðið í stuðningi vestrænna ríkja við Úkraínu þegar ákveðið var að Úkraínumenn fengju fullkomna nútímaskriðdreka. Bretar riðu á vaðið er þeir tilkynntu að Úkraínumenn fengju Challenger 2-skriðdreka og svo ætla Bandaríkjamenn og Þjóðverjar að láta Úkraínu í té Abrams- og Leopard 2-skriðdreka. Úkraínumenn hafa beðið um 300 skriðdreka en óvíst er hversu marga þeir fá. Í síðari hluta Heimsgluggans var fjallað um bresk stjórnmál. Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, lýsti því yfir þegar hann tók við völdum að spilling yrði ekki liðin og að í stjórnartíð hans skyldi ríkja heiðarleiki og gagnsæi. Hann gaf í skyn að sú óstjórn og rugl sem einkenndi síðustu mánuði Borisar Johnsons í embætti og allan stjórnartíma Liz Truss væri liðin tíð. Á undanförnum vikum hafa hins vegar komið upp mál sem hafa valdið honum og stjórn hans verulegum vandræðum. Ekki að breska stjórnin hafi ekki nóg á sinni könnu fyrir, þar sem hún tekst á við dýrtíð og versnandi efnahag og krísu í heilbrigðismálum.

Heimsglugginn
Skriðdrekar til Úkraínu og vandræði Rishi Sunaks

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jan 26, 2023

Miðlunartillaga og skriðdrekar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 26, 2023

Miðstjórn ASÍ ræðir nú um ákvörðun ríkissáttasemjara að leggja fram miðlunartillögu í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Stjórn Eflingar lýsir vantrausti á ríkissáttasemjara. Hættustigi Almannavarna var lýst yfir á Patreksfirði í dag eftir að krapaflóð féll inn í bæinn. Enginn slasaðist í flóðinu, sem kom úr sama farvegi og mannskætt flóð sem varð fyrir fjörutíu árum. Níu Palestínubúar létust í aðgerðum Ísraelshers á Vesturbakkanum í dag. Heilbrigðisyfirvöld í Palestínu saka Ísraelsmenn um að hindra för hinna særðu á sjúkrahús. Halastjarna sem ekki hefur komið nærri jörðu í rúm 50 þúsund ár sést frá Íslandi næstu daga. Tugir manna sem mótmæltu ströngum Covid nítján reglum í Kína í nóvember eru enn í haldi lögreglu. Ekki er vitað hvar sumir þeirra eru niðurkomnir. ---- Það dró til tíðinda í kjaraviðræðum Eflingar og Samtaka atvinnulífsins í dag. Deilurnar hafa verið í algjörum hnút og Efling sleit viðræðum fyrir rúmum hálfum mánuði. Boðað hafði verið til verkfalls sem beina átti gegn hótelum í Reykjavík, en atkvæðagreiðslu um aðgerðirnar er ekki lokið. Í dag lagði Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari fram miðlunartillögu til að reyna að höggva á hnútinn. Í grunninn felur tillagan í sér það sama og Starfsgreinasambandið samdi um í lok seinasta árs. Það er afturvirkni til 1. nóvember og sömu prósentuhækkanir og í öðrum samningum. Bæði Eflingu og SA ber skylda til að leggja samninginn fram til atkvæðagreiðslu og allir félagsmenn Eflingar eru á kjörskrá, ekki aðeins þeir sem kusu um boðað verkfall, sem voru um 300 manns. Skiptar skoðanir eru meðal almennings í Þýskalandi um þá ákvörðun Olafs Scholz kanslara að senda Úkraínumönnum fullkomna Leopard-2 árásarskriðdreka. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Forsa stofnunarinnar telja 53 af hundraði að ákvörðun kanslarans hafi verið rétt. 39 prósent eru alfarið á móti. Umsjón: Bjarni Rúnarsson. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir.

covid-19 leopards stj reykjav ekki forsa umsj palest enginn valger heilbrig skri samtaka samkv eflingar efling patreksfir eflingu
Spegillinn
Miðlunartillaga og skriðdrekar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 26, 2023 10:03

Veikari króna, skriðdrekadeilur í Þýskalandi og bókmenntaverðlaun

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 24, 2023 130:00

Við fjölluðum um gjaldmiðilinn okkar; krónuna, í dag. Hún hefur veikst blessuð; fyrir þúsund íslenskar krónur fást í dag sjö bandarískir dalir en síðastliðið sumar fengust næstum átta dalir fyrir þúsund kallinn. Og fyrir tæpum fjórum árum fengust næstum níu Bandaríkjadalir fyrir þúsund íslenskar krónur. Krónan sveiflast upp og niður og hún hefur svo sem oft verið enn veikari en í dag. Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Heimildarinnar ræddi þetta og fleira. Arthúr Björgvin Bollason var svo á sínum stað og sagði okkur frá því sem er efst á baugi í Þýskalandi. Hann fjallaði um samband nágrannanna Frakka og Þjóðverja, og um skriðdreka sem Þjóðverjar hafa ekki tekið ákvörðun um hvort þeir vilji senda til Úkraínu eða ekki. Góð bók er þyngdar sinnar virði í gulli. Íslensku bókmenntaverðlaunin verða veitt í kvöld við hátíðlega athöfn að Bessastöðum. Af því tilefni kom formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, Heiðar Ingi Svansson, til okkar og rabbaði um bækur vítt og breitt. Tónlist: Við arineld - Erla Stefánsdóttir None of us are free - Solomon Burke D?Allemagne - Patricia Kaas

bj kr af hei sn hann bandar arth skri frakka bessast bollason
Morgunvaktin
Veikari króna, skriðdrekadeilur í Þýskalandi og bókmenntaverðlaun

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 24, 2023

Helgaspjallið
Þáttur 115 - Alda Sigmunds um að alast upp með narsissistískri móður

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Dec 1, 2022 103:23

Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Þegar ég var í Tælandi las ég bókina endurminningabókina Daughter eftir Öldu Sigmundsdóttur og ég gat ekki látið hana frá mér. Bókin er skrifuð af svo einskærri snilld, berskjöldun og krafti og það lýsir einnig persónunni sem Alda hefur að geyma þegar hún settist niður í stólinn á móti mér. Ég var dáleiddur að hlusta á hana tala um reynslu sína og visku um hvað það er að alast upp með narsissistískri móður og andlegu ofbeldi sem með því fylgdi. Alda hjálpar okkur að skilja þennan flókna og eyðinleggjandi persónuleika og við berum saman reynslu okkar í gegnum þáttinn. Þátturinn er í lengri kantinum, en ég hefði getað haldið áfram að tala við hana langt fram á kvöld. Ég er þakklátur og auðmjúkur að hafa fengið hana til mín og vona að þið njótið þáttarins. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Sírís Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar Alda Sigmundsdóttir skrifaði endurminningabókina Daughter sem fjallar um baráttu hennar við að losna úr viðjum narsissísks ofbeldis sem hún bjó við í æsku.

daughter alda skri heilsa fjar
Spegillinn
Kjaraviðræður í fullum gangi og kuldi í Úkraínu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 24, 2022 30:00

Spegillinn 24.11.2022 Fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar og samtaka atvinnulífsins sitja enn á fundi Ríkissáttasemjara. Kjarasamningur með stuttan gildistíma er sagður til skoðunar. Sterkur grunur er um að skjöl barna sem voru ættleidd til Íslands frá Sri Lanka hafi verið fölsuð. Ólöglegar ættleiðingar eru sagðar hafa verið stundaðar í stórum stíl í landinu. Ályktun Íslands og Þýskalands var samþykkt á fundi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna síðdegis. Ráðið fordæmir framgöngu íranskra stjórnvalda gegn mótmælendum. Skriðuhætta er enn á Seyðisfirði eftir úrkomu þar í dag. Ekkert lát er á vætutíð þar eystra næstu daga. Fasteignum á sölu hefur fjölgað að undanförnu en eftirspurn hefur minnkað. Portúgalinn Christiano Ronaldo varð í dag fyrstur til að skora á fimm heimsmeistaramótum, þegar Portúgalar lögðu Ganverja á HM í Katar. ----- Stýrivaxtahækkun Seðlabankans hleypti illu blóði í yfirstandandi kjaraviðræður. Forystumenn verkalýðsfélaganna lýstu því yfir í gær að hækkunin hefði breytt öllum forsendum viðræðnanna og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins gagnrýndi einnig tímasetningu hækkunarinnar. Í morgun boðaði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fylkingarnar á sinn fund í Stjórnarráðið við Lækjargötu í Reykjavík. Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins ræddi við fréttamenn fyrir fundinn. Hann segir að Seðlabankinn hefði átt að bíða með stýrivaxtahækkun gærdagsins. Bjarni Rúnarsson fór yfir málið. Þoka grúfði yfir Kænugarði, höfuðborg Úkraínu í dag. Það rigndi og hitinn var rétt yfir frostmarki. Útlit er fyrir að hann hangi nálægt núllinu í nótt. Borgarbúum er kalt, enda eru sjö tíundu hlutar borgarinnar án rafmagns eftir árásir rússneska innrásarliðsins á lífæðar samfélagsins undanfarnar vikur, þar á meðal raforkuver og vatnsveitur.Hans Kluge, svæðisstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í Evrópu, kom í heimsókn til Kænugarðs fyrr í vikunni. Þá var hitinn við frostmark. Flaggskip breska flotans kom óvænt til Óslóar í Noregi áður en lengra er haldið norður á bóginn. Þetta er talið dæmi um að einnig Bretar beini nú sjónum sínum í norður til að mæta vaxandi ógn frá Rússum. Gísli Kristjánsson, fréttaritari í Osló, leit á skipið og spáir hér í hvað Bretum gangi til með heimsókn sinni. Stytting stúdentsbrauta í framhaldsskólum landsins úr fjórum árum í þrjú hefur leitt til þess að sumar námsgreinar hafa ýmist verið gerðar að valgreinum, eða dottið alveg út. Margt bendir til þess að nemendur komi verr undirbúnir í háskólanám í sumum greinum eftir breytingarn

Spegillinn
Kjaraviðræður í fullum gangi og kuldi í Úkraínu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 24, 2022

Fjölmiðlafrelsi í Katar, Skriðuföll og Mjanmar.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 17, 2022

Nancy Pelosi ætlar að hætta sem leiðtogi Demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, en sitja áfram á þingi. Tap Demókrata í þingkosningum og árás á eiginmann hennar eru taldar helstu ástæðurnar. 16 ára drengur var fjóra daga í einangrun vegna gruns um að hann væri viðriðinn kókaínsmygl sem faðir hans er grunaður um. Landsréttur felldi gæsluvarðhaldið úr gildi þar sem gögn málsins renndu ekki stoðum undir þann grun lögreglunnar. Hatursglæpir færast í aukana samkvæmt tölfræði Ríkislögreglustjóra. Talið er að slíkir glæpir séu fleiri en tilkynningar til lögreglu segja til um. Það reynir á gestrisni Katara þegar augu fjölmiðla beinast að heimsmeistaramótinu í fótbolta sem hefst á sunnudag. Fjölmiðlamenn hafa nú þegar lent í útistöðum við yfirvöld í landinu. Læknanemar sem læra erlendis eiga margir erfitt með að ná endum saman. Þeir bera sjálfir hitann og þungann af skólagjöldum. --- Stærsti íþróttaviðburður heims er handan við hornið. Á sunnudag verður flautað til leiks á Heimsmeistaramóti karla í fótbolta í Katar. Gestgjafarnir eru umdeildir. Mannréttindi og aðbúnaður fólks sem reisti gríðarstóra leikvanga hafa verið í brennidepli. Og nú streyma lið og fylgdarlið til olíuríkisins og því fylgir fjölmiðlafólk alls staðar að úr veröldinni. Og þá verða árekstrar. Frelsi fjölmiðla í landinu er ekki mikið. Á lista Samtaka blaðamanna án landamæra yfir frelsi fjölmiðla situr Katar í sæti 110. Fjölmiðlafólki sem sækir landið heim þessa dagana er sniðinn stakkur eftir hentisemi yfirvalda í Katar, til að mynda var fréttamönnum TV2 í Danmörku meinað að mynda á ákveðnum stöðum og reynt að koma í veg fyrir beina útsendingu þeirra nema undir ströngu eftirliti. Við skulum heyra í Rasmus Tantholdt fréttamanni TV2 sem staddur er í Katar og hvernig öryggisverðir brugðust við þegar hann ætlaði að fara í beina útsendingu við hringtorg á víðavangi fyrr í vikunni. Bjarni Rúnarsson tók saman. Í morgun féll aurskriða úr hlíðinni ofan við Grenivíkurveg, sunnan við Fagrabæ. Tveir bílar lentu í skriðunni og annar hreifst með niður fyrir veginn eins Ægir Jóhannsson lýsti í hádegisfréttum. Ægir var á leiðinni í vinnuna árla morguns þegar hann ók fram á skriðuna. Stórt sár er fyrir ofan veginn og mögulega hreyfing enn á vatnsósa hlíðinni. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Esther Hlíðar Jensen, skriðusérfræðing á Veðurstofunni. Herforingjastjórnin í Mjanmar gaf í dag hátt í sex þúsund föngum upp sakir, þar á meðal nokkrum útlendingum sem var vísað úr landi. Stjórnvöld í landinu hafa alþjóðasáttmála um mannréttindi að engu. Fjöldi fólks

nancy pelosi dem ve katar tali fj stj tv2 katara bandar tveir skri samtaka frelsi landsr mannr heimsmeistaram anna krist greniv
Spegillinn
Fjölmiðlafrelsi í Katar, Skriðuföll og Mjanmar.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 17, 2022 30:00

Tógólísa, bókmenntir á Vestfjörðum, mexíkósk tónlist

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 3, 2022 55:00

Íslenska heimildamyndin Togolísa var nýverið valin besta heimildamyndin á City of Angels hátíðinni, sem er kvikmyndahátíð kvenna í Los Angeles. Togolísa fjallar um rokkbúðir fyrir unglingsstúlkur í Togo, en er fyrst og fremst ástaróður til stúlknasamfélagsins í búðunum og til kvenna almennt, hvar sem er í heiminum, svo vitnað sé í leikstjóra myndarinnar Öldu Lóu Leifsdóttur, sem leit hér við í morgun. Þær Alda Lóa og Rut Sigurðardóttir, sem sá um myndatöku, verða gestir þáttarins Frá Vesturbyggð til Venezúela - Vestfirskar heimsbókmenntir - er yfirskrift bókmenntaviðburðar sem fram fer í menningarhúsinu Edinborg næstkomandi fimmtudagskvöld. Þar mæta til leiks fimm höfundar sem hafa allir ólíka tengingu við svæðið og ólíkan uppruna: Hin finnska Satu , sem hefur nýverið skrifað sinn fyrsta krimma, sem gerist á Ísafirði og rauk beint á topp metsölulistanna í Finnlandi; Helen Cova frá Venesúela, formaður Ós pressunar, rithöfundasambands höfunda af erlendum uppruna á Íslandi, og hin litháíska Greta Letúnínkæte, sem auk þess að kenna ritlist á Ísafirði hefur gefið út vinsæla bók í Litháen. Þá lesa þau Birta Ósmann Þórhallsdóttir, skáld og aðstandandi bókaforlagsins Skriðu á Patreksfirði; og Eiríkur Örn Norðdahl, rithöfundur, úr sínum verkum við tækifærið, en Eiríkur stóð auk þess að skipulagi viðburðarins. Við forvitnumst nánar um fjölbreytt samfélag rithöfunda á Vestfjörðum. Í dag tekur líka til máls nýr pistlahöfundur hér í Víðsjá, tónlistarkonan Jelena Ciric. Jelena mun í pistlum sínum fara með okkur í ferðalög vítt og breitt um strauma og stefnur hinna ýmsu tónlistarstefna, og til ólíkra landa. Að þessu sinni förum við upp á hásléttu í Mexíkó, en Jelena dvaldi í tvö ár í litlu fjallaþorpi þar í landi áður en hún settist að hér við norðurpólinn.

los angeles angels togo satu venez hin jelena eir mex lith birta skri finnlandi vestfj leifsd patreksfir
Víðsjá
Tógólísa, bókmenntir á Vestfjörðum, mexíkósk tónlist

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 3, 2022

Podcasty Aktuality.sk
Túžite po vlastnej pracovni či dielni? Využite na to vstavanú skriňu

Podcasty Aktuality.sk

Play Episode Listen Later Jun 28, 2022 28:33

Aj takto sa dá zužitkovať priestor či už bývate v menšom byte alebo chcete šetriť miestom. Vstavané skrine dokážu vytvoriť ideálne miesto na čokoľvek a výhodou je, že ak dané veci aktuálne nepotrebujete, stačí zavrieť dvere a nie sú na očiach. Na čo si ale dať pozor, keď si chceme dať vyrobiť nábytok na mieru? Aké zvoliť farby a materiály, aby nové skrine a zariadenie nielen ladili v celej domácnosti, ale boli najmä funkčné a mali veľa úložného priestoru sme sa rozprávali v podcaste portálu Nehnuteľnosti.sk s majiteľom spoločnosti Kapritz Romanom Wagnerom.

ak skri
Morgunvaktin
Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu, skriður og Salómon-eyjar

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 15, 2022

Í gildi er ? og hefur verið frá 2018 ? samkomulag um skipulag og fjármögnun uppbyggingar á samgönguinnviðum á höfuðborgarsvæðinu, það gildir til ársins 2033. Að samgöngusáttmálanum standa ríkið og sveitarfélögin sex á höfuðborgarsvæðinu. Við fjölluðum um sáttmálann hér í þættinum í síðustu viku; drógum þá upp helstu atriði sem eru nokkrar framkvæmdir, sumar nokkuð viðamiklar, og borgarlína. Til er hópur áhugafólks um samgöngur fyrir alla. Félagar eru ósáttir við sáttmálann og vilja að farnar verði aðrar leiðir. Jónas Elíasson verkfræðingur ræddi hugmyndir hópsins. Eyríkið Salómoneyjar í Kyrrahafi komst í fréttir á dögunum þegar upp komst um leynilegan varnarsamning sem landið hefur gert við Kína. Samingurinn er afar umdeildur enda gæti hann breytt umtalsvert valdahlutföllum á Kyrrahafi. Salómoneyjar eru fátækt eyland og saga þess hefur verið róstusöm. Vera Illugadóttir sagði frá. Hálft ár er síðan margar skriður féllu í Köldukinn, og stór skriða féll í Eyjafirði fyrir tæpum tveimur árum. Auk þess hafa fallið skriður í jarðskjálftahrinum, meðal annars á Tröllaskaga og Gjögurtá. Er sérstaklega fylgst með þessum svæðum og hver er hættan á Norðurlandi? Ágúst Ólafsson fréttamaður á Akureyri ræddi við Sigurdís Björgu Jónasdóttur, náttúruvársérfræðing hjá Veðurstofunni, um skriðusvæði í lok þáttar. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Ég heyri svo vel - Olga Guðrún Árnadóttir Highwayman ? Highwayman Hárfinnur hárfíni - Eggert Þorleifsson

Play Episode Listen Later Jun 15, 2022 130:00

Átök um efnavopn í öryggisráði SÞ, áróðursstríð og mataræði Íslendinga

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 11, 2022

Hart var tekist á um efnavopn í Úkraínu á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í dag. Tvær og hálf milljón hefur flúið Úkraínu eftir að innrás Rússa hófst. Gert er ráð fyrir að allt að fjögur þúsund flóttamenn komi hingað til lands. Bjarni Pétur Jónsson tók saman og heyrist í Joe Biden Bandaríkjaforseta, Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra og Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra. Staðan í uppistöðulónum Landsvirkjunar er lægri en spáð var í byrjun árs og vatnsbúskapur með versta móti. Skerðingar á afhendingu orku verða fram á vor. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Hörð Arnarson forstjóra Landsvirkjunar. Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Þorsteins Más Baldvinssonar þar sem Seðlabanka Íslands var gert að greiða honum tæpar 2,7 milljónir í skaða- og miskabætur vegna Samherjamálsins svokallaða. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra telur að landsmenn verði að þrauka faraldurinn, ekki standi til að herða sóttvarnir. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir tók saman. Vegurinn um Vattarnesskriður, milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar, er ófær vegna skriðufalla. Skriður féllu á veginn í morgun en töluvert hefur rignt fyrir austan. Ólöf Ýr Erlendsdóttir tók saman. Verkefnið Römpum upp Ísland hófst formlega í dag, setja á upp eitt þúsund hjólastólarampa um allt land til að bæta aðgengi. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, var ekki viðstaddur kynningu verkefnisins í Hveragerði eins og til stóð vegna covid-smita á Bessastöðum, en sendi kveðju þaðan. ------------- Samhliða bardögum í Úkraínu geisar áróðursstríð. Fjölmiðlum hefur verið lokað í Rússlandi og varðar fangelsisvist að segja það sem stjórnvöld þar segja falsfréttir af Úkraínu. mótar afstöðu rússnesks almennings, meirihluti hans styður Pútín. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Elfu Ýr Gylfadóttur, framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar. Ávaxtaneysla hefur minnkað, en neysla á sykruðum gosdrykkjum hefur dregist saman. Í gær voru kynntar niðurstöður úr landskönnun á mataræði landsmanna. Þar eru bæði góðar og slæmar fréttir. Þjóðin þarf að borða mun meira af grænmeti og ávöxtum svo að vel sé. Bjarni Rúnarsson ræddi við Hólmfríði Þorgeirsdóttur, Jóhönnu Eyrúnu Torfadóttur og Bryndísi Evu Birgisdóttur. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar frétta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.

tv hart gu matar sta fj stj reykjav sker gunnarsson umsj ingibj brynd hafd hverager gylfad skri arnarson eyr sameinu landsr anna krist samhli bessast torfad freyr g bjarni p

Play Episode Listen Later Mar 11, 2022 9:59

Mannlegi þátturinn
Systurnar á Enni og síðasta póstkort ársins

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 30, 2021 50:00

Á Skriðinsenni í Bitrurfirði á Ströndum búa mæðgurnar Steinnunn Hákonardóttir og móðir hennar Lilja Jónsdóttir, Ólafía systir Lilju býr á Hólmavík en dvelur oft á Enni. Systurnar tvær eru komnar yfir nírætt og Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, fékk að koma í heimsókn og rifjaði upp með þeim systrum minningar frá liðinni tíð. Í síðasta póstkorti ársins frá Magnús R. Einarssyni segir hann frá nokkrum áramótum sem hann hefur upplifað á ferðum sínum erlendis. Hann hefur verið í þó nokkrum löndum um áramót svo sem Englandi, Spáni, Skotlandi, Ítalíu, Indlandi og Nýja Sjálandi, en hann segir frá nokkrum þeirra og ólíkri upplifun í hverju og einu landi. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

str sj magn krist asta hann einarsd enni englandi skri skotlandi indlandi
Morgunútvarpið
4. okt - Kennitöluflakk, styrkir, skriður, bleika slaufan og íþróttir

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 4, 2021 130:00

Umsjón: Rúnar Róbertsson og Gígja Hólmgeirsdóttir Fréttastofa Stöðvar2 sagði frá þvi um helgina að viðgerð á bílskýli vegna sprungu og leka hafi kostað tugmilljóna króna vegna hönnunargalla og ónógs eftirlits að hálfu verkfræðistofu og viðgerðin er ekki fullkláruð. Stofan hafi fengið verktaka með brotaferil að baki, segir í fréttinni, til að vinna verkið sem hafi algjörlega mislukkast. Þegar hann fór í þrot í miðju verki var samið við hann á ný á nýrri kennitöliu. Við fengum formann Neytendasamtakanna, Breka Karlsson, til okkar til að fara almennt yfir þessi mál. Hvar stendur neytandinn í svona málum og eru þau algeng inná borð Neytendasamtakanna? Í nýrri skýrslu Perform Europe, þar sem styrkjakerfi sviðslista í 41 Evrópulandi er skoðað, kemur í ljós að Ísland raðar sér í neðstu sætin þegar kemur að styrkjum til sýningarferða og samstarfs íslensks sviðslistafólks utan landssteinanna. Við fengum til okkar Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóra Bandalags sjálfsstæðra leikhúsa, til að segja okkur nánar frá niðurstöðum skýrslunnar og fara almennt yfir styrkjaumhverfi íslenska sviðslista. Mikil úrkoma hefur verið á Norðurlandi eystra og hafa aurskriður fallið víða. Ástandið er sérstaklega slæmt í Þingeyjarsveit og í gær var sjötti bærinn rýmdur vegna mikillar úrkomu og skriðuhættu, bærinn Nípá í Útkinn. Við hringdum í Braga Kárason, bónda á Nípá, og athugum hvernig staðan er hjá þeim núna í morgunsárið. Og tókum svo stöðuna hjá Hermanni Karlssyni aðalvarðstjóra í aðgerðarstjórn hjá lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra um sama mál. Á föstudaginn 1. október hófst árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands, Bleika slaufan, undir slagorðinu ?VERUM TIL?. Í ár segir Lára okkur sína sögu í auglýsingunum. Saga hennar er persónuleg og einstök. Lára Guðrún Jóhönnudóttir og Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, komu til okkar. Og svo við fórum yfir íþróttir helgarinnar með Kristjönu Arnarsdóttur. Tónlist: Friðrik Dór - Segðu mér Kacey Musgraves - Justified Queen - You're my best friend Robbie Williams - Come undone Dikta - Just getting started Of monsters and men - Circles Paul Simon - Graceland Unnsteinn Manúel - Lúser Friðrik Ómar - Hvað ef ég get ekki elskað Jamiroquai - Alright Eddie Vedder - Long way

saga gu hva halla kristj hvar evr umsj mikil skri arnarsd neytendasamtakanna bandalags krabbameinsf
Víðsjá
Saga borgarættarinnar, Sequences, Þétting hryggðar og Sjálfsvorkun

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 29, 2021 55:00

Í Víðsjá verður hugað að endur-frumsýningu á kvikmyndinni Sögu borgarættarinnar eftir samnefndri skáldsögu Gunnars Gunnarssonar sem tekin var upp á Íslandi árið 1919 og frumsýnd í Kaupmannahöfn ári eftir. Nú stendur til að frumsýna myndina að nýju með nýrri tónlist Þórðar Magnússonar tónskálds en frumsýningin fer samtímis fram í Reykjavík, á Akureyri og Seyðisfirði og er sýningin hluti af dagskrá kvikmyndahátíðarinnar RIFF sem hefst á morgun. Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Skriðuklausturs, verður tekinn tali um þetta forvitnilega verkefni. Listahátíðin Sequences fer fram í tíunda sinn dagana 15-24. október næstkomandi. Hátíðin er sjónlistatvíæringur sem hefur verið haldin frá árinu 2006 með sérstaka áherslu á rauntímalistaverk. Yfirskrift sýningarinnar í ár er: Kominn tími til, og í brennidepli verða samtöl listamanna við umhverfi sitt, sögu eða við aðra listamenn. Samtöl sem fléttast meðvitað og o?meðvitað inn i? ti?ðaranda og ri?kjandi hugmyndir i? samfe?laginu. Við heyrum í sýningarstjórum Sequences í þætti dagsins þeim Þórönnu Dögg Björnsdóttur og Þráni Hjálmarssyni. Snæbjörn Brynjarsson, leiklistargagnrýnandi þáttarins, verður með okkur í dag. Hann skellti sér á sýninguna Þétting Hryggðar eftir uppistandarann, rithöfundinn, víninnflytjandann og áhugaboxarann Halldór Laxness Halldórsson einnig þekktur sem Dóri DNA. Gauti Kristmannsson bókmenntagagnrýnandi Víðsjár segir frá bókinni Stóra bókin um sjálfsvorkunn eftir Ingólf Eiríksson sem kom út nú á dögunum hjá Forlaginu og segir frá Hallgrími sem hrökklast heim úr leiklistarnámi í erlendri stórborg til að fara á geðdeild. Umsjón: Guðni Tómasson og Tómas Ævar Ólafsson

dna saga bj gu ing sn hj magn riff samt hann sequences reykjav eir gunnarsson halld akureyri sey hallgr umsj kaupmannah skri listah kominn brynjarsson laxness halld gauti kristmannsson
Morgunvaktin
Verðbólgan komin á skrið, Hagatorg og Berlín vaknar til lífsins

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later May 25, 2021 130:00

Verðbólgan er komin á skrið; hún mældist 4,6% í apríl. Þar ráða einkum gengislækkun krónunnar og miklar hækkanir launa og húsnæðisverðs, eins og Seðlabankinn orðar það. Og hvað er til ráða? Jú, hækka vexti ? og það var gert í síðustu viku. Við fjölluðum um efnahagsástandið í spjalli um efnahag og samfélag með Þórði Snæ Júlíussyni, ritstjóra Kjarnans. Þórður sagði okkur líka hvers vegna Bill Gates er jafn ofboðslega ríkur og raun ber vitni. Berlínarbúar flykktust út á götur og torg um helgina þegar slakað var á samkomutakmörkunum. Eftir sjö mánaða bann má nú loks njóta veitinga á útikaffihúsum, fara á söfn og í sund, svo eitthvað sé nefnt. Arthúr Björgvin Bollason naut lífsins lystisemda ásamt samborgurum ? utandyra um helgina. Hann sagði okkur frá því þegar stórborgin þýska vaknaði loks til lífsins. Hagatorg í Vesturbæ Reykjavíkur er merkilegt fyrirbrigði í borgarskipulaginu. Það er stórt og mikið - líklega stærsta hringtorg borgarinnar ? og tekur því talsvert pláss sem á engan hátt nýtist fólkinu í hverfinu. Borgaryfirvöld hafa ákveðið að því skulu breyta og kalla nú eftir hugmyndum um þróun þess sem almenningsgarðs eða almenningsrýmis, meðal annars í þágu skólanna þar við. Fyrir nokkrum árum setti Hilmar Þór Björnsson arkitekt einmitt fram hugmyndir í þá veru; hann kom á Morgunvaktina og spjallaði um torgið mikla. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Samfélagið
Skriðuföll, stytting vinnuvikunnar og jöklarannsóknir á síðustu öld

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jan 4, 2021 55:44

Þorsteinn Sæmundsson, jarðfræðingur: Skriðuföll heima og erlendis. Hvað olli skriðunni í Ask í Noregi? Hver er staðan á eftirliti og rannsóknum á skriðuföllum á Íslandi? Sonja Ýr Þorbergsdóttir, BSRB: Stytting vinnuvikunnar, áskoranir og aðlögun. Unnur Birna Karlsdóttir, sagnfræðingur og forstöðumaður rannsóknarseturs HÍ á Austurlandi: Við horfum til jöklarannsókna sem stundaðar voru hér um miðja síðustu öld af Dr Emely Todman, en hún var þýskur jarðfræðingur og fyrsta konan til að stunda rannsóknir á jöklum hér á landi. Í mörg sumur ferðaðist hún ein um hálendi Íslands, fyrst í byrjum fjórða áratugarins. Unnur Birna rannsakar sögu Dr Todman.

Spegillinn
Stór Jarðskjálfti

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 20, 2020 30:00

Jarðskjálftinn sem reið yfir suðvesturhorn landsins rétt fyrir klukkan tvö í dag var 5,6 að stærð. Á þriðja hundrað minni skjálftar hafa fylgt í kjölfarið. Stóri skjálftinn fannst víða um land en mest á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu. Skjálftinn í dag er sá stærsti sem mælst hefur á Reykjanesskaganum frá því árið 2003. Upptök hans voru 6 km fyrir vestan Kleifarvatn og 14 kílómetra norðaustan við Grindavík. Ekki hafa borist tilkynningar um slys á fólki eða tjón á mannvirkjum. Skriða féll á veginn um Djúpavatnsleið skammt frá upptökum skjálftans. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag ríkið af kröfu Kristjáns Viðars Júlíussonar og dánarbús Tryggva Rúnars Leifssonar. Þeir kröfðust bóta fyrir tjón vegna Guðmundar- og Geirfinnsmálsins og tekjutap vegna frelsissviptingar. Rætt var við Halldór Geirsson, jarðeðlisfræðing hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, stóra skjálftann sem var í dag og um gosvirknina á Reykjanesskaga. Arnar Páll Hauksson talaði við Halldór. Útlitið í ferðaþjónustunni næstu vikur er kolsvart segir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Ferðaþjónustufyrirtæki vonast eftir beinum rekstrarstyrkjum frá ríkinu til að lifa af veturinn. Kristján Sigurjónsson talaði við Bjarnheiði Hallsdóttur. Sjálfsstjórn einstakra landshluta í Bretlandi hefur verið pólitískt deilumál í Bretlandi í áratugi. Covid-19 faraldurinn hefur með óvæntum hætti styrkt bæði sjálfsstjórn og sjálfsímynd svæðanna fjögurra sem hafa tekið á faraldrinum með ólíkum hætti. Kjörnir borgarstjóra í ýmsum stærstu borgum Bretlands hafa svo undanfarið staðið upp í hárinu á bresku stjórnina í togstreitu um veiruaðgerðir sem að hluta snúast um að ,,þeir þarna fyrir sunnan“ skilji ekki lífsskilyrðin fyrir norðan. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.

Flugur
Bílar og ferðalög

Flugur

Play Episode Listen Later Jul 20, 2020 47:34

Íslensk lög þar sem fjallað er um bíla, mótorhjól og þjóðvegina. Flytjendur eru Skriðjöklar, Ragnar Bjarnason og Helgi Björnsson, Sigga Eyrún, Póker, Laddi, Ómar Diðriksson, KK og Grinders, Sniglabandið og Díana Hermannsdóttir og Björgvin Gíslason.

bj kk grinders skri hermannsd laddi helgi bj
Flugur
Bílar og ferðalög

Flugur

Play Episode Listen Later Jul 20, 2020

Íslensk lög þar sem fjallað er um bíla, mótorhjól og þjóðvegina. Flytjendur eru Skriðjöklar, Ragnar Bjarnason og Helgi Björnsson, Sigga Eyrún, Póker, Laddi, Ómar Diðriksson, KK og Grinders, Sniglabandið og Díana Hermannsdóttir og Björgvin Gíslason.

bj kk grinders skri hermannsd laddi helgi bj
Morgunútvarpið
19. des. - Snjómokstur, menning, Mussila, Sara Björk og málfar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 19, 2019 130:00

Mikill snjór er víða á Norðurlandi og á Akureyri hefur snjómokstursfólk ekki undan að moka snjó af götum. Þar vinna um 50 manns á um 40 snjómoksturstækjum allan liðlangann daginn og ekkert útlit er fyrir að það breytist á næstunni, þar sem enn meiri snjór er í veðurkortunum. Gígja Hólmgeirsdóttir fékk Kristinn H. Svanbergsson, sem er einn af þeim sem hafa unnið baki brotnu undanfarið, til sín í hljóðver fyrir norðan og spurði hann út í snjómoksturslífið. Birta Þórhallsdóttir rekur Menningarsetrið Holt á Hvammstanga sem og bókaútgáfuna Skriðu. Í Holti fara fram ýmsir menningarviðburðir og bókaútgáfunni mun stýrt af ketti... eða svo segir sagan. Við hringdum norður og heyrðum meira af menningarlífi á Hvammstanga, bókelskum ketti og hvernig heimamenn tókust á við óveðrið í síðustu viku. Mikið vatn hefur runnið til sjávar á aðeins fimm árum hjá fyrirtækinu Mussila. Smáforrit þetta, sem kennir börnum tónfræði, hefur verið þýtt á 35 tungumál og unnið til fjölda verðlauna. Nú síðast Norrænu fræðslutækniverðlaunin. Margrét Júlíana Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Musilla sagði okkur meira af þessu. KSÍ hefur útnefnt landsliðsfyrirliðann Söru Björk Gunnarsdóttur knattspyrnukonu ársins. Sara gerir upp uppvöxt sinn og feril í nýrri bók, sem kallast Óstöðvandi. Söguna skráði Magnús Örn Helgason knattspyrnuþjálfari, en þau Sara þekktust ekkert fyrir skrifin. Þau voru gestir Morgunútvarpsins og við ræddum tilurð bókarinnar, markmið og lífið. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur kom til okkar í sína vikulegu heimsókn og við ræddum íslenskt mál, m.a. heiti á jólaveitingum. Tónlist: KK og Ellen - Jólin eru að koma. Paul McCartney og Wings - My love. Ísold og Már - Jólaósk. Eagles - Please come home for Christmas. Björgvin Halldórsson - Bróðir segðu mér sögu. Stevie Wonder - The Christmas song. Kristjana Stefáns - Hversu fagurt væri það.

Segðu mér
Guja Sandholt og Pétur Oddbergur Heimisson klassískri söngvarar

Segðu mér

Play Episode Listen Later Oct 14, 2019 40:00

Guja og Pétur Oddbergur lærðu bæði söng í Hollandi og sóttu tíma hjá Jóni Þorsteinssyni sem starfaði lengi í Hollandi. Guja er í Hollenska útvarpskórnum en starfar einnig hér heima og Pétur er nýfluttur heim. Þau eru að skipuleggja LJóðadaga Óperudaga og segja frá því en þau kalla þetta ljóð fyrir loftslagið og innblásturinn er sóttur í Gretu Thunberg, markmið hátíðarinnar er að búa til jákvæðan og valdeflandi vettvang til að huga að loftslagsmálum.

lj klass hollandi skri heimisson hollenska
Spegillinn
Norðurlöndin tali einum rómi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 20, 2019 30:00

Norðurlandaþjóðirnar ætla að tala einum rómi á fundi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál í haust, þannig fá þær aukinn slagkraft á alþjóðavettvangi, segir forsætisráðherra. Norðurlöndin eigi að verða sjálfbærasta og best samþætta svæði í heimi. Skriða úr veðruðu móbergi við Reynisfjöru kemur ekki á óvart, segir sérfræðingur Veðurstofunnar. Hluta fjörunnar var lokað í gær eftir að ferðamenn urðu fyrir skriðu; önnur stærri féll þar í nótt. Bretar ætla að hætta að taka þátt í helmingi funda og ráðstefna á vegum Evrópusambandsins. Breskir embættismenn eiga þess í stað að einbeita sér að Brexit 31. október. Fyrir átta árum þegar síðast var gerð landskönnun á mataræði Íslendinga var einn af hverjum hundrað grænmetisæta. Framkvæmdastjóri Krónunnar telur að í dag sleppi tífalt fleiri kjöti. Fullyrðingar um að samþykkt þriðja orkupakkans skuldbindi Ísland til að standa ekki í vegi fyrir fyrir lagningu sæstrengs eru óskiljanlegar. Í hafréttarsáttmálanum sé skýrt kveðið á um að enginn getur lagt sæstreng inn í landhelgi án samþykkis viðkomandi ríkis. Þetta segir sérfræðingur í hafréttarmálum. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn útsendingar: Björg Guðlaugsdóttir

brexit bj kr gu ve tali fyrir evr umsj framkv skri sameinu anna krist bretar