Podcasts about magga st

  • 8PODCASTS
  • 43EPISODES
  • 2h 33mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • May 22, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about magga st

Latest podcast episodes about magga st

Rauða borðið
Rauða borðið 22. maí: Sérhagsmunapot, fangar, geggjun, Gaza og frumlegur listamaður

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 22, 2025 178:16

Fimmtudagur 22. maí Sérhagsmunapot, fangar, geggjun, Gaza og frumlegur listamaður Við hefjum leik við Rauða borðið á viðtali við framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, Ólaf Stephensen. Hann er stóryrtur eftir dóm Hæstaréttar í búvörulagafrumvarpinu og segist hissa á ástandinu í hans gamla flokki, Sjálfstæðisflokknum. Fréttir af Gaza verða sagðar við Rauða borðið. Magga Stína var áberandi í fjölmiðlum í gær og hún vaknaði við holskeflu af viðbjóðslegum skilaboðum. Hún ræðir við Maríu Lilju um fréttir af Gaza, áreitið og ofbeldið sem aktívistar verða fyrir, fyrir það eitt að standa gegn barnamorðum. María Lilja mætti á stórmerka ráðstefnu sem Afstaða, félags fanga blés til í tilefni af 20 ára afmæli félagsins. Hún tók nokkra þátttakendur tali. Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir Oddnýju Eir Ævarsdóttur allt að frétta frá geggjað góðri dagskrá um geðheilbrigðismál um síðustu helgi. Við endum þáttinn í kvöld úti á landi. Egill Logi Jónasson, listamannsnafn hans er Drengurinn fengurinn, er nýr bæjarlistamaður á Akureyri og ræðir í samtali við Björn Þorláks kúnstina að vera til og það sturlaða plan að reyna að þrífast og lifa á listinni.

Rauða borðið
Rauða borðið 6. feb - Nauðungarvistun, Prójekt 2025, fötlun og menning, Radíó Gaza og bókaspjall

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Feb 6, 2025 214:14

Fimmtudagur 6. febrúar Nauðungarvistun, Prójekt 2025, fötlun og menning, Radíó Gaza og bókaspjall Í upphafi þáttar verður Elín Ebba Ásmundsdóttir, varaformaður Geðhjálpar, gestur Sigurjóns í beinni útsendingu. Magga Stína Blöndal, tónlistakona mætir til leiks ásamt Sigtryggi Jóhannssyni, ljósmyndara en þau eru sérstaklega fróð um málefni Gaza. Þau ræða fréttir af Bandaríkjaforseta sem hyggst nú ásamt ísraelskum stjórnvöldum flytja fólk af Gaza svæðinu til að útbúa þar lúxus-nýlendu. Arna Magnea Danks, transfréttaritari Rauða borðsins segir okkur hinsegin fréttir og frá hinu lífshættulega trömpíska prójekti 2025. Anna Rós Árnadóttir, ný rödd í ljóðaheiminum sem hlaut ljóðstaf Jóns úr Vör og Anton Helgi Jónsson sem þekkir verðlaunin vel, bæði sem verðlaunahafi og dómnefndarmaður, mæta í bókaspjall við Rauða borðið og ræða um verðlaun og ljóð og lífið. Rannveig Traustadóttir, prófessor emerita í fötlunarfræðum við HÍ kemur í lok þáttar til Maríu Lilju og ræðir menningarhátíðina Uppskeru og almennt um listir, fötlun og fræði

pr gaza ge rau bandar annar sigurj fimmtudagur magga st anton helgi j
Rauða borðið
Rauða borðið 12. sept - Stefnuræða, tónlistarskólar, Gaza, sálarástand og geirfuglinn

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 12, 2024 234:08

Fimmtudagurinn 12. september Stefnuræða, tónlistarskólar, Gaza, sálarástand og geirfuglinn Blaðamennirnir Sigurjón Magnús Egilsson og Björn Þorláksson fara yfir stefnuræðu Bjarna Benediktssonar og umræður um hana í þinginu. Við fáum síðan kennara til að meta kosti og galla tónlistarskólans í yfirferð okkar um skólakerfið: Jóhann Ingi Benediktsson kennari í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Júlíana Rún Indriðadóttir skólastjóri sama skóla, Hjörleifur Örn Jónsson skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri og Sigrún Grendal formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum greina stöðuna. Magga Stína segir fréttir af þjóðarmorðinu á Gaza sem stjórnvöld á Vesturlöndum styðja í orði, á borði eða með aðgerðarleysi. Gísli Pálsson mannfræðingur segir okkur frá geirfuglinum og Sóley Dröfn Davíðsdóttir sálfræðingur ræðir um sálarástand landans.

Rauða borðið
Rauða borðið 5. sept - Úkraína, Gaza, blaðamenn og skólakerfið

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 5, 2024 212:06

Fimmtudagur 5. september Rauða borðið - Úkraína, Gaza, blaðamenn og skólakerfið Fastagestur Rauða borðsins, Hilmar Þór Hilmarsson prófessor, fer yfir stöðuna í stríðinu í Evrópu. Magga Stína fer yfir astöðuna á Gaza og blaðamennirnir Björn Þórláksson María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp fara yfir átakafund í Blaðamannafélaginu. Í lokin fer Björgvin G. Sigurðsson kennari og fyrrum þingmaður yfir stöðuna í skólakerfinu.

Rauða borðið
Rauða borðið 2. sept - Hnignun meginstraumsmiðla, Gaza, hrun Valhallar og ofbeldi

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 2, 2024 264:45

Mánudagurinn 2. september Hnignun meginstraumsmiðla, Gaza, hrun Valhallar og ofbeldi Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, segir okkur frá því hvernig fréttir meginstraumsmiðla á Vesturlöndum af stríði og þjóðarmorði hafa misst alla gagnrýni og aðhald á stjórnarstefnuna. Magga Stína segir okkur fréttir frá Gaza og Palestínu, þar sem stefnu ríkisstjórnar Netanjahú var mótmælt í dag. Við fáum Vilhjálm Egilsson, fyrrum þingmann, til að meta veika staða Sjálfstæðisflokksins og hverjar eru orsakir hennar. Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur ræðir stöðuna sem upp er komin í samfélaginu eftir að barn drap barn með hnífi.

Rauða borðið
Rauða borðið 29. ágúst - Umpólun hægrisins, Gaza, einmanaleiki, karlmennska og gleymd bók

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 29, 2024 213:13

Fimmtudagurinn 29. ágúst Umpólun hægrisins, Gaza, einmanaleiki, karlmennska og gleymd bók Eiríkur Bergmann prófessor ræðir um þau sögulegu tíðindi sem urðu í vikunni, þegar Miðflokkurinn mældist stærri en Sjálfstæðisflokkurinn í könnun Maskínu. Magga Stína segir fréttir frá Gaza og séra Bjarni Karlsson, prestur og guðfræðingur hjá sálgæslu- og sálfræðistofunni Haf, ræðir um einmanaleika. Rúnar Helgi Vignisson prófessor í ritlist skrifar um vanda karla á tímum upprisu kvenna í bókinni Þú ringlaði karlmaður. Hann ræðir efni hennar við Björn Þorláksson. Lena Rohrbach prófessor í norrænum fræðum í Basel og Zurich, Aðalheiður Guðmundsdóttir prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda og Jón Karl Helgason prófessor í íslensku og menningardeild Háskólans ræða um Eirík Laxdal og velta fyrir sér hvort þær séu fyrstu íslensku skáldsögurnar.

Rauða borðið
Rauða borðið 26. ágúst - Skriður, skólastefna, stjórnmál í USA, fíkniefnadjöfullinn og Gaza

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 26, 2024 206:30

Mánudagur 26. ágúst Skriður, skólastefna, stjórnmál í USA, fíkniefnadjöfullinn og Gaza Þarf að endurskoða búsetu, mannvirkjagerð og umferð hér á landi vegna aukinnar úrkomu og hnattrænnar hlýnunar? Þorsteinn Sæmundsson jarðfræðingur svarar því og ræðir sérstaklega slysið óhuggulega þar sem erlendir ferðamenn týndu lífinu undir ís. Magnús Helgason sagnfræðingur fer yfir stöðuna í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Við höldum umræðu um skólamál áfram með Kristjáni Kristjánssyni, prófessor í Birmingham. Íslensk börn skortir samhygð og forvitni. Hvernig bætum við úr? Ívar Örn Katrínarson skrifaði endurminningar sínar og nefndi þær: Ég ætla að djamma þar til ég drepst. Hann kemur og rekur ferð sína til helvítis dópheimsins og leiðina til baka. Og í lokin fer Magga Stína yfir fréttir frá Gaza og ræðir auk þess níðingsverk gegn föfluðu barni sem augljóslega er brot á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Rauða borðið
Rauða borðið 22. ágúst - Prís, skólinn, Palestína og dánaraðstoð

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 22, 2024 172:48

Fimmtudagurinn 22. ágúst Prís, skólinn, Palestína og dánaraðstoð Benjamín Júlían verkefnastjóri verðlagseftirlit Alþýðusambandsins og Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna greina innrás Prís inn á dagvörumarkaðinn. Magga Stína segir okkur fréttir frá Gaza og Ragnar Þór Pétursson kennari bregst við viðtali okkar frá í gær við Þórdísi Jónu Sigurðardóttur forstjóra Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, þar sem hún tók undir gagnrýni Viðskiptaráðs á skólakerfið. Í lokin spilum við tvö viðtöl: Fida Abu Libdeh, orkuumhverfistæknifræðingur og frumkvöðull er íslenskur Palestínumaður, ræðir við okkur um ástandið á Gaza og afstöðu íslenskra stjórnvalda. Og Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélagsins ræðir um dánaraðstoð, sem hún er alfarið á móti.

pr gaza ragnar benjam sigur palest neytendasamtakanna breki karlsson magga st
Rauða borðið
Rauða borðið 19. ágúst - Áfengi og pólitík, Gaza, stjórnsýslan og þátttaka í lýðræðinu

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 19, 2024 217:57

Mánudagurinn 19. ágúst Áfengi og pólitík, Gaza, stjórnsýslan og þátttaka í lýðræðinu Jódís Skúladóttir þingmaður VG varpar sprengju í umræðuna og upplýsir að hún hafi gert athugasemd innan forsætisnefndar Alþingis vegna drykkju þingmanna við þinglok í vor. Magga Stína segir fréttir af Gaza og Þorvaldur Ingi Jónsson, þrautreyndur ríkisstarfsmaður segir mikla sóun eiga sér stað í stjórnsýslunni og að spara mætti stórfé með betri vinnubrögðum. Ole Anton Bieltvedt kaupsýslumaður og dýraverndarsinni skrifar oft greinar um samfélagsmál. Hann kemur til okkar og segir hvers vegna.

Rauða borðið
Rauða borðið: Ungt fólk, Gaza, vanlíðan, vindmyllur og fyndni

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 15, 2024 197:15

Rauða borðið: Ungt fólk, Gaza, vanlíðan, vindmyllur og fyndni Í Rauða borði kvöldsins ræðir Björn Þorláksson við Gunnhildi Fríðu Hallgrímsdóttur varaþingmann og Harvard-nema í hagfræði sem útilokar ekki að íslensk efnahagsstjórn kunni að vera sú versta í heimi. Magga Stína segir okkur fréttir frá Gaza og Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar mætir til skrafs við Björn og Steinunni Ólínu um geðheilbrigði ungmenna sem er framhald af umræðu Samstöðvarinnar sem hófst í vikunni um stöðu og líðan ungs fólks í landinu. Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri kemur síðan til okkar og ræðir kosti og galla vindorkugarða á Íslandi. Hún er sammála Landvernd um að klára þurfi stefnumótun og að tímaröð framkvæmda þeirra sem fyrirhugaðar eru kunni að vera röng. Að lokum ræðir Gunnar Smári við sagnfræðinginn og rithöfundinn Þórunni Valdimarsdóttur en á dögunum komu út eftir hana ljóðabók og önnur merk bók um það kostulega en rannsóknarverða fyrirbæri, íslenska fyndni.

Rauða borðið
Ungt fólk, Gaza, einmanaleiki, og Ríkisútvarpið.

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 12, 2024 239:30

Mánudagur, 12. ágúst Ungt fólk, Gaza, einmanaleiki, og Ríkisútvarpið. Ungir hafa orðið, kalla Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Björn Þorláks, umræðu með Sóleyju Lóa Smáradóttir, 17 ára, Karli Héðini Kristjánssyni og Gunnari Ásgrímssyni, 24 ára. Þau ræða hlutskipti ungra Íslendinga á tímum óvissu og hraðra breytinga. Þá kemur Magga Stína og segir okkur fréttir af Gaza. Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir hjúkrunarfræðingur og fræðikona segir okkur frá því hvernig einmanaleikinn getur drepið fólk og svipt okkur lífsgæðum. Og hvernig við getum varist honum. Í lokin kemur Guðni Tómasson menningarritstjóri Ríkisútvarpsins og ræðir stöðu stofnunarinnar.

Rauða borðið
Gos, Gaza, hrun, herleysi og ást

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 7, 2024 247:43

Miðvikudagurinn 7. ágúst: Gos, Gaza, hrun, herleysi og ást Rauða borðið snýr aftur í kvöld, eftir stutt sumarfrí. Umsjónarmenn auk Gunnars Smára Egilssonar þau Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Björn Þorláks og Oddný Eir Ævarsdóttir. Grindvíkingarnir Jóhanna Lilja Birgisdóttir sálfræðingur og Magnús Gunnarsson trillukarl segja frá bið heimafólks eftir næstu eldsumbrotum. Magga Stína segir fréttir frá Palestínu og Ásgeir Brynjar Torfason segir okkur frá áhrifum hruns á hlutabréfamörkuðum. Í lokin ræðum við um þrjár bíómyndir um ástina.

Rauða borðið
Mótmæli, barátta og skattar

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Apr 17, 2024 172:30

Miðvikudagurinn 17. apríl Mótmæli, barátta og skattar Margrét Kristín Blöndal aka Magga Stína tónlustarkona og Sigtryggur Ari Jóhannsson aka Diddi ljósmyndari koma til okkar og ræða mótmæli, ekki síst af því tilefni að Magga Stína var fjarlægð af þingpöllum fyrir að grípa fram í fyrir Bjarna Benediktssyni. Við höldum áfram að tala um stjórnmál alþýðunnar og fáum Guðmund Hrafn Arngrímsson formann Leigjendasamtakana til að segja okkur frá skipulagi baráttusamataka, sem hefur alltaf verið forsenda aukinna réttinda almennings. Og í lokin kemur Haukur Viðar Alfreðsson doktorsnemi í hagfræði og ráðgjafi hjá Ráðsölu og fræðir okkur um alþjóðlegan lágmarksskatt.

Rauða borðið
Vikuskammtur: Vika 14

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Apr 5, 2024 87:34

Föstudagurinn 5. apríl Vikuskammtur: Vika 14 Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Anton Helgi Jónsson skáld, Margrét Kristín Blöndal aka Magga Stína tónlistarkona, Natalie G Gunnarsdottir plötusnúður og hlaðvarpstjórnandi og Sigurður Ingólfsson skáld og bókmenntafræðingur og ræða fréttir vikunnar sem einkennast af bið eftir yfirlýsingu Katrínar Jakobsdóttur um framboð til forseta, framboði annarra, afmæli Nató, stríð og engum friði.

Mannlegi þátturinn
Magga Stína föstudagsgestur og áfram um bíxímat

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 19, 2024 51:01

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söng- og tónlistarkonan Magga Stína, eða Margrét Kristín Blöndal. Hún hefur afrekað ýmislegt á sínum tónlistarferli, sungið með hljómsveitum eins og Sýrupolkasveitinni Hr.ingi.r, Risaeðlunni, Bikarmeisturunum, Jazzhljómsveit Konráðs Bé og Dvergunum sjö. Hún hefur einnig gefið út sólóplötur í eigin nafni og eina núna nýlega, upptaka af tónleikum hennar í Hörpu árið 2020 hvar hún söng lög eftir Megas. Magga Stína kom víða við í spjallinu við fórum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Þingholtunum og í Vesturbænum. Hún talaði um tónlistina, fiðlubogann, metnaðarleysi i markaðsmálum og nýju plötuna. Matarspjallið var svo auðvitað á sínum stað. Við héldum áfram að tala um bíxímat, við fengum talsvert af ábendingum og skilaboðum frá hlustendum eftir spjall síðustu viku og nú fékk Guðrún tækifæri að lýsa sinni skoðun á bíxímat. Svo ræddum við nýtingu á afgöngum og heyrðum um lambalæri eftir palenstínskri uppskrift. Tónlist í þættinum í dag: Hope / Risaeðlan (Magga Stína og Risaeðlan) Naturally / Magga Stína (Magga Stína) Vinaminni / Magga Stína (Magnús Þór Jónsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Rauða borðið
Vikuskammtur: Vika 02

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 12, 2024 82:16

Föstudagurinn 12. janúar Vikuskammtur: Vika 02 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Magga Stína tónlistarkona, Björn Kristjánsson kennari og tónlistarmaður, Máni Pétursson umboðsmaður og útvarpsmaður og Rósa María Hjörvar bókmenntafræðingur og kennari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af átökum og upphafningu, dómum og ásökunum, von og vonbrigðum.

Rauða borðið
SÞ, kolkrabbinn, samviska borgaranna og Gaza

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Oct 30, 2023 179:58

Atkvæði Íslands á allsherjarþingi hefur valdið pólitísku átökum og tilfinningalegum viðbrögðum. Við ræðum við Helen Ólafsdóttir, sjálfstætt starfandi öryggisfulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum um atkvæðið og merkingu þess. Við skjótum síðan inn millikafla um ægivald bláu handarinnar á Íslandi, ræðum við Jóhann Hauksson sem hefur bæði persónulega reynslu af bláu höndinni og hefur rannsakað áhrif hennar í samfélaginu. Við ræðum síðan um stríðið í brjóstum okkar, hvaða áhrif Gaza hefur á okkur persónulega sem borgara. Gunnar Hersveinn heimspekingur, Magga Stína tónlistarkona og Ólafur Ólafsson myndlistarmaður ræða um áhrif stríðs á venjulegt fólk og um hvernig það getur brugðist við. Í lokin kemur Hilmar Þór Hilmarsson prófessor og ræðir um áhrif Gaza á heimspólitíkina og áhrif heimspólitíkurinnar á Gaza.

Rauða borðið
Vikuskammtur: Vika 34

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 25, 2023 79:41

Föstudagurinn 25. ágúst Vikuskammtur: Vika 34 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Birgir Örn Guðjónsson lögreglumaður, Jóna Fanney Friðriksdóttir formaður Félags leigsögumanna, Magga Stína tónlistarkona og Teitur Atlason starfsmaður HMS og ræða fréttir vikunnar sem litaðar eru af vaxtahækkunum og hælisleitendum, efnahagslegum og siðferðislegum álitamálum.

Rauða borðið
Helgs-pjall: Magga Stína

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jun 24, 2023 111:12

Laugardagurinn 24. júní Helgi-spjall: Magga Stína Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Magga Stína frá sósíalísku uppeldi sínu, árunum á Hlemmi og öðru sem mótaði hana og gerði henni af því sem hún er í dag. Og um samfélagið sem hún ólst upp innan og hvernig það hefur breyst.

rau helgi magga st
Mannlegi þátturinn
Þorsteinn og jákvæð karlmennska og Magga Stína

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 22, 2022 50:00

Átakið jákvæð karlmennska er hafið sem hefur það að markmiði að vekja athygli á tilfinningum karla og drengja og að þær séu sjálfsagðar og þeim þurfi að veita athygli. Jákvæð karlmennska er andsvar við þeirri skaðlegu karlmennsku sem krefur karla og drengi um að bæla niður tilfinningar, fela þær, gefa þeim ekki gaum, tala ekki um þær og leita sér seint eða síður aðstoðar vegna vanlíðan. Þorsteinn V. Einarsson hóf vegferð fyrir um það bil fjórum árum, þar sem hann auglýsti á Facebook og svo Twitter eftir því að karlmenn tjáðu sig um karlmennsku og karlmennskuímyndir, góðar og slæmar. Viðbrögðin voru gríðarleg og nú, fjórum árum síðar á þetta allt hans líf. Hann fór í mastersnám í kynjafræði, hann er með hlaðvarpsþætti, heldur fyrirlestra og margt fleira. Þorsteinn kom í þáttinn í dag og ræddi jákvæða karlmennsku. Tónlistarkonan, gleðigjafinn og lífslistakonan Margrét Kristín Blöndal, Magga Stína, flutti fyrir nokkru á Drangsnes og Kristín okkar Einarsdóttir heimsótti hana þar og fékk að heyra af hennar einstöku lífssýn og því að vera loksins hætt að vera rangstæð í lífinu. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Þorsteinn og jákvæð karlmennska og Magga Stína

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 22, 2022

Athyglisbrestur á lokastigi
Mömmur okkar (fyrri hluti)

Athyglisbrestur á lokastigi

Play Episode Listen Later Apr 19, 2021 68:26

Það hlaut að koma að þessu. Gestir þáttarins að þessu sinni eru mæðraveldið sjálft, skaparar alls sem við þekkjum, the ones that started it all og konurnar sem við dýrkum meira en lífið sjálft, hinar einu sönnu MÖMMUR OKKAR. Bergþóra(mamma Lóu) og Magga Stína(mamma Sölku) ræða við dætur sínar um norræna glæpaþætti, hekl, barnabörnin sín, kisur og hvort símar séu verkfæri djöfulsins. Reyndar var svo gaman að tala við þær að við þurftum að skipta þættinum í tvennt og kemur seinni hlutinn í næstu viku.

Sunnudagsmorgunn með Jóni Ólafssyni
Vinyll dagsins: Áfram stelpur

Sunnudagsmorgunn með Jóni Ólafssyni

Play Episode Listen Later Oct 25, 2020

Síðari hluti þáttarins var alíslenskur og lögin flutt af íslenskum söngkonum. Meðal tónlistarflytjenda: Kristín Sesselja, Dagný Halla, Guðrún Gunnarsdóttir, Sigga Eyrún og Magga Stína.

Sunnudagsmorgunn með Jóni Ólafssyni
Vinyll dagsins: Áfram stelpur

Sunnudagsmorgunn með Jóni Ólafssyni

Play Episode Listen Later Oct 25, 2020 110:00

Hátalarinn
Magga Stína

Hátalarinn

Play Episode Listen Later Apr 20, 2020

Söngkonan ræðir um allt milli himins og jarðar. Þar á meðal er glíman við tónlist Megasar, hvernig maður notar Mozart sem svipu, stress og fleiri fylgifiskar tónleikahaldsins, mikilvægi snertingarinnar og margt margt fleira.

mozart magga st

Píanómúsík fyrr, en meira nú. Og Magga Stína auðvitað.

Hátalarinn

Play Episode Listen Later Feb 24, 2020

Brugðið er á fóninn nokkrum nýlegum hljóðritunum af píanómúsík úr ýmsum áttum. Silvestrov, Debussy, Rameu og Thomas Ades eru á meðal höfunda. Þá er minnst þeirra Jon Christensen og Lyle Mays sem höfðu áhrif á þróun djasstónlistarinnar, hvor á sinn hátt. Hátalarinn var fluga á vegg á hljóðprufu Möggu Stínu í Eldborg sl laugardag og velti í framhaldinu fyrir sér tónleikunum um kvöldið. Allt þetta og meira í Hátalara dagsins.

Millilending Megasar var tekin til skoðunar

Sunnudagsmorgunn með Jóni Ólafssyni

Play Episode Listen Later Feb 23, 2020

Meðal annarra tónlistarflytjenda: America, Runrig, Jón Þór Ólafsson, Stefán Hilmarsson, Brek og Magga Stína.

Sunnudagsmorgunn með Jóni Ólafssyni
Millilending Megasar var tekin til skoðunar

Sunnudagsmorgunn með Jóni Ólafssyni

Play Episode Listen Later Feb 23, 2020 130:00

Meðal annarra tónlistarflytjenda: America, Runrig, Jón Þór Ólafsson, Stefán Hilmarsson, Brek og Magga Stína.

Sunnudagsmorgunn með Jóni Ólafssyni
Millilending Megasar var tekin til skoðunar

Sunnudagsmorgunn með Jóni Ólafssyni

Play Episode Listen Later Feb 23, 2020

Meðal annarra tónlistarflytjenda: America, Runrig, Jón Þór Ólafsson, Stefán Hilmarsson, Brek og Magga Stína.

Mannlegi þátturinn
Magga Stína föstudagsgestur

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 14, 2020 50:00

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Margrét Kristín Blöndal, eða Magga Stína. Hún er kannski fyrst og fremst þekkt sem söngkona, bæði með Risaeðlunni og svo hún sjálf. Við rifjuðum upp ferðalagið í gegnum lífið til dagsins í dag, en næst á dagskrá hjá henni verða tónleikar í Eldborg þar sem hún mun syngja lög Megasar með valinkunnum tónlistarmönnum og þremur kórum. Magga Stína sat svo áfram í matarspjalli dagsins og sagði frá hafragraut og stórlúðu með sítrónu. UMSJÓN GUNNAR HANSSON

krist margr eldborg magga st
Mannlegi þátturinn
Magga Stína föstudagsgestur

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 14, 2020

Poppland
28.01.2020

Poppland

Play Episode Listen Later Jan 28, 2020

Umsjón: Ólafur Páll Gunnarsson & Lovísa Rut Kristjánsdóttir. Sólskinsbragur yfir Popplandi dagsins, allskonar tónlist og tónlistarfréttir, spilum lag sem keppir í Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár og plata vikunnar á sínum stað, Benni Hemm Hemm þessa vikuna með plötuna Kast Spark Fast. Svavar Knútur - Janúar Magga Stína - Fílahirðirinn frá Súrín Coldplay - Arabesque Jói P x Króli - Geimvera Sarah Klang - Strangers Richard Hawley - Not Lonely HAIM - Hallelujah Bonny Light Horseman - The Roving Van Morrison - Keep me Singing Pink Floyd - Pigs on the wing (part one) Fleetwood Mac - Second Hand News Bakar - Hell N Back USA for Africa - We are The World Kaleo - I Want More Pearl Jam - Dance of the Clarvoyants Ozzy Osbourne og Elton John - Ordinary Man Benni Hemm Hemm - Davíð 51 Warmland - Unison Love Kajak - Gold Crowned Eagle Hipsumhaps - Bleik Ský John Grant - Marz Aloe Blacc - I Need A Dollar Benni Hemm Hemm - Eyja The Specials - Ghost Town Elín Ey - Always A Reason Khahnin - Daystar 2Pac - Do For Love The Weeknd - Blinding Lights Portugal, The Man - Milkashake JDFR - My Work King Princess - Aint Together Model - Lífið Er Lag Mac Miller - Good News Sugababes - Freak Like Me Hera - Process Smokie - Living Next Door To Alice HAM - Haf Trú Matthías Matthíasson - Dreyma Between Mountains - Little Lies Beck - Uneventful Days Gugusar - I?m Not Supposed To Say This The Jam - That?s Entertainment Axel Ó - Tíminn Stendur Aldrei Kyrr Ásgeir Trausti - Leyndarmál

Poppland
17.12.2019

Poppland

Play Episode Listen Later Dec 17, 2019

Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir Jólabragur yfir Popplandi í bland við alls kyns tónlist. Minnumst Geira Sæm. Plata vikunnar á sínum stað, Hótel Borg með hljómsveitinni Melchior. Pax Vobis - Warfare Viðtal við Geira Sæm Geiri Sæm & Hunangstunglið - Rauður Bíll Geiri Sæm - Sooner Than Later Haim - Hallelujah Erla & Gréta - Ég Er Að Bíða Eftir Þér Valdimar Guðmundsson - Ég Þarf Enga Gjöf í Ár Baggalútur - Kósíheit Par Exelans Melchior - Eldhúsþula Matthildur - Heartbeat Herra Hnetusmjör & Bó - Þegar Þú Blikkar Lukas Graham - 7 Years Laddi & HLH Flokkurinn - Rokkað í Kringum Jólatréð Sigurður Guðmunds og Sigga Thorlacius - Desemberkveðja Skunk Anansie - Glorious Pop Song The Pretenders - Have Yourself A Merry Little Christmas KK & Ellen - Jólasnjór Ísold & Már - Jólaósk GDRN - Hvað er Ástin David Gray - Babylon R.E.M. - Christmas (Baby Please Come Home) Hljómsveitin Eva - Jólaleg Coldplay - Champion Of The World Krassasig - Hlýtt í Hjartanu (ft. JóiPé) Inhaler - Ice Cream Sundae Melchior - Guð Býr á Borginni, Magga Stórsveit Samúels Samúelssonar - Ég Fæ Jólagjöf (ft. Magga Stína) Þú & Ég - Hátíðarskap Robbie Williams - Time For Change Kristjana Stefánsdóttir - Hversu Fagurt Væri Það Hjaltalín - Stay By You Nelly Furtado - I?m Like A Bird Tamino - Crocodile Mumford & Sons - Beloved Paul McCartney - Wonderful Christmas Time Jólagóss - Er Líða Fer Að Jólum Brunaliðið - Þorláksmessukvöld Friðrik Ómar - Af Álfum Aron Can & Friðrik Dór - Hingað Þangað Ellý Vilhjálms - Jólasveinninn Minn Björgvin Halldórsson - Mamma

af gu mamma borg plata erl fj sigur lov melchior halld eftir umsj hinga hjaltal valdimar gu baggal aron can brunali ell vilhj magga st rut kristj

Morgunkaffið
Morgunkaffið - Steinunn Ólína & Magga Stína

Morgunkaffið

Play Episode Listen Later Sep 14, 2019

Björg og Gísli Marteinn voru hress og kát mætt í stúdíó 1 Efstaleiti í dag. Smá haustgír í loftinu, þar sem vel er komið inn í september. Gestir dagsins voru sambýlingarnir og listakonurnar Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Margrét Kristín Blöndal. Þær voru ferlega skemmtilegar og ræddu allt milli himins og jarðar. Sambúð sína, barnauppeldi, tæki frá djöflinum, list og massatónleika sem Magga Stína stendur fyrir í október.

Morgunvaktin
Umræður að hefjast á Alþingi um 3. orkupakkann

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 5, 2019 130:00

Í næstu viku hefjast umræður á Alþingi um 3. orkupakkann, sem er eitt stærsta þingmál vetrarins. Það hefur dregist von úr viti að hefja umræður um þetta stóra mál á Alþingi og fyrirséð að mjög hart verður tekist á um málið. Mikil andstaða er við málið á meðal nokkurra þingflokka stjórnarandstöðunnar, sérstaklega Miðflokksins og hefur formaður flokksins sagt í 3. pakkanum felist að Ísland afsali sér yfirráð yfir auðlindum þjóðarinnar. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir kom á Morgunvaktina og fór yfir þinghald og -umræður vikunnar. Á meðal annnarra mála sem rædd voru á þingi í vikunni má nefna innflutning á fersku kjöti, nýundirritaða kjarasamninga og gjaldþrot Wow Air. Mörg fyrirtæki í ferðaþjónustu, sérstaklega úti á landi, óttast að gjaldþrot Wow Air hafi í för með sér mikinn samdrátt. Færri erlendir ferðamenn komi í sumar og víða eru menn farnir að merkja afbókanir. Það leiðir hugann að því hvort ekki sé sóknarfæri í því að hvetja Íslendinga til þess að ferðast meira innanlands í sumar. Wow Air er gjaldþrota og tveimur dögum eftir gjaldþrotið boðar Skúli Mogensen að hann ætli að stofna nýtt flugfélag. Hvort það tekst kemur í ljós á næstu dögum. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri turisti.is ræddi um ferðamál á Morgunvaktinni. Menn eru farnir að rýna í einstök ákvæði nýrra kjarasamninga. Einna mesta umræðu hefur ákvæðið um að Seðlabankinn verði að lækka vexti fengið og telja margir að slíkt ákvæði sé nánast ekki hægt að setja í kjarasamninga. Þá hafa menn verið að velta fyrir sér og ræða um þá nálgun sem farin er í samningunum til þess að draga úr vægi verðtryggðra lána. Gylfi Zoega hagfræðingur ræddi þessi og fleiri atriði kjarasamninganna á Morgunvaktinni. Tónlist: Hringir og Magga Stína: Ó að það sé hann Bobby Darin: Mack The Knife

Mannlegi þátturinn
Þórunn Ólafsdóttir, Ný dögun og samtök leigjenda

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 28, 2019 50:00

Það líður vart sá dagur að ekki komi frétt um málefni flóttafólks, bæði innlendar og erlendar. Nú eru átta ár liðin frá upphafi Sýrlandsstríðsins og á þessum átta árum hefur straumur fólks sem hefur leitað skjóls fyrir sig og sína verið í fréttum nánast hvern dag, neyð þessa fólks hefur verið fyrir augum okkar þessi ár. Flest okkar horfa á þetta úr fjarlægð, en Þórunn Ólafsdóttir hefur gert talsvert meira, hún hefur farið í nokkrar ferðir til eyjunnar Lesbos þar sem hún hjálpaði flóttafólki sem kom þangað á bátum við mjög erfiðar aðstæður. Hún hefur líka tjáð sig um málefni Palestínu, meðal annars í samhengi við Eurovision, þar sem hún hvatti til sniðgöngu Íslands á keppninni, þar sem það væri ósk Palestínsku þjóðarinnar. En Þórunn þekkir aðstæður í Palestínu eftir að hafa verið þar árið 2014. Þórunn kom í þáttinn og talaði um Mið-Austurlönd og störf sín með fólki á flótta. Ný dögun, samtök um sorg og sorgarviðbrögð, býður nú upp á stuðningshóp sem er sérstaklega ætlaður þeim sem hafa misst ástvini beint eða óbeint af völdum fíknar, áfengis- eða vímuefnafíknar, hvort sem það er barn, systkini, maki eða annar nákominn. Úrvinnsla aðstandenda eftir slíkan getur m.a. snúið að langvinnum erfiðum samskiptum við fíkilinn, auk þess að syrgja manneskjuna sem fíknin tók yfir. Þeir Hjalti Jón Sverrisson, prestur í Laugarneskirkju og Hrannar Már Sigrúnarson, sem leiðir stuðningshópinn, komu í þáttinn. Samtök leigjenda bjóða til stjórnarfundar á laugardaginn og er fundurinn opin öllum þeim sem hafa áhuga á málefnum leigjenda. Margrét Kristín Blöndal, Magga Stína er formaður samtakanna og ræddi við okkur um stöðuna á leigumarkaði og það sem efst verður á baugi á fundinum. UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON