POPULARITY
Meginregla er að réttarhöld eru opin en venjan hér í kynferðisbrotamálum er að þau séu lokuð til að verja persónulega hagsmuni. Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari segir sterk rök fyrir því að opna slík réttarhöld, vilji brotaþoli senda þau skilaboð að hann hafi ekkert til að skammast sín fyrir, líkt og hin franska Giselle Pélicot gerði. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Kolbrúnu. Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Human rights watch, eða Mannréttindavaktin, sem eru með höfuðstöðvar í Bandaríkjunum, bættust í dag í stækkandi hóp þeirra sem saka Ísraelsmenn um stórfelld mannréttindabrot, brot á alþjóðalögum og sáttmálum og alvarlega glæpi sem stappa nærri þjóðarmorði. Mannúðar- og mannréttindasamtökin Læknar án Landamæra komast að svipaðri niðurstöðu í sinni skýrslu, sem líka kom út í dag. Ísraelar svara samtökunum eins og öllum öðrum sem saka þá um stríðsglæpi og þjóðarmorð, með ásökunum um lygar og gyðingahatur. Hvað gerir jólalag að jólalagi? Er það textinn sem er sunginn eða er til ákveðinn jólahljómur? Freyr Gígja Gunnarsson leitar svara við þeirri áleitnu spurningu hjá tónlistarmanninum Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Það er komið að öðrum þætti af klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Í þessum þætti mun Bára Dís Benediktsdóttir, þá sérnámslæknir, en nú sérfræðingur, kynna tilfelli sem við reynum að leysa í rauntíma. Leggið við hlustir!Dagáll læknanemans er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson.
Skúli Magnússon lætur af störfum sem umboðsmaður Alþingis á þriðjudag og sest í dómarasæti í Hæstarétti Íslands. Við starfi hans tekur Kristín Benediktsdóttir sem Alþingi kaus í dag. Skúli hefur sem umboðsmaður slegið á putta ráðherra, meðal annars í Íslandsbankamálinu, sem varð til þess að þáverandi fjármálaráðherra sagði af sér - þó með þeim orðum að hann væri ósammála áliti umboðsmanns. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Skúla. Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti er í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum, þar sem hann hittir Joe Biden Bandaríkjaforseta í dag. Í aðdraganda fundarins hét Biden auknum stuðningi við Úkraínu. Hinumegin Atlantshafsins ítrekaði Vladimír Pútín Rússlandsforseti óbeinar en illa duldar hótanir sínar um að beita kjarnorkuvopnum í stríðinu gegn Úkraínu. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Í þessum þætti er ofvirkum skjaldkirtli (e. hyperhyrosis) gerð einkar góð skil. Hvenær á að gruna sjúkdóminn? Hvað er að finna við skoðun og hvernig er uppvinnslu háttað? Þá er farið bæði yfir fyrstu meðferð sem og langtímameðferð sjúkdómsins.Arna Guðmundsdóttir innkirtlalæknir og Bára Dís Benediktsdóttir, þá sérnámslæknir en nú sérfræðingur í almennum lyflækningum, leiða hlustendur leikandi í gegnum þetta viðfangsefni. Þetta er þáttur sem þú ættir ekki að láta framhjá þér fara! Dagáll læknanemans er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson.
Ólympíuleikarnir verða settir við hátíðlega athöfn í París á föstudag. Leikarnir eru stærsti íþróttaviðburður heims og fjölmiðlar keppast við að segja frá öllu sem þeim við kemur. Ljót fortíð hollenska strandblakarans Steven van de Velde er eitt þeirra mála sem fjallað er um. Það hefur varpað skugga á gleðina í aðdraganda leikana og vakið miklar deilur, því van de Velde er dæmdur barnaníðingur. Eva Björk Benediktsdóttir kynnti sér málið. Japanir voru í ársbyrjun ríflega eitt hundrað tuttugu og ein og hálf milljón talsins og hafði þá fækkað um rúmlega 850.000 frá 1. janúar 2023. Það ár var fimmtánda árið í röð sem Japönum fækkar og hefur þeim aldrei fækkað jafn mikið á einu ári síðan byrjað var að fylgjast grannt með mannfjöldaþróun í landinu árið 1968. Samkvæmt vefmiðlinum Kyodo Times komu um 730.000 nýir Japanir í heiminn í fyrra, og hafa fæðingar aldrei verið færri og frjósemi aldrei mælst minni, eða rétt rúmlega 1,2 börn á hverja konu, samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum. Á sama tíma dóu fleiri Japanir en nokkru sinni frá því að opinberar talningar hófust, eða um fimmtán hundruð og áttatíu þúsund. Og meðalaldur þjóðarinnar fer stöðugt hækkandi. Þessi þróun hefur lengi verið japönskum stjórnvöldum áhyggjuefni en ekkert gengur að snúa þróuninni við. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um að NATÓ ríkin fái bætt aðgengi að loftrými Norðurlandanna til aðgerða og æfinga. Þetta segir Jónas Gunnar Allansson skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins í viðtali við Ragnhildi Thorlacius. Skólaþjónusta hefur þróast hægt á Íslandi síðustu áratugi. Pólitískur óstöðugleiki hefur þar mikið að segja. Sigríður Margrét Sigurðardóttir, doktor í menntavísindum, rannsakaði menntaforystu á sveitarstjórnastigi í doktorsritgerð sinni. Í viðtali við Evu Björk Benediktsdóttur segir Sigríður gæði skólaþjónustunnar ekki fara eftir stærð sveitarfélaga, heldur hafi skortur á stefnumótun og óstöðugleiki meiri áhrif. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason
Send us a Text Message.On this week's artist spotlight we welcome musician, artist, organiser and friend-of-the-pod Ólöf Rún Benediktsdóttir, a long-time member of Iceland's grassroots music and art communities. This is her second time joining us in the studio, as she stepped in as guest co-host on an episode with us last summer in our old digs at 101 Útvarp, and we are very happy to have her back.Ólöf is a member of the ethereal-doom band Svartþoka, where she plays theremin and sings. She is also prominently involved with Læti a platform for young girls and gender non-conforming kids to get involved in music at the ground level. Ólöf is also a visual artist and most recently broken off into doing solo electronic music under her own name, Ólöf Rún. We get into all of this and so much more on this episode. Catch Ólöf Rún live at the Nordic House on Sunday June 30th at 15:00, as part of the PIKKNIKK concert series. More information about the show right here.Links to Ólöf Rún:Website: olofbenedikts.comInstagram: @olofbenediktsSvartþoka on Bandcamp66 Degrees of Sound is a podcast production by The Reykjavík Grapevine, hosted by music editor Jóhannes Bjarkason and listings editor Rex Beckett.Editing and intro music by Rex Beckett.All tracks played on the show are in accordance with STEF, the Composers' Rights Society of Iceland.Check out grapevine.is for the full magazine coverage and events.grapevine.is for more upcoming events. Instagram: @rvkgrapevine Facebook: The Reykjavík Grapevine Youtube: The Reykjavík Grapevine
Vantrauststillaga í garð matvælaráðherra. Rætt við þingflokksformann Miðflokksins Bergþór Ólason og þingflokksformann Framsóknarflokksins Ingibjörgu Isaksen. Af hverju gengur svona illa að sakfella í mansalsmálum? Rætt við Kolbrúnu Benediktsdóttur saksóknara. Ráðherraráð Evrópusambandsins hefur staðfest viðamikla og umdeilda löggjöf um endurheimt lífríkis, vistkerfa og náttúru eftir harðar deilur og átök.
Nálgast má þáttinn í heild sinni án auglýsinga inn á; https://solvitryggva.is/ Jónína Benediktsdóttir er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar í podcasti Sölva. Jónína, sem hefur oft verið verulega umdeild á Íslandi, var ung orðinn viðskiptakona í Svíþjóð, þar sem hún fékk alls kyns verðlaun fyrir frumkvöðlastarfsemi sína í líkamsrækt og rekstri líkamsræktarstöðva. Sölvi skrifaði ævisögu Jónínu og það vantar því ekki umræðuefnin. Tímabilin með Jóni Páli, íslenskt viðskiptalíf, baráttan við bakkus, hjónaskilnaðir og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/ Fiskikóngurinn - https://www.facebook.com/fiskikongurinn.is/?locale=is_IS Heitirpottar.is - https://heitirpottar.is/
Hildigunnur Birgisdóttir er fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í ár og sýning hennar, Þetta er mjög stór tala / commerzbau, opnar formlega í dag. Sýningarstjóri er Dan Byers. Við hringjum til Ítalíu og og heyrum í Hildigunni og Auði Jörundsdóttur, forstöðumanni Myndlistarmiðstöðvar. Einnig hugum við óbeint að Alþjóðlega plötubúðadeginum sem haldinn verður hátíðlegur í plötubúðum um allan heim næsta laugardag. Að því tilefni veltum við fyrir okkur miðlun tónlistar en ekki vínylplötunni sem er hvað háværust þegar kemur að plötubúðardeginum heldur geisladisknum sem hefur verið að hnigna undanfarin ár. Ólöf Rún Benediktsdóttir hóf fyrir um tveimur árum síðan að safna geisladiskum og kíkir til okkar með safnið sitt.
Sem upphitun fyrir Læknadaga 2024 sem fara fram dagana 15. - 19. janúar, deilum við með ykkur upptöku af tilfellaráðgátu sem fram fór á Læknadögum í fyrra. Berglind Bergmann, sérnámslæknir í lyflækningum, kynnir tilfellið í bútum og pallborð sérfræðinga greinir tilfellið. Pallborðið skipa þau; Hildur Jónsdóttir, sérfræðingur í almennum lyflækningum, Bára Dís Benediktsdóttir, þá sérnámslæknir í almennum lyflækningum (nú sérfræðingur!), Sigurður Guðmundsson, smitsjúkdómalæknir og Stella Rún Guðmundsdóttir, sérnámslæknir í almennum lyflækningum.
Viðmælandi þáttarins er Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri og framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion. Iða Brá er fædd 1976 og er alin upp í Vestmanneyjum, hún gekk í grunnskólann þar og stundaði síðan nám við Verzlunarskólann áður en hún útskrifaðist með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í fjármálum frá Erasmus Graduate School of Business í Rotterdam í Hollandi. Hún er einnig með próf í verðbréfaviðskiptum. Iða Brá hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 1999 og hefur gengt ýmsum ýmsum störfum innan bankans, síðast sem framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs frá 2016 til 2017. Áður hafði Iða Brá m.a. verið forstöðumaður samskiptasviðs, einkabankaþjónustu og í fjárstýringu bankans. Iða Brá hefur setið í ýmsum stjórnum m.a. hjá Sparisjóði Ólafsfjarðar, AFL – sparisjóði, fasteignafélagsins Landfesta og HB Granda. Iða Brá er einnig varaformaður stjórnar Varðar, vátryggingafélags.
Föstudagurinn 10. nóvember Vikuskammtur: Vika 45 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Andrean Sigurgeirsson dansari, Anna Sigrún Baldursdóttir hjúkrunarfræðingur og skrifstofustjóri öldrunarmála hjá Reykjavíkurborg, Jóna Benediktsdóttir skólastjóri og formaður Stjórnarskrárfélagsins og Sólveig Arnarsdóttir leikkona og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af óróa ofan jarðar sem neðan, risi og falli, vonum og vonbrigðum.
Í ljósi nýrra staðreynda sem komu fram í viðtali Kiljunar við Guðmund Magnússon, sagnfræðing, um líf séra Friðriks Friðrikssonar ræðum við við Ástu Kristínu Benediktsdóttur, íslensku og bókmenntafræðing, sem hefur lengi rannsakað hinsegin bókmenntir, þar á meðal skáldsögu séra Friðriks, Sölva sem kom út árin 1947 og 1948. Við lítum einnig inn á Gerðarsafni í þætti dagsins þar sem samsýning 10 listamanna rannsakar stöðu höggmyndalistarinnar í samtíma okkar. Sýningarstjórarnir, þær Brynja Sveinsdóttir og Cecilia Gaihede taka stöðuna. Snorri Rafn Hallsson rannsakar hvernig nostalgían snýst í höndum lítilla týndra og hræddra karlmanna. Og Nína Hjálmarsdóttir, leikhúsrýnir Víðsjár, fór á leikritið Teprurnar eftir skoska leikskáldið Anthony Neilson, sem frumsýnt var í borgarleikhúsinu á dögunum í leikstjórn Hilmis Snæs Guðnasonar - og segir frá í þætti dagsins.

Welcome to 66 Degrees of Sound by The Reykjavík Grapevine, where Grapevine journalists Rex Beckett and Jóhannes Bjarkason (aka Jói) discuss the latest Icelandic music releases. Your one-stop shop for brand new Icelandic music, join us every Friday for the weekly roundup.This week, Jói is joined by Ólöf Rún Benediktsdóttir — member of dark-wave group/witch coven Svartþoka, community organiser at Læti! (fka Stelpur Rokka!), and a newly joined member of Norðanpaunk's organisation team. We talk Svartþoka's attraction to the esoteric and their ritualistic motives and accidentally make this episode a Norðanpaunk tribute. Episode tracklist:Svartþoka — Draumsóleyjahafið (r. March 22, 2022)Graveslime — 362 days until Christmas (r. in 2003)Dj. Flugvél Og Geimskip feat. Pree Tone — Hamskipti (r. February 8)Una Torfa — Þú ert stormur (r. August 8) Check out grapevine.is for the full magazine coverage and events.grapevine.is for more upcoming events. Instagram: @rvkgrapevine Facebook: The Reykjavík Grapevine Youtube: The Reykjavík Grapevine
Guðrún Inga Torfadóttir tók hér á móti Guðrúnu Jóhönnu Benediktsdóttur iðjuþjálfa. Hún er með réttindi sem leiðbeinandi í PEERS félagsfærni fyrir börn, unglinga og ungt fólk og heldur námskeið í því hjá Lífsbrunni ásamt því að vinna með börnum og fjölskyldum þeirra almennt við skynúrvinnslumöt til að mynda. Frábært og upplýsandi spjall!
Jónína Benediktsdóttir er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar í podcasti Sölva. Jónína, sem hefur oft verið verulega umdeild á Íslandi, var ung orðinn viðskiptakona í Svíþjóð, þar sem hún fékk alls kyns verðlaun fyrir frumkvöðlastarfsemi sína í líkamsrækt og rekstri líkamsræktarstöðva. Sölvi skrifaði ævisögu Jónínu og það vantar því ekki umræðuefnin. Tímabilin með Jóni Páli, íslenskt viðskiptalíf, baráttan við bakkus, hjónaskilnaðir og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/
Í þætti dagsins í dag verður farið víða að vanda. Við heyrum pistil frá nýjum pistlahöfundi Víðsjár, Erni Elvari Arnarssyni. Við hittum líka sviðshöfundinn Hákon Örn Helgason, og heyrum af fyrstu frumsýningu haustsins í Tjarnarbíói, Jesú er til og hann spilar á banjó. Þá förum við í heimsókn í Hverfisgallerí neðst á Hverfisgötu, en þar sýnir Edda Jónsdóttir myndlistarkona verk sín á sýningu sem hún kallar Teikningar. Við ræðum við Eddu í galleríinu og líka sýningarstjórann, Hildigunni Birgisdóttur. Í Kakalaskála í Kringlumýri fara reglulega fram merkileg málþing. Á laugardaginn verður eitt slíkt, og hefur yfirskriftina Náttúran. Fundarstjóri málþingsins er Guðrún Ingólfsdóttir en fyrirlesararnir eru fjórir, þau Ásta Kristín Benediktsdóttir, lektor, Skúli Skúlason, prófessor, Astrid Ogilvie, vísindamaður og Viðar Hreinsson, sérfræðingur á Náttúruminjasafni Íslands. Fyrirlestur Viðars ber titilinn 'Þú hafðir ekki skyn á skapara þínum' og Ásta Kristín fjallar um íslenska hálendið sem hinsegin rými. Við fengum þau bæði í viðtal. Umsjónarmaður: Melkorka Ólafsdóttir

Fyrir næstum tíu mánuðum seldi Síminn dótturfyrirtækið Mílu, með manni og mús, til franska fjárfestingafélagsins Ardian fyrir næstum 80 milljarða króna. Eða öllu heldur var þá gerður samningur um viðskiptin. Hann er nú í uppnámi eftir að Samkeppniseftirlitið mat tiltekin ákvæði um framtíðarviðskipti Símans og Mílu samkeppnishamlandi; til skaða fyrir neytendur og atvinnulíf. Yfir þetta mál fór Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans. Á meðan kalt hefur verið og blautt víða á Íslandi undanfarið er því þveröfugt farið víða á meginlandi Evrópu. Þurrkar hafa haft alvarleg áhrif, og nú er svo komið að vatnsborðið í nokkrum helstu fljótum Þýskalands hefur lækkað svo mikið að ekki er lengur hægt að sigla um þau. Arthúr Björgvin Bollason ræddi þessi mál, og þýska pólitík, í Berlínarspjalli. Notendur internetsins þurfa stöðugt að vera á varðbergi gagnvart þrjótum sem sífellt finna nýjar leiðir til að hafa peninga af fólki. Netglæpir kosta orðið hundruð milljóna á ári og í flestum tilvikum stóla þjófarnir á andvaraleysi fólks. En hvað er til ráða? Hvað getum við gert til að sjá í gegnum svikin? Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, sagði frá því. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Æ, ó, aumingja ég - Gerður Benediktsdóttir Are you lonesome tonight - Elvis Presley In the ghetto - Bjarni Arason Autobahn - Kraftwerk Na Jane Kyon Hota Hai ? Lata Mangeshkar Nútíminn - Þursaflokkurinn

Culture Editor Josie Anne Gaitens is joined by two guests, Ólöf Benediktsdóttir of Stelpur Rokka and the band Svartþoka, and Laufey Soffía of the band Kælan Mikla, to discuss the reaction the the all male lineup for "Rokk Í Reykjavík", a concert that claims to represent rock music in Reykjavík today. Read our reporting on Rokk Í Reykjavík here: grapevine.is/news/2022/07/18/only-men-play-at-rock-in-reykjavik-concert Follow Kælan Mikla: kaelanmikla.com More information about Stelpur Rokka: stelpurrokka.isAccess Ólöf's database of female, trans and nonbinary musicians and bands in Iceland here. Check out a playlist of Icelandic female rock music.Looking for more news? Check out our website for the latest coverage: grapevine.isPlease take the time to rate and review the Icelandic Roundup on your podcast app! We really appreciate it, and it helps other people find the show.Before travelling in Iceland please always check road and weather conditions to ensure a safe journey.Weather: vedur.isRoads: road.is or on twitter.com/VegagerdinThis show is brought to you by the Reykjavík Grapevine, a free, alternative magazine in English published in Reykjavík every month. We cover everything Iceland-related, with a special focus on news, human interest stories, music, culture, food, travel and events. shop | facebook | twitter | instagramThank you to The Lava Centre for sponsoring this episode of The Icelandic Roundup.
Fáein atkvæði skildu að helstu blokkir í fyrri umferð frönsku þingkosninganna á sunnudag. Síðari umferðin fer fram næsta sunnudag. Torfi H. Tulinius, prófessor við Háskóla Íslands, fór yfir stöðu mála og ræddi um Macron forseta sem nú er að hefja sitt annað kjörtímabil í embætti. Merkel, fyrrverandi Þýskalandskanslari, veitti á dögunum viðtal, eitt það fyrsta síðan hún lét af embætti í haust. Var hún m.a. spurð út í samskipti þeirra Pútíns Rússlandsforseta sem hún sagði hafa verið minni og ekki jafn einlæg og látið hefur verið í veðri vaka. Arthúr Björgvin Bollason sagði frá í spjalli. Hann sagði líka frá umræðum og deilum um vindmyllur en hart er lagst gegn áformum í Þýskalandi um að reisa slíkar til orkuöflunar. Ísland hefur leik á EM kvenna í fótbolta 10. júlí. Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari ræddi um undirbúning liðsins, val hópsins og andstæðingana. Æ, ó, aumingja ég - Gerður Benediktsdóttir, All I wanna do - Sheryl Crow. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Bændablaðið fjallaði á dögunum um eldvarnir og dreifbýli. Þar kom fram að mörg heimili í dreifbýli séu þannig í sveit sett að langt er í næstu slökkvistöð og útkallstími slökkviliðs því langur. Það geri að verkum að heimilisfólk sé í senn sitt eigið slökkvilið og eldvarnaeftirlit. Þá sýnir könnun sem Gallup gerði fyrir Eldvarnabandalagið að úrbóta er víða þörf. Við ræddum þessi mál við Pétur Pétursson, slökkviliðsstjórann í Árnessýslu. Ekki sér fyrir endann á skæðri hitabylgju sem geisað hefur á nánast öllu Indlandi og í Pakistan síðustu daga. Hiti hefur farið yfir 45 gráður víða dag eftir dag að undanförnu og nýliðinn aprílmánuður er sá heitasti sem mælst hefur. Við ræddum við Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðing, um þetta ástand - en hann segir hitann ógna heilsu og lífi hundruða milljóna jarðarbúa þessa dagana og að við hér á norðurslóðum gerum okkur ekki grein fyrir því hve mikið álag á liðan og heilsu manna verður í svona svakalegum hita. Nicu Popescu, utanríkisráðherra Moldóvu, sagði í gær framtíð Evrópu velta á því hvernig stríðið í Úkraínu fer. Stjórnvöld í Moldóvu fylgjast grannt með framvindu mála í nágrannaríkinu Úkraínu, sérstaklega eftir að rússneskur herforingi lét hafa það eftir sér að Rússlandsher stefni að því að ná fullum yfirráðum yfir suðurhéruðum Úkraínu. Við töluðum við Val Gunnarsson, sagnfræðing, um nýjustu vendingar í stríðinu í Úkraínu og um þetta landamærahérað. Baráttudagur verkalýðsins, 1. maí, var í gær en staðan innan verkalýðshreyfingarinnar hefur verið ansi strembin undanfarnar vikur. Staða launþega er ekki minna strembnari, verðbólga mælist nú yfir 7% og útlit er fyrir að með hækkuðu verði á hrávöru vegna stríðsins í Úkraínu verði erfitt að taka í tauminn á henni. Drífa Snædal, forseti ASÍ, var gestur okkar upp úr klukkan átta. Fimmti þáttur kosningahlaðvarps RÚV kom út um helgina og við hér í Morgunútvarpinu ætlum að halda áfram að heyra brot úr þáttunum. Í þetta skiptið viðtal sem Ingvar Þór og Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir tóku við Arnar Eggert Thoroddsen, aðjúnkt í félagsfræði við Háskóla Íslands og tónlistarrýni, um framboðslög. Í lok þáttar fórum við yfir íþróttir helgarinnar með Evu Björk Benediktsdóttur.

Salan á Íslandsbanka var áberandi í umræðum í þingsal í dag. Þingmenn úr stjórnarandstöðu fóru fram á að hlé yrði gert á þingfundi eftir að grein birtist í Kjarnanum þar sem haft er eftir Sigríði Benediktsdóttur, hagfræðingi við Yale-háskóla, að söluferlið hafi verið ólöglegt. Sigríður er fyrrverandi framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands og sat í rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið. Hún segir í viðtali við Kjarnann að þegar yfir 150 kaupendur séu valdir til að kaupa magn bréfa, sem sé svo lítið að það hefði ekki hreyft við markaðsvirði Íslandsbanka ef þeir hefðu keypt á eftirmarkaði, brjóti það í bága við lög um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Ríkisendurskoðun hefur fallist á beiðni fjármála- og efnahagsráðuneytisins um úttekt á útboðinu og sölunni. Tilkoma samfélagsmiðla hefur á liðnum árum gjörbreytt kosningabaráttu í vestrænum lýðræðisríkjum. Segja má að straumhvörf hafi orðið þegar upp komst árið 2018 að breska fyrirtækið Cambridge analytica hafði selt forsetaframboði Donalds Trumps persónuupplýsingar um 87 mlljóna Facebook notenda fyrir forsetakosningarnar 2016. Í kjölfarið var persónuverndarlöggjöf víða breytt á vesturlöndum. Sveitarstjórnarkosningar verða hér á landi eftir rúman mánuð. Í gær var haldinn rafrænn fundur á vegum Persónuverndar, Fjarskiptastofu, Fjölmiðlanefndar, Landskjörstjórnar, lögreglu og netöryggissveitarinnar CERT-IS um stafrænar áskoranir frambjóðenda í aðdraganda kosninganna. Almennir frambjóðendur voru hvattir til að sækja fundinn því það er margt að varast í kosningabaráttunni. Helga Þórisdóttir er forstjóri Persónuverndar. Erlend stórfyrirtæki hafa fengið milljarðastyrki til að byggja gagnaver í Svíþjóð. Í staðinn vonuðust stjórnvöld eftir þúsundum starfa, verðmætri þekking og betri stafrænum innviðum. Styrkirnir sæta vaxandi gagnrýni, sem og lágt raforkuver til gagnaveranna. Og nú hefur ríkisendurskoðun tekið málið til athugunar. Helstu atriði frétta: Ríkisendurskoðun stefnir að því að skila úttekt á útboði og sölu ríkisins á Íslandsbanka í júní. Kröfu stjórnarandstöðunnar um að rannsóknarnefnd á vegum Alþingis rannsaki útboðið var hafnað. Bankasýsla ríkisins vísar á bug gagnrýni hagfræðings, sem sat í rannsóknarnefnd Alþingis um hrunið, að lög hafi verið brotin við söluna á Íslandsbanka. 11 flokkar bjóða fram til borgarstjórnar í vor. Framboðsfrestur rann út í dag. Framboð í Reykjavík var í miklu kapphlaupi við tímann til að skila inn meðmælum í tæka tíð. Sáralitlu munar á fylgi Emmanuels Macrons Frakklandsforseta og Marine

VIð förum og hittum hættulegustu rokkhljómsveit Reykjavíkur, Skratta. Hljómsveit sem hefur verið hampað ítrekað í Lestinni og er tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir besta rokklag ársins og bestu rokkplötuna. Það er nóg að gera hjá þeim um þessar mundir en þeir munu spila á Aldrei fór ég suður um páskana og gítarleikarinn og söngvarinn Karl Torsten Ställborn sýnir myndlist sína í Gallerí Núll komandi helgi. Gunnar Ragnarsson, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar rýnir í þrjár myndir sem hann sá á kvikmyndahátíðinni Stockfish. Stockfish kvkimyndahátíðin fer fram um þessar mundir í Bíó Paradís og myndirnar sem Gunnar fjallar um heita Drive My Car, Bacurau og Aquarius. Anna Róshildur Benediktsdóttir Bøving og Magnús Thorlacius eru á sínu þriðja og síðasta ári í Listaháskólanum. Í námi sem gengur út á tilraunir á sviði, Sviðshöfundabraut. Við spjöllum við þau um það hvernig það gekk að gera sviðslist þegar ekki mátti koma saman. Einnig ræðum við útskriftaverkin þeirra, en sýningar á þeim fara fram um helgina.

Umsjón: Ingvar Þór Björnsson & Snærós Sindradóttir Um helgina gengu íbúar í Stykkishólmsbæ og Helgafellssveit á Snæfellsnesi til kosninga og samþykktu sameiningu sveitarfélaganna. Við ræddum við Guðmund Helga Hjartarson, sveitarstjórnarfulltrúa í Helgafellssveit, um áhrif sameiningarinnar á íbúa og hvað tekur nú við. Samtökin Trans Ísland gagnrýndu um helgina fjölmiðla fyrir að birta ítrekað pistla þar sem minnihlutahópar eru smánaðir, undir því yfirskini að um sé að ræða skoðanir fólks. Við ræddum við Andie Sophia Fontaine, gjaldkera samtakanna, en lítið hefur reynt á löggjöf um birtingu slíkra greina. Hjalti Már Björnsson bráðalæknir, hefur áhyggjur af mikilli notkun Parkódín lyfsins og segir meðal annars að kódein sé tiltölulega lélegt verkjastillandi lyf en hafi miklar aukaverkanir. Hann kom til okkar um miðbik þáttar. Ríkislögreglustjóri mun í dag gefa út nýja skýrslu sem sýnir að síðastliðin tvö ár hefur lögregla fengið algjöran metfjölda tilkynninga um heimilisofbeldi og voru tilvik síðasta árs til dæmis þriðjungi hærri en árið 2015. Þá kemur einnig fram í skýrslunni að í manndrápsmálum eru tengsl gerenda og hins látna í yfir helmingi tilfella fjölskyldutengsl eða náin tengsl. Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri kom til okkar og segir frá efni skýrslunnar. Óskarsverðlaunin voru afhent í nótt. Við renndum yfir helstu tíðindi hátíðarinnar með Chanel Björk Sturludóttur, einum umsjónarmanna Kastljóss. Já og svo renndum við yfir íþróttir helgarinnar með Evu Björk Benediktsdóttur eins og alla mánudaga. Tónlist: Jet Black Joe - Starlight Jennylee - Stop Speaking Bloodgroup - Hips Again EYJAA - Ultraviolet Kings of Convenience - Rocky Trail Bríet - Flugdreki Rihanna - Stop the music Billie Eilish - No time to Die Valgeir Guðjónsson - Ástin vex á trjánum Flott - Flott

Eva Þórdís Ebenezersdóttir er doktorsnemi í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Rannsókn hennar er hluti af stóru þverfaglegu verkefni innan háskólans sem ber yfirskriftina Fötlun fyrir tíma fötlunar (Disability before disability). Nýlega kom út bókin Understanding Disability throughout History: Interdisciplinary Perspectives in Iceland from Settlement to 1936, sem er hluti af framangreindu rannsóknarverkefni. Í bókina skrifar Eva Þórdís kafla, ásamt Sólveigu Ólafsdóttur sagnfræðingi, um Sigríði Benediktsdóttur. Sigríður, sem fékk viðurnefnið Stutta-Sigga vegna þess hve lágvaxin hún var, varð með tímanum hálfgerð þjóðsagnapersóna. Sigríður, sem fæddist árið 1815, átti afar erfiða æsku og endaði á flakki á fullorðinsaldri. Ýmsar heimildir eru til um lífshlaup Sigríðar, bæði opinber skjöl og þjóðsögur. Í þættinum segir Eva Þórdís frá Sigríði og lífi hennar og hvað saga hennar segir um viðhorf til fólks með öðruvísi líkama á 19. öld og fram á okkar daga. Í þættinum segir Eva Þórdís einnig frá því hvernig hún hefur fléttað saman fötlunarfræði og þjóðfræði í gegnum þjóðfræðinám sitt, meðal annars í rannsóknum á umskiptingum og nú á þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar. Þar greinir Eva Þórdís fjölbreytt viðhorf til fötlunar og hvað sagnirnar geta sagt okkur um samfélag fyrri tíma. Að auki ræðir Eva Þórdís um áskoranir við rannsóknir á fötlun í fortíðinni sem meðal annars tengjast því hvernig við tölum um og orðum hlutina.
Í þjóðfræðasafninu Grímu eru ótal sögur um fólk af öllu tagi og „kynlega kvisti“. Þar á meðal er „Stutta-Sigga“ sem hér sést, Sigríður Benediktsdóttir. Illugi Jökulsson les frásögn um hana og aðra um „flogaveiku stúlkuna á Úlfá“ og 2-3 um Torfa Sveinsson á Klúkum í Eyjafirði, sem virðist hafa verið eins konar pólití fyrir sveitina og leitað var til hans þegar þurfti að koma upp um þjófa. Þessar frásagnir allar eru á sinn hátt dæmi um innviðalaust og þannig séð „frumstætt“ samfélag þar sem fólk er samt að reyna að skilja hlutskipti sitt og líka þeirra sem eru „öðruvísi“. Úr einni frásögn af veikri manneskju verður til dæmis draugasaga.

Spegillinn 3. janúar 2022 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Skólastjórnendur telja óráðlegt að bólusetja börn á skólatíma. Menntamálaráðherra segir að það verði áskorun að halda úti óröskuðu skólahaldi á næstunni og fyrirséð að skólar þurfi að loka. Þrátt fyrir það á að setja skólana að loknu jólafríi á morgun. Björgunarsveitarmenn á Austurlandi hafa frá því í gærkvöld staðið í ströngu við að forða tjóni og flytja heilbrigðisstarfsfólk til og frá vinnu. Norðvestanstormur gekk yfir austanvert landið í dag en nú er farið að lægja. Það er þó enn byljótt undir Vatnajökli. Fyrirhugaðar byggingaframkvæmdir í Spítalabrekkunni á Akureyri valda deilum. Bæjaryfirvöld eru gagnrýnd fyrir að huga hvorki að aurskriðuhættu né menningargildi. Bandarískt tónlistarforlag hefur keypt réttinn að allri tónlist sem David Bowie lét eftir sig. Kaupverðið er talið nema yfir 32 milljörðum króna. Lengri umfjöllun: Starfsdagur var í grunnskólum víðast hvar í dag og skólastjórnendur reyna að ráða fram úr því hvernig skólastarfi verður háttað þegar það hefst á morgun. Fyrirsjáanlega verða erfiðar heimtur á starfsfólki vegna faraldursins; sums staðar er búist við að allt að fimmtungur starfsfólks forfallist vegna smits eða sóttkvíar og eins eru ekki allir foreldrar í rónni með að senda börn sín í skólann. Elínrós Benediktsdóttir skólastjóri Ölduselsskóla í Reykjavík segir þar lagt upp með eins hefðbundið skólastarf og hægt er. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Elínrósu og Arnar Ævarsson framkvæmdastjóra Heimilis og skóla. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, vill að aðilar vinnumarkaðarins nýti næsta ár til þess að hugsa kjaramálin upp á nýtt og setji sér sameiginleg langtímamarkmið um að gera samfélagið betra. Lífskjarasamningar í almennum vinnumarkaði renna út í byrjun nóvember, en á opinberum vinnumarkaði í flestum tilfellum í byrjun mars 2023. Sonja vill nýta tímann fram að því til að hugsa út fyrir boxið. Kristján Sigurjónsson talar við Sonju.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson og Snærós Sindradóttir Nokkuð hefur dregið úr skjálftavirkni á Reykjanesskaga síðustu daga en skjálftahrinan, sem hófst 21. desember, er dempaðari en sú sem varð fyrir gosið í mars. Við ræddum við Fannar Jónasson, bæjarstjóra í Grindavík, um stöðu mála. Alls leituðu sjö fullorðnir karlmenn á bráðamóttöku Landspítalans með áverka eftir að hafa skotið flugeld úr hendinni á sér á gamlárskvöld. Við heyrðum í Hjalta Má Björnssyni, yfirlækni á bráðamóttöku Landspítalans, um gamlárskvöld og álagið á deildinni. Veganúar hófst í dag en þá prófa margir að vera grænkerar í janúar. Við ræddum við Elínu Söndru Skúladóttur, stjórnarformann hjá Krafti, félagi ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein, um heilsufarslegan ávinning grænkerafæðis. Sóttvarnalæknir lagði til í síðasta minnisblaði sínu að fresta skólabyrjun til 10. janúar en ríkisstjórnin var ekki hlynnt því. Grunnskólakennarar eru sérstaklega áhyggjufullir vegna stöðunnar enda eru langflest grunnskólabörn, yngri en tólf ára, með öllu óbólusett fyrir Covid-19 faraldrinum. Hún kom til okkar, Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður grunnskólakennara, og ræddi þessi mál og einnig nýjan kjarasamning kennara. Við heyrðum í Heiðu Björk Sturludóttur en hún býr, ásamt manni sínum, í húsi í Grímsnesi sem skilgreint er sem sumarhús. Það hafði verið draumur hjónanna um langa hríð að flytja í sveit, vera nálægt náttúrunni og anda að sér ferska loftinu, en þau hafa heldur betur rekist á hindranir í kerfinu því samkvæmt lögum og reglum er bannað að hafa fasta búsetu - og þar með lögheimili - í sumarhúsabyggð. Svo voru það íþróttirnar eins og alla mánudaga. Að þessu sinni með Evu Björk Benediktsdóttur. Unnsteinn - Er þetta ást? Japanese breakfast - Be Sweet Svavar Knútur - Hope and Fortune Adele - Hometown Glory Bríet - Sólblóm Supergrass - Alright Laufey Lín - Like the Movies Blur - Girls and Boys Whitney Houston - My love is your love Sváfnir Sig - Stund milli stríða
Ný ríkisstjórn Vinstri grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks var kynnt í gær og stjórnarsáttmáli gefinn út. Tveir nýjir ráðherrar eru í ríkisstjórninni; Willum Þór Þórsson sem verður heilbrigðisráðherra og Jón Gunnarsson sem verður dómsmálaráðherra hálft kjörtímabilið og þá tekur Guðrún Hafsteinsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi við. Jón kom til okkar og ræddi um helstu verkefnin framundan. Íbúar í Hrunamannahreppi hafa verið að lenda í vandræðum með tölvu- og símasamband. Ástæðan er þó ekki tæknilegs eðlis eða veðurfarsleg heldur hefur músagangur herjað á ljósleiðarakerfi í sveitarfélaginu. Við heyrðum í Jóni G. Valdimarssyni, sveitarstjóra, um músafaraldur sem virðist hafa víðtæk áhrif. Hugmyndir Vinstri grænna um miðhálendisþjóðgarð féllu í grýttan jarðveg hjá samstarfsflokkunum á síðasta kjörtímabili, eins og allir þekkja. Við kynningu nýs stjórnarsáttmála í gær kom í ljós að þó unnið verði áfram í átt að verndun á miðhálendinu hafi ríkisstjórnarflokkarnir ákveðið að taka tvö skref afturábak og endurskoða málið á kjörtímabilinu. Við fengum til okkar Árna Finnsson, formann Náttúruverndarsamtaka Íslands, til að segja okkur hvernig málefni hálendisins blasa við honum í upphafi þessa ríkisstjórnarsamstarfs. Upp úr klukkan átta komu fulltrúar stjórnarandstöðunnar í hljóðver, þau Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar og gáfu okkur sín viðbrögð við stjórnarsáttmálanum sem kynntur var af forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar í gær. Það er alltaf skemmtilegt að spá í jólabókaflóðið. Guðrún Sæmundsen, rithöfundur, tekur þátt í flóðinu með sálfræðitryllinum Rósa sem hún gefur út sjálf með aðstoð almennings - en hún fjármagnaði bókina í gegnum karolinafund. Og íþróttir helgarinnar voru á sínum stað. Eva Björk Benediktsdóttir íþróttafréttakona komtil okkar með fulla íþróttatösku af áhugaverðum molum. Tónlist: Bréfbátar - Karl Olgeirtríó Breaking the girl - RHCP Moth to a Flame - Weeknd & Swedish House Mafia You Oughta Know - Alanis Morissette Við gætum reynt - Magni og Ágústa Eva Supersonic Rockets Shits - Kinks Let Somebody Go - Coldplay
TW: Kolbrún Benediktsdóttir er varahéraðssaksóknari hefur vakið athygli fyrir að takast á við erfið og viðkvæm mál í réttarkerfinu og er hún í miklu návígi við skuggalegustu hliðar tilverunnar. Starfið hennar felur meðal annars í sér að horfa á barnaníðsefni til að ákvarða refsingu á vörslu þess. Kolbrún talar um að eftirspurn sé eftir slíku efni og aldur barna sé allt niður í ungabörn með bleyju og hafi hún þurft að horfa á mann hafa endaþarmsmök við 5 ára barn. Það getur setið lengi í manni að horfa á slíkt ofbeldi og segir hún tveir tímar af tetris vera ágætis hreinsun fyrir hugann. Þátturinn er í boði: https://omnom.is/
Nýlega stofnuðu ríkisstjórnir Danmerkur og Kosta Ríka til samvinnuverkefnis sem nefnist Jarðefnaeldsneytislaus framtíð. Aðilar að verkefninu banna leit eftir og vinnslu á nýjum jarðefnaeldsneytisauðlindum. Landvernd hefur fagnað þessu framtaki og hvetur íslensk stjórnvöld til að gerast aðilar að verkefninu. Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdarstjóri Landverndar, kom til okkar og fór nánar yfir málið. Alls fækkaði atvinnulausum að meðaltali um ríflega eitt þúsund á milli júlí og ágúst og hefur ekki verið lægra síðan fyrir Covid. Skráð atvinnuleysi á Íslandi var 5,5% í ágúst og lækkaði úr 6,1% í júlí. Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar kom og fór yfir þetta með okkur ásamt því að hún sagði okkur aðeins af nýrri ársskýrslu en ársfundur stofnunarinnar var á fimmtudaginn. Þjálfun starfsfólks í þjónustufyrirtækjum er gríðarlega mikilvæg enda starfsmaðurinn andlit fyrirtækisins gagnvart viðskiptavininum. Þróun hefur orðið í þjálfun starfsmanna en sýndarveruleikatækni er nú t.d. notuð í að þjálfa samskiptafærni. Þar er starfmaðurinn þjálfaður í viðbrögðum við erfiða viðskiptavini í sýndarveruleika. Margrét Reynisdóttir frá fyrirtækinu Gerum betur, sem býður uppá þessa nýjung, kom til okkar og sagði okkur meira. Innflytjendum hefur fjölgað mikið hér á landi síðastliðna áratugi og nú eru erlendir ríkisborgarar um 14% þjóðarinnar. Þessi hópur er mikilvægur hluti af íslenskum vinnumarkaði og á mörgum vinnustöðum starfar fjöldi innflytjenda. Samkaup er eitt slíkra fyrirtækja, en þar er fjórðungur starfsfólks innflytjendur og hefur fyrirtækið ráðist í átaksverkefni þar sem áhersla er lögð jafnrétti og fræðslu. Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa, og Hallfríður Þórarinsdóttir, sérfræðingur í innflytjendamálum og framkvæmdarstjóri Mirru rannsóknarseturs, sögðu okkur betur frá þessu verkefni, en Hallfríður var fengin til að sjá um fræðslu fyrir starfsfólk Samkaupa. Og í lokin kíktum við á íþróttir helgarinnar með Evu Björk Benediktsdóttur. Tónlist: Ásgeir Trausti - Sunday drive Phil Collins - Against all odds Kacey Musgraves - Space cowboy Ed Sheeran - Bad habits Friðrik Dór - Hvílíkur dagur Flott - Þegar ég verð 36 Spandau Ballet - Gold Bubbi ásamt Bríeti - Ástrós Abba - Don't shut me down
Spegillinn 23. ágúst 2021 Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Heilbrigðisráðherra hefur heimilað sölu á ákveðnum tegundum hrað- og sjálfsprófa. Þeir sem fá jákvæða niðurstöðu úr prófunum þurfa að staðfesta niðurstöðuna með hefðbundnu covid-prófi. Enginn sjúklingur á Landakotsspítala hefur greinst með kórónuveiruna eftir að starfsmaður greindist smitaður á föstudag. Verkefnastjóri farsóttanefndar Landspítala segir mikið hafa verið gert til að forðast aðra hópsýkingu á spítalanum. Rætt við Hildi Helgadóttur, verkefnisstjóra farsóttanefndar Landspítala Bólusetning 12-15 ára barna hófst í Laugardalshöll í dag. Foreldrar og börn sem fréttastofa tók tali segja að kostir og gallar við bólusetningu hafi verið ræddir heima fyrir áður en ákvörðun var tekin. Rætt við Árna Jónsson, föður barns sem var bólusett og Maríu Skúladóttur og Matthildi Freyju Árnadóttur, sem voru bólusettar í dag Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í Mið-Austurlandafræðum segir að yfirtaka Talíbana í Afganistan sé algjör vendipunktur í sögu Mið-Asíu. Gæsaveiðitímabilið hófst um helgina. Ómar Örn jónsson, formaður Skotfélags Akureyrar hvetur veiðimenn til að herja á heiðargæs en gæta hófs í veiðum á grágæs. Glæpahópar færðu starfsemi sína að miklu leyti yfir á netið í kórónuveirufaraldrinum, segir varahéraðssaksóknari og yfirlögregluþjónn segir merki um að brotum gegn börnum hafi fjölgað í faraldrinum. Fjallað verður um verkefni lögreglunnar síðar í Speglinum. Alma Ómarsdóttir, ræðir við Grím Grímsson, yfirlögregluþjón á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Kolbrúnu Benediktsdóttur, varahéraðssaksóknara Varp við Tjörnina í Reykjavík var lélegt í ár eins og undanfarin ár, segir fuglafræðingur sem fylgst hefur með fuglalífinu þar í áratugi. Einungis um þrjátíu ungar komust á legg. Bergljót Baldursdóttir ræðir við Ólaf K Nielsen, fuglafræðing hjá Náttúrufræðistofnun Íslands
„Þótt við förum ekki áfram með málið þá þýðir það ekki að við trúum þér ekki,“ segir Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari, sem meðal annars sér um kynferðisbrotamál hjá embætti héraðssaksóknara. Hún hefur starfað í 16 ár hjá ákæruvaldinu og segir margt hafa breyst undanfarin ár meðal annars vegna gagnrýni á embættið. Nefnir hún sem dæmi að lögð hefur verið vinna í að bæta skýrslutökur því framburður er það sem ákæurvaldið liggur yfir til að meta sönnunarstöðuna og þá hefur þjónusta við brotaþola einnig verið bætt til dæmis með aukinni upplýsingagjöf og reynt að bæta upplifun fólks af kerfinu. Kolbrún tekur undir það að oft séu mál felld niður en gagnrýnir Landsrétt fyrir að lækka refsingar í kynferðisbrotamálum. Í 36. hlaðvarpsþætti Karlmennskunnar rekur Kolbrún Benediktsdóttir ákæruferlið, starfsemi og viðbrögð embættisins við háværri gagnrýni brotaþola og veitir innsýn í starf sitt sem varahéraðssaksóknari. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Intro/outro: ON (instrumental) - Jói P. og Króli Þátturinn er í boði Veganbúðarinnar og var tekinn upp í stúdíó Macland.

Flugfélagið Play fékk í gær flugrekstrarleyfi frá Samgöngustofu. Forstjórinn segir þetta gríðarlega stóran og miklvægan áfanga. Fyrsta leiguvélin verði nú máluð í rauðu Play air litunum og fyrsta flugið er áætlað í lok júní til Lundúna. Tvær aðrar vélar fylgi í kjölfarið. Birgir Jónsson forstjóri Play var á línunni hjá okkur. Arnar Sigurðsson kom til okkar en hann á franska vínbúð á netinu sem er ætluð íslendingum. Hann hefur kært ríkið fyrir að nota heitið vínbúð um starfsemi ÁTVR. Við ræddum við hann um kæruna og netverslunina en í gegnum hana geta íslendingar fengið vín afhent samdægurs án aðkomu ÁTVR. Matröðin sem ekki er talað um, er fyrirsögn greinar sem Egill Páll Egilsson skrifaði í héraðsfréttablaðið Vikublaðið. Hvaða matröð er hann að tala um? Jú íslenska ferðamenn. Við hringdum í Egil Pál, sem starfar hjá Vikublaðinu, og fengum að vita meira. Falasteen Abu Libdeh kom til okkar en hún er frá Palestínu en hefur búið hér á landi frá árinu 1995. Við ræddum við hana um loftárásir Ísraelsmanna á Gasa sem héldu áfram í nótt. Falasteen hélt ræðu á útifundinum um helgina þar sem þess var meðal annars krafist að sett yrði viðskiptabann á Ísrael. og Eva Björk Benediktsdóttir kom til okkar að ræða íþróttir helgarinnar.
Við ræddum við Björn Steinbekk sem tók drónamyndir af eldgosinu á dögunum en þær myndir hafa ratað í fjölmarga miðla um víða veröld, auk þess sem stórleikarinn Will Smith deildi þeim á Instagram síðu sinni. Íslandsstofa segir að minnst hafi verið um 11 þúsund sinnum á gosið í erlendum miðlum, þar af um 1200 sinnum í stórum miðlum. Ofsóknir eru sláandi þættir í umsjón Sunnu Karenar Sigurþórsdóttur þar sem rætt er við konur sem hafa orðið fyrir ofsóknum eltihrella, en úrræðaleysi einkennir aðstöðu kvennanna og dæmi eru um að konur hafi mátt sæta ofsóknum árum saman. Þættirnir fara í loftið strax eftir páska og við heyrðum í Sunnu Karen og fengum að vita meira. Alþjóðahugverkastofnunin gaf nýverið út samantekt yfir útgáfu einkaleyfa á árabilinu 1998-2019, en í henni má m.a. sjá að íslenski stoðtækjaframleiðandinn Össur er í 2. sæti yfir flest einkaleyfi á heimsvísu í flokki almennrar hreyfihjálpartækni. Össur er einnig ofarlega á lista yfir fjölda einkaleyfa í flokki háþróaðra stoðtækja og gönguþjarka, en undir hann falla þrívíddarprentuð stoðtæki, gönguþjarkar og stoðtæki sem stýrt er með hugarafli. Tatjana Latinovic, framkvæmdastjóri hugverkadeildar Össurar, kom til okkar og ræddi vöxtinn í þessum geira og mikilvægi einkaleyfa. Við ræddum við Björn Einarsson, framkvæmdastjóra sölu og viðskiptastýringar hjá Eimskip, um stóra flutningaskipið Ever Given sem strandaði í Sues skurðinum og teppir þar alla skipaumferð en áhrifin af strandinu eru gríðarmikil og óvíst hversu langan tíma tekur að opna alveg fyrir umferð um skurðinn þó nú hafi eitthvað tekist að losa um skipið. Við tókum svo stöðuna á okkar fólki ytra eftir landsleiki gærdagsins og heyrðum hljóðið í íþróttafréttamönnunum Evu Björk Benediktsdóttur í Ungverjalandi og Hauki Harðarsyni í Armeníu. Tónlist: Friðrik Dór - Segðu mér. Moses Hightower - Stundum. Dusty Springfield - Son of a preacher man. Celeste - Love is back. Lay Low - By and by. No doubt - Dont speak. Kacey Musgraves - High horse. Stuðmenn - Eins og áður var. Billy Joel - Its still rock and roll to me. Zara Larsson - Talk about love. Dua Lipa - Were good.