POPULARITY
Norðanóveður er í spánni. Óvissustigi hefur verið lýst yfir á Austurlandi, Austfjörðum og Suðuarusturlandi og gildir langt fram á morgundaginn. Katrín Agla Tómasdóttir, veðurfræðingur tekur undir að þetta sé ekki einsdæmi snemmsumars en mjög óvenjulegt á þessum tíma. Hret á þessum árstíma getur bitnað illa á bændum, þeir þurfa að vera fljótir að stökkva til og koma kindum og nýfæddum lömbum í skjól og huga að gróðri sem kominn er mun lengra kominn en oftast áður. Sigurgeir Hreinsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar, hvetur bændur til að vera á tánum en vonar hretið núna verði ekki eins slæmt og fyrir ári. Á laugardag var haldinn fundur á Austurvelli á vegum hóps sem nefnist Ísland þvert á flokka á Facebook. Fundarmenn kröfðust aðgerða í útlendingamálum - og fundurinn hefur verið kallaður rasistasamkoma af sumum á samfélagsmiðlum. Nokkur af þeim atriðum sem fólkið á Austurvelli krafðist að yrði breytt eru þegar til skoðunar hjá stjórnvöldum. Einar Jóhannes Guðnason, varaformaður Freyfaxa sem er ungliðahreyfing Miðflokksins og var á fundinum er ekki sáttur við að vera stimplaður rasisti. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, beinir gagnrýni sinni að þeim sem töluðu á fundinum.
Í gær var haldinn fræðslufundur fyrir foreldra þar sem kafað var ofan í heim snallsíma og samfélagsmiðla. Fundurinn bar heitið þekkir þú áhrifavaldana í lífi barnsins þíns? og snerti meðal annars á áhyggjum sem hafa vaknað nýlega um samfélagsmiðlanotkun barna – ekki síst í kjölfar Netflix-þáttanna Adolescence. Nokkur hundruð manns mættu á fundinn, og í dag fáum við til okkar tvö þeirra sem stóðu fyrir honum, Daðeyju Albertsdóttur, sálfræðing hjá Geðheilsumiðstöð barna - HH og Domus Mentis Geðheilsustöð og Skúla Braga Geirdal sviðsstjóra Saft – Netöryggismiðstöðvar Íslands. Besta leiðin til að njóta lífsins í Róm kostar ekki neitt. Þetta segir Ingólfur Níels Árnason sem býr og starfar í Róm en Samfélagið hitti hann þar fyrir skömmu, rétt áður en Frans páfi lést á annan dag páska. Hann segir að ein mesta áskorunin við að samlagast ítölsku samfélagi hafi verið skólaganga barnanna hans og segir Rómverja vera með kolsvartan húmor sem Íslendingar geti tengt vel við. Og í lok þáttar fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins. Tónlist í þættinum í dag: Jovanotti - Ciao mamma Cos´é bonetti - Lucio Dalla Il paradiso della vita - La ragazza 77
Fimmtudagur 20. mars Lögregluríkið, brotleg skipafélög, JFK, líðan barna, föstudagspartýbíó og sálumessa Þátturinn hefst á umræðu sem spyr spurninga um hvort Ísland sé að verða lögregluríki og hvort aðgreining yfirstéttar og almennings sé að aukast. Við ræðum dóm gærdagsins þar sem níu mótmælendur sem beittir voru harðræði fá ekkert fyrir sinn snúð. Sigtryggur Ari Jóhannsson og Sara Stef Hildar mótmælendur ræða við Björn Þorláks. Hver myrti JFK er spurning sem margir vilja meina að aldrei hafi verið svarað. Guðjón Heiðar Valgarðsson og Haukur Ísbjörn, álhattamenn koma til Maríu Lilju og fara yfir CIA skjöl sem voru opinberuð í vikunni um morðið á JFK. Nokkur umræða hefur orðið um verðkannanir undanfarið. Við ræðum við Breka Karlsson formann Neytendasamtakanna um vöruverð, vexti og nýja niðurstöðu nefndar um áfrýjunarmál sem staðfestir sekt Samskipa og Eimskipa í samráðsmáli. Óli Hjörtur Ólafsson rekstrarstjóri hjá Bíó Paradís segir Lafeyju Líndal Ólafsdóttur frá Föstudagspartýsýningum og öðrum sýningum og uppákomum hjá kvikmyndahúsinu á næstunni. Að þessu sinni verður sýnd kvikmyndin Friday sem var vinsæl á tíunda áratug síðustu aldar. Líðan barna er okkur öllum hugleikin. Hulda Tölgyes sálfræðingur ræðir hvað við getum gert til að vinna gegn kvíða. Hulda safnar fé til að gefa út spil sem á að auðvelda börnum að tengjast fólki og umhverfi sínu. Við endum dagskrána á stórvirki sem fer fram í menningarheiminum um helgina þegar flutt verður sálumessa Tryggva M. Baldvinssonar upp úr Heimsljósi Halldórs Laxness í Langholtskirkju. Gríðarlegur fjöldi listamanna kemur að þessum viðburði. Að rauða borðinu koma til að ræða þennan viðburð Tryggvi M Baldvinsson tónskáld, Magnús Ragnarsson kór- og hljómsveitarstjóri og Hallveig Rúnarsdóttir söngkona.
Tónlistarmaðurinn og viðskiptamógúllinn P. Diddy á yfir höfðu sér rúmlega fjörtiu ákærur vegna kynferðisofbeldis, mansals, nauiðgana og annars grófs ofbeldis. Réttarhöldin hefjast í byrjun mai. Stór og öflug skaðabótafyrirtæki hafa safnað frásögnum af ofbeldinu úr ýmsum áttum og fengu um 26.000 ábendingar um ofbeldi, flestar í gegnum samfélagsmiðla. Nokkur hundruð þeirra eru metnar trúðverðugar og um fjörtíu mál hafa verið höfðuð. Hóp- eða fjöldamálsóknir af þessu tagi eru algengar í Bandaríkjunum. Hafsteinn Dan Kristjánsson, lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, segir bæði kosti og galla við málsóknir af slíku tagi. Helstu ókostirnir séu þeir að þær séu mjög timafrekar, sem komi bæði niður á þolendum og gerendum, og að fyrirtækin séu gjörn á að safna fleiri sögum af ofbeldi í hagnaðarskyni.
Í gær var tilkynnt að Ásta Fanney Sigurðardóttir verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í myndlist árið 2026. Valið var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands í gær þar sem kampavín og kaka komu við sögu. Við ræðum við Ástu Fanneyju í þætti dagsins. Fyrir skömmu sendu GDRN og Magnús Jóhann frá sér sönglagaplötuna Nokkur jólaleg lög. Á plötunni flytja þau þekkt jólalög og vetrarlög í lágstemmdum en einlægum útgáfum ásamt nokkrum góðum gestum. Tómas Ævar sest niður með þeim Magnúsi og Guðrúnu og ræðir við þau um gerð plötunnar. Við heyrum einnig rýni í nýja skáldsögu Halldórs Armand, Mikilvægt rusl, í þætti dagsins, en Sölvi Halldórsson hefur nýlokið við lesturinn. Og við fáum einnig ferðasögu frá Helsinki frá Trausta Ólafssyni, einn af leikhúsrýnum þáttar, en hann var þar í mikilli leikhúsreisu.
Gestir Chess After Dark í jómfrúarþætti kosningasyrpunnar eru ekki af verri endanum.Við hvetjum ykkur til að spenna sætisólarnar þar sem kosningasyrpan mun spanna sjö þátta seríu, alveg fram að kjördegi.Gestir eru:Guðlaugur Þór Þórðarson núverandi umhverfisráðherra og leiðir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík Norður.Sigríður Andersen fyrrum Dómsmálaráðherra og leiðir Miðflokkinn í Reykjavík Norður.Nokkur umræðuefni úr þættinum:* Af hverju ákvað Sigríður Andersen að fara fram fyrir Miðflokkinn?* Er Sjálfstæðisflokkurinn orðinn Woke flokkur?* Umhverfismálin/Orkumálin* Útlendingamál* Er Miðflokkurinn miðju eða hægri flokkur?* Hvernig ætla þessir flokkar að tækla efnahagsmálin?* Kosningapróf Chess After DarkÞetta og margt fleira!Þátturinn er í boði:BudvarBónusDave & JonsFrumherjiMGNjótið vel kæru hlustendur.
Nokkur dönsk stórfyrirtæki segjast leggja mikla áherslu á umhverfismál í starfsemi sinni. Ný rannsókn sýnir að sú áhersla nær ekki til æðstu stjórnenda sem ferðast milli staða í einkaþotum, sem valda hlutfallslega 17 sinnum meiri mengun en vélar í áætlunarflugi.
Uppgjör á 2. umferð úrslitakeppni Bestu deildarinnar og Lengjudeildin gerð upp. Hverjir voru bestir? Tarik Ibrahimagic töfraði þrjú stig til Víkings og Breiðablik skoraði sigurmark beint úr horni. Nokkur lið eru hreinlega kominn í vetrarfrí og Vestri vann klaufalegt lið HK. Afturelding er komin upp í Bestu deildina. Elvar Geir, Valur Gunnars og Guðmundur Aðalsteinn í Innkastinu.
EINLÆGLEGA: Óvænt epískur þáttur sem allir þurfa að hlusta á – fróðleikur og mikilvægar pælingar um stöðu mála. - Í þætti dagsins, sem verður mögulega hluti af þriggja hluta seríu, er farið yfir sögu Íslands frá upphafi daga, þjóðveldisöldin, goðakerfið útskýrt, myrku aldirnar og allt fram til nítjándu aldar. Mikið farið út af sporinu samt og farið í stærri spurningar. Allt er þetta gert til að reyna að svara spurningunni: Er prójektið Ísland enn þess virði – á það sér framtíð, eða er þetta búið? PATREON fyrir meira efni.
CAD bræður gerðu sér ferð til Ólafsvíkur og tóku viðtal við Gary Martin.Nokkur umræðuefni sem komu fram í þættinum:* Just a kid from Darlo* KR tíminn* Af hverju er Rúnar Kristins besti þjálfarinn á Íslandi?* Viðskilnaðurinn við ÍBV* Hvað gerðist hjá Val?Þessi þáttur er í boði:StrúktúrSuitUpKontakt fyrirtækjaráðgjöfLengjanMaison WessmanHringduBUDVAREllingsenSubwayDave & JonsBónusFrumherjiKEMI
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, var fyrsti gestur Morgunvaktarinnar í dag og við héldum áfram umfjöllun um áformuð kaup Landsbankans á TM. Síðan Þórður var hér síðast hefur bankaráð Landsbankans birt upplýsingar sem stangast á við upplýsingar Bankasýslunnar. Við fjölluðum líka um kaupmátt ráðstöfunartekna sem heldur áfram að dragast saman, og um það hvað það kostar að bjóða sig fram til forseta Íslands. Berlínarspjall var á sínum stað og Arthúr Björgvin Bollason sagði meðal annars frá nýsamþykktum lögum um kannabisneyslu, óbeit atvinnurekenda á AfD flokknum og svo töluðum við svolítið um fótbolta og áhrif gengis þýska landsliðsins á þjóðarsálina. Nokkur ár eru frá því að tekið var upp styrkjakerfi í námslánum hér á landi og nú stendur til að sníða af vankanta sem komið hafa í ljós, samkvæmt nýju frumvarpi. En stúdentar og fleiri hafa gagnrýnt frumvarpið, ekki síst vegna þess hversu litlu á að breyta. Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur sérstaklega lýst yfir vonbrigðum yfir því hvernig staðið er að málum. Rakel Anna Boulter, forseti Stúdentaráðs HÍ, og Gísli Laufeyjarson Höskuldsson lánasjóðsfulltrúi, komu til okkar. Tónlist: Whiteman, Paul - Mississippi Mud. Brimkló - Herbergið mitt. Reinhard Mey - Über den Wolken. Steve Miller Band - The Joker (bonus track wav).
Við kynnum okkur stöðuna á nýrri brú sem á að leggja yfir Fossvog innan fárra ára. Hönnunarsamkeppni fór fram árið 2021 og það stefnir í að útboð vegna landfyllinga fari fram innan skamms. Ásdís Kristinsdóttir, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu, og Bryndís Friðriksdóttir, svæðisstjóri Höfuðborgarsvæðisins hjá Vegagerðinni, fara yfir þessi mál með okkur. Nokkur vörubretti af skriftvélum, gataspjöldum og ýmsum gömlum vélbúnaði og hugbúnaði sem ekki telst lengur brúklegur hjá íslenskum fyrirtækjum eru nú varðveitt í rúmgóðum kössum. Það er alltaf að koma fram einhver ný tæki sem leysir aðra af hólmi og þessi tæki geyma merkilega sögu. Við ætlum að fjalla um gömul tæki og varðveislu þeirra en hjá Ský, áður skýrslutæknifélagi Íslands, er starfandi söguhópur. Tveir meðlimir hans, Þorsteinn Hallgrímsson og Guðmundur Hannesson, ræða sögu tölvubúnaðar við Samfélagið. Við heyrum svo málfarsmínútu og fáum bolludagsglaðning frá Safni RÚV.
Grindavík er hættulegur staður og verður það áfram næstu mánuði og líklega ár. Um þetta eru flestir jarðvísindamenn landsins sammála. Viðvarandi skjálftavirkni og hætta á fyrirvaralitlum eldgosum, gamlar sprungur sem hafa gliðnað og dýpkað og nýjar sprungur sem eru jafnvel ósýnilegar þar til einhverjum verður á að stíga fæti á örþunnt jarðlagið sem hylur þær gera bæinn í raun óbyggilegan eins og er, og illmögulegt er að spá fyrir um það, hvenær þetta breytist til hins betra. Ákall Grindvíkinga eftir aðgerðum stjórnvalda til að tryggja þeim öruggt húsnæði og forða þeim frá gjaldþroti vegna tvöfalds húsnæðiskostnaðar fer hækkandi eftir að þetta lá endanlega fyrir í kjölfar gossins í bænum 14. janúar. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræðir við Sigurð Inga Jóhannsson innviðaráðherra. Samningaviðræður Íslendinga um aðkomu að nýju öryggisfjarskiptakerfi Evrópusambandsins hefjast innan skamms. Með þessu stendur til að tryggja aðgengi, til dæmis að samskiptum við útlönd og netþjónustu ef innviðir á borð við sæstrengi rofna eða verða fyrir skemmdum. Gerðist það í dag myndi íslenskt samfélag að mestu detta úr sambandi við umheiminn. Björn Malmquist tók pistilinn saman. Nokkur stór skipafélög eru tímabundið hætt að láta kaupskip sín sigla um hið hernaðarlega mikilvæga Bab el Mandeb sund, inn á Rauðahaf, um Súezskurð og til Evrópu eftir að vígamenn húta í Jemen hófu að ráðast á þau með flugskeytum og drónum. Þeir hafa lýst yfir stuðningi við Hamas samtökin á Gaza í baráttu þeirra við Ísraelsher og heitið því að stöðva öll skip sem þeir telja að sigli með vörur um Rauðahaf til Ísraels. En hverjir eru Hútar? Ásgeir Tómasson segir frá. Í Noregi stendur til að rýmka heimildir lögreglu til að láta þá sem ítrekað rjúfa nálgunarbann bera öklaband og takmarka þannig ferðafrelsi þeirra. Þetta er svokallaður fyrirbyggjandi neyðarhnappur. Krafan um að beita þessu úrræði hefur verið háværi í Noregi eftir tíð morð og ofbeldi í nánum samböndum í upphafi þessa árs. Nýjar heimildir til lögreglu eiga að vera tilbúnar fyrir vorið. Gísli Kristjánsson segir frá.
Leikin eru jólalög frá árinu 2022. Þau sem flytja lögin eru Tríóið Fjarkar, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Þór Breiðfjörð, Hreindís Ylfa Garðarsdóttir, Bland í poka, Berglind Bjartmarsdóttir, Álfgrímur Aðalsteinsson, Silla Jónsdóttir, Dagur Sigurðsson, Elín Snæbrá Bergsdóttir og Þórdís og Mýrkrakkar, eða krakkar úr fimmta bekk Mýrarhúsaskóla. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

17. nóvember 2023 Á ríkisstjórnarfundi í dag var samþykkt að leggja fram frumvarp um tímabundnar launagreiðslur til Grindvíkinga. Gert er ráð fyrir að heildargreiðslur geti numið allt frá einum að einum og hálfum milljarði á mánuði. Reiknað er með greiðslunum út febrúar. Linda Blöndal ræddi við Lilju Alfreðsdóttur viðskiptaráðherra, Þórdísi Kolbrúnu Reykjfjörð Gylfadóttur fjármáalráðherra og Guðmund Inga Guðbrandsson félagsmálaráðherra. Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir, stjórnandi þjónustumiðstöðvar fyrir Grindvíkinga, í gamla tollhúsinu við Tryggvagötu í Reykjavík, hvetur þá til að koma í miðstöðina, meðal annars í ráðgjöf hjá Vinnumálastofnun sem er komin með aðstöðu þar. Ragnhildur Thorlacius ræddi við hana. Þjóðverjar áforma að tvöfalda á næsta ári framlög sín til hermála í Úkraínu, úr fjórum milljörðum evra í átta. Nokkur árangur hefur orðið að undanförnu í baráttunni við rússneska innrásarliðið í Kherson héraði. Ásgeir Tómasson sagði frá. Donald Trump er ekki eini stjórnmálamaðurinn frá New York-borg sem er undir smásjá alríkisyfirvalda í Bandaríkjunum þessa dagana. Borgarstjórinn Eric Adams er einnig í klandri. Rannsókn alríkislögreglu á meintu fjármálamisferli tengu framboði borgarstjórans fyrir tveimur árum er farin að þrengja að honum. Þorvarður Pálsson í New York sagði frá.. Umsjón: Ásgeir Tómasson. Tæknimaður: Markús Hjaltason.

Hvernig augum líta íslendingar nýlendutímann? Chanel Björk Sturludóttir flytur pisitl um fegrun nýlendutímans í íslensku menningarllífi, sem á sér ýmsar birtingarmyndir m.a. Í nafni á bar. Hvernig hefur þessi fegrun áhrif á þekkingu og kollektívar minningar okkar? Við ræðum við tónlistarmanninn Þóri Georg, sem gaf á dögunum út tvær plötur, safnplötuna Nokkur góð og blackmetal plötuna The Eternal. Og undir lok þáttar rifjum við upp umfjöllun Önnu Marsbilar Clausen um sögu titrarans, frá árinu 2019.

Það styttist í leiðtogafund Evrópuráðsins - hann fer fram í Hörpu 16. til 17. maí næstkomandi og þá koma hingað um 900 erlendir gestir. Leiðtogum 46 ríkja er boðið og auk þeirra hefur fulltrúum frá áheyrnarríkjunum fimm, Bandaríkjunum, Páfagarði, Japan, Kanada og Mexíkó, verið boðið að taka þátt á fundinum. Þá hefur leiðtogum Sameinuðu Þjóðanna, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu og Evrópusambandsins verið boðið, auk þess sem æðstu stjórnendur allra helstu stofnana Evrópuráðsins sækja fundinn. Öllu þessu fólki fylgir fjölmennt lið. Nokkur hundruð fjölmiðlamenn verða hér líka til að flytja fréttir af fundinum. Þessum fundi fylgir gríðarleg öryggisgæsla á skala sem við þekkjum ekki hér í okkar fámenna samfélagi. Undirbúningurinn er viðamikill og hvílir að stórum hluta á herðum Ríkislögreglustjóra, Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur. Hún verður gestur okkar rétt á eftir. Við ætlum svo að ræða um kolefnishlutleysi Íslands og þýðingu þeirrar vegferðar fyrir islenska náttúru - þetta er vandrataður stígur þar sem eitt má helst ekki vera á kostnað annars. Hingað kemur forstjóri Náttúrufræðistofnunar Eydís Líndal Finnbogadóttir og Snorri Sigurðsson sviðstjóri náttúruverndar hjá Náttúrufræðistofnun. Ruslarabb um límmiða, plástra og límband. Svo fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi í lok þáttar.
Í þættinum í dag eru umfjöllunarefnin tvö, annars vegar borgarastyrjaldir og hins vegar meintur misskilningur á hvað átti sér stað þegar trúarleiðtoginn Dalai Lama bað ungan dreng að sjúga á sér tunguna á dögunum. Nokkur óeining hefur ríkt síðustu misseri um framtíðarstjórnskipan eins stærsta og fjölmennasta ríkis Afríku, Súdan. Súdanar eru því vanir, enda eru valdarán og stríðsátök reglulegir viðburðir í landinu. Þó voru fáir sem spáðu því að ágreiningur tveggja herforingja í Súdan um framtíð landsins myndi þróast á versta veg. Því miður gengu svörtustu spár eftir um miðjan mánuðinn, þegar íbúar í höfuðborginni Khartoum vöknuðu við sprengjugný og skothvelli. Oddur Þórðarson fjallar um ástandið í Súdan og um borgarastyrjaldir almennt. Hver er skilgreiningin á borgarastyrjöld og hvar geysa þær í heiminum? Beiðni hins næstum níræða Dalai Lama við lítinn dreng nýverið um að sleikja á sér tunguna vöktu hörð viðbrögð víða en atvikið náðist á myndband. Þegar allt varð vitlaust, baðst hann afsökunar en sagði gagnrýnendur vera að misskilja. Þarna væri á ferðinni góðlátlegur brandari, sem vesturlöndin skilja ekki vegna menningarmunar. Og þetta er ekki í fyrsta sinn sem menningarlegur misskilningur er sögð ástæða gagnrýni á umdeild ummæli þessa merkilega trúarleiðtoga. Sunna Valgerðardóttir setti sig í lótusstellingar og skoðaði Dalai Lama, búddismann og það sem er sagt vera útbreiddur misskilningur almennings. Umsjónarmenn Heimskviða eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Spegillinn 28. Apríl 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður Magnús Þorsteinn Magnússon Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra boðar að 170 milljónum króna verði veitt í aðgerðir til að sporna við skaða af völdum ópíóíðafíknar. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur samþykkt tillögu yfirdýralæknis um breytta aðferð við að útrýma riðu. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að grípa til bráðaaðgerða til að tryggja ofanflóðavarnir á Patreksfirði. Guðlaugur Þ. Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir uppbyggingu hefðbundinna ofanflóðavarna um það bil hálfnaða. Markús Þórhallsson talaði við hann. Ekki er alveg skýrt hvað þurfi til, svo hægt sé að skikka íbúðareigendur í fjöleignarhúsum til þess að selja eign sína. Dómur sem nýlega var kveðinn upp sýnir að húsfélag getur rekið eiganda úr íbúð sinni. Róbert Jóhannsson talaði við Sigurð Orra Hafþórsson, lögmann Húseigendafélagsins. Nokkur óvissa ríkir um framtíð Kvennaathvarfsins á Akureyri. Dregið hefur verið úr þjónustu þar, sem Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra segir sorglegt. Amanda Guðrún Bjarnadóttir ræddi við hana. Bann við að afganskar konur starfi fyrir Sameinuðu þjóðirnar er félagslegt innanríkismál. Þetta er svar utanríkisráðuneytis Afganistan í dag við kröfu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að talíbanastjórnin láti af banninu. Markús Þórhallsson sagði frá. Hollenskum karlmanni á fimmtugsaldri var samkvæmt dómsúrskurði í morgun bannað að gefa meira sæði til sæðisbanka. Sæði mannsins er talið hafa verið notað til þess að búa til hátt í 600 börn með glasafrjóvgunum. Finnbjörn Hermannson svar sjálfkjörinn í embætti forseta ASÍ í dag. Hann segir í viðtali viðp Hauk Holm að segir að félagsmenn ætli að snúa bökum saman í komandi kjaraviðræðum. Tvísýnt er um að Erdogan Tyrklandsforseti verði endurkjörinn í forsetakosningum eftir 16 daga. Ásgeir Tómasson sagði frá. Samu Paukkunen, aðstoðarforstöðumaður finnsku alþjóðamálastofnunarinnar, segir umskiptin í afstöðu Finna til aðildar að NATO hafa verið hvort tveggja skjót og afgerandi. Ævar Örn Jósepsson ræddi við hann.

Rasmus Gjedsø Bertelsen var gestur Heimsgluggans. Rasmus er Dani sem talar íslensku og er prófessor í norðurslóðafræðum í Tromsø og Nansen-prófessor við Háskólann á Akureyri. Þeir Bogi Ágústsson ræddu stöðu Norðurskautsráðsins og samskipti þjóða á norðurslóðum. Rasmus segir að Norðurskautsráðið sé nánast í dauðadái. Björn Þór Sigbjörnsson, Guðrún Hálfdánardóttir og Bogi ræddu svo þættina Skuggastríð, sem norrænu almannaþjónustustöðvarnar í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi hafa unnið í sameiningu. Þættirnir fjalla um njósnir Rússa. Í síðustu viku var sagt frá njósnum í Eystrasalti og Norðursjó með svokölluðum rannsóknarskipum og fiskiskipum. Í þáttunum hefur verið afhjúpað að ekki færri en þrjátíu og átta Rússar sem hafa starfað í sendiráðum Rússlands hafa haft njósnir að aðalstarfi. Þeir eru nafngreindir í þáttunum. Eftir að sýning þáttanna hófst hafa norsk stjórnvöld vísað fimmtán rússneskum sendiráðsstarfsmönnum úr landi og Svíar fimm. Danir ráku 15 úr landi í fyrra. Rússar hafa svarað með því að reka tíu starfsmenn sendiráðs Noregs úr landi. Georg Lárusson, forstjóri íslensku Landhelgisgæslunnar, segir ekki hafa komið á óvart að rússnesk skip stundi njósnir og kortleggi sæstrengi og vindmyllur, Nokkur athygli hefur beinst að Færeyjum vegna rússneskra skipa sem koma mjög oft til hafnar þar. Færeyingar hafa verið með fiskveiðisamning við Rússland síðan 1977 og er hann endurnýjaður árlega. Mikill þrýstingur er á Færeyinga að rifta þessum samningi. Færeyingar hafa á hagnast verulega á útflutningi fisks til Rússlands á undanförnum árum eftir að Rússar svöruðu refsiaðgerðum vestrænna þjóða með því að banna innflutning frá ríkjunum. Færeyingar hafa hins vegar mátt selja fisk í Rússlandi. Færeyingar eru að endurskoða fiskveiðisamninginn og lögmaður hefur boðað ákvörðun innan tíðar. Málið hefur valdið spennu í samskiptum Færeyinga og Dana og vakið spurningar um hver eigi að taka ákvarðanir þegar málefni skarast innan danska ríkissambandsins. Ákvarðanir í sjávarútvegs- og efnahagsmálum eru á ábyrgð færeysku stjórnarinnar en Danir fara með utanríkis- og varnarmál.

Welcome to Icelandic Music This Week by The Reykjavík Grapevine, where Grapevine journalists Rex and Jóhannes discuss the latest Icelandic music releases. Your one-stop shop for brand new Icelandic music, join us every Friday for the weekly roundup. In this episode, we check out new tracks by neoclassical composer Snorri Hallgrímsson, indie-grunge rockers Diamond Dolls, and scandi-art pop musician Sara Flindt. Guest interview with Þórir Georg, talking about his latest compilation album 'Nokkur goð', which spans a decade of his lesser known works. Peanut gallery banter includes thoughts on the light vs. dark ratio in Iceland, musical influences, and being a hater.Tune in at Útvarp 101 every Thursday at 17:00 for the full music and events coverage. Check out grapevine.is for the full magazine coverage and events.grapevine.is for more upcoming events. Instagram: @rvkgrapevine Facebook: The Reykjavík Grapevine Youtube: The Reykjavík Grapevine
Þristurinn verðlaunar fyrir tímabilið og gerir það upp, spáir fyrir alla úrslitakeppnina, meisturum og tekur nokkur símtöl. Umsjón: Hinrik & RökkviÞristurinn er í boði Subway, Lykils og Kristalls
Nokkur lög með bresku söngkonunni, lagasmiðnum og blúsgítarleikaranum Joanne Shaw Taylor, sem hefur gefið út fjölda platna á undanförnum árum. Lögin sem hún flytur í þættinum eru Going Home, Same As It Never Was, Always Almost Never, Soul Station, Wicked Soul, Dyin' To Know, Summertime og Won't Be Fooled Again, sem eru öll eftir hana nema Summertime sem er eftir George Gershwin. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Nokkur lög eftir þýska höfunda sem hafa orðið vinsæl hér á landi sungin á íslensku. Flytjendur eru Álftagerðisbræður, Svavar Lárusson, Vilhjálmur Vilhjálmsson, Die Prinzen, Leikbræður, Sætabrauðsdrengirnir og Út í vorið. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Denise var 21 árs þegar henni var rænt frá heimilinu sínu. Nokkur símtöl bárust lögreglu en það allra erfiðasta var þegar Denise sjálf hringdi á meðan ræningi hennar keyrði um með hana. Það tók lögreglu nokkra tíma að finna hana, en því miður var það orðið of seint. Viltu meira efni? Hægt er að skrá sig í áskrift inni á www.pardus.is/mordskurinn en hún kostar 990kr.- á mánuði! Allt eldra efni er aðgengilegt. www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn
Hlaðvarp Heimsgluggans er tvöfalt að þessu sinni, í fyrri hlutanum er viðtal sem Þórunn Elísabet Bogadóttir átti við Albert Jónsson og Boga Ágústsson um stöðuna í Úkraínu eftir innrás Rússa í febrúar. Fyrirætlun Pútíns Rússlandsforseta um að sigrast snarlega á her Úkraínu og skipta um stjórn í Kænugarði fóru algerlega út um þúfur, Úkraínumenn hafa varist af mikill hörku og nú virðist að mestu um kyrrstöðuhernað að ræða og að hvorki Rússar né Úkraínumenn hafi bolmagn til að sigrast á andstæðingnum. Síðari hluti Heimsgluggans var hefðbundnari og þar fór Bogi yfir ýmis mál sem voru efst á baugi í erlendum fréttum á árinu 2022.

Nokkur lög úr leikritinu Stone Free, auk eins lags úr söngleiknum Saturday Night Fever og eitt lag úr Grease.
Spegillinn 31. október 2022 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson Íslendingur sem flúði innrásina í Úkraínu hefur snúið aftur til Kyiv og ætlar að einangra hús sitt á íslenskan máta, vegna lítils orkuöryggis í landinu. Hann segist vart trúa því að búa í þessum aðstæðum. Danir kjósa til þings á morgun og það stefnir í mest spennandi kosningar í landinu síðan fyrir aldamót. Enn er óvíst hvenær skýrsla Ríkisendurskoðunar um söluna á Íslandsbanka lítur dagsins ljós. Nokkur skjálftavirkni var bæði við Bárðarbungu og Herðubreið í dag. Yfir hundrað tonn af graskerjum hafa selst hér á landi í tilefni af hrekkjavöku sem er í dag. Olaf Scholz kanslari Þýskalands gagnrýndi í dag loftslagsmótmælendur fyrir að gera fræg listaverk að skotmarki sínu í aðdraganda COP27-ráðstefnunnar í Egyptalandi. Á hin rammíslensku jólaborð bætast nú danskir humrar við skosku rjúpurnar. Lengri umfjöllun: Ársverðbólgan í þeim 19 löndum Evrópu þar sem evran er gjaldmiðill mælist núna að meðaltali 10,7 prósent. Hún hefur aldrei áður mælst svo mikil í rúmlega 20 ára sögu evrunnar. Þetta kemur fram í tölum Evrópsku hagstofunnar - Eurostat- sem birtar voru í dag. Það er einkum orku- og matarverð sem hefur hækkað. Orkuverð hefur hækkað um tæp 42 prósent á einu ári í Evruríkjum og sú hækkun kemur verulega við pyngjuna hjá evrópskum almenningi og fyrirtækjum. Kristján Sigurjónsson ræðir við Katrínu Ólafsdóttur hagfræðing og dósent við Háskólann í Reykjavík um efnahagsástandið í Evrópu og áhrif þess hér á landi. Þann sjötta nóvember hefst loftslagsráðstefnan COP 27 í Egyptalandi. Ríki heims koma þar saman til að leggja á ráðin um stöðu loftslagsmála og stilla saman strengi sína í baráttunni við loftslagsvána. Sendinefnd fer frá Íslandi á ráðstefnuna sem formlegur málsvari landsins, en þar verða einnig fleiri fulltrúar. Helga Barðadóttir fer fyrir sendinefnd Íslands á COP-27. Bjarni Rúnarsson talar við Helgu. Í Sao Paulo og víðar í Brasilíu brast á með söng og dansi meðal stuðningsfólks Luiz Inacio Lula da Silva, forsetaframbjóðanda vinstrimanna, þegar hann seig fram úr andstæðingnum Jair Bolsonaro forseta, frambjóðanda hægrimanna, í gærkvöld. Ásgeir Tómasson segir frá forsetakosningunum í Brasilíu.

Nokkur hópur stórhuga fólks á Djúpavogi hefur tekið sig saman og skorað á bæjaryfirvöld að koma upp ylströnd við Búlandshöfn en fyrir áratug síðan fannst heitt vatn á svæðinu sem nú er leitt í ker sem hafa orðið vinsæl hjá ferðafólki. Eiður Ragnarsson fulltrúi fulltrúi sveitarstjóra Múlaþings á Djúpavogi var á línunni. Ný rannsókn við Háskóla Íslands sýnir að almennt upplifi feður sem hitti börn sín lítið, þ.e. minna en aðra hverja helgi, mikla sorg en jafnframt að þeir hafi almennt átt sögu um ágreining við móður eða stjórnsýsluna. Nína Eck, nemi við Félagsráðgjafadeild HÍ, vann rannsóknina og kom til okkar. Nýjar tölur frá Landlæknisembættinu sýna að notkun ADHD lyfja jókst um heil 20% á milli áranna 2020 og 2021 - í miðjum heimsfaraldri. Rúm 16 prósent drengja á aldrinum 10-14 ára eru á þessum tegundum lyfja en þó má merkja aukna notkun kvenna á lyfinu undanfarin ár. Við ræddum þessa aukningu og almennt um notkun geðlyfja við Héðinn Unnsteinsson formann Geðhjálpar. Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti Alþýðusambands Íslands, telur að leigubremsa á húsnæðismarkaði sé bæði raunhæf og skynsamleg. Við ræddum leiguþak, leigubremsu og aðgerðir á leigumarkaði við Kristján og Jóhannes Stefánsson, lögfræðing Viðskiptaráðs Íslands, sem segir leiguþak feita pælingu sem gengur ekki upp - leiguþak Berlínarbúa hafi til að mynda verið lestarslys í beinni útsendingu. Í gær var greint frá því að bandaríska dómsmálaráðuneytið telji líklegt að leyniskjöl hafi verið falin á heimili Donalds Trump, fyrrverandi forseta, í Flórída. Það hafi verið gert til þess að hindra rannsókn alríkislögreglunnar. Þá var samfélagsmiðlinn Trumps, Truth Social, fjarlægður af forritinu Google Play. Mikið hefur verið fjallað um sundrungu í bandarískum stjórnmálum og samfélagi undanfarið en samkvæmt niðurstöður nýrrar könnunar búast 40 prósent íbúa Bandaríkjanna við einhvers konar borgarastríði á næstu árum. Við ræddum við Silju Báru Ómarsdóttur, prófessor í stjórnmálafræði, um stöðuna í Bandaríkjunum. Tæplega tveggja ára barn lést og tugir slösuðust í Katalóníu á Spáni í gær þegar mikið haglél féll þar. Höglin voru stór og þungt - þau stærstu um tíu sentímetrar að þvermáli - og rafmagnslínur, þök og rúður eyðilögðust. Við ræddum við Elínu Björk Jónasdóttur, veðurfræðing, um þetta veðurfyrirbæri.

Það gekk illa að reka strætó frá flugvellinum á Akureyri í sumar svo fyrirtækið sem að því stóð, Sýsli - ferða- og ökukennsla, hefur ákveðið að hætta öllum slíkum tilraunum fram á næsta ár að minnsta kosti. Við heyrðum í eigandanum Jónasi Þór Karlssyni hér í upphafi þáttar. Auglýsingar sænska matvörufyrirtækisins Oatly, sem framleiðir ýmis konar hafravörur, voru gagnrýndar harðlega í síðustu viku fyrir að vera á ensku. Nokkur þeirra sem gagnrýndu fyrirtækið sögðu auglýsinguna ólöglega - auglýsingar sem höfða eigi til íslenskra neytenda eigi að vera á íslensku. Við ræddum við Önnu Kristínu Kristjánsdóttur, formann Sambands íslenskra auglýsingastofa. Formaður BHM sagði um helgina að ráðningar hátt settra embættismanna án auglýsingar geti grafið undan trausti til stjórnsýslunnar - og formaður skipulags- og eftirlitsnefndar sagði að nefndin taki að öllum líkindum slíkar ráðningar fyrir á fundi sínum. Þrír af fjórum ráðuneytisstjórum sem skipaðir hafa verið á þessu ári voru fluttir til í starfi úr öðrum embættum og sömu sögu er að segja um stöðu þjóðminjavarðar, sem skipað hefur verið í án auglýsingar. Við ræddum við Anitu Elefsen, formann félags íslenskra safna og safnamanna. Um helgina hafa málefni Fjölbrautarskólans á Suðurlandi verið í deiglunni eftir tilkynningu skólameistarans, Olgu Lísu Garðarsdóttur, þess efnis að kynferðisbrot hefði átt sér stað innan veggja skólans en báðir aðilar ættu þó rétt á að mæta áfram í skólann þar til dómur félli í málinu og það myndi reynast báðum aðilum þungt. Skólanefnd FSU hefur sömuleiðis gefið út yfirlýsingu þess efnis að stjórnendum og nefndinni hafi þarna fatast flugið og hafa viðurkennt mistök í málinu en nýjustu vendingar í því eru að drengurinn sem grunaður er um kynferðisbrotið komi ekki til með að mæta að minnsta kosti enn um sinn. Svona mál eru flókin, kynferðisbrot í litlum samfélögum á borð við skólastofnanir eða vinnustaði, og okkur leikur hugur á að vita hvernig hægt sé að taka ákvarðanir í þeim án þess að skerða mannréttindi eða valda óþarfa sársauka. Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir talskona Stígamóta var gestur okkar um átta. Greint var frá því á dögunum að vinnustaðaeftirlit ASÍ hafi það sem af er þessum mánuði sent mansalsteymi lögreglu þrjár tilkynningar um meint brot á kjarasamningum. Slíkum brotum hafi fjölgað samhliða auknum umsvifum í atvinnulífinu eftir faraldurinn. Við ræddum við Sögu Kjartansdóttur, verkefnastjóra vinnustaðaeftirlits hjá ASÍ, um stöðu þessara mála, launaþjófnað og mansal. Við fórum síðan yfir íþróttir helgarinnar í lok þáttar.

Rúmlega vikulangt stríðið í Úkraínu tekur eðlilega yfir flestallar fréttir þessa dagana. Innrás Rússa og afleiðingar hennar koma einnig við sögu í þættinum í dag. Frá innrás rússneskra herliðsins í Úkraínu hafa ótal Úkraínumenn rifið sig upp með rótum og lagt á flótta. En leiðir margra fjölskyldna hafa skilið vegna þess að stríðið kallar á hermenn. Víða hafa ættingjar þurft að kveðja nákominn karlmann á herskyldualdri. Samkvæmt herlögum, sem nú eru í gildi í landinu, eru karlmenn á aldrinum 18-60 ára skyldaðir til að vera eftir í Úkraínu og verjast. Jóhannes Ólafsson fjallar um málið. Stríðið í Úkraínu hefur margvísleg önnur áhrif. Staðgöngumæðrun er óvíða jafn aðgengileg og í Úkraínu. Þúsundir úkraínskra kvenna ganga ár hvert með börn foreldra um allan heim. Ferlið er bæði flókið og því fylgja ýmsar siðferðisspurningar. Aðstæður staðgöngmæðra og foreldra barnanna sem þær ganga með verða síst einfaldari þegar stríð brýst út í landinu. Birta Björnsdóttir fjallar um þetta. Og síðast en ekki síst eru það danskir njósnaskandalar. Nokkur hneyklismál tengd dönsku leyniþjónustunni hafa komið upp á undanförnum árum. Bandalags- og eða vinaþjóðir urðu Dönum gramar er upp komst að þeir hefðu leyft bandarísku leyniþjónustufólki aðgang að dönskum fjarskiptaköplum í þeim tilgangi að hlera æðstu ráðamenn. Bogi Ágústsson segir okkur allt um þetta. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar og umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Guðmundur Björn Þorbjörnsson.