Hlustaðu nú!

Follow Hlustaðu nú!
Share on
Copy link to clipboard

„Hlustaðu nú!" er þáttaröð fyrir krakka og fjölskyldur til að hlusta á saman, í sitthvoru lagi, í bílnum, uppi í rúmi, inni í tjaldi, á ferð og flugi eða bara heima í rólegheitum. Þema þáttanna verður margbreytilegt, eins og heimurinn sem við búum í. Sannar og skáldaðar sögur, tónlist, íþróttir og leikir, dularfullar ráðgátur og allt þar á milli. Og hlustaðu nú! Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.

RÚV


    • Jun 2, 2021 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 38 EPISODES


    Latest episodes from Hlustaðu nú!

    Sinfóníutónlist

    Play Episode Listen Later Jun 2, 2021


    Hvernig hljómsveit er sinfóníuhljómsveit? Hvernig tónlist spilar hún? Hvernig meistari er konsertmeistari? Til hvers er þetta prik sem stjórnandinn sveiflar framan í hljóðfæraleikarana? Hvað eru margir í sinfóníuhljómsveit? Við fáum svör við öllum þessum spurningum og fleirum til í þessum þætti. Við heyrum líka allskonar tónlist sem sinfóníur spila, hittum konsertmeistara Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og kynnumst hljóðfærafjölskyldunum. Sérfræðingur þáttarins: Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir, fiðluleikari og konsertmeistari Þátturinn var áður á dagskrá í janúar 2019 Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Raftónlist

    Play Episode Listen Later May 26, 2021


    Hvað er raftónlist? Er hægt að gera tónlist án þess að snerta hljóðfæri? Hvað þýðir analog, digital og midi? Hvernig flytja raftónlistarmenn tónlistina sína á tónleikum? Er hægt að nota hvaða hljóð sem er í raftónlist? Í þessum þætti fáum við svör við öllum þessum spurningum og hlustum á góða raftónlist. Sérfræðingur þáttarins er Daði Freyr Pétursson, raftónlistarmaður Hugleiðingar um raftónlist frá tónmenntanemendum í Ísakskóla. Þátturinn var áður á dagskrá í janúar 2019. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Rokktónlist

    Play Episode Listen Later May 19, 2021


    Hvað er rokktónlist? Þarf að hafa sítt hár til að geta talist rokkari? Hvernig hljóðfæri eru í rokkhljómsveit? Hvað er riff? Hvernig eru rokklög gerð? Afhverju spila rokkarar svona hátt? Og hvaða suð er þetta sem maður heyrir alltaf á rokktónleikum? Í þessum þætti fáum við svör við öllum þessum spurningum og hlustum á góða rokktónlist. Sérfræðingur þáttarins er Hrafnkell Örn Guðjónsson, rokktrommuleikari Hugleiðingar um rokktónlist frá tónmenntanemendum í Ísakskóla. Þátturinn var upphaflega á dagskrá í janúar 2019. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Popptónlist

    Play Episode Listen Later May 12, 2021


    Hvað er popptónlist? Hvers vegna er popptónlist vinsælasti tónlistarstíllinn í útvarpi? Hvers konar hljóðfæri eru algengust? Hverjir eru frægustu popparar eða popphljómsveitir allra tíma? Um hvað er popptónlist? Og hvers vegna í ósköpunum heitir þetta popp....tónlist? Í þessum þætti fáum við svör við öllum þessum spurningum og hlustum á góða popptónlist. Sérfræðingur þáttarins er Hildur Kristín Stefánsdóttir, popptónlistarkona Hugleiðingar um popptónlist frá tónmenntanemendum í Ísakskóla. Þátturinn var áður á dagskrá í janúar 2019. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Jazztónlist

    Play Episode Listen Later May 5, 2021


    Hvað er jazztónlist? Hvað þýðir eiginlega að taka sóló yfir standard með compi? Hvenær varð jazztónlist til? Hvað er skattsöngur? Eru jazztónlistarmenn hröðustu tónlistarmenn í heimi? Hver er frægasti jazztónlistarmaður sögunnar? Í þessum þætti fáum við svör við öllum þessum spurningum og hlustum á góða jazztónlist. Sérfræðingur þáttarins er Anna Gréta Sigurðardóttir, jazzpíanóleikari Hugleiðingar um jazztónlist frá tónmenntanemendum í Ísakskóla. Þátturinn var upphaflega á dagskrá í janúar 2019. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Egill Skallagrímsson

    Play Episode Listen Later Apr 28, 2021


    Þetta er sagan um Egil Skallagrímsson. Hann tilheyrir kynslóð fyrstu Íslendinganna. Saga hans er skrifuð í Egilssögu sem er ein sú elsta af Íslendingasögunum. Hún er spennandi, ævintýraleg, full af víkingum, bardögum, ferðalögum, göldrum...og ljóðum! Egill var erfitt barn sem hataði að tapa og reiddist fljótt. Hann var þriggja ára þegar hann laumaðist í partý sem hann mátti ekki fara í, sjö ára þegar hann lenti í slag og tólf ára þegar hann keppti við pabba sinn í íshokkí...með hræðilegum afleiðingum. Í ljósi krakkasögunnar eru þættir sem fjalla um krakka sem hafa skráð nöfn sín á spjöld sögunnar. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Baráttukrakkar

    Play Episode Listen Later Apr 21, 2021


    Þetta eru sögur af krökkum sem eru að breyta heiminum. Í dag. Núna. Þetta eru þau Malala Yousafzai frá Pakistan, stelpan sem lét ekki einu sinni byssukúlu í höfuðið stöðva sig í að sækja sér menntun og hvetja aðrar stelpur til að gera slíkt hið sama, Timoci Naulusala frá Fiji sem upplifir áhrif loftslagsbreytinga á heimkynni sín og berst fyrir aðgerðum sem skipta máli, Greta Thunberg frá Svíþjóð sem einnig berst fyrir umhverfið og þorir segja það sem segja þarf við fullorðna, forseta og annað valdamikið fólk og Bana al-Abed sem skrifar um stríðið í Sýrlandi á Twitter og vekur athygli heimsins á skelfilegum aðstæðum sem börn og fjölskyldur þeirra þurfa að lifa við. Í ljósi krakkasögunnar eru þættir sem fjalla um krakka sem hafa skráð nöfn sín á spjöld sögunnar. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Tilly Smith

    Play Episode Listen Later Apr 14, 2021


    Þetta er sagan af Tilly Smith, breskri stelpu sem breyttist í hetju á einu andartaki á annan í jólum árið 2004. Hún var stödd með fjölskyldu sinni á strönd í Taílandi þegar risavaxin skjálftaflóðbylgja skall á ströndinni og skildi eftir sig mikla eyðileggingu og dauða. Tilly tókst að bjarga fjölskyldunni sinni og öllum á hótelströndinni frá flóðbylgjunni, en hvernig? Í ljósi krakkasögunnar eru þættir sem fjalla um krakka sem hafa skráð nöfn sín á spjöld sögunnar. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Ida Lewis

    Play Episode Listen Later Apr 7, 2021


    Þetta er sagan af Idu Lewis, hugrökkustu stelpu Ameríku, eins og margir hafa kallað hana. Hún fæddist á nítjándu öld og bjó á eyju í Rhode Island í Bandaríkjunum þar sem pabbi hennar var vitavörður. Fjórtán ára var hún orðin þekkt sem besta sundkona svæðisins og var líka frábær í að róa árabát. Hún fylgdist vel með umferðinni í höfninni og var fyrst á staðinn ef einhver lenti í háska. Við heyrum af hennar frægustu björgunarafrekum þar sem hún náði, ein síns liðs, að bjarga ótalmörgum mannslífum í brjáluðu veðri og öldugangi. Í ljósi krakkasögunnar eru þættir sem fjalla um krakka sem hafa skráð nöfn sín á spjöld sögunnar. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Wolfgang Amadeus Mozart

    Play Episode Listen Later Mar 31, 2021


    Þetta er sagan af Wolfgang Amadeus Mozart, stráknum sem skrifaði nafn sitt rækilega á spjöld sögunnar þegar hann var krakki, sem eitt merkilegasta undrabarn tónlistarsögunnar og síðar meir sem fullorðið tónskáld. Það eru mjög góðar líkur á því að þú þekkir fleiri en eitt verk eftir Mozart, hafir jafnvel spilað eða sungið tónlist eftir hann eða sofnað við vögguvísu eftir hann þegar þú varst lítið barn. En vissir þú að Mozart var átta ára þegar hann samdi sína fyrstu sinfóníu? Í ljósi krakkasögunnar eru þættir sem fjalla um krakka sem hafa skráð nöfn sín á spjöld sögunnar. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Iqbal Masih

    Play Episode Listen Later Mar 24, 2021


    Þetta er sagan af Iqbal Masih, pakistönskum dreng sem var þræll í teppaverksmiðju frá því hann var fjögurra ára þangað til hann flúði þaðan tíu ára. Hann gerðist svo aktívisti eða aðgerðarsinni gegn barnaþrælkun í Pakistan og um heim allan. Það er talið að hann hafi hjálpað um þrjú þúsund börnum í Pakistan að losna undan vinnuþrælkun. Í ljósi krakkasögunnar eru þættir sem fjalla um krakka sem hafa skráð nöfn sín á spjöld sögunnar. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Hinn raunverulegi Móglí

    Play Episode Listen Later Mar 17, 2021


    Þetta er sagan af Dina Sanichar sem fannst í frumskógi í Indlandi þegar hann var sex eða sjö ára. Hann var villibarn en það er mannabarn sem hefur búið langt frá samfélagi manna í langan tíma, jafnvel frá því það fæddist. Villibörn hafa lært að komast af í óbyggðum og oftar en ekki alist upp meðal dýra, til dæmis úlfa, apa, hunda, bjarna eða jafnvel hænsna. Dina Sanichar ólst upp á meðal úlfa margir halda að persónan Móglí sé byggð á honum enda eru mikil líkindi með sögum þeirra. Í ljósi krakkasögunnar eru þættir sem fjalla um krakka sem hafa skráð nöfn sín á spjöld sögunnar. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Anne Frank

    Play Episode Listen Later Mar 10, 2021


    Þetta er sagan af Önnu Frank, stelpunni sem neyddist til að fara í felur þegar stríð geisaði í heimalandi hennar. Í meira en tvö ár bjó fjölskylda Önnu í leyniíbúð bakvið bókaskáp á vinnustað pabba hennar. Þar skrifaði Anna í dagbók. Þessi dagbók var gefin út eftir að hún dó og er í dag frægasta dagbók allra tíma. Í þættinum heyrast brot úr Dagbók Anne Frank í þýðingu Ólafs Rafns Jónssonar. Í ljósi krakkasögunnar eru þættir sem fjalla um krakka sem hafa skráð nöfn sín á spjöld sögunnar. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Uppfinningakrakkar

    Play Episode Listen Later Mar 3, 2021


    Þetta eru sögur af krökkum sem hafa fundið upp magnaðar uppfinningar í gegnum aldirnar. Krakkar eru oft bestu uppfinningamennirnir því hafa svo öflugt ímyndunarafl, sköpunarkraft og hugrekki til að láta hugmyndina sína verða að veruleika. Aldrei láta neinn segja ykkur að krakkar geti ekki verið uppfinningamenn því í þessum þætti fáið þið að heyra af mörgum uppfinningum sem heimurinn og samfélag mannanna gæti varla verið án - sem krakkar fundu upp! Í ljósi krakkasögunnar eru þættir sem fjalla um krakka sem hafa skráð nöfn sín á spjöld sögunnar. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Puyi keisarastrákur

    Play Episode Listen Later Feb 24, 2021


    Þetta er sagan af Puyi, síðasta keisaranum í Kína sem var aðeins tveggja ára þegar hann var gerður að keisara. Hann var örugglega dekraðasta barn mannkynssögunnar en þurfti svo að afsala sér keisaraveldinu þegar hann var sex ára. Þá þurfti hann að læra að sjá um sig sjálfur...og muna að sturta niður sjálfur þegar hann var búinn á klósettinu. Í ljósi krakkasögunnar eru þættir sem fjalla um krakka sem hafa skráð nöfn sín á spjöld sögunnar. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Ruby Bridges

    Play Episode Listen Later Feb 17, 2021


    Þetta er sagan af Ruby Bridges, sex ára hugrakkri stelpu sem breytti heiminum. Hún varð fyrir fordómum þegar hún var fyrsta svarta barnið í suðurríkjum Bandaríkjanna til að ganga í skóla sem hafði áður bara verið fyrir hvít börn. Fullorðið fólk sem var svo blindað af fordómum og hatri ætlaði að banna henni að mæta í skólann. En hún lét það ekki stoppa sig! Í ljósi krakkasögunnar eru þættir sem fjalla um krakka sem hafa skráð nöfn sín á spjöld sögunnar. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Ung tónskáld í Upptaktinum - Sigrún og Birta Dís

    Play Episode Listen Later Feb 10, 2021


    Upptakturinn eru tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna þar sem þau fá tækifæri til þess að senda inn hugmyndir að tónverkum, fullvinna þau með aðstoð tónskálda og heyra þau svo flutt af atvinnutónlistarfólki í fullbúnum tónleikasal. Í þessum þáttum kynnumst við öllum tólf tónskáldunum sem tóku þátt í Upptaktinum í Hörpu árið 2020 og hitum þannig upp fyrir Upptaktinn árið 2021. Sjötti þáttur: Sigrún Ólafsdóttir (13 ára) og verkið hennar ?Norðurljósadans". Birta Dís Gunnarsdóttir (13 ára) og verkið hennar ?8:15". Tónverkin sem heyrast í þættinum voru flutt af hljómsveit Upptaktsins í Norðurljósum í Hörpu, þriðjudaginn 16. júní árið 2020. Í hljómsveit Upptaktsins eru Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir, Hjalti Nordal, Herdís Anna Jónsdóttir, Bryndís Björgvinsdóttir, Gunnlaugur Torfi Stefánsson, Grímur Helgason, Jóhann Ingi Benediktsson, Kristján Hrannar Pálsson og Sigurður Ingi Einarsson. Bríet syngur lagið 8:15. Iðunn Einarsdóttir, tónsmíðanemi, aðstoðaði við útsetningu verkins Norðurljósadans og Katrín Arndísardóttir, einnig tónsmíðanemi, aðstoðaði við útsetningu verksins 8:15.

    Ung tónskáld í Upptaktinum - Sóley Lóa og Gunnar Alexander

    Play Episode Listen Later Feb 3, 2021


    Upptakturinn eru tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna þar sem þau fá tækifæri til þess að senda inn hugmyndir að tónverkum, fullvinna þau með aðstoð tónskálda og heyra þau svo flutt af atvinnutónlistarfólki í fullbúnum tónleikasal. Í þessum þáttum kynnumst við öllum tólf tónskáldunum sem tóku þátt í Upptaktinum í Hörpu árið 2020 og hitum þannig upp fyrir Upptaktinn árið 2021. Fimmti þáttur: Sóley Lóa Smáradóttir (13 ára) og verkið hennar?Nóvember". Gunnar Alexander Freysson (11 ára) og verkið hans ?Five times". Tónverkin sem heyrast í þættinum voru flutt af hljómsveit Upptaktsins í Norðurljósum í Hörpu, þriðjudaginn 16. júní árið 2020. Í hljómsveit Upptaktsins eru Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir, Hjalti Nordal, Herdís Anna Jónsdóttir, Bryndís Björgvinsdóttir, Gunnlaugur Torfi Stefánsson, Grímur Helgason, Jóhann Ingi Benediktsson, Kristján Hrannar Pálsson og Sigurður Ingi Einarsson. Þórður Hallgrímsson, tónsmíðanemi, aðstoðaði við útsetningu verksins Nóvember og Hjalti Nordal, einnig tónsmíðanemi, aðstoðaði við útsetningu verksins Five times.

    Ung tónskáld í Upptaktinum - Birgir Bragi og Gabríel Máni

    Play Episode Listen Later Jan 27, 2021


    Upptakturinn eru tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna þar sem þau fá tækifæri til þess að senda inn hugmyndir að tónverkum, fullvinna þau með aðstoð tónskálda og heyra þau svo flutt af atvinnutónlistarfólki í fullbúnum tónleikasal. Í þessum þáttum kynnumst við öllum tólf tónskáldunum sem tóku þátt í Upptaktinum í Hörpu árið 2020 og hitum þannig upp fyrir Upptaktinn árið 2021. Fjórði þáttur: Birgir Bragi Gunnþórsson (15 ára) og verkið hans ?Bitter mind". Gabríel Máni Jónasson (15 ára) og verkið hans ?Djenný". Tónverkin sem heyrast í þættinum voru flutt af hljómsveit Upptaktsins í Norðurljósum í Hörpu, þriðjudaginn 16. júní árið 2020. Í hljómsveit Upptaktsins eru Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir, Hjalti Nordal, Herdís Anna Jónsdóttir, Bryndís Björgvinsdóttir, Gunnlaugur Torfi Stefánsson, Grímur Helgason, Jóhann Ingi Benediktsson, Kristján Hrannar Pálsson og Sigurður Ingi Einarsson. Elvar Smári, tónsmíðanemi, aðstoðaði við útsetningu verksins Bitter mind og Þórður Hallgrímsson, einnig tónsmíðanemi, aðstoðaði við útsetningu verksins Djenný.

    Ung tónskáld í Upptaktinum - Garðar Logi og Katrín Eva

    Play Episode Listen Later Jan 20, 2021


    Upptakturinn eru tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna þar sem þau fá tækifæri til þess að senda inn hugmyndir að tónverkum, fullvinna þau með aðstoð tónskálda og heyra þau svo flutt af atvinnutónlistarfólki í fullbúnum tónleikasal. Í þessum þáttum kynnumst við öllum tólf tónskáldunum sem tóku þátt í Upptaktinum í Hörpu árið 2020 og hitum þannig upp fyrir Upptaktinn árið 2021. Þriðji þáttur: Garðar Logi Björnsson (13 ára) og verkið hans ?Heimilishljóð". Katrín Eva Einarsdóttir (11 ára) og verkið hennar ?Við lækinn". Tónverkin sem heyrast í þættinum voru flutt af hljómsveit Upptaktsins í Norðurljósum í Hörpu, þriðjudaginn 16. júní árið 2020. Í hljómsveit Upptaktsins eru Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir, Hjalti Nordal, Herdís Anna Jónsdóttir, Bryndís Björgvinsdóttir, Gunnlaugur Torfi Stefánsson, Grímur Helgason, Jóhann Ingi Benediktsson, Kristján Hrannar Pálsson og Sigurður Ingi Einarsson. Iðunn Einarsdóttir, tónsmíðanemi, aðstoðaði við útsetningu verksins Heimilishljóð og Tryggvi M. Baldvinsson, tónskáld, aðstoðaði við útsetningu verksins Við lækinn.

    Ung tónskáld í Upptaktinum - Chadman og Lóla

    Play Episode Listen Later Jan 13, 2021


    Upptakturinn eru tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna þar sem þau fá tækifæri til þess að senda inn hugmyndir að tónverkum, fullvinna þau með aðstoð tónskálda og heyra þau svo flutt af atvinnutónlistarfólki í fullbúnum tónleikasal. Í þessum þáttum kynnumst við öllum tólf tónskáldunum sem tóku þátt í Upptaktinum í Hörpu árið 2020 og hitum þannig upp fyrir Upptaktinn árið 2021. Annar þáttur: Chadman Naimi (11 ára) og verkið hans ?Journey". Lóla Sigurðardóttir (15 ára) og verkið hennar ?Við gluggann". Tónverkin sem heyrast í þættinum voru flutt af hljómsveit Upptaktsins í Norðurljósum í Hörpu, þriðjudaginn 16. júní árið 2020. Í hljómsveit Upptaktsins eru Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir, Hjalti Nordal, Herdís Anna Jónsdóttir, Bryndís Björgvinsdóttir, Gunnlaugur Torfi Stefánsson, Grímur Helgason, Jóhann Ingi Benediktsson, Kristján Hrannar Pálsson og Sigurður Ingi Einarsson. Hjalti Nordal, tónsmíðanemi, aðstoðaði við útsetningu verksins Journey og Tryggvi M. Baldvinsson, tónskáld, aðstoðaði við útsetningu verksins Við gluggann.

    Ung tónskáld í Upptaktinum - Baldvin Bragi og Gyða

    Play Episode Listen Later Jan 6, 2021


    Upptakturinn eru tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna þar sem þau fá tækifæri til þess að senda inn hugmyndir að tónverkum, fullvinna þau með aðstoð tónskálda og heyra þau svo flutt af atvinnutónlistarfólki í fullbúnum tónleikasal. Í þessum þáttum kynnumst við öllum tólf tónskáldunum sem tóku þátt í Upptaktinum í Hörpu árið 2020 og hitum þannig upp fyrir Upptaktinn árið 2021. Fyrsti þáttur: Baldvin Bragi Arnarson (14 ára) og verkið hans ?Stormurinn". Gyða Árnadóttir (14 ára) og verkið hennar ?Worth the shot". Tónverkin sem heyrast í þættinum voru flutt af hljómsveit Upptaktsins í Norðurljósum í Hörpu, þriðjudaginn 16. júní árið 2020. Í hljómsveit Upptaktsins eru Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir, Hjalti Nordal, Herdís Anna Jónsdóttir, Bryndís Björgvinsdóttir, Gunnlaugur Torfi Stefánsson, Grímur Helgason, Jóhann Ingi Benediktsson, Kristján Hrannar Pálsson og Sigurður Ingi Einarsson. Bríet syngur lagið ?Worth the shot". Íris Ragnhildardóttir, tónsmíðanemi, aðstoðaði við útsetningu beggja verkanna.

    Krakkaskaupið

    Play Episode Listen Later Dec 30, 2020


    Þetta er síðasti þáttur ársins 2020 og því er viðeigandi að fjalla um mál málanna í lok ársins- Krakkaskaupið! Krakkaskaupið er gert af krökkum fyrir krakka og fullorðna og er á dagskrá sjónvarpsins í kvöld, kvöldið fyrir gamlársdag, klukkan 19:40. Við fjöllum því um krakkaskaupið og það sem var var fyndnast árið 2020. Síðan fjöllum við aðeins um áramóta og þrettándahefðir - hvernig tengjast álfar áramótunum? Viðmælendur úr Krakkaskaupinu: Berglind Alda Ástþórsdóttir Mikael Emil Kaaber Hermann Guðmundsson Guðjón Daníel Bjarnason Baldvin Ísleifur Óskarsson Sérfræðingur í álfum og áramótum: Björk Bjarnadóttir, umhverfisþjóðfræðingur Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Jólaljósin skær og Jólatréð

    Play Episode Listen Later Dec 16, 2020


    Þátturinn í dag verður með sérstöku hátíðarþema, enda styttist í jólin. Við munum fá til okkar tónelska fjölskyldu sem gaf út nýtt lag fyrir þessi jól, en það eru þau Lára Björk, Sigga Eyrún og Kalli Olgeirs með lagið Jólaljósin skær. Þau spjalla um uppáhaldsjólalögin sín og hvernig nýja lagið þeirra varð til. Síðan heyrum við glænýja jólasögu eftir Tinnu Snæbjörnsdóttur sem er 11 ára. Tónelska fjölskyldan: Lára Björk Hall Sigríður Eyrún Friðriksdóttir Karl Olgeirsson Rán Karlsdóttir Smásagan Jólaljósin skær eftir Tinnu Snæbjörnsdóttur. Leikraddir: Bragi Valdimar Skúlason (Stúfur) Elísabet Lára Gunnarsdóttir (Dögg) Hallur Hrafn Proppé (Tommi) Sigríður Eyrún Friðriksdóttir (Amma hans Tomma)

    Hvað eru Ingdís Una og Jakob að hlusta á?

    Play Episode Listen Later Dec 9, 2020


    Í þessum þætti kynnumst við Ingdísi Unu sem á sér uppáhalds lag með Ed Sheeran sem fáir þekkja og Jakobi sem fékk einusinni lag á heilann og söng það í marga daga þangað til bróðir hans bað hann vinsamlegast að hætta! Ingdís Una Baldursdóttir mælir með: Supermarket Flowers - Ed Sheeran Husavik - úr Eurovision myndinni Just the way you are - Bruno Mars Jakob Magnússon mælir með: Barfly - Jeff Who Godzilla - Eminem og Lucid dreams - Juice WRLD Jerusalema - Master KG ft. Nomcebo Back in Black - AC/DC Viðmælendur: Lárey Valbjörnsdóttir, mamma Ingdísar Unu Magnús Ragnarsson, pabbi Jakobs Í þessari þáttaröð fáum við unga tónlistarspekinga til að segja okkur frá uppáhaldstónlistinni sinni, skemmtilegum sögum sem tengjast tónlist og taka viðtöl við eldri hlustendur. Hvað voru þau að hlusta á þegar þau voru 11, 12, 13 ára? Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Hvað eru Lára Rún og Hallur Hrafn að hlusta á?

    Play Episode Listen Later Dec 2, 2020


    Í þessum þætti kynnumst við Láru Rún sem fór á frábæra tónleika með Dua Lipa í Kanada og Halli Hrafni sem elskar teiknimyndafígúrurnar í Gorillaz og býr til sögur útfrá lögunum þeirra. Lára Rún Eggertsdóttir mælir með: Space song - Beach House Don't start now - Dua Lipa Billie Eilish Taylor Swift Beyoncé Pop Smoke Hallur Hrafn Proppé mælir með: Alright - Supergrass Tranz - Gorillaz Clint Eastwood - Gorillaz Nirvana Viðmælendur: Eggert Gíslason, pabbi Láru Rúnar Hulda Proppé, mamma Halls Hrafns Í þessari þáttaröð fáum við unga tónlistarspekinga til að segja okkur frá uppáhaldstónlistinni sinni, skemmtilegum sögum sem tengjast tónlist og taka viðtöl við eldri hlustendur. Hvað voru þau að hlusta á þegar þau voru 11, 12, 13 ára? Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Hvað eru Anna Signý og Elísabet Lára að hlusta á?

    Play Episode Listen Later Nov 18, 2020


    Í þessum þætti kynnumst við Önnu Signýju sem spilar á þverflautu og hlustar á Beyoncé í bílnum á leiðinni á fótboltamót og Elísabetu Láru sem hlustar á eldgamla tónlist í bland við nýja og á Spotify playlista fyrir öll tækifæri. Anna Signý Sæmundsdóttir mælir með: Footloose - úr kvikmyndinni Footloose Love Songs - Kaash Paige Plötunni Lemonade - Beyoncé Rólegur kúreki - Bríet Sturla Atlas og fleiru... Elísabet Lára Gunnarsdóttir mælir með: Ok - The Wallows Backyard Boys - Claire Rosinkranz Travis Scott The 1975 og fleiru... Viðmælendur: Berglind María Tómasdóttir, mamma Önnu Signýjar Gunnar Lárus Hjálmarsson, pabbi Elísabetar Láru Í þessari þáttaröð fáum við unga tónlistarspekinga til að segja okkur frá uppáhaldstónlistinni sinni, skemmtilegum sögum sem tengjast tónlist og taka viðtöl við eldri hlustendur. Hvað voru þau að hlusta á þegar þau voru 11, 12, 13 ára? Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Hvað eru Freyja Mjöll og Rakel Sif að hlusta á?

    Play Episode Listen Later Nov 11, 2020


    Í þessum þætti kynnumst við Freyju Mjöll sem fílar bæði nýja tónlist og eldgamla 90s tónlist og Rakel Sif sem spilaði fullt af nýrri tónlist fyrir fjölskylduna á ferðalagi um Ísland í sumar. Freyja Mjöll Gunnarsdóttir mælir með: Ed Sheeran - I see fire Somewhere only we know - Keane Radiohead Billie Eilish Taylor Swift Rakel Sif Grétarsdóttir mælir með: Husavik - úr Eurovision myndinni, The Story of Fire Saga Esjan - Bríet Allt fyrir ástina - Páll Óskar GDRN Viðmælendur: Þorbjörg Halldórsdóttir, mamma Freyju Mjallar Vignir Ljósálfur Jónsson, afi Rakelar Sifjar Í þessari þáttaröð fáum við unga tónlistarspekinga til að segja okkur frá uppáhaldstónlistinni sinni, skemmtilegum sögum sem tengjast tónlist og taka viðtöl við eldri hlustendur. Hvað voru þau að hlusta á þegar þau voru 11, 12, 13 ára? Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Hvað eru Sölvi og Guðrún að hlusta á?

    Play Episode Listen Later Nov 4, 2020


    Í þessum þætti kynnumst við Sölva Þór sem segir frá því hvernig hann kynntist frábærum tónlistarmönnum með því að skrifa 'banani' í leit á Spotify og Guðrúnu Sögu sem hlustaði á svo skemmtilegt lag að hundur fór að dansa með henni. Sölvi Þór Jörundsson mælir með: Radioactive - Imagine Dragons Banani - Bassekou Kouyate, Ngoni ba, Lobi Traoré Lose yourself - Eminem Enter Sandman - Metallica Guðrún Saga Guðmundsdóttir mælir með: Back in black - AC/DC Heather - Conan Gray Lemon Boy - Cavetown Let it go - úr kvikmyndinni Frozen Victorious - Panic! at the disco Viðmælendur: Haraldur G. Blöndal, afi Sölva Þórs Lilja Dögg Gunnarsdóttir, mamma Guðrúnar Sögu Í þessari þáttaröð fáum við unga tónlistarspekinga til að segja okkur frá uppáhaldstónlistinni sinni, skemmtilegum sögum sem tengjast tónlist og taka viðtöl við eldri hlustendur. Hvað voru þau að hlusta á þegar þau voru 11, 12, 13 ára? Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

    Þjóðsögur 9

    Play Episode Listen Later Oct 28, 2020


    Þetta er síðasti þjóðsöguþátturinn okkar, í bili! Við höfum nú veitt upp 25 sögur og ævintýri úr þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Þjóðsögur þáttarins: Naglasúpan (flökkusaga frá Evrópu) Hvernig tunglið varð til (Indland) Hvernig tónlistin barst til jarðarinnar (Mexíkó) Leikraddir: Arna Rún Gústafsdóttir Eva Rún Þorgeirsdóttir Hekla Egils Jóhannes Ólafsson Karl Pálsson Mikael Emil Kaaber Ragnar Eyþórsson Sigyn Blöndal Sturla Holm Skúlason Þjóðsögusérfræðingur: Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.

    Þjóðsögur 8

    Play Episode Listen Later Oct 21, 2020


    Í þessum þætti og næstu þáttum á eftir köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Þjóðsögur þáttarins: Sagan af Kolrössu krókríðandi (Ísland) Drekarnir fjórir (Kína) Leikraddir: Arna Rún Gústafsdóttir Eva Rún Þorgeirsdóttir Hekla Egils Jóhannes Ólafsson Karl Pálsson Mikael Emil Kaaber Ragnar Eyþórsson Sigyn Blöndal Sturla Holm Skúlason Þjóðsögusérfræðingur: Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.

    Þjóðsögur 7

    Play Episode Listen Later Oct 14, 2020


    Í þessum þætti og næstu þáttum á eftir köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Þjóðsögur þáttarins: Djákninn á Myrká (Ísland) Hvernig sögur urðu til (Norður-Ameríka) Leikraddir: Birkir Blær Ingólfsson Helgi Már Halldórsson Regína Rögnvaldsdóttir Sigurður Ingi Einarsson Vala Kristín Eiríksdóttir Þjóðsögusérfræðingur: Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.

    Þjóðsögur 6

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2020


    Í þessum þætti og næstu þáttum á eftir köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Þjóðsögur þáttarins: Skjaldbakan og tromman (Nígería) Undratréð (Arabía) Bakkabræður byggja hús (Ísland) Leikraddir: Elfa Lilja Gísladóttir Valgeir Daði Einarsson Sigurður Ingi Einarsson Þjóðsögusérfræðingur: Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.

    Þjóðsögur 5

    Play Episode Listen Later Sep 30, 2020


    Í þessum þætti og næstu þáttum á eftir köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Þjóðsögur þáttarins: Stolinn súpuilmur (Nígería) Strákurinn sem fór í átkeppni við tröll (Noregur) Kirkjusmiðurinn á Reyni (Ísland) Leikraddir: Arna Rún Gústafsdóttir Helgi Már Halldórsson Jóhannes Ólafsson Sigyn Blöndal Ragnar Eyþórsson Þjóðsögusérfræðingur: Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.

    Þjóðsögur 4

    Play Episode Listen Later Sep 23, 2020


    Í þessum þætti og næstu þáttum á eftir köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Þjóðsögur þáttarins: Baba Yaga (Rússland) 18 barna faðir frá álfheimum (Ísland) Kötturinn sem át allt (Ísland) Leikraddir: Adam Ernir Níelsson Gréta Rún Árnadóttir Jóhannes Ólafsson Sigurður Ingi Einarsson Sigyn Blöndal Ragnar Eyþórsson Regína Rögnvaldsdóttir Þórdís Björt Andradóttir Þjóðsögusérfræðingur: Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.

    Þjóðsögur 3

    Play Episode Listen Later Sep 16, 2020


    Í þessum þætti og næstu þáttum á eftir köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Þjóðsögur þáttarins: Meiri mold, meiri mold! (Ísland) Tröllin sem reyndu að stela Færeyjum (Færeyjar) Skarfurinn og æðarfuglinn (Færeyjar) Kókoshnetutréð (Pólýnesía) Leikraddir: Adam Ernir Níelsson Andri Már Helgason Helgi Már Halldórsson Sigurður Ingi Einarsson Þjóðsögusérfræðingur: Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.

    Þjóðsögur 2

    Play Episode Listen Later Sep 9, 2020


    Í þessum þætti og næstu þáttum á eftir köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Þjóðsögur þáttarins: Bara ég sjálf! (England) Mitra Sharma bramín og óþokkarnir (Indland) Lítið ber smátt smátt (Ísland) Leikraddir: Arna Rún Gústafsdóttir Hafsteinn Vilhelmsson Jóhannes Ólafsson Sigyn Blöndal Þjóðsögusérfræðingur: Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.

    Þjóðsögur 1

    Play Episode Listen Later Sep 2, 2020


    Í þessum þætti og næstu þáttum á eftir köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Þjóðsögur þáttarins: Fjórar skónálar fyrir gullkamb (Ísland) Kópakonan (Færeyjar) Hvernig aparnir eignuðu sér bananann (Brasilía) Leikraddir: Vala Kristín Eiríksdóttir Birkir Blær Ingólfsson Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.

    Claim Hlustaðu nú!

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel