Birtingarmyndir

Follow Birtingarmyndir
Share on
Copy link to clipboard

Birtingarmyndir alls kyns fyrirbæra í dægurmenningu.

Bergrún Andradóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, Sjöfn Hauksdóttir


    • Feb 7, 2022 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 1h AVG DURATION
    • 29 EPISODES


    Search for episodes from Birtingarmyndir with a specific topic:

    Latest episodes from Birtingarmyndir

    BMN: (500) Days of Summer

    Play Episode Listen Later Feb 7, 2022 50:28


    Velkomin í samúðarkortadeildina. Bergrún, Díana Sjöfn og Sjöfn dýfa sér í rómantísku gamanmyndina (500) Days of Summer og skoða birtingarmyndir eitraðrar karlmennsku, sérvitra álfadísa, allt of gáfaðra barna í kvikmyndum og sjálfrar ástarinnar. Sjöfn nær að fara yfir söguþráð myndarinnar á innan við hálftíma, persónulegt met, Díana þarf að sinna skyldum sem móðir og Bergrún ældi einu sinni á gólfið heima hjá sér.

    Tilkynning

    Play Episode Listen Later Jan 28, 2022 4:21


    Það er komið aftur! Podcastið sem allir hafa beðið eftir! Eða hvað? Sökum tæknilegra örðugleika í ársbyrjun kemur næsti þáttur því miður ekki fyrr en í næstu viku en örvæntið ekki, hlustið á vafasöm hljóðgæði og vægt fliss til að hita upp fyrir komandi þátt.

    Manic Pixie Dream Girl

    Play Episode Listen Later Nov 4, 2021 49:16


    Ert þú sérvitur álfadís? Eða hefur einhver annar gefið þér það hlutverk? Í þætti dagsins ræðum við Manic Pixie Dream Girl, staðalmyndina sem tröllreið indie-kvikmyndaheiminum frá um 2005 til 2015. Hvers vegna er staðalmyndin skaðleg og hvernig hefur hún þróast? Hefur hún haldið velli eða má finna hana falda í öðrum staðalmyndum kvenna? Og hvað með Manic Pixie Dream Boy? Hvað er að frétta af honum?Greinar:https://www.theatlantic.com/sexes/archive/2013/07/the-real-world-consequences-of-the-manic-pixie-dream-girl-clich-233/277645/https://www.bitchmedia.org/article/harry-styles-soft-boy-aesthetic-manic-pixie-dream-boyhttps://www.salon.com/2014/07/15/imsorryforcoiningthephrasemanicpixiedream_girl/https://www.glamour.com/story/the-manic-pixie-dream-girl-isnt-dead-shes-just-evolved

    BMN: Candyman

    Play Episode Listen Later Oct 21, 2021 83:11


    Candyman. Candyman. Candyman. Það er Spooky Season í öllu sínu veldi og í tilefni Hrekkjavökunnar horfðum við á hryllingsmyndina Candyman (2021) í leikstjórn Nia DaCosta. Við veltum fyrir okkur hryllingsminnum, menningarátökum, miðstéttarvæðingu og kynþáttafordómum í myndinni sem og samfélaginu og spyrjum hinar eilífu spurningar: Af hverju er vondi karlinn alltaf fatlaður?Kíkið á:https://chicagoreader.com/news-politics/they-came-in-through-the-bathroom-mirror/https://www.horrorbound.net/spooky-reads/the-forbidden-clive-barker-lhttps://en.wikipedia.org/wiki/Cabrini–Green_Homes https://myfavoritemurder.com/266-rave-after-rave/

    Bara vinir

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2021 53:50


    Verður þú að ríða vinum þínum? Svarið er oft á tíðum já, en birtingarmyndir sambanda gagnkynhneigðra kvenna og karla gefa í skyn að eingöngu vinátta sé óraunhæfur möguleiki. Við kíkjum á þrjár myndir með þemu vináttu og ásta, My Best Friend's Wedding, When Harry met Sally og Just Friends. Díana viðurkennir að hafa orðið skotin í vini, Sjöfn viðurkennir alvarlegan sleiksjúkdóm og Bergrún dansar á línunni. Endilega hlustið, vingast Við okkur og byrjið svo með okkurAth, á mín. 46.40 ætlaði Bergrún að segja "ekki einkynhneigt" en tungan í henni rann til. Afsakið.

    Met Gala

    Play Episode Listen Later Sep 23, 2021 51:12


    Borgaðir þú 25.000 dollara til að hlusta á þennan þátt? Ekki? Þá ertu sennilega ekki jafn ríkur og fólkið sem mætti á Met Gala til að sýna sig og sjá aðra. Við ræðum tískuna, ádeiluna, pólitíkina og allt hitt tengt Met Gala 2021, dæmum nokkur outfit og spyrjum alvöru spurninga eins og, hvað er Beyonce gömul, eru Jen og Ben saman í alvöru og er hárið á Jay Z ekta.

    Madonnan, hóran og lokastelpan

    Play Episode Listen Later Sep 9, 2021 65:52


    Staðalmyndirnar eru víða og ekki síst í bíómyndum. Við kíkjum á einhliða kvenpersónur í kvikmyndum og einbeitum okkur að þremur erkitýpum til frekari greiningar. Við ræðum til dæmis Mean Girls, Grease, Halloween, House of Wax, Alien og auðvitð Vertigo. Svo leikum við auðvitað hinn fræga samkvæmisleik ´Hver myndi deyja fyrst ef þetta væri hryllingsmynd?´

    Vampírur

    Play Episode Listen Later Aug 26, 2021 86:48


    Færðu þig lúðalegi Drakúla, Edward cullen er mættur! Í þætti dagsins ræðum við vampírur: birtingarmyndir þeirra í gegnum söguna og þróun ímyndar þeirra, frá fornkína, yfir til austur og norður Evrópu og alla leið til Forks, Washington. Þess má til gamans geta að þetta er fyrsti þátturinn sem við tókum upp, snemma 2021. Ji hvað við vorum ungar. Haltu fyrir hálsinn, athugaðu hvort þú eigir ekki örugglega hrísgrjón og skelltu þér i hlustun

    Framakonan LIVE

    Play Episode Listen Later Aug 12, 2021 70:43


    Áður en sumarfríið skall á okkur vorum við Live á Instagram. Nú snúum við aftur úr fríi deilum með ykkur þessari live upptöku þar sem við fjöllum um birtingarmyndir framakonunnar. Við skoðum hina raunverulegu framakonu, framakonuna í kvikmyndum og sögu hinna vinnandi kvenna almennt. Við áhlustun mælum við með að hafa goðsagnakennda valdastöru Meryl Streep í Devil Wears Prada í huga og góða skál af poppkorni við hendina.

    Mörk

    Play Episode Listen Later Jul 8, 2021 61:50


    Í þætti vikunnar ræðum við mörk þegar kemur að „kynlífssenum“ í kvikmyndum. Margar frægustu senunar eru vægast sagt vafasamar, og ef maður lítur aftur í kvikmyndasöguna má finna margt óþægilegt sem fer yfir mörk. Við kíkjum á 16 Candles, James okkar Bond (sem þarf á mikilli sálfræðihjálp að halda), The Wedding Crashers og fleiri gamlar og „góðar“. Þátturinn kemur með risa TW á allt sem við tölum um, nema í byrjuninni þegar við ræðum gallabuxnatísku, það er nokkuð öruggt.

    Kynlif

    Play Episode Listen Later Jul 1, 2021 72:26


    Við ræðum kynlíf í dægurmenningu, sérstaklega í bíómyndum og sjónvarpi, í gegn um tíðina. Einnig kíkjum við á Horny Twitter og fáum hjálp graðra tvítverja við að nefna eftirminnilegar kynlífssenur. Mikið er flissað þar sem þáttarstjórnendur virðast ekki alveg nógu þroskaðar til að tækla þetta málefni af yfirvegun. Let's get it on!TW: Nauðgun og kynferðisofbeldi í kvikmyndum

    Sifjaspell II

    Play Episode Listen Later Jun 24, 2021 45:47


    Við höldum áfram að skoða sifjaspell. Nú snúum við okkur að sögu sifjaspella í dægurmenningu aftur til 16. aldar og veltum auk þess fyrir okkur Human Centipede. Af því að .. oj. Eftir þennan þátt getum við svo sáttar snúið okkur að öðru. Takk fyrir.

    Sifjaspell I

    Play Episode Listen Later Jun 17, 2021 48:11


    Sifjaspell eru víðar en við héldum og hafa laumað náskyldum krumlum sínum í ýmsa anga dægurmenningar. Frá Game of Thrones til Hornauga Ásdísar Höllu, yfir í biblíuna og auðvitað í kláminu, bæði rituðu og leiknu, má finna sifjaspell. Við skoðum uppruna þessara vinsælda þeirra, umdeildu kenninguna genahrifningu og flissum svolítið.

    Strákasveitir

    Play Episode Listen Later Jun 10, 2021 62:30


    Þátturinn sem tvær af þremur umsjónarkonum poddsins kafna næstum á sælgæti. Og talandi um sælgæti, í þessari viku fjöllum við um strákasveitir. Við skoðum hvað þær eru, hver fann þær upp og hvers vegna þær eru svona vinsælar. Er það uppbygging sveitanna sem sker úr um hver er strákasveit eða eru það aðdáendurnir? Hvers vegna er almennt litið niður á áhugamál unglingsstúlkna og hvers vegna köfnum við á vegan nammi?

    BMN: Promising Young Woman

    Play Episode Listen Later Jun 3, 2021 113:29


    Kvikmyndaklúbbur Bergrúnar tekur fyrir myndina Promising Young Woman. Við viljum vara við því að myndin fjallar um kynferðisofbeldi og getur umræðan verið triggerandi. Einnig er góð spurning hvers vegna báðar myndirnar sem við höfum tekið fyrir í podcastinu hingað til innihalda Adam Brody, ofbeldi og hefnd. Kannski erum við með þema?Greinar:https://www.vulture.com/2021/02/how-promising-young-womans-soundtrack-came-together.htmlhttps://people.com/movies/carey-mulligan-explains-why-negative-review-stuck-with-her/https://collider.com/promising-young-woman-emerald-fennell-interview-ending-spoilers/https://www.nytimes.com/2021/04/01/podcasts/still-processing-promising-young-women-oscars.htmlhttps://www.latimes.com/entertainment-arts/awards/story/2021-04-12/promising-young-womanhttps://www.thetimes.co.uk/article/promising-young-woman-review-a-masterly-tale-of-vengeance-vxfvxp5g7

    Samfélagsmiðlar: Sjálfið

    Play Episode Listen Later May 27, 2021 62:55


    Marilyn Monroe. Kim Kardashian. Píkan hans Gustave Courbet. Nektarsjálfan, samfélagsmiðlar, valdefling, gægjuhneigð og glápþörf. Við drepum víða niður fæti í þessum þætti sem fjallar um sjálfið á tímum samfélagsmiðla, áhrifavalda og markaðssetninga. Er instagramsjálfsmyndin list, er hún tekin á forsendum viðfangsins, viðheldur hún gömlum fegurðarstöðlum eða er hún tæki til valdeflingar? Við höfum kannski ekki lokasvarið en við höfum heilmargar spurningar. Listakonan sem Sjöfn gat ekki munað nafnið á var Catherine Opie. Mælum með. MA-ritgerð Díönu: https://skemman.is/handle/1946/29959Greinar:https://www.fastcompany.com/28905/brand-called-youhttps://www.ruv.is/frett/2021/04/19/er-nektarsjalfan-listhttps://www.theguardian.com/news/2017/aug/18/neoliberalism-the-idea-that-changed-the-worldhttps://theconversation.com/how-neoliberalism-colonised-feminism-and-what-you-can-do-about-it-94856

    Fitufordómar

    Play Episode Listen Later May 20, 2021 89:13


    TW. átraskanir.Í þættinum ræðum við birtingarmyndir feitra (kvenna) í dægurmenningu. Það kannast flest ef ekki öll við neikvæðar hugsanir um líkama sinn, oftar en ekki vegna þess að hann er „of mikið“ eða „ekki nógu“. Við ræðum þráhyggju samfélagsins gagnvart þyngd, kerfisbundna mismunun, spjöllum um þekktar persónur sem eru kóðaðar neikvæðar vegna holdafars og og eigin reynslu af megrunarmenningu. Mælum með Samtökum um líkamsvirðingu og að hætta að fylgja bara grönnu fólki á instagram. Ef þig langar að senda okkur hugleiðingu eða athugasemd má hafa samband á instagram @birtingarmyndir eða í emaili birtingarmyndir@gmail.comMeðmæli:Þættir:ShrillMy Mad Fat DiaryMyndir:DumplinBrittany Runs a MarathonHlaðvörp:Maintenance PhaseBækur:Hunger, Roxane GayLandwhale, Jes BakerGreinar:https://highline.huffingtonpost.com/articles/en/everything-you-know-about-obesity-is-wrong/https://gay.medium.com/the-body-that-understands-what-fullness-is-f2e40c40cd75

    Fötlun

    Play Episode Listen Later May 13, 2021 78:02


    Hverjar eru birtingarmyndir fatlaðra í menningunni okkar? Af hverju eru aðeins 3.1% leikara í sjónvarpi fatlaðir? Hvers vegna endaði Quasimodo ekki með Esmeröldu í lokin? Einnig -er ekki kominn tími á fatlaðan karakter sem er horny? Við spjöllum um kvikmyndirnar Forrest Gump, Me Beore You, Million Dollar Baby, Hringjarann frá Notre Dame, Shape of Water og A Quiet Place, Peanut Butter Falcon og X-Men og þættina Sex Education, Crip Camp, Master of None og bókina Sitting Pretty sem er einmitt bók mánaðarins í bókaklúbbi Flóru þann 23. maí næstkomandi.TW: Minnumst á kynferðislegt ofbeldi og ableismahttps://www.aruma.com.au/about-us/blog/run-forest-run-disability-stereotypes-in-the-media/

    BMN: Jennifer's Body

    Play Episode Listen Later May 6, 2021 58:04


    Velkomin í kvikmyndaklúbb Bergrúnar, Bergrún's Movie Night. Við ræðum og greinum hina mögnuðu og misskildu költmynd Jennifer's Body frá árinu 2009. Þú þarft ekki að hafa séð myndina til að njóta spjallsins, en við mælum þó með að kíkja á hana. Dýfðu þér með okkur í heim kvenhaturs, hryllingsmynda og misskildra snillinga.TW: Fyrir alls kyns ofbeldi gegn konumVið vitnum meðal annars í greinarnar:https://cinemedia.media/feminism-jennifers-body/https://www.vox.com/culture/2018/10/31/18037996/jennifers-body-flop-cult-classic-feminist-horrorhttps://www.buzzfeednews.com/article/louispeitzman/jennifers-body-diablo-cody-karyn-kusama-feminist-horror

    Lesbíur

    Play Episode Listen Later Apr 29, 2021 66:35


    Hverjar eru þessar lesbíur? Eða hinsegin konur almennt? Við dýfum okkur í skilgreiningar, komum allar út úr skápnum og skoðum birtingarmyndir kvenna sem elska konur í kvikmyndasögunni.

    Geimverur

    Play Episode Listen Later Apr 22, 2021 0:30


    Geimvera hvað? Við fjöllum um geimverumyndirnar Alien (1979), Signs (2002) og Arrival (2016), District 9, Bird Box, A Quiet Place, The Thing (1982) og War of the Worlds. Díana deilir með okkur martröð sem ásækir hana endurtekið og Sjöfn rifjar upp söguþráð Avatar (2009) og af hverju hún er alveg eins og ákveðin Disney mynd. Bergrún vill biðja aðdáendur Alien afsökunar fyrir að slátra myndinni í endursögn og reiða sig of mikið á Wikipedia um þemu og söguþráð.TW: Minnst á nauðgun á mín. 16

    Nornir

    Play Episode Listen Later Apr 15, 2021 84:09


    Er þetta gömul kona sem á kött og huggulegan grasagarð, eða er þetta NORN? Við ræðum nornir almennt, sögu þeirra, kíkjum á hið kynjakvótajafnandi íslenska nornafár og veltum okkur upp úr birtingarmyndum norna í kvikmyndinni The Craft. Galdrið með!Vísindavefurinn: Hvað voru margar nornabrennur á Íslandi, hvenær hættu þær og hverjar voru brenndar?Vísindavefurinn: Af hverju voru nornir brenndar á miðöldum?TW. Stutt minnst á nauðgun á 20. mín, 45. mín og 108. mín.

    Barneignir

    Play Episode Listen Later Apr 8, 2021 67:31


    Hvaða áhrif hafa birtingarmyndir foreldra í poppkúltúr og á samfélagsmiðlum á það hvernig við hugsum um hlutverkið? Mommy-bloggers, instamoms, working moms. Fullkomin outfit, fullkomnar veislur… fyrir hvern er þetta? Hvaða áhrif hefur það á okkur og hvaða áhrif hefur það á börnin?https://www.buzzfeednews.com/article/stephaniemcneal/myka-stauffer-huxley-announcementhttps://www.instagram.com/thebirdspapaya/?hl=enhttps://podcasts.apple.com/gb/podcast/under-the-influence-with-jo-piazza/id1544171101https://www.today.com/parents/under-influence-podcast-unveils-mom-influencers-world-t207937

    Asía I

    Play Episode Listen Later Apr 1, 2021 68:22


    Hvað er Asía? Hver er asískur? Og hvernig birtast okkur staðalmyndir fólks frá þessari gríðarstóru heimsálfu? Við ræðum margbreytileika Asíu, skaðlegar staðalmyndir, hugmyndir vestursins og ris kynþáttafordóma gegn fólki af asískum uppruna á Covid tímum.Ýtarefni:https://www.asiannotasianpod.comhttps://www.earwolf.com/show/yo-is-this-racist/https://flora-utgafa.is/flaedi/rasiskar-stadalmyndir-drepa-stopasianhate/https://www.alliant.edu/blog/bamboo-ceiling-asian-americans-and-myth-model-minority

    Karlmennska II

    Play Episode Listen Later Mar 25, 2021 60:40


    Ó karlmennska, af hverju ertu stundum svona skaðleg? Við skoðum Incel-menningu, gervi-femínista, og margslungnar birtingarmyndir skaðlegrar karlmennsku í dægurmenningu.

    Karlmennska I

    Play Episode Listen Later Mar 18, 2021 55:48


    Við fræðumst um ríkjandi karlmennsku, skaðlega karlmennsku, karlmennskuhugmyndir og Rambo.

    Einhverfa

    Play Episode Listen Later Mar 11, 2021 69:35


    Grannur og spengilegur hvítur, karlkyns snillingur gengur inn í bíómynd. Gæti hann verið ... einhverfur? Við ræðum birtingarmyndir einhverfu í dægurmenningu, mýtur og staðalmyndir.

    Skvísan

    Play Episode Listen Later Mar 4, 2021 73:02


    Við köfum ofan í birtingarmyndir skvísunnar í dægurmenningu. Skvísið ykkur í gang.

    Kynning

    Play Episode Listen Later Mar 3, 2021 13:51


    Birtingarmyndir okkar koma á óvart.

    Claim Birtingarmyndir

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel