Podcasts about flestir

  • 42PODCASTS
  • 209EPISODES
  • 1h 2mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Apr 10, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about flestir

Latest podcast episodes about flestir

Heimsglugginn
Kúvending í Washington

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Apr 10, 2025 21:11

Heimsglugginn fjallaði að mestu um skyndilega stefnubreytingu Bandaríkjaforseta þegar hann frestaði um þrjá mánuði flestum tollahækkunum. Hlutabréfamarkaðir réttu strax úr kútnum en margir velta fyrir sér hvað hafi valdið kúvendingunni. Flestir hallast að því að verðlækkun bandarískra ríkisskuldabréfa og hærri ávöxtunarkrafa hafi orðið til þess að forsetinn breytti um stefnu. Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu einnig við Boga Ágústsson um nýja stjórn í Þýskalandi og kosningar sem fara fram í Kanada og Ástralíu á næstu vikum.

Mannlegi þátturinn
Silja Bára föstudagsgestur og matvöruverslanir erlendis í matarspjallinu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 4, 2025 52:52

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Silja Bára R. Ómarsdóttir, nýkjörinn rektor Háskóla Íslands. Silja á langan akademískan feril að baki í stjórnmálafræði og alþjóðastjórnmálum. Flestir þekkja hana sem sérfræðing í bandarískum stjórnmálum og alþjóðamálum og er hún tíður gestur í fjölmiðlum fyrir kosningar úti í heimi. Silja tók BA próf og MA gráðu í Bandaríkjunum en þegar hún var í doktorsnámi í Californiu gerðist alvarlegt atvik í hennar lífi sem hafði mikil áhrif á hana og varð til þess að hún flutti til Íslands og seinkaði doktorsgráðunni sem hún tók þó síðar á Írlandi. Silja sagði okkur frá því og öðru sem hefur mótað hana eins og uppvextinum í Ólafsfirði, bókum sem hún las í æsku og kennslu sem hún segist hafa mikla ánægju af. Hún sagði okkur líka hvernig hún vill sjá Háskóla Íslands fyrir sér sem næsti rektor, en hún tekur við embættinu 1.júlí næstkomandi. Svo var það matarspjallið, Sigurlaug Margrét var stödd við landamæri Spánar og Frakklands og hún ákvað því að tala um matvöruverslanir þar og erlendis yfir höfuð. Á ferðalögum getur verið mjög gaman og að minnsta kosti áhugavert að fara í matvöruverslanir og sjá aðrar vörur en við erum vön hér úti í búð. Sem sagt matvöruverslanir erlendis í matarspjalli dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Heim í Búðardal / Ðe lónlí bú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) Purple Rain / Prince (Prince) Just a Girl / No Doubt (Gwen Stefani & Tom Dumont) UMSJÓN HELGA ARNARDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Víðsjá
Gísli B. Björnsson / Svipmynd

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 26, 2025 52:43

Víðsjá lítur í heimsókn til Gísla B. Björnssonar í þætti dagsins. Gísli er fæddur árið 1938 í Reykjavík og listina drakk hann úr umhverfi sínu. Á gullsmíðaverkstæðinu hjá afa sínum fékk hann kennslu í listasögu en honum hundleiddist í skóla. Það átti þó eftir að breytast þegar ný deild var stofnum nokkurn vegin með hann í huga, hagnýt myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Síðar hélt Gísli til Stuttgart í framhaldsnám í grafískri hönnun þar sem hann varð fyrir áhrifum af hinni svokölluðu nýju grafík, sem er úrvinnsla á því sem Bauhaus skólinn var að fást við fyrir stríð. Eftir námið vann Gísli ötullega að framgangi fagsins hér á landi og rak sínar eigin stofur auk þess að kenna auglýsingateikningu og grafíska hönnun í 50 ár. Flestir þekkja allavega eitt af merkjunum sem Gísli hefur hannað nú eða bókakápurnar sem hann gerði fyrir Helgafell, svo eitthvað sé nefnt. Ævistarf Gísla hefur verið einstaklega fjölbreytt og fyrr í vetur hlaut hann heiðursverðlaunin á Hönnunarverðlaunum Íslands.

Stundin
Tuð blessi Ísland #7: Kosningarnar sem flestir unnu

Stundin

Play Episode Listen Later Dec 12, 2024

Loksins er komið að löngu tímabæru kosningauppgjöri Tuðsins. Allir sem náðu inn á þing virðast sigurvegarar og bara þau sem þurrkuðust út töpuðu. En hver fær að mæta í jólaglögg Alþingis? Þemalag þáttarins er Grætur í Hljóði eftir Prins Póló.

Spegillinn
Kosningamálin á Íslandi, umdeilt vindorkuver á Austurlandi og tölfræðin á bak við sigur Trumps

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 27, 2024 20:00

Flestir settu heilbrigðismál í efsta sæti þegar Félagsvísindastofnun kannaði í síðustu viku hvað skipti fólk mestu fyrir kosningarnar á laugardaginn - og er það svo í öllum sex kjördæmum. Áherslur fólks í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og Suðvesturkjördæmi, það er höfuðborgarsvæðinu eru nánast alveg eins, en samgöngur eru kjósendum í Norðvesturkjördæmi hugstæðar. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Rúnar Vilhjálmsson prófessor. Alcoa Fjarðaál setur spurningarmerki við stórt vindorkuorkuver sem Fjarðarorka ehf vill reisa í Fljótsdalshreppi og segist ekki geta samþykkt áformin eins og þau séu kynnt í matsáætlun félagsins. Frestur til að skila umsögn um matsáætlunina rann út í síðustu viku. Freyr Gígja Gunnarsson kynnti sér málið. Hinn 20. janúar sver Repúblikaninn Donald John Trump embættiseið vestur í Washington, sem fertugasti og sjöundi forseti Bandaríkjanna. Hann bar, sem kunnugt er, sigurorð af Kamölu Harris, frambjóðanda Demókrata, í forsetakosningunum sem haldnar voru 5. nóvember. Demókratar, sem eyddu meira fé í kosningabaráttuna en nokkru sinni fyrr, klóra sér í hausnum og spyrja, hvað klikkaði? Þeirri spurningu er enn ósvarað, en tölurnar liggja fyrir og spænska blaðið El País rýndi í þær til að reyna að átta sig á sveiflum í kosningahegðun nokkurra mikilvægra kjósendahópa. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Mannlegi þátturinn
Ný bók um hjátrú, vinkill frá Guðjóni og Ástrós Hind lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 18, 2024 50:00

Flestir Íslendingar eru að einhverju leyti hjátrúarfullir og þekkja þetta helsta að forðast að ganga undir stiga og berja í tré og segja 7-9-13. Nú er komin út ný bók hjátrú; Svartir kettir, fullt tungl og rauðhærðar konur. Hér er fjallað um hjátrú af ýmsum toga, innlenda, erlenda, gamalgróna og nýja. Þjóðháttafræðingurinn Símon Jón Jóhannsson er höfundur bókarinnar og hann kom í þáttinn í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni og vinkill dagsins fjallar um mismunandi nálgun manneskjunnar á að „lenda í“ hinum ýmsu aðstæðum, hvernig sum okkar eru bara kærulaus og lenda í þessu og hinu og hvernig önnur segjast bara hafa „lent í“ ýmsu, en hafa í raun stefnt að því ljóst og leynt. Örlítið er fjallað um írska þjóðtrú í því samhengi og dæmi eru tekin af tveimur mönnum sem hafa mismunandi tengingar við eyjur í Atlantshafi. Báðir eru þeir dugnaðarforkar og jafn merkilegir, annar er svolítið frægur en hinn ekki. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Ástrós Hind Rúnarsdóttir, bókmenntafræðingur og sviðslistakona. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Tónlist í þættinum Hvað kostar hamingjan? / Nýdönsk og Sinfó (Ólafur Hólm, texti Björn Jörundur Friðbjörnsson) For the good times / The Little Willies (Kris Kristofferson) Suma daga / Moses Hightower (Andri Ólafsson, Steingrímur Teaque, Magnús Trygvason Elíasen og Daníel Friðrik Böðvarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Tau frá Tógó, Eyrún kórstjóri og húmor og grimmd

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 14, 2024 53:39

Tau frá Togó er nafn á nýrri netverslun þar sem allur ágóði rennur til heimilis í Togó fyrir munaðarlaus börn. Þau sem standa að þessu verkefni selja vörur sem búnar eru til á heimilinu og seldar til að fjármagna reksturinn og hafa með þessu fjármagnað skólagöngu barnanna á heimilinu og auk þess greitt fyrir einstaka eldri nemendur í framhaldsnám. Þetta samstarf byrjaði fyrir 10 árum þegar Guðný Einarsdóttir ættleiddi son sinn frá þessu heimili. Guðný kom í þáttinn í dag. Það eru ekki margir kórstjórar sem eru með fjóra kóra á sínum snærum en Eyrún Jónasdóttir er ein af þeim og einn af þessum kórum er kór Menntaskólans við Laugarvatn. Það er merkilegt að meirihluti nemenda við skólann er í kórnum. En hvernig tekst henni að halda úti kórastarfinu þegar þróunin virðist því miður vera sú að kórastarf við framhaldsskóla hefur sumstaðar lagst af? Við ræddum við Eyrúnu í þættinum í dag. Flestir líta húmor jákvæðum augum, hann léttir lífið og gerir samskipti skemmtilegri. Það er hins vegar erfitt að útskýra húmor og hann er auðvitað ekki alltaf jákvæður, getur verið dökkur, meiðandi og grimmur. Hvað er fyndið og hvers vegna erum við að reyna vera fyndin? Og hvað er grimmd og hvers vegna sýnum við hana? Ársæll Már Arnarson, prófessor á Menntavísindasviði HÍ, hefur skoðað þessi tvö hugtök og hann kom og ræddi húmor og grimmd í dag. Tónlist í þættinum Vetur / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson) Lazy Sunday / Small Faces (Marriott Lane) Forðum / Tómas R Einarsson og Óskar Guðjónsson (Tómas R Einarsson) Aguas de Marco / Antonio Carlos Jobim & Elis Regina (Antonio Carlos Jobim) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Sjálfskaðahegðun unglinga, hvernig líður okkur á safni og listin að vera leiðinlegt foreldri

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 30, 2024 53:15

Unglingar sem stunda sjálfsskaðahegðun nota yfirleitt hegðunina til það ráða við og/eða þola sterkar og erfiðar tilfinningar, segir Kristín Inga Grímsdóttir, sérfræðingur í barna og unglingageðhjúkrun. Algengi sjálfsskaðahegðunar er á bilinu 13-40%, eftir því hvaða aldurshópur er skoðaður. En hverjar eru ástæður sjálfsskaðahegðunar unglinga og hvernig geta foreldrar brugðist við ef þau komast að því að unglingurinn er að skaða sig? Kristín Inga fræddi okkur frekar um þetta í þættinum. Hvernig líður okkur á safni? Hvað er það á safni sem lætur okkur líða vel og hvaða safn er okkur minnistætt hér á landi eða erlendis, þar sem okkur hefur liðið vel. Halldóra Arnardóttir er listfræðingur og stjórnandi verkefnisins Listir og menning sem meðferð við alzheimer. Hún kom til okkar í dag og við töluðum við hana um menningu, miðlun og sýnleika geðrænnar heilsu. Flestir foreldrar kannast við þá klemmu að þurfa að vera „leiðinlega foreldrið“, sem bannar það sem „allir“ aðrir leyfa, sem setur mörk og gerir kröfur. Okkur getur fundist að óþægilega margar setningar okkar sem foreldra byrji á „Nei“ eða „Ekki“. En þessi orð kunna kannski að vera þau mikilvægustu sem foreldrar segja við börn sín. Ársæll Már Arnarsson prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, kom í þáttinn og fræddi okkur um „Listina að vera leiðinlegt foreldri“ og fór með okkur yfir það að setja mörk og hvers vegna. Tónlist í þættinum Leikur að vonum / Mánar (Ólafur Þórarinsson, texti Jónas Friðrik) Haunted / Laufey (Laufey og Spencer Stewart) Á Akureyri / Óðinn Valdimarsson (Óðinn Valdimarsson) Í berjamó / Reggae on Ice (Stefán Örn Gunnlaugsson, Matthías Matthíasson og Hrólfur Sæmundsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Spegillinn
Öryggi ferðafólks, handhafar forsetavalds og samskipti Breta og ESB

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 3, 2024 20:05

Í síðustu viku fórust tveir útlendingar sem voru hér á ferðalagi, annar í bílslysi á Skaga, hinn féll í Hlauptungufoss á Suðurlandi og í sumar dó maður í íshellaferð á Breiðamerkurjökli. Þetta eru þrjú nærtæk dæmi um banaslys erlendra ferðamanna. Hingað koma í ár um tvær milljónir ferðamanna. Er nóg að gert til að tryggja öryggi þeirra gesta sem hingað koma? Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra. 23 fengu greitt fyrir að vera handhafi forsetavalds þau tvö kjörtímabil sem Guðni Th. Jóhannesson var forseti Íslands og námu greiðslurnar samtals 66 milljónum króna. Flestir virðast sammála um að gera þurfi breytingar á forsetakafla stjórnarskrárinnar, en það hefur gengið erfiðlega, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til þess. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman. Leiðtogar Bretlands og Evrópusambandsins ætla sér að bæta samskiptin í kjölfar útgöngu Breta fyrir fjórum árum. Til stendur að halda leiðtogafundi með reglulegu millibili og auka samstarfið, til dæmis á sviði öryggismála. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands var í Brussel í gær, á fundi með helstu forkólfum Evrópusambandsins - Björn Malmquist fylgdist með. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Mannlegi þátturinn
Lyfjafræðingar aðstoða, áhugaverðir staðir að ferðast til og póstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 25, 2024 52:41

Lyfja­fræðing­ur­inn Sig­ríður Pálína Arn­ar­dótt­ir sem rekur Reykjanesapótek hefur ásamt sínu teymi hjálpað fólki við að venja sig af og trappa sig niður vegna neyslu á ávanabindandi lyfjum. Hún flutti til Íslands árið 2017 frá Noregi og er undir miklum áhrifum þaðan um hvernig lyfjafræðingar geta veitt fólki þessa aðstoð. Sigríður vill taka kaupmannsstimpilinn af lyfjafræðingum því þeir séu fyrst og fremst heilbrigðisstarfsfólk sem geti létt undir með heilsugæslunni sem oft sé umsetin og færri komast að en vilja. Sigríður sagði okkur frá á alþjóðadegi lyfjafræðinga sem er einmitt í dag. Flestir Íslendingar hafa afskaplega gaman af að ferðast og eru sífellt að leita að nýjum áhugaverðum áfangastöðum. Provence í Frakklandi og Gvade-lúp-eyjar og Martinique í Karíbahafinu eru landsvæði sem eiga ólíka sögu en eiga það sameiginlegt að vera rík af menningu og spennandi áfangastaðir fyrir ferðalanga. Grégory Cattaneo Miðaldasagnfræðingur og rithöfundur kom til okkar og fór yfir sögu þessara ólíku landsvæða og kafar ofan í þá menningarlegu þróun sem þar hefur átt sér stað. Við fengm póstkort frá Magnúsi R Einarssyni í dag. Póstkortið sagði af ferðalögum Magnúsar undanfarna daga, en hann hefur verið á ferð með fjölda manns um þýskar borgir. Hann segir frá fenjasvæðinu Spreevald sem er einstakt og stundum kallað sveitaútgáfan af Feneyjum. En nú er hann staddur á Möltu og sagði okkur aðeins af þeirri sólskinsríku og sögufrægu eyju. Tónlist frá útsendingarlogg 2024-09-25 Flott - Hún ógnar mér. L'amour fou - Austurstræti. Kristjana Arngrímsdóttir - Útþrá. Hljómar - Þú og ég. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG HELGA ARNARDÓTTIR

Sterk saman
#111 Ívar Örn Katrínarson

Sterk saman

Play Episode Listen Later Jul 28, 2024 58:05

Ívar er 41 árs, sex barna faðir og tónlistarmaður sem nýfarinn er að skrifa bækur. Flestir þekkja hann sem annan helming hljómsveitarinnar Dr. Mister & Mr. Handsome. Hann hefur snúið lífi sínu við og gert upp fortíðina.

Mannlegi þátturinn
Tengslavandi, Heilsubrú og umhverfissálfræði

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 29, 2024 50:51

Jóhanna Jóhannesdóttir, félagsráðgjafi, MA og nemi í fjölskylduráðgjöf kemur til okkar í dag og ætlar að fræða okkur um Tengslavandamál hjá leik- og grunnskólabörnum sem er vandi alls nærumhverfis barnsins. Mikilvægasta grunnþörf barns er að tengjast tilfinningaböndum við foreldra og fá með því þörfum sínum fyrir kærleika, öryggi og vernd mætt án skilyrða. Jóhanna kom í þáttinn og fræddi okkur betur um þetta og sagði meðal annars að enginn getur tekist á við þennan vanda einn, ekki foreldrarnir einir og ekki skólinn einn. Við fjölluðum um Heilsubrú Heilsugæslunnar fyrir um það bil ári síðan en Heilsubrú er ný miðlæg þjónustueining hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þar er þjónusta sem styður og bætir við þjónustu heilsugæslustöðva og þjónustan hefur verið í mótun og ýmislegt hefur bæst við á undanförnum mánuðum sem við fræddumst um í þættinum í dag. Kvenheilsa, andlega heilsa, sykursýki og sérhæfð mæðravernd er meðal þess sem áhersla er lögð á. Sólrún Ólína Sigurðardóttir fagstjóri komi í þáttinn. Svo að lokum fræddumst við um áhrif umhverfis innandyra á líðan og heilsu fólks. Flestir verja stórum hluta tíma síns innandyra. Umhverfi innandyra er samspil ólíkra þátta og hefur mismunandi áhrif á fólk. Þannig hefur umhverfið heima önnur áhrif en vinnuumhverfið, það er ólík upplifun að vera í skóla eða á sjúkrahúsi, í verlun eða leikhúsi. Páll Líndal doktor í umhverfissálfræði kom í þáttinn og sagði frá. Tónlist í þættinum: Sjóddu frekar egg / Bogomil Font (Bragi Valdimar Skúlason) Arietta / Dag Arnesen Trio (Edward Grieg) O Happy day / Edward Hawkins singers (Edwin Hawkins) Dont try to fool me / Jóhann G Jóhannsson(Jóhann G. Jóhannsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Dr. Football
Doc án landamæra - Flestir íslenskir leikmenn skítkaldir í aðdraganda umspilsins

Dr. Football

Play Episode Listen Later Feb 27, 2024 70:13

Sigurður og Gunnar án landamæra.

Lífið með Lindu Pé
155. Krafturinn í skipulaginu

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Nov 29, 2023 25:43

Flestir vita að það væri gott að plana hlutina en samt gera þeir það ekki. Þetta er svipað og með líkamsrækt. Það vita flestir að það væri gott fyrir þá að stunda líkamsrækt en samt gera þeir það ekki. Mig langar að tala um kraftinn sem fylgir því að plana fram í tímann og ég vonast til þess að þið íhugið að byrja að tileinka ykkur það eftir að hafa hlustað á þennan þátt.   LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU-BIÐLISTIAðgangsglugginn í LMLP prógrammið er nú lokaður. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA   NÁNARI UPPLÝSINGAR: Magasínið Lífið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í vikulega rafræna magasíninu mínu ætla ég að fjalla um hvernig ÞÚ getur lifað draumalífinu þínu. Efnistök verða meðal annars; Lífsstíll, heilsa, uppskriftir, fegurð, ferðalög, stíll, viðtöl og svo auðvitað innsýn inn í lífið mitt. Þetta vefrit verður hvatning til þeirra sem það lesa til að bæta eigin lífstíl og gera þær breytingar sem þarf til að lifa draumalífinu. Magasínið Lífið með Lindu Pé á netfangið þitt, alla sunnudaga. Smelltu hér til að skrá þig í ókeypis áskrift.  28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar!  HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. 7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Heimasíða Lindu  Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. LMLP  Prógrammið Lífið með Lindu Pé. Lokað er fyrir skráningu. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!

Samfélagið
Viðbrögð við hamförum í Noregi, sláturbóla og súnur, dýraspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 17, 2023

Jarðfallið í Gjerdrum í Noregi er mörgum minnisstætt, þetta var í lok desember 2020, mörg hús gjöreyðilögðust og tíu létust. Þessar hamfarir eru um margt ólíkar þeim sem nú standa yfir í Grindavík - en í báðum tilfellum hafa yfirvöld þurft að bregðast við - tryggja öryggi og afkomu íbúa. Við ræðum viðbrögð yfirvalda hér og í Noregi við náttúruhamförum við Herdísi Sigurgrímsdóttur, stjórnmálafræðing, hún er nýflutt heim frá Noregi og starfaði þar sem sviðsstjóri umhverfis- og loftslagsmálahjá héraðs yfirvöldum í Stafangri. Flestir smitsjúkdómar sem hrjá okkur mannfólkið berast úr dýrum, þannig sjúkdómar eru kallaðir súnur og meðal þeirra er sláturbóla, hvimleið veirusýking sem borist getur úr sauðfé í menn. Þóra Sverrisdóttir, sjúkraliði, rekstrarfræðingur og sauðfjárbóndi á Stóru Giljá í Húnavatnssýslu, sýktist af sláturbólu á dögunum og batinn dróst á langinn vegna þess að læknir sem hún leitaði til skar í bóluna. Fleiri bændur hafa fengið þetta nýverið og deilt myndum af bólum, ýmist á höndum eða andliti. Við ræðum við Þóru um reynslu hennar, en líka við Pétur Skarphéðinsson lækni á eftirlaunum sem oft fékkst við svona sýkingar í gamla daga og Magnús Gottfreðsson, smitsjúkdómalækni. Fugl aldarinnar var á dögunum kosinn á Nýja-Sjálandi og úrslitin óvænt. Vera Illugadóttir segir frá.

Samfélagið
Viðbrögð við hamförum í Noregi, sláturbóla og súnur, dýraspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 17, 2023 55:00

Árás á sjúkrahús, sýruárás á barn, Svíþjóð, Pólland

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 17, 2023

17. október 2023 Palestínumenn segja um 500 manns hafa fallið í loftárás á sjúkrahús á Gaza. Betur fór en á horfðist þegar stíflueyðisdufti var kastað í andlit tólf ára stúlku. Yfirmaður öryggismála hjá sænska knattspyrnusambandinu varar stuðningsfólk landsliðsins við því að klæðast treyjum liðsins erlendis. Harkalegu ofbeldi er æ oftar beitt í kynlífi þannig að leiði til ákæru. Hjúkrunarrýmum í Seljahlíð í Breiðholti verður lokað 1. febrúar. Ekki á að fækka hjúkrunarrýmum heldur verða þau færð á önnur hjúkrunarheimili. Sjö ára norskur drengur sem leitað hafði verið síðan síðdegis á sunnudag er látinn. ---- Yfirmaður öryggismála hjá Sænska knattspyrnusambandinu telur að stuðningsfólk landsliðsins setji sig í hættu klæðist það gulbláu landsliðstreyjunni. Tveir áhangendur liðsins voru skotnir til bana í Brussel í gærkvöld. Stjórnarskipti blasa við í Póllandi. Flestir telja að stjórn leidd af Donald Tusk myndi leiða landið á nýjar slóðir, halda því í Evrópu og draga úr áhrifum kirkjunnar. Getur innritunarkerfi í framhaldsskóla haft mikil áhrif á það hvernig fólki vegnar í lífinu? Og vitum við hvernig nemendum vegnar í framhaldsskólum og hvernig gengur í skólakerfinu sjálfu?

Spegillinn
Árás á sjúkrahús, sýruárás á barn, Svíþjóð, Pólland

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 17, 2023 10:38

Hernaður Ísraela og Hamas, fundur stjórnarflokkanna, kvennaverkfall

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 13, 2023 9:08

13. október 2023 Samstaða var með stjórnarflokkunum á sameiginlegum vinnufundi þeirra á Þingvöllum í dag, segja Katrín Jakobsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson, forystumenn flokkanna. Kvikugangur er að myndast undir Fagradalsfjalli að mati vísindamanna Veðurstofunnar. Það sýnir hröðun á landrisi undanfarið. Fyrirskipun Ísraelshers um að 1,1 milljón íbúa Gazaborgar komi sér suður á bóginn fyrir miðnætti hefur vakið undrun og óhug víða um heim. Búist er við að landherinn ráðist fljótlega inn á Gazasvæðið. Hernaðurinn á eftir að reynast erfiðari en oft áður að mati Erlings Erlingssonar hernaðarsagnfræðings. Stjórnkerfi og fyrirtæki búa sig undir snúinn þriðjudag 24. október þegar boðað er til sólarhrings kvennaverkfalls. Hvorki ríki né borg ætla að draga af launum kvenna og kvára vegna þátttöku í skipulagðri dagskrá. Rætt var við Gerði Óskarsdóttur, Helga Grímssyni og Maríu Fjólu Harðardóttir. Edda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar, segir húsakost Kaffistofu samtakanna löngu sprunginn vegna þess hve gestum hefur fjölgað síðustu mánuði. Í mars heimsóttu ríflega 200 gestir kaffistofuna. Í september fór fjöldinn upp í tæplega þúsund. Um 70 prósent vilja að Bjarni Benediktsson, fráfarandi fjármála- og efnahagsráðherra, hætti alfarið í ríkisstjórn. Flestir eru ánægðir með ákvörðun hans. Fólki ber ekki saman um hvort ákvörðunin styrki eða veiki ríkisstjórnina. Sænska matvælaeftirlitið hefur varað við uppskriftum sem fólk fer eftir þegar fólk býr sig undir veturinn með því að sjóða niður, sulta og safta. Rætt var við Höllu Halldórsdóttur, gæðastjóra hjá Matís.

Spegillinn
Hernaður Ísraela og Hamas, fundur stjórnarflokkanna, kvennaverkfall

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 13, 2023

22.9.2023 Kynþroska strokulaxar, Landsbankinn farinn úr Austurstræti,

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 22, 2023 9:24

Flestir strokulaxarnir sem Hafrannsóknarstofnun hefur greint, voru kynþroska. Þetta er óvenjulegt, en í laxeldi er kynþroska laxa seinkað til þess að auka gæði fiskanna. Valur Grettisson ræddi við Guðna Guðbergsson, sviðsstjóra hjá Hafrannsóknastofnun. Héraðssaksóknari hefur ákært þrjá danska karlmenn í tengslum við umfangsmikið smygl á hundrað fimmtíu og sjö kílóum af hassi. Þeir voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu úti fyrir Garðskaga í lok júní. Málaflokkur fatlaðra hefur verið vanfjármagnaður um 42 milljarða króna á fjögurra ára tímabili. Formaður Borgarráðs Reykjavíkurborgar segir það ekki ganga að ríki og sveitarfélög séu í reiptogi um svo viðkvæman málaflokk. Valur Grettisson ræddi við Einar Þorsteinsson formann borgarráðs Reykjavíkur. Starfsemi Landsbankans í höfuðstöðvunum í Austurstræti í Reykjavík er lokið. Þar var skellt í lás í síðasta sinn klukkan fjögur í dag. Gréta Sigríður Einarsdóttir sagði frá og talaði við Jósep Gíslason, starfsmann bankans, Helga Teit Helgason framkvæmdastjóra einstaklingssviðs og viðskiptavininn Sigríði. Að minnsta kosti þrír voru handteknir í aðgerð sérsveitar ríkislögreglustjóra í Flúðaseli í Reykjavík í dag. Ekki hefur gengið sem skyldi að finna réttu leiðina til að virkja rödd almennings við breytingar á stjórnarskrá að dómi Jóns Ólafssonar, prófessors í heimspeki. Hann telur hæpið að þrjár greinargerðir lögfræðinga sem birtust í síðustu viku verði upphaf að gefandi samtali. Hagstofan hefur gefið út áður óbirt manntal. Það var tekið 1981 og er 42 ára gamalt. Ragnhildur Thorlacius tók saman. Flóð færast sífellt í aukana í Miami í Flórída og víðar í suðurhlutanum. Vísindamenn telja að þriðjungur ríkisins verði orðinn umflotinn vatni um næstu aldamót. Ásgeir Tómasson sagði frá. Umsjón: Ásgeir Tómasson. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

Spegillinn
22.9.2023 Kynþroska strokulaxar, Landsbankinn farinn úr Austurstræti,

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 22, 2023

Prígósjín, BRIKS og stuldur úr British Museum

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Aug 24, 2023

Jón Ólafsson prófessor við Háskóla Íslands segir tíðindi af dauðsfalli Jevgenís Prígósjíns, leiðtoga Wagner-málaliðahersins, ekki þurfa að koma á óvart. Það hefði mátt búast við því að eitthvað svona gerðist. Prígósín fórst í gær þegar flugvél hans virðist hafa verið skotin niður. Flestir ganga út frá því að einkaþota Prígósjíns hafi verið grandað að fyrirskipan Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta. Jón telur líklegt að Pútín hafi styrkt stöðu sína. Þá ræddu Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson um fund svonefndra BRIKS ríkja í Suður-Afríku og að lokum um rán muna úr British Museum.

Heimsglugginn
Prígósjín, BRIKS og stuldur úr British Museum

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Aug 24, 2023 23:53

Jón Ólafsson prófessor við Háskóla Íslands segir tíðindi af dauðsfalli Jevgenís Prígósjíns, leiðtoga Wagner-málaliðahersins, ekki þurfa að koma á óvart. Það hefði mátt búast við því að eitthvað svona gerðist. Prígósín fórst í gær þegar flugvél hans virðist hafa verið skotin niður. Flestir ganga út frá því að einkaþota Prígósjíns hafi verið grandað að fyrirskipan Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta. Jón telur líklegt að Pútín hafi styrkt stöðu sína. Þá ræddu Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson um fund svonefndra BRIKS ríkja í Suður-Afríku og að lokum um rán muna úr British Museum.

Morgunvaktin
Alræmdir landabruggarar segja frá

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 4, 2023

Verslunarmannahelgin er fram undan og alls ekki óhugsandi að einhverjir fái sér aðeins í tánna. Flestir kaupa sínar veigar í vínbúðunum; þeirri opinberu eða þessum einkareknu á veraldarvefnum, og þá drykki frá viðurkenndum framleiðendum. En öðru vísi háttaði til fyrir tæpri öld; á bannárunum var heimagerður landi í glösum. Við dustuðum rykið af viðtölum sem Stefán Jónsson útvarpsmaður átti við tvo ónefnda landabruggara í þætti árið 1967. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, talaði frá Korsíku í Miðjarðarhafi að þessu sinni og sagði frá eyjunni. Guttormur Þorsteinsson, bókavörður í Kringluútibúi Borgarbókasafnsins, var gestur þáttarins. Hann sagði frá því sem hann og aðrir bókaverðir fást við um þessar mundir, og týndi til nokkrar bækur sem tilvalið er að lesa þessa dagana. Tónlist: C'est si bon - Louis Armstrong Iwanaragh - Bombino La plage - Raphael Futura Riviera - Raphael Futura It's My Party - Lesley Gore Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Vera Illugadóttir.

bj stef hann kors kristj sigbj sigurj flestir borgarb vera illugad guttormur
Morgunvaktin
Alræmdir landabruggarar segja frá

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 4, 2023 130:00

Lestin
Storytel snuðar rithöfunda, Eþíópískur matur, íslensk nýlenda í USA

Lestin

Play Episode Listen Later Jun 13, 2023 55:00

Flestir vita að Leifur heppni sigldi til Ameríku í kringum árið 1000 og norrænir menn stofnuðu þar nýlendu í kjölfarið. Þetta landnám varð frekar skammlíft enda lenti innflytjendunum saman við þá sem fyrir voru í landinu. En hvað ef landnámið hefði heppnast, hefðu norrænir menn einangrað sig á nýfundnalandi, blandast frumbyggjum álfunnar eða tekið yfir. Við pælum í þessum með Val Gunnarssyni sagnfræðingi og rithöfundi sem sendi nýlega frá sér hvað-ef-sagnfræðiritið What if Vikings Conquered the world. Við kynnum okkur matarmenningu Eþíópíu. Við höldum ekki til Addis Ababa heldur förum á Blönduós þar sem Liya Yirga Behaga rekur veitingastaðinn Teni. Heiða Vigdís Sigfúsdóttir kíkir ofan í pottana hjá Liyu. Við ræðum við Auði Jónsdóttur um nýlega grein hennar í Heimildinni sem fjallar um stöðu bókaútgáfu á Íslandi og þá sérstaklega áhrifin sem innkoma streymisveitunnar Storytel hefur haft. Storytel hóf starfsemi hér á landi árið 2018 og mörgum rithöfundum finnst þeir hlunnfarnir af veitunni.

Lestin
Storytel snuðar rithöfunda, Eþíópískur matur, íslensk nýlenda í USA

Lestin

Play Episode Listen Later Jun 13, 2023

Flestir vita að Leifur heppni sigldi til Ameríku í kringum árið 1000 og norrænir menn stofnuðu þar nýlendu í kjölfarið. Þetta landnám varð frekar skammlíft enda lenti innflytjendunum saman við þá sem fyrir voru í landinu. En hvað ef landnámið hefði heppnast, hefðu norrænir menn einangrað sig á nýfundnalandi, blandast frumbyggjum álfunnar eða tekið yfir. Við pælum í þessum með Val Gunnarssyni sagnfræðingi og rithöfundi sem sendi nýlega frá sér hvað-ef-sagnfræðiritið What if Vikings Conquered the world. Við kynnum okkur matarmenningu Eþíópíu. Við höldum ekki til Addis Ababa heldur förum á Blönduós þar sem Liya Yirga Behaga rekur veitingastaðinn Teni. Heiða Vigdís Sigfúsdóttir kíkir ofan í pottana hjá Liyu. Við ræðum við Auði Jónsdóttur um nýlega grein hennar í Heimildinni sem fjallar um stöðu bókaútgáfu á Íslandi og þá sérstaklega áhrifin sem innkoma streymisveitunnar Storytel hefur haft. Storytel hóf starfsemi hér á landi árið 2018 og mörgum rithöfundum finnst þeir hlunnfarnir af veitunni.

Samfélagið
Útskriftarnemar, brotið og bramlað, málfar og dýrasvif

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jun 9, 2023 55:00

Flestir framhaldsskólar hafa útskrifað sitt fólk. Útskriftarárgangurinn í ár á að baki athyglisverð ár - covid setti tóninn í byrjun en hvernig endaði þetta allt saman og hvað ber framtíðin í skauti sér? VIð setjumst niður með tveimur nýútskrifuðum, það eru þau Erla Rúrí Sigurjónsdóttir úr Flensborg og Egill Breki Scheving úr Borgarholtsskóla. Sumarið er gjarnan tími fyrir ýmis konar leiki og sprell. Eitt af því sem býðst í Skemmtigarðinum í Grafarvogi er svokölluð Útrás þar sem fólk getur fengið brjóta og bramla alls kyns hluti, svo sem diska, glös og annað postulín, jólaskraut, sjónvörp, borð og bekki og svo mætti lengi telja. En hvaðan koma þessir hlutir og hvernig endurspegla þeir samfélag okkar og neysluhyggjuna sem oft virðist allsráðandi? Samfélagið bregður sér upp í Grafarvog hér á eftir og ræðir við Snorra Helgason framkvæmdastjóra Skemmtigarðsins. Málfarsmínúta er á sínum stað og svo er Dýraspjall, að þessu sinni er rætt við Hildi Pétursdóttur, sérfræðing hjá Hafró en hún er sérfróð um svokallað dýrasvif, sem eru smá en mikilvæg öllu lífríki hafs.

Samfélagið
Útskriftarnemar, brotið og bramlað, málfar og dýrasvif

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jun 9, 2023

Flestir framhaldsskólar hafa útskrifað sitt fólk. Útskriftarárgangurinn í ár á að baki athyglisverð ár - covid setti tóninn í byrjun en hvernig endaði þetta allt saman og hvað ber framtíðin í skauti sér? VIð setjumst niður með tveimur nýútskrifuðum, það eru þau Erla Rúrí Sigurjónsdóttir úr Flensborg og Egill Breki Scheving úr Borgarholtsskóla. Sumarið er gjarnan tími fyrir ýmis konar leiki og sprell. Eitt af því sem býðst í Skemmtigarðinum í Grafarvogi er svokölluð Útrás þar sem fólk getur fengið brjóta og bramla alls kyns hluti, svo sem diska, glös og annað postulín, jólaskraut, sjónvörp, borð og bekki og svo mætti lengi telja. En hvaðan koma þessir hlutir og hvernig endurspegla þeir samfélag okkar og neysluhyggjuna sem oft virðist allsráðandi? Samfélagið bregður sér upp í Grafarvog hér á eftir og ræðir við Snorra Helgason framkvæmdastjóra Skemmtigarðsins. Málfarsmínúta er á sínum stað og svo er Dýraspjall, að þessu sinni er rætt við Hildi Pétursdóttur, sérfræðing hjá Hafró en hún er sérfróð um svokallað dýrasvif, sem eru smá en mikilvæg öllu lífríki hafs.

Spegillinn
Bætur vegna riðu, vaxtahækkanir og kjaramál

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 23, 2023

Spegillinn 23. maí 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir. Bændur í Miðfirði, sem misstu allt fé sitt vegna riðu í vor, segja óvíst hvort þeir hefji sauðfjárbúskap að nýju. Áfallið sé mikið, bæði andlega og fjárhagslega, segir Dagbjört Diljá Einþórsdóttir. Ólöf Rún Erlendsdóttir talaði við hana. Ekki á að selja búnað sem var keyptur fyrir lögreglu vegna leiðtogafundarins í síðustu viku, þar með talin skotvopn. Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir að vopnin nýtist í framtíðinni. Arndís Anna Krístínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, spurði Jón á þingi í dag hvað hann hefði í hyggju með vopnin. Hæstiréttur hefur sýknað Kópavogsbæ af kröfum erfingja Sigurðar Hjaltested um bætur fyrir eignarnám á Vatnsenda. Dómurinn tók undir með Landsrétti að bærinn hefði gert rétt með því að greiða Þorsteini Hjaltested einum bætur. Alexander Kristjánsson sagði frá. Flug bæði innanlands og til útlanda raskaðist í veðurhamnum í dag en ekki hefur borið á tilkynningum um foktjón. Gular viðvarnir gilda fram á morgundaginn. Ferðir til útlanda seljast eins og heitar lummur. Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Úrval Útsýn segir meiri sölu þegar veðrið er vont. Flestir sækja í sólina. ------------ Það ætti ekki að koma neinum á óvart að vextir fari hækkandi á meðan verðbólga er í þessum hæðum segir Jón Þór Sturluson hagfræðingur og deildarforseti viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands. Seðlabankinn ákveður stýrivexti á morgun. Jón Þór segir að það skjóti skökku við að ríkissjóður sé rekinn með halla við þessar kringumstæður - þar sem sé mikill hagvöxtur í kerfinu og mikil spenna á vinnumarkaði og vörumarkaði. Ragnhildur Thorlacius ræddi við hann. Einnar viku vopnahlé í Súdan virðist ætla að verða virt þrátt fyrir sprengjuárásir í gærkvöld og nótt. Tugmilljónir landsmanna þurfa á neyðaraðstoð að halda. Ásgeir Tómasson sagði frá. Moe Faddoul, íbúi í höfuðborginni, Abdou Dieng, sem stýrir mannúðaraðstoð Sameinuðu þjóðanna. Enginn fundur hefur verið boðaður í kjaradeilu BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga og mikið ber á milli. Um 1.500 félagsmenn BSRB sem starfa hjá tíu sveitarfélögum eru í verkfalli þessa vikuna og frekari aðgerðir hafa verið samþykktar, alveg fram í júlí. Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir kröfur BSRB margar eðlilegar, en ekki sé hægt að endursemja um samning sem er liðinn og að fullu efndur.

Spegillinn
Bætur vegna riðu, vaxtahækkanir og kjaramál

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 23, 2023 8:19

Afleiðingar áfalla, U3A og póstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 10, 2023 50:00

Sjónaukinn, árleg ráðstefna Heilbrigðis-, viðskipta og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri, verður haldin dagana 16.-17. maí. Þema ráðstefnunnar að þessu sinni er Horft til framtíðar - fólk og fjölskyldur í fyrirrúmi. Þar munu meistaranemar kynna meistaraverkefni sín og rannsóknir. Við fengum Sigrúnu Sigurðardóttur, dósent við háskólann á Akureyri til að segja okkur frá ráðstefnunni og með henni kom Rebekka Sif Pétursdóttir meistaranemi, en hún ætlar sagði okkur frá rannsókn sinni Erfið reynsla í æsku - ACE og heilsufarslegur vandi á fullorðinsárum. Flestir vita að Erasmus+ styrkir evrópska nema til að fara í skiptinám til annarra Evrópulanda og hafa íslenskir nemar verið duglegir að nýta sér þess styrki. Færri vita að nú getur fólk á þriðja æviskeiðinu sem er í einhvers konar námi gert það líka. Það að Erasmus+ sé farið að ná til fólks á þriðja æviskeiðinu sýnir viðhorfsbreytingu til fólks á eftirlaunaaldrinum. Hans Kristján Guðmundsson, frá U3A Háskóla þriðja æviskeiðsins, kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá skólanum og þessu nýja kosti frá Erasmus áætluninni. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Krýning Karls þriðja bretakonungs var til umfjöllunar í póstkorti dagsins, en Magnús finnur til tengingar við konung vegna þess að þeir eiga sama afmælisdag. Í seinni hluta póstkortsins sagði hann frá því þegar Englendingar rændu Vestmannaeyjar árið 1614, en nú er talið að tengingar séu milli þess atburðar og svo Tyrkjaránsins þrettán árum síðar, 1627. TÓNLIST Í ÞÆTTINUM: Ingileif / Snorri Helgason (Snorri Helgason) - Desperado / Eagles (Glen Frey & Don Henley) Ég mun aldrei gleyma þér / Brimkló (Robbins og Jón Sigurðsson) Styttur bæjarins / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Afleiðingar áfalla, U3A og póstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 10, 2023

Pyngjan
Ársreikningar: Storytel

Pyngjan

Play Episode Listen Later Jan 31, 2023 63:48

Við höldum áfram í Sænska þemanu okkar og nú er það Storytel. Flestir kannast nú orðið við fyrirtækið en það sem kannski færri vita er það að það var Íslendingur að nafni Jón Hauksson sem stofnaði fyrirtækið árið 2005. Stórskemmtileg saga og ennþá skemmtilegri ársreikningur. Góðar stundir.

Víðsjá
Svipmynd af teiknara, Reykjavík Dance Festival

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 23, 2022 55:00

Halldór Baldursson, teiknari, hefur myndskreytt á annað hundrað barna- og kennslubóka og fengið margs konar verðlaun og viðurkenningar fyrir. Flestir þekkja eflaust til hans fyrir skopmyndir sem hann teiknar, bæði í Fréttablaðið og Viðskiptablaðið, myndir sem oftar en ekki fela í sér flugbeitta samfélagsrýni. Halldór kennir teikningu og myndskreytingu við Listaháskóla Íslands og Myndlistaskólann í Reykjavík og nýlega kom út eftir hann myndasaga sem ber titilinn Hvað nú? Sagan er sérstæð fyrir margra hluta sakir, en hana vann Halldór sem lokaverkefni í listkennslu við Listaháskóla Íslands. Halldór Baldursson verður gestur okkar í Svipmynd dagsins. EInnig fáum við pistil frá Nínu Hjálmarsdóttur, sem tekur saman upplifun sína á Reykjavík Dance Festival, danshátíðinni í Reykjavík, sem lauk á sunnudaginn. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Svipmynd af teiknara, Reykjavík Dance Festival

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 23, 2022

Halldór Baldursson, teiknari, hefur myndskreytt á annað hundrað barna- og kennslubóka og fengið margs konar verðlaun og viðurkenningar fyrir. Flestir þekkja eflaust til hans fyrir skopmyndir sem hann teiknar, bæði í Fréttablaðið og Viðskiptablaðið, myndir sem oftar en ekki fela í sér flugbeitta samfélagsrýni. Halldór kennir teikningu og myndskreytingu við Listaháskóla Íslands og Myndlistaskólann í Reykjavík og nýlega kom út eftir hann myndasaga sem ber titilinn Hvað nú? Sagan er sérstæð fyrir margra hluta sakir, en hana vann Halldór sem lokaverkefni í listkennslu við Listaháskóla Íslands. Halldór Baldursson verður gestur okkar í Svipmynd dagsins. EInnig fáum við pistil frá Nínu Hjálmarsdóttur, sem tekur saman upplifun sína á Reykjavík Dance Festival, danshátíðinni í Reykjavík, sem lauk á sunnudaginn. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Hlaðvarp Kjarnans
Eitt og annað: Þekkt en þó óþekkt - 29. ágúst 2021

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Oct 18, 2022 10:11

Flestir kann­ast við Einar Áskel, bursta­klippta strák­inn sem býr með pabba sín­um. Færri þekkja hins­vegar nafn höf­und­ar­ins sem skrif­aði sög­urnar og teikn­aði mynd­irn­ar. Gun­illa Bergström er lát­in, hún lést á síðasta ári og í þættinum les Borgþór Arngrímsson pistil sinn um höfundinn.

Lífið með Lindu Pé
97. Frelsið í skipulaginu

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Sep 5, 2022 31:24

Flestir vita að það væri gott að plana hlutina betur, að vera skipulagaðri en gera það samt ekki. Þetta er svipað og með líkamsrækt. Það vita flestir að það væri gott fyrir þá að stunda líkamsrækt en gera það samt ekki. Ég trúi því að við fáum að hanna lífið okkar. Að við fáum að taka ákvarðanir sem leiða okkur þangað sem við viljum fara. Til þess að gera það þurfum við að tileinka okkur að gera plön sem byggja á því sem við viljum að gerist í lífinu.   Mig langar að tala um kraftinn sem fylgir því að plana fram í tímann og ég vonast til þess að þú hugleiðir að byrja að tileinka þér það eftir að hafa hlustað á þennan þátt.  - - -  Hvernig myndi þér líða  ef sjálfsmynd þín væri sterk, aukakílóin væru horfin og þú værir að lifa draumalífinu þínu? Smelltu hér. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Magasínið Lífið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í vikulega rafræna magasíninu mínu ætla ég að fjalla um hvernig ÞÚ getur lifað draumalífinu þínu. Efnistök verða meðal annars; Lífsstíll, heilsa, uppskriftir, fegurð, ferðalög, stíll, viðtöl og svo auðvitað innsýn inn í lífið mitt. Þetta vefrit verður hvatning til þeirra sem það lesa til að bæta eigin lífstíl og gera þær breytingar sem þarf til að lifa draumalífinu. Magasínið Lífið með Lindu Pé á netfangið þitt, alla sunnudaga. Smelltu hér til að skrá þig í ókeypis áskrift. 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar!  7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Heimasíða Lindu  Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. LMLP  Hér færðu Lindu sem lífsþjálfa þinn. Vikulegir fundir, þú losar þig við aukakílóin, byggir upp sjálfsmyndina, færð aukið sjálfstraust og trú á þig sjálfa-og þú ferð að lifa draumalífin þínu. Skráðu þig í prógrammið Lífið með Lindu Pé. HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!  

Spegillinn
Bætt fráflæði, stytting vinnutíma í vaktavinnu og fjölgun flóttafólks

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 2, 2022 29:52

Um helmingi færri sjúklingar eru innlagðir á bráðamóttöku nú en þegar mest lét og því ekki þörf á jafn mikilli mönnun, segir aðstoðardeildarstjóri. Hún segir vinnu framkvæmdastjórnar spítalans við að bæta fráflæði hafa borið árangur. Ólöf Ragnarsdóttir talaði við Hildi Dís Kristjánsdóttur. Forstjóri MAST fagnar því að Ríkisendurskoðun hafi ákveðið að gera úttekt á starfseminni. Vel megi vera að til bóta verði að fá fleiri að aðgerðum í dýravelferðarmálum. Sagði Hrönn Ólína Jörundsdóttir. Ólöf Rún Skúladóttir talaði við hana. Matvælaráðherra hefur veitt undanþágu frá reglugerð um innfluttan áburð, til að bregðast við minnkuðu framboði. Framkvæmdastjóri Bændasamtakanna segir atvinnugreinina hafa óskað eftir breytingu sem þessari. Sagði Vigdís Häsler. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir tók saman. Tugir leyniskjala fundust við húsleit bandarísku alríkislögreglunnar á heimili Donalds Trump, fyrrverandi forseta. Listi yfir gögnin sem fundust hefur verið birtur. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá. Og við lítum við í teiti í miðbæ Reykjavíkur þar sem UN Women á Íslandi hrindir úr vör herferð til styrktar hinsegin fólki. Ólöf Rangarsdóttir verður á staðnum. Í fyrravor tók gildi stytting vinnutíma fólks í vaktavinnu hjá því opinbera. Vinnuskylda níu þúsund starfsmanna hjá um sjö hundruð vinnustöðum gat styst í 32 klukkustundir á viku. Frá því að þetta tók gildi hefur grannt verið fylgst með innleiðingunni. Bára Hildur Jóhannsdóttir verkefnisstjóri hjá Betri vinnutíma segir að í undirbúningi hafi markvisst verið unnið að því að einfalda upplýsingar og allir farið í gegnum sama ferlið. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Báru Hildi Jóhannsdóttur. Aldrei hafa fleiri einstaklingar á flótta leitað hingað til lands. Flestir umsækjendur fara til þriggja sveitarfélaga, Reykjavíkurborgar, Reykjanesbæjar og Hafnarfjarðarbæjar. Nú hefur bæjarstjóri Hafnarfjarðar sagt bæjarfélagið komið að þolmörkum, það geti ekki tekið við fleirum og kvartar undan því að ekki sé hlustað. Félagsmálaráðherra segir þetta vera vaxtarverki. Nichole Leigh Mosty er forstöðumaður fjölmenningarseturs. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við hana.

Spegillinn
Bætt fráflæði, stytting vinnutíma í vaktavinnu og fjölgun flóttafólks

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 2, 2022

Í austurvegi – Ping Pong Diplomacy 乒乓外交

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Aug 22, 2022 19:35

Sumir kannast við enska hugtakið Ping Pong Diplomacy og geta tengt það við ákveðin tímamót í samskiptasögu Bandaríkjanna og Alþýðulýðveldisins Kína. Flestir hafa kannski heyrt á það minnst en þekkja ekki beint söguna að baki þess. Í þessum þætti rennum við aðeins yfir þessa áhugaverðu sögu og sjáum hvernig borðtennis breytti heimssögunni.

bandar sumir flestir ping pong diplomacy
Morgunútvarpið
19. júlí - Úkraína, leiðtogakjör í UK, Em kvenna og tæknihorn

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jul 19, 2022

Umsjón: Rúnar Róbertsson og Felix Bergsson Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og rithöfundur er á ferð um Úkraínu og sendir okkur pistla þaðan þar sem hann lýsir upplifun sinni. Í þessum pistli er hann á leið til bæjarins Bucha en ef ekki hefði komið til að þar voru framin skelfilegustu fjöldamorð í Evrópu það sem af er öldinni væri lítið af þessum bæ að segja. Flestir kannast við fréttamyndirnar þar sem líkin liggja eins og hráviði innan um sundursprengd hús. Í kjölfarið urðu Bucha og nágrannabærinn Irpin heimsfrægir út af einhverju sem enginn vill að hendi sig. Leiðtogakjör breskra íhaldsmanna nær hápunkti nú í vikunni þegar flokkurinn kýs sér nýjan formann og þar með forsætisráðherra. Keppnin er dálítið eins og saga eftir Agöthu Christie því einn frambjóðandi af öðrum fellur af vagninum og nú eru bara fjórir eftir. Það eru þau Liz Truss, Penny Mordaunt, Rishi Sunak og Kemi Badenoch. En hvernig fer þetta allt saman fram og hver er líklegastur til að standa uppi sem sigurvegari? Við vorum með nýdoktorinn og stjórnmálafræðinginn Viktor Orra Valgarðsson á línunni frá suðupottinum Bretlandi Íslenska landsliðið bauð upp á einn spennuleikinn til viðbótar og þriðja jafnteflið í gærkvöldi þegar það stóð upp í hárinu á Frökkum í leik sem endaði með jafntefli 1-1. Þetta var þriðja 1-1 jafntefli Íslands á mótinu en því miður dugði það ekki til að tryggja okkur áfram í milliriðla. En hver er staðan á íslenskum kvennafótbolta og hvernig getum við metið frammistöðuna á þessu móti? Fjölmiðlamaðurinn og fyrrum þjálfarinn Þorkell Máni Pétursson kom í morgunkaffi. Guðmundur Jóhannsson sagði okkur frá spennandi nýjungum þegar kemur að tækni þegar hann mætti í Tæknihornið.

Play Episode Listen Later Jul 19, 2022 130:00

Fotbolti.net
Saga aðstoðarþjálfarans - Frá KF Nörd á Evrópumótið í Englandi

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jul 2, 2022

Viltu kynnast aðstoðarþjálfara landsliðsins betur? Þá er óhætt að mæla með hlustun á þessum þætti. Ásmundur Haraldsson var svokölluð barnastjarna í KR en fór svo í háskólanám til Bandaríkjanna þar sem hann varð mikill Kani. Hann bjóst ekki við því að koma aftur heim en endaði nú á því að gera það. Ásmundur var senter á sínum leikmannaferli og var einu sinni markakóngur 3. deildar. Fljótlega beindist hugurinn að þjálfun þó skórnir hafi seint farið upp á hillu. Flestir landsmenn kynntust Ása fyrst þegar hann var þjálfari í þáttunum KF Nörd sem fóru sigurför um Ísland, en í dag er hann aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins sem tekur þátt á EM seinna í þessum mánuði. Þetta er annað Evrópumótið sem Ási er að fara á í þessu hlutverki. Ásmundur, sem er mikilvægur hlekkur í þessu frábæra landsliði, settist niður með undirrituðum á hóteli landsliðsins í Herzogenaurach þar sem liðið er að undirbúa sig fyrir Evrópumótið.

Spegillinn
Spegillinn 14. mars 2022

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 14, 2022

Spegillinn 14. Mars 2022 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Byrjað er að flytja íbúa Mariupol í Úkraínu út úr borginni eftir um tveggja vikna herkví. Friðarviðræðum Rússa og Úkraínumanna lauk seinnipartinn án niðurstöðu en annar fundur hefur verið boðaður á morgun. Embætti landlæknis er með andlát ungs barns á Norðurlandi sem smitað var af Covid til rannsóknar. Vonskuveður hefur gengið yfir landið í dag - Sunnan og suðaustan rok með úrhellis rigningu á suður og vesturlandi. Fjallvegir eru víða lokaðir og björgunarsveitir verið kallaðar út vegna fok og vatnstjóns. Framkvæmdastjóri lækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri segir að eldra fólk smitistt í meira mæli en áður af Covid. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra kynnti í morgun ríkisstjórn og utanríkismálanefnd tillögu sína um að opna sendiráð Íslands í Varsjá, höfuðborg Póllands. Lengri umfjöllun: Hátt í þrjár milljónir Úkrínumanna hafa nú flúið land eftir að rússneski herinn réðist inn í Úkraínu 24. febrúar. Fjöldinn á eftir að aukast enn meir á næstu dögum og vikum ef ekki verður breyting á hernaði Rússa gegn landi og þjóð. Langflestar Evrópuþjóðir hafa heitið því að taka höndum saman og koma flóttafólkinu til hjálpar til lengri og skemmri tíma. Búist er við að nokkur þúsund manns komi til Íslands og vinna komin á fullt við að taka á móti flóttafólkinu. Úkraínumenn bætast nú við þá flóttamenn og hælisleitendur sem komið hafa hingað frá öðrum löndum. Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar segir formsatriði fyrir það fólk sem flúið hefur stríðið í Úkraínu að fá atvinnuleyfi hér á landi. Næga vinnu sé að hafa og atvinnuleysi minnki jafnt og þétt á næstu mánuðum. Óljóst sé hins vegar hversu stór hlúti af því fólki sem flýr stríðið í Úkraínu sæki um atvinnu hér á landi. Flestir ala eflaust þá von í brjósti að geta snúið til baka eins fljótt og auðið er. Vissar reglur gilda um atvinnuleyfi fyrir flóttafólk og hælisleitendur. Kristján Sigurjónsson talar við Unni. Margir loka eyrum þegar lífeyrismál ber á góma. En þau skipta okkur máli, og það er undir hverju og einu okkar komið að huga að þeim. Því fyrr, því betra. Margir sigla í gegnum starfsferil sinn á lygnum sjó án þess að huga sérstaklega að lífeyrisréttindum sínum og þeim möguleikum sem standa til boða þegar hyllir undir starfslok. Bjarni Rúnarsson ræddi þessi mál við Björn Berg Gunnarsson deildarstjóra greiningar og fræðslu hjá Íslandsbanka.

Spegillinn
Spegillinn 14. mars 2022

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 14, 2022 8:28