POPULARITY
Við heyrðum í dag í Sæunni Vigdísi Sigvaldadóttur, þroskaþjálfa á Egilsstöðum og býflugnabónda í Hallormsstaðaskógi. Sæunn er stödd í Seattle í Bandaríkjunum þar sem hún ætlar að læra tæknifrjóvgun býflugnadrottninga. Áætlunin er að gera Ísland sjálfbært í býflugnarækt til þess að draga úr innflutningi á býflugum, sem reynist sífellt erfiðara sökum býsjúkdóma. Við fengum Sæunni í dag til að segja okkur meðal annars frá því hvernig það kom til að hún fór út í býflugnarækt, hvað þarf til þess að fara út í ræktun og hvernig Ísland hentar fyrir býflugnarækt. Hvað tekur við að loknu kvikmyndanámi hérlendis og hvaða tækifæri bíða ungs kvikmyndagerðarfólks? Vigdís Howser Harðardóttir og Alvin Hugi Ragnarsson voru í fyrsta árgangi nýrrar kvikmyndadeildar við Listaháskóla Íslands og útskrifast um miðjan júní, en þau sögðu okkur frá lokaverkefnum sínum ásamt því að ræða kvikmyndasenuna hér á landi og hvernig þau ætla að setja mark sitt á hana. Í framhaldi af því ræddum við stöðu sviðslista á Íslandi og hverjar áskoranir og hlutverk þeirra eru við Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóra Sviðslistamiðstöðvar Íslands, en á föstudaginn fór fram Bransadagur Sviðslistanna í Borgarleikhúsinu þar sem staðan var rædd og þátttakendur deildu hugmyndum og sýn sinni á framtíð sviðslista. Tónlist í þættinum í dag: Býflugan / Geirfuglarnir (Þorkell Heiðarsson) The Birds And The Bees / Jewel Akens (Herbert Newman) Sumarvísa / Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir (Mats Paulson, texti Iðunn Steinsdóttir) Heitt toddý / Ellen Kristjánsdóttir (H. Hendler & R. Flanagan, texti Friðrik Erlingsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
Matti stýrir nýliðayfirferðinni frá Egilsstöðum með Jóla með sér. Farið yfir linebackera, secondary og quarterbacka í þessum fyrsta hluta.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Ólafur Guðmundsson, umferðaröryggissérfræðingur ræddi við okkur um hraðahindranir, auglýsingaskilti og fleira. Sælín Sigurjónsdóttir ræddi sín mál, en hún á heima á Reyðarfirði en móðir hennar á Egilsstöðum. Anna Birna Almarsdóttir, prófessor við Lyfjafræðideild Kaupmannahafnarháskóla og verkefnisstjóri Sofðuvel-átaksins, settist niður með okkur og ræddi svefn. Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar - Samtaka gegn kynbundnu ofbeldi, ræddi við okkur um hræðilega frásögn Kathryn Gunnarsson. Friðjón R. Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, ræddi við okkur um laun borgarstjóra og borgarfulltrúa. Símatími
Það var fámennt en góðmennt þegar Valur og Matti gerðu upp viku 13, Valur í stúdíói Podcaststöðvarinnar og Matti heima á Egilsstöðum. Allt í boði Lengjunnar og Arena Gaming!
Í dag ætlum við að fjalla um stúdentahreyfingar; íslenskar, útlenskar, alþjóðlegar. Þessa dagana dvelja fulltrúar Landsambands Íslenskra Stúdenta í Póllandi og taka þátt í þingi fyrir evrópskar stúdentahreyfingar. Við fáum til okkar Lísu Margréti Gunnarsdóttur, forseta Landssambands Íslenskra Stúdenta, fræðumst um hvað á sér stað á þessu þingi, og hvað ber hæst í hagsmunabaráttu stúdenta, hér á Íslandi og annars staðar. Í dag ætlum við að fjalla um stúdentahreyfingar; íslenskar, útlenskar, alþjóðlegar. Þessa dagana dvelja fulltrúar Landsambands íslenskra stúdenta í Póllandi og taka þátt í þingi fyrir evrópskar stúdentahreyfingar. Við fáum til okkar Lísu Margréti Gunnarsdóttur, forseta Landssambands íslenskra Stúdenta, fræðumst um hvað á sér stað á þessu þingi, og hvað ber hæst í hagsmunabaráttu stúdenta, hér á Íslandi og annars staðar. Síðan bregðum við okkur til Húsavíkur. Samfélagið er nýkomið úr ferðalagi um Norðurland, og í dag flytjum við viðtöl sem tekin voru þegar við heimsóttum glerskála við Húsavíkurhöfn, þar sem Huld Hafliðadóttir og Bridget Burger starfrækja STEM Húsavík, verkefni sem hefur það að markmiði að auka færni Húsvíkinga í hinum svokölluðu STEM-greinum. Í gær fór starfamessa Austurlands fram á Egilsstöðum, og það hljóp á snærið hjá Samfélaginu, sem var alls ekkert á Austurlandi því Jón Knútur Ásmundsson, verkefnastjóri Austurbrúar var á svæðinu og tók viðtöl við gesti og gangandi fyrir hlaðvarpsrás Austurbúar og gaf okkur leyfi til að nota það. Austurbrú eru hagsmunasamtök sem vinna að því að Austurland verði staður fólks, fyrirtækja og fjárfesta sem vilja byggja upp sjálfbært samfélag og starfamessan er hugsuð til að kynna þau störf sem unnin eru á Austurlandi fyrir ungu fólki. Meira um það á eftir.
Valur og Matti hittust á Egilsstöðum og fóru yfir nokkrar training camp sögulínur og rifjuðu upp hvað í ósköpunum gerðist í Free agency.
AB VARAHLUTIR - Á FERÐ OG FLUGI - BÍLJÖFUR - BÍLAPUNKTURINN Bragi og Jakob C fjalla um þriðju umferð Íslandsmótsins í torfæru sem fram fór á Egilsstöðum. Mynd: GamliFeitiBitriGaurinn
Í Víðsjá dagsins hugum við að þeim fregnum frá Feneyjartvíæringnum að Ruth Patir, fulltrúi Ísraels, hafi ásamt sýningarstjórum sínum, ákveðið að loka dyrum að ísraelska skálanum þar til vopnahlé á Gaza og endurheimt gísla hefur átt sér stað. Einnig heyrum við hvaða ljóðskáld eru tilnefnd til Maístjörnunnar fyrir árið 2023 og drögum upp svipmynd af kvikmyndagerðarkonu: Anna Karín Lárusdóttir er kvikmyndargerðarmaður uppalin í breiðholti og á Egilsstöðum. Hún heillaðist snemma af kvikmyndaforminu þá í gegnum föstudagskvikmyndir Rúv og á vídeóleigu Kidda Videoflugu á Egilsstöðum. Hún skráði sig í Kvikmyndaskóla Íslands eftir að mamma hennar ráðlagði henni að leggja fyrir sig fagið en í kvikmyndaskólanum framleiddi hún stuttmyndina XY, kvikmynd sem kannar upplifanir unglingsins Lísu af því að vera intersex. XY vakti þónokkra athygli þegar hún kom út og hlaut shortfish verðlaunin á Sprettfiskshátíðinni árið 2019. Næsta stuttmynd Önnu Karínar Felt Cute eða sætur kom út á síðasta ári og fjallar hún um Breka, ellefu ára dreng sem prófar sig áfram með farða systur sinnar og föt þegar hann er einn heima - en Felt Cute hlaut einnig shortfishverðlaunin 2024 og tvö Edduverðlaun, ein í flokki stuttmynda og önnur í flokki barna og unglingamynda. Anna Karín stefnir á útgáfu lengri kvikmyndar á næstu árum og langar henni að halda áfram að rannsaka veröld barna og unglinga sem og þá undarlegu stemningu sem skapast getur í tónlistarskólum landsins.
Kólumbíski rithöfundurinn Pilar Quintana kom til landsins í byrjun október og kom fram á litlum viðburði í Veröld, húsi Vigdísar en einnig dvaldi hún á Bifröst við skrif í rúma viku. Við náðum tali af henni á leiðinni aftur út og ræðum feril hennar og skrif í þætti dagsins. Snorri Rafn Hallsson heldur áfram pistlaröð sinni um Nostalgíu, eða fortíðarþrá og að þessu sinni leitar hann aftur fyrir fortíðina til augnabliksins sem tíminn sjálfur fór af stað. Við heyrum einnig af nýju íslensku leikverki, barnaleikritinu Hollvættir á heiði eftir Þór Tulinius, leikara og leikstjóra. Verkið verður frumsýnt í Sláturhúsinu á Egilsstöðum um næstu helgi. Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson

Á málþingi sem haldið er í tilefni alþjóðadags krabbameinsrannsókna, kl.16:30 í dag í húsi Krabbameinsfélagsins, verður veitt innsýn í mikilvægi krabbameinsrannsókna, þar sem vísindafólk og læknar og fólk sem nýtur ávinnings af framförum í meðferð sinna krabbameina tala á mannamáli um sína reynslu. Í dag fengum við í heimsókn til okkar Valgerði Jakobínu Hjaltalín, sem hefur unnið að fjölmörgum rannsóknum tengdum myndun og meinvörpun æxla þar sem notast er við ávaxtaflugur og við heyrðum einnig í Sigurbirni Árna Arngrímssyni, sem greindist með fjórða stigs sortuæxli fyrir rúmum tveimur árum. Í dag er alþjóðlegur Alzheimerdagur og í tilefni þess halda Alzheimersamtökin ráðstefnu undir heitinu Er mamma bara með heilabilun þrisvar sinnum í viku? - Úrræði og þjónusta fyrir fólk með heilabilun á landsvísu. Meðal þeirra sem munu taka til máls á ráðstefnunni eru systurnar Dagný Björg Gunnarsdóttir og Hera Kristín Óðinsdóttir sem ætla að segja frá upplifun sinni af því þegar móðir þeirra fékk staðfesta greiningu fyrir Alzheimer og tímanum eftir greiningu. Einnig mun Bergþóra Guðmundsdóttir segja frá reynslu sinni á ráðstefnunni, en hún er líka aðstandandi Alzheimersjúklings. Við ræddum við þær Dagnýju, Heru og Bergþóru í þættinum í dag. Samtökin Landsbyggðin lifi er hreyfing fólks sem vill örva og efla byggð um land allt, bæði í efnahags- og menningarmálum. Samtökin taka þátt í erlendum verkefnum með öðrum jaðarbyggðum, til dæmis í Evrópusambandinu, þar sem þau meðal annars deila reynslu sinni af því að vinna gegn fólksfækkun og glötun menningar í heimabyggð. Framundan er aðalfundur félagsins og málþing á Egilsstöðum og við fengum þær Hildi Þórðardóttur og Sigríði Svavarsdóttur til að segja okkur meira frá samtökunum, aðalfundinum og hvað er á döfinni hjá þeim. Tónlist í þættinum Brúnaljósin brúnu / Páll Óskar Hjálmtýsson ( Jenni Jóns) I?m still standing / Elton John (Elton John & Bernie Taupin) Falling Slowly / The Swell Season (Glen Hansard & Markéta Irglová) Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Sigurður Líndal, fyrrverandi lagaprófessor, lést 2. september s.l.. Í áratugi var Sigurður tíður viðmælandi í fréttum og útvarpsþáttum þar sem borin voru undir hann lagaleg álitamál og fjölmargt annað enda hugðarefni hans mörg. Leikin voru brot úr nokkrum viðtölum við hann og erindum sem hann flutti á fjörutíu ára tímabili, m.a. um lögfræðiþekkingu Njáluhöfundar, Tómas Sæmundsson Fjölnismann og málfrelsi. Ríkisstjórnin hélt sumarfund á Egilsstöðum í síðustu viku og hitti í kjölfarið sveitastjórnarfólk á Austurlandi. Berglind Harpa Svavarsdóttir, bæjarfulltrúi í Múlaþingi og formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, sagði í viðtali mikilvægt að fá ríkisstjórnina í heimsókn enda þingmenn og ráðherrar frekar sjaldséðir eystra. Hún sagði líklega stuttlega frá meginniðurstöðum nýrrar efnahagsgreiningar fyrir Austurland en hún sýnir m.a. að um fjórðungur útflutningsverðmæta þjóðarinnar verður til á Austurlandi en þangað fæst aðeins brot af þeim fjármunum sem varið er til innviðauppbyggingar, vegaframkvæmda og slíks. Algóritmi eða algrím er flókið og mikilvægt stærðfræðifyrirbæri sem er notað með ýmsum hætti. Sigrún Helga Lund, prófessor við raunvísindadeild HÍ, útskýrði algrím og notagildi. Tónlist: Vegbúinn - KK, I?m not in love - 10cc, What I am - Edie Brickell, Needles and pins - The Searchers. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

AB VARAHLUTIR - BÍLJÖFUR - BÍLAPUNKTURINN - Á FERÐ OG FLUGI - PÚST HJÁ EINARI Bragi og Jakob fara yfir viðburðaríka helgi á Egilsstöðum þar sem 3. og 4. umferðir Íslandsmótsins í torfæru fóru fram.
Viðmælandi þáttarins er Sesselía Birgisdóttir framkvæmdastjóri sölu-, þjónustu og markaðssviðs hjá Vodafone. Sesselía er fædd árið 1976 og alin upp á Egilsstöðum. Hún gekk í Menntaskólann á Egilsstöðum og kláraði BA próf í félagsfræði frá Háskóla Ísland. Hún er með tvær mastersgráður frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð, í alþjóða markaðsfræði og vörumerkjastjórnun og í stjórnun mannauðs með áherslu á þekkingar og breytingastjórnun. Sesselía bjó í Svíþjóð í yfir 10 ár þar sem að hún stofnaði og rak fyrirtækið Red Apple Apartments. Eftir að Sesselía flutti aftur heim til Íslands hefur hún starfað sem forstöðumaður stafrænna miðla og markaðsmála hjá Advania, framkvæmdastjóri Íslandspósts og sem forstöðumaður nýsköpunar og markaðsmála hjá Högum. Hún hefur einnig starfað sem ráðgjafi og setið í hinum ýmsu stjórnum m.a. fyrir Samtök verslunar og þjónustu, hugbúnaðarfyrirtækið AGR og Sýn. Þessi þáttur er í boði Icelandair, Krónunnar og Arion banka.
Spegillinn 16. júní 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Eggert Valur Guðmundsson, oddviti í Rangárþingi ytra, segir að framkvæmdaleyfi verði ekki veitt fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá fyrr en gilt virkjanaleyfi liggur fyrir. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir ræddi við hann og Harald Þór Jónsson, oddvita Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Stígamót hafa lagt fram tvær kærur síðustu daga vegna ofbeldis sem beinist gegn starfsfólki. Karitas M. Bjarkadóttir ræddi málið við Drífu Snædal, talskonu Stígamóta. Bjartmar Leósson, sem hefur lagt sig fram um að hafa upp á stolnum reiðhjólum segist langþreyttur á að lögreglan sinni málaflokknum ekki betur. Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að lögreglan reyni sitt besta. Ásta Hlín Magnúsdóttir tók saman. Kerfislæg vandamál innan lögreglunnar í Minneapolis gerðu dauðsfall George Floyd mögulegt. Þetta er niðurstaða rannsóknar bandaríska dómsmálaráðuneytisins. Rebekka Líf Ingadóttir sagði frá. Hitamet sumarsins féll á Hallormsstað í dag þegar hitinn fór í 27,8 stig. Sólstrandarstemning er á Egilsstöðum sagði Sólveig Edda Bjarnadóttir veitingamaður. Ásta Hlín Magnúsdóttir talaði við hana og Óla Þór Árnason veðurfræðing. Hljómskálagarðurinn verður í smærra hlutverki í þjóðhátíðarhöldunum í Reykjavík en alla jafna vegna framkvæmda. Kristín Sigurðardóttir talaði við Guðmund Birgi Halldórsson viðburðastjóra. Umræða um ráðherraskipti í ríkisstjórninni hefur verið óvenjuleg segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði; bæði vegna þess hve augljóst hefur verið að Jón Gunnarsson vill sitja áfram og eins vegna óþols Guðrúnar Hafsteinsdóttur sem tekur við. Í útlendingamálum hafi núningur milli stjórnarflokkanna kristallast. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Heildarneysla ferðamanna í fyrra var hátt í 650 milljarðar króna og er því í sögulegum hæðum að því segir í frétt Hagstofu Íslands um hlut ferðaþjónustunnar í landsframleiðslu. Benedikt Sigurðsson talaði við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar um stöðuna í greinininni. The Searchers, ein elsta bítlahljómsveit heimsins, heldur sína síðustu tónleika á morgun eftir 67 ára feril. Ásgeir Tómasson rifjaði upp feril hennar.

Framhaldsskólakennarinn Arnór Bliki Hallmundsson hefur lengi rannsakað og skrifað um sögu gamalla húsa á Akureyri og í nágrenni og birtast skrif hans meðal annars inni á svæðismiðlinum akureyri.net. Undanfarið hefur Arnór Bliki unnið að gerð bókar um hús og fólk á Eyrinni í samvinnu við Kristínu Aðalsteinsdóttur og mun bókin koma út innan tíðar. Við hittum Arnór Blika á Eiðsvellinum á Akureyri og ræddum bókina sem og áhuga hans á gömlum húsum. Við kíktum í heimsókn í Safnahúsið á Egilsstöðum en þar er meðal annars Minjasafn Austurlands til húsa. Þar hittum við Elsu Guðnýju Björgvinsdóttur sem sagði okkur frá einni af fastasýningu safnsins, sem fjallar um hreindýr. Kristín Aðalheiður Símonardóttir rekur veitingastaðinn Gísli Eiríkur og Helgi á Dalvík og við komum við hjá henni á ferð okkar um Norðurland fyrir stuttu og spjölluðum við hana um reksturinn, ferðafólkið sem nú flykkist norður og stóra verkefnið í vetur sem var True Detective sem var allt umlykjandi á Dalvík. Tónlistin í þættinum: Lipurtá - Bubbi Allt í góðu lagi - Móses Hightower Bewitched, bothered and bewildered - Cher og Rod Stuart. Moda Bo - Lura ásamt Cesaria Evora

Spegillinn 19. Maí 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Framhaldsskólanemar og kennarar mótmæla hugmyndum stjórnvalda um að sameina Kvennaskólann og Menntaskólann við Sund. Alexander Kristjánsson ræddi við Andreu Jónsdóttur, forseta Sambands íslenskra framhaldsskólanema og Ásmund Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra. Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir allt kapp lagt á að leysa kjaradeilu sveitarfélaganna og BSRB. Alexander Kristjánsson ræddi við hana. Leiðtogar G7 ríkjanna áforma að herða refsiaðgerðir gegn Rússum með því að koma í veg fyrir viðskipti þeirra með jarðefni, þar á meðal demanta. Markús Þórhallsson sagði frá. Samtökin Trans Ísland hlutu í dag mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar. Anna María Björnsdóttir og ræddi við Ólöfu Bjarka Antons, formann samtakanna. Tap lyfjaĦyrĩrĴækĩsĩns AlĶotech á fyrsta ársĦjórðungi þessa árs nam samĴals 276 milljƓnĵm BandaIJíkjaĤala, eða sem nemĵr um 40 milljƖrðum ísĬenskra króna. Til samġnĢĵrðar var tap féĬagsĩns á sama tíma í fyrra 77 milljƓnĩr dala, eða um 11 milljġrðar króna. Í Speglinum var rætt við Kristján Loftsson, forstjóra Hvals hf, um nýja skýrslu Matvælastofnunar um hvalveiðar fyrirtækisins. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við hann. Stjórnvöld í Rússlandi hafa sett samtök Grænfriðunga (Greenpeace) á lista yfir óæskileg samtök. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur boðið Ítölum aðstoð vegna hamfaranna í Emilia-Romagna héraði í mestu úrhellisrigningum sem þar hafa orðið í heila öld. Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur einnig boðið fram alla aðstoð sem Ítalir kunna að þarfnast. Ásgeir Tómasson fjallaði um flóðin. Á meðan íbúar á suður-og vesturhluta landsins þurfa að sætta sig við kulda og bleytu er einmuna veðurblíða á norður- og austurhluta landsins. Hiti skreið upp í tuttugu gráður á þremur stöðum; Egilsstöðum, Hallormsstað og Borgarfirði eystri. Gervigreindin Chat GPT ræddi um áhyggjur um að íslenska tungumálið kunni að líða undir lok. Bjarni Rúnarsson tók saman og Dagný Lind Erlendsdóttir las texta gervigreindarinnar.

Það má segja að sjálfbærni sé rauður þráður í gegnum efni þáttarins. Við heimsækjum Safnahúsið á Egilsstöðum og forvitnumst um sýninguna Sjálfbær eining sem er ein af fastasýningum Minjasafns Austurlands. Það er Elsa Guðný Björgvinsdóttir safnstjóri Minjasafnsins sem segir frá. Því næst höldum við í heimsókn í Hallormsstaðaskóla og ræðum þar við Bryndísi Fionu Ford skólameistara og Dagrúnu Drótt Valgarðsdóttir, en Dagrún er ein af nemendum skólans og hefur í gegnum nám sitt þróað ýmsar drykkjarvörur og vinnur núna að því að nýta köngla úr skóginum til að gerja drykkina. Öll viðtölin í þættinum voru tekin þegar umsjónarmaður Sagna af landi fór í ferðalag um Austurland í janúar 2023. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Fjölmiðlamaðurinn Aðalsteinn Kjartansson mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi Elísabetu Erlendsdóttur, yfir rjúkandi heitri eðlu, eða skarfi eins og þau kalla þetta.Aðalsteinn byrjaði ungur í fjölmiðlabransanum eða aðeins 20 ára gamall hjá DV og hefur hann eins og hann sagði sjálfur ekki unnið aðra vinnu síðan. Hann hefur þó komið víða við í fjölmiðlamennskunni en hefur hann unnið hjá flestum stærstu miðlum landsins ásamt því að hafa verið einn stjórnenda Kveiks.Elísabet er ólétt af þeirra öðru barni saman og starfar hún sem vöruflokkastjóri hjá Ekrunni og sér þar bæði um markaðstengd mál og svo fær hún líka útrás fyrir Excel þörf sinni.Aðalsteinn og Elísabet kynntust fyrst í gegnum sameiginlegan vin en hafði hún dregið Aðalstein með sér í afmælispartý í þeirri von um að hann myndi kynnast Elísabetu. Það fór heldur betur eins og vinkonan sá fyrir og hafa þau verið saman allar götur síðan og eiga nú von á fjórða barninu í fjölskylduna.Í þættinum ræddum við meðal annars, fjölmiðlabransann, samherjamálið og hvernig það fór í fjölskyldulífið, stjúpforeldrahlutverkið, uppvaxtarárin á Egilsstöðum, rómantíkina og margt fleira, ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal hversu bókstafleg Elísabet á það til að vera.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Við fjölluðum um Rússland. Ár er í dag síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. En hver er staða Rússlands í dag meðal þjóða? Við veltum því fyrir okkur með Jóni Ólafssyni, prófessor við Háskóla Íslands, sem þekkir vel til Rússlands í sögu og samtíð. Því næst fjölluðum við um landsins gagn og nauðsynjar. Talsvert hefur mælst af hrygningarloðnu á landgrunninu norður af Húnaflóa. Loðnukvótinn verður aukinn og mikil verðmæti undir. Hörður Sævaldsson lektor við Háskólann á Akureyri kom til okkar og sagði okkur nánar frá þessari verðmætu fiskitegund. Að lokum forvitnuðumst við um eina af framúrskarandi stofnunum landsins. Við slógum á þráðinn til Árna Ólasonar, skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum, en skólinn hlaut nýlega nafnbótina Stofnun ársins árið 2022 samkvæmt könnun Sameykis, annað árið í röð. Tónlist: Saman á ný - Helena Eyjólfsdóttir Hotel California - Eagles Smooth Sailing - Ella Fitzgerald Einmunatíð - Guðmundur R. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir og Björn Þór Sigbjörnsson

Við verðum að mestu á Vestfjörðum í þætti dagsins. Heyrum af framtíðarsýn ungmenna í Reykhólahreppi, það eru þau Kristján Steinn Guðmundsson fulltrúi í ungmennaráðinu og Jóhanna Ösp Einarsdóttir tómstundafulltrúi sem segja frá. Við fræðumst líka um starfsemi Edinborgarhússins á Ísafirði þegar Ingi Björn Guðnason leiðir okkur um húsið. En við byrjum hins vegar á Austurlandi. Þar fræðumst við um verkefni sem Rótarýklúbbur Héraðsbúa hefur staðið að, sem er að setja upp söguskilti nærri búsetustöðum Jóns lærða á Austurlandi, til minningar um sögu hans og verk. Það er Stefán Þórarinsson fyrrverandi læknir á Egilsstöðum sem segir frá. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Ágúst Ólafsson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Minningar af aðventu og stríðsárum: Í þessum þætti ætlum við að ferðast aftur í tímann og til Þýskalands stríðsáranna. Við förum í fylgd með Helgu Ruth Alfreðsdóttur en hún býr á Egilsstöðum þar sem hún starfaði lengi sem íþróttakennari. Rúnar Snær Reynisson hitti Helgu þar sem hún var við sína uppáhaldsiðju; að baka hið þýska Stollen-brauð fyrir jólin. Þátturinn var frumfluttur í Sögum af landi 13. desember 2019. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Séra Davíð Þór Jónsson og hans Betri helmingur Þórunn Gréta Sigurðardóttir eru viðmælendur vikunar í Betri helmingnum.Davíð Þór hefur komið víða við á sínum starfsferli en var hann meðal annars annar Radíusbræðra sem nutu gríðarlegra vinsælda á tíunda áratugnum, gegndi ritstjórn, þýddi bæði leikrit og sjónvarpsþætti, stjórnaði Gettu betur en hefur hann verið sóknarprestur Laugarnseskirkju síðan 2016.Þórunn Gréta er menntuð með BA í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands og er hún formaður Tónskáldafélags Íslands. Þórunn Gréta hefur samið fjölbreytt tónverk en vann hún einmitt Íslensku tónlistarverðlaunin nú fyrr á þessu ári fyrir óperu sína KOK. Davíð Þór og Þórunn Gréta kynntust í raun þrisvar sinnum en þeirra fyrstu kynni voru þegar Þórunn var einkabílstjóri Davíðs þar sem hann var að skemmta fyrir framhaldsskólann á Egilsstöðum, það var þó langt frá því að kvikna eitthvað á milli þeirra í það skiptið enda töluvert aldursbil á milli þeirra. Þeirra önnur kynni voru svo þegar Þórunn flutti fyrir tilviljun í íbúð á sama stigagangi og Davíð og rákust þau reglulega á hvert annað, það var þó ekki fyrr en í þriðja skiptið sem leiðir þeirra lágu saman að hjólin fóru að snúast en var það þegar Davíð réði hana til vinnu við þýðingu á barnaefni. Þau voru bæði á viðkvæmum stað í þá daga og fundu stuðning frá hvert öðru sem þróaðist síðan í ástarsamband og hafa þau verið saman allar götur síðan, eru gift með tvö börn en átti Davíð börn úr fyrra sambandi.í þættinum ræddum við meðal annars um prestastarfið og hvar áhuginn fyrir því kviknaði, árin í skemmtibransanum, tónlistina, fjölskyldulífið og rómantíkina ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Þórunn Gréta kveikti næstum í heimili þeirra.Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Brynjuís - https://brynjuis.is/Augað - https://www.augad.is/
Ýmiskonar grúsk verður til umfjöllunar í þætti dagsins. Við byrjum á að slá á þráðinn til kvenfélagskonunnar Margrétar Tryggvadóttur á Hvolsvelli og hún segir frá handverkssýningunni Margt verður til í kvennahöndum sem Kvenfélagið Eining setti upp í félagsheimilinu Goðalandi í Fljótshlíð. Við ferðumst einnig aftur í tímann og heyrum viðtal frá árinu 1979. Þar ræðir Magnús Finnbogason við Kristínu Guðmundsdóttur um starfsemi Kvenfélagsins Einingar en þá var Kristín formaður félagsins. Því næst er ferðinni heitið á Mótorhjólasafn Íslands. Þar segir Tómas Ingi Jónsson frá tilurð safnsins og nokkrum vel völdum safngripum. Að lokum er rætt við Ásgeir Hvítaskáld, rithöfund á Egilsstöðum, sem skrifað hefur skáldsögu um örlög ungs pilts sem var hálshöggvin árið 1786 og var það síðasta aftakan á Austurlandi. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Ágúst Ólafsson og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar fréttahluta: Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Stórbruni varð á Egilsstöðum í dag þegar kviknaði í þvottahúsinu Vaski, lítið varð ráðið við eldinn fyrr en liðsauki barst frá flugvallarslökkviliðinu. Íbúar eru beðnir að loka gluggum og kynda til að varna því að reyk leggi inn. Rúnar Snær Reynisson fréttamaður var á vettvangi og ræddi við Harald Geir Eðvarðsson slökkviliðsstjóra Múlaþings. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ræðir á föstudag um skemmdir á rússneskum gasleiðslum í Eystrasalti. Rússar bera af sér sök um skemmdarverk og óskuðu eftir fundinum. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir að grannt verði fylgst með framvindu mála. Það væri fínt að geta fengið að vera í almennilegum skóla segir Arna Sif Jóhannssdóttir, nemandi í níunda bekk Hagaskóla. Bæta þarf við útistigum og breyta gluggum til að tryggja brunavarnir í húsi skólans í Ármúla segir Björn Kjartansson, sviðsstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir tók saman. Fjárhagsstaða sveitarfélaga hefur aldrei verið jafn bág og nú að mati nýkjörins Heiðu Bjargar Hilmisdóttur formanns sambands þeirra. Erfitt sé að gera áætlanir fyrir næsta ár þegar óvíst sé um tekjustofna. Ágúst Ólafsson ræddi við hana. Saksóknari fer fram á fimm ára dóm yfir þremur einstaklingum fyrir aðild að morði í Rauðagerði í febrúar í fyrra. Karlmaður var dæmdur í sextán ára fangelsi í héraðsdómi fyrir að hafa játað á sig manndrápið, en þremenningarnir voru sýknaðir. Alexander Kristjánsson sagði frá málflutningi í Landsrétti. ------------- Eyjarskeggjum á dönsku eyjunum Borgundarhólmi og Kristjánsey er órótt yfir að vera allt í einu í miðjum hráskinnaleik á heimssviðinu. Flestum að Danmörk að hún sé ekki svo fjarri og stríð og átök hafi færst nær við fréttir af sprengingum og skemmdarverkum í Eystrasalti. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra um viðbragð Íslands og NATO. Næstu tveir sólarhringar verða andstyggilegir, segir Ron DeSantis, ríkisstjóri í Flórída í Bandaríkjunum. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í ríkinu vegna fellibylsins Ians sem nær landi í kvöld eða nótt. Ásgeir Tómasson tók saman. Hvaða máli skiptir hamingjan? Embætti landlæknis hefur mælt og skráð hamingju Íslendinga staðfastlega í nær tvo áratugi. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur sviðsstjóra lýðheilsu hjá Landlækni um hamingjumælingar og versnandi líðan íslenskra ungmenna eftir C

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra tók í gær á móti Politician of the Year 2022 verðlaunum á One Young World ráðstefnunni sem fer fram í Manchester á Englandi - en ráðstefnan leiðir saman yfir tvö þúsund manns víðs vegar að úr heiminum sem öll eiga það sameiginlegt að vera leiðtogar á sínu sviði. Borgarfulltrúinn Hildur Björnsdóttir lét hafa eftir sér á dögunum að innviðir Reykjavíkurborgar væru að springa og skemmast þegar kaldavatnslögn í Hvassaleiti fór í sundur á samskeytunum svo gríðarlegur vatnselgur varð á svæðinu. Í gær var svo heitavatnslaust í Vesturbæ, Miðbæ og Hlíðum en miklar framkvæmdir hjá Veitum hafa einkennt svæðið undanfarna daga. Við fengum til okkar Sólrúnu Kristjánsdóttur framkvæmdastjóra Veitna til að svara því hvort þetta sé rétt - þ.e., eru innviðir borgarinnar að springa og ef svo er, hvað er þá hægt að gera í því? Til stendur að þrjátíu Úkraínskir flóttamenn fái inni á Eiðum, gamla kjarnanum í kringum skólabygginguna um 10 kílómetra frá Egilsstöðum - en von er á fólkinu á næstu dögum. Við heyrðum í Birni Ingimarssyni sveitarstjóra Múlaþings, sem stendur að komu flóttafólksins, og spurðum meðal annars um innviði á Eiðum og framtíðarhorfur fólksins á svæðinu. Sveitarfélögin hringinn í kringum landið þurfa að undirbúa sig undir loftslagsbreytingar - en búast má við því að hlýnun jarðar geti haft afar ólík, en hamfarakennd áhrif vítt og breytt um landið - allt frá aurskriðum til flóða og svo framvegis. Anna Hulda Ólafsdóttir, yfirmaður skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar á Veðurstofu Íslands kom til okkar. Við ræddum við Höllu Ingólfsdóttur í Grímsey um skjálftana í nótt. Það hefur verið nokkuð líflegt í Kauphöllinni síðustu daga en í gær hækkaði úrvalsvísitalan um meira en eitt prósent, annan daginn í röð. Við ræddum við Snorra Jakobsson, hagfræðing hjá Jakobsson Capital, um horfur á mörkuðum hér heima og erlendis. Í gær var greint frá því að borgaryfirvöld í Haarlem í Hollandi hafa ákveðið að banna kjötauglýsingar á auglýsingaskiltum í eigu borgarinnar. Frá og með árinu 2024 má ekki auglýsa kjöt á strætisvögnum, biðskýlum og upplýsingaskjám sem borgin heldur úti. Bannið er sett af umhverfisástæðum en Græningjar eru í meirihluta í borgarstjórn Haarlem og talsmaður flokksins segir ekki forsvaranlegt að nýta borgarrými til að auglýsa vöru sem hefur neikvæð umhverfisáhrif. Við ætlum að ræða bannið við Valgerði Árnadóttur, formann Samtaka grænkera á Íslandi, og spyrja hvort að þau telji æskilegt að stjórnvöld hér ráðist í sambærilegar aðgerðir.

Við hittum þrjá einstaklinga og einn hund, í þremur landshlutum, sem eru virk í sjálfboðaliðastarfi. Við byrjum á Akureyri þar sem við hittum Sigrúnu Steinarsdóttir Ellertsen sem hefur haldið úti Facebook-síðunni Matargjafir á Akureyri og nágrenni í átta ár. Og frá Akureyri höldum við til Flateyrar en eftir að snjóflóð féll á Flateyri í janúar 2020 ákvað Konráð Ara Skarphéðinsson að þjálfa hundinn sinn, Ask, sem snjóflóðaleitarhund. Að lokum höldum við svo á nytjamarkað Rauða krossins á Egilsstöðum og hittum Berglindi Sveinsdóttur sem stendur þar vaktina. Efni í þáttinn unnu: Þórgunnur Oddsdóttir, Halla Ólafsdóttir og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Halla Ólafsdóttir.

AB VARAHLUTIR - TÆKJAFLUTNINGAR NORÐURLANDS - BÍLJÖFUR - BÍLAPUNKTURINN - OLÍS Bragi og Jakob C fara yfir 3. og 4. umferðir Íslandsmótsins í torfæru sem fóru fram á Egilsstöðum. Í lok þáttar heyra þeir líka í þeim þremur ökumönnum sem efstir eru til stiga í Íslandsmótinu. Mynd: Bergur Bergsson
?Leikurinn blundar í okkur öllum,? segir nýr handhafi Guðmunduverðlaunanna í myndlist sem afhent voru fyrir nokkrum vikum, myndlistarverðlaun sem stofnuð voru af Erró árið 1997 til minningar um móðursystur sína, Guðmundu S. Kristinsdóttur frá Miðengi. Þetta er í 22. sinn sem þau eru veitt og í ár var það Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir myndlistarkona sem tók við þeim. Í listsköpun sinni fæst Ingunn við ýmsa miðla eins og málverk, vefnað og innsetningar þar sem þátttaka áhorfanda leikur gjarnan hlutverk. Framundan er einkasýning í Listasafni Íslands nú í maí og samstarfssýning með Þórdísi Jóhannesdóttur í Sláturhúsinu, Menningarmiðstöð Fljótdalshéraðs á Egilsstöðum sem opnar í júlí, svo eitthvað sé nefnt. Við förum í göngutúr með Ingunni Fjólu hér síðar og röbbum um myndlist. Ásta Soffía Þorgeirsdóttir harmonikkuleikari og Ásbjörg Jónsdóttir tónskáld kynntust í listaháskólanum fyrir áratug síðan og fengu strax áhuga á því að starfa saman. Nokkrum árum, meira tónlistarnámi og hellingi af ljóðalestri síðar, hafa tónlistarkonurnar leitt saman krafta sína í samstarfi við Sölva Kolbeinsson saxafónleikara og Heiðu Árnadóttur sönkonu. Hópurinn heldur tónleika og gefur út nýja plötu laugardaginn næstkomandi sem er innblásinn af ljóðum Gerðar Kristnýjar og Ingibjargar Haraldsdóttur. Þær Ásta og Ásbjörg verða gestir Víðsjár í dag. En við byrjum í Feneyjum. Nína Hjálmarsdóttir fjallar um þau verk sem stóðu upp úr að hennar mati á Feneyjartvíæringnum. Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Halla Harðardóttir

Við fengum góðan gest að austan í upphafi þáttar þegar Björn Ingimarsson sveitarstjóri Múlaþings leit við í morgunkaffi og sagði okkur frá metnaðarfullum áætlunum um nýjan miðbæ á Egilsstöðum, en miðbæjarkjarninn hefur hlotið nafnið Straumur og þar leikur göngugatan Ormurinn lykilhlutverk. Talsverð umfram eftirspurn var eftir hlut ríkisins í Íslandsbanka sem auglýstur var til sölu síðdegis í gær. Eignarhlutur ríkisins í bankanum eftir söluna verður 42,5 prósent en var áður 65 prósent. Snorri Jakobsson, hagfræðingur, kom til okkar og ræddi söluferlið, niðurstöður þess og áhrif á ríkið. Í gær bárust þær fréttir Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður væri látin 86 ára að aldri. Guðrún hóf rithöfundaferil sinn komin undir fertugt með fyrstu bókinni um Jón Odd og Jón Bjarna árið 1974. Eftir það kom hvert meistarastykkið á fætur öðru og hún vann hug og hjörtu lesenda á öllum aldri. Mæðgurnar Silja Aðalsteinsdóttir og Sigþrúður Silju Gunnarsdóttir þekkja vel til verka Guðrúnar og áhrifa hennar á íslenskar bókmenntir og þær komu til okkar til að minnast hennar. Friðrik Jónsson sérfræðingur í varnarmálum kom til okkar og ræddi stöðuna í Úkraínu en í gær var tilkynnt um stóraukningu herafla NATO í aðildarríkjum sambandsins í nágrenni Rússlands. Friðrik var um tíma fulltrúi Íslands í hermálanefnd NATO og m.a. fyrsti borgaralegi fulltrúinn sem kjörinn var forseti nefndarinnar og starfaði í 18 mánuði í Afganistan. Við ræddum þessi nýju skref NATO, möguleg markmið Pútín og viðkvæmt friðarsamningaferlið sem virðist hafið. Friðrik hafnar algjörlega þeirri söguskýringu að hægt hefði verið að afstýra stríði ef hægt hefði verið á stækkun NATO og segir hana ósmekklega. Ferðakaupstefnan Mannamót Markaðsstofa landshlutanna fer fram í dag en um er að ræða fjölmennasta viðburð í íslenskri ferðaþjónustu þar sem samstarfsfyrirtækjum markaðsstofanna í öllum landshlutum gefst tækifæri til að kynna sig fyrir fólki í ferðaþjónustu sem starfar á höfuðborgarsvæðinu. Við fengum til okkar Arnheiði Jóhannsdóttur talsmann markaðsstofanna og heyrðum af ferðaþjónustunni vítt og breitt um landið. Tónlist: Ellen Kristjáns og Þorsteinn Einarsson - Hluthafi í heiminum. Soffía Björg og Krummi - Bona fide. Sú Ellen - Elísa. Phil Collins og Philip Baily - Easy lover. Duran Duran - Ordinary world. Bríet - Flugdreki. Hildur Vala - Hard to be alone. Rickie Lee Jones - Chuck E is in love.

Við hittum við fólk sem hefur stundað vinnu og áhugamál árum og áratugum saman og þar af leiðandi upplifað ýmsar breytingar og tímana tvenna. Við komum fyrst við í Gamla bakaríinu á Ísafirði þar sem Árni Aðalbjarnarson hefur bakað alla sína starfsævi og þrátt fyrir að hafa lokað og sett bakaríið á sölu heldur hann áfram að baka. Við höldum svo á Akranes þar sem við skyggnumst inn á vinnustofu Dýrfinnu Torfadóttir sem er sjónfræðingur og gullsmiður og að lokum hittum við Baldur Pálsson björgunarsveitarmann og snjóbílstjóra í Björgunarsveitinni Héraði á Egilsstöðum sem segir okkur frá afdrifaríku útkalli sem knúði fram breytingar á samstarfi björgunarsveita landsins. Efni í þáttinn unnu Halla Ólafsdóttir, Elsa María Guðlaugs Drífudóttir og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Halla Ólafsdóttir.

Umsjón: Ingvar Þór Björnsson og Snærós Sindradóttir Námsmenn og skólastarfsfólk hefur þurft að laga sig að breyttum veruleika vegna fjölgunar kórónuveirusmita undanfarnar vikur. Við ræddum við Eyjólf Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, um prófatíðina framundan og hvaða lærdóm hægt sé að draga af faraldrinum. Við hringdum austur á Hérað, en Stefán Bogi Sveinsson lögfræðingur og héraðsskjalavörður á Egilsstöðum, er sérfræðingur í geimrétti. Tilefnið er heimsókn Sævars Helga Bragasonar til okkar á þriðjudag þar sem hann sagði okkur að mikill pirringur ríkti í garð Rússa eftir að þeir sprengdu í loft upp eigið gervitungl. Ragnar Sverrisson, kaupmaður á Akureyri, kom til okkar til að ræða skipulagsmál. Hann hefur um margra ára skeið barist ötullega fyrir því að miðbær Akureyrar verði skipulagður upp á nýtt. RARIK hefur staðið í ströngu við að leggja línur í jörð á þessu ári. Við heyrðum í Ásbirni Gíslasyni, deildarstjóra framkvæmdadeildar Rarik á Norðurlandi, um hvernig fyrirtækið er í stakk búið að takast á fárviðri á borð við það sem gekk yfir landið í desember 2019. Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað í gær að hækka stýrivexti um 0,5 prósentustig. Þetta er í fjórða sinn í röð sem bankinn hækkar vexti á þessu ári. Við heyrðum í Drífu Snædal, forseta Alþýðusambands Íslands. Í lok þáttar fengum við til okkar meðlimi óperunnar Arctic opera, sem er starfrækt hér á Akureyri. Lög: Sunny Road (Tónatal 2021) - Valdimar Never as good as the first time - Sade Heimur allur hlær - Stefán Hilmarsson Wasted days - John Mellencamp Þorparinn - Mannakorn Everybody's changing - Keane Við gætum reynt - Magni og Ágústa Eva Running Wild - Vök
Gengið verður lengra í tilslökunum á grímuskyldu en ríkisstjórnin tilkynnti eftir fund sinn í gær. Deild á Landspítala var lokað í dag eftir að sjúklingur greindist með COVID-19. Smit hafa greinst í nokkrum grunnskólum síðustu daga eftir að skólastarf hófst að nýju. Reglum um sóttkví í skólastarfi var nýlega breytt, svo færri þurfi að fara í sóttkví þegar smit koma upp. Maðurinn sem var skotinn og særður af lögreglu á Egilsstöðum í gær er á gjörgæsludeild Landspítalans þar sem líðan hans er stöðug. Rannsókn málsins er á frumstigi. Rúta með þrjátíu manns festist í Krossá við Þórsmörk í dag. Björgunarsveitarmaður sem tók þátt í aðgerðum segir stöðuna hafa verið tvísýna um tíma. Framkvæmdir við útsýnispallinn á Bolafjalli við Bolungarvík hafa verið stöðvaðar þar sem byggingarleyfi hefur enn ekki verið gefið út fyrir framkvæmdinni. Bandaríkjaher er undirbúinn fyrir frekari árásir í Kabúl fyrir mánaðamót. Ríki heims eru nú á lokametrum brottflutnings fólks frá Afganistan Anders Fogh Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Dana og framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, gagnrýnir ákvörðun Bandaríkjamanna um að kalla her sinn frá Afganistan. Hann er einn margra málsmetandi á Vesturlöndum sem er reiður Joe Biden Bandaríkjaforseta. Bogi Ágústsson segir frá. Ekkert samræmt verklag er til á landsvísu um hvernig heilbrigðisstofnanir eigi að taka á móti þolendum heimilisofbeldis. Starfshópur leggur til einfalt áhættumat fyrir heilbrigðisstarfsfólk um hvenær eigi að kalla til lögreglu, til að mynda þegar þolandinn hefur verið tekinn kyrkingartaki eða er barnshafandi. Ragnhildur Thorlacius sagði frá og talað við Drífu Jónasdóttur. Ef verkfall flugumferðarstjóra á Keflavíkurflugvelli skellur á á þriðjudag gæti það haft áhrif á tæplega sex þúsund farþega Icelandair. Upplýsingafulltrúi félagsins segir að nú sé unnið að fyrirbyggjandi aðgerðum sem fela í sér að bjóða flugfarþegum að seinka eða flýta flugi um allt að tvo daga. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Ásdísi Ýr Pétursdóttur og Arnar Hjálmsson.