Podcasts about kristinn gu

  • 10PODCASTS
  • 21EPISODES
  • 1h 15mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • May 3, 2023LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about kristinn gu

Latest podcast episodes about kristinn gu

Samfélagið
Gróðureldar, lúpína sem byggingarefni, málfar og hjálpsemi

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 3, 2023

Á þessum tíma árs er langmest hætta á gróðureldum á Íslandi, þetta gerist þegar snjóa hefur leyst en gróðurinn er ekki farinn af stað, það er því þurrt á og ef úrkoma er lítil er mikið eldsneyti í gróðrinum frá síðasta sumri. Vorið 2021 var mikið óvissustig á stórum hluta landsins, það urðu miklir gróðureldar í Heiðmörk en í fyrra var sem betur fer næg úrkoma. Já það er hægt að blessa rigninguna ef maður sinnir brunavörnum eins og Lárus Kristinn Guðmundsson varaslökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu sem var viðmælandi í Samfélaginu. Hönnunarmars er hafinn og viðburðir um allar trissur tengdir þeirri miklu hátíð. Meðal annars í Norræna húsinu þar sem aðstandendur verkefnisins Lúpína í nýju ljósi, trefjaefni framtíðar hafa komið sér fyrir. Þær hafa rannsakað hvernig nýta má Alaskalúpínu við framleiðslu á trefjaefnum - t.d. byggingarefnum og umbúðum. Rætt við Ingu Kristínu Guðlaugsdóttur og Elínu Sigríði Harðardóttur, eigendur Efnasmiðjunnar. Málfarsmínútan í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur Edda Olgudóttir kemur í vísindaspjall um rannsókn um hjálpsemi.

Samfélagið
Gróðureldar, lúpína sem byggingarefni, málfar og hjálpsemi

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 3, 2023 59:26

Á þessum tíma árs er langmest hætta á gróðureldum á Íslandi, þetta gerist þegar snjóa hefur leyst en gróðurinn er ekki farinn af stað, það er því þurrt á og ef úrkoma er lítil er mikið eldsneyti í gróðrinum frá síðasta sumri. Vorið 2021 var mikið óvissustig á stórum hluta landsins, það urðu miklir gróðureldar í Heiðmörk en í fyrra var sem betur fer næg úrkoma. Já það er hægt að blessa rigninguna ef maður sinnir brunavörnum eins og Lárus Kristinn Guðmundsson varaslökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu sem var viðmælandi í Samfélaginu. Hönnunarmars er hafinn og viðburðir um allar trissur tengdir þeirri miklu hátíð. Meðal annars í Norræna húsinu þar sem aðstandendur verkefnisins Lúpína í nýju ljósi, trefjaefni framtíðar hafa komið sér fyrir. Þær hafa rannsakað hvernig nýta má Alaskalúpínu við framleiðslu á trefjaefnum - t.d. byggingarefnum og umbúðum. Rætt við Ingu Kristínu Guðlaugsdóttur og Elínu Sigríði Harðardóttur, eigendur Efnasmiðjunnar. Málfarsmínútan í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur Edda Olgudóttir kemur í vísindaspjall um rannsókn um hjálpsemi.

Fotbolti.net
Enski boltinn - Ótrúlegur viðsnúningur og sjokkerandi á Etihad

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Oct 3, 2022

9. umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór að mestu fram á laugardag og sunnudag. Skagamaðurinn Albert Hafsteinsson og Keflvíkingurinn Kristinn Guðbrandsson fóru yfir það helsta með Sæbirni Steinke. Arsenal er áfram á toppnum og Manchester City fylgir í kjölfarið. Þeir Albert og Kiddi eru Arsenal menn og var vel farið yfir þeirra sigur á nágrönnunum. Er Arsenal eina liðið sem getur barist við City? Áfram vandræði hjá Liverpool, Chelsea harkaði út sigur, meira stál hjá Everton og Newcastle með öruggan sigur. Manchester City valtaði yfir granna sína í United sem löguðu stöðuna aðeins í lokin. Af hverju byrjaði Casemiro ekki? Hvað getur Haaland skorað mörg? Martial ákveðinn sigurvegari og ekki eitt orð um frábært mark Antony.

Morgunútvarpið
20. apríl-Ríkiskaup, gróðureldar, þjóðarhöll, Íslandsbanki, hljóðbækur

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Apr 20, 2022 130:00

Ríkiskaup hlaut á dögunum titilinn ?Hástökkvari ársins? í könnuninni um Stofnun ársins. Titilinn hástökkvari ársins fær sú stofnun sem hefur bætt starfsaðstæður starfsfólks mest milli ára og gerðu Ríkiskaup sér lítið fyrir og stukku upp um 98 sæti á listanum. Sara Lind Guðbergsdóttir sviðsstjóri stjórnunar og umbóta hjá Ríkiskaupum kíkti til okkar og sagði okkur hvernig í ósköpunum maður fer að þessu. Nú er að ganga í garð sá tími árs sem mest er hætta á gróðureldum, sinubruna og svo framvegis. Það þýðir því ekkert að henda einnota grillinu beint á grasið á sumardaginn fyrsta og vona það besta. Við ræddum helstu forvarnir og viðbrögð fólks ef það kviknar í við Lárus Kristinn Guðmundsson settan varaslökkviliðsstjóra hjá Brunarvörnum Árnessýslu: Það vakti nokkra athygli um páskana hve mjög Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari í handbolta var harðorður um þá staðreynd að Íslendinga vantar þjóðarhöll í almennilegu standi fyrir inniíþróttirnar sínar. Við ræddum drauminn um þjóðarhöllina við Hannes S. Jónsson formann Körfuknattleikssambands Íslands sem segir tímann á þrotum í þessu máli. Við veltum við fyrir okkar máli málanna, sölunni á Íslandsbanka og nýjustu vendingum þar, en formenn ríkisstjórnarflokkanna tilkynntu í gær að þau hygðust leggja niður Bankasýslu ríkisins, sem vakti hörð viðbrögð. Forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir var gestur í Kastljósi í gær að ræða þessi mál og svara fyrir það hvers vegna ekki sé fengin óháð rannsóknarnefnd með víðtækar rannsóknarheimildir til að rannsaka söluna hið snarasta. Við fáum til okkar Óla Björn Kárason formann þingflokks Sjálfstæðisflokksins og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur varaformann þingflokks Pírata til að ræða þessi mál. Kosningahlaðvarp RÚV fyrir sveitastjórnarkosningarnar 14. maí hóf göngu sína í síðustu viku. Í öðrum þætti hlaðvarpsins, sem kemur út í dag, verður farið yfir helstu ágreiningsmálin í hverjum landshluta og rætt við kjósendur um allt land. Við heyrum brot úr viðtali, en rætt var við Skafta Hallgrímsson, ritstjóra Akureyri.net, um það sem brennur á íbúum Norðurlands fyrir kosningarnar en á Akureyri var ákveðið að afnema minni- og meirihluta í bæjarstjórn fyrir tveimur árum og vinna í sameiningu að öllum verkefnum. Hljóðbækur njóta sívaxandi vinsælda og í dag verða hljóðbókaverðlaun Storytel afhent. Eva María Jónsdóttir stýrir verðlaunahátíðinni og við fengum hana til okkar í lauflétt spjall um þróun hljóðbóka og framtíðarmúsíkina í þeim efnum. Tónlist: Friðrik Dór - Bleikur og blár. Eagles - One of these nights. Vök - Erase you. Reykjavíkurdætur

Morgunútvarpið
20. apríl-Ríkiskaup, gróðureldar, þjóðarhöll, Íslandsbanki, hljóðbækur

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Apr 20, 2022

Handboltinn okkar
Selfyssingar í brekku - Lýst eftir KA mönnum - Rýnt í landsliðsvalið

Handboltinn okkar

Play Episode Listen Later Oct 26, 2021 79:43

Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt og tóku upp nýjan þátt. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Arnar Gunnarsson og Kristinn Guðmundsson. Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það helsta sem gerðist í 5.umferð Olísdeildar karla. Þeir félagar klóra sér í hausnum yfir því hvernig Stjarnan fór af því að vinna á Selfossi en að þeirra mati hefði Selfoss allan tímann átt að vinna þetta lið sem Stjarnan bauð uppá í þessum leik. Þá hafa þeir haft samband við björgunarsveitina fyrir norðan til þess að lýsa eftir KA liðinu en það hefur einfaldlega ekki sést í allan vetur. Að sama skapi voru þeir virkilega ánægðir með ungu guttanna hjá Val sem hafa beðið þolinmóðir eftir tækifærinu og eru heldur betur að nýta þau tækifæri núna. Að lokum fóru þeir yfir landsliðsvalið sem var tilkynnt í gær og þar spyrja þeir sig hvar leikmenn eins og Sigvaldi Guðjónsson og Arnór Gunnarsson væru.  Að venju voru Klakaleikmenn leikjanna valdir og eftirtaldir leikmenn eru gjaldgengir í þá kosningu sem fer í gang á samfélagsmiðlum þáttarins: Adam Thorsteinsson (Stjörnunni), Darri Aronson (Haukum), Lárus Helgi Ólafssson (Fram), Arnór Snær Óskarsson (Val) og Þorsteinn Leó Gunnarsson (Aftureldingu)

lange ka sn fram arn gunnarsson eftir helgi umsj selfoss selfossi landsli drengirnir kristinn gu
Handboltinn okkar
Allt það markverðasta sem gerðist í 3.umferð Olísdeildar karla

Handboltinn okkar

Play Episode Listen Later Oct 12, 2021 53:41

Það er skammt stórra högga á milli hjá drengjunum í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar en þeir settust í Klaka stúdíóið sitt og tóku upp nýjan þátt. en að umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur Guðrúnarsson, Arnar Gunnarsson og Kristinn Guðmundsson.   Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það sem gerðist í 3.umferðinni í Olísdeild karla ásamt því að velja þá leikmenn sem koma til greina sem Klaka leikmaður umferðarinnar. Eftirtaldir leikmenn eru gjaldgengir í þá kosningu sem fer í gang á samfélagsmiðlum þáttarins: Ásbjörn Friðriksson (FH), Tumi Steinn Rúnarsson (Val), Rúnar Kárason (ÍBV), Guðmundur Bragi Ástþórsson (Aftureldingu), Breki Dagsson (Fram) og Hafþór Vignisson (Stjörnunni)

Handboltinn okkar
Farið yfir bikarúrslitaleiki - Aðstöðu mál handboltans rædd

Handboltinn okkar

Play Episode Listen Later Oct 12, 2021 28:40

Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíóið sitt eftir dálitla fjarveru en að umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur Guðrúnarsson, Arnar Gunnarsson og Kristinn Guðmundsson.   Í þætti dagsins fóru þeir yfir úrslitaleikina í bikarnum og svo í lok þáttar ræddu þeir aðeins aðstöðu mál handboltans sem eru vægast sagt í skellfilegum málum.

str fari yfir bikar kristinn gu
Handboltinn okkar
Nýliðarnir sýndu klærnar - Arnar Daði vill fá virðingu - Klaka leikmaður umferðarinnar

Handboltinn okkar

Play Episode Listen Later Sep 19, 2021 62:36

Drengirnir í Hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar skelltu sér í Klaka stúdíóið sitt í dag og gáfu út nýjan þátt. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Kristinn Guðmundsson og Arnar Gunnarsson.  Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það markverðasta sem gerðist í 1.umferð Olísdeildar karla. Þeir lýstu ánægju sinni með nýliða deildarinnar, HK og Víking og hrósuðu þjálfurum liðanna fyrir að þora að prófa nýjunar og með smá herslumun hefðu bæði þessi lið getað náð í stig úr leikjum sínum. Þá fóru þeir aðeins yfir ummæli Arnars Daða þjálfara Gróttu eftir leikinn gegn Val þar sem að hann óskaði eftir meiri virðingu fyrir því sem hann væri að gera.  Þeir félagar voru sammála því að það væri þannig að virðing væri eitthvað sem væri áunnin og því væri ekki vænlegt til árangurs að vera uppnefna menn í viðtölum ef að þú vilt fá virðingu frá viðkomandi. Að lokum völdu þeir þá leikmenn sem koma til greina sem Klaka leikmaður umferðarninnar en það eru þeir Rúnar Kárason (ÍBV), Björgvin Páll Gústavsson (Val), Ólafur Ægir Ólafsson (Haukum), Guðmundur Bragi Ástþórsson (Aftureldingu) og Sigurjón Guðmundsson (HK).

Handboltinn okkar
Nýtt tímabil – farið yfir sviðið í karlaboltanum

Handboltinn okkar

Play Episode Listen Later Aug 7, 2021 76:24

Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar skelltu sér í studíoið sit og tóku upp sinn fyrsta þátt á nýju tímabili.  Að þessu sinni kynntu þeir félagar nýjan meðlim í hópinn en Kristinn Guðmundsson mun vera með þeim í vetur.  Í þessum fyrsta þætti fóru þeir yfir sviðið á karlaboltanum og fóru yfir helstu breytingar á liðnunum í Olísdeild karla.  Seinni hluti þáttarins fór svo í það að ræða Grill66 deild karla þar sem stærstu fréttirnar eru án efa þjálfararáðning Þórs.  En þeir félagar rættu það ítarlega hvort Þórsarar væru á réttri leið. Annað spennandi lið í deildinni er Hörður en Ísfirðingar ætla sér stóra hluti í vetur og hafa sótt sér spennandi leikmenn í sumar og þeir félagar ganga svo langt að spá að lið frá Ísafirði verði í Olísdeildinni tímabilið 2022-2023. Þá spáðu þeir félagar aðeins í úrslitaleikina á Ólympíuleiknum þar sem þeir spá því að báðar viðureignir eigi eftir að vera gríðarlega spennandi og ráðist á lokasekúndum leiksins.

Kokkaflakk í eyrun
#17 Kristinn Guðmundsson - Soð

Kokkaflakk í eyrun

Play Episode Listen Later Dec 28, 2020 83:35

Gestur minn í þessum þætti er myndlistarmaðurinn Kristinn Guðmundsson. Kristinn býr í Brussel en með nútímatækni tókst okkur að spjalla saman yfir hafið og maður lifandi hvað það var skemmtilegt spjall. Kristinn hefur í nokkur ár verið að gera þætti sem heita Soð sem slógu fyrst í gegn á Youtube sem rötuðu svo þaðan í Sjónvarp Símans og nú er hann kominn í hið virðulega Ríkissjónvarp, sem sumir virðulegir áhorfendur skilja misvel. Kristinn kemur til dyranna eins og hann er klæddur, bæði í þessu spjalli og sem og í sínum þáttum. Við spjöllum um internet-hatur, myndlist og lífið almennt. Frábærlega skemmtilegt! 

Handboltinn okkar
Handboltinn okkar - Kristinn Björgúlfsson þjálfari ÍR og Kristinn Guðmundsson þjálfari ÍBV í spjalli

Handboltinn okkar

Play Episode Listen Later Oct 20, 2020 74:08

Nafnarnir Kristinn Björgúlfsson þjálfari ÍR og Kristinn Guðmundsson þjálfari ÍBV voru hjá okkur í spjalli um standið á liðunum sínum sem og þeirra sýn á Olísdeildina til þessa.

bv okkar kristinn gu
Morgunútvarpið
Helgi Freyr Rúnarsson. Kiddi Soð. Eva Rún Michelsen.

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jul 14, 2020 130:00

Helgi Freyr Rúnarsson gekk berfættur yfir Fimmvörðuháls um helgina. Berfætti lífsstíllinn svokallaði fór að heilla Helga fyrir nokkrum árum og hann mætti í Morgunútvarpið og sagði okkur af hverju. Matreiðsluþættirnir Mömmusoð á RÚV í sumar hafa vakið allskonar viðbrögð. Hann Kiddi, Kristinn Guðmundsson, hefur eldað uppfærðar útgáfur af uppskriftum mömmu sinnar og sumir áhorfendur vilja ekki að hann fikti svona mikið í hárinu á sér. Morgunútvarpið heyrði í Kidda. Eva Rún Michelsen kom til okkar og sagði frá Eldstæðinu, sem er atvinnueldhús fyrir matarfrumkvöðla og smáframleiðendur sem byggir á deilihagkerfinu, en söfnun er í gangi á Karolinafund.

rv freyr evar helgi michelsen kidda kiddi kristinn gu
Morgunútvarpið
Helgi Freyr Rúnarsson. Kiddi Soð. Eva Rún Michelsen.

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jul 14, 2020

Helgi Freyr Rúnarsson gekk berfættur yfir Fimmvörðuháls um helgina. Berfætti lífsstíllinn svokallaði fór að heilla Helga fyrir nokkrum árum og hann mætti í Morgunútvarpið og sagði okkur af hverju. Matreiðsluþættirnir Mömmusoð á RÚV í sumar hafa vakið allskonar viðbrögð. Hann Kiddi, Kristinn Guðmundsson, hefur eldað uppfærðar útgáfur af uppskriftum mömmu sinnar og sumir áhorfendur vilja ekki að hann fikti svona mikið í hárinu á sér. Morgunútvarpið heyrði í Kidda. Eva Rún Michelsen kom til okkar og sagði frá Eldstæðinu, sem er atvinnueldhús fyrir matarfrumkvöðla og smáframleiðendur sem byggir á deilihagkerfinu, en söfnun er í gangi á Karolinafund.

rv freyr evar helgi michelsen kidda kiddi kristinn gu
Góðar sögur
Kristinn Guðmundsson

Góðar sögur

Play Episode Play 22 sec Highlight Listen Later Apr 4, 2020 69:16

Kristinn Guðmundsson mun væntanlega seint losna við miðnafnið Soð. Undanfarin ár hefur hann birst á tölvu- og sjónvarpsskjáum landsmanna sem kærulaus áhugakokkur sem heillar áhorfendur með frumlegum uppátækjum og matargleði. Keflvíkingurinn skemmtilegi er þó fyrst og fremst listamaður sem hefur fengist við dans, gjörninga, leikstjórn og ljósmyndun, svo fátt eitt sé nefnt.

undanfarin keflv kristinn gu
Mannlegi þátturinn
Orkustöðvarnar,Streita orsakir og afleiðingar,Matreiðsluþátturinn Soð

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 7, 2019 50:00

MANNLEGI ÞÁTTURINN FIMMTUDAG 07.nóv 2019 UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON Á mánudag fór fram ráðstefna á vegum Kennarasambands Íslands sem bar yfirskrftina Byrgjum brunninn - bjargráð og forvarnir. Þar var til dæmis fjallað um viðamiklar rannsóknir á orsökum og afleiðingum streitu. Með ráðstefnunni vildu Kennarasambandið leggja áherslu á þau bjargráð og forvarnir sem nýta má til að auka velferð þeirra sem starfa í skólum landsins og varpa ljósi á mikilvægi sálfélagslegs vinnuumhverfis. Það var löngu uppselt á ráðstefnuna og fjölmargir fylgdust með í gegnum streymi á netinu. Við fáum Sigrúnu Birnu Björnsdóttur, sérfræðing í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum hjá Kennarasambandinu til að segja okkur hvað þar kom fram. Tendraðu ljósið sem er jafnframt sjötta bók Hildar Þórðardóttur. Bókin fjallar um orkustöðvarnar, hvaða tilfinningar og viðhorf við geymum í hverri stöð og hvernig við getum unnið með það. Allt á jákvæðum og uppbyggjandi máta. Hildur hefur verið á ferðalagi síðustu 3 árin í fjórum heimshlutum, aðallega í sjálfboðavinnu. Í nýjum matreiðsluþáttum sem hófu göngu sína á RUV síðasta fimmtudag ferðast Kristinn Guðmundsson um heimaslóðir sínar á Reykjanesinu með vini sínum Janusi Braga og eldar fyrir hann mat undir berum himni. Soð er heiti þáttarins og hér er á ferðinni matreiðsluþáttur þar sem eldaðir eru þjóðlegir réttir af alúð og stundum klaufaskap en með fullri virðingu fyrir náttúrunni á svæðinu.

Mannlegi þátturinn
Orkustöðvarnar,Streita orsakir og afleiðingar,Matreiðsluþátturinn Soð

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 7, 2019

Spekingar Spjalla
#38 Kristinn SOÐ

Spekingar Spjalla

Play Episode Listen Later Jun 20, 2019 107:56

Kristinn Guðmundsson listamaður og kokkur gefur út matreiðsluþættina SOÐ. Dansari með mjúkar línur og snillingur í eldhúsinu... eða í stúdíó-inu. Soð hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frumlega og skemmtilega matargerð. Aðstoðarleikstjóri Á hvítum, hvítum degi og hann er gestur Spekinga þessa vikuna.

kristinn kristinn gu
Fílalag
Að leggja sér músík til munns (Fílalag + SOÐ)

Fílalag

Play Episode Listen Later Nov 23, 2018 81:36

Fílalag fékk Kristinn Guðmundsson hjá Soð með sér í lið fyrir sinn nýjasta þátt. Á meðan Snorri og Ebbi fíluðu lagið A Whiter Shade of Pale eldaði Kristinn mat sem byggðan er á laginu, en Soð er matreiðsluþáttur. Það er því einnig hægt að horfa á þennan þátt Fílalags, í styttri útgáfu, hjá Soð. A […]

pale whiter shade snorri munns kristinn kristinn gu lalag
Segðu mér

Gestur þáttarins er Kristinn Guðmundsson myndlistarmaður. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónsdóttir.

gestur umsj kristinn gu sigurlaug margr