POPULARITY
Nokkuð óvænt tilkynning Bjarna Benediktssonar um miðjan dag um að hann ætlaði ekki að taka sæti á þingi og gæfi ekki kost á sér í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins verður viðfangsefni þáttarins og rætt verður við þær Evu H. Önnudóttur prófessor og Jóhönnu Vigdís Hjaltadóttur fréttamann. Þingmönnum sjálfstæðisflokksins flokksins var brugðið þegar Bjarni sagði þeim frá ákvörðun sinni í dag, líklega er leitun að stjórnmálamanni sem hefur verið jafn umtalaður síðustu ár og áratugi.
Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu ágreiningsefni innan danska ríkissambandsins. Færeyingar vilja sjálfstæða aðild að WTO, Alþjóðaviðskiptastofnuninni. Grænlendingar vilja að Grænlendingur verði skipaður í nýtt embætti norðurslóðasendiherra. Nokkuð varð ágengt til að leysa þennan ágreining á fundi leiðtoga landanna í vikunni. Þá ræddu þau erfiðleika norsku konungsfjölskyldunnar þar sem Marius Borg Høiby, stjúpsonur krónprinsins, hefur verið ákærður fyrir heimilisofbeldi og fíkniefnaneyslu. Þá eru Norðmenn óhressir með að gerður var samningur við Netflix og kjaftablaðið Hello um einkarétt á öllu myndefni frá brúðkaupi Mörtu Lovísu prinsessu sem ætlar að giftast Durek Verret á laugardag. Verret er Bandaríkjamaður sem lýsir sér sem sjaman, töfralækni eða seiðskratta. Í lokin var svo örstutt rætt um að nokkrir danskir menntaskólar hafa ákveðið að nemendur megi ekki lengur skrifa glósur í tölvur, þeir eigi að handskrifa þær á pappír. Sérfræðingur segir að fólk muni betur hluti sem það skrifar á blað.
Nýlega fór í dreifingu fölsuð upptaka af borgarstjóra Lundúna sem olli talsverðu uppnámi. Þar heyrðist rödd hans tala um að göngur mótmælenda sem eru hliðhollir málstað Palestínu, sem fyrirhugaðar voru á minningardegi um lok fyrri heimsstyrjaldarinnar, ættu að njóta forgangs umfram aðra viðburði. Hann réði yfir lögreglunni í Lundúnum og hún gerði eins og hann skipaði. En borgarstjórinn sagði þetta aldrei og engin leynileg upptaka hafði verið gerð. Rödd borgarstjórans hafði verið fölsuð með gervigreind. Nokkuð sem er að verða æ algengara, auðveldara og raunverulegra. Það má telja líklegt að slíkar falsanir á hljóði, myndum og jafnvel myndskeiðum verði mjög áberandi nú þegar styttist í forsetakosningar í Bandaríkjunum. Við ætlum að ræða þetta við Hjálmar Gíslason framkvæmdastjóra Grid og áhugamann um þróun gervigreindar. Litlu plastöskjurnar utan um smjör eða sultu, pínulitlir hótelsjampóbrúsar, falskir botnar - innan skamms verður þetta allt bannað - það er þegar ný umbúðareglugerð Evrópusambandsins - sem nú er langt komin - verður að veruleika. Við ætlum að ræða við Birgittu Stefánsdóttur, sérfræðing í teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfisstofnun um framtíð plastumbúða, hvort hér verði settar upp flöskuþvottastöðvar og um sykurreyrsboxin sem eiginlega bara hurfu.
Heɗiyannkooɓe Rfi Fulfulde on salminaama. En yewtay hannde fii jannde fayɓe doguɓe hare. Fii yewtugol e dow ndee toɓɓere hiɗen jaɓɓii Haajiratu JALLO hooreejo fedde wallitotoonde fayɓe doguɓe hare no janngira wi'eteende "Jam warta" wonuɗo ka diiwal Weyguya, Burkina Faso. Fahin fii mun en yewtiday e Tijjaan Aamadu YATTAYE hooreejo fedde mawɓe lekolɓe wuro Sokura jeyaango Mopti ka wuddu Mali. Nokku ka lekolɓe ɗuuɗuɓe doguɓe fitinaaji fattoyii. En jonnay kadi konngol woɓɓe e heɗiyannkooɓe men. Ka tinminngol oo taskaram men hannde ka koɗo men jannginoowo on koTaahiru SIISE jannginoowo ka duɗe ɗe monaa laamuyannkooje Mali. En yewtiday e makko fii dartinngol jannde nden e ɗee duɗe ɗe humondiraa e laamu. Ummu BAH
Ólafur Örn Haraldsson, fyrrverandi forseti Ferðafélags Íslands, hefur komið annað slagið á Morgunvaktina í sumar og sagt frá áhugaverðum stöðum og svæðum á hálendi Íslands. Að þessu sinni sagði hann frá Friðlandinu að Fjallabaki. Þar er fjölbreytt landslag og mikil náttúrufegurð. Ólafi finnst skjóta skökku við að á sama tíma og svæðið hefur tilnefnt á Heimsminjaskrá UNESCO séu þar áform um húsbyggingar. Enn er flóðahætta í Noregi eftir úrhellisrigningar í síðustu viku. Herdís Sigurgrímsdóttir sem býr í Stavanger sagði frá flóðunum og afleiðingum þeirra og þeim verkefnum sem Norðmenn standa nú frammi fyrir. Nokkuð hefur verið fjallað um losunarheimildir síðustu daga vegna innleiðingar kvótakerfis í skipaflutningum. Daníel Arnar Magnússon, lögfræðingur hjá Umhverfisstofnun, sagði frá hugmyndafræðinni á bak við slík kerfi og virkni þeirra. Tónlist: Ain?t too proud to beg - The Temptations, Sittin? on the doc of the bay - Otis Redding, Reach out I?ll be there - Four tops. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Tólf dagar eru í Íslandsmót og var Keflavík dag spáð 10. sætinu í sumar. Til þess að ræða málefni Keflavíkur voru þeir Frans Elvarsson, reynslumesti leikmaður liðsins og stuðningsmaðurinn Joey Drummer. Leikmanna- og stuðningsmannavinkilinn tekinn, breytingarnar á hópnum, markmiðin í sumar, væntingarnar og ýmislegt annað. Frans flutti á menntaskólaaldri til Njarðvíkur frá Hornafirði á sínum tíma. Hann segir frá því og ákvörðuninni að fara í Keflavík í kjölfarið.
Spegillinn 11. janúar 2023 Umsjónamaður: Hafdís Helga Helgadóttir Tæknimaður: Mark Eldred Atvinnurekendur geta gripið til verkbanns, að senda launalaust fólk heim, til að bregðast við verkföllum. Framkvæmdastjóri Kynnisferða segist styðja verkbann ákveði Samtök atvinnulífsins að fara þá leið. Flóttafólk hefur nú þegar komið sér fyrir í húsi sem Grindarvíkurbær segir Vinnumálastofnun hafa leigt undir fólkið í leyfisleysi. Grindavíkurbær og Vinnumálastofnun greinir á um heimild stofnunarinnar að hýsa flóttamenn á hóteli í bænum. Loftmengun í Reykjavík er nú yfir heilsuverndarmörkum. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að áfram sé gert ráð fyrir slæmum loftgæðum. Pakkaferðir á heimsmeistaramótið í handbolta hafa rokselst. Gríðarlegur áhugi er á íslenska karlalandsliðinu, sem leikur sinn fyrsta leik á mótinu gegn Portúgal á morgun. 120 ferðamenn voru lagðir inn á sjúkrahúsið á akureyri á síðasta ári. Sjúkrahúsið hefur aldrei sinnt eins mörgum erlendum ferðamönnum og á nýliðnu ári. Snjóflóðaratsjá Veðurstofunnar á Flateyri nam allstórt flóð sem féll í Miðhryggsgili, innan við Flateyri, í gærkvöld. Flóðið stöðvaðist um fjörutíu metra ofan við veg. Lögregla í Brasilíu hefur aukið viðbúnað eftir að fylgismenn Jairs Bolsonaro Brasilíuforseta boðuðu til mótmæla í helstu borgum landsins á morgun. ------------------------------------------------------- Staðan í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins er þröng eftir að Efling sleit viðræðum í gær. Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, vinnumarkaðsfræðingur og dósent við Háskóla Íslands veltir fyrir sér hvort æskilegt væri að sáttasemjari hefði heimild til að fresta verkfalli í stað þess að Alþingi gripi inn í vinnudeilur með lagasetningu. Reglur um verkfallsboðun eru skýrar. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Gylfa Dalmann Aðalsteinsson. Vandi Landspítalans og bráðamóttökunnar hefur varla farið fram hjá nokkrum manni. Hvorki að undanförnu né undanfarin ár, jafnvel áratugi. Líkt og vandamálið sjálft, er lausnin auðsjáanleg. Nokkuð sem tíðrætt hefur verið um í áraraðir. Það er yfirfull nýting á leguplássum spítalans vegna fráflæðisvanda eða útskriftarvanda aldraðra. Eldra fólk sem kemur til aðhlynningar á spítalann en kemst ekki þaðan út, jafnvel svo mánuðum skiptir, vegna skorts á úrræðum fyrir þau. Öldruðum kemur til með að fjölga hratt á næstu áratugum. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra um stöðuna. Evrópusambandið og Atlantshafsbandalagið ætla að stofna sérsveit sem ætlað er að koma í veg fyrir að skemmdir verði unnar

Skyndilegur missir ástvina getur haft mikil og langvarandi áhrif á þau sem eftir standa en rætt verður um sorgarviðbrögð og óvæntan missi á ráðstefnu sem fer fram í dag í húsakynnum íslenskrar erfðagreiningar. Þau komu til að segja okkur frá viðfangsefnum sorgarinnar, Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir fagstjóri hjá Sorgarmiðstöðinni og Freyr Eyjólfsson fjölmiðlamaður sem verður fundarstjóri á ráðstefnunni. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram tillögu um að gripið verði til aðgerða til að koma böndum á máva í borginni. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem fór fyrir tillögunni, sagði í kvöldfréttum að mávurinn hafi slæm áhrif á dýralífið í miðborginni - en það eru ekki öll sammála um hvernig eigi að nálgast þetta mál. Við ræddum við Kjartan og Alexöndru Briem, sem fer fyrir skipulags- og samgönguráði borginnar. Stjórn Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri ákvað á dögunum að frysta leiguverð á stúdentaíbúðum og herbergjum og koma þannig til móts við stúdenta. Félagsstofnun Stúdenta við Háskóla Íslands ætlar hins vegar ekki að frysta leiguverðið. Við ræddum við Guðrúnu Björnsdóttur, framkvæmdastjóra FS, um þá ákvörðun. Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra var gestur okkar upp úr klukkan átta í dag til að svara fyrir þær ráðningar og skipanir sem hún hefur ráðist í að undanförnu og sæta nú mikilli gagnrýni. Nokkuð hefur verið rætt um áhrif þeirra efnahags- og viðskiptaþvingana sem beinast að Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu síðustu vikur. Verðbólga í Rússlandi hefur hjaðnað undanfarna mánuði og gengu rússnesku rúblunnar styrktist verulega í sumar - sem er þó vitaskuld bæði gott og slæmt. Sömuleiðis virðast hinar svokölluðu BRICS-þjóðir, Brasilía, Rússland, Indland, Kína og Suður-Afríka ætla að standa nokkuð þétt saman efnahagslega séð. Við ræddum efnahagsmálin við Daða Má Kristófersson, prófessor í hagfræði. Nýjustu rannsóknir á hopun Grænlandsjökuls bæta gráu ofan á svart við þá sviðsmynd sem áður var talið að rætast myndi úr. Nú segja vísindamenn að bráðnun jökulsins muni óhjákvæmilega hækka sjávarmál um 30 sentimetra - að öllum líkindum fyrir næstu aldamót. Við ræddum þessa spá við Andra Gunnarsson formann jöklarannsóknafélags Íslands.

Morgunblaðið fjallaði í gær um hugmyndir um að styrkja Alexandersvöll á Sauðárkróki svo hann geti verið til vara fyrir millilandaflugið. Nokkuð hefur verið rætt um að eldgos á Reykjanesskaga sethi hugmyndir um flugvöll í Hvassahrauni í uppnám. Við ræddum við Sigfús Inga Sigfússon, sveitarstjóra í Skagafirði, um kosti og galla Alexandersvallar. Um hálf átta ræddum við við Gylfa Magnússon, prófessor í viðskiptafræði, um kosti og galla vegtolla og aðrar leiðir til að fjármagna rekstur vegakerfisins, en hann fjallar um málið í nýjasta tölublaði Vísbendingar. Í grein sinni segir hann meðal annars að líklega væri hægt að eyða flestum umferðarhnútum á höfuðborgarsvæðinu með skynsamlegri verðlagningu. Hún gæti bæði fært umferð einkabíla til í tíma og rúmi og búið til eðlilega hvata til að nota aðrar samgönguleiðir þar sem það er samfélagslega hagkvæmt. Í gær ræddum við hvernig skólar og vinnustaðir eða önnur lítil samfélög geta brugðist við þegar kynferðisbrot kemur upp innan hópsins - en málefni fjölbrautarskólans á suðurlandi hafa verið mikið í deiglunni frá því um helgina. Þar kom fram að mikilvægt væri að stofnanir hefðu skýra aðgerðaáætlun gegn kynferðisofbeldi, ekki plagg sem er allt loðið varðandi orðalagið, heldur skýra áætlun og verkferla sem virkuðu. Við ræddum þetta enn frekar í dag við þær Eygló Harðardóttur verkefnastjóra aðgerða gegn ofbeldi hjá Ríkislögreglustjóra og Benediktu Sörensen skólastjóra Ofbeldisforvarnaskólans. Flokksráð Vinstri grænna setti veiðigjöldin aftur á dagskrá um nýliðna helgi en flokksfólk í VG vill hækka veiðigjöldin. Þetta sætir ákveðnum tíðindum í núverandi ríkisstjórn VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar - og setur eflaust aukinn þrýsting á Svandísi Svavarsdóttur sem er ráðherra málaflokksins um þessar mundir. Við fengum til okkar tvær þingkonur úr atvinnuveganefnd Alþingis til að ræða veiðigjöldin; þær Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur þingkonu VG og Hönnu Katrínu Friðriksson frá Viðreisn. Bestu köldu pottar höfuðborgarsvæðisins voru afhjúpaðir í kvöldfréttum Stöðvar 2 á sunnudaginn, eftir að niðurstöður lágu fyrir í óformlegri könnun fréttastofunnar. Kristín Ólafsdóttir, fréttakona og sundspekingur, heimsótti besta - og versta - kalda pottinn en hún hafði áður kortlagt heitustu heitu pottana. Við ræddum niðurstöðurnar við Kristínu og áhrif þeirra köldu á líkamlega og andlega heilsu. Guðmundur Jóhannsson, tæknispekúlant, kom til okkar í lok þáttar, eins og alltaf annan hvern þriðjudag og ræddi heim tækninnar.

Nokkuð hefur verið deilt um fyrirhugaðan vindorkugarð að Brekku í Hvalfjarðarsveit. Heilbrigðiseftirlit Vesturlands telur það mikla áskorun að ná sátt um byggingu vindorkuvers í svo lítilli fjarlægð frá sumarhúsum og lögbýlum og Skúli Mogensen, eigandi sjóbaðanna í Hvammsvík, að áformin einkennast af ?einhvers konar firringu?. Við ræddum við Andreu Ýr Arnarsdóttur, oddvita sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar - en sveitarstjórnin hefur ekki tekið afstöðu til málsins. Brauðtertur skipa sérstakan sess á veisluborðum Íslendinga og þar skipta ekki bara bragðgæðin máli, ekki er síður mikilvægt að skreyta terturnar vel. Nú stendur yfir brauðtertukeppni með eldgosaþema hjá Brauðtertufélagi Erlu og Erlu og Hulda Geirsdóttir ræddi við aðra Erluna, Erlu Hlynsdóttur, sem sagði okkur betur frá. Við ræddum við Arnar Eggert Thoroddsen, aðjúnkt í félagsfræði við Háskóla Íslands, um áhrifavaldinn Andrew Tate, sem ýtt hefur undir ofbeldi og hatursorðræðu á samfélagsmiðlinum Tik tok og víðar. Nafn hans hefur verið slegið oftar upp í leitarvél Google en nöfn Kim Kardashian og Donald Trump til samans í síðasta mánuði. Forsætisráðherrar Norðurlandanna hittust í gær og ræddu meðal annars sameiginleg varnarmál og orkumál í Evrópu. Það eru uppi að minnsta kosti tvö sjónarmið hér á landi um hvort Ísland eigi að leggja rafstreng til Evrópu og selja þangað græna orku en okkur hér í Morgunútvarpinu leikur hugur á að vita hvort stríðið í Evrópu breyti siðferðislegum skyldum landsins að einhverju leyti í þeim efnum. Henry Alexander Henrysson doktor í heimspeki kíkir til okkar í þessar vangaveltur. Rithöfundurinn Salman Rushdie var stunginn á sviði í New York ríki á fimmtudag en um tíma leit ástand hans ekki vel út. Það eru rúm þrjátíu ár síðan kveðinn var upp dauðadómur í Íran yfir rithöfundinum og öllum þeim sem kæmu að útbreiðslu bókarinnar Söngvar Satans. Halldór Guðmundsson rithöfundur og þá útgefandi gaf þessa bók út á íslensku og hitti Rushdie fyrir aldarfjórðung af því tilefni að norskur útgefandi bóka hans hafði þá sloppið naumlega undan banatilræði vegna bókarinnar. Guðmundur Jóhannsson, tæknispekúlant, kom til okkar í lok þáttar, eins og alltaf annan hvern þriðjudag. Tónlist: Blisters in the sun - Violent Femmes Happy Hours - The Housemartins What a Life - Scarlet Pleasure No one dies from love - Tove Lo Lúser - Unnsteinn Upside Down - Diana Ross Poki - Birgir Hansen Elsku vinur - Kusk og Óviti Murder on the Dancefloor - Sophie Ellis Bextor Late night talking - Harry Styles

Milljarðamæringurinn Elon Musk sagði í síðustu viku að efnahagskreppa væri í vændum, en það væri af hinu góða því peningum hafi rignt yfir vitleysinga í of langan tíma. Ýmsar hagtölur eru áhugaverðar þessa dagana og við ræddum efnahagsmálin við Hafstein Hauksson, greinanda hjá Kvikubanka í Lundúnum, en hann hefur fylgst með þróuninni þar og annars staðar. Mikil umræða hefur skapast um grein Stundarinnar þar sem dregin eru í efa gæði þeirrar læknismeðferðar sem trans börnum og ungmennum býðst hér á landi. Greinin hefur meðal annars verið gagnrýnd fyrir vísun í óáreiðanleg vísindi og viðmælendaval sem endurspeglar ekki færustu sérfræðinga landsins í málefnum trans barna. Einn andmælenda greinarinnar er Sigríður Birna Valsdóttir ráðgjafi hjá Samtökunum 78 og hún var gestur okkar. Tæplega 200 manns eru á lista stoðdeildar ríkislögreglustjóra yfir fólk sem á að vísa úr landi. Þar af eiga 44 að fara til Grikklands, en flóttabörnum sem vísað er til Grikklands bíður líf sem er engu barni bjóðandi, samkvæmt nýrri skýrslu Rauða kross Íslands. Íris Ellenberger, sagnfræðingur og dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, hefur rannsakað fólksflutninga í gegnum tíðina, og við ræddum við hana um söguna í þessu samhengi. Vinnuvika yfir 3000 starfsmanna í 60 fyrirtækjum í Bretlandi styttist úr fimm í fjóra daga í næsta mánuði. Fyrirtækin taka þátt í tilraunaverkefni næstu sex mánuði en sambærilegar tilraunir hafa til að mynda verið gerðar hér á landi og víðar. Íslendingar hafa í gegnum tíðina unnið mun lengri vinnudag en þær þjóðir sem við berum okkur saman við, en samið var um styttingu vinnuvikunnar í mörgum kjarasamningum árið 2020. Nokkuð hefur hins vegar verið deilt um hvernig til hefur tekist að stytta vinnuvikuna hér á landi og við ræddum þau mál við Sonju Ýri Þorbergsdóttur, formann BSRB. Við höfum verið dugleg að fjalla um alls kyns göngur á hálendinu, en það er nú líka þannig að sum kjósa að ferðast um óbyggðir akandi. Nýlega kom út uppfærð útgáfa Hálendishandbókarinnar sem hefur um árabil reynst góður ferðafélagi þeirra sem ferðast um hálendið. Við fengum höfundinn Pál Ásgeir Ásgeirsson til okkarGunnar Birgisson íþróttafréttamaður leit við og fór yfir það helsta af íþróttum helgarinnar. Tónlist: Guðmundur R. - Finnum út úr því. Michael Kiwanuka - One more night. Helena Eyjólfsdóttir - Reykur. Purple Disco Machine - In the dark. Moses Hightower og Prins Póló - Maðkur í mysunni. First Aid Kit - My silver lining. Creedence Clearwater Revival - Have you ever seen the rain. John Grant - Pale Green Ghosts.

Margir vinna í opnum vinnurýmum og nú standa fyrir dyrum breytingar í Háskóla Íslands sem miða að því að opna vinnurými háskólaprófessora. Þessu hafa prófessorarnir mótmælt harðlega og vísa til mikilvægis akademísks frelsis auk þess sem þeir hafa oft á tíðum viðkvæm gögn um nemendur á skrifborðum sínum. Rúnar Vilhjálmsson Formaður félags prófessora við ríkisháskóla, kom til okkar. Stjúpsamfélagið varð til árið 2021 og er fallegt og hvetjandi samfélag á samfélagsmiðlum sem snýst um hugleiðingar, hvatningu og fróðleik um stjúpfjölskyldu formið og fjölskyldu formið almennt. Kristjana Jenný Ingvarsdóttir er konan á bak við samfélagið og við fengum hana til okkar og fræddumst um áskoranir og tækifæri stjúpsamfélagsins. Morgunblaðið greindi frá því í vikunni að kanadíska námuvinnslufyrirtækið AEX Gold hefði fundið mikið magn gulls eftir tilraunaboranir á Grænlandi í fyrra. Við ræddum við Eld Ólafsson, sem stofnaði og stýrir félaginu, um gullgröft og fyrirhugaðar framkvæmdir. Ríkissaksóknari Úkraínu segir að rannsókn standi yfir á hátt í sex þúsund atvikum sem flokkast geti sem stríðsglæpir af hálfu Rússa. Rannsóknin beinist meðal annars að framferði þeirra í Bucha og byggist á lögum um framferði í stríði. Við töluðum við Þórdísi Ingadóttur, prófessor við lögfræðideild Háskólans í Reykjavík, um hvar mörkin liggja og hvaða afleiðingar stríðsglæpir geta haft. Skátaþing fór fram um síðustu helgi á Bifröst. Þar var Harpa Ósk Valgeirsdóttir kjörinn nýr skátahöfðingi og við fengum hana til okkar í spjall um skátahreyfinguna á Íslandi, áherslur starfsins og útbreiðslu. Nokkuð hefur verið rætt um rafmynt á undanförnum vikum, bæði vegna stríðsins í Úkraínu og mikillar verðbólgu, en einnig vegna umfjöllunar um orkunýtingu hér á landi. Við ræddum við Kjartan Ragnars hjá Myntkaupum um stöðu og framtíð þessa ósýnilega orkufreka gjaldmiðils. Tónlist: Jón Jónsson - Lengi lifum við. Guðmundur Pétursson - Stay the ride. Dire Straits - Walk of life. Margrét Rúnars - Mömmuhjarta. Eiríkur Hauksson - Gull. Birgir Steinn - Hold on. Alicia Keys - Superwoman. Flott - Flott.

Spegillinn 1. apríl 2022 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Rauði krossinn frestaði í dag að bjarga fólki úr umsetnu hafnarborginni Mariupol. Ekki tókst að komast til borgarinnar enda öryggi ekki nægilega tryggt. Heilbrigðisráðherra hefur endurvakið starfshóp um öryggi sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks. Starfsfólk fæðingarþjónustu Landspítala ætlar að læra af frásögnum kvenna sem í vikunni hafa lýst mistökum í heilbrigðiskerfinu. Varnir sjóleiða og mikilvægra öryggisinnviða við Ísland verða æfðar næstu tvær vikur. Varnaræfingin Norður Víkingur hefst á morgun með þátttöku ríflega 700 manns frá fimm NATÓ ríkjum Rússneskar steikur, pizzuberar og heimsendingar á hestbaki vöktu athygli landsmanna í dag, fyrsta apríl. Ætla má að allnokkrir Íslendingar hafi hlaupið apríl. Eftir langvinna og mannskæða borgarastyrjöld hafa stríðandi fylkingar í Jemen sammælst um vopnahlé að undirlagi Sameinuðu þjóðanna. Lengri umfjöllun: Nú eru um 560 flóttamenn frá Úkraínu komnir hingað til lands. Rúmlega 300 manns eru hér í leit að skjóli frá öðrum löndum. Það gengur nokkuð vel að finna þessu fólki dvalarstað hér á landi, en um 1.800 íbúðir hafa verið boðnar fram til skamms tíma og um 200 til lengri tíma. Bólusetningastaða í Úkraínu er allt önnur en hér á landi, ekki aðeins gagnvart covid-19, heldur einnig gagnvart öðrum smitsjúkdómum eins og berklum. Nokkuð minna er af börnum í hópi flóttamanna en áætlanir gerðu ráð fyrir. Af 560 manns eru þau um 150, en þeim sem koma þarf að koma í skóla. Þar þarf að mæta börnunum þar sem þau eru, og bjóða þeim nám við hæfi. Nú þegar hafa um 26 sveitarfélög veitt vilyrði fyrir að taka á móti fólki á næstu vikum. Á mánudaginn verður móttökumiðstöð fyrir flóttafólk í Domus medica við Snorrabraut í Reykjavík tekin í notkun. Þar á fólk að geta skráð sig og fengið dvalarleyfi og önnur réttindi. Bjarni Rúnarsson ræddi í dag við Gylfa Þór Þorsteinsson, aðgerðastjóra yfir móttöku flóttafólks um gang móttökunnar. Blaðamannadagurinn er í dag. Fjölmiðlar margir hverjir opnuðu dyr fyrir almenningi og kynntu starfsemi sína. Nú stendur yfir athöfn þar sem Blaðamannaverðlaunin fyrir 2021 eru afhent. Kristján Sigurjónsson ræðir við Friðrik Þór Guðmundsson, margreindan blaðamann og stundakennara í blaða og fréttamennsku við Háskóla Íslands.

Í þætti dagsins tökum við fyrir tvö skemmtileg fyrirtæki að vanda. Eldum rétt hafa verið í gríðarlegum vaxtafasa undanfarið en þó var það ekkert hægðarverk fyrir eigendur að koma fyrirtækinu á réttan kjöl. Te og Kaffi hafa átt erfið rekstrarár undanfarið en árið 2020 var þeim gjöfult í ljósi óvenju lágs launakostnaðar. Farið eru um víðan völl og m.a. nýjar kennitölur kynntar til leiks. Heyrst hefur að Prófnefnd viðurkenndra bókara sé í áfalli eftir að þriðja skammtímagreiðsluhæfiskennitalan var kynnt til leiks. Nokkuð þétt hjá Eldum rétt og enginn í straffi hjá Te og kaffi!Eldum rétt - 6:08Te og kaffi - 30:27
Undanfarna daga hafa Ingólfur Bjarni Sigfússon fréttamaður og Ingvar Haukur Guðmundsson tökumaður flutt fréttir fyrir ríkisútvarpið frá Úkraínu. Fréttir þeirra hafa vakið mikla athygli, fyrst þegar Ingólfur Bjarni varð klökkur í beinni útsendingu daginn sem innrásin hófst, þegar hann lýsti viðbrögðum venjulegs fólks sem þeir hittu í höfuðborginni. Síðan þá hafa reglulega birst innslög frá þeim félögum, fyrst frá Kænugarði og síðan eftir að ástandið versnaði þar, úr bílalest á þjóðveginum frá borginni, og síðan frá landamærunum þar sem fjöldi Úkraínumanna reynir að komast úr landi. Nokkuð hefur borið á gagnrýni á samfélagsmiðlum að í stað þess að varpa ljósi á ástandið, beina myndavélunum að umhverfinu og hljóðnemanum að heimafólki, hafi bjarmalönds fréttamannanna sjálfra verið helsta umfjöllunarefnið. Við ræðum við Þóru Arnórsdóttur um stríðsfréttaritun og sjálfhverfa fréttamennsku. Við ræðum við Tönju Björk Ómarsdóttur leikkonu sem leikur íslensku kappaksturskonuna Aðalbjörgu í kvikmyndinni Vélarniður, Les Bruit des Moteurs, sem var lokamynd Franskrar kvikmyndahátíðar í Bíó Paradís. Tanja er tilnefnd til Kanadísku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunanna fyrir leik sinn í myndinni. Og við heyrum pistil frá Sölva Halldórssyni um þá frómu list að bíða.

Nokkuð hefur verið deilt um fyrirhugað laxasláturhús á Vestfjörðum og staðsetningu þess. Við ræddum við Nanný Örnu Guðmundsdóttur, bæjarfulltrúa í Ísafjarðarbæ, sem segir að það verði samkeppni milli sveitarfélaga á svæðinu um staðsetningu sláturhúsa á meðan lagaramminn er þannig að gjaldtaka er í formi aflagjalda sem sé í raun gjaldtaka sniðin að hefðbundnum sjávarútvegi. Rekstrarumhverfi veitingahúsa hefur verið erfitt á síðustu tveimur árum þar sem samkomutakmarkanir og skertur afgreiðslutími hafa hamlað rekstrinum verulega. Við ræddum við Þorgeir Helgason, framkvæmdastjóra 27 mathús og bar, en hann segir viðspyrnustyrk stjórnvalda sama marki brenndur og fyrri úrræði ríkisstjórnarinnar. Á meðan eldri veitingahús fá styrki greidda miðað við tekjur sem þau höfðu árið 2019 þurfi ný veitingahús að reikna út meðaltekjur á lamandi veirutímum og bera þær saman við tekjur á lamandi veirutímum. Samkvæmt nýlegri úttekt Morgunblaðsins mun störfum hér á landi fjölga um 15 þúsund á næstu fjórum árum en íbúum á vinnualdri fjölgar hins vegar einungis um þrjú þúsund. Við ræddum þessa þróun við Hannes G. Sigurðsson, hagfræðing hjá Samtökum atvinnulífsins. Björgunarsveitin Ernir í Bolungarvík stóð í stórræðum í gærkvöldi þegar loksins sást til tíkarinnar Pílu á hárri fjallasyllu í Traðarhyrnu en hún hafði verið týnd síðan 6. janúar. Við hringdum vestur í Birgi Loft Bjarnason formann Björgunarsveitarinnar Ernis sem tók þátt í þessari miklu aðgerð. Bandaríkjaher hefur aukið verulega hernaðarumsvif sín á Keflavíkurflugvelli undanfarin misseri en í Fréttablaðinu í gær var fullyrt að herinn væri að byggja upp aðstöðu sína á vellinum frá grunni eftir að hann yfirgaf landið, amk að nafninu til, árið 2006. Stefán Pálsson sagnfræðingur og fyrrverandi formaður Samtaka Hernaðarandstæðinga ræddi þessi mál fyrir okkur. Móðir á Ísafirði, Harpa Henrysdóttir, er ráðþrota vegna þess að þrettán ára sonur hennar sem glímir við gríðarlega vanlíðan og hefur ítrekað reynt sjálfsvíg, kemst ekki að á Barna og unglingageðdeild vegna langra biðlista. Líklega verður biðin eftir meðferðarinnlögn hans allt að því tólf mánuðir til viðbótar. Við ræddum við Hörpu. Það lítur út fyrir að við gætum farið að upplifa afléttingar á sóttvarnartakmörkunum hvað úr hverju. Flest erum við farin að hlakka til að gera eitthvað skemmtilegt en þó er það svo að sporin geta verið þung út í gleðina á ný og margir sem við höfum rætt við finna fyrir tregðu til að skella sér af stað. Hálfgerða leti í raun og veru. Gestur Pálmason markþjálfi veit eitt og annað um öryggissvæðið

Umsjón: Ingvar Þór Björnsson og Snærós Sindradóttir Nokkuð hefur dregið úr skjálftavirkni á Reykjanesskaga síðustu daga en skjálftahrinan, sem hófst 21. desember, er dempaðari en sú sem varð fyrir gosið í mars. Við ræddum við Fannar Jónasson, bæjarstjóra í Grindavík, um stöðu mála. Alls leituðu sjö fullorðnir karlmenn á bráðamóttöku Landspítalans með áverka eftir að hafa skotið flugeld úr hendinni á sér á gamlárskvöld. Við heyrðum í Hjalta Má Björnssyni, yfirlækni á bráðamóttöku Landspítalans, um gamlárskvöld og álagið á deildinni. Veganúar hófst í dag en þá prófa margir að vera grænkerar í janúar. Við ræddum við Elínu Söndru Skúladóttur, stjórnarformann hjá Krafti, félagi ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein, um heilsufarslegan ávinning grænkerafæðis. Sóttvarnalæknir lagði til í síðasta minnisblaði sínu að fresta skólabyrjun til 10. janúar en ríkisstjórnin var ekki hlynnt því. Grunnskólakennarar eru sérstaklega áhyggjufullir vegna stöðunnar enda eru langflest grunnskólabörn, yngri en tólf ára, með öllu óbólusett fyrir Covid-19 faraldrinum. Hún kom til okkar, Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður grunnskólakennara, og ræddi þessi mál og einnig nýjan kjarasamning kennara. Við heyrðum í Heiðu Björk Sturludóttur en hún býr, ásamt manni sínum, í húsi í Grímsnesi sem skilgreint er sem sumarhús. Það hafði verið draumur hjónanna um langa hríð að flytja í sveit, vera nálægt náttúrunni og anda að sér ferska loftinu, en þau hafa heldur betur rekist á hindranir í kerfinu því samkvæmt lögum og reglum er bannað að hafa fasta búsetu - og þar með lögheimili - í sumarhúsabyggð. Svo voru það íþróttirnar eins og alla mánudaga. Að þessu sinni með Evu Björk Benediktsdóttur. Unnsteinn - Er þetta ást? Japanese breakfast - Be Sweet Svavar Knútur - Hope and Fortune Adele - Hometown Glory Bríet - Sólblóm Supergrass - Alright Laufey Lín - Like the Movies Blur - Girls and Boys Whitney Houston - My love is your love Sváfnir Sig - Stund milli stríða
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson & Rúnar Róbertsson Kórónuveirutilfellum fjölgar og hertar takmarkanir hafa tekið gildi innanlands. Ekki hefur hins vegar verið lokað fyrir heimsóknir á dvalar- og hjúkrunarheimili og ættu jólin þar að vera tiltölulega hefðbundin. Við heyrðum í Gunni Helgadóttur, framkvæmdastjóra heilbrigðissviðs Hrafnistu, um stöðuna þar, reglur um heimsóknir og jólahaldið. Samkvæmt nýjum sóttvarnareglum sem tóku gildi á miðnætti mega mest 50 koma saman á sitjandi viðburðum, og það á meðal annars við athafnir trú- og lífsskoðunarfélaga. Við hringdum í Davíð Þór Jónsson, prest í Laugarneskirkju, um messuhaldið sem verður líklega með breyttu sniði um jólin. Hefð er fyrir því að borgarbúar fjölmenni í miðborgina á Þorláksmessukvöldi. Borgin hefur lokað fleiri götum en venjulega til þess að taka á móti fjöldanum. Við heyrðum í Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra, og tókum stöðuna. Við ræddum einnig við hann um borgarpólitíkina. Nokkuð hefur verið tekist á um undanþágur frá sóttvarnareglum. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, var á línunni hjá okkur en hann segir undanþágurnar vel þegnar og hvetur þau sem þær fá til að vanda sig og ganga kannski aðeins lengra í sóttvörnum heldur en undanþágan leiðir. Faraldurinn hefur haft talsverð áhrif á andlega líðan þjóðarinnar, sérstaklega þegar smitum fjölgar og grípa þarf til harðra takmarkana. Við töluðum við Sóleyju Dröfn Davíðsdóttur, sálfræðing hjá Kvíðameðferðarstöðinni, um hvernig best er að hlúa að andlegri líðan nú þegar jólastressið er mikið og farsóttin hefur tekið sig upp aftur. Við kíktum í jólabókaflóðið og fengum að heyra af bókinni Lóa og Börkur - Saman í liði. Höfundurinn Kjartan Atli Kjartansson kom til okkar en þetta er hans fyrsta bók. Hann hefur þjálfað ungt fólk í um 20 ár og er enn að og núna í gegnum faraldurinn. Hann fagnar ákvörðunum stjórnvalda að halda íþróttum gangandi í nýjustu sóttvarnaraðgerðum. Tónlist: Björgvin Halldórsson - It's beginning to look a lot like christmas Brunaliðið - Jóla jólasveinn Regína Ósk - Eins og það var Ragnheiður Gröndal - Jólin með þér Willie Nelson - Blue christmas Bergsveinn Arilíusson - Þar sem jólin bíða þín Pálmi Gunnarsson - Gleði og friðarjól Ed Sheeran og Elton John - Merry Christmas

Við byrjuðum þáttinn á að hringja vestur á Þingeyri en Kómedíuleikhúsið, eina atvinnuleikhús Vestfjarða, fagnar um þessar mundir 25 ára afmæli. Elfar Logi Hannesson leikhússtjóri Kómedíuleikhússins var á línunni hjá okkur. Til stendur að endurflytja frumvarp sem felur í sér nýja heildarlöggjöf um leigubifreiðaakstur hér á landi í næsta mánuði. Markmið frumvarpsins er að auka frelsi á leigubifreiðamarkaðnum - og tryggja örugga og góða þjónustu - og við ræddum við Daníel Orra Einarsson, formann Bifreiðastjórafélagsins Frama, um mögulegar breytingar og stöðu leigubílstjóra á tímum faraldurs. VR stendur nú fyrir vitundarátakinu ?Þriðja vaktin? sem er ætlað að vekja athygli á þeirri byrði sem verkstjórn heimilisins er og áhrifum hennar á stöðu kynjanna á vinnumarkaði. Við ræddum við Ragnar Þór Ingólfsson, formann stéttafélagsins, um átakið og kjaradeilurnar framundan. Tölur sem gefnar eru út af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun benda til þess að hæsta fermetraverðið á leigumarkaði hér á landi séu á stúdentagörðunum. Jafnframt benda kannanir stofnunarinnar til þess að ríflega þriðjungur stúdenta greiði meira en 70% af ráðstöfunartekjum í húsnæðiskostnað. Til okkar kom Guðrún Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta. Nokkuð hefur borið á slysum undanfarnar vikur þar sem ekið er á óvarða vegfarendur, hvort sem er gangandi eða hjólandi. Formaður Félags reiðhjólabænda segir að eini raunverulegi samnefnarinn í flestum þeim slysum sem orðið hafa séu ökutækin - og að oft sé horft fram hjá ábyrgð ökumannsins. Við ræddumvið formanninn, Birgi Birgisson. Annan hvern þriðjudag fáum við til okkar Guðmund Jóhannsson til að fara yfir það allra helsta í heimi tækninnar - og á því var engin undantekning í dag. Tónlist: Salka Sól - Æskujól Snorri Helgason - Ingileif Arlo Parks - Caroline Dean Marton - Let it snow Prins Póló - Tipp topp Grétar Örvarsson - Á grænni grein Herbert Guðmundsson - Með stjörnunum

Nokkuð hefur borið á því að starfsfólki verslana sé sýndur dónaskapur og að fólk skeyti skapi sínu á því. VR hefur borist töluvert af kvörtunum vegna þess og dæmi eru um að kalla hafi þurft til lögreglu. Oft bitnar þetta á afgreiðslufólki af erlendum uppruna. Við ræðum við Ragnar Þór Ingólfsson formann VR og Bryndísi Guðnadóttur, forstöðumann kjaramálasviðs um álagið sem er á starfsfólki verslana vegna framkomu fólks og vegna Covid-19. Svanhildur Óskarsdóttir prófessor við Árnastofnun kemur til okkar og segir okkur frá lygilegum fundi skinnhandrita í safni í Lundúnum sem íslenskur fræðimaður rakst nýverið á fyrir tilviljun. Málfarsmínúta Edda Olgudóttir kom til okkar í vísindaspjall í lok þáttar og hræddi um áhrif félagslegs tengslanets á mögulegar sjúkdómsmyndanir.

Þátturinn byrjar á gamansömum nótum, enda hafa Íslendingar haft gaman af því að segja sögur, ekki síst af náunganum. Nokkuð hefur verið gert af því að skrásetja slíkar sögur og nýlega kom út bókin Hérasmellir sem geymir skondnar sögur af Héraðsmönnum. Rúnar Snær Reynisson hitti skrásetjara þessara sagna, Baldur Grétarsson bónda á Skipalæk í Fellum, og fræddist um litlu sögurnar sem gefa lífinu lit. Frá gamansömum Hérasmellum er ferðinni síðan heitið á Hauganes. Þar er á sumrin rekinn veitingastaður sem sérhæfir sig í saltfiskréttum, og nú þegar ferðamönnum þar hefur fækkað eftir sumarið, fer hefðundin saltfiskverkun í fullan gang. Þessi starfsemi er öll hjá fyrirtækinu Ektafiski, en þar hafa sömu aðferðir verið notaðar við saltfiskverkun í áratugi. Hægt er að fá allskonar tegundir af saltfiski í soðið, sem oft er búinn að liggja hálft ár í salti. Einnig eru þau hjá Ektafiski að þróa nýja afurð fyrir landbúnað úr afgangssalti sem hingað til hefur verið hent. Ágúst Ólafsson fór í heimsókn á Hauganes einn fallegan nóvembermorgun og ræddi við Elvar Reykjalín hjá Ektafiski. Að lokum forvitnumst við sögu Ólafsvallakirkju sem nú er verið að endurgera. Kirkjan er í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og var byggð árið 1897. Hönnuður kirkjunnar var Kristinn Jónsson vagnsmiður en Samúel Jónsson frá Hunkubökkum á Síðu var yfirsmiður kirkjunnar. Ólafsvallakirkja var friðuð þann 1. janúar 1990. Rætt var við Jóhönnu Valgeirsdóttur, formann sóknarnefndar. Efni í þáttinn unnu Rúnar Snær Reynisson, Ágúst Ólafsson og Gígja Hólmgeirsdóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Í fyrra gekk ljómandi vel að safna birkifræi í þjóðarátaki þar um og nú freista Landgræðslan og Skógræktin þess að safna meiru. Mismikið virðist vera af fræi eftir landshlutum þetta árið og er biðlað til fólks sérstaklega á Norður- og Austurlandi að fara út að tína. Kristinn H. Þorsteinsson veit allt um málið og við hringdum í hann og tókum stöðuna. Nú styttist í jólabókaflóðið og við erum farin að glugga í hinar ýmsu bækur. Á dögunum kom út forvitnileg fuglabók, sem við fyrstu sýn gæti verið barnabók, en er miklu meira en það. Við fórum nánar yfir það og fleira tengt bókaútgáfunni með Kristjáni Frey Halldórssyni, verkefnastjóra hjá bókaútgáfunni Sögum. Þessa dagana taka hundruð skólabarna þátt í Skólablakinu, nýju verkefni á vegum ÍSÍ, UMFÍ og fleiri blakfélaga. Fyrsta mótið fór fram í síðustu viku og gleðin heldur áfram út mánuðinn. Elsa Gunnarsdóttir verkefnastjóri hjá Blaksambandinu er ein þeirra sem leiðir verkefnið og hún var á línunni frá Ísafirði og sagði okkur meira af blakgleðinni. Nokkuð stirt er þessa dagana á milli pólskra stjórnvalda og Evrópusambandsins, enda úrskurðaði dómstóll í Póllandi á dögunum að stjórnarskráin gangi framar lögum Evrópusambandsins. En hvað þýðir þetta í hinu stóra samhengi? Við rýndum í Evrópumálin með hjálp Auðar Ingu Rúnarsdóttur, Evrópufræðingi og stundakennara við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Svo voru það íþróttir helgarinnar, alltaf nóg um að vera í sportinu og okkar kona Helga Margrét Höskuldsdóttir mætti af íþróttadeildinni og fór yfir það helsta. Tónlist: Magnús Þór - Álfar. Eagles - Best of my love. The Cardigans - Sick and tired. Harry Styles - Golden. The Housemartins - Five get over excited - Fun fun fun. Sigríður Thorlacius - Gilligill. Paul Simon - Graceland. Biig Piig - Feels right. Sigrid - Mirror. Snorri Helgason - Ingileif.

Nokkuð hefur verið um að fólk sem boðað var í bólusetningu með bóluefni Janssen á fimmtudag, afþakki boðið. Skammtarnir sem á að nota verða gefnir með þeim fyrirvara að efnið skili sér til landsins í tæka tíð. Stjórnendur Landspítala vinna nú með hraði að lausn á fyrirsjáanlegum vanda á bráðadeild spítalans. Marktækur munur er á andlegri heilsu innflytjenda og innfæddra Íslendinga í kórónuveirufaraldrinum. Þetta sýnir rannsókn Vörðu, rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins. Slakað hefur verið á smitvörnum í stærstu borgum Indlands. Kórónuveirusmitum hefur fækkað þar að undanförnu. Refapörum á Hornströndum og í Snæfellsjökulsþjóðgarði hefur ekki fjölgað eftir friðun þótt refum annars staðar á landinu hafi fjölgað umtalsvert á tuttugu árum. Það er gott líf í vaxtajöðrunum í hrauninu í Nátthaga segir Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði. Hraun rennur enn ofan í dalinn, þó að rennsli hafi stöðvast í sumum hraunánum og storknað yfir aðrar. Hann segir að framleiðni í gosinu sé svipuð, hraunið renni úr rás sem ekki sést, út í hraunár og á um 10 mínútna fresti komi gusur upp úr gígnum. Ragnhildur Thorlacius talar við Þorvald Þórðarson eldfjallafræðing. Frumvarp um brotastarfsemi á vinnumarkaði sem átti að leggja fram í tengslum við lífskjarasamninginn verður ekki lagt fram fyrir þinglok. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir að leggja fram frumvarp hefur ekki náðst sátt um það innan verkalýðshreyfingarinnar. Líklegt er að tekist verði á um málið í næstu kjaraviðræðum. Arnar Páll Hauksson sagði frá. Breska stjórnin hefur haft mörg orð um nauðsyn þess að bæta skólakrökkum upp námstíma sem glataðist vegna lokaðra skóla í veirufaraldrinum. Ráðinn sérstakur umsjónarmaður aðgerða en nú, um fjórum mánuðum síðar, hefur hann sagt af sér því stjórnin vilji ekki reiða fram það fé sem þurfi til að aðgerðir skili árangri. Þetta þykir dæmi um vanefndir fyrri loforða og bætist við önnur slík mál sem valda urgi í Íhaldsflokknum. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.

„Öll þekking og færni þarnfast þjálfunar og reynslu til að verða góð,“ segir Hermundur Sigmundsson prófessor í lífeðlisfræðilegri sálfræði við Háskólann í Reykjavík og Háskólann í Þrándheimi. Nokkuð hefur verið talað um drengi í skólakerfinu og hefur Hermundur talað um að það ríki þöggun um málefni þeirra. Hann telur að börn byrji of snemma í skóla og skólakerfið taki ekki nægjanlegt tillit til þarfa barna. Hermundur segir að öll börn þurfi að vinna með réttar áskoranir og aðalmálið sé að við náum að skapa umhverfi sem sé gott og mæti þörfum þeirra. Þorsteinn ræðir við Hermund í 23. hlaðvarpsþætti Karlmennskunnar, fær skýringar á því í hverju hann telur að þöggunin felist, hvað þurfi að laga í skólakerfinu að hans mati og af hverju. Þetta er samtal um skólastarf, drengi og stúlkur, testósterón, karlmennskuhugmyndir, erfðir og umhverfi. Getur lífeðlisfræðin skýrt mun í námsárangri drengja og stúlkna eða spilar umhverfið, eins og karlmennskuhugmyndir, rullu í því samhengi?

277.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul og gleðilegan mánudag. Ársþing KKÍ (körfuknattleikssamband Íslands) var haldið um helgina. Nokkuð var tekist á um hin ýmsu mál og Hannes S. Jónsson formaður KKÍ er í viðtali dagsins. Hann fer yfir málefni þingsins með mér ásamt því að upplýsa okkur um styrki FIBA og íslenska ríkisins. Þórhallur Dan er að sjálfsögðu á línunni. Við förum yfir íþróttir helgarinnar og Tóti er ánægður með að hans menn unnu á sjálfsmarki. Njótið dagsins.
Sigmar ræðir við Jasminu Vajzovic Crnac sem hefur búið á Íslandi frá árinu 1996. Hún flutti hingað sextán ára gömul en þá hafði stríð geysað í heimalandi hennar, Bosníu Hersegóvínu, í nokkur ár. Nokkuð áhyggjulaus æska breyttist í martröð á nánast einni nóttu þegar stríðið braust út og hún horfið á fólk deyja, var ofsótt og lifði í stöðugum ótta. En hún fékk tækifæri til að öðlast nýtt líf á Íslandi, tækfæri sem hún hefur heldur betur nýtt sér. Og skilaboð hennar í dag eru einföld, okkur ber skylda til að hjálpa fólki á flótta.
Hættustig er enn í gildi vegna skriðufalla á Seyðisfirði. Haukur Holm ræðir við Magna Hrein Jónsson, sérfræðing í ofanflóðum á Veðurstofunni. Ekki er hægt að sannreyna hér á landi að sóttvarnagrímur séu öruggar og virki fullkomlega. Arnhildur Hálfdánardóttir sagði frá. Fjármálaráðuneytið gengur gegn markmiðum kjarasamninga um að rétta stöðu þeirra tekjulægstu að mati miðstjórnar ASÍ sem styður kröfu eldri borgara um hækkun ellilífeyris. Haukur Holm segir frá og talar við Drífu Snædal, forseta ASÍ. Nokkuð virðist hafa miðað í dag í samningaviðræðum um viðskiptasamning Breta og Evrópusambandsins. Bogi Ágústsson tók saman. Heyrist í Emanuel Macron og Boris Johnson. Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri í Grundarfirði segir ótækt að sveitarfélög fái ekki álagningarskrár afhentar. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talar við hana. ---- Rúmlega hundrað Seyðfirðingar þurftu að fara af heimilum sínum í gær og gátu ekki gist heima í nótt því efstu götur í sunnanverðum bænum voru rýmdar. Spáð er áfram rigningu í nótt . Rúnar Snær Reynisson, fréttamaður ræddi við Ómar Bogason, Helga Haraldsson, Jón Ólafsson og Kára Ólafsson. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri hefur áhyggjur af því að lífeyrissjóðir taki meiri áhættu í fjárfestingum til að uppfylla ávöxtunarviðmið sjóðanna sem nú er 3,5%. Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Samtaka lífeyrissjóða segist ekki sjá fyrir sér að viðmiðið verði lækkað vegna lágvaxtaumhverfis sem sé til skamms tíma. Arnar Páll Hauksson tók saman. Fríverslunarsamningur við Evrópusambandið bindur ekki endahnút á Brexit-umræðuna. Það verður ekki undið ofan af 47 ára sambandi Breta við ESB á nokkrum mánuðum. Báðir stóru flokkarnir, Íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn glíma við sinn þátt í þeirri sögu. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Heyris í Boris Johnson, Michael Gove, Jeremy Corbyn og Keir Starmer. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.

Íbúðalánasjóði var óheimilt að krefja lánþega um uppgreiðslugjald lána samkvæmt dómi sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Reikna má með að þúsundir lántakenda eigi rétt á tug milljarða endurgreiðslu. Þrír menn sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við umfangsmikla lögreglurannsókn. Þeir er grunaðir um framleiðslu á ofskynjunarlyfinu DMT. Fasteignasala náði hámarki í september. Nokkuð dró úr henni í október og nóvember, ekki vegna minni eftirspurnar heldur vegna minna framboðs. 130 ára bið Náttúruminjasafns Íslands eftir varanlegu húsnæði er lokið. Gerður hefur verið samningur um að safnið flytji út á Seltjarnarnes. Alþýðusamband Íslands vill að kjör starfsfólks í ferðaþjónustunni verði bætt þegar uppbygging greinarinnar hefst eftir Covid. Taka verði tillit til hagmuna launafólks í stefnumótun stjórnvalda um framtíð ferðaþjónustunnar. Arnar Páll Hauksson talar við Guðbjörgu Kristmundsdóttur. Frá því Bretar samþykktu í þjóðaratkvæðagreiður 2016 að ganga úr Evrópusambandinuum, hafa margir úrslitafrestir liðið. Hinn eini skýri frestur er að aðild Breta endar nú um áramótin: 1. janúar eru Bretar ekki lengur ESB-ríki. Bretar eru að semja við ESB um fríverslunarsamning til framtíðar, en óljóst hvort semst. Arnar Páll Hauksson talar við Sigrúnu Davíðsdóttur. Norðmenn eru farnir að búa sig undir kosningabaráttu og tæpt ár þar til kosið verður til Stórþingsins. Stóru flokkarnir, sem ráðið hafa ferðinni undanfarin ár, horfa nú uppá Miðflokkinn, flokk bænda, skjótast fram úr þeim í könnunum. Meira los er á fylgi flokkanna en verið hefur í áratugi. Gísli Kristjánsson segir frá.

Er edik vegan og má ég nota það þegar ég elda fiskibollur? Hlaupa hrísgrjón í þvotti og nota ég mýkingarefni á hnífapör? Þetta og fleiri matartips í næsta þætti.
Magga Pála, Móey Pála og sú litla spjalla saman í hljóðveri. Þær ræða tilfinningatengsl, vinnuna að vera í fæðingarorlofi og hvernig lífið aðlagast nýjum einstaklingi. Magga Pála segir tilfinningaþrungna sögu af rofnum tilfinningatengslum, hversu erfið lífsbaráttan gat verið árum áður og hversu mikið hefur breyst til hins betra. Hafið vasaklút við hendina kæru hlustendur.
Þó að skólastarf í grunnskólum sé rétt að hefjast hefur faraldurinn strax sett svip sinn á það. Skólasetningu í þremur skólum var frestað og á annað hundrað starfsmanna eru í sóttkví. Þá verða göngur og réttir með óhefðbundnu sniði í ár. Aðeins hluti þeirra mörg hundruð starfa sem nú eru laus til umsóknar koma inn á borð Vinnumálastofnunar sem kallar eftir meira samráði við atvinnurekendur. Flest störfin eru í félags- og heilbrigðisþjónustu. Aldrei hefur verið lagt hald á jafn mikið af kókaíni hér á landi og árið 2019. Þetta sýnir afbrotatölfræði frá Ríkislögreglustjóra. Heimilisofbeldismálum fjölgaði mikið í fyrstu bylgju faraldursins. Búast má við að afborganir óverðtryggðra lána hækki talsvert þegar hagkerfið tekur aftur við sér og vextir hækka. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun segir að bönkum og lánastofnunum beri að upplýsa lántakendur um hugsanlega hækkun. Nokkuð hörð gagnrýni kom fram á Alþingi af hálfu stjórnarandstöðunnar þegar aðgerðir stjórnvalda vegna kórónuveirufaraldursins voru ræddar upphaf þingfundar í dag. Tilefnið var munnleg skýrsla sem Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti um stöðu COVID mála. Hún fór yfir þróunina og þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa gripið til til að sporna við útbreiðslu veirunnar. Arnar Páll Hauksson tók saman. Um 11 milljarðar er upphæðin sem sænsk yfirvöld telja að hafi verið svikið út úr eftirlaunasjóðum á vegum fyrirtækisins Falcon Funds. Þetta er annað stóra sakamálið á skömmum tíma í Svíþjóð, þar sem umsjónarmenn eftirlaunasjóða eru grunaðir um að hafa fé af fólki. Málin þykja sýna hve lítið eftirlit er með því hvernig farið er með eftirlaunasparnað sænsks launafólks. Kári Gylfason segir frá. Kristján Bragason, framkvæmdastjóri samtaka launafólks í matvæla-, ferðaþjónustu og landbúnaði í Evrópu, segir að um fjórar milljónir farandverkamanna í landbúnaði búi við skelfilegar aðstæður og upplifi launaþjófnað. COVID-19 hefur beint athygli stjórnvalda víða í Evrópu að stöðu þessa fólks. Arnar Páll Hauksson talar við Kristján Bragason.

Umsjón: Pálmi Jónasson Hlutfall þeirra sem er í sóttkví við greiningu hefur hækkað eftir því sem á líður aðra bylgju faraldursins hér á landi. Landlæknir segir brögð að því að fólk sé á faraldsfæti og á mannamótum, jafnvel með einkenni. Þorsteinn Halldórsson fékk í dag þriggja og hálfs árs fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot gegn unglingspilti, til viðbótar við fimm og hálfs árs dóm sem hann hafði áður fengið. Svissnesk yfirvöld rannsaka nú hvernig fyrrverandi ástkona Jóhanns Karls, fyrrverandi Spánarkonungs, stóð að kaupum á sveitasetri í Bretlandi. Donald Trump hefur engin prinsipp og honum er ekkert heilagt, segir systir hans í upptökum sem birtar voru um helgina. Líkt og fleiri lönd glíma bresk yfirvöld við staðbundin COVID-19 hópsmit. Helsta viðfangsefni stjórnarinnar nú er að opna aftur grunn- og framhaldsskóla, en það mistókst í vor. Donald Trump hefur engin prinsipp og honum er ekkert heilagt, segir systir hans í upptökum sem birtar voru um helgina. Maryanne Trump Barry er eldri systir forsetans og fyrrverandi alríkisdómari. Hún gagnrýnir bróður sinn harkalega og segir hann hugsjónalausan með öllu. Hann hafi engin grunngildi og hugsi eingöngu um sig sjálfan. Pálmi Jónasson segir frá í Speglinum. Loftslagsbreytingar, hlýnun jarðar og kórónuveiran eiga það sameiginlegt að við þau þarf á fást á heimsvísu en tilhneiging er til þess að bregðast við á staðbundinn hátt og innan landamæra. Clemens Fuest (Fúst) hagfræðingur og forseti Alþjóðastofnunar um opinber fjármál hefur ráðlagt þýsku ríkisstjórninni um viðbrögð við kórónuveirufaraldrinunum. Stofnunin stóð nýlega fyrir ráðstefnu um loftslagsbreytingar og náttúruauðlindir í samstarfi við Háskóla Íslands. Þau mál hafa jú verið í hámæli undanfarin ár en deilt um hvernig miðar og lykill að árangri er samvinna á alþjóðavísu, segir Fuest. Anna Kristín Jónsdóttir segir frá í Speglinum. Fjöldi nýrra COVID-19 smita í Bretlandi hefur hangið í kringum þúsund á dag í tæpa tvo mánuði. Smitin hafa verið staðbundin og tekið á þeim með staðbundnum samskiptatakmörkunum. Nú þegar skólaárið er að byrja er eitt helsta viðfangsefni ríkisstjórnarinnar að sjá til þess skólar taki aftur til starfa. Nokkuð sem mistókst í vor. Sigrún Davíðsdóttir segir frá í Speglinum.

Létt yfir stjórnanda sem spilaði klukkutíma af íslenskri tónlist án þess að hika. Meðal tónlistarflytjenda í þættinum eru: Ólöf Arnalds, Hera Hjartardóttir, Traband, REM og Stranglers.

Samkomubann og aðrar ráðstafanir sem gilda áttu til 13. apríl, verða líklega framlengdar til loka mánaðarins. Samtök atvinnulífsins segja mikil vonbrigði að verkalýðshreyfingin skuli hafa hafnað tillögum um að lækka tímabundið mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóði. Formaður SA býst við frekari uppsögnum í apríl og að ástandið eigi eftir að versna. Formaður Verkalýðsfélags Akraness sem vildi fara lífeyrissjóðsleiðina segir að það sé búið að breyta íslenskum vinnumarkaði í blóðugan vígvöll. Lítið er um að eignir séu skráðar til sölu á fasteignasölum þessa dagana. Formaður Félags fasteignasala segir ekki útlit fyrir að fasteignaverð lækki vegna efnahagslægðarinnar sem nú gengur yfir vegna COVID-19. Nokkuð er um að fólk hafi hætt við sumarbústaðaferðir um páskana. Almannavarnir ráða fólki frá ferðalögum sem kynnu að auka álag á heilbrigðiskerfið og stéttarfélög bjóða endurgreiðslu ef fólk vill hætta við. Forstöðumaður Fjölmenningarseturs segist hafa áhyggjur af því að útlendingar á Íslandi einangrist og fari á mis við réttindi sín við þær aðstæður sem nú hafa skapast. Fjölmenningarsetur er í átaki við að reyna að ná til þeirra. Samtök atvinnulífsins lýsa yfir miklum vonbrigði með ákvöðrun verkalýðshreyfingarinnar um að hafna tímabundinni lækkun á mótframlagi atvinnurekenda í lífeyrissjóði. Formaður SA telur fullvíst að til frekari uppsagna komi í apríl og að ástandið eigi eftir að versna. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir að vinnumarkaður hafi breyst blóðugan vígvöll. Miðstjórn ASÍ var einhuga í dag um að hafna tillögum SA. Arnar Páll Hauksson talar við Drífu Snædal, Vilhjálm Birgisson og Halldór Benjamín Þorbergsson. Eldri borgarar í Vestmannaeyjum eru flestir í sjálfsskipaðri eða aðstandendaskipaðri sóttkví. Einn þeirra segist reyna að hafa hugann við annað en veiruna, Víðir hafi mælt með veirufríum klukkutíma en hjá honum sé meirihluti dagsins veirufrír. Arnhildur Hálfdánardóttir tók saman og talaði við Gísla Valtýsson, Kristján Valur Óskarsson og Janus Guðlaugsson. Og Norðmönnum hefur verið stranglega bannað að dvelja í hyttunum sínum yfir páska. Arnar Páll Hauksson tlara við Gísla Kristjánsson í Osló.

Yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra segir að fjöldi undanþágubeiðna vegna samkomubanns bendi til þess að hluti landsmanna taki bannið ekki alvarlega. Það boði ekki gott. Sextíu og eitt nýsmit hefur greinst frá því í gær. Opnað verður fyrir umsóknir um bætur vegna hlutastarfa fyrir hádegi á morgun. Forstjóri Vinnumálstofnunar býst við að minnsta kosti 10 þúsund umsóknum og að þær geti jafnvel orðið allt að 20 þúsund. Gengi bréfa í Icelandair hækkaði um 5,5% í dag. Það hefur lækkað um rúmlega 60% á einum mánuði. Sveitarstjóri Norðurþings segir það hafa hrist upp í fólki þegar ástralskur ferðamaður lést á sjúkrahúsinu á Húsavík. Mikil samstaða sé um að verjast kórónuveirunni. Nokkuð ljóst er að kjaraviðræður Eflingar og sveitarfélaganna munu frestast þar til veirufaraldrinum lýkur. Nýju tilboði Eflingar var hafnað á stuttum sáttafundi í morgun. Verkfalli Eflingar hefur verið frestað en félagið segist reiðubúið að hefja verkfallsaðgerðir á nýjan leik þegar faraldurinn er genginn yfir. Arnar Páll Hauksson talar við Viðar Þorsteinsson og Unni Sverrisdóttur. Ráðrúm stjórnvalda til að bregðast við vá eins og COVID19 faraldrinum markast meðal annars af trausti. Ef traust almennings á stjórnvöldum er lítið er minni von að fólk fari eftir opinberum boðum og bönnum. Eitt af því sem skapar traust eru einhlít boð og bönn, tilmæli og upplýsingar. Ekki upplýsingar sem vísa í allar áttir. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Myllumerkið #Tradwives hefur átt vaxandi fylgi að fagna á samfélagsmiðlum. Í Bretlandi og Bandaríkjunum hefur sprottið upp hreyfing kvenna sem vill hverfa aftur til óræðs tíma þar sem konur voru heimavinnandi og karlar fyrirvinnur. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá.

Um helgina lést einn helsti frumkvöðull iðnaðar-tónlistarinnar Genesis Breyer P-Orridge, 70 ára að aldri. Genesis stofnaði hljómsveitirnar Throbbing Gristle og Psychic-TV sem báðar léku háværa og tilraunakennda tónlist, og vakti athygli fyrir ágenga framkomu, óvenjulegan persónuleika og óvenjulegar lýtaaðgerðir. Við ræðum þennan sérstæða tónlistarmann í Lestinni í dag. Gestir eru Curver Thoroddsen og Hilmar Örn Hilmarsson, fyrrum meðlimur Psychic TV Bjarki Þór Jónsson heldur áfram að flytja okkur pistla úr heimi tölvuleikjanna. Í sínum þriðja pistli veltir hann fyrir sér hvort skilgreina megi tölvuleiki sem menningarverðmæti og skoðar áhrif þeirra á menningu okkar og samfélag. Nokkuð hefur borið á því síðustu daga að landsmenn hamstri klósettpappír í verslunum. Eins og margir hafa bent á kemur klósettpappír ekki í veg fyrir veirusmit en að einhverju leyti kann að vera um sálfræðileg viðbrögð að ræða þar sem mannskepnan bregst við hættu með því að huga að sínum helstu grunnþörfum. Ef Íslendingar væru lengra komnir í klósettmenningu þyrfti hinsvegar enginn að hamstra. Klósettáhugakonurnar Marta Sigríður Pétursdóttir og Dröfn Ösp Snorradóttir taka sér far með Lestinni.

Nokkuð hefur verið um bruna undanfarið og mikið eignatjón þar sem sumir tapa jafnvel öllu sínu. Sigrún A. Þorsteinsdóttir forvarnarfulltrúi kíkti til okkar og fræddi okkur um forvarnir þegar kemur að bruna og fara yfir valkosti í tryggingum með okkur. Ný rannsókn, byggð á gögnum Landsspítalans, leiðir í ljós að annan hvern dag kemur kona á spítalann eftir að hafa fengið áverka vegna heimilisofbeldis. Beinn kostnaður spítalans vegna þessa nemur um hundrað milljónum á 10 ára tímabili, en ef allt er talið er kostnaðurinn hærri. Drífa Jónasdóttir, doktorsnemi við læknadeild HÍ, kom til okkar og sagði okkur frá rannsókninni . Nemendur í Árskóla á Sauðárkróki fagna upphafi aðventu á hátíðlegan hátt með friðargöngu. Við slógum á þráðinn norður til Óskars G. Björnssonar skólastjóra og spurðum út í þessa hefð sem flestum á svæðinu finnst ómissandi. Fimm börn hafa verið ættleidd erlendis frá í ár. Kristinn Ingvarsson, framkvæmdastjóri íslenskrar ættleiðingar, segir að hægt sé einfalda ættleiðingakerfið hér á landi mikið með því að stofna sérstakt sérfræðiteymi þvert á landið. Það myndi jafna möguleika fjölskyldna á ættleiðingu en barnaverndarnefndir séu 27 á landinu og vinnubrögð þeirra ólík. Kristinn kom til okkar. Við fórum yfir það allra helsta af íþróttum helgarinnar með Kristjönu Arnarsdóttur íþróttafréttamanni. Tónlist: Stefán Hilmarsson - Glæddu jólagleði í þínu hjarta. Imelda May - Black tears (ft. Jeff Beck). Svanhildur Jakobsdóttir - Hvít jól. Erla og Gréta - Ég er að bíða eftir þér. The Charlatans - Cant get out of bed. Dolly Parton - Here you come again. Biggi Hilmars, Sóley og Pétur Ben - Fögur jól. The Cardigans - Lovefool. Vök - In the dark.

Helstu fréttir. Fjárlög næsta árs voru samþykkt á Alþingi nú rétt í þessu. Sex manns hafa verið handteknir í Namibíu í dag í tengslum við Samherjaskjölin. Sexmenningarnir verða leiddir fyrir dómara á morgun. Nokkuð hefur verið um hnökra í kosningunum í landinu í dag. Andrés Ingi Jónsson alþingismaður sagði sig í dag úr þingflokki Vinstri grænna. Hann segir að upp hafi safnast mál sem leiddu til þessarar ákvörðunar. Óveður setur strik í reikninginn fyrir tugmilljónir Bandaríkjamanna sem hyggjast halda upp á þakkargjörðarhátíðina með sínum nánustu á morgun og um helgina. *** Síðastliðna áratugi hefur dregið jafnt og þétt úr bæði svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu. Þetta segir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. Nagladekk slíti malbiki minna en áður en um helmingur svifryksins sé samt tilkominn vegna þeirra. Hann fagnar því að sveitarfélögin og Vegagerðin hafi fengið heimild til að takmarka umferð tímabundið til að bregðast við mengunartoppum. Byrjar á mínútu 9:56. Michael Bloomberg er ýmist Repúblikani, óháður eða Demókrati. Nú vill hann verða forsetaefni Demókrata og ætlar að eyða áður óþekktum fjárhæðum í þeim tilgangi. Byrjar á mínútu 18:16. Fyrir tæpum mánuði settust þúsundir Þjóðverja niður til að spjalla um ýmis átakamál í þýsku þjóðlífi. Spjall um daginn og veginn er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi en þetta var fólk sem hafði líklega aldrei hist og var parað saman í krafti þess að það var á öndverðum meiði þegar kom að nokkrum já eða nei spurningum. Byrjar á mínútu 22:02.

Steinar Berg Ísleifsson, staðarhaldari í Fossatúni í Borgarfirði, skoraði fyrr í sumar á sveitarstjórn Borgarbyggðar að ræða um lausafjárgöngu sauðfjár og jafnvel banna. Hann telur að sérhagsmunir sauðfjárbænda á svæðinu séu látnir ganga fyrir réttindum þeirra sem vilja stunda trjárækt. Steinar verður á línunni. Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að minningarstund var haldin um jökulinn OK sem gjarnan er vísað til í dag sem jökulsins sem hvarf. Nokkuð hefur borið á því að myndum hafi verið póstað á samfélagsmiðlum sem eiga að sýna að þetta eigi ekki við rök að styðjast og að OK sé svipaður í dag og hann var fyrir 50 árum. Oddur Sigurðsson, jarðfræðingur, segir að um misskilning sé að ræða og hann útskýrir málið fyrir okkur í þættinum. Fjöldaframleiðsla tískufatnaðar hefur jaðarsett langflestar líkamsgerðir og komið þeim skilaboðum á framfæri að aðrir líkamar en hinir “réttu“ séu á einhvern hátt minna virði. Þetta segir Linda Björg Árnadóttir, hönnuður og lektor við Listaháskóla Íslands. Hún er gestur Morgunútvarpsins. Nú þegar leiðtogar Norðurlandanna og Angela Merkel kanslari Þýskalands funda hér í Reykjavík er vert að skoða annan, sem ekki er á landinu en hefur stýrt landi sínu í tvo áratugi um þessar mundir. Við ætlum að ræða áhrif Pútíns á Rússland á tuttugu árum sínum við völd. Einnig komandi borgarstjórnarkosningar í Moskvu, en yfirvöld hafa tekið hart á mótmælendum sem krefjast þess að stjórnarandstæðingar fái að bjóða sig fram. Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, fer yfir málið með okkur. 8:35 Sævar Helgi Bragason mætir með sinn vikulega pistil um vísindi.
Tillögur um breytingar á útgöngusamningi Breta við Evrópusambandið voru samþykktar í neðri málstofu þingsins og forsætisráðherrann Theresa May freistar þess að fá Evrópusambandið til að fallast á þær - til að auka líkurnar á að Bretar kveðji sambandið með samning í höndum. Forystumenn Evrópusambandsins segja hinsvegar að ekki verði samið að nýju. Við ræddum þessu erfiðu stöðu við Boga Ágústsson. Við förum líka yfir stöðu mála í Venesúela og í Svíþjóð. - En hver er staða miklu fámennari þjóða við Norður-Atlantshaf í breyttum heimi, Íslendinga, Færeyinga og Grænlendinga? Meiri spennu gætir í samskiptum Vesturlanda og Rússa nú en á síðustu áratugum, sjónir stórvelda beinast að Norðurskautinu, margir girnast náttúruauðlindir þar - og loftslagsbreytingar breyta aðstæðum og lífskjörum. Þessi efni voru rædd á þemaráðstefnu Vestnorræna ráðsins hér í Reykjavík. Tveir fulltrúar í ráðinu, Guðjón Brjánsson, varaforseti ráðsins, og Bryndís Haraldsdóttir, bæði alþingismenn, lýsti þróun mála á norðurslóðum, áhuga stórvelda og samstarfi Íslendinga, Færeyinga og Grænlendinga. - Nokkuð óvænt úrslit urðu í sveitarstjórnarkosningunum á Seyðisfirði síðasta vor. Seyðisfjarðarlistinn, framboð félagshyggjufólks, hlaut hreinan meirihluta. Áður höfðu Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur farið með völdin í bænum í næstum hálfa öld. En hvernig ætli Seyðisfjarðarlistanum gangi að reka og stjórna þessu tæplega 700 manna sveitarfélagi í firðinum fagra og hvað er að frétta af menningu og mannlífi? Við slóum á þráðinn til Seyðisfjarðar eftir hálf níu og ræddum við Hildi Þórisdóttur, forseta bæjarstjórnar. - Tónlist: Johnny Mercer & The Pied Pipers - Down among the sheltering palms; Ray Charles & Steve Turre - Misty; Magnús R. Einarsson - Minningargrein um máða ást.
Efni Lestarinnar í dag: Hnotubrjóturinn og músakóngurinn, sígild saga E.T.A. Hoffmanns er jólaævintýri sem flestir kannast eflaust við enda saga sem hefur margoft verið aðlöguð að hvíta tjaldinu, sjónvarpsskjám, leikhús- og balletthúsum um víða veröld. Ævintýrið birtist fyrst á prenti fyrir meira en 200 árum en hefur aldrei komið út í íslenskri þýðingu fyrr en nú. Hulda Vigdísardóttir þýddi verkið úr frumtexta Hoffmanns og verður bókin gefin út í næstu viku. Hulda er gestur Lestarinnar í dag. Nokkuð hefur verið rætt að undanförnu um hótelbyggingu sem fyrirhugað er að reisa á svokölluðum Landsímareit í hjarta Reykjavíkurborgar. Ástæðan er einföld: á reitnum er gamall kirkjugarður, sá elsti í Reykjavík, svokallaður Víkurgarður. Sitt sýnist hverjum um framkvæmdirnar og á dögunum birti Lára Magnúsardóttir sagnfræðingur grein undir yfirskriftinni Framtíð hinna dauðu þar sem hún fjallar meðal annars um þau lög sem gilda um kirkjugarða, grafarhelgi og friðhelgi hinna látnu. Lára verður gestur Lestarinnar í dag. Í pistli sínum í dag skoðar Tómas Ævar Ólafsson hugtakið flökkusjálf sem lýsir ákveðnum veruhætti eða lífstíl sem einkennist og mótast af millibilsástandi. Það er háþróaður kapítalismi sem laðar fram þetta fyrirbæri þó að nafn þess sé dregið af gamalkunnum hirðingjum. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
Rúmar tvær vikur eru liðnar síðan að opnað var fyrir leikmannamarkað NBA deildarinnar. Nokkuð mikið hefur gerst síðan, þar sem meðal annarra nokkrir allra bestu leikmanna deildarinnar hafa skipt um lið fyrir komandi tímabil. Í þættinum er farið yfir nokkur stærstu nöfnin, sem og pælt í hvaða áhrif þetta muni hafa á deildirnar á næsta tímabili. Umsjón: Davíð Eldur, Ólafur Þór og Sigurður Orri Dagskrá: 02:30 - LeBron og Lakers 18:00 - Kawhi og DeMar skiptin 27:50 - Chris Paul semur við Rockets 35:40 - Boogie til Warriors 41:00 - Isaiah Thomas til Nuggets 43:50 - Orlando Magic hornið 48:00 - Milwaukee Bucks og Chicago Bulls 52:00 - Philadelphia 76ers 55:00 - Washington Wizards 1:03:40 - Oklahoma City hræringar og annað sem hefur gerst 1:09:30 - Hvaða liðum verður spennandi að fylgjast með?
MANNLEGI ÞÁTTURINN MÁNUDAGINN 4.JÚNÍ - KYNNING Á EFNI Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Lísa Pálsdóttir Miklar líkamlegar breytingar verða á meðgöngu og eftir fæðingu, algjört kraftaverk hvernig kvenlíkaminn aðlagast breyttum aðstæðum. Eftir fæðinguna er kvenlíkaminn mjög viðkvæmur og mikilvægt að hann fái að jafna sig hægt og rólega. Nokkuð hefur borið á því að konur sem fara í leikfimi sem þær ráða ekki við stuttu eftir meðgöngu og fæðingu, hafi þurft að leita til sjúkraþjálfara. Helstu afleiðingar af slíkri þjálfun eru vandamál í grindarbotni eins og sig á grindarholslíffærum og þvagleki en einnig verkir frá mjóbaki, mjaðmagrind og jafnvel rófubeini. þær Þorgerður Sigurðardóttir og Halldóra Eyjólfsdóttir eru sérfræðingar í meðgöngu- og fæðingarsjúkaþjálfun og segja okkur nánar frá hér á eftir. Margir hafa áhuga á að koma sér upp krydd og matjurtum á þessum árstíma en skortir kannski þekkingu til að byrja. Grasagarður Reykjavíkur, Garðyrkjufélag Íslands, og Seljagarður - borgarbýli bjóða gestum og gangandi að fræðast um sáningu, útplöntun og umhirðu krydd- og matjurta auk þess sem góð ráð verða gefin varðandi smádýrin í matjurtagarðinum. Arnar Eggert Thoroddsen tónlistarfræðingur er lesandi vikunnar að þessu sinni.
Stórmyndin Avengers - Infinity War hefur slegið aðsóknarmet og er fyrsta stóra sumarmynd ársins frá Hollywood. Hulda ræddi myndina á skellti á hana fjórum ofurhetjustjörnum. Nokkuð hefur verið rætt um stöðu leigumarkaðarins undanfarið og hefur VR til að mynda kallað eftir dæmum og gögnum frá fólki sem hafa orðið fyrir óeðlilegri hækkun húsaleigu. Við ræddum við Brynhildi Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna, um leigjendaaðstoðina sem samtökin reka, og spurðum um stöðu leigjenda og leigumarkaðinn eins og hann blasir við henni. Hvalir, norðurljós, náttúruvá, eldgos, fuglar, hopandi jöklar, breytingar á lífríki og rannsóknir á krabbameini er meðal þess sem verður tekið fyrir í nýrri þáttarröð á RÚV um rannsóknir innan Háskóla Íslands. Í þáttunum er fylgst með rannsóknum nærri 80 íslenskra vísindamanna. Handrit þáttanna er unnið af þeim Birni Gíslasyni, Jóni Erni Guðbjartssyni og Konráð Gylfasyni og þeir sjá einnig um dagskrárgerð. Þeir Björn og Jón Örn heimsóttu Morgunútvarpið, en þeir starfa báðir við vísindamiðlun í Háskóla Íslands. Við höldum áfram að tala við oddvita flokkana sem bjóða fram til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík. Til okkar kom Sanna Magdalena Mörtudóttir, sem skipar fyrsta sæti á lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík. Við fórum yfir íþróttaviðburði helgarinnar með Þorkeli Gunnari Sigurbjörnssyni íþróttafréttamanni RÚV. Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur RÚV, ræddi íslenskt mál við okkur, m.a. fjölfaldsorð og sögnina að sigra. Tónlist: Tómas Helgi Wehmeier - Walking without you. Paul Weller - You do something to me. George Michael - Amazing. Shania Twain - I'm gonna getcha good. Rumer - Aretha. Bjartmar Guðlaugsson - Sumarliði er flúinn. Portugal the man - Feel it still. Bríet - Twin. Sandra Kim - Jaime la vie.
Það er hugur í fólki í Reykhólahreppi. Þar stendur til að byggja nokkur einbýlis- og raðhús og á dögunum var haldinn íbúafundur, þar sem fólk lagði fram hugmyndir um eitt og annað sem efla má og bæta í þessu tæplega 300 manna sveitarfélagi í Austur-Barðastrandarsýslu. Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri, lýsti verkefnum og mannlífi í Reykhólahreppi. - Bogi Ágústsson sagði frá tillögum Framkvæmdastjórnar ESB um aukin framlög þjóðríkjanna, ræddi dag fjölmiðlafrelsis, World Press Freedom Day, í dag og minntist þess líka að hálf öld er frá upphafi stúdentaóeirða í París - þegar ungmennin gerðu uppreisn gegn stöðnuðu samfélagi. - Við fjölluðum áfram um Rússland á Morgunvaktinni í tilefni af HM í sumar. Nokkuð hefur verið fjallað um sögu lands og þjóðar, og auðvitað pólitíkina - Pútín er alltaf í fréttunum - en hvernig er líf fólksins í landinu? Og hefur Pútín mikil áhrif á daglegar athafnir venjulegs fólks? Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, ræðir þessi mál eftir átta-fréttir og við spyrjum líka hvort ferðamenn séu sæmilega öruggir í Rússlandi - svona fyrir þá sem ætla á HM. - Ráðherraskipti urðu í dönsku ríkisstjórninni í gær. Sören Pind lét af embætti menntamálaráðherra og hættir í stjórnmálum - hann segist hafa fengið nóg af pólitíkinni og lesa má milli línanna að hann hafi brunnið út í starfi. Slík kulnun er vel þekkt en hefur ekki verið viðurkennd fyrr en á síðustu árum. Við fjölluðum um kulnun í starfi, já og kannski í lífinu almennt. Linda Bára Lýðsdóttir, sálfræðingur, sviðsstjóri hjá Virk, starfsendurhæfingu, ræddi þessi mál. - Hljómsveitin Chicago flutti í lokin lagið 25 or 6 to 4 frá árinu 1970.
Aukin vitund er um skaðsemi plasts fyrir umhverfið og hefur jafnvel verið rætt um það að banna notkun einnota plasthluta á borð við sogrör og plastpoka í nokkrum ríkjum, þar á meðal Bretlandi. Veitinga- og skemmtistaðirnir Prikið, Bravó og Húrra, í miðborg Reykjavíkur hættu alfarið notkun plaströra um helgina. Forsvarsmenn staðanna áætla að um 20.000 plaströr hafi verið notuð í hverjum mánuði. Við heyrum í Geoffrey Þór Huntington-Williams, framkvæmdastjóra Priksins. Dagforeldrum hefur fækkað um þriðjung í Reykjavík frá árinu 2011 og í Morgunblaðinu í morgun er haft eftir Dagnýju Ólafsdóttur, hjá félagi dagforeldra, að enn fleiri dagforeldri hafi tilkynnt að þau muni hætta störfum. Fjöldi foreldra er í miklum vandræðum vegna þessa og fá enga dagvistun fyrir börn sín að loknu fæðingarorlofi. Ein þeirra er Kristín Sævarsdóttir, móðir 16 mánaða drengs, sem hefur stofnað hópinn Félagsmiðstöð ungra barna, í því skyni að börn og foreldrar í þessari stöðu geti fengið að hittast og fá þannig félagsskap hvort af öðru. Við hringjum í hana. Á þessum árstíma skemma margir dekk og felgur þegar þeir keyra í holur á vegunum en ástand vega á höfuðbogarsvæðinu er sumstaðar slæmt. Nokkuð hefur borið á þessu að undanförnu og ökumenn geta orðið fyrir talsverðu fjárhagstjóni vegna þessa. Við ætlum að forvitnast ástandið í ár og spyrja hvort ökumenn geti átt einhvern rétt á því að fá tjónið bætt. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, fer yfir þessi mál með okkur. Sævar Helgi Bragason kemur í sína vikulegu heimsókn og segir áhugaverð tíðindi úr heimi vísindanna.
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, kallar eftir því að fram fari rannsókn á því hvort þingmenn hafi brotið gegn siðareglum vegna akstursgreiðslna. Hann hefur tilkynnt að hann muni leggja fram fleiri fyrirspurnir á Alþingi varðandi greiðslur til þingmanna, líkt og þá sem hann lagði fram varðandi akstursgreiðslur. Hann kemur til okkar. Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir, landsliðskonur í knattspyrnu, sömdu við knattspyrnufélagið Verona, sem leikur í efstu deild á Ítalíu, um að leika með félaginu síðasta sumar. Félagið stóð heldur betur ekki við samninga og þær neyddust til að mynda til að deila rúmi og fengu ekki greidd laun á réttum tíma. Eftir miklar deilur tókst þeim að rifta samningum en eiga enn inni laun hjá félaginu. Við heyrum í Berglindi, sem er í æfingaferð með landsliðinu á Algarve í Portúgal. Nokkuð hefur verið rætt um þingsályktunartillögu um dánaraðstoð, sem áður var nefnt líknardráp, en hún liggur fyrir þinginu. Fram kom á dögunum að landslæknisembættið telur að það sé misráðið að færa umræðunua á þetta mál inná alþingi og enn verra yrði ef heilbrigðisráðuneytinu yrði falið að takast á við verkefnið á meðan önnur og mikilvægari verkefni bíða úrlausnar í heilbrigðisráðuneytinu. Við fáum til okkar þær Ingrid Kuhlman og Silviane Lecoultre til okkar en þær eru frá félaginu Lífsvirðingu sem er félag um dánaraðstoð. Þær hafa báðar persónulega reynslu af dánaraðstoð. Faðir Ingrid var með þeim fyrstu sem fékk dánaraðstoð með löglegum hætti árið 2002 og eiginmaður Silviane fór til Sviss árið 2013 og fékk þar aðstoð við að deyja. Þær segja okkur frá þessu. Sævar Helgi Bragason fer yfir það helsta úr heimi vísindanna.
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Kristófer Þór Pétursson kvikmyndagerðarmaður orðsendingu Páls Kolbeinssonar til vinar síns Þorsteins Halldórssonar á Lambastöðum. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.