POPULARITY
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Vilhjálmur Arason, heimilislæknkir og sérfræðingur á bráðamóttöku, ræddi við okkur um sjúkraflutninga á nýjum Landspítala. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, var á línunni og ræddi ofurlaun sveitastjórnarmanna og fleiri innan hins opinbera. Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður Morgunblaðsins og Jakob Bjarnar, blaðamaður á Vísi, ræddu um ofurlaun sveitastjórnarmanna og fleira er varðar pólitík. Tryggvi Rúnar Brynjarsson, sagnfræðingur í doktorsnámi við Háskóla Íslands, ræddi við okkur um spilakassarekstur Háskóla Íslands. Árni Árnason, grínari og mannauðsstjóri hjá Elju, hefur slegið í gegn á Facebook. Helga Beck, markaðsstjóri Orkusölunnar of Heiða Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Orkusölunni, ræddu við okkur um áhugaverða auglýsingaherferð.
Fimmtudagur 21. nóvember Sjókvíaeldi, ESB, húsnæðiskrísa, smáfyrirtækjaskattamál, Gaza Í beina útsendingu í kvöld mæta vaskir frambjóðendur og talsmenn, þau Karl Héðinn Kristjánsson, Sósíalisti, Gísli Rafn Ólafsson, Pírati, Mörður Árnason, Samfylkingu og Björg Eva Erlendsdóttir, Landvernd til að ræða um sjókvíeldi, eldgos og önnur eldheit kosningamál. Þau Haraldur Ólafsson hjá Heimssýn og Helga Vala Helgadóttir hjá Evrópuvaktinni eru á öndverðum meiði um hvort Ísland eigi að ganga í ESB. Við heyrum rökræðu þeirra á millum. Við höldum síðan áfram að ræða húsnæðiskrísuna á markvissan máta með fulltrúa Leigjendsamtakanna, Yngva Ómari Sighvatssyni sem tekur frambjóðendur nokkura flokka í próf og í dag mæta þeir Jóhann Páll Jóhannsson, frambjóðandi Samfylkingarinnar, Grímur Grímsson, frambjóðandi Viðreisnar og Ragnar Þór Ingólfsson, frambjóðandi Flokks fólksins. Spurning dagsins er hvernig líður almenningi í samfélaginu, við spyrjum fólk á förnum vegi. Síðan segir Sigmar Vilhjálmsson, formaður Atvinnufélagsins okkur frá hvernig skattaumhverfi fyrirtækja hyglir hinum stóru á kostnað smáfyrirtækja og Benjamín Julian, verkefnastjóri Verðlagseftirlits Alþýðusambandsins, fræðir okkur um samkeppnina á dagvörumarkaði. Illugi Jökulsson, rithöfundur segir okkur frá allri fegurðinni sem finna má í hversdeginum en hann hefur í nokkur ár fangað lítil augnablik, glefsur úr lífum fólks og gefið út í bókinni "Rétt áðan". Í Radió Gaza koma þau saman Gígja Sara Björnsson, Valgeir Skorri Vernharðsson, Hjálmtýr Heiðdal og Snæbjörn Brynjarsson sem öll standa fyrir viðburðum á næstu vikum. Áherslurnar og aðferðirnar eru kannski ólíkar en meginstefið er það sama, mannréttindi. Að lokum heyrum við í oddvita Sósíalista í Norðvesturkjördæmi, Guðmundi Hrafni sem spjallar við Sigurjón Magnús Egilsson í Oddvitaspjalli Rauða borðsins.
Fimmtudagur 7. nóv. Heilbrigðiskerfi, fjársvelti, fötlun, harka, list Það er tekið á mörgum ólíkum grundvallarmálum við Rauða borðið í dag og gestir úr öllum áttum. Í beina útsendingu mætir fólk sem hefur þekkingu og reynslu af uppbyggingu og niðurbroti heilbrigðiskerfisins, en það eru þau Jósep Blöndal, læknir, Sigurður Ingibergur Björnsson, stjórnarformaður Eyris Venture Management og fyrrum framkvæmdastjóri Klíníkurinnar, María Pétursdóttir listakona og frambjóðandi og Tinna Laufey Ásgeirsdóttir heilsuhagfræðingur, prófessor við Háskóla Íslands. Því næst tökum við fyrir fjársveltar samfélagsstofanir í samræðu við Hilmar Malmquist forstjóra Náttúruminjastofnunar Íslands, Andrés Skúlason formann Fornminjanefndar, Svanhildi Bogadóttur fyrrum Borgarskjalavörð og Snæbjörn Brynjarsson leikhússtjóra Tjarnarbíós. Þá er komið að spurningu dagsins þar sem almenningur á strætum borgarinnar svarar spurningunni: Skiptir viðhorf stjórnmálaflokka til menningarmála þig máli? Í Radíó Gaza er rætt um hörkuna sem færst hefur í hælisleitendamál undanfarin misseri, þær Arndís Anna fráfarandi þingmaður Pírata og lögfræðingur, Margrét Baldursdóttir, túlkur og Áslaug Ýr Hjartardóttir, ritlistarnemi sem er með samhæfða sjón og heyrnarskerðingu koma og ræða meðal annars um mál fimm manna fjölskyldu frá Írak en hluti þeirra er haldinn sömu fötlun og Áslaug Ýr. Að lokum segir Lára Zulima Ómarsdóttir okkur frá gleymdri myndlistarkonu, Höllu Haraldsdóttur.
Við höfum verið að fjalla undanfarna mánudaga um það hvað verður á fjölunum í leik- og sviðslistahúsunum í vetur. Í dag var komið að Tjarnarbíói, Snæbjörn Brynjarsson nýráðinn leikhússtjóri þar á bæ kom í þáttinn. Tjarnarbíó hefur verið aðalmiðstöð frjálsu leikhópana hér á höfuðborgarsvæðinu og verður það áfram í vetur með fjölbreytta dagskrá sem Snæbjörn sagði okkur frá henni í þættinum. Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Í þetta sinn fjallaði vinkillinn um matargerð sem tekur mið af hnattstöðu Íslands og ekki síður árstíðinni, því nú verður spjallað um kjötsúpu. Hvers vegna er kjötsúpan mismunandi á milli heimila og landa? Má allt í kjötsúpugerð, eða verður að fara eftir uppskrift? Eru einhver leyndarmál sem gera súpuna betri á sumum heimilum en öðrum? Svo var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skáld og bóksali. Hún rekur bókabúðina Kanínuholan, sem hefur verið kölluð minnsta bókabúð landsins, en búðin er í bílskúrnum hjá henni. Hún sagði okkur auðvitað frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Móheiður talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Mafalda e. Quino, teiknimyndasögur Undir grjótvegg e. Svövu Jakobsdóttur Ariel e. Sylviu Plath (sem Móheiður hefur verið að þýða) Óseldar bækur bóksala e. Shaun Bythell. Things You May Find Hidden in My Ear e. Mosab Abu Toha Og svo talaði hún um bækurnar Mémoire d'une Jeune Fille Rangée / Mémoirs of a Dutiful Daughter og La Femme Rompue / A Woman Destroyed e. Simone de Beauvoir Tónlist í þættinum: Komdu í kvöld / Ragnar Bjarnason (Jón Sigurðsson) Allar mínar götur / Ragnar Bjarnason (Haraldur Reynisson) Barn / Ragnar Bjarnason (Ragnar Bjarnason, ljóð Steinn Steinarr) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í þætti dagsins verður einmitt boðið upp á svipmynd af nýjum leikhússtjóra Tjarnarbíós. Snæbjörn Brynjarsson er fæddur árið 1984, er með BA-próf í fræðum og framkvæmd frá listaháskóla Íslands og BA-próf í japönsku máli og menningu frá Háskóla Íslands. Hann hefur farið mjög víða á sínum ferli, skrifað fantasíur fyrir ungmenni, ferðast um Evrópu með frönskum leikhópi, starfað sem varaþingmaður og leikhúsrýnir og stofnað og rekið gallerí og listahátíð í Kópavogi. Síðustu árin hefur Snæbjörn verið safnstjóri Listasafns Svavars Guðnasonar sem staðsett er á Höfn í Hornafirði. En nú hefur hann snúið aftur til höfuðstaðarins og tekið að sér stöðu leikhússtjóra Tjarnarbíós. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Hjörtur Leó fékk til sín lauflétta gesti, Hrafn Erlingsson, Arnar Daði Brynjarsson og góðkunningja þáttarins Örn Þrastar. Það er óhætt að segja að létt hafi verið yfir mönnum er þeir fóru yfir málefni líðandi stundar. Fljúgandi gengi hjá mfl. kvenna og batamerkin hjá mfl. karla. Undir lokin lærum við svo nýja hluti um Örn, en Hrafn og Arnar tóku að sér létta gestastjórnun og fræddust um Örn. Næstu leikir hjá liðunum okkar eru: Fös 3. nóv Víkingur - Selfoss mfl kvk Sun 5. nóv Víðir - Selfoss U 2. deild kk Fös 10. nóv Selfoss - Valur U mfl kvk Lau 11. nóv ÍBV - Selfoss mfl kk
Fimmtudagurinn 10. ágúst Í síðasta sumarþætti Rauða borðsins kemur Tryggvi Rúnar Brynjarsson sagnfræðingur og segir okkur frá hryllilegu ofbeldi gagnvart hommum, manndrápstilraun og morði, og hvernig ríkisvaldið brást við, fjölmiðlar og hinsegin samfélagið. Sigurjón Magnús Egilsson blaðamaður kemur síðan og ræðir pólitíska stöðu við bróður sinn Gunnar Smára.
Föstudagurinn 28. apríl Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Helga Þórey Önnudóttir Jónsdóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson, Tryggvi Rúnar Brynjarsson og Þóra Kristín Þórsdóttir og ræða fréttir vikunnar sem einkenndist af glæpum, ofbeldi og dauða.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar fréttahluta: Valgerður Þorsteinsdóttir Austan stormur með snjókomu er skollinn á landinu sunnan- og vestanverðu. Appelsínugul viðvörun er í gildi fá Vestfjörðum suður og austur með landinu allt að Djúpavogi að höfuðborgarsvæðinu undanskildu. Þar er gul viðvörun fram á nótt en víða er bæði blint og hált. Magnús Geir Eyjólfsson fréttamaður hefur verið á ferðinni á Suðurlandi Rafmagn fór af í Vík, Landeyjum og Vestmannaeyjum um tíma síðdegis en ætti að vera komið á. Rimakotslína 1 er komin í lag, samkvæmt upplýsingum frá Landsneti. Varaafl var sett í gang í Vestmannaeyjum. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir sagði frá. Efling hefur lagt fram stjórnsýslukæru til félagsmálaráðuneytis vegna framgöngu ríkissáttasemjara í kjaradeilu félagsins og SA. Krafa ríkissáttasemjara um að Efling afhendi félagatal sitt, var tekin fyrir í héraðsdómi í dag. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar segir mjög ríkan vilja vilji til þess að fá úr því skorið hvernig fara á með þessa miðlunartillögu. Alexander Kristjánsson tók saman. Minnst 59 létust í sprengjuárás á mosku í Peshawar-borg í Pakistan í dag. Enginn hefur lýst ódæðinu á hendur sér. Forsætisráðherra landsins segir sprengjutilræðið vera árás á Pakistan. Oddur Þórðarson sagði frá. Vinna er hafin við úttekt á stöðu fjarskiptamála á Vesturlandi til að tryggja betur öryggi íbúa og ferðamanna á svæðinu. Páll Brynjarsson framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi segir víða gloppur í sambandi og úr því verði að bæta. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við hann. ---------- Í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur er ríkissáttasemjara heimilað að leggja fram miðlunartillögu er samningaumleitanir bera ekki árangur, honum beri að ráðgast við samninganefndir áður en hann ber fram miðlunartillögu. Gísli Tryggvason lögmaður segir engan vafa leika á því að ríkissáttasemjari sé bær til þess að setja fram miðlunartillögu en deila megi um hve mikið samráð felist í því að ráðgast, það kalli á meira samráð en að tilkynna bara um hana. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Stjórnvöld í Tyrklandi hafa opnað á þann möguleika að Finnar geti sótt um aðild að Atlantshafsbandalaginu, NATÓ, en að Svíar verði úti í kuldanum. Ásgeir Tómasson sagði frá. Heyrist í Recep Tayip Erdogan, forseta Tyrklands, Magnus Christiansson, lektor í herfræðum við sænska varnarmálaháskólann, Bitte Hammargren, sérfræðingur í málefnum Tyrklands og Miðausturlanda. Pekka Haavisto utanríkisráðherra Finnlands og John Bolton, fyrrverandi
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar fréttahluta: Valgerður Þorsteinsdóttir Austan stormur með snjókomu er skollinn á landinu sunnan- og vestanverðu. Appelsínugul viðvörun er í gildi fá Vestfjörðum suður og austur með landinu allt að Djúpavogi að höfuðborgarsvæðinu undanskildu. Þar er gul viðvörun fram á nótt en víða er bæði blint og hált. Magnús Geir Eyjólfsson fréttamaður hefur verið á ferðinni á Suðurlandi Rafmagn fór af í Vík, Landeyjum og Vestmannaeyjum um tíma síðdegis en ætti að vera komið á. Rimakotslína 1 er komin í lag, samkvæmt upplýsingum frá Landsneti. Varaafl var sett í gang í Vestmannaeyjum. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir sagði frá. Efling hefur lagt fram stjórnsýslukæru til félagsmálaráðuneytis vegna framgöngu ríkissáttasemjara í kjaradeilu félagsins og SA. Krafa ríkissáttasemjara um að Efling afhendi félagatal sitt, var tekin fyrir í héraðsdómi í dag. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar segir mjög ríkan vilja vilji til þess að fá úr því skorið hvernig fara á með þessa miðlunartillögu. Alexander Kristjánsson tók saman. Minnst 59 létust í sprengjuárás á mosku í Peshawar-borg í Pakistan í dag. Enginn hefur lýst ódæðinu á hendur sér. Forsætisráðherra landsins segir sprengjutilræðið vera árás á Pakistan. Oddur Þórðarson sagði frá. Vinna er hafin við úttekt á stöðu fjarskiptamála á Vesturlandi til að tryggja betur öryggi íbúa og ferðamanna á svæðinu. Páll Brynjarsson framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi segir víða gloppur í sambandi og úr því verði að bæta. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við hann. ---------- Í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur er ríkissáttasemjara heimilað að leggja fram miðlunartillögu er samningaumleitanir bera ekki árangur, honum beri að ráðgast við samninganefndir áður en hann ber fram miðlunartillögu. Gísli Tryggvason lögmaður segir engan vafa leika á því að ríkissáttasemjari sé bær til þess að setja fram miðlunartillögu en deila megi um hve mikið samráð felist í því að ráðgast, það kalli á meira samráð en að tilkynna bara um hana. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Stjórnvöld í Tyrklandi hafa opnað á þann möguleika að Finnar geti sótt um aðild að Atlantshafsbandalaginu, NATÓ, en að Svíar verði úti í kuldanum. Ásgeir Tómasson sagði frá. Heyrist í Recep Tayip Erdogan, forseta Tyrklands, Magnus Christiansson, lektor í herfræðum við sænska varnarmálaháskólann, Bitte Hammargren, sérfræðingur í málefnum Tyrklands og Miðausturlanda. Pekka Haavisto utanríkisráðherra Finnlands og John Bolton, fyrrverandi
Við sækjum sagnfræðinginn og rithöfundinn Sigrúnu Pálsdóttir heim í þætti dagsins. Sigrún hlaut á dögunum bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins 2021 fyrir bókina Delluferðin sem kom út fyrir tveimur árum árum, en á þessu ári kom út ný bók eftir hana sem ber heitið Dyngja. Fyrir skemmstu kom út annað hefti tímaritsins Dunce. Dunce fjallar um dans og gjörningalist og stefnt er að því að tímaritið komi út árlega. Í þetta sinn tekur ritið fyrir skissur og skrásetningu gjörninga og dansverka, og sérstaklega hvernig skissuvinna nýtist listamönnum í sköpunraferlinu. Helga Dögg Ólafsdóttir, grafískur hönnuður og Sóley Frostadóttir, ritstjóri, verða gestir Víðsjár í dag. Og Snæbjörn Brynjarsson fjallar um Jólaboðið í Þjóðleikhúsinu, nýtt leikverk eftir Gísla Örn Garðarsson og Melkorku Teklu Ólafsdóttur í leikstjórn Gísla Arnar.
Við erum til og við erum mörg. Það er eftirspurn eftir okkar skáldskap og hér er svarið. Þetta er einskonar fæðing innflytjendabókmennta á Íslandi. Svo segir í formála Pólifóníu af erlendum uppruna, en það er ljóðasafn eftir fimmtán skáld frá tólf löndum sem öll eru búsett hér á landi. Ritstjórinn, Natasha Stolyarova, segir okkur frá verkinu í þætti dagsins. Guðni heldur áfram að rölta á milli menningarstofnana í höfuðstað Norðurlands. Að þessi sinni bankar hann upp á hjá Mörtu Nordal, leikhússtjóra leikfélags Akureyrar. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í nýútkomna ljóðabók Jóns Kalmans, Djöflarnir taka á sig náðir og vakna sem guðir og Snæbjörn Brynjarsson fjallar um leikhúsverkið Hunden bakom mannen, eftir sviðslistahópinn Losta.
Við ætlum að huga að menningarlífinu á Akureyri næstu vikur hér í Víðsjá. Guðni hélt í leiðangur á dögunum og kynnti sér starfsemi nokkurra menningarstofnana í höfuðstað Norðurlands. Í dag förum við með Guðna í Listasafnið þar sem hann ræddi við Hlyn Hallsson safnstjóra. Og frá Akureyri höldum við í Skálholt. Þorgerður Ása heimsótti Jón Bjarnason organista í Skálholtskirkju en hann fékk á dögunum menningarverðlaun suðurlands. Under Pressure með hljómsveitinni Queen í orgelbúningi, söfnun fyrir nýjum flygli og þjóðsöngur Biskupstungnamanna um Kristján í Stekkholti, er meðal þess sem bar á góma í samtalinu sem við heyrum undir lok þáttar. Reykjavík Dance Festival gladdi borgarbúa í liðinni viku með fjölbreyttum dansverkum eftir bæði hérlenda og erlenda höfunda. Snæbjörn Brynjarsson fór á nokkrar sýningar og segir frá upplifun sinni hér rétt á eftir. Og Ólöf Gerður Sigfúsdóttir lagði leið sína í Hvelfinguna, sýningarsal Norræna hússins, þar sem nú stendur yfir aðkallandi sýning um jarðfræðileg og jarðsöguleg fyrirbæri af ýmsum toga. Við heyrum betur af henni hér á eftir.
Árið 1946 kom út ferðabókin Fjallamenn eftir GUðmund frá Miðdal. Í bókinni er að finna ferðalýsingar úr byggðum og óbyggðum Íslands og annara landa. Bókin hefur verið ófáanleg í áratugi, en nú hefur Salka endurútgefið hana. VIð setjumst niður með syni Guðmundar, Ara Trausta, í þætti dagsins, en hann ritar formálann í nýju útgáfuna. Við fáum einnig að heyra af tveimur nýjum sýningum í Þjóðleikhúsinu. Lára og ljónsi er jólaævintýri eftir Birgittu Haukdal og Góa, hugsað fyrir yngstu áhorfendurna í aðdraganda jólanna. Rauða kápan eftir Sólveigu Eir Stewart er svo sýnd í hádegisleikhúsinu, sem tók til starfa í leikhúskjallaranum í haust. Snæbjörn Brynjarsson segir frá sýningunum í þætti dagsins. Gauti Kristmannsson fjallar um nýja skáldsögu Hildar Knútsdóttur, Myrkrið milli stjarnanna. Við förum líka í aðalútibú Landsbanka Íslands í Austurstræti og ræðum þar við Aðalstein Ingólfsson listfræðing um nýja sýningu á abstraktverkum úr safneign bankans.
Á laugardaginn, 13. nóvember, er afmælisdagur Árna Magnússonar handritasafnara og fræðimanns sem eins og frægt er fór um landið á sínum tíma og bjargaði dýrmætum handritum sem segja okkur svo margt um norræna menningu almennt. Handrit sem eru grunnur að öllu vísindastarfi í fornum íslenskum og norrænum fræðum. Stofnun Árna Magnússonar býður að venju upp á árlegan fyrirlestur þann dag og það hann flytur að þessu sinni Már Jónsson sagnfræðingur og professor í sagnfræði við Háskóla Íslands sem mun kalla erindi sitt Árni Magnúson, þriggja alda minning og framtíðarsýn. Og við fjöllum um annað afmælisbarn í þætti dagsins, sem einnig er frumkvöðull á sínu sviði. Í dag hefði ítalska tónskáldið Ennio Morricone orðið 93 ára. Morricone er sennilega eitt afkastamesta og áhirfamesta kvikmyndatónskáld allra tíma. Einföld og einstök tónlist sem heillar allan heiminn, segir ítalski gítarleikarinn Daniele Basini um tónsmíðar læriföður síns, en Daniele er hluti af Morricone tríóinu á Akureyri, sem efnir til veislu í Hörpu um helgina. Daniele hefur útsett tónlistina fyrir gítar, harmonikku og selló, og hann verður á línunni frá Akureyri í þætti dagsins. Gréta Sigríður Einarsdóttir fjallar um fyrstu skáldsögu Guðna Elíssonar, LJósgildruna og Snæbjörn Brynjarsson segir frá sýningunni Njála á hundavaði, sem Hundur í óskilum hefur sett á svið í Borgarleikhúsinu.
Dans- og pönkverkið Neind Thing var frumsýnt á fimmtudaginn var í Tjarnarbíó. Verkið er eftir Ingu Huld Hákonardóttur, framið af 3 sviðslistakonum og einum trommara. Snæbjörn Brynjarsson fór á frumsýningu og deilir upplifun sinni með okkur hér á eftir. María Huld Markan Sigfúsdóttir tónskáld verður gestur Víðsjár í dag og segir hlustendum frá viðburðinum Are we ok? sem verður í Hörpu á fimmtudagskvöld en þar er í boði ferðalag um arkítektúr Hörpu í splunkunýju verki Maríu Huldar og bandaríska danshöfundarins Daniels Roberts. Og nú streyma auðvitað bækur til okkar hingað í Víðsjá. Ein þeirra er ljóðabókin Álfheimar eftir Brynjar Jóhannesson. Á bókakápu er ljósmyndaf götuskiltinu úr Álfheimum en inn í kápunni segir að höfundur sé skáld úr Laugardalnum. Duglegasti letingi sinnar kynslóðar sem skilur vel dyggðina að brosa vingjarnlega, gera sitt besta og leggja ekki of mikið á sig. Við tökum Brynjar tali í þætti dagsins. Og við heyrum hvað Gauti Kristmannsson hefur að segja um Merkingu, nýja skáldsögu Fríðu Ísberg.
Í Víðsjá í dag verður m.a. rætt við Aðalheiði Sigríði Eystiensdóttur, betur þekkt sem Alla Sigga í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Alla Sigga er fyrst og fremst þekkt fyrir tréskúlptúrana sína en hún er einnig ein helsta driffjöður menningarlífsins í Eyjafirði. Í dag hefst listasmiðjan Skafl á Siglufirði, hátíð sem Alla Sigga heldur utan um auk fjölda annara viðburða í bænum. Víðsjá slær á þráðinn til Siglufjarðar í þætti dagsins. Snæbjörn Brynjarsson fjallar um Sýninguna okkar sem nú er sýnd í Þjóðleikhúsinu og fjallað verður um rússneska tónskáldið Sofiu Gubaidulinu sem varð níræð í gær. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
Víðjsjá 18. 10.2021 1. Heimsókn á Skuggabaldur og í Hús Máls og menningar en tónleikahald þar er nú komið í fullan gang. Snorri Helgason og Kamila Gnarr eru tekin tali, en þau sjá um viðburði í þessum nýlegu tónleikahúsum. 2. Snæbjörn Brynjarsson fjallar um óperuna Ástardrykkinn sem nú er sýnd í Þjóðleikhúskjallara, það gerir sviðslistahópurinn Óður. 3. Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir ræðir við Carl Boutard myndlistarmann um sýningu hans, Gróður jarðar, í Ásmundarsafni. 4. Ágústa Kristófersdóttir hjá Þjóðminjasafni Íslands segir frá Mannamyndasafninu sem nú er til sýninga í safninu. Umsjón: Guðni Tómasson
Í gær bárust þær fréttir að sinfóníuhljómsveitin Concertgebouw frá Amsterdam sé á leið til landsins og muni halda tónleika í Hörpu þann 10. nóvember næstkomandi. Hljómsveitin, sem af mörgum er talin ein allra besta sinfóníuhljómsveit veraldar, flytur á tónleikunum sjöttu sinfóníur rússnesku tónskáldanna Tsjajkovskís og Sjostakovitsj undir stjórn finnans unga Klaus Mäkelä sem er á meðal eftirsótttustu hljómsveitarstjóra samtímans. Í Víðsjá dagsins verður rætt við Helga Jónsson tónlistarfræðing um þessa stórmerku hollensku sveit sem stendur á traustum sögulegum grunni og vekur hrifningu um heim allan. Einnig verður verður rætt við baritón söngvarann Jóhann Kristinsson sem hafið hefur litla og netta tónleikaferð sína um landið með Vetrarferð Schuberts upp á vasann. Jóhann söng lagaflokk tónskáldins á tónleikum á Akranesi í gærkvöldi ásamt píanóleikaranum Ammiel Bushakevitz. Þeir félagar verða svo á Ísafirði á fimmtudag og í Salnum í Kópavogi á sunnudag kl. 15. Snæbjörn Brynjarsson, leiklistarrýnir Víðsjár, segir hlustendum skoðun sína á sýningunni Rómeo og Júlía hjá Íslenska dansflokknum. Og loks tekur ný rödd til máls í Víðsjá. Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir fer á stjá og ræðir við Magneu Þuríði Ingvarsdóttir heldur úti Facebook síðu Tófan ljóða- og fræðasetur sem er tileinkuð skáldkonum. Þar birtir hún nánast daglega færslur um einstaka skáldkonur þar sem ljóð þeirra eru dregin fram. Yfirleitt eru skáldin sem um ræðir fædd í kringum þar síðustu aldamót og gjarnan eru nöfn þeirra með öllu óþekkt í dag. Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir kíkti í heimsókn til Magneu og fékk að grafast fyrir um tildrög Tófunnar og grúska með henni í ljóðabókunum. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
Í Víðsjá dagsins verður rætt við Ernu Ómarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur, höfunda og listræna stjórnendur uppsetningar Íslenska dansflokksins á Rómeó og Júlíu. Sýningin var fyrst sett upp í Þýskalandi 2018 þar sem hún var meðal annars tilnefnd til hinna virtu Faust verðlauna. Næstsíðasta sýningin hér á landi fer fram í Borgarleikhúsinu í kvöld, og þangað héldum við í morgun. Snæbjörn Brynjarsson, leiklistargagnrýnandi Víðsjár, segir hlustendum skoðun sína á sketsasýningunni Kanarí sem nú er til sýninga í kjallara Þjóðleikhússins. Og nú stendur yfir bókmenntaverðlaunatímabil mikið, nóbelsverðlaunin í bókmenntum verða til að mynda afhent á morgun og búið er að birta stutta listann fyrir Booker verðlaunin. Kristján B. Jónasson bókaútgefandi verður tekinn tali um þýsku bókmenntaverðlaunin sem afhent verða um miðjan nóvember í tengslum við bókamessuna í Frankfurt en Kristján hefur legið í bókunum sem tilnefndar eru undanfarna daga og vikur. Að endingu segir Gauti Kristmannsson, bókmenntarýnir Víðsjár, skoðun sína á skáldsögunni Dauðinn er barningur eftir sýrlenska höfundinn Khaled Khalifa en bókaútgáfan Angústúra gaf bókina nýverið út í þýðingu Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
Í Víðsjá í dag verður rætt um hönnun, sjálfbærni, framtíðina, stjórnkerfið og langtímahugsun. Tilefnið er greinaflokkur sem finna má á heimasíðu Hönnunarmiðstöðvar og birtist í prentmiðlum fyrir kosningar. Gestir Víðsjár verða Kristján Örn Kjartansson arkitekt hjá Krads arkitektum og formaður miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs og Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu - miðstöðvar um samfélagsábyrgð og sjálfbærni, en þau tóku bæði til máls í þessari umræðu á dögunum. Þann 14. október næstkomandi verður gamanóperan Ástardrykkurinn úr smiðju ítalska tónskáldsins Geatano Donizetti sett á svið í Þjóðleikhúskjallaranum af sviðslistahópnum Óði. En samkvæmt viðburðarlýsingu neitar sviðslistahópurinn Óður að geyma óperur í glerkössum og vilja þau miklu frekar taka þær upp, hrista af þeim rykið og leika sér að þeim, pota í óskrifaðar reglur, skemmta sér og öðrum. Við ræðum við þrjá meðlimi hópsins í þætti dagsins. Snæbjörn Brynjarsson leiklistargagnrýnandi segir skoðun sína á sýningunni Kjarval á litla sviði Borgarleikhússins sem er barnasýning sem fjallar um drenginn, manninn og listmálarann Kjarval. Og nýr pistlahöfundur, Snorri Rafn Hallsson tekur til máls en Snorri Rafn bendir á að stórsagan um tæknina segi til um að tæknin skapi manninum nýja möguleika, ný tækifæri, að tæknin sé hér fyrir okkur. Þó er raunin oft önnur þegar tæknin reisir nýja múra, flækir hlutina og er fyrir okkur. Í pistlaröðinni sinni ætlar Snorri að fjalla um sex lík og ólík fyrirbæri sem með einum eða öðrum hætti snerta á þessari klemmu og varpa skugga á stórsöguna. Umsjón Guðni Tómasson
Í Víðsjá verður hugað að endur-frumsýningu á kvikmyndinni Sögu borgarættarinnar eftir samnefndri skáldsögu Gunnars Gunnarssonar sem tekin var upp á Íslandi árið 1919 og frumsýnd í Kaupmannahöfn ári eftir. Nú stendur til að frumsýna myndina að nýju með nýrri tónlist Þórðar Magnússonar tónskálds en frumsýningin fer samtímis fram í Reykjavík, á Akureyri og Seyðisfirði og er sýningin hluti af dagskrá kvikmyndahátíðarinnar RIFF sem hefst á morgun. Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Skriðuklausturs, verður tekinn tali um þetta forvitnilega verkefni. Listahátíðin Sequences fer fram í tíunda sinn dagana 15-24. október næstkomandi. Hátíðin er sjónlistatvíæringur sem hefur verið haldin frá árinu 2006 með sérstaka áherslu á rauntímalistaverk. Yfirskrift sýningarinnar í ár er: Kominn tími til, og í brennidepli verða samtöl listamanna við umhverfi sitt, sögu eða við aðra listamenn. Samtöl sem fléttast meðvitað og o?meðvitað inn i? ti?ðaranda og ri?kjandi hugmyndir i? samfe?laginu. Við heyrum í sýningarstjórum Sequences í þætti dagsins þeim Þórönnu Dögg Björnsdóttur og Þráni Hjálmarssyni. Snæbjörn Brynjarsson, leiklistargagnrýnandi þáttarins, verður með okkur í dag. Hann skellti sér á sýninguna Þétting Hryggðar eftir uppistandarann, rithöfundinn, víninnflytjandann og áhugaboxarann Halldór Laxness Halldórsson einnig þekktur sem Dóri DNA. Gauti Kristmannsson bókmenntagagnrýnandi Víðsjár segir frá bókinni Stóra bókin um sjálfsvorkunn eftir Ingólf Eiríksson sem kom út nú á dögunum hjá Forlaginu og segir frá Hallgrími sem hrökklast heim úr leiklistarnámi í erlendri stórborg til að fara á geðdeild. Umsjón: Guðni Tómasson og Tómas Ævar Ólafsson
Í þætti dagsins fær Víðsjá Guðmund Ara Arnalds, tónlistarmann í heimsókn. En hann er einn af forsprökkum tónlistarútgáfunnar Agalma sem stofnað var árið 2019 og hefur gefið út, hvorki meira né minna en 19 plötur síðan. Útgáfan heldur svokallað Label Night í kvöld í Mengi þar sem listamennirnir Þorsteinn Eyfjörð, Szymon Keler & Ronja Jóhannsdóttir stíga á stokk. Víðsjá forvitnast líka um hvernig upplifun það sé að fara upp á innpakkaðan Sigurboga í París þegar Laufey Helgadóttir listfræðingur verður tekin tali. Snæbjörn Brynjarsson leiklistargagnrýnandi Víðsjár segir skoðun sína á leikverkinu Ástu sem nú er til sýninga í Þjóðleikhúsinu en þar er á ferðinni leiksýning byggð á ögrandi list og litríku lífshlaupi listakonunnar Ástu Sigurðardóttur. Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Guðni Tómasson
Víðsjá stingur í dag inn nefi í Mutt gallerí við Laugaveg en þar opnaði myndlistamaðurinn Tinna Royal sýninguna Wild About You um síðustu helgi. Á veggjum sýningarrýmisins hanga málverk í popplistarstíl. Í verkunum skapar Tinna myndasögupersónum frá 5. áratug síðustu aldar nýtt samhengi sem afhjúpar vandræðaleg samskipti, úreltar staðalímyndir og gamalkunnar aksjónhetjur. Slegið verður á þráðinn til Ólafs Kjartans Sigurðarssonar óperusöngvara sem hefur í nógu að snúast þessa dagana á óperusviðum Þýskalands en í Óperukvöldi Útvarpsins á annað kvöld verður á dagskrá Rásar 1 hljóðritun af óperunni Tannhäuser eftir Richard Wagner þar sem Ólafur Kjartan fer með eitt aðalhlutverkanna. Breski kórstjórinn Graham Ross verður einnig tekin tali í þætti dagsins en hann stjórnar kór Clare College háskólans frá Cambridge á tónleikum í Hallgrímskirkju á laugardag. Og að endingu segir Snæbjörn Brynjarsson, leiklistarrýnir Víðsjár, hlustendum skoðun sína á grínleiknum Bíddu bara í Gaflaraleikhúsinu. Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Guðni Tómasson.
Í þætti dagsins fáum við tónlistarmenn í heimsókn. Pan Thorarensen og Þorkell Atlason gáfu nú á dögunum út plötuna Tunglleysa en hún er tilraunakennt sveimverk sem þeir hafa unnið með góðum gestum á borð við Katrínu Mogensen, Claudio Puntin og Mari Kalkun. Sagt verður frá tyrkneska rithöfundinum Eilif Shafak en hún fékk um helgina bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness sem afhent voru í tengslum við Bókmenntahátíð í Reykjavík. Hlustendur heyra brot úr viðtali við Shafak sem Jórunn Sigurðardóttir tók við hana við það tilefni. Snæbjörn Brynjarsson leiklistargagnrýnandi Víðsjár fjallar um söngleikinn Hlið við hlið sem sýndur er um þessar undir í Gamla bíói. Og loks verður Friðrika Benónýsdóttir tekin tali en á dögunum var endurútgefin ævisaga Friðriku um Ástu Sigurðardóttur rithöfund og myndlistarkonu, en hún kom út árið 1992 og heitir Minn hlátur er sorg. Umsjón: Guðni Tómasson og Tómas Ævar Ólafsson
Í Víðsjá dagsins segir Snæbjörn Brynjarsson, leikhúsgagnrýnandi þáttar, okkur frá frægustu ástarsögu allra tíma, leikritinu Rómeó og Júlíu sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu um þessar mundir í leikstjórn Þorleifs Arnars Arnarssonar. Handritið í sýningunni hefur vakið nokkra athygli fyrir aðgengileika sinn, þýðingin er ný og talmálsleg. Það eru þau Jón Magnús Arnarsson og Harpa Rún Kristjánsdóttir sem þýða. Hljómsveitin Sparks skýtur einnig upp kollinum í þætti dagsins. Bræðurnir Ron og Russel Meal hafa í ár skrifað og samið tónlistina fyrir kvikmyndina Annette sem frumsýnd var á kvikmyndahátíðinni í Cannes í sumar en einnig er að koma út heimildarmynd um bræðurnar. Einnig vekur það athygli að í ár 2021 eru komin 50 ár frá útgáfu fyrstu plötu þeirra og því ætlum við í Víðsjá að gefnu tilefni að velta okkur aðeins uppúr þessari skemmtilegu hljómsveit í þætti dagsins. Arnljótur Sigurðsson verður með okkar að vana með tónlistarhornið Heyrandi nær. Í dag minnist hann hins geggjaða snillings Lee Perry. Við fáum að liggja á hleri í heimastúdíói hans Svörtu Örkinni, þar sem hann framleiddi margar grundvallarplötur reggítónlistarinnar og þróaði áfram hina byltingarkenndu döbb tónlist. Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Guðni Tómasson
Í Víðsjá í dag verður meðal annars fræðst um sirkuslistahópinn Hringleik sem vinnur að því að byggja upp og styrkja sirkusmenningu á Íslandi með uppsetningu fjölbreyttra sirkussýninga, námskeiðshaldi og sirkusiðkun fyrir sirkusfólk. Hópurinn frumsýndi í Tjarnarbíói fyrir helgina nýsirkussýninguna Allra veðra von en sýningin er unnin í samstarfi við leikhópinn Miðnætti sem sér um leikstjórn, tónlist, búninga og leikmynd. Karna Sigurðardóttir og Eyrún Ævarsdóttir segja frá sýningunni og starfsemi Hringleiks í Víðsjá í dag. Ásmundarsafn í Laugardalnum verður heimsótt og þar rætt við myndlistarkonuna Sirru Sigrúnu Sigurðardóttur en á nýrri sýningu sem heitir Ef lýsa ætti myrkri á hún í samtali við verk Ásmundar Sveinssonar og bygginguna sjálfa. Gauti Kristmannsson bókmenntagagnrýnandi Víðsjár fjallar um splúnkunýja íslenska skáldsögu, Merki, eftir Sólveigu Johnsen. Og Snæbjörn Brynjarsson leiklistargagnrýnandi þáttarins fjallar í dag um leikritið Veislu sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu fyrir helgi.
Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Hörð Áskelsson um tónlistarlíf í Hallgrímskirkju en Hörður lætur nú af störfum sem organisti og kantor við kirkjuna eftir tæplega fjörutíu ára starf. Einnig verður sagt frá nýrri plötu með ensku tónlistarkonunni Marianne Faithfull, platan nefnist She Walks in Beauty, þar flytur Faithful ellefu ljóð eftir rómantísk skáld 19. aldar en plötuna vann hún með ástralska tónlistarmanninum Warren Ellis sem þekktastur er fyrir samstarf sitt við Nick Cave. Arnljótur Sigurðsson heldur áfram í tónlistarhorninu Heyrandi nær að skoða tónlistarlegar rætur rafbræðingstónlistar Miles Davis, en í pistli dagsins tekur hann fyrir tónlistarkonuna Betty Davis og skoðar þau mótandi tónlistarlegu áhrif sem hún hafði á sinn þáverandi, Miles Davis. Og Snæbjörn Brynjarsson leikhúsgagnrýnandi Víðsjár fjallar í dag um leikritið Haukur og Lilja eftir Elísabetu Jökulsdóttur sem frumsýnt var í Ásmundarsal í síðustu viku.
Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Barða Jóhannsson tónlistarmann en í síðustu viku kom út plata sem hefur að geyma tónlist sem Barði samdi við kvikmyndina Agony eftir ítalska kvikmyndaleikstjórann Michele Civetta. Einnig verður fjallað um nýútkomna bók um Kúbudeiluna og þýsku messó-sópransöngkonunnar Christu Ludwig minnst, en hún lést nú á dögunum á tíræðisaldri. Snæbjörn Brynjarsson leiklistargagnrýnandi Víðsjár fjallar í dag um leikritið Nashyrningana eftir fransk-rúmenska leikskáldið Eugéne Ionesco sem frumsýnt var í Þjóðleikhúsinu í síðustu viku. Og óslípaði tónlistardemanturinn There's a Riot Going on með bandarísku hljómsveitinni Sly and the Family Stone verður í brennidepli í tónlistarhorninu Heyrandi nær, en á þessu ári eru fimmtíu ár liðin frá útgáfu þessarar tímamótaplötu.
Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Benedikt Erlingsson leikstjóra, en Þjóðleikhúsið frumsýnir á föstudag leikritið Nashyrningana eftir fransk-rúmenska leikskáldið Eugene Ionesco í leikstjórn Benedikts. Leikritið var fyrst sýnt árið 1959 og fór í kjölfarið sigurför um heiminn, verk sem fjallar mögulega um múgsefjun og múgsálir, verk sem hefur verið sett upp oft og víða, enda margir þeirrar skoðunar að það spyrji enn áleitinna og ögrandi spurninga. Í Víðsjá verður einnig forvitnast um nýja útgáfu Hins íslenska gítartríós á nýjum verkum nokkurra íslenskra tónskálda fyrir þrjá gítara. Og Snæbjörn Brynjarsson leikhúsgagnrýnandi þáttarins fjallar í dag um leiksýninguna 9 líf sem fjallar um líf og list Bubba Morthens en hún fer aftur á fjalir Borgarleikhússins eftir nokkurt hlé í apríl.
Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Úlf Hansson, tónskáld og hljóðlistamann, sem hlaut um helgina hin bandarísku Guthmann-verðlaun fyrir Segulhörpu, hljóðfæri sem hann hefur verið að þróa undanfarin ár. Guthmann Musical Instrument Competition er virt hátíð á sviði nýsköpunar í tónlist en verðlaunin eru veitt einum listamanni ár hvert. Í tónlistarhorninu Heyrandi nær fjallar Arnljótur Sigurðsson um hina stórkostlega geggjuðu hljómsveit Gong sem gekk svo langt með konsept-plötusmíðar sínar að úr urðu tvær trílógíur á 37 árum, en þrátt fyrir fráfall forsprakkans er allt eins líklegt að heimasmíðað ævintýri þeirra um Zero the Hero haldi áfram að þróast um ókomin ár. Einnig verður í Víðsjá í dag rætt um vont ár í listum. Og Snæbjörn Brynjarsson leiklistargagnrýnandi Víðsjár fjallar í dag um The Last Kvöldmáltíð, nýtt íslenskt leikverk eftir Kolfinnu Nikulásdóttur, sem frumsýnt var í leikstjórn Önnu Maríu Tómasdóttur í Tjarnarbíói í síðustu viku.
Í Víðsjá í dag verður meðal annars sagt frá nýjustu skáldsögu breska rithöfundarins Kazuo Ishiguro en hún kom út á dögunum og nefnist Klara and the Sun. Þetta er áttunda skáldsaga Ishiguros, og sú fyrsta sem hann sendir frá sér eftir að hann hlaut Nóbelsverðlaun í bókmenntum árið 2017. Bókin hefur nú þegar fengið frábæra dóma, gagnrýnendur tala um meistaraverk. Víðsjá hugar líka að argentínska tónskáldinu Astor Piazzolla en í vikunni verða hundrað á liðinn frá fæðingu hans. Olivier Manoury segir frá tónskáldinu en hann kemur fram á tónleikum með Kordo kvartettinum í Salnum í Kópavogi sem haldnir verða tónskáldinu til heiðurs. Snæbjörn Brynjarsson leiklistargagnrýnandi Víðsjár fjallar í dag um leiksýninguna Sunnefu sem leikhópurinn Svipir frumsýndi í leikstjórn Þórs Tulinius Tjarnarbíói í síðustu viku, en verkið fjallar um Sunnefu Jónsdóttur sem var tvisvar dæmd til dauða fyrir blóðskömm á fyrri hluta 18. aldar, en reis upp gegn yfirvaldinu. Og tónlistarhornið Heyrandi nær verður á sínum stað í Víðsjá á mánudegi, að þessu sinni beinir Arnljótir Sigurðsson stækkunarglerinu að hinu bandaríska, dúnmjúka og dáleiðandi bandi frá sjötta áratugnum, The Fleetwoods, hvers unaðstónar gáfu unglingum gæsahúðir fyrir sextíu árum síðan.
Í Víðsjá í dag verður meðal annars frá ritinu Mondo Cane sem kom út hjá forlaginu Þremur höndum seint á síðasta ári. Ritið hefur að geyma íslenskar þýðingar Áslaugar Agnarsdóttur á safni örsagna eftir belgíska listamannatvíeykið Jos de Gruyter og Harald Thys sem upphaflega fylgdi samnefndri myndlistarsýningu sem sett var upp í belgíska skálanum á Feneyjartvíæringnum árið 2019. Nína Óskarsdóttir útgefandi og myndlistarkona segir frá í Víðsjá í dag. María Elísabet Bragadóttir rithöfundur kveður sér hljóðs öðru sinni í Víðsjá á fimmtudegi, undir yfirskriftinni Sannleikskorn, draugasögur koma við sögu að gefnu tilefni hjá Maríu í dag. Tilkynnt var í Gunnarshúsi, húsi Rithöfundasambands Íslands, í morgun hvaða verk eru tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs að þessu sinni. Af Íslands hálfu eru tilnefnd verkin Aðferðir til að lifa af, skáldsaga Guðrúnar Evu Mínervudóttur frá árinu 2019, og Um tímann og vatnið, eftir Andra Snæ Magnason, sömuleiðis frá árinu 2019. Hlustendur heyra í þeim Guðrúnu og Andra í þættinum í dag. Einnig verður hugað að nýjum handhafa íslensku myndlistarverðlaunanna, fjórir listamenn voru tilnefndir til verðlaunanna að þessu sinni, en afhendingin fór fram í dag, þetta var í fjórða sinn sem Myndlistarráð úthlutar þessum verðlaunum. Og Snæbjörn Brynjarsson leiklistargagnrýnandi Víðsjár fjallar í þættinum í dag um leiksýninguna Stúlkan sem stöðvaði heiminn sem sýnd er á Litla sviði Borgarleikhússins. Sýningin er unnin í samvinnu við sviðslistahópinn 10 fingur en hann hefur um árabil lagt áherslu á að setja upp sýningar sem börn og fullorðnir geta notið saman, og hefur sérhæft sig í listsköpun á mörkum leikhúss og myndlistar. Leikstjóri sýningarinnar er Helga Arnalds.
Að gefnu tilefni verður í Víðsjá í dag rifjuð upp tilkoma einhvers frægasta kvikmyndadúós allra tíma, félaganna og erkióvinanna Tomma og Jenna. Farið verður í heimsókn til Guðrúnar Hannesdóttur rithöfundar sem tók við Íslensku þýðingaverðlaununum á Gljúfrasteini á laugardag, fyrir þýðingu sína á skáldsögunni Dyrnar eftir ungverska rithöfundinn Mögdu Szabó. Það var Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands sem afhenti verðlaunin en alls voru sjö bækur tilnefndar að þessu sinni. Snæbjörn Brynjarsson leiklistargagnrýnandi Víðsjár fjallar í dag um leikritið Sölumaður deyr sem Borgarleikhúsið frumsýndi um helgina í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Og tónlistarhornið heyrandi nær verður á sínum stað í Víðsjá á mánudegi. Að þessu sinni tekur Arnljótur Sigurðsson tvö lög tvisvar fyrir, fer í kúrekaleik með Andy Warhol og fylgir hlustendum á slóðir frumbyggja Norður-Ameríku.
Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Gunnar Þorra Pétursson bókmenntafræðing um skáldsöguna Karamazov bræðurna eftir rússneska rithöfundinn Fjodor Dostójevskí en á dögunum var endurútgefin þýðing Ingibjargar Haraldsdóttur á þessu mikla verki, þýðing Ingibjargar kom fyrst út á árunum 1990 og 1991 og hefur verið ófáanleg um langt árabil. Í tónlistarhorninu Heyrandi nær leiðir Arnljótur Sigurðsson hugann að tónlist sem samofin er nokkrum tískudönsum sem náðu fótfestu víða um veröld. Snæbjörn Brynjarsson, leiklistargagnrýnandi Víðsjár, fjallar í dag um "Úff, hvað þetta er slæm hugmynd" sem leikhópurinn PóliS sýnir í Tjarnarbíói. Einnig verður hugað í Víðsjá í dag að Hugarflugi, rafrænni ráðstefnu sem Listaháskóli Íslands heldur næstu daga og hefst í dag.
Í Víðsjá í dag verður meðal annars hugað að árlegri Japanshátíð sem Háskóli Íslands stendur að í samstarfi við Sendiráð Japans í Reykjavík, Íslensk-japanska félagið og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur. Allir viðburðir fara að þessu sinni fram á netinu og eiga sameiginlegt að hafa japanskt mál og menningu sem viðgangsefni, en sjónarhornin eru fjölbreytt. Þátttakendur fá þannig að kynnast m.a. matargerð, bókmenntum, þjóðtrú, trúarbrögðum, manga-teikningum og tungumálinu sjálfu. Flestir viðburðanna bjóða upp á gagnvirka þátttöku á Zoom, en þeim verður einnig streymt á Facebook. Rætt verður við Kristínu Ingvarsdóttur, lektor í japönskum fræðum við Háskóla Íslands. Litið verður við í Hverfisgalleríi við Hverfisgötu og rætt við Helenu Margréti Jónsdóttur um sýninguna Draugur upp úr öðrum draug. Á bakvið hverja karlhetju er oftast nær að finna styttu og stoð, jafnan öfluga eiginkonu sem á drjúgan þátt í velgengni maka síns og hvetur til dáða. Í tónlistarhorninu Heyrandi nær ætlar Arnljótur Sigurðsson að rýna í Ungfrú Lillian Hardin Armstrong og hennar lykilhlutverk í umbreytingu djasstónlistar fyrir 100 árum síðan. Og Snæbjörn Brynjarsson leikhúsgagnrýnandi Víðsjár fjallar í dag um brúðusýninguna Geim mér ei sem Þjóðleikhúsið sýnir um þessar mundir.
Í Víðsjá í dag verður María Huld Markan Sigfúsdóttir tónskáld tekin tali um tvö ný lög sem hún sendi frá sér fyrir helgi við ljóð Vilborgar Dagbjartsdóttur. Á laugardag voru 45 ár liðin frá útkomu hljómplötunnar Station to station með David Bowie. Platan er gjarnan talin ein af allra bestu plötum Bowies, Víðsjá rifjar upp í dag og ræðir við Sindra Freysson rithöfund. Snæbjörn Brynjarsson leikhúsrýnir þáttarins fjallar í dag um leiksýninguna Vertu úlfur sem frumsýnd var í Þjóðleikhúsinu fyrir helgi. Og í tónlistarhorninu Heyrandi nær skoðar Arnljótur Sigurðsson að þessu sinni farsælan feril bandarísku tónlistarkonunnar Sylviu Robinson frá því hún byrjaði sautján ára gömul og þar til hún olli straumhvörfum sem einn af brautryðjendum hip hop tónlistar.
Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Agnesi Wild leikstjóra og leikkonu en leikhópurinn Miðnætti frumsýnir í Kassa Þjóðleikhússins um helgina nýja brúðusýningu sem nefnist Geim-mér-ei. Hugað verður að sýningu í Ludwig safninu í Köln en alvarleg staða varðandi falsanir í safneigninni kom upp í undirbúningi sýningarinnar. Snæbjörn Brynjarsson fjallar um tónleikhúsverkið Fuglabjargið sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. Og Gauti Kristmannsson bókmenntagagnrýnandi Víðsjár fjallar í dag um skáldsöguna Örvæntingu eftir Vladimir Nabokov en verkið kom nýlega út í íslenskri þýðingu Árna Óskarssonar. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson.
Víðsjá minnist í dag Jóhanns Hjálmarssonar skálds og gagnrýnanda en hann andaðist í síðustu viku, áttatíu og eins árs að aldri. Jóhann gaf á sínum tíma út átján ljóðabækur, sú fyrsta, Aungull í tímann, kom út árið 1956, þegar Jóhann var aðeins sautján ára gamall. Jóhann var mikilvirkur ljóðaþýðandi og starfaði sem menningarblaðamaður á Morgunblaðinu áratugum saman. Hlustendur heyra brot úr viðtölum við Jóhann í þættinum í dag, auk upplestra, en einnig er rætt við rithöfundinn Jón Kalman Stefánsson um höfundarverk Jóhanns. Einnig verður í þættinum í dag farið í Hamraborgina í Kópavogi þar sem gallerí Midpunkt er til húsa. Í galleríinu hafa þau Ragnheiður Sigurðardóttir og Snæbjörn Brynjarsson síðastliðin tvö ár miðað að því að færa listina nær fólkinu, nær hversdagsleikanum. Rætt verður við Ragnheiði um rekstur listrýmis í Kópavogi og sýningin Secret Services, leyniþjónustan, skoðuð, en þetta er fyrsta einkasýning Rúnars Arnar Jóhönnu- og Marínóssonar. Og bók vikunnar á Rás 1 að þessu sinni kemur frá Ungverjalandi. Það er skáldsagan Dyrnar eftir ungverska rithöfundinn Mögdu Szabó sem kom út fyrr á þessu ári í íslenskri þýðingu Guðrúnar Hannesdóttur. Þetta er óvenjuleg og áleitin saga um samband tveggja kvenna, bók sem vakti gríðarlega athygli þegar hún kom fyrst út árið 1987, hefur verið þýdd á mörg tungumál, og hlotið verðskuldað lof og verðlaun. Bókin var meðal annars kjörin ein af tíu bestu bókum ársins 2015 af bandaríska stórblaðinu The New York Times. Umsjón: Eiríkur Guðmundsson
Morgunútvarpið mið. 29.10.2020. Umsjón: Sigmar Guðmundsson og Rúnar Róbertsson. Í sumar tók Anna S Bragadóttir við Háskólagrunni Háskólans í Reykjavík. Í síðustu viku tók hún sig til ásamt skrifstofustjóra deildarinnar og hringdi í alla nemendurna, 140 manns, til að heyra í þeim hljóðið núna þegar allt er með öðrum hætti en venjulega í samfélaginu. Við heyrðum í henni hljóðið. Anna Sigríður Þráinsdóttir kom og flutti sinn vikulega pistil um íslenskt mál. Almaavarnir hafa beint þeim tilmælum til almennings að vera ekki að ferðast mikið á milli landshluta. Þá hafa veiðimenn verið beðnir um að taka þetta til sín en núna á sunnudaginn hefst rjúpnaveiðitímabilið. Við heyrðum í Jóni Víði Haukssyni hjá Skotvís. Eins og fram kom í gær hafa yfirvöld áhyggjur af því hvernig faraldurinn er að þróast. Rauð flögg hér og þar sagði sóttvarnarlæknir í gær og allt útlit fyrir að sóttvarnarráðstafanir verði hertar enn frekar. við heyrðum í Ragnari Frey Ingvarssyni, yfirlækni á Covid göngudeildinni og fáum hans mat á stöðunni. Léttvín eru af ýmsum toga og sumum finnst þessi heimur flókin. Hvaða vín passar með hvaða mat, hvaða eiginleika gera vín gott o.sv.frv. Hafliði Már Brynjarsson er annar tveggja sem kemur að vefsíðunni Vínleit sem er sett upp til að aðstoða fólk við leit að rétta víninu eða bara fyrir áhugasama um vínmenningu. Við heyrðum í Hafliða sem er mikill áhugamaður um góð vín. Tónlist: Sycamore tree - Home again Adele - When we were young Baggalútur - Er ég að verða vitlaus eða hvað Bubbi Morthens - Fallegur dagur Of monsters and men - King and lionheart U2 - Red hill mining town GDRN - Af og til Billy Joel - Movin out Emilíana Torrini - Tookah George Michael - Freedom 90
Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Ófeig Sigurðsson rithöfund sem á dögunum sendi frá sér sitt fyrsta smásagnasafn sem nefnist Váboðar. Sagt verður frá verðlaunahöfum ársins hjá breska tónlistartímaritinu Gramophone, en það verðlaunar þær upptökur með sígildri tónlist sem staðið hafa upp úr að undanförnu. Og Snæbjörn Brynjarsson segir hlustendum skoðun sína á sýningunni "Útlendingurinn - morðgáta" sem frumsýnd var í Borgarleikhúsinu á dögunum. Umsjón: Eiríkur Guðmundsson og Guðni Tómasson
Víðsjá 6. Október 2020 Nýlega kom út á íslensku hjá bókaforlaginu Uglu ein þekktasta skáldsaga austuríska rithöfundarins og Nóbelsverðlaunahafans Peters Handkes, Ótti markmannsins við vítaspyrnu. Franz Gíslason þýddi verkið á íslensku en Jón Bjarni Atlason bjó þýðinguna til prentunar og ritar eftirmála um þennan merka höfund og verk hans. Rætt verður við Jón í Víðsjá í dag. Snæbjörn Brynjarsson segir hlustendum skoðun sýna á leikverkinu Upphaf eftir David Eldridge sem frumsýnt var í Þjóðleikhúsinu á döguna. Rödd Svövu Jakobsdóttur fær að hljóma í þættinum en á sunnudag voru 90 ár liðin frá fæðingu hennar. Við heyrum Svövu lesa brot úr Leigjandanum, skáldsögu frá 1969. Jafnframt verður fjallað um kongólska aktivistann Mwazulu Diyabanza sem mætti fyrir dóm í síðustu viku ákærður fyrir þjófnað inni á frönsku safni fyrr á árinu. Umsjón: Eiríkur Guðmundsson og Guðni Tómasson
Í Víðsjá í dag verður Hafnarhús Listasafns Reykjavíkur heimsótt til að huga að stóru listaverkefni Ólafs Ólafssonar og Libíu Castro sem heitir í Leit að töfrum og hverfist um tillöguna að nýrri stjórnarskrá fyrir Lýðveldið Ísland. Sýningar- og framkvæmdastjórar verkefnisins, Guðný Guðmundsdóttir og Sunna Ástþórsdóttir segja okkur frá. Rætt verður við Bryndísi Loftsdóttur hjá Félagi íslenskra bókaútgefanda um nýtt fyrirkomulag íslensku bókmenntaverðlaunana. Snæbjörn Brynjarsson fjallar um Kópavogskróníkuna í Þjóðleikhúsinu. Og Gauti Kristmannsson fjallar um skáldsöguna Tíkina eftir kolumbíska rithöfundinn Pilar Quintana sem nýlega kom út í íslenskri þýðingu Jóns Halls Stefánssonar. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson
Í Víðsjá dagsins verður rætt er við Guju Dögg Hauksdóttur arkitekt um sýninguna PREFAB / FORSMÍÐ sem opnaði um liðna helgi í Skaftelli, Menningarmiðstöð Austurlands. Á sýningunni er farið yfir fagurfræði og sögu norsku einingahúsanna sem risu við Seyðisfjörð í byrjun síðustu aldar, auk einingahúss eftir Le Corbusier og norsku arkitektana Rintala Eggertsson. Bók vikunnar að þessu sinni er skáldsagan Beðið eftir barbörunum eftir nóbelskáldið John Maxwell Coetzee. Tveir þýðendur komu að verkinu, þau Sigurlína Davíðsdóttir og Rúnar Helgi Vignisson, og segja þau frá bókinni í Víðsjá dagsins. Snæbjörn Brynjarsson segir frá upplifun sinni af samtímaóperunni Ekkert er sorglegra en manneskjan sem frumsýnd var á dögunum í Tjarnarbíói og er eftir Friðrik Margrétar Guðmundsson og Adolfs Smára Unnarssonar. Ennfremur verður fjallað um umdeilda myndlistarsýningu sem farin er að valda titringi löngu áður en hún er komin upp, en á dögunum bárust fréttir um það sýningu sem átti að fara í fjögur mikilvæg myndlistarsöfn, vestan hafs og austan, hefði verið slegið á frest vegna viðkvæms myndefnis. Við segjum frá listamanninum Philip Guston í þætti dagsins og ræðum við Hallgrím Helgason rithöfund um Guston og verk hans.
Í Víðsjá í dag verður meðal annars haldið í heimsókn í Listasafn Reykjanesbæjar og rætt við nýjan safnstjóra safnsins, Helgu Þórsdóttur, sem tók við rekstri þess fyrr á árinu. Þar er nú uppi sýningin Áfallalandslag en á henni eiga verk Ósk Vilhjálmsdóttir, Halldór Ásgeirsson, Rannveig Jónsdóttir og Gjörningaklúbburinn. Listasafnið hefur nýverið stækkað nokkuð þegar annar salur var tekinn undir samtímamyndlist þar á bæ. Hugað verður að listaverki eftir Ragnar Kjartansson í kirkju einni í Mílanó. Leiklistargagnrýni: Snæbjörn Brynjarsson segir hlustendum skoðun sína á leikritinu Oleanna eftir David Mamet sem er fyrsta frumsýning Borgarleikhússins á nýju starfsári. Þjóðminjasafnið verður einnig heimsótt í þættinum en þar er sýningin Saga úr jörðu nú uppi. Hrönn Konráðsdóttir fornleifafræðingur segir fá sýningunni sem að rekur sögu fornleifarannsókna á Hofsstöðum í Mývatnssveit. Fjallað um bók vikunnar sem er endurtekin - Farenheit 451eftir Ray Bradbury. Þórdís Bachmann segir frá bókinni (endurtekið)
Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við nýjan handhafa viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, en hún verður afhent í Þjóðarbókhlöðunni á fimmta tímanum í dag. Hagþenkir hefur frá árinu 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit og námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings. Árið 2006 var tekin upp sú nýbreytni að tilnefna 10 höfunda og rit sem þykja framúrskarandi og til greina koma, tíu höfundar voru tilnefndir í febrúar, einn þeirra hefur verið valinn og heimsækir Víðsjá í dag. Einnig verður í þætti dagsins rætt við Særúnu Lísu Birgisdóttur þjóðfræðing um hvaða áhrif það hafði á samfélag samkynhneigðra karlmanna á Íslandi þegar erlent herlið kom til landsins í fyrri heimsstyrjöld, en Særún Lísa flutti fyrirlestur um þessi mál hjá Sagnfræðingafélagi Íslands í gær, og kallaði: „Og svo kom Kaninn“. Snæbjörn Brynjarsson fjallar um barna-leikhússýningarnar Hans Klaufa sem er á fjölunum í Tjarnarbíói og Karíus og Baktus sem sýnd er í Kaldalónssal Hörpu. Og bók vikunnar á Rás 1 að þessu sinni er skáldsagan Blinda eftir portúgalska Nóbelsverðlaunahöfundinn José Saramago. Bókin kom út á frummálinu árið 1995 og var þýdd á íslensku árið 2000 af Sigrúnu Ástríði Eiríksdóttur. Þar segir frá sérkennilegum faraldri sem breiðist út og blindar þá sem smitast og því hvernig samfélagið bregst við. Hlustendur heyra í Sigrúnu í Víðsjá í dag. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson
Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Benedikt Kristjánsson tenorsöngvara en hann flytur á morgun Jóhannesarpassíu Bachs í óvenjulegri útgáfu þar sem undirleikur er aðeins í höndum slagverksleikara og orgelleikara sem einnig leikur á sembal. Flutningurinn fer fram í Hallgrímskirkju annað kvöld en útgáfa þessi hefur fengið mikið lof í Þýskalandi og Hollandi og til stendur að tónlistarfólkið flytji hana víða um lönd í framhaldinu. Einnig verður í þættinum í dag fjallað um nýja kennsluskrá, skrá yfir skyldulesningu, sem gefin hefur verið út í Ungverjalandi þar sem ýmsir helstu höfundar þjóðarinnar koma ekki við sögu. Þeirra á meðal er Imre Kertész sem var fyrstur Ungverja til að hljóta Nóbelsverðlaun í bókmenntum, árið 2002, verðlaun sem hann hlaut ekki síst fyrir skáldsögu sína Örlögleysi, þar sem fjallað erum lífið í fangabúðum nasista. Nýji listinn hefur vakið athygli, og umtal, enda stjórnvöld í Ungverjalandi afar umdeild, málið verður rætt í Víðsjá í dag, gestur þáttarins verður Benedikt Hjartarson, prófessor í almennri bókmenntafræði og menningarfræði við Háskóla Íslands. Gauti Kristmannsson bókmenntagagnrýnandi fjallar í dag um um sjálfsævisöguna Þýski krókódíllinn eftir þýska rithöfundinn ljoma Mangold en hún vakti mikla athygli þegar hún kom út árið 2017. Mangold hefur komið til Íslands á bókmenntahátíð og er þekktur höfundur og menningarblaðamaður í Þýskalandi. Og Snæbjörn Brynjarsson leiklistargagnrýnandi fjallar í dag um Rhythm of Poison, glænýtt verk eftir finnska danshöfundinn Elinu Pirinen, sem Íslenski dansflokkurinn frumsýndi á Nýja sviði Borgarleikhússins á föstudag. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson
Í Víðsjá dagins verður haldið í heimsókn í miðstöð sem helguð er eistneska tónskáldinu Arvo Pärt og leynist í skógi skammt utan við Tallinn, höfuðborg landsins. Þar tók starfsfólk miðstöðvarinnar og sonur tónskáldsins á móti hópi norræns og baltnesks útvarpsfólks í síðustu viku. Greint verður frá heimsókninni og miðstöðinni í þætti dagsins, en hún er sú eina sinnar tegundar sem helguð er arfleifð núlifandi tónskálds. Um þessar mundir eru fimmtíu ár liðin frá útkomu hljómplötunnar Bitches Brew með bandaríska trompetleikaranum Miles Davis. Platan markaði tímamót á ferli Davis, og raunar í gjörvallri sögu jazztónlistar. Davis og félagar fóru í nýjar og óvæntar átti á plötunni, blönduðu saman tilraunakenndri jazztónlist, rokki og ,,síkadelíu", svo nokkuð sé nefnt. Tónlistarmaðurinn Eyþór Gunnarsson heimsækir Víðsjá í dag og rifjar með hlustendum upp þetta tímamótaverk. Leikhúsrýnin verður á sínum stað, Snæbjörn Brynjarsson fjallar í dag um Útsendingu sem Þjóðleikhúsið frumsýndi fyrir helgina, Og bók vikunnar að þessu sinni er skáldsagan Ó - Um þegnrétt tegundanna í íslenskri náttúru eftir Hauk Má Helgason. Hlustendur heyra í Hauki í þættinum í dag. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson
Bjarki Brynjarsson, eins og svo margir aðrir, var ekki viss um hvað hann vildi taka sér fyrir hendur við útskrift úr Verzlunarskóla Íslands. Fyrir algjöra tilviljun, ævintýraþrá og hvatvísi skráir hann sig í norska herinn. 7 árum síðar er Bjarki 28 ára gamall lieutenant innan fallbyssu herdeildar hersins með 30 undirmenn. Leiðin þangað var ekki áfallalaus, inntökuprófið í herinn (hell-week) var bara forsmekkurinn af einhverskonar hell-year sem var í vændum en hann útskýrir ítarlega fyrir okkur hvernig áreiti og álagi er beitt til að byggja upp og styrkja karakter hermannannna. Vopnaþjálfun, agi, heræfingar, stríðsuppsetning, þægindaramminn, endurlífgun, skipun til að taka líf, þrekpróf, gönguskíði, basúkkur og fleiri óhversdagslegir hlutir eru ræddir í þessum þætti ásamt innsýn í aðstæður sem Bjarki gekk í gegnum til að hljóta vinnuheitið Platoon commander.
Gestir þáttarins voru Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar, Snæbjörn Brynjarsson, varaþingmaður Pírata, Jón Ólafsson heimspekingur, Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Þau ræddu meðal annars viðbrögð í málum þar sem stjórnmálamenn verða uppvísir að óviðeigandi hegðun, veggjöld og innviðauppbyggingu og lífróður Wow-air.