Podcasts about snorrad

  • 30PODCASTS
  • 98EPISODES
  • 1h 10mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Mar 3, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about snorrad

Latest podcast episodes about snorrad

Lestin
Bolludagur, Óskarsverðlaunin, Anora er besta myndin

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 3, 2025 54:59

Óskarsverðlaunahátíðin fór fram í nótt, með tiltölulega lágstemmdu pompi og prakt. Við hringjum til Los Angeles og förum yfir helstu verðlaunahafa með Dröfn Ösp Snorradóttir-Rozas. Við sökkvum okkur svo ofan í Anora sem hlaut verðlaun sem besta myndin, mynd sem fjallar um ástir kynlífsverkakonu og sonar rússnesks ólígarka. Það er bolludagur í dag. Anna Gyða fór á stúfana, kíkti í bakaríið Sandholt og forvitnaðist um hefðir tengdar deginum hjá Kristni Schram þjóðfræðingi.

Víðsjá
Listmeðferð Sigríðar Björnsdóttur, David Lynch og Undir eplatrénu/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 21, 2025 54:13

,,Ég treysti sjálfri mér og hef trú á þessu tæki sem listmeðferðin er. Hún er tæki til að tjá tilfinningar sínar og vinna með og losa sig við erfiðar tilfinningar. Myndsköpunin er þá notuð til að vinna með sig persónulega og til að þroskast í gegnum." - er meðal þess sem haft er eftir myndlistarkonunni og listþerapistanum Sigríði Björnsdóttur í bók þeirra Ágústu Oddsdóttur og Egils Sæbjörnssonar um ævistarf Sigríðar, Art can Heal. Á fimmtudag verður blásið til málþings um listmeðferð til heiðurs Sigríði, á vegum Listasafns Íslands og Myndlistarmiðstöðvar. Þau Ágústa og Egill koma við í hljóðstofu og segja okkur frá eiginleikum listmeðferðar og starfi Sigríðar. Við fáum líka pistil frá Gauta Kristmannssyni, sem að þessu sinni fjallar um ljóðasafn norska stórskáldsins Olav Hauge, Undir eplatrénu. Ljóðasafnið er að mestu fengið úr síðustu þremur bókum Hauges en Gyrðir Elíasson íslenskaði og ritaði formála. Við höldum líka áfram umfjöllun um kvikmyndaleikstjórann David Lynch. Lynch málaði heiminn í sterkum, dulúðugum og súrrealískum litum, sem virðast á stundum koma úr annari vídd, og bjó til andrúmsloft sem hefur einfaldlega verið kallað lynchían. Við ætlum að velta þessari lynchian tilfinningu fyrir okkur í þætti dagsins með Rúnari Rúnarssyni kvikmyndaleikstjóra, Ásgrími Sverrissyni kvikmyndagerðamanni, Hrönn Sveinsdóttur framkvæmdastýru bíó paradís og Evu Rún Snorradóttur rithöfundi og sviðslistakonu. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Rakarinn frá Sevilla, Snorri Ásmundsson, Eldri konur/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Dec 3, 2024 51:36

Í dag leggjum við leið okkar á rakarastofu í Reykjavík til þess að hitta þau Sólveigu Sigurðardóttur og Þórhall Auð Helgason, söngvara og forsprakka sviðslistahóspins Óðs, sem sem sýnir nú Rakarann frá Sevilla í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll. Við setjumst einnig niður við píanóið með Snorra Ásmundssyni, myndlistarmanni og besta píanóleikara heims og heyrum rýni Soffíu Auðar Birgisdóttur í Eldri konur eftir Evu Rún Snorradóttur.

Víðsjá
Eldri konur, Jarðljós/rýni, Nordic Affect og Norðuróp/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 26, 2024 54:56

Við lítum í heimsókn til Evu Rúnar Snorradóttur, rithöfundar og sviðslistakonu, í þætti dagsins. Eva Rún var að gefa út Eldri konur, sína fyrstu skáldsögu, en áður hefur Eva Rún gefið skáldverkið Óskilamuni og þrjár ljóðabækur. Eldri konur fjallar um konu með þráhyggju fyrir eldri konum. Aðalpersónan rekur líf sitt frá barnæsku til fullorðinsáranna gegnum frásagnir af konum sem hafa heltekið hana. Bókina byggir Eva Rún að einhverju leyti á eigin reynslu. Arndís Björk Ásgeirsdóttir rýnir í tónleika Nordic Affect sem fóru fram í Mengi þann 18.nóvember, og óperugalatónleika Norðuróps sem fóru fram þann 16.nóvember í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Jarðljós, tíundu ljóðabók Gerðar Kristnýjar.

Cyklus med Mette Hyldgaard Skovmose
46. Samtale med Hanna Snorradóttir

Cyklus med Mette Hyldgaard Skovmose

Play Episode Listen Later Oct 3, 2024 76:44

Kære lytter Vi befinder os i tiden mellem efterårsjævndøgn og allehelgenes aften på årshjulet. Og du bliver denne gang inviteret indenfor til en samtale med Hanna Snorradóttir. Hanna er uddannet miljøingeniør, men oplevede et strækt træk mod en anden måde at bruge livet på. Hun arbejder i dag med storytelling, storydance og shamanistisk naturkundskab, og hun er forfatter til bogen "Nordisk gudindekraft".  Vi taler i denne episode om nordisk mytologi og shamanisme, om den cirkulære bevidsthed, om forbindelsen med naturen og om mørket. Vi tuner særlig ind på eterårsjævndøgnet og allehelgenes aften som årstidsmarkeringer.  Har du lyst til at læse mere om Hanna, så finder du hendes hjemmeside her: https://www.storydancing.com Du finder min patreonplatform her: https://www.patreon.com/Cykluspodcast Kontakt: kontakt@mettehyldgaard.dk Kærlig hilsen Mette 

Stundin
Þjóðhættir #48: Sundlaugamenning á Íslandi: Hversdagsmenning og lifandi hefð

Stundin

Play Episode Listen Later Apr 30, 2024

Í þættinum ræðir Dagrún við Katrínu Snorradóttur og Sigurlaugu Dagsdóttur þjóðfræðinga.

Morgunvaktin
Svíþjóð, Evrópuþingskosningar og upplýsingaóreiða í kringum mat

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 11, 2024 130:00

Sænski fáninn verður dreginn að húni við höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins eftir nokkrar klukkustundir, eftir að formlega innganga Svíþjóðar í varnarbandalagið gekk í gegn í síðustu viku. Við ræddum um inngöngu Svía, umræðuna þar í landi og stjórnmálin við Gunnhildi Lily Magnúsdóttur stjórnmálafræðing í Malmö. Við ræddum um Evrópuþingskosningarnar í júní við Björn Malmquist fréttamann og Dóru Tynes lögmann. Nú þegar tæpir þrír mánuðir eru í kosningar hafa kannanir sýnt að hægriflokkar og harðlínu-hægriflokkar séu að sækja í sig veðrið. Hvað þýðir það og hvaða áhrif hefði slík sveifla á Evrópusambandið? Og í síðasta hluta þáttarins: Það færist í aukana að alls kyns fólk deili upplýsingum og ráðum um matvæli og mataræði á samfélagsmiðlum, og ráðin eru út og suður. Til dæmis sáu næringarfræðingar sig nýlega knúna til að grípa til varna fyrir hafragrautinn, og það er bara eitt af fjölmörgum dæmum. Ætli sé margt fólk hreinlega farið að upplifa kvíða vegna allra þessara misvísandi upplýsinga um hvað sé hollt og æskilegt og hvað ekki? Við spurðum Heiðdísi Snorradóttur næringarfræðing að því. Tónlist: Prysock, Arthur - The folks who live on the hill. Eilish, Billie - What Was I Made For. Eilish, Billie - No Time To Die. Melchor, Adam - i'm not okay Una Torfadóttir - Um mig og þig.

Spegillinn
Noregskonungur veikur í Malasíu, málefni kvótaflóttamanna, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 1, 2024 20:00

Norðmenn óttast að Haraldur konungur sé alvarlega veikur þar sem hann liggur á sjúkrahúsi í Malasíu. Hann er þar í fríi frá störfum. Búið er að senda sjúkraþotu á vegum hersins og lið lækna á staðinn en alls er óvíst hvenær konungur verður fluttur heim. Gísli Kristjánsson sagði frá. Gerður Gestsdóttir, ormaður flóttamannanefndar, vonar að hægt verði að að taka við kvótaflóttamönnum í ár en það hefur ekki verið gert frá 2020. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana. Kristín Snorradóttir, teymisstjóri í Bjarmahlíð, þolendamiðstöð á Akureyri, segist finna fyrir því að þolendur af öllum kynjum verði fyrir alvarlegri brotum en áður. Aðeins einn starfsmaður starfar í miðstöðinni sem stendur þrátt fyrir að hún þjónusti þolendur um allt land. Selma Margrét Sverrisdóttir tók saman.

Víðsjá
Ljósið og ruslið, D vítamín og Kafka

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 23, 2024 54:46

Sýningin D-vítamín verður opnuð gestum næstkomandi föstudag í hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur en þar kemur saman úrval upprennandi listamanna með glæný og nýleg verk í anda þeirrar hefðar sem mótast hefur í áralangri sýningarröð Listasafnsins í D-sal. Við náum tali af Aldísi Snorradóttur, og Björk Hrafnsdóttur, sýningarstjórum í þætti dagsins. Ljósið og ruslið er marglaga sviðs- og tónverk eftir Benedikt Hermann Hermannsson tónskáld og Ásrúnu Magnúsdóttur danshöfund en það verður frumsýnt í Tjarnarbíói núna á fimmtudaginn. Verkið er samið fyrir og flutt af kvennakór og hljómsveit, og samanstendur sýningin af 10 lögum sem hvert felur í sér sitt eigið sögusvið og hljóðheim. Við ræðum við Benna Hemm Hemm og Maríu Rán Guðjónsdóttur, útgefanda, sem er einn kórmeðlima. Við rifjum einnig upp erindi Snorra Rafns Hallssonar um Kafka, skrifræði og draumaland reglnanna og mun hann grípa niður í Réttarhöldin og bók bandaríska mannfræðingsins og anarkistans David Graeber, Utopia of rules.

Lestin
Skilnaður

Lestin

Play Episode Listen Later Nov 15, 2023 55:00

Það getur fylgt því ný sjálfsmynd að skilja, það myndast gapandi tóm, sorgin er talin annars flokks, við erum öll að fylgja ósýnilegu handriti. Við ræðum þetta og meira við sviðslistakonurnar Evu Rún Snorradóttur og Vilborgu Ólafsdóttur í Kviss Búmm Bang. Þær eru að hefja rannsóknarvinnu fyrir nýtt sjálfsævisögulegt verk sem fjallar um menningu og arfleið hjónabandsins - og ekki síst algengnan fylgifisk þess, skilnað. Svo rifjum við upp ástarrannsóknir, viðtal við hjónabandsráðgjafa og framsögur frá 1958, þar sem ástæðum hjónaskilnaða var velt fyrir sér. Það er bara eitt mál á dagskrá í Lestinni í dag, algengur fylgifiskur hjónabandsins, skilnaður.

Lestin
Skilnaður

Lestin

Play Episode Listen Later Nov 15, 2023

Stjórnmál, ferðamál og hjúkrun

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 29, 2023 130:00

Stjórnmál voru á dagskrá Morgunvaktarinnar í dag. Þingmennirnir Ingibjörg Isaksen og Þórunn Sveinbjarnardóttir frá Framsókn og Samfylkingu sitja báðar í umhverfis- og samgöngunefnd þingsins og við ræddum um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og umhverfis- og loftslagsmál. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, sagði frá því helsta í ferðamálum. Airbnb er ekki lengur aufúsugestur í New York, Sádi-Arabar vilja fá 150 milljónir ferðamanna til landsins árlega og 33 flugferðir eru í boði til Tenerife fyrir jólin. Síðar í dag verður því fagnað að 50 ár eru liðin frá því farið var að kenna hjúkrun á háskólastigi hér á landi. Ýmsum þótti það óþarfi á sínum tíma. Sóley Bender var í þessum fyrsta hópi nemenda og varð svo prófessor við deildina. Hún kom til okkar ásamt Lovísu Snorradóttur, sem er nýútskrifaður hjúkrunarfræðingur. Tónlist: King, Ben E. - Spanish Harlem. Ellen Kristjánsdóttir, Egill Ólafsson - Ónumin lönd. Tatarar hljómsveit - Dimmar rósir. Þuríður Sigurðardóttir - Ég á mig sjálf.

Morgunvaktin
Stjórnmál, ferðamál og hjúkrun

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 29, 2023

Kvíðakastið
55. Heiðdís Snorradóttir - Næring og andleg heilsa

Kvíðakastið

Play Episode Listen Later Jul 9, 2023 67:27

Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Heiðdís er stofnandi og meðeigandi Endurnæringar og næringarfræðingur með áherslu á lýðheilsu. Hún sérhæfir sig í að hjálpa einstaklingum að byggja upp heilbrigt sambandi við mat. Í þessum þætti fræðir Heiðdís okkur m.a. um svengdarvitund, emotional eating, matarkvíða hjá börnum og hvernig greiningar eins og ADHD og einhverfa geta haft áhrif á matarinntöku.

Lestin
Steypiboð, Closing Time 50 ára, heimsókn til Abú Dabí

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 6, 2023 55:00

Þann 6. mars árið 1973 fyrir sléttum fimmtíu árum kom út fyrsta plata tónlistarmannsins Tom Waits, Closing time. Barnum var þá auðvitað ekkert að loka á ferli söngvaskáldsins. Waits er enn sprækur, 73 ára og á að baki ógrynni af plötum og bíómyndir en hann hefur reglulega sýnt sig á hvíta tjaldinu í gegnum tíðina. Á þessari frumraun sinni frá 1973 var Waits bara 23 ára en hljómar eins og maður sem hefur lifað heila mannsævi og jafnvel nokkrar. Jóhannes Ólafsson ræddi við tónlistarmanninn og leikstjórann Eyvind Karlsson um þessa merkilegu plötu. Jakub Stachowiak er nýr pistlahöfundur í Lestinni. Að þessu sinni fer hann með okkur í ferðalag til Abú Dabí þar sem PCR-próf og rakningarúr koma við sögu. Ferðalag sem minnir á vísindaskáldskap. Við ætlum að kynna okkur nánar fyrirbærið steypiboð, eða svokölluð baby shower. Um er að ræða nýjan sið á Íslandi þar sem ófrískum mæðrum eru haldnar óvæntar veislur stuttu fyrir fæðingu. Við ræðum við Hugrúnu Snorradóttur, sem skrifaði BA-ritgerð sína í mannfræði um upptöku þessarar hefðar hér á landi, en steypiboð eiga rætur sínar að rekja til Bandaríkjanna.

Lestin
Steypiboð, Closing Time 50 ára, heimsókn til Abú Dabí

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 6, 2023

Ferðalag í gömul sár, Lamento í frönsku útvarpi og mýkt sem styrkur

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 16, 2023

Páll Ragnar Pálsson tónskáld, er nýkominn heim frá París þar sem hann var við upptökur á kammerverkinu Lamenta. Það var franska ríkisútvarpið, Radio France, sem pantaði hjá honum verkið eftir að hann hlaut fyrstu verðlaun á alþljóðlega tónskáldaþinginu Rostrum. Við heyrum meira af því ævintýri í þætti dagsins. "Það þarf ekki bara eitthvað eitt leikhúsverk, það þarf mörg leikhúsverk, það þarf margar bækur, margar bíómyndir. Það eru svo ótal margir vinklar og margt sem þarf að skoða, margt sem er óþægilegt og margt erfitt," segir Eva Rún Snorradóttir, sviðshöfundur, en í verkinu Góða ferð inn í gömul sár, sem sýnt er í Borgarleikhúsinu um þessar mundir, freistar hún þess að gera upp HIV faraldurinn á Íslandi með heimilda- og þátttökuleikúsi. Við hittum Evu Rún og fáum að vita meira. Og í dag fáum við pistil frá Freyju Þórsdóttur, heimspekingi, sem steig hér á stokk með sinn fyrsta pistil fyrir 2 vikum síðan og verður hér með okkur fram á vorið. Í dag Freyja fjallar í dag um leiki lífsins og mýkt sem styrk. Í því samhengi skoðar hún m.a. hvaða hvernig auglýsingar stórfyrirtækja geta endurspeglað úreltar hugmyndir um náttúruna, og hvaða áhrif það getur haft þegar umhyggja er ekki metin að verðleikum í samfélagi. Þjáist heimurinn mögulega af lífshættulegum umhyggjuskorti? Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Ferðalag í gömul sár, Lamento í frönsku útvarpi og mýkt sem styrkur

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 16, 2023 55:00

Hvítleikinn í myndlist, Skil / Skjól, Góða ferð inn í gömul sár

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 7, 2023

Tímamót og kaflaskil, ólíkir kraftar, upphaf og endalok eru eitthvað sem Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir er að takast á við í nýjum verkum, sem hægt er að sjá í safnaðarheimili Neskirkju um þessar mundir á sýningu sem kallast SKil / Skjól. Verk hennar einkennast meðal annars af mikilli efniskennd en á þessari sýningu vinnur hún í fyrsta sinn heilu verkin með marmara. Við lítum inn í Neskirkju með Áslaugu í þætti dagsins Við hittum líka Æsu Sigurjónsdóttur dósent í listfræði við Háskóla Íslands, en hún ætlar í hádegisfyrirlestri RIKK - Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum sem fer fram í hádeginu á morgun í Þjóðminjasafninu að fjalla um Hvítleikann í íslenskri samtímalist. Hvítleikahugtakið hefur sjaldan verið notað í myndlistargagnrýni á Íslandi þrátt fyrir að fræðimenn hafi um nokkurt skeið beitt því til að afhjúpa kynþáttahyggju og karllægar staðalímyndir tungumáls og íslenskrar menningar. Við spyrjum út í hvítleikann og samtímalistina í þætti dagsins. Góða ferð inn í gömul sár, eftir Evu Rún Snorradóttur, var frumsýnt í Borgarleikhúsinu um liðna helgi. Eva Halldóra Guðmundsdóttir rýnir í verkið. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir

Víðsjá
Hvítleikinn í myndlist, Skil / Skjól, Góða ferð inn í gömul sár

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 7, 2023 55:00

Lýðheilsa og Borgarlína, konungsfjölskylda Havaí og Kjarvalsstaðir

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 11, 2023

Tilkoma Borgarlínu gæti haft ýmiss konar ávinning fyrir lýðheilsu okkar. Þetta er niðurstaða nýs lýðheilsumats sem gert var og kynnt á dögunum. Þar eru lagðar til alls konar leiðir til að gera almenningssamgöngurnar aðgengilegri, allt frá bókstaflegu aðgengi að biðstöðvum og að því að hægt sé að borga með fjölbreyttari hætti. Þær Hugrún Snorradóttir og Harpa Þorsteinsdóttir unnu að lýðheilsumatinu og komu til okkar. Í síðasta mánuði lést kona á tíræðisaldri sem titluð var í fjölmiðlum síðasta prinsessa Havaí. Abigail Kawananakoa var níutíu og sex ára gömul og gat rakið ættir sínar til konungsfjölskyldunnar sem réði ríkjum á Havaí-eyjum áður en Bandaríkjamenn tóku þær yfir. Prinsessan var vellauðug og stóð í deilum um auðævi sín á síðustu æviárunum. Vera Illugadóttir sagði okkur frá prinsessunni og kóngafólki Havaí. Kjarvalsstaðir verða 50 ára á þessu ári, dyrnar voru opnaðar í mars árið 1973. Safnið er hluti Listasafns Reykjavíkur og þessum tímamótum verður fagnað með margvíslegum hætti á árinu. Ólöf Kristín Sigurðardóttir safnstjóri sagði frá Kjarvalsstöðum og árinu framundan. Umsjón: Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Á venjulegum degi - KK Jeg Har Elsket Dig, Så Længe Jeg Kan Mindes - Anne Linnet Aloha Oe - Johnny Cash

Morgunvaktin
Lýðheilsa og Borgarlína, konungsfjölskylda Havaí og Kjarvalsstaðir

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 11, 2023 130:00

Orð um bækur
Orð frá fyrra ári um nýjar ljóðraddir og skrif frá eigin hjartarótum

Orð um bækur

Play Episode Listen Later Jan 8, 2023

í þessum fyrsta þætti Orða um bækur á nýju ári er litið um öxl og rifjuð upp fyrstu kynni af nýjum ljóðröddum. Fluttir bútar úr viðtal við Natöshu S. um ljóðabókina Máltaka á stríðstímum. Einnig brot úr vitali við ljóðskáldin Sunnu Dís Másdóttur og Jakub Stachiowich um ljóðabækurnar Plómur eftir Sunnu og Úti bíður skáldleg veröld eftir Jakub. Þá er hugað að skáldverkum þar sem höfundar sækja efnivið í eigin líf. Flutt brot úr samtali Önnu Maríu Björnsdóttur við þær Auði Jónsdóttur, Evu Rún Snorradóttur og Fríðu Íslberg um það hvort afstaða til slíkra bókmennta fari eftir því hvort höfundur er karl eða kona. Að lokum er rifjuð upp heimsókn í Bókasamlagið sem þá var nýstofnað og ætlaði sér stóra hluti í öllu mögulegu viðkomandi bókum þar sem rætt var við forsvarskonurnar Danýju Maggýardóttur og Kikku KM Sigurðardóttur einnig flutt nýtt viðtal við Kikku KM um hvernig tókst til á síðasta ári og hvernig Bókasamlagið fer inn í nýtt ár. Umsjón Jórunn Sigurðardóttir

Play Episode Listen Later Jan 8, 2023 45:00

Orð um svörtu Evrópu og viðtökur bóka skáldkvenna og skáldkarla

Orð um bækur

Play Episode Listen Later Jun 27, 2022

Í byrjun þáttar er stuttlega fjallað um byltingakenndar breytingar í bókaútgáfu á allra síðustu árum. Þá er þættinum sagt frá bókinni European. Notes from Black Europe eftir Johny Pitts. Sagt er frá höfundinum og bókinni, lesið brot í snörun þáttastjórnanda og það heyrist í höfundinum, upptaka frá heimasíðu hans afropean.com. Þá stjórnar Anna María Björnsdóttir umræðum um ólík viðbrögð lesenda og gagnrýnenda við bókum karl - og kvenkynshöfunda en skáldkonur erum mun oftar spurðir hvort verk þeirra fjalli ekki um þær sjálfar. Þátttakendur í umræðunum eru Auður Jónsdóttir, Eva Rún Snorradóttir og Fríða Ísberg. Umsjón: Jórunn Sigurðardóttir Lesari: Kristján Guðjónsson

Play Episode Listen Later Jun 27, 2022 55:37

Óskarsverðlaunalöðrungur, Viktor Weisshappel, mikilvægi andlitsfarða

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 28, 2022

Óskarverðlaunahátíðin fór fram í Los Angeles í nótt. Dröfn Ösp Snorradóttir er búsett í borginni og sá um að lýsa verðlaununum á Stöð 2 og varð vitni að því þegar leikarinn Will Smith kýldi grínistann Chris Rock, sem hafði gert ósmekklegt grín að Jada Pinkett Smith eiginkonu hans. Nú á dögunum var tilkynnt um tilnefningar í FÍT keppninni. Þar er keppt um það besta í grafískri hönnun og myndlýsingum á Íslandi. Þar er meðal annars veitt verðlaun fyrir plötuumslög, en af fimm tilnefndum umslögum er þrjú hönnuð af sama manninum, Viktori Weisshappel. Við kíkjum í kaffi til Viktors og ræðum plötuumslög á tímum þegar stór hluti tónlistar kemur út hvorki út á plötum né í umslögum. Og Sverrir Norland flytur sitt fjórða og síðasta brot úr sögu athyglinnar. Að þessu sinni veltir hann fyrir sér fallegum andlitum og því hvernig andlitsfarðinn öðlaðist pólitískt mikilvægi í fyrstu sjónvörpuðu forsetakappræðunum í Bandaríkjunum árið 1960. Þar sem Richard Nixon gerði þau grundvallarmistök að fúlsa við farðanum.

Play Episode Listen Later Mar 28, 2022 55:00

Birgir Andrésson: Eins langt og augað eygir

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 3, 2022

Eins langt og augað eygir kallast umfangsmikil yfirlitssýning á verkum Birgis Andréssonar sem tekur yfir nær alla Kjarvalstaði. Birgir var leiðandi afl í myndlistarsenu Reykjavíkur í áratugi og skapar stóran sess í listasögu Íslands, en hann lést langt fyrir aldur fram, árið 2007. Birgir hélt fjölda sýninga hérlendis og erlendis á litríkum ferli sínum og var valinn til að taka þátt í Feneyjatvíæringnum árið 1995 fyrir hönd Íslands. Í Víðsjá dagsins verður rætt við aðstandendur yfirlitssýningarinnar; sýningarstjórann Robert Hobbs, hönnuðinn Ásmund Hrafn Sturluson, Aldísi Snorradóttur verkefnastjóra sýninga hjá Listasafni Reykjavíkur og Börk Arnarsson eiganda i8 gallerí. Þar að auki verða viðtöl við Birgi sjálfan sótt í safn Ríkisútvarpsins. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.

Play Episode Listen Later Feb 3, 2022 53:53

Heilahristingur
Sjónvarps- og kvikmyndahristingur - Undanúrslit II

Heilahristingur

Play Episode Listen Later Dec 19, 2021

Það er komið að seinni undanúrslitaviðureigninni í sjónvarps- og kvikmyndahristingi. Hvert verður síðara liðið sem tryggir sér sæti í úrslitum á annan dag jóla? Í keppni dagsins mæta Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas og Hrafn Jónsson liði Hafsteins Sæmundssonar og Donnu Cruz í æsispennandi viðureign.

Sjónvarps- og kvikmyndahristingur - Átta liða úrslit

Heilahristingur

Play Episode Listen Later Dec 5, 2021

Síðasta sætið í undanúrslitum er í boði í þætti dagsins. Lið Kanarífuglana, þau Steiney Skúladóttir og Guðmundur Felixson mæta kvikmyndagerðarfólkinu Hrafni Jónssyni og Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas í bráðskemmtilegri viðureign.

Santa Barbara, Dagur Hjartarsson, Skáldkonur fyrri alda, Óskilamunir

Víðsjá

Play Episode Listen Later Dec 2, 2021 55:00

Ragnar Kjartansson opnar næstkomandi laugardag, 4. desember, sýningu í splunkunýju samtímalistasafni í miðborg Moskvu. Verk Ragnars er opnunarverk þessa nýja listasafns, sem kallast GES-2, en það er staðsett í ríflega aldargömlu orkuveri, sem áður knúði sprovagnakerfi borgarinnar, og sem nú hefur verið umbreytt í stærðarinnar menningarmiðstöð af arkitektinum Renzo Piano. Líkt og oft í verkum Ragnars þá er það sköpunarferlið sjálft sem er kjarni verksins, en það kallast Santa Barbara, eftir samnefndri bandarískri sápuóperu, sem byrjað var að sýna í rússneska sjónvarpinu viku eftir hrun sovétríkjanna. Verkið, sem Ragnar vinnur í samstarfi við Ásu Helgu Hjörleifsdóttur kvikmyndaleikstjóra, snýst um að endurgera Santa Barbara sápuóperuna, í listasafninu, með stórum hópi rússneskra leikara og tæknifólks. Sýningin er engin smá smíði, en Ragnar lýsir henni sem tilfinningalegum skúlptur í viðtali við Guðna Tómasson sem við hlýðum á í þætti dagsins. Einnig fáum við rýni frá Gauta Kristmannssyni í þætti dagsins, en hann mun að þessu sinni fjalla um Óskilamuni eftir Evu Rún Snorradóttur. Og við heyrum vangaveltur Dags Hjartarsonar um listsköpun, hvaða galdur gerist þegar hugmyndir kvikna og listaverk fæðast, og getur gervigreind skapað góðan texta? Dagur leitar svara við þessum gátum í dag, til dæmis með því að gera tilraunir með höfundarverk Jóns Kalmans. Elín Sigurðardóttir og Guðfinna Jónsdóttir frá Hömrum voru báðar fæddar fyrir þar síðustu aldamót og búsettar í Þingeyjarsveit. Þorgerður Ása brá sér aftur í heimsókn til Magneu Þuríðar Ingvarsdóttir sem heldur úti Facebook síðunni Tófan, ljóða- og fræðasetur og rýndu þær í þetta sinn í ljóðabækur þessara þingeysku kvenna.

Víðsjá
Santa Barbara, Dagur Hjartarsson, Skáldkonur fyrri alda, Óskilamunir

Víðsjá

Play Episode Listen Later Dec 2, 2021

Orð um grímuball, skuggaskjól og strengi milli kynslóða

Orð um bækur

Play Episode Listen Later Nov 15, 2021 55:16

Höfuðverk kúrdíska rithöfundarins Mehmeds Uzuns, Skuggi ástarinnar hefur nú komið út í íslenskri þýðingu Einars Steins Valgarðssonar. Bókin segir frá ungum mennta- og frelsisbaráttumanni manni sem nefnist Memduh Selîm, en hann er gerður útlægur í heimalandi sínu. Í bókinni stendur hann á krossgötum lífshamingju og hugsjóna. Jórunn Sigurðardóttir ræðir við Einar Stein Valgarðsson um bókina. Við heyrum einnig nokkur orð úr viðtali Jórunnar við Mehmed Uzun frá Alþjóðlegri Bókmenntahátíð í Reykjavíkur árið 2005. Óskilamunir nefnist nýútkomin bók Evu Rúnar Snorradóttur. Hún hefur áður sent frá sér þrjár ljóðabækur en ein þeirra, Fræ sem frjóvga myrkrið hlaut ljóðaverðlaunin Maístjörnuna fyrir árið 2018. Óskilamunir er safn sagna sem fjalla meðal annars um skilnað, upphaf ástarsambands og um mótundaráhrif sársauka sem ekki er unnið úr. Eva Rún Snorradóttir verður tekin tali um bókina í þætti dagsins. Við hugum líka að sveitinni. Búandkerlingin, rithöfundurinn og þýðandinn Harpa Rún Kristjánsdóttir gerði sér ferð í borgina í vikunni og heimsótti okkur hingað upp í útvarpshús til þess að segja okkur frá sinni fyrstu skáldsögu, Kynslóð. Bókin segir frá breytingim í lífi Maríönnu Maístjörnu Helgudóttur eða Önnu. Anna er sveitarkona sem, ólíkt mörgu örðu sveitarfólki skáldsagna, vill ekki komast burt úr sveitinni og flytja í borgina. Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Jórunn Sigurðardóttir Lesari: Leifur Hauksson

Orð um bækur
Orð um grímuball, skuggaskjól og strengi milli kynslóða

Orð um bækur

Play Episode Listen Later Nov 15, 2021

Hismið hlaðvarp
Hismið - Kalla-kallinn er ekki lengur sexy

Hismið hlaðvarp

Play Episode Listen Later Nov 11, 2021 63:05

Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas - a.k.a DD- Unit er gestur Hismisins þessa vikuna og fer yfir þetta helsta með okkur: stöðuna í Covid, verkalýðsbaráttuna í Bandaríkjunum, Biden stjórninna, Elon Musk, kynþokkafyllsta mann heims og fleira.

Bíóblaður
#123 Leynilögga með Lilju Ósk

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Oct 20, 2021 84:56

Lilja Ósk Snorradóttir hefur unnið hjá framleiðslufyrirtækinu Pegasus í fjölda mörg ár og hefur framleitt bæði kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Lilja er ein af framleiðendum myndarinnar Leynilögga sem verður frumsýnd í Sambíóunum í dag.   Hafsteinn fékk Lilju til sín til að ræða þessa spennandi mynd og ferlið á bakvið gerð myndarinnar.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóanna.

Morgunvaktin
Alvarleg staða Landspítalans, ferðamenn og kvikmyndir

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 15, 2021 130:00

Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítalanum, segir eðlilegt að horfa til Landspítalans þegar kemur að tilslökunum á sóttvarnareglum. Hver geta samfélagsins er að takast á við faraldur eins og Covid. Hún tekur undir neyðaróp hjúkrunarfræðinga og annarra starfsmanna vegna ástandsins á Landspítalanum en þar leikur mannekla og skortur á úrræðum fyrir aldraða lykilhlutverk. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, fór yfir fjölgun ítalskra ferðamanna á haustdögum og gistimöguleika bæði hér og í Kaupmannahöfn. Það kostar yfir 100 þúsund að gista á hótelum í miðborg Reykjavíkur um næstu helgi. Nýtt hótel hóf starfsemi í vikunni en það er staðsett við Hörpu og er fyrsta fimm stjörnu hótelið í Reykjavík. Lilja Ósk Snorradóttir, kvikmyndaframleiðandi og framkvæmdastjóri Pegasus, tekur vel í hugmyndir Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknarflokksins um að fjölga störfum í kvikmyndageiranum á næstu tíu árum. Nú starfa um 2.600 við kvikmyndagerð á Íslandi en Sigurður Ingi vill fjölga þeim í 10 þúsund á tíu árum. Veltan í kvikmyndageiranum nam um 18 milljörðum í fyrra. Lilja framleiðir kvikmyndina Leynilögga sem verður frumsýnd í kvikmyndahúsum 22. október. Tónlist: Stefið úr Bleika pardusnum, Önnur sjónarmið með Eddu Heiðrúnu Backman, Stella í Orlofi með Diddú og Hjálpaðu mér upp með Ný danskri. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Morgunvaktin
Alvarleg staða Landspítalans, ferðamenn og kvikmyndir

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 15, 2021

Morgunútvarpið
31. mars - Göngur, garðyrkja, náttúrutækni, sauðkindin og Systrabönd

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Mar 31, 2021 130:00

Við ræddum við Jón Heiðar Andrésson, fjallaleiðsögumann, sem jafnframt starfa í Fjallakofanum en í útivistarverslunum hefur verið óvenju mikið að gera þar sem fólk er kaupa búnaði fyrir ferð að gosstöðvum. Hann gaf okkur góð ráð fyrir ferð að gosinu. Garðyrkjuskólinn að Reykjum hefur verið starfræktur í 82 ár en nú hillir undir breytingar þar sem til stendur að flytja starfsmenntanámið í garðyrkju frá Landbúnaðarháskóla Íslands og til Fjölbrautaskóla Suðurlands. Velunnarar skólans telja hann í hættu og hafa biðlað til stjórnvalda. Tvö ár eru liðin frá því að hagsmunafélög garðyrkju óskuðu formlega eftir því að samráð yrði haft við þau og tryggja þyrfti framtíð námsins og að ákvarðanir yrðu teknar í raunverulegu samráði við þá sem starfa við fagið. Kristín Snorradóttir, garðyrkjumeistari og garðyrkjustjóri Hveragerðis, fór yfir þetta með okkur. Sverrir Norland ræddi við okkur en hann hefur gefið út bók sem er hugleiðingar og pælingar um náttúru tækni og hugarflug og andlega líðan okkar mannanna. Í sjónvarpsþættinum Hvað getum við gert? sem er umsjón Sævars Helga Bragasonar og sýndur var á RÚV á mánudagskvöldið var fjallað um gróðurlaust land á Íslandi og kom þar fram sú skoðun að það væri helst íslensku sauðkindinni að kenna. Viðbrögð bænda við þættinum voru mikil. Ein þeirra er Ágústa Ágústdóttir sauðfjárbondi. Hún var á línunni hjá okkur og fór yfir málið. Sjónvarpsþættirnir Systrabönd eru væntanlegir í Sjónvarp Símans nú um Páskana. Þar segir af þremur æskuvinkonum sem þurfa að horfast í augu við voðaverk er líkamsleifar ungrar stúlku finnast aldarfjórðungi eftir hvarf hennar. Leikstjóri þáttanna er Silja Hauksdóttir og hún kom til okkar og segja okkur meira af þessum spennandi íslensku þáttum. Tónlist: Of monsters and men - Dirty paws Hreimur - Gegnum tárin A-ha - Foot of the mountain Bubbi og Bríet - Ástrós Hjaltalín - Feels like sugar Madness - Wings of a dove White town - Your woman Ellen Kristjánsdóttir og John Grant - Veldu stjörnu

Morgunútvarpið
31. mars - Göngur, garðyrkja, náttúrutækni, sauðkindi og systrabönd

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Mar 31, 2021

Tónlistarhristingur - Átta liða úrslit

Heilahristingur

Play Episode Listen Later Mar 14, 2021

Síðasta viðureign í fyrstu umferðinni. Ari Eldjárn, skemmtikrafur og tónlistarspekúlant og Páll Óskar Hjálmtýsson mynda lið sem mæta Dröfn Ösp Snorradóttur Rozas, eða DD-Unit, fyrrum Rokklingi og Steinþóri Helga Arnsteinssyni, umboðsmanni og tónlistargrúskara í stórskemmtilegri viðureign.

Varfærnar tilslaknair í sóttvörnum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 8, 2020 30:00

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segist hafa lagt áherslu á að miða fjöldatakmarkanir áfram við tíu. Með því sé verið að senda skilaboð um að fólk eigi ekki að safnast saman. Þótt tekist hafi að sveigja kúrfuna niður sé veiran enn þarna úti og lítið þurfi til að hún nái sér aftur á strik. Stjórnvöld hafa ákveðið að áfrýja niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um ólögmæti uppgreiðslugjalda Íbúðalánasjóðs. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir eðlilegt að láta reyna á dóminn því miklir hagsmunir séu í húfi. Höskuldur Kári Schram ræddi við hann. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra vonar að Alþingi nýti sér einstakt tækifæri og samþykki frumvarp hans um stofnun hálendisþjóðgarðs. Jón Gunnarsson varaformaður umhverfis - og samgöngunefndar telur ágreining um málið hafa aukist. Kórónuveirusmitin í Evrópu eru komin yfir tuttugu milljónir frá því að veiran barst til álfunnar í ársbyrjun. Bretar urðu í dag fyrstir vestrænna ríkja til að bólusetja gegn henni. Ásgeir Tómasson tók saman. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra varar við fölsuðum bóluefnum. Anna Lilja Þórisdótttir sagði frá. Hafsteinn Halldórsson, aðstoðarvarðstjóri í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir að nú sé rétti tíminn fyrir fólk að fara yfir eldvarnir á heimilinu. Ingvar Þór Björnsson ræddi við hann. Svandís Svavarsdóttir kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun varfærnar tilslakanir sem taka gildi á fimmtudag og gilda að óbreyttu til 12. janúar. Höskuldur Kári Schram ræddi við hana. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að tilslakanir gerbreyti stöðunni. Jóhannes Þór Skúlasyni framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar þykir ekki nóg að gert. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við þá. Undirbúningur vegna bólusetningar gegn kórónuveirunni er í fullum gangi. Von er á kynningarefni fá Landlækni í lok vikunnar . Arnar Páll Hauksson ræddi við Önnu Maríu Snorradóttur. Glíma Breta við Covid-19 hefur verið erfið en í dag náðu þeir þeim áfanga að hefja bólusetningu gegn veirunni. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred.

Góðvild
Spjallið með Góðvild # 12 - Nína Snorradóttir

Góðvild

Play Episode Listen Later Dec 8, 2020 18:32

„Systir mín flytur til okkar 2018 og hafði alla tíð búið hjá móður okkar. Mamma er af þeirri kynslóð að hún vildi bara hafa hana hjá sér, vildi ekki að hún færi á sambýli,“ segir Nína Snorradóttir. Eftir að móðir Nínu féll skyndilega frá tók hún þroskaskerta systur sína að sér.Nína segir að margt þurfi að breytast í kerfinu varðandi þroskaskerta einstaklinga eldri en 18 ára, sérstaklega varðandi sjúkratryggingamál, stuðning og búsetuúrræði. Sjá frekari umfjöllun hér í grein á Vísir.is: https://www.visir.is/g/20202046697d

Spegillinn
Varfærnar tilslaknair í sóttvörnum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 8, 2020

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segist hafa lagt áherslu á að miða fjöldatakmarkanir áfram við tíu. Með því sé verið að senda skilaboð um að fólk eigi ekki að safnast saman. Þótt tekist hafi að sveigja kúrfuna niður sé veiran enn þarna úti og lítið þurfi til að hún nái sér aftur á strik. Stjórnvöld hafa ákveðið að áfrýja niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um ólögmæti uppgreiðslugjalda Íbúðalánasjóðs. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir eðlilegt að láta reyna á dóminn því miklir hagsmunir séu í húfi. Höskuldur Kári Schram ræddi við hann. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra vonar að Alþingi nýti sér einstakt tækifæri og samþykki frumvarp hans um stofnun hálendisþjóðgarðs. Jón Gunnarsson varaformaður umhverfis - og samgöngunefndar telur ágreining um málið hafa aukist. Kórónuveirusmitin í Evrópu eru komin yfir tuttugu milljónir frá því að veiran barst til álfunnar í ársbyrjun. Bretar urðu í dag fyrstir vestrænna ríkja til að bólusetja gegn henni. Ásgeir Tómasson tók saman. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra varar við fölsuðum bóluefnum. Anna Lilja Þórisdótttir sagði frá. Hafsteinn Halldórsson, aðstoðarvarðstjóri í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir að nú sé rétti tíminn fyrir fólk að fara yfir eldvarnir á heimilinu. Ingvar Þór Björnsson ræddi við hann. Svandís Svavarsdóttir kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun varfærnar tilslakanir sem taka gildi á fimmtudag og gilda að óbreyttu til 12. janúar. Höskuldur Kári Schram ræddi við hana. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að tilslakanir gerbreyti stöðunni. Jóhannes Þór Skúlasyni framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar þykir ekki nóg að gert. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við þá. Undirbúningur vegna bólusetningar gegn kórónuveirunni er í fullum gangi. Von er á kynningarefni fá Landlækni í lok vikunnar . Arnar Páll Hauksson ræddi við Önnu Maríu Snorradóttur. Glíma Breta við Covid-19 hefur verið erfið en í dag náðu þeir þeim áfanga að hefja bólusetningu gegn veirunni. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred.

Kokkaflakk í eyrun
#10 Sleggjudómar - Endalok seríu

Kokkaflakk í eyrun

Play Episode Listen Later Nov 10, 2020 108:53

Þá er komið að honum, þættinum sem enginn er búinn að vera að bíða eftir, lokaþætti fyrstu seríu Kokkaflakks í eyrun! Í þennan þátt fékk ég til mín tvö þeirra sem ég heimsótti í sjónvarpsþáttunum Kokkaflakk, þau Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas og Davíð Örn Hákonarson. Mig langaði að vita hvað á daga þeirra hefði drifið síðan við heimsóttum þau annars vegar í París og hins vegar í Los Angeles, svo við fórum aðeins yfir það. En aðallega ræddum við þó hvaða matur er ofmetinn, hvaða matur er vanmetinn og fórum yfir persónulega topp fimm lista yfir besta sælgætið og skyndibitann meðal annars. Stútfullur þáttur af sleggjudómum og hot takes. Að lokum er vert að taka fram að þó svo að fyrstu seríu sé að ljúka með þessum þætti þá er alger óþarfi að verða leið yfir því, önnur sería hefst strax í næstu viku eins og ekkert hafi í skorist.

Heilahristingur
Tíundi þáttur

Heilahristingur

Play Episode Listen Later Sep 26, 2020

Stéttabaráttan heldur áfram í dag. Fólk í kvikmyndagerð, Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas og Jóhann Ævar Grímsson mæta liði jarðvísindamanna, sem mynda þau Sæmundur Ari Halldórsson og Vordís Eiríksdóttir.

Lestarklefinn
Logi Pedró, sýningar í Hafnarborg og umræða um erlend tímarit

Lestarklefinn

Play Episode Listen Later Sep 11, 2020

Erna Bergmann hönnuður og útgefandi, Þráinn Hauksson landslagsarkitekt og Aldís Snorradóttir verkefnastjóri hjá Listasafni Reykjavíkur eru gestir Lestarklefans í dag. Þar ræða þau við Guðna Tómasson um sýningarnar Villiblómið og Borgarhljóðvist í formi ensks lystigarðs í Hafnarborg og plötuna Undir bláu tungli með Loga Pedro.

Undirbúningur að háskólanámi í kvikmyndagerð langt kominn

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 16, 2020 130:00

Listaháskóli Íslands hefur glímt við húsnæðisvanda um árabil en starfsemi hans er dreifð um fjögur hús í tveimur póstnúmerum. Fyrir skömmu var svo greint frá því að samkvæmt frumathugun Framkvæmdasýslu ríkisins er Vatnsmýri ákjósanlegasta staðsetningin fyrir framtíðarhúsnæði Listaháskólans. Fríða Björk Ingvarsdóttir rektor Listaháskóla Íslands ræddi húsnæðismál skólans á Morgunvaktinni. Hún sagði líka frá því að Listaháskóli Íslands gerir ráð fyrir því að bjóða upp á nám í kvikmyndagerð frá haustinu 2021. Bakslag hefur orðið í norrænni samvinnu vegna kórónuveirunnar, eins og Bogi Ágústsson fór yfir þegar hann sest við Heimsgluggann eftir morgunfréttirnar klukkan átta. Hann ræddi líka um samskipti Kínverja við vestræn ríki og hlut Huawei í 5G uppbyggingunni. 250 ár eru í dag frá fæðingu eins frægasti íslenskættaði listamaður sögunnar, Bertel Thorvaldsen, fæddist. Bertel var einn helsti myndhöggvari Dana, bjó lengst af í Róm og var talinn einn fremsti myndhöggvari nýklassíska stílsins. Sigurður Trausti Traustason, safnfræðingur og deildarstjóri safneignar og rannsókna hjá Listasafni Reykjavíkur og Aldís Snorradóttir, listfræðingur og verkefnastjóri miðlunar hjá Listasafni Reykjavíkur leiða göngu tileinkaða honum í kvöld. Tónlist: Jutta Hipp - Violets for your furs, Rigning og súld - KK

Morgunvaktin
Undirbúningur að háskólanámi í kvikmyndagerð langt kominn

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 16, 2020

Mannlegi þátturinn
Íslenskt rapp, Guðrún stjórnendamarkþjálfi og póstkort frá Spáni

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 27, 2020 55:00

Við fengum í dag til okkar þau Steinunni Jónsdóttur úr hljómsveitinni Amabadama og Reykjavíkurdætrum og Atla Sigþórsson eða Kött Grá Pje, en þau eru að fara að kenna krökkum að rappa í Kramhúsinu. Þau hafa getið sér gott orð í rappheiminum, þar sem þau leika sér einmitt að orðum, rími, innrím og almennt að íslenskri tungu og teygja hana og toga í þágu góðs rapps. Við fræddumst um hvað gerir gott rapp, hvernig er staðan í íslensku rappi og hvernig þessi kennsla mun fara fram. Guðrún Snorradóttir er PCC stjórnendamarkþjálfi og hefur haldið úti stafrænni dagbók á tímum COVID 19, fyrir viðskiptavini sína og einnig til að búa til aukin tilgang í sínu eigin lífi, eins og hún segir sjálf. Hún hefur velt fyrir sér tilfinningagreind á tímum óvissu, hvernig við tökumst á við skort á trausti, hvernig það er að koma tilbaka í vinnu og ýmislegt í þessum dúr. Guðrún kom í þáttinn. Nautaat er mikið deiluefni á Spáni. Þeir sem eru því fylgjandi segja að nautaatið sé órjúfanlegur hluti af menningu og sögu spænsku þjóðarinnar. Þeir sem eru á móti segja að nautaatið sé ekkert annað en dýraníð og tíma tilkominn að leggja það niður. Frá þessum deilum var sagt í Póstkortinu frá Magnúsi R. Einarssyni á Spáni í dag. Auk þess var sagt frá sérkennilegum mótmælum gegn því hvernig ríkisstjórn Spánar hefur staðið að baráttunni gegn farsóttinni sem hefur herjað grimmilega í stærstu borgunum. Uppbyggingarstarfið er farið af stað og nú takast norður og suðurríkin í Evrópusambandinu á um hvernig skuli staðið að fjármögnun þess starfs. Verður hún í formi styrks eða láns? Þetta og fleira í póstkorti dagsins frá Spáni. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Íslenskt rapp, Guðrún stjórnendamarkþjálfi og póstkort frá Spáni

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 27, 2020

Morgunkaffið
Morgunkaffið - með gesti í síma

Morgunkaffið

Play Episode Listen Later Mar 21, 2020

Björg Magnúsdóttir og Gísli Marteinn eru í laufléttu stuði á vorjafndægrum. Engir gestir eru í húsi vegna samkomubanns og sóttvarna, en þau skötuhjú heyra í Bubba Morthens, Dröfn Ösp Snorradóttur og Helga Björnssyni í síma. Mikið af góðri tónlist og gírandi sönglögum.

Klósettkúltúr, áhrif tölvuleikja, og Genesis P.Orridge

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 16, 2020 55:00

Um helgina lést einn helsti frumkvöðull iðnaðar-tónlistarinnar Genesis Breyer P-Orridge, 70 ára að aldri. Genesis stofnaði hljómsveitirnar Throbbing Gristle og Psychic-TV sem báðar léku háværa og tilraunakennda tónlist, og vakti athygli fyrir ágenga framkomu, óvenjulegan persónuleika og óvenjulegar lýtaaðgerðir. Við ræðum þennan sérstæða tónlistarmann í Lestinni í dag. Gestir eru Curver Thoroddsen og Hilmar Örn Hilmarsson, fyrrum meðlimur Psychic TV Bjarki Þór Jónsson heldur áfram að flytja okkur pistla úr heimi tölvuleikjanna. Í sínum þriðja pistli veltir hann fyrir sér hvort skilgreina megi tölvuleiki sem menningarverðmæti og skoðar áhrif þeirra á menningu okkar og samfélag. Nokkuð hefur borið á því síðustu daga að landsmenn hamstri klósettpappír í verslunum. Eins og margir hafa bent á kemur klósettpappír ekki í veg fyrir veirusmit en að einhverju leyti kann að vera um sálfræðileg viðbrögð að ræða þar sem mannskepnan bregst við hættu með því að huga að sínum helstu grunnþörfum. Ef Íslendingar væru lengra komnir í klósettmenningu þyrfti hinsvegar enginn að hamstra. Klósettáhugakonurnar Marta Sigríður Pétursdóttir og Dröfn Ösp Snorradóttir taka sér far með Lestinni.

Lestin
Klósettkúltúr, áhrif tölvuleikja, og Genesis P.Orridge

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 16, 2020

Á mannauðsmáli
16. Guðrún Snorradóttir - Stjórnendamarkþjálfi

Á mannauðsmáli

Play Episode Listen Later Mar 3, 2020 59:07

Gestur þáttarins er Guðrún Snorradóttir. Hún starfar sem stjórnendamarkþjálfi og er nýbúin að opna eigin heimasíðu sem heitir gudrunsnorra.com. Spjallið okkar Guðrúnar einkenndist af því hverjir eru styrkleikar stjórnenda, hvernig mannlegi þátturinn er grundvöllur í árangri þeirra og hvernig kynslóðabilið getur haft áhrif á aðferðir stjórnenda til þess að ná árangri með sína starfsmenn. Svo töluðum við um hvað framtíðin ber í skauti sér hvað varðar störf, teymisvinnu og aðrar mannauðstengdar áherslur sem eru að ryðja sér til rúms í dag. Þátturinn er í boði 50skills og Origo.

Fílalag
Cry Me a River – Leyfðu mér að fljóta á kanó á stórfljóti tára þinna

Fílalag

Play Episode Listen Later Feb 21, 2020 69:56

Justin Timberlake – Cry Me a RiverGestófíll: Dröfn Ösp Snorradóttir-Rozas Hann ólst í Mikka Mús klúbbnum, missti nánast sveindóminn með svörtu eyrun á hausnum og dansaði sinn stengjabrúðudans á stjörnutorgi heimsins. En árið 2002 reis hann upp eins og heilagur Mikjáll forðum. En saga Timburvatnsins er hvorki sagan af upprisu Krists eða eilífri endurholdgun fuglsins Fönixar […]

Lestarklefinn
Óskarsverðlaun, Brot og Parasite

Lestarklefinn

Play Episode Listen Later Feb 14, 2020

Gestir Lestarklefans eru Gaukur Úlfarsson kvikmyndagerðarmaður, Gunnar Helgason rithöfundur og leikstjóri og Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas, leikmyndahönnuður. Nýafstaðin Óskarsverðlaunahátíð, þar sem Hildur Guðnadóttir hlaut verðlaun fyrir tónlistina í Joker, var til umræðu sem og kvikmyndin Parasite sem valin var besta myndin og að lokum var rætt um sjónvarpsþættina Brot. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson

Virðing í uppeldi
22. RIE fyrir fullorðna?

Virðing í uppeldi

Play Episode Listen Later Jan 8, 2020 85:23

RIE fyrir fullorðna? Við fengum þær stöllur Agnesi Ósk Snorradóttur og Köru Elvarsdóttur sjúkraþjálfara frá Hraust þjálfun í heimsókn til okkar í skrautlega upptöku þar sem þær ræddu við þrjár Guðrúnar úr hópi Meðvitaðra foreldra, Guðrúnu Ingu Torfadóttur, sem þurfti svo að hlaupa í burtu að ná vinnufundi, Guðrúnu Birnu le Sage sem stýrði þessu af stakri rósemd áfram, og loks náði Guðrún Björnsdóttir í lokin til okkar eftir lok vinnufundar hjá sér til að deila hvernig heilsan hennar hrundi nú í haust. Þetta var frábært spjall sem mætti þó draga saman með þeim hætti að væntanlegum, nýbökuðum og alls óbökuðum mæðrum og bara foreldrum yfir höfuð er réttast að huga að heilsu sinni vandlega og kveikja á merkjum líkamans. En hreyfingin þarf þó alls ekki að fara fram með offorsi heldur einmitt öfugt, að fara fram með þeim hætti að á líkamann sé hlustað, rétt eins og börnin okkar. Agnes Ósk og Kara deildu því með okkur hvernig þær tóku sjálfar U-beygju sem sjúkraþjálfarar eftir að hafa tekið upp virðingarríka uppeldishætti og í kjölfarið endurskoðað sitt eigið hugarfar og skoðað hvaða lífsstíl þær gætu haldið uppi án þess að eiga í hættu að lenda í títt nefndri kulnun. Þær Kara og Guðrún Inga eiga það sameiginlegt að hafa verið í krefjandi menntaskóla á unga aldri ásamt krefjandi dansnámi og Guðrún Birna á bakgrunn í krefjandi þjálfun í fimleikum. Það er áhugavert að bera það saman við síðan það sem RIE-fræðin kenna okkur sbr. aðra þætti í Virðingu í uppeldi. En, minna er alls ekki alltaf meira og stundum er það bara til að senda okkur á bólakaf, eins og við heyrðum af reynslusögu Guðrúnar Björnsdóttur. Og kannski er okkur öllum hollt að hafa gagnrýnið hugarfar þegar við hlustum á ráð annarra og jafnvel fagfólks, sem er eitthvað sem fæstum var kennt í æsku. Og grindarbotninn! Ekki má gleyma honum.Njótið.

Bók vikunnar
Fræ sem frjóvga heiminn

Bók vikunnar

Play Episode Listen Later Dec 22, 2019

Fjallað um bókina Fræ sem frjóvga myrkrið eftir Evu Rún Snorradóttur. Gestir þáttarins eru Einar Kári Jóhannsson bóksali og bókaútgefandi og Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir leikkona. Umsjón: Jórunn Sigurðardóttir.

Svanafólkið, Skrauthvörf, Opening Ceremony og Fræ sem frjógva

Víðsjá

Play Episode Listen Later Dec 17, 2019 55:00

Í Víðsjá í dag rýnir Gauti Kristmannsson í skáldsöguna Svanafólkið eftir Kristínu Ómarsdóttur. Flutt verður tónverkið Skrauthvörf, sem frumflutt var á Tónlistarhátíð Rásar 1 - Orðin hljóð - sem fram fór í Norðurljósasal Hörpu í lok nóvembermánaðar. Verkið er samstarfsverkefni Kjartans Holms og Jóhannesar Ólafssonar, Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Strokkvartettinn Siggi flytja. María Kristjánsdóttir fjallar í dag um leikverkið Opening Ceremony, sem nýtt sviðslistafyrirtæki, Reykjavik Ensemble, frumsýndi í Tjarnarbíói í síðustu viku. Og bók vikunnar að þessu sinni er ljóðabókin Fræ sem frjóvga myrkrið eftir Evu Rún Snorradóttur en Eva hlaut Maístjörnuna, viðurkenningu Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafnsins, fyrir þessa bók fyrr á þessu ári. Hlustendur heyra í Evu í Víðsjá í dag. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson

Reykjavík Creative Hub
Kvikmyndaframleiðendur: Lilja Ósk Snorradóttir & Anton Máni Svansson

Reykjavík Creative Hub

Play Episode Listen Later Oct 19, 2019 91:08

Hlaðvarp ASÍ
Ný rannsókn um einelti og áreitni á vinnustöðum - Ásta Snorradóttir

Hlaðvarp ASÍ

Play Episode Listen Later Sep 30, 2019 16:54

Valdbeiting á vinnustað – rannsókn á algengi og eðli áreitni á íslenskum vinnumarkaði, er heiti nýrrar skýrslu sem félagsmálaráðuneytið lét vinna en innihald hennar var m.a. til umfjöllunar á stóru alþjóðlegu Metoo ráðstefnunni í Hörpu í september 2019. Ásta Snorradóttir lektor í félagsráðgjöf við HÍ, ræðir hér innihald skýrslunnar.

Morgunútvarpið
Einelti, bráðadeild, Arnar Gunnlaugs, bensínverð o.fl.

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 16, 2019 130:00

Rúmlega tveir af hverjum tíu hafa orðið fyrir einelti á vinnustað og eru konur líklegri en karlar til að greina frá því. Þetta er meðal niðurstaðna aðgerðarhóps stjórnvalda sem Ásta Snorradóttir situr í en hún kynnir niðurstöðurnar á alþjóðlegri ráðstefnu í Hörpu sem hefst á morgun. Ásta var á línunni, en ráðstefnan er haldin þar sem nú eru tvö ár liðin frá því að MeToo-byltingin hófst. Hjalti Már Björnsson, kennslustjóri bráðalækninga á LSH, kom til okkar, en á dögunum var greint frá því að spítalinn má framvegis bjóða upp á framhaldsnám í bráðalækningum. Við ræddum það og ástandið á bráðadeildinni en hjúkrunarfræðingurinn Elín Tryggvadóttir steig fram um helgina og skrifaði pistil um aðstæður á deildinni sem séu niðurlægjandi fyrir sjúklinga sem þurfa í sumum tilfellum að afklæðast á göngunum vegna plássleysis. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, fagnaði sigri með sínum mönnum í bikarkeppninni á laugardag eftir sigur á FH. Þetta var fyrsti bikartitill Víkinga síðan 1971 og Arnar kom í heimsókn til okkar. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, kom til okkar, en mikil umræða hefur verið að undanförnu um veggjöld á höfuðborgarsvæðinu og stefnir í að áform um slíkt verði kynnt á næstu dögum. Einnig má búast við að bensínverð hækki á næstunni vegna árása á olíuvinnslustöðvar í Sádí Arabíu eins og fram kom í fréttum um helgina. Við fórum yfir íþróttir helgarinnar með íþróttadeildinni.

Morgunútvarpið
Einelti, bráðadeild, Arnar Gunnlaugs, bensínverð o.fl.

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 16, 2019

Laxness, Lókal, Geirlaugur og Pike Ward

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 11, 2019 55:00

Alþjóðlega leiklistarhátíðin Lókal hefst um helgina, en þetta er í ellefta sinn sem hátíðin er haldin. Hátíðin var fyrst haldin árið 2008 og þar hefur verið lögð áhersla á að bjóða upp á það markverðasta sem er að gerast í samtímaleikhúsi hér heima og í löndunum í kringum okkur. Að þessu sinni er hátíðin helguð verkum í vinnslu, verkum sem staðsett eru í miðju rannsóknar- eða þróunarferli. Eva Rún Snorradóttir, listrænn stjórnandi Lókal, og Ragnar Ísleifur Bragason, sviðslistamaður, verða gestir Víðsjár í dag og segja frá Lókal. Litið verður við í Þjóðminjasafni Íslands þar sem nú stendur yfir sýning á ljósmyndum eftir breska fiskaupmanninn Pike Ward sem var á Íslandi um aldamótin 1900, rætt verður við Ingu Láru Baldvinsdóttur fagstjóra ljósmynda í safninu. Á dögunum komu út nýjar útgáfur á tveimur þekktustu skáldsögum Halldórs Laxness, Sölku Völku og Sjálfstæðu fólki, sem ætlaðar eru framhaldsskólanemum. Útgáfurnar eru með venjulegri nútímastafsetningu og orðskýringum. Í Víðsjá í dag verður spurt: Er ungt fólk hætt að geta lesið verk Laxness án neðanmálsgreina, og útskýringa? Fyrir svörum verður Oddný Sigurrós Jónsdóttir sem ritstýrir þessum nýju útgáfum. Og Gauti Kristmannsson bókmenntagagnrýnandi Víðsjár fjallar í dag um nýútkomið ljóðaúrval Geirlaugs Magnússonar, 100 ljóð. Umsjón: Eiríkur Guðmundsson og Guðni Tómasson.

Fram og til baka
Fram og til baka 16. júní 2019

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Jun 16, 2019 114:00

Umsjón Felix Bergsson Lag dagsins - Vorið kemur, Diddú af plötu Valgeirs Guðjónssonar Vikivaki Fimman - Elísabet Ormslev Fimm girl power plötur sem ég hef hlustað mest á og orðið fyrir mestum áhrifum. Anti - Rihanna Lag: Desperado Lemonade - Beyoncé Lag: Daddy Issues Spice - Spice Girls Lag: 2 Become 1 Baby One More Time - Britney Spears Lag: Born to make you happy Falling into you - Celine Dion Make You Happy Umfjöllun - hringja í Árbæjarsafn. Heimilisiðnaðardagurinn Sólveig Theódórsdóttir fyrrv formaður Heimilisiðnaðarfélgasins Fréttagetraun - sigurvegari Guðný Snorradóttir í Mosfellsbæ

Fram og til baka
Fram og til baka 16. júní 2019

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Jun 16, 2019

Umsjón Felix Bergsson Lag dagsins - Vorið kemur, Diddú af plötu Valgeirs Guðjónssonar Vikivaki Fimman - Elísabet Ormslev Fimm girl power plötur sem ég hef hlustað mest á og orðið fyrir mestum áhrifum. Anti - Rihanna Lag: Desperado Lemonade - Beyoncé Lag: Daddy Issues Spice - Spice Girls Lag: 2 Become 1 Baby One More Time - Britney Spears Lag: Born to make you happy Falling into you - Celine Dion Make You Happy Umfjöllun - hringja í Árbæjarsafn. Heimilisiðnaðardagurinn Sólveig Theódórsdóttir fyrrv formaður Heimilisiðnaðarfélgasins Fréttagetraun - sigurvegari Guðný Snorradóttir í Mosfellsbæ

Landspítali hlaðvarp
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða - Andri Konráðsson, Gylfi Ólafsson og Kristjana Milla Snorradóttir

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Jun 12, 2019 62:24

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða sér um alhliða heilbrigðisþjónustu í fimm sveitarfélögum á Vestfjörðum eða nánar tiltekið Bolungarvík, Ísafirði, Súðavík, Tálknafjarðarhreppi og Vesturbyggð. Um er að ræða sjúkrahús, heilsugæslur og öldrunarþjónustu, sem saman mynda stærsta einstaka vinnustað Vestfjarða með 250 starfsmenn. "Sjúkrahús allra landsmanna" var yfirskrift ársfundar Landspítala vorið 2019, en þar var meðal annars fjallað um aukið samstarf og vilja til meiri samþættingar í íslenska heilbrigðiskerfinu. Í þeim anda brugðu útsendarar fréttastofu Landspítala sér vestur á firði á dögunum í þeim erindagjörðum að taka upp hlaðvarp og framleiða nokkrar fréttir um starfsemi hinnar framsæknu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Þau Andri Konráðsson framkvæmdastjóri lækninga, Gylfi Ólafsson forstjóri og Kristjana Milla Snorradóttir mannauðs- og rekstrarstjóri sem segja hér frá vinnustaðnum og verkefnum hans, ásamt því að gefa smávegis innsýn í bakgrunn sinn og uppruna. Það er Stefán Hrafn Hagalín sem ræðir við Andra, Gylfa og Millu. Upptöku annaðist Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en líka í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict.

Lestarklefinn
Game of Thrones, Hverra manna ertu? og Fræ sem frjóvga mykrið

Lestarklefinn

Play Episode Listen Later May 31, 2019

Umræðuefni þáttarins var Game of Thrones, ný sýning Huldu Hákon í Listasafni Íslands sem nefnist Hverra manna ertu? og ljóðabók Evu Rúnar Snorradóttur Fræ sem frjóvga myrkrið. Gestir þáttarins voru Arngrímur Vídalín, Elín Edda Pálsdóttir og Þórunn Hjartardóttur. Umsjón: Kristján Guðjónsson

Hismið - Eurovision í Egilshöll 2020?

Hismið hlaðvarp

Play Episode Listen Later May 16, 2019 75:05

Konan með stóra nafnið, Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas, eða DD Unit, er gestur þáttarins að þessu sinni og uppfræðir strákana um nýjustu stefnur og strauma í mat, þriðju kaffibylgjuna og heitustu sögurnar, slúðrið og bestu hverfin í Hollywood þar sem DD býr. Farið er yfir flugferðir þingmanna, nýjan forstjóra IKEA sem vann sig upp úr því að vera kerrustrákur 1987, hvað gerist ef Hatari vinnur Eurovision og hvort Simmi Vill fái að halda keppnina í Egilshöllinni.

Morgunkaffið
Morgunkaffið - DD Unit & Fannar Sveins

Morgunkaffið

Play Episode Listen Later Jan 26, 2019

Gísli Marteinn og Björg vöknuðu með hlustendum Rásar 2 og fylgdu þeim út í þennan dásamlega laugardag venju samkvæmt. Fastir liðir voru á sínum stað, góð músík, fréttir vikunnar í tali og tónum og sitthvað fleira. Dröfn Ösp Snorradóttir-Rozas starfsmaður leikmyndadeildar í LA og lífskúnstner og Fannar Sveinsson fjölmiðlamaður og leikstjóri mættu í morgunkaffi og fóru yfir sviðið. Eurovision, matarpælingar, kaffi, barnauppeldi, Ísland og útlönd og fleira og fleira bar á góma.

Binge and Purge the Podcast

It's Season 2 Episode 15 (Shortcomings), and it's a good one! Our surprise guest came all the way from Iceland (even though she technically lives here), and we've been talking about her forever. Please welcome the incomparable Dröfn Ösp Snorradóttir-Rozas! Join us while we discuss the second coming (pun sort of intended) of Justin Theroux, Samantha's one-liners, and the Red Dragon's workout habits. I've already forgotten Charlotte's storyline. 

Morgunútvarpið
Kokkalandsliðið, hákarlanammi, kannabis, samfélagsmiðlafíkn o.fl.

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Nov 26, 2018 120:00

Íslenska kokkalandsliðinu hefur gengið vel á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í Lúxemborg. Að baki liggur mikill undirbúningur og uppskeran því sérlega ánægjuleg. Við slógum á þráðinn til Lúxemborgar og heyrðum í Ylfu Helgadóttur matreiðslumeistara, þjálfara liðsins. Geir Konráð Theodórsson uppfinningamaður í Borgarnesi hefur búið til versta nammi í heimi að eigin sögn. Um er að ræða vegan hákarlanammi og segir Geir miklar og ítarlegar bragðprófanir að baki, sem að mestu hafi bitnað á fjölskyldunni, en nú sé framleiðsla hafin. Við heyrðum í Geir. Píratar vilja að Alþingi álykti um að heilbrigiðsráherra undirbúi og leggi fram frumvarp um notkun og framleiðslu lyfjahamps. Í daglegu tali er talað um kannabis í lækningarskyni og telja þingmennirnir að líta þurfi til rannsókna og reynslu nágrannalanda. Halldóra Mogensen, fyrsti flutningsmaður, sagði á Stöð 2 um helgina að ekki ætti að gera fólk að glæpamönnum fyrir að nýta sér kannabis í veikindum sínum. Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga hjá Landsspítalanum, kom til okkar og ræddi þetta mál. Í þættinum Sítengd, sem sýndur var í sjónvarpinu í gær kom glögglega fram hversu háð fólk getur orðið samfélagsmiðlum. Halldóra Snorradóttir, menntaskólanemi, sagði þar sögu sína og einnig var rætt við Eyjólf Örn Jónsson, sálfræðing. Þau komu til okkar og fóru nánar yfir þetta. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður leit við og við fórum yfir þau svakalegu læti sem eru í kringum viðureign argentínsku liðanna River Plate og Boca Juniors í meistardeild S-Ameríku. Tónlist: Emilíana Torrini - Blame it on the sun. Rag N Bone Man - Human. Justin Timberlake og Michael Jackson - Love never felt so good. Bryan Ferry - Don't stop the dance. Drangar - Bál. Warmland - Nicest. Amabadama - Dágóða stund. Lenny Kravitz - It aint over til its over. Johnny Marr - Spiral cities.

Lestin
Eva Rún Snorradóttir, Making A Murderer, Töfrafjallið, Blood on the Tr

Lestin

Play Episode Listen Later Nov 5, 2018 53:59

,,Núna þurfum við, á góðlátlegan hátt, að hætta að bera virðingu fyrir ákveðnum leiðum, ákveðnum hugsunum, hefðum, og huga að því sem við höfum þaggað niður'' segir Eva Rún Snorradóttir, sviðslistakona og ljóðskáld um karllæga skekkju og feðraveldið. Eva gaf nýverið út sína þriðju ljóðabók; Fræ sem frjóvga myrkrið. Við heimsóttum Evu eldsnemma í morgun, fengum að skyggnast inn í hugarheim hennar. Við ræddum meðal annars niðursoðna snáka, gamalgróna siði og hefðir, reiði, og margt margt fleira. Meira um það í þætti dagsins. Heimildaþættirnir Making a Murderer ullu miklum usla með fyrstu þáttaröð sinni þar sem fjallað var um gölluð réttarhöld yfir Steven Avery og Brendan Dassey. Nú hefur önnur þáttaröð þessarar seríu verið frumsýnd. En hefur hún einhverju við að bæta? Áslaug Torfadóttir skoðar málið í Lestinni í dag. Birna Bjarnadóttir bókmenntafræðingur mælir með bók sem hlustendur ættu að lesa hér og nú og fallegasta lag í heimi hljómar í hljóðkerfi Lestarinnar í dag. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson

Samfélagið
Heimsmarkmið og fyrirtæki, jákvæð sálfræði, málfar og rjúpnaveiðiundir

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 24, 2018 55:00

Fanney Karlsdóttir, formaður verkefnastjórnar stjórnvalda um heimsmarkmiðin og Þorsteinn Kári Jónsson hjá Marel: Fjallað um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og það verkefni íslenskra fyrirtækja að innleiða þau. Guðrún Snorradóttir formaður félags um jákvæða sálfræði: Hvað er jákvæð sálfræði, inntak hennar og erindi? Hefur hún vísindalegt gildi? Málfarsmínúta Jónas Guðmundsson Landsbjörgu: Rjúpnaveiðitímabilið er að hefjast og Jónas fer yfir það helsta sem rjúpnaskyttur þurfa að hafa í huga svo ekki þurfi að senda út leitarflokka.

R1918
Ég ávarpa þig kæri

R1918

Play Episode Listen Later May 7, 2018

Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Ása Björk Snorradóttir myndmenntakennari og leiðsögumaður úr bréfi sem Kristrún Eyjólfsdóttir, húsfreyja í Gröf, sendi syni sínum, Steindóri Björnssyni leikfimikennara og efnisverði Landsímans árið 1918. Ásta sem talað er um í bréfinu er Þórunn Ástríður Björnsdóttir, sem var nemandi við Kvennaskólann frá hausti 1918 og bjó með systrum sínum að Tjarnargötu 8b. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.

Málið er

Í þrettánda þætti af Málið er kannar Viktoría Hermannsdóttir kattaheiminn á Íslandi. Kettir hafa fylgt manninum frá örófi alda og sérstakt samband skapast milli katta og manna. Við tölum við fólk sem hefur að einhverju leyti tileinkað líf sitt köttum og heyrum óvenjulegar og skemmtilegar sögur af köttum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir Viðmælendur: Halldóra Snorradóttir Ragnheiður Gróa Hafsteinsdóttir Hanna Ólafsdóttir Gígja Sara Björnsson

Englaryk
Englaryk 1 - Skandalar og sandalar - fyrsti Englaryksþátturinn ever frá 31.des,2014

Englaryk

Play Episode Listen Later Dec 31, 2014 59:57

Dægurmenning og slúður beint í æð. Dröfn Ösp Snorradóttir-Rozas aka DD Unit, sem starfar í kvikmyndabransanum í Hollywood og Hanna Eiríksdóttir aka Hotpants, kynningarstýra í Reykjavík, renna yfir helstu tíðindi líðandi stundar. Fyrsti þáttur af Englayki er er með frábrugðnu sniði. Dröfn og Hanna renna yfir þær fréttir sem þeim fannst bera af á árinu sem er að líða. Hver er skúrkur ársins? Hvað gerðist í lyftunni á milli Jay-Z og Solangé Knowles? Þessum spurningum sem og öðrum verðum svarað í fyrsta Englaryks þættinum.