Podcasts about arnarsson

  • 40PODCASTS
  • 159EPISODES
  • 1h 20mAVG DURATION
  • 1EPISODE EVERY OTHER WEEK
  • Apr 4, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about arnarsson

Latest podcast episodes about arnarsson

Skoðanabræður
#366 Skoðanir Þorleifs Arnar Arnarssonar

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Apr 4, 2025 128:47

Styrktaraðilar þáttarins eru: Myntkaup, Saltverk, World Class, Silkisvefn og Takk takk (15% afsláttur með kóðanum SB15).www.patreon.com/skodanabraedurÞorleifur Örn Arnarsson er fremsti leikhús-leikstjóri Íslands. Hann hefur sett upp stóru bókmenntaverkin, allt frá Hómer í Njálu í Shakespeare, í bestu leikhúsum Evrópu. Árið 2018 vann hann hæstu verðlaun sem leikhús-leikstjóri getur unnið í Þýskalandi. Hérna fer hann yfir sínar pælingar um heiminn: Kraftur listarinnar, tilgangur leikhússins, Þýskaland, bókmenntir, menntun, metnað, að enduruppgötva sig, kerfi heimsins og allskonar annað.

Bylgjan
Sprengisandur 09.03.2025 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Mar 9, 2025 91:20

Páll Magnússon stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Guðrún Hafsteinsdóttir nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins um stjórnmál. Hörður Arnarsson forstjóri Landsvirkjunnar og Jóna Bjarnadóttir framkvæmdastjóri um virkjanamál. Valgerður Rúnarsdóttir yfirlæknir á Vogi og Helga Þórarinsdóttir læknir á geðdeild Landspítalans um hugvíkkandi efni. Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands um trúmál.

Víðsjá
Úthverfa, Sólon í Slunkaríki, Innkaupapokinn

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 4, 2025 57:16

Síðastliðinn föstudag opnaði ný sýning í Gallerí Úthverfu á Ísafirði. Þetta er samsýning fjögurra listamanna, þeirra Önnu Hrundar Másdóttur, Eyglóar Harðardóttur, Ingibjargar Sigurjónsdóttur og Katrínar Agnesar Klar. Sýningin kallast í Í lit, sýningarstjóri er Ingólfur Arnarsson, en hann var einmitt fyrsti listamaðurinn til að sýna í Úthverfu, sem áður hét Slunkaríki, fyrir akkúrat 40 árum síðan. Við hringjum á Ísafjörð og ræðum við Elísabetu Gunnarsdóttir, sem rekur Úthverfu ásamt fleirum. Við grúskum auk þess í safni Ríkisútvarpsins eftir áhugaverðum sögum af Sóloni Guðmundssyni og Katla Ársælsdóttir rýnir í Innkaupapokann í uppsetningu Kriðpleirs í Borgarleikhúsinu.

Ein Pæling
#390 Hörður Arnarsson - Vond staða í orkumálum komin til vegna meðvirkni gagnvart minnihlutahópum

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Feb 6, 2025 54:45

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunnar, mætir öðru sinni til þess að ræða stöðuna í orkumálum. Hann telur vonda stöðu í orkumálum komna upp og ástæðuna segir hann vera meðvirkni gagnvart minnihlutahópum sem hafa aðgengi að fjölmiðlum, sem dansa í takt. Staða Hvammsvirkjunnar sé mikið bakslag og mikilvægt sé að kippa leyfinu í liðinn eins fljótt og auðið er. Ellegar sé staðan orðin alvarleg.Til að styðja við þetta framtak og fá þættina fyrr en aðrir má fara á www.pardus.is/einpaeling

Spegillinn
Skotárás í skóla í friðsælli borg, SI með áhyggjur af hindrunum í alþjóðaviðskiptum, Samkeppniseftirlitið heldur búvörlagamáli til streitu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 4, 2025 20:00

Karlmaður á fertugsaldri skaut minnst níu til bana í skóla í Örebro í Svíþjóð í dag. Ódæðismaðurinn er sá tíundi sem dó, en það hefur ekki verið staðfest hvernig hann lést. Guðmundur Arnarsson hefur verið bústtur í borginni frá 2014 og er frændi Svanfríðar Birgisdóttur sem er einn skólastjóranna í Risbergska skólanum, sem er nokkurs konar símenntunarmiðstöð fyrir fullorðna. Spegillinn ræddi við Guðmund undir kvöld. Íslensk iðnfyrirtæki flytja langmest út til Evrópu en tollastríð milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins og allar hindranir í alþjóðaviðskiptum eru Sigurði Hannessyni framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins áhyggjuefni. Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins telur nauðsynlegt að halda dómsmáli um breytingar á búvörulögunum til streitu. Frumvarp atvinnuvegaráðherra breyti engu um það sem þegar hafi gerst en það geti dómur Hæstaréttar gert.

Rauða borðið
Rauða borðið 6. jan - Bjarni, veður, leikhús, þrettándinn, Carter

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 6, 2025 257:52

Mánudagur 6. janúar Bjarni, veður, leikhús, þrettándinn, Carter Við byrjum á að ræða frétt dagsins, afsögn Bjarna Benediktssonar. Og ræðum síðan veðrið við Trausta Jónsson veðurfræðing. Förum á Köttur á heitu blikkþaki og ræðum sýninguna við aðstandendur: Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri og leikararnir Sigurður Ingvarsson, Hilmir Snær Guðnason og Ásthildur Úa Sigurðardóttir ræða grimm samskipti og leyndarmál. Eru jólasveinar byltingarmenn? Þjóðfræðingarnir Jón Jónsson, Dagrún Ósk Jónsdóttir og Kristinn Schram ræða þjóðfræði þrettándans og ýmsa forna og samtíma galdra. Í lokin segir Tjörvi Schiöth okkur frá Jimmy Carter, fyrrum Bandaríkjaforseta, sem lést nýverið í hárri elli.

Mannlegi þátturinn
Áhyggjur vegna ályktana í Grænbók um ADHD og Heilsuvaktin í fyrra og á nýju ári

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 2, 2025 51:33

Nefnd skipuð af fyrrverandi heilbrigðisráðherra birti í samráðsgátt stjórnvalda á dögunum svokallaða Grænbók, þar sem skoðuð er staðan í málum tengdum ADHD á Íslandi. Skoðaðir eru til dæmis langir biðlistar eftir greiningu og algengi lyfjameðferðar. Mat nefndarinnar er að gæðum sé ábótavant, bæði þegar kemur að greiningum og lyfjameðferð. Formaður ADHD samtakanna sagði í síðustu viku að þær ályktanir sem fram koma í Grænbókinni muni valda mikilli ólgu hjá félögum samtakanna og hjá þeim sem bíða greiningar og að þar sé ýmislegt sem þurfi að skoða betur. Hrannar B. Arnarsson, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna, var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir niðurstöður Grænbókarinnar og tók undir áhyggjur formannsins, að ef farið yrði eftir þeim ályktunum sem þar koma fram þá gæti það verið skref aftur á bak, eða í það minnsta gæti það kallað á stöðnun í málefnum ADHD á Íslandi. Helga Arnardóttir kom svo til okkar og fór yfir það sem hún hefur fjallað um á Heilsuvaktinni á liðnu ári. Þar kennir margra grasa, t.d. blóðsykur, gjörunnar matvörur, ofþyngd barna, heilbrigði þarmaflórunnar, öndun til að róa taugakerfið, heilaörvunarmeðferð við þunglyndi, mikilvægi þess að fara í krabbameinsskimun, reynslusögur og margt fleira. Við rifjuðm upp það helsta frá Heilsuvaktinni árið 2024 með Helgu í dag og hún fór aðeins yfir það hvað yrði til umfjöllunar á nýju ári og auglýsti eftir hugmyndum og ábendingum frá hlustendum í því tilliti. Þær er hægt að senda á netfang þáttarins: mannlegi@ruv.is Tónlist í þættinum: Hvar er tunglið? / Kristjana Stefánsdóttir (Sigurður Flosason, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Godess / Laufey (Laufey Lin Jónsdóttir) Why can't you behave? / Ella Fitzgerald (Cole Porter) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

adhd mat forma sigur sko hvar vegna arnarsson helgu kristjana stef flosason helga arnard
Mannlegi þátturinn
Þorleifur Örn föstudagsgestur og matarspjall um bók Nigellu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 13, 2024 54:01

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri. Eftir að hann útskrifaðist úr leikstjóranámi frá einum virtasta leiklistarháskóla Evrópu hefur hann sett upp fjölda leiksýninga og ópera hér á landi, víða í Þýskalandi og í fleiri löndum. Hann var um hríð yfirmaður leiklistarmála hjá hinu fræga Volksbühne í Berlín. Hann hefur hlotið þýsku leiklistarverðlaunin fyrir leikstjórn og Grímuverðlaunin hér á landi fyrir leikstjórn. Hann hefur leikstýrt hverri stórsýningunni á fætur annarri og hans nýjasta sýning er Köttur á heitu blikkþaki eftir Tennessee Williams sem verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu 28.desember. Við spjölluðum við Þorleif Örn um lífið, tilveruna, leikhúsið, leikstjórnina, fórum til Þýskalands, Sviss og víðar í þættinum. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var á sínum stað og í dag kom hún með matreiðslubók að heiman sem er Jólamatreiðslubók Nigellu Lawson. Í byrjun ræddum við líka aðeins matreiðslubók sem gefin var út af Íslandsbanka á sínum tíma. Tónlistin í þættinum Jólin koma / GDRN og Magnús Jóhann (Eiríkur Guðmundsson) Everything in Its Right Place / Radiohead (Colin Greenwood, Ed O'Brien, Jonny Greenwood, Philip Selway & Thom Yorke) Life on Mars / David Bowie (David Bowie) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG HELGA ARNARDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Sjálfskaðahegðun unglinga, hvernig líður okkur á safni og listin að vera leiðinlegt foreldri

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 30, 2024 53:15

Unglingar sem stunda sjálfsskaðahegðun nota yfirleitt hegðunina til það ráða við og/eða þola sterkar og erfiðar tilfinningar, segir Kristín Inga Grímsdóttir, sérfræðingur í barna og unglingageðhjúkrun. Algengi sjálfsskaðahegðunar er á bilinu 13-40%, eftir því hvaða aldurshópur er skoðaður. En hverjar eru ástæður sjálfsskaðahegðunar unglinga og hvernig geta foreldrar brugðist við ef þau komast að því að unglingurinn er að skaða sig? Kristín Inga fræddi okkur frekar um þetta í þættinum. Hvernig líður okkur á safni? Hvað er það á safni sem lætur okkur líða vel og hvaða safn er okkur minnistætt hér á landi eða erlendis, þar sem okkur hefur liðið vel. Halldóra Arnardóttir er listfræðingur og stjórnandi verkefnisins Listir og menning sem meðferð við alzheimer. Hún kom til okkar í dag og við töluðum við hana um menningu, miðlun og sýnleika geðrænnar heilsu. Flestir foreldrar kannast við þá klemmu að þurfa að vera „leiðinlega foreldrið“, sem bannar það sem „allir“ aðrir leyfa, sem setur mörk og gerir kröfur. Okkur getur fundist að óþægilega margar setningar okkar sem foreldra byrji á „Nei“ eða „Ekki“. En þessi orð kunna kannski að vera þau mikilvægustu sem foreldrar segja við börn sín. Ársæll Már Arnarsson prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, kom í þáttinn og fræddi okkur um „Listina að vera leiðinlegt foreldri“ og fór með okkur yfir það að setja mörk og hvers vegna. Tónlist í þættinum Leikur að vonum / Mánar (Ólafur Þórarinsson, texti Jónas Friðrik) Haunted / Laufey (Laufey og Spencer Stewart) Á Akureyri / Óðinn Valdimarsson (Óðinn Valdimarsson) Í berjamó / Reggae on Ice (Stefán Örn Gunnlaugsson, Matthías Matthíasson og Hrólfur Sæmundsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Rauða borðið
Rauða borðið 16. okt - Stjórnmál, samfélagið, klassísk tónlist og landflótti Íslendinga

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Oct 16, 2024 195:02

Miðvikudagurinn 16. október 2024 Stjórnmál, samfélagið, klassísk tónlist og landflótti Íslendinga. Við hefjum leik á pólitíkinni og stöðunni sem upp er komin. Við munum kjósa í svartasta skammdeginu eftir nokkrar vikur. Stór hópur fólks hittist í beinni útsendingu og ræðir hvað ber að varast, auk þess sem óskalista kosningamála ber á góma. Þau Jódís Skúladóttir, þingmaður VG, Þórhildur Sunna, þingmaður pírata, Auður Önnu Magnúsdóttir hjá Kvenréttindafélaginu, Henry Alexander siðfræðingur, Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur, Sara Óskarsdóttir móðir og listamaður og Ólafur Arnarsson blaðamaður ræða við Björn Þorláks. Að lokinni pólitíkinni kemur Michael Clarke, tónlistarmaður á Akureyri, og ræðir norðlenska tónlistarsögu og stofnun Hljómsveitar Akureyrar. Rúsínan í pylsuendanum er Hlín Agnarsdóttir rithöfundur og leikhúsmanneskja. Hún ræðir alöru þess að hrekjast úr landi, en hnyttnin er aldrei fjarri þegar Hlín er annars vegar.

Rauða borðið
Rauða borðið 19. sept - Kvenfrumkvöðlar, orkuokur, foreldrar og börn, félagslegir töfrar og lífsleikni

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 19, 2024 198:40

Fimmtudagurinn 19. september Kvenfrumkvöðlar, orkuokur, foreldrar og börn, félagslegir töfrar og lífsleikni Verðlaunakvenfrumkvöðlar setjast með Oddnýju Eir Ævarsdóttur og ræða sín afrek og stöðu kvenna: Heiðdís Einarsdóttir, Elinóra Inga Sigurðardóttir, Hraundís Guðmundsdóttir og Björg Árnadóttir. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna ræðir um hækkun á orkuverði, rukkanir fyrir bílastæði, vöruskerðingu og önnur neytendamál. Ársæll Arnarsson prófessor í sálfræði ræðir uppeldi og samskipti foreldra við börn og Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði um hvað beri að gera til að endurvefa félagslegt net samfélagsins. Í lokin ræðir Róbert Jack heimspekingur um vanda skólakerfisins, um sjálfsstjórn, lífsleikni og tjáningu tilfinninga.

Draumaliðið
Svona var Ísland YOUTH SPECIAL: EM U17 2012 ft. Emil Ásmunds og Sindri Björns

Draumaliðið

Play Episode Listen Later Sep 18, 2024 91:30

LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS - BIRTA CBD - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald Emil og Sindri eru hluti af hinum mjög svo spennandi 1995 árgangi sem kannski náði ekki því flugi sem búist var við af þeim en djöfull voru þeir seigir sem YOUTH! Vicente úr Valencia, Sá þýski að skóla til Thomas Frank, Leon Goretzka að hægelda menn, Sindri Björnsson dansandi um ganga Verzlunarskólans að fagna meiðslum, Grunnskólamót höfuðborga Norðurlandanna. Viðmælendur: Orri Sigurður Ómarsson Oliver Sigurjónsson Daði Bergsson Hljóðbrot: Adam Örn Arnarsson (tekið úr útvarpsþætti fótbolti.net) Oliver Sigurjónsson (viðtal við 433) Sindri Björnsson (viðtal við fótbolti.net)

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Þorleifur Örn

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 24, 2024 154:14

Laugardagurinn 24. ágúst Helgi-spjall: Þorleifur Örn Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri segir okkur frá galdri óperunnar og lífsins, átökum og sigrum, glímu og efasemdum í Helgi-spjalli við Rauða borðið.

Fazit - Kultur vom Tage - Deutschlandfunk Kultur
Wagner-Festspiele - „Tristan und Isolde“: Allerweltsgesten und schreiende Sänger

Fazit - Kultur vom Tage - Deutschlandfunk Kultur

Play Episode Listen Later Jul 25, 2024 9:22

Die Wagner-Festspiele in Bayreuth sind mit der Premiere von „Tristan und Isolde“ des isländischen Regisseurs Thorleifur Örn Arnarsson eröffnet worden. Die Inszenierung ist enorm schwach und geprägt durch Pathos, die Musik eine Lautstärke-Schlacht. Fuchs, Jörn Florian www.deutschlandfunkkultur.de, Fazit

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Innkastið í beinni á X977

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jun 29, 2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 29. júní. Innkastið í beinni útsendingu þar sem Elvar Geir, Benedikt Bóas og Baldvin Borgars skoða 12. umferð Bestu deildarinnar, helstu tíðindi og fréttir og Lengjudeildina. Góð umferð að baki fyrir Víking. Svo er hitað upp fyrir 16-liða úrslit EM. Örvar Arnarsson fréttaritari Fótbolti.net í Austurríki er á línunni.

Segðu mér
Daniel E Arnarsson framkvæmdastjóri Samtakanna ´78

Segðu mér

Play Episode Listen Later Jun 26, 2024 38:43

90 mínútur
Íþróttavikan - Arnar Daði Arnarsson

90 mínútur

Play Episode Listen Later Apr 26, 2024 59:41

Handboltaspekingurinn Arnar Daði Arnarsson mætir í sófann hjá Helga og Kela. Handbolti, karfa og Fótbolti.

Morgunvaktin
Forsetakosningar, bresk málefni og Norðurlandasamstarf

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 25, 2024 130:00

Forsetakosningar fara hér fram eftir rétt rúma tvo mánuði; fyrsti júní er kjördagur. Óvíst er enn hve margir verða í kjöri en tugir afla meðmæla. Enn er nokkuð í að framboðsfrestur renni út. Við reyndum að átta okkur á tímalínunni í þessu, skilyrðunum og lögunum sem gilda. Hjá okkur var Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar en það er tiltölulega ný nefnd eða stofnun sem hefur yfirumsjón með framkvæmd kosninga í landinu. Björn Malmquist fréttamaður var líka með okkur; hann talaði ekki frá Brussel að þessu sinni heldur Lundúnum og með honum var Sigrún Davíðsdóttir, góðkunningi hlustenda Morgunvaktarinnar. Þau spjölluðu um stöðuna í breskri pólitík en búist er við að kosið verði til þings í Bretlandi á síðari hluta ársins, og líka um konungsfjölskylduna. Samstarfið milli Norðurlanda er elsta svæðisbundna stjórnmálasamstarf í heimi, en það er líka mikið samstarf milli ríkjanna á sviði efnahagsmála og menningar. Stefnt er að því að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og best samþætta svæði heims á næstu árum. Hvað felst í því og hvernig ætli það gangi? Hrannar Björn Arnarsson, formaður Norræna félagsins á Íslandi, kom til okkar. Tónlist: Mehldau, Brad, Otter, Anne Sofie von - Marcie. Valgeir Guðjónsson - Ég held ég gangi heim. Sunna Gunnlaugsdóttir - Becoming. Malmsten, Ragni, Johansson's, Nacke ensemble, Andersson, Bo - Tillsammans = Together.

Rauða borðið
Lekamálið, heimilislæknar og Edda

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 10, 2024 183:28

Miðvikudagurinn 10. janúar Lekamálið, heimilislæknar og Edda Blaðamennirnir Atli Þór Fanndal og Jón Bjarki Magnússon fjölluðu um leikamálið á sínum tíma og koma að Rauða borðinu til að rifja það upp í tilefni af frásögnum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur um áhrif þessa máls á sig persónulega. Margrét Ólafía Tómasdóttir formaður Félags íslenskra heimilislækna kemur til okkar og ræðir um heilbrigðiskerfið og ágalla þess. Í lokin kemur Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri og ræðir um Eddu og erindi hennar til samtímans.

Víðsjá
Auður Haralds, Skærlitað gúmmulaði og Edda

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 4, 2024

Skærlitað gúmmulaði nefnist sýning sem verður á gallerý-vegg verslunarinnar Havarí í álfheimum um helgina. Páll Ivan frá Eiðum stendur að baki sýningunni. Við tökum hann tali um sýninguna og gervigreind í þætti dagsins. Auður Haralds rithöfundur og blaðamaður lést á Landsspítalanum við upphaf þessa árs. Við minnumst Auðar með því að endurflytja viðtal Þorgerðar E Sigurðardóttur við hana um Hvunndagshetjuna frá 2015. Leikritið Edda eftir þau Þorleif Örn Arnarsson, Jón Magnús Arnarsson og Hörpu Rún Kristjánsdóttur var frumsýnt á fjölum Þjóðleikhússins á annan í jólum. Nína Hjálmarsdóttir fór í leikhúsið og segir frá í þættinum.

Víðsjá
Auður Haralds, Skærlitað gúmmulaði og Edda

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 4, 2024 52:49

Skærlitað gúmmulaði nefnist sýning sem verður á gallerý-vegg verslunarinnar Havarí í álfheimum um helgina. Páll Ivan frá Eiðum stendur að baki sýningunni. Við tökum hann tali um sýninguna og gervigreind í þætti dagsins. Auður Haralds rithöfundur og blaðamaður lést á Landsspítalanum við upphaf þessa árs. Við minnumst Auðar með því að endurflytja viðtal Þorgerðar E Sigurðardóttur við hana um Hvunndagshetjuna frá 2015. Leikritið Edda eftir þau Þorleif Örn Arnarsson, Jón Magnús Arnarsson og Hörpu Rún Kristjánsdóttur var frumsýnt á fjölum Þjóðleikhússins á annan í jólum. Nína Hjálmarsdóttir fór í leikhúsið og segir frá í þættinum.

WDR 3 Forum
Des Pudels Kern: Parsifal

WDR 3 Forum

Play Episode Listen Later Nov 10, 2023 54:55

Ausgehend von Wagners Parsifal sprechen David-Maria Gramse und Elisa Erkelenz mit dem Regisseur Thorleifur Örn Arnarsson und dem Philosophen und Schriftsteller Florian Werner: Über die aktuelle Hoffnungslosigkeit mit Blick auf die Welt, über problematische männliche Superhelden, Klimaaktivismus und die letzte Generation. Über Demut, Anfängergeist und die Oper als Empathiemaschine. Von Ellen Gall.

Víðsjá
Svipmynd af leikstjóra: Þorleifur Örn Arnarsson

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 8, 2023 55:00

Þorleifur Örn Arnarsson er meðal þekktari leikstjóra Íslands og hefur einnig fagnað miklum vinsældum í Þýskalandi undanfarin ár. Hann útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ árið 2003 og lauk námi í leikstjórn frá Ernst Busch leiklistarháskólanum í Berlín árið 2009. Á ferli sínum hefur Þorleifur sett upp fjölda verka hér á landi og uppskorið viðurkenningar fyrir, má þar helst nefna Engla alheimsins, Njálu, Guð blessi Ísland og Rómeó og Júlíu. Í Þýskalandi hefur hann unnið með heimsbókmenntirnar og ekki síst vakið athygli fyrir óperu-uppsetningar sínar. Þorleifur Örn hlaut Faust verðlaunin fyrir uppsetningu sína á Eddu árið 2018; ein eftirsóttustu leiklistarverðlaun Þýskalands, verðlaun sem þar í landi eru einungis veitt hverjum listamanni einu sinni á ævinni. Þorleifi er umhugað um þá umbrotatíma sem við lifum á og segist finna til ábyrgðar sinnar innan leikhúsmiðilsins sem hann segir vera mikilvæga tilraunastofu siðferðisins; rými þar sem við hittum fyrir persónur sem við erum ósammála en fáum að kynnast þeirra sjónarhorni á heiminn. Hann þakkar uppeldi sínu fyrir þau gagnrýnisgleraugu sem hann hefur getað sett upp við lestur á menningararfi og segir hina gefnu túlkun kanónunar á heimsbókmenntum gjarnan litaða af tíðaranda verks og orðræðu feðraveldisins.

Víðsjá
Svipmynd af leikstjóra: Þorleifur Örn Arnarsson

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 8, 2023

Betra líf með ADHD, Samtök ungra bænda og fuglaáhugi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 24, 2023 50:00

Október er alþjóðlegur vitundarmánuður fólks með ADHD og ADHD samtökin eiga að auki 35 ára afmæli í ár. Samtökin hafa minnst tímamótanna undir yfirskriftinni Betra líf með ADHD í 35 ár sem er einmitt yfirskrift alþjóðlegrar ráðstefnu á Grand Hótel 26. og 27. október sem haldin verður á vegum samtakanna. Gera má ráð fyrir að um það bil 20 þúsund Íslendingar séu með ADHD greint eða ógreint, börn og fullorðnir. Þeir Hrannar Björn Arnarsson, framkvæmdastjóri samtakanna, og Vilhjálmur Hjálmarsson formaður samtakanna komu í þáttinn í dag. Á fimmtudaginn efna Samtök ungra bænda til baráttufundar fyrir lífi sínu og sveitanna, eins og þau orða það. Ungir bændur segjast standa flestir frammi fyrir fjárhagslegum ómöguleika og að ungt fólk sem hefja vill hefðbundinn búskap eigi enga möguleika. Mikil ógn steðji að nauðsynlegri nýliðun í stétt bænda, sem setji um leið fæðuöryggi þjóðarinnar í uppnám. Ísak Jökulsson, bóndi og stjórnarmeðlimur í samtökunum, kom í þáttinn og fór yfir stöðuna og sagði frá fundinum sem fer fram í Salnum í Kópavogi. Við forvitnuðumst svo um fugla með fuglaáhugamanninum Árna Árnasyni. Hann er grunnskólakennari á eftirlaunum og myndar fugla um allt land við hvert tækifæri. Hann hefur áður gefið út bókina Stafróf fuglanna og nú er komin út ný bók eftir hann sem heitir Lesum um fugla, smekkfull af fallegum ljósmyndum. Árni kom í þáttinn með ljósmyndavél með gríðarstórri linsu og lítinn hátalara sem hann notar til að kalla í hinar ýmsu fuglategundir. Hann sagði okkur í þættinum frá þessum mikla fuglaáhuga sínum og nýju bókinni. Tónlist í þættinum í dag: Í löngu máli / Una Torfadóttir (Una Torfadóttir) Hún ógnar mér / Flott (Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir) Veldu stjörnu / Ellen Kristjánsdóttir og John Grant (Ellen Kristjánsdóttir og Bragi Valdimar Skúlason) From the Start / Laufey (Laufey & Spencer Stewart) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Betra líf með ADHD, Samtök ungra bænda og fuglaáhugi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 24, 2023

Play Episode Listen Later Aug 26, 2023 58:15

Gestur þáttarins er handboltasérfræðingurinn Arnar Daði Arnarsson frá Handkastinu. Umsjón hafa Helgi Fannar og Keli.

Morgunvaktin
Hinsegin vottun, sólargangurinn og þjóðbúningar

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 11, 2023 130:00

Samtökin 78 bjóða fyrirtækjum og stofnunum að öðlast svokallaða Hinsegin vottun. Í því felst úttekt á menningu, fyrirlestrahald og fleira. Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna, sagði frá. Enn vöknum við (flest) í björtu en það líður að því að næturnar lengist og myrkrið nái yfirhöndinni. Sævar Helgi Bragason, jarðfræðingur og stjörnufræðikennari, rabbaði um sólarganginn og útskýrði þá krafta og lögmál sem gilda um jörðina, sólina og tunglið. Norræna þjóðbúningaþingið hefur staðið síðustu daga í Reykholti í Borgarfirði. Kristín Vala Breiðfjörð, formaður Heimilisiðnaðarfélags Íslands, sagði frá þinginu og ræddi um íslenska þjóðbúninginn. Tónlist: Swing down sweet chariot - Elvis Presley, Something?s gotten hold of my heart - Gene Pitney og Marc Almond. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Morgunvaktin
Hinsegin vottun, sólargangurinn og þjóðbúningar

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 11, 2023

Samtökin 78 bjóða fyrirtækjum og stofnunum að öðlast svokallaða Hinsegin vottun. Í því felst úttekt á menningu, fyrirlestrahald og fleira. Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna, sagði frá. Enn vöknum við (flest) í björtu en það líður að því að næturnar lengist og myrkrið nái yfirhöndinni. Sævar Helgi Bragason, jarðfræðingur og stjörnufræðikennari, rabbaði um sólarganginn og útskýrði þá krafta og lögmál sem gilda um jörðina, sólina og tunglið. Norræna þjóðbúningaþingið hefur staðið síðustu daga í Reykholti í Borgarfirði. Kristín Vala Breiðfjörð, formaður Heimilisiðnaðarfélags Íslands, sagði frá þinginu og ræddi um íslenska þjóðbúninginn. Tónlist: Swing down sweet chariot - Elvis Presley, Something?s gotten hold of my heart - Gene Pitney og Marc Almond. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Fotbolti.net
Tiltalið: Alex Bergmann Arnarsson

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jun 26, 2023

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Njarðvíkur, Alex Bergmann Arnarsson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Spegillinn
03.05.2023

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 3, 2023

Spegillinn 3. maí 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Leiðtogar Norðurlandanna hvika hvergi í stuðningi sínum við Úkraínu í stríði við Rússa. Framlag Íslands verður helst að hjálpa til að skrá það tjón sem Rússar hafa valdið í Úkraínu. Hallgrímur Indriðason ræddi við Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra á fundi leiðtogann með Selenskí í Finnlandi. Örvunarbólusetningar gegn barnaveiki, kíghósta, mænusótt og stífkrampa liggja niðri, þar sem bóluefnið er ófáanlegt. Valtýr Stefánsson, barnasmitsjúkdómalæknir segir að ef of lengi dregst að bólusetja, geti kíghóstafaraldur brotist út. Alma Ómarsdóttir talaði við hann. Kaupmáttur ellífeyrisþega hefur ekki haldið í við almenna launaþróun á undanförnum árum og staða þeirra versnað verulega. Þetta kom fram í máli þingmanna stjórnarandstöðunnar á Alþingi í dag. Höskuldur Kári Schram tók saman. Brot úr ræðum Viðars Eggertssonar (S), Halldóru Mogensen (P), Ingu Sæland (F) og Bjarna Benediktssyni (D). Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB segja stjórnvöld verða að bregðast tafarlaust við ófremdarástandi á vinnumarkaði. Ekki þurfi að bíða eftir næstu kjarasamningum. ---- Fundur norrænna leiðtoga um Úkraínu er skýrt merki um aukið vægi varnar- og öryggismála í Norðurlandasamstarfi. Hallgrímur Indriðason ræddi við Katrínu Jakobsdóttur eftir fundinn í Helsinki. Öryggis- og varnarmál voru varla rædd á norrænum vettvangi en hafa verið fyrirferðarmikil þar síðustu misseri. Innganga Finna og Svía í NATO og ógnin af Rússlandi hefur haft mikil áhrif. Það verður að nýta til að styrkja samstarfið enn frekar en draga ekki úr því á öðrum sviðum segir Hrannar B. Arnarsson formaður Norræna félagsins. Bryndís Haraldsdóttir (D) formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs telur þetta tækifæri til styrkingar og líka til að tengja Eystrasaltslöndin betur. Norsk stjórnvöld ætla að tvöfalda framlag til hermála, ekki síst til að lappa upp á norska flotann .Gísli Kristjánsson segir frá.

Íslandsklukkan, bíó fyrir alla og íslensk veðurhugtök

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 14, 2023

Ny?tt leikverk eftir leikhópinn Elefant byggt á einni ástsælustu skáldsögu þjóðarinnar, Íslandsklukku Halldórs Laxness. Leikhópurinn Elefant samanstendur af ungum íslenskum leikurum sem í samvinnu við Þorleif Örn Arnarsson leikstjóra frumsýna á fimmtudaginn í Kassanum í Þjóðleikhúsinu.María Thelma Smáradóttir, sem leikur Snæfríði Íslandssól í sýningunni kom í viðtal í dag og sagði okkur meðal annars frá því að þetta hefði verið draumahlutverkið hennar frá því hún var unglingur og las söguna fyrst. Við forvitnuðumst svo um sérstakar kvikmyndasýningar í Bíó Paradís, en þar er hefur verið unnið undanfarið að því að bæta aðgengi fyrir hreyfihamlaða að allri aðstöðu og bíósýningarnar hafa verið aðlagaðar til dæmis fyrir blinda, heyrnaskerta og einhverfa og boðið hefur verið upp á bíósýningar á óhefðbundnum tímum fyrir þau sem það vilja. Hrönn Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Bíó Paradís kom í þáttinn í dag. Svo komu þær saman til okkar í veðurspjall, Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur og Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur Ríkisútvarpisins. Við ræddum við þær saman um íslensk veðurhugtök. Þau geta verið mjög lýsandi, falleg, fyndin, skrýtin og mjög oft mjög áhugaverð. Það var skemmtilegt spjall um íslensku veðurhugtökin með Önnu Sigríði og Elínu Björk í dag. Tónlist í þættinum í dag Kúst og fæjó / Heimilistónar (Heimilistónar) Almost Over You / Önnu Jónu Son (Haraldur Ingi Þorleifsson) Allt að gerast / Ásgeir Ásgeirsson Trio (Ásgeir Ásgeirsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Íslandsklukkan, bíó fyrir alla og íslensk veðurhugtök

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 14, 2023 50:00

Breytingar á atvinnuleyfi, miðlunartillaga samþykkt og orkuskipti

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 8, 2023 9:13

Atvinnuleyfi starfsfólks frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins verða ekki lengur bundin atvinnurekanda heldur starfsfólkinu sjálfu, samkvæmt fyrirhuguðum breytingum á lögum um dvalar- og atvinnuréttindi útlendinga. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman og talaði við Katrínu Jakobsdóttur, Málflutningur í stærsta kókaínmáli Íslandssögunnar fór fram í allan dag. Verjendur segja sakborningana aðeins lítil peð í stórri keðju en saksóknari krefst hámarksrefsingar. Gunnhildur Birgisdóttir talaði við Önnu Barböru Andradóttur. Kröfu sakborninga um að hoppukastalamálinu yrði vísað frá dómi var hafnað í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag. Innviðaráðherra fór á fund bæjarstjóra í Vogum í morgun vegna Suðurnesjalínu tvö. Bæjarstjórinn segist vona að stjórnvöld taki mark á áliti sérfræðinga og að áformum um línuna verði breytt. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir talaði við Gunnar Axel Axelsson. ---------------------- Félagsmenn Eflingar og aðildarfyrirtæki SA samþykktu miðlunartillögu ríkissáttasemjara . Nýr kjarasamningur gildir út janúar 2024 og forystufólk býr sig undir næstu viðræður, næsta vetur. Hvers má vænta í þeirri lotu ef við lítum yfir farinn veg í þessari deilu? Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við Sumarliða Ísleifsson, dósent í sagnfræði sem segir samtal um þjóðarsátt fara of seint af stað. Mörg ár hafi tekið á koma á þjóðarsátt síðast. Óumflýjanlegt er að virkja meira til að orkuskipti og loftslagsmarkmið verði ekki orðin tóm að mati Landsvirkjunar. Forstjóri hennar segist vongóður um að fá framkvæmdaleyfi frá sveitarfélögum, sem kalla eftir að meira sitji eftir vegna nábýlisins við virkjanir. Bjarni Rúnarsson ræddi við Hörð Arnarsson.

Spegillinn
Breytingar á atvinnuleyfi, miðlunartillaga samþykkt og orkuskipti

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 8, 2023

Húmor getur verið miskunarlaust stjórntæki

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 8, 2023

Fjallað var um húmor en út er komin fræðibók á ensku um húmor og grimmd. Höfundar eru Ársæll Arnarsson, prófessor við HÍ, og Giorgio Baruchello, prófessor við HA. Ársæll sagði frá tilurð bókarinnar, sem er fyrsta bindi af fjórum, og tæpti á sögu húmors, þróun og gildi. Alþjóðleg efnahagsmál voru til umfjöllunar í spjalli með Ásgeiri Brynjari Torfasyni. Hann fór yfir fyrirsjáanlegar breytingar í heimsviðskiptum og heimshagkerfinu vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Enn er hvarf malasísku flugvélarinnar MH370 ráðgáta þótt ýmsar kenningar séu á kreiki. Vera Illugadóttir rifjaði málið upp og sagði frá því nýjasta en níu ár eru í dag síðan vélin hvarf. Tónlist: Hey Loretta - Loretta Lynn, Royi Roggers - Halli og Laddi, Internationalinn - Lúðrasveit verkalýðsins, Nútíminn - Þursaflokkurinn. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Morgunvaktin
Húmor getur verið miskunarlaust stjórntæki

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 8, 2023 130:00

Fjallað var um húmor en út er komin fræðibók á ensku um húmor og grimmd. Höfundar eru Ársæll Arnarsson, prófessor við HÍ, og Giorgio Baruchello, prófessor við HA. Ársæll sagði frá tilurð bókarinnar, sem er fyrsta bindi af fjórum, og tæpti á sögu húmors, þróun og gildi. Alþjóðleg efnahagsmál voru til umfjöllunar í spjalli með Ásgeiri Brynjari Torfasyni. Hann fór yfir fyrirsjáanlegar breytingar í heimsviðskiptum og heimshagkerfinu vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Enn er hvarf malasísku flugvélarinnar MH370 ráðgáta þótt ýmsar kenningar séu á kreiki. Vera Illugadóttir rifjaði málið upp og sagði frá því nýjasta en níu ár eru í dag síðan vélin hvarf. Tónlist: Hey Loretta - Loretta Lynn, Royi Roggers - Halli og Laddi, Internationalinn - Lúðrasveit verkalýðsins, Nútíminn - Þursaflokkurinn. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Mannlegi þátturinn
ADHD, Undir gjallregni og póstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 26, 2022

Október er alþjóðlegur vitundarmánuður fólks með ADHD og ADHD samtökin standa fyrir fjölbreyttum viðburðum til að vekja athygli á málefnum fólks með ADHD. Gera má ráð fyrir að hátt í 20.000 Íslendingar séu með ADHD - greint eða ógreint, börn og fullorðnir. Í ár verður athyglinni sérstaklega beint að mikilvægi greininga, meðferðar og lyfja fyrir fólk með ADHD og því ástandi sem í þeim málum ríkir hér á landi, en biðtími eftir þessari mikilvægu þjónustu er um tvö ár. Yfirskrift mánaðarins er ADHD - greining, meðferð og lyf bjarga lífum! Hrannar Björn Arnarsson, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna, og Anna Tara Andrésdóttir, doktorsnemi í heila- hugarstarfsemi og hegðun í Háskólanum í Barcelona komu í þáttinn í dag. Bókin Undir gjallregni er frásögn lögreglumannsins Ólafs Ragnars Sigurðssonar af eldgosinu í Eyjum 1973. Ólafur var nýráðin lögregluþjónn í Vestmannaeyjum þegar eldgosið hófst aðfaranótt 23.janúar 1973. Ragnar varð eftir í eynni við björgunarstörf næstu vikur og skráði hjá sér minnisverða atburði, stóra og smáa og eru þeir uppistaðan í bókinni. Ólafur og barnabarn hans Marí Linda Jóhannsdóttir, sem aðstoðaði við skrifin, komu í þáttinn. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Í póstkorti dagsins segir hann frá skemmtanalífi og veisluhaldi Vestmannaeyinga og svo frá ferðalöngun Magnúsar frá því að hann var strákur austur á fjörðum. Hann segir frá frægri veggmynd á múrnum í Berlínaborg sem er nú orðin eitt helsta tákn borgarinnar. Hann segir líka frá deilum sem eru risnar millum Breta og Indverja vegna gimsteins sem Indverjar segja breta hafa stolið en prýðir nú kórónu væntanlegrar drottningar. Tónlist í þættinum í dag: Þrek og tár / Haukur Morthens og Erla Þorsteinsdóttir (Otto Lindblad og Guðmundur Guðmundsson) Gakktu alla leið / Hjálmar (Smokey Robinson, Ronald White og Bragi Valdimar Skúlason) Hr. Reykjavík / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson) Heima / Sextett Ólafs Gauks (Oddgeir Kristjánsson og Ási í Bæ) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
ADHD, Undir gjallregni og póstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 26, 2022 50:00

Útvarpsþátturinn - Stóru fréttirnar að norðan, landsliðin og bestir í Bestu

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Sep 24, 2022

Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum. Risafréttirnar frá Akureyri eru fyrst á dagskrá. Arnar Grétarsson er hættur sem þjálfari KA og Hallgrímur Jónasson gerði þriggja ára samning. Örvar Arnarsson ræðir um landsleikinn gegn Venesúla, U21 landsleikurinn er til umfjöllunar, farið yfir kosningu á bestu leikmönnunum í Bestu, leigubílasögur úr íslenska boltanum og England er fallið niður í B-deild Þjóðardeildarinnar.

Kultur heute Beiträge - Deutschlandfunk
"Temple of Alternative Histories" - Projekt von T. Ö. Arnarsson zur documenta

Kultur heute Beiträge - Deutschlandfunk

Play Episode Listen Later Jul 10, 2022 5:09

Laages, Michaelwww.deutschlandfunk.de, Kultur heuteDirekter Link zur Audiodatei

Mín skoðun
573.þáttur. Mín skoðun. 20052022

Mín skoðun

Play Episode Listen Later May 20, 2022 55:11

573.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Arnar Daði Arnarsson handboltagúrú er á línunni um úrslitakeppnina í handbolta og hann talar tæpitungulaust. Þórhallur Dan er svo að sjálfsögðu í spjalli og við förum yfir Bestu deildir karla og kvenna. Við tölum einnig um Lengjudeildina og um þjálfaraskiptin hjá HK. Enski boltinn er til umræðu, ítalski boltinn og margt, margt fleira í virkilega lélegum þætti, ekki hlusta. Njótið helgarinnar. 

Víðsjá
Birgir Andrésson: Eins langt og augað eygir

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 3, 2022 53:53

Eins langt og augað eygir kallast umfangsmikil yfirlitssýning á verkum Birgis Andréssonar sem tekur yfir nær alla Kjarvalstaði. Birgir var leiðandi afl í myndlistarsenu Reykjavíkur í áratugi og skapar stóran sess í listasögu Íslands, en hann lést langt fyrir aldur fram, árið 2007. Birgir hélt fjölda sýninga hérlendis og erlendis á litríkum ferli sínum og var valinn til að taka þátt í Feneyjatvíæringnum árið 1995 fyrir hönd Íslands. Í Víðsjá dagsins verður rætt við aðstandendur yfirlitssýningarinnar; sýningarstjórann Robert Hobbs, hönnuðinn Ásmund Hrafn Sturluson, Aldísi Snorradóttur verkefnastjóra sýninga hjá Listasafni Reykjavíkur og Börk Arnarsson eiganda i8 gallerí. Þar að auki verða viðtöl við Birgi sjálfan sótt í safn Ríkisútvarpsins. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.

Víðsjá
Birgir Andrésson: Eins langt og augað eygir

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 3, 2022

24/7
Fannar Þór Arnarsson

24/7

Play Episode Listen Later Nov 30, 2021 77:03

Fannar Þór er eigandi stafrænu auglýsingastofunnar Kiwi. Í þættinum ræðir Fannar um hugrekkinu í að fylgja ástríðunni sinni og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/  Te og kaffi - https://www.teogkaffi.is/ Your Super - https://tropic.is/voruflokkur/ofurfaedur/your-super/

Morgunútvarpið
9. nóv. - Kvenleiðtogar, hraðakstur, ríkisstjórn, Skrekkur, kirkjan

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Nov 9, 2021 130:00

Ráðstefnan Reykjavík Global forum - Women leaders hófst í Hörpu í dag en þar koma saman leiðtogar víðsvegar að úr heiminum til að ræða risavaxin málefni á borð við loftslagsbreytingar, heilbrigðismál og frumkvöðlastarf. Hanna Birna Kristjánsdóttir er formaður framkvæmdastjórnar Women Political Leaders sem heldur ráðstefnuna og hún kíkti til okkar til að ræða hvað fer fram á ráðstefnunni. Vísir greindi frá því í gær að hraðamyndavélin á Sæbraut í Reykjavík hafi náð hraðakstri tæplega 4.700 ökumanna á mynd frá ársbyrjun - og sektargreiðslur sem rekja má til vélarinnar hlaupa á tugum milljóna. Við ræddum við Árna Friðleifsson, aðalvarðstjóra hjá umferðadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um sektargreiðslur, umferðaröryggi og vetrarfærðina framundan. Formenn ríkisstjórnarflokkanna eru byrjaðir að skrifa nýjan stjórnarsáttmála en þeir hafa fundað í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu síðustu daga. Lítið hefur verið gefið upp um efni viðræðanna en fram hefur komið að ný ríkisstjórn verði ekki kynnt fyrr en eftir að niðurstaða undirbúningskjörnefndar liggur fyrir. Við ræddum við Sigurð Inga Jóhannsson, formann Framsóknarflokksins og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, um gang viðræðna og hvað Framsókn vill leggja áherslu á næstu árin. Samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup treysta einungis 15 prósent landsmanna biskup Íslands, Agnesi M Sigurðardóttur, og þriðjungur Þjóðkirkjunni. Traust til kirkjunnar og starfsfólks hennar hefur dregist verulega saman síðustu tvo áratugi og aldrei hefur minna hlutfall þjóðarinnar verið skráð í kirkjuna. Til okkar kom Sólveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum og staðgengill Agnesar, til að ræða málefni kirkjunnar og þetta mikla vantraust sem blasir við. Lið Árbæjarskóla stóð uppi sem sigurvegari þegar keppt var til úrslita í Skrekk, hæfileikakeppni fyrir grunnskólanemendur í Reykjavík, í kvöld. Atriði nemendanna úr Árbæjarskóla nefnist Annað viðhorf. Við ræddum við Helgu Hrund Ólafsdóttur og Baldur Björn Arnarsson, fulltrúa Árbæjarskóla. Annan hvern þriðjudag fáum við til okkar Guðmund Jóhannsson til að fara yfir það allra helsta í heimi tækninnar. Sýndarveruleiki Facebook kom við sögu í dag en einnig nýja átakið Reddum málinu. Tónlist: Sunnyroad - Emiliana Torrini Justified - Kacey Musgraves Pleasant ship - Kiriyama family Easy on Me - Adele Segðu mér - Friðrik Dór Midnight Train to Georgia - Gladys Knight Kartöflur - Sigurður Guðmundsson Put your records on - Corinne Bailey Rae Rocky Trail - Kings of Convenience Love Again - Dua Lipa

Spegillinn
8. nóvember 2021. Loftslagstengd þróunarsamvinna. Rafeldsneyti o.fl.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 8, 2021 30:00

Formenn stjórnarflokkanna ræddu myndun nýrrar ríkisstjórnar og skiptingu ráðuneyta á fundi sínum í dag. Vinna við gerð stjórnarsáttmála er langt komin. Varsla hefur verið hert til muna á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlands. Fjöldi hælisleitenda er á leið þangað eða kominn að mörkunum. Loðnuvertíð sem gæti orðið sú stærsta í 20 ár er að hefjast og Bjarni Ólafsson AK heldur til veiða á morgun. Stýrimaðurinn er bjartsýnn. Fulltrúar þriggja íslenskra stéttarfélaga lögðust gegn því að íslenska flugstéttafélagið fengi inngöngu í Norræna flutningamannasambandið. Forsætisráðherra Danmerkur, hefur boðað til blaðamannafundar vegna mikillar aukningar kórónuveirusmita í landinu. Hálf öld er í dag frá því að eitt frægasta rokklag heims kom út. Lengri umfjallanir (frá mínútu 10): Utanríkisráðherra segir Ísland standa vel þegar kemur að framlögum til loftslagsaðgerða í þróunarríkjum. Gagnrýni tveggja sjálfstæðra rannsóknastofnana sé hvatning til að gera betur. Grænþvottur þróunaraðstoðar sé ekki vandamál hér. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson Verkfræðingur hjá Eflu segir mikilvægt að hefja strax undirbúning að framleiðslu rafeldsneytis, ella gæti Ísland þurft að flytja inn dýrt rafeldsneyti. Arnar Páll Hauksson ræðir við Hafstein Helgason. Á þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn var ákveðið að verja auknu fé til menningarsamstarfs en niðurskurður hafði verið fyrirhugaður. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir þennan áfangasigur við Hrannar Björn Arnarsson, formann Norræna félagsins. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir. Tæknimaður: Mark Eldred

Morgunútvarpið
13. júl - bólusetn, ferðalög, lunga, norðurlönd, vegan

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jul 13, 2021 130:00

Umsjón Felix Bergsson og Helga Margrét Höskuldsdóttir 7:15. Í dag og á morgun verður síðustu bólusetningarskömmtunum komið í upphandleggi þjóðarinnar fyrir langþráð sumarfrí þess heilbrigðisstarfsfólks sem hefur staðið vaktina í Laugardalshöll og á Heilsugæslustöðvum út um allt land. Við heyrðum í Guðnýju Friðriksdóttur framkvæmdastjóra hjúkrunar á Akureyri. 7:30. Nú þegar stór hluti þjóðarinnar hefur verið bólusettur og ferðatakmörkunum hefur verið aflétt eru án efa margir sem stefna á útlönd. Það eru þó ekki öll lönd sem hafa aflétt takmörkunum eins og Ísland og flækjustig innritunar flugfarþega á Leifsstöð er nokkuð hátt. Icelandair hefur nú tekið í notkun upplýsingakerfið Sherpa til að auðvelda ferðalöngum lífið og Birna Ósk Einarsdóttir, framkvæmdastjo?ri so?lu- og þjo?nustusviðs Icelandair, fór yfir hvernig kerfið getur nýst fólki. 7:45. Lunga, Listahátíð ungs fólks, fer fram á Seyðisfirði í 21. skipti í vikunni. Hátíðin fór ekki fram í fyrra og listþyrst ungmenni því auðvitað spennt að hefjast handa við að skapa. Við hringdum á Seyðisfjörð og ræddum við Björtu Sigfinnsdóttir framkvæmdarstýru Lunga um allt það sem framundan er í vikunni hjá þeim. 8:05. Margir hafa áhyggjur af niðurskurði til ýmissa málaflokka í samstarfi norðurlandaþjóðanna í gegnum Norðurlandaráð en það mun koma til vegna tilfærslu fjármuna til baráttunnar gegn loftslagsbreytingum. Sérstaklega hefur mikill niðurskurður til menningarmála verið nefndur. Forstöðumaður Norræna hússins hefur komið fram og sagt að niðurskurðurinn sem verði allt að 25% muni gera rekstrinum mjög erfitt fyrir. Hrannar Björn Arnarsson formaður norræna félagsins kom í morgunútvarpið og ræddi norræna samstarfið 8:35. Kristján Thors og Atli Stefán Yngvason eru mennirnir á bak við fyrirtækið VEGAnGERÐINA sem framleiðir tempeh. En tempeh er indónesískur réttur sem ekki hefur verið framleiddur hérlendis og er gerjuð matvara úr baunum, byggi og sveppagróum. Við forvitnuðumst um þessa merkilegu afurð.