Podcasts about karlsd

  • 30PODCASTS
  • 113EPISODES
  • 1h 23mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Apr 11, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about karlsd

Latest podcast episodes about karlsd

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - föstudagur 11. apríl 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Apr 11, 2025 54:30

Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma:   Jónína Þórdís Karlsdóttir lögfræðingur hjá Húseigendafélaginu um drasl í garði nágrannans Björn Ingi Hrafnsson ritstjóri Viljans og aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar fór yfir pólitíska sviðið nú þegar þingmenn eru nýkomnir í páskafrí Gunnar Gunnarsson forstöðumaður greiningar og ráðgjafar hjá Creditinfo Sigrún A Þorsteinsdóttir sérfræðingur hjá VÍS

Rauða borðið
Rauða borðið 29. jan - Hagræðing, spilling, rasismi, reynsluboltar, samkeppni og klassíkin rokkar

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 29, 2025 255:33

Miðvikudagur 29. janúar Hagræðing, spilling, rasismi, reynsluboltar, samkeppni og klassíkin rokkar Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og og Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku bregðast við sparnaðartillögum Viðskiptaráðs og ræða hvatningu ríkisstjórnarinnar um hagræðingu. Benjamín Julian verkastjóri verðlagseftirlits Alþýðusambandsins fer yfir verð á matvörumarkaði og spáir í hvort samruni Prís og Nettó muni auka samkeppni. Elvar Örn Friðriksson, framkvæmdastjóri Verndarsjóðs Villtra Laxastofna og stuðningsmaður íbúalýðræðis í Seyðisfirði og Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður ræða hvort spilling komi við sögu hjá þeim sem helst vilja sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Sóley Dröfn Davíðsdóttir, yfirsálfræðingur við Kvíðameðferðarstöðina ræðir um sálfræðilegar rætur rasisma. Reynsluboltarnir miðla af visku sinni í spjalli um allt mögulegt, menningu, þjóðmál, stjórnmál og hvað eina, í þetta sinn koma þær Elín Albertsdóttir, Soffía Karlsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir. Tónlistarnemarnir Sól Björnsdóttir og Sóley Smáradóttir koma í Klassíkin rokkar og taka á móti Þórði Magnússyni tónskáldi og Þórunni Ósk Marinósdóttur víóluleikara í tilefni af nýjum fiðlukonsert Þórðar sem verður flumfluttur í Hörpu á morgun.

Mannlegi þátturinn
Kvennaathvarfið, hráfæði og litla tónlistarhornið

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 16, 2025 50:00

Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfs, komst í desember á lista breska ríkisútvarpsins BBC yfir 100 áhrifamestu konur heims árið 2024. Linda segir að hún geti ekki neitað því að hún hafi verið hissa þegar hún heyrði af þessu, hún segist vera sett á listann sem málsvari Kvennaathvarfsins og að hún standi á herðum þeirra kvenna sem stofnuðu athvarfið árið 1982. Linda kom í þáttinn og sagði frá starfsemi Kvennaathvarfsins, hver sérstaða þess er, hver þróunin hefur verið frá stofnun, stöðunni í dag og byggingu nýs athvarfs sem verður tekið í gagnið á næsta ári. Við höfum farið vítt og breitt um hollustuheima í janúar og fengum beiðni frá hlustanda um að fjalla um hráfæði í þættinum. Sigurlína Davíðsdóttir, prófessor emeritus, kom í þáttinn en hún hefur verið á hráfæði frá árinu 2001 og sagði okkur frá sinni reynslu og hvernig er gott að taka fyrstu skrefin í að breyta yfir í hráfæði. Í lokin vorum við með lítið tónlistarhorn þar sem við spiluðum þrjú lög sem leikurar sem leika í sjónvarpsþáttunum um Vigdísi syngja. Þetta voru lögin Í garðinum heima sem Elín Hall syngur, en hún leikur yngri útgáfuna af Vigdísi í þáttunum. Svo var það lagið Fólkið í blokkinni sem Eggert Þorleifssonsyngur, en hann leikur föður Vigdísar í þáttunum. Og að lokum var það lagið Söngu Gullauga, sem Hanna María Karlsdóttir syngur, en hún leikur móður Vigdísar í þáttunum. Og til að bæta aðeins við tenginguna þá léku þau Eggert og Hanna María saman í söngleiknum Gretti, en bæði lögin sem þau sungu eru úr þeim söngleik. Tónlist í þættinum í dag: Það þarf fólk eins og þig / Rúnar Júlíusson (Buck Owens, texti Rúnar Júlíusson) Í fylgsnum hjartans / Hildur Vala Einarsdóttir (Ástvaldur Traustason, texti Stefán Hilmarsson) Í garðinum heima / Elín Hall (Elín Hall) Fólkið í blokkinni / Eggert Þorleifsson (Ólafur Haukur Símonarson) Söngur Gullauga / Hanna María Karlsdóttir (Egill Ólafsson-Þórarinn Eldjárn) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Höfundar Skaupsins, María, Katla og Friðgeir föstudagsgestir

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 27, 2024 50:00

Við vorum með þrjá föstudagsgesti í dag, það voru þau Katla Margrét Þorgeirsdóttir, María Reyndal og Friðgeir Einarsson, en þau eru öll í höfundateymi Skaupsins í ár. Við fórum með þeim yfir árið sem er að líða, hvernig það hefur verið fyrir þau, bæði persónulega og svo í því samhengi að vera að skrifa Skaupið. Eins töluðum við um hátíðar- og áramótahefðir og hvað þau gera á þessum tímamótum sem áramótin eru. Tónlistin í þættinum: Gamlárspartý / Baggalútur (erlent lag, texti Bragi Valdimar Skúlason) Skammdegisvísur / Ragnhildur Gísladóttir, Magnús Þór Sigmundsson, Ólafur Þórðarson Gömul kynni gleymast ei / Guðrún Árný Karlsdóttir (erlent lag, texti Árni Pálsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

gu magn katla einarsson fundar karlsd sigmundsson baggal ragnhildur g geir f
Mannlegi þátturinn
Skautað á Akureyri, vinkill um rauðan sportbíl og Soffía lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 30, 2024 50:00

Við kíktum í heimsókn í Skautahöllina á Akureyri og fovitnuðumst um hið öfluga félagsstarf sem þar fer fram hjá Skautafélagi Akureyrar. Þar vaxa upp leikmenn sem skila sér í íshokkífélög til dæmis í Svíþjóð, Þýskalandi og Danmörku svo eitthvað sé nefnt. Við hittum framkvæmdastjórann Jón Benedikt Gíslason og tvo unga leikmenn. Við fengum svo í dag vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Vinkillinn fjallaði að þessu sinni um þann leiða ávana margra, að dæma ýmislegt fyrirfram eftir útliti þess, við fengum nokkur dæmi frá Guðjóni og litla dæmisögu um rauðan sportbíl sem reyndist flagð undir fögru skinni. Að lokum fengum við ljóð frá Akureyrsku skáldi sem fjallar um mannsævina fram að þrítugu. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Soffía Karlsdóttir, leikkona og söngkona. Hún mun ásamt hljómsveit, í tilefni af 40 ára útgáfuafmælis plötu Bubba Morthens, Kona, flytja hana í heild á tónleikum á tónleikum um næstu helgi, auk þekktra laga eftir Leonard Cohen. En hún sagði okkur auðvitað frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Soffía talaði um eftirtaldar bækur og höfunda: Sögur úr Síðunni e. Böðvar Guðmundsson Ljóð Leonard Cohen Ljóð Káinn Hýbýli vindanna og Lífsins Tré e. Böðvar Guðmunds Fátækt fólk e. Tryggvi Emils Selur kemur í heimsókn e. Deitch og Hlavatý Sigrún fer á sjúkrahús e. Njörð P. Njarðvík Páll Vilhjálmsson e. Guðrún Helgadóttir Pollyanna e.Eleanor H. Porter Tónlist í þættinum: Haust / Elly Vilhjálms og Hljómsveit Svavars Gests (Baldur Geirmundsson) De Smukke Unge Mennesker / Kim Larsen (Kim Larsen) Talað við gluggann / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Langvinn Covid einkenni, Hljóðóþol og Efnaskiptavandi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 24, 2024 51:37

Hópur fólks hér á landi sem hefur glímt við alvarleg og langvinn veikindi eftir COVID kallar eftir vitundarvakningu og úrræðum í íslensku heilbrigðiskerfi. Þessi eftirköst og veikindin hafa gert það að verkum að fólk er nánast óvinnufært og glímir við margvíslegan heilsubrest á borð við eilífðar flensueinkenni, mæði, slæma hausverki, ógleði, heilaþoku, máttleysi og margt fleira. Þær Hafdís Inga Helgudóttir Hinriksdóttir og Sigríður Elín Ásgeirsdóttir sem báðar hafa verið heilsuhraustar og miklar íþróttakonur segja líf sitt hafa kollvarpast eftir að þær greindust með Covid fyrir tveimur árum. Þær komu í þáttinn. Hljóðóþol er taugaröskun sem lýsir sér í því, að upplifum tiltekinna hljóða veldur svo mikilli vanlíðan að það truflar allar athafnir daglegs lífs. Mikilvægt er að greina börn með hljóðóþol snemma þannig að hægt sé að gera ráðstafanir sem koma í veg fyrir að hljóðóþolið trufli nám og félagslegan þroska og það þarf að útbúa greiningartól og fræðsluefni fyrir starfólk menntastofnana. Heyrnarhjálp vinnur nú í að undirbúa ráðstefnu um Hljóðóþol og ráðstefnan verður 15.okt. Halla B. Þorkelsson formaður Heyrnarhjálpar og Hjörtur H Jónsson fv. Formaður,komu í þáttinn. Fólk sem greinist með efnaskiptavillu eða hvers kyns lífsstíls kvilla sem geta leitt til alvarlegra sjúkdóma geta nú fengið ráðgjöf um sitt heilsufar, mataræði og lífstíl og leiðrétt það með hjálp tveggja lækna, sem eru reyndar líka hjón en þau stofnuðu nýlega heilsufyrirtækið Sound Health lífstílslækningar í þeim tilgangi að veita fólki ráðgjöf um hvernig það getur sjálft gripið í taumana. Þau Kjartan Hrafn Loftsson og Tekla H. Karlsdóttir ræddu um efnaskiptaheilsu og einnig úrræði fyrir langvinn Covid einkenni. Tónlist í þættinum: Eyjólfur Kristjánsson - Kiddi greifi. Thomas, B.J. - Raindrops keep fallin' on my head. Beatles, The - Blackbird. Umsjón Helga Arnardóttir og Guðrún Gunnarsdóttir

Rauða borðið
Rauða borðið 10. sept - Framhaldsskólinn, orkuskortur og orkuþjófnaður, Ítalía og ferðaiðnaður

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 10, 2024 271:05

Þriðjudagurinn 10. september Framhaldsskólinn, orkuskortur og orkuþjófnaður, Ítalía og ferðaiðnaður Við förum yfir mótmæli dagsins og ræðum svo stöðu framhaldsskólanna. Sandra Hlín Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi við Borgarholtsskóla og varamaður í stjórn Félags framhaldsskóla, Anton Már Gylfason, formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum og áfangastjóri við Borgarholtsskóla, Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF og áður kennari við Menntaskólann á Akureyri og Ingibjörg Karlsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu FF og áður kennari við Menntaskólann í Kópavogi koma að Rauða borðinu og greina hvað er vel gert og hvað illa í framhaldsskólum. Snæbjörn Guðmundsson jarðfræðingur og formaður Náttúrugriða og Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands ræða orkumál við Oddnýju Eir Ævarsdóttur, sem síðan ber sjónarmið þeirra undir Sigurð Hannesson framkvæmdastjóra Samtaka Iðnaðarins. Roberto Luigi Pagani aðjúnkt við HÍ segir okkur frá stjórnmálum á Ítalíu og reyndar líka af íslenskukennslu fyrir útlendinga. Og í lokin kemur Edward H. Huijbens, prófessor í menningar-landfræði við Wageningen háskóla, og ræðir ferðaiðnaðinn.

Hearing Architecture
Anna Karlsdóttir & Jan Dobrowolski - This Concrete Nation

Hearing Architecture

Play Episode Listen Later Jul 3, 2024 68:24

The Hearing Architecture podcast, proudly sponsored by Brickworks, presents Again and Again and Again, a mini-series hosted by Hilary Duff. Each week, we will bring you interviews and conversations as we seek better ways to understand, harness and deploy the expertise and knowledge of professionals currently within the design community, at home and abroad. Our guests are all experts on circularity within the building industry and share the aim to display that waste is not an accident but the consequence of decisions made at the design stage. Here is our opportunity. We, as designers, have an opportunity to do better. In this interview, I meet with Ana and Jan of Studio Ludika, an emerging Icelandic based architectural and research practice. Ana is a born and bred Icelander, who teamed with the Polish born, Cario raised Jan, to establish Studio Ludika when living in the UK. After years of practice, the duo shifted their office to Ana's home city of Reyjakvik, where their studio focuses on research and construction projects concurrently. Their multifaceted work combines research development and undertaking with the aim of introducing a more sustainable and self-sufficient way of building in Iceland, with a focus on alternative bio-based materials I was particularly interested in speaking with Jan and Ana because of the many parallels can be drawn from Iceland as an island nation, to the scenario back at home on our island… Australia. Our island's similarly feature incredible natural wonders drawing in thousands of tourists. But our lands are also rich in natural assets, deemed ripe for exploitation, extraction and export across the globe. Despite being rich in resources, research to date, suggests that the majority of materials being utilised in the average construction in Iceland, is brought in from abroad. Walking the docks, not too far from the city centre, you can see row after row of shipping container arriving full, and leaving empty. The city is building taller, sprawling further, and is full of grey, thick and solid concrete. Almost 70% of construction in Iceland is concrete based. A wild fact for a country with no local cement industry. In our conversation, Ana and Jan lament that Icelanders we have forgotten how to build self sufficiently, living on an island completely reliant on carbon intensive material imports. Among other things, Ana and Jan comment on how Icelanders used to know how to build with what they had around them. In a country of very little trees for timber, they built within the landscapes. Grassy turf houses that raised and fell back into the earth. They note that at the time, it wasn't a glorious, but it worked. It kept it's inhabitants warmed, and safe through icy winters. Now they dream of a day where locals  don't have to rely on the outside world to provide most things, and where homes don't have to become hermetic capsules cut off from nature, through layers of synthetic materials with ever more complicated ways of cutting off the inside from the outside. Of a return to architecture which embraces the natural that surrounds it, and where buildings don't need to exploit, pollute and be dependent. But our conversation is a hopeful one. We discuss how the smallness of Iceland can become a driving force, and an advantage that bigger sprawling societies lack: agility. Ludika is working towards a reality through experimentation, testing, and hopefully eventually through demonstrating with regular construction, that we can build differently to what has become the norm. Can Iceland be a trailbalizer in demonstrating that radical transformation in how we build is possible? If a small island nation can demonstrate this, perhaps the feat for larger nations will no longer be unimaginable…. This has been Again&Again&Again, a mini-series of Hearing Architecture, proudly sponsored by Brickworks, and made possible with the support of the Alastair Swayn Foundation. This episode was recorded during a period of residency with the SIM Icelandic Arts Association,  Thank you so much for listening and thank you to our international guests Ana and Jan of Studio Ludika. Thank you for sharing your story and encouraging us to move towards a society where the buildings we raise, do not contribute to climate breakdown. We look forward to speaking with you again in the future. Our sponsor Brickworks also produces architecture podcasts hosted by Tim Ross. You can find ‘The Art of Living', ‘Architects Abroad, and ‘The Power of Two', at brickworks.com.au or your favourite podcast platform. If you'd like to show your support please rate, review, and subscribe to Hearing Architecture in your favourite podcast app. If you want to know more about what the Australian Institute of Architects is doing to support architects and the community please visit architecture.com.au This is a production by the   Australian Institute of Architects Emerging Architects and Graduates Network, in collaboration with Open Creative Studio. The miniseries Again&Again&Again is proudly supported by the Alstair Swayne Foundation. The Institute production team was Madelynn Jenkins, and Claudia McCarthy, and the EmAGN production team was Daniel Moore and Hilary Duff. Music by Blue Dot Sessions released under Creative Commons Licencing. This content is brought to you by the Australian Institute of Architects Emerging Architects and Graduates Network, in collaboration with Open Creative Studio. This content does not take into account specific circumstances and should not be relied on in that way. This content does not constitute legal, financial, insurance, or other types of advice. You should seek independent verification or advice before relying on this content in circumstances where loss or damage may result. The Institute endeavours to publish content that is accurate at the time it is published, but does not accept responsibility for content that may or will become inaccurate over time.

Fram og til baka
Maggi Trygva og tónleikastaðirnir fimm.

Fram og til baka

Play Episode Listen Later May 11, 2024 114:00

Gestur Fimmunnar í Fram og til baka þennan morguninn var Magnús Trygvason Eliassen tónlistarmaður. Maggi er einn frambærilegasti og eftirtektarverðasti trommari landsins, ættaður í aðra röndina frá Þrándheimi og í hina frá Vatnsenda í Kópavogi. Magnús er meðlimur Moses Hightower, ADHD, Histog, Tilbury og fleiri hljómsveita og hefur hann því í sínu starfi heimsótt marga góða tónleikastaði á landinu. Hann deildi með hlustendum Fram og til baka þeim fimm tónleikastöðum sem hann hefur sérstakt dálæti á. Í seinni hluta þáttar var tónlistin allsráðandi. Leikin voru lög sem eiga það sameiginlegt að hafa komið upp úr Söngvakeppni Sjónvarpsins í gegnum tíðina en þó ekki fagnað sigri. Það leynast ýmsar perlur úr þeim sarpi og við fengum að heyra nokkrar sem hafa lifað með þjóðinni og önnur sem eiga skilið að vera spilaðar oftar. Hér eru lögin sem heyrðust í þætti dagsins: Frá kl. 08-09. Change - Yakkety yak smacketty smack. Moses Hightower - Tíu dropar. The Band - The Night they drove old Dixie down. Prins Póló, Moses Hightower - Eyja (feat. Prins Póló). Tilbury - Tenderloin. Frá kl. 09-10. Friðrik Dór - Í síðasta skipti (Söngvakeppnin 2015). Björgvin Halldórsson, Katla María - Sóley. Guðrún Árný Karlsdóttir - Andvaka. Magni Ásgeirsson - Hugarró(Söngvakeppni Sjónvarpsins 2012). Haffi Haff - Gía. Dr. Gunni og Heiða Eiríks - Ísinn. Friðrik Ómar - Hvað ef ég get ekki elskað (Söngvakeppnin 2019). Svavar Knútur Kristinsson, Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm - Lífið snýst. Rúnar Júlíusson - Ást á skítugum skóm. Tinna Marína Jónsdóttir, Böddi - Á ballið á. Heiða og Heiðingjarnir- Tangó. Heimilistónar - Kúst og fæjó. Erna Gunnarsdóttir - Aldrei ég gleymi.

Mannlegi þátturinn
Menntunarsjóður mæðrastyrksnefndar, Alfreð Clausen og póstkort

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 8, 2024 53:35

Mæðradagurinn er á sunnudaginn og í gær var hleypt af stokkunum söfnunarátaki Menntunarsjóðs mæðrastyrksnefndar, þar sem tilgangurinn er að styrkja efnalitlar konur til náms og þannig veita þeim tækifæri til að bæta lífskjör sín og sinna. Sjóðurinn hefur undanfarin ár styrkt um 500 konur til náms og Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikari og leikstjóri kom í þáttinn í dag, en það var tilkynnt í gær að hún, ásamt Elísabetu Jökulsdóttur, eru verndarar menntunarsjóðsins. Með Unni kom Lilja Kristjánsdóttir, sem hefur þegið styrk til náms úr sjóðnum. Þær sögðu okkur frá menntsjóðinum og Lilja sagði okkur sína sögu. Jónatan Garðarsson kom svo aftur í þáttinn í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í síðustu viku sagði Jónatan okkur frá Soffíu Karlsdóttur söng- og leikkonu og í dag fræddi Jónatan okkur um Alfreð Clausen, einn af frumkvöðlum í íslenskum dægurlagasöngi. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í korti dagsins segir frá víðavangshlaupinu Puffin Run sem fram fór um liðna helgi á Heimaey. Þar hlupu næstum ellefu hundruð manns í blíðskaparveðri. Magnús veltir fyrir sér af hverju hlaupið er kallað Puffin Run en ekki „bieg maskonurów“ uppá pólsku því töluvert fleiri pólverjar en bandaríkjamenn tóku þátt í hlaupinu. Hann segir líka frá heimsókn sinni til Víkur í Mýrdal þar sem fleiri tala ensku en íslensku, en hann endar á Ítalíu þar sem bæir og borgir eru að taka til á heiðursborgaralistum sínum. Tónlist í þættinum í dag: Þú og ég / Hljómar (Gunnar Þórðarson og Ólafur Gaukur Þórhallsson) Æskuminning / Alfreð Clausen (Ágúst Pétursson og Jenni Jóns) I Can't Give You Anything But Love / Alfreð Clausen (Dorothy Fields og Jimmy McHugh) On the Road Again / Canned Heat (Alan Wilson & Floyd Jones) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Samfélagið
Skipulag og náttúruvá, orkuskipti í flutningum og umhverfispistill

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 2, 2024 58:30

Í dag ætlum við að fjalla um náttúruvá og skipulagsmál en skipulagsgerð er mikilvægur vettvangur til þess að takast á við þær áskoranir sem fylgja náttúruvá hvort sem er af völdum loftslagsbreytinga, eldsumbrota eða annarra þátta í náttúru- og veðurfari. Sigrún Karlsdóttir, skrifstofustjóri náttúruvárþjónustu Veðurstofu Íslands, segir okkur frá vinnu við gerð áhættumats við skipulagsgerð í ljósi nýlegrar reynslu af eldsumbrotum og til framtíðar. Og við tölum um orkuskipti í þungaflutningum. Nýlega var undirrituð viljayfirlýsing um kaup fimm íslenskra fyrirtækja á nýjustu tegund vetnisknúinna vörubíla frá þýska vörubílaframleiðandanum MAN. Það er fyrirtækið Íslensk nýorka sem hefur haft forgöngu um þetta verkefni og við ætlum að tala við framkvæmdastjórann Jón Björn Skúlason á eftir. Svo heyrum við umhverfispistil í lok þáttar frá Stefáni Gíslasyni umhverfisstjórnunarfræðingi.

Mannlegi þátturinn
Stafræn heilbrigðistækni, fuglaganga og Jónatan um Soffíu Karlsdóttur

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 2, 2024 51:47

Henný Björk Birgisdóttir hjúkrunarfræðingur kom til okkar í dag og fræddi okkur um stafræna heilbrigðistækni en hún hefur nýtt sinn hjúkrunarfræðigrunn og er að vinna með fyrirtækinu Helix með stafræna lausn í smáforritinu Iðunni sem Helix er að þróa og getur sparað hjúkrunarfræðingum töluverðan tíma svo þeir hafi meiri tíma að til að sinna sjúklingum. Semsagt vísir að ákveðinni byltingu í störfum hjúkrunarfræðinga sem í dag eyða stórum hluta vinnunnar í tímafreka skriffinnsku. Henný Björk sagði okkur meira frá þessu í dag. Alla miðvikudaga í maí verður boðið upp á menningar- og fræðslugöngur í Skálholti. Um er að ræða fræðsluerindi og göngur sem tengjast Skálholti á einhvern hátt. Á á laugardaginn mun Tómas Grétar Gunnarsson, fuglafræðingur á Laugarvatni og forstöðumaður rannsóknaseturs HÍ á Suðurlandi, leiða gesti um Skálholtslandið og fræða þá um þá fugla sem þar finnast. Tómas sagði okkur frá fuglum á þessu svæði og göngunni í dag. Jónatan Garðarsson kom aftur til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá leik- og söngkonunni Soffíu Karlsdóttur. Hún varð þekkt í tengslum við revíu- og kabarettsýningar, svo ekki sé minnst á nokkur lög sem urðu gríðarlega vinsæl um miðja síðustu öld, til dæmis Bílavísur og Það er draumur að vera með dáta. Soffía leit sjálf ekki á sig sem söngkonu, en eins og Jónatan sagði okkur frá í dag þá eru hún engu að síður meðal allra fyrstu dægurlagasöngkvenna Íslands. Tónlist í þættinum í dag: Dagar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg) Segðu mér satt / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson) Það er draumur að vera með dáta / Soffía Karlsdóttir (Edward Brink, texti Bjarni Guðmundsson) Bílavísur / Soffía Karlsdóttir (Holmes, texti Jón Sigurðsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Morgunvaktin
Háskólamál, ferðaþjónusta og Vetrarhátíð

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 2, 2024 130:00

Við ræddum áfram umfjöllun um fyrirhugaða, eða mögulega, sameiningu Háskólanna á Akureyri og Bifröst. Grétar Þór Eyþórsson, deildarforseti viðskiptadeildar HA var gestur okkar. Efasemda gætir norðanmegin og athugasemdir hafa verið settar fram. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri FF7, var með okkur. Við röbbuðum meðal annars um afkomu Icelandair á síðasta ári; afgangur varð af rekstrinum í fyrsta sinn í langan tíma; og svo heyrðum við af afstöðu Dana til ferðaþjónustu í Danmörku: hvað finnst frændum okkar um erlenda ferðamenn? Veðrið hefur verið heldur leiðinlegt að undanförnu og dagurinn enn þá stuttur. Við slíkar aðstæður er gott að létta lundina og lyfta andanum. Líf og fjör er í menningarhúsum höfuðborgarsvæðisins á Vetrarhátíð sem hófst í gær. Auður Halldórsdóttir og Soffía Karlsdóttir menningarstýrur í Mosfellsbæ og Kópavogi bentu okkur á góðar leiðir til að rækta sálina. Tónlist: Isola, Frank, Jordan, Duke, Raney, Jimmy, Getz, Stan, Crow, Bill - Stars fell on Alabama. Melander, Stina Britta - Varför skall man tvinga mig att sjunga? Egill Ólafsson, Hernández, Lizzy - Tu duende. Hljómar - Er hann birtist. Fairuz - Kifak Inta

Morgunvaktin
Allsherjar endurskoðunar þörf í kerfum og samfélaginu

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 7, 2023

Bogi Ágústsson settist við Heimsglugginn og á dagskrá voru bresk stjórnmál. Boris Johnson kom í gær fyrir sérstaka rannsóknarnefnd vegna viðbragða stjórnvalda við Covid-faraldrinum og baðst afsökunar. Tveir aðrir fyrrverandi ráðherrar Íhaldsflokksins komu einnig við sögu, annar sagði af sér í gærkvöldi. Íslenskum krökkum gengur ekki nógu vel í skólanum. Það sýna nýbirtar niðurstöður alþjóðlega Pisa-samanburðarins. Sérfræðingar leggja til breytingar til úrbóta - við heyrum hverjar þær eru. Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor á menntavísindasviði Háskóla Íslands, ræddi þessi mál. Ísfirðingar vilja ekki að fleiri skemmtiferðaskip leggi að bryggjum bæjarins en undanfarin sumur - það er komið að þolmörkum, segja þeir. Þetta sýnir ný rannsókn. Við ræddum um þolmörkin í ferðaþjónustunni - hvað þola bæir og náttúran? Við veltum því fyrir okkur með Önnu Karlsdóttur, lektor í mannvistarlandfræði og ferðamálafræði. Árni Snævarr upplýsingafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum hélt áfram að fjalla um mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. Í dag var fjallað um áhrif yfirlýsingarinnar. Tónlist: Waits, Tom - Little trip to heaven (on the wings of your love). Armstrong, Louis and his Orchestra - Thankful.

Morgunvaktin
Allsherjar endurskoðunar þörf í kerfum og samfélaginu

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 7, 2023 130:00

Podcast með Sölva Tryggva
#124 Arnþrúður Karls með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Aug 10, 2023 87:52

    Arnþrúður Karlsdóttir hefur starfað við fjölmiðla í 40 ár. Hún var líka ein fyrsta lögreglukona Íslands, er með 3 háskólagráður og var afrekskona í íþróttum. Í þættinum fer hún yfir ferilinn, allt frá stofnun Rásar 2 til áranna 20 á Útvarpi Sögu.   Þátturinn er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Heilsubarinn - https://www.heilsubarinn.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/

Víðsjá
Safnasafnið, Jenný Karlsdóttir, Nýjar raddir

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 11, 2023

Það er alltaf ánægjuefni þegar Safnasafnið á Svalbarðsströnd opnar dyr sínar í sumarbyrjun. Í blíðskaparveðri um liðna helgi tóku stofnendur safnsins, Níels Hafstein og Magnhildur Sigurðardóttir, ásamt stjórn safnins, á móti fjölda fólks þegar sýningar þessa árs voru opnaðar með pompi og prakt. Í þessu höfuðsafni íslenskrar alþýðulistar er nú enn eitt sumarið hægt að sjá fjölbreyttar sýningar ólíkra listamanna í ævintýralegu umhverfi. Við sláum á þráðinn norður í þætti dagsins og fáum Níels til að segja okkur frá sýningum ársins. Einnig heyrum við í einum þeirra listamanna sem sýna þetta árið í safninu. Jenný Karlsdóttur. Jenný er annáluð handverskona sem hefur auk þess að skapa sín eigin listaverk safnað að sér stóru textílverkasafni í gegnum tíðina. Hún ánafnaði Safnasafninu nýverið allt safnið og mun þessi gjöf hennar verða kynnt á næstu árum með röð sýninga og fyrirlestrum. Fyrsta sýningin opnaði um liðna helgi, en hún samanstendur af faldbúningi efitr Jenný úr jurstlituðu garni, og puntuhandklæðum, en það er gripur sem húsfreyjur saumuðu út til heimilisprýði og hengdu upp í eldhúsi til að hylja óhrein viskustykki. Í dag er tilkynnt um það hver bar sigur úr bítum í handritakeppni Forlagsins, Nýjar raddir, þetta árið. ?Hér er ekkert sem sýnist,? segir aftan á kápu bókarinnar sem kemur út í dag. ?Undir hversdagslegu yfirborði leynist eitthvað annað; fólk er í áskrift að öðru lífi, á sér skyndilega tvífara og draumar rætast eða verða að engu. Andrúmsloftið er dularfullt og mörkin á milli veruleika og ímyndunar oft óljós.? Þetta er dularfullt smásagnasafn sem við ætlum að afhjúpa nánar hér síðar í þættinum og ræða við höfundinn. Þar bera á góma áhrif frá Stephen King, Franz Kafka, andvökunætur og undarlegar martraðir.

Víðsjá
Safnasafnið, Jenný Karlsdóttir, Nýjar raddir

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 11, 2023 55:00

Betri helmingurinn með Ása
#90 - Viktor Karl & Jónína Þórdís

Betri helmingurinn með Ása

Play Episode Listen Later Jan 11, 2023 93:40

Fótboltamaðurinn, íslandsmeistarinn og frumkvöðullinn Viktor Karl Einarsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi, lögfræðingnum og frumkvöðlunum Jónínu Þórdísi Karlsdóttur.Viktor fór ungur út í atvinnumennsku í fótbolta og spilaði með með Jong AZ í hollandi og IFK Värnamo í Svíþjóð áður en hann kom svo aftur heim í Kópavoginn og er í dag einn af lykilmönnum íslandsmeistara Breiðabliks.Jónína er körfuboltakona og lögfræðinemi en spilar hún með Ármanni og var meðal annars valin mikilvægasti leikmaður þeirra í fyrra. Hún hefur einnig látið ljós sitt skína sem leikkona en til að mynda fór hún með hlutverk í myndinni Hjartasteini. Saman reka þau svo fatamerkið BÖKK ásamt sem fer sífellt stækkandi.Viktor og Jónína kynntust í gegnum sameiginlega vini en fékk Viktor vini sína til að kynna sig fyrir einhverri stelpu þar sem hann var einn úti í Hollandi og erfitt fyrir hann að kynnast einhverjum þar. Jónína var kynnt til leiks og fór af stað skemmtilegur og ruglandi samfélagsmiðla leikur sem endaði þó með því að þau eru saman í dag og hafa verið í rúm fimm ár.Í þættinum ræddum við meðal annars um fatalínuna þeirra og tíman í þýskalandi, fótboltann og íslandsmeistaratitilinn, körfuboltann og hvar áhuginn kviknaði, rómantíkina, ferðalög og margt fleira ásamt því að heyra skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Viktori mistókst að koma Jónínu á óvart.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/

Betri helmingurinn með Ása
#83 - Guðrún Árný & Sveinbjörn

Betri helmingurinn með Ása

Play Episode Listen Later Nov 23, 2022 102:09

Söngkonan Guðrún Árný Karlsdóttir mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helming, Sveinbirni Enokssyni.Það eru komin ansi mörg ár síðan Guðrún Árný söng sig inní hug og hjörtu íslendinga en var hún til að mynda partur af Frostrósum sem voru ómissandi í kringum hátíðarnar á sínum tíma, en gaf hún einmitt nýverið út splunkunýtt jólalag sem heitir “Desember”.Sveinbjörn er bílamálari og bifreiðasmíðameistari en tók sér pásu frá því og er í dag rótarinn hennar Guðrúnar.Sveinbjörn sá Guðrúnu fyrst í fermingarveislu hjá frænku sinni þar sem hún var að sjálfsögðu mætt til þess að syngja og var hann ekki lengi að snúa sér að vini sínum og kalla “dips”. Þau rákust af og til á hvert annað enda bæði úr hafnarfirði og þekktu mikið af sama fólki en lét Sveinbjörn hana þó alveg vera enda Guðrún þá í öðri sambandi. Það var því ekki fyrr en tveimur árum síðar að þau fara að slá sér upp og voru hlutirnir fljótir að gerast í kjölfarið.Í dag eru þau gift og eiga saman þrjú börn.Í þættinum ræddum við meðal annars tónlistina og hæðir og lægðir sem þeim bransa fylgir, hvernig það er að vinna með makanum sínum, fjölskyldulífið, skemmtilega öðruvísi brúðkaup, rómantíkina og margt fleira, ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar hlutverkaleikur þeirra fór aðeins lengra en þau ætluðu sér.Þátturinn er í boði:Gott gisk - https://www.gottgisk.is/Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/

Fram og til baka
Örvar og tónn framtíðarinnar

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Nov 19, 2022

Gestur Felix Bergssonar í Fram og til baka var Örvar Þóreyjarson Smárason, tónlistarmaður og rithöfundur en hann hefur nýlega sent frá sér smásagnasafn. Fimman var einmitt í þeim anda en Örvar sagði af fimm smásögum sem höfðu haft áhrif á líf hans. Sögurnar eru: Chekov - Konan með hundinn Shirley Jackson - The Lottery George Saunders - Sticks Miranda July - The swim team Ragna Sigurðardóttir - Ég skal bjarga þér Felix hringdi svo í Guðrúnu Árnýju Karlsdóttur sem var að senda frá sér lagið Desember og fjallaði svo stuttlega um 40 ára gamla plötu, Þeir sletta skyrinu með hljómsveitinni Sonus Futurae

Morgunvaktin
Brasilía, áfallastjórnun, efnahagsmál og áhrifamesta vísindakonan

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 31, 2022

Luiz Inacio Lula da Silva, fyrrverandi forseti Brasilíu, er næsti forseti Brasilíu eftir afar nauman sigur á mótherja sínum, Jair Bolsonaro, Brasilíuforseta. Þetta varð ljóst í nótt. Luciano Dutra þýðandi er brasilískur og ræddi úrslitin við okkur snemma í morgun. Stjórnvöld stóðu sig vel í kórónuveirufaraldrinum; þau fá ágætiseinkun í áfallastjórnun. Sérskipuð þriggja manna nefnd mat frammistöðuna og skilaði niðurstöðum í 500 blaðsíðna skýrslu. Formaður nefndarinnar, Ásthildur Elva Bernharðsdóttir, dósent við Háskólann á Bifröst, kom til okkar. Ásgeir Brynjar Torfason var líka með okkur. Við fjölluðum um efnahagsmál og fjármál í heiminum. Að þessu sinni beinum við sjónum að Kína; Kommúnistaflokkurinn sem öllu ræður hélt þing sitt á dögunum og lagði línur fyrir framtíðina. Kína er annað stærsta efnahagsveldi heims og við spyrjum: Munu Kínverjar taka fram úr Bandaríkjamönnum hvað það varðar? Listi yfir áhrifamestu vísindakonur heimsins var birtur í lok síðustu viku. Fimmta áhrifamesta konan í heiminum, og sú áhrifamesta í Evrópu, er Unnur Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu, og forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Unnur sagði okkur frá störfum sínum og þýðingu lista eins og þess sem hún trónir á toppnum á. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Over the rainbow - Jerry Lee Lewis Bílavísur - Soffía Karlsdóttir

Morgunvaktin
Brasilía, áfallastjórnun, efnahagsmál og áhrifamesta vísindakonan

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 31, 2022 130:00

#124 Arnþrúður Karls með Sölva Tryggva (brot úr áskriftarþætti)

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Sep 12, 2022 20:01

https://solvitryggva.is/ Arnþrúður Karlsdóttir hefur starfað við fjölmiðla í 40 ár. Hún var líka ein fyrsta lögreglukona Íslands, er með 3 háskólagráður og var afrekskona í íþróttum. Í þættinum fer hún yfir ferilinn, allt frá stofnun Rásar 2 til áranna 20 á Útvarpi Sögu.  

Morgunvaktin
Lundúnaspjall Sigrúnar Davíðsdóttur í síðasta sinn

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 13, 2022

Sigrún Davíðsdóttir var í Lundúnaspjalli á Morgunvaktinni í síðsta sinn. Hún hefur sagt hlustendum frá því sem er efst á baugi í Bretlandi á mánudagsmorgnum síðan þátturinn hóf göngu sína en lætur nú staðar numið. Í dag bar hún m.a. saman þá forsætisráðherra sem verið hafa við völd í Bretlandi frá því að hún fluttist til landsins um aldamótin. Alþjóðleg efnahagsmál voru rædd við Ásgeir Brynjar Torfason, sérfræðing í fjármálum. Hann er staddur á Ítalíu og sagði frá stöðunni þar í landi og víða um heim. Alls staðar er verðbólga og stjórnvöld reyna með ýmsum hætti að takast á við hana. Íslenska krónan var líka nefnd en í dag eru 100 ár frá því að sjálfstæð gengisskráning hennar hófst en áður var gengi hennar tengd dönsku krónunni. Ásgeir Ásgeirsson tónlistarmaður heldur hljómleika í Gamla bíói á fimmtudag þar sem hann leikur íslensk þjóðlög með tónlistarfólki frá Íran. Ásgeir sagði frá kynnum sínum af Íran og íranskri tónlist og plötum sem hann hefur gert með Írönum. Tónlist: Bílavísur - Soffía Karlsdóttir, Týnda kynslóðin - Bjartmar Guðlaugsson, Þannig týnist tíminn - Lay Low og Ragnar Bjarnason, Bissi Krissi - Bjartmar Guðlaugsson, You are the sunshine of my life - Steve Wonder, Glaður mjög ég gjörist núna - Ásgeir Ásgeirsson, Runnin upp sem rósin blá - Ásgeir Ásgeirsson. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Vera Illugadóttir.

Play Episode Listen Later Jun 13, 2022 130:00

Þingstörfin, ferðalög og framkvæmd EES samningsins

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 10, 2022 130:00

Alþingi starfar fram í næstu viku en stefnt var að þingfrestun í dag. Til að greiða fyrir samkomulagi um þinglok hefur meðferð frumvarps dómsmálaráðherra um útlendinga verið frestað fram á haust. Jóhann Vigdís Hjaltadóttir þingfréttamaður sagði frá samkomulaginu og þingstörfunum í vikunni. Smávægileg töf á flugferð getur haft í för með sér alls konar vesen og vandræði fyrir ferðalanga. Því kynntist Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, þegar hann ferðaðist frá Svíþjóð til Frakklands. Farangurslaus kom hann til Montpellier. Hann sagði hrakfallasöguna í spjalli um ferðalög og frá ýmsu öðru. Virk samkeppni á öllum sviðum er mikilvæg. Vegna fámennisins á Íslandi er sérstaklega mikilvægt að öll ákvæði samkeppnislaga séu virt. ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur eftirlit með að farið sé að samkeppnisreglum EES. Árni Páll Árnason situr í yfirstjórn ESA fyrir Íslands hönd. Hann sagði frá verkefnum stofnunarinnar og fundum með íslenskum ráðamönnum. Tónlist: Það sést ekki sætari mey - Soffía Karlsdóttir, The Trolley Song - Judi Garland, Over the Rainbow - Judi Garland, Ég er á leiðinni - Brunaliðið, My baby just cares for me - Nina Simone. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Vera Illugadóttir.

Morgunvaktin
Þingstörfin, ferðalög og framkvæmd EES samningsins

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 10, 2022

Sögur af landi
Bjössaróló, Ragnheiður í Kisukoti, Bakki í Grindavík

Sögur af landi

Play Episode Listen Later Dec 3, 2021

Í þættinum er rætt við Ríkharð Mýrdal Harðarsson sem fer nú fyrir endurnýjun á hinum þekkta Bjössaróló í Borgarnesi. Förum líka í heimsókn til Ragnheiðar Gunnarsdóttur sem rekur Kisukot á Akureyri. Að lokum er ferðinni heitið í gömlu verbúðina Bakka í Grindavík en Sögufélag Grindavíkur hefur undanfarin ár staðið að endurnýjun hússins. Við ræðum þar við Hall Gunnarsson og Mörtu Karlsdóttur, en Marta rekur prjónaverslunina Prjónasystur í húsinu. Efni í þáttinn unnu: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, Anna Þorbjörg Jónasdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Samfélagið
Kynferðisofbeldi í stríði, græn umskipti og loftlagsráðstefna SÞ

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 14, 2021 55:00

Í dag fer fram málþing á vegum UN Women um kynferðisofbeldi í stríði en nauðgunum hefur í auknum mæli verið beitt sem stríðsvopni víða um heim. Við töluðum við Írisi Björgu Kristjánsdóttur, sérfræðing í friðar, öryggis- og mannúðarmálum hjá svæðisskrifstofu UN Women í Evrópu og Mið-Asíu, en hún tekur þátt í pallborðsumræðum á málþinginu í dag. Allt sem við gerum þarf að verða umhverfisvænna, okkar eigin hegðun sem og atvinnulífið, þetta eru nauðsynleg græn umskipti. En græn umskipti þurfa líka að vera réttlát; það þýðir ekki að loka mengandi verksmiðjum, sem kannski heilu bæjarfélögin sækja vinnu til og taka engan þátt í að byggja upp eitthvað annað í staðinn. Rætt við Önnu Karlsdóttur, rannsóknarstjóra hjá Norræni rannsóknarstofnun, norðurslóðasérfræðingur í landsbyggðarmálum Norðurlandanna um þessi mál sem og önnur rannsóknarefni á hennar borði. Stefán Gíslason flytur svo umhverfispistilinn fjallar meðal annars um hvaða framtíð gæti beðið okkar að lokinni loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem hefst í lok október. Það fer allt eftir markmiðum - og efndum...

Mannlegi þátturinn
Guðrún Árný föstudagsgestur og matreiðslubækur

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 17, 2021 55:00

Guðrún Árný Karlsdóttir söngkona og píanóleikari er föstudagsgestur okkar í dag. Hún hefur sungið sig inní hug og hjörtu þjóðarinnar fyrir löngu síðan, hún hefur tekið þátt í Eurovisionkeppninni, hér heima í undankeppni og farið utan sem bakrödd. Hún tók þátt í Frostrósatónleikunum eftirminnilegu og hefur átt farsælan sólóferil. Hún hefur nú nýlega stofnað kór þar sem engar skyldur hvíla á um mætingu og allir eru velkomnir. Svo stjórnar hún gjarnan samsöng þar sem hún situr við píanóið og fær fólk til að syngja með sér, hvort sem er í afmælum, brúðkaupsveislum, fyrirtækjaveislum eða á veitingastað. Við áttum skemmtilegt spjall við Guðrúnu í þættinum í dag. Í matarspjallinu hringdum við í Sigurlaugu Margréti sem að þessu sinni situr norður í landi og flettir matreiðslubókum sem hún finnur í eldhúshillum þar. Það spunnust meðal annars líflegar umræður um borðsiði og lifur. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

gu svo karlsd slub sigurlaugu margr
Samfélagið
Græn svæði í þéttbýli, fornritasýning og áhrif lita á líðan

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 10, 2021 55:00

Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingur frá Umhverfisstofnun og Katrín Karlsdóttir, MSc í skipulagsverkfræði og umhverfissálfræði: lýðheilsa og græn svæði í þéttbýli. Rannsóknir syna að græn svæði og ósnortin náttúra hefur jákvæð áhrif á líðan fólks, getur dregið úr streitu og kvíða, vöðvaspennu og fleira. Jóhannes og Katrín flytja erindi á málþingi um þetta og þekkja vel til. Sigrúnu Kristjánsdóttur, nýráðin sýniningastjóra Árnastofnunar: Hafinn er vinna við að undirbúa sýningu á íslensku fornritunum sem verður opnuð um leið og Hús íslenskunnar árið 2023. Fjallað um að hverju þarf að huga þegar sett er upp sýning á þessum íslensku þjóðargersemum Árný Helga Reynisdóttir: í fréttum var fjallað um að liturinn gulur sem er ríkjandi á Kleppi hafi vond áhrif á sjúklinga þar. Rætt við Árnýju um áhrif lita á líðan og bata.

Morgunútvarpið
16. jún - Kópavogur, Suðurnes, gæludýr, Græni passinn og hjátrú

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 16, 2021 130:00

Umsjónarmenn: Rúnar Róbertsson og Matthías Már Magnússon Þjóðhátíðardagur Íslendinga er á fimmtudaginn. 17. júní í ár verður með svipuðu sniði og í fyrra en samkomutakmarkanir setja svip sinn á daginn. Þrátt fyrir að nú búið sé að losa hömlur að einhverju leyti þá eru takmarkanirnar meiri nú en fyrir ári síðan. Við fengum til okkar þær Ingibjörgu Grétu Gísladóttur verkefnastjóra hjá Kópavogsbæ og Soffíu Karlsdóttur forstöðumann menningarmála sem ætla að segja okkur frá hvernig Kópavogsbær breytti 17. júní í fyrra í hverfishátíðir og gerir aftur í ár. Í dag verða kynntar niðurstöður tveggja ára vinnu um hvernig efla á atvinnulíf og styrkja innviði á Suðurnesjum í átt að sjálfbærri framtíð. Verkefnið er samstarf sveitarfélaga á Suðurnesjum, Isavia og Kadeco og heiti þess er Suðurnesjavettvangur. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri í Reykjanesbæ kom til okkar og segir okkur nánar frá þessu. Fjöldi fólks fékk sér gæludýr í Covid faraldrinum og var um tíma talað um að vöntun væri á köttum en flest allir hjá Kattholti t.d. fengu nýtt heimili. Við rákumst á grein frá Ástralíu þar sem þeirri spurningu er velt upp hvort nú, eða næstu misseri, þegar faraldurinn væri í rénum hvort vinnustaðir ættu að opna fyrir því að hleypa gæludýrum inn á vinnustaðinn. Er þá að mestu verið að tala um hunda. Við ákváðum að heyra hvað vinnustaðasálfræðingur hefði um þetta að segja og fengum til okkar hana Þórkötlu Aðalsteinsdóttur, sálfræðing og ráðgjafa í mannauðsmálum frá Lífi og sál. Nýtt samevrópskt bólusetningavottorð sem kallast Græni passinn er nú aðgengilegur öllum hér á landi sem eru fullbólusettir eða hafa fengið Covid-19. Tekur Ísland þar þátt í tilraunaverkefni en passinn verður tekinn upp í öllum ríkjum Evrópusambandsins og í EFTA ríkjunum þann 1. júlí nk. Ingi Steinar Ingason er verkefnastjóri hjá Landslæknisembættinu og sér um þessa innleiðingu. Hann kom til okkar í morgunkaffi. Álfa- og draugatrú hefur alla tíð verið sterk á Íslandi. Á morgun í Þjóðminjasafninu verður hægt að fá leiðsögn um hjátrú og galdra á Íslandi. Skoðaðir eru ýmsir gripir sem eiga sér sögu tengda álfum og öðru huldufólki og hingað til að ræða þetta allt saman kom Jóhanna Bergmann safnkennari frá Þjóðminjasafninu. Tónlist: Nýdönsk - Flugvélar Helgi Björnsson - Ekki ýkja flókið Aretha Franklin - (You make me feel like) A natural woman Tómas Welding - Here they come Ásgeir Trausti - Nýfallið regn Björk - Big time sensuality Duran Duran - Sound of thunder

Morgunvaktin
Bólusetningarvottorð, litakóðakerfi og fótboltinn framundan

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 19, 2021 130:00

Skiptar skoðanir eru á vettvangi stjórnmálanna um ágæti þeirrar ákvörðunar að heimila bólusettu fólki utan Schengen að koma til Íslands. Tekist var á um málið á Alþingi í vikunni, líkt og Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir þingfréttamaður rakti í spjalli um þingstörfin og stjórnmálin í vikunni. Fólk í ferðaþjónustu sér fram á bjartari tíð eftir að bólusettum Bretum og Bandaríkjamönnum er heimilt að koma til landsins. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, mat horfurnar í spjalli. Hann sagði okkur líka frá Kórónuveiruvegabréfi Evrópusambandsins og tilraunum Frakka til að laða til sín ferðamenn. Förum okkur hægt og ferðumst vistvænt, segja Frakkarnir. Karlalandsliðið í fótbolta hefur í næstu viku leik í undankeppni Heimsmeistaramótsins sem fram fer í Katar á næsta ári. Fram undan eru þrír leikir á sjö dögum og fyrsta viðureignin er við Þjóðverja sem er einhver sigursælasta knattspyrnuþjóð sögunnar. Guðni Bergsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, spjallaði við okkur um möguleikana á komast á HM og fótboltann vítt og breitt. Tónlist: Það er draumur að vera með dáta - Soffía Karlsdóttir Það sést ekki sætari mey - Soffía Karlsdóttir Husavik - Molly Sandén

Segðu mér
Soffía Karlsdóttir forstöðumaðru menningarmála í Kópavogi

Segðu mér

Play Episode Listen Later Mar 17, 2021 40:00

Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála í Kópavogi fékk styrk fyrir frábæru alþjóðlegu verkefni sem heitir Vatnsdropinn og varð til fyrir íslenskt frumkvæði. Soffía segir frá þessari hugmynd og einnig ræðir hún menninguna í Kópavogi og ræðir það mál þegar hún var kærð fyrir einelti , en varð seinna hreinsuð af öllum þeim ásökunum. Hún ólst upp á Grundarfirði og segir brosandi ekki hafa verið alin upp á menningarlegu heimili og man þegar hún ung fór í leikhús í frysta skipti.

Mannlegi þátturinn
Handritin til barnanna og Bragginn á Hólmavík

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 23, 2021 55:00

Handritin til barnanna er verkefni á vegum Árnastofnunar í tilefni þess að hálf öld er liðin frá því að fyrstu handritin komu heim árið 1971. Þeir Snorri Másson og Jakob Birgisson heimsóttu á fimmta tug skóla um allt land og sögðu börnum á miðstigi grunnskólanna frá íslensku skinnhandritunum og ævintýralegri varðveislusögu þeirra. Börnin voru forvitin og spurðu margra spurninga, sumar sem gætu í fljótu bragði talist aukaatriði, eins og til dæmis, ?Hvað kostar eitt svona handrit?? Þeir Snorri og Jakob komu í þáttinn og sögðu okkur meira frá þessu verkefni og handritunum. Á stríðsárunum voru reistir hér á landi þúsundir bragga sem eftir stríð fengu hin ýmsu hlutverk. Einn slíkur braggi er á Hólmavík og hann gegndi hlutverki samkomuhúss og gerir enn þó að á Hólmavík hafi nú risið annað og stærra félagsheimili. Bára Karlsdóttir er annar eigandi braggans í dag og Kristín Einarsdóttir hitti Báru í Bragganum, ásamt Gunnari Jóhannssyni, en bæði eiga þau miklar minningar tengdar þessu merkilega húsi. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Hlustaðu nú!
Jólaljósin skær og Jólatréð

Hlustaðu nú!

Play Episode Listen Later Dec 16, 2020

Þátturinn í dag verður með sérstöku hátíðarþema, enda styttist í jólin. Við munum fá til okkar tónelska fjölskyldu sem gaf út nýtt lag fyrir þessi jól, en það eru þau Lára Björk, Sigga Eyrún og Kalli Olgeirs með lagið Jólaljósin skær. Þau spjalla um uppáhaldsjólalögin sín og hvernig nýja lagið þeirra varð til. Síðan heyrum við glænýja jólasögu eftir Tinnu Snæbjörnsdóttur sem er 11 ára. Tónelska fjölskyldan: Lára Björk Hall Sigríður Eyrún Friðriksdóttir Karl Olgeirsson Rán Karlsdóttir Smásagan Jólaljósin skær eftir Tinnu Snæbjörnsdóttur. Leikraddir: Bragi Valdimar Skúlason (Stúfur) Elísabet Lára Gunnarsdóttir (Dögg) Hallur Hrafn Proppé (Tommi) Sigríður Eyrún Friðriksdóttir (Amma hans Tomma)

Morgunútvarpið
20. ágúst - Hugbúnaðarvinna, félagsfærni, söfnun, ferðafrelsi og hlaup

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 20, 2020 130:00

Hrafn Ingvarsson og Birgitta Ósk Rúnarsdóttir frá hugbúnaðarfyrirtækinu Sendiráðinu komu til okkar en mikill uppgangur hefur verið hjá fyrirtækinu í ár, þrátt fyrir mikla óvissu og erfiðleika í samfélaginu út af kórónuveirunni. Þörfin fyrir flóknari hugbúnaðarlausnir ásamt hönnun á vefsíðum og aukinni vefverslun er helsta skýringin. Við kynntum okkur svokölluð PEERS námskeið í félagsfærni fyrir börn, unglinga og ungmenni með einhverfu, ADHD, kvíða, þunglyndi eða aðra félagslega erfiðleika. Ingibjörg Karlsdóttir félagsráðgjafi og lýðheilsufræðingur er ein þeirra sem standa að þessum námskeiðum og hún kom til okkar. Nú safna fjölmargir styrkjum í tengslum við Reykjavíkurmaraþon sem þó fer ekki fram. Þrátt fyrir að ekkert verði hlaupið hafa safnast rúmar 40 milljónir nú þegar og enn streyma styrkirnir inn. Ein þeirra sem safnar styrkjum er Sylvía Guðmundsdóttir og hún brá á það ráð að birta tónlistarmyndband á Facebook við hverjar 50.000 kr. sem safnast og hefur framtakið vakið lukku. Hún hefur fengið ýmsa fjölskyldumeðlimi í lið með sér, auk leynigesta. Við hringdum í Sylvíu og forvitnuðumst um þetta skemmtilega söfnunarátak. Sigríður Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kom til okkar en hún er þeirrar skoðunar það gangi ekki að skerða ferða, atvinnu og fundarfrelsi fólks, líkt og gert hefur verið að undanförnu, án þess að þingið komi að. Aldrei hefur mælst hærri hiti á jörðinni en í dauðadalnum í Kaliforníu á dögunum en hitastigið fór upp í 54,4 gráður. Sigurður Hrafn Kiernan, hlaupari, kom til okkar en ofurhlaup er haldið í dalnum ár hvert í júlí þrátt fyrir þennan óskaplega hita. Sigurður hefur reyndar ekki keppt í þessu tiltekna hlaupi en hann hefur keppt í 160 km hlaupi í Bandaríkjunum þar sem hitinn fór upp í nærri 40 gráður og sagði okkur frá því hvernig í ósköpunum það er hægt. Tónlist: Bubbi og Katrín Halldóra - Án þín. Paul McCartney og Wings - My love. KK - Þetta lag er um þig. Vök - Night and day. Steve Miller Band - The Joker. Klassart - Flugmiði aðra leið. Auður - 2020 ft. Valdimar Guðmunds og Clubdub. Spencer Davis Group - Keep on running. Á móti sól - Nýjar syndir. Mammút - Breathe into me.

Flugur
Rolling Stones lög í túlkun íslenskra flytjenda

Flugur

Play Episode Listen Later Jan 20, 2020 46:34

Leikin eru lög úr smiðju Rolling Stones sem íslenskar hljómsveitir eða söngvarar hafa hljóðritað. Þar á meðal eru Logar, Pops, Lifun, Þórey Heiðdal, Ylfa Lind Gylfadóttir, Stóns, Soffía Sigríður Karlsdóttir og Sniglabandið.

Flugur
Rolling Stones lög í túlkun íslenskra flytjenda

Flugur

Play Episode Listen Later Jan 20, 2020

Leikin eru lög úr smiðju Rolling Stones sem íslenskar hljómsveitir eða söngvarar hafa hljóðritað. Þar á meðal eru Logar, Pops, Lifun, Þórey Heiðdal, Ylfa Lind Gylfadóttir, Stóns, Soffía Sigríður Karlsdóttir og Sniglabandið.

Flugur
Bítlalög í túlkun íslensks tónlistarfólks

Flugur

Play Episode Listen Later Jan 13, 2020 46:56

Íslenskir flytjendur spreyta sig á lögum eftir meðlimi The Beatles. Þar á meðal eru Samsteypan, Lifun, Soffía Sigríður Karlsdóttir, Stefán Jakobsson og Eiríkur Hauksson, Jet Black Joe, Aggi Slæ og Tamlasveitin, Lögreglukór Reykjavíkur, Karlakórinn Jökull og Björn Thoroddsen.

Flugur
Bítlalög í túlkun íslensks tónlistarfólks

Flugur

Play Episode Listen Later Jan 13, 2020

Íslenskir flytjendur spreyta sig á lögum eftir meðlimi The Beatles. Þar á meðal eru Samsteypan, Lifun, Soffía Sigríður Karlsdóttir, Stefán Jakobsson og Eiríkur Hauksson, Jet Black Joe, Aggi Slæ og Tamlasveitin, Lögreglukór Reykjavíkur, Karlakórinn Jökull og Björn Thoroddsen.

Sunnudagssögur
Einar Þór Jónsson og Unnur Birna Karlsdóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Jan 12, 2020 135:00

Einar Þór jónsson sagði frá uppvextinum í Bolungarvík, góðum æskuárum í faðmi vestfiskra fjalla. Hann sagði frá veikindum móður sem mótaði líf fjölskyldunnar sem endaði með því að móðir hans lést langt um aldur fram. Hann sagði frá árinu á Laugarvatni, síðar í trésmíðanámi, og í framhaldinu dvöl í Bretlandi þegar Einar leitaði að sjálfum sér. Þar kom hann út úr skápnum, hann sagði frá árunum í framhaldi fordómum og öðru sem samkynhneigðir þurftu að glíma við á þessum árum. Hann sagði frá HIV og baráttunni við þennan alvarlega sjúkdóm, sínum veikindum og því að missa nána vini og kærasta. Hann sagði frá bróðurmissi sem tók mikið á alla fjölskylduna og hvernig er hægt að lifa af slíka reynslu. Hann sagði frá árunum í Svíþjóð, eiginmanninum Stig og góða tímanum þeirra saman, veikindum Stig, baráttunni hjá aðstandendum heilabilaðra og ýmsu fleiru. Unnur Birna Karlsdóttir sagnfræðingur sagði frá uppvextinum í sveitinni í Glæsibæjarhreppim, skólaheimavistinni í Þelamörk og síðar MA. Hún sagði frá sagnfræðinni, fjölskyldunni, og því hvernig það kom til að hún hefur nú sent frá sér bók um hreindýrin á Íslandi sem ber heitið Öræfahjörðin.

Sunnudagssögur
Einar Þór Jónsson og Unnur Birna Karlsdóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Jan 12, 2020

Spegillinn
Spegillinn 12. nóvember 2019

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 12, 2019 30:00

Engar reglur gilda um fegrunaraðgerðir, og ófaglært fólk gerir þær í bílskúrum og bakherbergjum. Þetta er eins og villta vestrið, segir Ómar Valdimarsson, lögmaður kvenna sem eru illa leiknar eftir misheppnaðar aðgerðir. Jenna Lind Eysteinsdóttir húðsjúkdómalæknir segir að herða þurfi reglur um fyllingaraðgerðir, eins og gert hefur verið um bótox. Sigríður Hagalín Björnsdóttir ræddi við þau. María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands sakar sjúkraþjálfara um að beita sjúklingum fyrir sig í deilu við yfirvöld. Sjúklingar þurfa nú að greiða allt að átta þúsund krónur fyrir sjúkraþjálfun og sækja sjálfir endurgreiðslu til Sjúkratrygginga. Kristín Sigurðardóttir talaði við hana. Embætti landlæknis hefur safnað upplýsingum frá starfsfólki og sjúklingum á Reykjalundi í gær og í dag. Starfsfólk greinir aukna bjartsýni innanhúss. Andri Yrkill Valsson ræddi við Guðrúnu Karlsdóttir yfirlækni á taugasviði Reykjalundar og Kjartan Hrein Njálsson, aðstoðarmann Landlæknis. Stjórnarmyndunarviðræður eru að hefjast á Spáni. Leiðtogar flokka sem reyndu vikum saman að komast að samkomulagi fyrr á árinu ætla að gera aðra tilraun. Ásgeir Tómasson sagði frá. Samkvæmt breytingatillögu við frumvarp til fjárlaga sem kynnt var á Alþingi í dag verður ríkinu heimilt að kaupa eða leigja húsnæði til að stækka flugstöðina á Akureyri. Ágúst Ólafsson talaði við Guðjón Helgason upplýsingafulltrúa ISAVIA. Helmingur 16 tonna af olíu sem rann úr oliutanki á Borgarfirði eystra fannst í rotþró sveitarfélagsins. Rúnar Snær Reynisson sagði frá. -------------- Samkvæmt nýrri samevrópskri rannsókn telur mikill meirihluti Íslendinga að lífskjör aldraðra hér á landi séu slæm. Arnar Páll Hauksson ræddi við Sigrúnu Ólafsdóttir prófessorí félagsfræði við Háskóla Íslands. Viðhorf fólks til vinnu eru að breytast, segir Guðbjörg Linda Rafnsdóttir prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, yngra fólk vilji ekki verða þrælar vinnunnar. Íslendingar hafi löngum skorið sig frá nágrannaþjóðum í því að setja samasemmerki milli þess að vinna mikið og vera duglegur. Guðbjörg varar við því að stytting vinnutíma geti aukið álag ef verkefnum er ekki fækkað. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Guðbjörgu Alþjóðlegur rannsóknarhópur fræðimanna með viðamikla þekkingu á fleygrúnum, efnafræði matvæla og matvælasögu, hefur unnið að endurgerð elstu mataruppskrifta veraldar. Matargerðarlistin hefur ekki breyst svo mikið í fjögur þúsund ár. Pálmi Jónasson sagði frá. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson Stjórn útsendingar í fréttahluta: Bj

Morgunútvarpið
Lotta, borgarlína, Eurovision, lággjaldaflugfélag og tækni

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Apr 24, 2019 130:00

Leikhópurinn Lotta hefur nú verið starfræktur til fjölda ára og árleg hefð margra fjölskyldna að sækja sumarsýningar hópsins. Verk ársins er Litla hafmeyjan en frumsýning er 22. maí. Við heyrðum í Önnu Bergljótu Thorarensen hjá Lottu. Lilja Guðríður Karlsdóttir, samgönguverkfræðingur, kom til okkar og fjallaði um kosti borgarlínu en því var haldið fram í þættinum í gær að borgarlína byggði á gömlum hugmyndum um almenningsamgöngur og hefði þar af leiðandi skaðleg áhrif á umhverfið. Nú eru rétt um þrjár vikur í að Eurovison söngvakeppnin hefjist í Ísrael og þar verður sviðslistahópurinn Hatari fulltrúi Íslands. Á ýmsu hefur gengið í aðdraganda keppninnar og sumir farið fram á að Hatara verði vikið úr keppni. Felix Bergsson fararstjóri íslenska Eurovision hópsins leit við hjá okkur í morgunkaffi og fór yfir stöðuna og stemminguna. Hreiðar Hermannsson, hótelstjóri, var á línunni úr flugvél á meginlandinu, en hann er í forsvari fyrir nýtt fyrirhugað lággjaldaflugfélag. Nokkrir fyrrverandi starfsmenn WOW air eru með í verkefninu en félagið hyggst reka fáar vélar, fljúga á fáa áfangastaði og halda öllum kostnaði og umgjörð í algjöru lágmarki. Guðmundur Jóhannsson kom til okkar í sitt vikulega tæknispjall og fræddi okkur um nýjan samanbrjótanlegan síma frá Samsung sem fer brösulega af stað. Tónlist: Hjálmar - Ég teikna stjörnu. Kacey Musgraves - Space Cowboy. Ian Brown - First world problems. Moses Hightower - Bílalest út úr bænum. Hatari - Hatrið mun sigra. Lay Low - Bye bye troubles. Peter Gabriel - Sledgehammer. Hr. Hnetusmjör - Sorry Mamma (ft. Huginn). Prins Póló - Niðri á strönd. Júníus Meyvant - Love child.

Morgunútvarpið
Flugeldasala, dýr og flugeldar, gamlárshlaup, íþróttir og McCartney

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 31, 2018 120:00

Umræða hefur skapast um flugelda og það hvort fólk eigi að skjóta upp eða ekki og flugeldarnir eru stór hluti af þessum degi í huga margra. Við kíktum við á flugeldasölu Landsbjargar þar sem Þorsteinn Þorkelsson björgunarsveitarmaður ræddi flugeldasöluna í ár og fleira. Blessuð dýrin hræðast flugeldana og gamlárskvöld reynist þeim erfitt. Við fengum góð ráð frá Hönnu Maríu Arnórsdóttur dýralækni um hvernig bregðast má við þessu og undirbúa dýrin fyrir kvöldið. Það er alltaf hressandi að sjá skrautlega hlaupara taka þátt í árlegu Gamlárshlaupi ÍR, hvernig sem viðrar. Við fengum Ingveldi Hafdísi Karlsdóttur hlaupastjóra til okkar sem sagði okkur meira af þessu líflega hlaupi. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður kom við hjá okkur og við litum um öxl yfir íþróttaárið og ræddum valið á íþróttamanni ársins. Bítillinn Paul McCartney slær ekkert af þrátt fyrir að vera orðinn 76 ára gamall. Hann hefur verið á tónleikaferð undanfarna mánuði við miklar vinsældir og hefur fjöldi Íslendinga lagt land undir fót og barið goðið augum. Enginn þó líklega oftar en Davíð Steingrímsson sem séð hefur kappann á sviði um 50 sinnum. Þessi mikli McCartney aðdáandi kíkti til okkar í morgunkaffi. Tónlist: Ragnheiður Gröndal - Það styttir alltaf upp. Magnús Þór - Álfar. Lights on the highway - Leiðin heim. 3 raddir og Beatur - Ég vild ég væri. Curtis Mayfield - Move on up. Duran Duran - Pressure off. Steindi Jr. - Springum út. Paul McCartney - Maybe Im amazed (live). Paul McCartney - Fuh you. Jónas Sig. - Dansiði.

Spegillinn
Spegillinn 11. desember 2018

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 11, 2018 30:00

Bára Halldórsdóttir, sem tók upp samtöl sex þingmanna á Klaustri 20. nóvember síðastliðinn, hefur verið boðuð fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur á mánudag til að gefa skýrslu um upptökurnar. Maður sem var vistaður í fangelsinu á Bitru fyrir þrjátíu árum telur mikilvægt að rannsaka aðbúnað fatlaðra þar. Stjórnvöld útiloka ekki að það verði gert. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður landssamtaka lífeyrissjóða telur að ef lífeyrissjóðir eigi að lána öllum sem standast mat óháð sjóðsaðild, geti það knúið sjóðina til að hækka vexti. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við hann. Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar segir mál Ágústs Ólafs Ágústssonar þingmanns Samfylkingarinnar alvarlegt og aðspurður um hvort það sé tilefni til afsagnar segir formaðurinn þingmaður verði að horfa í eigin barm. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við Loga. Angela Merkel, kanslari Þýskalands þvertekur fyrir að samið verði aftur við bresk stjórnvöld um brotthvarf þeirra úr Evrópusambandinu. Birgir Þór Harðarson segir frá. Hávaði mældist of mikill við húsveggi rúmlega 26.000 íbúða þar sem búa allt að 65 þúsund manns í nýbirtri úttekt Umhverfisstofnunar. Sunna Valgerðardóttir ræðir við Gunnar Alexander Ólafsson sérfræðing hjá Umhverfisstofun. Meirihluti samgöngunefndar og Samgönguráðherra vill breyta samgönguáætlun og heimila vegggjöld á stofnbrautum frá borginni og í helstu jarðgöngum til að fjármagna vegagerð. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Jón Gunnarsson, starfandi formann samgöngunefndar og Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Gera má ráð fyrir að gjóskufall verði á öllu landinu ef gos verður í Öræfajökli eins og varð árið 1362. Þetta sýna niðurstöður nýs hættumats þar sem ennfremur má sjá að raflínur eyðileggjast á stóru svæði nálægt gosstöðvunum og vegasamgöngur rofna. Bergljót Baldursdóttir ræðir við Sigrúnu Karlsdóttur, náttúruvárstjóra á Veðurstofu Íslands.