POPULARITY
Sunnudagurinn 11. maí Synir Egils: Auðlindir, innviðir, traust og svik Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessi sinni koma þau fyrst Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ og þingmennirnir Halla Hrund Logadóttir og Sigmar Guðmundsson. Síðan taka þau við Árni Helgason lögmaður og varaþingmaður, Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins og Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar og ræða veiðigjöld, bankasölu og fleira. Í lokin taka þeir bræður stöðuna á pólitíkinni með sínu nefi.
Gestir Vikulokanna eru Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokks og fyrrverandi ráðherra og Eiríkur Hjálmarsson sjálfbærnistjóri hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Þau ræddu meðal annars fyrstu 100 daga Donalds Trump í embætti forseta Bandaríkjanna, njósnamálið, gervigreind, menntamál, vinnumarkaðinn og rafmagnsleysi á Spáni og í Portúgal. Umsjónarmaður: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Hér er Lilja spurð eftirfarinna spurninga:- Afhverju hatar Lilja Alfreðsdóttir borgarlínuna?- Er Framsókn sá flokkur sem mun taka til í ríkisrekstrinum?- Yrði Framsókn ekki sama hækjan og í borginni ef þau færu í samstarf með Samfylkingunni?Njótið!
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins um stjórnmálin. Sigríður Andersen fyrrverandi ráðherra um stjórnmálin. Össur Skarphéðinsson fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar um pólitíkina. Lilja Alfreðsdóttir alþingismaður um pólitíkina.
Dominos
Í þessum þætti: Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfuilltrúi um fjölmiðla, lýðræði og styrki. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins um átök Ísrael og Palestínu. Rætt um stöðuna á Reykjanesinu: Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur Víðir Reynisson sviðsstjóri Almannavarna Fannar Jónasson bæjarstjóri í Grindavík Willum þór Þórsson heilbrigðismálaráðherra Katrín Jakobsdóttir forsætisráherra
28. september 2023. 32 ára karlmaður var handtekinn í Rotterdam í Hollandi síðdegis eftir banvænar skotárásir í íbúð og á sjúkrahúsi. Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir lokuð búsetuúrræði ekki geta leyst vanda sem upp sé kominn vegna fólks sem fengið hafi endanlega synjun um alþjóðlega vernd. Dómsmálaráðherra er ósátt við nýjan samning ríkisins við Rauða krossinn um neyðaraðstoð fyrir þennan hóp. Verðbólga mælist átta prósent og hefur hækkað lítils háttar frá fyrri mánuði. Verðbólgan fór mest í um tíu prósent í byrjun árs. Hagfræðingur Íslandsbanka, segist gera ráð fyrir að verðbólgan mjakist hægt niður á næstu mánuðum. Ringulreið, hópþrýstingur og hefndarhugur einkenndi hnífaárás á skemmtistaðnum Bankastræti Club þann 17. nóvember í fyrra. Hópur manna sem réðst að þremenningum á staðnum sagðist fyrir dómi hafa fengið nóg af hótunum þeirra og ofbeldi. Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra segir að Samkeppniseftirlitið sé fámennt en að fjárframlög hafi aukist. Sérstök umræða um Samkeppniseftirlitið var á Alþingi í dag. Miklu skiptir að fólk hafi aðgang að áreiðanlegum fréttum en það er ekki bara fjölmiðlanna sjálfra að tryggja að fólk geti vinsað úr upplýsingaflaumnum sem á því dynur, segir Ingibjörg Þórðardóttir fyrrverandi ritstjóri hjá BBC og CNN og núverandi stjórnarmaður hjá Open Democracy og Coda story. Holskefla þjófnaða ríður yfir verslanir í Bretlandi. Vopnuð gengi sópa varningi í poka og hverfa á brott í skyndi. Tjónið nemur hátt úi milljarði sterlingspunda á ári. Námsárangur og ánægja hefur aukist meðal nemenda Háskólans á Akureyri eftir að fjarnám var bætt. Fjarkennsla við HA hófst fyrir 25 árum og situr skólinn því nokkuð framarlega á merinni í þeim málum. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Spegillinn 6. september 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Þrír eru grunaðir um að hafa kveikt í bíl lögreglukonu um miðjan ágúst. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu voru sex handteknir í tengslum við rannsókn málsins og var einn þeirra úrskurðaður í nokkurra daga gæsluvarðhald. Lilja Alfreðsdóttir, viðskipta- og neytendamálaráðherra útilokar ekki að lækka arðsemiskröfu á Landsbankann, sem er í eigu ríkisins, og með því kostnað neytenda. Ráðherra er með tvö frumvörp um neytendavernd í smíðum. Benedikt Sigurðsson talaði við hana. Ekkert er því lengur til fyrirstöðu að fjörutíu og þrjú þúsund tonn af brennanlegum úrgangi verði fluttur til Svíþjóðar, eftir úrskurð kærunefndar útboðsmála. Þetta er rúmlega helmingur þess úrgangs sem féll til í fyrra. Gunnar Dofri Ólafsson sviðsstjóri hjá Sorpu segir að breytingar á höfuðborgarsvæðinu hafi orðið til þess að sjötíu og fimm prósent af lífrænum úrgangi fari í þar til gerðar tunnur. Arnar Björnsson talaði við hann. Algjör viðsnúningur virðist hafa orðið á viðhorfi almennings í garð flóttafólks 60% segja að of margir flóttamenn hafi komið hingað. Jón Sigurðsson, formaður Félags talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd, telur tvennt geti útskýrt þetta, töluvert fleiri hafi sótt um vernd á Íslandi en á covid-árunum og fyrir þau og málefni hælisleitenda hafi verið áberandi undanfarið. Róbert Jóhannsson talaði við hann. Hlýjasti júnímánuður og þurrasti júlímánuður frá upphafi mælinga voru í sumar, en hvor í sínum landshluta, eins og landsmönnum ætti að vera í fersku minni. Ágúst var víðast hvar tiltölulega hlýr, hægviðrasamur og þurr. Róbert Jóhannsson sagði frá. Hljómsveitin Rolling Stones gaf í dag úr fyrsta frumsamda lagið í átján ár, og nefnist það Angry. ------------------- Í gær var kynnt upphaf starfs við sameiningu Menntaskólans og Verkmenntaskólans á Akureyri. Guðjón Hreinn Hauksson, formaður félags framhaldsskólakennara, óttast að verið sé að keyra sameiningaráform of hart og í uppsiglingu sé álíka klúður og við styttingu framhaldsskólans. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann. Gagnsókn Úkraínumanna gegn Rússum hefur gengið hægar en vonir stóðu til en sérfræðingur í varnarmálum bendir á að sóknin hafi miðað að því að þvinga rússneska herinn aftur og riðla varnarlínum þeirra. Nú sé rússneski herinn búinn að kalla til sérsveitir sínar til að stoppa í göt í varnarlínunum - það bendi til þess að búið sé að þynna út varnir Rússa. Ragnhildur Thorlacius sagði frá og heyrist í Dymitry K

Spegillinn 24. ágúst 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Sjávarlóðum í Kópavogi var úthlutað fjárfestum án auglýsingar. Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, fulltrúi Pírata í minnihluta bæjarstjórna segir að alltaf eigi að auglýsa lóðir en Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri segir málið slitið úr samhengi. Sólveig Klara Ragnarsdóttir tók saman. Forsætisráðherra Noregs tilkynnti í dag áform Norðmanna um að afhenda Úkraínu F-16 orrustuþotur. Lilja Alfreðsdóttir, viðskiptaráðherra hefur boðað fulltrúa verslanakeðja á fund sinn eftir helgi til að fá skýringu á hækkunum á dagvöra hefur hækkað á sama tíma og krónan hefur styrkst og alþjóðleg verðbólga hjaðnað. Haukur Holm talaði við hana. Seldum íbúðum hefur fækkað til muna og þær eru ódýrari að raunvirði en fyrir ári. Brynjólfur Þór Guðmundsson sagði frá. Næturakstur Strætó um helgar afmarkast ekki lengur við hverfi í Reykjavík frá og með næstu helgi þegar Mosfellsbær bætist við leiðakerfið. Kostnaður er tvær og hálf milljón króna á ári. Ari Páll Karlsson sagði frá og talaði við Regínu Ásvaldsdóttur, bæjarstjóra í Mosfellsbæ. Karlalið Breiðabliks er hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu eftir sigur á Struga í Norður-Makedóníu í dag. -------------- Hersýningar eru oft ríkur þáttur í hátíðarhöldum á þjóðhátíðardegi landa; í Úkraínu var ekki marserað en búið að stilla upp ónýtum stríðstólum Rússa sem Úkraínumenn grönduðu í upphafi innrásar Rússa. Þúsundir landsmanna streymdu svo um Kreschchatyk breiðstrætið til að bera þau augum. Björn Malmquist fréttamaður er í Kyiv, Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Pútín Rússlandsforseti minntist í dag þeirra sem létust þegar þota leiðtoga Wagner málaliðahópsins fórst. Fáum blandast hugur um að hann hafi látið skjóta hana niður. Ekki eru þó allir á því að foringinn sé allur. Ásgeir Tómasson sagði frá. Brot úr viðtölum við Ninu Krústjevu, prófessor við New School rannsóknarháskólann í New York, sérfræðingi í alþjóðamálum og við Jón Ólafsson prófessor á Morgunvaktinni á rás 1. Íbúum á Íslandi hefur fjölgað umtalsvert það sem af er þessari öld, allt útlit fyrir að 400.000 þúsunda-múrinn verði rofinn áður en árið er úti. Þessi mikla fjölgun skýrist að miklu leyti af fjölgun innflytjenda, sem eru vel yfir 70 þúsund. En hverjir eru innflytjendur? Ævar Örn Jósepsson bar þetta undir Ólöfu Garðarsdóttur, prófessor í sagnfræði og forseta hugvísindasviðs Háskóla Íslands.

Staðan í umhverfismálum hér á landi er sótsvört og aðgerðir stjórnvalda eru grænþvottur sem fær falleinkunn. Þetta segir Hjalti Már Björnsson formaður Samtaka lækna gegn umhverfisvá sem segir að lýðheilsu sé ógnað. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við hann. Ekkert símasamband er við Öskju og því gæti verði erfitt að koma boðum og viðvörunum til fólks sem er þar á ferð ef byrjar að gjósa. Lilja Alfreðsdóttir, menningarmálaráðherra segir að lengi hafi staðið til að stofna þjóðaróperu því eigi ekki að koma á óvart að fjárframlögum til Íslensku óperunnar verði hætt. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir tók saman. Utanríkisráðherra Danmerkur segir tilefni til að taka hótanir Al-Kaída vegna kóranbrenna alvarlega, til stendur að auka öryggisgæslu við sendiráð landsins. Ásta Hlín Magnúsdóttir tók saman. Fólk þarf að muna að það ber ábyrgð á eigin úrgangi og neyslu, segir Benedikt Sveinbjörnsson sem vinnur við að losa grenndargáma á höfuðborgarsvæðinu. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við hann. -------------- Ópóíðafaraldur virðist aftur í vexti í Bandaríkjunum. Í Speglinum verður rætt við Bergþór Stein Jónsson barnabráðalækni í Bandaríkjunum sem segir að fentanýl greinist hjá börnum og þess séu jafnvel dæmi að ungbörnum hafi verið gefnir ópíóíðar í mjólk. Dagný Huld Erlendsdóttir talaði við hann. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman. Til eru lýsingar á aðdraganda eldgosa í Öskju, annars vegar hins afdrifaríka öskugoss 1875 og hins vegar hraungossins 1961. Ragnhildur Thorlacius tók saman. Lesarar Anna Sigríður Þráinsdóttir og Benedikt Sigurðsson. Brot úr lýsingu Sigurðar Þórarinsson jarðfræðings á gosinu 1961. Seðlabanki Rússlands hækkaði stýrivexti um þrjú og hálft prósentustig í dag til að hamla verðbólgu. Efnahagssérfræðingar telja að hækkunin dugi skammt. Ásgeir Tómasson sagð frá. Brot úr viðtölum fréttastofu TV2 við Ivan, byggingaverkfræðing og Ljúdmílu Blazjej ræstitækni í Moskvu.

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS og Orri Páll Jóhannsson, alþingismaður VG um hvalveiðar. Ásgeir Brynjar Torfason, dr. í fjármálum um fjárnálamarkaði. Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra, Eyjólfur Ármannsson alþingismaður og Hanna Katrín Friðriksson alþingismaður um Íslandsbankamálið. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus við HÍ um tungumál og völd.
Appelsínugul veðurviðvörun gengur í gildi á Austfjörðum klukkan sjö vegna mikillar snjókomu. Reitur fjórtán var rýmdur að nýju á Seyðisfirði í dag. Viðbúið er að færð spillist og hætta á snjóflóðum aukist. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir tók saman. Hækka á tekjuskatt á fyrirtæki, hagræða í rekstri ríkisstofnana og draga úr opinberum framkvæmdum samkvæmt fjármálaáætlun sem kynnt var í dag. Þingmenn úr nær öllum flokkum stjórnarandstöðu lögðu í dag fram vantrauststillögu gegn Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra. Hann hafi með framgöngu sinni hindrað Alþingi í störfum sínum. Tillagan verður tekin fyrir á Alþingi á morgun. Jóhanna vigdís Hjaltadóttir segir frá. Yfirtaka svissneska bankans UBS á Credit Suisse er stærsti einstaki fjármálagerningur síðan í fjármálakrísunni 2008. Þetta segir stjórnarformaður UBS, sem hefur ráðið til baka fyrrverandi forstjóra til að leiða samrunann. Oddur Þórðarson segir frá. ------ Í dag var kynntur einn af staksteinum ríkisfjármálanna á ári hverju, fjármálaáætlun. Þar er hægt að sjá hvert stjórnvöld stefna með nokkuð ítarlegum hætti í ríkisrekstrinum. Hennar hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu í þetta skiptið, því í henni sýnir ríkisstjórnin á spilin með hvaða hætti eigi að bregðast við í ríkisfjármálunum til að bregðast við verðbólgu og efnahagsvandanum sem við blasir. Markmið með fjármálaáætluninni er að útfæra markmið um tekjur og gjöld hins opinbera og þróun þeirra. Fjármálaáætlun er sett fram til næstu fimm ára hið skemmsta og skal fjármála- og efnahagsráðherra leggja hana fyrir Alþingi í formi tillögu til þingsályktunar fyrir 1. apríl ár hvert. Bjarni Rúnarsson fer yfir áætlunina ásamt Alexander Kristjánssyni fréttamanni. Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra ferðamála, segist merkja aukinn skilning innan Evrópusambandsins á sjónarmiðum Íslands varðandi losunarheimildir í flugi og hún segir að þýsk stjórnvöld deili skoðunum Íslands hvað þetta mál varðar. Lilja var í Brussel í gær og í dag, þar sem hún átti fundi með embættismönnum í framkvæmdastjórn ESB, og tók einnig þátt í ráðstefnu flugfélaga sem haldin var í borginni. Björn Malmquist, fréttamaður RÚV í Brussel fylgdist með þessari ráðstefnu og ræddi við Lilju Vladimír Pútín Rússlandsforseti kann að fá öflugan keppinaut þegar hann sækist eftir endurkjöri í mars á næsta ári. Sérfræðingar hugveitunnar Institute for the Study of War eða ISW í Washingtonborg draga þá ályktun í nýjustu uppfærslu sinni um gang innrásarinnar í Úkraínu, að Yevgeny Prigozhin, stofnandi og stjórnandi Wagner málaliðahópsins, hyggist bjóða sig fr

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir alþingismaður um efnahagsmál. Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar um orkumál. Birgir Ármannsson forseti Alþingis og Lindarhvolsmálið. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við HA um alþjóðamál.
Kristján Kristjánsson stýrir skeleggri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Ásgeir Brynjar Torfason dr. í fjármálum um efnahagsmál. Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins og Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar um efnahagsmál/stjórnmál. Guðlaugur Þór Þorðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um stjórnmál/orkumál. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur um glæpi og refsingar.
Átta hafa verið handteknir vegna hnífaárásar á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld. Hún markar ákveðin þáttaskil, segir Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur. Þarna var gerð skipulögð aðför að mönnum á opinberum vettvangi; aðför sem ber keim af gengjastríðum. Sunna Karen Sigurþórsdóttir ræddi við Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjón og Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Helga. Nokkrir hafa verið handteknir og farið hefur verið í húsleit á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn héraðssaksóknara á umfangsmesta sígarettu- og veipsmygli sem komið hefur upp hér á landi. Lagt hefur verið hald á eignir upp á hálfan milljarð í tengslum við rannsóknina. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Nokkrir fyrrverandi yfirmenn hjá Twitter spá því að miðillinn hrynji endanlega til grunna um helgina. Höfuðstöðvum fyrirtækisins hefur verið lokað til mánudags og starfsfólkinu meinaður aðgangur. Oddur Þórðarson sagði frá. Stórvirkar vinnuvélar voru í dag notaðar við að ryðja leið í gegnum aurskriðuna sem féll á Grenivíkurveg í gærmorgun. Vegurinn er þó enn lokaður og verður að minnsta kosti til morguns. Fjöldi fólks hefur undanfarna mánuði verið sakfelldur í Svíþjóð fyrir mótmælaaðgerðir sem beinast að aðgerðaleysi í loftslagsmálum. Dómarnir hafa verið skilorðsbundnir en talsmenn nýrrar ríkisstjórnar hafa talað fyrir hertum viðurlögum. Kári Gylfason sagði frá. Stjórnvöld ríkja í Austurlöndum fjær og víðar fordæma að Norður-Kóreumenn skutu í dag langdrægri eldflaug í átt að Japan. Hún lenti í sjónum innan efnahagslögsögu landsins. Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, tók í gær við 550 eintökum af heildarútgáfu Íslendingasagnanna sem gefin verða mennta-, menningar- og heilbrigðisstofnunum víða um land. Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar, kveðst vongóður um að úr leysist varðandi endurbætur á húsnæði dvalarheimilisins Hliðar á Akureyri. Mygla hefur greinst á Hlíð sem talin er hafa valdið veikindum hjá heimilisfólki þar. Ágúst Ólafsson sagði frá og ræddi við Teit. Enska úrvalsdeildarliðið Manchester United undirbýr málsókn á hendur Cristiano Ronaldo vegna ummæla sem hann lét falla um félagið í sjónvarpsviðtali. Félagið telur leikmanninn hafa rofið samning sinn við félagið og hann fær ekki að snúa aftur til þess þegar HM í Katar lýkur. Dönsk kona á fertugsaldri hefur verið dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir stuðning við hryðjuverk.

Skyndilegur missir ástvina getur haft mikil og langvarandi áhrif á þau sem eftir standa en rætt verður um sorgarviðbrögð og óvæntan missi á ráðstefnu sem fer fram í dag í húsakynnum íslenskrar erfðagreiningar. Þau komu til að segja okkur frá viðfangsefnum sorgarinnar, Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir fagstjóri hjá Sorgarmiðstöðinni og Freyr Eyjólfsson fjölmiðlamaður sem verður fundarstjóri á ráðstefnunni. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram tillögu um að gripið verði til aðgerða til að koma böndum á máva í borginni. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem fór fyrir tillögunni, sagði í kvöldfréttum að mávurinn hafi slæm áhrif á dýralífið í miðborginni - en það eru ekki öll sammála um hvernig eigi að nálgast þetta mál. Við ræddum við Kjartan og Alexöndru Briem, sem fer fyrir skipulags- og samgönguráði borginnar. Stjórn Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri ákvað á dögunum að frysta leiguverð á stúdentaíbúðum og herbergjum og koma þannig til móts við stúdenta. Félagsstofnun Stúdenta við Háskóla Íslands ætlar hins vegar ekki að frysta leiguverðið. Við ræddum við Guðrúnu Björnsdóttur, framkvæmdastjóra FS, um þá ákvörðun. Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra var gestur okkar upp úr klukkan átta í dag til að svara fyrir þær ráðningar og skipanir sem hún hefur ráðist í að undanförnu og sæta nú mikilli gagnrýni. Nokkuð hefur verið rætt um áhrif þeirra efnahags- og viðskiptaþvingana sem beinast að Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu síðustu vikur. Verðbólga í Rússlandi hefur hjaðnað undanfarna mánuði og gengu rússnesku rúblunnar styrktist verulega í sumar - sem er þó vitaskuld bæði gott og slæmt. Sömuleiðis virðast hinar svokölluðu BRICS-þjóðir, Brasilía, Rússland, Indland, Kína og Suður-Afríka ætla að standa nokkuð þétt saman efnahagslega séð. Við ræddum efnahagsmálin við Daða Má Kristófersson, prófessor í hagfræði. Nýjustu rannsóknir á hopun Grænlandsjökuls bæta gráu ofan á svart við þá sviðsmynd sem áður var talið að rætast myndi úr. Nú segja vísindamenn að bráðnun jökulsins muni óhjákvæmilega hækka sjávarmál um 30 sentimetra - að öllum líkindum fyrir næstu aldamót. Við ræddum þessa spá við Andra Gunnarsson formann jöklarannsóknafélags Íslands.

Kristján Kristjánsson stýrir skeleggri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR um verkalýðsmál og kjaramál. Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra og Kristrún Frostadóttir alþingismaður efnahagsmál og pólitík. Magnús Karl Magnússon læknir og prófessor við HÍ um heilbrigðismál og Landspítalann. Ragnhildur Sverrisdóttir sérfræðingur í samskiptum og Orri Páll Jóhannsson alþingismaður um réttindamál.
Við byrjuðum daginn á því að taka upp prjónana, ja eða a.m.k. fræðast um hina árlegu Prjónagleði á Blönduósi sem nú styttist í. Svanhildur Pálsdóttir hjá Textílmiðstöð Íslands leit við hjá okkur í morgunkaffi. Meirihluti þingmanna breska Íhaldsflokksins kaus gegn vantrauststillögu á hendur Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, í gærkvöld. 211 kusu gegn henni en 148 af flokksfólki Johnson vantreysta honum sem leiðtoga flokksins eftir hið svokallaða Party-gate hneyksli. Við ræddum niðurstöðuna og afleiðingar hennar við Eirík Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, en allt bendir til þess að Johnson ætli að sitja sem fastast í sínu embætti. Listahátíð í Reykjavík hófst í síðustu viku og stendur til 19. júní nk. Margs konar viðburðir eru í boði og m.a. verður boðið upp á samtal í Klúbbi Listahátíðar í dag undir yfirskriftinni List á stríðstímum þar sem spurt er hvaða hlutverki gegna menning og listir í stóra samhenginu þegar stríð geisar og lífið sjálft er að veði? M.a. kemur úkraínskt listafólk að viðburðinum og verk þarlendra listamanna boðin upp. Vigdís Jakobsdóttir, listrænn stjórnandi hátíðarinnar, stýrir umræðum og við fengum hana til okkar í spjall. Á fundi ríkisstjórnarinnar í lok síðasta mánaðar voru kynnt áform um skipun vinnuhóps um greiningu á arðsemi íslensku bankanna. Kjarninn fjallaði um málið á dögunum, en samkvæmt heimildum miðilsins á að skoða þjónustu- og þóknanatekjur íslensku bankanna og bera þær saman við sambærilegar tekjur banka á hinum Norðurlöndunum, en nokkuð hefur verið rætt um fákeppni í íslenska bankakerfinu. Málið heyrir undir Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, sem kom til okkar. Guðmundur Jóhannsson leit svo við og ræddi við okkur um tækni, m.a. um snjalltæki til hárlitunar heima. Við ræddum svo við Einar Þorsteinsson, oddvita Framsóknar í Reykjavík, sem tekur við af Degi B. Eggertssyni, oddvita Samfylkingarinnar, sem borgarstjóri í ársbyrjun árið 2024. Nýr meirihluti borgarstjórnar og samstarfssáttmáli var kynntur á blaðamannafundi í gær og Einar segir sáttmálann svara að öllu leyti kröfum Framsóknar um breytingar á næsta kjörtímabili. Tónlist: Snorri Helgason - Hæ Stína. First Aid Kit - Emmylou. Kacey Musgraves - Justified. Spilverk þjóðanna - Lasy Daisy. Friðrik Dór - Bleikur og blár. Sam Fender - Getting started.

Segja má að nánast öll alþjóðleg samskipti við Rússa hafi lagst af eftir innrás þeirra í Úkraínu og vegna þeirra hörðu refsiaðgerða sem vestræn ríki hafa gripið til. Þetta gildi einnig um Norðurskautsráðið. Bogi Ágústsson ræddi við dr. Rasmus Gjedssø Bertelsen, alþjóðastjórnmálafræðing og sérfræðing í málefnum norðurslóða. Bertelsen er danskur, prófessor við háskólann í Tromsø í Norður-Noregi en ólst upp að hluta á Íslandi. Hann er nýútnefndur Nansen gestaprófessor við Háskólann á Akureyri. Hann var fyrst spurður um áhrif innrásarinnar á samstarf á norðurslóðum og starf Norðurskautsráðsins. Mikil óvissa hefur ríkt um framtíð Garðyrkjuskólans að Reykjum í Ölfusi. Lilja Alfreðsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, tilkynnti í byrjun seinasta árs að hefja skyldi undirbúning þess að skilja Garðyrkjuskólann frá Landbúnaðarháskóla Íslands og færa til Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Námið færist milli stofnananna frá og með næsta hausti. Í byrjun vikunnar var fjórum kennurum við skólann sagt upp störfum. Enginn fastráðinn kennari er því við garðyrkjunámið á Reykjum. Í Garðyrkjuskólanum eru um 100 nemendur, bæði í staðnámi og fjarnámi. Þeir kalla eftir því að skólinn verði sjálfstæður. En í morgun dró til tíðinda í málinu. Að loknum ríkisstjórnarfundi greindi Ásmundur Einar Daðason, mennta og barnamálaráðherra, frá því að samkomulag væri í höfn á milli hans og Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Garðyrkjuskólinn verður áfram að Reykjum. Bjarni Rúnarsson fjallaði um málið. Um hundrað lögreglumenn eru sárir eftir alvarlegar óeirðir í fjölda sænskra borga. Yfirvöld segja glæpagengi standa að baki óeirðunum sem urðu í kjölfar kosningafunda og bókabrenna hægriöfgamannsins Rasmus Paludans. Kári Gylfason segir talar frá Gautaborg. Helstu atriði frétta: Bretar og Hollendingar ætla að taka þátt í rannsókn Alþjóða sakamála dómstólsins á meintum stríðsglæpum Rússa í Úkraínu. Aðalsaksóknari dómstólsins segir að litið sé á allt landið sem glæpavettvang. Níðstöng blasti við íbúum á Kjalarnesi í morgunb þar sem afskorið hestshöfuð var fest á girðingastaur. Íbúi lítur á stöngina sem hótun. Leikskólinn Furuskógur í Fossvogi er óstarfhæfur vegna myglusveppa. Starfsemin flyst yfir í Safarmýrarskóla, en foreldrar hafa einnig kallað eftir myglumælingum í því húsi. Garðyrkjuskólinn á Reykjum verður áfram starfræktur þar. Kennari við skólann kallar eftir því að uppsagnir kennara verði dregnar til baka. Rasmus Gjedssø Bertelsen, alþjóðastjórnmálafræðingur og sérfræðingur í málefnum norðursl

In this episode we listen to H.E. Lilja Alfreðsdóttir, Iceland‘s Minister for Education, Science and Culture, and H.E. Ryotaro Suzuki, Ambassador of Japan to Iceland discuss the results from the 3rd Arctic Science Ministerial held in May 2021 in Tokyo, Japan, co-hosted by the two respective countriesThis event originally took place at the 2021 Arctic Circle Assembly in Reykjavík, Iceland and was organized in collaboration with the Icelandic Ministry of Education, Science and Culture and the Japanese Ministry of Education, Culture, Sports, Sciences and Technology.
Tíðindi hafa borist í nótt af miklum sprengjudrunum í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu. Við heyrðum í Ingólfi Bjarna Sigfússyni, fréttamanni, sem er staddur í Úkraínu. Fyrra undanúrslitakvöld Söngvakeppninnar fer fram á morgun, laugardag, en ekki hefur verið haldin Söngvakeppni síðan 2020. Þau komu til okkar, Salóme Þorkelsdóttir Útsendingarstjóri Söngvakeppninnar og Gísli Berg Framleiðslustjóri RÚV til að segja okkur eitt og annað um þessa griðarflóknu útsendingu. Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra, ræddi um daginn hugmyndir sínar um að skattleggja það sem hún kallaði ofurhagnað bankanna, að einhverju leyti til þess að milda höggið sem hlýst af hækkun stýrivaxta. Við fengum Lilju til okkar hér rétt fyrir klukkan átta til að ræða þessi mál. Upp úr klukkan átta ræddum við við Magneu Marinósdóttur, alþjóðastjórnmálafræðing, sem hefur gríðarlega þekkingu á stríðsátökum og Friðrik Jónsson sérfræðing í herkænskufræðum og formann BHM, um átökin í Úkraínu Stríð, eins og það sem Rússland hóf í gær, hefur vitaskuld margvíslegar alvarlegar afleiðingar, þar á meðal efnahagslegar. Íslenskir og alþjóðlegir hlutabréfamarkaðir voru eldrauðir í gær, verðbólga gæti hækkað enn frekar og framleiðslukeðjur raskast. Við ræddum við Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í viðskiptafræði og sérfræðing í fjármálum, um hagfræði og stríð. Úff hvað allt er dýrt hérna? sem á bjagaðri pólsku hljómar einhvernveginn svona, Tu jest za drogo, er nafn á nýju leikverki sem frumsýnt verður í Borgarleikhúsinu í kvöld. Við ræddum við Ólaf Ásgeirsson, höfundur verksins og leikara, og Salvör Gullbrá Þórarinsdóttur leikstjóri þess. Tónlist: Árnason & GDRN - Sagt er Friðrik Dór - Í síðasta skipti Prince - Little Red Corvette Flott - Flott The Smiths - Panic Unnsteinn - Tu jest za drogo

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins um ár grænnar byltingar. Jón Gunnarsson innanríkisráðherra og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir um útlendingamál, ríkisborgararétt og talsmannaþjónustu. Lilja Alfreðsdóttir ráðherra meningar og viðskipta, Kristrún Frostadóttir alþingismaður og Daði Már Kristófersson varaformaður Viðreisnar um efnahagsmálin. Margrét Júlíana Sigurðardóttir frumkvöðull um kvenfrumkvöðla og fjármagn.
Það viðrar ekki beinlínis vel til garðyrkju þessa dagana en mikilvægt að sýna fyrirhyggju í þeim efnum þrátt fyrir það. Um þessar mundir er rétti tíminn til að fara að sá fyrir sumarið svo garðurinn verði fallegur á réttum tíma. Vilmundur Hansen garðyrkjumaður kíkti til okkar með fullt farteski af sínum mikla fróðleik um garðyrkjuna. Bæjarstjóri Akureyrar, Ásthildur Sturludóttir, hefur leitast eftir því að svokölluð þjóðarópera verði staðsett í tónleikahúsinu Hofi á Akureyri. Töluverð vinna hefur farið fram í tengslum við hugmyndir um þjóðaróperu en í apríl síðastliðnum var lögð fram skýrsla um þetta fyrirbæri þar sem sagt var að þjóðarópera fæli í sér gríðarleg menningarleg tækifæri. Lilja Alfreðsdóttir, viðskiptaráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að bankarnir ættu, í ljósi mikils hagnaðar, að létta undir með heimilum og fyrirtækjum sem horfa fram á hærri vaxtabyrði vegna vaxtahækkana Seðlabankans. Lilja sagði að ef bankarnir finndu ekki einhverja lausn í þeim málum teldi hún að endurvekja ætti bankaskattinn. Við ræddum þessar hugmyndir við Þórólf Geir Matthíasson, prófessor í hagfræði. Upp úr klukkan átta fórum við yfir fréttir vikunnar, í þetta skiptið með Þóru Arnórsdóttur, fréttakonu hér á Ríkisútvarpinu, og Hallgrími Helgasyni, rithöfundi. Samtök atvinnulífsins eru stór eins og allir vita og með töluverð ítök í íslensku samfélagi en ríflega 2000 fyrirtæki eru hluti af samtökunum sem hafa um 70% launafólks á almennum markaði í sinni vinnu. Sum þessara fyrirtækja eru stór fyrirtæki í opinberri eigu og þau greiða rentu af veltu sinni til Samtaka atvinnulífsins. Þingmaður Samfylkingarinnar, Jóhann Páll Jóhannsson, hefur lagt fram fyrirspurn á þingi um það hvaða opinberu fyrirtæki eru þátttakendur í SA og hversu háar fjárhæðir renni til samtakanna frá þeim á ári hverju. Ofurskálin, eða Super Bowl, nýtur sívaxandi vinsælda hér á landi en þessi úrslitakeppni NFL deildarinnar í bandaríkjunum fer fram aðfaranótt mánudagsins næsta. Andri Ólafsson, einn helsti NFL sérfræðingur landsins og þáttastjórnandi hjá Stöð 2 Sport kom til okkar í lok þáttar. Tónlist: Ólgusjór - Lights of the highway Redbone - Childish Gambino Fast Car - Tracy Chapman Can't stop the feeling - Justin Timberlake Gimme Gemmér - Popparoft Segðu mér - Friðrik Dór Ironic - Alanis Morrisette Upp til hópa - Herra Hnetusmjör

Þriðja elsta þekkta ljósmyndin frá Íslandi fannst á dögunum þegar opnaður var nýr vefur með hluta af ljósmyndasafni dönsku konungsfjölskyldunnar. Myndin, sem sýnir norðurenda Tjarnarinnar í Reykjavík, hefur sögulegt gildi en hún er talin tekin af Frakkanum Louis Rousseau í leiðangri Napóleons prins um Norðurlönd sumarið 1856. Við heyrðum í Ingu Láru Baldvinsdóttur, sagnfræðingi og fyrrum sviðsstjóra ljósmyndadeildar Þjóðminjasafns Íslands, um myndina. Lestrarkeppni grunnskólanna er í fullum gangi og er hluti af þeim verkefnum sem eru í gangi til að efla íslenskuna. Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra menningarmála fer með málaflokkinn og við ræddum við hana um stöðu íslenskunnar og áherslur í baráttunni við að vernda tungumálið okkar í sífellt alþjóðlegri heimi. Orkubú Vestfjarða býst við að þurfa að brenna olíu í allt að þrjá mánuði til að tryggja húsakyndingu eftir að Landsvirkjun tilkynnti að hún afhendi nú enga raforku til kaupenda að skerðanlengri orku vegna orkuskorts. Við heyrðum í Elíasi Jónatanssyni, forstjóra Orkubús Vestfjarða, um málið og framtíðarsýn þeirra í orkumálum. Reynir Traustason fréttastjóri Mannlífs hefur staðið í sannkallaðri orrahríð síðan áður en brotist var inn á skrifstofur fjölmiðilsins aðfaranótt föstudags og atlaga gerð að því að leggja miðilinn niður. Róbert Wessmann forstjóri Alvogen sendi frá sér yfirlýsingu um helgina þar sem hann segist hvergi hafa komið nærri innbrotinu en Reynir lítur þó svo á að þeir eigi í einhverskonar stríði. Reynir var gestur okkar. Drulluleiðist þér í sóttkví eða einangrun? Að þessu spyrja þær Ebba Sig uppistandari og Róberta Michelle Hall húllumhæ húllastelpan. Þær taka að sér að skemmta fólki við alls kyns aðstæður og í öllum veðrum og við fengum þær í heimsókn til að segja okkur meira. Óhætt er að segja að íslenska karlalandsliðið í handbolta hafi fyllt á hamingjuhormón þjóðarinnar sl. laugardag með alveg hreint stórkostlegum sigri á Ólympíumeisturum Frakka. Við heyrðum í okkar manni í Búdapest, sem líkt og níu leikmenn, varð fyrir barðinu á veirufjandanum, og lýsti Frakkaleiknum úr einangrun í hótelherbergi sínu. Við tókum EM stöðuna hjá Einar Erni Jónssyni. Tónlist: Jóhann G. Jóhannsson - Dont try to fool me. Amy Winehouse - Back to black. Júlí Heiðar - Ástin heldur vöku. Robert Plant og Alison Krauss - Cant let go. Erla og Gréta - Ég á heiminn með þér. Sigrún Stella - Baby blue. Ásgeir Trausti - Sunday drive. Post Malone - Only wanna be with you. Eddie Vedder - Long way. Björk - Army of me.

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson fara yfir stöðuna fyrir kosningarnar sem fram fara eftir tvær vikur. Það er af nægu að taka, það er tekist á um stóreignaskatta, lítið hægt að gagnrýna ríkisstjórnina, það er búið að fela Loga Einarsson, Píratar kunna ekki kosningabaráttu, Gunnar Smári fer mikinn og Lilja Alfreðs sést varla.
Spegillinn 31. ágúst 2021 Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Þjálfari karlalandsliðs Íslands í fótbolta segist ekki hafa íhugað að hætta vegna stöðunnar sem upp er komin innan KSÍ. Menntamálaráðherra fundaði með stjórn KSÍ síðdegis og segist treysta forystunni til að leysa úr málinu. Rætt við Arnar Þór Viðarsson. landsliðsþjálfara Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra fundaði með fráfarandi stjórn KSÍ í dag. Hún segist ánægð með þær áætlanir sem henni hafi verið kynntar. Hún treysti knattspyrnuforystunni til að leysa úr málinu, en þykir ekki viðeigandi að tjá sig um málefni einstakra starfsmanna. Framkvæmdastjóri NATO varar Talíbana við því að hindra för flóttafólks. Mikilvægt sé að halda Hamid Karzai flugvellinum í Kabúl opnum. Píratar leggja áherslu á lýðræði, nýja stjórnarskrá, róttækar breytingar í sjávarútvegsmálum og vilja uppræta spillingu fyrir komandi kosningar. Rætt við Björn Leví Gunnarsson, hjá Pírötum. Sjötíu og fimm prósent barna á aldrinum 12 til 17 ára hafa verið bólusett við Covid-19. Þrjátíu og þrjár tilkynningar um aukaverkanir hafa borist Lyfjastofnun. Rætt við Guðrúnu Aspelund, yfirlækni hjá Landlæknisembættinu Gróðureldar brenna glatt í Kaliforníuríki Bandaríkjanna. Tugir þúsunda hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna eldanna Samfélagsleg bylting sem átt hefur sér stað undanfarin ár hefur líka náð til íþróttahreyfingarinnar. Stórkostlegar breytingar eiga sér nú stað í íþróttamenningunni, segir prófessor í félagsfræði. Rætt við Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði. Stjórnvöld í Mexíkó hafa höfðað mál á hendur nokkrum bandarískum byssuframleiðendum fyrir dómstóli í Bandaríkjunum. Þau saka framleiðendurna um að auðvelda sölu á vopnum til eiturlyfjagengja í Mexíkó. Hryllileg ofbeldis- og morðalda hefur gengið yfir landið undanfarin 15 ár. Ragnhildur Thorlacius segir frá Á Covid tímum sjást ekki sextíu rútur við Gullfoss en kannski fleiri bílar Íslendinga en áður var. Sama staða er á vinsælum ferðamannaslóðum annars staðar: heimamenn og innlendir ferðamenn hafa þær fyrir sig. Ýmislegt bendir til að þetta muni breytast þegar dregur úr veirufaraldrinum en áhrif aukinnar umhverfisvitundar á ferðalögum fólks er nýr óvissuþáttur. Sigrún Davíðsdóttir fjallar um veirufaraldurinn og ferðaþjónustu víða um heim.
This episode contains the second of two sessions of the Arctic Circle VIRTUAL Prelude to the Japan Forum held on May 7th 2021 in conjunction with the third Arctic Science Ministerial meeting in Japan. In the dialogue you will hear keynotes and discussions on the Role of Japan and USA in the Future of Arctic Science, from H.E. Lilja Alfreðsdóttir, Iceland‘s Minister of Science, Education and Culture, Mr. Kei Koizumi, Acting Director and Chief of Staff, Office of Science and Technology Policy, Executive Office of the President, USA, Dr. Larry Hinzman, Assistant Director for Polar Sciences, White House Office of Science and Technology Policy; Professor, University of Alaska Fairbanks and Dr. Atsushi Sunami, President of the Sasakawa Peace Foundation.
Í dag eru 10 ár síðan skýrslan Kortlagning á hagrænum áhrifum skapandi greina kom út. Þrátt fyrir að vitað væri að atvinnugreinar menningar hefðu sótt í sig veðrið kom á óvart var hversu stór hlutur þeirra var í atvinnu- og efnahagslífi Íslendinga. Á þeim áratug sem er liðinn hefur vegur íslenskra listamanna og fyrirtækja í skapandi greinum svo bara aukist. Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Miðstöðvar Arkitektúrs- og hönnunar Íslands kíkti til okkar og ræddi mikilvægi þessa geira og þess að koma upp rannsóknarsetri. Við ræddum við formann Matvís og formann félags íslenskra rafvirkja fyrir helgi sem gerðu athugasemdir við að iðnfélögin hafi ekki átt aðkomu að þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru á iðnnámi. Þau sögðu það ekki duga til að kalla þau að borðinu nú þegar komið er að innleiðingu reglugerðar, slíkt hefði þurft að gerast mun fyrr. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra kom til okkar og brást við þessari gagnrýni. Sauðburður er víða hafinn og miklar annir framundan hjá sauðfjárbændum. Þrátt fyrir sólarhringsvaktir og oft krefjandi verkefni segja nánast allir þeir sem halda fé að þetta sé skemmtilegasti tími ársins. Við hringdum í Eydísi Ósk Indriðadóttur á Gröf á Vatnsnesi, en hún sinnir sauðfjárbúskap ásamt annarri vinnu og námi. Við freistuðum þess að komast að því hverjir töfrarnir eru við sauðburðinn. Örn Pálsson, framkvæmdastjóri landssambands smábátasjómanna, kom til okkar en margir sjómenn eru reiðir vegna ásakana Kristjáns Bergs, fisksala, um að sjómenn afhendi fisk til sín í skítugum körum. Hann notaði meðal annars orðið drullusokkar í þessu samhengi en tók fram að þetta ætti ekki við um alla sjómenn og að fiskmarkaðir bæru einhverja ábyrgð líka. Örn fór yfir þetta með okkur og líka strandveiðarnar sem hefjast í dag. Við ræddum svo helstu tíðindi af íþróttum helgarinnar við Hauk Harðarson íþróttafréttamann, en þar var af ýmsu að taka, bæði innanlands- og utan. Tónlist: Blood Harmony - Girl from before. Sváfnir Sig. - Fólk breytist. Peter Gabriel - Solsbury Hill. Elíza Newman - Fagradalsfjall (youre so pretty). Júníus Meyvant - Color decay. Sigurður Guðmundsson - Kappróður. Bruce Springsteen - Ill see you in my dreams. Of Monsters and men - Destroyer. Lenny Kravitz - Always on the run.

50 ár eru í dag síðan danska varðskipið Vædderen lagðist að Miðbakka í Reykjavík með einhvern dýrmætasta farm sem fluttur hefur verið til Íslands; Flateyjarbók og Konungsbók Eddukvæða. Þetta var hátíðisdagur; það var þjóðhátíð á Íslandi, frí í vinnu og skóla, íslenski fáninn við hún í hverri stöng, fimmtán þúsund komu saman við Reykjavíkurhöfn og fólk úti á landi og sem ekki átti heimangengt fylgdist með beinum útsendingum í sjónvarpi og útvarpi. Menntamálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, kom á Morgunvaktina í dag, við fjölluðum um komu handritanna á sínum tíma en ræddum ekki síst um þau handrit sem enn eru ytra og viðræður við Dani um að þau verði flutt til Íslands, verði flutt heim. Í fyrsta sinn í meira en sex áratugi ber æðsti valdamaður á Kúbu nú ekki eftirnafnið Castro. Miguel Diaz-Canel tók við af Raul Castro sem formaður kúbverska kommúnistaflokksins á flokksþingi í síðustu viku. Diaz-Canel, sem þegar gegndi embætti forseta Kúbu, er nærri þremur áratugum yngri en forveri sinn. Ekki er þó búist við að hann taki til við róttækar breytingar á stjórn eyjunnar ? og Castro-fjölskyldan verður áfram áhrifamikil. Vera Illugadóttir fjallaði um Castróana og Kúbu. Það er mikil bílamenning á Íslandi, og hlutfall bíla á heimilum hátt. Akureyringurinn Guðmundur Haukur Sigurðarson, framkvæmdastjóri Vistorku, hefur verið ötull í að hvetja fólk til að ganga eða hjóla milli staða í bænum, í stað þess að nota einkabílinn til að komast stuttar vegalengdir. Óðinn Svan Óðinsson, fréttamaður, spjallaði við Guðmund um samgöngur. Tónlist: White cliffs of Dover - Vera Lynn Bíllinn minn og ég - Skriðjöklar

Kvika í kvikugangi undir Fagradalsfjalli er á um tveggja kílómetra dýpi. Vísindamenn segja tímabil sérstakrar aðgæslu vera í gangi. Jarðskjálftavirkni og kvikuhreyfingar eru áfram með svipuðum hætti. Rafmagnslaust hefur verið í Grindavík og nágrenni frá því klukkan tvö í dag. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, ætlar að áfrýja úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur til Landsréttar. Héraðsdómur vísaði kröfu ráðherra frá í morgun um að ógilda úrskurð kærunefndar jafnréttismála um að hún hafi brotið jafnréttislög við ráðningu ráðuneytisstjóra. Drög að rýmingaráætlun fyrir sveitarfélagið Voga liggja fyrir vegna hugsanlegrar eldvirkni á svæðinu. Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri Voga, segir að flóttaleiðir séu tryggar og góðar og að íbúar séu nokkuð yfirvegaðir. Dómsmálaráðherra leggur til að nýtt varðskip sem til stendur að kaupa verði nefnt Freyja og verði þar með annað skip Gæslunnar til að bera kvenmannsnafn. Forseti Brasilíu hvetur landsmenn til að hætta öllu COVID-væli og koma sér út úr húsi. Faraldurinn hefur dregið yfir 260 þúsund manns til dauða í landinu. Samkvæmt nýrri hrauðflæðispá eldfjallafræði og náttúrvárhóps Háskóla Íslands gæti hraun runnið að Grindavík og Bláa Lóninu og Svartsengi. Ekki eru þó taldar miklar líkur á að það gjósi þar og margir fyrirvarar eru gerðir. Arnar Páll Hauksson talar við Þorvald Þórðarson. Það er að glæðast á vinnumarkaði segir Sverrir Briem einn eigenda ráðninga- og ráðgjafafyrirtækisins Hagvangs. Hann bendir atvinnuleitendum á að skrá sig hjá ráðningarfyrirtækjum - þar sem 80 prósent starfa sem ráðið er í eru aldrei auglýst. Ragnhildur Thorlacius talar við Sverri Briem. Í Skotlandi berast núverandi og fyrrverandi leiðtogar Skoska þjóðarflokksins á pólitískum banaspjótum. Átökin gætu haft áhrif á þingkosningarnar í maí. Sigrín Davíðsdóttir sagði frá. Fyrir nokkrum dögum greindu Rolling Stone og Guardian frá því að McCartney ætlaði að senda frá sér 900 blaðsíðna tveggja binda bók í samvinnu við írska rithöfundinn Paul Muldoon (Molduun) þar sem þeir freista þess að draga upp sjálfsmynd af Paul McCartney í gegnum 154 söngtexta bítilsins frá 1956 til 2021 og langra samtala þeirra á milli. Bókin heitir The Lyrics og kemur út í nóvember á þessu ári. Kristján Sigurjónsson sagði frá.

Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra hefur skorað á streymisveituna Disney plús að gera teiknimyndir sínar aðgengilegar á íslensku en lmenn samstaða virðist meðal almennings, stjórnmálamana og fræðafólks um mikilvægi þess að börn geti horft á þetta sívinsæla efni á okkar ástkæra ylhýra. Enn hafa engin svör borist frá Disney en við grípum tækifærið og fáum Ólaf Hauk Símonarson, þýðanda gullaldar disneymyndarinnar Konungur ljónanna, í heimsókn. Bandaríski pródúserinn, plötusnúðurinn, hljóðfæraleikarinn og rapparinn Madlib hefur undanfarna tvo áratugi verið í fremstu röð utangarðslistamanna sem láta reyna á þanþol hipphoppsins. Hann hefur þó aldrei gefið út sólóskífu undir sínu aðallistamannsnafni fyrr en nú, en breiðskífan Sound Ancestors sem var sett saman af breska raftónlistarmanninum Four Tet kom út nú fyrir helgi. Davíð Roach Gunnarsson rýnir í feril taktútsetjarans Madlib og hans nýjustu skífu hér á eftir. Í gær heimsóttum við listamannatvíeykið Krot og Krass, en þau vinna nú að því koma á fót skapandi gámarými í gamalli áburðarskemmu í Gufunesinu. Þetta verksmiðjuhverfi er óðum að umbreytast í þorp skapandi greina, með kvikmyndaverum og vinnustofum listafólks. Í kjölfarið fór Kristján að velta fyrir sér hvernig listamenn hafa nýtt sér mannvirki gamalla atvinnuhátta hingað til og hvernig þær gætu gert það í framtíðinni.

Enn er útilokað að segja til um hvort Donald Trump eða Joe Biden fór með sigur af hólmi í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Munur á fylgi frambjóðendanna er hverfandi í nokkrum ríkjum þar sem enn er verið að telja atkvæði. Ásgeir Tómasson segir frá. Tuttugu og níu greindust með COVID-19 innanlands í gær, þar af voru átta utan sóttkvíar. Nú eru 798 manns í einangrun með COVID-19 og átján hundruð fimmtíu og einn í sóttkví. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að faraldurinn sé ekki að versna og með góðum vilja megi segja að kúrfan sé að fara niður hjá þeim sem eru utan sóttkvíar. Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra segir málefni framhaldsskólanemenda verða í algjörum forgangi þegar hægt verður að létta á sóttvörnum. Komið sé að þolmörkum, þjóðhagslegt tap af brottfalli nemenda sé of mikið. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir sagði frá. Íbúi og starfsmaður í Foldabæ, heimili fyrir konur með heilabilun í Reykjavík, greindust með COVID-19 í síðustu viku. Allir hinir íbúarnir sjö, og sjö starfsmenn til viðbótar, eru í sóttkví segir Jórunn Frímannsdóttir, forstöðumaður Droplaugarstaða. Hildur Margrét Jóhannsdóttir tók saman. Sjóprófi vegna hópsýkingar á togaranum Júlíusi Geirmundssyni hefur verið frestað til 22. nóvember. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir sagði frá. Guðni Jóhannesson, forseti Íslands verður í sóttkví í kjallaranum á Bessastöðum til mánudags. Starfsmaður á Bessastöðum greindist með kórónuveiruna. ---- Kjördagur var í bandarísku forsetakosningunum í gær, nóttin leið og dagurinn langt kominn, menn telja og telja og enn ekki fullljóst hver verður forseti Bandaríkjanna næstu fjögur árin, þó ýmislegt bendi til þess að Joe Biden sé að mjakast fram úr Donald Trump í ríkjum þar sem enn er ekki ljóst hver hreppir kjörmennina. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Höllu Hrund Logadóttur, stjórnmálafræðing sem stýrir miðstöð Norðurslóða við Harvardháskóla og við Þórð Pálsson, íbúa og kjósenda í Kansas. Utanríkisstefna Bandaríkjanna ræðst af hagsmunum þeirra og ýmsum þáttum innanlands vestra jafnvel frekar en því hvort Donald Trump eða Joe Biden verður forseti segir Albert Jónsson, sérfræðingur í alþjóðamálum og fyrrverandi sendiherra Íslands í Bandaríkjunum. Sunna Valgerðardóttir ræðir við hann. Rösklega 200 lítil fyrirtæki og einyrkjar í ferðaþjónustu hafa sent stjórnvöldum ákall um að grípa verði til aðgerða strax til að forða að þeim frá því að lenda í djúpum skuldavanda. Arnar Páll Hauksson ræðir við Jónu Fanneyju Svavarsdóttur, sem rekur Eldhúsferðir. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Markús

Mörg fyrirtæki berjast í bökkum segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og það sýnir hve alvarleg kórónukreppan er. Leyfa á fleiri fyrirtækjum að sækja um tekjufallsstyrki sem getur orðið að hámarki 17 og hálf milljón. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir tók saman og rætt var við Bjarna. Kröftugur jarðskjálfti á Eyjahafi varð átta að bana og olli töluverðri eyðileggingu í borginni Izmir í Tyrklandi. Skemmdir urðu einnig á grísku eyjunni Samos. Ásgeir Tómasson sagði frá. Theodór Elmar Bjarnason býr í Izmir og fann vel fyrir skjálftanum . Harðari sóttvarnaaðgerðir taka gildi á miðnætti og mega þá ekki fleiri en tíu koma saman. Ekki er búið að útfæra sóttvarnir í skólum en búast má við raski á skólastarfi, sérstaklega í efstu bekkjum grunnskóla. Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra segir von á reglugerð innan skamms. Franskir ríkisborgarar eru í hættu, hvar sem þeir eru í heiminum, að mati þarlendra stjórnvalda. Þúsundir íbúa í múslimaríkjum í Suður-Asíu tóku þátt í mótmælum gegn þeim í dag. Ásgeir Tómasson sagði frá. Seðlabanki Íslands var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sýknaður af kröfum Samherja, sem krafðist rúmlega 300 milljóna króna í bætur. Bankinn þarf hins vegar að greiða Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja, skaðabætur upp á tæpar tvær og hálfa milljón með vöxtum. Andri Yrkill Valsson sagði frá. ----------- Á miðnætti taka gildi enn strangari takmarkanir vegna sóttvarna en hafa gilt og gilda nú sömu viðmið um allt land. Þessar aðgerðir þýða að enn hægir á samfélaginu og staðan er grafalvarleg, segir Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana. Af hverju velja unglingar í 10. bekk að loknu grunnskólanámi frekar bóknám en verknám. Soffia Valdimarsdóttir aðjúnkt í náms- og starfsráðgjöf stýrði málstofu um náms- og starfsval unglinga í Þjóðarspegli Háskóla Íslands í dag. Hún segir að rannsóknir hafi sýnt að 10. bekkingar velji sér framhaldsnám út frá ríkjandi samfélagslegu viðhorfi. Kristján Sigurjónsson talaði við Soffíu. Opinber skýrsla um andúð á gyðingum í breska Verkamannaflokknum hefur nú leitt til þess að Jeremy Corbyn fyrrverandi flokksleiðtogi hefur verið rekinn úr þingflokki verkamanna. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson.

Heilsurækt og heilsuefling hefur sennilega aldrei verið mikilvægari en nú, en á sama tíma eru líkamsræktarstöðvar lokaðar, sundlaugar sums staðar lokaðar, farið að kólna úti og erfitt að hafa sig í gang. Fólk er hvatt til að æfa heima, en hætt er við að slíkt prógramm verði ómarkvisst nema með leiðsögn. Þess vegna hafa margir þjálfarar farið út í það að bjóða upp á heimaæfingar og þær Sigríður Margrét Einarsdóttir, tómstunda og félagsmálafræðingur og Nanna Kaaber íþróttafræðingur eru einmitt að setja af stað slíkt námskeið í næstu viku. Þær mættu sprækar í spjall og sögðu okkur meira. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, kom til okkar og ræddi gagnrýni á nýja kvikmyndastefnu, en WIFT, samtök kvenna í kvikmyndum og sjónvarpi, vilja meina að ekki sé nóg gert til að jafna hlut kvenna í greininni. Við ræddum einnig við hana um hvort skólakerfið sé nægjanlega vel í stakk búið til að takast á við einelti, en mikla athygli vakti á dögunum þegar móðir greindi frá einelti sem sonur hennar hafði orðið fyrir í Sjálandsskóla í Garðabæ. Ísland er talsvert á eftir þegar kemur að stafrænni þróun í verslun og íslensku samfélagi almennt. Þóranna K. Jónsdóttir, hjá Samtökum verslunar- og þjónustu, sagði okkur hvað faghópur hyggst gera í þessu til að bregðast við og hvað vantar til að bæta úr. Landssamtök íslenskra námsmanna krefjast þess nú að boðið verði upp á annars konar námsmat en hefðbundin próf vegna kórónuveirufaraldursins, en töluverðir vankantar virðast vera á því að slíkt sé í boði samkvæmt því sem námsmenn halda fram. Við ræddum við Jóhönnu Ásgeirsdóttur, forseta samtakanna. Við kíktum í tæknihornið með Guðmundi Jóhannsyni í dag og ræddum nýja iphone ásamt snjallvæðingu í landbúnaði. Tónlist: Hildur Vala - Er komin allt of langt. Bjarni Ara - Bara ég og þú. Phil Collins - You cant hurry love. Eyþór Ingi - Þá kem ég heim. Travis - Side. Vök - Autopilot. OMAM - Visitor. Macy Gray - I try. Blur - Coffee and TV. Bubbi Morthens - Sól rís.

Grímuskylda verður um allt land frá næsta þriðjudegi. Takmarkanir á sóttvarnaráðstöfunum verða hertar á landsbyggðinni en verða ekki eins strangar og á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt breytingum sem heilbrigðisráðherra hefur samþykkt. Þórdís Arnljótsdóttir sagði frá. Stjórnvöld kynntu í dag tíu aðgerðir til stuðnings listum og menningu. Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra segir þær með því besta sem gert hefur verið á Norðurlöndum. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra segir þetta mikilvægar aðgerðir til að koma til móts við listamenn sem hafi ekki getað skemmt þjóðinni með hefðubundnum hætti og auðgað líf og anda hennar. Ingvar Þór Björnsson tók saman. Loðnubrestur gæti orðið þriðja árið í röð. Stofnmæling Hafró gefur ekki tilefni til upphafskvóta. Rúnar Snær Reynisson segir frá. Ef Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær og Súðavík sameinast greiðir ríkið sameinuðu sveitarfélagi einn komma tvo milljarða króna. Daníel Jakobsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar segir að það sé skylda sveitarstjórna á Vestfjörðum að vinna betur saman. Umtalsverðir fjármunir séu í húfi. Óðinn Svan Óðinsson talaði við hann . Rúmlega tíu þúsund kórónuveirusmit greindust á Ítalíu síðastliðinn sólarhring og hafa aldrei verið fleiri. Ásgeir Tómasson segir frá. ----------- Afleiðingar sóttvarna vegna kórónuveirufarsóttarinnar hafa lagst þung á listamenn og í dag voru kynntar aðgerðir til að styðja listir og menningu á tímum COVID-19. . Erling Jóhannesson forseti Bandalags íslenskra listamanna segir þetta glæða vonir listamanna sem hafi ekki geta nýtt hefðbundin úrræði vinnumarkaðarins vegna þess hve tekjusamsetning þeirra sé flókin. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Erling. Vegna Covid 19 stefnir í að milljónum minka verði lógað í Danmörku. Smit dreifast nú hratt milli loðdýrabúa. Arnar Páll Hauksson, segir frá og ræðir við Einar E. Einarsson formann Sambands íslenskra loðdýrabænda. Bæði Boris Johnson forsætisráðherra Breta og Evrópusambandið telja að viðræður um viðskiptasamninga strandi á mótaðilanum, en hvorugur vill þó hætta viðræðum. Sigrún Davíðsdóttir segir frá og heyrist í Charles Michel forseta ráðherraáðs ESB og Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Spegillinn 14. október 2020 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason Erfitt verður að ná sátt í stjórnarskrármálinu ef þingmenn eru ekki tilbúnir í málamiðlanir, segir formaður þingflokks sjálfstæðisflokksins. Litlar líkur eru taldar á samkomulagi um veigamiklar breytingar á stjórnarskrá fyrir lok kjörtímabils. Atvinnuleysi eykst eftir því sem lengra líður á Covid-faraldurinn. Ung kona sem hefur verið atvinnulaus í 10 mánuði segist vonlítil um að fá vinnu. Stjórnvöld í Ísrael hafa heimilað að á þriðja þúsund íbúðir verði byggðar í landtökubyggðum í Palestínu. Búist er við að þeim verði fjölgað um tvö þúsund til viðbótar á morgun. Tillögur starfshóps þriggja ráðuneyta um að stytta sölutímabil flugelda fyrir áramót og færri skotdaga eru íþyngjandi segir formaður Landsbjargar. Stjórnvöld í Frakklandi ætla á ný að lýsa yfir neyðarástandi af heilbrigðisástæðum við að reyna að koma böndum á útbreiðslu kórónuveirunnar. Emmanuel Macron forseti flytur sjónvarpsávarp á næstu mínútum þar sem hann fer yfir ráðstafanir sem grípa á til í baráttunni við veiruna. Maðurinn sem lést í bruna í húsbíl í landi Torfastaða í Grafningi hét Einar Jónsson. Einar var með skráð lögheimili í Reykjavík. Hann var ókvæntur og barnlaus, fæddur árið 1982. Ákveðið hefur verið að aflétta rýmingu sem gilti fyrir bæina Gilsá 1 og 2 í Eyjafirði og sumarbústað við síðarnefnda bæinn. Bæirnir og bústaðurinn voru rýmd eftir að aurskriða féll úr Hleiðargarðsfjalli þann 6. október síðastliðinn. Lengri umfjallanir: Menntamálaráðuneytið hefur lagt til að viðmiðunarstundaskrá grunnskóla verði breytt svo meiri tíma verði varið í íslensku á yngri stigum grunnskóla og á unglingastigi verði bætt í náttúrugreinar og dregið úr vali á móti. Stefnt er að því að breytingar taki gidli frá og með næsta skólaári. Vísað er til þess að árangur íslenskra grunnskólanemenda hafi verið viðvarandi slakur í íslensku og náttúrufræði í PISA-könnunum sem gerðar eru á þriggja ára fresti hjá 15 ára nemendum. Á morgun (15. október) rennur út frestur til að skila inn umsögn um tillögurnar og hafa þegar borist á sjöunda tug umsagna. Sýnist þar sitt hverjum en margir eru hugsi yfir skerðingu á vali. Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra, segist fagna hverri umsögn sem berst. Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur, segist taka undir það að rýna þurfi í hvað gert er í skólum og gera það sem þarf til að styrkja stöðu nemenda í þessum greinum, það er móðurmáli og náttúrugreinum. Anna Kristín Jónsdó

Andlát manns í húsbíl sem brann í Grafningi á föstudagskvöld var líklega slys, að sögn Odds Árnasonar yfirlögregluþjóns. Engu hefði breytt þótt símtal í Neyðarlínuna um kvöldið hefði skilað sér rétta leið. Neyðarlínan og Ríkislögreglustjóri harma að það hafi misfarist. Stígur Helgason tók saman. Lögregla í Hvíta-Rússlandi hótar að skjóta stjórnarandstæðinga ef þeir hætta ekki mótmælum gegn Lúkasjenkó, forseta landsins. Ásgeir Tómasson sagði frá Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir löngu tímabært að endurskoða sóttvarnarlög og ræða heimildir og forsendur beitt hefur verið. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra segir að réttur fólks til lífs og heilsu trompi ýmis réttindi. Aðalsteinn Hákonarson. formaður mannanafnanefndar segir að sér lítist vel á frumvarp dómsmálaráðherra um að fella nefndina niður en það væri miður ef breytingar á mannanafnalögum yrðu til þess að íslenski kenninafnasiðurinn léti undan. Systurnar Eydís Rán og Ingibjörg Sædís vilja hins ekki kenna sig við foreldra sína heldur búa sér til sitt eigið ættarnafn. Það hafa þær ekki mátt hingað til. Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að það hafi verið mikil vonbrigði að lesa fréttir um að formaður Viðreisnar hafi farið svig við tilmæli sóttvarnaryfirvalda og spilað golf í Hveragerði. Þingmenn á landsbyggðinni leggi mikið á sig til að sinna störfum sínum í breyttu landslagi. --- Geymsluvandi íslenskra safna er víða býsna alvarlegur - helst að ástandið sé þokkalegt á Þjóðminjasafninu. Höfuðsöfn hrjáir plássleysi, brunavörnum er ábótavant og hætta á skemmdum vegna raka og vatnsleka eins og fram kom í fréttaskýringarþættinun Kveik í síðustu viku. Í greinargerð vegna Fjármálaáætlunar ríkisins 2021-2025 segir beinlínis að menningararfur þjóðarinnar sé í hættu og geti glatast að einhverju leyti ef ekki sé tekið á þessum geymslumálum með heildstæðum hætti. Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og menntamálaráðherra segir þetta auðvitað umhugsunarefni fyrir menningarþjóð en verið sé gera margt gott. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Lilju. Í síðustu viku var Bretland í fjórða sæti á listanum, sem enginn vill vera á, heimslistanum yfir mesta útbreiðslu Covid-19 veirunnar. Nú verða aðgerðir hertar þar í landi. Vafasamir viðskiptahættir Norður-Kóreumanna eru afhjúpaðir í nýjum dönskum heimildaþætti sem vakið hefur mikla athygli. Þar kemur fram að í boði eru viðskipti með vopn og eiturlyf til að afla tekna fyrir landið.

Hvor er klárari/vitlausari, Áslaug Arna eða Kolbrún Reykfjörð? Hvort er Brynjar Níelsson meiri kjáni eða letingi. Af hverju er einhver sauðfjárbóndi félagsmálaráðherra? Af hverju var sonur kvótakóngs sjávarútvegsráðherra? Af hverju fékk Lilja Alfreðs ekki að snýta munaðarleysingjum í S-Kóreu? Það er svo margt skrítið í þessum heimi. Eldur og brennisteinn hefur nú ratað í helstu hlaðvarpsveitur.
Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra hefur höfðað mál til að fá úrskurði kærunefndar Jafnréttismála hnekkt um ráðningu hennar á skrifstofustjóra menntamálaráðuneytisins. Málið höfðar hún gegn konunni sem vísaði málinu til nefndarinnar, lögum samkvæmt, en Lilja baðst undan viðtali þegar við í Morgunútvarpinu leituðumst eftir því. Kæruna hafa þingmenn Viðreisnar gagnrýnt mikið undanfarna daga og hún Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður, kom til okkar til að ræða málið. Þrjú slys hafa orðið í júní þar sem börn eða unglingar eru undir stýri á rafhlaupahjólum og rafvespum. Við fengum til okkar Árna Friðleifsson, aðalvarðstjóra í umferðardeild lögreglunnar, til að ræða aðeins um reglurnar sem gilda varðandi þessi hjól og börn undir stýri. Í gær varð skelfilegur bruni á horni Vesturgötu og Bræðraborgarstígs í Reykjavík. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri kom og sagði okkur frá aðgerðum slökkviliðs og hvað átti sér stað þarna. Forsetakosningar verða á morgun. Tvíeykið Bogi Ágústsson og Ólafur Þ Harðarson fóru yfir kosningabaráttuna eins og hún hefur verið, litu aðeins um öxl á fyrri mótframboð sem forsetar lýðveldisins hafa fengið og spáðu í spilin um hvað gerist í kappræðum frambjóðendanna á RÚV í kvöld og hvað kemur upp úr kjörkössunum á morgun. Enska liðið Liverpool lauk eyðimerkurgöngu sinni þegar liðið varð Englandsmeistari í gær eftir 30 ára bið. Formaður Liverpool-samfélagsins á Íslandi, skemmtikrafturinn Sóli Hólm, kom til okkar í sigurvímu.

Á morgun eru liðin 55 ár frá því að ljóst varð að handritin skyldu flutt frá Danmörku til Íslands. Það liðu þó nokkur ár þar til fyrstu handritin, Flateyjarbók og Konungsbók Eddukvæða, komu til landsins. Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, kom á Morgunvaktina og fór yfir söguna og aðdraganda þess að samningar náðust og hvað í þeim fólst. Hún sagði líka frá því að von er á tillögum í júní eða júlí frá starfshópi sem hefur farið yfir möguleikann á því að fá fleiri handrit til landsins, eins og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur sagst áhugasöm um. Hluthafafundur er hjá Icelandair í dag, þar sem afstaða verður tekin til þess hvort farið verður í hlutafjárútboð upp á um það bil þrjátíu milljarða króna eða ekki. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, fór yfir stöðu Icelandair og söguna undanfarinn rúman áratug. Síðast var Icelandair nefnilega í stórum vandræðum fyrir rétt rúmum tíu árum síðan, eftir hrun. Þangað til kórónuveirufaraldurinn tók yfir voru forsetakosningar í Bandaríkjunum stóra frétt ársins þar í landi. Kosningarnar verða nú líklega áfram ein af stóru fréttunum, en þær hafa kannski aðeins fallið í skuggann undanfarið. Eða hvað, eigum við að vera að skoða það sem frá Trump Bandaríkjaforseta í ljósi kosninganna? Birna Anna Björnsdóttir hefur verið búsett í New York í Bandaríkjunum lengi og koma á Morgunvaktina og ræddi kosningarnar og málin sem falla í skuggann. Tónlist: Blue in Green - Miles Davis.

Að þessu sinni fá Kristín og Þórarinn blaðamanninn Jakob Bjarnar Grétarsson í hlaðvarpið til að ræða um fjölmiðlun og pólitískan rétttrúnað. Þættinum er skipt í þrjá hluta. Fyrst verður rætt um siðferði og skyldur blaðamanna, æsifréttir, "clickbait" og áhrif samfélagsmiðla. Í öðrum hluta ræða þau um pólitískan rétttrúnað í blaðamennsku, femínisma, #MeToo-byltinguna, fóstureyðingar, fitufordóma, akademískar stofnanir og tjáningarfrelsi. Að lokum lýsir Jakob skoðunum sínum á vanköntum fjölmiðlafrumvarpsins sem Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra lagði fram nýverið og á sérstöðu Ríkisútvarpsins, RÚV.Þríeykinu tekst að koma höggi á nánast alla og ættu allir hlustendur að geta móðgast yfir einhverju.
Einkareknir fjölmiðlar hafa lengi kvartað undan auglýsingatekjum RÚV, og nú hefur mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, opnað fyrir umræðu um mögulegt brotthvarf RÚV af auglýsingamarkaði. Ef úr verður, þá horfum við fram miklar breytingar á landslagi íslenskra fjölmiðla. En hvað þýðir þetta fyrir íslenskan fjölmiðlamarkað? Er ráðherra einfaldlega að bregðast við öðrum breytingum á markaðnum, svo sem tilkomu stafrænna miðla, eða kemur fleira til? Og hvað verður um þessar auglýsingatekjur sem færast frá RÚV? Getum við gengið að því vísu að þær renni sjálfkrafa til íslenskra fjölmiðla? Gestur Kjartans er Þorbjörn Broddason, prófessor emerítus í félagsfræði við Háskóla Íslands. Þorbjörn hefur stundað rannsóknir á íslenskum fjölmiðlum um áratuga skeið og fara þeir Kjartan yfir stöðuna á fjölmiðlamarkaðnum.
Ragnheiður Runólfsdóttir ein af sundhetjum okkar Íslendinga og íþróttamaður ársins 1991 er á sænska unglingameistaramótinu í sundi í Svíþjóð. Hún er ekki að keppa heldur hefur tekið að sér að þjálfa eitt stærsta sundfélags landsins, S02 í Gautaborg, frá næsta hausti. Ragnheiður var á línunni. Arkarinn Eva er komin ríflega hálfa leið í kringum landið, en þessi 16 ára unga ofurkona gengur til styrktar Barnaspítala Hringsins. Við heyrðum í henni fyrir rúmri viku og vildum vita hvort hafi dregið af henni svo við slógum á þráðinn. Stefnt er að því að lánasjóður íslenskra námsmanna verði styrktarsjóður og fái nafnið SÍN. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur birt drög að nýjum lögum og bíður nú ábendinga í samráðsgátt. Lilja kom til okkar í Morgunútvarpið. Fréttir vikunnar voru á sínum stað og gestirnir þessa vikuna voru þau Atli Fannar Bjarkason, stofnandi Nútímans og fréttarýnir Viku Gísla Marteins, og Kristjana Guðbrandsdóttir, umsjónarmaður helgarblaðs Fréttablaðsins. Freyr Gígja Gunnarsson mætti aftur að loknu fríi og fór yfir helstu Hollywood fréttirnar.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta-og menningamálaráðherra Fædd í Reykjavík 4. október 1973. Foreldrar: Alfreð Þorsteinsson (fæddur 15. febrúar 1944) fyrrverandi borgarfulltrúi og framkvæmdastjóri og Guðný Kristjánsdóttir (fædd 12. ágúst 1949) prentsmiður. 1979-1989 Fellaskóli í Reykjavík 1993: Stúdentspróf MR 93-94: Skiptinám í stjórnmálasögu Austur-Asíu við Ewha University, Seoul. 1998: BA-próf í stjórnmálafræði frá HÍ. 1998: Skiptinám í þjóðhagfræði […]
Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Davíð Berndsen Fjögurra milljóna króna mánaðarlaun eru ekki hófleg og ekki í neinum veruleika sem við þekkjum. Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um laun bankastjóra á Alþingi í dag. Kúabændur kusu með yfirgnæfandi meirihluta að viðhalda kvótakerfinu í stað þess að gefa mjólkuframleiðslu frjálsa. Atkvæðagreiðslan, sem er hluti af endurskoðun búvörusamnings, hefur staðið í viku og lauk á hádegi í dag. Aðeins um 10% þeirra sem greiddu atkvæði vilja afnema framleiðslustýringu. Þetta þýðir að breyta þarf hluta búvörusamnings. Arnar Árnason, formaður Landssambands kúabænda, fagnar þessari niðurstöðu. Fjölskylda Jóns Þrastar Jónssonar sem hvarf í Dyflinni á Írlandi fyrir rúmri viku dreifir myndum af Jóni ytra og biður fólk um að gefa sig fram hafi það orðið vart við ferðir hans. Lögreglan á Írlandi rannsakar málið enn og safnar upplýsingum frá almenningi. Írska lögreglan segir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu að rannsóknin á hvarfi Jóns sé enn í gangi. Lítill hluti mála sem falla undir stafrænt kynferðisofbeldi kemur til kasta lögreglu og ákæruvalds þrátt fyrir fjölda slíkra brota, segir varahéraðssaksóknari. Þau mál sem þangað rati séu einungis toppurinn á ísjakanum. VR hótar því að taka 4,2 milljarða úr eignastýringu hjá Kviku banka. Ástæðan er sú að Almenna leigufélagið, krefur leigjendur sína um tugþúsundum hærri leigu gegn þeim afarkostum að verða annars hent á götuna. Kvika samdi nýlega um kaup á GAMMA sem stýrir fasteignasjóði sem á Almenna leigufélagið. Tzipi Livni, fyrrverandi utanríkis- og dómsmálaráðherra Ísraels, tilkynnti óvænt í dag að hún væri hætt í stjórnmálum. Hatuna flokkur hennar verður heldur ekki í framboði í þingkosningum í apríl. Byggingaiðnaður og landbúnaður bera ábyrgð á nær helmingi allrar losunar gróðurhúsalofttegunda í heiminum. Þetta segir Bill Gates, stofnandi Microsoft-tölvurisans. Lengri Umfjöllun: Sjö þingmenn Verkamannaflokksins hafa sagt sig úr flokknum. Ástæðan er óánægja með leiðtogann Jeremy Corbyn og harða vinstristefnu hans, í viðbót við tvískinning hans varðandi útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Klofningsflokkar í Bretlandi hafa hingað til ekki átt langa lífdaga svo ef að líkum lætur gæti þingmönnunum reynst erfitt að láta til sín taka. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Friðun eða ekki friðun Víkurkirkjugarðs eða Fógetagarðsins, þar liggur efinn. Menntamálaráðherra hefur enn ekki tilkynnt úrskurð sinn, en fjallað verður um málið í Speglinum. Til stóð að Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra ú
Í dag opnar forvitnileg sýning á Háskólatorgi HÍ. Þar sameinast Myndlistarskólinn og Daníel G. Daníelsson sagnfræðinemi í verkefninu Eftirlýstir Íslendingar á 17. og 18. öld, en á sýningunni má sjá 30 teikningar byggðar á mannlýsingum úr Alþingisbókum Íslendinga á þessum tíma. Daníel kíkti til okkar í morgunkaffi og sagði okkur meira af þessum eftirlýstu Íslendingum. Fornleifauppgröftur og rannsóknir á landi hafa fært okkur mikið magn upplýsinga um líf og störf fólks á fyrri öldum og fært okkur nær því að vita hvenær byggð hófst í landinu. Meðal þeirra sem rannsakað hafa atvinnusöguna, einkum þann risavaxna iðnað sem hvalveiðar útlendinga við Ísland voru, er Ragnar Edvardsson fornleifafræðingur. Ragnar hefur ásamt fleirum snúið sér að því að kanna næsta ókunnar lendur, ef svo má segja, því hann hefur snúið sér að fornleifarannsóknum í sjó. Ragnar var á línunni. Morgunblaðið greindi frá því í gær að tveir ernir hafi sést fljúga yfir Hveragerði og hnitað þar hringi í um hálftíma. Þetta verður að teljast óvenjulegt, var haft eftir Kristni Hauki Skarphéðinssyni, dýravistfræðingi, þó talsvert sé um erni á Suðurlandi á veturna, en þar hafa þeir gjarna vetursetu. Kristinn kom til okkar og sagði okkur frá þessu og því hvernig staðan á arnarstofninum er. Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra kom til okkar, en hún mun á næstu dögum kynna frumvarp sem ætlað er að taka á stuðningi við fjölmiðla í landinu, aðra en Ríkisútvarpið. Samkvæmt fréttum er gert ráð fyrir því að allt að 350 milljónum króna verði varið til stuðnings við fjölmiðla, að erlendri fyrirmynd. Við heyrðum meira af þessu, hvítbók um fjármálakerfið, kennaranámi og fleiru þegar Lilja settist hjá okkur. Sævar helgi Bragason mætti í sitt vikulega vísindahorn og þar komu tunglið og vísundar m.a. við sögu. Tónlist: Ylja - Konan með sjalið. Lay Low - Please dont hate me. Travis - Flowers in the window. Eagles - Peaceful easy feeling. Roxy Music - Love is the drug. Mike Oldfield og Maggie Reilly - Moonlight shadow. Sniglabandið - Elskaðu heiminn.
Hismið er á alþjóðlegum nótum í dag þar sem Grétar er í leiðinlegasta hluta LA, Anaheim og fer yfir málin í gegnum síma. Ræðum um endurkomu Miðflokksmanna og hverju Lilja Alfreðsdóttir hefur hvíslað í eyra Gunnars Braga í þingsalnum og hvort ekki þurfi að fara að vinna með varalestur í sjónvarpsfréttum til að greina betur hvað sagt er. Förum yfir endurkomu Heimastjórnarinnar, velgengnisskyrtur Ingva Hrafns, peak-miðaldra móment Árna á dögunum og menn sem teikna útlínur á verkfærin sín í bílskúrnum.
Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Flugumferð frá Heathrow flugvelli í Lundúnum hefur verið stöðvuð vegna gruns um að dróni hafi sést á lofti í nágrenni vallarins. Á Twitter kemur fram að flugvallaryfirvöld vinni náið með Lundúnalögreglunni til að koma í veg fyrir að öryggi sé ógnað Öll vinna við stofnmælingar og veiðiráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar er í uppnámi ef ríflega 230 milljóna niðurskurður á rekstri stofnunarinnar verður að veruleika. Forstjóri Hafró og útilokar ekki að segja þurfi upp fólki. Mikilvægast er að koma greiðslu á örorkulífeyri þeirra sem búið hafa í öðru EES í rétt horf á þessu ári, en fara síðan í að leiðrétta skekkju fyrri ára. Þetta segir félagsmálaráðherra. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur fallist á tillögu Minjastofnunar um friðlýsingu Víkurgarðs, sem nú er Fógetatorg í miðbæ Reykjavíkur. Friðlýsingin nær aðeins til Víkurgarðs eins og hann er skilgreindur í núgildandi lóðauppdrætti af svæðinu. Mikill sóðaskapur er við tuttugu yfirgefna sumarbústaði við Elliðavatn. Svo virðist sem einhverjir hafi farið þar um og skemmt allt sem hægt er að skemma. Íbúar í nágrenninu hafa verulegar áhyggjur af ástandinu. Bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa ítrekað reynt að fá leyfi hjá landeiganda til að hreinsasvæðið. Á annað hundrað þúsund kennarar í Simbabve leggja niður vinnu frá og með morgundeginum. Þeir segja að laun þeirra hafi gufað upp að undanförnu. Umhverfisstofnun hefur lokað fyrir umferð gangandi fólks um Fjarðárgljúfur um óakveðinn tíma. Gögnustígur er eitt forarsvað vegna bleytutíðar og mikils ágangs. Guðjón Valur Sigurðsson landsliðsfyrirliði í handbolta er meiddur og verður ekki með á Heimsmeistaramótinu sem hefst á föstudag í Þýskalandi. Lengri Umfjallanir: Reikniaðferðir Tryggingastofnunar til að meta búsetuhlutfalla öryrkja hafa verið notaðar í aldarfjórðung. Vegna reglna um fyrningar verður ekki endurgreitt nema fjögur ár aftur í tímann en það sættir Öryrkjabandalagið sig ekki við. Arnar Páll Hauksson segir frá. Landlæknisembættið gaf í dag út skýrslu, eða hlutaúttekt, vegna alvarlegrar stöðu á bráðamóttöku Landsspítalans. Óhætt er að segja að niðurstöður úttektarinnar séu býsna afdráttarlausar og landlæknisembættið kemur með ábendingar til bæði Landspítala og Heilbrigðisráðuneytis um aðgerðir sem sumar hverjar þola enga bið. Kristján Sigurjónsson ræðir við Ölmu D. Möller landlækni í beinni útsendingu.
Hver verða áhrifin af Klausturs-málinu á stjórnmálin? Við blasir að Miðflokkurinn sérstaklega er stórlaskaður. Helstu leiðtogar flokksins komnir upp að vegg eftir að Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra, svaraði svívirðilegu umtali þessara fyrrverandi félaga sinna. Það virðist útbreidd skoðun á þingi að erfitt verði að starfa þar í návist þeirra sem gamminn geisa á Klaustur-barnum. Og nú síðast bættist við að einn umræddra þingmanna veittist að starfsmönnum þingsins. Skrifstofustjóri Alþingis svaraði fyrir sig og starfsmenn. Það gerist ekki á hverjum degi. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, þingfréttamaður, fór yfir stöðu málsins og ræddi líka þingstörfin í vikunni. Brot úr ræðum þingmanna voru flutt. - Nýr kafli var skráður í flugsögu Íslands í gær þegar WOW Air hóf að fljúga alla leið til Indlands. Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi, komst ekki í jómfrúarflugið, hann er upptekinn við að tryggja framtíð félagsins. Við ræddum þessi tímamót og fleira við Kristján Sigurjónsson í ferðaspjalli dagsins. - Öld er liðin síðan Samvinnuskólinn var stofnaður í Reykjavík. Í fyrstu var kennt í húsi Iðnskólans við Vonarstræti og svo lengi vel í húsi Sambands íslenskra samvinnufélaga við Sölvhólsgötu. Árið 1955 var skólinn fluttur að Bifröst í Norðurárdal í Borgarfirði og þar er hann enn. Árið 1988 var námið færst á háskólastig og 2006 hlaut skólinn núverandi nafn: Háskólinn á Bifröst. Vilhjálmur Egilsson, rekto, spjallaði við okkur um langa sögu Samvinnuskólans og Háskólans á Bifröst og skólastarfið í dag - já og svolítið um Jónas frá Hriflu. - Þess var minnst í þættinum að öld er liðin frá fæðingu Jórunnar Viðar, tónskálds. - Tónlist: Björk - Vökuró, eftir Jórunni Viðar og Jakobínu Sigurðardóttur.
Í dag er dagur íslenskrar tónlistar og af því tilefni kíktu þau Jóhann Ágúst Jóhannsson og Margrét Eir Hönnudóttir til okkar og sögðu okkur frá Íslensku tónlistarverðlaununum í ár. Hafi einhverjir haldið að umræðan um Klausturupptökurnar alræmdu væru að lognast út af þá er það rangt. Lilja Alfreðsdóttir sagði í Kastljósi í gær að Miðflokksmenn væru ofbeldismenn og að til greina komi að þingmenn hunsi þá í þingstörfum og eigi ekki í orðaskiptum við þá. Svandís Svavarsdóttir, ráðherra, Helga Vala Helgadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, og Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi félagsmálaráðherra komu til okkar og ræddu þetta mál. Greint var frá því í gær að allsherjar- og menntamálanefnd leggur til að Bubbi Morthens fái heiðurslaun listamanna. Við slógum á þráðinn til Bubba. Margir voru hrifnir af því að Borgarleikhúsið skyldi taka upp á því að láta leiklesa samtal þingmanna á barnum Klaustri. Sumir hafa þó gagnrýnt þetta með þeim rökum að þetta sé tillitsleysi við þá sem þingmennirnir töluðu illa um. Kristín Eysteinsdóttir, borgarleikhússtjóri, fór yfir þetta með okkur. Anna Sigríður Þráinsdóttir var með sinn vikulega pistil um íslenskt mál og að þessu sinni ræddum við m.a. ólíka orðanotkun milli landshluta. Tónlist: Nýdönsk - Hversdagsprins. Jól - Gunnar Þórðarson. Mammút - Breathe into me. Bubbi - Ég rata ekki heim. Valdimar - Stimpla mig út. Magnús Þór og Árstíðir - Elísabet. Salka og Sólkerfið - Sérhver sól.
Tryggvi Þorgeirsson læknir og lýðheilsufræðingur var á línunni og svaraði því hvort hreyfing úti í náttunni hafi önnur áhrif á okkur en hreyfing inni í tækjasal? Og hvort hreyfing geti verið áhrifaríkari en lyfjameðferð við langvinnum kvillum. Hvert er besta nestið í lengri og styttri útivistarferðir? Við freistuðum þess í það mál í þættinum. Heyrum í Einari Skúlasyni göngumanni með meiru sem segir okkur meira. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra mælti fyrir frumvarpi í vikunni sem miðar að því að styðja betur við bókaútgáfu í landinu. Í frumvarpinu er m.a. mælst til þess að komið verði á fót stuðningskerfi sem heimilar endurgreiðslu 25% beins kostnaðar vegna útgáfu bóka á íslensku. Rithöfundar eru missáttir með útfærsluna og hafa áhyggjur af því að endurgreiðslan endi beint í vösum útgefenda, ekki þeirra sem skrifa bækurnar. Við fórum yfir málið með Lilju. Fréttir vikunnar voru á sínum stað í þætti dagsins. Nýr fréttastjóri Stöðvar 2 Erla Björg Gunnarsdóttir kom til okkar ásamt Þórhildi Ólafsdóttur dagskrárgerðarkonu á RÚV. Hégómavísindahorn Freys Gígju Gunnarsson var á sínum stað eins og alla föstudaga og þar var víða við komið. Tónlist: Stuðmenn - Ástardúett. Friðrik Dór - Hata að hafa þig ekki hér (ft. Bríet). Ultravox - Vienna. The Police - De do do do de da da da. Teitur Magnússon - Orna. Jónas Sig - Dansiði. Bruno Mars - 24k Magic. Retro Stefson - Skin. Gus Gus - Over.
Gestir þáttarins eru Þorsteinn Víglundsson, Brynjar Níelsson, Inga Sæland, Sigurður Ingi Jóhannsson og Lilja Alfreðsdóttir. Umsjón: Milla Ósk Magnúsdóttir.

Norræna húsið í Vatnsmýrinni var reist fyrir hálfri öld og þar hefur verið blómleg og mikilvæg starfsemi allar götur síðan. Þessum tímamótum er fagnað með ráðstefnu í dag og menningarveislu á morgun og allir velkomnir. Arnbjörg María Danielsen, dagskrárstjóri Norræna hússins, sagði frá Norræna húsinu og starfinu þar. - Menntakerfið og skólamál eru sífellt til umræðu, bæði hér á Morgunvaktinni og annars staðar í samfélaginu. Erum við á réttri leið? Hvað þarf að bæta? Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra hefur sett af stað vinnu við mótun menntastefnu til ársins 2030. Hún ræddi um menntastefnuna, áherslur í skólamálum, en líka um norrænt samstarf og minntist Stefáns Karls Stefánssonar, leikara. - Í ferðaspjalli á föstudegi talaði Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista.is, um ferðasumarið, farmiðatryggingar, aukagjöld og fleira. - Í dag eru tíu ár frá einum merkasta viðburði íslenskrar íþróttasögu - það er áratugur síðan handboltalandsliðið hlaut silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í Beijing. Fáir, ef nokkrir, spáðu því fyrir mót að Ísland léki til úrslita og kannski var það einmitt þess vegna sem þessi stórkostlegi árangur náðist. Við rifjuðum þetta sögufræga afrek upp á Morgunvaktinn í dag með Guðmundi Guðmundssyni þjálfara og spjölluðum líka um verkefnin fram undan hjá landsliðinu en Guðmundur er nýlega tekinn við þjálfun þess á ný. - Tónlist: Lisa Ekdahl - Benen i kors; The Easybeats - Friday on my mind.
Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra hefur hrint af stað átaki til að hvetja nemendur til að leggja sig fram í PISA-prófunum sem nú standa yfir. Hún hefur fengið þekkta einstaklinga til liðs við sig og opnað vef þar sem nemendur geta nálgast hvatningarskilaboð frá fótboltafólki, tónlistarfólki og fjölmiðlafólki, svo eitthvað sé nefnt. Lilja kemur og segir okkur frá átakinu. Við ræddum við dýralækninn Freyju Kristinsdóttur um hundinn Rjóma í gær og baráttu eiganda hans við stjórnvöld en það tók hann fimm ár að fá leyfi til að flytja Rjóma með fjölskyldunni til Íslands frá Noregi. Eitt af því sem Freyja sagði var að það væru inngrónir fordómar gegn hundahaldi í kerfinu á Íslandi. Þeir birtast meðal annars í því að það er nánast óvinnandi vegur fyrir kaffihúsaeigendur að uppfylla skilyrði í reglugerðinni samkvæmt túlkun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur til þess að fá að leyfa aðgang hunda. Við fáum Ásmund Helgason, eiganda Gráa kattarins á Hverfisgötu, til að segja okkur frá þessu. Við förum yfir fréttir vikunnar með Kristrúnu Heimisdóttur og Friðjóni Friðjónssyni. Freyr Gígja Gunnarsson kemur í sína vikulegu heimsókn og ræðir hégómavísindi sín.
Í sjötta þætti af Málið er rýnum við í lestur ungmenna. Er ungt fólk hætt að lesa eða er þessum lesendahópi kannski ekki sinnt nægilega vel? Viðmælendur eru Brynhildur Þórarinsdóttir, Melkorka Gunborg Briansdóttir, Egill Örn Jóhannsson og Lilja Alfreðsdóttir. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir.

Morgunvaktin hófst á spjalli um veður og færð. Danski jafnaðarmannaflokkurinn hefur kynnt nýja og gjörbreytta stefnu varðandi flóttafólk og hælisleitendur. Samkvæmt þessari nýju stefnu gæti flóttafólk og hælisleitendur ekki óskað eftir landvist við landamærin en yrði sent í sérstakar móttökubúðir í t.d Jórdaníu eða norðanverðri Afríku, þar sem það dveldi meðan mál þess yrðu afgreidd. Borgþór Arngrímsson sagði frá þessu og fleiru. Vetrarólympíuleikarnir verða settir í PyeongChang í Suður-Kóreu á föstudag. Síðustu misseri hefur spenna á Kóreuskaga farið vaxandi vegna vaxandi hernaðarumsvifa Norður-Kóreumanna, sem telja sér ógnað. Í aðdraganda leikanna PyeonChang hefur nokkur þíða í samskiptum kóresku ríkjanna. Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra, er í Suður-Kóreu og verður við setningu Vetrarólympíuleikanna. Hún lýsti væntingum S-Kóreumanna og undirbúningi leikanna. Stjórnvöld í Kenía hafa á síðustu vikum bannað helstu sjónvarpsstöðum landsins að senda út dögum saman, fangelsað stjórnarandstæðinga og hunsað dómsúrskurði. Ástæðuna má rekja til umdeildra forsetakosninga í fyrra. Nú er óttast um þróun bæði fjölmiðlafrelsis og lýðræðis í Kenía, sem undanfarið hefur verið talið eitt af stöðugustu ríkjum Afríku stjórnmálalega. Vera Illugadóttir sagði frá þessu. Bob Marley & The Wailers fluttu lagið Africa, unite. Háskólinn á Akureyri fékk heimild til doktorsnáms í byrjun vetrar. Fyrstu nemendurnir hefja námið í haust. Eyjólfur Guðmundsson, rektor, sagði frá undirbúningnum og breytingum á skólastarfinu.
7.15 - Nokkrar umræður hafa verið um veiðigjöld undanfarna daga eftir að fréttir bárust af því að ný ríkisstjórn ætlaði sér að lækka veiðigjöld á lítil og meðalstór sjávarútvegsfyrirtæki. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði hér í Morgunútvarpinu á þriðjudaginn að ekkert væri enn ákveðið í þeim efnum og vísaði í stjórnmálasáttmálann þar sem segir að afkomutengja eigi veiðigjöld og sagði að ekki væri útilokað að endurskoðun veiðigjalda yrði til þess að þau yrðu hækkuð á stærri fyrirtæki. Daði Már Kristófersson, prófessor í hagfræði, er formaður vinnuhóps um auðlindageirann í verkefnastjórn Samráðsvettvangs um aukna hagsæld sem skilaði tillögum árið 2013. Hann ræðir við okkur um þær leiðir sem lagðar voru til varðandi endurskoðun veiðigjalda. 7.30 - Það verður áhugaverð ráðstefna í Háskólanum í Reykjavík á morgun á vegum lagadeildar og sálfræðisviðs háskólans um kynferðisofbeldi. Þar heldur Jón H B Snorrason aðstoðarlögreglustjóri meðal annars erindi með ber yfirskriftina: Pressar lögreglan um of á þolendur að kæra? Áhugaverð spurning og kannski vangavelta sem maður heyrir ekki oft þegar kemur að gagnrýni á lögregluna við meðferð kynferðisbrotamála. Hingað til hefur háværasta gagnrýnin verið á þá leið að lögregla geri ekki nóg til að ná fram réttlæti í þessum málum. Jón HB Snorrason og Svala Ísfeld Ólafsdóttir dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík ætla að segja okkur betur frá ráðstefnunni og aðstoðarlögreglustjórinn kemur til með að útskýra betur hvaðan þessi spurning sprettur, þ.e. hvort lögreglan pressi um of á þolendur kynferðisofbeldis að kæra brotin. 7.45 - Foreldar þurfa óhjákvæmilega öðru hvoru að taka frí frá vinnu vegna veikinda barna, það þekkja allir. Nú er að hefjast rannsókn á því hver þjóðhagslegur kostnaður er af því að foreldrar geti ekki sinnt vinnu eða námi. Þessi rannsókn er einsdæmi á heimsvísu en henni stýrir Valtýr Stefánsson Thors, sérfræðingur í barnalækningum og barnasmitsjúkdómum og aðjúnkt við Háskóla Íslands. Hann kemur til okkar. 8.05 - Í vikunni greindi Fréttablaðið frá því að menntamál í fangelsinu á Hólmsheiði væru í algjörum ólestri. Fjölbrautarskóli suðurlands hætti að veita þjónustuna í haust til að þrýsta á um aukið fjármagn til vinnunnar en samningar sem átti að ná við Menntamálaráðuneytið voru ekki kláraðir fyrir áramót. Skólastjóri FSu segir kennara skólans tilbúna að hefja námið að nýju um leið og fjármagn fæst til þess. Fangelsið á Hólmsheiði er meðal annars eina kvennafangelsi landsins og því enga menntun að hafa fyrir konur sem þar afplána. Lilja Alfreðsdótt