Þáttur þar sem er fjallað um handbolta frá öllum hliðum bæði hérlendis og erlendis
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust niður við hljóðpípuna á nýjan leik og forum um víðan völl í umræðu sinni um handboltann frá öllum hliðum. Þeir hófu yfirferð sína á því að líta á stöðu mála í Olísdeild karla þar sem þeir voru sammála um að Afturelding væri að koma þeim einna mest á óvart í vetur. Þá upplýstu þeir um að Harðverjar væru búnir að semja við rússneska skyttu Alexander Tatarintsev sem hefur meðal annars leikið með spænska liðinu Ademar Leon. Í framhaldinu ræddu þeir mikið um stöðu handboltans í dag með hliðsjón af deildarfyrirkomulagi og þeir telja að úrbóta sé þörf og víða sé pottur brotinn.
þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í dag. Í þættinum fjölluðu þeir um leiki 3 og 4 í úrslitum Olísdeildar kvenna. Í leik 3 voru Framkonur ákveðnari og fóru með sigur af hólmi og munaði mest um að Hafdís Renötudóttir markvörður Fram átti flottan leik og var með um 40% markvörslu. Leikur 4 var dálítið kaflaskiptur en Fram var þó ávallt með frumkvæðið, síðustu tíu mínútur leiksins voru þó æsispennandi en safamýrarliðið hafði þó betur að lokum og unnu sinn 23. Íslandsmeistaratitil. Strákarnir hrósuðu Karen Kútsdóttur fyrir frábæra frammistöðu í úrslitaeinvíginu og hún sýndi öllum að hún er besti leikstjórnandi landsins og gerir heldur betur tilkall til þess að vera leikstjórnandi númer 1 í A-landsliðið kvenna. Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar óskar Framkonum til hamingju með titilinn.
þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í dag. Í þættinum fjölluðu þeir um leikir 3 og 4 í úrslitum Olísdeildar karla. Í leik 3 voru það eyjamenn sem köstuðu frá sér unnum leik á síðustu tíu mínútum leiksins og undir lok hans átti sér stað umdeilt atvik þar sem að ruðningur var dæmdur á eyjamenn. Strákarnir voru ekki sammála um réttmæti dómsins líkt og aðrir landsmenn. Spennan var svo í algleymingi í leik 4 þar sem að Valsmenn höfðu þó frumkvæðið og fóru að lokum með sigur og tryggðu sér þar með Íslandsmeistaratitilinn. Strákarnir hrósuðu Snorra Steini þjálfara Vals sérstaklega en hann hefur greinilega farið í einhvers konar naflaskoðun og er orðinn miklu yfirvegaðari á bekknum og hættur að pirra sig á hlutum sem hann getur ekki stjórnað líkt og dómgæslu. Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar óskar Valsmönnum til hamingju með titilinn. Að lokum fóru þeir félagar yfir víðan völl og t.d. ræddu þeir það hvort að handboltinn þyrfti að finna sér annan samstarfsaðila þegar kemur að útsendingum frá deildunum því núverandi rétthafi væri ekki að sinna handboltanum eins og þeir ættu að gera að mati þáttastjórnenda.
þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í dag. Í þættinum fjölluðu þeir um fyrstu 2 leikina í úrslitum Olísdeildar karla þar sem að var um að ræða heldur betur ólíka leiki frá öllum hliðum séð. Í fyrsta leiknum voru eyjamenn bara hreinlega líkt og áhorfendur í fyrri hálfleik en náðu þó að eins að rétta hlut sinn í seinni hálfleik. Dómgæslan var heldur ekki burðug í þeim leik. Allt annað var uppá teningunum í leik 2 þar sem að ÍBV náði að svara fyrir sig en þar var Björn Viðar markvörður eyjamanna heldur betur í stuði og hélt sínum mönnum inní leiknum. Þeir félagar hrósuðu þó dómurunum sérstaklega en að þeirra mati dæmdu þeir Anton og Jónas leikinn óaðfinnanlega. Drenginrnir fóru einnig yfir einvígi Fram og Vals í úrslitum Olísdeildar kvenna þar sem 2 leikir eru einnig búnir. Þeir voru gríðarlega ánægðir með spennuna sem er í þessu einvígi og spá því að þetta muni fara í oddaleik en þeir treystu sér þó ekki til þess að spá til um hvaða lið myndi standa uppi sem Íslandsmeistari. Að lokum fóru þeir yfir nýjustu fréttir og slúður í handboltaheiminum en það er allt að fara í gang á félagaskiptamarkaðunum þessa daganna.
þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í dag. Í þættinum fjölluðu þeir um leiki 3 í undanúrslitum karla þar sem að Haukum tókst að halda lífi í einvíginu gegn ÍBV en Selfoss féll úr leik eftir að hafa tapað einvíginu gegn Val 3-0. Þá fóru þeir yfir leiki 2 í undanúrslitum kvenna þar sem að KA/Þór jafnaði einvígið gegn Val með sigri á heimavelli sínum fyrir norðan. Fram er hins vegar komið í 2-0 gegn ÍBV. Að lokum fóru þeir yfir nýjustu fréttir og slúður í handboltaheiminum en það er allt að fara í gang á félagaskiptamarkaðunum þessa daganna.
Í þætti kvöldsins fjölluðu við um leiki 2 í undanúrslitum karla þar en eftir þá má með sanni segja að Haukar og Selfoss séu komnir með bakið upp við vegg þar sem liðin eru komin 2-0 undir í einvíginu. Þá fórum við aðeins yfir leik Fjölnis og ÍR í umspili um laust sæti í Olísdeild karla á næstu leiktíð. Að lokum leiðréttum við rangfærslur sem við fórum með í síðasta þætti.
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar gáfu út sinn fertugasta þátt vetrarins í dag. Í þætti dagsins fóru þeir yfir fyrstu leikina í undanúrslitunum í Olísdeild karla þar sem að þeim þykir vera einhvert andleysi yfir liði Hauka sem þeim líst ekki næginlega vel á. Þá voru þeir sammála um að Valur væri einfaldlega of stór biti fyrir Selfoss. Þá kíktu þeir á úrslitakeppnina í Olísdeild kvenna þar sem þeir rýndu í undanúrslitin. Gestur spáði því að KA/Þór og ÍBV myndu leika til úrslita í vor og þá hófust miklar pælingar með það hvenær það hefði gerst síðast að hvorki Fram né Valur væri í úrslitarimmunni. Þáttastjórnendum sagði sá hugur að það væri líklega tímabilið 2007/2008 sem það hefði gerst en þó sagt án ábyrgðar. Undir lok þáttar fóru þeir svo aðeins yfir ársþing HSÍ þar sem mesti tíminn fór í að ræða útbreiðslustarf og þeir félagar vilja sjá skýrari stefnu hjá HSÍ í þeim málum að breiða út íþróttina í ný bæjarfélög.
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klakastúdíóið sitt í dag og tóku upp sinn þrítugasta og níunda þátt á þessu tímabili. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson Í þætti dagsins fóru þeir yfir 8-liða úrslitin í Olísdeild karla þar sem þeir voru heldur betur ekki ánægðir með frammistöðu Stjörnumanna og fannst þeim hún endurspegla leik liðsins í vetur þar sem þeir hafa hreinlega ekki verið að standa undir væntingum að þeirra mati. Þá völdu þeir BK leikmenn einvíganna og munu svo setja af stað kosningu á samfélagsmiðlum sínum um það hvaða leikmaður er BK leikmaður 8-liða úrslitanna. Þeir leikmenn sem koma til greina eru Ólafur Gústafsson KA, Arnór Viðarsson ÍBV, Magnús Óli Magnússon Val og Hergeir Grímsson Selfossi. Þeir félagar spáðu svo í spilin fyrir undanúrslitin þar sem að spá því að Valur og ÍBV sigra einvígin og leika til úrslita.
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klakastúdíóið sitt í dag eftir langa fjarveru og tóku upp sinn þrítugasta og áttunda þátt á þessu tímabili. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson Í þætti dagsins fóru þeir yfir lokastöðuna í Olísdeild karla þar sem þeir fóru yfir hvernig hún var á móti spá þeirra félaga í haust. Þá spjölluðu þeir um það sem þeim fannst koma á óvart í vetur bæði jákvætt og neikvætt. Þá spáðu þeir aðeins í úrslitakeppnina sem hefst eftir viku og þar voru þeir félagar sammála um að það yrði hörkuskemmtun. Þá fóru þeir einnig yfir málin í Grill66 deild karla þar sem að Hörður frá Ísafirði urðu deildarmeistarar. Þar fóru þeir yfir umspilið sem er framundan um laust sæti í Olísdeild karla á næstu leiktíð og þar voru þeir ekki alveg sammála um hvaða lið það yrði sem myndi hreppa það sæti. Að lokum fóru þeir yfir landsleikina sem eru framundan gegn Austurríki og þar voru þeir sammála um að íslenska liðið myndi komast áfram úr því umspili.
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klakastúdíóið sitt í dag og tóku upp sinn þrítugasta og sjöunda þátt á þessu tímabili. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange og Gestur Guðrúnarson. Í þætti dagsins fóru þeir yfir undanúrslitaleikina í Coca-Cola bikar karla og kvenna. Þá rýndu þeir í úrslitaleikina sem fara fram síðar í dag. Þeir félagar eru sammála um að það verði hörku viðureign í kvennaflokki þegar að Valur og Fram mætast þar sem að þeir telja að úrslitin munu ráðast á loka andartökum leiksins. Þeir voru ekki eins samstíga um karla leikinn þar sem að Valur og KA eigast við, Jói telur að Valsmenn eigi eftir að sigra þennan leik auðveldlega en Gestur var hins vegar ekki sammála því og telur að þetta verði hörkuleikur. Að lokum tóku þeir félagar smá spjall um málefni Selfoss þar sem að þar hefur ýmislegt komið í ljós eftir að síðasta þætti lauk og þá fóru þeir aðeins yfir málefni A-landsliðs kvenna.
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klakastúdíóið sitt í kvöld og tóku upp sinn þrítugasta og sjötta þátt á þessu tímabili. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange og Arnar Gunnarsson. Í þætti dagsins fóru þeir yfir leikina í 15.umferð í Olísdeild karla ásamt því að fara yfir 16- og 8-liða úrslit í Coca Cola bikar karla og kvenna. Þá fóru þeir yfir málefni Selfyssinga en sögur herma að handknattleiksdeildin sé á bjarmi gjaldþrots. Samkvæmt heimildum skulda þeir um 30 milljónir og hafa tilkynnt leikmönnum að þeim sé frjálst að finna sér ný lið á næstu leiktíð. Að lokum fóru þeir yfir leikina sem eru framundan hjá kvennalandsliðinu en þær spila tvö leiki gegn Tyrklandi í næstu viku. Þáttastjórnendur furðuðu sig á því að það sé ekki pláss fyrir Karen Knútsdóttur í liðinu að þessu sinni en hún er ekki valin vegna þess að hún hafði skoðanir á sóknarleik liðsins.
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klakastúdíóið sitt í kvöld og tóku upp sinn þrítugasta og fimmta þátt á þessu tímabili. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur Guðrúnarson, Jói Lange og Arnar Gunnarsson. Í þætti dagsins gerðu þeir Evrópumótið upp þar sem þeir voru sammála því að mótið hafi heppnast vel svona ef frá er tekið covid málin. En handboltalega hafi mótið verið spennandi og góð auglýsing fyrir handboltann. Þeir ræddu svo aðeins framtíð íslenska liðsins og þeir voru allir sammála því að það væri góður tímapunktur núna að fá nýja og ferska vinda í brúnna og þeir voru spenntir fyrir því að reyna að fá Dag Sigurðsson að borðinu. Þá fóru þeir aðeins yfir það sem væri að frétta af málum innanlands en það styttist í það að keppni í Olísdeild karla hefjist á ný. Stærsta fréttin er líklega sú að það fréttist af fundi á Akureyri þar sem menn eru að ræða það að sameina KA og Þór á ný og verður spennandi að fylgjast með framvindu þess máls. Að lokum fóru þeir yfir hver hefði verið sigurvegari í getraunaleik þeirra og BK Kjúklings. En að þessu sinni var það Svanur Bjarki Úlfarsson sem giskaði á rétt úrslit og hann fær 2 gjafabréf á BK kjúkling að launum.
Þrítugasti og fjórði þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í kvöld. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur Guðrúnarson, Jói Lange og Arnar Gunnarsson. Í þætti dagsins fóru þeir yfir leik Íslands og Noregs um fimmta sætið þar sem að Noregur hafði betur eftir framlengdan leik. Þeir félagar voru ánægðir með baráttuna í íslenska liðinu og voru virkilega ánægðir með að liðið skyldi aldrei gefast upp. Þeir voru sáttir með framlag leikmanna í leiknum og voru sérstaklega hrifnir af Janusi í leiknum og völdu hann sem BK leikmann leiksins. Þeir voru heilt yfir ánægðir með gengi liðsins á þessu móti og að nokkrir leikmenn liðsins sýndu að þeim er vel treystandi til þess að koma inná og leysa af í 10-15 mínútur og að Guðmundur Guðmundsson þurfi ekki að vera hræddur við að hreyfa við mannskapnum. Þá ræddu þeir aðeins úrslitaleikinn sem er framundan og voru sammála því að það yrðu Svíar sem myndu standa uppi sem sigurvegarar að þessu sinni. Þá tilkynntu þeir um þann sem fékk BK gjafabréf í getraunaleiknum en að þessu sinni var það Árni Rúnar, formaður handknattleiksdeildar Þórs sem fékk gjafabréfið.
Þrítugasti og þriðji þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í kvöld. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur Guðrúnarson, Jói Lange og Arnar Gunnarsson. Í þættinum að þessu sinni fóru þeir félagar yfir leik Íslands og Svartfjallalands þar sem að íslenska liðið mætti af miklum krafti til leiks og gerðu útum leikinn fljótlega. Þeir félagar hrósuðu leikmönnum liðsins fyrir það hvernig þeir mættu til leiks en hins vegar fannst þeim að Guðmundur hefði mátt rúlla meira á liðinu sér í lagi þar sem að forystan var örugg mest allan tímann. Leikmenn eins og Teitur Einarsson og Kristján Kristjánsson hefðu mátt fá meira en fimm mínútur í þessum leik. Vonbrigði umsjónarmanna með úrslitin úr leik Dana og Frakka leyndu sér ekki en þeir voru sammála því að það er aldrei gott að þurfa treysta á aðra og draumurinn um undanúrslitin hefðu í raun horfið eftir tapið gegn Króötum. Framundan er leikur við Noreg um 5.sætið á mótinu og það er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir framhaldið í framþróun íslenska liðsins því 5.sætið gefur öruggt sæti á HM sem og möguleika á því að fá sæti í forkeppni Ólympíuleikanna.
Þrítugasti og annar þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í kvöld. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur Guðrúnarson, Jói Lange og Arnar Gunnarsson. Í þættinum að þessu sinni fóru þeir félagar yfir leik Íslands og Króatíu þar sem að íslenska liðið tapaði með eins marks mun. Þeim félögum fannst íslenska liðið vera langt frá sínu besta í þessum leik og það væri engu líkara en að orkan væri farin að tæmast hjá nokkrum leikmönnum íslenska liðsins. Umsjónarmenn þáttarins halda þó enn í vonina um sæti í undanúrslitum og þeir eru vissir um að íslenska liðið geri sitt með því að vinna Svarfjallaland á miðvikudaginn. En þeir voru þó ekki eins sammála um það hvort að Danir muni klára sitt verkefni.
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í dag í Klaka stúdíóið sitt og tóku upp sinn þrítugasta og fyrsta þátt.. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur Guðrúnarson, Jói Lange og Arnar Gunnarsson. Í þætti dagsins fóru þeir yfir stórbrotna framistöðu íslenska liðsins gegn Frökkum í gærkvöldi þar sem að strákarnir okkar unnu sannfærandi 29-21. Þeir félagar voru sammála því að þetta var ein besta frammistaða í sögu íslenska karlalandsliðsins og gátu þeir ekki hætt að hrósa framlagi leikmanna í þessum leik. Leikmenn höfðu sýnt það að breiddin væri svo sannarlega til staðar hjá liðinu og væri fróðlegt að fygjast með liðinu í framhaldinu. Strákarnir í þættinum leyfðu sér aðeins að fabúlera um framhaldið og þeir eru sannfærðir um það að íslenska liðið væri að fara spila í undanúrslitum á föstudaginn og gengu þeir svo langt að hvetja úrval útsýn til þess að fara skipuleggja ferð út til Búdapest um næstu helgi
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í kvöld í Klaka stúdíóið sitt og tóku upp sinn þrítugasta þátt. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur Guðrúnarson, Jói Lange og Arnar Gunnarsson. Í þætti dagsins fóru þeir yfir leik Íslands og Danmerkur á EM þar sem að íslenska liðið tapaði sínum fyrsta leik á mótinu. Þeir félagar voru sammála því að strákarnir börðust hetjulega en þeir máttu ekki mikið við öflugu liði Dana þar sem að helsti munur á liðunum lá í markvörslunni. Þá skoðuðu þeir aðeins framhaldið hjá liðinu og þeir sjá fyrir sér að næsta verkefni gegn Frökkum gæti orðið strembið en voru hins vegar sammála því að liðið gæti sigrað Króata og Svartfellinga og því myndu því ná að spila um 5.sætið í mótinu. Því miður var enginn með rétt gisk á úrslitin í getraunaleiknum en Gestur og Jói ákváðu að gefa Arnari gjafabréfið á BK þar sem að hann hefur spáð rétt til um úrslit síðustu tveggja leikja.
29.þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í dag þar sem að þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson settust í Klaka stúdíóið sitt. Í þættinum að þessu sinni krufðu þeir félagar leik Íslands – Ungverja þar sem að þeir voru gríðarlega ánægðir með þá ákvörðun Gumma að bakka með vörnina og töldu þeir að það hafi verið lykillinn að sigri íslenska liðsins. Þá rýndu þeir í framhaldið hjá strákunum okkar en þeir telja möguleikanna í milliriðlinum vera ágæta og gengu þeir Jói og Gestur svo langt að spá liðinu alla leið í undanúrslit. Þá tilkynntu þeir um sigurvegarann í getraunaleik sínum en að þessu sinni voru það tvær sem giskuðu á rétt úrslit og það voru þau Veigar Þórður Siguðrsson og Berglind Ýr Gylfadóttir og fá þau gjafabréf á BK Kjúkling að launum. Undir lok þáttarins hrósuðu þeir vefsíðunni handbolti.is fyrir þeirra framlag í handboltaumfjölluninni hér á mótinu og vildu þeir hvetja allt handboltafólk um að vera duglegt við að fara inná síðuna og eins að styðja við bakið á síðunni.
28.þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í kvöld þar sem að þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson settust í Klaka stúdíóið sitt. Í þættinum að þessu sinni krufðu þeir félagar leik Íslands – Hollendinga þar sem að þeir félagar voru sammála að íslenska liðið mátti prísa sig sæla með sigurinn í leiknum þar sem að þeir gerðu sér lífið erfitt með kaflaskiptum leik. Þá rýndu þeir í framhaldið hjá strákunum okkar en þeir telja verkefnið gegn Ungverjum gæti orðið strembið sér í lagi þar sem að það verður fullt höll á bandi heimamanna í leiknum. Að lokum tilkynntu þeir um sigurvegarann í getraunaleik sínum en að þessu sinni voru það tvær sem giskuðu á rétt úrslit og það voru þær Elva Hannesdóttir og Linda Björk Ómarsdóttir og fá þær gjafabréf á BK Kjúkling að launum
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar komu sér fyrir í Klaka studíóinu sínu í kvöld og tóku upp sinn 27.þátt. Stjórnendur þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson. Þeir félagar krufðu leik Íslands og Portúgals til mergjar ásamt því að rýna í framhaldið hjá strákunum okkar í mótinu. Þá tilkynntu þeir hver það var sem vann sér inn gjafabréf hjá BK Kjúkling í getraunaleik en að þessu sinni var það Felix Már Kjartansson sem var næstur því að giska á rétt úrslit og hann fær því gjafabréf að launum.
26.þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í kvöld og það sem er merkara er að þetta var janframt 100.þátturinn hjá þeim félögum frá því að hlaðvarpsþátturinn var settur á laggirnar. Að þessu sinni voru það Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson sem settust í Klaka stúdíóið. Að þessu sinni fóru þeir yfir fyrsta leikdag á EM ásamt því að velta fyrir sér möguleikum Íslands gegn Portúgal á morgun sem á mótinu í heild. Þeir eru enn sannfærðari eftir úrslit dagsins að íslenska liðið ætti hiklaust að setja stefnuna á topp 8 að lámarki. Þá fóru þeir rækilega yfir það hversu þreyttir þeir eru á því hvað mönnum leyfist að tala niður til handboltans í hinum ýmsu þáttum tengt íþróttum og það fór sérstaklega fyrir brjóstið á þeim þegar handbolti var kallaður jaðaríþrótt og sér í lagi í þáttum tengdum rétthafa handboltans. Þeir ræddu það að það væri kjörið fyrir handboltahreyfinguna að búa til einhvers konar fantasy leik í kringum handboltann á Íslandi og þeir eru sannfærðir Þá kynntu þeir til leiks nýjan styrktaraðila þáttarins en það er BK Kjúkllingur og verða þeir með getraunaleiki í kringum leiki liðsins þar sem að sá sem giskar á rétt úrslit fær gjafabréf hjá BK Kjúkling að launum.
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt í kvöld og tóku upp sinn tuttugusta og fimmta þátt vetrarins. Þáttur dagins var í umsjón Jóa Lange, Arnars Gunnarssonar og Gests Guðrúnarsonar Að þessu sinni var þátturinn tileinkaður EM karla sem fer fram í þessum mánuði í Ungverjalandi og Slóvakíu. Þeir félagar voru sammála því að íslenska liðið væri góðum stað og útlitið sjaldan verið eins gott hjá liðinu. Þá spá þeir því að liðið komist alla leið í 8-liða úrslit og gekk Gestur svo langt að spá liðinu alla leið í undanúrslit.
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt í kvöld og tóku upp sinn tuttugusta og fjórða þátt vetrarins. Þáttur dagins var í umsjón Jóa Lange og Arnars Gunnarssonar. Að þessu sinni var þátturinn tileinkaður Grill66 deild karla og fengu þeir Grétar Áka Andersen til sín sem sélegan sérfræðing þáttarins. Þeir félgar ræddu deildina frá hinum ýmsu hliðum og voru sammála því að framundan væri spennandi fjögra liða barátta um sigur í deildinni en þeir voru þó ekki sammála um hvaða félaga myndi vinna deildina.
Tuttugasti og þriðji þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar leit dagsins ljós í dag en þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson settust í Klaka stúdíoið og létu móðinn mása. Þeir félagar fóru yfir allt það helsta sem gerðist í 13.umferðinni í Olísdeild karla ásamt því að velja klakaleikmenn leikjanna. Þeir leikmenn sem voru valdir að þessu sinni, Brynjar Darri Baldursson (Stjörnunni), Tumi Steinn Rúnarsson (Val), Adam Haukur Baumruk (Haukum), Allan Nordberg (KA), Guðmundur Hólmar Helgason (Selfoss) og Ásbjörn Friðriksson (FH). Þá fóru þeir félagar aðeins yfir HM kvenna sem lauk um síðustu helgi þar sem að þeir hrósuðu frammistöðu norðmanna í seinni hálfleik í úrslitaleiknum gegn Frökkum. Í lok þáttar fóru þeir yfir 20 manna hópinn A-landsliðs karla fyrir EM sem var tilkynntur í dag
Tuttugasti og annar þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar leit dagsins ljós í dag en þeir Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson settust í Klaka stúdíoið og létu móðinn mása. Þeir félagar fóru yfir allt það helsta sem gerðist í síðustu umferð í Olísdeild karla ásamt því að spjalla aðeins um hótanir þjálfara Þórs í garð dómara á dögunum. Þá spjölluðu þeir um komandi verkefni hjá A-landsliði karla en þeir eru að fara á EM í janúar.
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt og tóku upp 21.þátt vetrarins. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Daníel Berg Grétarsson. Í þætti dagsins ákvaðu þeir félgar að fara yfir þrjú atriði sem hafa komið upp í umræðuna að undarförnu. Þeir byrjuðu á því að kíkja yfir þá hugmynd um breyta deildarfyrirkomulagnu í Olísdeild kvenna í eina deild líkt var hér áður. Því næst kíktu þeir á kærumálið í Garðabænum þar sem að enn einu sinni voru gerð mistök í talningu marka á tímavarðarborðinu. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem svona mistök eiga sér stað í Garðabænum og hvetja þeir félagar forsvarsmenn Stjörnunnar að fá nýja aðila í þetta hlutverk. Í lok þáttar fóru þeir yfir hitamálið í tengslum við fyrirhugaðan bikarleik Harðar og Fjölnis sem átti að fara fram þann 14.desember en Fjölnismenn ákváðu að gefa leikinn og báru fyrir sig að þeir ættu ekki í lið þar sem að leikmenn liðsins væru fastir í prófum. Þeir félagar gefa lítið fyrir þessar útskýringar og ganga svo langt að þetta lýsi metnaðarleysi félagsins í hnotskurn og þeir ganga svo langt að hvetja forsvarsmenn félagsins að hreinlega draga liðið úr keppni því það er útlit fyrir þeir komi til með að spila í úrslitakeppni í miðri prófatörn í vor.
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt og tóku upp 20.þátt vetrarins. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Arnar Gunnarsson og Daníel Berg Grétarsson. Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það helsta sem gerðist í 11.umferð Olísdeildar karla. Þeim félögum líst vel á framgöngu FH að undanförnu en þeir hafa ekki tapað síðan í 3.október. Þá hrósuðu þeir Einari Braga Aðalsteinssyni fyrir frammistöðu sína með HK í leiknum gegn ÍBV. auk þess að velja Klakaleikmenn leikjanna Phil Döhler (FH), Einar Bragi Aðalsteinsson (HK), Hergeir Grímsson (Selfoss), Vilhelm Poulsen (Fram), Óðinn Þór Ríkharðsson (KA) og Hafþór Már Vignisson (Stjörnunni).
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt og tóku upp nítjánda þátt vetrarins. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange og Arnar Gunnarsson Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það helsta sem gerðist í 10.umferð Olísdeildar karla auk þess að velja Klakaleikmenn leikjanna Egill Magnússon (FH), Jovan Kukobat (Víkingur), Birgir Steinn Jónsson (Gróttu), Guðmundur Hólmar Helgason (Selfoss) og Breki Dagsson (Fram). Það eru háværar sögur um það að Heimir Árnason sé að bætast við þjálfarateymið fyrir norðan en hann ku vera búinn að tilkynna það. Í lok þáttar hrósuðu þeir svo RÚV fyrir þeirra metnað í garð HM kvenna sem fer fram núna í desember.
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt og tóku upp átjánda þátt vetrarins. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Arnar Gunnarsson og Gestur Guðrúnarsson Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það helsta sem gerðist í 9.umferð Olísdeildar karla auk þess að velja Klakaleikmenn leikjanna. Ásbjörn Friðriksson (FH), Björgvin Páll Gústavsson (Val), Einar Baldvin Baldvinsson (Gróttu), Arnór Viðarsson (Stjörnunni), Atli Báruson (Haukum) og Hrannar Bragi Eyjólfsson (Stjörnunni). Í lok þáttar fóru þeir aðeins yfir tvö málefni, annars vegar staða handboltans á Akureyri en Árni Rúnar Jóhannesson formaður handknattleiksdeildar Þórs Akureyri skrifaði grein um það mótlæti sem félagið finnur fyrir hjá bæjarstjórn Akureyrar. Hins vegar fóru þeir aðeins yfir greinarnar sem Arnar skrifaði á handbolti.is þar sem að hann viðrar þær hugmyndir um að fækka liðum í úrvalsdeild.
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt og tóku upp sautjánda þátt vetrarins. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Arnar Gunnarsson og Gestur Guðrúnarsson Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það helsta sem gerðist í 8.umferð Olísdeildar karla auk þess að velja Klakaleikmenn leikjanna. Guðmundur Hólmar Helgason (Selfoss), Darri Aronsson (Haukum), Birkir Benediktsson (Aftureldingu) og Leonharð Þorgeir Harðarson (FH). Þá fóru þeir aðeins inná málin í Grill66deild karla þar sem var hiti í mönnum í Austurberginu. Þeim félögum fannt þessi kæra ÍR-inga nokkuð athyglisverð en þeir voru þó sammála um viðbrögð manna fyrir vestan ekki vera til framdráttar ef satt reynist að styrktaraðilar ÍR hafi verið að fá símtöl að vestan. Að lokum fóru þeir yfir dráttinn í Coca-Cola bikar karla þar sem þeim finnst að það þurfi að breyta reglunum þannig að úrvalsdeildarliðin komi inní 16-liða úrslitum og neðri deildar liðin keppi um það að komast þangað inn.
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt og tóku upp nýjan þátt. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Arnar Gunnarsson. Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það helsta sem gerðist í 7.umferð Olísdeildar karla. Þeir félagar glöddust fyrir hönd norðanmanna með þeirra sigur gegn Fra mog það virðist sem að þeir séu að ná að stilla saman strengi sína. Þá voru þeir hrifnir af framistöðu Benedikts Gunnars Óskarssonar en hann er á góðri leið að festa sig í sessi sem miðjumaður númer eitt á Hlíðarenda. Að venju voru Klakaleikmenn leikjanna valdir og eftirtaldir leikmenn eru gjaldgengir í þá kosningu sem fer í gang á samfélagsmiðlum þáttarins: Ólafur Gústafsson (KA), Benedikt Gunnar Óskarsson (Val), Rúnar Kárason (ÍBV), Adam Haukur Baumruk (Haukum), Birgir Steinn Jónsson (Gróttu) og Richard Sæþór Sigurðsson (Selfoss).
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt og tóku upp nýjan þátt. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Arnar Gunnarsson. Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það helsta sem gerðist í 6.umferð Olísdeildar karla. Vandræði norðanmanna halda áfram og það er ljóst að þeir séu komnir í djúpa holu og þeir þurfi að nota landsliðfríið vel til þess að stilla saman strengi sína. Þá fannst þeim ummæli Basta fyrir leikinn gegn Haukum og þeir félagar spurðu sig að því hvaða taktík þetta væri hjá honum. Í lok þáttar fóru þeir aðeins yfir aðstöðu mál í Færeyjum en þeir hafa ákveðið að byggja nýja keppnishöll og þeir hvetja íslensk yfirvöld að taka frændur okkar í Færeyjum til fyrirmyndar og jafnvel hreinlega fá tekningar af húsinu og hefjast handa við að byggja. Að venju voru Klakaleikmenn leikjanna valdir og eftirtaldir leikmenn eru gjaldgengir í þá kosningu sem fer í gang á samfélagsmiðlum þáttarins: Phil Döhler (FH), Gunnar Steinn Jónsson (Stjörnunni), Sigtryggur Rúnarsson (ÍBV), Aron Rafn Eðvarðsson (Haukum) og Blær Hinriksson (Aftureldingu)
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt og tóku upp nýjan þátt. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Arnar Gunnarsson og Kristinn Guðmundsson. Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það helsta sem gerðist í 5.umferð Olísdeildar karla. Þeir félagar klóra sér í hausnum yfir því hvernig Stjarnan fór af því að vinna á Selfossi en að þeirra mati hefði Selfoss allan tímann átt að vinna þetta lið sem Stjarnan bauð uppá í þessum leik. Þá hafa þeir haft samband við björgunarsveitina fyrir norðan til þess að lýsa eftir KA liðinu en það hefur einfaldlega ekki sést í allan vetur. Að sama skapi voru þeir virkilega ánægðir með ungu guttanna hjá Val sem hafa beðið þolinmóðir eftir tækifærinu og eru heldur betur að nýta þau tækifæri núna. Að lokum fóru þeir yfir landsliðsvalið sem var tilkynnt í gær og þar spyrja þeir sig hvar leikmenn eins og Sigvaldi Guðjónsson og Arnór Gunnarsson væru. Að venju voru Klakaleikmenn leikjanna valdir og eftirtaldir leikmenn eru gjaldgengir í þá kosningu sem fer í gang á samfélagsmiðlum þáttarins: Adam Thorsteinsson (Stjörnunni), Darri Aronson (Haukum), Lárus Helgi Ólafssson (Fram), Arnór Snær Óskarsson (Val) og Þorsteinn Leó Gunnarsson (Aftureldingu)
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar gáfu frá sér nýjan þátt í kvöld en að þessu sinni settust þeir Jói Lange og Arnar Gunnarsson í Klaka stúdíóið. Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það sem gerðist í 4.umferðinni í Olísdeild karla þar sem þeir félagar voru sammála því KA men væri að valda þeim miklum vonbrigðum og þá sér í lagi sóknarleikur liðsins. Þá fóru þeir yfir það að Valsmenn eru með besta lið deildarinnar og vandséð hverjir stöðvi þá í vetur. Að venju voru Klakaleikmenn leikjanna valdir og rftirtaldir leikmenn eru gjaldgengir í þá kosningu sem fer í gang á samfélagsmiðlum þáttarins: Benedikt Gunnar Óskarsson (Val), Ólafur Brim Stefánsson (Gróttu), Lárus Helgi Ólafsson (Fram), Egill Magnússon (FH) og Hafþór Vignisson (Stjörnunni)
Það er skammt stórra högga á milli hjá drengjunum í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar en þeir settust í Klaka stúdíóið sitt og tóku upp nýjan þátt. en að umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur Guðrúnarsson, Arnar Gunnarsson og Kristinn Guðmundsson. Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það sem gerðist í 3.umferðinni í Olísdeild karla ásamt því að velja þá leikmenn sem koma til greina sem Klaka leikmaður umferðarinnar. Eftirtaldir leikmenn eru gjaldgengir í þá kosningu sem fer í gang á samfélagsmiðlum þáttarins: Ásbjörn Friðriksson (FH), Tumi Steinn Rúnarsson (Val), Rúnar Kárason (ÍBV), Guðmundur Bragi Ástþórsson (Aftureldingu), Breki Dagsson (Fram) og Hafþór Vignisson (Stjörnunni)
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíóið sitt eftir dálitla fjarveru en að umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur Guðrúnarsson, Arnar Gunnarsson og Kristinn Guðmundsson. Í þætti dagsins fóru þeir yfir úrslitaleikina í bikarnum og svo í lok þáttar ræddu þeir aðeins aðstöðu mál handboltans sem eru vægast sagt í skellfilegum málum.
Strákarnir í Hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar komu sér fyrir í Klaka stúdíóinu sínu snemma í morgun og tóku upp sérstakann Coca-Cola bikar þátt þar sem þeir rýndu í undanúrslita leikina sem og spáðu í spilin fyrir úrslitaleikina sem fara fram í dag. Þeir hófu þáttinn á því að fara yfir kvennaleikina þar sem vandræðagangur í sóknarleik Vals kom þeim á óvart en hann var í raun bara á herðum Theu Imani Sturludóttur. En á sama tíma hrósuðu þeir varnarleik Fram í leiknum og frábærri frammistöðu Hafdísar Renötudóttur í marki Fram. Úrslitin í seinni undanúrslita leiknum kom engum á óvart en þeir félagar hrósuðu þó FH stúlkum fyrir að halda áfram að berjast þó um ofurefli væri að etja. Þá spáðu þeir fyrir um að úrslitaleikur Fra mog KA/Þórs yrði hin mesta skemmtun og væru líkur á því að sá leikur færi í framlengingu. Því næst færðu þeir sig yfir í karlaleikina þar sem að Valsmenn fóru nokkuð létt með lið Aftureldingar en þar þótti þeim athyglisvert að Valsliðið hefði unnið þennan yfirburðarsigur í ljósi þess að markvarslan var ekki mikil hjá þeim. En þeir voru sammála því að Valsliðið er gríðarlega öflugt og væri fullt sjálfstrausts og það sæist í leik þeirra. Þeir voru hins vegar fyrir miklum vonbrigðum með lið Aftureldingar en það var engu líkara en að þeir gæfust upp í seinni hálfleiknum. Sigur Fram á Stjörnunni kom þeim skemmtilega á óvart og þeir voru sérstaklega hrifnir af varnarleik Fram þar sem þeir voru virkilega agaðir. Þeir eiga hins vegar von á því að úrslitaleikurinn gæti orðið þungur fyrir Fram en til þess að þeir eigi möguleika þá telja þeir félagar að Fram þurfi að stýra hraðanum í leiknum og vera virkilega agaðir í sínum sóknarleik.
9.þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í dag. Að þessu sinni voru það Jói Lange og Arnar Gunnarsson sem settust inní Klaka studíóið og umfjöllunarefni þáttarins var 2.umferðin í Olísdeild karla. Þeir voru sammála því að KA menn virka ekki næginlega sannfærandi eftir þessa fyrstu 2 leiki og eins og spilamennska þeirra hefur verið telja þeir líklegra að norðanmenn verði í baráttunni um áttunda sætið frekar en í efri hluta deildarinnar. Þeir kíktu svo aðeins yfir sviðið í Grill66 deild karla sem fór af stað í gær. Frammistaða Fjölnismanna gegn ÍR olli þeim vonbrigðum því þeir áttu von á meiri spennu í þeim leik. Þá voru þeir ánægðir með byrjunina hjá Harðarmönnum sem þær vænta mikils af í vetur. Að lokum völdu þeir þá leikmenn sem koma til greina sem Klaka leikmaður 2.umferðar Olísdeildar karla og þeir eru, Phil Döhler (FH), Birkir Benediktsson (Aftureldingu), Vilhelm Poulsen (Fram) og Nicholas Satchwell (KA).
Drengirnir í Hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar skelltu sér í Klaka stúdíóið sitt í dag og gáfu út nýjan þátt. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange ogKristinn Guðmundsson Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það markverðasta sem gerðist í 1.umferð Olísdeildar kvenna. HK liðið ölli þeim vonbrigðum og þá í sérílagi spilamennskan þeirra í seinni hálfleik gegn Haukum en þessi lið eru líkleg til að berjast um það hvort liðið fari í umspil í vor. Þá kom byrjun Aftureldingar gegn Val þeim á óvart og voru þeir í raun bara nokkuð ánægðir með spilamennsku þeirra þó að sigur Valsstúlkna hafi vissulega verið sannfærandi. Að lokum völdu þeir þá leikmenn sem koma til greina sem Klaka leikmaður umferðarninnar en það eru þær Hildigunnur Einarsdóttir (Val), Hafdís Renötudóttir (Fram), Birta Lind Jóhannsdóttir (Haukum) og Martha Hermanssdóttir (KA/Þór).
Drengirnir í Hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar skelltu sér í Klaka stúdíóið sitt í dag og gáfu út nýjan þátt. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Kristinn Guðmundsson og Arnar Gunnarsson. Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það markverðasta sem gerðist í 1.umferð Olísdeildar karla. Þeir lýstu ánægju sinni með nýliða deildarinnar, HK og Víking og hrósuðu þjálfurum liðanna fyrir að þora að prófa nýjunar og með smá herslumun hefðu bæði þessi lið getað náð í stig úr leikjum sínum. Þá fóru þeir aðeins yfir ummæli Arnars Daða þjálfara Gróttu eftir leikinn gegn Val þar sem að hann óskaði eftir meiri virðingu fyrir því sem hann væri að gera. Þeir félagar voru sammála því að það væri þannig að virðing væri eitthvað sem væri áunnin og því væri ekki vænlegt til árangurs að vera uppnefna menn í viðtölum ef að þú vilt fá virðingu frá viðkomandi. Að lokum völdu þeir þá leikmenn sem koma til greina sem Klaka leikmaður umferðarninnar en það eru þeir Rúnar Kárason (ÍBV), Björgvin Páll Gústavsson (Val), Ólafur Ægir Ólafsson (Haukum), Guðmundur Bragi Ástþórsson (Aftureldingu) og Sigurjón Guðmundsson (HK).
Drengirnir í Hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar skelltu sér í Klaka-stúdíóið og tóku upp sinn sjött þátt á þessu tímabili en að þessu sinni var þátturinn í umsjón Jóa Lange og Gests Guðrúnarsonar. Í þessum þætti fóru byrjuðu þeir á því að fara yfir leikina í 8-liða úrslitunum í Coca-Cola bikarkeppnum karla og kvenna ásamt því að rýna í undanúrslitaleikina sem eru framundan. Þá fengu þeir Reynir Stefánsson formann dómaranefndar til sín í spjall þar sem þeir fengu að skyggnast aðeins inní það hvernig staðan á dómaramálum á Íslandi er. Reynir lýsti yfir áhyggjum sínum af fjölda dómarar og vonbrigðum með hversu fá félög séu að sýna metnað í því að búa til nýja dómarar. Þá sagði Reynir að það væri raunveruleg hætta á því að það styttist í það að það þyrfti að fresta leik sökum þess að ekki næðist að manna dómara. Reynir sagði svo frá skemmtilegri nýjung í vetur þar sem eftirlitsmenn munu geta nýtt sér tækni Sideline forritsins í því að klippa atvik jafn óðum og leik stendur til þess að fara yfir með dómurum strax að leik loknum. Þetta myndi ger vinnu dómarar og eftirlitsmanna mun faglegri. Í lok þáttar fóru þeir félagar yfir 1.umferðirnar í Olísdeild karla og kvenna og spáðu í spilin fyrir komandi leiki þar.
Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar sendi frá sér nýjan þátt í dag en að þessu sinni voru það Gestu, Jói Lange og Kristinn sem sáu um umsjón þáttarins.. Að þessu sinni fóru þeir yfir það sem er framundan í kvennahandboltanum í vetur. Í upphafi þáttar sögðu þeir frá fréttum sem bárust að vestan í dag þegar að Harðarmenn ákváðu að rifta samningi sínum við Raivis Gorbounovs en leikmaðurinn gerðist sekur um agabrot á dögunum. Raivis sem var markahæsti leikmaður Harðar á síðustu leiktíð mun færa sig um set yfir til Noregs og leika með liði Bergsoy sem Lárus Gunnarsson þjálfar. Jafnframt hafa Harðar men samið við nýjan leikmann en það mun vera Króatísk skytta sem er 195cm á hæð. Þá opinberuðu þeir spá þáttarins fyrir Olísdeild kvenna sem og Grill66 deild kvenna en þeir fengu aðstoð frá sérfræðingum þáttarins en það eru þau, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, Brynjar Valsteinsson, Daníel Berg Grétarsson, Brynja Magnúsdóttir og Ívar Benediktsson. Þeir fóru yfir það hverjir eru lykilmenn liðanna í Olísdeild kvenna að mati þáttarins auk þess að velja besta liðið skipað af leikmönnum í Olísdeildinni. Að lokum spáðu þeir í spilin fyrir leikina sem eru framundan í Coca-cola bikar kvenna í vikunni.
Kvartettinn í Handboltinn okkar komu sér fyrir í studíoi sínu í dag þar sem þeir tóku upp fjórða þáttinn sinn á þessu tímabili. Að þessu sinni fóru þeir yfir árangur Vals í Evrópudeildinni sem og verkefnið sem bíður þeirra í næstu umferð. Þá opinberuðu þeir spá þáttarins fyrir Olísdeild karla sem og Grill66 deild karla en þeir fengu aðstoð frá sérfræðingum þáttarins en það eru þau, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, Einar Andri Einarsson, Valtýr Björn Valtýrsson, Brynjar Valsteinsson, Daníel Berg Grétarsson, Brynja Magnúsdóttir og Ívar Benediktsson. Þeir fóru yfir það hverjir eru lykilmenn liðanna í Olísdeild karla að mati þáttarins auk þess að velja besta liðið skipað af leikmönnum í Olísdeildinni. Kvartettinn er sammála því að það stefni í gríðarlega skemmtilegan vetur í Grill66 deildinni í vetur en þeir spá því að Harðarmenn vinni baráttuna við Þór Ak. Og Fjölni um að komast upp í Olísdeildina í vetur.
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar gáfu út nýjan þátt í dag en umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur, Arnar og Kristinn. Umræðuefni þáttarins var meðal annars 8 liða úrvalsdeild en þeir félagar eru á sama máli að að yrði handboltanum til tekna að breyta deildarfyrirkomu laginu í karlaboltanum. Þá vilja þeir sjá umræðu um hvort eigi að setja á fót aftur 2.fl og breyta fyrirkomulaginu í 3.fl. í leiðinni og leggja niður U liðin. Þá ræddu þeir líka um æfingarmótin en þeir komu þar með athyglsverða tillögu um breytingar á þeim í líkingu við það sem er gert í Færeyjum og að sama skapi myndu þeir vilja sá deildarbikarinn aftur á dagskrá á milli jóla og nýárs. Einnig var kynntur til leiks nýr styrktaraðili þáttarins en það er drykkurinn Klaki sem og þegar nær líður tímabili munu þeir félagar tilkynna í hverju þetta samstarf þeirra með Kaka felst.
Að þessu sinni fóru kvartettinn í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar yfir stöðuna í kvennaboltanum þar sem þeir fóru yfir helstu breytingar á liðinum í Olísdeild kvenna. Þeir félagar spá því að deildin verði enn meira spennandi heldur en á síðustu leiktíð þar sem fleiri lið munu gera atlögu að þeim stóra í vor. En á sama tima lýsa þeir yfir smá áhyggjum af stöðu mála í Kópavoginum og hreinlega spyrja sig hvað sé í gangi í herbúðum HK en kvartettinn var sammála um að þeir myndu vilja sjá meira frá Kópavogsliðinu á komandi leiktíð. Þá fóru þeir aðeins inná það hvenær þessi nefnd sem HSÍ ætlar að setja á fót um kvennahandboltann myndi verða tilkynnt og hvað væri ætlast til þeirra nefndar. Þá fóru þeir aðeins yfir leiki íslensku liðanna í Evrópukeppnunum og þeir fagna því hversu mörg íslensk lið taka þátt í Evrópukeppnum á þessari leiktíð og þeir gera sér væntingar um að öll liðin komist í gegnum sínar viðureignir.
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar skelltu sér í studíoið sit og tóku upp sinn fyrsta þátt á nýju tímabili. Að þessu sinni kynntu þeir félagar nýjan meðlim í hópinn en Kristinn Guðmundsson mun vera með þeim í vetur. Í þessum fyrsta þætti fóru þeir yfir sviðið á karlaboltanum og fóru yfir helstu breytingar á liðnunum í Olísdeild karla. Seinni hluti þáttarins fór svo í það að ræða Grill66 deild karla þar sem stærstu fréttirnar eru án efa þjálfararáðning Þórs. En þeir félagar rættu það ítarlega hvort Þórsarar væru á réttri leið. Annað spennandi lið í deildinni er Hörður en Ísfirðingar ætla sér stóra hluti í vetur og hafa sótt sér spennandi leikmenn í sumar og þeir félagar ganga svo langt að spá að lið frá Ísafirði verði í Olísdeildinni tímabilið 2022-2023. Þá spáðu þeir félagar aðeins í úrslitaleikina á Ólympíuleiknum þar sem þeir spá því að báðar viðureignir eigi eftir að vera gríðarlega spennandi og ráðist á lokasekúndum leiksins.
Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar var á ferðinni í dag þegar tríóið Jói Lange, Gestur og Arnar settust í stúdíoið sitt og tóku upp 74 þátt tímabilsins en þetta er jafnframt lokaþátturinn fyrir sumarfrí. Í þætti dagsins fóru þeir aðeins yfir handboltatímabilið sem er nýlokið og ræddu meðal annars um lokahóf HSÍ sem var haldið á dögunum. Þá fóru þeir aðeins yfir næsta tímabil þar sem þeir veltu fyrir breytingum sem eru fyrirhugaðar hjá nokkrum liðum. Að lokum vildu þeir félagar koma á framfæri þakklæti til Halla á BK Kjúkling fyrir stuðninginn í vetur og hvöttu handboltafólk að kíkja á BK og fá sér að snæða hjá Halla. Þá þökkuðu þeir þeim Andra Má Eggertssyni og Atla Rúnari Steinþórssyni fyrir þeirra framlag í þættinum fyrir áramót en þeir þurftu að yfirgefa skútuna vegna anna í vinnu.
Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar var á ferðinni. Að þessu sinni fjölluðu umsjónarmenn þáttarins um seinni leik Vals og Hauka í úrslitaeinvíginu í Olísdeild karla Valsmenn mættu virkilega ákveðnir til leiks í gær og það var greinilegt að þær ætluðu sér að landa þeim stóra og þeir félagar hrósuðu Antoni Rúnarssyni sérstaklega en þeim fannst hann vera frábær í úrslitakeppninni og stýrði sínum mönnum virikilega vel. Þá hrósaði þríeykið Snorra Steini Guðjónssyni þjálfara Vals en þeim félögum finnst hann hafa verið að sýna að hann er virkilega fær þjálfari Haukarnir hins vegar ollu þeim miklum vonbrigðum en þeir hreinlega mættu aldrei í þessa veislu sem úrslitaeinvígið var. Alltof margir leikmenn hjá þeim virtust ekki tilbúnir í þetta einvígi og virtist sem að Haukaliðið væri að láta hluti fara í taugarnar á sér. Að lokum tóku þeir félagar smá spjall um dómarar en þeim fannst Anton og Jónas dæma leikinn virkilega vel og sýndu enn einu sinni að þeir eru besta dómarapar landsins og þríeykið hvatti aðra dómara að taka sér þeirra nálgun í leikjum.
Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar var á ferðinni. Að þessu sinni fjölluðu umsjónarmenn þáttarins um fyrri leik Vals og Hauka í úrslitaeinvíginu í Olísdeild karla Mikið jafnræði var með liðnum í upphafi leiks á Hlíðarenda þar sem að markmenn liðanna voru í miklu stuði. Valsmenn náðu forystunni eftir 10 mínútna leik sem þeir héldu allt til loka leiks þrátt fyrir harða atlögu frá Haukunum. Þeim félögum fannst þeir Svavar og Sigurður falla aðeins á prófinu í dag en þeim fannst dómararnir hafi átt að gefa Þránni Orra rautt spjald þegar hann fór í andlitið á Arnóri Snæ Óskarssyni leikmanni Vals. Þá undir lok þáttar þá fóru þeir yfir Final4 í Meistaradeild karla og þá lýstu þeir yfir undrun á því að enginn íslensk sjónvarpsstöð hafi séð sóma sinn í að sína hvorki frá Final 4 karla né kvenna.
Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar var á ferðinni í kvöld þar sem þeir tóku upp sinn 70.þátt. Að þessu sinni fjölluðu umsjónarmenn þáttarins um seinni leikina í undanúrslitum í Olísdeild karla Að Ásvöllum tóku heimamenn í Haukum á móti Stjörnunni þar sem að gestunum tókst heldur betur að gera atlögu að sæti í úrslitum með því að veita Haukum harða keppni. Garðbæingar náðu að sýna að það eru veikleikar í þessu Haukaliði en því miður fyrir gestina reyndust Haukar þó aðeins sterkari á lokakaflanum. Valsmenn tóku á móti ÍBV að Hlíðarenda í hreint út sagt geggjaðir stemmningu. Leikurinn var mjög kaflaskiptur þar sem að heimamenn voru með frumkvæðið lengst af. En gestirnir úr eyjum neituðu að gefast upp og náðum góðum lokakafla en það var þó fyrir frábæran varnarleik hjá Einari Þorsteini Ólafssyni að Valsmenn náðu að komast í úrslitaeinvígið gegn Haukum í næstu viku.
Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar var á ferðinni í kvöld þar sem að umsjónarmenn þáttarins fjölluðu um fyrri leikina í undanúrslitum í Olísdeild karla Í Vestmannaeyjum áttust tóku heimamenn á móti Valsmönnum þar sem var boðið uppá hörkuleik. Valsmenn reyndust sterkari aðilinn í seinni hálfleik og fóru með sigur af hólmi. Lokamínúta leiksins var þó æði skrautleg þar sem að Agnar Smári Jónsson gerði sig sekan um klaufaskap þegar hann hindraði ÍBV í að taka innkast og dómarar leiksins dæmdu víti og gáfu Agnari rautt spjald sem var hárréttur dómur hjá góðum dómurum leiksins þeim Antoni Gylfa Pálssyni og Jónasi Elíassyni. Heimamenn skoruðu úr vítinu og náðu að minnka muninn niður í 2 mörk en Anton Rúnarsson náði að skora mark fyrir Valsmenn frá miðju og tryggði þeim þriggja marka sigur og þetta mark gæti reynst dýrmætt í þessu Evrópukeppnis fyrirkomulagi. Í Garðarbænum byrjuðu heimamenn virkilega vel í leiknum gegn Haukum en þeir komust í 4-1. En það tók gestina ekki langan tíma að átta sig á því leikurinn væri hafinn og náðu fljótt undirtökunum á leiknum. Heimamenn reyndu hvað þeir gátu að minnka muninn en Haukarnir sigldu sigrinum heim að lokum 28-23. Umdeilt atvik varð í leiknum þegar að Björgvin Páll Gústavsson markvörður Hauka fór með fótinn í andlitið á leikmenni Stjörnunnar og þáttastjórnendur þáttarins voru allir sammála um að Björgvin Páll hefði verskuldað rautt spjald fyrir þetta framferði.