Podcasts about eyr

  • 37PODCASTS
  • 236EPISODES
  • 1h 14mAVG DURATION
  • 1EPISODE EVERY OTHER WEEK
  • Jun 13, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about eyr

Latest podcast episodes about eyr

Samfélagið
Úttekt á regnhlífanotkun. Gerir Google út af við fréttamiðla? Pistill um hafið

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jun 13, 2025 58:10

Þjóðhátíðardagurinn er handan við hornið, eða helgina og viti menn - þá er spáð rigningu um mest allt land enda ekki almennilegur 17. júní nema það rigni og helst duglega. Til að búa landsmenn undir hæhó og jibbý jei ákvað Samfélagið að ráðast í rannsókn á regnhlífanotkun á Íslandi fyrr og nú - og spyrja: Eru regnhlífar gagnlegar eða ef til vill algerlega gagnslausar á Íslandi? Hvers vegna ráðum við túristum eindregið frá því að pakka regnhlífum fyrir Íslandsferðina? Nýlegar breytingar á Google-leitarvélinni sem færa notendum svör samin af gervigreind hafa orðið til þess að netumferð á fréttamiðla hefur snarminnkað. En munu tæknirisar endanlega gera út af við fréttamiðla? Í dag veltum við þessari spurningu fyrir okkur með Eyrúnu Magnúsdóttur, gervigreindarfréttaritara Samfélagsins. Pistill frá Esther Jónsdóttur, pistlahöfundi Samfélagsins - hún hefur undanfarið verið með hugann við hafið og pistill dagsins endurspeglar það. Tónlist í þættinum: SPILVERK ÞJÓÐANNA, SPILVERK ÞJÓÐANNA - Skýin. MASSIVE ATTACK - Teardrop. RIHANNA - Umbrella. THE WEATHER GIRLS - It´s Raining Men. Franklin, Aretha - My guy. O-Shen - Siasi.

Samfélagið
Gervigreind og matarsóun, hand-, fóta- og munnsjúkdómur, verkjameðferðir

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jun 4, 2025 60:10

Tæknin hjálpar okkur við margt í daglegu lífi, en mun gervigreind hjálpa til við að leysa stór vandamál sem steðja að heiminum, eins og matarsóun. Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins, ætlar að koma til okkar og fjalla um það hvernig gervigreind og matarsóun tengjast. Reglulega berast foreldrum leikskólabarna tölvupóstar um að hinn eða þessi sjúkdómur hafi skotið sér niður í skólanum. Einn þessara sjúkdóma er hand-, fóta- og munnsjúkdómur, líka kallaður blöðrumunnbólga með útbrotum. Við ætlum að ræða við Valtý Stefánsson Thors, barnasmitsjúkdómalækni á Landspítalanum, um barnasmitsjúkdóma, hvernig sjúkdómaflóran hefur breyst í áranna rás og hvers vegna sumt eldra fólk kváir þegar barnasjúkdóma dagsins í dag ber á góma. Edda Olgudóttir, vísindamiðlari þáttarins og fastur miðvikudagsgestur, ætlar svo að spjalla við okkur um nýjar rannsóknir á verkjameðferðum.

Mannlegi þátturinn
Karl Olgeirsson föstudagsgestur og óvenjulegar samsetningar í matarspjallinu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 23, 2025 53:00

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Karl Olgeirsson tónlistarmaður. Hann hóf nýlega störf sem organisti í Ástjarnarkirkju og þar stofnaði hann kirkjukór. Hann hefur samið tónlist nánast frá því hann fékk hljóðfæri fyrst í hendurnar. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Hlíðunum, til Svíþjóðar og aftur heim og fórum svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagins í dag. En hann er í nýju hlutverki á morgun þegar hann er aðalsöngvarinn í dagskrá þar sem flutt verða bestu lög Steely Dan og Donald Fagen í Hörpu. Í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti héldum við svo áfram að skoða skrýtnar og óvenjulegar samsetningar á mat og fórum í gegnum nokkra tölvupósta frá hlustendum þess efnis. Og svo skoðuðum við hvort þessar breytingar í veðrinu hafi áhrif á matarval okkar. Tónlist í þættinum í dag: Smells Like Teen Spirit / Raggi Bjarna og Milljónamæringarnir (Kurt Cobain, Dave Grohl og Krist Novoselic) Gríptu draum / Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og Karl Olgeirsson (Karl Olgeirsson) I.G.Y. / Karl Olgeirsson og Reykjvik Tribute Orchestra (Donald Fagen) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Samfélagið
Meira um nýyrðasmíð gervigreindar, F.L.Í.S. og dagur líffræðilegrar fjölbreytni

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 22, 2025 58:48

Við fjölluðum um nýyrðasmíð gervigreindar í síðustu viku og Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins, heldur áfram þeirri umfjöllun í dag. Hún ræðir við Huldu Ólafsdóttur og Svanhvíti Lilju Ingólfsdóttur, sérfræðinga í máltækni hjá Miðeind, um nýyrðasmíð gervigreindar og færni hennar í íslensku. Seinna í þættinum fáum við til okkar stofnendur mótmælahreyfingarinnar F.L.Í.S. – eða Fokk Laxeldi í Sjókvíum – sem standa fyrir mótmælum á Austurvelli á morgun. Stofnendurnir eru þrjár stúlkur í tíunda bekk í Laugalækjaskóla. Við setjumst niður með tveimur þeirra, sem og fulltrúa Ungra umhverfissinna til að ræða um loftslagsaktívisma hjá ungu fólki. En í dag er dagur líffræðilegrar fjölbreytni og Stefán Gíslason, pistlahöfundur Samfélagsins, fjallar um það í pistli sínum í dag, sem við fáum að heyra undir lok þáttar.

Samfélagið
Nýyrðasmíð gervigreindar, Afstaða í 20 ár, ofanflóð og loftslagsbreytingar

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 15, 2025 59:07

Afstaða, félag fanga, fagnar 20 ára afmæli í ár. Félagið berst fyrir réttindum fanga og við ætlum að ræða formann félagsins, Guðmund Inga Þóroddsson, um fangelsismál almennt. Refilskór, óðlega, tónfæri. Spjallmenni á borð við ChatGPT búa stundum til ný orð þar sem þau vantar og nota oft orð eins og þessi, sem enginn kannast við. Er gervigreindin þannig eins og barn á máltökuskeiði? Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins, kemur til okkar í dag og ræðir við okkur og Önnu Sigríði Þráinsdóttur, málfarsráðunaut Ríkisútvarpsins, um nýyrðasmíði gervigreindarinnar. Og að lokum fáum við tvö viðtöl sem Samfélagið tók á Ísafirði í síðustu viku - um hagræn áhrif ofanflóða, og áhrif loftslagsbreytinga á ofanflóðaáhættu. Tónlist úr þættinum: Weyes Blood - Andromeda (Radio Edit) (bonus track mp3). Ólafur Kram - Blúndustelpan.

Spegillinn
Telur ástandið á leigubílamarkaði óviðunandi og hvernig verða 48 daga strandveiðar?

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 23, 2025 20:12

Tæp 28 þúsund tonn af þorski þyrfti til að stunda 48 daga standveiðar í sumar miðað við sama fjölda báta og gerðir voru út í fyrra. Þetta kemur fram í minnisblaði til stjórnarflokkanna við stjórnarmyndun fyrr í vetur. Talið er ólíklegt að hægt væri að sækja þessar veiðiheimildir án þess að skerða kvóta annarra útgerða. Talsmaður smábátaeigenda segir þetta fráleitar tölur. Reynslan sýni allt önnur og minni afköst strandveiðiflotans. Kristín Sigurðardóttir fór nýverið og kynnti sér þær miklu breytingar sem hafa orðið á íslenskum leigubílamarkaði á skömmum tíma. Þar er slegist um farþega, stundum bókstaflega, bílarnir eru margir en farþegarnir fáir. Hægt er að hlusta á pistil Kristínar frá því í Speglinum í gær í spilara RÚV og lesa vefskýru hennar á ruv.is. Skiptar skoðanir eru um núverandi fyrirkomulag. Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, telur að ekki sé hægt að una við óbreytt ástand. Líka heyrast ásakanir um kynþáttafordóma og Eyrún Eyþórsdóttir, mannfræðingur og kennari í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri, segir hætt við að bílstjórar með erlendan bakgrunn upplifi sig enn meira jaðarsetta.

Bylgjan
Bítið - föstudagur 4. apríl 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Apr 4, 2025 81:04

Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari   Jón I. Bergsteinsson, formaður IceBAN - Íslenskra englafjárfesta, ræddi við okkur um nýsköpun og englafjárfestingar. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, ræddi við okkur um auðlindir Íslands.   Fjölmiðlamaðurinn Stefán Einar Stefánsson og framkvæmdastjórinn Sveinn Waage fóru yfir sviðið.   Guðni Már Harðarson, prestur og stjórnarmaður í minningarsjóði Bryndísar Klöru og Eyrún Birna Davíðsdóttir, æskuvinkona Bryndísar Klöru, ræddu við okkur um góðgerðarpítsu Domino's.b

Rauða borðið
Synir Egils 9. mars - Öryggisógnir, ágreiningur og bág staða sveitarfélaga

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Mar 9, 2025 156:55

Sunnudagurinn 9. mars Synir Egils: Öryggisógnir, ágreiningur og bág staða sveitarfélaga Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Eyrún Magnúsdóttir blaðakona, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir fyrrverandi þingkona Framsóknar og Sóley Tómasdóttir, fyrrum borgarfulltrúi og ræða fréttir vikunnar og stjórnmálaástandið hér heima og erlendis. Þeir bræður taka púlsinn á pólitíkinni en fá svo til sín sveitarstjórnarfólk til að ræða stöðu sveitarfélaganna: Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar, Margrét Ólöf A. Sanders bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi í Kópavogi og Valgarður Lyngdal Jónsson forseti bæjarstjórnar Akraness greina vanda sveitarfélaganna,

Samfélagið
Frumskógur stafrænna lausna í heilbrigðiskerfinu, Uppskera og 20 ára afmæli fötlunarfræðinnar, Áhrif loftmengunar á heilsu

Samfélagið

Play Episode Listen Later Feb 13, 2025 55:00

Við ætlum að fjalla um tækni og heilbrigðiskerfið. Stafrænar lausnir í heilbrigðisþjónustu eru margar en eru þær góðar? Virka þær? Skjólstæðingar heilbrigðiskerfisins þurfa að flakka á milli appa og forrita til þess að nálgast nauðsynlegar upplýsingar. Við ætlum að ræða við Eyrúnu Magnúsdóttur um för hennar í gegnum þann frumskóg forrita sem notendur heilbrigðisþjónustu villast í þegar þeir veikjast. Þessa dagana er haldið upp á tuttugu ára afmæli fötlunarfræða. Að því tilefni hafa samtök fatlaðs fólks, fatlað listafólk og fræðasamfélagið tekið höndum saman með það að marki að fagna framlagi fötlunarfræða og fatlaðs fólks til menningar og lista í íslensku samfélagi. Við fáum til okkar Margréti Norðdahl, listrænn stjórnandi Embla Guðrúnar Ágústsdóttur, sviðslistakona, aktívisti Og í lok þáttar flytjum við pistil eftir Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðing og pistlahöfund Samfélagsins um rannsóknir á áhrifum loftmengunnar. Tónlist í þættinum: FLEETWOOD MAC - The Chain. Lafourcade, Natalia - Hasta la Raíz. Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund). THE BEACH BOYS - The Man With All the Toys.

Rauða borðið
Rauða borðið 23. jan - Yfirdráttur, klassík, kjötneysla dýravernd, bómenntir og BNA

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 23, 2025 292:45

Fimmtudagur 23. janúar Yfirdráttur, klassík, kjötneysla dýravernd, bómenntir og BNA Við hefjum leik á Samstöðinni í kvöld með Stefáni Jóni Hafstein sem færir okkur sláandi upplýsingar um umhverfismál. Á morgun, 24. janúar, fer Ísland á ,,yfirdrátt” gagnvart vistkerfunum, það er að segja ef önnur lönd væru með eins stórt vistspor. Við göngum allra ríkja mest á auðlindir. Og rætt verður endurkjör Trump og áhrif þess á umhverfið. Tónlistarnemarnir Sóley Smáradóttir og Sól Björnsdóttir taka því næst á móti Daníel Bjarnasyni tónskáldi og hljómsveitarstjóra og Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur tónskáldi í Klassíkin rokkar. Jóhanna Eyrún Torfadóttir lektor í næringarfræði og Thor Aspelund prófessor í tölfræði koma og ræða um kjötneyslu. Framkvæmdastjóri Dýraverndarsambands Íslands og Katrín Oddsdóttir, mann- og dýraréttindalögfræðingur segja margt bíða nýrrar ríkisstjórnar með tilliti til dýravelferðar sem hafi setið á hakanum vegna vanmáttugs kerfis. Tími sé kominn á að færa Ísland aftur til náttúrunnar en ekki í hendur auðvaldsins og stórfyrirtækja. Vigdís Grímsdóttir og Oddný Eir ræða við skáldkonuna Ásdísi Óladóttur um ljóðabók hennar Rifsberjadalurinn, ljóðlistina, 30 grömmin, geðveikina og sköpunarkraftinn. Við ljúkum þætti kvöldsins með zoom-viðtali við Rósu Guðmunds sem er búsett í L.A. Hún segir okkur frá eldunum sem þar hafa geisað og embættistöku nýs forseta.

Spegillinn
Borað eftir olíu, mataræði Íslendinga, Snerting mögulega tilnefnd til Óskarsverðlauna

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 22, 2025 20:04

Donald Trump Bandaríkjaforseti kallar eftir stóraukinni framleiðslu og útflutningi á bandarísku jarðefnaeldsneyti. Með þessu ætlar hann að lækka verð á eldsneyti, draga úr verðbólgu og gera Bandaríkin að auðugri þjóð að nýju. Umdeilt er hversu líklegt er að þessi stefna skili tilætluðum árangri. Ævar Örn Jósepsson rýnir í þetta. Alls kyns kúrar og kenningar um æskilega næringu skjóta reglulega upp kollinum hér á landi sem annars staðar. Jóhanna Eyrún Torfadóttir, verkefnisstjóri næringar hjá Landlækni, varar við þeirri tísku að borða mjög mikið af einhverjum einum fæðuflokki á kostnað annarra - heillavænlegast sé að borða sem fjölbreyttasta fæðu. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Jóhönnu. Það skýrist í fyrramálið hvort Snerting, kvikmynd Baltasars Kormáks eftir bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar, hljóti tilnefningu til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Ólaf um myndina, kapphlaupið um Óskarinn og „kosningabaráttu“ kvikmyndaframleiðenda í skugga eldanna miklu í Los Angeles. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

los angeles bora matar alls bandar gunnarsson eftir umsj landl eyr anna krist torfad freyr g donald trump bandar
Samfélagið
Hulduherinn sem knýr áfram gervigreindarbyltinguna, krabbameinsrannsóknir, víkingar og þjóðarsálin

Samfélagið

Play Episode Listen Later Dec 12, 2024 55:00

Við byrjum þáttinn á að fjalla um gervigreind. Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins, kemur til okkar og við ætlum að ræða gervigreind og vinnumarkaðinn, ekki þó endilega í því samhengi sem við heyrum oft um. Við ætlum ekki bara að velta fyrir okkur hvaða störf koma til með að hverfa vegna gervigreindar, heldur skoða milljónir láglaunastarfa sem fylgja gervigreindarbyltingunni. Hulduherinn sem bakkar upp byltinguna. Síðan fáum við Eddu Olgudóttur vísindamiðlara í heimsókn og spjöllum um nýjar og spennandi krabbameinsrannsóknir, sem gefa góð fyrirheit um baráttuna gegn alls konar krabbameini. Og í lok þáttar ætlum við að líta um hæl. Við ætlum að endurflytja umfjöllun sem var flutt hér í Samfélaginu í haust, þegar við heimsóttum safnafræðinginn Guðrúnu Dröfn Whitehead og veltum fyrir okkur víkingaímyndinni og mikilvægi hennar í uppbyggingu þjóðarsálarinnar, og hvað það þýðir að vera víkingur í dag. Tónlist úr þættinum: SUFJAN STEVENS - Chicago. ARLO PARKS & LOUS & THE YAKUZA - I'm sorry.

Mannlegi þátturinn
Tau frá Tógó, Eyrún kórstjóri og húmor og grimmd

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 14, 2024 53:39

Tau frá Togó er nafn á nýrri netverslun þar sem allur ágóði rennur til heimilis í Togó fyrir munaðarlaus börn. Þau sem standa að þessu verkefni selja vörur sem búnar eru til á heimilinu og seldar til að fjármagna reksturinn og hafa með þessu fjármagnað skólagöngu barnanna á heimilinu og auk þess greitt fyrir einstaka eldri nemendur í framhaldsnám. Þetta samstarf byrjaði fyrir 10 árum þegar Guðný Einarsdóttir ættleiddi son sinn frá þessu heimili. Guðný kom í þáttinn í dag. Það eru ekki margir kórstjórar sem eru með fjóra kóra á sínum snærum en Eyrún Jónasdóttir er ein af þeim og einn af þessum kórum er kór Menntaskólans við Laugarvatn. Það er merkilegt að meirihluti nemenda við skólann er í kórnum. En hvernig tekst henni að halda úti kórastarfinu þegar þróunin virðist því miður vera sú að kórastarf við framhaldsskóla hefur sumstaðar lagst af? Við ræddum við Eyrúnu í þættinum í dag. Flestir líta húmor jákvæðum augum, hann léttir lífið og gerir samskipti skemmtilegri. Það er hins vegar erfitt að útskýra húmor og hann er auðvitað ekki alltaf jákvæður, getur verið dökkur, meiðandi og grimmur. Hvað er fyndið og hvers vegna erum við að reyna vera fyndin? Og hvað er grimmd og hvers vegna sýnum við hana? Ársæll Már Arnarson, prófessor á Menntavísindasviði HÍ, hefur skoðað þessi tvö hugtök og hann kom og ræddi húmor og grimmd í dag. Tónlist í þættinum Vetur / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson) Lazy Sunday / Small Faces (Marriott Lane) Forðum / Tómas R Einarsson og Óskar Guðjónsson (Tómas R Einarsson) Aguas de Marco / Antonio Carlos Jobim & Elis Regina (Antonio Carlos Jobim) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Samfélagið
Máltækni, hláturgas og afleiðingar forsetakosninga í Bandaríkjunum

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 7, 2024 55:00

Ef tækin tala ekki íslensku þá erum við ekki með í stafrænu veröldinni. Tækin og íslenska verða til umfjöllunar hjá Eyrúnu Magnúsdóttur í dag. Hún ræðir um máltækni við Lilju Dögg Jónsdóttur framkvæmdastjóra Almannaróms, sem er miðstöð máltækni hér á landi. Og við ætlum líka að fjalla um það sem við vitum og það sem við vitum ekki um losun gróðurhúsalofttegunda frá votlendi. Endurheimt votlendis gæti verið góð leið til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda en það er ýmislegt í sambandi við votlendið sem kemur á óvart. Rannsakendur við Landbúnaðarháskólann rannsökuðu hversu mikið magn af hláturgasi verður til í votlendi í Borgarfirðinum og Gréta Sigríður kom við á Keldnaholti til að heyra meira. Í lok þáttar ætlum við að pæla aðeins í afleiðingum forsetakosninga í Bandaríkjunum; þó ekki þeirra sem eru nýafstaðnar, þegar Donald Trump sigraði Kamölu Harris – heldur þeirra sem fóru fram í nóvember 2016, þegar Donald Trump sigraði Hillary Clinton og varð forseti í fyrsta sinn. Þá komu niðurstöðurnar mörgum á óvart og margir voru jafnvel í smá uppnámi. Þá tók Þórhildur Ólafsdóttir, sem var umsjónarmaður Samfélagsins á þessum tíma, viðtal við Kolbrúnu Baldursdóttur sálfræðing um kvíða og hræðslu sem börn fundu fyrir í kjölfar þessara kosninga.

Samfélagið
Kosningar og gervigreind, samfélagsleg nýsköpun, ritlist og líffræðilegur fjölbreytileiki í Cali

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 24, 2024 58:54

Forsvarsmenn samfélagsmiðla á borð við Facebook, Instagram og TikTok vita að það eru kosningar framundan á Íslandi og eru því sérlega vakandi fyrir því að koma í veg fyrir að misvísandi upplýsingar, matreiddar af gervigreind, komist í umferð. Við byrjum þáttinn á Vélvitinu; Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Elfu Ýr Gylfadóttur framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar um gervigreind og upplýsingaóreiðu í tengslum við kosningar. Og við fjöllum meira um kosningar, eða réttara sagt fjöllum við um umfjöllun um kosningar. Aðdragandinn að alþingiskosningunum 30 nóvember næstkomandi verður smá óvenjulegur, ekki síst vegna þess að kosningarnar voru boðaðar óvænt og undirbúningstíminn er naumur. Stígur Helgason, kosningaritstjóri RÚV, kíkir í heimsókn hér á eftir og segir okkur aðeins frá kosningaumfjöllun ríkisútvarpsins næstu vikur. En á dögunum vann Björg Árnadóttir, rithöfundur, ritlistarkennari og eigandi Stílvopnsins, til alþjóðlegra nýsköpunarverðlauna fyrir samfélagslega nýsköpun. Hún hlaut þessi verðlaun fyrir að hafa þróað skapandi, valdeflandi og inngildandi kennsluaðferðir í fullorðinsfræðslu, einkum með aðferðum ritlistar. Við heyrum í Björgu um miðbik þáttar. Og svo er það Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, sem er á smá ráðstefnuflakki og verður með regluleg innslög í Samfélaginu næstu vikur. Í dag segir hún okkur frá dvölinni í Cali í Kólumbíu, þar sem ráðstefna um líffræðilegan fjölbreytileika er haldin. Tónlist úr þættinum: BONNIE RAITT - Nick Of Time. LYLE LOVETT - Election Day. MUGISON - Tipzy king.

Samfélagið
Nóbelsverðalaunahafi gagnrýnir gervigreindarfrömuð, snjóflóð af mannavöldum, meira um ritskoðun barnabóka

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 10, 2024 59:34

Í dag fjöllum við um gervigreind. Við fáum til okkar Eyrúnu Magnúsdóttur, umsjónarmann þáttanna Vélvitið, sem voru á dagskrá hér á Rás 1 snemma árs. Hún verður með okkur um það bil aðra hvora viku til að fjalla um gervigreind, og við byrjum í dag með umfjöllun um nóbelsverðlaunahafann Geoffrey Hinton og Sam Altman, framkvæmdarstjóra gervigreindarfyrirtækisins Open AI Síðan ætlum við að fjalla um snjóflóð, þá helst snjóflóð af mannavöldum. Það var þemað á snjóflóðaráðstefnu sem haldin er í dag. Ég kíkti í heimsókn og ræddi við snjóflóðaspekúlanta, vísindafólk og fólk sem hefur sjálft lent í og komið af stað snjóflóði. Í gær fjallaði Samfélagið um ritskoðun barnabóka - þessi ritskoðun er íþyngjandi hugræn byrði fyrir foreldra en samt útbreidd á íslenskum heimilum, einkum þegar kemur að bókum fyrir yngstu börnin þar sem kyni persóna eða söguframvindu er breytt eða orð sem talin eru óviðeigandi tekin út. Í dag heyrum við sýn Drafnar Vilhjálmsdóttur, bókasafnsfræðings í Seljaskóla í Reykjavík. Hún er ekki á því að ritskoða eigi bækur ætlaðar börnum á grunnskólaaldri. Tónlist: ELIS REGINA & ANTONIO CARLOS JOBIM - Aguas de Marco. Moses Hightower - Fjallaloft.

Rauða borðið
Synir Egils: Samfélagslegur harmur, pólitískur skjálfti og húsnæðiskreppa

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 22, 2024 135:55

Sunnudagurinn 22 . september:  Synir Egils: Samfélagslegur harmur, pólitískur skjálfti og húsnæðiskreppa Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Eyrún Magnúsdóttir fjölmiðlakona, Dagbjörg Hákonardóttir þingkona og Róbert Marshall leiðsögumaður og fara yfir fréttir vikunnar sem einkenndust af þungbærum fréttum og pólitískum óróa. Þeir bræður taka stöðuna á á pólitíkinni og síðan koma Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna, María Pétursdóttir formaður húsnæðishóps ÖBÍ og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og ræða viðvarandi húsnæðiskreppu, aðgerðaleysi stjórnvalda og hvað sé til ráða.

Spegillinn
Atvinnuleysi hjá innflytjendum, viðhorf til ferðamanna og málið sem Frakkar eiga erfitt með að trúa

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 6, 2024 20:19

Meira en helmingur þeirra um 7.200 sem voru á atvinnuleysisskrá í júlí voru erlendir ríkisborgarar. Hlutfallið var þá 53% og hefur sigið upp á við undanfarið - var 48% fyrir ári. Atvinnuþátttaka útlendinga er mikil hérlendis en þetta háa hlutfall þeirra sem eru atvinnulausir var meðal þess sem til var tekið í nýlegri úttekt Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD sem kynnt var í vikunni. Rætt verður við Unni Sverrisdóttur, forstjóra Vinnumálastofnunar. Landsmenn eru áfram almennt jákvæðir og ánægðir með erlenda ferðamenn og ferðaþjónustu í heimabyggð. Þetta sýnir ný könnun Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála sem gerð var í vikunni. Ferðaþjónustan er hins vegar ekki einkamál atvinnugreinarinnar og hún má ekki ganga að gestrisni Íslendinga sem vísum hlut. Eyrún Jenný Bjarnadóttir frá Rannsóknarmiðstöð ferðamála fer yfir helstu niðurstöður. Dominique Pelico hefur játað að hafa í rúman áratug mulið svefntöflur og kvíðalyf út í vínglas eða kvöldmat eiginkonu sinnar. Þegar hún missti meðvitund nauðgaði hann henni og bauð ókunnugum mönnum með auglýsingu á vefsíðu að gera slíkt hið sama; þetta voru trukkabílstjóri, smiður, fangavörður, hjúkrunarfræðingur og blaðamaður frá staðarmiðli í franska smábænum Mazan þar sem hjónin bjuggu, svo dæmi séu tekin. Menn á aldrinum 26 til 74 ára, feður og eiginmenn. Rætt verður við Láru Samira Benjnouh

oecd fer menn meira mazan eiga ranns eyr erfitt frakkar vinnum efnahags atvinnuleysi
Samfélagið
Samfélagið sendir út frá Loftslagsdeginum í Hörpu

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 28, 2024 59:19

Markmið Loftslagsdagsins, sem er árlegur viðburður, er að fjalla um loftslagsmál á mannamáli og í ár er einblínt á aðgerðir. Hér er spurt: hverjir eru að gera hvað núna? Hvað aðgerðir eru í pípunum og hvað ættum við að vera gera? Við tölum við nokkur þeirra sem hafa haldið erindi og tekið þátt í umræðum hér í dag: Chanee Jónsdóttur Thianthong, sérfræðing hjá Umhverfisstofnun sem kynnti glænýjar tölur um losun Íslands. Eyrúnu Gígju Káradóttur, verkefnastjóra Orkuseturs, sem spurði í sínu erindi hvort við værum hætt við orkuskiptin, Björn Helga Barkarson skrifstofustjóra hjá Matvælaráðuneytinu en yfirskrift erindis hans var Loft, land og líf - og svo er það Hugrún Elvarsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins sem ræddi um loftslagsvegvísa atvinnulífsins. Tónlist: Young, Neil, Nash, Graham, Crosby, Stills, Nash & Young, Crosby, David - Heartland. KÁRI - Into The Blue. MANNAKORN - Göngum yfir brúna.

Heimsglugginn
Af 214 ára færeyskri peysu og sjóráni breska flotans

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Mar 7, 2024 23:39

Spjall Þórunnar Elísabetar Bogadóttur og Eyrúnar Magnúsdóttur við Boga Ágústsson hófst á sagnfræðilegum nótum. Fyrir nokkrum dögum var opnuð póstsending í þjóðskjalasafni Breta 214 árum eftir að pósturinn var sendur frá Færeyjum til Kaupmannahafnar. Pósturinn komst ekki alla leið því Anne-Marie, skipið sem flutti póstinn, var hertekið af breska flotanum. Farmur Anne-Marie hefur líklega verið boðinn upp og áhöfn herskipsins fengið andvirðið en póstsendingin var eftir í Lundúnum. Þegar pósturinn var lok opnaður kom í ljós handprjónuð peysa sem var stíluð á viðtakanda í Kaupmannahöfn, ýmislegt annað var í póstinum þar á meðal seðlar og mynt. Kosið verður í Portúgal um helgina og Bogi ræddi við Einar Loga Vignisson um stjórnmálastöðuna í landinu. Að lokum ræddi Bogi andstöðu margra í Austur-Evrópu við að Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, verði næsti framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins.

Morgunvaktin
Kjaraviðræður hjá hinu opinbera, Evrópumál og stytting framhaldsskóla

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 4, 2024 130:00

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, kom á Morgunvaktina og ræddi um kröfugerð BSRB í komandi kjarasamningsviðræðum. Samningar á opinberum vinnumarkaði losna í lok mánaðarins. Hún talaði líka um endurmat á virði kvennastarfa og nauðsyn þess að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólavistar. Björn Malmquist, fréttamaður í Brussel, ræddi um komandi kosningar í Portúgal og um þýðu í samskiptum Póllands við Evrópusambandið. Kolfinna Jóhannesdóttir, skólameistari Kvennaskólans í Reykjavík, ræddi svo um styttingu framhaldsskólanna, sem hefur verið töluvert í umræðunni að undanförnu. Umsjón: Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Simone, Nina - Why must your love well be so dry. Simone, Nina - I Wish I Knew (How It Would Feel To Be Free). Bruni, Carla - Quelqu'un m'a dit Abba - Waterloo.

Víðsjá
Hark og svipmynd af kollektífu / Yrkjur

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 28, 2024 52:51

Í þætti dagsins heyrum við af upplifun Trausta Ólafssonar af gamanrokksöngleiknum Hark sem frumsýndur var í síðustu viku í Tjarnabíói. Síðan tekur svipmynd af Skáldakollektífunni Yrkjum við. Yrkjur er skáldakollektífa ungra kvenna sem stofnuð var í byrjun árs 2022. Markmið þeirra er að skapa samfélag þar sem ungir höfundar geta komið saman, lært hver af öðrum og komið sér á framfæri, hvort sem er á upplestrarkvöldum, í vinnustofum eða með bókaútgáfu. Yrkjur hófu starfsemi sínu með því að bjóða upp á ritsmiðju á Hátíðinni á Borðeyri en vöktu mikla athygli þegar þær hleyptu af stað ljóðakvöldum í Mengi síðasta vor þar sem ungskáld úr öllum áttum fengu tækifæri til að koma fram, tjá sig, prófa sig áfram og kynnast hvert öðru. Kollektífuna Yrkjur skipa þær Ása Þorsteinsdóttir, Eyrún Úa Þorbjörnsdóttir, Jana Björg Þorvaldsdóttir, Ragnheiður Guðjónsdóttir og Steinunn Kristín Guðnadóttir. Þær eiga það allar sameiginlegt að skrifa og leggja stund á nám allt frá bókmenntafræði yfir í ensku, frönsku, kennaranám og myndlist. Fyrir svipmynd dagsins fáum við tvo meðlimi kollektífunnar í hljóðstofu, þær Ásu Þorsteinsdóttur og Ragnheiði Guðjónsdóttur og ræðum við þær vítt og breitt um kollektífuna.

Heimsglugginn
Grimm örlög andstæðinga Pútíns

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Feb 22, 2024 22:55

Bogi Ágústsson , Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu örlög þeirra sem hafa sett sig upp á móti Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Alexei Navalny hefur bæst í hóp þeirra sem hafa dáið beint eða óbeint vegna andstöðunnar við forsetann. Á Vesturlöndum er litið svo á að Navalny hafi verið myrtur að undirlagi Pútíns. Í hópi þeirra Rússa sem handlangarar Pútíns hafa myrt eru meðal annarra Alexander Litvinenko, Anna Politkovskaya, Sergei Magnitsky, Boris Nemtsov og Jevgení Prígósjín. Þá ræddu þau í lokin um skýrslu sænsku öryggislögreglunnar SÄPO um ógnanir við Svíþjóð. Þar segir að mest hætta stafi af Rússlandi, Kína og Íran. Charlotte von Essen, yfirmaður SÄPO, sagði að friði væri ógnað og ástandið yrði alvarlegt í fyrirsjáanlegri framtíð. Grænlenska landsstjórnin í gær utanríkis-öryggis- og varnarmálastefnu og þar kemur meðal annars fram að stefnt skuli að aukinni samvinnu við Norður-Ameríku og Ísland. Þetta er stefnumótun til næsta áratugar og að henni standa allir flokkar á þingi nema einn, Naleraq.

Morgunvaktin
Grindavíkurfrumvarp, Berlínarspjall og rektor Háskólans á Hólum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 13, 2024 130:00

Skiptar skoðanir eru um frumvarp ríkisstjórnarinnar um uppkaup á eignum Grindvíkinga, en frumvarpið er meðal þess sem við ræddum þegar Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, kom í þáttinn. Einnig var rætt um aðrar framkvæmdir á Reykjanesi, um kjarasamningsviðræður sem nú hefur verið slitið og um uppgjör stórra fyrirtækja, sem nú tínast inn eitt af öðru. Olaf Scholz kanslari Þýskalands átti fund með Joe Biden Bandaríkjaforseta á dögunum, sem gæti hafa verið þeirra síðasti fundur. Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur frá fundinum og ýmsu fleiru í Berlínarspjalli. Háskólinn á Hólum og Háskóli Íslands verða brátt hluti af svokallaðri háskólasamstæðu. Hólmfríður Sveinsdóttir rektor Háskólans á Hólum kom til okkar í síðasta hluta þáttarins og rædd um þetta nýja fyrirkomulag í háskólastarfi hér á landi. Umsjónarmenn eru Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Litla sæta ljúfan góða - Hljómsveit Ingimars Eydal, Vilhjálmur Vilhjálmsson Þú kysstir mína hönd - Ragnhildur Gísladóttir, Tómas R. Einarsson Jack and Diane - Mellencamp, John .

Morgunvaktin
Staðan á Reykjanesi

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 9, 2024 130:00

Þátturinn var að mestu helgaður stöðunni á Reykjanesskaga, þar sem fór að gjósa fyrir rétt rúmum sólarhring. Í kjölfarið fór hitavagnslögn í sundur með þeim afleiðingum að tugþúsundir manna eru nú án hitaveitu á Reykjanesi. Magnús Stefánsson bæjarstjóri Suðurnesjabæjar og Valgerður Björk Pálsdóttir, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ ræddu við þáttastjórnendur í gegnum síma og fóru yfir stöðu mála í sveitarfélögunum. Innviðirnir á Reykjanesi eru hluti af þjóðaröryggi Íslendinga sem var til umfjöllunar í þættinum. Þau mál voru rædd við Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur og prófessor emeritus kom í síðasta hluta þáttar og ræddi um stöðuna og framhaldið á eldgosinu og atburðunum á Reykjanesinu. Umsjón með þættinum höfðu Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Kristinn Snær Agnarsson, Karl Olgeirsson, Jón Rafnsson, Hot Eskimos - Álfar. Þórir Baldursson Tónlistarm. - Sunnubraut seytján. Mikael Máni Ásmundsson - When buttercups grow. VALDIMAR GUÐMUNDSSON & MEMFISMAFÍAN - Það styttir alltaf upp.

Morgunvaktin
Mikil óvissa á vinnumarkaði vegna Grindavíkur

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 29, 2024 130:00

Niðurskurður samkeppnissjóða Vísinda- og tækniráðs nemur rúmum milljarði á árinu, samkvæmt fjárlögum. Vísindafólk hefur mótmælt þessu og jafnvel talað um að þetta jafngildi hópuppsögn á ungum vísindamönnum því færri fái tækifæri til að stunda rannsóknir. Erna Magnúsdóttir dósent og Eiríkur Steingrímsson prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands ræddu þetta. Kjósa þarf milli tveggja efstu frambjóðenda til forseta í Finnlandi, en fyrri lotu kosninga lauk í gær án þess að einn frambjóðandi fengi afgerandi kosningu. Helga Hilmisdóttir rannsóknardósent hjá Árnastofnun fór yfir finnsku forsetakosningarnar með okkur. Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, var gestur okkar í síðasta hluta þáttarins. Við forvitnuðumst um stöðu atvinnuleysis í fyrra og útlitið fyrir þetta ár, og töluðum líka um stöðu Grindvíkinga. Umsjón: Þórunn Elísabet Bogadóttir og Eyrún Magnúsdóttir. Tónlist: Mitchell, Joni - Carey. Asa Trio - Cold Feet. Sigríður Thorlacius - Svefnljóð (Ef sofnað ég get ekki síðkvöldum á). Stewart, Dave, Jagger, Mick - Old habits die hard.

Morgunvaktin
Kjaramál, upphaf kvenréttindabaráttunnar og styttur

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 26, 2024 130:00

Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, var gestur þáttarins í dag. Rætt var um kjaramálin vítt og breitt og ástand og horfur í samfélaginu. 130 ár eru í dag frá stofnun Hins íslenska kvenfélags. Af því tilefni kom Erla Hulda Halldórsson, prófessor í sagnfræði við HÍ, og ræddi um upphaf jafnréttisbaráttunnar og helstu baráttumálin fyrstu árin. Styttan af séra Friðriki var í vikunni færð af stallinum í miðborg Reykjavíkur og sett í geymslu. Anna María Bogadóttir, arkitekt og menningarfræðingur, ræddi um styttur vítt og breitt. Umsjón í dag Björn Þór og Eyrún. Tónlist: Esjan - Bríet, Bara að hann hangi þurr - Hljómsv. Ingimars Eydal, Í Reykjavíkurborg - Kristjana Stefánsdóttir, Mack the knife - Bobby Darin.

bj af bara reykjav bobby darin umsj hlj anna mar hins eyr eyfj upphaf kristjana stef kvenr erla hulda halld
Heimsglugginn
Fátt virðist geta stöðvað Trump, NATO aðild Svía

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jan 25, 2024 24:03

Aðalefni Heimsgluggans var viðtal Boga Ágústssonar við Jón Óskar Sólnes um stöðuna í bandarískum stjórnmálum og einkum framboðsmál repúblikana. Jón Óskar var lengi fréttamaður hjá RÚV en hefur verið búsettur í Washington síðustu ár. Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu einnig stöðu NATO-umsóknaraðildar Svía við Boga og nýjustu skoðanakannanir fyrir forsetakosningarnar í Finnlandi.

Spegillinn
Nauðsyn D-vítamíns í skammdeginu, Sjávarútvegsfrumvarpið og smábátasjómenn, tunglferðir í ár.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 19, 2024 20:00

Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda segir að í nýju sjávarútvegsfrumvarpi matvælaráðherra sé rækilega skautað framhjá flestöllu sem eflt gæti útgerð smábáta. Þvert á móti blasi við að veiðiheimildir verði skertar - þvert á þær væntingar sem smábátaeigendur hafi gert sér. Þá líti út fyrir að þessi flokkur útgerðar þurfi í enn meiri mæli að sækja hluta sinna veiðiheimilda á uppboðsmarkaði og kljást þá við stórútgerðina um kvóta. Ágúst Ólafsson talaði við Örn. D-vítamín er eina bætiefnið sem Landlæknisembættið ráðleggur öllum landsmönnum að taka, óháð kyni, aldri og hverju öðru sem er, segir Jóhanna Eyrún Torfadóttir, verkefnisstjóri næringar hjá landlæknisembættinu. Bandaríska geimfarið Perigrine sem til stóð að senda til tunglsins kom inn í gufuhvolf jarðar í gærkvöld og brann upp yfir afskekktu svæði á Suður-Kyrrahafi. Fyrirhugaðar eru allt að átta geimferðir til tunglsins í ár. Japanskt geimfar lenti þar í dag, að því er virðist heilu og höldnu. Ásgeir Tómasson sagði frá.

menn bandar landl eyr torfad japanskt landssambands
Morgunvaktin
Stóuspeki, gervigreind og alþjóðleg efnahagsmál

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 27, 2023

Endurleikin voru tvö viðtöl frá því fyrr á árinu, annað við Svavar Hrafn Svavarsson, prófessor í heimspeki, um stóuspeki og hitt við Jörgen Pind, prófessor emeritus, um gervigreind. Þá kom Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar í þáttinn og fór yfir stöðu efnahagsmála í heiminum við árslok. Enn fremur var rifjuð upp umfjöllun frá í maí þegar 50 ár voru liðin frá fundi Nixons Bandaríkjaforseta og Pompidou Frakklandsforseta á Kjarvalsstöðum. M.a. var leikið viðtal við Brynhildi Jóhannsdóttur sem lánaði Pompidou hús sitt og eiginmanns síns Alberts Guðmundssonar við Laufásveg. As time goes by - Barbra Streisand, L'amoureuse - Carla Bruni, Michelle - Bítlarnir. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir.

Morgunvaktin
Stóuspeki, gervigreind og alþjóðleg efnahagsmál

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 27, 2023 130:00

Endurleikin voru tvö viðtöl frá því fyrr á árinu, annað við Svavar Hrafn Svavarsson, prófessor í heimspeki, um stóuspeki og hitt við Jörgen Pind, prófessor emeritus, um gervigreind. Þá kom Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar í þáttinn og fór yfir stöðu efnahagsmála í heiminum við árslok. Enn fremur var rifjuð upp umfjöllun frá í maí þegar 50 ár voru liðin frá fundi Nixons Bandaríkjaforseta og Pompidou Frakklandsforseta á Kjarvalsstöðum. M.a. var leikið viðtal við Brynhildi Jóhannsdóttur sem lánaði Pompidou hús sitt og eiginmanns síns Alberts Guðmundssonar við Laufásveg. As time goes by - Barbra Streisand, L'amoureuse - Carla Bruni, Michelle - Bítlarnir. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir.

Morgunvaktin
Líklegt að dragi úr barneignum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 20, 2023 130:00

Samkvæmt nýrri mannfjöldaspá Hagstofunnar eru líkur á að landsmenn verði hálf milljón fyrir miðja öldina og 600 þúsund árið 2074. Mannfjöldaspár eru ónákvæm vísindi en gefa vísbendingar um líklega þróun. Ólöf Garðarsdóttir, prófessor í félagssögu við HÍ, ræddi vítt og breitt um mannfjölda og horfurnar fram undan. Búist er við að enn fjölgi í heiminum eftir því sem líður á öldina en þá taki fólki að fækka. Ólöf telur að barneiginum á Íslandi muni fækka í framtíðinni. Arthúr Björgvin Bollason flutti okkur tíðindi frá Þýskalandi. Mikið er fjallað um eldgosið á Reykjanesskaga í þarlendum fjölmiðlum en af öðru sem rætt var voru m.a. mótmælaaðgerðir þýskra bænda á mánudag, þeir óku dráttarvélum sínum til höfuðborgarinnar til að mótmæla fyrirhuguðu afnámi niðurgreiðslu á dísilolíu til landbúnaðar. Í síðasta hluta þáttarins var fjallað um þjóðtrú í tilefni af niðurstöðum nýrrar könnunar sem sýna að dregið hefur úr þjóðtrú landsmanna. Þá voru lesnar tvær sögur úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Blue moon - Elvis Presley, Tsintskaro - Hamlet Gonashvili, Litli Stúfur - Borgardætur, Tempó prímó - Eyþór Gunnarsson, Gymnopédie no. 1 - Trio Jacques Loussier. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir.

Morgunvaktin
Líklegt að dragi úr barneignum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 20, 2023

Eldgos á Reykjanesskaga

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 19, 2023

Fjallað var eldgosið sem hófst á Reykjanesskaga í gærkvöldi. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur kom í þáttinn og greindi frá stöðunni auk þess að bera gosið saman við fyrri eldgos. Moon river - Henry Mancini, In a manner of speaking - Camile Nouvelle Vague, Wide river to cross - Diana Krall, Sunnubraut seytján - Þórir Baldursson, Keilir - Stórsveit Reykjavíkur, Blackbird - Sarah McLachlan. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir.

Morgunvaktin
Eldgos á Reykjanesskaga

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 19, 2023 130:00

Fjallað var eldgosið sem hófst á Reykjanesskaga í gærkvöldi. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur kom í þáttinn og greindi frá stöðunni auk þess að bera gosið saman við fyrri eldgos. Moon river - Henry Mancini, In a manner of speaking - Camile Nouvelle Vague, Wide river to cross - Diana Krall, Sunnubraut seytján - Þórir Baldursson, Keilir - Stórsveit Reykjavíkur, Blackbird - Sarah McLachlan. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir.

Heimsglugginn
Úkraína, Serbía, Níkaragúa og forsetakosningar í Finnlandi

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Dec 14, 2023 23:49

Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir ræddu við Boga Ágústsson um leiðtogafund ESB þar sem málefni Úkraínu verða á dagskrá, þingkosningar í Serbíu, ungfrú alheim sem er í ónáð stjórnvalda í Níkaragúa og komandi forsetakosningar í Finnlandi. Leiðtogafundur Evrópusambandsins í dag snýst að miklu leyti um málefni Úkraínu, annars vegar áframhaldandi fjárhagslegan og hernaðarlegan stuðning, hins vegar tillögu framkvæmdastjórnar ESB um að bjóða Úkraínu að hefja aðildarviðræður. Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, er því andsnúinn og getur hindrað stuðning og aðildarviðræður þar sem samþykki allra þarf. Þingkosningar verða í Serbíu á sunnudaginn og útlit er fyrir að stjórnarflokkurinn haldi völdum. Það yrði enn einn sigur popúlista því landið hefur verið á stöðugri leið til hins verra frá 2012 er Framfaraflokkurinn komst til valda. Þar hefur þróun orðið svipuð og í Ungverjalandi, vegið að sjálfstæði dómstóla, fjölmiðla og annarra lýðræðislegra stofnana, spilling hefur stóraukist undir forystu forsetans Aleksandar Vucic. Að auki hafa Serbar troðið illsakir við granna sína á Balkanskaga. Annað einræðisríki er Níkargúa og kjör Miss Universe hefur hrætt Daniel Ortega einræðisherra sem ekki hefur þolað fjöldasamkomur frá því að hann barði niður lýðræðiskröfur almennings 2018 þar sem hundruð manna voru myrt. Sheynnis Alondra Palacio, Ungfrú Níkargúa, var kjörinn ungfrú alheimur í nóvember og þá þusti mannfjöldi út á götur og fagnaði. Bláhvítum fána landsins var veifað en Ortega og Sandinstahreyfing hans vill ekki að þeir litir séu notaðir, rautt og svart eru litir Sandinista og þá vill forsetinn sjá. Þess vegna virðist hann og ættarveldi hans líta á það sem pólitísk mótmæli að fegurðardrottningin var í hvítum kjól með ljósbláa slá um herðarnar þegar hún var krýnd. Í lokin var fjallað um forsetakosningarnar í Finnlandi þar sem Alexander Stubb nýtur mests fylgis. Stubb er fyrrverandi forsætis-, utanríkis- og fjármálaráðherra. Hann er 55 ára, nam stjórnmálafræði í Bandaríkjunum, Evrópuháskólanum í Belgíu og við Sorbonne háskóla í París. Hann varði svo doktorsritgerð í Evrópufræðum frá London School of Economics. Hann starfaði í finnska utanríkisráðuneytinu og fyrir Evrópusambandið uns hann settist á Evrópuþingið 2004. Stubb dró sig út úr finnskum stjórnmálum 2016 þegar hann tapaði leiðtogakosningum í flokki sínum, Kokoomus/Samlingspartiet, fyrir Petteri Orpo núverandi forsætisráðherra. Stubb er mikill íþróttaáhugamaður, lék íshokkí í æsku og var um tíma í finnska golflandsliðinu og ætlaði að verða atvinnumað

Heimsglugginn
Úkraína, Serbía, Níkaragúa og forsetakosningar í Finnlandi

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Dec 14, 2023

Stubb líklega næsti forseti Finnlands

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 14, 2023 130:00

Í Heimsglugganum ræddi Bogi Ágústsson m.a. um leiðtogafund ESB sem hefst í Brussel í dag. Búist er við að samþykkt verði að hefja aðildarviðræður við Úkraínu. Einnig var fjallað um þingkosningar í Serbíu á sunnudaginn og forsetakosningarnar í Finnlandi í Janúar. Alexander Stubb, fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, nýtur mests fylgis í skoðanakönnunum. Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor í næringarfræði, ræddi um jólamat og hollostu. Ráð dagsins er að gæta hófs í allri neyslu á aðventunni og um hátíðarnar. Kristín Davíðsdóttir hjúkrunarfræðingur talaði um málefni og aðstæður fólks sem glímir við fíkn. Hún vinnur eftir hugmyndafræði um skaðaminnkun en miklir fordómar eru í samfélaginu í garð fólks með fíkn. Tónlist: Ég ræð ekki við mig - Sálgæslan, Ég kveð þig ást - Stína Ágústsdóttir, El condor pasa - Simon og Garfunkel, Jólasveinar 1 og 8 - Stórsveit Reykjavíkur, Bye bye blakcbird - Miles Davis. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir.

Traust, ferðamál og PISA

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 8, 2023 130:00

Síðasti örþáttur Árna Snævarr um Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna fór í loftið í þættinum í dag. Rætt var við Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, um yfirlýsinguna. Traust til stofnana og stjórnmála var til umræðu á Morgunvaktinni í dag. Er fólk hætt að treysta stjórnvöldum, og ef svo er, hvað hefur það í för með sér? Viktor Orri Valgarðsson er nýdoktor í stjórnmálafræði við Háskólann í Southampton og hefur rannsakað traust. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, sem síðar í dag fær heitið FF7, var með okkur. Meðal þess sem við ræddum var boðað verkfall flugumferðarstjóra og áhrif þess, og áform um að hefta heimagistingu. Niðurstöður PISA könnunarinnar voru áfram til umræðu. Brynhildur Þórarinsdóttir, dósent við Háskólann á Akureyri og rithöfundur, og Þorvar Hafsteinsson, formaður Heimilis og skóla, ræddu við okkur. Umsjón: Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Bee Gees - To love somebody. Ylja - Dansaðu vindur. Una Torfadóttir - Stundum.

Morgunvaktin
Traust, ferðamál og PISA

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 8, 2023

Hvernig mun gervigreind nýtast í stjórnmálum?

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 1, 2023

Í fyrsta viðtali dagsins var rætt við Guðmund Magnússon sagnfræðing um séra Friðrik en bók hans um æskulýðsleiðtogann hefur vakið mikla athygli vegna upplýsinga um kynferðislegar hneigðir hans. Einkum var í viðtalinum fjallað um æsku Friðriks en hann fæddist inn í blásnauða fjölskyldu norður í landi. Færa á nám í skapandi sjálfbærni í Hallormsstaðaskóla á háskólastig. Bryndís Fiona Ford skólameistari sagði frá skapandi sjálfbærni og lífinu á Hallormsstað. Tæknin þróast hratt, ekki síst gervigreindin. Framtíðarnefnd Alþingis hefur fjallað um hana og efnir til málstofu um efnið í dag. Lilja Rannveig Sigurgeirsóttir, alþingismaður og formaður framtíðarnefndar þingsins, spjallaði um gervigreind og stjórnmál. Hún telur hana munu nýtast ræðuskrifa, upplýsingaöflunar og lagasetningar í framtíðinni. Tónlist: Blús í G - Mannakorn, Hagavagninn - Stórsveit Reykjavíkur, Við Vatnsmýrina - Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur, Rise up - Júníus Meyvant. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir.

Lestin
Eðlisfræði í klípu og Boob Sweat Gang

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 19, 2023 55:00

Í Lestinni þessa vikuna ætlum við að beina sjónum okkar að íslenskum stelpupönkhljómsveitum, við ræðum við meðlimi hljómsveitanna Sóðaskapur og Gróa, en við Byrjum á Boob Sweat Gang. Hljómsveitin var stofnuð árið 2019 á workshoppi hjá dansaranum og listakonunni Gígju Jónsdóttur, Wikihow to start a punk-band. Árið 2022 gáfu þær út sína fyrstu plötu, The Boob Sweat Gang The Album. Urður, Anna Guðrún og Eyrún komu í Lestina og sögðu sögur af Boob Sweat Gang. Er eðlisfræðin stöðnuð og á villigötum? Of upptekin af fallegum formúlum og furðulegum kenningum um fjölheima og fleiri víddir til að leggja eitthvað nýtt af mörkum? Þetta eru aðeins nokkrar af þeim spurningum sem þýski eðlisfræðingurinn Sabine Hossenfelder veltir upp í bók sem var að koma út í íslenskri þýðingu: Rammvillt í reikningskúnstum: hvernig fegurðin villir um fyrir eðlisfræðinni.

Lestin
Eðlisfræði í klípu og Boob Sweat Gang

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 19, 2023

Í Lestinni þessa vikuna ætlum við að beina sjónum okkar að íslenskum stelpupönkhljómsveitum, við ræðum við meðlimi hljómsveitanna Sóðaskapur og Gróa, en við Byrjum á Boob Sweat Gang. Hljómsveitin var stofnuð árið 2019 á workshoppi hjá dansaranum og listakonunni Gígju Jónsdóttur, Wikihow to start a punk-band. Árið 2022 gáfu þær út sína fyrstu plötu, The Boob Sweat Gang The Album. Urður, Anna Guðrún og Eyrún komu í Lestina og sögðu sögur af Boob Sweat Gang. Er eðlisfræðin stöðnuð og á villigötum? Of upptekin af fallegum formúlum og furðulegum kenningum um fjölheima og fleiri víddir til að leggja eitthvað nýtt af mörkum? Þetta eru aðeins nokkrar af þeim spurningum sem þýski eðlisfræðingurinn Sabine Hossenfelder veltir upp í bók sem var að koma út í íslenskri þýðingu: Rammvillt í reikningskúnstum: hvernig fegurðin villir um fyrir eðlisfræðinni.

The Flow
5 Fold Ministry Forum | Panelists: Jonathan Sanders, Caleb Herring, Jacob Torres, Jesse Cornejo, David Ramirez

The Flow

Play Episode Listen Later Sep 2, 2023 88:57

In collaboration with our good friend David Puentes, who you'll hear is the moderator, and EYR (End Time Youth Revival), we present "The 5 Fold Ministry Forum." This recording occurred on Aug. 26th, 2023 at the EYR in LA. This conversation provides excellent insights about the 5 fold ministry mentioned in scripture in Ephesians ch.4. The panelists that you will be hearing are Jonathan Sanders, Caleb Herring, Jacob Torres, Jesse Cornejo, and David Ramirez. We encourage you to not only hear this forum but take it as a prompt to study the scriptures yourself and see what the Lord will show you personally about the 5 fold, and your place in it.

Startup Insider
Investments & Exits - mit Philipp Werner über die Finanzierungsrunde von SNERPA Power und Logistikbude

Startup Insider

Play Episode Listen Later Sep 1, 2023 26:26

In der Rubrik “Investments & Exits” begrüßen wir heute Philipp Werner, Partner bei Project A. Philipp bespricht die Runde von SNERPA Power und Logistikbude.Das isländische Startup SNERPA Power hat eine Finanzierung in Höhe von 2,2 Millionen Euro erhalten, um die Dekarbonisierung des Energiesektors zu beschleunigen. SNERPA Power wurde 2022 von den Branchenveteranen Íris Baldursdóttir (CEO) und Eyrún Linnet (CTO) mit der Vision gegründet, einen Beitrag zur Beschleunigung der weltweiten Energiewende zu leisten. Diese überzeichnete erste Investitionsrunde in Höhe von 2,2 Millionen Euro wurde von zwei VCs, Crowberry Capital (Island) und BackingMinds (Schweden), geleitet und ermöglicht es dem Unternehmen, seine Mitarbeiterzahl zu erhöhen, international zu expandieren und die kommerzielle Präsenz auszubauen.Logistikbude aus Dortmund, 2021 von Philipp Hüning, Michael Koscharnyj, Patrik Elfert und Jan Möller aus dem Fraunhofer IML ausgegründet, hat 2,2 Millionen Euro eingesammelt. Das junge Unternehmen aus dem Ruhrgebiet kümmert sich um Ladungsträgermanagement. Das Geld stammt unter anderem von Xpress Ventures, rethink ventures, dem Fraunhofer Technologie-Transfer Fonds (FTTF), Oma Ventures (Proglove-Gründer) sowie dem Business Angel Clubs better ventures sowie Angel-Investoren aus dem Umfeld von SB21. Mit dem frischen Kapital möchte das Software-Unternehmen seine “Technologie weiterentwickeln und im Markt skalieren”.

Elevate Your Running
EP. 60 - Benefits of Doubling Down on Recovery

Elevate Your Running

Play Episode Listen Later Mar 16, 2023 32:16

As runners, we want to do it all. We're searching for the 1% needle-moving actions we can take to grow as athletes and people. Yet, for whatever reason, we always neglect recovery. This episode will provide important context and tips for recovering better - without detracting from other areas of your life. Sometimes, we need to slow down to speed up. If you find yourself in a slump, consider how you can recover better before running more! Enjoy this week's episode of the EYR podcast! New releases every Thursday - subscribe through your preferred listening platform for weekly content that helps elevate your running and life. Podcast Resources: Elevate Your Running Connect w/ Sara Connect w/ Austin – Track: Chicago — Jey Co [Audio Library Release] Music provided by Audio Library Plus Watch: https://youtu.be/MNbfbvZR10A Free Download / Stream: https://alplus.io/chicago

Heimskviður
136| Stjórnmálakonur hætta og framtíð eyríkis í sýndarveruleika

Heimskviður

Play Episode Listen Later Feb 18, 2023 40:00

Þemaþættir Heimskviða halda áfram og að þessu sinni er sjónum beint að svæði sem er hinum megin á jarðkringlunni, Nýja Sjálandi og eyríkinu Tuvalu. Stjórnmálakonur sem hafa notið mikillar hylli alþjóðlega hverfa nú á braut ein af annarri, og segja álagið og atganginn sem fylgi nútímastjórnmálum helstu ástæðuna. Við ætlum að rýna í stöðu kvenleiðtoga og ástæður þess að aðeins tíu prósent þjóðarleiðtoga eru konur. Jacinda Ardern lét af embætti forsætisráðherra Nýja-Sjálands í síðustu viku. Afsögnin setur allt á hliðina í nýsjálenskum stjórnmálum, en kosið verður í haust og þegar ljóst að eftirmaður hennar og félagar hans ná aldrei að fara með flokkinn nærri þeim hæðum sem Jacinda Ardern gerði, en hún naut gríðarlega vinsælda, bæði í Nýja-Sjálandi en líka alþjóðlega. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um málið. Eyríkið Tuvalu í Kyrrahafi er eitt friðsælasta land í heimi. Þrátt fyrir það eru miklar líkur á að á næstu áratugum verði hver og einn einasti íbúi eyjanna að leggja á flótta. Gangi verstu spár um hækkandi sjávarmál eftir flæðir yfir eyjarnar og þær verða óbyggilegar. Túvalúar eru samheldnir og þó að þeir eigi líklega eftir að setjast að víða um heim ætla þeir að reyna að halda hópinn. Það ætla þeir að gera í sýndarveruleika, því hugmyndin er að endurskapa eyríkið þar og að hver og einn Túvalúi verði persóna í sýndarveruleikanum. Dagný Hulda Erlendsdóttir segir okkur frá þessum áhugaverðu framtíðarplönum.

Heimskviður
136| Stjórnmálakonur hætta og framtíð eyríkis í sýndarveruleika

Heimskviður

Play Episode Listen Later Feb 18, 2023

EP. 50 - Nell Rojas | Training Like An Elite

Elevate Your Running

Play Episode Listen Later Jan 5, 2023 62:50

Nell Rojas is an American elite marathon runner for Nike, coach, and business owner for Rojas Running. She joins EYR to discuss key aspects of her background in the sport, as well as her present-day life as one of the top women's marathon runners in the world today! Key discussion topics include: How Nell's training has evolved over the years, and her thoughts on meeting the specific needs of each athlete. The value of strength training and why Nell integrates lifting into her routine as an athlete. Mental strength and resilience through hard workouts and harder times as an athlete and business owner - Nell's internal dialogue and how we all can be stronger from the inside out. This episode is jam-packed with thoughtful information and important perspectives for athletes of all levels. We're extremely grateful to Nell for sharing her time with us this week. Learn more about Nell here and continue to follow along with her career in running! If you enjoyed this podcast, let us know by leaving a review, subscribing, and reaching out to us on social media! Find out more about Sara and Austin below, and join us again next week - new episodes every Thursday! Resources: Elevate Your Running Connect w/ Sara Connect w/ Austin – Track: Chicago — Jey Co [Audio Library Release] Music provided by Audio Library Plus Watch: https://youtu.be/MNbfbvZR10A Free Download / Stream: https://alplus.io/chicago