Podcasts about indlandi

  • 32PODCASTS
  • 122EPISODES
  • 1hAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • May 12, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about indlandi

Latest podcast episodes about indlandi

Fotbolti.net
Tveggja Turna Tal - John Andrews

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later May 12, 2025

John Andrews hefur þjálfað í Mosfellsbæ, á Húsavík, í Indlandi, Bandaríkjunum og nú í hamingjunni í Víkinni. John er fæddur í Cork í Írlandi, er frábær trúbador, stórskemmtilegur náungi og er hluti af Víkingsliðinu sem afrekaði það sem ekkert annað lið hefur afrekað í íslenskum kvennafótbolta - að verða bikarmeistari sem Lengjudeildarlið. Við ræddum þetta, Roy Keane, Matt Le Tissier, Keiko og margt fleira í þessum hlaðvarpsþæti!

Stundin
Flækjusagan: Blóðið í jörðinni við Panipat - Seinni hluti

Stundin

Play Episode Listen Later Feb 16, 2025

Illugi Jökulsson fjallar um tvær orrustur á Indlandi en þessi þáttur er framhald síðasta þáttar.

Podcast með Sölva Tryggva
Ólafur Halldórsson með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Jan 9, 2025 49:33

https://solvitryggva.is/ Ólafur Halldórsson gjörbeytti lífi sínu eftir bakpokaferðalag um Afríku sem endaði með því að hann stofnaði munaðarleysingjaheimili í Kenýa. Hann hafði í áraraðir ferðast um allan heim í leit að bestu fíkniefnum veraldar, meðal annars í Marokkó,Indlandi og Pakistan. Á ótrúlegan hátt náði hann að komast til baka úr neyslunni og í dag er líf hans helgað starfinu í Afríku. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Kaja Organic - https://www.kajaorganic.com/  

Fram og til baka
Kjartan og Sólveig í Múltíkúltí

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Dec 28, 2024 114:00

Gestir Felix í jólaþætti Fram og til baka voru hjónin og hugsjónafólkið Sólveig Jónasdóttir og Kjartan Jónsson en þau reka málamiðstöðina, hjálparsamtökin og ferðaskrifstofuna Múltíkúltí. Talið barst víða og verkefni á Indlandi og í Afríku komu við sögu

Mannlegi þátturinn
Jafningjastuðningur á geðsviðinu og monsúnvindar og sumarkuldi í veðurspjallinu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 1, 2024 55:48

Alþjóðleg ráðstefna um geðhvörf stendur nú yfir í Hörpu og við fjölluðum í dag um nýja nálgun á geðsviði sem er aukið samstarf á milli geðheilbrigðisstarfsfólks og jafningja með eigin reynslu af geðsjúkdómum. Nína Eck, félagsráðgjafi hjá Geðhvarfateymi Landspítala og fyrrum notandi geðheilbrigðisþónustu, kom í þáttinn, en hún hefur tekið þátt í að innleiða jafningjastuðning í Geðþjónustu Landspítalans. Með henni kom Guðmunda Arnardóttir, kennari í Bataskóla í Kaupmannahöfn og einn höfunda bókarinnar Geðhvörf fyrir byrjendur. Þær sögðu okkur meira frá jafningjastuðningnum og til dæmis því sem kallað er bjargráð. Einar Sveinbjörnsson var svo hjá okkur í veðurspjallinu í dag. Í dag fjallaði hann um monsúnvinda, almennt séð en einkum þann þekktasta í Indlandi. Þeir hafa skilað miklum rigningum í sumar, til góðs fyrir uppskeru á þessu svæði þar sem um fjórðungur mannkyns býr, en líka til ills því mannskæð flóð hafa fylgt, nú síðast í Nepal. Svo talaði Einar aðeins meira um sumarhitann hér á landi, nú þegar Veðurstofusumrinu er formlega lokið. Það hefur ekki verið kaldara í Reykjavík frá árinu 1992. Svo í lokin fór Einar aðeins yfir langtímahorfurnar þar sem veðurfyrirbærið fyrirstöðuhæð kom við sögu. Tónlist í þættinum: Here Comes the Sun / The Beatles (George Harrison) Yo canto, canto por amor / Lissete Hernandez Piqueras (Egill Ólafsson og Lissete Hernandez Piqueras) Poor Boy / Nick Drake (Nick Drake) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Heimskviður
Sumar-Heimskviður / Kosningar á Indlandi og háleynilegur hálsmenafundur

Heimskviður

Play Episode Listen Later Aug 3, 2024 45:33

Indverjar náðu þeim merka áfanga fyrr á þessu ári að verða fjölmennasta þjóð heims. Og það er ekkert smá umstang þegar fjölmennasta ríki heims gengur til kosninga, eins og var raunin nú í vor. Enda tóku kosningarnar margar vikur. Fyrr í vetur fjallaði Guðrún Hálfdánardóttir um Indland í Heimskviðum, svolítið til að gefa innsýn inn í í hvaða umhverfi þessar umfangsmiklu kosningar fara fram. Mörg af efnuðustu löndum heims keppast við að koma á viðskiptum við Indland enda hvergi í heiminum jafn mikill hagvöxtur og þar. Land þar sem upplýsingaóreiða og um leið hatursorðræða í garð minnihlutahópa fær að blómstra og dafna í skugga þjóðernisflokks hindúa. Þá ætlum að huga að fortíðinni og fornminjum, nánar tiltekið hálsmeni úr skíragulli sem fannst í jörðu í Warvíkurskíri í Bretlandi fyrir um fjórum árum. Gullmenið er merkt Hinriki áttunda Englandskonungi og fyrstu eiginkonu hans, hinni spænskættuðu Katrínu af Aragorn. Þau voru gift í yfir tuttugu ár og skilnaður þeirra var afdrifaríkur fyrir breska menningarsögu. Sérfræðingar hjá Þjóðminjasafni Bretlands, British Museum, hafa legið yfir þessum dýrgrip síðan hann fannst og hafa nú rakið uppruna hans til hátíðahalda sem Hinrik áttundi hélt í febrúar annað hvort 1520, eða 1521. Það ríkti svo mikil leynd yfir rannsókninni að Rachel King, sérfræðingurinn sem stjórnaði henni mátti ekki einu sinni segja eiginmanni sínum af þessu. Það var Björn Malmquist sem fjallaði um þetta.

Rauða borðið
ESB, öryggisstefna, blaðamenn og Indland

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jun 7, 2024 163:52

Fimmtudagurinn 6. júní ESB, öryggisstefna, blaðamenn og Indland Jón Steindór Valdimarsson formaður Evrópuhreyfingarinnar ræðir kosningar sem hófust í dag til Evrópuþingsins. Guðmundur Gunnarsson ræðir flótta fólks úr blaðamennsku yfir í pólitík og aðra geira. Helen Ólafsdóttir öryggisráðgjafi ræðir um öryggisstefnu Íslands, sem lituð er hernaðarhyggju. Guðmundur Gunnarsson ræðir eftirmál talningarklúðursins og stöðu fjölmiðlunar og stjórnmála. Flótta fjölmiðlamanna yfir í önnur störf ber á góma og sitthvað fleira. Og Guðjón Bjarnason arkitekt ræðir kosningarnar í Indlandi og það stóra og fjölmenna land.

Heimsglugginn
„Fylgistap Modis er sigur lýðræðisins"

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jun 6, 2024 24:06

Jón Ormur Halldórsson stjórnmálafræðingur segir að óvænt fylgistap BJP, flokks Narendra Modis forsætisráðherra Indlands, sé í raun sigur lýðræðis. Hann ræddi við Boga Ágústsson um úrslit kosninga í Suður-Afríku og á Indlandi. Í Suður-Afríku tapaði Afríska þjóðarráðið, ANC, meirihluta á þingi í fyrsta sinn frá því að aðskilnaðarstjórn hvíta minnihlutans féll. Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi ræddu svo kosningabaráttuna í Bretlandi.

Mannlegi þátturinn
Anton leitaði upprunans á Indlandi og Haukur Morthens 100 ára

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 15, 2024 53:18

Við heyrðum sögu Antons Gunnars Ólafssonar í dag. Hann var ættleiddur sjö mánaða gamall, frá Indlandi, af hjónum frá Akureyri. Hann hefur hugsað um uppruna sinn frá barnsaldri, óhjákvæmilega áttaði hann sig á því að hann var ólíkur öðrum börnum í kringum sig. Hann fór þó ekki að hugsa af alvöru um það að leita að uppruna sínum fyrr en eftir að faðir hans lést árið 2016. Hann fékk í sínar hendur skjölin sem fylgdu honum í ættleiðingunni, og eftir að hafa leitað ráða, meðal annars hjá vinkonu sinni sem hafið staðið í sömu sporum, fór hann loks til Indlands í fyrsta sinn. Hann er nýkominn heim úr þeirri ferð og við fengum að heyra í þættinum hjá honum hvernig sú reynsla var. Svo kom Jónatan Garðarsson aftur til okkar, eins og hann hefur gert undanfarnar vikur, til að fræða okkur um okkar frábæra tónlistarfólk. Í dag sagði Jónatan okkur sögu Hauks Morthens, en á föstudaginn hefði Haukur orðið 100 ára. Hann var auðvitað einn farsælasti og vinsælasti dægurlagasöngvari Íslands. Við komum ekki að tómum kofanum hjá Jónatani í dag frekar en fyrri daginn. Tónlist í þættinum í dag: Ennþá man ég hvar / GÓSS (Mogens Dam og Kaj Andersen texti Bjarni Guðmundsson) Ó, borg mín borg / Haukur Morthens (Haukur Morthens, texti Vilhjálmur frá Skáholti) Við freistingum gæt þín / Haukur Morthens (Jóhann Helgason, texti Matthías Jochumson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Heimsglugginn
Milljarður Indverja gengur að kjörborðinu

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Apr 11, 2024 23:32

Jón Ormur Halldórsson, doktor í stjórnmálafræði, var gestur Heimsgluggans. Jón Ormur þekkir vel til á Indlandi. Hann er fyrrverandi háskólakennari og höfundur fjölda greina og bóka um alþjóðamál og að margra mati mati einn skarpasti greinandi alþjóðastjórnmála á Íslandi. Bogi Ágústsson ræddi við hann um þingkosningar sem hefjast á Indlandi í næstu viku og standa fram í maí. Jón Ormur segir það mikið verk að halda kosningar þar sem milljarður manna er á kjörskrá. Lítill vafi leikur á að Narendra Modi forsætisráðherra og flokkur hans BJP vinni sigur í kosningunum. Modi hefur á tíu ára valdatíð sinni þrengt mjög að dómstólum og fjölmiðlum, komið stuðningsmönnum sínum fyrir í lykilembættum og ofsótt pólitíska andstæðinga. Er svo komið að margir efast um að hægt sé að telja Indland lengur í hópi lýðræðisríkja. Þannig spyr franska tímaritið Le Monde Diplomatique á forsíðu aprílheftisins hvort Indland sé nú aðeins lýðræðisríki að nafninu til.

Rauða borðið
Rauða borðið 11. apríl - Pólitískur óstöðugleiki, Indland og forsetakosningar

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Apr 11, 2024 197:16

Við byrjum á stjórnmálaástandinu hér heima Atli Þór Fanndal framkvæmdastjóri Transparency International á Íslandi, Arnar Sigurðsson vínkaupmaður, Erna Bjarnadóttir varaþingkona Miðflokksins og Karen Kjartansdóttir upplýsingafulltrúi koma að Rauða borðinu og ræða stöðu stjórnar, flokka og stjórnmálanna almennt. Það verður kosið innan skamms á Indlandi, fjölmennasta ríki heims. Jón Ormur Halldórsson fer með okkur í ferðalag um stjórnmálin á Indlandi. Og við fáum forsetaframbjóðanda í heimsókn. Það er komið að Ásdísi Rán Gunnarsdóttur fyrirsætu, áhrifavaldi og frumkvöðli.

Tæknivarpið
Amazon Fresh gervigreindin var í raun 1000 verktakar á Indlandi

Tæknivarpið

Play Episode Listen Later Apr 10, 2024 70:11

Atli, Elmar og Gulli renna fyrir fréttir vikunnar í tækniheiminum: Amazon Just Walk Out þjónustan lögð niður  Facebook Messenger skilaboðaþjónusta dulkóðuð alla leið  Íslensk tónlist hent útaf TikTok

Spegillinn
Eldgos á Reykjanesskaga, þingkosningar á Indlandi, spurningar eftir sigurinn á Ísrael

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 22, 2024 20:00

Talað er um sírennsli í tengslum við nýjasta eldgosið á Reykjanesskaga, norður af Grindavík. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Benedikt Ófeigsson, jarðeðlisfræðing á Veðurstofu Íslands. Umfangsmestu þingkosningar sögunnar standa fyrir dyrum á Indlandi. Kosið verður í 44 daga í 7 áföngum. 2.200 flokkar bjóða fram. Ásgeir Tómasson sagði frá. Sigur Íslands á Ísrael í leik um laust sæti á Evrópumótinu í knattspyrnu í sumar hefur vakið upp ýmsar siðferðilegar spurningar. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman og ræddi við Emmu Björg Eyjólfsdóttur heimspeking.

Stundin
Eitt og annað: Danski utanríkisráðherrann í innkaupaferð

Stundin

Play Episode Listen Later Mar 3, 2024

Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra Danmerkur var nýlega á Indlandi og heimsótti stærsta sjúkrahús landsins. Hann kvaðst vonast til að indverskir hjúkrunarfræðingar vilji flytja til Danmerkur þar sem mikill skortur er á hjúkrunarfólki. Slíkar hugmyndir hafa vakið gagnrýni.

Heimsglugginn
Sektir fóru til að greiða bónusa

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jan 18, 2024 23:55

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson héldu áfram að ræða um málefni bresku póstþjónustunnar og stærsta réttarfarshneyksli í sögu landsins á síðari tímum þegar tæplega eitt þúsund útbússtjórar í pósthúsum voru sóttir til saka fyrir skjalafals og þjófnað og á áttunda hundrað voru sakfelldir. Næstum öll voru saklaus, sökudólgurinn var Horizon, gallað bókhaldskerfi sem Fujitsu bjó til fyrir breska póstinn. Nick Read, forstjóri Póstsins, sat fyrir svörum hjá viðskiptanefnd þingsins og gat fáu svarað nema að hann viðurkenndi að greiðslur sem útibússtjórar voru krafðir um hefðu mögulega verið notaðar til að greiða bónusa yfirmanna póstsins. Þá var rætt um frumvarp sem neðri málstofa breska þingsins samþykkti í gærkvöld um að vísa hælisleitendum sem koma með bátum til Bretlands til Rúanda. Lávarðadeild þingsins fær frumvarpið nú til afgreiðslu og viðbúið er að þar verði gerðar breytingar á því enda er málið er afar umdeilt og margir telja frumvarpið brjóta í bága við alþjóðalög og mannréttindasamninga. Þá var rætt um nýafstaðnar forsetakosningar á Taívan og þingkosningar sem verða í apríl á Indlandi.

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði
79 - Íslömsku "púðurveldin": Safavídar, Mógúlar og Ottómanar

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði

Play Episode Play 58 sec Highlight Listen Later Jan 12, 2024 88:31

Ólafur og Andri settust niður til að ræða þrjú íslömsk ríki á árnýjöld; Ottómanaríkið, Safavídaríkið í Persíu og Mógúlaríkið á Indlandi, sem stundum hafa verið flokkuð til hinna svokölluðu "púðurvelda", eða gunpowder empires. Hugtakið er eignað bandarísku heimssögusagnfræðingunum Marshall Hodgson og William McNiell, en þá var vísað til ýmissa þátta sem þessi þrjú ríki áttu sameiginlega, og til þess að þau risu fram sem öflug miðstýrð ríki á persneskum, tyrkískum og íslömskum grunni á öld byssupúðursins.  Hugtakið er þó komið til ára sinna og er ekki óumdeilt.Ottómanaríkið varð til í Anatólíu á 13. öld og varð eitt af stærstu heimsveldum sögunnar. Það réði austurhluta Miðjarðarhafsins þar til veldið leystist upp eftir fyrri heimsstyrjöld. Safavídar og Mógúlar komu komu fram á 16. öld og liðu ríki þeirra undir lok á 18. og 19. öld. Þessi þrjú ríki voru mikilar menningarmiðstöðvar, öflug hernaðarveldi og bjuggu að miklum ríkidæmum, og mætti ætla að þau gætu talist fyrirrennarar nútímaríkjana Tyrklands, Írans og Pakistans. 

pakistan ott anat andri indlandi tyrklands marshall hodgson
Skagahraðlestin
Teitur Þórðarson – Þjálfarinn

Skagahraðlestin

Play Episode Listen Later Dec 27, 2023 83:00

Jólaþáttur Skagahraðlestarinnar 2023 er viðtal við Teit Þórðarson í tveimur hlutum. Í síðari hlutanum er fjallað um þjálfarann Teit Þórðarson. Þjálfaraferill Teits spannar rúm 30 ár þar sem hann þjálfaði í Svíþjóð, Noregi, Eistlandi, Íslandi, Kanada og næstum því í Indlandi. Ferillinn litaðist mjög af uppbyggingu liða þar sem Teitur valdi ekki alltaf einföldustu leiðina. The post Teitur Þórðarson – Þjálfarinn first appeared on .

Heimskviður
164| Undirheimastríð í Svíþjóð og það besta og versta á Indlandi.

Heimskviður

Play Episode Listen Later Nov 25, 2023

Svíar vonast til að glæpahrina haustsins sé á enda. Dregið hefur úr skot- og sprengjuárásum nærri sænsku höfuðborginni frá því mest var í september og október. Aðferðir glæpagengjanna sænsku og árásir eru óvenju hrottalegar. Börn og ungmenni eru fengin til að fremja voðaverkin og æðstu kónarnir hundelta hver annan um alla Evrópu eins og í mafíumyndum eða glæpasögum frá Hollywood. Sænsk yfirvöld eiga erfitt með að bregðast við og stjórnmálamenn að koma sér saman um leiðir. En hvers vegna er svona komið fyrir fyrirmyndarríkinu Svíþjóð? Hvernig gengur yfirvöldum að bregðast við og hvers vegna gerist þetta núna? Sváfu yfirvöld og Svíar á verðinum eða eru evrópsk glæpa- og eiturlyfjagengi að styrkjast og orðin ófeimnari við að heyja undirheimastríð sín fyrir augum almennings. Indverjar náðu þeim merka áfanga fyrr á þessu ári að verða fjölmennasta þjóð heims og mörg af efnuðustu löndum heims keppast við að koma á viðskiptum við Indland enda hvergi í heiminum jafn mikill hagvöxtur og þar. Það er ekki hægt að fullyrða eitt eða neitt varðandi Indland því þar er hægt að finna allt það besta og um leið það versta í einu og sama ríkinu. Land þar sem upplýsingaóreiða og um leið hatursorðræða í garð minnihlutahópa fær að blómstra og dafna í skugga þjóðernisflokks hindúa. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Heimskviður
164| Undirheimastríð í Svíþjóð og það besta og versta á Indlandi.

Heimskviður

Play Episode Listen Later Nov 25, 2023 43:04

Betri helmingurinn með Ása
#123 - Þorbjörg Þorvalds og Silja Ýr

Betri helmingurinn með Ása

Play Episode Listen Later Oct 26, 2023 85:30

Þorbjörg Þorvaldsdóttir fyrrum formaður samtakanna 78 mætti til mín í virkilega skemmtilegt og áhugavert spjall ásamt sínum betri helmingi lífeindafræðingum Silju Ýr Leifsdóttur.Þorbjörg var eins og áður sagði formaður samtakanna 78 en hefur í dag tekið að sér verkefnastjórnun innan félagsins. Hún er málfræðingur að mennt en dugleg að finna sér eitthvað auka að gera og er núna komin aðeins inn í stjórnmálin.Silja er lífeindafræðingur hjá Sameind og er verkefnastjóri yfir klínískri lífeindafræði .Það má segja að Þorbjörg og Silja hafi verið undan sinni samtíð en þær kynntust á netinu árið 2008 en lugu að öllum að þær hefði kynnst á Q-bar. Í fyrstu var Silja ekki alveg viss um að hitta einhverja stelpu á netinu en Þorbjörg var ákveðinn og sendi á hana eitt kvöld að hún væri að keyra í hverfinu hennar og bauð henni í ís, sem var að sjálfsögðu lygi og þurfti hún að keyra virkilega hratt til þess að vera trúverðug þegar Silja samþykkti rúntinn. Þær hafa verið saman allar götur síðan og eiga í dag saman tvær stelpur.Í þættinum ræddum við meðal annars um samtökinn og hvernig það er að vinna innan þeirra, baráttumálin og bakslagið sem hefur átt sér stað undanfarin ár, rómantíkina, fjölskyldulífið, ferðalög og margt fleira, ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, meðal annars þegar þær þurftu óvænt að sofa undir berum himni í eyðimörk á Indlandi.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Leiklistar Akademían - https://www.sportabler.com/shop/tonlistarfelagarbaejarSmitten  - https://smittendating.com/

silja indlandi leifsd silju
Spegillinn
Hælisleitendur á hótel Glym, óttast gjaldþrot Reykjavíkur, G20 fundur

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 8, 2023

Spegillinn 8. September 2023 Umsjón: Ásgeir T Ómasson Tæknimður: Mark Eldred Stórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Áformað er að hýsa sextíu til sjötíu umsækjendur um alþjóðlega vernd á Hótel Glymi í Hvalfjarðarsveit í haust. Pétur Magnússon sagði frá og talaði við Gísla Davíð Karlsson. Aðeins þrjú af tíu stærstu sveitarfélögum landsins svöruðu spurningalista sem mennta- og barnamálaráðuneytið sendi til að afla upplýsinga um raka- og mygluskemmdir í grunn- og leikskólum. Eftirfylgni og ítrekanir ráðuneytisins dugðu ekki til. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Fulltrúi Flokks fólksins í borgarráði óttast gjaldþrot Reykjavíkurborgar bregðist meirihlutinn ekki við versnandi fjárhag. Árshlutareikningur borgarinnar var 13 milljörðum lakari en áætlarnir gerðu ráð fyrir. Sjálfstæðisflokkurinn segir rekstur borgarinnar fara stigversnandi. Urður Örlygsdóttir sagði frá og talaði við Kalbrúnu Baldursdóttur. Litlar lirfur sem nærast á birkiþélu hafa fundist á tveimur stöðum. Allt lítur út fyrir að náttúrulegur óvinur þessa skæða sníkjudýrs sé búinn að nema hér land. Valgerður Gréta Gröndal tók saman. Talað var við Brynju Hrafnkelsdóttur skógfræðing í Samfélaginu í nærmynd. Ár er liðið frá því að Elísabet Bretlandsdrottning lést og Karl konungur tók við. Ragnheiður Elín Clausen, annar stofnenda Hins íslenska Royalistafélags, segir Karl hafa staðið sig vel í nýju hlutverki, þvert á það sem gagnrýnendur hans spáðu fyrir um. Erla María Davíðsdóttir talaði við hana. Lítill árangur er talinn nást á ársfundi G20 ríkjanna á Indlandi. Ásgeir Tómasson tók saman. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ætlar í vetur að leggja fram frumvarp um greiðslu sanngirnisbóta til fólks sem dvaldi á vistheimilum á vegum ríkisins. Haukur Holm ræddi við hana. Norðmenn kjósa sér nýjar sveitarstjórnir á mánudaginn. Útlit er fyrir að gömul vígi vinstrimanna falli hægrisinnuðum andstæðingum þeirra í skaut. Gísli Kristjánsson sagði frá. Ragnhildur Thorlacíus ræddi við Elínu Björk Jónasdóttur veðurfræðing um hamfaraveður víða um heim af völdum annars vegar loftslagsbreytinga og hins vegar El Nino veðurkerfisins.

Spegillinn
Hælisleitendur á hótel Glym, óttast gjaldþrot Reykjavíkur, G20 fundur

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 8, 2023 10:04

Vopnakaup ríkislögreglustjóra, reiðufé, lestarslys á Indlandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 2, 2023

Spegillinn 2. Júní 2013 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Ríkislögreglustjóri keypti skotvopn og skotfæri fyrir 185 milljónir króna vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins. Annar búnaður kostaði 150 milljónir til viðbótar. Benedikt Sigurðsson ræddi við Runólf Þórhallsson aðstoðaryfirlögregluþjón. Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, segir jákvætt að færri noti reiðufé í viðskiptum sínum þó hann vilji ekki að notkun þess leggist alfarið af. Hins vegar eigi það eftir að gerast einn daginn og annað taka við. Sunna Karen Sigurþórsdóttir ræddi við hann. Óttast er að tugir hafi látist í lestarslysi á Indlandi í dag. Minnst tvö hundruð slösuðust. Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir karlmanni vegna rannsóknar á andláti konu á Selfossi í apríl. Starfshópur á vegum félagsmálaráðherra vill að skoðað verði hvort tilefni sé til þess að láta eltihrella og þá sem ítrekað hafa rofið nálgunarbann til að sæta rafrænu eftirliti. Starfshópurinn telur þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis ómarkvissa. Valur Grettisson sagði frá. Atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir félaga Rafiðnaðarsambandsins sem starfa hjá Landsneti hefst í næstu viku. Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir verður í eldlínunni með þýska liðinu Wolfsburg sem mætir Barcelona í úrslitaleik meistaradeildarinnar í fótbolta á morgun. Sveindís segir að pressan sé öll á Barcelona og að hún ætli að njóta þess að spila á stærsta sviðinu. Björn Malmquist talaði við hana. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra vonast til þess að afkoma ríkissjóðs á þessu ári verði betri en fram kom í fyrri efnahagsspám. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði við hann. Atlantshafsbandlagið eykur þrýsting á Tyrki að hleypa Svíum í Evrópusambandið. Ásgeir Tómasson sagði frá. Þverfaglegur starfshópur starfar á vegum Umhverfisstofnunar með það að leiðarljósi að veita faglega ráðgjöf um áhrif umhverfis á heilsu fólks. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Ragnhildi Guðrúnu Finnbjörnsdóttur, verkefnisstjóra hópsins.

Spegillinn
Vopnakaup ríkislögreglustjóra, reiðufé, lestarslys á Indlandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 2, 2023 9:32

#190 Ólafur Halldórsson með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later May 29, 2023 20:01

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Ólafur Halldórsson gjörbeytti lífi sínu eftir bakpokaferðalag um Afríku sem endaði með því að hann stofnaði munaðarleysingjaheimili í Kenýa. Hann hafði í áraraðir ferðast um allan heim í leit að bestu fíkniefnum veraldar, meðal annars í Marokkó,Indlandi og Pakistan. Á ótrúlegan hátt náði hann að komast til baka úr neyslunni og í dag er líf hans helgað starfinu í Afríku. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Mannlegi þátturinn
Sjúkt spjall, hláturjóga og Fílalag í sjónvarpinu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 4, 2023

Fyrir rétt rúmu ári opnaði Stígamót nýja þjónustu sem heitir Sjúkt spjall en það er nafnlaust netspjall fyrir ungmenni 13-20 ára um sambönd, samskipti og ofbeldi. Algengast er að börn og unglingar velti fyrir sér hvort þau hafi orðið fyrir o?eldi, jafnvel nauðgun. Í spjallinu eru unglingar fræddir t.d. um samþykki og mörk í samskiptum. Birta Ósk Hönnudóttir, verkefnastýri Sjúks spjalls, kom til okkar í dag sagði okkur frá þjónustunni. Alþjóðlegi hláturdagurinn er á sunnudaginn, 7.maí, og hér á landi hefur Ásta Valdimarsdóttir verið leiðandi afl í hláturjóga og ber einnig titilinn hláturambassor. Hláturjóga er stundað víða um heim en líklega mest á Indlandi og þar býr upphafsmaður þess Dr. Madan Kataria. Rannsóknir hafa sýnt að einlægur hlátur bætir andlega og líkamlega heilsu og best er að stunda hláturjóga í hópi. Við heyrðum í Ástu í þættinum í dag. Svo komu þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi Benediktsson til okkar í dag. Þeir eru með sjónvarpsþáttinn Fílalag, en þeir höfðu gert á fjórða hundrað hlaðvarpsþætti af Fílalag áður en þeir hófu að gera þættina fyrir sjónvarp. Í hverjum þætti taka þeir fyrir eitt lag og fíla það. Með öllu sem því fylgir. Skoða tímabilið sem lagið er frá, tískuna, stemninguna og reyna að miðla sinni ástríðu og fílun til áhorfenda. Tónlist í þættinum í dag: My friend and I / Trúbrot (Magnús Kjartansson og Jóhann Hjálmarsson Girl from before / Blood Harmony (Örn Eldjárn) Það brennur / Egill Ólafsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir (Egill Ólafsson) Þrek og tár / Erla Þorsteinsdóttir og Haukur Morthens (Otto Lindblad og Guðmundur Guðmundsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Sjúkt spjall, hláturjóga og Fílalag í sjónvarpinu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 4, 2023 50:00

Efnahagsspá og norrænt varnarsamstarf

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Apr 13, 2023 23:57

Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu heimsókn Bandaríkjaforseta til Írlands í Heimsglugganum. Joe Biden rekur ættir til eyjarinnar grænu eins og 40 milljónir annarra Bandaríkjamanna og honum verður tíðrætt um írskan uppruna sinn. Biden hélt ræðu í Belfast þar sem hann hvatti Norður-Íra til að halda friðinn en tilefni heimsóknar hans er að 25 ár eru frá því að gert var friðarsamkomulag sem kennt er við föstudaginn langa. Þá ræddu Björn og Bogi útlit í efnahagsmálum heimsins. Ársfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins stendur í Washington og samkvæm spá sjóðsins verður hagvöxtur innan við þrjú prósent í ár og mestur á Indlandi og í Kína. Stöðnun er víða á Vesturlöndum og jafnvel samdráttur í Svíþjóð, Þýskalandi og Bretlandi. Sjóðurinn spáir 2,3% hagvexti á Íslandi. Dag Henriksen, prófessor við háskóla norska hersins og ofursti í flughernum, hefur lagt fram hugmyndir um náið samstarf flugherja Norðurlanda, sameiginlega ráði þjóðirnar fjórar yfir 250 fullkomnum orrustuþotum. Henriksen bendir á að með sameiginlegri upplýsinga- og stjórnstöð sé hægt að nýta varnarmáttinn betur, ógni Rússar til dæmis Finnum sé í raun hægt að þrefalda styrk loftvarna Finnlands með slíkri samvinnu. Hann nefnir einnig að Norðmenn hafi núna tvo aðalherflugvelli en ef mögulegt sé að nota herflugvelli í hinum ríkjunum geri það árásir á norska flugherinn miklu erfiðari. Loftvarnir þar sem herforingjar ráði yfir 250 fullkomnum orrustuþotum séu mun öflugri en þegar þeir hafi aðeins nokkrum tugum véla yfir að ráða.

Heimsglugginn
Efnahagsspá og norrænt varnarsamstarf

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Apr 13, 2023

138| Kosningar í Nígeríu og umsvif Rússa í Afríku

Heimskviður

Play Episode Listen Later Mar 4, 2023

Nígeríumenn fá líklega ekki þær breytingar og endurnýjun sem svo margir höfðu kallað eftir. Bola Tinubu var sigurvegari kosninganna þar í vikunni, en hann er úr sama flokki og Buhari fráfarandi forseti. Tinubu hefur verið lengi í stjórnmálum og slagorð hans í kosningabaráttunni var - nú er komið að mér. Átti að vera tákn mikilla breytinga en það er mjög ólíklegt að af þeim verði. Nígería er eitt fjölmennasta ríki heims og hefur átt í miklum efnahagserfiðleikum, þó það stefni að því að verða stærsta hagkerfi Afríku. Þar, eins og víða í Afríku, er búist við mikilli mannfjölgun á næstu áratugum. Því er spáð að árið 2070 taki Nígería fram úr Kína í fjölda barnsfæðinga. Árið 2100 verður Nígería sömuleiðis þriðja fjölmennasta land heimsins, á eftir Indlandi, sem verður í fyrsta sæti, og svo Kína. Svo fjöllum við um umsvif Rússa í Afríku. Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur á síðustu árum gert hernaðarlegt samkomulag við um tuttugu Afríkuríki og samkomulag við enn fleiri um hvers kyns auðlindavinnslu, svo sem gull- og úrangröft. En sækist Pútín eftir fleiru? Við ræddum við Steven Gruzd en hann er álitsgjafi suðurafríska ríkissjónvarpsins í alþjóðamálum. Hann segir að þær upphæðir sem Rússar fjárfesta fyrir í álfunni séu ekkert svimandi háar í samanburði við önnur lönd, en Rússar fari sínar eigin leiðir til að seilast til áhrifa. Umsjón með Heimskviðum hafa Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Heimskviður
138| Kosningar í Nígeríu og umsvif Rússa í Afríku

Heimskviður

Play Episode Listen Later Mar 4, 2023 40:00

Arne Treholt látinn og afsögn Nicolu Sturgeon

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Feb 16, 2023

Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu um Arne Treholt sem var dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir njósnir 1985 en hann lést á sunnudaginn. Treholt var á laun í sambandi við sovésku leyniþjónustuna KGB og lét fulltrúa hennar upplýsingar í té og þáði fé fyrir. Hann neitaði þó alltaf að hann hefði upplýst um ríkisleyndarmál og ógnað öryggi Noregs. Þá ræddu þeir fjölmiðlafrelsi á Indlandi en forsætisráðherra landsins, Narendra Modi, hefur ekki mikið umburðarlyndi gagnvart fjölmiðlum sem gagnrýna hann. Skattalögreglunni var sigað á breska ríkisútvarpið BBC vegna heimildarmyndar sem indverska forsætisráðherranum er ekki að skapi. Modi hefur á undanförnum árum þrengt mjög að fjölmiðlum og Indland hefur fallið niður í 150. sæti á lista samtaka blaðamanna án landamæra yfir fjölmiðlafrelsi. Þá ræddu Björn Þór og Bogi um Nicolu Sturgeon, sem tilkynnti óvænt í gær að hún ætlaði að hætta sem fyrsti ráðherra Skotlands og leiðtogi Skoska þjóðarflokksins, SNP. Allir eru sammála um að sjónarsviptir verði að henni og að andstæðingar hennar fagni brotthvarfi hennar því hún hefur verið öflugur leiðtogi, mælsk, rökföst og með mestu skörungum í stjórnmálabaráttunni á Bretlandi.

Play Episode Listen Later Feb 16, 2023 23:10

Morgunvaktin
Heimsglugginn, Nýja-Sjáland, verkföllin og skordýraræktun

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 16, 2023 130:00

Við byrjuðum þáttinn á að slá á þráðinn til Nýja-Sjálands og fjalla um stöðuna eftir eyðilegginguna af völdum hitabeltisstormsins Gabríellu, sem gekk yfir landið í byrjun þessarar viku. Teiknarinn og rithöfundurinn Rán Flygenring býr um þessar mundir í borginni Aukland og við heyrðum í henni um stöðu mála í landinu. Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Fjallað var um óvænta afsögn Nicolu Sturgeon og Arne Treholt sem lést á dögunum, norðmaðurinn sem dæmdur var fyrir njósnir fyrir Sovétmenn og Íraka. Einnig var sagt frá litlu umburðarlyndi stjórnvalda á Indlandi í garð fjölmiðla. Við tókum einnig stöðuna í kjaradeilu Samtaka atvinnulífsins og Eflingar. Gylfi Dalmann Aðalsteinsson vinnumarkaðsfræðingur og dósent við Háskóla Íslands ræddi verkfallið núna og fyrri verkföll, vinnulöggjöfina og fleira. Að lokum fjölluðum við um framtíðarfæðu okkar mannfólksins. Það segja nefnilega margir að skordýr verði æ stærri hluti af fæðu okkar, enda stútfull af næringarefnum. Og tilraunir eru hafnar með að rækta skordýr hér á landi og er það gert við Landbúnaðarháskóla Íslands. Við ræddum við Ragnheiði Ingu Þórarinsdóttur, rektor Landbúnaðarháskólans um skordýrarækt. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Gígja Hólmgeirsdóttir Tónlist: Baby, I love you - Aretha Franklin Nature - Fourmyula De smukke unge mennesker - Kim Larsen

Samhjálp, efnahagsmál heimsins og þjóðfélagsfræði í samfélaginu

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 6, 2023

Samtökin Samhjálp fögnuðu 50 ára afmæli á dögunum. Þau sinna mörgum af þeim verst stöddu í samfélaginu, á kaffistofu Samhjálpar getur fólk fengið að borða og skjól yfir daginn og samtökin reka líka meðferðarheimili og áfangaheimili. Edda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar kom til okkar. Ásgeir Brynjar Torfason sérfræðingur í fjármálum var líka með okkur og dró upp mynd af efnahagsástandi heimsins, verðbólgu og vaxtahækkunum. Við fjölluðum líka um stöðu mála á Indlandi. Og í lok þáttarins ræddum við um félagsvísindi með Þorbirni Broddasyni prófessor emeritus í félagsfræði. Þorbjörn var fyrsti kennarinn í félagsfræði við Háskóla Íslands og frumkvöðull í ýmsu. Tónlist: Rhinestone cowboy - Glen Campbell Liza - Benny Goodman Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir

Morgunvaktin
Samhjálp, efnahagsmál heimsins og þjóðfélagsfræði í samfélaginu

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 6, 2023 130:00

Samtökin Samhjálp fögnuðu 50 ára afmæli á dögunum. Þau sinna mörgum af þeim verst stöddu í samfélaginu, á kaffistofu Samhjálpar getur fólk fengið að borða og skjól yfir daginn og samtökin reka líka meðferðarheimili og áfangaheimili. Edda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar kom til okkar. Ásgeir Brynjar Torfason sérfræðingur í fjármálum var líka með okkur og dró upp mynd af efnahagsástandi heimsins, verðbólgu og vaxtahækkunum. Við fjölluðum líka um stöðu mála á Indlandi. Og í lok þáttarins ræddum við um félagsvísindi með Þorbirni Broddasyni prófessor emeritus í félagsfræði. Þorbjörn var fyrsti kennarinn í félagsfræði við Háskóla Íslands og frumkvöðull í ýmsu. Tónlist: Rhinestone cowboy - Glen Campbell Liza - Benny Goodman Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir

Morgunútvarpið
11. ág - Eldsmíði, jarðorka, háskólaskjúkrahús, rampar og mótmæli

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 11, 2022

Umsjón: Ingvar Þór Björnsson og Rúnar Róbertsson Norðurlandameistaramót í eldsmíði hefst á Akranesi í dag en helstu markmið mótsins er að viðhalda áhuga og þekkingu á hinu forna handverki á Norðurlöndunum. Kappkostað sé að viðhalda gæðum við kennslu og vinnslu og styrkja samstarf eldsmiða. Allir keppendur munu fá sama verkefnið, sem er að smíða Akkeri. Keppendur og dómarar koma frá Íslandi, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Danmörku í öllum keppnisgreinum. Anna Leif Auðar Elídóttir er upplýsingafulltrúi mótsins og hún kom til okkar og ríkjandi meistarinn Beate Stormo í Kristnesi í Eyjafirði var á línunni. Íslenskar orkurannsóknir, ÍSOR, hafa gengið frá samningi við eitt stærsta olíufyrirtæki Indlands vegna undirbúnings jarðvarmavirkjunar í Kasmírhéraði. Við ræddum við Daða Þorbjörnsson, sem fer fyrir verkefninu, en þetta yrði fyrsta jarðvarmaorkuverið á Indlandi. Við ætlum að halda áfram að ræða fjármögnun íslenska heilbrigðiskerfisins - í þetta skiptið við Ásgeir Haraldsson, pró­fessor í barna­lækn­ingum og ­yf­ir­lækni og forstöðumann fræða­sviðs á Barna­spít­ala Hrings­ins. Hann segir spítalann tæpast rísa undir nafni sem háskólasjúkrahús sem fyrr en síðar komi niður á árangri. Verkefnið Römpum upp Reykjavík og nú Ísland er hugarfóstur Haraldar Þorleifssonar en hann er stjórnandi hjá Twitter. Ramparnir hafa rokið upp í höfuðborginni sem hluti af verkefninu Römpum upp Reykjavík og voru settir upp eitt hundrað stykki en í vikunni var sá hundraðasti utan borgarinnar vígður á Eyra­bakka. Stefnt er að því setja upp 1000 rampa um allt land á næstu fjór­um árum. Með römp­un­um?er?stefnt að því að gera öll­um kleift að sækja veit­ingastaði og versl­an­ir á land­inu öllu.?Har­ald­ur Þor­leifs­son kom til okkar í spjall. Bæjarhátíðin Blómstrandi dagar í Hveragerði fara fram nú um helgina og byrjar reyndar í dag en um er að ræða fjölskyldu, menningar og heilsuhátíð. Veitt er til að mynda verðlaun fyrir fegurstu garðar Hveragerðisbæjar eins og vera ber. Jóhanna Margrét Hjartardóttir, menningar og frístundafulltrúi Hveragerðis var á línunni hjá okkur. Í lok þáttar vorum við í beinni frá mótmælum í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem foreldrar sem eru ekki með dagvistun fyrir börnin sín gera kröfu á borgarráð, sem fundar klukkan níu venju samkvæmt, að grípa til aðgerða. Ekki er útlit fyrir að öll tólf mánaða gömul börn í Reykjavík fái leikskólapláss í haust, eins og stefnt var að. Rætt var við Kristínu Tómasdóttur, sem skipulagði mótmælin og Einar Þorsteinsson forseta borgarstjórnar ásamt nokkrum foreldrum.

Play Episode Listen Later Aug 11, 2022 130:00

2. maí - eldvarnir, hitabylgja, Moldavía, verkalýðsmál, framboðslög

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later May 2, 2022 130:00

Bændablaðið fjallaði á dögunum um eldvarnir og dreifbýli. Þar kom fram að mörg heimili í dreifbýli séu þannig í sveit sett að langt er í næstu slökkvistöð og útkallstími slökkviliðs því langur. Það geri að verkum að heimilisfólk sé í senn sitt eigið slökkvilið og eldvarnaeftirlit. Þá sýnir könnun sem Gallup gerði fyrir Eldvarnabandalagið að úrbóta er víða þörf. Við ræddum þessi mál við Pétur Pétursson, slökkviliðsstjórann í Árnessýslu. Ekki sér fyrir endann á skæðri hitabylgju sem geisað hefur á nánast öllu Indlandi og í Pakistan síðustu daga. Hiti hefur farið yfir 45 gráður víða dag eftir dag að undanförnu og nýliðinn aprílmánuður er sá heitasti sem mælst hefur. Við ræddum við Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðing, um þetta ástand - en hann segir hitann ógna heilsu og lífi hundruða milljóna jarðarbúa þessa dagana og að við hér á norðurslóðum gerum okkur ekki grein fyrir því hve mikið álag á liðan og heilsu manna verður í svona svakalegum hita. Nicu Popescu, utanríkisráðherra Moldóvu, sagði í gær framtíð Evrópu velta á því hvernig stríðið í Úkraínu fer. Stjórnvöld í Moldóvu fylgjast grannt með framvindu mála í nágrannaríkinu Úkraínu, sérstaklega eftir að rússneskur herforingi lét hafa það eftir sér að Rússlandsher stefni að því að ná fullum yfirráðum yfir suðurhéruðum Úkraínu. Við töluðum við Val Gunnarsson, sagnfræðing, um nýjustu vendingar í stríðinu í Úkraínu og um þetta landamærahérað. Baráttudagur verkalýðsins, 1. maí, var í gær en staðan innan verkalýðshreyfingarinnar hefur verið ansi strembin undanfarnar vikur. Staða launþega er ekki minna strembnari, verðbólga mælist nú yfir 7% og útlit er fyrir að með hækkuðu verði á hrávöru vegna stríðsins í Úkraínu verði erfitt að taka í tauminn á henni. Drífa Snædal, forseti ASÍ, var gestur okkar upp úr klukkan átta. Fimmti þáttur kosningahlaðvarps RÚV kom út um helgina og við hér í Morgunútvarpinu ætlum að halda áfram að heyra brot úr þáttunum. Í þetta skiptið viðtal sem Ingvar Þór og Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir tóku við Arnar Eggert Thoroddsen, aðjúnkt í félagsfræði við Háskóla Íslands og tónlistarrýni, um framboðslög. Í lok þáttar fórum við yfir íþróttir helgarinnar með Evu Björk Benediktsdóttur.

Morgunútvarpið
2. maí - eldvarnir, hitabylgja, Moldavía, verkalýðsmál, framboðslög

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later May 2, 2022

Spegillinn 24.febrúar 2022

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 24, 2022

Spegillinn 24.febrúar 2022 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Flótti er brostinn á hjá íbúum Kænugarðs í úkraínu, en rússneski herinn nálgast borgina. Ingólfur Bjarni Sigfússon er í Kænugarði og segir frá. Rússar eru með innrás í Úkraínu að reisa sitt eigið járntjald segir forseti landsins og þar með einangra sig frá Evrópu. Evrópusambandið undirbýr nú efnahagsþvinganir gagnvart Rússum vegna innrásar þeirra í Úkraínu, sem beinast meðal annars að bankakerfi landsins. Öryggis- og varnarmálafræðingur telur ólíklegt að þær dragi úr hernaði Rússa. Íslendingur sem er nýkominn til Dúbaí frá Kænugarði hringir nú í alla vini sína og kunningja í Úkraínu og reynir að koma úkraínskri tengdafjölskyldu sinni frá borginni Karkív. Fjölskyldan vaknaði við sprengingar í morgun. Um 300 manns eru samstöðufundi með Úkraínsku þjóðinni við Landakotskirkju. Enn ein óveðurslægðin nálgast nú landið með suðaustan stormi. Það byrjar að hvessa í nótt og appelsínugular veðurviðvaranir taka gildi um hádegisbil, fyrst á höfuðborgarsvæðinu. Lengri umfjöllun: Guðni Th. Jóhannesson Forseti Íslands segir að innrás í annað ríki megi aldrei líða, aldrei þola og aldrei viðurkenna. Ef lýðræðisríki heimsins bregðist ekki við með skýrum og sterkum hætti þá verði vandinn einungis verrri síðar meir. Ólöf Rún Skúladóttir ræðir við Guðna. Albert Jónsson sérfræðingur í varnarmálum og fyrrverandi sendiherra segir ólíklegt að önnur lönd blandist inn í hernaðarátök í Úkraínu. Efnahagsaðgerðir geti verið Rússum erfiðar , en það sé erfitt að einangra þá, þeir eigi eigi vini og viðskiptafélaga víða um heim, í Kína, Indlandi, Mið Asíu, Suður Ameríku og víðar. Kristján Sigurjónsson talar við Albert. Á Norðurlöndunum hafa stjórnmálamenn lýst yfir samstöðu með Úkraínumönnum og skammað rússneska sendiherra, jafnvel heitið mannúðaraðstoð og lofað að taka á móti flóttafólki; aukið viðbúnað hers og lögreglu. Óskum úkraínskra sendimanna um að fá að kaupa vopn, hefur hins vegar verið mætt af nokkuð meiri tregðu. Kári Gylfason í Gautaborg talar við Önnu Kristínu Jónsdóttur.

Spegillinn
Spegillinn 24.febrúar 2022

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 24, 2022 11:00

Í sóttkví í vinnunni. Mannúðaraðstoð. Ofsóknir á Indlandi.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 29, 2021 9:56

Yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans spáir því að tugir þúsunda eigi eftir að smitast af kórónuveirunni hér á landi á næstu mánuðum. Nær allir starfsmenn hjúkrunarheimilisins Sundabúðar á Vopnafirði eru komnir í sóttkví eða einangrun og hefur heimilið óskað eftir aðstoð til að sinna íbúum. Rúmlega þrjátíu snjóruðningstæki hafa vart undan við að ryðja götur og göngustíga á Akureyri. Reyndur mokstursmaður segir að verkinu ljúki ekki fyrr en á næsta ári. Tollverðir í Rotterdam í Hollandi fundu nýverið tæp tvö tonn af kókaíni í þremur sendingum. Söluandvirðið er talið nema hátt í tuttugu milljörðum króna. Lengri umfjallanir: Fyrirsjáanleikinn er enginn og fólk er orðið langþreytt. Þetta segir Aníta Aagestad, hjúkrunarfræðingur og trúnaðarmaður hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hún gengur nú kvöldvaktina á gjörgæslu Landspítalans við Hringbraut, í sóttkví. Það sárvantar fólk á deildina. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Anítu Aagestad. Sviðsstjóri hjá Rauða krossinum segir útlit fyrir að á næsta ári verði þörfin fyrir mannúðaraðstoð meiri en nokkru sinni fyrr. Aðkoma stjórnvalda þurfi að verða markvissari því hjálparsamtök geti ekki ein síns liðs unnið á neyð heimsins. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Atla Viðar Thorstensen. Kristnir söfnuðir á Indlandi sæta vaxandi ofsóknum af hálfu öfgafullra hindúa þar í landi. Um þverbak keyrði um jólin í ár þegar hátíðahöld kristinna voru trufluð á ofbeldisfullan hátt. Erlend fjárframlög til Hjálparstarfs Móður Teresu á Indlandi hafa verið fryst. Kristján Sigurjónsson segir frá.

Frjálsar hendur
Fiskerí, siglingar og sitthvað fleira

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Nov 14, 2021 52:00

Illugi Jökulsson hefur stundum lesið úr sjóferðaminningum Sveinbjörns Egilssonar og þá fyrst og fremst um ævintýri hans á Indlandi og víða um Evrópu. En árið 1893 var Sveinbjörn kominn aftur heim til Íslands og var stýrimaður eitt sumar á skútunni Fremad hjá Ásgeirsverslun á Ísafirði. Hann segir frá fiskeríi og siglingum, frá einelti og fylleríum, frá rímnasöng og skútumatseld. Umsjónarmaður les þessa skemmtilegu frásögn í þættinum.

Frjálsar hendur
Fiskerí, siglingar og sitthvað fleira

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Nov 14, 2021

Illugi Jökulsson hefur stundum lesið úr sjóferðaminningum Sveinbjörns Egilssonar og þá fyrst og fremst um ævintýri hans á Indlandi og víða um Evrópu. En árið 1893 var Sveinbjörn kominn aftur heim til Íslands og var stýrimaður eitt sumar á skútunni Fremad hjá Ásgeirsverslun á Ísafirði. Hann segir frá fiskeríi og siglingum, frá einelti og fylleríum, frá rímnasöng og skútumatseld. Umsjónarmaður les þessa skemmtilegu frásögn í þættinum.

Frjálsar hendur
Sjóðferðaminningar Sveinbjörns Egilssonar, lokaþáttur

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Jun 27, 2021 52:00

Umsjónarmaður lýkur lestri úr Sjóferðaminningum Sveinbjörns Egilssonar sem var háseti á skoska gufuskipinu Loch Lomond. Segir nú frá heimsókn skipverja til Kalkútta á Indlandi árið 1892. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Frjálsar hendur
Sjóðferðaminningar Sveinbjörns Egilssonar, lokaþáttur

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Jun 27, 2021