Heiðar Sumarliðason og Snæbjörn Brynjarsson eru léttir á bárunni og taka á málefnum líðandi stundar, sem og fortíðar. Ekkert er þeim óviðkomandi og „hot take“ eru þeirra ær og kýr. Þátturinn er á dagskrá X977 alla laugardagsmorgna milli 9 og 12.
Vegna fjölda áskoranna er hér hægt að nálgast þátt þar sem Eldur og brennisteinn fara yfir hvað á daga þjóðarinnar dreif árið 1989. Þessi þáttur var tekinn upp sl. sumar en var ekki settur á netið (vegna annarskonar áskoranna). Einnig hefur þáttur um árið 1984 verið birtur og hægt að finna hann með því að smella á Eldur og brennisteinn flipann hér að neðan.
Vegna fjölda fyrirspurna er hér annar af óbirtu þáttum E&B: Í skugga sögunnar sem tekinn var upp í sumar um árið 1984.
Íslendingar þola flestir ekki framapotara, sama hvers kyns potarinn er. Testalausu karlfeministarnir Heiðar og Snæbjörn ræða Sjálfstæðisflokkinn, aðallega sjálfstæðiskonur, sem hafa farið mikinn í vikunni. BYKO býður upp á Eld og brennistein.
Í lok sjöunda áratugarins freistuðu margir Íslendingar gæfunnar og fluttu búferlum í sólina í Ástralíu. Lífið þar var þó ekki tekið út með sældinni og bjuggu margir landar okkar þar við kröpp kjör. Margir komu heim með skottið á milli lappanna og að sjálfsögðu hlakkaði í Staksteinum Morgunblaðsins enda Ísland, undir styrkri stjórn Sjálfstæðisflokksins, best í heimi. Þetta er brot úr nýjasta þætti Elds og brennisteins: Í skugga sögunnar, þar sem Heiðar og Snæbjörn taka árið 1971 fyrir. Hægt er að hlýða á allan þáttinn með því að smella á Eldur og brennisteinn flipann hér að neðan.
Eldur og brennisteinn: Í skugga sögunnar lítur um öxl og skoðar árið 1971. Strandaglópar í Ástralíu, geirfuglsuppboð, hundaútrýmingarbúðir, konan til vandræða og þjóðin fitnar.
Atvinnuveitendur kvarta undan því að atvinnulausir vilji ekki taka illa borguðu skítadjobbin þeirra. Þetta er brot úr nýjasta þætti Elds og brennisteins, hægt er að hlýða á hann allan með því að smella á Eldur og brennisteinn flipann hér að neðan. BYKO býður upp á þáttinn.
Það ætlaði allt um koll að keyra þessa vikuna hjá áhrifavöldunum. Hnefasamlokur og voodoo-dúkkur. Heiðar og Snæbjörn velta fyrir sér og afbyggja það sem fyrir augu bar. BYKO býður upp á Eld og brennistein.
Þegar áhorfendur töldu líklegt að Samherjasápan færi að dala koma höfundar hennar inn með nýjan kraft og glás af súrreal steypu. Þetta er brot úr nýjasta þætti Elds og brennisteins, en hægt er að hlýða á hann allan með því að smella á Eldur og brennisteinn flipann hér að neðan. Einnig er hægt að nálgast þáttinn á X977 appinu og í hlaðvarpi. BYKO býður upp á þáttinn.
Snæbjörn og Heiðar fengu Alexöndru Briem nýskipaðan forseta borgarstjórnar í spjall og ræddu allt milli himins og jarðar (sem og Vigdísi Hauksdóttur). Þetta er E&B-viðtals aukaþáttur, hægt er að hlýða á nýjasta þáttinn þar sem Heiðar og Snæbjörn láta gamminn geisa með því að smella á Eldur og brennisteinn flipann hér að neðan. BYKO býður upp á Eld og brennistein.
Heiðar og Snæbjörn heiðra harðasta naglann, Gunnar Braga Sveinsson, sem verið er að bola af þingi. Einnig ræða þeir hversu mikla fúskara Samherji er með í vinnu, hvers vegna Play Air/Player er vonlausasta flugfélagið og svo náttúrulega ofbeldi ofbeldi og aftur ofbeldi. BYKO býður upp á Eld og brennistein.
Eldur og brennisteinn extra. Heiðar og Snæbjörn fengu Önnu María Þorkelsdóttur, kennsluráðgjafa hjá Reykjavíkurborg, til að ræða hvernig hægt er að laga slæman kúltúr innan grunnskóla. BYKO býður upp á Eld og brennistein, sem einnig er hægt að nálgast á X977 appinu og í hlaðvarpi.
Heiðar og Snæbjörn eru enn að velta ofbeldi fyrir sér. Þeir ræða m.a. um viðtalið í Fréttablaðinu við Lindu Gunnarsdóttur, sem og pistil Auðar Jónsdóttur á Facebook um eðli ofbeldis. BYKO býður upp á Eld og brennistein.
Heiðar og Snæbjörn ræddu við Gígju Skúladóttur um hræðilega vist hennar og fleiri stúlkna á meðferðarheimilinu Laugalandi. Þetta er brot úr nýjasta þætti Elds og brennisteins, en hægt er að finna hann allan með því að smella á Eldur og brennisteinn flipann hér að neðan. BYKO býður upp á þáttinn. Instagram: eldurogbrennisteinn
Gígja Skúladóttir er ein þeirra kvenna sem saka Ingjald Arnþórsson, fyrrum forstöðumann meðferðarheimilisins Laugalands, um langvarandi ofbeldisbrot. Gígja ræddi við Heiðar og Snæbjörn um árin sem hún dvaldi á Laugalandi, afleiðingarnar, stöðuna á rannsókn málsins og vináttu Ingjalds og Braga Guðbrandssonar, fyrrum forstjóra Barnaverndarstofu. BYKO býður upp á Eld og brennistein, sem nú er einnig hægt að nálgast á X977 appinu og helstu hlaðvarpsveitum. Instagram: eldurogbrennisteinn
Snæbjörn og Heiðar byrja á að velta fyrir sér hvernig forsetahjónin tengjast Onlyfans-krökkunum. Einnig vilja þeir að Bónus fari að taka til í sjálfsafgreiðslumálum hjá sér, þeir segja fitusmánun ofbeldi, að Eyþór Arnalds sé helsti vandi XD í borginni og styðja við bakið á Önnu Töru Andrésdóttur í baráttu hennar við ritskoðun á þessum vef, Vísi (E&B eru nefnilega of heimskir til að bíta ekki höndina sem fóðrar þá). Nú er hægt að nálgast Eld og brennistein á öllum helstu hlaðvarpsveitum og á X977-appinu. BYKO (sem þolir ekki að þaggað sé niður í umræðunni) býður upp á þáttinn.
Heiðar Sumarliðason og Snæbjörn Brynjarsson fóru ekki varhluta af umræðunni er varðar ákveðin líkindi með sjónvarpsþáttunum Systraböndum og leikritinu Hystory. Það var þá sem Heiðar gerði sér grein fyrir að margar eindir úr þáttunum má einnig finna í verki hans (90)210 Garðabær, sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu sama ár og Hystory var á fjölum Borgarleikhússins. En þar drepa þrjár æskuvinkonur aðra konu, losa sig við líkið og þurfa svo að fást við afleiðingarnar. En er virkilega hægt að tala um eitthvað úr svona ófrumlegri hugmynd sem þjófnað? Umræðan um líkindin hefst á 5. mínútu. Einnig taka strákarnir fyrir Onlyfans umræðuna, lufsuna Kolbein Óttarsson Proppé og úrsegjarann Pétur postula Markan. Nú er aftur hægt að fá Eld og brennistein í gegnum hlaðvarpsforrit, sem og í gegnum X977 appið. Þátturinn er í boði BYKO.
Kári getur ekki hætt að uppnefna fólk, Jóhannes er ekki lengur útskýrari heldur gaslýsari, erlendir glæpahópar og túristar það hættulegasta í dag og samstarf VG og XD er eins og hjónaband þar sem foreldrarnir eru ekki sammála um uppeldisaðferðirnar. Eldur og brennisteinn hefur snúið aftur í hlaðvarp og hægt er að gerast áskrifandi að þættinum á helstu hlaðvarpsveitum. BYKO býður upp á Eld og brennistein.
Það er allt að verða vitlaust, alls staðar! Róbert Wessman á útopnu, Covid-fangelsi, KSÍ með allt niður um sig og margt fleira. Eldur og brennisteinn er aftur kominn í hlaðvarp og því hægt að fá þáttinn beint í símann með því að ýta á subscribe. Eldur og brennisteinn er í boði BYKO.
Snæbjörn og Heiðar velta því m.a. fyrir sér hverjum sé hægt að kenna um fjórðu bylgju Covid, og hvort Frosti Logason hafi farið yfir strikið gagnvart forsætisráðherra. Einnig vilja þeir að eiginkona Helga Seljan taki af honum samfélagsmiðlalykilorðin, svo fjalla þeir um Exit 2 sem er nú hægt að finna á ruv.is, ásamt því að fá óvænta heimsókn frá Securitas. BYKO býður upp á Eld og brennistein.
Snæbjörn Brynjarsson og Heiðar Sumarliðason veltu vöngum yfir máli kvennalandsliðsþjálfarans. Var þetta handahófskennt fyllerísheilafret Jóns Þórs, eða eru djúpstæð samskiptavandamál milli leikmanna og þjálfara? Einnig, konan sem vildi kaupa milljón króna stól í Pennanum fyrir inneignarnótur. Hjölli málari býður hlustendum upp á Eld og brennistein að þessu sinni.
Í Eldi og brennisteini í dag: Hvað er málið með fótboltastráka, eldri borgarar lagðir í einelti fyrir að kjósa ekki Trump, hvað ætlarðu að gera eftir Covid, sendiherra Bandaríkjanna er bjáni, opnar Trump á verri hegðun hjá Bjarna Ben og margt margt fleira.
Þetta er brot úr nýjasta þætti Elds og brennisteins, hér ræða Snæbjörn og Heiðar um bók Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur og þann ógeðfellda heim kúgunar og afkomuofbeldis sem birtist þar. Hægt er að heyra allan þáttinn með því að smella á Eldur og brennisteinn flipann hér að neðan. Einnig er hægt að gerast áskrifandi á helstu hlaðvarpsveitum.
Snæbjörn og Heiðar lögðust yfir Spegil fyrir Skugga Baldur eftir Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur. Hún er vægast sagt hrollvekjandi lesning, m.a. um mafíuveldið í íslenskri útgerð. Þeir ræddu einnig eineltismál í Sjálandsskóla.
Heiðar er að springa út spiki og saknar ræktarinnar. Munu Covid-lokanir skapa fleiri lýðheilsuvandamál en veiran sjálf? Þetta er brot úr nýjasta þætti Elds og brennisteins. Hægt er að finna allan þáttinn með því að smella á Eldur og brennisteinn, hér að neðan. Þar er þátturinn með fyrirsögninni: Loks hittir Áslaug Arna markið en Andrés enn utan gátta.
Hvað á stúlkan að heita? Agúrka Bora? Rán Yrkja? Drulla Dúlla? Mannanafnanefnd hefur hylmt yfir vanhæfa foreldra síðan hún var stofnsett. Dómsmálaráðherra segir hingað og ekki lengra og ætlar að koma á fót STASI-samfélagi, þar sem barnaverndarnefnd fer beint í málið þegar þú reynir að skíra son þinn Doðrant Dósent. Þetta hljóðbrot er úr nýjasta þætti Elds og brennisteins, en hægt er að hlýða á hann allan með því að smella á Eldur og brennisteinn hér að neðan undir: Loks hittir Áslaug Arna markið en Andrés enn utan gátta. Einnig er hægt að gerast áskrifandi á hlaðvarpsveitum og fá þáttinn beint í snjalltækið.
Andrés Ingi vill lækka kosningaaldurinn niður í 16 ár. Heiðar og Snæbjörn ræddu kosti og galla þess, og komust svo að niðurstöðu. Þetta er brot úr nýjasta þætti Elds og brennisteins, en hann má finna hér að neðan með því að smella á Eldur og brennisteinn. Einnig er hægt að hlaða honum niður í gegnum helstu hlaðvarpsveitur.
Snæbjörn og Heiðar eru með ráðherra Sjálfstæðisflokksins á heilanum. Heiðar hefur hingað til verið Kolbrúnar-maður, á meðan Snæbjörn segir Áslaugu Örnu vera da shit. Hér ræða þeir einnig rakettu- og nafnlagafrumvörpin. Þetta er brot úr nýjasta þætti Elds og brennisteins. Allan þáttinn má finna með að smella á Eldur og brennisteinn hér að neðan, sem og á helstu hlaðvarpsveitum.
Snæbjörn og Heiðar ræddu mannanafnanefndar- og rakettufrumvarpið, lög um kosningaaldur, hvernig listamannalaun eru Trjóuhestur inn í líf styrkþega og auðvitað kófið.
Bjarni Ben og Sigmundur Davíð hafa aldrei verið á snekkju við Seychelleseyjar, heldur var það örk sem þeir voru sendir út af til að gæta hagsmuna ætta sinna. Nú eru breyttir tímar og veldin líka farin að senda dætur sínar út af örkinni til að halda aftur af kommúnismadaðrandi skrílnum sem hangir á rekaviði og skerjum, treður marvaðann og vonast til að drukkna ekki. Eldur og brennisteinn er nú kominn á helstu hlaðvarpsforrit.
Heiðar Sumarliðason og Snæbjörn Brynjarsson láta gamminn geysa. Ömurlegt haust, Covid-19, flóttamenn bak við þil, Áslaug Arna lendir „næstum því“ í pólitískum andstæðingi á kaffihúsi og Brynjar Níelsson er leikhúsmaður. Eldur og brennisteinn er nú kominn á hlaðvarpsveitur.
Snæbjörn Brynjarsson og Heiðar Sumarliðason ræddu um íslensk stjórnmál, enn og aftur velta þeir fyrir sér hvað sé málið með Eyþór Arnalds, svo pældu þeir í ástandinu á íslenskum fjölmiðlamarkaði, Morgunblaðinu sem er svo úr sér gengið að það þarf að gefa % í því og svo er spurningingin, gekk Dóra Pírati of langt? Eldur og brennisteinn er nú kominn í hlaðvarp.
Heiðar og Snæbjörn tóku yfir hljóðver X977 í vikunni og voru í Harmageddon-slottinu. Þessi umræða þeirra um forsetaembætti Bandaríkjanna hljómaði þar, en kemur hér fyrir hlustendur Eld og brennisteins.
Samherjamenn eru að láta reisa skyrsafn í nýjum miðbæ Selfoss. Tími til kominn, segja Elds og brennisteinsmenn.
Nú er Snæbjörn að verða pabbi og reynsluboltinn Heiðar leggur honum lífsreglurnar. Og hvað er málið með gúmmítöffarann á sellóinu úr Todmobile? Gervipönkarann úr Tappa Tíkarrass? Eyþór Laxdal Kaaber Aspelund Arnalds. Af hverju á hann peninga? Renna öll vötn til Oz?
Heiðar fór í afmælisferð um síðstu helgi á hótel á suðurlandi. Honum brá heldur betur í brún að sjá aðra gesti sem hegðuðu líkt og þau væru í pakkaferð á Benidorm fyrir Covid-19. Og ekki var það unga fólkið sem virti allar sóttvarnarreglur að vettugi, heldur voru þetta ömmur og afar.
Hvor er klárari/vitlausari, Áslaug Arna eða Kolbrún Reykfjörð? Hvort er Brynjar Níelsson meiri kjáni eða letingi. Af hverju er einhver sauðfjárbóndi félagsmálaráðherra? Af hverju var sonur kvótakóngs sjávarútvegsráðherra? Af hverju fékk Lilja Alfreðs ekki að snýta munaðarleysingjum í S-Kóreu? Það er svo margt skrítið í þessum heimi. Eldur og brennisteinn hefur nú ratað í helstu hlaðvarpsveitur.
Hér eru allar klippur vikunnar frá Eldi og brennisteini.
Heiðar er í skýjunum því klósettpappírinn með gula Labrador-hvolpinu er kominn aftur í verslanir Bónus, en minna ánægður með að verða 41 árs. Snæbjörn tekur hins vegar á móti ellinni með opnum örmum. Það er smávegis ójafnvægi í hljóðstyrk til að byrja með, en lagast svo. Eldur og brennisteinn er nú kominn á helstu hlaðvarpsveitur.
Heiðar og Snæbjörn ræddu borgarstjórnarmálin, og ráða Vigdísi Hauksdóttur heilt, segja henni að vera hún sjálf. En hver er Vigdís Hauksdóttir? Dagur og Líf fá einnig góð ráð. Eldur og brennisteinn er nú kominn á hlaðvarpsveitur.
Hér eru öll innslög vikunnar frá Eldi og brennisteini. Heiðar og Snæbjörn taka fyrir bottomless brunch-ljóskurnar, leikhús Áslaugar Örnu og hvernig Vigdís Hauks þarf bara að brosa meira. Nú er hægt að gerast áskrifandi að Eldi og brennisteini í gegnum t.d. Spotify og Apple Podcasts.
Snæbjörn Brynjarsson (leikhúsgagnrýnandi Rásar 1) og Heiðar Sumarliðason (kvikmyndagagnrýnandi Vísis) ræddu það teater sem dómsmálaráðherra býður upp á þessa dagana. Hægt er að fá Eld og brennistein beint í snjalltækið t.d. á Spotify og Apple Podcasts.
Hinn náttúrulega ljóshærði Heiðar er tjúll út í bottomless brunch-gerviljóskur og kallar útganginn á þeim menningarnám.
Nýlega sagði maður einn á Twitter frá þeim afleiðingum sem hann upplifði eftir ljót orð Bubba Morthens þegar hann tók þátt í Idol stjörnuleit. Á Bubbi að biðjast afsökunar?
Snæbjörn segir kóksala nú herja á eftirpartíin.
Snæbjörn og Heiðar eiga báðir von á börnum á næstunni, en Heiðar fékk „áfall“ þegar hann heyrði að hann ætti von á syni. Strákarnir reyna að kryfja málið. Hægt er að gerast áskrifandi að Eldi og brennisteini á helstu hlaðvarpsveitum.
Heiðar og Snæbjörn vilja verða næstu hirðskáld Samherja.