Ólafur Örn spjallar við fólk sem er eitthvað að fást við mat eða drykk, eða hefur mikinn áhuga á mat eða drykk.
Gestur Kokkaflakks að þessu sinni er Georg Leite sem á meðal mjög stórs hóps fólks er betur þekktur sem Goggi á Kalda. Við ræðum bransann, Covid lokanir og að þó þær séu erfiðar fyrir veitingabransann leynist kannski eitthvað jákvætt í þeim. Við ræðum ljósmyndarann Georg, leikarann Georg Brasilíumanninn Georg og alla þá ólíku hatta sem hann ber. Mjög skemmtilegt! Þessi þáttur er síðasti þáttuinn í fyrstu seríu af Kokkaflakki í eyrun og við það tilefni vil ég þakka kærlega frábær viðbrögð og hlakka til að koma aftur síðar með aðra seríu.
Gestur þáttarins í þetta sinn er næringarfræðingurinn og vísindakonan Anna Sigríður Ólafsdóttir. Við áttum afar áhugavert spjall um matvendni barna og tengsl matvendni við ADHD og einhverfu sem hún hefur verið að rannsaka í dálítinn tíma. Hún stóð fyrir bragðlaukaþjálfun fyrir matvönd börn, námskeið sem ég fór á með son minn og var frábært! Við ræddum þetta allt sem og auðvitað líka nýju sjónvarpsþáttaröðina sem hún er að gera fyrir RÚV og heitir Nærumst og njótum. Mjög áhugavert og skemmtilegt.
Við Alba erum mætt aftur eins og lofað var með þátt um vín sem heitir „Forsetaspjall um vín“ vegna þess að jú, Alba er eins og frægt er orðið forseti Vínþjónasamtaka Íslands og ég fyrrverandi. Spjallið fór út um víðan völl að vanda. Við ræðum um Bordeaux og vín sem hefur ferðast út í geim. Við tölum einnig um Austurríki, ensk freyðivín og svo miklu miklu fleira. Mjög gaman að vanda.
Gestur þáttarins að þessu sinni er Eyþór Mar Halldórsson matreiðslumeistari. Eyþór er frá Húsavík eins og svo margir aðrir góðir kokkar. Hann á og rekur þrjá veitingastaði í Reykjavík sem allir ganga mjög vel og hefur komið að opnun fjölda annarra. Við ræðum þetta auðvitað, ferilinn hingað til og hvernig hann komst þangað sem hann er kominn í dag. Eins og endranær er farið út um víðan völl og við meira að segja tölum um jafnréttismál í veitingabransanum í dag. Mjög skemmtilegt spjall, enda Eyþór mjög skemmtilegur náungi.
Ef einhvern tímann hefur verið þörf á fíflaskap og vitleysisgangi þá er það núna. Marsmánuður er búinn að vera að hamast við að vera marsmánuður, gefandi fólki von um betri tíð, blóm í haga og sólskin en kippir okkur svo rækilega niður á jörðina jafnóðum með gulum viðvörunum og frosti. Og svo ætlar veiruandskotinn aldrei að láta okkur í friði heldur. Nú þá er bara eitt að gera, fá Davíð Örn og Fanneyju Dóri í heimsókn og henda í sleggjudómaþátt, þar sem við hömumst öll við að tala hvert ofan í annað og leggja mat á mat. Við tölum meðal annars um pítusósu, páskaegg, mathallir og ýmislegt fleira og höfum öll sterkar skoðanir á þessu öllu. Mjög gaman!
Gestur minn í þessum þætti er Árni Ólafur Jónsson, matreiðslumaður sem á og rekur veitingastaðinn Matr í Norræna húsinu. Árni hefur komið víða við og kom einhvern veginn dáldið bakdyramegin inn í veitingabransann. Hann lærði kokkinn í New York og vann þar áður en hann flutti til Íslands til að taka þátt í því að búa til hina frábæru matarþætti Hið blómlega bú sem sýndir voru á Stöð 2. Við ræddum þættina, veitingabransann á Íslandi og í Bandaríkjunum, útbruna og fleira hressandi. Gífurlega gott spjall.
Það hefur verið kallað eftir umfjöllun um vín í Kokkaflakki í eyrun og ef það er eitthvað sem kokkaflakkarinn er þá er það maður fólksins sem hlustar og tekur öllum ábendingum fagnandi. Það er einmitt þess vegna sem ég fékk til mín góða vinkonu mína, hana Ölbu Hough sem er vínþjónn og vínfræðingur. Við ræðum allskonar sem tengist víni og veitingaheiminum bæði vítt og breytt eins og við er að búast. Það koma þó upp óvæntir hlutir eins og veðurbreytingar af mannavöldum, rasismi ásamt málum sem tengjast víni á hefðbundnari hátt eins t.d. hvernig í ósköpunum vínþjónakeppnir fara fram. Það var mjög gaman hjá okkur.
Eftir stutt veikindafrí snýr Kokkaflakkarinn aftur með glænýjan þátt inspireraðan af þessu fríi, því eftir nokkurra daga spítalalegu í kjölfar aðgerðar fór ég að spögulera í því hverskonar svakalegt batterí spítalaeldhús hljóti að vera. Og þá er auðvitað ekki nema eitt að gera og það er að hafa samband við manninn sem stýrir eldhúsinu á Landsspítalanum Háskólasjúkrahúsi og ræða það aðeins við hann. Sá heitir Jón Haukur Baldvinsson. Hann tók við stjórnartauminum í spítalaeldhúsinu á síðasta ári og hefur mikinn metnað fyrir hönd þess, metnað sem ég fékk að upplifa á eigin skinni að er farinn að skila sér. Við ræðum það, bakgrunn hans í veitingabransanum, en hann er einn af stofnendum Jamies Italian á Hótel Borg og ýmislegt fleira. Mjög fróðlegt og áhugavert spjall.
Í þessum 25. þætti af Kokkaflakki í eyrun fer ég í heimsókn til goðsagnar á Íslandi, en það er enginn annar en Helgi Vilhjálmsson sem alltaf er kenndur við Góu. Mig hefur lengi langað að tala við hann og náði loksins að manna mig upp í það og afrakstur þess er hér fyrir þig. Við ræddum heima og geima, upphafið á Góu, fyrstu karamelluvélina og hvernig Hraun er mögulega fyrirmynd af öðrum alþjólegum súkkulaðistykkjum. Við töluðum líka um upphafið á KFC, kjúklingamenningu á Íslandi og svo auðvitað aðeins um húsnæðismál, lífeyrissjóði og önnur hitamál sem brunnu á Helga. Gott spjall!
Það er febrúar og hvaða matur er fólki þá efstur í huga? Jú mikið rétt, grillmatur. Gestur þáttarins heitir Alfreð Fannar Björnsson og er líka þekktur sem BBQ kóngurinn. Hann er miklll dellukarl og eftir að hafa lagt bíladelluna og veiðidelluna á hilluna hellti hann sér út í grilldelluna af fullum þunga, þó hann hafi ekki vitað neitt um mat þegar hann byrjaði. Hann fór að grilla á samfélagsmiðlunum og í kjölfarið hafði Stöð 2 samband og þar stýrir hann nú grillþáttum. Við ræddum þetta og ýmislegt fleira yfir bjór. Mjög skemmtilegt!
Þau sem hafa hlustað á Kokkaflakkið hafa kannski tekið eftir því að ég er búinn að vera að spá í hvernig standi á því að sumur matur er frekar hugsaður handa körlum og annar konum. Til þess að hjálpa mér til þess að komast til botns í þessu fékk ég í heimsókn til mín á Vínstúkuna, Maríu Hjálmtýsdóttur kynjafræðikennara. Við María höfum verið saman í matarklúbbi og hún kemur alltaf með Mole. Við tölum um það, um furðulega hluti sem fólk hendir og svo þessa kynjavinkla í mat og drykk. Mjög áhugavert spjall við skemmtilega konu.
Í þessum þætti tölum við um matarsóun, umhverfisvernd, sótsporið sem máltíðin okkar skilur eftir sig og hvað við getum gert til að spyrna gegn þessum vandamálum. Til þess að ræða þetta fékk ég til mín Dóru Svavarsdóttur matreiðslumann sem er mikil baráttukona gegn matarsóun og er í forsvari fyrir Reykjavíkurdeild Slow food. Við förum rækilega yfir þetta allt saman í frábærlega skemmtilegu spjalli þó málefnið sé alvarlegt.
Þessi þáttur er á ensku því viðmælandi minn að þessu sinni er Hlal Jarah sem er frá Sýrlandi. Við þekkjum hann flest sem Hlal á Mandi. Hann rekur nokkra veitingastaði á höfuðborgarsvæðinu og er með tvo í viðbót á teikniborðinu. Annar þeirra er fyrsti vatnspípustaðurinn í Reykjavík og þar hittumst við og áttum þar gott spjall. Við töluðum um kebab, sýrlenskan mat, fjölskyldu og smá um pólitík. En samt mest um mat.
Viðmælandi þáttarins að þessu sinni er Jakob Jakobsson sem lengi var kenndur við Jómfrúna, sem er í raun alls ekki skrítið því hann stofnaði hana og átti lengi ásamt Guðmundi manninum sínum. Jakob var líka fyrsti karlmaðurinn til að útskrifast frá dönskum kokkaskóla sem smurbrauðsjómfrú en þangað til hafði það verið kvennastarf. Við tölum um það, upphafið á veitingahúsinu Jómfrúnni, hvernig það er að vera gay í veitingabransanum í Reykjavík og líka nýja frábæra staðinn hans og Guðmundar í Hveragerði, Matkrána. Og auðvitað líka heilmikið annað. Frábært spjall við frábæaran mann
Það eru margir sem prófa að tileinka sér vegan-lífsstíl í janúar í tilefni af Veganúar sem viðmælandi þáttarins segir að sé hátíð fyrir veganista. Kokkaflakkarinn er áhugasamur um alla anga matarhegðunar fólks og fékk því eina helstu klappstýru veganista í spjall en það er engin önnur en hún Guðrún Sóley Gestsdóttir sem um ræðir. Við ræddum veganmat og lífsstílinn, fordómana sem þau sem kjósa að vera vegan verða fyrir og hversu stressandi það er að skrifa matreiðslubók, sem hún jú hefur reynslu af. Guðrún Sóley er þekkt andlit sem hefur verið viðloðandi fjölmiðla um árabil, bæði í útvarpi og sjónvarpi, þar sem hún stýrir meðal annars menningarumfjöllun á RÚV. Mjög skemmtilegt spjall. Gleðilegan veganúar!
Hér er fyrsti þátturinn á nýju ári og í honum kveður við dáldið annan tón en áður, þó umræðuefnið sé auðvitað ennþá matartengt. Gestur þáttarins í þetta sinn er Ragnhildur Þórðardóttir sem er betur þekkt sem Ragga Nagli. Hún heldur úti hlaðvarpinu Heilsuvarpið og heimasíðunni ragganagli.com þar sem hún fjallar um allskonar heilsutengd málefni. Þetta var geysilega gott spjall þar sem við fórum yfir hvað það er að borða í núvitund, hvað það getur gert fólki að skammast sín sífellt fyrir hvað það borðar og hvað það er mikilvægt að borða það sem þér finnst bragðgott. Við fórum líka yfir það hvernig best er að ná árangri ef meiningin er að taka til í mataræðinu sem algengt er um áramót.
Gestur minn í þessum þætti er myndlistarmaðurinn Kristinn Guðmundsson. Kristinn býr í Brussel en með nútímatækni tókst okkur að spjalla saman yfir hafið og maður lifandi hvað það var skemmtilegt spjall. Kristinn hefur í nokkur ár verið að gera þætti sem heita Soð sem slógu fyrst í gegn á Youtube sem rötuðu svo þaðan í Sjónvarp Símans og nú er hann kominn í hið virðulega Ríkissjónvarp, sem sumir virðulegir áhorfendur skilja misvel. Kristinn kemur til dyranna eins og hann er klæddur, bæði í þessu spjalli og sem og í sínum þáttum. Við spjöllum um internet-hatur, myndlist og lífið almennt. Frábærlega skemmtilegt!
Jólagestur þessa þáttar er enginn annar en Læknirinn í eldhúsinu, Ragnar Freyr Ingvarsson. Hann var á tímabili vinsælasti matarbloggari landsins, það vinsæll að hann var beðinn um að koma blogginu fyrir í bók til útgáfu. Síðan hefur hann gert nokkrar bækur og einnig sjónvarpsseríur. Við ræddum þetta auðvitað allt saman sem og Covid 19, því Ragnar var settur sem yfirlæknir Covid-göngudeildar Landsspítalans sem komið var upp á mettíma. Við töluðum líka um mat, jólamat og sænskan mat. Mjög skemmtilegt spjall við mjög skemmtilegan mann.
Það eru að koma jól og þá dugir ekkert annað en að henda í jólaþátt. Í þessum þætti fæ ég til liðs við mig tvo matreiðslumenn og við förum yfir jólahefðir í mat hjá þeim og þjóðinni allri. Við förum líka rækilega yfir hvaða jólamatur er ofmetinn og hvaða jólamatur er vanmetinn án nokkurrar ritskoðunnar og þar falla nokkrar sleggjur. Ef grant er hlustað má líka finna allskonar pro tip sem ættu að hjálpa fólki við matargerð á jólum, enda eru hér á ferð tveir af færustu matreiðslumönnum Íslands sem eru; Gunnar Karl Gíslason, yfirkokkur á DILL restaurant sem eins og fólk veit er eini staðurinn á Íslandi sem hefur nokkurntíma hlotið Michelin stjörnu og Fanney Dóra Sigurjónsdóttir sem hefur lengi verið meðlimur í kokkalandsliði Íslands og var fyrirliði þess þegar það varð í þriðja sæti á Ólympíuleikunum síðast. Sjúklega skemmtilegt spjall um allt og ekkert, en fyrst og fremst mat og jólin. Kokkaflakk í eyrun er í boði: Bríó frá Borg Brugghúsi: http://www.borgbrugghus.is/thebeer/product/nr-75-brio-afengislaus Vínstúkunnar tíu sopa: https://www.facebook.com/V%C3%ADnst%C3%BAkan-T%C3%ADu-Sopar-604298820067421/ Kokkaflakk er framleitt af Hljóðkirkjunni: https://www.facebook.com/hljodkirkjan [ATH Myndin er samsett]
Gestur þessa þáttar er Hlédís Sveinsdóttir. Hlédís er sannkölluð hamhleypa til verka sem hefur látið allskonar hluti gerast af því að henni hefur fundist þörf á því. Hún stofnaði vefsíðu sem gerði fólki kleift að ættleiða kindur og lömb, var ein af upphafsfólki og mikil talskona Beint frá býli og rekjanleika landbúnaðarafurða. Hún er líka önnur tveggja kjarnorkukvenna sem hafa staðið að matarmarkaði Búrsins, fyrst á bílaplaninum við Nóatún og síðustu ár í Hörpunni tvisvar sinnum á ári. Með því hefur hún stutt ærlega við bakið á frumkvöðlastarfi í landbúnaði og matvælaframleiðslu með því að gefa fólki pláss til að selja og þróa nýjar vörur. Um þessar mundir vinnur hún við sjónvarpsþáttagerð auk þess að vera í nefnd sem vinnur að því að búa til landbúnaðarstefnu Íslands, sem er jú grunnurinn að allri matvælaframleiðslu á landinu. Allt þetta gerir hún meðfram því að vera einstæð móðir á Akranesi, ásamt því að hafa í mörg ár staðið í erfiðum málarekstri vegna læknamistaka við fæðingu dóttur sinnar. Mögnuð kona og frábært spjall!
Í þætti vikunnar hitti ég kokkinn Sigurð Laufdal. Hann er í fullri vinnu við að undirbúa sig fyrir virtustu einstaklingskeppni í matreiðslu í heiminum, Bocuse d´Or í Lyon. Hann var í fjórða sæti í undankeppni Evrópu, vann þar verðlaun fyrir besta fiskréttinn og ætlar sér að vinna aðalkeppnina í júní. Hann hefur farið áður í þessa keppni og varð þá í 5. sæti en mætir nú aftur, reynslunni ríkari og mun betur undirbúinn. Við tölum um ferilinn og aðdragandann að þessu öllu saman og hversu stór og merkileg þessi keppni er. Mjög áhugavert spjall um hvernig fólk kemst eins nálægt fullkomnun í matreiðslu og mögulegt er.
Gestur þessa þáttar er Björn Steinar Jónsson. Hann er verkfræðingur sem bjó lengi í Danmörku en það er ekki þess vegna sem ég ákvað að biðja hann um að koma í viðtal. Nei, það er vegna þess að hann er mjög merkilegur matarfrumkvöðull á Íslandi. Hann framleiðir hágæða salt á sjálfbæran hátt vestur á fjörðum. Hann er líka einn eiganda veitingahússins Skál! á Hlemmi og rekur heildsölu sem flytur inn náttúruvín. Við ræðum þetta allt saman en þó fyrst og fremst hið merkilega fyrirbæri salt, sem við tökum sem sjálfsögðum hlut. Við setjum það meira að segja á göturnar! Mjög áhugavert spjall. Kokkaflakk í eyrun er framleitt af Hljóðkirkjunni og er í boði Bríó frá Borg Brugghúsi og Vínstúkunnar tíu sopa.
Í þessum fyrsta þætti í seríu tvö af Kokkflakki í eyrun er kafað hyldjúpt í undraheim súrdeigsbaksturs og nördaskapsins í kringum hann. Það hefur varla farið framhjá mataráhugafólki hvaða áhrif samkomubann og fjarlægðartakmarkanir hafa haft á súrdeigsáhuga fólks um allan heim. Þegar áhuginn breiddist út hraðar en veiran var það Ragnheiður Maísól Sturludóttir sem bar hitann og þungann af því að hjálpa fólki með sín fyrstu skref hér á landi og hún er gestur þáttarins að þessu sinni. Ragnheiður Maísól er listakona, menntaður trúður og ein helsta áhugakona um súrdeigsbakstur hér á landi. Hún er stofnandi Facebook-samfélagsins Súrdeigið sem rauk úr 300 meðlimum í 12 þúsund í samkomubanninu. Hún deilir einnig góðum ráðum á Instagram-síðunni @nybakad.surdeig. Við fórum bæði vítt og breitt yfir málin og köfuðum vel í nördaskap sem tengist súrdeigsbakstri, svo sem mismunandi hitastig á hveiti, hvort hveiti sé betra nýmalað heima við og hvort viðbætt ger sé dauðasök. Sjúklega áhugavert spjall!
Þá er komið að honum, þættinum sem enginn er búinn að vera að bíða eftir, lokaþætti fyrstu seríu Kokkaflakks í eyrun! Í þennan þátt fékk ég til mín tvö þeirra sem ég heimsótti í sjónvarpsþáttunum Kokkaflakk, þau Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas og Davíð Örn Hákonarson. Mig langaði að vita hvað á daga þeirra hefði drifið síðan við heimsóttum þau annars vegar í París og hins vegar í Los Angeles, svo við fórum aðeins yfir það. En aðallega ræddum við þó hvaða matur er ofmetinn, hvaða matur er vanmetinn og fórum yfir persónulega topp fimm lista yfir besta sælgætið og skyndibitann meðal annars. Stútfullur þáttur af sleggjudómum og hot takes. Að lokum er vert að taka fram að þó svo að fyrstu seríu sé að ljúka með þessum þætti þá er alger óþarfi að verða leið yfir því, önnur sería hefst strax í næstu viku eins og ekkert hafi í skorist.
Gestur þáttarins að þessu sinni er svo sannarlega ekki af verri endanum, hann er nefnilega Sigurður Lárus Hall matreiðslumeistari, betur þekktur sem Siggi Hall. Siggi er sennilega frægasti kokkur á Íslandi. Hann var um langt árabil með vinsælustu kokkaþætti á landinu á Stöð 2 og er einn af upphafsmönnum og eigandi Food and Fun hátíðarinnar. Siggi er kokkur og saga hans er ótrúleg. Við förum yfir árin í Danmörku, Noregi, Hveragerði og á Óðinsvéum. Siggi er mikill sögumaður og ég þurfti ekki að hafa mikið fyrir því að tosa upp úr honum sögurnar, enda er þátturinn sá lengsti sem ég hef gert. En ég held að það komi ekki að sök því það var aldrei dauð stund og ég skemmti mér konunglega allan tímann sem við spjölluðum. Ég er viss um að þið gerið það líka.
Kjartan Gíslason er kokkur frá Vestmannaeyjum sem, áður en hann fór að stúdera súkkulaði, starfaði á mörgum af bestu veitingahúsum landsins. Okkar spjall er þó mest um súkkulaði, enda er súkkulaði eitthvað það skemmtilegasta sem er til í öllum heiminum að tala um og borða. Það sem fólk kannski almennt gerir sér ekki grein fyrir er sérstaða Omnom í súkkulaðibransanum, því þau flytja inn baunir og gera úr þeim súkkulaði frá grunni. Við förum rækilega yfir þetta ferli, sem hófst allt í eldhúsinu hjá Kjarra í Breiðholtinu og allskonar skemmtilegt líka, enda er Kjartan, eins og allir gestir sem ég hef fengið, einstaklega skemmtilegur og fróður maður. Margir vilja meina að hann gæti verið best lesni kokkur landsins sem kemur vel í ljós í okkar spjalli.
Aukaþáttur Kokkaflakks í eyrun heitir Raggi og Óli Fílaglas. Þetta er kinnroðalaust ripoff af hlaðvarpsþættinum Fílalag en í staðinn fyrir að fíla tónlist er meiningin að fíla vín. Í þetta sinn er það vín sem heitir Ca 40,08 - Orange Puglia Calcarius 2019 árgangur.
Þetta er merkilegur þáttur af Kokkaflakki í eyrun af nokkrum ástæðum. Í fyrsta sinn í sögunni fer viðtalið fram á ensku því gestur þáttarins að þessu sinni er Shruti Basappa. Hún er arkitekt frá Indlandi sem hefur búið á Íslandi í tíu ár og er tamara að nota ensku en íslensku svo hún varð ofan á. Það er líka merkilegt að við tölum mikið um allskonar pólitík og þá aðallega matarpólitík og hvernig rasismi og menningarnám birtist í samhengi við mat og veitingahús. Við tölum líka um indversk brúðkaup og matarblaðamennsku en Shruti er einmitt matarblaðakona hjá Reykjavík Grapevine. Mjög áhugavert, mikilvægt og skemmtilegt spjall Kokkaflakk í eyrun er í boði Ægisgarðs Brugghúss og Omnom súkkulaðigerðar. Það er Hljóðkirkjan sem framleiðir Kokkaflakk. Hljóðkirkjan býður upp á fimm þætti í viku. Dómsdagur er á mánudögum, Kokkaflakk á þriðjudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum og Besta platan ásamt Nei hættu nú alveg á föstudögum
Í þessum þætti kom einn stórtækasti veitingamaður Reykjavíkur í heimsókn, sjálfur Nuno Alexandre Bentim Servo. Nuno er frá Portúgal en hefur búið hér á landi í rúm þrjátíu ár. Hann er stórtækur í veitingabransanum og er yfirleitt þekktur sem Nuno í tvíeykinu Nuno og Bento. Saman reka þeir fimm veitingahús í Reykjavík sem hafa verið meðal þeirra vinsælustu í bænum lengi. Það er mál manna í bransanum að svo virðist sem þeir félagar kunni ekki að stíga feilspor því allt sem þeir hafa opnað hefur náð miklum vinsældum. Nuno er sem sagt líka þekktur sem Nuno á Tapas, Nuno á Apótekinu, Nuno á Sæta svíninu, Nuno á Sushi Social og Nuno á Fjallkonunni. Hann mætti til mín með þessa líka fínustu rauðvínsflösku og við töluðum um allt milli himins og jarðar. Upphafið á veldinu, málaferli vegna Sushi social vinnusemi og bara hreinlega allt. Mjög lifandi og skemmtilegt spjall, enda er Nuno með skemmtilegri mönnum. Kokkaflakk í eyrun boði Ægisgarður í Ægir Brugghúsi og Omnom súkkulaðigerðar. Það er Hljóðkirkjan sem framleiðir Kokkaflakk. Hljóðkirkjan býður upp á fimm þætti í viku. Það er Dómsdagur á mánudögum, Kokkaflakk á þriðjudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum og Besta platan á föstudögum.
Hrefnu Sætran kannast sennilega flestir við. Hún er búin að vera með ýmiskonar matreiðslu- og matartengda þætti í sjónvarpi í mörg ár og ber því sannarlega nafnið stjörnukokkur með rentu. Hún er einn af eigendum þriggja vinsælla veitingahúsa í Reykjavík og hefur verið í fremstu röð matreiðslufólks á Íslandi í 20 ár, þó hún sé bara rétt fertug að aldri. Við tölum um bransann, dans, fótbolta, æskuna, unglingsárin og þann fáránlega mikla metnað sem hún hefur og hefur alltaf haft til að skara fram úr. Mjög skemmtilegt spjall þó ég segi sjálfur frá. Kokkaflakk í eyrun er í boði Ægis brugghúss og Fastus. Það er Hljóðkirkjan sem framleiðir Kokkaflakk. Hljóðkirkjan býður upp á fimm þætti í viku, Dómsdag á mánudögum, Kokkaflakk á þriðjudögum, Drauga fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum og Bestu plötuna á föstudögum.
Gestur þáttarins að þessu sinni er Ragnheiður Axel Eyjólfsdóttir bruggari, sprúttsali og náttúrubarn. Hún er í fremstu röð matarfrumkvöðla á Íslandi. Hún á fyrirtæki sem verkar söl, þara og íslenskar jurtir sem rata svo beint á bestu veitingastaði heimsins. Hún er alin upp í mið- og vesturbæ Reykjavíkur, menntaður hönnuður en ástríðan liggur í mat náttúrunnar og frumkvöðlastarfi. Ragnheiður Axel framleiðir líka vín úr íslenskum krækiberjum og rabarbara auk þess að búa til lífrænan vodka og gin og það er miklu fleira spennandi á dagskrá í framtíðinni. Fyrir utan að vera að standa í öllu þessu er hún líka mjög skemmtileg að tala við svo ég hvet fólk til að missa ekki af þessum þætti. Kokkaflakk í eyrun er í boði Ægis brugghúss og Fastus. Það er Hljóðkirkjan sem framleiðir Kokkaflakk. Hljóðkirkjan býður upp á fimm þætti í viku. Dómsdag á mánudögum, Kokkaflakk á þriðjudögum, Drauga fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum og Besta plötuna á föstudögum,
Nanna Rögnvaldardóttir er sennilega eina manneskjan á Íslandi sem titillinn matgæðingur passar almennilega við. Nanna hefur, eins og alþjóð svo sem veit, gefið út fjölda matreiðslubóka og á meðal þeirra er einhver mikilvægasta matreislubók síðari ára á Íslandi. Biblían, Matarást. Nanna er líka mikill grúskari og hefur sankað að sér gömlum íslenskum uppskriftum og á óhemjustórt safn matreiðslubóka. Ég fór í heimsókn til Nönnu og við áttum stórskemmtilegt spjall um þetta allt saman og meira til. Kokkaflakk er í boði Ægis Brugghúss og Fastus. Kokkaflakk er framleitt af Hljóðkirkjunni sem býður upp á fimm þætti í viku; Dómsdag á mánudögum, Kokkaflakk á þriðjudögum, Drauga fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum og Bestu plötuna á föstudögum.
Jakob H Magnússon matreiðslumeistari er gestur þáttarins í þetta sinn. Jakob hefur verið kenndur við veitingastaðinn Hornið í þau rúmu 40 ár sem eru síðan hann opnaði hann, ásamt Guðna frænda sínum. Jakob stendur enn vaktina á horninu nýorðinn sjötugur. Hornið er sannkallað fjölskyldufyrirtæki því með Jakobi á vaktinni eru konan hans, börn og barnabörn. Við spjöllum um Hornið, hvernig veitingabransinn hefur breyst á þessum 40 árum sem Hornið hefur sama og ekkert breyst. Tölum um fluguveiði, kokkalandsliðið, Bocuse D´or og ýmislegt fleira.
Sonja Grant veit allt sem hægt er að vita um kaffi og þá sérstaklega gæðakaffi, því hún hefur helgað líf sitt kaffi undanfarin rúm 20 ár. Hún hefur stjórnað vinsælustu kaffihúsum á Íslandi og tekið þátt í að leiða byltingu gæðakaffis á Íslandi. Sonja er líka leiðandi í alþjóðlegu samstarfi kaffifólks og heldur námskeið um kaffi í húsakynnum kaffibrennslunnar sinnar, Kaffibrugghússins. Sonju finnst ekki leiðinlegt að tala um kaffi og gerir það af mikilli þekkingu. En það er ekki síður gaman að tala við hana um annað en kaffi og það gerum við svo sannarlega í þessum þætti. En auðvitað líka kaffi.