Hlaðvarpsþáttur þar sem litið er yfir líf og störf fólks sem tengist Vestmannaeyjum á einn eða annan þátt. Einnig verða lesin upp brot úr sögu Vestmannaeyja í samstarfi við Bókasafn Vestmannaeyja.
Að þessu sinni er þátturinn með öðruvísi sniði. Því nú verður spiluð upptaka af opnum framboðsfundi sem haldin var í gærkvöldi 11. maí.Takk fyrir að hlusta
Í fimmtugasta og fimmta þætti er rætt við peyjana í hljómsveitinni Merkúr. Peyjarnir segja söguna um stofnun hljómsveitarinnar, hvernig þeir koma sér á framfæri í tónlistinni, hvað er framundan hjá Merkúr og margt margt meira skemmtilegt.Í lok þáttarins fáum við að heyra nýja útgáfu af laginu Blind sem peyjarnir í Merkúr sömdu og spila.
Ég ákvað að forvitnast smá um bæjarpólitíkina í aðdraganda að sveitarstjórnarkosningum 14. maí 2022.Hér kemur viðtal mitt við þrjá fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Ég ákvað að forvitnast smá um bæjarpólitíkina í aðdraganda að sveitarstjórnarkosningum 14. maí 2022.Hér kemur viðtal mitt við þrjá fulltrúa Bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey.
Ég ákvað að forvitnast smá um bæjarpólitíkina í aðdraganda að sveitarstjórnarkosningum 14. maí 2022.Hér kemur viðtal mitt við þrjá fulltrúa Eyjalistans.
Í fimmtugasta og fjórða þætti er rætt við Guðbjörgu Rún Gyðudóttur Vestmann. Gugga Rún eins og hún er kölluð ræðir við mig um fjölskylduna, æskuna, vinnuna, hvernig það kom til að hún flutti til Vestmannaeyja og margt, margt fleira.Í seinni hluta þáttarins er lesin upp stutt saga úr fórum Árna Árnasonar símritara, sem nefnist Slys í Elliðaey saga af séra Tómasi Sigurðssyni.Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.is.Þetta sögubrot er í boði Bókasafns VestmannaeyjaEndilega fylgjið hlaðvarpinu á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Í fimmtugasta og þriðja þætti er rætt við Jónu Heiðu Sigurlásdóttur um lífshlaup hennar. Jóna Heiða ræðir við mig um fjölskylduna, æskuna, vinnuna, námið, listina og margt, margt fleira.Í seinni hluta þáttarins er fræðst um fyrsta Elliheimilið í Vestmannaeyjum sem var staðsett í húsinu Skálholti og aðeins farið yfir hvaða tilgangi húsið þjónaði.Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.is.Endilega fylgjið hlaðvarpinu á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Í fimmtugasta og öðrum þætti er rætt við Hrefnu Erlingsdóttur um lífshlaup hennar, störf og veikindi. Hrefna ræðir við mig um fjölskylduna, æskuna, vinnuna, námið, heilablóðfallið, flutninginn á Selfoss, sjálfboðaliðastarfið og margt, margt fleira.Í seinni hluta þáttarins er lesin viska sem Ásta Engilbertsdóttir skrifaði árið 1939 í Blik.Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.is.Endilega fylgjið hlaðvarpinu á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Í fimmtugasta og fyrsta þætti er rætt við Ragnar Sigurjónsson um lífshlaup hans og störf. Raggi eins og hann er oftast kallaður ræðir við mig um fjölskylduna, æskuna, verslunarrekstur, lífið i Viðey, fuglaáhugann og margt, margt fleira.Í seinni hluta þáttarins er lesin samantekt um Grafskipið Vesmannaey. Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.is, einnig frá Kára Bjarnasyni á Bókasafninu og Sveini Valgeirssyni fyrrum starfsmanni Vestmannaeyjahafnar.Endilega fylgjið hlaðvarpinu á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Í fimmtugasta þætti í hlaðvarpinu er rætt við peyjana í Molda og forvitnast um hljómsveitarlífið og hvað er framundan hjá bandinu og margt annað.Peyjarnir sem skipa hljómsveitina Molda eru þeir Albert Snær Tórshamar, Helgi Rasmussen Tórshamar, Þórir Rúnar Geirsson kallaður Dúni og Birkir Ingason.Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra nýja lagið þeirra peyjana í Molda sem heitir Herhlaup Tyrkjans.Endilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Fertugasti og níundi Þáttur.Þátturinn er mjög heimilislegur að þessu sinni, Flóki hlaupandi um að leika sér, þar sem að þátturinn var tekinn upp heima okkur á BjarmalandiAð þessu sinni er rætt við Gísla Matthías Auðunsson. Gísli Matthías ræðir við okkur um fjölskylduna, æskuna, fótboltann, matreiðsluna, nýja veitingastaðinn og nýju bókina sína og margt fleira.Því miður verður smá breyting á þættinum og sögubrotið sem átti að vera, verður lesið seinna þar sem að ég er orðin lasin og náði mér í covid, og ég er ekki fær um að lesa sögubrotið að þessu sinni. En Gísli Matthías bætir okkur það upp með sögum úr lífi sínu.Endilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.Takk kærlega fyrir að hlusta og kærar þakkir fyrir fallegu kveðjurnar sem ég hef verið að fá frá ykkur.Kær kveðjaAlma Eðvaldsdóttir
Í fertugasta og áttunda þætti er rætt við Einar Kristinn Kárason og forvitnast um líf hans og störf. Einar Kristinn ræðir við okkur um íþróttir, fótbolti, fjölskylduna, vinnuna, tísku, saumaskap og margt fleira.Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra stutt ágrip um sögu vatnsins í Vestmannaeyjum.Endilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Í fertugasta og sjöunda þætti er rætt við peyjana í The Foreigns Monkeys og forvitnast um líf þeirra og störf. Peyjarnir í hljómsveitinni eru þeir Bogi Ágúst Rúnarsson, Gísli Stefánsson og Víðir Heiðdal Nenonen .Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra nýja lagið þeirra peyjana í Foreign Monkeys.Endilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Í fertugasta og sjötta þætti er rætt við Þóru Hrönn Sigurjónsdóttur um líf hennar og störf. Þóra Hrönn, ræðir við okkur um fjölskylduna, æskuna, vinnuna, góðgerðarverkefnið sitt, Kubuneh og margt fleira.Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra stutt ágrip um sögu rafmagnsins í Vestmannaeyjum. Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.is. Þetta sögubrot er unnið í samvinnu við Bókasafn Vestmannaeyja.Endilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Í fertugasta og fimmta þætti er rætt við Jónínu Björk Hjörleifsdóttur um líf hennar og störf. Jóný, eins og hún er alltaf kölluð ræðir við okkur um fjölskylduna, æskuna, vinnuna, listina, fósturmissinn og margt fleira.Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra um Hafísinn úr bókinni Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum 1. Útgáfu frá 1938-1939. Jóhann Gunnar Ólafsson safnaði efninu og Þorsteinn Johnson gaf bókina út.Endilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Í fertugasta og fjórða þætti er rætt við Albert Snæ Tórshamar um líf hans og störf. Albert Snær ræðir við okkur um fjölskylduna, æskuna, vinnuna, tónlistina, leiklistina og margt fleira.Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra Albert Snæ syngja lagið Veröldin og ég, textinn er eftir Jórunni Emilsdóttur Tórshamar og lagið er eftir Helga Rasmussen Tórshamar.Lagið er að finna á plötunni Brekka sem Helgi Rasmussen Tórshamar gaf út árið 2019 í tilefni af þvi að amma þeirra Jórunn Emilsdóttir Tórshamar hefði orðið 100 ára.Endilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar
Í fertugasta og þriðja þætti er rætt við Thelmu Lind Þórarinsdóttur um líf hennar og störf. Thelma Lind ræðir við okkur um fjölskylduna, æskuna, vinnuna, leiklistina og margt fleira.Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra lesið brot úr dagbók Agnesar Aagaard um Jólahald 1878 og einnig fáum við að heyra brot úr fórum Árna Árnasonar símritara um fyrstu jólatrésskemmtunina í Vestmannaeyjum. Heimildir voru fengnar á Heimaslóð.isEndilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Í fertugasta og öðrum þætti er rætt við Guðrúnu Erlingsdóttur um líf hennar og störf. Guðrún ræðir við okkur um fjölskylduna, æskuna, minningar úr gosinu, vinnuna, tónlistina og margt fleira.Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra jólalag sem Guðrún Erlingsdóttir samdi og gaf út nú fyrir jólin, lagið heitir Friður á jólanótt.Endilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Í fertugasta og fyrsta þætti er rætt við Gísla Hjartarson um líf hans og störf. Gilli eins og hann er oftast kallaður ræðir við okkur um fjölskylduna, prentsmiðjuna, crossfit og heilsurækt, ferðalög, pólitík og margt fleira.Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra sögu sem Lilja Guðmundsdóttir ritaði í Blik 1939. Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.isÞetta sögubrot er í boði Bókasafns VestmannaeyjaEndilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Í fertugasta þætti er rætt við Ólaf Inga Sigurðsson um líf hans og störf. Ólafur Ingi ræðir við okkur um fjölskylduna, myndlistina, leiklistin, vinnuna og margt fleira.Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra um Huldufólkið í Dölum. Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.isÞetta sögubrot er í boði Bókasafns VestmannaeyjaEndilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Í þrítugasta og níunda þætti er rætt við Gunnar Júlíusson um líf hans og störf. Gunnar ræðir við okkur um fjölskylduna, æskuna, vinnuna, listina, upplifun sína af árasinni á tvíburaturnana í New York og margt fleira.Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra fróðleik um Dali-Dalabúið.Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.isÞetta sögubrot er í boði Bókasafns VestmannaeyjaEndilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninuVestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Í þrítugasta og áttunda þætti er rætt við Drífu Þöll Arnardóttur um líf hennar og störf. Drífa Þöll ræðir við okkur um fjölskylduna, æskuna, bækur, lestur, hvernig samfélagið tók henni þegar að hún kom til Eyja og margt fleira.Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra fróðleik um Skansinn. Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.is
Í þrítugasta og sjöunda þætti er rætt við Jóhönnu Lilju Eiríksdóttur um líf hennar og störf. JóhannaLilja ræðir við okkur um fjölskylduna, listina, æskuna, Brakka genið BRCA, brjóstnámið og margt fleira. Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra um Krabbavörn í Vestmannaeyjum. Heimildir eru fengnar úr grein sem Kristín Valtýsdóttir skrifaði fyrir hönd stjórnar Krabbavarnar og einnig af Facebook síðu félagsins.Ég hvet alla sem geta, að styrkja Krabbavörn. Krabbavörn er mjög þarft félag og er það ómetanlegur styrkur og stoð sem það veitir þeim sem veikjast af krabbameini.Reikningsnúmer Krabbavarnar er : 582-26-2000kennitala Krabbavarnar er : 651090-2029Endilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Í þrítugasta og sjötta þætti er rætt við Vilhjálm Ísfeld Vilhjálmsson um líf hans og störf. Villi, eins og hann er oftast kallaður, ræðir við okkur um fjölskylduna, listina, æskuna, minningar úr gosinu, áhugamálin og margt fleira.Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra um komu fyrsta bílsins til Vestmannaeyja. Heimildir eru fengnar á Heimaslóð.isÞetta sögubrot er í boði Bókasafns Vestmannaeyja
Í þrítugasta og fimmta þætti er rætt Guðbjörgu Ósk Friðriksdóttur um líf hennar og störf. Ósk, eins og hún er oftast kölluð, ræðir við okkur um fjölskylduna, æskuna, minningar úr gosinu, þerapíuna sem hún bjó til sem heitir Lærðu að elska þig og margt fleira. Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra lesna grein um hvernig síminn kom til Vestmannaeyja. Heimildir eru fengnar úr grein sem birtist í jólablaði Dagskrá árið 1991 og af Heimaslóð.is Þetta sögubrot er í boði Bókasafns Vestmannaeyja
Í þrítugasta og fjórða þætti er rætt Gíslínu Dögg Bjarkadóttur um líf hennar og störf. Gíslína ræðir við okkur um fjölskylduna, myndlistina, hvernig var að flytja til eyja, og margt fleira.Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra smá um Kaplagjótu og sögu um Tíkartóar drauginn.Endilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og Saga
Í þrítugasta og þriðja þætti er rætt Berglindi Sigmarsdóttur um líf hennar og störf. Berglind ræðir við okkur um fjölskylduna, myndlistina, hvernig var að búa á Bahama eyjum, bókaskrifin, hvernig það er að reka veitingastað í eyjum og margt fleira. Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra frásögn sem kom í Blik árið 1962 sem ber nafnið Hálmstráið - Lífgjöfin.
Í þrítugasta og öðrum þætti heimsóttum við Margréti Karlsdóttur á fallega heimili hennar á Hraunbúðum og áttum skemmtilega stund þar sem við ræddum við hana um líf hennar og störf.Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra samantekt um hvernig upphafið á flugi til Vestmannaeyja var. Heimildir og texta fengum við á Heimaslóð.is
Í þrítugasta og fyrsta þætti er rætt við Alexander Pál Salberg um líf hans og störf. Alexander Páll ræðir við okkur um líf sitt, fjölskylduna, vinnuna, leikhúslífið, og margt fleira. Í seinni hluta þáttarins heyrum við stutta sögu um olnbogadrauginn sem er að finna á Heimaslóð.is og er unnin úr bókinni sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum. Þetta sögubrot er unnið í samstarfi við Bókasafn Vestmannaeyja
Þrítugasti þáttur er aðeins heimilislegri að þessu sinni. Þar sem ég heimsótti Aldísi Gunnarsdóttur og tók viðtalið upp á fallega heimili fjölskyldu hennar í Garðabæ. Og þar sem að ég er stödd í höfuðborginni, þá tók ég upp kynningarorðin og sögubrotið heima hjá frænku minni í Mosfellsbæ, þar sem ég er umkringd 3 yndislegum hundum. þú mátt því eiga von á að heyra smá í litlum loppum og örlitlar hrotur frá Jasmín minni. Ég vona að það trufli ekki við hlustunina á þættinum.En að þætti vikunnar.Í þrítugasta þætti er rætt við Aldísi Gunnarsdóttur um líf hennar og störf. Aldís ræðir við okkur um líf sitt, námið, myndlistina, hvernig var að búa í Noregi, ferðina sem hún fór á Víkingaskipinu Gaia og margt fleira.Í seinni hluta þáttarins heyrum við stutta samantekt um sögu Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Þetta sögubrot er unnið úr heimildum á Heimaslóð.is Fív.is og Úr Blik.
Tuttugasti og níundi Þáttur.Í tuttugasta og níunda þætti er rætt við Tryggva Hjaltason um líf hans og störf. Tryggvi ræðir við okkur um líf sitt, námið sem hann fór í erlendis, vinnuna, tónlistina og margt fleira.Í seinni hluta þáttarins heyrum við grein sem Halldór Svavarsson tók saman um bók sem hann skrifaði um Grænlandsför Gottu og var gefin út 2018.
Í tuttugasta og áttunda þætti er rætt við Guðnýju Charlottu Harðardóttur um líf hennar og störf. Guðný Charlotta ræðir við okkur um líf sitt, tónlistina, tónlistarnámið og margt fleira.Í seinni hluta þáttarins heyrum við smá samantekt um Landlyst, sem er eitt af elstu húsum í Vestmannaeyjum og á mikla sögu. Þessi samantekt er unnin úr efni frá Heimaslóð.is og úr Blik.Þetta sögubrot er í boði Bókasafns Vestmannaeyja
Í tuttugasta og sjöunda þætti er rætt við Þórarinn Ólason um líf hans og störf. Tóti eins og við þekkjum hann, ræðir við okkur um líf sitt, fjölskylduna, tónlistina og margt fleira. Í seinni hluta þáttarins segir Grímur Gíslason okkur söguna á bakvið lag afa síns, hans Binna í Gröf, og við fáum að heyra lagið sem ber heitið, Þótt prófið sé bráðum að byrja.
Í tuttugasta og sjötta þætti er rætt við Gísla Stefánsson um líf hans og störf. Gísli ræðir við okkur um líf sitt, fjölskylduna, tónlistina, kirkjustarfið, pólitík og margt fleira.Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra stutta samantekt um Kirkjubæ, sem er unnin úr heimildum úr bók Guðjóns Ármanns Eyjólfssonar, Vestmannaeyjar byggð og eldgos, og einnig úr grein á Heimaslóð.is.Þetta sögubrot er í boði Bókasafn Vestmannaeyja.
Í tuttugasta og fimmta þætti er rætt við Svavar Steingrímsson um líf hans og störf. Svabbi, eins og við eyjamenn þekkjum hann, ræðir við okkur um lífshlaup sitt, fjölskylduna, rifjar upp lífið þegar hann var ungur og margt fleira. Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra stutta samantekt um Vilborgarstaði, sem er er unnin úr heimildum úr bók Guðjóns Ármanns Eyjólfssonar, Vestmannaeyjar byggð og eldgos, og einnig úr greinum á Heimaslóð.is. Þetta sögubrot er í boði Bókasafn Vestmannaeyja
Í tuttugasta og fjórða þætti er rætt við Hebu Rún Þórðardóttur um líf hennar og störf. Heba Rún ræðir við okkur um lífshlaup sitt, fjölskylduna, hvernig er að koma inní samfélagið í Vestmannaeyjum, rifjar upp fyndna sögu, þegar hún tók þátt í stefnumótaþættinum Djúpu lauginni. Einnig ræðir hún við okkur um unglingana okkar, villiketti og margt fleira. Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra stutta samantekt um Ömpustekki, sem er er unnin úr heimildum frá Ólafi Tý Guðjónssyni, Kristjönu Þorfinnsdóttur og greinum á Heimaslóð.is.
Í tuttugasta og þriðja þætti er rætt við Silju Elsubetu Brynjarsdóttur um líf hennar og störf. Silja Elsabet ræðir við okkur um lífshlaup sitt, fjölskylduna, söngnámið og margt fleira. Einnig munum við fá að heyra Silju Elsubetu flytja lagið Ágústnótt af nýja disknum sem hún var að gefa út ásamt Helgu Bryndísi Magnúsdóttur píanóleikara. Diskurinn ber nafnið Heima og inniheldur sönglög eftir Oddgeir Kristjánsson. Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra stutta samantekt um pysjurnar, sem flögra nú til byggða og við Eyjskeggjar og gestir keppumst við bjarga núna á kvöldin þessa dagana. Heimildir eru fengnar á lundi.is, heimaslóð.is og á vísindavefur.is.
Í tuttugasta og öðrum þætti er rætt við Katrínu Laufeyju Rúnarsdóttur um líf hennar og störf. Kata Laufey, eins og hún er kölluð, ræðir við okkur um lífshlaup sitt, fjölskylduna, hvernig samfélagið tók henni þegar hún flutti til eyja, Tígul og margt fleira. Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra lesið stutt ágrip, um Þjóðhátíð Vestmannaeyja, sem er skrifað uppúr ágripi frá Skapta Erni Ólafssyni og birtist í bók Laufeyjar Jörgensdóttur sem ber heitið Undurfagra Ævintýr og einnig úr efni á Heimaslóð.is.
Í tuttugasta og fyrsta þætti er rætt við Sigurbjörgu Kristínu Óskarsdóttur um líf hennar og störf. Sigga Stína, eins og hún er kölluð, ræðir við okkur um lífshlaup sitt, hvernig samfélagið tók henni þegar hún kom frá Vík, Krabbavörn í Vestmannaeyja og margt fleira. Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra lesna grein sem Karl Gauti Hjaltason, fyrrum sýslumaður í Vestmannaeyjum og núverandi þingmaður, skrifaði á bloggsíðu sína eyjapeyji.blog.is sem ber nafnið Herfylkingin í Vestmannaeyjum.
Í tuttugasta þætti er rætt við Elvu Ósk Ólafsdóttur um líf hennar og störf. Elva Ósk ræðir við okkur um hvernig það var að alast upp í eyjum, fjölskylduna, leiklistina og margt fleira. Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra lesin kafla úr Sögu Vestmannaeyja sem Sigfús M Johnsen skrifaði 1946.
Í nítjánda þætti er rætt við Ágúst Halldórsson um líf hans og störf. Ágúst ræðir við okkur um hvernig það var að alast upp í eyjum, fjölskylduna, vinnuna og margt fleira. Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra lesna fréttatilkynningu og kvæði sem birtist í Blik 1960, og ber nafnið Herjólfi fagnað.
Í átjánda þætti er rætt við Gísla Helgason um líf hans og störf. Gísli ræðir við okkur um hvernig það var að alast upp í eyjum og Reykjavík, fjölskylduna, eyjapistil, tónlist, hljóðbókasafnið og ýmislegt fleira. Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra lestur á grein úr Sögu Vestmannaeyja sem Sigfús M Johnsen skrifað 1946. Greinin sem lesin verður ber nafnið Matföng og matarhæfi. Þar er farið yfir hvaða matur var á borðum í Vestmannaeyjum fyrr á öldum.
Aukaþáttur vegna goslokahátíðar í Vestmannaeyjum, okkur sem stöndum að hlaðvarpinu Vestmannaeyjar - mallíf og saga langaði að fagna 48 ára goslokaafmæli með sögubroti sem er upptaka af þætti síðan 1983 sem nefnist Eldgosið í Heimaey fyrir 10 árum þar sem að umsjónarmenn Eyjapistils, þeir Arnþór og Gísli Helgasynir rifja upp ýmislegt frá gosinu sem stóð frá 23. janúar - 3. júlí 1973. Samstarfsmaður við gerð þáttarinns Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson auk hjálparhellu úti í Eyjum Súlli Johnsen.Fyrir hönd hlaðvarpsins Vestmanaeyjar - mannlíf og saga óskum við eyjaskeggjum öllum til hamingju með goslokaafmælið.
Í sautjánda þætti er rætt við Eið Arnarsson um líf hans og störf. Eiður ræðir við okkur um hvernig er að alast upp í eyjum, fjölskylduna, tónlist og ýmislegt fleira.Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra upplestur á grein úr Gamalt og nýtt, mánaðarriti síðan júní 1950, sem Einar Sigurðsson var ritstjóri af.Greinin sem lesin er ber nafnið Brúðkaupsveizlur í Kumbaldanum og er Heimildarmaður Ólöf Jónsdóttir, Byggðarholti, Vestmannaeyjum. Síðar er lesin kaflinn Brúðkaupsveizlur, brúðargangur og fleira úr fyrsta bindi Sögu Vestmannaeyja sem Sigfús M Johnsen skrifaði.
Í sextánda þætti er rætt við Hafþór Elí Hafsteinsson um líf hans og störf. Hafþór ræðir við okkur um hvernig er að alast upp í eyjum, sjómennsku, tónlist og ýmislegt fleira.Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra upplestur á grein úr Gamalt og nýtt, mánaðarriti síðan Desember 1949, sem Einar Sigurðsson var ritstjóri af.Greinin sem lesin er ber nafnið Hljómlistarlíf í Vestmannaeyjum um aldamót og er eftir Einar Sigurðsson.Þetta sögubrot er í boði Bókasafn Vestmannaeyja.
Í fimmtánda þætti er rætt við Guðmund Örn Jónsson um líf hans og störf. Guðmundur Örn ræðir við okkur um lífshlaup sitt, störf, menntun, hvernig það er að koma inní samfélagið í Vestmannaeyjum og ýmislegt fleira.
Í fjórtánda þætti er rætt við Þórólf Guðnason um líf hans og störf. Þórólfur ræðir við okkur um lífshlaup sitt, endurminningar, hljóðfæraleik, menntun og ýmislegt fleira.
Í þrettánda þætti er rætt við Svanhildi Eiríksdóttur um líf hennar, menntun og störf. Svanhildur ræðir við okkur um lífshlaup sitt, Argentínu, sundfélagið og ýmislegt fleira.Í seinni hluta þáttarins fáum við að hverfa aftur til ársins 1950. Þann 23. Október 1950 var haldin kvöldvaka og fáum við núna að hlusta á viðtal sem Þorsteinn Víglundsson skólastjóri tók við Þorbjörn Guðjónsson, Kirkjubæ, um landbúnað.Þetta sögubrot er í boði Bókasafn Vestmannaeyja.
Í tólfta þætti er rætt við Pétur Steingrímsson um líf hans og störf. Pétur ræðir við okkur um lífshlaup sitt, áhugamálin, starfið og ýmislegt fleira.Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra tvær greinar um örnefni, Drífa Þöll Arnardóttir les.Þessi fróðleikur er unninn í samstarfi við Bókasafn Vestmannaeyja.
Í ellefta þætti er rætt við Víðir Reynisson um líf hans og störf. Víðir ræðir við okkur um lífshlaup sitt, menntun, almannavarnir starfið og ýmislegt fleira.Í seinni hluta þáttarins fræðumst við örsnöggt um Knattspyrnufélagið Tý í tilefni af 100 ára afmæli þess. Sá pistill er unninn í samstarfi við Bókasafn Vestmannaeyja.Endilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga. Hér má hlusta á fyrri hlaðvörp Mannlífs og sögu
Í tíunda þætti er rætt við Ingibjörgu Bryngeirsdóttur um líf hennar og störf. Ingibjörg ræðir við okkur um lífshlaup sitt, menntun, og ýmis verkefni sem hún hefur á prjónunum.Í seinni hluta þáttarins fáum við heyra stuttan kafla úr bókinni Eyjar og úteyjalíf, úrval verka Árna Árnasonar símritari, frá Grund. Sem Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja gáfu út 2012.