POPULARITY
Það styttist í Skjaldborgarhátíðina sem er haldin ár hvert á Patreksfirði. Góðvinur hátíðarinnar og Lestarinnar, Ásgeir H. Ingólfsson, sem féll frá í janúar, verður heiðraður á hátíðinni. Heimildamyndin Menningarsmygl sem fjallar um Ásgeir verður líka sýnd, en hún er í vinnslu. Ragnar Ísleifur Bragason og Kristín Andrea Þórðardóttir hita upp fyrir Skjaldborg. Við rifjum upp Vematsu, mann sem býr í Japan en á þó nokkuð marga vini á Íslandi sem hann kynntist á Twitter fyrir að verða áratug síðan.
Gísli Magna tónlistarmaður er kórstjóri Léttsveitarinnar sem heldur upp á þrjátíu ára afmæli um þessar mundir og kom af því tilefni í fimmu. Gísli talaði um fimm staði sem hafa haft áhrif á hann og talið barst víða en Gísli ólst upp til fimm ára aldurs á Patreksfirði
Janus Bragi er íslenskur heimildarmyndagerðarmaður. Hann útskrifaðist sem leikstjóri frá danska kvikmyndaskólanum árið 2009 og hefur síðan þá framleitt, stýrt og klippt heimildarmyndir fyrir sjónvarp og bíó, sömuleiðis gert auglýsingar og tónlistarmyndbönd. Hann hefur kennt heimildarmyndagerð við Kvikmyndadeild Listaháskóla Íslands, sem og verið stjórnandi Skjaldborgar, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin er ár hvert á Patreksfirði. Janus lauk nýverið við gerð heimildamyndarinnar Paradís amatörsins. Myndin byggir á efni frá fjórum mönnum af mismunandi kynslóðum sem eiga það allir sameiginlegt að hafa deilt persónulegum fjölskylduvídeóum eða myndböndum úr eigin lífi á YouTube. Í myndinni fylgir Janus mönnunum eftir og rýnir í hvernig þeir, með deilingu eigins myndefnis, spegla það sem skiptir mestu máli í lífinu. Janus Bragi er gestur svipmyndar í dag. Anna Gyða Sigurgísladóttir stýrir umfjöllun.
Um helgina verður frumsýnd kvikmynd sem ætlað er að fræða ungt fólk um hatorsorðræðu. Kvikmyndin heitir Geltu sprettur upp úr starfsemi ofbeldisforvarnarskólans Ofsa og í dag ræðum við við Bennu Sörensen, stofnanda skólans, og Sigríði Lárettu, leikara og höfund. Sjálfboðaliðastarf í þágu samfélagsins er óvíða jafn öflugt og á Patreksfirði. Þar starfar Lionsklúbbur og tvö félög sem eingöngu eru skipuð konum, slysavarnardeildin Unnur og Kvenfélagið Sif. Gréta Sigríður Einarsdóttir kom við á Patreksfirði á dögunum og ræddi við nýjan formann kvenfélagsins, sem er reyndar líka meðlimur í Slysavarnardeildinni. Í lok þáttar kíkir Edda Olgudóttir vísindamiðlari í heimsókn og segir okkur frá ýmislegu um veiðistjórnunarkerfi og tilfinningalíf fiska. Tónlist frá útsendingarlogg 2024-12-19 The National & Phoebe Bridgers - Laugh Track. LIANNE LA HAVES - Lost & Found. SUPERSPORT! - Húsið mitt (í sjálfu sér)
Í skáldsögunni Skrípinu, eftir Ófeig Sigurð, segir frá ónefndu og ástríðufullu tónskáldi sem ætlar sér að endurskapa sögulega tónleika píanóleikarans Vladimirs Horowitz með heilmyndarflutningi á Eldborgarsviði Hörpu. Tónskáldið dreymir um endurreisn evrópskrar menningar og finnst að allt hafi verið betra árið 1986, þegar fólkið var ekki eins sjúkt í deyfð og flatneskju og stjórnmálamenn hlustuðu á tónlist og lásu bókmenntir. Víðsjá mælti sér mót við rithöfundinn Ófeig Sigurðsson á koníakstofunni á Hótel Holti í morgun. Magnea Guðmundsdóttir arkitekt fjallar um arkitektúr í fortíð og framtíð, skjái, gler, vindhviður og táknmyndir í módernískum arkitektúr. Á dögunum komu út tvær ljóðabækur hjá Skriðu bókaútgáfu sem staðsett er á Patreksfirði. Það eru bækurnar Svefnhof eftir Svövu Þorsteinsdóttur og Heimkynni eftir Þórð Sævar Jónsson. Báðar bækur eru afar fallegir gripir sem prentaðir eru á prentverkstæði Skriðu fyrir vestan. Tómas Ævar tekur höfunda bókanna tali í þætti dagsins. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Aðalgestur Fram og til baka þennan morguninn var Jelena Ćirić blaða- og tónlistarkona. Jelena er söngvaskáld og hefur vakið mikla athygli fyrir sína tónlist, fengið í fjórgang tilnefningar til Íslensku tónistarverðlaunanna og hlaut þau svo árið 2021. Jelena fæddist í Serbíu, ólst upp í Kanada og býr nú ásamt manni sínum í Reykjavík. Hún hefur því komið víða við og kynnst á sínum ferðalögum fjölmörgum ljúffengum ávöxtum. Hún bauð því upp á safaríka Fimmu sem við hlustendur fáum að njóta ávaxtanna af. Í seinni hluta þáttar hringdum við í Kristínu Andreu Þórðardóttur sem er ein skipuleggjenda Skjaldborgar, heimildamyndahátíðarinnar á Patreksfirði. Þar var allt í blússandi gangi og fjölmenn hátíð fram undan alla helgina. Svo var það tónlistin, í tilefni Hvítasunnu voru leikin lög sem innihéldu hvítan lit.
Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg verður haldin á Patreksfirði í sautjánda sinn um helgina, og við ætlum að hefja Lestina í dag á því að taka stöðuna á skipuleggjendum hátíðarinnar. Guðrún Úlfarsdóttir, pistlahöfundur, fjallar um hljómsveitina The Shaggs. Fyrsta plata þeirra, The Philosophy of the World, kom út seint á sjöunda áratugnum og þykir ýmist meistaraverk, eða ein versta plata allra tíma. Við heimsækjum Gallerý Port sem er flutt í glænýtt húsnæði við glænýja götu í Reykjavík. Gallerý Port er listamannarekið gallerý og um þessar mundir stendur yfir sýning Narfa Þorsteinssonar, Hús fundur.
Ólympíuleikarnir verða settir í París eftir 123 daga. Enn er óljóst hversu margir keppendur verða þar fyrir Íslands hönd en nokkrir eru líklegir og einn hefur þegar tryggt sér þátttökurétt. Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri ÍSÍ og margfaldur Ólympíufari, sem keppandi og þjálfari, er bjartsýnn á að hópurinn verði fjölbreyttur. Hann hefur mikinn metnað fyrir hönd íslensks afreksíþróttafólks og telur að innan margra ára eigi Íslendingar að geta hampað gullverðlaunum á Ólympíuleikum. En til þess þarf að spýta í lófana á ýmsum vettvangi. Atlantshafið er miklu heitara en venjan er og hefur verið frá því í haust, þetta er einkennilegt, sérstaklega í ljósi þess að það er El Nino-ár, og El Nino-veðurfyrirbærið er vanalega bundið við Kyrrahafið. Við fáum Halldór Björnsson, sérfræðing á Veðurstofu Íslands, í loftslagsspjall eins og við höfum gert reglulega í vetur - meðal annars tölum við um hvernig árið 2024 fer af stað og hvort ítrekuð hitamet séu hætt að koma vísindamönnum á óvart. Við heyrum málfarsmínútu og rifjum svo upp gamla upptöku úr safni RÚV. Að þessu sinni eru það frásagnir af matarveislum á Patreksfirði í desember árin 1995 og 1996 þar sem refakjöt var á boðstólnum. Tónlist: Erla Stefánsdóttir, Póló og Erla - Lóan er komin. COMMODORES - Easy.
McDonalds umfjöllun Önnu Marsibilar Clausen frá 2019 heldur áfram í dag. Við heyrum þriðja þátt örseríunnar McBlessi Íslands en þar er sjálft hamborgarahrunið tekið fyrir, þegar skyndibitarisinn riðaði til falls og íslenski hálfbróðirinn Metro kom í hans stað. Um helgina tekur heimildamyndahátíðin Skjaldborg yfir Bíó Paradís. Skjaldborgarhátíðin er haldin árlega á vorin á Patreksfirði en þeir sem komust ekki á hana gefst tækifæri til að sjá perlur hátíðarinnar um helgina. Við hittum leikstjóra myndarinnar Heimaleikurinn, sem vann Einarinn í ár, áhorfendaverðlaun hátíðarinnar, þá Loga Sigursveinsson og Smára Gunnarsson. Sænski tónlistarmaðurinn Martin Molin varð að óvæntri YouTube stjörnu árið 2016 þegar myndband af sjálfspilandi hljóðfæri hans fór á flug. Eftir hugljómun á spiladósasafni í Hollandi varði hann meira en ári í smíði vélarinnar en þegar hugmyndin um að fara í tónleikaferðalag kviknaði þurfti hann að byrja upp á nýtt, smíða nýja vél. Við heyrum af og heyrum í þessu forvitnilega hljóðfæri hér a eftir.

Spegillinn 30. ágúst 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Júlía Margrét Ingimarsdóttir Óvenju mikið er af laxi við Ósá í Patreksfirði þar sem göt fundust á eldiskví í síðustu viku. Hvorki er þó hægt að fullyrða hve margir fiskar sluppu né hvort fiskar sem veiðst hafa í ám á norðvesturhorninu eru úr kvínni. Lögreglunni bárust tilkynningar um 79 nauðganir fyrstu sex mánuði ársins. Börn voru næstum helmingur þolenda kynferðisbrota á tímabilinu. Stærstur hluti þeirra sem leita meðferðar við óæskilegum kynferðislegum hugsunum og hegðun í kringum börn, eru karlmenn á aldrinum 18-60 ára, segir Jóhanna Dagbjartsdóttir sálfræðingur. Karitas M. Bjarkadóttir talaði við hana. Stærð og umgjörð bankakerfisins er ástæða þess að vaxtamunur er meiri á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndunum, að mati Benedikts Gíslasonar formanns stjórnar Félags fjármálafyrirtækja. Hann segir að metarður bankanna skili sér til neytenda. Pétur Magnússon tók saman. Rekja má tvö hundruð og þrettán andlát í fyrra til covid-19, samkvæmt ársskýrslu sóttvarnalæknis. Alls smituðust hundrað sjötíu og níu þúsund af kórónuveirunni í fyrra. Ekki hafa fleiri smitast af lekanda á einu ári í meira en þrjátíu ár. Valgerður Greta G. Gröndal sagði frá. Íslenska óperan hefur sótt um einkaleyfi á vörumerkinu Íslenska þjóðaróperan á sama tíma og verið er að undirbúa stofnun þjóðaróperu í menningar- og viðskiptaráðuneytinu. Steinunn Birna Ragnarsdóttir óperustjóri segir þetta ekki gert til að trufla það starf. Ásta Hlín Magnúsdóttir tók saman. ------------ Aðeins eitt af hverjum þremur skólabörnum í Úkraínu fær fulla kennslu í vetur. Meira en hálf milljón barna á flótta er ekki skráð í skóla. Ásgeir Tómasson sagði frá og heyrist í Reginu de Dominics, svæðisstjóra barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, Margir hafa reynt við tungllendingar undanfarin misseri: Japanir, Ísraelar, Rússar og í síðustu viku lentu Indverjar ómönnuðu könnunarfari á suðurpóli tunglsins. Þar hefur enginn lent áður. Ragnhildur Thorlacius sagði frá kapphlaupinu til tungslins, heyrist í John. F. Kennedy. Núgildandi byggingarreglugerð var sett fyrir ellefu árum. Hún er um 150 síður og hefur verið breytt árlega. Ingveldur Sæmundsdóttir leiðir stýrihóp sem settur var á fót í vor og vinnur að heildarendurskoðun og einföldun á byggingarreglugerðinni. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Ingveldi.

Föstudaginn næsta verður Skjaldborgarhátíðin sett, í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði. Karna Sigurðardóttir, ein skipuleggjenda hátíðarinnar segir frá því sem er á dagskrá á hátíð íslenskra heimildamynda í ár. Kolbeinn Rastrick fór í bíó á tvær myndir í röð, tvær nýlegar íslenskar kvikmyndir sem takast á við Hollywood-mynda formúluna. Hasar og spennumyndina Napóleonsskjölin í leikstjórn Óskars Þórs Axelssonar, og hrollvekjuna Óráð í leikstjórn Arró Stefánssonar. Simone Weil var róttækur heimspekingur, dulspekingur, aðgerðarsinni og raunar ýmislegt fleira, Við skoðum líf hennar og skrif nánar í þætti dagsins. Erla Karlsdóttir, heimspekingur, guðfræðingur og kennari, þekkir vel til verka hennar, en hún var gestur Önnu Gyðu Sigurgísladóttur í Lestinni í Júní 2018. Við rifjum upp viðtalið.

Strandveiðar hófust í dag. Af því tilefni var rætt við Einar Helgason, sjómann frá Patreksfirði. Hann tók daginn snemma og var kominn með dágóðan afla upp úr klukkan sjö. Í spjalli um efnahag og samfélag fjallaði Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, um verðbólgu, fjármál Reykjavíkurborgar, afkomu flugfélaganna og nýja skýrslu Deloitte um fjármál íslenskrar knattspyrnu. Arthúr Björgvin Bollason var á sínum stað með tíðindi úr þýsku þjóðlífi og Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður Afls starfsgreinafélags á Austurlandi, ræddi um baráttumál verkalýðsins, daginn eftir Alþjóðlegan baráttudag verkalýðsins. Tónlist: Áður í iðgrænum lundi - Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar, Here, there and everywhere - Björn Thoroddsen, Sundown - Gordon Lightfoot, So long Marianne - Leonard Cohen. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Spegillinn 28. Apríl 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður Magnús Þorsteinn Magnússon Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra boðar að 170 milljónum króna verði veitt í aðgerðir til að sporna við skaða af völdum ópíóíðafíknar. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur samþykkt tillögu yfirdýralæknis um breytta aðferð við að útrýma riðu. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að grípa til bráðaaðgerða til að tryggja ofanflóðavarnir á Patreksfirði. Guðlaugur Þ. Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir uppbyggingu hefðbundinna ofanflóðavarna um það bil hálfnaða. Markús Þórhallsson talaði við hann. Ekki er alveg skýrt hvað þurfi til, svo hægt sé að skikka íbúðareigendur í fjöleignarhúsum til þess að selja eign sína. Dómur sem nýlega var kveðinn upp sýnir að húsfélag getur rekið eiganda úr íbúð sinni. Róbert Jóhannsson talaði við Sigurð Orra Hafþórsson, lögmann Húseigendafélagsins. Nokkur óvissa ríkir um framtíð Kvennaathvarfsins á Akureyri. Dregið hefur verið úr þjónustu þar, sem Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra segir sorglegt. Amanda Guðrún Bjarnadóttir ræddi við hana. Bann við að afganskar konur starfi fyrir Sameinuðu þjóðirnar er félagslegt innanríkismál. Þetta er svar utanríkisráðuneytis Afganistan í dag við kröfu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að talíbanastjórnin láti af banninu. Markús Þórhallsson sagði frá. Hollenskum karlmanni á fimmtugsaldri var samkvæmt dómsúrskurði í morgun bannað að gefa meira sæði til sæðisbanka. Sæði mannsins er talið hafa verið notað til þess að búa til hátt í 600 börn með glasafrjóvgunum. Finnbjörn Hermannson svar sjálfkjörinn í embætti forseta ASÍ í dag. Hann segir í viðtali viðp Hauk Holm að segir að félagsmenn ætli að snúa bökum saman í komandi kjaraviðræðum. Tvísýnt er um að Erdogan Tyrklandsforseti verði endurkjörinn í forsetakosningum eftir 16 daga. Ásgeir Tómasson sagði frá. Samu Paukkunen, aðstoðarforstöðumaður finnsku alþjóðamálastofnunarinnar, segir umskiptin í afstöðu Finna til aðildar að NATO hafa verið hvort tveggja skjót og afgerandi. Ævar Örn Jósepsson ræddi við hann.

Spegillinn 02.03. 2023 Borgarráð samþykkti í dag að leggja niður Borgarskjalasafn og hefja viðræður við Þjóðskjalasafn um sameiginlega vörslu gagna. Borgarstjóri telur að breytingin eigi eftir að auka aðgengi að skjölum. Samfylkingin mælist með mest fylgi í nýjum þjóðarpúlsi Gallup, annan mánuðinn í röð. Stuðningur við ríkisstjórnina dvínar og hefur ekki mælst minni. Nýsamþykkt endurskoðuð þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland er stefnulaust plagg. Þetta segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra. Starfsmenn grísku járnbrautanna segja að vanræksla stjórnvalda hafi átt þátt í lestarslysinu í Grikklandi í gærmorgun þar sem 47 manns fórust. Þeir lögðu niður störf í dag í mótmælaskyni. Færð á vegum er óvenjugóð miðað við árstíma segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur Vegagerðarinnar og nær allir vegir færir. ----------------------------------------------------------- TIKTOK, - kínverska samskiptaforritið sem hefur fengið ungt fólk um allan heim til að stíga samhæfð dansspor á víðavangi og gera upphlaup í matvöruverslunum hefur átt undir högg að sækja síðustu daga. En á sama tíma og bandarísk og evrópsk stjórnvöld og fjölmiðlar banna starfsfólki sínu að nota forritið á vinnusímum verður tiktok opinber samfélagsmiðill Eurovision-keppninnar. Á þriðja tug vindorkuvera eru til skoðunar hjá Orkustofnun, verkefnissstjórn rammaáætlunar og fjórum faghópum sem undir hana heyra. Jón Ásgeir Kalmansson siðfræðingur og aðjúnkt við Háskóla Íslands fer fyrir hópnum sem hefur það hlutverk að meta virkjunarkosti með tilliti til áhrifa þeirra á samfélagið, félagslega velferð íbúa, samfélagslega fjölbreytni, samskipti, samstöðu, virkni og margt fleira. Á Vestfjörðum mætti spara raforku sem nemur tíu til tólf megavöttum ef þar fyndist heitt vatn í jörðu sem dygði til að leysa af hólmi rafkyntar hitaveitur. Orkubústjóri Orkubús Vestfjarða segir þetta fljótteknustu raforkuvirkjun sem völ er á í fjórðungnum. Með vorinu hefst jarðhitaleit á Ísafirði og Patreksfirði. Umsjónarmaður Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður Jón Þór Helgason Stjórnandi fréttaútsendingar Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir

Miðstjórn ASÍ ræðir nú um ákvörðun ríkissáttasemjara að leggja fram miðlunartillögu í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Stjórn Eflingar lýsir vantrausti á ríkissáttasemjara. Hættustigi Almannavarna var lýst yfir á Patreksfirði í dag eftir að krapaflóð féll inn í bæinn. Enginn slasaðist í flóðinu, sem kom úr sama farvegi og mannskætt flóð sem varð fyrir fjörutíu árum. Níu Palestínubúar létust í aðgerðum Ísraelshers á Vesturbakkanum í dag. Heilbrigðisyfirvöld í Palestínu saka Ísraelsmenn um að hindra för hinna særðu á sjúkrahús. Halastjarna sem ekki hefur komið nærri jörðu í rúm 50 þúsund ár sést frá Íslandi næstu daga. Tugir manna sem mótmæltu ströngum Covid nítján reglum í Kína í nóvember eru enn í haldi lögreglu. Ekki er vitað hvar sumir þeirra eru niðurkomnir. ---- Það dró til tíðinda í kjaraviðræðum Eflingar og Samtaka atvinnulífsins í dag. Deilurnar hafa verið í algjörum hnút og Efling sleit viðræðum fyrir rúmum hálfum mánuði. Boðað hafði verið til verkfalls sem beina átti gegn hótelum í Reykjavík, en atkvæðagreiðslu um aðgerðirnar er ekki lokið. Í dag lagði Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari fram miðlunartillögu til að reyna að höggva á hnútinn. Í grunninn felur tillagan í sér það sama og Starfsgreinasambandið samdi um í lok seinasta árs. Það er afturvirkni til 1. nóvember og sömu prósentuhækkanir og í öðrum samningum. Bæði Eflingu og SA ber skylda til að leggja samninginn fram til atkvæðagreiðslu og allir félagsmenn Eflingar eru á kjörskrá, ekki aðeins þeir sem kusu um boðað verkfall, sem voru um 300 manns. Skiptar skoðanir eru meðal almennings í Þýskalandi um þá ákvörðun Olafs Scholz kanslara að senda Úkraínumönnum fullkomna Leopard-2 árásarskriðdreka. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Forsa stofnunarinnar telja 53 af hundraði að ákvörðun kanslarans hafi verið rétt. 39 prósent eru alfarið á móti. Umsjón: Bjarni Rúnarsson. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir.

Íslenska heimildamyndin Togolísa var nýverið valin besta heimildamyndin á City of Angels hátíðinni, sem er kvikmyndahátíð kvenna í Los Angeles. Togolísa fjallar um rokkbúðir fyrir unglingsstúlkur í Togo, en er fyrst og fremst ástaróður til stúlknasamfélagsins í búðunum og til kvenna almennt, hvar sem er í heiminum, svo vitnað sé í leikstjóra myndarinnar Öldu Lóu Leifsdóttur, sem leit hér við í morgun. Þær Alda Lóa og Rut Sigurðardóttir, sem sá um myndatöku, verða gestir þáttarins Frá Vesturbyggð til Venezúela - Vestfirskar heimsbókmenntir - er yfirskrift bókmenntaviðburðar sem fram fer í menningarhúsinu Edinborg næstkomandi fimmtudagskvöld. Þar mæta til leiks fimm höfundar sem hafa allir ólíka tengingu við svæðið og ólíkan uppruna: Hin finnska Satu , sem hefur nýverið skrifað sinn fyrsta krimma, sem gerist á Ísafirði og rauk beint á topp metsölulistanna í Finnlandi; Helen Cova frá Venesúela, formaður Ós pressunar, rithöfundasambands höfunda af erlendum uppruna á Íslandi, og hin litháíska Greta Letúnínkæte, sem auk þess að kenna ritlist á Ísafirði hefur gefið út vinsæla bók í Litháen. Þá lesa þau Birta Ósmann Þórhallsdóttir, skáld og aðstandandi bókaforlagsins Skriðu á Patreksfirði; og Eiríkur Örn Norðdahl, rithöfundur, úr sínum verkum við tækifærið, en Eiríkur stóð auk þess að skipulagi viðburðarins. Við forvitnumst nánar um fjölbreytt samfélag rithöfunda á Vestfjörðum. Í dag tekur líka til máls nýr pistlahöfundur hér í Víðsjá, tónlistarkonan Jelena Ciric. Jelena mun í pistlum sínum fara með okkur í ferðalög vítt og breitt um strauma og stefnur hinna ýmsu tónlistarstefna, og til ólíkra landa. Að þessu sinni förum við upp á hásléttu í Mexíkó, en Jelena dvaldi í tvö ár í litlu fjallaþorpi þar í landi áður en hún settist að hér við norðurpólinn.

Þóroddur Bjarnason, prófessor við Háskóla Íslands og rannsóknarprófessor í byggðafræði við Háskólann á Akureyri, hefur skilað inn umsögn við frumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra um heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu og rekstur í samgönguinnviða. Þar er meðal annars er rætt um að fjármagna jarðgangagerð með veggjöldum í öllum jarðgöngum landsins. Ekki eru allir á eitt sáttir við þessar hugmyndir ráðherrans. Þóroddur bendir á kostnaðinn sem þessu fylgir fyrir íbúa Akraness sem þegar hafa greitt veggjöld um Hvalfjarðargöng í mörg ár eða allt þar til greitt hafði verið fyrir göngin að fullu og veggjaldið afnumið. Martin Ingi Sigurðsson yfirlæknir í svæfingar- og gjörgæslulækningum á Landspítalanum, fer á hverju ári til Rúanda ásamt alþjóðlegu teymi heilbrigðisstarfsmanna að gera opnar hjartaskurðaðgerðir hjá ungum sjúklingum með hjartalokuskemmdir eftir streptókokkasýkingu. Í Rúanda er starfandi einn hjartaskurðlæknir en það var hjartateymið, Heart Team, sem kostaði hann til náms í Eþíópíu. Ekki var hægt að gera neinar slíkar aðgerðir í Rúanda á meðan Covdid-19 geisaði. Íbúar Rúanda eru 14 milljónir og Íslands tæplega 400 þúsund. Hér á landi eru tveir hjartaskurðlæknar. Martin Ingi segir margt ólíkt í heilbrigðiskerfum ríkjanna tveggja en um leið eigi þau ýmislegt sameiginlegt. Þórdís Sif Sigurðardóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Vesturbyggðar og tekur hún við starfinu 1. september. Þórdís Sif var áður bæjarstjóri í Borgarbyggð og bæjarritari og staðgengill bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar í sjö ár. Ekkert atvinnuleysi er í Vesturbyggð og þörf fyrir að þar sé byggt nýtt íbúðarhúsnæði og það vantar leikskóla á Patreksfirði. Menningarlífið blómstrar í Vesturbyggð og Þórdís er spennt fyrir flutningnum vestur á firði. Eitt af því sem íbúar Vesturbyggðar vilja er að jarðgöng verði gerð milli Bíldudals og Tálknafjarðar annars vegar og Tálknafjarðar og Patreksfjarðar hins vegar. Tónlist: Here, there and everywhere - Beatles, Isn't this a lovely day - Ella Fitzgerald og Louis Armstrong, The dress looks nice on you - Sufjan Stevens, Nature - Ragnheiður Gröndal, Home is where you're happy - Willie Nelson, Án þín - með þér - Ragnar Bjarnason og Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Back to Black - Amy Winehouse. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Þrátt fyrir að einhverju mest áberandi dómsmáli áratugarins sé nú lokið, meiðyrðamáli leikaranna og fyrrum hjónanna Johnny Depp og Amber Heard, heldur fólk áfram að rífast um þýðingu dómsins og málsins. Hvað segir það okkur um Metoo, um stöðu þolenda heimilisofbeldi, um frjálsa tjáningu á 21. öldinni? Hledís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur veltir fyrir sér hvort rétt sé að lesa hugmyndafræðilega merkingu í þetta einstaka dómsmál. Síðasti þátturinn af Vitjunum var sýndur á RÚV á dögunum. Salvör Bergmann hefur verið að horfa á þættina og segir hvað henni fannst. Nú um helgina fór heimildamyndahátíðin Skjaldborg fram á Patreksfirði. Þriggja daga hátíð með fjölda nýrra heimildarmynda, erlendum gestum og plokkfiskveislu svo eitthvað sé nefnt. Við ræðum við leikstjóra myndarinnar Velkominn Árni sem hlaut áhorfendaverðlaun hátíðarinnar.

Í dag opnar sýning á Listasafni ASÍ ?Það er gaman að lifa ? en það eru komin 61 ári síðan safnið var opnað og er sýningin haldin í tilefni þess. Á sýningunni munu 9 ungir listamenn sýna veggspjöld sem fjalla um helstu baráttumál samtímans. Við förum í heimsókn á verkstæði Grafíkfélagsins þar sem listamenn voru í óða önn að undirbúa sýningu á Listasafni ASÍ. Við ræðum við þær Elísabetu Gunnarsdóttur, safnstjóra og Megan Auði, myndlistarmann sem er ein þeirra sem taka þátt í sýningunni, Steindór Grétar Jónsson er staddur á kvikmyndahátíðinni Cannes, hann mælti sér mót við leikstjórann Hlyn Pálmason, sem frumsýnir þar myndina sína Volaða land, mynd sem fjallar um ungan danskan prest sem ferðast til Íslands undir lok 19. aldar með það að markmiði að reisa kirkju og ljósmynda íbúa eyjunnar. Titill myndarinnar er fenginn úr ljóði eftir Matthías Jochumson Ný plata frá Kendrick Lamar kom út á dögunum, Mr. Morale & the Big Steppers. Plötunnar, sem er fimmta plata bandaríska rapparans, hefur verið beðið eftir af mikilli eftirvæntingu. Davíð Roach, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar hlustaði á Mr. Morale og rýndi. Tveir af skipuleggjendum Skjaldborgarhátíðarinnar, Karna Sigurðardóttir og Kristín Andrea Þórðardóttir fara yfir dagskrá hátíðarinnar sem hefst í næstu viku á Patreksfirði.

Íslensk stjórnvöld munu styðja umsókn Finna um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Finnar staðfestu í morgun að þeir sæki um og segja ástæðuna vera innrás Rússlands í Úkraínu. Laxeldið Arnarlax hyggst reisa nýtt laxasláturhús á Patreksfirði. Ekki er ljóst hvað verður um sláturhús fyrirtækisins á Bíldudal. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir tók saman og talaið við Jörund Garðarsson. Yfirmaður sjúkraflutninga í víðfeðmasta umdæmi landsins segir nauðsynlegt að geta stólað á sjúkraflug með þyrlu. Útkallstíminn skipti sköpum. Alma Ómarsdóttir talaði við Hermann Marínó Maggýjarson. Ríkissaksóknari í Danmörku leggur til að fyrrverandi varnarmálaráðherra landsins verði ákærður fyrir að hafa ljóstrað upp um ríkisleyndarmál. Ásgeir Tómsson tók saman. Mikið hefur verið deilt um auglýsingaskilti í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna um helgina. Kærur og kvartanir vegna kosningaauglýsinga hafa hrannast inn á borð yfirvalda á síðustu dögum. Framboð og frambjóðendur verða sjálf að fanga athygli kjósenda segir prófessor í stjórnmálafræði, þó að athygli fjölmiðla hafi framan af verið meiri á landsmálunum en sveitarstjórnarkosningunum. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Stefaníu Óskarsdóttur. Við ræðum við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni sem hættir í haust.

Hátíðin List í ljósi á Seyðisfirði hefur fest sig í sessi undanfarin ár og færir Seyðfirðingum og gestum þeirra ljós og lit í skammdeginu. Hátíðin fer fram síðar í vikunni og við slógum á þráðinn til Sesselju Jónasardóttur sem er ein þeirra sem hátíðinni stýra og fengum fréttir af því sem framundan er. Það reynist sumum fyrirtækjum erfitt að hefja ferli til jafnlaunavottunar sem mörgum þykir flókið og stórt verkefni. Frá og með síðustu áramótum eiga öll fyrirtæki með 90 starfsmenn eða fleiri að vera komin með jafnlaunavottun í gagnið og minni fyrirtæki fyrir lok þessa árs. Jafnréttisstofa hefur þó enn ekki beitt dagsektum en hvetur fyrirtæki til að klára þessa vinnu sem fyrst. Hildur Björk Pálsdóttir sérfræðingur hjá Origo kom til okkar og sagði okkur hvað þarf til og hvernig hugbúnaður getur flýtt fyrir og aðstoðað við þetta ferli. Flugslysið við Þingvallavatn á fimmtudag hefur vakið upp spurningar um neyðarbúnað í litlum flugvélum, hvernig hægt sé að tryggja að hann virki sem skildi og neyðarsendar gefi frá sér boð ef eitthvað fer úrskeiðis. Ragnar Guðmundsson, yfirmaður rannsóknarinnar á flugslysinu hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa, var á línunni hjá okkur, ræddi þessi mál og hvernig rannsókn á flugslysi sem þessu fer fram. Seðlabankinn hyggst tilkynna ákvörðun sína um stýrivexti í dag en búist er við því að þeir hækki verulega. Margir eru uggandi yfir stöðu efnahagsmála og þá sérstaklega hvernig stýrivaxtahækkanir, verðbólga og húsnæðisverðið helst í hendur þegar kemur að buddum landsmanna. Hingað komu, til að ræða þessi mál, þingmennirnir Sigmar Guðmundsson frá Viðreisn og Guðrún Hafsteinsdóttir frá Sjálfsæðisflokknum en Guðrún er formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Átta hús á Patreksfirði voru rýmd í gær vegna snjóflóðahættu. Fólkið sem í þeim býr er orðið ansi vant rýmingum á svæðinu en þessu fylgir þó alltaf mikið rask fyrir fjölskyldur, og sérstaklega kannski barnafjölskyldur. Á línunni hjá okkur var Inga Hlín Valdimarsdóttir, safnstjóri í Minjasafninu á Hnjóti en hún er ein þeirra sem rýma þurfti heimili sitt í gær vegna óvissuástandsins. Í lok þáttar glugguðum við svo í tilnefningar til Óskarsverðlauna með Júlíu Margréti Einarsdóttur, menningarrýni og spáðum í spilin fyrir hátíðina sem fram fer 27. mars nk. Tónlist: Ásgeir Trausti - Nýfallið regn. Flott og Unnsteinn - Ef þú hugsar eins og ég. Ceasetone, Rakel og JóiPé - Ég var að spá. U2 - Stay (faraway so close). Sycamore tree - La famme. Krummi og Soffía Björg - Bona fide. Bríet - Cold feet. Silk City - Electricity (ft. Dua Lipa).

Spegillinn 8. febrúar 2022 Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson Tæknimaður: Markús Hjaltason. Átta íbúðarhús voru rýmd á Patreksfirði í dag vegna snjóflóðahættu. Varðskipið Freyja er á leiðinni vestur og verður til taks. Forseti Frakklands vonast til að málamiðlun finnist með Rússum um lausn á Úkraínudeilunni. Stefnt er að því að leiðtogar Rússa, Frakka og Þjóðverja fundi á næstunni um stöðuna. Menningarmálaráðherra boðar að Ríkisútvarpið verði tekið af auglýsingamarkaði. Forsætisráðherra segir þá aðgerð ekki mega skerða stöðu RÚV. Formaður Flokks fólksins skorar á atvinnuveganefnd Alþingis að taka frumvarp hennar um bann við blóðmerahaldi til umfjöllunar. Fjöldi umsagna hefur borist um frumvarpið. Um 1.200 manns hafa fengið sanngirnisbætur vegna illrar meðferðar á vistheimilum á seinustu öld. Hátt í fjórir milljarðar hafa verið greiddir í bætur. Peningar græða þó ekki þau sár sem fólk hlaut að mati umsjónarmanns sanngirnisbóta. Lengri umfjöllun Í Speglinum í gær var rætt við Ólaf K. Nielsen formann Fuglaverndar, en hann hefur ásamt fjömörgum öðrum gagnrýnt áform Reykjavíkurborgar um landfyllingu í Grófavík í Skerjafirði. Landfyllingin er fylgifiskur fyrirhugaðrar 1300 íbúða byggðar vestan við suðurenda Reykjavíkurflugvallar. Landfyllingu verður á ríflega 700 metra löngum kafla, sem næði 100 metra út í sjó. Í frummatsskýrslu sem verkfræðistofan Efla gerði fyrir Reykjavíkurborg kemur fram að framkvæmdin hefði talsverð neikvæð áhrif á fuglalíf og verndarsvæði og verulega neikvæð áhrif á gróður, strand- og sjávarlífríki. Pawel Bartoszek er formaður Skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar. Kristján Sigurjónsson ræddi við hann. Frá því að Breiðavíkurmálið kom upp fyrir 15 árum hafa hátt í fjórir milljarðar verið greiddir í sanngirnisbætur til þeirra sem bjuggu við slæman kost og meðferð á vistheimilum á vegum ríkisins og sveitarfélaga. Um 1.200 manns hafa fengið bætur. Peningar duga þó ekki til að græða sár þeirra sem máttu þola illa meðferð í æsku. Í gær var rætt við Bárð R. Jónsson, sem er einn Breiðavíkurdrengjanna sem stigu fram og sögðu sögu sína fyrir 15 árum. Frá þeim tíma hafa fjöldamörg mál komið fram þar sem upp komst um slæma meðferð á börnum og fullorðnum á seinustu öld. Yfirleitt dvaldi fólk á þessum heimilum af illri nauðsyn og var komið þar fyrir vegna vandamála sinna, stórra og smárra. Bjarni Rúnarsson ræddi við Halldór Þormar Halldórsson, umsjónarmann sanngirnisbóta. Hann annaðist bótagreiðslur í Breiðavíkurmálinu og einnig í fleiri sambærilegum málum.

Óskar Pétur Friðriksson ljósmyndari í Vestmannaeyjum sagði frá veðrinu í Vestmannaeyjum í nótt en það blés hressilega þar líkt og víðast hvar á Suður- og Suðvesturlandi enda rauðar viðvaranir í gildi til morguns. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn var í Samhæfingarmiðstöð almannavarna í alla nótt og starfsfólk þar hafði í nægu að snúast vegna óveðursins, eitthvað var um rafmagnstruflanir og þrumur og eldingar létu í sér heyra þegar það fór að hlýna. Sigrún Davíðsdóttir fjallaði um valdatíð Elísabetar Englandsdrottningar en í gær voru 70 ár liðin frá andláti föður hennar, Georgs 6. Lítið var um hátíðarhöld um helgina en aðalhátíðahöldin verða í sumar, 2.-5. júní, sem verður löng fríhelgi, afmælisgjöfin til þjóðarinnar. Rebekka Hilmarsdóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, fór yfir stöðuna á Patreksfirði þar sem hún býr og annars staðar í Vesturbyggð. Allt er ófært á Vestfjörðum en veðrið var ekki eins slæmt og óttast var þar. Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sagði frá þeim útköllum sem björgunarsveitir sinntu í nótt og í morgun. Flest útköllin voru á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum, rúmlega 100 talsins. Auf Wiederseh'n, Sweetheart - Vera Lynn Þú varst ástin mín - Sigurður Flosason Once upon a summertime - Miles Davis. Umsjón höfðu Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Margt hefur breyst í starfsemi bókasafna undanfarna áratugi og nú er þar margt fleira í boði en bara að taka bækur að láni. Hulda gerði sér ferð í Borgarbókasafnið í Grófarhúsi og fékk að kynnast starfseminni þar sem allt iðar af lífi og unglingar flykkjast á bókasöfnin, jafnvel á tímum snjallvæðingarinnar. Við heyrðum viðtal Huldu við Hólmfríði Ólöfu Ólafsdóttur verkefnisstjóra. Þrátt fyrir að Reykjavíkurmaraþonið hafi ekki farið fram með hefðbundnum hætti hefur verið hægt að styðja við þau fjölmörgu góðu málefni sem hlauparar höfðu valið sér og ýmsir hlaupið sitt hlaup þó ekki sé undir formlegum formerkjum maraþonsins. Um næstu helgi ætlar vestfirskur hópur að hlaupa til stuðnings Ljónshjarta sem eru samtök til stuðnings yngra fólki sem misst hefur maka og börnum þeirra. Margrét Brynjólfsdóttir á Patreksfirði þekkir samtökin af eigin raun og hún ætlar að hlaupa ásamt fleirum um helgina. Við slógum á þráðinn vestur og heyrðum í henni. Reglulega berast fréttir af myglu og rakaskemmdum í skólahúsnæði og fleiri stofnunum. Málefni Fossvogsskóla hafa væntanlega ekki farið framhjá neinum og enn sér ekki fyrir endann þar á. Af þessu tilefni hefur Reykjavíkurborg nú ákveðið að ráðast í undirbúning nýrra verkferla um hvernig eigi að bregðast við þegar slík mál koma upp. Með þessu er verið að skerpa á því sem betur má fara varðandi skipulag, verkstjórn, undirbúning og upplýsingagjöf um framkvæmdir sem tengjast myglu og rakaskemmdu húsnæði í eigu borgarinnar. Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi, kom til okkar og sagði okkur nánar af þessu. Kosið verður um sameiningu fimm sveitarfélaga á Suðurlandi samhliða Alþingiskosningum síðar í mánuðinum. Sveitarfélögin eru Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra og Ásahreppur og ef af sameiningu yrði myndi sameinað sveitarfélag verða það víðfeðmasta á landinu. Róbert Ragnarsson ráðgjafi hjá RR ráðgjöf hefur unnið að undirbúningi þessa verkefnis, m.a. íbúafundum, og hann kom við hjá okkur og fór aðeins yfir málið. Við fórum svo suður á bóginn og heyrðum í Jóhanni Hlíðar Harðarsyni sem færði okkur fjölbreyttar og forvitnilegar fréttir utan úr heimi. Tónlist: Mannakorn - Óralangt í burt. Wings - Another day. The Cardigans - Youre the storm. Lay Low - Please dont hate me. Vök - No coffee at the funeral. Tómas Welding - Here they come. Baccara - Yes sir I can boogie. Sigrid - Mirror. Dua Lipa - Love again.

Í þættinum fáum við innsýn í leikskólastarf á Patreksfirði. Sigríður Gunnarsdóttir leikskólastjóri okkur frá hvernig starfinu í Arakletti og hvernig samfélagið allt tekur þátt í því.
Sigmar ræðir við Egil Fjeldsted sem lamaðist frá brjósti eftir alvarlegt bílslys. Hann tók þá ákvörðun eftir slysið að líta á björtu hliðarnar og vera þakklátur fyrir að vera á lífi. Eftir endurhæfingu einbeitti hann sér að námi og lærði m.a. sagnfræði. BA ritgerðin í náminu endaði sem bók um krapaflóðin á Patreksfirði árið 1983 þar sem fjórir létust og mikið eignatjórn varð.
Kjartan Rolf Árnason, RARIK: Samorka ásamt fleirum gerði rannsókn á fyrirkomulagi hleðslu rafbíla hér á landi, fyrirkomulagi og hleðsluhegðun rafbílaeigenda. Áslaug Torfadóttir, Bíó Paradís og Karna Sigurðardóttir, Skjaldborg: Áæatlað er að opna Bíó Paradís um miðjan sept. Og í ár verður Skjaldborg-hátíð íslenskra heimildakvikmynda sem venjulega er haldin á Patreksfirði, opnunarhátíð Bíó Paradísar. Friðrik Páll: Svefnvandamálum hefur fjölgað í kórónaveikifaraldrinum. Þeim fjölgar sem sofa ekki vel, of lítið eða alls ekki neitt. Fólk óttast kórónaveikina, hefur áhyggjur af vinnunni, af fjölskyldu sinni og fjármálastöðu. Daglegt líf er ekki í föstum skorðum, eins og var, og margir þjást af kvíða.

Í þessum þætti ferðumst við um Vestfjarðarkjálkann, jafnvel þó við vitum ekki alveg afhverju hann er kallaður kjálkinn. Sérfræðingar þáttarins koma frá ýmsum stöðum á Vestfjörðum en það eru Kormákur Elí frá Hólmavík, Urður frá Ísafirði og þau Lara Alexandra og Guðmundur Sævar frá Patreksfirði. Þjóðsaga þáttarins fjallar um fyrstu landnámskonuna í Bolungarvík, hana Þuríði sundafylli, og rifrildi sem hún átti við bróður sinn en það fór alveg gjörsamlega úr böndunum. Ef þið leggið vel við hlustir allan þáttinn þá er klárt mál að þið vinnið spurningakeppnina í lokin!

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair segist sannfærður um að félagið geti staðið af sér það áfall sem útbreiðsla COVID-19 veirunnar hefur í för með sér. Flugfélög um allan heim hafa boðað fordæmalausan samdrátt í flugi. Miklar lækkanir urðu í kauphöllum í dag. Magnús Geir Eyjólfsson ræddi við Boga. 12 ný kórónaveirusmit hafa greinst á Íslandi í dag. Meira en tvö þúsund eru í sóttkví og þrír á sjúkrahúsi, þar af tveir á gjörgæslu. Alma Ómarsdóttir sagði frá og heyrist í Þórólfi Guðnasyni, sóttvarnalækni af upplýsingafundi Almannavarna. Hættustig er í gildi vegna snjóflóðahættu á Patreksfirði og Flateyri og þar hafa nokkur íbúðarhús verið rýmd. Óvissustig er í gildi á Vestfjörðum, þar hefur mikið snjóað og í nótt bætir enn í. Appelsínugul viðvörun er í gildi fram á kvöld á morgun vegna norðaustan stórhríðar. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir segir frá Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen, leggur til bann við ónauðsynlegum ferðum inn á Schengensvæðið í þrjátíu daga. Stefnan er að bannið nái einnig til ríkja sem eiga aðild að Schengen en ekki ESB, eins og Íslands. Dagný Hulda Erlendsdóttir tók saman. Yfirvöld í Týról hunsuðu viðvaranir frá Íslandi um að COVID-19 veiran væri þar á sveimi. Hefðu yfirvöld brugðist við af meiri festu hefði verið hægt að hægja á útbreiðslu veirunnar enn frekar í Evrópu. ----- Áhrifa COVID-19 faraldursins í atvinnulífinu gæti víða, óveðursblikur á lofti víða um heim. Drífa Snædal, forseti Alþýðusambandsins hefur vakið athygli á því að aðstæður fólks til að takast á við sóttkví og einangrun eru misjafnar og þá þurfi að gæta þess að kostnaður við heimavinnu lendi ekki á launþegum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Drífu. Fastlega má búast við einhverjum kjaraviðræðum verði frestað vegna COVID-19. Fækkað hefur verið í samninganefndum og fjarfundabúnaður er notaður á sumum fundum. Arnar Páll Hauksson sagði frá. Jónína Einarsdóttir leikstjóri á Stakkaborg, segir að börnin eigi eftir að verða breytinga vör í fyrramálið. Þeim er skipt upp í hópa og bara helmingurinn í skólanum í einu og tíminn styttur. , vináttubangsarnir hafa til dæmis verið settir í geymslu og stór hluti leikfanga fjarlægður. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Jónínu. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson. Stjórn útsendingar: Björg Guðlaugsdóttir.

Í ellefta þætti Heimskviðna er fjallað um nýafstaðnar þingkosningar í Póllandi, þar sem þjóðernissinnaði hægriflokkurinn Lög og réttur vann stórsigur. Flokkurinn hefur gert umtalsverðar breytingar í landinu frá því hann tók við völdum 2015. Pólland er á hættulegri leið út af braut lýðræðis og frelsis - segja sumir. Pólverjar eiga rétt á því að ákveða sjálfir hvernig þeir vilja haga sínu samfélagi og gera það í frjálsum lýðræðislegum kosningum - segja aðrir. Ólöf Ragnarsdóttir fór til Póllands, fylgdist með kosningunum og ræddi við fólk. Þá er sömuleðis fjallað um stöðuna í Katalóníu, en síðustu viku voru níu katalónskir stjórnmálamenn dæmdir í 9 til 12 ára fangelsi fyrir aðkomu sína að þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir tveimur árum þar sem greidd voru atkvæði um sjálfstæði Katalóníu. Sjálfsstæðissinnar höfðu betur og í kjölfarið lýsti Katalónía yfir sjálfstæði. Spænsk stjórnvöld tóku vægast sagt illa í þann gjörning eins og fólk kannski man, og sem fyrr segir féllu þessir hörðu dómar í síðustu viku. Mótmæli hafa færst í aukanna í þessari viku og erfitt er að segja til um hvað gerist. Guðmundur Björn fjallar um málið og ræðir við hinn katalónska Ramon Flavia Piera, sem er búsettur á Patreksfirði. Þá fjallar Birta Björnsdóttir um baráttuna við falsfréttir, og bætur sem bandarískum manni voru dæmdar í síðastliðinni viku. Bæturnar fær maðurinn frá samsæriskenningasmiðum sem halda því fram að dauði sex ára sonar mannsins hafi verið sviðsettur. Að skotárásin sem framin var í Sandy Hook barnaskólanum 2012, þar sem 20 börn voru myrt, hafi í raun aldrei átt sér stað. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Tveir ráðherrar kynntu í byrjun vikunnar aðgerðir til þess að einfalda regluverkið í íslensku samfélagi. Á meðal aðgerðanna eru breytingar á samkeppnislögum. Þær hafa mætt gagnrýni sérfræðinga í samkeppnislögum sem segja breytingarnar veikja samkeppniseftirlit og að þetta sé gert í þágu hinna stóru fyrirtækja og ýti jafnvel undir fákeppni. Verði frumvarpið að lögum verður Samkeppniseftirlitinu í framtíðinni óheimilt að skjóta úrskurum áfrýjunarnefndar samkeppnismála til dómstóla. Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði og fyrrverandi stjórnarformaður Samkeppniseftirlitsins og fyrrverandi ráðherra samkeppnismála er gagnrýninn á fyrirhugaðar breytingar. Hann segir þær draga úr möguleikum til þess að standa vörð um réttindi neytenda. Gylfi var gestur Morgunvaktarinnar. Benjamin Netanyahu hefur gefist upp á að reyna að mynda stjórn og því er útlit fyrir að valdatíð hans í Ísrael sé á enda. Mikil óánægja almennings með stjórnvöld hefur brotist út víða í Suður-Ameríku á síðustu dögum og vikum. Og Bandaríkjamenn sýna Grænlandi áfram mikinn áhuga þrátt fyrir að hafa kannski látið af hugmyndum sínum um að kaupa landið. Bogi Ágústsson fór um víðan völl í Heimsglugga Morgunvaktarinnar. Um síðustu helgi opnaði Arctic Fish seiðaeldisstöð í Tálknafirði. Þetta mun vera ein tæknivæddasta landeldisstöð í heimi sem meðal annars endurnýtir 96 prósent vatns í eldinu. Þessi seiðaeldisstöð hefur verið í undirbúningi í um það bil 7 ár. Umsvif Arctic Fish á Vestfjörðum eru nú orðin umtalsverð en fyrirtækið er með, auk þessarar landeldisstöðvar, sjóeldi í Tálknafirði, Patreksfirði og Dýrafirði. Við heyrðum í Sigurði Péturssyni, stofnanda Arctic Fish og einum af framkvæmdastjórum fyrirtækisins. Tónlist: You Belong To Me - Jo Stafford Hlini Kóngsson - Andrea Gylfadóttir, Rafn Jónsson, Helgi Björnsson & Rúnar Þórisson.

Jóhann Magnússon vatt kvæði sínu í kross fyrir tveimur árum, eftir að hafa starfað í 22 ár sem skipstjóri, og rekur nú verslunina Albínu á Patreksfirði ásamt konu sinni Ingunni Jónsdóttur. Við slógum á þráðinn vestur og heyrðum af mannlífi og stemmingu á Patreksfirði og hvernig það er að færa sig úr brúnni á bak við búðarborð. Jóhann Jóhannsson tónlistarmaður og tónskáld, hefði orðið fimmtugur í dag en hann lést í febrúar á síðasta ári. Tónlistarferill Jóhanns var stórmerkilegur, og hann hlaut Golden Globe verðlaun og var tilnefndur til Óskarverðlauna svo fátt eitt sé nefnt. Sigurður Björn Blöndal og Lárus Jóhanneson, vinir og samstarfsmenn Jóhanns úr tónlistinni, komu til okkar en tónleikar til heiðurs Jóhanni verða haldnir um helgina. Við slógum á þráðinn til Önnu Kristjánsdóttur sem fetað hefur í fótspor fjölmargra Íslendinga sem kosið hafa að flytja á suðrænni slóðir þar sem veður er betra og verðlag lægra. Anna ákvað að flytja til Tenerife og skrifar reglulega um þá upplifun á Feisbúkk síðu sína. Grímur Sæmundsen, forstjóri og einn stofnenda Bláa lónsins, kom til okkar og sagði okkur frá því hvernig þetta litla baðlón varð að einu þekktasta vörumerki á Íslandi en hann heldur erindi á ráðstefnu í Hörpu í næstu viku þar sem hann rekur hvernig stöðugt endurmat á rekstri og stefnumótun hefur spilað lykilhlutverk í uppgangi lónsins. Anna Sigríður Þráinsdóttir mætti í sitt vikulega málfarsspjall og fræddi okkur um orðaforða. Tónlist: Mugison - A little trip to heaven. Birgir Steinn - Letting go. Hipsumhaps - Lmslí. Lhooq - Losing hand. OMAM - Wild roses. Elton John - Rocket Man. Thin Jim and the Castaways - Brotnar myndir. Beggi Smári - Brostu. Vök - Spend the love.

Morgunkaffið var í Vestfjarðargír í dag en þátturinn var sendur út frá Stúkuhúsinu á Patreksfirði. Björg Magnúsdóttir var á staðnum ásamt Bergsteini Sigurðssyni, sem leysti Gísla Martein af. Í stúdíóinu í Efstaleitinu var svo Atli Már Steinarsson þúsundþjalasmiður. Viðmælendur tengdust margir heimildamyndahátíðinni Skjaldborg sem fer fram. Margrét Jónasdóttir framleiðandi, Elín Hansdóttir myndlistakona og leikstjóri, Ragnar Ísleifur Bragason kynnir, Þóra Hallgrímsdóttir lögfræðingur og gestur, Ísold Uggadóttir kvikmyndaleikstjóri og stýrur hátíðarinnar Kristín Andrea Þórðardóttir og Helga Rakel Rafnsdóttir. Einnig var rætt við eiganda Stúkuhússins Steinunni Finnbogadóttur og bæjarstjóra Vesturbyggðar Rebekku Hilmarsdóttur. Músík, líf og fjör og að sjálfsögðu vestfirskur uppáhellingur.

Vesturbyggð, í samstarfi við Umhverfisstofnun, hratt af stað átaki gegn fatasóun í vikunni með sýningu heimildarmyndarinnar The True Cost. Framundan eru fleiri viðburðir er átakinu tengjast og við slógum á þráðinn vestur og heyrðum í Öldu Hrannardóttur á Patreksfirði sem er tengiliður Vesturbyggðar við verkefnið. Það er óhætt að segja að vitnisburður Michael Cohen, náins samstarfsmanns Donald Trump í áratug, fyrir þingnefnd í gær hafi valdið skjálfta í Washington og víðar. Framburður Cohen gæti reynst forsetanum skeinuhættur og Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðingur fór yfir málið með okkur. Anna Sigríður Þráinsdóttir kemur í sitt vikulega spjall um íslenskt mál og þar komu m.a. tíkallasímar, ljón í og á veginum og kalkipappír við sögu. Vigdís Haukdsóttir, borgarfulltri, kom til okkar en fullyrt hefur verið að hún og nokkrir aðrir borgarfulltrúar gangi allt of langt í gagnrýni sinni á starfsmenn og embættismenn borgarinnar. Fyrrverandi borgarfulltrúi kallaði hana sirkusstjóra í þættinum í gær og komu þau ummæli í framhaldi af færslu Stefáns Eiríkssonar, borgarritari, sem sagði um síðustu helgi að starfsmenn borgarinnar veigri sér við að mæta í vinnu, sitja fundi og klára verkefni vegna óásættanlegrar framkomu kjörinna fulltrúa. Það er óhætt að segja að mikil gróska sé í kóramenningu Íslendinga en fáir geta státað af því að hafa tilheyrt sama kórnum í meira en hálfa öld. Í vikunni bárust þær fregnir að Jón Hallson væri að hætta í Karlakór Reykjavíkur eftir 64 ára starf. Jón, sem er 86 ára, er ekki bara einn reyndasti kórsöngvari þjóðarinnar, heldur getur hann einnig státað af því að hafa tekist að næla sér í konu í karlakór. Jón kom í morgunkaffi til okkar. Tónlist: Júníus Meyvant - Gold laces. Otis Redding - Ive been loving you too long. Magni og Ólöf Jara - Eina nótt. Alice Merton - Learn to live. Úlfur Úlfur - Engar hendur. Michael Kiwanuka - One more night.
Margir hafa tekið upp á því að plokka, þ.e. að tína rusl á víðavangi. Ein þeirra öflugri í plokkinu er Sólveig Ásta Ísafoldardóttir á Patreksfirði og hefur hún hlotið nafnbótina heiðursplokkari á sínum heimaslóðum. Sólveig Ásta segir plokkið ekki bara jákvætt fyrir umhverfið, það hafi líka jákvæð áhrif á hana sjálfa. Við slógum á þráðinn vestur og heyrðum í Sólveigu Ástu. Jón Magnús Kristjánsson, yfirlæknir bráðalækninga á Landsspítalanum ræddi við okkur um notkun háskólanema á lyfseðilsskyldum lyfjum og hvort þessi lyf hafi þau áhrif á námsárangur sem nemendurnir sækjast eftir. Einkum er þarna um að ræða sterk verkjalyf, örvandi og kvíðalyf og svo svefnlyf. Jóhannes Stefánsson, eða Jói í Múlakaffi eins og hann er gjarnan nefndur, kom til okkar en hann útbýr þorramat ofan í þúsundir landsmanna og þar með talin nokkur af stærstu blótum landsins ár hvert. Tegundasvindl með sjávarafurðir er stórt vandamál í heiminum. Ódýrari fiskur er þannig seldur sem dýrari í stórum stíl. Svavar Hávarðsson, ritstjóri Fiskifrétta, sem fjallað hefur um þetta sagði okkur frá áhyggjum íslensks sjávarútvegs af þessu en þar á bæ grunar menn að svindlið sé að einhverju marki stundað undir merkjum þess að verið sé að selja íslenskan fisk. Svavar fræddi okkur líka um nýjustu tíðindi af beðmálum Makríls á Íslandsmiðum og íslenskum þorski sem sagður er finnast norður við Jan Mayen. Veitur hvetja fólk til að spara heita vatnið en heimilin nota mun meira af því þessa dagana vegna kuldans. Það gæti komið til þess að skerða afhendingu á heitu vatni til stórnotenda, td sundlauganna. Eiríkur Hjálmarsson fór yfir þetta með okkur. Guðmundur Jóhannsson kom í sitt vikulega tæknispjall og ræddi m.a. landbúnaðartölvuleik og galla í facetime. Tónlist: GDNR - Það sem er. Richard Ashcroft - Thats when I feel it. Warmland - Further. Van Morrison - Crazy love. Sykurmolarnir - Regina. Cranberries - All over now. Kacey Musgraves - Slow burn.
Í þessum þætti af 1 á 1 fáum við umræddasta mann vikunnar í heimsókn. Ari Gunnarsson hefur marga fjöruna sopið sem leikmaður og þjálfari. Farið er yfir ferilinn og góðar sögur rifjaðar upp. Einnig er farið yfir mál vikunnar þar sem Ari var látinn taka pokann sinn hjá Skallagrím og hefur eftir það sagt frá vinnuumhverfinu sem hann þurfti að þola þar. Podcast Körfunnar er í boði Dominos og minnt er á að hlustendur fá 30% afslátt af sóttum pítsum með kóðanum “karfan.is” panti þeir í gegnum Dominos.is eða með Dominos appinu.Umsjón: Ólafur Þór JónssonEfnisyfirlit:1:00 - Uppeldið hjá Val5:00 - Viðkoma í Svíþjóð og Patreksfirði7:10 - Þrettán ár í Borgarnesi17:45 - Eftirminnilegustu samherjarnir og mótherjarnir22:00 - Spilar og þjálfar hjá Hamri26:45 - Andrúmsloftið hjá KR heillaði32:45 - Endurkoma til Vals og rýtingur í bakið þar37:00 - Ari tekur við Skallagrím eftir undanúrslit í bikar41:15 - Ekkert undirbúningstímabil og viðvörunarbjöllur hringja47:45 - Brottreksturinn frá Skallagrím frá A-Ö - „Það þarf eitthvað að gerast“
Við beindum sjónum að norskum stjórnmálum með Boga Ágústssyni. Það andar köldu á milli Framfaraflokksins og Kristilega þjóðarflokksins vegna þess að þeir síðarnefndu studdu tillögu stjórnarandstöðuflokka um að takmarka áfengiskaup í fríhöfninni. Þetta gæti leitt til erfiðra stjórnarmyndunarviðræðna, en þær standa fyrir dyrum. Þá var rætt um áhyggjur Norðmanna vegna ágangs enskunnar og versnandi stöðu norskunnar. - Á síðustu vikum hefur verið unnið að mörgum áhugaverðum nýsköpunarverkefnum undir merkjum fyrsta íslenska hraðalsins á sviði samfélagslegrar nýsköpunar. Hvað er nú verið að segja? Hraðall? Samfélagsleg nýsköpun? Við leituðum svara á Morgunvaktinni. Einn verkefnastjórinn, Auður Örlygsdóttir, kom í þáttinn og eitt þeirra sem unnið hefur að athyglisverðu verkefni, Sigrún Thorlacius, sem vill nota sveppi til að hreinsa og endurheimta landsvæði sem spillst hafa af mengun. - Sigrún lýsti þessu athyglisverða verkefni. - “Hjermeð er yður, herra sýslumaður, vegna vanrækslu í embættisrekstri, vikið frá embætti um stundarsakir.“ Þannig hljóða upphafsorð í bréfi til Einars M.Jónassonar á Patreksfirði, undirritað af dómsmálaráðherranum nýja, Jónasi Jónssyni frá Hriflu. Þetta er í nóvember 1927. Jónas var maður sem vildi koma hreyfingu á hlutina, var eiginlega byltingarmaður í augum afla sem ráðið höfðu á Íslandi. Ungi ráðherrann lagði þarna til atlögu við værukæran embættismann, sem fengið hafði margháttaðar athugasemdir. Frá þessu segir í bókinni Ærumissi eftir Davíð Loga Sigurðsson, sem ræddi um efni bókarinnar. - Tónlist: The Beatles - I want to hold your hand; Nancy Wilson - I can´t stop loving you.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson. Gestur: Bergsteinn Sigurðsson Í 18 þætti af Gleymdum Perlum Níunnar fáum við menningarvitann Bergstein í heimsókn. Eðlilega má gera ráð fyrir menningarlegu gáfumannapoppi á hans lista. Bergsteinn hóf níuna á Patreksfirði og bjó hann þar fyrstu ár áratugarins, hann er alinn upp á hármetal sem var að hverfa þegar núan heilsar. Á unglingsárum dettur í hann körfuboltaáhugi enda 6. besti senter sunnanverðra vestfjarða og vaknaði í leiðinni áhugi hans á hip hop tónlist. Allt þetta breytist þegar pilturinn flytur suður til þess að fara í skóla, brittpopp og rúllukragapeysur taka við keflinu af röppurum með dassi af trip hoppi og gáfumannapoppi. Bergsteinn og hans gleymdu perlur níunnar

Setningarhátíð Ólympíuleika ungmenna í Buenos Aires fór fram í Argentínu um helgina. Við Íslendingar eigum fulltrúa í nokkrum íþróttagreinum á mótinu. Meira um þetta rétt á eftir þegar við heyrum í Örvari Ólafssyni hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Elísabet Margeirsdóttir kemur í viðtal til okkar en hún kom til landsins í gær eftir að hafa tekið þátt í Gobi eyðimerkurhlaupinu og hlaupið 400 kílómetra á undir 100 klukkutímum, fyrst kvenna. Hún hefur nú haft nokkra daga til að melta árangurinn og fer yfir þetta allt með okkur. Í síðustu viku bannaði Neytendastofa bloggurum að nota duldar auglýsingar en talsvert var fjallað um málið og kallað eftir því að reglur um duldar auglýsingar verði gerðar skýrari. Við heyrum í Þórunni Önnu Árnadóttur hjá Neytendastofu. Lilja Rafney Magnússdóttir, formaður atvinnuveganefndar alþingis, verður á línunni hjá okkur og ræðir þá stöðu sem upp er komin í atvinnulífi vestfirðinga eftir að rekstrar og starfsleyfi fiskeldisfyrirtækja í Tálknafirði og Patreksfirði. Við förum yfir íþróttaviðburði helgarinnar með íþróttadeildinni.
Miðstjórn ASÍ líkir starfsháttum Icelandair við viðskiptahætti Primera Air í ljósi þess að félagið hafi sagt upp starfsfólki og útvistað verkefnum þeirra til Eystrasaltsríkja þar sem laun og starfskjör séu önnur og verri. Ekkja Erítreumannsins, sem lést eftir að græddur var í hann plastbarki, kannar nú hvort hún á rétt á bótum. Eldri hjón óttast að sitja uppi með útgjöld vegna gistingar sem þau geta ekki notað eftir að Wow hætti flugi til Edinborgar. Flugfélagið endurgreiðir aðeins flugfarið en ekki hótelgistingu sem pöntuð var á vef félagsins. Ákvörðun úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um að ógilda leyfi tveggja fyrirtækja fyrir mörgþúsund tonna laxeldi í Patreksfirði og Tálknafirði kann að vera fordæmisgefandi. Þetta segir umhverfisráðherra. Hann telur þörf á að ráðast í aðgerðir, bæði til skemmri og lengri tíma, vegna málsins. Konan sem sakar fótboltakappann Cristiano Ronaldo um nauðgun vonast til að málið verði til þess að fleiri þolendur stigi fram, óháð því hversu frægur, ríkur eða valdamikill gerandinn kunni að vera. Þó að þorri jarðarbúa telji sig líklega hafa nægjanlegar sannanir þess að jörðin sé hnöttótt álíta þónokkrir að jörðin sé flöt. Bandaríski körfuboltamaðurinn Kyrie Irving baðst fyrr í vikunni afsökunar á því að hafa haldið því fram opinberlega að jörðin sé flöt.
Þátturinn hófst á spjalli við Frey Eyjólfsson tíðindamann Morgunvaktarinnar í New York. Einkum var rætt um afstöðu Bandaríkjamanna til deilu Ísraela og Palestínumanna og þá ákvörðun bandarískra stjórnvalda að flytja sendiráð sitt í Ísrael frá Tel Aviv til Jerúsalem en einnig hnignandi stöðu gula leigubílsins í stórborginni en þetta einkennismerki hennar til áratuga hefur látið undan fyrir Uber og öðrum slíkum samgöngufyrirtækjum. Rætt var um efnahagsmál vítt og breitt við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka, í tilefni af vaxtaákvörðunardegi Seðlabanka Íslands. Jón bjóst við að vextirnir yrðu óbreyttir (sem varð raunin) enda gæfi ástand efnahagskerfisins tilefni til þess. Hann sagði vextina nú sögulega lága. Efnahagsástandið er almennt gott að mati Jóns, hagvöxtur t.d. ágætur, verðbólga lítil og atvinnuástand gott. Enn væri vöxtur í einkaneyslu en öfugt við það sem var fyrir áratug væri hún staðgreidd en ekki tekin að láni. Helga Rakel Rafnsdóttir kvikmyndagerðarkona sagði frá heimildarmyndahátíðinni Skjaldborg sem haldin er í tólfta sinn á Patreksfirði um Hvítasunnuhelgina. Hún talaði líka almennt um heimildarmyndir sem eru af allskonar og ólíku tagi. Þættinum lauk á viðtali Sunnu Valgerðardóttur við þrjá sveitarstjóra í Eyjafirði: EIrík H. Hauksson í Svalbarðsstrandarhreppi, Ólaf Rúnar Ólafsson í Eyjafjarðarsveit og Snorra Finnlaigsson í Hörgársveit, í tilefni af kosningunum 26. maí. Tónlist: Big yellow taxi - Joni Mitchell My funny Valentine - Chet Baker