Okkar á milli - Hlaðvarp

Follow Okkar á milli - Hlaðvarp
Share on
Copy link to clipboard

Sigmar Guðmundsson fær til sín gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.

RÚV


    • Apr 6, 2021 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 36 EPISODES


    More podcasts from RÚV

    Search for episodes from Okkar á milli - Hlaðvarp with a specific topic:

    Latest episodes from Okkar á milli - Hlaðvarp

    Najmo Fyiasko Finnbogadóttir

    Play Episode Listen Later Apr 6, 2021


    Najmo Fyiasko Finnbogadóttir hefur þurft að þola margt á lífsleiðinni þrátt fyrir að vera aðeins 23 ára gömul. Hún var þvinguð í hjónaband 11 ára gömul í fæðingarlandi sínu, Sómalíu, en flúði þaðan tveimur árum síðar og komst hingað til Íslands 16 ára gömul eftir hættulegt og langt ferðalag. Henni hefur gengið vel að aðlagast íslensku samfélagi, á hér vini og fjölskyldu og gengur menntaveginn. En að stórum hluta snýst líf hennar líka um að berjast á samfélagsmiðlum fyrir réttindum stúlkna og kvenna í Sómalíu og óhætt er að segja að nálgun hennar í þeirri baráttu sé eftirtekarverð.

    Kristín Jónsdóttir

    Play Episode Listen Later Mar 30, 2021


    Sigmar ræðir við Kristínu Jónsdóttur sem hefur verið sérstaklega áberandi í fréttum undanfarnar vikur, enda er starf hennar þess eðlis að fólk þyrstir í svör þegar náttúruöflin taka yfir. Kristín segist ekki hafa verið neinn afburða námsmaður þrátt fyrir að vera doktor í jarðeðlisfræði enda snýst vísindastarf líka um hæfni í mannlegum samskiptum og að geta hugsað út fyrir boxið. Hún hefur áhyggjur af því að síður er tekið mark á konum en körlum í vísindum og að allt of fá tækifæri séu á Íslandi fyrir vel menntað raunvísindafólk.

    Maríanna Csillag

    Play Episode Listen Later Mar 23, 2021


    Sigmar ræðir við Maríönnu Csillag sem þekkir það vel hversu óskaplega miklar hörmungar fylgja stríðsátökum og náttúruhamförum. Hún hefur sinnt hjálparstörfum í kjölfar stórra jarðskjálfta í Íran, Pakistan og Haítí. Hún var á vettvangi í Sri Lanka eftir flóðbylgjuna miklu í Indlandshafi 2004, aðstoðaði fólk í miðju Bosníustríðinu og í hungursneið í Suður Súdan. Hún sá fólk deyja og flýja hryllingin í Rúanda þar sem 800 þúsund mans voru myrtir á 100 dögum. En í hörmungunum er líka von og manngæska.

    Bjarni Hafþór Helgason

    Play Episode Listen Later Mar 16, 2021


    Sigmar ræðir við Bjarna Hafþór Helgason sem hefur alla tíð skrifað og samið tónlist, en að undanförnu hefur hann gert það á öðrum forsendum en áður. Listin er eitt öflugasta vopnið sem hann á í baráttu sinni gegn Parkinson sjúkdómnum sem hann greindist með fyrir um tveimur árum. En svo skiptir líka miklu máli að vera lífsglaður og hafa húmor fyrir sjúkdómnum þótt hann sé grafalvarlegur, og ekki er heldur verra að hafa sett tappann í flöskuna með tilheyrandi úrvinnslu í sálartetrinu.

    Leifur Örn Svavarsson

    Play Episode Listen Later Mar 9, 2021


    Sigmar ræðir við Leif Örn Svavarsson sem hefur í tvígang gengið á hæstu fjöll heimsálfanna sjö og á báða pólana og mögulega fyrsti maðurinn í heiminum sem afrekar það. Ferðir á hæstu tinda eru líkamlega og andlega krefjandi en snúast ekki síður um ferðalagið að fjallinu en fjallið sjálft. Hann útskýrir einnig af hverju fjallið K2 er svona hættulegt sem John Snorri reyndi að klífa fyrstur manna að vetrarlagi ásamt félögum sínum, en er nú talinn af.

    Björn Hjálmarsson

    Play Episode Listen Later Mar 2, 2021


    Sigmar ræðir við Björn Hjálmarsson, sérfræðilækni á BUGL, um sorgina sem hann segir vera margslungið fyrirbæri. Björn missti son sinn með vofeiflegum hættum í Hollandi árið 2002 en hann fannst látinn með mikla áverka á höfði. Reiði, réttlæti, forherðing, sjálfsblekking og fyrirgefning eru orð sem Björn notar um sorgarferlið sem hann gekk í gegnum en hann vill segja sögu sína til að vara aðra við því að falla ekki í sömu gildrur. Hann bendir einnig á að ekki megi sjúkdómsvæða sorgina.

    Jasmina Vajzovic Crnac

    Play Episode Listen Later Feb 23, 2021


    Sigmar ræðir við Jasminu Vajzovic Crnac sem hefur búið á Íslandi frá árinu 1996. Hún flutti hingað sextán ára gömul en þá hafði stríð geysað í heimalandi hennar, Bosníu Hersegóvínu, í nokkur ár. Nokkuð áhyggjulaus æska breyttist í martröð á nánast einni nóttu þegar stríðið braust út og hún horfið á fólk deyja, var ofsótt og lifði í stöðugum ótta. En hún fékk tækifæri til að öðlast nýtt líf á Íslandi, tækfæri sem hún hefur heldur betur nýtt sér. Og skilaboð hennar í dag eru einföld, okkur ber skylda til að hjálpa fólki á flótta.

    Grímur Atlason

    Play Episode Listen Later Feb 16, 2021


    Sigmar ræðir við Grím Atlason sem hefur reynt það á eigin skinni að það hefur miklar og slæmar afleiðingar þegar börn og ungmenni alast upp við mikla drykkju og óreglu á heimilinu. Sálrænar og félagslegar afleiðingar þess geta flust á milli kynslóða með gríðarlegum kostnaði fyrir samfélagið, ef ekki er gripið inn í. Hann byrjaði sjálfur mjög ungur að drekka, sem er sjálfsagt rökrétt framhalda af aðstæðunum sem hann ólst upp við, en hefur í dag verið edrú í 26 ár.

    Eva Hauksdóttir

    Play Episode Listen Later Feb 9, 2021


    Sigmar ræðir við Evu Hauksdóttur sem hikar ekki við að setja fram beittar skoðanir og synda gegn straumnum ef þannig ber undir. Hún hefur kallað sig norn og aðgerðarsinna og var framarlega í flokki þeirra sem mótmæltu hvað ákafast í búsáhaldabyltingunni. Sonur hennar, Haukur Hilmarsson, var þar líka áberandi en hans hefur verið saknað í tæp þrjú ár og er talið að hann hafi fallið í sprengjuárás í Sýrlandi þar sem hann barðist með Kúrdum.

    Sigurður Guðmundsson

    Play Episode Listen Later Feb 2, 2021


    Sigmar ræddi við Sigurð Guðmundsson fyrrum landlækni sem gegndi embættinu um tíu ára skeið. Hann telur að þeir sem hafni því að láta bólustetja börnin sín sýni því fólki sem er útsett fyrir alvarlegum sjúkdómum vanvirðingu. Hann starfaði sem læknir í Malaví og varð það svo djúpstæð reynsla að hann talar um lífshlaup sitt í tveimur hlutum, fyrir og eftir Malaví. Hann er einnig ekki hrifinn af því fyrirkomulagi að fólk eigi helst að hætta að vinna þegar það verður sjötugt.

    KK - Kristján Kristjánsson

    Play Episode Listen Later Dec 1, 2020


    Sigmar ræðir við Kristján Kristjánsson, betur þekktan sem KK en hann er einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar. Flestir sjá í honum eftirsótta kyrrð og yfirvegun enda hefur hann unnið í sér eftir að hafa glímt við alkóhólisma. Hann fékk gefins gítar þegar hann var ellefu ára gamall og orðar það þannig að það hafi verið vegabréfið hans út í lífið. Hann fullyrðir einnig að það sé eitthvað meira og stærra til en við sjáum hér á jörðinni.

    Egill Fjeldsted

    Play Episode Listen Later Nov 24, 2020


    Sigmar ræðir við Egil Fjeldsted sem lamaðist frá brjósti eftir alvarlegt bílslys. Hann tók þá ákvörðun eftir slysið að líta á björtu hliðarnar og vera þakklátur fyrir að vera á lífi. Eftir endurhæfingu einbeitti hann sér að námi og lærði m.a. sagnfræði. BA ritgerðin í náminu endaði sem bók um krapaflóðin á Patreksfirði árið 1983 þar sem fjórir létust og mikið eignatjórn varð.

    Sabine Leskopf

    Play Episode Listen Later Nov 17, 2020


    Sigmar ræðir við Sabine Leskopf sem á sér merkilega fjölskyldusögu. Afar hennar og amma létust í seinna stríði og fátæktin í kjölfar þess er kveikjan að því að Sabine nýtir allt sem hægt er að nýta. Fjölskyldusagan og flutningar á milli landa hefur kveikt mikinn áhuga á tungumálum og hversu mikilvægt er að geta tjáð sig á máli innfæddra til að komast áfram í samfélaginu. Og það hefur Sabine gert með því að vera málsvari innflytjenda og komast áfram í borgarpólitíkinni.

    Einar Þór Jónsson

    Play Episode Listen Later Nov 10, 2020


    Sigmar ræðir við Einar Þór Jónsson sem var fyrsti íslenski homminn sem greindi frá því opinberlega að hann væri HIV smitaður árið 1992. Hann horfði á eftir vinum sínum deyja og beið sjálfur dauðans í mörg ár á stöðugum flótta en HIV lyfin björguðu lífi hans. Hann er einnig brautryðjandi og baráttumaður sem lengi þurfti að berjast fyrir viðurkenningu og því að fá að tilheyra í samfélagi sem vildi frekar fordæma og útskúfa.

    Steinþór Agnarsson

    Play Episode Listen Later Nov 3, 2020


    Sigmar ræðir við Steinþór Agnarsson sem greindist með heilbilunarsjúkdóminn Levibody fyrir tveimur árum. Einkennin eru svæsin, miklar ofskynjanir, Parkison, kvíði og alvarlegt þunglyndi og að auki er hann suma daga með skerta skynjun og hugsun og hegðun breytist. En Steinþór segir að lífið sé ekki búið þrátt fyrir þetta og reynir að njóta hvers dags á meðan hann getur.

    Margrét Kristmannsdóttir

    Play Episode Listen Later Oct 20, 2020


    Sigmar ræðir við Margréti Kristmannsdóttur sem stýrir einu elsta fjölskyldufyrirtæki landsins. Hún glímir einnig við stam, sem hún óttaðist í fyrstu að yrði henni fjötur um fót en segir í dag að stamið sé henni þvert á móti styrkur. Hún hefur einnig talað fyrir bættu siðfreði í atvinnulífinu og vill að skorin verði upp herör gegn skattsvikum.

    Vignir Daðason

    Play Episode Listen Later Oct 13, 2020


    Sigmar ræðir við Vigni Daðason sem segist vera heppin að vera á lífi eftir stutta en harða baráttu síðustu mánuði við krabbamein. Hann hefur einnig glímt við alkóhólisma og segir að báðir sjúkdómarnir hafi mótað hann mikið. Vignir ræðir reynslu sína og lífssýn auk þess sem hann fer yfir tónlistarferil sinn, sem hann gefur reyndar falleinkunn.

    Ragnar Freyr Ingvarsson

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2020


    Gestur Sigmars stendur í ströngu þessa dagana, en hann lýsir óvæntri vendingu í lífi sínu á þann hátt að hann hafi á fáeinum dögum farið úr því að vera í sóttkví að elda nautarif yfir í að stýra Covid19 göngudeildinni á Landsspítalanum. Ragnar Freyr Ingvarsson segir frá starfi sínu sem læknir við þessar kerfjandi aðstæður og ástríðu sinni fyrir mat því hann er einnig þekktur sem Læknirinn í eldhúsinu.

    Ragnar Freyr Ingvarsson

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2020


    Gestur Sigmars stendur í ströngu þessa dagana, en hann lýsir óvæntri vendingu í lífi sínu á þann hátt að hann hafi á fáeinum dögum farið úr því að vera í sóttkví að elda nautarif yfir í að stýra Covid19 göngudeildinni á Landsspítalanum. Ragnar Freyr Ingvarsson segir frá starfi sínu sem læknir við þessar kerfjandi aðstæður og ástríðu sinni fyrir mat því hann er einnig þekktur sem Læknirinn í eldhúsinu.

    Steinunn Þóra Árnadóttir

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2020


    Sigmar Guðmundsson ræðir við Steinunni Þóru Árnadóttur, alþingismann, um stjórnmálin, baráttu hennar við MS sjúkdóminn og óvæntar breytingar í fjölskyldu hennar.

    Hermundur Sigmundsson

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2020


    Gestur Sigmars er Hermundur Sigmundsson, prófessor í sálfræði, sem telur að íslensk börn séu tilraunadýr í menntakerfi sem sé á rangri leið.

    Kristín Ýr Gunnarsdóttir

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2020


    Sigmar ræðir við Kristínu Ýr Gunnarsdóttir en hún eignaðist dóttur sem er með Williams heilkennið. Það tók tíma að sannfæra sérfræðinga um að eitthvað amaði að og að ekki væri um þreytu eða fæðingarþunglyndi móður að ræða. Kristín upplifði vantraust í garð heilbrigðiskerfisins og segir að það skorti mikið upp á að einingar innan þess tali saman og taki betur utan um foreldra og börn sem eru í þessum sporum.

    Tolli

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2020


    Sigmar Guðmundsson ræðir við Tolla sem segir frá þeim leiðum sem hann hefur notað til að bæta líf sitt á sama tíma og hann hefur barist við tvo illvíga og bannvæna sjúkdóma.

    Auður Styrkársdóttir

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2020


    Sigmar ræðir við Auði Styrkársdóttur en hún segir frá Helga bróður sínum sem veiktist mjög alvarlega á geði fyrir um hálfri öld. Helgi fékk ekki meðferð við hæfi fyrr en hann flutti til Svíþjóðar þar sem hann hefur dvalið í áratugi.

    Katrín Tanja Davíðsdóttir

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2020


    Gestur Sigmars Guðmundssonar er Katrín Tanja Davíðsdóttir, tvöfaldur heimsmeistari í Crossfit. Hún segir frá ferli sínum og fórnunum sem þarf að færa til að vera í fremstu röð í heiminum.

    Falasteen Abu Libdeh

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2020


    Sigmars Guðmundsson ræðir við Falasteen Abu Libdeh sem flutti til Íslands frá Palestínu 16 ára gömul og þurfti að glíma við ýmsar hindranir til að geta brotist til mennta hér á landi.

    Jónas Sigurðsson

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2020


    Sigmar Guðmundsson ræðir við Jónas Sigurðsson tónlistarmann sem snéri við blaðinu og á nú í sífelldri baráttu við að bæta sig sem manneskju og láta gott af sér leiða.

    Guðrún Dröfn Emilsdóttir

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2020


    Guðrún Dröfn Emilsdóttir uppgötvaði á fullorðinsárum að hún á systur og ættingja í litlum frumbyggjaættbálki í Bandaríkjunum. Í dag berst hún fyrir því að fá inngöngu í ættbálkinn. Sigmar Guðmundsson ræðir um það við Guðrúnu Dröfn.

    Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2020


    Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir var nýverið valin ein af 100 áhrifamestu konum heims hjá BBC fyrir baráttu sína fyrir réttindum transfólks. Hún er gestur Sigmars Guðmundssonar að þessu sinni.

    Erik Figueras Torras

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2020


    Sigmar Guðmundsson ræðir við Erik Figueras Torras sem hefur búið á Íslandi í 20 ár og þekkir landið, þjóðareinkennin og íslenskuna betur en innfæddir.

    Karl Ágúst Úlfsson

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2020


    Sigmar ræðir við Karl Ágúst Úlfsson sem hlaut ásamt félögum sínum í Spaugstofunni Heiðursverðlaun Eddunnar í ár. Karl Ágúst er ekki einungis leikari heldur líka leikstjóri, þýðandi, höfundur, ljóðskáld, tónskáld, útgefandi og margt fleira. Hann ræðir ferilinn, skapandi hugsun, mannrækt, hlátur og bros í þætti kvöldsins.

    Guðjón Valur Sigurðsson

    Play Episode Listen Later Sep 30, 2020


    Að vera í fremstu röð í tvo áratugi gerist ekki að sjálfu sér. Guðjón Valur Sigurðsson segir frá lífshlaupi sínu og hugarfarinu sem kom honum í fremstu röð. Hann þakkar fyrst og fremst fjölskyldu sinni og fórnfýsi hennar árangurinn í gegnum tíðina í þessu einlæga viðtali.

    Karen Axelsdóttir

    Play Episode Listen Later Sep 30, 2020


    Sigmar ræðir við Karen Axelsdóttur afrekskonu í íþróttum. Karen var kyrrsetumanneskja til 27 ára aldurs, þá byrjaði hún að hreyfa sig og hefur síðan þá náð ótrúlegum árangri í þríþraut. Það þykir í raun kraftaverk því að í fjögur ár gat hún í orðsins fylstu merkingu ekki haldið haus eftir alvarlegt slys. Karen ræðir lífshlaup sitt og ótrúlegan íþróttaferil.

    Logi Pedro Stefánsson

    Play Episode Listen Later Sep 29, 2020


    Sigmar ræðir við Loga Pedro Stefánsson sem hefur látið til sín taka í umræðu um rasisma og kynþáttahyggju hér á Íslandi. Þriggja ára gamall flutti hann hingað til lands frá Portúgal með angólskri móður, íslenskum föður og bróður sínum. 14 ára gamall var hann komin í hljómsveit sem varð ein sú vinsælasta hér á landi og spilaði víða um heim.

    Sigríður Torfadóttir Tulinius

    Play Episode Listen Later Sep 22, 2020


    Sigmar ræðir við Sigríði Torfadóttur Tulinius sem hefur búið í London undanfarin ár og er þar í hringiðu breskra stjórnmála. Hún stundaði nám í listaháskólanum hér heima og lærði myndlist en lífið tók u-beygju í hruninu. Hún fór í mastersnám í borgarhönnun og þaðan í lögfræði og starfar nú fyrir skoska þjóðarflokkinn á breska þinginu.

    Kolbrún Benediktsdóttir

    Play Episode Listen Later Sep 15, 2020


    Sigmar Guðmundsson ræðir við Kolbrúnu Benediktsdóttur saksóknara, um skuggahliðar þeirra mála sem hún rannsakar og hvernig hún nýtir sára reynslu til að hjálpa öðrum.

    Claim Okkar á milli - Hlaðvarp

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel