Podcasts about veistu

  • 12PODCASTS
  • 112EPISODES
  • 51mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • May 25, 2023LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about veistu

Latest podcast episodes about veistu

Samfélagið
Kuldabrýr, rannsóknarsetur skapandi greina og umhverfispistill

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 25, 2023 55:00


Veistu hvað kuldabrú er? Hún er að öllum líkindum í fasteigninni þinni. Og það er ágætt að vita hvar hún er og sérstaklega hversu stór og yfirgripsmikil - því kuldabrýr geta, ef ekki er passað upp á þær, skapað skilyrði sem eyðileggja hús og veggi og valda myglu. Við ræðum við Ágúst Pálsson, B.Sc. í vélaverkfræði og lagnahönnuð hjá Verkís sem hefur rosalegan áhuga á kuldabrúm og hann ætlar að reyna að skýra þetta allt fyrir okkur - en hann var einmitt að flytja fyrirlestur um þessi mál í morgun á fundi um nýsköpun í mannvirkjaiðnaði. Við forvitnumst um nýtt rannsóknasetur skapandi greina sem hefur verið komið á fót. Þetta er samstarfsverkefni fimm háskóla og markmiðið er að ?stuðla að samráði á milli háskóla, stofnana, stjórnvalda, Hagstofu Íslands og atvinnulífs menningar og skapandi greina, efla samstarf sem styrkt getur innviði og vöxt atvinnugreinanna og bæta gagnaöflun og greiningu sem nýtist svo aftur rannsóknum og þekkingarmiðlun innan þessa ört vaxandi geira,? eins og segir í umfjöllun á vef háskólans á Bifröst. Anna Hildur Hildibrandsdóttir er stjórnarformaður þessa nýja rannsóknaseturs. Umhverfispistill dagsins í höndum Stefáns Gíslasonar.

verk stef ranns bifr veistu anna hildur hildibrandsd
Samfélagið
Kuldabrýr, rannsóknarsetur skapandi greina og umhverfispistill

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 25, 2023


Veistu hvað kuldabrú er? Hún er að öllum líkindum í fasteigninni þinni. Og það er ágætt að vita hvar hún er og sérstaklega hversu stór og yfirgripsmikil - því kuldabrýr geta, ef ekki er passað upp á þær, skapað skilyrði sem eyðileggja hús og veggi og valda myglu. Við ræðum við Ágúst Pálsson, B.Sc. í vélaverkfræði og lagnahönnuð hjá Verkís sem hefur rosalegan áhuga á kuldabrúm og hann ætlar að reyna að skýra þetta allt fyrir okkur - en hann var einmitt að flytja fyrirlestur um þessi mál í morgun á fundi um nýsköpun í mannvirkjaiðnaði. Við forvitnumst um nýtt rannsóknasetur skapandi greina sem hefur verið komið á fót. Þetta er samstarfsverkefni fimm háskóla og markmiðið er að ?stuðla að samráði á milli háskóla, stofnana, stjórnvalda, Hagstofu Íslands og atvinnulífs menningar og skapandi greina, efla samstarf sem styrkt getur innviði og vöxt atvinnugreinanna og bæta gagnaöflun og greiningu sem nýtist svo aftur rannsóknum og þekkingarmiðlun innan þessa ört vaxandi geira,? eins og segir í umfjöllun á vef háskólans á Bifröst. Anna Hildur Hildibrandsdóttir er stjórnarformaður þessa nýja rannsóknaseturs. Umhverfispistill dagsins í höndum Stefáns Gíslasonar.

verk stef ranns bifr veistu anna hildur hildibrandsd
Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
"Sorry ég er ekki í potti, má ég biðja um óskalag?"

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Aug 29, 2022 68:31


Siggi Hlö kíkti í heimsókn, hann var að klára sinn síðasta Veistu hver ég var? núna á laugardaginn. Við ræddum æskuna, ástina og eftirminnilegustu símtölin sem hann fékk í þáttinn. IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!

takk ekki veistu siggi hl
Lífið með Lindu Pé
82. Velgengnisskömm

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later May 23, 2022 40:39


Veistu hvað velgengnisskömmm er? Við höldum áfram að ræða velgengni út frá hinum ýmsu sjónarhornum, nú í þriðja og síðasta þætti velgengnisseríunnar. Mér finnst mikilvægt að við konur ræðum velgengni og skoðum opinskátt allar hliðar á velgengni. Gestur minn er Þórdís Jóna Jakobsdóttir ráðgjafi. Þórdís er opinská og ræðir þetta út frá sinni eigin reynslu og vinnu sinni í prógramminu LMLP. NÁNARI UPPLÝSINGAR: 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar!  7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Heimasíða Lindu  Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. LMLP  Hér færðu Lindu sem lífsþjálfa þinn. Vikulegir fundir, þú losar þig við aukakílóin, byggir upp sjálfsmyndina, færð aukið sjálfstraust og trú á þig sjálfa-og þú ferð að lifa draumalífin þínu. Skráðu þig í prógrammið Lífið með Lindu Pé. HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!

Matur fyrir sálina
Veistu hvað þú vilt...eða bara hvað þú vilt ekki?

Matur fyrir sálina

Play Episode Listen Later Feb 26, 2021 14:36


Við erum mörg hver sérfræðingar í að vita hvað við viljum ekki, á meðan við  hugsum svo sjaldan um hvað það er sem við virkilega viljum. Niðurstaðan er oft sú að við fáum það sem við viljum ekki - því það er í raun eina planið sem við höfum.

Hvar erum við núna?

Í þessum þætti ferðumst við um Norðausturland, frá Langanesi og alveg að Siglufirði, þar sem miðnætursólin sest ekki! Sérfræðingur þáttarins kemur frá höfuðstað Norðurlands, en það er Albert Gísli frá Akureyri, en við lærum líka heilmargt um önnur bæjarfélög á svæðinu og jafnvel um heimkynni trölla og jólasveina. Þjóðsaga þáttarins fjallar um Grettir sterka og hvernig honum tókst að sigrast á tröllunum í Goðafossi. Veistu hvers vegna Goðafoss heitir Goðafoss? Hlustaðu vel á þáttinn og þú gætir fengið forskot í spurningakeppninni í lokin!

akureyri hlusta siglufir grettir veistu
Hvar erum við núna?

Í þessum þætti ferðumst við um Norðausturland, frá Langanesi og alveg að Siglufirði, þar sem miðnætursólin sest ekki! Sérfræðingur þáttarins kemur frá höfuðstað Norðurlands, en það er Albert Gísli frá Akureyri, en við lærum líka heilmargt um önnur bæjarfélög á svæðinu og jafnvel um heimkynni trölla og jólasveina. Þjóðsaga þáttarins fjallar um Grettir sterka og hvernig honum tókst að sigrast á tröllunum í Goðafossi. Veistu hvers vegna Goðafoss heitir Goðafoss? Hlustaðu vel á þáttinn og þú gætir fengið forskot í spurningakeppninni í lokin!

akureyri hlusta siglufir grettir veistu
Veistu hvað?

Veistu hvað Veistu hvað er gamall? Þáttur dagsins er 50 þátta afmælisþáttur og jafnframt síðasti þátturinn fyrir sumarfrí þeirra Vigdísar og Guðmundar. Í þættinum er horft um öxl og líka smá talað um töluna 50, sem er reyndar frekar óáhugaverð tala. Gestir þáttarins eru aðdáendurnir Magnús Thorlacius og Sólrún Agla Bjargardóttir, þau taka þátt í krefjandi spurningakeppni um hluti sem allir fastahlustendur Veistu hvað? ættu að vita. Gleðilegt sumar! Sjáumst síðar!

gu sj magn gle vigd gestir thorlacius veistu
Veistu hvað?
Jordan Peterson

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later May 2, 2019


Veistu hvað Jordan Peterson á að hafa gert á Þingvöllum í júní 2018? Eða var þetta allt bara misskilningur? Það er ýmislegt að finna á veraldarvefnum um þennan umdeilda sálfræðing, jákvætt sem neikvætt, 2 mínútur sem 3 tímar, rétt sem rangt. Vigdís er búin að lesa helling, en alls ekki nóg og Gummi sá stuðandi Vice-myndband. Gunnlaugur Jónsson, stjórnandi Jordan Peterson klúbbsins á Facebook, kemur í þáttinn og segir frá viðhorfi sínu til hálfvita/hetju samtímans og bendir á hvar sé hægt að byrja.

Veistu hvað?
Landvarsla

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Apr 25, 2019


Veistu hvað landverðir gera til að fá ekki skyrbjúg? Eða hvað þeir gera yfirhöfuð? Vigdís fræðir Gumma um þessa dularfullu starfsmenn ríkisins, friðlýst svæði á Íslandi (sem ná samt líka yfir steina?) og þjóðgarða, auk þess sem splunkunýr liður kemur fram á heyrnarsviðið: NOSTALGÍUHORNIÐ. Katrín Pálma- og Þorgerðardóttir, fyrrum landvörður, segir frá starfinu, túristunum, lygurunum og sandinum og heldur erfiða, en sanngjarna, spurningakeppni.

katr vigd gumma veistu
Veistu hvað?
Ruslfrír lífsstíll

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Apr 18, 2019


Veistu hvað verður um ruslið okkar eftir að við hendum því? Það virðast fáir vera með ruslamál alveg á hreinu enda upplýsingar um sorphirðu og flokkun oft algjört torf. Gummi og Vigdís reyna að átta sig betur á þessu öllu saman en komast helst að því, að það er Gummi sem er vandamálið. Þau komast líka að því að það er hægt að henda minna rusli, en Judit Varga, stjórnandi Facebookhópsins: Ruslfrír lísfsstíll (Zero Waste) - Iceland, gefur hlustendum ráð um hvernig megi minnka heimilissorpið.

Veistu hvað?
Roller derby (Hjólaskautaat)

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Apr 4, 2019


Veistu hvað þarf marga dómara til að dæma einn roller derby leik? Veistu yfir höfuð hvað roller derby er? Það heitir hjólaskautaat á íslensku, ef það hjálpar eitthvað. Í þætti vikunnar fjöllum við um íþróttina sem hefur verið að tröllríða heiminum síðan Whip it kom út árið 2009. Skrautlegir hjálmar, augnmálning og ógnvekjandi skautanöfn eru notuð til þess að gera íþróttina að miklu sjónarspili. Og það sem er kannski skemmtilegast er að allir eru velkomnir. Alex Steinþórsdóttir (betur þekkt sem Lexía de Trix) kíkir í heimsókn og útskýrir hvað það er sem dregur sífellt fleira fólk í þessa skrítnu íþrótt. Vigdís býr sér til skautanafn en byrjar síðan að sjá eftir því vegna þess að hún er sinn eigin harðasti dómari. Og já, talandi um dómara. Það þarf að minnsta kosti 7 dómara til að dæma leik.

Veistu hvað?

Veistu hvaða drykkur er sá vinsælasti í heiminum? Það er kranavatn. En veist hvaða drykkur er næst vinsælastur í heiminum? Það er te. En kaffi er líka mjög vinsæll drykkur! Vissirðu að Finnar drekka að meðaltali fjóra bolla á dag? Og pabbi Vigdísar drekkur að meðaltali 10 bolla á dag. Og ef þú drekkur 100 bolla á dag, þá deyrðu sennilega. Allt um kaffi, köttinn Creme Puff, kúkabaunir og uppáhellingaraðferðir í þætti dagsins. Tumi Ferrer kíkir í heimsókn og talar heimspekilega um þennan brúna drykk sem við þekkjum öll svo vel en kunnum flest ekkert að hella uppá. Stef: Bjarmi Hreinsson

allt vigd kaffi finnar veistu vissir creme puff
Veistu hvað?

Veistu eitthvað um Berghain, frægasta teknóklúbb heims? Fleiri hafa allavega heyrt sögur af staðnum, en hafa komist inn, enda langflestum vísað frá við innganginn. Vigdís fór í asnalega (en gleraugnalausa) vettvangsferð í þetta gamla raforkuver og fræðir Gumma og hina ýmsu kima staðarins, þó ekki nóg til að svala allri forvitni hans. Vigdís Ósk Howser Harðardóttir, þekkt undir listamannsnafninu Fever Dream, er gestur þáttarins, enda sá Íslendingur sem hefur líklegast farið hvað oftast inn á þennan dularfulla stað. Umsjón: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir Stef: Bjarmi Hreinsson í útsetningu Hjálmars Óla Hjálmarssonar Lag: Achso með Fever Dream og Alice Go Byrjun: Næturklúbburinn og þráin eftir að vera dæmur, eftir Halldór Armand http://www.ruv.is/frett/naeturklubburinn-og-thrain-eftir-ad-vera-daemdur

Veistu hvað?
Töfrabrögð

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Mar 14, 2019


Veistu hvað David Blaine getur haldið niðri í sér andanum lengi? Vissirðu að David Copperfield lét einu sinni Frelsisstyttuna hverfa? Vissirðu að Stephen Fry og Karl bretaprins eru meðlimir í samtökum töframanna? Allar þessar staðreyndir og miklu fleiri staðreyndir um merkilega karlmenn má finna í þætti vikunnar. Gummi og Vigdís tala um siðferðislega ábyrgð töframanna og Lalli töframaður segir frá því þegar hann glataði töfrum barnæskunnar og seldi sál sína töfradjöflinum, einungis 6 ára gamall. Eða hann orðaði það ekki beint svoleiðis en þú veist. Umsjón: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir Gestur: Lárus Blöndal Guðjónsson Stef: Bjarmi Hreinsson Lag: Pilot - Magic (í mörgum útgáfum)

Veistu hvað?

Veistu hvað er gott við að fara í sjósund? Allavega ekki nógu mikið til að sannfæra Gumma um að taka þátt í æðinu sem hefur heltekið ofurkerlingar og huga landsins. Sjósund heillar ýmsa en hræðir fleiri og er stundað víðast hvar á landinu, líka þar sem hitastig sjávar er -1,8 C. Já, MÍNUS. Íris Stefanía Skúladóttir, sviðslistakona og garpur mætir viðtal og segir sögur úr sjónum. VIÐVÖRUN: Aðgát skal höfð í nærveru sjávar.

sj sund gumma veistu
Veistu hvað?

Veistu hvaða starfsstétt er sú eina á Íslandi sem á sinn eigin ís? Já, trúðar eru skemmtileg fyrirbæri en sumum finnst þeir alveg hrikalega hrollvekjandi. Það er meira að segja til hugtak yfir óttann við trúða: Coulrophobia. Í þessari viku tala Vigdís og Gummi um rjómatertur, ICP, ródeó, Uncanny Valley og allt sem tengist þessari dularfullu starfsstétt. Leikkonan Agnes Wild er viðmælandi þáttarins, en hún hefur um nokkurt skeið starfað sem spítalatrúður.

Veistu hvað?
One Direction

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Feb 14, 2019


Veistu hvað One Direction (ísl. Ein átt) hefur unnið til margra verðlauna? Er einhver að pæla í því þegar hægt er að stara í móbrún augu Liams (á mynd)? Ein vinsælasta* hljómsveit síðustu ára er umræðuefni þáttarins að þessu sinni en þá helst útlit meðlimanna. Kristín Ólafsdóttir, einn mesti og elsti aðdáandi One Direction á Íslandi, segir frá aðdáun sinni og hræðilegum fréttum daginn eftir afmælið hennar árið 2015. *séu vinsældir metnar í fjölda aðdáenda sem reiðubúnir eru að kaupa plötur, miða á tónleika og ýmsan varning t.a.m. sængurföt með mynd af sveitinni.

Veistu hvað?

Veistu hvað “lauma í fjarkann“ þýðir? Og vissirðu að það er hægt að taka þátt í blaki ef maður er lágvaxinn, en þá spilar maður bara “líberó“. Vigdís og Gummi fræðast um þessa rótgrónu íþrótt, fræðast um svakalega vinsæl Öldungamót og syngja með blaktengdum cover-lögum. Aðalbjörg Árnadóttir segir frá sinni aðkomu að íþróttinni sem spilari, þjálfari og stofnandi blakliðsins “Áhorfendur“. Hallelúja!

Veistu hvað?

Veistu hvað sum börn borða í sumarbúðum CISV á meðan önnur fá pönnukökur? Vigdís fræðir Gumma um alþjóðasamtökin CISV (ísl. Alþjóðlegar sumarbúðir barna), en honum virðast búðirnar samblanda stjórnleysis og tilraunamennsku á börnum. Hann sannfærist þó um ágæti samtakanna eftir frekari fræðslu, sérstaklega frá Margréti Erlu Maack, CISV-kempu Íslands og gesti þáttarins þessa vikuna.

hann margr vigd gumma cisv veistu
Veistu hvað?
Aukaleikarar

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Jan 24, 2019


Veistu hvað aukaleikarar í Bretlandi mega segja mörg orð áður en þeir eru ekki lengur skilgreindir sem aukaleikarar? Vigdís fékk allavegana ekki að segja nein orð þegar hún lék pizzugerðarmanneskju í sjónvarpsþætti. Gummi fræðir Vigdísi um allt sem tengist aukaleikurum, afsakið, bakgrunnslistamönnum. Tveir af fremstu bakgrunnslistamönnum þjóðarinnar, þær Ester Sveinbjarnardóttir og Birgitta Jeanne Sigursteinsdóttir, segja okkur allt sem þú þorðir ekki að spyrja um kvikmyndaiðnaðinn.

Veistu hvað?
Rick&Morty

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Jan 10, 2019


Veistu hvað Wubba lubba dub dub þýðir á fuglamáli? Vissirðu að tilgang lífsins má finna í sósu sem var gefin út af McDonald's til að kynna Disney myndina Mulan? Í þætti vikunnar fræðast Vigdís og Gummi um bestu teiknimyndaþætti sem framleiddir hafa verið, þættina um Rick og Morty. Rakel Ósk Þorgeirsdóttir kíkir í heimsókn og spyr fólkið sem hélt að það væri nördar spurninga sem láta þau efast um að þau hafi horft nógu oft. Gerumst schwifty og horfum á Rick & Morty til eilífðarnóns, ævintýri Rick og Morty að eilífu í hundrað ár, allan daginn að eilífu Rick og Morty punktur is.

Veistu hvað?

Veistu hvað Elaine úr Seinfeld, Carlton úr Fresh Prince og Instagram stjarnan Backpack Kid eiga sameiginlegt? Þau eru að minnsta kosti öll betri dansarar en Vigdís og Gummi sem reyna að tækla stóru spurningarnar um tölvuleikinn Fortnite í þætti vikunnar. Stefán Atli og Ingi Þór Bauer svipta hulunni af myrkustu leyndarmálum hinnar nýtilkomnu listgreinar að streyma tölvuleikjum. En að þeirra mati skiptir meira máli að fara reglulega úr buxunum en að vera góður í sjálfum leiknum.

Veistu hvað?
Áramótaheit

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Dec 27, 2018


Veistu hversu hárri prósentu tekst almennt að efna áramótaheit sín? Hún er allavega það lág, að vert er að fara yfir hvað sé mikilvægt að hafa í huga þegar maður setur sér markmið. Gummi og Vigdís hafa ekki strengt nein heit fyrir næsta ár en ræða um hugmyndina og hvers vegna áramót kalli svo sterkt á nýtt upphaf. Vigdís hringir í ömmu og Ragnheiður Stefánsdóttir kemur í heimsókn, en hún strengdi 50 áramótaheit fyrir nokkrum árum. 50!

Veistu hvað?
Grýla og Leppalúði

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Dec 20, 2018


Veistu hvað Grýla og Leppalúði eiga mörg börn úr fyrri samböndum? Gummi og Vigdís kasta fram ríkjandi hugmyndum og eigin kenningum um þessi umdeildu skötuhjú í síðasta þættinum fyrir jól og komast að því að enn er mörgum spurningum ósvarað. Er Grýla sú eina sem borðar börn? Er hún dáin eða er það samsæriskenning? Er Leppalúði bara skoðanalaus letihaugur? Voru nöfn jólasveinanna valin við fæðingu eða eru þau listamannanöfn? Það er ljóst að enn er margt sem almenningur ekki veit og því liggur beinast við að heyra hvað þau hafa sjálf að segja.

er gummi vigd veistu leppal
Veistu hvað?
Berlínarmúrinn

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Dec 13, 2018


Veistu hvað olli því að reistur var rúmlega 140 km langur múr í gegnum Berlín? Gummi og Vigdís eru bæði stödd í höfuðborg Þýskalands og hvað er meira viðeigandi en að fara og skoða minningarsvæði um múrinn? Margrét Rós Harðardóttir, myndlistarkona, sögunörd og ein af Berlínum, sem fræða Íslendinga sem eiga leið um borgina, segir frá upphafi og enda múrsins þar sem mikið er um dauða og hörmungar en pínulítið um samstöðu og partý.

Veistu hvað?
Jóladagatöl

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Dec 6, 2018


Veistu um hvað vinsælasta jóladagatalið í Noregi er? Eða hvaða landi datt í hug að telja áreiðanlega niður til jólanna? Eða hvert óþekku börnin í til dæmis Hollandi og Belgíu eru tekin á Nikulásardegi? Gummi og Vigdís fara um víðan völl í umræðu sinni um jóladagatöl og siði og Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri hjá RÚV svarar spurningum um Jóladagatal Sjónvarpsins, lof þess og last.

Veistu hvað?

Veistu hvað mannkynið mun þurfa að takast á við árið 2118? Verður mannkynið yfir höfuð til árið 2118? Það vita eflaust fáir, en það skaðar ekki að Vigdís og Gummi pæli aðeins í því. Sævar stjörnumaður kíkir í heimsókn og reynir að dempa aðeins svartsýnina sem er augljósasta leiðin til að ímynda okkur heim sem fer stöðugt versnandi. Við reynum að horfa framhjá loftslagsbreytingum og dystópískum framtíðarspám en einblínum þeim mun meira á brauðristarvekjaraklukkur og rafdrifnar tannþráðssnældur.

Veistu hvað?
Hláturjóga

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Nov 22, 2018


Veistu hvað einkennir alvöru hlátur? Það vita Gummi og Vigdís ekki heldur, enda eiga þau í mestu erfiðleikum með að greina gervihlátur hvors annars. Það ætti þó ekki að koma að sök, því hláturinn lengir lífið hvort sem hann er raunverulegur eða ekki. Umfjöllunarefni þáttarins er hláturjóga og í tilefni af því kíkir Ásta Valdimarsdóttir í heimsókn, fræðir okkur um hláturjóga og kennir okkur nokkrar æfingar. Umsjónarmenn: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir Stef: Bjarmi Hreinsson

gu gummi umsj vigd hafli umfj valdimarsd felixson veistu
Veistu hvað?
Eve Online

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Nov 15, 2018


Veistu hvað Hættuspilið og Latibær eiga sameiginlegt? Svar: Bæði áttu þátt í uppbyggingu íslenska fyrirtækisins CCP sem framleiðir fjölnotendanetspunaleikinn Eve Online. Gummi er einn í stúdíói 9 og Vigdís er með höfuðverk í herberginu sínu í Berlín eftir lestur um þennan flókna leik, nei, heim, þar sem lítið er um reglur og lögmálið um framboð og eftirspurn ræður ríkjum. Bergur Finnbogason, starfsmaður CCP, svarar allskyns spurningum um leikinn og spilara hans, sem virðast eiga það til að taka málin í sínar hendur.

Veistu hvað?

Veistu hvað spunahugtakið „game“ þýðir? Það vita bæði Gummi og Vigdís enda var það spuni sem leiddi þau saman og er meðal annars ástæða þess að þetta hlaðvarp er til. Að hugsa sér! Leikhússpuni á sér langa sögu en spunasenan á Íslandi hefur vaxið mjög hratt á stuttum tíma. Dóra Jóhannsdóttir, leikkona og stofnandi Improv Ísland er gestur þáttarins. Hún kynnti landann fyrir allskyns leikjum og reglum frá risanum í vestri, NÝTT: uppáhalds landi allra, NÝTT: landinum sem við elskum að hata, Bandaríkjunum.

Veistu hvað?
Hestamennska

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Nov 1, 2018


Veistu hvað hestur kostar? Og vissirðu að það er hægt að taka BS gráðu í reiðmennsku? Vigdís veit meira um hesta en Gummi, enda hefur honum alltaf fundist óþægilegt að fara á hestbak. Hulda frænka Vigdísar kíkir í heimsókn og fræðir okkur um lífið í hestamennskunni. Look at my horse, my horse is amazing!

Veistu hvað?

Veistu hvað lélegasta kvikmynd sögunnar kostaði í framleiðslu? Svarið er of mikið. Og peningurinn kom allur úr vasa leikstjórans sem skrifaði líka myndina og ákvað að leika aðalhlutverkið. Umfjöllunarefni þáttarins þessa vikuna er the Room, en hún hefur verið kölluð Citizen Kane lélegra kvikmynda. Gunnar Tómas Kristófersson kvikmyndafræðingur kíkir í heimsókn og fræðir okkur um myrka fortíð hins dularfulla Tommy Wiseau og segir okkur frá hefðunum sem fylgja því að horfa á myndina í bíó.

Veistu hvað?
Stjörnuspeki

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Oct 18, 2018


Veistu hvað þú ert í mörgum stjörnumerkjum? Já, mörgum, því í stjörnuspeki er horft á stöðu ólíkra pláneta þegar einstaklingur fæðist. Gísli Gunnarsson Bachmann áhugamaður um stjörnuspeki og lærlingur Gunnlaugs Guðmundssonar störnuspekings var gestur þáttarins. Hann segir frá áhuga sínum á spekinni og dregur upp mynd af persónuleika Gumma og Vigdísar með því að lesa í stjörnukortið þeirra.

hann vigd gumma veistu
Veistu hvað?

Veistu hvað lagið All Star með Smashmouth passar vel við Glaðasti hundur í heimi? Umræðuefni þáttarins er fyrirbærið „meme“ (ísl. mem, jarm, farandbrandari, mím) í öllu sínu veldi! Nei kannski í hálfu sínu veldi. Eða jafnvel bara einum nítugasta. Þetta er flókið dæmi. Á meðan Vigdís segir Gumma frá uppruna orðsins, upphafi meme-sins og reynir að rekja söguna hatar Gummi internetið. Karl Ólafur Hallbjörnsson meme-nörður kemur með heimspekilegar vangaveltur um fyrirbærið, greinir frá myrkum hliðum þess og lætur Gumma hata internetið enn meira. EN. Svo er sungið!

Veistu hvað?

Veistu hvað eru mörg CrossFit box í heiminum? Það eru allavega fleiri CrossFit box á Íslandi en armbeygjurnar sem Vigdís getur tekið í röð. Gummi og Vigdís fræðast um vörumerkið sem hefur tröllriðið líkamsræktarheiminum og laðað að sér brjálæðinga - nei, afsakið - þátttakendur úr öllum áttum. Evert Víglundsson, einn upphafsmaður CrossFit á Íslandi, talar um hreyfingu af svo mikilli sannfæringu að Gummi og Vigdís enda með að kíkja á æfingu.

Veistu hvað?

Veistu hvað fjallkóngur gerir? Gummi og Vigdís vissu það ekki þó svo að réttir og smölun séu enn í dag stór hluti af hausti fjölmargra Íslendinga. Líneik Jakobsdóttir, gestur þáttarins, segir frá eirðarleysi í smölun, marblettum og túristum í réttum. Rétt er að vara við miklu orðagríni. Haha RÉTT! Viltu dilk?

Veistu hvað?

Veistu hvað BTS, HOT og EXO eiga sameiginlegt? Veistu hvers vegna svona mörg nöfn á K-pop hljómsveitum eru skammstafanir? Vigdís er ekki sannfærð um gæði tónlistarinnar en Gummi reynir að sannfæra hana um gæði þessarar geysivinsælu tónlistarstefnu. Aldís Amah Hamilton kíkir í heimsókn og ræðir hinar ljósu og myrku hliðar kóreska tónlistarbransans og við heyrum mjög margar útgáfur af Gangnam Style. Eiginlega allt of margar útgáfur af Gangnam Style.

Veistu hvað?
Að fara í sund

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Sep 13, 2018


Veistu hvað Ísland á marga ólympíufara í sundi? Ekki Vigdís og Gummi enda er það ekki til umræðu í þættinum. Umræðuefnið er ekki íþróttagreinin, ekki sagan, ekki hringrásarkerfi sundlauga. Bara að fara í sund. Auk nokkurrra staðreynda að vísu. Gestur þáttarins er að þessu sinni hvorki áhugamanneskja né sérfræðingur um efnið. Hún heitir Rannveig Lind Bjargardóttir og hún fílar einfaldlega ekki að fara í sund .

Veistu hvað?

Veistu hvað þarf til að vera fyndinn á Twitter? Það vita Gummi og Vigdís ekki en þeim tekst samt að tala mjög mikið um það. Berglind Festival twitterstjarna segir okkur sín myrkustu tístleyndarmál og Steiney Skúla og Villi Neto ofurnotendur koma líka við sögu. #twitter #podcast #podcastlife #funny

Veistu hvað?
Skylmingar

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Aug 30, 2018


Veistu hvað má ekki gera í skylmingum? Gummi kemst að því en tileinkar sér ekki þann drengskap sem tíðkast í þessari merku íþróttagrein sem keppt var í á fyrstu nútíma Ólympíuleikunum. Gestur þáttarins er Þorbjörg Ágústsdóttir, margfaldur Íslands- og Norðurlandameistari í höggsverði og fyrrum þjálfari Vigdísar. En garde, prêt, allez!

Veistu hvað?

Veistu hvað það er mikið af mat í heiminum sem fer til spillis? Spoiler alert: Það er einn þriðji af öllum þeim mat sem við framleiðum. Í þættinum í dag fjöllum við um hina pólitísku gjörð að rusla (e. dumpster diving). Hlynur Steinsson ruslmeistari og freeganisti segir okkur frá heitasta gámnum í bænum og gefur hlustendum nokkur ráð um hvernig megi lifa lífi sínu án þess að kaupa hluti. Spoiler alert: Þar koma óskilamunir mikið við sögu.

spoilers veistu
Veistu hvað?

Veistu hvað Meatball, Hedda Lettuce og David LaPoop eiga sameiginlegt? Þær eru allar dragdrottningar! Sú síðastnefnda er reyndar ekki til í alvörunni en við hvetjum verðandi dragdrottningar að nýta þetta stórkostlega nafn. Í þættinum í dag fjöllum við um drag. Sigurður Heimir Guðjónsson, betur þekktur sem Gógó Starr kíkir í heimsókn og við lærum um Siggu flipp, sem er hlédræg skrifstofudama sem elskar að fara á froðudiskótek.

Veistu hvað?

Veistu hvað þarf til að verða bestur í Survivor? Vigdís og Gummi reyna að skilja hvað það er sem gerir þessa þætti svo vinsæla að seríurnar verða bráðum orðnar 37 talsins. Pétur Marteinn Urbancic Tómasson kíkir í heimsókn og ræðir taktík, pólitík og sambandsslit sem hafa orðið í þessum leik sem virðist sakleysislegur í fyrstu, en háalvarlegur þegar betur er að gáð. Stef: Bjarmi Hreinsson

Veistu hvað?
Súrdeigsbrauð

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Jul 26, 2018


Veistu hvað er erfitt að skera súrdeigsbrauð? Gummi veit hvað það reynir á og heldur að það sama gildi um að tala um brauð í klukkutíma. En viti menn! Brauð á sér fleiri hliðar en botninn. Það er heimspekilegt, sögulegt, trúarlegt, samfélagslegt, nú og auðvitað skemmtilegt! Gestur þáttarins er Ragnheiður Maísól, súrdeigsnörd, bloggari og listakona. Hún talar um hveiti, hita, tímann og vatnið og opnar sig um samband sitt við mæður sínar. Umsjónarmenn: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir Stef: Bjarmi Hreinsson

Veistu hvað?

Veistu hvað kúlomb er? Ekki Hildur Lilliendahl heldur, en hún er samt með það skrifað í sérstakt skjal í símanum sínum. Skjal sem er fullt af skrítnum orðum sem hún reynir að læra utanbókar, því hana grunar að einn daginn muni gagnast henni að geta lagt KÚLOMB fyrir fullt fullt fullt af stigum í mikilvægum skraflleik. Í þætti dagsins fræðast Guðmundur og Vigdís um skrafl-samfélagið á Íslandi, tildrög þess að nýr orðapoki er nú notaður í íslensku skrafli og ástæðu þess að Lenku-verðlaunin eru afar eftirsótt hjá ákveðnum skröflurum. Veistu hvað? er vikulegur þáttur um alls konar sem þú veist ekkert um, veist mjög mikið um, ættir að vita meira um eða er bara einfaldlega skemmtilegra að vita. Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir reyna að leiða þig (og hvort annað) í sannleikann, sem tekst yfirleitt betur með hjálp góðs gests. Þátturinn er á dagskrá RÚV streymisins, öll fimmtudagskvöld klukkan 21. Stef: Bjarmi Hreinsson

rv gu vigd hafli felixson veistu
Veistu hvað?
Hundarækt

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Jul 12, 2018


Veistu hvað eru til mörg hundakyn í heiminum? Það veit Vigdís en það gerir hana ekki hæfari hundapassara. Guðmundur fær skýrari mynd af hundAsýningum og hleypir fram nýrri hlið sinni sem sálgreinir. Gestur þáttarins er Herdís Hallmarsdóttir, formaður Hundaræktarfélags Íslands, hundaræktandi og -eigandi. Hún segir frá starfi félagsins, ræktun á Íslandi og kostum þess að eiga lítinn eða stóran ferfætling. Þáttur þessi er tileinkaður Birtu. Umsjónarmenn og klipping: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir Stef: Bjarmi Hreinsson

gu herd hundar gestur umsj vigd hafli felixson veistu
Veistu hvað?

Veistu nú hvað vísa er? því Vigg'og Gummi svara hlaðvarpsþáttinn þennan hér skalt hlust'á - ekki fara! Vigdís og Guðmundur reyna að átta sig á algengustu bragarháttum á Íslandi eins og ferskeytlunni góðu sem er notuð í elstu rímum Íslands. Greindarvísitala Guðmundar tekur stökk við nýja og hávísindalega aðferð og Vigdís fer á lúða-egotripp. Svona geta kvæðin kallað fram ólíka þætti í manni. Hagyrðingurinn Unnur Halldórsdóttir kíkti í heimsókn og henti frá sér sögum og fyrripörtum án vand-kvæða. Umsjónarmenn: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir Stef: Bjarmi Hreinsson Sérstakar þakkir fær Ragnar Ingi Aðalsteinsson.

gu gummi umsj vigd svona hafli vigg felixson veistu
Veistu hvað?
LiFe Stream

Veistu hvað?

Play Episode Listen Later Jun 28, 2018


Veistu hvað er pirrandi að gera sér ferð að kaffikönnu sem er svo tóm!? Gummi og Vigdís velta fyrir sér beinni útsendingu og spennunni, en jafnframt áhættunni, sem fylgir því að sýna líf sitt í beinni. Aron Már Ólafsson, oft þekktur sem Aronmola, deilir reynslu sinni af ólíkum miðlum og ráðum til þáttastjórnenda um hvað þurfi til að halda áhorfendum áhugasömum. Umsjónarmenn: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir Stef: Bjarmi Hreinsson

gu gummi lifestream umsj vigd hafli felixson veistu aron m
Veistu hvað?

Veistu hvað sterkasti chili pipar í heiminum heitir? Hefurðu heyrt um Chili Klaus? Það veit Vigdís ekki eða neitt annað um chili-bylgjuna sem hefur tröllriðið netheimum síðustu misseri. Gummi er hinsvegar búinn að rannsaka kapsaísín og Scoville skalann og með hjálp Björns Teitssonar chili-sérfræðings reyna þau að komast til botns í því hvers vegna fólk leggur á sig þá þolraun að borða ómannlega sterka pipra. Tenglar: Facebook-hópurinn Ég ann chili: https://www.facebook.com/groups/268766466581646/ Vúlkan vefverslun: http://vulkan.karfa.is/ Umsjónarmenn: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir Stef: Bjarmi Hreinsson

bj chili gu gummi scoville umsj hefur vigd hafli chili klaus felixson veistu