Firmað ritar

Follow Firmað ritar
Share on
Copy link to clipboard

Firmað ritar fjallar um bækur sem breyttu heiminum og um leið hafa haft áhrif á umsjónarmenn. Kjartan Örn Sigurðsson og Kolbeinn Marteinsson kynntust í Háskóla Íslands í kringum aldamótin þar sem þeir námu stjórnmálafræði. Eftir HÍ fóru þeir í framhaldsnám, viðskipti og í að þróa sinn starfsframa. Nú sem miðaldra karlar hafa þeir snúið bökum saman reynslunni ríkari að eigin sögn. Hér ræða þeir til skiptis bækur sem hafa gagnast þeim undanfarin 20 ár, í viðskiptum, rekstri, einkalífi eða einfaldlega veitt þeim innblástur og gleði. Firmað ritar er því fyrir öll þau sem vilja bæta sig og vonandi um leið læra eitthvað nýtt. Athugið að þættirnir eru gefnir út þegar tími gefst.

Satriali's Pork Store


    • Oct 16, 2023 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 1h 27m AVG DURATION
    • 15 EPISODES


    Search for episodes from Firmað ritar with a specific topic:

    Latest episodes from Firmað ritar

    The Complete Guide to Mergers and Acquisitions - Þegar Kjartan keypti Ormsson

    Play Episode Listen Later Oct 16, 2023 79:39


    Í þessum þætti fjallar Kjartan um The Complete Guide to Mergers and Acquisitions og um leið hvernig hann nýtti sér hana þegar hann keypti fyrirtækið Ormsson. 

    Executive Presence - Framkoma bestu stjórnendanna? Andrés Jónsson

    Play Episode Listen Later Mar 30, 2022 122:15


    GestastjórnunÍ þessum þætti kemur Andrés Jónsson stjórnendaráðgjafi í heimsókn og ræðir bókin Executive Presence eftir Sylwia Hewlett.  Í bókinni er farið yfir umfangsmikla rannsókn þar sem skoðaðir voru þær þættir í framkomu sem mestu máli skipta.  Við ræðum þessa þætti, segjum sögur og pælum í því hvernig við getum tileinkað okkur þá í þessu fróðlega spjalli. 

    So You've Been Publicly Shamed - Opinber smánun á okkar tímum

    Play Episode Listen Later Jan 31, 2022 99:10


    So You've Been Publicly Shamed kom árið 2015 eftir Jon Ronson og tekur á útilokunarmenningu. Við ræðum í þessum þætti bókina efni hennar auk fleiri anga eins og samfélagsmiðla og hvernig smávægileg komment geta orðið að snjóflóði.  

    Málsvörn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar - Skuldsett yfirtaka

    Play Episode Listen Later Sep 30, 2021 99:32


    Einn mesti frumkvöðull Íslandssögunar og annar stofnandi Bónusveldisins fer hér yfir feril sinn frá Bónus og  alla leið til FL-Group, Glitnis og dómsstóla. Svo er ferðast um útrásina til  Bandaríkjanna,Stóra Bretlands,  Sullenberger, Jónína Ben, Magasin Du Nord, Iceland, Arcadia og auðvitað Gunnar Smári koma líka við sögu. . Við ræðum bókina og þennan merkilega mann Jón Ásgeir og arfleið hans. Málsvörn er fyrsta íslenska bókin sem við tökum til skoðunar. Vonandi samt ekki sú síðasta. 

    iceland arcadia bandar svo einn sullenberger bretlands
    Ten Deadly Marketing Sins - Markaðssyndirnar

    Play Episode Listen Later Sep 14, 2021 98:28


    Ten Deadly Marketing Sins  eftir Philip Kotler kom út árið 2004. Í þessum þætti ræðir Kjartan um hvernig hann nýtti sér þessa bók  þegar hann keypti ásamt félögum sínum hið gamalgróna fyrirtæki Ormsson . 

    Influence - hvaða sex lögmál hafa áhrif á hegðun okkar?

    Play Episode Listen Later May 30, 2021 99:35


    Influence - the Psychology of Persuasion kom fyrst út árið 1984 var svo endurútgefin árin 1994 og 2006. Í ár 2021 verður bókin svo  endurútgefin í enn stærri útgáfu þar sem höfundur bætir við einu lögmáli til viðbótar sem hann nefnir Unity.  Höfundurinn Robert  Caldini er doktor í sálfræði. Í þessari bók er farið í gegnum sex lögmál sálfræði og mannlegrar hegðunar og hvernig þau hafa áhrif á okkur.  Þetta er ein af þessum bókum sem allir ættu að lesa helst sem börn svo við getum sjálf nýtt okkur þessi lögmál en ekki síður áttað okkur á þeim þegar þeim er beint að okkur.Bókin hefur selst í yfir 5 milljónum eintaka og er aðgengileg á Amazon og Audible

    Made in America - Hvernig Walmart, stærsta fyrirtæki í heimi varð til

    Play Episode Listen Later May 15, 2021 98:28


    Made in America er sjálfsævisaga Sam Walton stofnanda Walmart. Hann skrifaði bókina á dánarbeðinu 1992 en í þessari einlægu frásögn fer hann yfir það hvernig hann fór frá því að eiga ekki neitt í að byggja upp það sem er í dags stærsta fyrirtæki í heimi með $540 milljarða veltu. Ef þú hefur áhuga á sögu verslunar í heiminum, ert að leita að innblæstri, vilt læra af mistökum annarra og fræðast um einn merkasta frumkvöðul síðari tíma þá er þetta bók fyrir þig.Bókina er hægt að nálgast á Amazon. Hana er hægt að fá sem hljóðbók á Audible 

    The Startup of You - Taktu stjórn á eigin starfsframa

    Play Episode Listen Later Apr 30, 2021 71:28


    The Start up of You kom út árið 2012. Höfundar eru Reed Hoffman, einn stofnenda Paypal og Linkedin og Ben Casnocha. Í bókinni er farið yfir hvernig við verðum að hugsa starfsferil okkar á annan hátt. Áður dugði að fá góða vinnu hjá stöndugu fyrirtæki og ef maður stóð sig vel þá óx maður og fékk framgang. Slík línuleg þróun á ekki við í dag og mæla höfundar með að við nálgumst starfsferill okkar eins og um væri að ræða rekstur á sprotafyrirtæki (Startup). Ferill okkar flestra sé sjaldnast línulegur heldur sé einkennist hann af því að fara upp og niður eftir tímakvarðanum.  Í bókinni er farið yfir og við ræðum í þessum þætti. Við verðum að skilgreina okkur - sérstöðu, gildismat og framboð og eftirspurn eftir færni og hæfileikum okkar. Við eigum að vera tilbúin að breyta um kúrs. Tengslanetið sé eitt það mikilvægasta sem við eigum. Farið er yfir hvernig maður byggir upp og viðheldur tengslaneti. Mikilvægi þess að við grípum stóru tækifærin þegar þau gefast.Áhættu hvernig mannkyn ofmetur áhættu og mikilvægi þess að við tökum áhættu á skipulagðan hátt.Bókina má nálgast á AmazonOg hún er aðgengileg á Audible    

    The Goal - Flöskuhálsar í rekstri

    Play Episode Listen Later Apr 15, 2021 76:42


    Bókin The Goal eftir Elyahu Goldratt kom út árið 1984. Í þessari bók kynnir höfundur heiminn fyrir kenningu sinni um flöskuhálsa (e. theory of constraints, TOC). Kenningin er notuð sem aðferð til að koma auga á flöskuhálsa í rekstri sem koma í veg fyrir að markmiðum sé náð.  Aðferðirnar sem hann leggur svo til bæta kerfisbundið flöskuhálsinn þar til hann er ekki lengur takmarkandi þáttur. Þetta er ein af þeim bókum sem Jeff Bezos, stofnandi og aðaleigandi Amazon og einn ríkasti maður í heimi, gerir kröfu um að stjórnendur sýnir lesi. Hann notar reyndar líka umgjörðina sem bókin lýsir til að skipuleggja framtíð Amazon.Í þættinum er vísað í viðtal Kjartans þar sem hann ræðir um bókina RIch Dad Poor Dad. Það viðtal má finna hér á Spotify.Hægt er að kaupa bókina af AmazonHún fæst einnig sem hljóðbók á Audible  

    Delivering Happiness - Saga Tony Hsieh stofnanda Zappos

    Play Episode Listen Later Mar 30, 2021 87:52


    Bókin Delivering Happiness: A Path to Profits, Passion, and Purpose kom út árið 2010. Þar er ævintýralegri ævi Tony Hsieh rakin en hann stofnaði tvö fyrirtæki Linkexchange sem selt var til Microsoft og netverslunina Zappos sem seld var til Amazon.  Í bókinni kynnumst við frumkvöðli sem áttar sig fljótlega að leikurinn snýst um annað og meira en að græða peninga. Tony lést af slysförum í nóvember 2020 aðeins 47 ára gamall. Bókina má kaupa á Amazon Og hana má einnig fá á Audible 

    Who Moved My Cheese - Breytingar: Hvað myndir þú gera ef þú værir ekki hrædd/ur

    Play Episode Listen Later Mar 15, 2021 77:07


    Who Moved My Cheese eftir Spencer Johnson kom út árið  1998 og er ein vinsælasta stjórnenda- og fyrirtækjabók allra tíma og hefur frá því hún kom út selst í tæplega 30 milljónum  eintaka. Bókin var á tímabili mest selda bókin á Amazon.com og hefur verið þýdd á ótal tungumál. Ein helsta ástæðan fyrir því að fyrirtæki breytast ekki hraðar en þau gera er að það er of mikið af fólki sem berst gegn breytingum. Frábær bók fyrir þá sem glíma við breytingar á vinnustaðnum eða heima fyrir. Læra að takast á við hræðslu og finna leið til að nálgast markmiðin sín.Bókina er hægt að kaupa á:Amazon Audible 

    Anything You Want - fyrirtækjarekstur á að snúast um hamingju

    Play Episode Listen Later Feb 26, 2021 76:35


    Anything You Want: 40 Lessons for a New Kind of Entrepreneur, eftir Derek Sivers kom út árið 2015. Kolbeinn ræðir í þessum þætti efni bókarinnar og fer yfir eitthvað af þeim 40 ráðum sem Sivers punktaði niður eftir að hafa stofnað fyrirtækið CDbaby.com  árið 1998. En Sivers seldi fyrirtækið 2008 fyrir 20 milljónir $ og setti alla peningana í góðgerðarmál. Lykilpunktar úr bókinni: Viðskipti snúast ekki um peninga heldur að láta drauma sína rætast. Skapaðu fyrirtækið þitt í samræmi við þína framtíðarsýn og farðu í viðskipti með það að markmiði að hjálpa öðrum þannig muntu draga til þín viðskipti.  Árangur kemur með því að endurmeta hluta og skapa ekki með því að markaðssetja eitthvað sem ekki virkar.  Eini tilgangurinn með öllu sem við gerum á að vera að gera okkur hamingjusöm, þess vegna eigum við bara að gera það sem gerir okkur hamingjusöm. Hægt er að kaupa bókina á Amazon UKOg það er hægt að hlusta á hljóðbók lesna af höfundi á Audible 

    Beermat Entrepreneur - frumkvöðlar og hvernig sprotar verða að fyrirtækjum

    Play Episode Listen Later Feb 15, 2021 78:29


    Beermat Entrepreneur kom út árið 2002  og er eftir Meke Southon, frumkvöðul sem komið hefur að stofnun fjölda fyrirtækja sem hafa langt. Í bókinni er fjallað um hvað einkennir frumkvöðla,  hvað drífur þá áfram og hvaða fimm stöður þurfa að vera rétt mannaðar til að fyrirtækið nái flugi,  Síðan eru hin þrjú stig fyrirtækisins skoðuð og rædd frá því að fyrirtækið er sproti eða fræ þangað til það er orðið eikartré. 

    The 4 Hour Workweek - hámarksafköst með minni vinnu

    Play Episode Listen Later Jan 29, 2021 73:29


    The 4 hour work week kom út árið 2007 og er skrifuð af Tim Ferris. Bókina má vel kalla sjálfshjálparbók en tilgangur hennar er að hjálpa lesendum að hanna líf sitt og einfalda með það að lokamarkmiði að fara vel með það dýrmætasta sem við öll eigum sem er tími okkar.  Ferris sýnir með dæmum að hin hefðbundna leið til starfsframa og sóun á tíma er alls ekki sú eina rétta. Öll dreymir okkur að verða rík. En ríkidæmið í draumum okkar snýst oftast um að við eigum nóg af tíma í að gera allt það sem okkur langar til að gera. Ferriss segir að alltof oft bíðum við þangað til við hættum að vinna til að ná þeim draumum og við getum vel tekið okkur löng frí, unnið í fjarvinnu og flutt til annara landa og látið drauma okkar rætast. Með því að hámarka afköst og einblína á styrkleika okkar getum við skapað meiri tíma fyrir okkur sjálf og  um leið orðið raunverulega rík.  Bók þessi hefur verið þýdd á um 40 tungumál og selst í yfir 2 milljónum eintaka. Tim Ferriss er í dag heimsfrægur og er hægt að lesa meira um hann hér.Bókina er hægt að kaupa á Amazon sem harðspjaldabók eða kindle Auk þess er hana að finna á Audible sem hljóðbók. 

    Raving Fans - viðskiptavinirnir eiga að elska þig

    Play Episode Play 45 sec Highlight Listen Later Jan 14, 2021 75:21


    Raving Fans er skrifuð af Ken Blanchard og Sheldon Bowles sem hafa selt meira en 12 milljónir eintök af bókunum sínum á tuttugu og fimm tungumálum.Í bókinni nota höfundarnir frábær dæmi og skemmtilegan söguþráð til að útskýra hvernig skapa á framtíðarsýn, skilja hvað viðskiptavinurinn er nákvæmlega að leita eftir, mikilvægi ferla og hvernig veita á þjónustuupplifun sem breytir viðskiptavinum í aðdáendur.Bókin er auðlesin, aðeins 137 blaðsíður og kom fyrst út árið 1993.

    ken blanchard raving fans eiga elska sheldon bowles

    Claim Firmað ritar

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel