Podcasts about arnard

  • 42PODCASTS
  • 205EPISODES
  • 1h 18mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Mar 13, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about arnard

Latest podcast episodes about arnard

Rauða borðið
Rauða borðið - Fasísk sveifla, gróandi, ásakanir, heilahvel, tálbeitur, feðraveldi og endurhæfing

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Mar 13, 2025 268:19

Fimmtudagur 13. mars Fasísk sveifla, gróandi, ásakanir, heilahvel, tálbeitur, feðraveldi og endurhæfing Magnús Helgason sagnfræðingur og Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúI ræða við Gunnar Smára um hvernig Donald Trump er að breyta Bandaríkjunum. Hversu miklar geta þær breytingar orðið? Og munu þær ganga til baka í næstu pólitísku sveiflu. Lexí Líndal, plötusnúður og listakona og Máni Emeric Primel, leikari ræða um reynslu sína af Janus endurhæfingu sem nú á að loka og sorgina yfir því að öll þessi einstaka sérfræðiþekking sem hefur byggst þar upp til endurhæfingar fyrir ungt fólk með einhverfu og fjölþættan vanda sé nú í hættu. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Helga Gunnlaugsson afbrotafræðing um tálbeitur, en það fyrirbæri er mikið í umræðunni núna í tengslum við hræðilega glæpi á Íslandi. María Pétursdóttir, formaður málefnastjórnar Sósíalistaflokks Íslands og Sara Stef Hildar varaformaður framkvæmdastjórnar ræða við Oddnýju Eir um hitamál flokksins eftir gagnrýni lítils hóps flokksins og uppgjör eins félaga og ásakanir um einelti, útskúfun, þöggun og ólýðræði. Hildur Dagbjört Arnardóttir fer fyrir samfélagsverkefninu Gróanda og hefur byggt upp nytjagarð sl. 9 ár sem fólkið á Ísafirði hefur aðgang að, endurgjaldslaust. Mannréttindafréttaritari okkar, Arna Magnea Danks ræðir um nýjustu aðgerðir Trömpstjórnar og innlends æsings vegna þátttöku sumra í kvennagöngu og spurningarinnar ,,Hvað er kona?” Hún segir okkur frá því hvernig tilvera hennar er ögrun við feðraveldið, eins og fokkmerki og frá nýrri bíómynd sem hún leikur í, Ljósvíkingar sem hefur fengið lof úti í heimi. Elín Agla Briem, þjóðmenningarbóndi, segir frá reynslu sinni af lífinu á Ströndum, af pólitískum átökum sem urðu persónulegar og segir frá nýjum heilahvelsrannsóknum sem setja pólaríseringu í nýtt samhengi og mannskepnuna í ný tengsl við náttúruna.

Samfélagið
Framtíð lyfjafræði og nýfundin bréf frá berklahælinu

Samfélagið

Play Episode Listen Later Mar 4, 2025 59:31

Lyfjafræðingar eru þreyttir á vantrausti frá heilbrigðiskerfinu og vilja gera meira til að aðstoða sjúklinga. Í dag fáum við til okkar Sigurbjörgu Sæunni Guðmundsdóttur, formann lyfjafræðingafélags Íslands, og Sigríði Pálínu Arnardóttur, lyfjafræðing í Reykjanesapóteki, til að ræða framtíð lyfjafræðinnar og apóteka á Íslandi. Ingunn Sigurjónsdóttir var veik af berklum stóran hluta sinnar barnæsku og var einungis 25 ára þegar hún lést. Sem barn horfði Úlfar Bragason, bróðursonur hennar, og í dag prófessor emerítus í miðaldafræðum, oft á mynd af henni, sem hékk upp á vegg - og spurningum hans um hver þessi kona hefði verið var svarað fálega, um hana átti ekki að tala. Seinna fékk Úlfar að kynnast henni í gegnum bréf sem hún skrifaði ættingjum og vinum af berklahælinu. Í fyrra gaf hann bréfin út á bók - en bréfin frá Ingunni heldur samt áfram að reka á fjörur hans. Tónlist í þættinum: NORAH JONES - Happy Pills. Kavakos, Leonidas, Nagy, Péter, - Suite Italienne for violin and piano. Kavakos, Leonidas, Nagy, Péter - Duo concertant for violin and piano. Katrín Halldóra Sigurðardóttir - Frá liðnu vori.

Mannlegi þátturinn
Ásta Arnardóttir föstudagsgestur og rautt og appelsínugult matarspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 7, 2025 50:33

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Ásta Arnardóttir. Ásta er eigandi og framkvæmdastjóri Yogavin, hún er menntuð leikkona, leiðsögukona og yogakennari og hún hefur tekið virkan þátt í náttúruvernd og var til dæmis tilnefnd til Nátturu- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2009. Við fórum með henni aftur í tímann á æskuslóðirnar og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag með viðkomu meðal annars í Englandi, Póllandi og Bandaríkjunum. Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti á sínum stað. Í síðustu viku tengdum við matarspjallið við gular veðurviðaranir sem þá höfðu verið og töluðum um gulan mat. Þá lá beinast við að fjalla í dag um appelsínugulan og rauðan mat í þetta sinn eftir viðvaranir og veðrið þessarar viku. Tónlist í þættinum í dag: Herbergið mitt / Brimkló (Arnar Sigurbjörnsson og Vilhjálmur frá Skáholti) We are Family / Sister Sledge (Bernard Edwards & Nile Rodgers) Lokah Samasta / Deva Premal & Miten (M. Done) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Þögnin með Sirrý Arnardóttur,Björn Hafþór á Stöðvarfirði,Guðaveigar ný kvikmynd.

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 12, 2024 50:00

“Að hvíla vel í þögninni getur verið mikilvægur hluti af öruggri tjáningu. Í vinnu, stjórnmálum, fjölmiðlum, á Teams og vinasamböndum.” segir Sirrý Arnardóttir stjórnendaþjálfari, háskólakennari, rithöfundur og fjölmiðlakona. Við töluðum um mikilvægi þagnarinnar í dag. Það er nú ekki algengt að fólk á áttræðisaldri sé að gefa út geisladiska með eigin tónlist en við heyrðum af manni á Stöðvarfirði sem réðst í það verkefni á árinu og nú er diskurinn komin út, Við skulum ekki hafa hátt , heitir diskurinn og lagahöfundurinn heitir Björn Hafþór Guðmundsson. Björn Hafþór hefur starfað við sveitastjórnarmál fyrir austan í áratugi og verið oddviti, setið í sveitarstjórnum og starfað sem sérfræðingur og nú þegar hann var hættur að vinna, hefur hann verið leiðsögumaður með erlenda ferðamenn víða um austurland. Við töluðum við Björn Hafþór í dag. Guðaveigar heitir ný íslensk mynd sem frumsýnd verður í kvikmyndahúsum annan í jólum og kemur úr smiðju Markelsbræðra, þeirra Arnar Marínós Arnarsonar og Þorkells Harðarsonar en þeir hafa framleitt sex gamanmyndir á síðustu fjórum árum á borð við Síðustu veiðiferðina, Saumaklúbbinn, Ömmu Hófí og Fullt hús svo eitthvað sé nefnt sem allar hafa fengið góðar viðtökur í kvikmyndahúsum. Við ræddum við þá félaga í dag. MANNLEGI ÞÁTTURINN - FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG HELGA ARNARDÓTTIR Tónlist í þættinum Irglová, Markéta - Vegurinn heim. Matti Lauri Kallio, Tantanen, Hannu, Hakala, Petri - Nord waltz. Hilmar Örn Garðarsson Vestmann - Veröld sem var.

Mannlegi þátturinn
Sjálfskaðahegðun unglinga, hvernig líður okkur á safni og listin að vera leiðinlegt foreldri

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 30, 2024 53:15

Unglingar sem stunda sjálfsskaðahegðun nota yfirleitt hegðunina til það ráða við og/eða þola sterkar og erfiðar tilfinningar, segir Kristín Inga Grímsdóttir, sérfræðingur í barna og unglingageðhjúkrun. Algengi sjálfsskaðahegðunar er á bilinu 13-40%, eftir því hvaða aldurshópur er skoðaður. En hverjar eru ástæður sjálfsskaðahegðunar unglinga og hvernig geta foreldrar brugðist við ef þau komast að því að unglingurinn er að skaða sig? Kristín Inga fræddi okkur frekar um þetta í þættinum. Hvernig líður okkur á safni? Hvað er það á safni sem lætur okkur líða vel og hvaða safn er okkur minnistætt hér á landi eða erlendis, þar sem okkur hefur liðið vel. Halldóra Arnardóttir er listfræðingur og stjórnandi verkefnisins Listir og menning sem meðferð við alzheimer. Hún kom til okkar í dag og við töluðum við hana um menningu, miðlun og sýnleika geðrænnar heilsu. Flestir foreldrar kannast við þá klemmu að þurfa að vera „leiðinlega foreldrið“, sem bannar það sem „allir“ aðrir leyfa, sem setur mörk og gerir kröfur. Okkur getur fundist að óþægilega margar setningar okkar sem foreldra byrji á „Nei“ eða „Ekki“. En þessi orð kunna kannski að vera þau mikilvægustu sem foreldrar segja við börn sín. Ársæll Már Arnarsson prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, kom í þáttinn og fræddi okkur um „Listina að vera leiðinlegt foreldri“ og fór með okkur yfir það að setja mörk og hvers vegna. Tónlist í þættinum Leikur að vonum / Mánar (Ólafur Þórarinsson, texti Jónas Friðrik) Haunted / Laufey (Laufey og Spencer Stewart) Á Akureyri / Óðinn Valdimarsson (Óðinn Valdimarsson) Í berjamó / Reggae on Ice (Stefán Örn Gunnlaugsson, Matthías Matthíasson og Hrólfur Sæmundsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Rauða borðið
Rauða borðið 24. okt - Kosningar, átök, hækkun matarverð, hernaðarandstæðingar, Gaza og vond leikrit

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Oct 25, 2024 302:00

Fimmtudagurinn 24. október Kosningar, átök, hækkun matarverð, hernaðarandstæðingar, Gaza og vond leikrit Við ræðum pólitík í aðdraganda kosninga. Karen Halldórsdóttir fyrrum bæjarfulltrúi, Marinó G. Njálsson ráðgjafi, Guðríður Arnardóttir fyrrverandi form Félags framhaldsskólakennara og fyrrum bæjarfulltrúi og Hákon Gunnarsson varabæjarfulltrúi, allt Kópavogsbúar, koma fyrst og svo blaðamennirnir Jakob Bjarnar Grétarsson, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Frosti Logason og Karen Kjartansdóttir. Benjamín Julian, verkefnastjóri verðlagseftirlits Alþýðusambandsins, fjallar um hækkun matvælaverðs og önnur neytendamál. Árni Hjartarson, sem var ritstjóri veglegar bókar um baráttu hernaðarandstæðinga, segir okkur frá bókinni og baráttunni. Árni segir enn: Ísland úr Nató og herinn burt. María Lilja fær til sín ungliða til að ræða þjóðarmorðið í Gaza: Gunnar Ásgrímsson kemur frá Ung Framsókn, Ármann Leifsson frá Ungum jafnaðarmönnum í Samfylkingunni, Karl Héðinn Kristjánsson frá Roða í Sósíalistaflokknum og Sverrir Páll frá Uppreisn í Viðreisn. Og Lára Magnúsardóttir ræðir um tvö leikrit á fjölum leikhúsanna og þær leiðir sem hægt er að fara til að virkja menningarstofnanir okkar til að styrkja íslensku og fólk sem vill læra íslensku.

Mannlegi þátturinn
Jafningjastuðningur á geðsviðinu og monsúnvindar og sumarkuldi í veðurspjallinu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 1, 2024 55:48

Alþjóðleg ráðstefna um geðhvörf stendur nú yfir í Hörpu og við fjölluðum í dag um nýja nálgun á geðsviði sem er aukið samstarf á milli geðheilbrigðisstarfsfólks og jafningja með eigin reynslu af geðsjúkdómum. Nína Eck, félagsráðgjafi hjá Geðhvarfateymi Landspítala og fyrrum notandi geðheilbrigðisþónustu, kom í þáttinn, en hún hefur tekið þátt í að innleiða jafningjastuðning í Geðþjónustu Landspítalans. Með henni kom Guðmunda Arnardóttir, kennari í Bataskóla í Kaupmannahöfn og einn höfunda bókarinnar Geðhvörf fyrir byrjendur. Þær sögðu okkur meira frá jafningjastuðningnum og til dæmis því sem kallað er bjargráð. Einar Sveinbjörnsson var svo hjá okkur í veðurspjallinu í dag. Í dag fjallaði hann um monsúnvinda, almennt séð en einkum þann þekktasta í Indlandi. Þeir hafa skilað miklum rigningum í sumar, til góðs fyrir uppskeru á þessu svæði þar sem um fjórðungur mannkyns býr, en líka til ills því mannskæð flóð hafa fylgt, nú síðast í Nepal. Svo talaði Einar aðeins meira um sumarhitann hér á landi, nú þegar Veðurstofusumrinu er formlega lokið. Það hefur ekki verið kaldara í Reykjavík frá árinu 1992. Svo í lokin fór Einar aðeins yfir langtímahorfurnar þar sem veðurfyrirbærið fyrirstöðuhæð kom við sögu. Tónlist í þættinum: Here Comes the Sun / The Beatles (George Harrison) Yo canto, canto por amor / Lissete Hernandez Piqueras (Egill Ólafsson og Lissete Hernandez Piqueras) Poor Boy / Nick Drake (Nick Drake) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Erla Axels við Selvatn, vinkill og Rósa Guðný lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jun 3, 2024 54:20

Selvatn, í Miðdalslandi í Mosfellsbæ, er sennilega ekki þekktasta vatn Höfuðborgarsvæðisins en þar eru þó nokkuð mörg sumarhús og þar er myndlistarkonan Erla Axels með vinnustofu í Listaseli með góðu útsýni bæði yfir vatnið og Miðdalsheiðina. Erla opnaði sýningu í þessu fallega umhverfi um síðustu helgi og aflvaki myndanna er upplifanir og minningar úr náttúrunni við Selvatn. Verkin vann hún síðastliðinn tvö ár og stendur sýningin í stuttan tíma, eða til 9.júní. Við heimsóttum Erlu Axels í Listaselinu við Selvatn. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Vinkill dagsins er borinn við forsetakosningar, sjómannadag og sjóhunda. Minnst er á afleitar veðurhorfur á Íslandi og líka fjallað um fellibylinn Remal sem herjaði á Bangladesh fyrir skömmu en þjóðsögur þaðan eru mjög áhugaverðar og við fengum stuttan úrdrátt úr einni slíkri. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Rósa Guðný Arnardóttir, háskólanemi og crossfit þjálfari. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Rósa talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Recursion eftir Blake Crouch, Dune e. Frank Herbert Utopia for Realists e. Rutger Bregman Eclipse e. Stephanie Meyer Tónlist í þættinum í dag: Fram í heiðanna ró / GÓSS (Daniel E. Kelly, texti Friðrik A. Friðriksson) Allt í gúddí / Ólöf Arnalds (Ólöf Arnalds) Lífsgleði / Pónik (Jean & Vanguard, texti Þorvaldur Halldórsson og Erlendur Svavarsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Segðu mér
Leikararnir Árni Pétur Guðjónsson og Harpa Arnardóttir

Segðu mér

Play Episode Listen Later Jan 10, 2024 38:44

"Það sem kannski einkennir okkar vináttu er að við höfum virkilega gaman að því að leika okkur" segir Harpa Arnardóttir. Hún og vinur hennar Árni Pétur Guðjónsson dansa saman í splunkunýju dansverki sem nefnist Árstíðirnar.

Dr. Football
Doc Sports business - Skóli í Bandaríkjunum er frábært tækifæri

Dr. Football

Play Episode Listen Later Jan 4, 2024 52:12

Úlfur Ágúst og Guðrún Arnardóttir ræddu háskóla í Bandaríkjunum. Námið kostar tugi milljóna og frábær fjárfesting í framtíðina.

Mannlegi þátturinn
Brot af því besta, jóga, þarmaflóran og upphrópunarmerkið

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 2, 2024 54:47

Við vorum í upprifjunargírnum í dag og rifjuðum upp brot af því besta frá nýliðnu ári úr Mannlega þættinum. Við fengum til dæmis góða gesti í desember sem gáfu góð ráð gegn streitu og ráð um hvernig við getum notið lífsins betur og einfaldað hlutina, sérstaklega í aðdraganda jólanna. Við rifjuðum því upp viðtal við Ástu Arnardóttur jógakennara frá því í desember. Við heyrðum líka aftur viðtal við Birnu G. Ásbjörnsdóttur, sem var fyrst í þættinum í nóvember. Birna er rannsakandi við Háskóla Íslands og gestarannsakandi við Harvard Medical School, frum­kvöðull og stofnandi Jörth. Meltingarvegurinn og þarmaflóran hafa verið þungamiðjan í menntun Birnu og rannsóknum hérlendis og erlendis í tæpa tvo áratugi. Hún sagði okkur frá mikilvægi þarmaflórunnar og hvað hefur mest áhrif á hana, t.d. gervisæta af ýmsu tagi og neysla á orkudrykkjum. Við rifjum svo upp áhugavert viðtal við Önna Sigríði Þráinsdóttur, málfarsráðunaut Ríkisútvarpsins, sem kom til okkar í byrjun nóvember og við ræddum við hana um upphrópunarmerkið. Nú, á tímum samfélagsmiðla, þar sem fólk skrifar færslur um allt milli himins og jarðar þá er áhugavert að skoða mismunandi notkun fólks á upphrópunarmerkinu. Sum nota það óspart, jafnvel mörg í einu, eftir nánast hverja einustu setningu, á meðan önnur nota það talsvert minna og jafnvel ekki. Anna fræddi okkur um upphrópunarmerkið, merkingu þess, notkun og sögu í viðtalinu. Á Mallorca / South River Band (Ólafur Þórðarsson og Helgi Þór Ingason) Chavosuite / Kronos Quartet (Ludwig van Beethoven) Tunglið mitt / Hildur Vala (Jón Ólafsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson) Allur lurkum laminn / Bjarni Arason (Hilmar Oddsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Brot af því besta, jóga, þarmaflóran og upphrópunarmerkið

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 2, 2024

Streita um jólin, vinkill um Rauðhettu og Bjarni lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 18, 2023 50:27

Við höfum annað slagið núna í desember verið með góða gesti sem hafa gefið góð ráð og hugleitt hvernig við getum lækkað spennustigið og hjálpað okkur að hugsa um það sem skiptir mestu máli á aðventunni, að njóta og einfalda hlutina eins og við getum. Ásta Arnardóttir jógakennari var hjá okkur í síðustu viku og í dag kom til okkar Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi frá Fyrsta skrefinu og við fórum yfir þessa streituvalda og hvað er hægt að gera til að vinna gegn streitu og kvíða. Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Í þetta sinn fjallaði hann um aðventuævintýri, jólatilhlökkun og spurninguna um hvort sniðugt sé að setja fram óvilhalla góðbókmenntaútgáfu af Rauðhettu og úlfinum, ómengaða af göllum menningarfortíðarinnar? Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Bjarni M. Bjarnason rithöfundur. Hann var að senda frá sér nýja bók, Dúnstúlkan í þokunni. Við fengum hann til að segja okkur aðeins frá henni og svo auðvitað frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Bjarni talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Gilgames kviða (súmerskt ljóð frá því u.þ.b. 2500 fyrir krist) Júditar bók, sem er hluti af biblíunni, á milli gamla testamentsins og þess nýja Drauma-Jói e. Ágúst H. Bjarnason Kristnihald undir jökli e. Halldór Laxness Tónlist í þættinum í dag: Jólin eru hér / Sigurður Guðmundsson (Sigurður Guðmundsson og Bragi Valdimar Skúlason) Whistling away the dark / Julie Andrews (Henri Mancini) Someday At Christmas / Stevie Wonder (Bryan Wells & Ron Miller) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Streita um jólin, vinkill um Rauðhettu og Bjarni lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 18, 2023

Ásta frá Yogavin, örsögur um Óróa og póstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 6, 2023 53:54

Við getum lært að vingast við taugakerfið í amstri dagsins og þurfum kannski sérstaklega á því að halda nú í aðdraganda jólanna. Mjúkar yogahreyfingar, öndun, hugleiðsla og tónheilun geta hjálpað og við forvitnuðumst um hvernig við getum komið betra jafnvægi á taugakerfið með verkfærum sem hjálpa okkur að hafa betri stjórn á viðbrögðum og gjörðum. Ásta Arnardóttir frá Yogavin kom í heimsókn og benti á góð ráð. Meistaranemar í ritlist við Háskóla Íslands hafa undanfarin ár verið í samstarfi við Rás 1 í desember vegna útgáfu Jólabókar Blekfjelagsins út en Blekfjelagið er nemendafélag Ritlistar. Þetta er í tólfta sinn sem þetta er gert, fyrst voru sögurnar 100 orð en svo fækkar orðunum með hverju árinu og nú eiga sögurnar því að vera nákvæmlega 89 orð hver og þemað í ár er Órói. Við heyrðum höfundana sjálfa lesa annan hluta þessara örsagna í þættinum í dag. Höfundarnir í dag voru: Hrönn Blöndal Birgisdóttir, Jóna Valborg Árnadóttir, Ásta H. Ólafsdóttir, Fanney Björk Ingólfsdóttir, Berglind Erna Tryggvadóttir, Andri Freyr Sigurpálsson, Vala Hauksdóttir, Regn Sólmundur Evu, Unnar Ingi Sæmundarson og Aron Martin. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag, hann hefur verið á tveggja vikna ferðalagi um þrjár stórborgir Þýskalands. Hann segir frá Dresden sem er tvískipt á bökkum Saxelfurs, gamli bærinn sunnan megin og sá nýji norðan megin. Berlín er líka sérkennileg með sín þrjú sentrum og með tvennt af öllu eftir að borginni var skipt í austur og vestur eftir heimsstyrjöldina. Magnús er núna staddur í Hamborg, Sankti Pauli hverfinu þar sem Bítlarnir urðu að þeirri hljómsveit sem átti eftir að sigra heiminn. Hann rak slóðina þeirra og segir frá henni í póstkorti dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Hún hring minn ber / Vilhjálmur Vilhjálmsson og Hljómsveit Magnúsar Ingimarsson (Erlent lag, texti Baldur Pálmason) Anda Inn / Heimilstónar (Katla Margrét Þorgeirsdóttir) One Of These Things First / Nick Drake (Nick Drake) Ein Bischen Frieden / Nicole (Ralph Siegel & Bernd Meinunger) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Ásta frá Yogavin, örsögur um Óróa og póstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 6, 2023

Margrét Ákadóttir og Svala Arnardóttir

Segðu mér

Play Episode Listen Later Nov 23, 2023 40:00

Margrét og Svala mættu með bókina Sólgeislar og skuggabrekkur. Í bókinni sem Svala skrifar segir Margrét frá viðburðaríku lífshlaupi sínu.

Segðu mér
Margrét Ákadóttir og Svala Arnardóttir

Segðu mér

Play Episode Listen Later Nov 23, 2023

Margrét og Svala mættu með bókina Sólgeislar og skuggabrekkur. Í bókinni sem Svala skrifar segir Margrét frá viðburðaríku lífshlaupi sínu.

Morgunvaktin
Öll eiga að komast í Kerlingarfjöll

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 3, 2023

Kerlingarfjöll voru friðlýst fyrir nokkrum árum síðan og um liðna helgi var opnuð endurbætt aðstaða þar fyrir ferðamenn, og búið er að merkja upp nýjar ferðaleiðir um fjöllin. Auk þess sem búið er að gefa út bók um sögu svæðisins. Magnús Orri Marínarson Schram, sem er í forsvari fyrir uppbygginguna í Kerlingarfjöllum, og Íris Marelsdóttir, leiðsögumaður og höfundur bókarinnar, voru gestir Morgunvaktarinnar ræddu um Kerlingarfjöll og aðgengi fólks að hálendinu vítt og breitt. Björn Malmquist fréttamaður í Brussel ræddi við Morgunvaktina úr höfuðstöðvum Atlantshafsbandalagsins. Hann sagði frá nýjustu vendingum í Frakklandi, þar sem verið hefur alda mótmæla eftir að 17 ára piltur var skotinn til bana af lögreglumanni í úthverfi Parísar. Björn fjallaði líka um nýafstaðinn leiðtogafund Evrópusambandsins þar sem tekist var á um innflytjendamál. Bogi Ágústsson ræddi við Þór Jónsson lögfræðing um meistaraprófsritgerð hans í lögfræði á sviði stjórnskipunarréttar. Þar gerir Þór samanburð á danskri og íslenskri stjórnarskrá. Bogi og Þór röktu stjórnarskrárþróun í löndunum frá 1849, þegar Danir fengu stjórnarskrá sem afnam einveldi konung. Tónlist: Ne me quitte pas - Jóhanna Vigdís Arnardóttir Ziggy Stardust - David Bowie Starman - David Bowie Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Víðsjá
Á hafi kyrrðarinnar, Cormac McCarthy, Barbara Hannigan

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 14, 2023

Bandaríski rithöfundurinn Cormac Mccarthy er allur. Tilkynnt var um andlát hans í gær. McCarthy var 89 ára og á hann að baki afskaplega farsælan feril sem skáldsagnahöfundur, einn þekktasti samtímahöfundur Bandaríkjanna. Meðal þekktustu verka hans eru Blood Meridian, The Road og hinn svokallaði landamæraþríleikur - All the pretty horses, The Crossing og Cities of the plain. Hann var alamerískur bókmenntarisi, líkt við Faulkner og Hemingway og það þarf að takast á um þá, eins og Einar Kári Jóhannsson bókmenntafræðingur og útgefandi segir okkur frá í þætti dagsins. Myndlistarkonan Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson, sem sýnir um þessar mundir í Hafnarborg. hefur búið meirihluta ævi sinnar í Cleveland í Ohio. Hún kemur reglulega hingað til lands og tekur þá ljósmyndir sem hún vinnur síðan úr þegar heim er komið. Helsta viðfangsefni hennar er náttúra Íslands og sú sérstaka birta sem hér er að finna. Hún tengir viðfangsefni sitt þó ekki endilega við ræturnar eða þjóðernið, heldur vill hún miðla þeirra tilfinningu að vera manneskja í víðáttumikilli veröld. Við ræðum við Hildi og Aldísi Arnardóttur sýningarstjóra í þætti dagsins. Við heyrum líka örsnöggt í kanadísku hljómsveitarstjóranum og söngkonunni Barböru Hannigan sem kemur fram á loka tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands annað kvöld.

Víðsjá
Á hafi kyrrðarinnar, Cormac McCarthy, Barbara Hannigan

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 14, 2023 54:13

Unnur Elva Arnardóttir nýr formaður félags kvenna í atvinnulífinu

Segðu mér

Play Episode Listen Later May 24, 2023

Unnur ELva segir frá lífi sínu en hún var t.d. fyrsta konan sem ráðin var í lögguna á AKureyri. n Í dag vinnur hún hjá Skeljungi og sér um skemmtiferðaskipin sem legg hér að landi. Hún var að taka við sem nýr formðaur FKA og segir frá því starfi öllu.

Play Episode Listen Later May 24, 2023 40:00

Unnur ELva segir frá lífi sínu en hún var t.d. fyrsta konan sem ráðin var í lögguna á AKureyri. n Í dag vinnur hún hjá Skeljungi og sér um skemmtiferðaskipin sem legg hér að landi. Hún var að taka við sem nýr formðaur FKA og segir frá því starfi öllu.

Morgunvaktin
Stýrivextir, skipulagsmál og tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later May 24, 2023

Fimmtán hundruð félagsmenn í BSRB eru í verkfalli og þeim fjölgar um helgina ef ekki semst. Um það tölum við við formann BSRB, Sonju Ýr Þorbergsdóttur, og líka verðbólguna og vextina, eftir að tilkynnt var að stýrivextir yrðu hækkaðir um 1,25%. Víða er byggt; ýmist á lóðum og reitum í grónum hverfum eða á nýju byggingalandi. Við vitum oft ekki fyrr en allt er í einu er kominn grafa, svo krani svo hús. Skipulagsstofnun hefur gert gangskör í allri miðlun upplýsinga um breytingu á skipulagi og framkvæmdir. Við forvitnuðumst um hvernig við getum forvitnast um ? og fylgst með - breytingum í borgum, bæjum og sveitum. Skipulagsgáttin hefur verið opnuð og þar er hægt að sjá og fylgjast með öllu skipulagi og ýmsu fleiru. Ólafur Árnason forstjóri Skipulagsstofnunar kom til okkar. Og svo er það tónlistin, upplýst var í gær hvaða listamenn eru tilnefndir til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs. Af Íslands hálfu eru það Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari og hljómsveitin Sigur Rós. Tónlist: Modugno, Domenico - Nel blu dipinto di blu = Volare. Blátt oní blátt - Óðinn Valdimarsson Elfa Rún Kristinsdóttir - Fantasia in F minor. Sigur Rós - Hoppípolla [Hopp í polla]. Jóhanna Vigdís Arnardóttir - Ég ætla að mála allan heiminn elsku mamma.

Morgunvaktin
Stýrivextir, skipulagsmál og tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later May 24, 2023 130:00

Fimmtán hundruð félagsmenn í BSRB eru í verkfalli og þeim fjölgar um helgina ef ekki semst. Um það tölum við við formann BSRB, Sonju Ýr Þorbergsdóttur, og líka verðbólguna og vextina, eftir að tilkynnt var að stýrivextir yrðu hækkaðir um 1,25%. Víða er byggt; ýmist á lóðum og reitum í grónum hverfum eða á nýju byggingalandi. Við vitum oft ekki fyrr en allt er í einu er kominn grafa, svo krani svo hús. Skipulagsstofnun hefur gert gangskör í allri miðlun upplýsinga um breytingu á skipulagi og framkvæmdir. Við forvitnuðumst um hvernig við getum forvitnast um ? og fylgst með - breytingum í borgum, bæjum og sveitum. Skipulagsgáttin hefur verið opnuð og þar er hægt að sjá og fylgjast með öllu skipulagi og ýmsu fleiru. Ólafur Árnason forstjóri Skipulagsstofnunar kom til okkar. Og svo er það tónlistin, upplýst var í gær hvaða listamenn eru tilnefndir til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs. Af Íslands hálfu eru það Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari og hljómsveitin Sigur Rós. Tónlist: Modugno, Domenico - Nel blu dipinto di blu = Volare. Blátt oní blátt - Óðinn Valdimarsson Elfa Rún Kristinsdóttir - Fantasia in F minor. Sigur Rós - Hoppípolla [Hopp í polla]. Jóhanna Vigdís Arnardóttir - Ég ætla að mála allan heiminn elsku mamma.

Mannlegi þátturinn
Ágúst kennir bakstur, Kraftur og listir og alzheimer

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 2, 2023

Ágúst Einþórsson ólst upp á Austurlandi og lærði bakaraiðn í Reykjavík. Síðar fluttist hann til Danmerkur þar sem hann lauk námi í bakstri og sætabrauðsgerð. Hann sneri aftur til Íslands árið 2016 og opnaði ásamt öðrum bakaríið Brauð & Co. í Reykjavík, sem varð fljótt landsþekkt fyrir súrdeigsbrauð og kanilsnúða. Núna kennir Ágúst öðrum að baka á sérstökum námskeiðum hjá frami.is þar sem hann kennir fólki að skilja allt um það hvernig á að baka brauð, kökur og jafnvel tiramisu. Kraftur stendur fyrir árvekni- og fjáröflunarátak um þessar mundir þar sem verið er að vekja athygli á málefnum ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda. Arna Ösp Herdísardóttir kom í þáttinn í dag, en hún var 12 ára þegar móðir hennar greindist með krabbamein og síðar greindist hún sjálf með krabbamein. Með Örnu kom Inga Bryndís Árnadóttir, fræðslu- og hagsmunafulltrúi hjá Krafti. Halldóra Arnardóttir listfræðingur kom til okkar í dag og sagði okkur frá námskeiðinu Listir og menning, hugarefling við alzheimerssjúkdómnum sem hún stýrir hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Á námskeiðinu skoðar hún aðferðir og dæmi þar sem listir og menning hafa eflt hugann og aukið lífsgæði fólks með alzheimers, auk þess að stuðla að auknum skilningi í samfélaginu. Halldóra sagði okkur betur frá þessu í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Staldraðu við / Stuðmenn (Egill Ólafsson og Valgeir Guðjónsson) Somethin? stupid / Frank og Nancy Sinatra (Carson C. Parks) Time After Time / Eva Cassidy (Cindy Lauper) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Ágúst kennir bakstur, Kraftur og listir og alzheimer

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 2, 2023 50:00

Svipmynd af Hörpu Arnardóttur, leikkonu og leikstjóra

Víðsjá

Play Episode Listen Later Dec 7, 2022

Harpa Arnardóttir er leikkona og leikstjóri að mennt en hefur fengist við fjölbreytt verkefni alla tíð, bæði á sviði lista og ýmissa annara tengdra sviða. Harpa hefur starfað sem leikkona og leikstjóri í Borgarleikhúsinu, Þjóðleikhúsinu og hjá sjálfstæðu leikhópunum og hefur kennt leiklist og spuna hjá Kramhúsinu, Listaháskóla Íslands og víðar. Hún lauk mastersnámi í ritlist í Háskóla Íslands 2014 og frumflutti sitt fyrsta leikrit "Bláklukkur fyrir háttinn" á Listahátíð Reykjavíkur, en verkið var flutt í jurttjaldi á fjórum stöðum á hálendi Íslands sumarið 2019. Harpa hefur líka lært myndlist, jógafræði, og margt fleira en hún en hún er, að eigin sögn, umfram allt, náttúruverndari. Þessi fjölkunnuga listakona er gestur svipmyndar í þætti dagsins. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Svipmynd af Hörpu Arnardóttur, leikkonu og leikstjóra

Víðsjá

Play Episode Listen Later Dec 7, 2022 55:00

Harpa Arnardóttir er leikkona og leikstjóri að mennt en hefur fengist við fjölbreytt verkefni alla tíð, bæði á sviði lista og ýmissa annara tengdra sviða. Harpa hefur starfað sem leikkona og leikstjóri í Borgarleikhúsinu, Þjóðleikhúsinu og hjá sjálfstæðu leikhópunum og hefur kennt leiklist og spuna hjá Kramhúsinu, Listaháskóla Íslands og víðar. Hún lauk mastersnámi í ritlist í Háskóla Íslands 2014 og frumflutti sitt fyrsta leikrit "Bláklukkur fyrir háttinn" á Listahátíð Reykjavíkur, en verkið var flutt í jurttjaldi á fjórum stöðum á hálendi Íslands sumarið 2019. Harpa hefur líka lært myndlist, jógafræði, og margt fleira en hún en hún er, að eigin sögn, umfram allt, náttúruverndari. Þessi fjölkunnuga listakona er gestur svipmyndar í þætti dagsins. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Sunnudagssögur
Edda Björk Arnardóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Oct 23, 2022 75:00

Gestur Huldu G. Geirsdóttur var Edda Björk Arnardóttir, móðirin sem komst í fjölmiðla fyrr á árinu þegar hún leigði einkaflugvél og sótti þrjá unga syni sína til Noregs, en hún hefur staðið í forræðismáli undanfarin ár og einungis fengið að hitta syni sína í 16 klukkustundir á ári, undir eftirliti. Edda rakti sögu sína og sagðist aldrei gefast upp þegar að málefnum barna hennar kemur.

Sunnudagssögur
Edda Björk Arnardóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Oct 23, 2022

Gestur Huldu G. Geirsdóttur var Edda Björk Arnardóttir, móðirin sem komst í fjölmiðla fyrr á árinu þegar hún leigði einkaflugvél og sótti þrjá unga syni sína til Noregs, en hún hefur staðið í forræðismáli undanfarin ár og einungis fengið að hitta syni sína í 16 klukkustundir á ári, undir eftirliti. Edda rakti sögu sína og sagðist aldrei gefast upp þegar að málefnum barna hennar kemur.

Samfélagið
Iceland vs Ísland, aðþjóðleg fuglaverndarráðstefna og pistill

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 27, 2022 55:00

Íslenska ríkið hefur árum saman átt í deilum og málaferlum vegna notkunar breskrar verslanakeðju á heitinu Iceland. Ísland hafði betur eftir að hafa stefnt versluninni en Iceland foods áfrýjaði og munnlegur málflutningur fór fram fyrr í þessum mánuði. Þetta er um margt mjög undarlegt mál og sérstakt. Ásdís Magnúsdóttir lögmaður flutti málið fyrir hönd landsins Íslands. Við ræðum við hana. Hólmfríði Arnardóttur framkvæmdastjóri Fuglaverndar kemur í spjall, hún er nýkomin af aðalfundi Alþjóðlegu fuglaverndunarsamtakanna, sem fögnuðu þar 100 ára afmæli. Við ætlum að forvitnast um hvað er helst að frétta af heilsu og líðan fugla út um allan heim, hvernig verndunarverkefni hafa gengið og hvaða tegundir eiga undir högg að sækja og afhverju. Íslendingar bera ábrygð á mörgum tegundum - erum við að standa okkur? Páll Líndal umhverfissálfræðingur með pistil

Hjjj
28. Hekla Arnardóttir, meðstofnandi Crowberry Capital

Hjjj

Play Episode Listen Later Jul 12, 2022 62:02

Viðmælandi þáttarins er Hekla Arnardóttir. Hún er meðstofnandi Crowberry Capital, sem er vísissjóður sem fjárfestir í norrænum tækni sprotafyrirtækjum á fyrstu stigum fjármögnunar. Hekla er fædd árið 1974 og alinn upp í Fossvoginum í Reykjavík. Hún gekk í Verzlunarskólann og síðan lá leið hennar í véla- og iðnaðarverkfræði í Háskóla Íslands þar sem hún lauk verkfræðiprófi. Hekla vann sem prófunarstjóri hjá Össuri, stoðtækjaframleiðanda og síðar sem vörustjóri hjá Össuri í Kína. Árið 2010 hóf Hekla störf sem fjárfestingastjóri hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, sem er vísissjóður í eigu íslenska ríkisins og starfaði þar í um 7 ár. Árið 2017, stofnaði Hekla vísissjóðinn Crowberry Capital ásamt meðstofnendum sínum, Helgu Valfells og Jenný Ruth Hrafnsdóttur. Síðan þá hefur Crowberry Capital, safnað í tvo fjárfestingasjóði, Crowberry I sem er fjórir milljarðar að stærð og Crowberry II sem er ellefu milljarða að stærð. Crowberry I hefur fjárfest í 16 fyrirtækjum og nýi sjóðurinn, Crowberry II hyggst fjárfesta í allt að 30 fyrirtækjum á næstu árum. Þessi þáttur er í boði Icelandair.

Fotbolti.net
Miðverðirnir fá sviðsljósið - Glódís og Guðrún í spjalli fyrir EM

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jul 4, 2022

Miðverðir fá ekki alltaf þá athygli sem þeir eiga skilið, en að þessu sinni fá þeir sviðsljósið hjá okkur. Glódís Perla Viggósdóttir og Guðrún Arnardóttir, tveir af miðvörðum íslenska landsliðsins, settust niður með fréttamanni Fótbolta.net á hóteli landsliðsins í Þýskaland og fóru um víðan völl á tæpum hálftíma. Glódís og Guðrún hafa leikið afskaplega vel saman í hjarta varnarinnar hjá landsliðinu og framundan er Evrópumót. Þetta spjall er góð upphitun fyrir EM núna þegar innan við vika er í fyrsta leik Íslands.

Víðsjá
Booker verðlaun, um skrif, Hafnarborg og Stelpur og strákar

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 1, 2022

Á fimmtudag var greint frá því að indverski höfundurinn Geetanjali Shree hlýtur alþjóðlegu Booker verðlaunin í bókmenntum í ár. Það er viðurkenning fyrir skáldskap þýddan á ensku. Hún fær verðlaunin fyrir skáldsöguna Tomb of Sand sem kom fyrst út á hindi árið 2018 og í enskri þýðingu 2021. Þetta í fyrsta sinn sem þýðing úr hindi fær verðlaunin. Þýðandi verksins á ensku, Daisy Rockwell, deilir verðlaunafénu með Shree sem hljóðar upp á 50 þúsund pund. Við fjöllum um Geetanjali Shree og ræðum við Öldu Sigurðardóttur sem rekur Gullkistuna miðstöð sköpunar á Laugarvatni en Geetanjali dvaldi þar í júlí 2014. Tvær sýningar standa yfir í Hafnarborg um þessar mundir. Þar mætast þeir Sigurður Ámundason, með sýninguna What?s Up, Ave Maria? og Gunnar Örn Gunnarsson með sýninguna Í undirdjúpum eigin vitundar, en sýningarstjóri hennar er Aldís Arnardóttir, listfræðingur. Víðsjá kíkti í heimsókn suður í Hafnarborg og tók þau Aldísi og Sigurð tali. Björn Halldórsson flytur sjötta og síðasta pistli sinn í Víðsjá. Í dag horfist Björn í augu við takmarkanir sínar sem álitsgjafi og pistlahöfundur og endurnýjar kynnin við ritgerðina Hvers vegna ég skrifa eftir George Orwell, í von um að komast til botns í því hvað það var sem dreif hann sjálfan út á ritvöllinn. Við fáum einnig leikhúsgagnrýni um einleikinn Stelpur og strákar eftir breska leikskáldið Dennis Kelly sem var fyrst settur upp árið 2018 í Royal Court Theatre í London. Það er sviðslistahópurinn Fullorðið fólk sem setur verkið í íslenskri þýðingu Matthíasar Tryggva Haraldssonar. Verkið var frumsýnt í Gaflaraleikhúsinu fyrir skemmstu en er nú á flakki um landið. Nína Hjálmarsdóttir rýnir betur í uppsetninguna. Umsjón: Jóhannes Ólafsson

Play Episode Listen Later Jun 1, 2022 55:00

The Eurovision Showcase on Forest FM
12th May 2022 - ”REACTION TO SEMI-FINAL TWO - W/ Ciaran, Rob and Drífa Þöll Arnardóttir

The Eurovision Showcase on Forest FM

Play Episode Listen Later May 12, 2022 63:50

Ciaran Urry-Tuttiett, Rob Urry-Tuttiett and Drífa Þöll Arnardóttir bring you a reaction to the second semi-final of the 2022 Eurovision Song Contest. From Akureyri, North Iceland.  Check out our website - www.escshowcase.com  If you miss the show you will be able to re-listen to it or listen to any of our previous shows by the following ways... * Podbean >>> https://escshowcase.podbean.com/ * Mixcloud >>> https://www.mixcloud.com/ESCShowcase/ * Spotify >>> https://open.spotify.com/show/6RP8X6cDZX5yl5O4y52QvB Disclaimer The Eurovision Showcase, Ciaran Urry-Tuttiett and Forest FM DO NOT own any of music by the singers taking part in this show. All jingles are provided by Ciaran Urry-Tuttiett

The Eurovision Showcase on Forest FM
10th May 2022 - ”REACTION TO SEMI-FINAL ONE - W/ Ciaran, Rob and Drífa Þöll Arnardóttir

The Eurovision Showcase on Forest FM

Play Episode Listen Later May 10, 2022 47:40

Ciaran Urry-Tuttiett, Rob Urry-Tuttiett and Drífa Þöll Arnardóttir bring you a reaction to the first semi-final of the 2022 Eurovision Song Contest. From Egilsstaðir, East Iceland.  Check out our website - www.escshowcase.com  If you miss the show you will be able to re-listen to it or listen to any of our previous shows by the following ways... * Podbean >>> https://escshowcase.podbean.com/ * Mixcloud >>> https://www.mixcloud.com/ESCShowcase/ * Spotify >>> https://open.spotify.com/show/6RP8X6cDZX5yl5O4y52QvB Disclaimer The Eurovision Showcase, Ciaran Urry-Tuttiett and Forest FM DO NOT own any of music by the singers taking part in this show. All jingles are provided by Ciaran Urry-Tuttiett

Eigin Konur
Edda Arnardóttir

Eigin Konur

Play Episode Listen Later Apr 4, 2022 62:25

Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur Edda Arnardóttir fór og sótti strákana sína með einkaflugvél til Noregs. Eftir ráðfæringar við fagfólk var það eina í stöðunni að sækja börnin. Hún lýsir erfiðum aðstæðum áður en hún ákvað að sækja börnin sín, þar sem börnin hafi ekki mátt fara til tannlæknis og að fimm ára sonur hennar hafi komið til Íslands með sýkingar í munni og miklar tannskemmdir. Hún segir samband sitt við barnsföður sinn hafa verið erfitt og beitti hann hana miklu andlegu ofbeldi. Edda ræðir aðdragandann og ákvörðunina í kringum flugvélina og hvernig henni leið á meðan ferðinni stóð. Edda leggur einnig fram kæru fyrir hönd dóttur sinnar þegar hún opinberar kynferðisofbeldi sem hún segir pabba sinn hafa beitt hana og talar Edda um að það hafi verið punkturinn yfir i-ið. Þátturinn er í boði: The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is Macland - https://macland.is/

Morgunútvarpið
24. feb. - Ágangur, knattspyrna, sóttvarnir, Úkraína, hinsegin o.fl.

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 24, 2022

Umhverfisstofnun metur árlega ástand áfangastaða á friðlýstum svæðum með tilliti til ágangs ferðamanna. Ný skýrsla kom út í síðustu viku og við heyrðum í Kristínu Ósk Jónasdóttur, sérfræðingi í teymi náttúruverndar og heyrðum helstu niðurstöður. Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna verða endurvakin á morgun. Margt hefur áunnist í jafnréttisbaráttunni á knattspyrnuvellinum, en betur má ef duga skal og vonast aðstandendur til þess að samtökin verði sameiningarafl í þeirri baráttu. Anna Þorsteinsdóttir og Ingunn Haraldsdóttir sögðu okkur frá. Öllum sóttvarnaaðgerðum innanlands og á landamærunum verður aflétt aðfaranótt föstudags. Margir fagna þessu eflaust en starfandi forstjóri Landspítalans segir að ráðlegra hefði verið að fara hægar í sakirnar í afléttingu sóttvarnatakmarkana. Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans, ræddi stöðuna. Vladimír Pútín Rússlandsforseti fyrirskipaði hernaðaríhlutun í Úkraínu í morgun að staðartíma og örfáum mínútum síðar voru sprengjuárásirnar gerðar á Úkraínu. Sprengingar hafa kveðið við nærri höfuðborginni Kíev og hraðbrautir eru tepptar af farartækjum fólks sem flýr borgina. Við heyrðum í Óskari Hallgrímssyni, ljósmyndara sem er búsettur í Kænugarði, um stöðuna. Á Íslandi hafa gilt ein hjúskaparlög frá árinu 2010 en innan Þjóðkirkjunnar var blessun hjónabands samkynhneigðra lengi vel bitbein og hinsegin fólk ekki alltaf upplifað að það sé velkomið í kirkjunni. Bjarndís Helga Tómasdóttir, stjórnarkona í Samtökunum 78 hefur í um tvö ár safnað persónulegum sögum hinsegin fólks af framkomu Þjóðkirkjunnar í þeirra garð. Hún sagði okkur frá. Við ræddum heim tölvuleikjanna við Davíð Kjartan Gestsson, menningarblaðamann og vefritstjóra og þar komu leikirnir Cyberpunk 2077 og Elden Ring við sögu. Leikverkið Ég hleyp, verður frumsýnt í kvöld, en þar er leitast við að svara því hvernig við getum lifað áfram eftir barnsmissi. Við spjölluðum við Gísla Örn Garðarsson sem tekst á við þetta krefjandi hlutverk í leikstjórn Hörpu Arnardóttur, en það er óhætt að segja að mikið hafi verið að gera hjá honum undanfarið. Tónlist: Grafík - Bláir fuglar. Chris Rea - Road to hell. Kalli Tomm - Kyrrþeyrinn andar. Red Hot Chili Peppers - Black summer. The Beatles - Blackbird. Hope Sandoval og Kurt Vile - Let me get there. Elín Ey - Ekkert mál. Snorri Helgason - Ingileif.

Play Episode Listen Later Feb 24, 2022 130:00

Karlmennskan
#75 „Ég hafði svo margar spurningar“ - Steinunn, Linda og Hafdís - Stígamót, Vettvangur glæps

Karlmennskan

Play Episode Listen Later Feb 21, 2022

Þolendur kynbundins ofbeldis eru meira en vettvangur glæps er yfirskrift átaks á vegum Stígamóta sem felst í að skora á dómsmálaráðherra að gera brotaþola að aðilum eigin máls, en ekki bara að vitnum. Átakið og ákall Stígamóta byggir á reynslu fimm kvenna af réttarkefinu - hvernig þær voru vitni að eigin ofbeldi og líkami þeirra þar með vettvangur glæps. Í þessum þætti ræði ég við Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttir talskonu Stígamóta og Hafdísi Arnardóttur og Lindu Björg Guðmundsdóttur sem eru tvær af þeim fimm konum sem hafa lánað reynslu sína og andlit fyrir ákallið til dómsmálaráðherra. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Bodyshop, Dominos og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á hlaðvarpið Karlmennskan.

6. jan - Veður, efnahagslíf, Efling, Trump og tölvuleikir

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 6, 2022 130:00

Umsjón: Ingvar Þór Björnsson & Snærós Sindradóttir Við byrjuðum þáttinn á að heyra í Teit Arasyni veðurfræðingi á Veðurstofu Íslands en hann var á vaktinni þar í alla nótt og veit hvar veðrið skall verst á og hvernig þetta allt saman fór framan. Við ræddum við Sigurjón Hendriksson, varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, um útköll á höfuðborgarsvæðinu vegna veðurs. Kórónuveirufaraldurinn hefur litað efnahagslífið hér á landi og annars staðar í um tvö ár núna. Við ræddum við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka, um efnahagsárið framundan. Björgunarsveitir hafa staðið í ströngu víða í nótt vegna veðurofsans. Við ræddum við Örnu Margréti Arnardóttur, sem er í björgunarsveitinni Blakk á Patreksfirði. Nú líður að því að félagsmenn Eflingar velji sér nýjan formann en það blés heldur betur um félagið þegar Sólveig Anna Jónsdóttir sagði af sér formennsku fyrr í vetur. Í gær kom til okkar Ólöf Helga Adolfsdóttir, sem býður sig fram til formanns Eflingar en í dag fengum við til okkar Guðmund Jónatan Baldursson, sem einnig býður sig fram til formanns. Ár er síðan hundruð stuðningsmanna Donalds Trumps, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, réðust að þinghúsinu í Washington-borg, inn í þingsali og skrifstofur þingmanna. Við ræddum við Silju Báru Ómarsdóttur, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, um afleiðingar árásarinnar og hverju hún breytti. Í lok þáttar kom Davíð Kjartan Gestsson, blaðamaður og vefritstjóri, til okkar og ræddi heim tölvuleikjanna. Tónlist: Teitur Magnússon - Monika Lana Del Rey - Tulsa Jesus Freak Sting - Rushing water Þórunn Antonía - Too late Aron Can - Blindar götur Gusgus - Ladyshave Árstíðir - Hvenær kemur sól? Billy Joel - Piano Man The Weeknd - Moth to a flame Kristín Sesselja - WAISTD

Morgunútvarpið
6. jan - Veður, efnahagslíf, Efling, Trump og tölvuleikir

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 6, 2022

31. des. - Borðhald, útivist, skaupið, Bjarni Thor, svifryk, flugeldar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 31, 2021 130:00

Þótt jólahaldið sé oftar en ekki með hefðbundnum hætti hjá fólki virðist fólk vera opnara fyrir því að hrista aðeins upp í hlutunum þegar að kemur að áramótunum. Hafdís Helga ræddi við Hönnu Ingibjörgu Arnarsdóttur, ritstjóra Gestgjafans alla leið frá flugvellinum í Oman. Útivist nýtur mikilla vinsælda og sennilega aldrei meiri en eftir að heimsfaraldur lagðist yfir og um áramót setja margir sér markmið um aukna hreyfingu og útivist svo væntanlega er fólk farið að spá í hvað er í boði á nýju ári. Í gærkvöldi kynnti Ferðafélag Íslands nýtt forvitnilegt verkefni undir nafninu Rannsóknarfjélag FÍ. Við heyrðum í Rósu Sigrúnu Jónsdóttur leiðsögumanni og öðrum umsjónarmanni verkefnisins og fengum að vita meira. Reynir Lyngdal leikstjóri Áramótaskaupsins hlýtur að vera með fiðrildi í maga þessa stundina. Við slógum á þráðinn til hans og heyrðum hvernig honum líður. Bjarni Thor Kristinsson óperusöngvari sló í gegn í fyrra með dagbókarfærslum sínum um lífið í Covid, en skrifin hóf hann í sóttkví. Fyrst var um að ræða FB færslur sem síðan urðu að hljóðdagbók á Storytel. Við heyrðum í honum í fyrra, bæði á Ítalíu þar sem hann rétt slapp út fyrir allsherjarlokun og svo í sóttkví hér heima og nú heyrðum við aftur í honum og forvitnuðumst um líf óperusöngvarans í dag, en Bjarni er nýkominn heim frá Þýskalandi þar sem hann var við störf. Einn af fylgifiskum áramótagleðinnar er svifrykið sem fylgir flugeldaskothríðinni. Við fengum Svövu Steinarsdóttur hjá Heilbrigðiseftirlitinu til að fara yfir stöðuna með okkur og hvað ber að hafa í huga. Við hringdum svo vestur á Patreksfjörð og heyrðum í Örnu Margréti Arnardóttur hjá björgunarsveitinni Blakki. Þar er flugeldasalan í fullum gangi og við heyrðum af stemmingunni fyrir vestan. Tónlist: Sigurður Guðmundsson og Memfismafían - Nýársmorgunn. Magnús Þór Sigmundsson - Jörðin sem ég ann. The Beatles - The long and winding road. Sigtryggur Baldursson og Hljómskálagestir - Áramótaheitið. Celeste - Love is back. Friðrik Dór - Hvílíkur dagur. Herbert Guðmundsson - Með stjörnunum. Björgvin Halldórsson - Álfareiðin. Bobby Blue Bland - Aint no love in the heart of the city. Páll Óskar - Gordjöss. U2 - Even better than the real thing.

Morgunútvarpið
20. okt. - Míuverðlaun, efni, aldurstakmörk, nektarmyndir og Naglinn

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 20, 2021 130:00

Míuverðlaunin eru verðlaun sem heiðra þau sem koma að þjónustu langveikra barna á einn eða annan hátt. Hægt er að tilnefna heilbrigðisstarfsmann í hvaða starfstétt sem er, hvar á landinu sem er. Þær Þórunn Eva G. Pálsdóttir og Fríða Björk Arnardóttir komu til okkar í morgunkaffi til að segja okkur meira, en þær vita allt um málið. Talið er að um 10 milljónir efna bætist við á hverju ári í hóp efna sem skaðleg eru fólki og rannsóknir taka sinn tíma, svo niðurstöður liggja ekki alltaf strax fyrir. Það leiðir til þess að stjórnvöld ná ekki að setja reglur til að takmarka eða banna framleiðslu og notkun þeirra nógu tímalega. Í hádeginu í dag er opinn fyrirlestur um skaðleg efni á heimilinu á vegum Umhverfisstofnunar og við fengum Bergdísi Björk Bæringsdóttur, sérfræðing á sviði efna, eftirlits og veiðistjórnunar til að segja okkur aðeins af þessu. Við veltum fyrir okkur aldurstakmörkunum á kvikmyndum, en athygli vekur að íslenska kvikmyndin Leynilögga sem frumsýnd er í þessari viku, er í boði annars vegar fyrir 12 ára og eldri og hins vegar 16 ára og eldri. Í hverju liggur munurinn og hverjar eru reglurnar? Er regluverkið hér það sama og erlendis eða annað? Hallgrímur Kristinsson formaður Félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði kom til okkar og fræddi okkur um þetta. Í sjónvarpþættinum Kveik í gærkvöldi á RÚV kom fram að nærri 60 prósent stelpna í 10. bekk hafa verið beðnar um að senda af sér nektarmynd eða ögrandi mynd og rúm 30 prósent hafa þegar gert það. Í þættinum var talað við tvær grunnskólastúlkur sem seldu af sér kynferðislegar myndir og notaðar nærbuxur í fyrrasumar, þá 13 ára. Mörgum er brugðið eftir umfjöllunina og foreldar vilja vita hvernig bregðast á við og fræða börn sín, af öllum kynjum. Foreldrar hafa verndarskyldu gagnvart börnum, en vankunnátta og skortur á þekkingu kemur oft í veg fyrir að hún skili sér. Til að ræða þessi mál kom til okkar Margrét K. Magnúsdóttir forstöðumaður Barnahúss. Ragnhildur Þórðardóttir, sálfræðingur og einkaþjálfari, einnig þekkt sem Ragga Nagli, er einn þekktasti heilsu ráðgjafi landsins. Hún er þó ekki búsett á Íslandi, heldur í Danmörku, en er stödd á landinu um þessar mundir og við gripum því tækifærið og fengum hana í heimsókn í smá heilsuspjall að hausti. Tónlist: Geiri Sæm og Hunangstunglið - Er ást í tunglinu? GDRN - Næsta líf. Lorde - Mood ring. Adele - Easy on me. Gugusar - Röddin í klettunum. U2 - Pride in the name of love. Dua Lipa - Love again. Herbert Guðmundsson - Með stjörnunum. Lenny Kravitz - Let love rule. Lón - Earthquake.

The Snorri Björns Podcast Show
#71 - Sirrý Arnardóttir

The Snorri Björns Podcast Show

Play Episode Listen Later Oct 28, 2020 116:10

Fjölmiðlakona til 30 ára, stjórnendaþjálfari, háskólakennari og rithöfundur. Sirrý hefur komið víða við og kennir fólki örugga tjáningu, samskipti og fjölmiðlafærni frá eigin reynslu og framhaldsnámi sem hún sótti hjá bandarískri samsteypu. Hún sagði upp föstu starfi í fjölmiðlum, bjó sér til tækifæri og starfar sjálfstætt í dag.