Hlaupalíf Hlaðvarp

Follow Hlaupalíf Hlaðvarp
Share on
Copy link to clipboard

Verið hjartanlega velkomin í hlaðvarpsþáttinn “Hlaupalíf”. Við erum Elín Edda og Vilhjálmur Þór og við höfum ástríðu fyrir hlaupum. Hér verður fjallað um allt á milli himins og jarðar um hvað eina sem tengist hlaupum; æfingar, markmið, næring, keppnishlaup og almenningshlaup og auðvitað undirbúningu…

Vilhjálmur Þór og Elín Edda


    • Apr 7, 2023 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 1h 7m AVG DURATION
    • 45 EPISODES


    Search for episodes from Hlaupalíf Hlaðvarp with a specific topic:

    Latest episodes from Hlaupalíf Hlaðvarp

    #45 Helen Ólafsdóttir

    Play Episode Listen Later Apr 7, 2023 67:51


    Helen Ólafsdóttir hefur náð mjög góðum árangri á sviði langhlaupa og í þríþraut og er ein af þessum fyrirmyndum sem hefur náð mjög langt þrátt fyrir að hafa byrjað “seint” ef svo má að orði komast. Það geislar af henni þessi þolíþróttaljómi sem þekkist svo vel á íþróttafólki. Hún hefur fært sig yfir í þríþraut sökum meiðsla og á stuttum tíma náð mjög miklum árangri. Helen segir okkur frá sínu hlaupa- og íþróttalífi, framtíðarmarkmiðum, bataferli eftir höfuðhögg o.fl. o.fl.

    #44 Búi Steinn Kárason

    Play Episode Listen Later Feb 21, 2023 81:29


    Jæja loksins erum við í Hlaupalíf búin að dusta rykið af hlaðvarpsgræjunum og þá var enginn betri til að mæta í settið en hlaupakóngurinn Búi Steinn Kárason. Búi er vel kunnugur í hlaupasamfélaginu enda tekið þátt í hinum ýmsum stórhlaupum. Við höfum séð hann keppa í hlaupum sem spanna allt frá 3000m upp í 161 km og oftar en ekki sigrað þessi hlaup og verið á frábærum tímum. En hver er Búi, hvernig varð hann svona feyki góður hlaupari og hvað er á döfinni hjá honum? Við komumst að því í þessu viðtali ásamt fjölmörgu öðru enda áttum við virkilega gott og einlægt spjall við Búa sem enginn hlaupaunnandi má missa af.

    steinn
    #43 Lífið er allskonar, en það er alltaf hlaupalíf

    Play Episode Listen Later Nov 11, 2022 38:54


    Hlaupalíf og hlaupalífið er aftur mætt með flúnkunýjan þátt!

    alltaf allskonar
    #42 Hlaupafrumkvöðullinn Helga Árnadóttir um hlaupalífið á Höfn!

    Play Episode Listen Later May 26, 2022 54:45


    Í nýjasta þætti af Hlaupalíf brugðum við aðeins út af vananum og heimsóttum höfuðborgina á suðausturlandi: Höfn í Hornafirði. Við hittum þar fyrir Helgu Árnadóttur, hlaupafrumkvöðul og hlaupaþjálfara, sem sagði okkur frá Hlaupalífinu á Höfn og skyggðumst aðeins betur inn í heim hlaupara á landsyggðinni og margt margt fleira!

    helgu hornafir
    #41 Hlaupalífið í dag

    Play Episode Listen Later May 8, 2022 39:47


    Langþráður NÝR þáttur hjá okkur í Hlaupalíf. Vorið er komið, engar appelsínugular viðvaranir, hlaupasumarið að hefjast og allir hlauparar (og aðrir) peppaðir eftir því. Í þessum þætti förum aðeins yfir hlaupalífið okkar í dag, áskoranir í persónulega lífinu undanfarin misseri og spáum aðeins í hlaupasumrinu, hvað eru skemmtilegustu hlaupabrautirnar o.m.fl. TAKK fyrir að hlusta! :)

    #40 Afsakið hlé

    Play Episode Listen Later Dec 5, 2021 32:04


    Afsakið hlé og þáttur númer 40 - TAKK. Eins og svo margir aðrir jarðarbúar þá þurftum við að slá lífinu á frest þegar við smituðumst af Covid-19. Stutt spjall okkar á milli í Hlaupalíf um lífið í einangrun, að horfa á björtu hliðarnar og að sjálfsögðu hlaupalífið eftir einangrun.

    #39 Arnar Pétursson: Uppbygging æfingatímabilsins

    Play Episode Listen Later Oct 24, 2021 76:35


    Nú er keppnistímabilinu að ljúka hjá mörgun hlaupurum og nýtt tímabil að hefjast. Hvernig er best að byggja hlaupatímabilið upp með réttum hætti fyrir næstu hlaup sem við erum að stefna að? Og AF HVERJU er þetta svona mikilvægt? Allt þetta og auðvitað miklu meira til (svo gaman að tala um hlaup, er það ekki?) í þessu úber góða spjalli við hlaupafrömuðinn Arnar Pétursson. ENJOY! Þátturinn er í boði, Serrano, verslunarinnar Sportvörur og www.sjalfsbetrun.is

    #38 Sigmar Guðmundsson: hvernig hlaupin geta hjálpað í batanum við fíknisjúkdóm.

    Play Episode Listen Later Sep 15, 2021 77:30


    Í 38# þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við fjölmiðlamanninn, frambjóðandann en fyrst og fremst HLAUPARANN Sigmar Guðmundsson til okkar í settið. Við í Hlaupalíf höfum alltaf haft áhuga á að heyra hvernig fólk vinnur úr alcoholisma eða öðrum fíknisjúkdómi með hlaupum og hvernig þau geta stuðlað að breyttum lífsstíl með einum eða öðrum hætti. Slíkt hefur svo sannarlega hefur gerst hjá Sigmari sem er orðinn dolfallinn utanvegahlaupari. Kannski getur þessi saga hjálpað öðrum í sambærilegum aðstæðum eða verið einhverskonar hvatning fyrir fólk í sambærilegum aðstæðum. Það fer nefnilega ekki á milli að Sigmar elskar að hlaupa. Hlaupaáhuginn og ástríðan hreinlega skín í gegn. Þátturinn hefst á almennum umræðum okkar í Hlaupalíf um helstu fréttir og málefni líðandi stundar en spjallið við Sigmar byrjar eftir rúmar 23 mín. Þátturinn er í boði, Serrano, verslunarinnar Sportvörur og www.sjalfsbetrun.is

    #37 Andrea Kolbeins um sub-5 í Laugaveginum og hlaupalífið!

    Play Episode Listen Later Aug 4, 2021 85:05


    Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp (#37) fengum við enga aðra en Laugavegs-sigurvegarann Andreu Kolbeindóttur í settið og fórum yfir mál málanna: hvernig hleypur maður Laugaveginn á 4:55 og brýtur þar með múr múranna; 5 klst-múrinn! Þrátt fyrir ungan aldur á Andrea nú þegar magnaðan hlaupaferil í ýmsum vegalengdum allt frá brautarhlaupum að últra hlaupum, sem gerir hana að þeirri einstöku hlaupakonu sem hún er. Við fórum yfir allt þetta og meira til, m.a hvernig framtíðin lítur út hjá Andreu, hver draumamarkmiðin eru, hvernig gekk að æfa fyrir Laugaveginn og margt fleira. Það er margt hægt að læra af þessari metnaðarfullu hlaupakonu! Njótið! Þátturinn er í boði Sportval og Serrano.

    serrano andreu hla laugaveginum
    #36 Allt sem þú þarft að vita um Baldvin Þór Magnússon

    Play Episode Listen Later Jul 2, 2021 67:31


    Hver er Baldvin Þór Magnússon? Jú, ekki nema þrefaldur Íslandsmethafi og einn allra besti hlaupari okkar Íslendinga. Við í Hlaupalíf tókum strangheiðarlegt viðtal við þennan unga og efnilega hlaupara sem hefur vakið talsverða athygli í hlaupaheiminum. Baldvin er hægt og rólega byrjaður að slá nokkur Íslandsmet í hlaupum og er jafnframt að gera stórgóða hluti með háskólaliðinu sínu í Bandaríkjunum, sem er sami skóli og Hlynur Andrésson var í. Skemmtilegt. Ef þú vilt kynnast einum besta hlaupara okkar Íslendinga þá máttu ekki missa af þessu viðtali, takk.

    allt ef magn hver bandar baldvin skemmtilegt
    #35 Ragnheiður um 100 mílurnar

    Play Episode Listen Later Jun 13, 2021 71:44


    Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fengum við Ragnheiði Sveinbjörnsdóttur í settið en hún sigraði 100 mílna hlaupið í Hengil-Ultra í byrjun júní sl. Hvernig er að keppa í 161 km hlaupi, hvernig æfir maður sig fyrir svona langt hlaup og hvernig var að takast á við afar krefjandi aðstæður sem komu upp í hlaupinu? Allt þetta og meira til förum við yfir með Ragnheiði sem segir okkur frá þessari ofur þrekraun.

    #34 Hlaupum af okkur sorgina

    Play Episode Listen Later May 16, 2021 67:32


    Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fórum við eilítið inn á við. Það er ýmislegt búið að gerast í lífi okkar og ákveðið sorgarferli frá seinasta þætti sem við förum yfir og ræðum hvernig hlaup og önnur hreyfing hefur hjálpað okkur við eftirköst sorgarinnar. Ræðum ekki bara hlaup, heldur einnig aðra þætti tengda hreyfingu. Förum einnig yfir ákveðna tilraun sem við höfum verið að prófa sem tengist atlögu Vilhjálms að fyrsta maraþonhlaupinu í lok sumars!

    # 33 Guðbjörg Jóna: leiðin að Ólympíudraumnum, frjálsíþróttir á Íslandi og afreksíþróttalífið

    Play Episode Listen Later Mar 19, 2021 94:25


    Í þætti dagsins fengum við hina kornungu hlaupastjörnu Guðbjörgu Jónu, sem er einn efnilegasti frjálsíþróttamaður okkar Íslendinga í dag. Það vita það kannski ekki allir, en Guðbjörg er ekki bara margfaldur íslandsmethafi og boðberi frjálsíþróttarinnar hér á landi, heldur líka heimsmethafi. Komum nánar að því í viðtalinu! Hún hefur einnig verið áberandi í fjölmiðlum að undanförnu og stendur fyrir málstað frjálsíþróttafólks hér á landi. Hér kemur Guðbjörg Jóna og saga hennar, GJÖRIÐISVOVEL.

    gu komum
    #32 Prófessor Erlingur Jóhannsson um ofþjálfun

    Play Episode Listen Later Feb 21, 2021 70:42


    Nýjasti þáttur Hlaupalíf Hlaðvarp #32 er tileinkaður ofþjálfun. Af hverju ofþjálfun? Jú við höfum heyrt af því að hlauparar hafa í gegnum tíðina lent í einkennum vegna æfinga sem gætu bent til ofþjálfunar. Til að ræða þetta atriði betur og fá nánari útskýringar á viðfangsefninu fengum við til okkar í settið Erling Jóhannsson prófessor í íþrótta- og heilsufræði á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Við ræddum þessi málefni í þaula ásamt feril Erlings en Erlingur var afreksmaður í íþróttum og á hann á til dæmis ennþá Íslandsmetið í 800 metra hlaupi sem var sett árið 1987!

    af hla menntav
    #31 Guðrún Sóley Gestsdóttir: Stemningshlaupari í vegan spjalli!

    Play Episode Listen Later Jan 31, 2021 117:21


    Í þætti dagsins sem tileinkaður er VEGANÚAR fengum við sjálfskipaða veganklappstýru Íslands, enga aðra en Guðrúnu Sóleyju Gestsdóttur, fjölmiðladrottningu. Við fórum yfir víðan völl, hlaupaferil og hlaupalífsviðhorf Guðrúnar, vegan og plant based umræður og tengslin þar við hlaup. Fyrst og fremst djúpt og einlægt, en í senn bráðskemmtillegt viðtal við hressa og skemmtilega manneskju. Spennandi viðtal fyrir forvitið fólk um mataræði og lífið almennt!

    #30 Stefán Bragi Bjarnason: ,,Vonum það BESTA en undirbúum okkur fyrir það VERSTA''!

    Play Episode Listen Later Dec 22, 2020 71:13


    Í 30. þætti af Hlaupalíf fjöllum við um hlaup að vetri til og öryggi. Sífellt fleiri og fleiri vilja hlaupa allan ársins hring, sem er að sjálfsögðu hið besta mál ef vari er hafður á. Slysin gera ekki boð á undan sér og hægt er að bjarga mannslífum með fyrirbyggjandi aðgerðum. Það koma reglulega fréttir af björgunaraðgerðum og margir hafa farist í hlíðum Esjunnar þrátt fyrir mikla reynslu á fjöllum. Okkur langar því að fara ítarlega yfir öryggisatriði í utanvegahlaupum að vetri til og fengum til okkar frábæran gest, Stefán Braga Bjarnason stórhlaupara, fjallagarp og reynslubolta á þessu sviði! Í þættinum förum við einnig yfir helstu hlaupafréttir líðandi stundar og kíkjum yfir ,,mælum með'' þáttarins. ENJOY :D

    #29 Martha Ernstsdóttir DROTTNINGARVIÐTAL!

    Play Episode Listen Later Nov 15, 2020 136:39


    Gestur þáttarins er stór. Mjög stór, en samt pínulítil. Þetta er engin önnur en fremsta afrekskona Íslendinga í hlaupum, Martha Ernstsdóttir ofurhlaupari. Við förum meðal annars yfir viðburðaríkan feril Mörthu, Ólympíuleikana 2000 í Sidney, fjölmörgu Íslandsmetin hennar en fyrst og fremst fáum við að kynnast persónunni sem hún hefur að geyma og fallegu lífsviðhorfi hennar. Þetta er alveg sannkallað drottningarviðtal við litríka persónu sem ENGINN má missa af.

    *28 Torfi Leifs....maðurinn á bakvið HLAUP.IS

    Play Episode Listen Later Oct 26, 2020 60:23


    Það kannast eflaust flestir við heimasíðuna www.hlaup.is. Þar getur fólk flett upp hlaupadagskrá, myndum, pistlum og almennum fróðleik o.fl. o.fl. Nýverið var ný síða sett á laggirnar - virkilega flott framtak - og okkur langaði aðeins að forvitnast um Torfa Leifsson, sem er svona “pabbi” hlaup.is. Hvað er það sem drífur Torfa áfram og fær hann til að halda áfram að vinna alla þessa vinnu fyrir okkur - og hver er Torfi? Þetta eru spurningar sem eflaust hafa brunnið á flestum Íslendingum til lengri tíma og í dag, kæru hlustendur, fáiði svarið við spurningum ykkar - ENJOY! :D

    hva leifs
    #27 Íris Anna um hlaup og BARNEIGNIR

    Play Episode Listen Later Oct 9, 2020 69:23


    Í upphafi þáttar förum við yfir helstu atriði í hlaupavikunni sem leið o.fl. :D en aðalumræðu efni þáttarins er svo barneignir og hlaup. Við förum yfir nokkur grunnatriði í tenglsum við barneignir og hlaup og hvert maður getur leitað með almenn ráð bæði hvað varðar hreyfingu á meðgöngunni sjálfri og eftir barnsburð. Ræðum við Írisi Önnu Skúladóttur sem hefur gengið með fjögur börn á seinustu átta árum og púslar nú fjölskyldulífi, atvinnulífi og íþróttaferli. Hún hefur verið með fremstu hlaupakonum Íslands um árabil og deilir sinni reynslu af því að hreyfa sig í gegnum meðgöngur og koma sér aftur af stað og beint á pall eftir barnsburð. Við minnum að sjálfsögðu á að meðganga getur verið mjög einstaklingsbundin og hvetjum fólk til að hlusta á líkamann og leita til sérfræðings með sérhæfðari ráðleggingar í þessum efnum. Þátturinn er styrktur af leikritinu "Ég hleyp" sem sýnt verður í Borgarleikhúsinu! :D

    borgarleikh
    #26 Umfjöllun um langvarandi meiðsli

    Play Episode Listen Later Sep 14, 2020 54:48


    Hlaupalíf hefur loksins skriðið úr sumardvalanum! Í þessum þætti fjallar Vilhjálmur Þór um sína eigin baráttu við langvinn meiðsli sem komu vegna hlaupa. Í þættinum rekjum við meiðslasöguna og hvernig hann fer (vonandi) með rétt hugarfar og langtímasýn í gegnum hæðir og lægðir sem fylgja langtímameiðslum. Fyrr á þessu ári tók hann ákvörðun sem reynist flestum hlaupurum erfið; að leggja alveg niður hlaup á meðan hann var að einbeita sér að því að ná að líða betur í eigin líkama og áhugavert að heyra hvernig honum líður með það. Í spjallinu má nálgast ýmis góð ráð, en jafnframt fá smá innsýn í hugarheim Villa og hvaða áhrif meiðsli geta haft á allar athafnir daglegs lífs. Bon appétit! Þátturinn er í boði Serrano.

    #25 Guðni Páll Pálsson um LAUGAVEGINN

    Play Episode Listen Later Jul 10, 2020 80:50


    Í nýbökuðum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við landsliðs- og ofurhlauparann Guðna Pál Pálsson í settið sem ræddi við okkur um mál málanna þessa dagana: LAUGAVEGINN. Hvernig er best að undirbúa sig, hvaða búnaður hentar og hentar ekki. Næring, endurheimt, algeng mistök og andlegi þátturinn eru svo allt málefni sem við fórum yfir með Guðna sem hlaupið hefur Laugaveginn 4x og fyrir Íslands hönd á HM í fjallahlaupum nokkrum sinnum og því vel til fallinn að ræða þessi mál við okkur!

    #24 Guðlaug Edda: Einn fremsti þríþrautarkeppandi okkar Íslendinga

    Play Episode Listen Later Jun 21, 2020 88:51


    Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fengum við þríþrautardrottninguna Guðlaugu Eddu til okkar í bráðskemmtilegt viðtal. Guðlaug er einn fremsti þríþrautariðkandi okkar Íslendinga og var (og er) afar nálægt því að komast á Ólympíuleikana 2021 í Tokyo. Guðlaug leggur gríðarlegan metnað og vinnu í íþróttina og uppsker eftir því. Það var virkilega gaman að taka viðtal við Guðlaugu, sjálfstraustið geislar af henni og áhugi hennar á íþróttum almennt er svo sannarlega smitandi sem allir geta tekið til sín. ENJOY! :D

    #23 Fjöll á höfuðborgarsvæðinu!

    Play Episode Listen Later Jun 6, 2020 56:20


    Í GLÆnýjum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fórum við heldur betur á stúfana og rannsökuðum hvaða fjöll og tinda eru heppileg fyrir okkur hlaupara að hlaupa á höfuðborgarsvæðinu. Það er fátt betra en að láta hugann reika í fjallahlaupi og/eða fjallagöngu og njóta sín í náttúrunni og vildum við kanna hvaða leiðir væru þar í boði. Þá er það umtalað að slíkar fjallaæfingar eru þrælöflugar , sérstaklega fyrir STYRKINN. Endilega njótið og fáið góðar hugmyndir fyrir nýju fjallahlaupi í nágrenni Reykjavíkur!

    reykjav hla endilega
    #22 Uppáhalds hjá Hlaupalíf!

    Play Episode Listen Later Apr 20, 2020 55:32


    Í þætti dagsins tókum við hjá Hlaupalíf gott spjall hvort við annað til að dreifa huganum á þessum tímum. Hvernig höfum við notað allan þann tíma sem hefur losnað í hjá okkur að undanförnu og hvaða áskoranir við höfum þurft að takast á við? Við fórum einnig yfir ýmislegt í okkar uppáhaldi til að auka á almenna GLEÐI OG GLEÐIHORMÓNA og til að koms með TILLÖGU að einhverju skemmtilegu til að lesa, gera, elda eða hlusta á!

    #21 Dr. Erla Björnsdóttir um SVEFN og íþróttir!

    Play Episode Listen Later Apr 6, 2020 63:31


    #21. Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp tókum við spjall við svefnsérfræðinginn Dr. Erlu Björnsdóttur sem ræddi við okkur um svefn í tengslum við íþróttir. Ansi margir punktar sem við hlauparar og fólk bara almennt geta tekið til sín. Oft eru þetta hlutir sem við eigum að vita og erum fljót að gleyma, en um LEIÐ og maður fær að heyra það frá Erlu þá vill maður svo sannarlega taka þessa punkta til sín. Við fórum m.a yfir svefn kvöldið fyrir keppnishlaupið, svefnskuldina á kostnað æfinga og almennt yfir mikilvægi svefns sem skiptir gríðarmiklu máli, ekki bara fyrir fólk sem er að æfa reglulega, heldur fyrir alla í ástandi heimsins í dag. Þáttur dagsins er í boði H-Berg!

    oft lei hla ansi svefn erla bj erlu
    # 20 Stóra hlaupinu aflýst/frestað - HVAÐ SVO?

    Play Episode Listen Later Mar 20, 2020 47:13


    Í nýjasta þætti fórum við í Hlaupalíf aðeins yfir stöðuna hjá okkur hlaupurum í þessu blessaða ástandi sem er í gangi. Búið að fresta eða aflýsa flestum hlaupakeppnum næstu vikurnar, margir í sóttkví eða eingangrun og enn fleiri að velta fyrir sér hvað hægt er að gera keppnislega og æfingalega séð næstu misserin til að halda sér í toppformi og hamra inn góðu bætingahlaupi síðar á árinu!

    #19 Birna Varðar um átraskanir, næringu og önnur tengd málefni

    Play Episode Listen Later Feb 26, 2020 79:07


    Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fengið við í hús frumkvöðulinn, næringaspekúlantinn og hlauparann Birnu Varðar. Birna er með BS gráðu í næringafræði og MS í þjálffræðivísindum (hversu töff gráða?) og sagði okkur frá mikilvægi næringar fyrir heilsu og árangur í íþróttum og sérstaklega í hlaupum, en Birna hefur sjálf lent í alvarlegum fylgikvillum fyrir nokkrum árum tengt þessu sem við förum vel yfir í þættinum og uppbygginguna eftir það, m.a þegar Birna afrekaði að vera Íslandsmeistari í kraftlyftingum! Góð og þörf umræða sem vert er að vekja athygli á sérstaklega þar sem í vikunni er National eating disorders awareness week.

    #18 Hlynur Andrésson: Afrekshlaupari og margfaldur Íslandsmethafi

    Play Episode Listen Later Jan 21, 2020 59:51


    Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp tókum við viðtal við hinn margfalda Íslandsmethafa og afrekshlaupara Hlyn Andrésson. Hlynur spjallaði við okkur um hlaupaferilinn, afreksmannalífið, öll þessu frábæru Íslandsmet sem Hlynur hefur verið að setja undanfarin misseri en hann setti meðal annars Íslandsmet í 10 km götuhlaupi í mars 2019 er hann hljóp á 29:49 mín og bætti þar með 36 ára gamalt hlaupameistarans Jóns Diðrikssonar - magnað! Virkilega áhugavert að heyra sögu þeirra sem eru í fremsta flokki og setja markið hátt og getum við hin eflaust lært mikið af :D

    hla hlynur
    # 17 Áramótaannáll Hlaupalíf Hlaðvarp 2019!

    Play Episode Listen Later Dec 30, 2019 39:36


    Í áramótaannál hjá okkur í Hlaupalíf Hlaðvarp förum við yfir hlaupaárið 2019, hvað stóð upp úr innanlands og erlendis. Förum yfir ýmsa flokka eins og Laugaveg ársins, dugnað og skandal ársins sem og óvæntasta innlenda og erlenda atvik ársins OG MARGT MARGT FLEIRA. Þökkum ykkur kæru hlustendur svo KÆRLEGA fyrir árið sem er að líða og hlökkum til nýs hlaupaárs!

    # 16 Hlaupabókarýni hjá Hlaupalíf Hlaðvarp með Arnari Péturssyni

    Play Episode Listen Later Dec 19, 2019 61:39


    Í glænýjum þætti bregðum við aðeins út af vananum og dettum í bókagírinn og rennum yfir nokkrar spennandi hlaupabækur sem eru á boðstólnum. Af því tilefni fengum við rithöfundinn Arnar Pétursson til að segja okkur frá Hlaupabókinni sem hann er að gefa út og förum einnig yfir uppáhalds hlaupabækurnar hans Arnars. Þar sem það eru nú einnig að koma áramót spurðum við Arnar út í hlaupaárið 2019 og hvaða markmið hann verður með á nýju ári. SPENNANDI. Þið megið ALLS EKKI missa af þessum þætti ef þið þurfið að fá góðar hlaupabóka hugmyndir og smá hlaupa innblástur rétt yfir hátíðarnar og bara hvenær sem er!

    af arnar arnars arnar p
    # 15 Sævar Skaptason: Á sjötugsaldri og hlaupandi um allar trissur.....!

    Play Episode Listen Later Dec 1, 2019 72:08


    Sævar Skaptason 61 árs gamall framkvæmdastjóri ferðaþjónustu Bænda og útivistargarpur er viðmælandi þáttarins! Í þættinum segir hann okkur ýmsar skemmtilegar sögur en hann hefur greinilega upplifað ýmislegt á hlaupaferðum sínum í gegnum árin. Einnig segir hann leyndardóminn við því að halda sér í topp formi á sjötugsaldri. Fróðlegt viðtal sem bætir enn einu púsluspilinu við hlaupasögu okkar hér á Íslandi, en við í Hlaupalíf Hlaðvarp höfum svo gaman af að kynnast henni og langar að leyfa ykkur að njóta með okkur!

    # 14 Maraþon - svo mikið meira en bara að hlaupa

    Play Episode Listen Later Nov 5, 2019 56:30


    # 14 Í splunkunýjum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp verður þáttastjórnandinn Elín Edda að viðmælanda í stórmerkilegu viðtali eftir heimkomuna frá Frankfurt maraþoninu þar sem Elín hljóp sitt annað maraþon á 2:44;48 klst og bætti þar með tímann sinn um rúmar 4 mín. Í sínum maraþon undirbúningi hefur Elín Edda verið með fjölmargar undirbúningspælingar sem hún miðlar frá sér í viðtalinu sem við vonum að aðrir geta nýtt sér í sínum undirbúningi og má þar nefna vangaveltur er snerta næringu, svefn, matarræði styrktaræfingar o.fl. Hvort sem þú ert að stefna á maraþon á næstunni eða EKKI þá munt þú hafa gagn og gaman af þessu viðtali! :D

    # 13 Rannveig Oddsdóttir: Um OCC í Ölpunum og önnur AFREK

    Play Episode Listen Later Oct 18, 2019 71:53


    Í #13 þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp birtum við STÓRskemmtilegt viðtal við reynsluboltann Rannveigu Oddsdóttur sem hefur afrekað fjölmargt á sínum hlaupaferli, bæði á götunni og í utanvegahlaupum og er hún til að mynda nýkomin heim frá frönsku Ölpunum með 3 sætið í farteskinu frá OCC hlaupinu sem er eitt þekktasta utanvegahlaupið í dag. Við í Hlaupalíf höfum einmitt prófað að hlaupa á þessu svæði og það verða ALLIR að prófa að hlaupa þarna, alvöru landslag. Í viðtalinu förum við rækilega yfir hlaupaferilinn, meiðslasöguna aðrar skemmtilega hlaupapælingar með Rannveigu. Bráðskemmtilegt og fróðlegt viðtal sem hægt er að læra af enda tapar enginn á því að hlusta á sögur frá reynslumiklum og öflugum hlaupurum!

    occ hla allir rannveig oddsd
    #12 Mun hið ómögulega gerast? Sub2 maraþon framundan - Vignir Már Lýðsson

    Play Episode Listen Later Oct 3, 2019 62:22


    Eins og margir vita þá ætlar maraþon- og ofurhlauparinn Eliud Kipchoge að reyna hið ómögulega; hlaupa heilt maraþon á undir 2 klst í Austurríki í okt. (ca 21 km/klst á brettinu!). Hreint út sagt sturlað, ekki satt? Til þess að fara yfir þessa tilraun og heyra aðeins sögu Kipchoge sem hægt er að læra mikið af, fengum við til okkar í settið Vigni Má Lýðsson sem er allra manna fróðastur um hlaup hér á landi - GoKipchoge!

    eliud kipchoge kipchoge framundan sub2 austurr vignir
    # 11 Kári Steinn um maraþonhlaup

    Play Episode Listen Later Sep 22, 2019 81:08


    Ólympíufarinn og Íslandsmethafinn í heilu og hálfu maraþon Kári Steinn Karlsson kíkti til okkar í settið þar sem við fórum yfir hlaup hlaupanna: MARAÞON! Í síðari hluta viðtalsins fórum við svo yfir hlaupaferilinn hjá Kára sem er auðvitað afar áhugaverður og er virkilega gaman að heyra þennan ofurhlaupara segja frá sínum hlaupa afrekum sem eru magnaðir.

    steinn
    # 10 Pétur í Boss; í BESTA formi lífs síns - Pétur Ívarsson

    Play Episode Listen Later Aug 31, 2019 73:01


    Við erum búin að vera ótrúlega spennt að birta næsta þátt en hinn margreyndi maraþonhlaupari og verslunarstjóri Pétur Ívarsson settist niður með okkur í vikunni. Við fórum meðal annars yfir hlaupaferilinn, reynsluna hans frá Reykjavíkurmaraþoninu en þar náði Pétur flottri bætingu. Förum einnig yfir frægu jakkafatamaraþonin, ennþá frægari hlaupahúðflúrin og hvað hlauparar þurfa að gera til að ná undir 3 klst í maraþoni. Það verður enginn ósvikinn af þessu viðtali, hvort sem þú ert hlaupari eða ekki, enda Pétur ótrúlega jákvæður, hress og hreinskilinn viðmælandi sem við hvetjum ykkur til að hlusta á !

    #9 Hlaup og andleg áföll - Gréta Rut Bjarnadóttir

    Play Episode Listen Later Aug 16, 2019 45:21


    Í 9. þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við í settið Grétu Rut Bjarnadóttir ung-langhlaupara og tannlæknanema sem sagði okkur frá reynslu sinni sem hún og maki hennar lentu í síðastliðið haust og hvernig hún tók á því með hlaupunum. Virkilega áhugaverður og hreinskilinn viðmælandi sem hefur sögu að segja sem snertir okkur öll, enda lendum við öll í skakkaföllum í lífinu sem við tökum á með mismunandi hætti.

    #8 Í fantaformi á besta aldri - Trausti Jarl Valdimarsson

    Play Episode Listen Later Jul 28, 2019 60:40


    Trausti Jarl Járnkarl Valdimarsson læknir, langhlaupari og þríþrautarkeppandi, nýkominn heim frá Spáni þar sem hann keppti í Járnkarlinum, sem er ekki frásögu færandi nema að hann er rétt rúmlega sextugur og eflaust í besta formi lífs síns. Trausti sem byrjaði að æfa langhlaup um þrítugt er í dag margreyndur langhlaupari, hefur m.a hlaupið undir 3 klst í maraþoni, sigrað Tíbetmaraþonið 2008, keppt reglulega í járnkarlinum og hlaupið yfir 100 sinnum í Powerade keppnum. Þvílík fyrirmynd sem hann er og langaði okkur hjá Hlaupalíf Hlaðvarp að heyra hans sögu, ekki nema bara til þess að taka viðtal við aðila sem ber millinafnið ,,Jarl'' - Hversu nett?

    aldri besta hla powerade jarl trausti valdimarsson
    #7 VEL nærðir hlauparar - Elísabet Margeirsdóttir

    Play Episode Listen Later Jul 11, 2019 72:31


    Í 7. þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við næringafræðinginn og ofurlanghlauparann Elísabetu Margeirsdóttur í sófann þar sem við fórum yfir mál málanna: NÆRINGU. Umræðuefnið sem allir hafa áhuga á og allir vilja skilja (grimmt rím) en eiga kannski erfitt með að ná utan um. Við vonum að hlustendur verði a.m.k einhverju nær um næringu eftir þennan þátt!

    #6 Hleypur með landsliði og bjargar mannslífum - Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir

    Play Episode Listen Later Jun 29, 2019 63:18


    #6 SplunkuNÝR þáttur kominn í loftið, en viðmælandi þáttarins var fyrirmyndin, ofurhlauparinn og hjartalæknarinn Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir sem er nýkomin frá HM í utanvegahlaupum í Portúgal. Við ræddum um landsliðsferilinn, lækna- og fjölskyldulífið, næstu markmið hjá Þórdísi og margt margt fleira.

    port hm landsli bjargar
    #5 Í hverju á ég að keppa í sumar?

    Play Episode Listen Later Jun 14, 2019 58:08


    Veistu ekki í hvaða hlaupi þú átt að KEPPA í? Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp ,,Í hverju á ég að keppa í sumar’’ förum við yfir hlaupasumarið í götu-, utanvegahlaupum o.fl. Við förum yfir hvaða hlaup hafa verið vinsælust, hvaða hlaup eru líkleg til bætinga og margt margt margt fleira. Einnig birtum við nokkur viðtöl sem við tókum við nokkra hlaupara eftir Hvítasunnuhlaup Hauka. ENJOY!

    #4 Er ég meiddur eða er ég aumingi? Arnar Pétursson

    Play Episode Listen Later May 29, 2019 96:12


    Í fjórða þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við langhlauparann, þjálfarann og rithöfundinn Arnar Pétursson í settið og fórum yfir það umræðuefni sem allir hlauparar (og aðrir íþróttamenn) hræðast hvað mest: Meiðsli og hvernig við komum í veg fyrir þau og hvaða viðvörunarbjöllur þurfum við að vera meðvituð um til að koma í veg fyrir meiðsli. Virkilega áhugavert umræðuefni sem allir íþróttamenn geta tengt við og ekki verra að spjalla við viðmælanda sem eru stútfullur af fróðleik um hlaupatengd málefni og hefur brennandi áhuga á öllu því sem við kemur hlaupum.

    hla arnar p
    #3 Hugarheimur atvinnuhlaupara frá USA - Sage Canaday

    Play Episode Listen Later May 16, 2019 65:17


    Í splunkunýjum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp hittum við Sage Canaday bandarískan atvinnuhlaupari sem er hvað þekktastur fyrir að halda úti vinsælli hlaupasíðu á youtube sem margir Íslendingar þekkja til, (sjá link að neðan). Sage er þó einnig gríðarlega öflugur hlaupari sem hefur sigrað fjölmörg alþjóðleg utanvegahlaup og hefur keppt í maraþoni á bandaríska úrtökumóti fyrir Ólympíuleikana. Ef þú vilt vera atvinnuhlaupari nú eða hefur kannski bara frekar áhuga á að heyra hvernig líf atvinnuhlaupara er, þá getum við svo sannarlega mælt með þessum þætti! * Youtube síða Sage: https://www.youtube.com/user/Vo2maxProductions * Heimasíða Sage: https://www.sagerunning.com * www.facebook.com/hlaupalif

    #2 Bætingar á fimmtugsaldri - Þórólfur Ingi

    Play Episode Listen Later May 2, 2019 78:59


    Í fyrsta þættinum af Hlaupalíf Hlaðvarp hittum við hlaupasnillinginn Þórólf Inga Þórsson sem hefur verið að brillera á öllum hlaupavígstöðvunum hérna heima undanfarin misseri. Ótrúlega áhugaverður viðmælandi, meðal annars farið yfir markmiðasetningar, andlegar pælingar, bætingar á aldursflokkametum og heilbrigðan lífsstíl. Njótið!

    #1 Kynningarþáttur: Af litlum neista verður mikill eldur

    Play Episode Listen Later May 2, 2019 10:15


    Nú er komið að því sem allir hafa verið að bíða eftir. Glænýr Hlaðvarpsþáttur, "Hlaupalíf Hlaðvarp", hefur litið dagsins ljós! Við erum Elín Edda og Vilhjálmur Þór. Við erum bæði langhlauparar og höfum mikla ástríðu fyrir hlaupum. Þessi fyrsti þáttur er almenn kynning á okkur og við hverju þið megið búast af þáttunum okkar. Við munum gefa út þætti tvisvar mánaðarlega og tölum um allt milli himins og jarðar í tengslum við hlaup. Njóttu ferðalagsins með okkur!

    Claim Hlaupalíf Hlaðvarp

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel