Þrír vinir hafa gríðarlega ástríðu fyrir Fantasy Premier League en eru samt ekkert sérstaklega góðir í leiknum. Þeir láta þó ekki vankunnáttu stoppa sig og bjóða þér að hlusta á léleg ráð og lélegar pælingar um FPL í hverri viku. Guðmundur Einar, Guðmun
Þeir eru komnir aftur. Þrír lélegustu Fantasy spilarar landisins. En það eru stór tíðindi. Strákarnir sem enginn trúði á eru að vinna leikinn. G. Fel eða eins og við köllum hann Playitsafe KÓNGURINN er í topp 50 á íslandi. Mun hann halda því? Hvernig fer hann að því? Allt þetta og ekkert það mikið meira í þætti vikunnar.Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Strákarnir halda áfram á lokametrunum. Eftir niðurlægjandi spuurningakeppni þá reyna strákarnir að halda andliti sem fótboltasérfræðingar landsins. Geinar kemur seint, því Geinar kemur alltaf seint. Einu sinni ætlaði Geinar að fara í bíó klukkan 8 en endað með að fara í sund kl 7 því hann gleymdi hvað hann var að fara að gera. Algjör Geinar sko. Núna var hann á einhverjum "fundi." Ekki satt. Líklega sofandi. Hann sefur MJÖG mikið. Sérstaklega á daginn. Allt þetta og svo miklu fleira í Lélega Fantasy Podcastinu.Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Sko.. í þessum þætti eru eiginlega engin ráð í Fantasy, eiginlega engar góðar pælingar um fótbolta og spurningakeppni sem okkur langar eiginlega bara að enginn heyri. Það eru greinilega engin takmörk fyrir því hversu lítið um fótbolta tveir Guðmundar geta vitað. Ef þú veist mikið um fótbolta og hatar þegar fólk veit lítið um fótbolta, ekki hlusta á síðasta hlutann í þessum þætti. Hlustunin verður bara of sársaukafull. Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Villi Neto er gestur þáttarins þessa vikuna. Fjögurra leikja blank gameweek að baki og margir héldu að þeir hefðu náð slæmum árangri en fáir geta væntanlega toppað hræðilegan árangur Villa sem fékk heil 8 stig í umferðinni. Umræður um portúgalska leikmenn og hvað nöfnin þeirra þýða, Eurovision hornið er að sjálfsögðu á sínum stað og líklega eitt versta lag sem búið hefur verið til í þessum þáttum.Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Það er enginn forráðamaður (Gummi) í stúdíóinu í dag og börnin leika lausum hala. Þeir vita eiginlega ekki hver neinn leikmaður er og kunna ekki að bera nöfnin þeirra fram, en hey, þetta er ekki GÓÐA fantasy podcastið er það?? Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
GJAFALEIKUR HÉR FYRIR NEÐAN. SÁ FYRSTI SEM LES ÞENNAN TEXTA OG SENDIR OKKUR SKILABOÐ Á INSTAGRAM FÆR LAG. VIÐ ERUM BÚNIR AÐ VERA MEÐ ÞENNAN LEIK Í NOKKRAR VIKUR OG ENGINN HEFUR BEÐIÐ OKKUR UM LAG. SEM ÞÝÐIR ÞAÐ AÐ ENGINN LES ÞENNAN TEXTA.Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
CROSSOVER EPISODE!!! Já báturinn hjá okkar mönnum er mannaður en stundum verður maður að hoppa yfir í annan bát og manna hann. Því Lélega fantasy podkastið fór í vettvangsferð yfir í Fantabrögð og fóru yfir málin. Strákarnir ræða hver er hvað í hverju podcasti og svo segir Pálmi mjög kúl sögu um að hann hafi verið eins og aðalsöguhetjan i Good Will Hunting í rock ‘n roll pub quiz-i þar sem hann vann næstum því þrátt fyrir það að vera EINN í liði. OG AFTUR EF EINHVER ER AÐ LESA ÞENNAN TEXSTA MÁ SÁ HINN SAMI BIÐJA UM LAG ÞVÍ ENGINN LES ÞETTA. En já fysti sem sendir skilaboð fær lag. En já þetta og svo miklu fleira i þætti vikunnarFylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Hvenær er næsti leikur? Er þetta tvöföld umferð eða blank gameweek hjá Tottenham mönnum? Bíddu hvenær var eiginlega síðasta umferð? Já strákarnir eru ruglaðir í öllum hamagangnum sem er í gangi. Þeir vita ekkert og eru á barmi uppgjafar. En þá snúa þeir sér að því sem þeir eru bestir í, að vera lélegir í Fantasy. Þeir henda í nokkrar eftirhermur, Gummi virðist vera nálægt því að slá eitt virtasta metið í lélega fantasy podcastinu og Martial, hvað verður um Martial? Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Ókei, sko. Fantasy er bara ekki skemmtilegt lengur. Endalausar frestanir og eitthvað rugl. En hér í Lélega Fantasy Podcastinu höfum við skyldum að gegna og hér er þáttur. Extra stuttur þáttur með extra lélegum ráðum. Phil Jones hornið lítur dagsins ljós í fyrsta skiptið og Pálmi segir frá masterplaninu sínu að taka -4 til að kaupa Benrahma rétt áður en hann hóf leik á AFCON. Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Strákarnir koma aftur endurnærðir eftir stutt jólafrí. Það er overtime baby. Pálmi segir frá ævintýrum sínum á pósthúsinu og Gummi reynir að fara yfir tvær umferðir í einum þætti. Geinar er fjarri góðu gamni því, í alvöru les einhver þennan texta, ég trúi því ekki, ef þið eruð ennþá að lesa sendið okkur random broskall á instagramið okkar. Allt þetta og svo miklu fleira í þætti vikunnar.Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Hó hó hó og gleðileg jól! Strákarnir halda áfram að reyna að komast í gegnum þetta saman með öllum frestunum og öllu sem þvi fylgir. Það er jólaskap í stúdíóinu og hver veit nema strákarnir spili einn laufléttan leik. Gleðileg jól frá lélega Fantasy podcastinu. Við hlökkum til að gefa ykkur léleg ráð með hækkandi sól og lækkandi overall rank. Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Skrítnir tímar, skrítin ráð. Fantasy er extra óútreiknanlegt þessa stundina en strákarnir reyna að spá fyrir komandi vikum. Þessi þáttur verður orðinn úreltur eftir sólarhring svo það er um að gera að hlusta strax! Gummi er haldinn þeirri sjálfsblekkingu að góð staða hans í FPL sé verðskulduð og hafi ekkert með heppni að gera. Sjálfur Fantasy-guðinn sendir inn spurningar og hlustendur eru upplýstir um dýpstu leyndarmál spunaleikarans. Umræður um slána, kúk í hári og margt fleira í þætti vikunnar. Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Viðburðarík vika að baki. Ronaldo og Vardy eru báðir fáránlega gamlir en bara annar þeirra er með kæliklefa heima hjá sér og hinn fær sér pulsu eftir hvern leik. Augljóst hvorn þeirra maður á að eiga í Fantasy. Dennis heldur áfram að niðurlægja fólk sem pælir í tölfræði og Jimenez er barnalegur og heimskur. Miklar umræður um jólahefðir og eplakinnarnar hans Tielemans. Geinar gerði tvær stórkostlegar uppgötvanir: Að kalla Newcastle Kúkastle og að það er leikmaður í Leicester sem heitir Brunt. Allt að frétta í Lélega Fantasy Podcastinu. Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Strákarnir áttu erfiða viku. Allir sökka og lífið hefur misst lit sinn. Skammdegið heltekur bæði sálarlíf drengjanna þriggja og líka Fantasy liðin þeirra. Desember er tilfinningasprengja mánaðanna og það er stutt milli hæða og lægða. Hvað skal gera? Er Geinar virkilega að fara að hætta? Hefur Gummi Fel missti flugið? Er Pálmi bara alltaf Hr. Miðja? Þessum spurningum ásamt spurningum hlustenda verður svarað í nýjasta þætti af Lélega Fantasy Podcastinu.Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Kraftaverkin halda áfram að hrannast inn - en strákarnir voru meyrir og þakklátir fyrir fallega sendingu. Sagan um ástir og örlög Inga8 heldur áfram og þið trúið ekki hvað gerist næst! Eitthvað þarf Pálmi að fara að skoða veðurspána ef það heldur áfram að rigna svona upp í nefið á honum, en kannski er það skiljanlegt í ljósi þess hve rosalega hriktir í stoðum Felveldisins.Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Glæsileg vika að baki. Er veldi Gumma Fel að falla? Æsispennandi þáttur sem er tekinn upp klukkutíma eftir síðasta leik umferðar 13. Það er jólaseason sem þýðir overtime hjá strákunum. En drama síðustu viku heldur áfram. Kemur í ljós að Ingi8 er ekki allur þar sem hann er séður. Var kraftaverk vikunnar í síðustu viku ef til vill ekki það besta fyrir okkar mann? Þetta, spurningar og splunkunýtt LIVE lag frumflutt í nýjasta þættinum af Lélega Fantasy Podcastinu.Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
WARNING: Gæsahúð coming up! Glænýtt gæsahúðar-þemalag er frumflutt í þætti dagsins! En það er ekki eina gæsarhúðaraugnablikið, því við fengum að upplifa alvöru kraftaverk í þættinum. Strákarnir reyna að velja ofurkrafta, þar sem Geinar leitar að stöðugum loopholes í reglunum. Framtíð ruggustólsins er til umfjöllunar og strákarnir sýna enn á ný vanþekkingu sína á knattspyrnu.Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Gummi Fel er númer 24 á Íslandi. Lélega Fantasy podcastið hefur orðið að því sem við lofuðum okkur að verða aldrei, gott fantasy podcast. Við fögnum því með því að fara í ríða, drepa, giftast með framherjana okkar og velta því fyrir okkur hverja okkur langar mest að kyssa í ensku deildinni. Stóra spurningin er samt hvort þetta sé allt saman heppni eða er hægt að vera raunverulega góður í Fantasy?Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Nú eru góð ráð dýr. Geinar er á Tene og þá er gott að fá góðan mann inn af bekknum. Það er enginn annar en Loji Höskuldsson myndlistaramaður og söngvari hljómsveitarinnar Bjartar Sveiflur. Strákarnir ræða síðustu umferð þar sem Gummi Fel brilleraði og er núna í 36. sæti á Íslandi. Stóra spurningin er auðvitað hvort podcastið okkar ber nafn með rentu. Auk þess veltum við því fyrir okkur hvort við myndum sofa í herbergi fullu af snákum og hvernig gott uppstokkunarspil myndi líta út núna. Þetta og fleira í þætti vikunar. Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Risaumferð að baki. Gummarnir eru í sjöunda himni eftir að hafa sett fyrirliðabandið á Salah meðan Pálmi situr eftir með buxurnar í hnút. Strákarnir velta fyrir sér hver sé myndarlegasti leikmaðurinn og hvort Ole Gunnar Gollrir eigi ekki bara að skriða inní norska hellinn sinn.Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Uppstokkunarspjaldið sprakk í andlitið á keisaranum, öðru nafni Gulla Femm. Riðar veldið til falls eða mun það slá til baka? Leiðtogi andspyrnuhreyfingarinnar, Geinar geimgengill, hrósar happi en getur hið góða raunverulega sigrað?Í þætti vikunnar er rætt um Avril Lavigne, ljótustu búningana í deildinni og möguleikann á því að kúkandi belja verði besti Fantasy spilari í heimi. Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Ömurlegasta vika leiktiðarinnar var krufin til mergjar ásamt villikorti Gulla Femm. Glæný gælunöfn litu dagsins ljós, mörg hver matartengd. Logo deildarinnar voru svo sett i listfræðilegt og menningarsögulegt samhengi. Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Það er allt á blússandi siglingu í Fantasy heiminum. Shaw er kominn á síðasta séns og þjálfarar svitna yfir því hvaða tvo af Ron, Rom og Mo þeir eigi að hafa í liðinu sínu. Er kominn tími til að wildcarda núna? Verður Pochettino rekinn eftir að hafa látið Messi leggjast á bak við varnarvegg? Hvað er fyndnasta nafnið á leikmanni í deildinni? Gummi og Pálmi gera sitt besta til að svara öllum þessum spurningum og fleirum í þætti vikunnar. Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Það var foreldrafrí hjá strákunum því pabbi þáttarins, Ansalegi Gummi Fel, var fjarverandi vegna "veikinda." Unglingurinn (Pálmi) og litli bróðirinn (Geinar) ræddu um partý, hryllingsmyndir, og jú, Fantasy.Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Strákarnir bjóða í heimsókn. Þeir fá leikarann og Fantasy þjálfarann Hákon Jóhannesson í stúdíóið. Hákon er hefur spilað Fantasy í nokkur ár og lítur á sig sem áhættusækinn spilara. Hann er einmitt að nota Wildcardið sitt eða endurstokkunarspilið eins og Lélega fantasy podcastið kallar það. Strákarnir gefa Hákoni misléleg ráð og svara spurningum hlustenda. Einnig kynna þeir verðlaun sem hlustendur geta sótt sér ef þeir eru stigahæstir í Lélegu fantasy deildinni hverja umferð. Spennan heldur áfram í Lélega Fantasy podcastinu. Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Í löngu landsleikjahléi klæjar strákana í varirnar. Þeir geta ekki beðið eftir að útbreiða óumbeðnu visku sinni til Lélega fantasy samfélagsins. Geinar hefur á brattann að sækja eftir hræðilega viku og hefur ákveðið að nota fyrsta „chip” hlaðvarpsins: Wildcard eða Endurstokkunnarspilið. Pálmi og Gummi reyna með misjöfnum árangri að vara félaga sinn við ýmsum Fantasy gildrum sem er auðvelt að falla í þegar sú ákvörðun er tekin. Auk þess er tekið við spurningum og einkunnarorð þáttarins rædd. En auðvitað er reynt að svara stóru spurningunni, á að kaupa Ronaldo eða ekki? Allt þetta og svo miklu fleira í þætti vikunnar. Taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Leikvika 2 var áhugaverð að mörgu leyti, gulldrengirnir Salah og Fernandes verðlaunuðu ekki þá sem settu á þá bandið en hinsvegar kom Lukaku sterkur inn og þakkaði hugrökkum þjálfurum traustið. Liverpool tvennan Trent og Tsimikas kom vel út, þó að Fantasy-dagar þess síðarnefnda séu líklega taldir. West Ham tvíeykið Benrahma og Antonio hreinlega hættir ekki að ná inn stigum. Pálmi og Gummi ræða um vikuna og pýramídasvindl fyrir börn, hljómsveitir frá Manchester, gömul heimsmeistaramót og allskonar. Taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
Fyrsta leikvika gekk eins og í sögu hjá Pálma og Gumma en Geinar er strax byrjaður að elta. Þolinmæði er mikilvæg dyggð í þessum leik en Geinar ætlar ekki að sitja aðgerðalaus í neðsta sætinu heldur ætlar hann að kaupa Lukaku og setja fyrirliðabandið á hann. Stór ákvörðun þar. Strákarnir ræddu um það hver sé mögulega nettasti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar. Spoiler alert: Það er allavegana pottþéttt ekki Phil Jones. Þrír vinir hafa gríðarlega ástríðu fyrir Fantasy Premier League en eru samt ekkert sérstaklega góðir í leiknum. Þeir láta þó ekki vankunnáttu stoppa sig og bjóða þér að hlusta á léleg ráð og lélegar pælingar um FPL í hverri viku. Guðmundur Einar, Guðmundur Felixson og Pálmi Freyr Hauksson eru spunaleikarar sem hafa kennt og sýnt spuna með Improv Ísland frá upphafi. Þeir eru einnig höfundar og leikarar í sketsahópnum Kanarí. Þættirnir eru framleiddir í samstarfi við Útvarp 101.
Þrír vinir hafa gríðarlega ástríðu fyrir Fantasy Premier League en eru samt ekkert sérstaklega góðir í leiknum. Þeir láta þó ekki vankunnáttu stoppa sig og bjóða þér að hlusta á léleg ráð og lélegar pælingar um FPL í hverri viku. Guðmundur Einar, Guðmundur Felixson og Pálmi Freyr Hauksson eru spunaleikarar sem hafa kennt og sýnt spuna með Improv Ísland frá upphafi. Þeir eru einnig höfundar og leikarar í sketsahópnum Kanarí. Þættirnir eru framleiddir í samstarfi við Útvarp 101.