Podcasts about bretlands

  • 39PODCASTS
  • 469EPISODES
  • 1h 14mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • May 19, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about bretlands

Latest podcast episodes about bretlands

Spegillinn
Matvælaverð hækkar í hverjum mánuði, leiðtogafundur í London og sólarorkubylting

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 19, 2025 20:00

Verð á matvælum hefur hækkað í hverjum einasta mánuði frá áramótum samkvæmt verðlagseftirlit ASÍ. Nautakjöt hefur hækkað mest og í einstaka tilfellum um allt að 20 prósent á ársgrundvelli. Það eru að verða níu ár síðan meirihluti breskra kjósenda samþykkti útgöngu úr Evrópusambandinu - og rúm fimm ár síðan útgangan tók formlega gildi - en á leiðtogafundi sem haldinn var í Lundúnum í morgun var hins vegar samþykkt að taka ákveðin skref til baka - til hagsbóta fyrir breskan almenning segir Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands. Innan stjórnarandstöðunnar er hins vegar talað um uppgjöf fyrir Evrópusambandinu. Sólarorkuverum fjölgar hratt á Íslandi og segja má að sólarorkubylting sé að hefjast. Orkuverð hækkar og búnaður hefur batnað. Plötur sem fanga orkuna þurfa ekki glampandi sól og rafhlöður geta geymt orkuna til næturinnar. Fyrirtækið Alor setur þessa dagana upp sólarorkuver á nokkrum stöðum á landinu.

illverk
Gordon Cummins "The Blackout Ripper"

illverk

Play Episode Listen Later May 1, 2025 10:00

Gordon Frederick Cummins var breskur raðmorðingi þekktur sem "Blackout Killer" því hann gekk um götur London í leit af fórnarlömbum á meðan allt var dimmt. Stjórnvöld Bretlands ákváðu að hafa Black Outs eða Blitz til að forðast loftárásir frá Þýskalandi. Hann myrti fjórar konur og reyndi að myrða tvær aðrar á sex daga tímabili í London í febrúar 1942. Hann er einnig grunaður um að hafa framið tvö fyrri morð í október 1941. Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ᴋ

Spegillinn
Breytingar á endurgreiðslum og hringferð bænda og ráðherra

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 14, 2025 20:00

Fyrirhugað er að gera breytingar á því hvernig endurgreiðslum fyrir kvikmynda-og sjónvarpsverkefni verður háttað. Markmiðið á að vera að draga úr ófyrirséðum útgjaldavexti. Ef líkum lætur verður nýtt met slegið á þessu ári í endurgreiðslum; áætlað er að þær nemi sex milljörðum Afkoma bændastéttarinnar, nýliðun, tollvernd og stuðningur við íslenskan landbúnað, var það sem helst brann á bændum í hringferð Bændasamtakanna og atvinnuvegaráðherra í síðustu viku. Formaður Bændasamtakanna segir bændur kalla eftir nýrri hugsun og auknum skilningi stjórnvalda. Framtíð íslensks landbúnaðar felist í nýjungum og nýrri kynslóð bænda. Homicide prediction project - morðspáarverkefnið - miðar að því - eins og nafnið felur í sér - að þróa hugbúnað sem ætlað er að gera yfirvöldum kleift að finna líklega framtíðarmorðingja, með greiningu á fyrirliggjandi gögnum um fólk sem komist hefur í kast við lögin - jafnvel þótt með óbeinum hætti sé. Þetta hljómar óneitanlega eins og lýsing á klisjukenndri vísindaskáldsögu eða bíómynd, en titillinn - Homicide prediction project - var reyndar vinnuheitið á verkefni sem hleypt var af stokkunum í forsætisráðuneyti Bretlands þegar Rishi Sunak réði þar ríkjum, og hefur nú fengið öllu sakleysislegra og stofnanakenndara heiti: „Deiling gagna til að bæta áhættumat“.

Heimskviður
194 - Jólin komin í Venesúela og stóra Lego-slysið

Heimskviður

Play Episode Listen Later Oct 12, 2024 38:40

Saga Edgar Ochoa er ein nærri átta milljóna sem flóttamenn frá Venesúela hafa að segja af ástandinu í heimalandinu. Hann kom til Íslands fyrir um tveimur árum og hlaut íslenskan ríkisborgararétt nýverið. Hann fór til Venesúela í sumar og tók þátt í forsetakosningum, þar sem kjörstjórn lýsti Nicolas Maduro sigurvegara. Þriðja kjörtímabil hans er nýhafið og má segja að stjórnartíð hans hafi verið ansi stormasöm. Róbert Jóhannsson skoðaði sögu Venesúela og þá staðreynd að júlunum var hleypt af stokkunum þar fyrr en áður til að reyna að friða ósátta íbúa landsins. Fimm milljón Legó-kubbar eða stykki úr Legó-leikfangasettum enduðu í sjónum austur af Bretlandi í febrúar 1997, þegar flutningaskipið Tokyo Express fékk á sig brotsjó og meira en sextíu vörugámar féllu útbyrðis. Næstu vikur og mánuði fóru allskonar Legó hlutir að finnast á ströndum í suðvesturhluta Bretlands og víðar, og reyndar eru þeir enn að dúkka upp. Stóra Legóslysið, eins og þetta óhapp hefur verið kallað, hefur ekki aðeins snert taugar þeirra sem ólust upp við að leika sér að Legói heldur líka beint enn frekar athyglinni að þeim milljónum tonna af plasti sem rekur um heimsins höf. Björn Malmquist segir okkur frá.

Spegillinn
Öryggi ferðafólks, handhafar forsetavalds og samskipti Breta og ESB

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 3, 2024 20:05

Í síðustu viku fórust tveir útlendingar sem voru hér á ferðalagi, annar í bílslysi á Skaga, hinn féll í Hlauptungufoss á Suðurlandi og í sumar dó maður í íshellaferð á Breiðamerkurjökli. Þetta eru þrjú nærtæk dæmi um banaslys erlendra ferðamanna. Hingað koma í ár um tvær milljónir ferðamanna. Er nóg að gert til að tryggja öryggi þeirra gesta sem hingað koma? Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra. 23 fengu greitt fyrir að vera handhafi forsetavalds þau tvö kjörtímabil sem Guðni Th. Jóhannesson var forseti Íslands og námu greiðslurnar samtals 66 milljónum króna. Flestir virðast sammála um að gera þurfi breytingar á forsetakafla stjórnarskrárinnar, en það hefur gengið erfiðlega, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til þess. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman. Leiðtogar Bretlands og Evrópusambandsins ætla sér að bæta samskiptin í kjölfar útgöngu Breta fyrir fjórum árum. Til stendur að halda leiðtogafundi með reglulegu millibili og auka samstarfið, til dæmis á sviði öryggismála. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands var í Brussel í gær, á fundi með helstu forkólfum Evrópusambandsins - Björn Malmquist fylgdist með. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Vaxandi spenna í innrásarstríði Rússa og engin ánægður með ákvörðun ráðherra

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 13, 2024 20:00

Við ætlum að ræða við formann dómarafélags Íslands um umdeilda breytingu á dómskerfinu í Mexikó sem kveður á um að allir dómarar í landinu verða kosnir í beinni útsendingu. Svo er það mál vararíkissaksóknara og ákvörðun dómsmálaráðherra sem engin virðist ánægður með en ráðherrann ákvað að verða ekki við ósk um að leysa hann tímabundið frá störfum. En við byrjun á vaxandi spennu í kringum innrásarstríð Rússa í Úkraínu og fundi forsætisráðherra Bretlands og forseta Bandaríkjanna í Washington í kvöld.

Heimskviður
Sumar-Heimskviður / Kosningar á Indlandi og háleynilegur hálsmenafundur

Heimskviður

Play Episode Listen Later Aug 3, 2024 45:33

Indverjar náðu þeim merka áfanga fyrr á þessu ári að verða fjölmennasta þjóð heims. Og það er ekkert smá umstang þegar fjölmennasta ríki heims gengur til kosninga, eins og var raunin nú í vor. Enda tóku kosningarnar margar vikur. Fyrr í vetur fjallaði Guðrún Hálfdánardóttir um Indland í Heimskviðum, svolítið til að gefa innsýn inn í í hvaða umhverfi þessar umfangsmiklu kosningar fara fram. Mörg af efnuðustu löndum heims keppast við að koma á viðskiptum við Indland enda hvergi í heiminum jafn mikill hagvöxtur og þar. Land þar sem upplýsingaóreiða og um leið hatursorðræða í garð minnihlutahópa fær að blómstra og dafna í skugga þjóðernisflokks hindúa. Þá ætlum að huga að fortíðinni og fornminjum, nánar tiltekið hálsmeni úr skíragulli sem fannst í jörðu í Warvíkurskíri í Bretlandi fyrir um fjórum árum. Gullmenið er merkt Hinriki áttunda Englandskonungi og fyrstu eiginkonu hans, hinni spænskættuðu Katrínu af Aragorn. Þau voru gift í yfir tuttugu ár og skilnaður þeirra var afdrifaríkur fyrir breska menningarsögu. Sérfræðingar hjá Þjóðminjasafni Bretlands, British Museum, hafa legið yfir þessum dýrgrip síðan hann fannst og hafa nú rakið uppruna hans til hátíðahalda sem Hinrik áttundi hélt í febrúar annað hvort 1520, eða 1521. Það ríkti svo mikil leynd yfir rannsókninni að Rachel King, sérfræðingurinn sem stjórnaði henni mátti ekki einu sinni segja eiginmanni sínum af þessu. Það var Björn Malmquist sem fjallaði um þetta.

Spegillinn
Hver er Keir Starmer og hvaða verkefni bíða?

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 5, 2024 10:00

Hvaða verkefni bíða hins nýja forsætisráðherra Bretlands og nýrrar ríkisstjórnar hans? Halla Gunnarsdóttir hefur lengi fylgst vel með breskum stjórnmálum og starfaði um tíma innan þeirra. Hún bendir á að auka þurfi hagvöxt í landinu og lagfæra mikilvæga innviði, Bretland sé að mörgu leyti illa statt. Ævar Örn Jósepsson fjallar um fortíð Keirs Starmers, lögfræðings sem var öflugur verjandi og baráttumaður í mannréttindum sem varð grjótharður saksóknari. Hann þykir ekki sérlega litríkur og sjarmerandi, en á móti eldklár og rökfastur.

Heimsglugginn
Bretar kjósa nýtt þing

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jul 4, 2024 22:37

Guðrún Hálfdánardóttir og Vera Illugadóttir ræddu við Boga Ágústsson um bresku þingkosningarnar sem eru í dag. Við heyrðum í sir John Curtice, helsta kosningaskýranda BBC. Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður ræddi við hann um stöðuna í breskum stjórnmálum. Þá var Ólöf með, beint frá Lundúnum, og sagði frá andrúmsloftinu í höfuðborg Bretlands þar sem allir búast við stórsigri Verkamannaflokksins.

Morðskúrinn
Dularfullur dauði: Gareth Williams

Morðskúrinn

Play Episode Listen Later May 22, 2024 47:31

Gareth var ungur, gríðarlega hæfileikaríkur og klár maður. Hann hafði leikið sér að því að klára hverskyns háskólagráður og ungur að aldri vakið athygli fyrir gáfur sínar.  Starf hans var óvenjulegt en hann starfaði innan bresku leyniþjónustunnar þar sem hann leysti úr dulkóðum og passaði vel upp á þjóðaröryggi Bretlands. Eftir ansi langan tíma þar bauðst honum starf í MI6 sem hann þáði en eftir ár þar sá hann að hitt hentaði honum töluvert betur. Hann náði þó aldrei að færa sig í sitt gamla starf, því hann fannst látinn undir afar grunsamlegum aðstæðum nokkru áður en hann átti að skipta.    Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á  www.definethelinesport.com    Má bjóða þér fleiri þætti? Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn   www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Heimsglugginn
Børsen, minningar Liz Truss, pólitík og götublöð

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Apr 18, 2024 22:36

Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um eldsvoðann í Kaupmannahöfn er Børsen brann og byggingar Kristjáns fjórða konungs. Þau ræddu og nýja bók Liz Truss, sem var forsætisráðherra Bretlands í 49 daga. Hún hefur farið mikinn í kynningu á bók sinni þar sem hún ver sjálfa sig og stefnu sína sem leiddi til þess að pundið hrundi, markaðir tóku dýfu og vextir snarhækkuðu. Rætt var um bresk stjórnmál en bæja- og sveitastjórnarkosningar verða í maí og þingkosningar síðar á árinu. Í lokin heyrðum við lagið Tu Vuo'Fa' L'Americano með Hetty and the Jazzato Band. Sú sveit spilar ítalska dægurlagatónlist mest frá fyrri hluta síðustu aldar. Þau syngja bæði á ítölsku og ensku og sum lögin eru þekkt, önnur minna þekkt nú til dags.

Heimsglugginn
Loftrýmiseftirlit og ný stjórn á Norður-Írlandi

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Feb 8, 2024 23:07

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi. Að þessu sinni var rætt um loftrýmiseftirlit yfir Íslandi en norski flugherinn annast slíkt eftirlit um þessar mundir. Eirik Kristoffersen, yfirmaður norska hersins, segir mikilvægt fyrir Norðmenn að fylgjast vel með á svæðum nærri Noregi og Íslendingar eru staðfastir vinir og bandamenn. Hann segir að það sé mjög náin norræn samvinna í varnar-og öryggismálum og að frá innrás Rússa í Úkraínu í febrúar 2022 hafi æðstu menn varnarmála á Norðurlöndunum hist mánaðarlega, einnig Íslendingar. Ný stjórn hefur tekið við á Norður-Írlandi og í fyrsta sinn sitja lýðveldissinnar í forsæti. Michelle O'Neill, leiðtogi Sinn Fein á Norður-Írlandi er fyrsti ráðherra og Emma Little-Pengelly, er staðgengill hennar fyrir hönd DUP, stærsta flokks sambandssinna. Báðar leggja þær áherslu á að helstu viðfangsefnin séu stjórn landsins ekki hvort Norður-Írland eigi að sameinast Írska lýðveldinu eða vera áfram hluti Stóra-Bretlands.

Heimsglugginn
Sektir fóru til að greiða bónusa

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jan 18, 2024 23:55

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson héldu áfram að ræða um málefni bresku póstþjónustunnar og stærsta réttarfarshneyksli í sögu landsins á síðari tímum þegar tæplega eitt þúsund útbússtjórar í pósthúsum voru sóttir til saka fyrir skjalafals og þjófnað og á áttunda hundrað voru sakfelldir. Næstum öll voru saklaus, sökudólgurinn var Horizon, gallað bókhaldskerfi sem Fujitsu bjó til fyrir breska póstinn. Nick Read, forstjóri Póstsins, sat fyrir svörum hjá viðskiptanefnd þingsins og gat fáu svarað nema að hann viðurkenndi að greiðslur sem útibússtjórar voru krafðir um hefðu mögulega verið notaðar til að greiða bónusa yfirmanna póstsins. Þá var rætt um frumvarp sem neðri málstofa breska þingsins samþykkti í gærkvöld um að vísa hælisleitendum sem koma með bátum til Bretlands til Rúanda. Lávarðadeild þingsins fær frumvarpið nú til afgreiðslu og viðbúið er að þar verði gerðar breytingar á því enda er málið er afar umdeilt og margir telja frumvarpið brjóta í bága við alþjóðalög og mannréttindasamninga. Þá var rætt um nýafstaðnar forsetakosningar á Taívan og þingkosningar sem verða í apríl á Indlandi.

Heimsglugginn
Glundroði í Íhaldsflokknum og Boris Johnson ver ráðstafanir sínar

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Dec 7, 2023 23:50

Bresk stjórnmál voru á dagskrá þegar Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson í vikulegu Heimsgluggaspjalli. Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra, sat fyrir svörum í gær hjá nefnd sem rannsakar viðbrögð við COVID-19 faraldrinum. Johnson var auðmjúkur og byrjaði á að biðjast afsökunar, sagði að með því að horfa í baksýnisspegil mætti sjá að mistök hefðu verið gerð. Johnson ber áfram vitni í dag. Íhaldsflokkurinn, sem Boris Johnson veitti forystu uns hann hrökklaðist frá í fyrra, er í verulegum vandræðum vegna innri deilna. Suella Braverman, sem var rekin úr embætti innanríkisráðherra í nóvember, veittist harkalega að Rishi Sunak forsætisráðherra í neðri málstofu breska þingsins í gær. Hún sagði að Íhaldsflokkurinn stæði frammi fyrir að vera þurrkaður út í kosningum á allra næstu mánuðum ef hann leggi fram enn eitt frumvarpið um málefni hælisleitenda sem ekki nái tilgangi sínum. Íhaldsflokkurinn vill senda hælisleitendur til Rúanda og hafa gert samning við stjórnvöld þar. Hæstiréttur Bretlands dæmdi samninginn ólöglegan því Rúanda væri ekki öruggur staður fyrir hælisleitendur. Rishi Sunak boðaði þá nýja lagasetningu og frumvarpið var kynnt í gærkvöld. Braverman taldi upp skilyrði sem hún (og væntanlega harðasti hægrikjarni Íhaldsflokksins) setji fyrir að styðja frumvarpið. Lögin yrðu að tryggja að yfirvöld gætu handtekið fólk og flutt úr landi án þess að mannréttindalög, mannréttindasáttmáli Evrópu, flóttamannasáttmálinn eða nokkur önnur alþjóðalög gætu stöðvað það. Braverman spurði hver stjórnar Bretlandi, hvar liggur endanlegt úrskurðarvald í málefnum Breta? Er það breska þjóðin sem ræður og kjörnir fulltrúar hennar eða eru það óljós, breytileg og óábyrg hugmynd um alþjóðleg lög? Braverman sagði að mannréttindalög sem hefðu verið þanin út frá mannréttindasáttmálanum og endurtekin í mannréttindalögum sem Verkamannaflokkurinn hefði komið í gegn, væru túlkuð afar teygjanlega bæði innlendum og útlendum og kæmu bókstaflega í veg fyrir að Rúanda-stefnan hefði orðið að veruleika. Svo virðist sem hægriarmur Íhaldsflokksins sætti sig ekki við frumvarpið sem kynnt var í gærkvöld því Robert Jenrick, ráðherra málefna flóttamanna, sagði af sér embætti og sagðist ekki telja það ganga nægilega langt.

Heimsglugginn
Glundroði í Íhaldsflokknum og Boris Johnson ver ráðstafanir sínar

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Dec 7, 2023

Sunak í ólgusjó, sviptingar í Portúgal

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Nov 16, 2023

Heimsglugginn á Morgunvaktinni á Rás 1 fjallaði um átök í stjórnmálum á Bretlandi og í Portúgal. Rishi Sunak forsætisráðherra Bretlands gerði verulegar breytingar á ríkisstjórn sinni á mánudag. Suella Braverman innanríkisráðherra var rekin, James Cleverly tók við embætti hennar og David Cameron varð utanríkisráðherra í stað Cleverlys. Braverman birti afar harðort bréf daginn eftir brottreksturinn, þar sem hún sakaði Sunak um svik við sig, hann væri huglaus, óhæfur og umboðslaus. Fréttaskýrendur sögðu bréf hennar illgjarnt, grimmilegt og ofsafengið. Einar Logi Vignisson var svo gestur Heimsgluggans og sagði frá sviptingum í stjórnmálum í Portúgal. Einar Logi er framkvæmdastjóri RÚV Sölu en hefur búið í Portúgal og þekkir afar vel til þar. Forsætisráðherra Portúgals, Antonio Costa, sagði af sér í síðustu viku, eftir að einn nánasti ráðgjafi hans var handtekinn í tengslum við spillingarrannsókn. Forseti Portúgals, Marcelo Rebelo de Sousa, ákvað að efna yrði til nýrra þingkosninga en ekki fyrr en á næsta ári. Hann skipaði Costa forsætisráðherra fram að kosningum.

Heimsglugginn
Sunak í ólgusjó, sviptingar í Portúgal

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Nov 16, 2023 23:56

ʟᴜᴄʏ ʟᴇᴛʙʏ: ᴋɪʟʟᴇʀ ɴᴜʀsᴇ │ sᴇɪɴɴɪ ʜʟᴜᴛɪ

illverk

Play Episode Listen Later Nov 15, 2023 61:20

ʟᴜᴄʏ ʟᴇᴛʙʏ: ᴋɪʟʟᴇʀ ɴᴜʀsᴇ  │  sᴇɪɴɴɪ ʜʟᴜᴛɪ Þann 3 júlí árið 2018 var hin 33 ára gamla Lucy Letby handtekin, sökuð um að hafa framið skelfilega glæpi gegn þeim allra viðkvæmustu í samfélaginu. Lucy fór úr því að vera "Ljúfa Lucy" sem hafði ástríðu fyrir því að vinna á deild ungabarna á Countess of Chester hospital, yfir í að vera einn skæðasti raðmorðingi Bretlands. ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ʜᴇɪᴍᴀsᴋɪᴘᴜʟᴀɢ.ɪs • sɪxᴛ ʟᴀɴɢᴛɪᴍᴀʟᴇɪɢᴀ.ɪs • ᴋ

Spegillinn
Tilfinningar og kaffi í Tollhúsi, búið ofan á kvikugangi í Kelduhverfi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 15, 2023

Það eru allar tilfinningar eðlilegar á þessum tímapunkti að sögn Aðalheiðar Jónsdóttir hjá Rauða krossinum. Hún segir að fólk bregðist misjafnlega við áföllum eins og því sem Grindvíkingar ganga í gegnum núna. Sumir verða reiðir, aðrir verða dofnir, svo dæmi séu tekin. Í þjónustumiðstöð fyrir Grindvíkinga, sem var opnuð í gamla Tollhúsinu í Tryggvagötu í Reykjavík í dag, verður bæði hægt að fá sér kaffi og hitta vini og félaga úr bænum og innan tíðar verður hægt að fá sálrænan stuðning. Með tíð og tíma á svo að veita alls kyns upplýsingar í þjónustmiðstöðinni, þær upplýsingar sem Grindvíkinga vantar hverju sinni. Kvikugangar, sambærilegir þeim sem nú liggur undir Grindavík og nágrenni, mynduðust í eldsumbrotunum í Kröflu fyrir bráðum 50 árum og teygðu sig alla leið norður í Öxarfjörð. Maður sem þá bjó í Kelduhverfi segir það hafa verið erfiðan tíma, sem nú rifjist upp við atburðina í Grindavík. Hann ráðleggur fólki að halda ró sinni, sýna gætni og flana ekki að neinu. Hæstiréttur Bretlands komst í dag að þeirri niðurstöðu að ólögmætt væri að senda hælisleitendur til Rúanda, eins og stjórnvöld hafa áformað. Ástæðan er ekki sú að það sé ólöglegt að senda hælisleitendur til þriðja lands heldur þykir öryggi þeirra ekki tryggt í Rúanda. Umsjón með Speglinum hafði Ragnhildur Thorlacius.

Spegillinn
Tilfinningar og kaffi í Tollhúsi, búið ofan á kvikugangi í Kelduhverfi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 15, 2023 19:11

Lucy Letby: Killer Nurse │ Fyrsti Hluti

illverk

Play Episode Listen Later Nov 8, 2023 59:05

ʟᴜᴄʏ ʟᴇᴛʙʏ: ᴋɪʟʟᴇʀ ɴᴜʀsᴇ │ ғʏʀsᴛɪ ʜʟᴜᴛɪ Þann 3 júlí árið 2018 var hin 33 ára gamla Lucy Letby handtekin, sökuð um að hafa framið skelfilega glæpi gegn þeim allra viðkvæmustu í samfélaginu. Lucy fór úr því að vera "Ljúfa Lucy" sem hafði ástríðu fyrir því að vinna á deild ungabarna á Countess of Chester hospital, yfir í að vera einn skæðasti raðmorðingi Bretlands. ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ʜᴇɪᴍᴀsᴋɪᴘᴜʟᴀɢ.ɪs • sɪxᴛ ʟᴀɴɢᴛɪᴍᴀʟᴇɪɢᴀ.ɪs • ᴋ

The Snorri Björns Podcast Show
#151 - Baldvin Þór Magnússon, besti íþróttamaður sem Íslendingar vita ekki að þeir eiga

The Snorri Björns Podcast Show

Play Episode Listen Later Nov 7, 2023 129:37

Baldvin Þór er Íslandsmethafi í 1.500m, mílu, 3.000m, 5.000m og 10km - með öðrum orðum: hann á Íslandsmetið í öllum þeim greinum sem hann reynir fyrir sér í, aðeins 23 ára gamall! Fáir hafa heyrt Baldvins getið en hann flutti ungur til Bretlands og þaðan yfir til Bandaríkjanna í háskólanám á íþróttastyrk. Þrátt fyrir erfitt fyrsta ár var Baldvin valinn verðmætasti keppandinn á svæðismótum og þrefaldur svæðismeistari. Stefnan er sett á Ólympíuleikana á næsta ári og við ræðum andlegu og líkamlegu áskoranirnar sem fylgja því að keppa á efsta stigi íþrótta, æfinga- og næringahluta hlaupanna, hvað Baldvin gerir og hvað hann gerir ekki til þess að hámarka árangur og auka líkurnar á því að komast til Parísar 2024.

Spegillinn
Jörð skelfur norðan við Grindavík og þrýstingur á fjárlaganefnd

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 25, 2023

25. október 2023 Um 1.400 jarðskjálftar hafa mælst í jarðskjálftahrinu sem hófst norðan við Grindavík í nótt. Ekki er að sjá merki um gosóróa en um margt minnir hrinan á aðdraganda fyrri gosa. Bæjarstjóri í Grindavík segir að bæjarbúar hafi fundið vel fyrir skjálfta upp á 4,5 í morgun en séu öllu vanir. Bændasamtök Íslands telja neyðarástand ríkja í íslenskum landbúnaði, afkomubrestur sé í flestum greinum og bændur geti ekki greitt sér lágmarkslaun. Stýrivaxtahækkanir ofan í aðrar hækkanir hafi aukið fjármagnskostnað svo mikið að á tveimur árum greiði þeir 8,6 milljarða með framleiðslunni úr eigin vasa. Formaður Starfsgreinsambandsins segir að ef semja á til langs tíma verði að vinna bug á verðbólgu og vöxtum; það geri verkalýðshreyfingin ekki ein. Sameinuðu þjóðirnar gætu þurft að gera hlé á mannúðaraðstoð sinni á Gaza-svæðinu í kvöld, vegna skorts á eldsneyti og rafmagnsleysis sem því fylgir. Læknir á Gaza segir spítala sinn verða að fjöldagröf án rafmagns. Opnað hefur verið fyrir umferð um brú yfir Þorskafjörð. Repúblikaninn Mike Johnson var síðdegis kosinn forseti fulltrúadeildar bandaríska þingsins. ------------- Fjárlaganefnd Alþingis þarf að tala afstöðu til krafna um ríflega hundrað milljarða króna útgjaldaaukningu á fjárlögum. Það er erfitt verk því fari útgjaldaaukningin úr böndunum er viðbúið að Seðlabankinn svari með vaxtahækkun. Eitt ár er frá því að Rishi Sunak tók við embætti forsætisráðherra Bretlands. Helmingur landsmanna telur að hann hafi staðið sig illa í starfi. Einungis ellefu prósent eru ánægð með hann. Í fyrra fæddust um 4.400 börn á Íslandi og hefur frjósemi í landinu aldrei verið minni. Lengi vel var frjósemi hér meiri en annars staðar á Norðurlöndum en dregið hefur saman segir Ólöf Garðarsdóttir, sagnfræðingur og forseti hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Spegillinn
Jörð skelfur norðan við Grindavík og þrýstingur á fjárlaganefnd

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 25, 2023 9:40

Sunnudagssögur
Lilja Björk Einarsdóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Oct 15, 2023

Gestur Hrafnhildar er Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans. Hún sagði frá uppvextinum í Breiðholti, námsárunum í versló, síðar Hí og svo í Bandaríkjunum. Hún sagði frá starfi sínu á gróðrastöð ömmu sinnar og afa, valkvíðanum þegar kom að því að velja háskólanám, kærastanum og síðar eiginmanninum, fjölskyldunni og áhugamálunum. Hún sagði frá dvölinni í USA þar sem hún stundaði framhaldsnám í háskóla, flutningi til Bretlands og starfinu hjá Landsbankanum þar sem hún hefur starfað í fjölmörg ár og er nú bankastjóri.

Sunnudagssögur
Lilja Björk Einarsdóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Oct 15, 2023 75:00

Gestur Hrafnhildar er Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans. Hún sagði frá uppvextinum í Breiðholti, námsárunum í versló, síðar Hí og svo í Bandaríkjunum. Hún sagði frá starfi sínu á gróðrastöð ömmu sinnar og afa, valkvíðanum þegar kom að því að velja háskólanám, kærastanum og síðar eiginmanninum, fjölskyldunni og áhugamálunum. Hún sagði frá dvölinni í USA þar sem hún stundaði framhaldsnám í háskóla, flutningi til Bretlands og starfinu hjá Landsbankanum þar sem hún hefur starfað í fjölmörg ár og er nú bankastjóri.

Spegillinn
Skuldir aukast í bygginggeiranum og Bretar draga úr loftslagsaðgerðum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 20, 2023 9:49

Hægari sala fasteigna hefur valdið því að skuldir byggingageirans við bankana hafa aukist um 68 milljarða króna síðustu tólf mánuði. Það er ekki áhyggjuefni enn sem komið er, segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Volodymyr Zelenskí forseti Úkraínu vill að Rússar verði sviptir neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Þeir hafi gert ráðið gagnslaust með beitingu neitunarvaldsins. Barnahús metur öll tilvik sem barnaverndarnefndir senda til hennar vegna mögulegra kynferðisbrota barna, segir Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu. Sum mál eigi ekki heima í Barnahúsi. Matvælastofnun boðar afléttingu á tímabundnu banni við hvalveiðum Hvals 8, að uppfylltum skilyrðum. Það er allt uppávið í uppsjávarfiski og gósentíð segir Hjörvar Ólafsson, skipstjóri á Berki, sem landaði 1.700 tonnum af síld í Neskaupstað í fyrrinótt eftir rúmlega sólarhrings veiðiferð. NIðurrif Íslandsbankahússins á Kirkjusandi verður boðið út á næstu vikum. Margt þarf að gera til að tryggja að myglugró berist ekki víða, það þarf að huga að vindátt og mögulega væta húsið segir Kjartan Smári Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða. -------------- Forsætisráðherra Bretlands segist ætla að milda aðgerðir til að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2050 og fylgja raunsærri nálgun en hingað til. Ákvörðun hans mælist misjafnlega fyrir. Þar á meðal er forseti neðri málstofu þingsins sagður ævareiður. Krakkar og klám, unglingar og kynlíf, þetta eru óþægileg umræðuefni og vandræðaleg. Við viljum eðlilega leyfa börnum að vera börn sem lengst og hlífa þeim. En við viljum kannski líka hlífa okkur við tilhugsuninni og samtalinu. Kristín Blöndal Ragnarsdóttir veitir forstöðu verkefni Hafnarfjarðarbæjar um kynja- og kynfræðslu og kennir í Lækjaskóla. Spegillinn hitti Kristínu og spurði hana hvað krakkar, bæði börn og unglingar sæju á netinu. Mikill styr hefur staðið um sameiningaráform Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra um framhaldsskólana á Akureyri. Karli Frímannssyni, skólameistara MA líst fremur illa á sameining en Sigríður Huld Jónsdóttir skólameistari í VMA telur að einn og öflgur skóli væri til bóta. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir tók saman. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir

Spegillinn
Skuldir aukast í bygginggeiranum og Bretar draga úr loftslagsaðgerðum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 20, 2023

Draugar fortíðar
#156 Þorskastríðin. 1. þáttur: Aðdragandi

Draugar fortíðar

Play Episode Listen Later Sep 6, 2023 106:24

Á 20. öld átti Ísland í hatrammri deilu um fiskveiðilögsögu við margar þjóðir. Hörðust var deilan við Bretland sem sendi sjálfan flotann í þrígang á Íslandsmið til að skakka leikinn. Bretar göntuðust með að ekki væri nóg að það væri "Cold War", heldur væri nú komið "Cod War", eða þorskastríð. Nafnið hefur fest sig í sessi þrátt fyrir að þetta hafi á engan hátt verið stríð, í fullri merkingu þess orðs. Þessi deila er merkileg að mörgu leyti. Nú gátu stórveldi ekki lengur vaðið yfir þau smáu í krafti herstyrks. Ísland og Bretland voru saman í hernaðarbandalagi og vera Íslands þar var afar mikilvæg hvað öryggi Bretlands varðaði. Breytingar og umbætur á hafréttarlögum spiluðu einnig stórt hlutverk og nýttu Íslendingar sér það óspart, með góðum árangri. Deilan varð þó svo hörð að ýmsir óttuðust að Ísland myndi jafnvel senda bandaríska herinn úr landi. Ekkert varnarmálaráðuneyti á Vesturlöndum vildi sjá það gerast. Deilan er því ansi áhugaverð hvað alþjóðasamskipti og sögu kalda stríðsins varðar. Allir fjórir þættir septembermánaðar verða um þorskastríðin. Við mælum með því að rifja upp kynni við þátt númer 79 sem heitir "Togaraskelfirinn" og fjallar um landhelgisgæslu Dana við Ísland í upphafi 20. aldar. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

Heimsglugginn
Af færeyskum fótbolta og írskum ríkisfjármálum

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Aug 10, 2023 23:53

Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu mest öskubuskuævintýri færeyska knattspyrnuliðsins KÍ í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Klaksvíkar Ítróttarfelag hefur slegið út ungversku meistarana Ferencváros og sænsku meistarana BF Häcken í forkeppni Meistaradeildarinnar. Þeir unnu fyrri leik sinn við norsku meistarana í Molde og hvernig sem fer þá hefur KÍ tryggt sér þátttökurétt í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu. Í lokin var rætt um blómlegt efnahagslíf á Írlandi þar sem stefnir í mikinn afgang á rekstri ríkissjóðs næstu árin. Írar fóru illa út úr efnahagskreppunni 2008 en hafa heldur betur rétt úr kútnum. Ein helsta tekjulind ríkissjóðs Írlands eru skattar af alþjóðlegum fyrirtækjum eins og Facebook eða Meta, Google, Airbnb og Twitter. En þrátt fyrir blómlegan ríkisrekstur eiga Írar við ýmis vandamál að stríða, verulegur húsnæðisskortur og misskipting auðæva er meðal helstu vandamála. Í lokin heyrðum við Dubliners flytja lagið A nation once again sem var samið um miðja 19. öld þegar Írland var hluti Stóra-Bretlands en Írar létu sig dreyma um að verða sjálfstæð þjóð að nýju.

Heimsglugginn
Af færeyskum fótbolta og írskum ríkisfjármálum

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Aug 10, 2023

Óli Björn - Alltaf til hægri
Bölvun þverpólitískrar samstöðu

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later May 14, 2023 8:21

Einn merkasti fjármálaráðherra Bretlands eftir stríð er fallinn frá. Nigel Lawson var áhrifamesti arkitekt róttækra efnahagsumbóta Margrétar Thatchers á níunda áratug liðinnar aldar. „Vinsæll fjármálaráðherra er ekki að sinna starfi sínu,“ sagði Lawson eitt sinn. Hann var sannfærður um að stjórnmálamaður sem væri tilbúinn til að mæta andúð andstæðinganna, væri stjórnmálamaður sem gæti látið hlutina gerast – komið einhverju til leiðar. 

Spegillinn

Spegillinn 4. maí 2023. Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Sauðfjárbændur og sveitarstjórnarfólk víða um land hafa þungar áhyggjur af slæmu ástandi girðinga á milli varnarhólfa og segja fjármagn til úrbóta af skornum skammti. Viðskiptabankarnir þrír högnuðust um rúma tuttugu milljarða króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Stjórnendur þeirra eru ánægðir með afkomuna. Óvissustig er í gildi vegna skjálftahrinu sem hófst í Mýrdalsjökli í morgun. Veginum inn að Kötlujökli hefur verið lokað Þingmaður Sjálfstæðisflokks telur að skýrsla innviðaráðherra um áhrif nýrrar byggðar í Skerjafirði á rekstaröryggi Reykjavíkurflugvallar taki ekki á öllum álitamálum. Málið var rætt í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis í morgun. Rúmlega helmingur Breta vill að Karl konungur þriðji og Kamilla drottning greiði sjálf allan kostnað við hátíðarhöldin þegar þau verða krýnd á laugardag Stjarnvísindamenn fylgdust nýverið með fjarlægri, dauðvona stjörnu gleypa í sig reikistjörnu. ----- Fyrirtæki á nokkurn veginn öllum sviðum kynna sína vöru og/eða þjónustu gjarnan sem græna, vistvæna, umhverfisvæna og jafnvel sjálfbæra, eða í það minnsta til þess fallna að auka sjálfbærni, án þess endilega að útlistað sé, hvað sé grænt og vistvænt við framleiðsluna, í hverju meint sjálfbærni hennar felst og hvað er á bak við þessar fullyrðingar um umhverfisvænleikann. Matthildur Sveinsdóttir, sviðsstjóri hjá Neytendastofu, flutti erindi á Loftslagsdeginum 2023, þar sem hún fjallaði um umhverfisfullyrðingar í markaðssetningu, en réttmæti þeirra er eitt af mörgu sem Neytendastofa hefur eftirlit með. Í máli hennar kom fram að 79 prósent evrópskra neytenda hafa keypt dýrari vöru en þeir í sjálfu sér hefðu þurft að kaupa, vegna þess að þeir töldu það betra fyrir umhverfið en að kaupa aðra og ódýrari vöru. Það er því eftir miklu að slægjast með slíkum merkingum fyrir framleiðendur, en geta neytendur treyst þeim? Tvö þúsund gestir verða viðstaddir þegar Karl þriðji, konungur Bretlands og samveldisríkja, og Kamilla drottning verða krýnd í Lundúnum á laugardag. Hann hefur gefið skipun um að aðhalds verði gætt í hvívetna. Gestirnir eru því mun færri en þegar móðir hans, Elísabet II, var krýnd árið 1953. Þá var átta þúsund manns boðið. Gestalistinn hefur verið birtur. Þar kennir ýmissa grasa, ef svo óvirðulega má að orði komast. Það hefur ekki síður vakið athygli hverjir eru ekki á honum. Harry prins, sonur Karls, mætir til að mynda einn. Meghan, hertogaynja af Sussex, verður eft

Spegillinn
04.05.2023

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 4, 2023

Manndráp í Hafnarfirði, olíubrennsa í loðnuvinnslu, gervigreind

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 21, 2023 9:52

Spegillinn 21. Apríl 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Lögreglan hefur lokið yfirheyrslum yfir fjórum mönnum, sem voru handteknir eftir að karlmaður á þrítugsaldri lést eftir stunguárás í Hafnarfirði í gærkvöld. Ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim, en verið er að fara yfir rannsóknargögn. Alma Ómarsdóttir ræddi við Grím Grímsson yfirlögregluþjón. Héraðssaksóknari hefur hætt rannsókn á máli Vítalíu Lazarevu gegn þeim Þórði Má Jóhannessyni, Ara Edwald og Hreggviði Jónssyni. Hún kærði þremenningana fyrir að brjóta á sér kynferðislega í heitum potti í sumarbústað haustið 2020. Málið vakti mikla athygli eftir að Vítalía sagði frá því í hlaðvarpsþættinum Eigin konur í byrjun árs í fyrra. Brenna þurfti tæplega 17 milljónum lítra af olíu í fyrra í loðnuvinnslum landsins umfram það sem hefði þurft að gera, vegna skorts á rafmagni. Samtals brenndu verksmiðjurnar 24 milljónum olíulítra í fyrra. Benedikt Sigurðsson sagði frá og talaði við Jóhann Pétur Andersen, framkvæmdastjóra Félags fiskimjölsframleiðdenda. Á morgun verða kafarar á vegum eigenda flutningaskipsins Wilson Skaw fengnir til að skoða skemmdirnar á skrokki þess. Eins stendur til að dæla olíu úr skipinu og yfir í varðskipið Freyju. Um borð eru um 195 tonn af olíu. Búnaður til þess var fluttur norður í dag. Skipið liggur í Steingrímsfirði á Ströndum. Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í dag úr gildi úrskurð dómsmálaráðuneytisins um að synja dæmdum kynferðisafbrotamanni að afplána refsingu sína í gegnum samfélagsþjónustu. Valur Grettisson tók saman. Dominic Raab, aðstoðar-forsætisráðherra og dómsmálaráðherra Bretlands, sagði af sér í dag eftir að skýrsla var birt þar sem fram kom að hann hefði sýnt undirmönnum sínum ógnandi tilburði og óviðeigandi hegðun á fundum meðan hann var dómsmála- og utanríkisráðherra. Ásgeir Tómasson sagði frá. 69 ára karlmaður var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi í París í Frakklandi fyrir sprengjuárás í bænahúsi gyðinga í borginni árið 1980. Maðurinn er af líbönsku og kanadísku bergi brotinn og er háskólaprófessor í Kanada. Róbert Jóhannsson sagði frá. Hægt er að tala íslensku við gervigreindina GPT-4 í gegnum raddappið Emblu. Embla er app sem fólk getur talað við. Isak Regal sagði frá og talaði við Kötlu Ásgeirsdóttur og gervigreindina. Vísindamenn á vegum Ráðgjafarmiðstöðar landbúnaðarins og Tilraunastöðvar Háskóla Íslands á Keldum vinna að því að finna verndandi arfgerð gegn riðu í sauðfé auk Karólínu Elísabetardóttur, bónda og rithö

Spegillinn
Manndráp í Hafnarfirði, olíubrennsa í loðnuvinnslu, gervigreind

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 21, 2023

Podcast með Sölva Tryggva
#176 Ferðin til Tansaníu

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Mar 30, 2023 20:01

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Sölvi fór nýverið til Tansaníu, þar sem hann tók meðal annars viðtal við athafnamann sem fæddist þar í landi, flúði svo land til Bretlands þar sem hann bjó um tíma í almenningsgörðum og á meðal útigangsfólks. En smám saman náði hann að koma sér út úr erfiðleikunum og í dag á hann og rekur hótel og veitingastaði bæði á Ítalíu og Zanzibar. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Spegillinn
Fordómar í garð foreldra með fötlun, kafbátar og orkuskipti

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 15, 2023 9:33

Dómsmálaráðherra segir álit umboðsmanns Alþingis um rafbyssuvæðingu lögreglunnar ekki hafa áhrif á stöðu sína sem ráðherra. Hann er ósammála álitinu um að bera hefði þurft málið undir ríkisstjórn. Embætti landlæknis hefur svipt sálfræðing starfsleyfi eftir að hann gerðist sekur um alvarleg brot í starfi. Hann er meðal annars sagður hafa gert ADHD-greiningar sem hvergi fengust viðurkenndar. Ragnar Þór Ingólfsson var í dag endurkjörinn formaður VR. Hann segist vilja mæta kröfum um breytingar innan félagsins. Foreldrar með fötlun mæta fordómum og fá ekki nægan stuðning. Þetta segir sérfræðingur Þroskahjálpar. Ríkari kröfur séu gerðar til uppeldis hjá þeim en öðru fólki. Íslensku barnabókmenntaverðlaunin verða ekki veitt í ár þar sem ekkert handritanna sem bárust þykir nógu gott. Starfandi formaður Rithöfundasambandsins segir lítið upp úr skrifunum að hafa. ------ Foreldrar með fötlun mæta miklum fordómum í samfélaginu og fá ekki nægan stuðning. Dæmi eru um að konum með þroskaskerðingu séu gefnir hormónar án þeirra vitundar til að koma í veg fyrir þungun. Í Kveik í gær var rætt við ungan mann sem ólst upp hjá seinfærum foreldrum. Þau mættu miklum fordómum þegar von var á drengnum fyrir um 20 árum, fullyrt var að hann myndi erfa fötlun foreldra sinna og þau voru hvött til að gefa drenginn frá sér. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir sérfræðingur hjá Þroskahjálp og doktorsnemi í þroskaþjálfafræði segir þessi viðhorf enn við lýði. Hún segir að ekki sé til nein sérstök tölfræði um fjölda seinfærra foreldra. Mörg dæmi séu um að seinfærir foreldrar séu hvött til að gefa frá sér börn sín. Rússar og Kínverjar fordæma þá ákvörðun Breta og Bandaríkjamanna að sjá Áströlum fyrir kjarnorkuknúnum kafbátum á næstu áratugum. Joe Biden Bandaríkjaforseti kynnti formlega samkomulag um samstarfið í San Diego í Kaliforníu. Viðstaddir voru forsætisráðherrar Ástralíu og Bretlands, þeir Anthony Albanese og Rishi Sunak. Biden sagði að til samstarfsins væri stofnað til að tryggja frelsi, velmegun og öryggi ríkja á Asíu-Kyrrahafssvæðinu með tækifærum fyrir alla. Á sama tíma og stefnt er að orkuskiptum þá lækkar lítið í stórum olíutunnum landsins. Olíuinnflutningur virðist ekki vera að minnka, þvert á móti. Kallað hefur verið eftir aukinni raforkuframleiðslu og að lagarammi verði gerður skýr um raforkuframleiðslu, og þá sér í lagi vindorkuna sem aukinn áhugi er fyrir. Stjórnmálamenn hafa verið hvattir til aðgerða í raforkumálum, raforkukerfið sé orðið fullnýtt og virkja þurfi meira - allt til að orkuskipti séu ekki orðin tóm. Þetta k

Spegillinn
Fordómar í garð foreldra með fötlun, kafbátar og orkuskipti

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 15, 2023

139| Konurnar og ISIS liðarnir og háleynilegur hálsmenafundur

Heimskviður

Play Episode Listen Later Mar 11, 2023 40:00

Hvernig má það vera að samtök sem eru einna helst þekkt fyrir hrottalegt ofbeldi, hryðjuverk og illa meðferð á konum heilli konur sem búa á Vesturlöndum? Hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki, hið alræmda ISIS, lokkuðu til sín metfjölda kvenna frá vestrænum ríkjum - miðað við sambærilega hópa. En hvaða konur voru þetta? Voru þetta upp til hópa ungar áhrifagjarnar konur sem létu gelpjast af áróðursmaskínu samtakanna eða kannski harðsvíraðir hryðjuverkamenn? Ólöf Ragnarsdóttir fjallar um málið. Í síðari hluta þáttarins fáum við að heyra af hálsmeni úr skíragulli sem fannst í jörðu í Warvíkurskíri í Bretlandi fyrir rúmum þremur árum. Gullmenið er merkt Hinriki áttunda Englandskonungi og fyrstu eiginkonu hans, hinni spænskættuðu Katrínu af Aragorn. Þau voru gift í yfir tuttugu ár og skilnaður þeirra var afdrifaríkur fyrir breska menningarsögu. Sérfræðingar hjá Þjóðminjasafni Bretlands, British Museum, hafa legið yfir þessum dýrgrip síðan hann fannst og hafa nú rakið uppruna hans til hátíðahalda sem Hinrik áttundi hélt í febrúar annað hvort 1520, eða 1521. Það ríkti svo mikil leynd yfir rannsókninni að Rachel King, sérfræðingurinn sem stjórnaði henni mátti ekki einu sinni segja eiginmanni sínum af þessu. Björn Malmquist ræddi við Rachel og einnig Önnu Agnarsdóttur, prófessor í sagnfræði, um ævi, ástir og eiginkonur Hinriks áttunda. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Heimskviður
139| Konurnar og ISIS liðarnir og háleynilegur hálsmenafundur

Heimskviður

Play Episode Listen Later Mar 11, 2023

Skriðdrekar til Úkraínu og vandræði Rishi Sunaks

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jan 26, 2023

Fréttaskýrendur telja margir að ákveðin skil hafi orðið í stuðningi vestrænna ríkja við Úkraínu þegar ákveðið var að Úkraínumenn fengju fullkomna nútímaskriðdreka. Bretar riðu á vaðið er þeir tilkynntu að Úkraínumenn fengju Challenger 2-skriðdreka og svo ætla Bandaríkjamenn og Þjóðverjar að láta Úkraínu í té Abrams- og Leopard 2-skriðdreka. Úkraínumenn hafa beðið um 300 skriðdreka en óvíst er hversu marga þeir fá. Í síðari hluta Heimsgluggans var fjallað um bresk stjórnmál. Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, lýsti því yfir þegar hann tók við völdum að spilling yrði ekki liðin og að í stjórnartíð hans skyldi ríkja heiðarleiki og gagnsæi. Hann gaf í skyn að sú óstjórn og rugl sem einkenndi síðustu mánuði Borisar Johnsons í embætti og allan stjórnartíma Liz Truss væri liðin tíð. Á undanförnum vikum hafa hins vegar komið upp mál sem hafa valdið honum og stjórn hans verulegum vandræðum. Ekki að breska stjórnin hafi ekki nóg á sinni könnu fyrir, þar sem hún tekst á við dýrtíð og versnandi efnahag og krísu í heilbrigðismálum.

Heimsglugginn
Skriðdrekar til Úkraínu og vandræði Rishi Sunaks

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jan 26, 2023 23:07

Morðcastið
174. Orð dagsins er: Smjattpjatl

Morðcastið

Play Episode Listen Later Oct 27, 2022 36:10

Krílihæ, krílihó! Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur til Bretlands og segir frá ungum krökkum sem notuðu Snapchat því miður ekki í þeim tilgangi að senda innihaldslausar selfies eins og við flest, en þau kusu að plana talsvert hræðilegan hitting í gegnum þann miðil. Þáttur dagsins er í boði Ekils ökuskóla, Nettó, Orville, Prentsmiðs, Ristorante og Sjóvá. Óklipptan (og mjög mikinn blaðursþátt) má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Heimsglugginn
Þingumræður í Bretland og Svíþjóð, kosningar í Danmörku

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Oct 27, 2022 19:49

Nýtt fólk hefur tekið við stjórn í Bretlandi og Svíþjóð, Rishi Sunak kom í stað Liz Truss sem forsætisráðherra Bretlands, í Svíþjóð hefur hægri stjórn tekið við af ríkisstjórn Jafnaðarmanna. Nýir leiðtogar voru í eldlínunni í þingumræðum. Í Bretlandi þótti Sunak standa sig vel í fyrsta fyrirspurnatíma forsætisráðherra. Þingmenn Íhaldsflokksins studdu vel við bakið á honum. Í sænska þinginu var meiri ró yfir umræðum. Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu þessi mál í Heimsglugganum, minntust einnig á kosningar í Brasilíu á sunnudag og í Danmörku næsta þriðjudag þar sem margt bendir til þess að gamli pólitíski refurinn Lars Løkke Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra, geti verið í lykilstöðu og ráðið hvort hægri- eða vinstristjórn taki við.

Heimsglugginn
Þingumræður í Bretland og Svíþjóð, kosningar í Danmörku

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Oct 27, 2022

Nýtt fólk hefur tekið við stjórn í Bretlandi og Svíþjóð, Rishi Sunak kom í stað Liz Truss sem forsætisráðherra Bretlands, í Svíþjóð hefur hægri stjórn tekið við af ríkisstjórn Jafnaðarmanna. Nýir leiðtogar voru í eldlínunni í þingumræðum. Í Bretlandi þótti Sunak standa sig vel í fyrsta fyrirspurnatíma forsætisráðherra. Þingmenn Íhaldsflokksins studdu vel við bakið á honum. Í sænska þinginu var meiri ró yfir umræðum. Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu þessi mál í Heimsglugganum, minntust einnig á kosningar í Brasilíu á sunnudag og í Danmörku næsta þriðjudag þar sem margt bendir til þess að gamli pólitíski refurinn Lars Løkke Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra, geti verið í lykilstöðu og ráðið hvort hægri- eða vinstristjórn taki við.

illverk
THE CASE OF ALICE GROSS

illverk

Play Episode Listen Later Oct 1, 2022 44:08

Þann 28 ágúst árið 2014 snérist heimur Gross fjölskyldunnar á hvolf, þegar hin 14 ára gamla Alice Poppy Madeliene Gross skilaði sér ekki heim á tilsettum tíma. Lögreglan blandaði sér fljótt í málið sem að var á innan við sólarhring eitt stærsta mannhvarfsmál í sögu Bretlands.   Í BOÐI: SIXT LANGTÍMALEIGU & SLEEPY Á ÍSLANDI   ILLVERK.IS

illverk
URSULA & SABINA ERIKSSON

illverk

Play Episode Listen Later Sep 25, 2022 35:20

Mál sænsku tvíbura systranna Ursulu og Sabinu vakti heimsathygli á sínum tíma, enda verulega óhugnalegt og furðulegt. Margir hafa velt því fyrir sér hvort þær búi yfir yfirnáttúrulegum kröftum þar sem þær lifðu það af að verða fyrir bíl á einni umferðaþyngstu hraðbraut Bretlands. Heimurinn veltir því fyrir sér enn í dag, hver var á eftir þeim - Afhverju voru þær svona hræddar? Hver er ykkar kenning? Í BOÐI: SLEEPY Á ÍSLANDI & SIXT LANGTÍMALEIGU

The Snorri Björns Podcast Show
#138 - Jón Ásgeir

The Snorri Björns Podcast Show

Play Episode Listen Later Sep 14, 2022 77:41

Jón Ásgeir seldi poppkorn og leigði út rugguhesta á unglingsaldri, labbaði svo út úr menntaskóla til að opna Bónus með pabba sínum og fór þaðan til Bretlands þar sem hann kom auga á og framkvæmdi þrjár stærstu og best heppnuðustu yfirtökur á smásölumarkaði þar í landi á síðari árum. Allt með sínum skerf af drama að sjálfsögðu - maðurinn er yfirheyrðasti Íslendingur sögunnar og sat undir ákærum í 6.000 daga.

illverk
THE PSYCHOPATH (ÁSKRIFT)

illverk

Play Episode Listen Later Aug 27, 2022 5:33

Þegar þú færð viðurnefnið "The Psychopath" hefurðu gengið andskoti langt... Patrick David Mackay er einn af þeim sem hefði aldrei stoppað hefði hann gengið áfram laus - Enda talinn einn hættulegasti maður Bretlands. Þessi þáttur er í áskrift. Þú getur hlustað á hann í heild sinni með því að skrá þig í ILLVERK ÁSKRIFT - Við skráningu færð þú aðgang að yfir 150 aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði og þessa fríu vikulegu án auglýsinga. Kynntu þér endilega málið inni á WWW.ILLVERK.IS