Podcasts about austurr

  • 40PODCASTS
  • 151EPISODES
  • 1h 11mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Jan 27, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about austurr

Latest podcast episodes about austurr

Víðsjá
Skógarhögg Thomas Berhard, karókílög Alter-Eyglóar á Ölveri, Ungfrú Ísland/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 27, 2025 57:48

Við lítum inn á eina elstu krá bæjarins, Ölver sportbar, en þar stendur tónskáldið og sviðslistakonan Eygló Höskuldsdóttir Viborg fyrir viðburðum í vikunni í nafni hliðarsjálfsins Alter-Eyglóar. Í tilraun til þess að snúa á alræði streymisveitanna og finna leið til að lifa á tónlistinni ákvað Eygló, sem stundaði framhaldsnám í tónsmíðum í Berklee og NYU, að skella í nokkur poppkennd karókílög. Á Ölveri gefst gestum viðburðarins kostur á að spreyta sig á þessum glænýju karókílögum og fylgja Alter Eygló inn í hugleiðingar um neyslu á tónlist og vinnuna sem liggur að baki. Leikverkið Ungfrú Ísland var frumsýnt í Borgarleikhúsinu þann 17.janúar síðastliðinn. Verkið er byggt á samnefndri skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur en það eru þau Gréta Kristín Ómarsdóttir og Bjarni Jónsson sem unnu leikgerðina, og Gréta Kristín leikstýrir jafnframt verkinu. Við heyrum hvað einum af leikhúsrýnum þáttarins fannst um þessa leikgerð, en að þessu sinni er það Katla Ársælsdóttir sem rýnir. En við byrjum þáttinn á því að kynna okkur splunkunýja þýðingu á verki sem kom fyrst út í Austurríki árið 1984. Skógarhögg-geðshræring, eftir Thomas Bernhard, olli mikilli ólgu í menningarlífi Vínarborgar þegar hún kom út og var fjarlægð úr bókabúðum vegna átaka um ærumeiðingar. Bókina þýddi Hjálmar Sveinsson, sem segir bókina eiga einstaklega vel við okkar tíma. Tíma sem einkennist af leit okkar, hér í velmegunarþjóðfélögunum, að sannleika, með ýmsum leiðum, því það sé einhver kjarni sem við söknum úr lífinu. Þrá í sannleika, en einnig fegurð, sé að hans mati kjarni bókarinnar. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Spegillinn
Andlát ungrar konu á Skeggjagötu, nýr orkumálaráðherra um orkumál, öfgahægristjórn í kortunum í Austurríki

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 9, 2025 20:00

Tveir dómkvaddir matsmenn telja að læknisfræðileg rannsókn vegna andláts ungrar konu eftir handtöku lögreglu hafi verið ófullkomin. Lögmaður fjölskyldu hennar segir ríkið verða að bera hallann af því. Andlát hennar megi að líkindum rekja til samspils tveggja þátta; ástands ungu konunnar og aðgerða lögreglu - en ómögulegt sé að segja til um umfang áhrifa hvors orsakaþáttar fyrir sig. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Orkuframleiðsla og orkunýting standa á krossgötum. Orkuframleiðendur anna ekki eftirspurn eftir orku og hart er deilt um nýja orkukosti. Í upphafi ráðherratíðar sinnar leggur Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra áherslu á þrjú atriði: Forgang almennings og minni fyrirtækja að raforku án samkeppni við stórnotendur; liðka fyrir aukinni orkuöflun með einfölduðu leyfisveitingakerfi, og að rjúfa kyrrstöðuna í tengslum við rammaáætlun. Gréta Sigríður Einarsdóttir tók saman og ræddi við Jóhann Pál. Austurríski Frelsisflokkurinn eygir nú í fyrsta sinn möguleikann á að leiða ríkisstjórn í landinu. Flokkurinn er lengst til hægri í stjórnmálum í Austurríki og vann stóran sigur í kosningunum þar í september. Björn Malmquist segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Mannlegi þátturinn
Norðurhjálp, Snorri golfvallahönnuður og veðurspjallið með Einari Sveinbjörnss

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 15, 2024 52:49

Norðurhjálp tekur við og selur allskyns notaðar vörur; fatnað, heimilisbúnað, húsgögn, bækur, smádót, listaverk og margt fleira. Allur ágóði fer í að styrkja einstaklinga og fjölskyldur á svæðinu sem ekki hafa mikið á milli handanna. Fjórar konur sem hafa starfað lengi við sjálfboðavinnu tóku höndum saman og vinna nú 6 daga vikunnar við að taka á móti vörum og við afgreiðslu. Við heimsóttum Norðurhjálp í rúmlega 400 fm. skemmu sem þær leigja undir starfsemina rétt hjá Glerártorgi. Sæunn Ísfeld Guðmundsdóttir tók á móti okkur. Svo heyrðum við í Snorra Vilhjálmssyni í Austurríki, en hann starfar þar við golfvallahönnun hjá fyrirtæki sem kennt er við einn frægasta kylfing heims. Snorri lærði golfvallahönnun í Skotlandi og vinnur nú að hönnun og byggingu glæsilegra golfvalla um nánast allan heim. Það er ekki víst að margir viti hvað felst í starfi golfvallahönnuðar. Við fengum Snorra til að segja okkur í dag. Einar Sveinbjörnsson kom svo í veðurspjallið í dag. Í þetta sinn sagði hann okkur frá kaldri tungu sjávar undan Vestfjörðum og Húnaflóa um þessar mundir og hvernig hún mótar hitafarið. Svo talaði Einar um veðurstöðina Grímsstaði á Fjöllum. Þar er ríkir hálfgert meginlandsloftslag og hann ætlar að skoða kuldana undanfarna daga einmitt þar. Og að lokum veltum við því fyrir okkur hvort fellibyljatímanum á Atlantshafi sé lokið. Tónlist í þættinum í dag: Pínulítið lengur / Stefán Hilmarsson (D. Gates, texti Stefán Hilmarsson) Litli tónlistarmaðurinn / Elly Vilhjálms (Freymóður Jóhannsson eða Tólfti September) Build Me Up Buttercup / The Foundation (A. G. Instone, M. D'Abo og T. Macaulay) Veðurglöggur / Spilverk Þjóðanna (Spilverk Þjóðanna) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Podcast með Sölva Tryggva
Pétur Guðmundssson með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Aug 1, 2024 76:31

Nálgast má þáttinn í heild sinni án auglýsinga inn á; https://solvitryggva.is/ Pétur Kristján Guðmundsson, kvikmyndagerðarmaður er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Pétur, sem var mikill útivistargarpur, lamaðist í slysi í Austurríki fyrir 10 árum. Hann neitaði að gefast upp, þrátt fyrir að læknar hafi sagt honum að hann myndi aldrei geta staðið upp aftur. Stóra áfallið hjá Pétri var ekki slysið sjálft, heldur þegar hann áttaði sig á því 2-3 árum síðar að hann hefði verið í harkalegri afneitun. Eftir margra ára sjálfsvinnu er hann kominn á stað þar sem hann vinnur nú við að hjálpa fólki. Í þættinum ræða Sölvi og Pétur um slysið, listina við að gefast ekki upp, hugvíkkandi efni og margt fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/ Fiskikóngurinn - https://www.facebook.com/fiskikongurinn.is/?locale=is_IS Heitirpottar.is - https://heitirpottar.is/ Kjötkompaní - https://kjotkompani.is/

Draumaliðið
Svona var Ísland YOUTH SPECIAL: EMU17 EURO 2007 ft. Ragnar Þór Gunnarsson frkvstjóri

Draumaliðið

Play Episode Listen Later Jul 12, 2024 131:01

LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD KAGGI MÁS SPECIA. Fórum yfir það þegar Ísland komst í fyrsta skipti á stórmót í gegnum alvöru dæmi, ekki í gegnum það að vinna Lettland og gera jafntefli við Austurríki. Undankeppni, milliriðill og stemning. Gullkynslóðin er mætt en það sem meira er, týnda gullkynslóðin er alls ráðandi og hún er mætt til að skila skömminni! Gestur: Ragnar Þór Gunnarsson, fyrrum unglingalandsliðsmaður og núverandi kóngur Viðmælendur Guðlaugur Victor Pálsson Hólmar Örn Eyjólfsson Arnar Sveinn Geirsson Frans Elvarsson Trausti Sigurbjörnsson Brynjar Benediktsson Finnur Orri Margeirsson Arnar Darri Pétursson Alexander Lúðvígsson

Pitturinn
R11 Austurríki 2024

Pitturinn

Play Episode Listen Later Jul 2, 2024 119:44

EKILL - ADVANIA - BÍLAUMBOÐIÐ ASKJA - DOMINOS - BOLI - DORITOS - ARENA - VERKFÆRASALAN - SONAX Kristján Einar og Bragi fjalla um líflega austurríska kappaksturshelgi! Loksins kom að því að allt sauð upp úr í F1!

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Innkastið í beinni á X977

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jun 29, 2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 29. júní. Innkastið í beinni útsendingu þar sem Elvar Geir, Benedikt Bóas og Baldvin Borgars skoða 12. umferð Bestu deildarinnar, helstu tíðindi og fréttir og Lengjudeildina. Góð umferð að baki fyrir Víking. Svo er hitað upp fyrir 16-liða úrslit EM. Örvar Arnarsson fréttaritari Fótbolti.net í Austurríki er á línunni.

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði

Andri og Ólafur komu saman til að ræða um Júgóslavíu sem sögulegt fyrirbrigði, stofnun hennar og fyrstu áratugi þess ríkis 1918-1941.Júgóslavía (Konungsríki Serba, Króata og Slóvena) varð til 1. desember 1918 við samruna Serbíu, Svartfjallalands, og suður-slavnesku landsvæðanna sem áður höfðu tilheyrt Austurríki-Ungverjalandi, Króatíu, Slóveníu og Bosníu. Ríkið var afleiðing Friðarráðstefnunnar í París, og Serbía var eitt af sigurvegararíkjum fyrri heimsstyrjaldar.Júgóslavismi sem þjóðernishyggja Suður-Slava á rætur að rekja til 19. aldar. Króatar og Serbar lögðu ólíkan skilning í framkvæmd hennar vegna mismunandi sögu og reynslu þjóðanna. Segja má að sambúðin hafi verið strembin frá upphafi, en Júgóslavía flosnaði upp árið 1941 í kjölfar innrásar Öxulveldanna í síðari heimsstyrjöld.Þessi þáttur er fyrri hluti umræðna um Júgóslavíu. Í síðari hluta verður rætt um sósíalísku Júgóslavíu eftir stríð, sem flosnaði aftur upp á 10. áratugnum.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

Mín skoðun
921.þáttur. Mín skoðun 04062024

Mín skoðun

Play Episode Listen Later Jun 4, 2024 75:44

Heil og sæl. Í dag er nóg um að tala. Kristinn Kærnested er gestur þáttarins og við tölum ítarlega um Bestu deildina, vonbrigði, þjálfaramál, hverjir hafa komið mest á óvart og fleira. Ísland - Austurríki er í kvöld og við spáum í leikinn. Meistaradeildinni lauk síðasta laugardag og Real Madrid vann enn og aftur. Grindavík er komið með þjálfara og við förum í fréttir og slúður. Takk fyrir okkur BK-kjúklingur, Marpól og Slysalogmenn.is

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði
88 - Austurríki-Ungverjaland í fyrri heimsstyrjöld

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði

Play Episode Listen Later May 31, 2024 121:30

Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um síðustu ár Austurríkis-Ungverjalands og þáttöku þess í fyrri heimsstyrjöld. Austurríki-Ungverjaland var eitt þeirra gömlu keisaradæma sem féll eftir stríðið mikla 1914-1918, og tvístraðist í hin ýmsu þjóðríki. Fyrri heimsstyrjöld hófst þegar Austurríki-Ungverjaland lýsti yfir stríði gegn Serbíu eftir morðið á austurríska ríkiserfingjanum Franz Ferdinand í Sarajevo í júní 1914. Austurríki leið gríðarlega ósigra á vígstöðvunum í Galisíu gegn Rússum veturinn 1914-1915 og urðu þeir til þess að austurrísk-ungverski herinn var hreinlega þurrkaður út. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

Lestin
Hrægammar Kanyes, Club Zero

Lestin

Play Episode Listen Later Feb 27, 2024 57:44

Í rúmar tvær vikur hefur tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson verið að hlusta á og melta nýjasta listaverk Kanye West, plötuna Vultures 1 sem hann gaf út ásamt Ty Dolla $ign. Platan er sjálfútgefin og trónir á toppi vinsældarlista. En hvaða siðferðilegu klemmur fylgja því að vera Kanye West aðdáandi? Club Zero er níunda kvikmynd Austurríska leikstjórans Jessicu Hausner. Í myndinni fylgjumst við með hópi nemenda við alþjóðlegan heimavistarskóla sem skrá sig í róttækan næringarfræðikúrs hjá hinni undarlegu Ungfrú Novak. Markmiðið er að stunda meðvitað át eða “conscious eating” - sem gengur í grófum dráttum út á að borða minna. Við ræðum myndina við Tinnu Guðjónsdóttur, sem situr í stjórn Félags fagfólks um átraskanir og vinnur töluvert með ungmennum með átraskanir í starfi sínu sem hjúkrunarfræðingur á BUGL. Lagalisti: Lög af Vultures 1 Markus Binder - Gum Markus Binder - Auto Markus Binder - Moodrum Frank Ocean - Self Control

Handkastið
Hálfleikur frá helvíti drap Ólympíudrauminn

Handkastið

Play Episode Listen Later Jan 24, 2024 55:56

Tómas Þór Þórðarson kíkti til okkar í Dominos stúdíóið og fór yfir lokaleik Íslands á Evrópumótinu í handbolta. Farið var yfir leik liðsins gegn Austurríki og rýnt í frammistöðu leikmanna. Undir lok þáttar var það ljóst að Ísland næði ekki Ólympíusæti.

Poppland
Leikdagur og austurískt popp

Poppland

Play Episode Listen Later Jan 24, 2024 100:00

Siggi og Lovísa stóðu vaktina í stuttu Popplandi vegna leiks Íslands og Austurríkis á EM. Austurríska liðið leikgreint með popp-gleraugunum, Mozart, Falco, DJ Ötzi og Klangkarussell svo eitthvað sé nefnt. Una Torfadóttir - Þú ert stormur (Pride lagið 2023). DAVID BOWIE - Modern Love. FALCO - Rock me Amadeus. DUA LIPA - Houdini. ÞURSAFLOKKURINN - Sigtryggur vann. STUÐMENN - Franskar (sósa og salat). TROYE SIVIAN - One Of Your Girls. THORSTEINN - Runaway. PÁLL ÓSKAR - Líttu upp í ljós. DJ OTZI - Hey baby. ARCTIC MONKEYS - Do I Wanna Know?. LAUFEY - Falling Behind. ÁSGEIR & ÁRNÝ MARGRÉT - Part of me. DILJÁ- Lifandi inní mér. ILSEY - No California. Quantic & Rationale - Unconditional. Klangkarussell - Sonnentanz. MEIIJA & EELS - Possum.

Mín skoðun
#878 | Metnaðarleysi RÚV

Mín skoðun

Play Episode Listen Later Jan 23, 2024 2:48

Heil og sæl. Í dag er margt til umræðu hjá Svanhvíti og Kidda. Við förum ítarlega í landsliðið í handbolta, úrslit undanfarna daga og leikinn gegn Austurríki á morgun. Við ræðum fótboltann innanlands og VÍS bikarinn í körfu, lítill metnaður hjá RÚV þegar kemur að innanlands íþróttum. Enski boltinn kemur við sögu, ræðum stöðuna í Þýskalandi, slúður, krummasögur og margt fleira. Takk BK-kjúklingur, slysalogmenn.is og Marpól. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Handkastið
Sögulegur sigur og frammistaðan sem þjóðin hefur beðið eftir

Handkastið

Play Episode Listen Later Jan 22, 2024 58:16

Patrekur Jóhannesson og Ásgeir Jónsson kíktu á Stymma Klippara í Dominos stúdíóið og fóru yfir sögulegan sigur Íslands á Króatíu. Rýndum í framhaldið og hvað yrði að falla með okkur svo Ólympíusætið væri möguleiki. Patti rýndi einnig í gott gengi sinna gömlu lærisveina í Austurríki.

Handkastið
4 dagar í fyrsta leik - Leikirnir gegn Austurríki krufnir að beini

Handkastið

Play Episode Listen Later Jan 8, 2024 70:53

Íslenska landsliðið vann báða leikina gegn Austurríki um helgina. Farið var yfir frammistöðu liðsins af Sérfræðingnum, Ponzunni og Jóhanni Gunnari Einarssyni sem var gestur þáttarins.

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði
75 - Fasismi og nasismi í Austurríki

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði

Play Episode Play 60 sec Highlight Listen Later Dec 14, 2023 128:44

 Þátturinn byrjar á 24 mínútu.  Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn sögu Austurríkis á árunum milli stríða, 1918-1938. Austurríki-Ungverjaland var 50 milljón manna fjölmenningarríki sem hrundi eftir fyrri heimsstyrjöld, þjakað af þjóðernisdeilum. Árið 1918 var hið nýja Austurríki 6 milljón manna smáríki með ofvaxna höfuðborg, og glímdi við pólitiskan óróa og efnahagsörðugleika. Árið 1934 var komið á rammkaþólskri einræðistjórn í Austurríki undir Engilbert Dollfuss, sem var myrtur af nasistum, og eftirmanni hans Kurt Schuschnigg. Stjórnin hefur ýmist verið bendluð við fasisma (Austrofaschismus), eða korporatisma (Ständestaat) en hún barðist hart gegn nasistum og öðrum pan-germanistum sem vildu sameiningu við Þýskaland. Austurríki var loks innlimað í Þýskaland  vorið 1938 í aðdraganda seinni heimsstyrjaldar, og Adolf Hitler var fagnað með fánum og blómsveigum við innreið sína í gamla heimalandið.

Mannlegi þátturinn
Ólöf Kolbrún föstudagsgestur og sítrónumatarspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 22, 2023 50:00

Ólöf Kolbrún Harðardóttir óperusöngkona og skólastjóri Söngskólans í Reykjavík hefur átt langan og farsælan feril. Hún lærði söng bæði hér heima og í Austurríki og eftir námið hóf hún kennslu ásamt því að koma víða fram og syngja inn á plötur. Ólöf Kolbrún er einn af brautryðjendum innan íslenska tónlistarheimsins, hún var meðal annars í hópi þeirra sem kom að stofnun Íslensku óperunnar og hefur um árabil kennt við Söngskólann í Reykjavík þar sem hún gegnir nú starfi skólastjóra, en skólinn heldur upp á 50 ára afmæli sitt í Langholtskirkju á sunnudaginn. Ólöf Kolbrún var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir kom svo í matarspjallið í dag. Í þetta sinn vorum við á marakóskum slóðum og þar munu meðal annars maríneraðar sítrónur komu við sögu. Tónlist í þættinum Rock Calypso í réttunum / Haukur Morthens (Fischer og Jón Sigurðsson) Ég veit / Eivör Pálsdóttir (Eivör Pálsdóttir) Íslands lag (Heyrið vella á heiðum hveri) / Garðar Cortes og Kór Langholtskirkju (Björgvin Guðmundsson og Grímur Thomsen) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Ólöf Kolbrún föstudagsgestur og sítrónumatarspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 22, 2023

Heimsglugginn
Glæpagengi í Svíþjóð, vandræði Ernu Solberg og Take the money and run

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Sep 21, 2023

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu einkum norræn málefni við Boga Ágústsson í Heimsglugga vikunnar á Morgunvakt Rásar 1. Fyrst um ofbeldisölduna í Svíþjóð þar sem 37 hafa verið myrtir í skotárásum á árinu, langflestir í átökum glæpagengja eða innbyrðis uppgjöri eins og í Foxtrott-glæpaklíkunni þessa dagana. Þá var rætt um vandræði norskra stjórnmálamanna, tveir ráðherrar hafa þurft að segja af sér og tveir aðrir eru í vandræðum. Bæði Anniken Hvitfelt, utanríkisráðherra, og Erna Solberg, fyrrverandi forsætisráðherra, eru í vandræðum vegna hlutabréfaviðskipa eiginmanna sinna. Take the Money and Run, hirtu peningana og forðaðu þér, er heiti á listaverki sem danski myndlistamaðurinn Jens Haaning gerði fyrir Kunsten Museum of Modern Art í Álaborg. Safnið sendi listamanninum 538 þúsund danskar krónur í seðlum því listamaðurinn hugðist líma seðlana við strigann á málverkum sem áttu að tákna meðallaun í Danmörku og Austurríki. En Haaning hirti peningana og sendi safninu tvo tóma ramma. Lasse Andersen, forstöðumaður Kunsten, taldi listamanninn hafa brotið samning sem gerður var um verkin. Safnið fór því í mál við Haaning og bæjarréttur Kaupmannahafnar dæmdi í vikunni að listamaðurinn ætti að skila peningunum. Af þessu tilefni lauk Heimsglugganum með lagi Steve Miller Band, Take the Money and Run.

Heimsglugginn
Glæpagengi í Svíþjóð, vandræði Ernu Solberg og Take the money and run

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Sep 21, 2023 23:32

Föstudagsgestirnir Geir Sveinsson og Jóhanna Vilhjálmsdóttir

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Aug 25, 2023

Föstudagsgestirnir okkar í dag voru bæjarstjórahjónin í Hveragerði, Geir Sveinsson fyrrum landsliðsmaður í handbolta og Jóhanna Vilhjálmsdóttir fjölmiðlakona og áhugamanneskja um heilsu en hún er höfundur tvöggja bóka um heilsu, Heilsubækur Jóhönnu. Þau hjónin eru tiltölulega nýflutt heim, Geir í fyrra vegna bæjarstjórastöðunnar og Jóhanna nú fyrir rúmri viku , eftir að þau hörðu búið í Austurríki og Þýskalandi í um ellefeu ár. Við spjölluðum við þau Jóhönnu og Geir um lífið og tilveruna og svo sátu þau áfram í matarspjalli dagsins þar sem var meðal annars rætt um lífrænan mat, eiturefni og súrdeigsbrauð. Tónlist í þætti dagsins: Draumaprinsinn / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríksson) I?ll keep loving you / Willie Nelson (Vinchent Rose & Coburn) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Föstudagsgestirnir Geir Sveinsson og Jóhanna Vilhjálmsdóttir

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Aug 25, 2023 50:00

Föstudagsgestirnir okkar í dag voru bæjarstjórahjónin í Hveragerði, Geir Sveinsson fyrrum landsliðsmaður í handbolta og Jóhanna Vilhjálmsdóttir fjölmiðlakona og áhugamanneskja um heilsu en hún er höfundur tvöggja bóka um heilsu, Heilsubækur Jóhönnu. Þau hjónin eru tiltölulega nýflutt heim, Geir í fyrra vegna bæjarstjórastöðunnar og Jóhanna nú fyrir rúmri viku , eftir að þau hörðu búið í Austurríki og Þýskalandi í um ellefeu ár. Við spjölluðum við þau Jóhönnu og Geir um lífið og tilveruna og svo sátu þau áfram í matarspjalli dagsins þar sem var meðal annars rætt um lífrænan mat, eiturefni og súrdeigsbrauð. Tónlist í þætti dagsins: Draumaprinsinn / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríksson) I?ll keep loving you / Willie Nelson (Vinchent Rose & Coburn) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Pitturinn
R10 Austurríki 2023

Pitturinn

Play Episode Listen Later Jul 3, 2023 181:10

ARENA - OLÍS - KALDI - DOMINOS - VERKFÆRASALAN - BÍLAUMBOÐIÐ ASKJA - SONAX Kristján Einar og Bragi tala vel og lengi um magnaða sprettkeppnishelgi í Austurríki. Næstlengsti Pittur sögunnar!

Víðsjá
Prinsessuleikarnir, Kerfi í Berg contemporary, Roni Horn

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 13, 2023

Í Berg Contemporary við Klapparstíg var opnuð um liðna helgi sýningin Kerfi þar sem ný verk eftir Heklu Dögg Jónsdóttur myndlistarkonu eru til sýnis. Verkin á sýningunni eru þrenns konar: þarna er vídeóverk þar sem þrír litir blandast saman á vatnsyfirborði, í öðru verki rúlla hvítir og svartir textar yfir vegginn á plastrúllum, og svo eru þarna stór pappírs verk, sem ná frá gólfi og upp í loft. Meira um það þegar við göngum um sýninguna með Heklu Dögg í þætti dagsins. Og svo ætlum við að velta fyrir okkur hugmyndinni um prinsessuna. Goðsögnin um hina hreinu og duglegu prinsessu, prúðu og iðnu stúlkuna, sem Grimmsbræður festu á blað, og sem Disney verkmsiðjan festi svo enn betur í sessi í samtíma okkar, lifir enn góðu lífi, en afhverju? Austurríska nóbelskáldið Elfriede Jelinek tekst á við þessar spurningar í Prinsessuleikunum, verki sem Borgarleikhúsið frumsýnir um næstu helgi í leikstjórn Unu Þorleifsdóttur. Una verður gestur okkar í dag. Á fimmtudaginn síðasta var samþykkt á Alþingi að veita 21 ein­stak­lingi rík­is­borg­ara­rétt. Athygli vakti að meðal þeirra er banda­ríska lista­kon­an Roni Horn sem sannarlega má setja í flokk svokallaðra Íslands­vina eft­ir ára­löng tengsl henn­ar við land og þjóð. Af þessu tilefni ætlum við að hverfa aftur til ársins 2007, og rifja upp viðtal við listakonuna, sem ræddi þá meðal annars um áhrif Íslands á list hennar, efnahagsmálin sem þá voru á blússandi siglingu og náttúruvernd svo eitthvað sé nefnt.

Víðsjá
Prinsessuleikarnir, Kerfi í Berg contemporary, Roni Horn

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 13, 2023 52:34

Flugur
Allskonar þýsk og austurrísk lög

Flugur

Play Episode Listen Later Feb 20, 2023 43:00

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum. Leikin eru lög eftir þýska og austurríska höfunda, sem sungin eru á íslensku, þýsku og norsku. Þetta eru lögin Síminn með Halla og Ladda, Prins póló með Sumargleðinni, Huschi Buschi og Nur nach Hause með Frank Zander, Þú þú þú með Alfreð Clausen og Du Du Du með Noru Brockstedt, Flakkarinn með Atlantic kvartettinum og Rosen aus dem Süden með Magnúsi Péturssyni. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Flugur
Allskonar þýsk og austurrísk lög

Flugur

Play Episode Listen Later Feb 20, 2023

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum. Leikin eru lög eftir þýska og austurríska höfunda, sem sungin eru á íslensku, þýsku og norsku. Þetta eru lögin Síminn með Halla og Ladda, Prins póló með Sumargleðinni, Huschi Buschi og Nur nach Hause með Frank Zander, Þú þú þú með Alfreð Clausen og Du Du Du með Noru Brockstedt, Flakkarinn með Atlantic kvartettinum og Rosen aus dem Süden með Magnúsi Péturssyni. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Betri helmingurinn með Ása
#88 - Andrea Röfn & Arnór Ingvi

Betri helmingurinn með Ása

Play Episode Listen Later Jan 4, 2023 87:28

Fótbolta og landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason mætti til mín í skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi fyrirsætunni og bloggaranum Andreu Röfn Jónasdóttur.Arnór Ingvi hefur verið atvinnumaður í fótbolta síðan 2012 og spilað hjá liðum víðsvegar um heiminn meðal annars í Boston, Noregi, Grikklandi, Austurríki og Svíþjóð þar sem hann spilar nú með félaginu Norrköpping. Ásamt þessu spilar hann með íslenska landsliðinu og skoraði meðal annars markið sem tryggði Íslandi leikinn á móti Englandi í 16 liða úrslitum EM 2016.Andrea hefur verið áberandi hér á landi í mörg ár fyrir störf sín sem fyrirsæta og er hún einnig partur af vinsælu bloggsíðunni Trendnet þar sem hún skrifar mikið um tísku. Þá hefur hún einnig hannað og gefið út sína eigin skólínu, JoDis by Andrea með danska skóframleiðandanum JoDis, sem vægast sagt hafa slegið í gegn og hefur hún alls hannað sjö línur.Arnór og Andrea kynntust í gegnum sameiginlegann vin í desember 2016 á Fredreksen og kom Arnór heim eftir þennan hitting og sagði við mömmu sína að hann væri búinn að finna réttu stelpuna en var hún mætt í mat hjá tengdó 1. janúar svo hlutirnir gerðust ansi hratt og eru þau í dag gift með tvö börn.Í þættinum ræddum við meðal annars lífið í atvinnumennskunni og hvernig það er að flytja fjölskiduna reglulega milli landa, hönnunina á skónum og hvernig það kom til, landsliðið, rómantíkina og margt fleira ásamt því að heyra margar skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Andrea var næstum búinn að senda Arnór í keppnisferð þegar hún var að eiga.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/

Spegillinn
Gæsluvarðhald framlengt og brotthvarfi Rússa mætt af efa

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 10, 2022 30:00

Spegillinn. 10. nóvember 2022. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Gæsluvarðhald hefur verið framlengt um tvær vikur yfir tveimur mönnum sem grunaður eru um að skipuleggja hryðjuverk. Þeir voru handteknir í september. Lengra gæsluvarðhald vekur furðu Sveins Andra Sveinssonar verjanda annars mannanna. Oddur Þórðarson talaði við hann. Desemberuppbót til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega lækkar um helming milli ára samkvæmt fjáraukalögum en formaður fjárlaganefndar vill að það verði endurskoðað. Höskuldur Kári Schram tók saman og heyrist í Kristrúnu Frostadóttur (S), Ingu Sæland (F) og Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur (V) Margfrestuð skýrsla ríkisendurskoðunar um sölu á Íslandsbanka verður birt á mánudag Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, segir að stór hluti þjóðarinnar viti ekki og skilji ekki út á hvað sjávarútvegur gengur. Taka verði heiðarlegra samtal við þjóðina. Stúdentaráð telur að skrásetningargjöld við Háskóla Íslands séu innheimt á fölskum forsendum, þau standi ekki aðeins undir skráningu heldur líka kennslu. Alexander Kristjánsson talaði við Rebekku Karlsdóttur formann stúdentaráðs. Hagsmunavörðum, eða lobbíistum, á vegum gas- og olíufyrirtækja hefur fjölgað um fjórðung á COP-ráðstefnunni síðan á síðasta ári. Um 600 slíkir eru skráðir á viðburði COP27-ráðstefnunnar, sem haldin er í Egyptalandi. Pétur Magnússon tók saman. Skyndibitakeðjan KFC hefur beðist afsökunar eftir að þýskir viðskiptavinir hennar voru hvattir til að minnast atlögu sérsveitarmanna og óbreyttra borgara að gyðingum í Þýskalandi og Austurríki fyrir rúmum áttatíu árum. Markús Þórhallsson sagði frá. Lengri umfjallanir. Ákvörðun Rússa um að flytja herlið sitt frá borginni Kherson í Úkraínu er tekið með tortryggni. Ásgeir Tómasson tók saman. Kennarar ættu að geta sérhæft sig í geðrækt alveg eins og í stærðfræði eða íþróttum segir Sigrún Daníelsdóttir verkefnisstjóri í mennta- og barnamálaráðuneytinu. verið er að undirbúa að geðrækt verið sjálfstæð kennslugrein. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hana. DNA sýnataka í nautgriparækt er bylting í ræktunarstarfi bænda. Framfarirnar jafnast á við að fá framdrif undir dráttarvélar segir búfjárræktarráðunautur. Bjarni Rúnarsson tók saman og ræddi við Guðmund Jóhannesson, ráðunaut og ábyrgðarmann í nautgriparækt hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.

Spegillinn
Gæsluvarðhald framlengt og brotthvarfi Rússa mætt af efa

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 10, 2022

Tónlist að norðan, of litlir bílar, sjávarföll í Hafnarborg og leikhús

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 13, 2022

Við hefjum þáttinn á leikhúsrýni frá Nínu Hjálmarsdóttur, sem að þessu sinni fjallar um leiksýninguna Nokkur augnablik um nótt. Tríó Akureyrar og hornleikarinn Ella Vala Ármannsdóttir halda þessa dagana upp á haustið, réttir og uppskerutíma með tónleikaferð um Norðurland. Október-réttarfestið er blanda af íslenskum réttarsöngvum og þýskum októberfest-lögum frá Þýskalandi og Austurríki. Hópurinn leikur á vel völdum stöðum á Norðurlandi, í Bergi á Dalvík, í Laugarborg, Hrafnagili, í Skjólbrekku á Skútustöðum og í Listigarðinum á Akureyri. Við heyrum nánar af tónlistarlífinu norðan heiða, og tökum púlsinn á Daniele Basini, klassískum gítarleikara sem býr og starfar á Akureyri. Daniele fékk í fyrra styrk úr Tónskaldasjóði RÚV og STEF til að vinna að nýju tónverki, tónverki sem nú hefur verið flutt á Akureyri og í Róm. Við heyrum af verkinu og í verkinu. Örn Elvar Arnarson flytur okkur í dag einn af sínum skáldlegu pistlum, og heldur að þessu sinni í bílferð inn í lönd ljóðsins. Á hverju ári kallar Hafnarborg eftir tillögum að haustsýningu og í ár var það hugmynd Sigrúnar Ölbu Sigurðardóttur sem varð hlutskörpust. Á sýningunni, flæðir að ? flæðir frá, beinir sýningarstjórinn Sigrún Alba sjónum sínum að strandlengjunni, og um leið brýnum málefnum samtímans. Sigrún skoðar ströndina sem svæði átaka og mögulega birtingarmynd mannaldar í gegnum verk sjö listamanna frá ólíkum löndum. Við lítum inn í Hafnarborg undir lok þáttar. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Play Episode Listen Later Oct 13, 2022 55:00

Hlaðvarp Kjarnans
Raddir margbreytileikans – Kvikspuni, kakkalakkar og svissneskir vasahnífar

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Sep 14, 2022 45:15

Viðmælandi hlaðvarpsins að þessu sinni er Unnur Helga Möller en hún er fædd á Akureyri 8. janúar 1985. Unnur Helga lauk BA prófi í mannfræði frá Háskóla Íslands 2013 og MA prófi frá sama skóla 2015. Í lokaverkefnum sínum hefur hún tekist á við aðdáendasamfélög á netinu og kvikspuna á Norðurlöndum. Unnur Helga hefur búið í Austurríki, Þýskalandi, Bretlandi og Svíþjóð en er nú búsett í Hafnarfirði. Áhugasvið hennar tengjast öllum almennum nördaskap, tónlist, sviðslistum, þjóðbúningum og öllu sem er gamalt með sögu. Hún hefur í gegnum tíðina unnið sem söngvari, leiðsögumaður á söfnum, við tómstundafræðslu og efnissköpun en starfar nú sem viðburðastýra viðburða og miðlunar á Bókasafni Hafnafjarðar. Við ræddum við Unni Helgu um aðdáendamenningu, kvikspuna, bókasöfn og hvernig mannfræðin kemur inn í þetta allt saman.

Pitturinn
R11 Austurríki 2022

Pitturinn

Play Episode Listen Later Jul 10, 2022 119:51

ARENA - BOÐLEIÐ - VIAPLAY - OLÍS - VERKFÆRASALAN Kristján Einar og Bragi fara yfir sprettkeppnishelgina í Austurríki! Eru Ferrari mættir aftur? Hvað varð um hraða Mercedes? Hversu reiður er Vettel?

Morgunútvarpið
6. júlí - Hennar rödd, Boris Johnson, lífeyrismál og EM kvenna

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jul 6, 2022

Það stendur til að gefa út bókina Hennar rödd: Sögur kvenna af erlendum uppruna á Íslandi, sem ætlað er að heiðra framlag kvenna af erlendum uppruna til íslensks samfélags auk þess að gera lesendum betur kleift að skilja stöðu kvenna af erlendum uppruna, sem mæta tvöfaldri mismunun vegna kyns og stöðu sinnar sem innflytjendur. Við ræddum við yfirritstjóra bókarinnar, Elinóru Guðmundsdóttur. Sífellt berast fréttir af íslendingum sem flytjast til Spánar, eða annara landa þar sem verðlag og veðurlag er hagstætt, og vekur það upp spurningar hvort þeim sé að fjölga sem það gera. Í ársskýrslu Tryggingarstofnunar fyrir árið 2021 kemur fram umtalsverð aukning á greiðslum inná erlenda reikninga. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins og 1. varaforseti ASÍ kom til okkar til að ræða lífeyrismálin. Keir Starmer, leiðtogi Verkamannaflokksins og bresku stjórnarandstöðunnar, sagði í gærkvöldi að Boris Johnson, forsætisráðherra, ætti að segja af sér. Rishi Sunak og Sajid Javid, fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra Bretlands, sögðu af sér síðdegis í gær og sögðust ekki lengur bera traust til Johnsons. Við ræddum við Eirík Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, um stöðuna í breskum stjórnmálum. Eins og flestir vita er Landsmót hestamanna í fullum gangi á Gaddstaðaflötum við Hellu og Hulda Geirsdóttir liðsmaður okkar er þar. Hún hitti á Fríðu Hansen tónlistarkonu og reiðkennara og tók hana tali um tónlistina, hestamennskuna og hvernig maður semur lög á Landveginum. Bæjar- og tónlistarhátíðin Hjarta Hafnarfjarðar hefst á morgun fimmtudag í Bæjarabíói. Fjöldi viðburða vera næstu daga og meðal tónlistarmanna sem þar koma fram er Björgvin Halldórsson, Jónas Sigurðsson, Bríet og Stuðmenn. Þá mun Björn Jörundur Friðbjörnsson vera með ferilstónleika þann 15. Júlí en hann kom til okkar með Páli Eyjólfssyni sem skipuleggur hátíðina. Evrópumót kvenna í knattspyrnu hefst í dag á Englandi þegar gestgjafarnir mæta Austurríki klukkan sjö í kvöld. Fyrsti leikur Íslands er á sunnudaginn gegn Belgíu - og við hringdum út í vinstri bakvörðinn okkar , Hallberu Guðnýju Gísladóttur. Tónlist: Emilíana Torrini - Big Jumps Youssou Ndour - 7 seconds Curtis Harding - I wont let you down Bjarni Arason - Þegar sólin sýnir lit Model - Lífið er lag Tame Impala - Turn up the sunshine Nýdönsk - fram á nótt Stjórnin - Ég lifi í voninni Dikta - Thank you

Play Episode Listen Later Jul 6, 2022 130:00

Heimavöllurinn á EM: Ver Wiegman titilinn? Öll augu á Hegerberg í endurkomunni

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jul 5, 2022

Í boði Orku Náttúrunnar, Dominos, Landsbankans og bílaumboðsins Heklu hitar Heimavöllurinn upp fyrir EM á Englandi! Knattspyrnukonurnar Ingunn Haraldsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir mættu og fóru yfir A-riðil mótsins. Í honum leika gestgjafarnir í Englandi, Austurríki, Noregur og nýliðar Norður-Írlands.

dominos augu englandi austurr hegerberg landsbankans
Mín skoðun
551.þáttur. Mín skoðun. 19042022

Mín skoðun

Play Episode Listen Later Apr 19, 2022 42:46

551.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan förum um víðan völl í dag. Besta deildin byrjaði í gær og við förum yfir það sem og umræðu í kringum leikinn sem fór fram á twitter um Eggert Gunnþór leikmann FH. Valur er meistari meistaranna í kvennaboltanum. Ísland pakkaði Austurríki saman í umspili fyrir HM í handbolta og við ræðum um Liverpool-Man.Utd. sem er í kvöld. Þetta og margt fleira. Njótið. 

Mín skoðun
549.þáttur. Mín skoðun. 13042022

Mín skoðun

Play Episode Listen Later Apr 13, 2022 47:56

549.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag er nóg um að vera. Ég og Þórhallur Dan tölum um meistaradeildina, evrópudeildina, íslenska kvennalandsliðið í fótbolta sem vann tékka í gær. GEGGJAÐ. Úrslitakeppnin í körfubolta er til umfjöllunar, og Tóti Dan spáir kemur með sína spá í Bestu deild karla. Hún er athyglisverð. Þá heyri ég í Sigga Sveins en Ísland mætir Austurríki í dag í fyrri leik liðanna í umspili fyrir HM í handbolta. Koma svo, ÁFRAM ÍSLAND og gleðilega páska. 

Ég Elska Eurovision
S02E09 ~ Eurovision 2022

Ég Elska Eurovision

Play Episode Listen Later Mar 25, 2022 22:48

Klárum yfirferðina á lögunum í ár. Ræðum og hlustum á Kýpur, Belgíu, Grikkland, Bretland, Austurríki, Möltu, Ísland, Svíþjóð, Portúgal, Armenía og Azerbaijan

Víðsjá
Íslenskir gripir í Bretlandi, Spouge tónlist, sýning í Vín, Ég hleyp

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 28, 2022

Áhugi erlendra ferðamanna á Íslandi ágerðist mikið á 18. og 19. öld þegar leiðangrar komu til landsins, ekki síst frá Bretlandi, til þess að kanna sögu þess og náttúru. Dagbækur voru skrifaðar þar sem m.a. kemur fram að leiðangursmenn höfðu heim með sér gripi sem þeir keyptu af heimamönnum. Þó nokkuð magn íslenskra gripa var flutt úr landi á þessum tíma, sumir hafa ratað heim aftur en aðrir ekki. Guðrún Sveinbjarnardóttir fornleifafræðingur, mun fjalla um íslenska gripi í söfnum í Bretlandi á fyrirlestri í ÞJóðminjasafninu á morgun, en hún hefur í mörg ár unnið aðverkefni sem hefur það markmið að hafa uppá, og skrá muni af íslenskum uppruna sem hafa lent á söfnum í Bretlandseyjum. Við ræðum við Guðrúnu í þætti dagsins. Við segjum ykkur líka frá uppruna og afdrifum svokallaðrar Spouge tónlistar frá Barbados. Þar var stofnað lýðveldi í fyrra, en eyjan er fyrrum nýlenda Breta og þar búa eitthvað um 300 þúsund manns á 440 ferkílómetrum. Við segjum frá tónlistarmanninum Jacky Opel í þættinum. Við heyrum í ungum listamanni sem býr og sýnir um þessar mundir í Austurríki. Hallgrímur Árnason lærði upphaflega vöruhönnun en í útgöngubanninnu sem reið yfir Evrópu fór hann að fikra sig áfram í tvívíðri abstraktlist með góðum árangri og er þetta hans fyrsta myndlistarsýning. Og við heyrum hvað öðrum af tveimur leiklistarrýnum okkar hér í Víðsjá, Evu Halldóru Guðmundsdóttur, fannst um verkið Ég hleyp, sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu um liðna helgi. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir

Play Episode Listen Later Feb 28, 2022 55:00

2. desember 2021. Fjárlagafrumvarpið. Omíkron og jólaboð.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 2, 2021 10:04

Þrír hafa greinst með omíkron-afbrigði kórónuveirunnar hér á landi. Einn þeirra er á sjúkrahúsi, karlmaður á áttræðisaldri sem er fullbólusettur. Rennsli í Gígjukvísl er orðið tífalt meira en í venjulega árferði. Það kæmi vísindamönnum ekki á óvart ef gos yrði í Grímsvötnum á næstunni. Óljóst er hvað þeim gekk til sem fjarlægði sjö hraðaskilti við Sauðárkrók. Hámarkshraði við bæinn var nýlega lækkaður. Sebastian Kurz, fyrrverandi kanslari Austurríkis, tilkynnti óvænt í dag að hann væri hættur í stjórnmálum. Hann lét af embætti fyrir nokkrum vikum vegna ásakana um fjármálaspillingu. Lengri umfjallanir: Fyrsta umræða um fjárlagafrumvarpið stóð á Alþingi í allan dag. Fjármálaráðherra gerir ráð fyrir kröftugum hagvexti en stjórnarandstöðuþingmanni finnst að ríkisstjórnin segi pass í fjárlagafrumvarpinu. Hagfræðingur saknar útfærslna á hvernig eigi að ná niður hallanum á ríkissjóði. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Katrínu Ólafsdóttur, hagfræðing. Umræðan um Omíkron er í algleymingi í Bretlandi, hvað eigi að gera, í landi þar sem ríkisstjórnin hefur verið áberandi óviljug til að grípa til hamlandi veiruráðstafana. Enn frekar stórmál þegar jólin eru fyrir dyrum. Jólaboðin eru ákaft rædd, ekki aðeins jólaboðin í ár heldur líka jólaboð í Downing stræti í fyrra. Pólitíska spurningin er hvort Covid reglurnar þá hafi verið brotnar, sem væri stjórnarandstöðunni kærkomið dæmi um að forsætisráðherra telji sig yfir aðra hafinn. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.

Spegillinn
Spegillinn 8. september 2021

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 8, 2021 30:00

Spegillinn 8. Sept. 2021 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður mark Eldred Hættustigi vegna Covid-19 á Landspítala var aflétt í dag. Forstjóri spítalans segir að spítalinn geti vel brugðist við þó eitthvað verði um sýkingar í samfélaginu áfram. Skaftárhlaup er í rénun og virðist hafa náð hámarki. Þó gæti enn flætt yfir þjóðveginn í Eldhrauni. Sæðisfrumur hjá karlmönnum verða nær alveg horfnar eftir rúm tuttugu ár ef fram heldur sem horfir. Þetta er vegna skaðlegra efna sem leynast víða í neysluvörum. Sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun segir að hægt sé að snúa þróuninni við með því að velja umhverfisvottaðar vörur. Fjórar sýrlenskar fjölskyldur komu til landsins síðdegis í dag, fólkið er hluti af stærri hóp sýrlenskra kvótaflóttamanna sem áttu að koma til landsins í fyrra. Fólkið kom í gegnum Amsterdam frá Líbanon og lenti á Keflavíkurflugvelli síðdegis. Tveir nefndarmenn peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands, Gunnar Jakobsson og Gylfi Zoëga, vildu hækka stýrivexti um 0,5 prósent í stað 0,25 eins og gert var á síðasta fundi nefndarinnar. 15 félagasamtök, þar á meðal Amnesty International og Reporters Without Borders, lýsa vanþóknun sinni á réttarhöldum yfir Julian Hessenthaler sem hófust í Austurríki í dag. Upplýsingar frá honum leiddu til þess að austurríska ríkisstjórnin sprakk haustið 2019. Innflytjendamál eru jaðarmál í íslenskum stjórnmálum segir sérfræðingur í málaflokknum. Lítið beri á þeim fyrir kosningar Og Ísland mætir Þýskalandi í undankeppni HM karla í fótbolta á Laugadalsvelli í kvöld. Lengri umfjöllun: Nýtt námsefni, Landneminn, samfélagsfræðsla fyrir fullorðna flóttamenn og/eða innflytjendur hér á landi verður tekið í gagnið á næstunni. Vinnumálastofnun hefur haft umsjón með íslenskukennslu og ráðgjöf í atvinnumálum fyrir innflytjendur, en fyrir tveimur árum fékk stofnunin það verkefni frá félagsmálaráðuneytinu að hafa umsjón með að vinna heildstætt samfélagsfræðsluefni fyrir sama hóp. Gerð námsefnis var boðin út og hefur Mímir símenntun unnið efnið. Víðtækt samráð var haft við fjölmarga eins og Rauða krossinn , Velferðarsvið Reykjavíkurborgar, Fjölmenningarsetur, ASÍ og fleiri. Miðað er við að kennsla efnisins taki 60 kennslustundir og er stefnt að því að nemendur fái kennsluna á sínu móðurmáli. Kennsluefnið er nú þegar aðgengilegt á sjö tungumálum. Hafliði Skúlason ráðgjafi flóttamanna hjá Vinnumálastofnun hefur haldið um þræðina í þessari vinnu síðastliðin tvö ár. Kristján Sigurjónsson ræðir við hann. Hvenær er í lagi að svíkja kosningaloforð? Þessi spurning heyrist ákaf

Heimsglugginn
Sturgeon í kröppum dansi, Frederiksen leggur land undir fót

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Mar 4, 2021

Íhaldsflokkurinn í Skotlandi hefur lagt fram vantrauststillögu á Nicolu Sturgeon, fyrsta ráðherra Skotlands og leiðtoga Skoska þjóðarflokksins, SNP, vegna meintra ósanninda hennar um meðferð kærumála kvenna á Alex Salmond, fyrrverandi leiðtoga SNP. Sturgeon bar vitni fyrir þingnefnd í allan gærdag. Fréttaskýrendur telja hana hafa staðið af sér atlögu Íhaldsmanna sem þó segja spurningum ósvarað og ætla að halda vantrauststillögunni til streitu. Nicola Sturgeon og Alex Salmond voru nánir vinir og samstarfsmenn uns Salmond var ákærður fyrir kynferðislega áreitni árið 2018 en sú vinátta er fyrir bí og Salmond segir nú að Skoski þjóðarflokkurinn, undir forystu Sturgeon, standi að baki ofsóknum gegn sér. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu skosk stjórnmál við Boga Ágústsson í Heimsglugga vikunnar og einnig ferð Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, til Ísraels í dag, ásamt Sebastian Kurz, kanslara Austurríkis,. Þar leita þau samstarfs við Ísraelsmenn í bólusetningum. Hærra hlutfall Ísraelsmanna hefur verið bólusett en gengur og gerist í öðrum löndum vegna samnings sem ríkisstjórn landsins gerði við Pfizer um bólusetningar í landinu. Nú vill Frederiksen vita hvort Danir geti fengið bóluefni hjá Ísraelsmönnum gangi eitthvað af. Hún er gagnrýnd af fólki á vinstri kanti stjórnmálanna heima fyrir sem segir að Palestínumenn eigi að fá bóluefnið. Mai Villadsen, nýr leiðtogi Einingarlistans, segist hafa áhyggjur af samstarfi við ísraelsku stjórnina sem klárlega brjóti alþjóðarétt með því að bólusetja ekki íbúa hersetnu svæðanna.

Heimsglugginn
Sturgeon í kröppum dansi, Frederiksen leggur land undir fót

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Mar 4, 2021 19:24