POPULARITY
Við fengum í dag mæðgurnar Kristínu Valdemarsdóttur og Karólínu Ágústsdóttur í heimsókn til okkar. Þær deildu með okkur sögunni af því þegar Karólína, 15 ára, fann líffræðilega alsystur sína sem er 18 ára og býr í Bandaríkjunum, eftir að hafa sent DNA próf í alþjóðlegan gagnabanka. Þær voru báðar ættleiddar frá Kína og vissu ekkert hvor af annarri, áður en þær í sitt hvoru lagi prófuðu að nýta sér þessa þjónustu í von og óvon án þess að vita við hverju mætti búast. Þær Karólína og Kristín sögðu okkur þessa fallegu og áhrifaríku sögu í þættinum. Við litum svo við í Ævintýragarði alþýðulistamannsins Hreins Halldórssonar við Oddeyrargötuna á Akureyri en þar má finna ýmsar ævintýraverur sem Hreinn hefur skapað, mest úr timbri en líka gömlum verkfærum, krönum, skápahandföngum og tannburstum, til að nefna nokkur dæmi. Við hittum Hrein og ræddum við hann um hugsunina á bak við Ævintýragarðinn. Í dag er alþjóðadagur flóttafólks og þau Árni Kristjánsson, ungliða- og aðgerðastjóri Íslandsdeildar Amnesty International, og Gígja Svavarsdóttir, framkvæmdarstjóri tungumálaskólans Dósaverksmiðjunnar komu í þáttinn og sögðu okkur frá Söguboði, eða Story Sharing Café, sem fram fer í dag kl.17 í Húsi Máls og menningar á Laugaveginum. Tilgangur viðburðarins er að gefa öllum tækifæri, óháð þjóðerni, trú, kyni eða stöðu, til að setjast saman við borð og deila hversdagslegum sögum og heyra sögur annarra. Viðlíka viðburðir hafa verið haldnir víða um heim til að sporna við fordómum og einblína á hið sammannlega í fari okkar. Þau Árni og Gígja sögðu okkur frekar frá Söguboðinu í þætti dagsins. Tónlist í þættinum: Undir stórasteini / Út í vorið (Jón Múli Árnason og Jónas Árnason) Inni í eyjum / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlason) Styttur bæjarins / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) Stories To Tell / Krummi (Oddur Hrafn Björgvinsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Frá og með næstu mánaðarmótum verður veitinga og tónlistarstaðurinn Skuggabaldur lokaður á mánudögum, sem og hugsanlega fleiri daga vikunnar. Staðurinn hefur verið heimavöllur lifandi tónlistar, og tónleikaröð Skuggabaldurs fékk fyrir það íslensku tónlistarverðlaunin nýverið í flokki tónlistarviðburða ársins. Þessi mánudagslokun þýðir þó að Mánudjass, sem hefur verið fastur liður í Reykjavík undanfarið, heyri sögunni til eða í bili að minnsta kosti. Og í kvöld hann þess vegna kvaddur með viðhöfn. Víðsjá brá sér niður á Austurvöll fyrr í dag og leit við á æfingu fyrir tónleikana. 17 ára menntaskólastrákur er staddur á Laugaveginum ásamt vini sínum þegar síminn hringir. Sæta stelpan sem vinnur á Prinsinum er í símanum. ?Ég er ólétt. Þú ert að verða pabbi.? Hvernig getur maður orðið pabbi sautján ára, og mamman bara sextán? Er framtíðin í rúst? Þessar og fleiri spurningar koma upp í nýju íslensku leikverki sem frumsýnt verður í Frystiklefanum á Rifi næstkomandi miðvikudag, 27.apríl. Höfundar verksins eru þau María Reyndal og Kári Viðarsson, en verkið byggir á sönnum atburðum úr lífi Kára. Kári verður gestur okkar í dag. ?Að uppgötva að ég læsi ekki konur var í alla staði óskiljanlegt. Það var eins og að uppgötva að ég læsi ekki bækur sem væru með oddatölufjölda af blaðsíðum; fáránlegt skilyrði sem ég hafði enga hugmynd um og gat ekki gefið neina rökrétta ástæðu fyrir.? Þegar Björn Halldórsson fékk í fyrsta sinn tækifæri til að kenna ritlist í erlendum háskóla gerði hann óþægilega uppgötvun sem neyddi hann til að horfast í augu við sína eigin ómeðvituðu fordóma. Meira um það í pistli dagsins. En við hefjum þáttinn í dag á umfjöllun um Stöðufund í Gerðarsafni. Ólöf Gerður Sigfúsdóttir sá þessa samsýningu tíu myndlistarmanna og rithöfunda, sem leggja fram hugleiðingar sínar um fortíð, samtíð og framtíð. Sýningin vakti Ólöfu til umhugsunar um fyrirbærið ?stöðutékk?, sem virðist vera að færast í aukana í dagskrá listasafna hér á landi á undanförnum misserum. Umsjón: Halla Harðardóttir og Jóhannes Ólafsson

Anna Kristín Magnúsdóttir hjá Kjólum & Konfekt sem kom í hlaðvarpið í nóvember 2016 kom aftur í spjall í október síðastliðnum. Ýmislegt hefur breyst á þessum tíma, m.a annars hefur Anna opnað aðra verslun Rokk & Rómantík sem er á Laugaveginum líkt og Kjólar & Konfekt. Anna hefur auk þess opnað vefverslun og auðvitað gengið í gegnum ýmislegt í sínum rekstri að undanförnum líkt og aðrir.
Við erum áfram með við hugann við Moskvu þar sem í upphafi mánaðarins var opnuð sýning á verkum Ragnars Kjartanssonar og fleiri íslenskra og erlendra listamanna í glænýrri menningarmiðstöð sem heitir GES-2 og er gamal orkuver frá keisaratímanum fyrir rússnesku byltinguna. Við segjum nánar frá verkefninu, velgjörðarmanninum á bak við það og arkitektúrnum, ræðum við Ásmund Hrafn Sturluson arkitekt hjá arkitekta stofunni Kurt og pí en hann gekk um þessa miklu sali við opnun hússins. Laugarvegur kallast bók sem nýverið kom út. Höfundarnir eru þau Guðni Vilberg arkitekt og Anna Dröfn Ágústsdóttir sagnfræðingur, en það er Angústúra sem gefur út. Þetta er saga um arkitektúr, skipulagsmál og verslun, en stór hluti bókarinnar snýr að fólkinu sem flutti til bæjarins um aldamótin 1900, og húsunum sem það byggði. Eitt þessara húsa er Bankastræti nr3, en Bankastræti er auðvitað órjúfanlegt frá Laugaveginum, og göturnar tvær eru teknar fyrir sem ein heild í bókinni. Bankastræti 3, er eina steinhoggna íbúðarhúsið við götuna, þetta er auðvitað Stelluhúsið, en þar hefur sama fjölskylda stundað rekstur og búið nánast allar götur síðan. Við lítum inn í Stellu hér á eftir og heyrum í Eddu Hauksdóttur, sem aldeilis man tímana tvenna þegar kemur að lífinu við Laugaveg.

Skólavörðustígurinn er ein vinsælasta gatan í miðborginni, þar er alltaf fullt af fólki. Gatan er ein af þeim sem breyttist í göngugötu þegar ákveðið var að loka Laugaveginum fyrir umferð. Skólavörðustígurinn er með eldri götum bæjarins, en byggð við götuna hófst uppúr miðri 19 öldinni og fram yfir aldamótin 1900. Verslanir hafa verið margar og um tíma var gatan eins konar hönnunargata, og er raunar enn í dag að hluta. Við ræðum við Kristbjörgu Guðmundsdóttur iðnhönnuð og Vilborgu Guðjónsdóttur arkitekt frá Mstúdíó, og hér í stúdíói sitja Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi og Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt en hún er verkefnastýra breytinganna. En byrjum með Lilju Kristínu Ólafsdóttur úr hönnunarhópi Skólavörðustígs, en auk hennar eru í hópnum Sigurður Árni Sigurðsson myndlistarmaður og Karl Kvaran arkitetkt.

Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp (#37) fengum við enga aðra en Laugavegs-sigurvegarann Andreu Kolbeindóttur í settið og fórum yfir mál málanna: hvernig hleypur maður Laugaveginn á 4:55 og brýtur þar með múr múranna; 5 klst-múrinn! Þrátt fyrir ungan aldur á Andrea nú þegar magnaðan hlaupaferil í ýmsum vegalengdum allt frá brautarhlaupum að últra hlaupum, sem gerir hana að þeirri einstöku hlaupakonu sem hún er. Við fórum yfir allt þetta og meira til, m.a hvernig framtíðin lítur út hjá Andreu, hver draumamarkmiðin eru, hvernig gekk að æfa fyrir Laugaveginn og margt fleira. Það er margt hægt að læra af þessari metnaðarfullu hlaupakonu! Njótið! Þátturinn er í boði Sportval og Serrano.
Umsjón Felix Bergsson og Drífa Viðarsdóttir Laugavegshlaupið fer fram nú um helgina en hlaupið er orðið landsþekkt enda er þetta ótrúlegt 55 km utanvegahlaup á Laugaveginum sem tengir saman náttúruperlurnar Landmannalaugar og Þórsmörk á sunnanverðu hálendi Íslands. Göngugarpar eru venjulega 2-4 daga á leið sinni um Laugaveginn en hröðustu hlaupararnir fara leiðina á 4-5 klukkustundum og það er hreint ótrúlegt að fylgjast með þeim bestu í þessu hlaupi. Silja Úlfarsdóttir frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur var í símanum og sagði okkur af hlaupinu Stöðugur straumur einkaflugvéla hefur verið gegnum Reykjavíkurflugvöll upp á síðkastið og ekkert lát er á umferðinni og segja má að sprenging hafi orðið í komum einkaflugvéla á Reykjavíkurflugvöll frá mánaðamótum, en reiknað er með meiri umferð nú í júlímánuði en í júlí 2019. Svo virðist sem áhuginn hafi aukist sérstaklega eftir að hætt var að skima bólusetta ferðamenn fyrsta júlí. Við heyrðum í Stefáni Smára Kristinssyni rekstrarstjóri ACE FBO, sem þjónustar einkaflugvélar á Reykjavíkurflugvelli. Frá Kanada berast hræðilegar fréttir en stöðugt eru að finnast ómerktar fjöldagrafir barna úr hópi frumbyggja Kanada. Þessi börn voru vistuð á heimavistarskólum á vegum kanadískra yfirvalda og kaþólsku kirkjunnar. Alls hafa yfir þúsund ómerktar grafir fundist, flestar í Bresku Kólumbíu í vesturhluta Kanada og nú hafa menn farið að kalla þessar hörmungar þjóðarmorð. En um hvað snýst þetta mál? Gísli Pálsson mannfræðingur settist með okkur í morgunútvarpinu. Hringvegur og raflína eru nú í hættu við Jökulsárlón vegna strandrofs, en við hringveginn austan við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi hefur hafið farið óblíðum höndum um strandlengjuna. Vegna rofsins við ströndina eru bæði raflínur Landsnets og hringvegurinn í hættu og aðeins eru nokkrir metrar frá raflínunni að kantinum, en strandlengjan hefur færst um tvo til fjóra metra á ári frá 2003. Guðmundur Valur Guðmundsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar mætti til okkar og sagði okkur nánar frá þessu og hann ræddi líka ástand vega og vegaframkvæmdir víðsvegar um landið.

Hægt er að rekja 36 smit beint til líkamsræktarstöðva, sjö sinnum fleiri en til sundlauga. Eigendur líkamsræktarstöðva gagnrýna nýjar sóttvarnaráðstafanir og telja að stjórnvöld hafi gerst sek um mismunun. Þýskalandskanslari vill herða sóttvarnareglur þar sem baráttan gegn COVID-19 farsóttinni skilar ekki tilætluðum árangri. Hátt í sex hundruð létust í landinu síðastliðinn sólarhring. Bóksala gengur mun betur fyrir þessi jól en á sama tíma í fyrra. Þetta segir formaður Félags íslenskra bókaútgefenda. Foreldrar sem eru vön að bjóða börnum og afkomendum sínum í jólaboð gætu þurft að gera upp á milli barna sinna vegna þess að miðað er við ekki séu fleiri en 10 fullorðnir í boðinu. Par sem heldur boð getur t.d. ekki fengið nema 8 gesti. Börn sem eru fædd 2005 og eftir það teljast ekki með. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Rögnvald Ólafsson. Rætt við fólk á Laugaveginum um sóttvarnir og jólahalda. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Sigrúnu Skaftadóttur, Söru Dögg Magnúsdóttur, Gróu Sigríði Einarsdóttur, Elmer Elmers, Ernu Hauksdóttur, Júlíus Hafstein, Guðmund Jónsson og Kristínu Árnadóttur. Óbyggðirnar kalla syngja þeir Magnús Eiríksson og KK og það er óhætt að segja að hálendið hafi kallað á þingmenn í gær þegar fyrsta umræða um Hálendisþjóðgarðsfrumvarpið fór fram á Alþingi. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra mælti fyrir frumvarpinu, sem er stjórnarfrumvarp. Umræðan stóð í tæpa níu klukkutíma og lauk um miðnætti. Óhætt er að segja að skoðanir séu skiptar um málið og tæplega hægt að halda því fram að eining sé um frumvarpið innan stjórnarliðsins. Kristján Sigurjónsson segir frá og það heyrist í Guðmundi Inga Guðbrandssyni og Jóni Gunnarssyni.

Margir standa nú frammi fyrir því að skila og skipta jólagjöfum. Margir hugsa örugglega um hvað þeir ætla að gera við alla nýju hlutina, hvar eigi að koma þeim fyrir? Gjafir gætu tekið stakkaskiptum með inneignarforritinu YAY (jei) þar sem fólk sendir gjafabréf rafrænt á milli og getur selt á endursölumarkaði ef inneignin hentar því ekki. Ragnar Árnason, einn stofnanda YAY, fer yfir hvernig forritið gæti breytt gjafamarkaðinum í framtíðinni. Árlegt skila og skiptakapphlaupið er hafið. Við hverju getum við búist? Við heyrum í Brynhildi Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna, til að fara yfir helstu hindranir. Við fáum hana einnig til að rýna í það neytendamál sem stendur upp úr á árinu. Fréttir vikunnar: Fæðing frelsarans, færðin og hvít jól. Flest höfum við frekar hámhorft á sjónvarp en drukkið í okkur fréttir. Við ætlum að gera upp jólavertíðina með Andrési Magnússyni, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu, og Guðrúnu Jóhannesdóttur, eiganda verslunarinnar Kokku, en hún stækkaði verslun sína með eldhúsvörur á Laugaveginum á árinu. Ragnheiður Ragnarsdóttir sundkona hefur söðlað um og gerst leikkona. Hún leikur nú eitt burðarhlutverka í Vikings, Gunnhild, konu Björns Járnsíðu. Við ræðum við Röggu Ragnars um þessi skipti og þættina.

Ein elsta verslun landsins fagnar 100 ára afmæli sínu um þessar mundir, það er verslunin Brynja sem er á miðjum Laugaveginum og þar hefur hún verið svo lengi sem elstu menn muna. Brynjólfur Björnsson, eigandi Brynju kom á Morgunvaktina, við ræddum líka umdeildar breytingar á bílaumferðinni við Laugaveg. Erlendir ferðamenn hafa bókað fleiri næturgistingar á Norðurlandi en áður, þrátt fyrir að ferðamönnum fækki. Þetta má sjá í nýjum gistináttatölum Hagstofunnar. Forstjóri Icelandair boðar hækkanir flugfargjalda með haustinu, en félagið tapaði 11 milljörðum á fyrri helmingi ársins. Boeing hefur boðað að flugfélögum sem notast við Max-vélar þeirra verði greiddar skaðabætur vegna kyrrsetningar vélanna. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, var í vikulegu ferðaspjalli á Morgunvaktinni. Það er eitt og annað sem Íslendingar reyna að halda að og kynna fyrir erlendum ferðamönnum. Flestum dettur íslenska náttúran eflaust fyrst í hug, en ekki má gleyma matnum. Við förum mörg hver til útlanda til þess að kynnast matarmenningu annarra landa og hví skyldu þá ferðamenn sem sækja Ísland heim ekki vilja kynna sér íslenska matarmenningu. Einn þeirra sem lagt hefur mikla áherslu á að kynna íslenska matarmenningu fyrir erlendum ferðamönnum er Ýmir Björgvin Arthúrsson, hann var gestur Morgunvaktarinnar. Tónlist: Midnight Train to Georgia - Gladys Knight & The Pips Will You Love Me Tomorrow - The Shirelles Dancing In The Street - Martha Reeves & The Vandellas Ágústnótt - Alfreð Clausen Í brekkunni - Bræðurnir Brekkan Límdu saman heiminn minn - Bubbi Morthens
Heiða Ólafs söngkona, leikkona og flugfreyja var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag. Hún lenti í 2. sæti í Idolinu árið 2005 og sama ár gaf hún út sína fyrstu sólóplötu hjá Senu. Þar með hófst farsæll ferill í söng og reyndar leiklist líka því Heiða lærði leiklist í New York og útskrifaðist árið 2009. Hún hefur leikið í söngleikjum eins og Buddy Holly í Austurbæ, Bjart með Köflum og Vesalingunum í Þjóðleikhúsinu og einnig hefur hún unnið undanfarin ár við dagskrárgerð á Rás 2. Nú er að koma út glæný plata með Heiðu með hennar eigin efni í bland við uppáhaldslög og við forvitnuðumst um hana og uppvöxtinn á Hólmavík. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir var að sjálfsögðu hjá okkur í dag með sitt vikulega matarspjall. Í dag hringdum við í Friðgeir Inga Eiríksson matreiðslumeistara. Hann rak í mörg ár veitingastaðinn á Hótel Holti og er nú að opna nýjan veitingastað á Laugaveginum, Eiríksson brasserie. Hann sagði okkur meðal annars um trufflusveppi og margvíslega rétti þar sem þeir koma við sögu. Landsmót barna- og unglingakóra verður haldið á Akranesi um helgina. Von er á um 250 söngglöðum krökkum frá 5. bekk og uppúr en þau munu vinna saman í söngsmiðjum og halda svo lokatónleika í Grundaskóla á sunnudaginn kl. 13.30. Flestir eru kórarnir af suð-vesturlandi en nokkrir þeirra koma lengra að. Áhersla er lögð á að tengja mótið við bæjarlífið á Skaganum þannig að bæjarbúar geta átt von á að rekast á kórana á flakki um bæinn á laugardeginum. Við slógum á þráðinn uppá Skaga og ræddum við Valgerði Jónsdóttur sem heldur utan um skipulag og framkvæmd mótsins. UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í kvöld verður fyrri hluti nýrrar heimildamyndar um hljómsveitina Mezzoforte sýnd á RÚV. Myndin segir frá fjölbreyttum 40 ára ferli sveitarinnar sem enn er að. Kvikmyndagerðarmaðurinn Ragnar Hansson gerði myndina og hann var á línunni frá Berlín þar sem hann er búsettur. Páll Ásgeir Ásgeirsson, leiðsögumaður, kom til okkar en í pistli á Stundinni nefnir hann nokkra áhugaverða hluti. Til að mynda það að oft hitta ferðamenn sárafáa Íslendinga á för sinni um landið, nema þá helst leiðsögumenn, því starfsmenn fyrirtækjanna séu oftar en ekki útlendingar og oft á kjörum sem Íslendingum finndust slæm en þeir sjálfir eru hinsvegar sáttir við. Hulda Hauksdóttir, eigandi verslunarinnar Flash á Laugavegi, er gagnrýnin á stjórnendur Reykjavíkurborgar vegna stefnunnar í miðbænum og hefur fengið nóg. Hún segir að hennar viðskiptavinir kvarti mikið undan aðgengi því lítið sé um bílastæði og að ekki sé hægt að mæla með bílastæðahúsum vegna óþrifnaðar og útigangsmanna sem stundum hreiðri þar um sig. Hún segist vera að hugsa sinn gang með verslunarreksturinn á Laugaveginum og að nokkrir aðrir kaupmenn séu í sömu hugleiðingum. Hulda var á línunni. Við ræddum við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, í þættinum en varaði við árásum á greinina í formi verkfalla, í morgunblaðinu í dag. Hann segir líklegt að mörg fyrirtæki fari á hausinn komi til langvarandi verkfalla. Anna Sigríður Þráinsdóttir mætir á sinn stað með málfarshorn vikunnar og við veltum m.a. fyrir okkur frasanum Sautjánhundruð og súrkál. Tónlist: Ellen Kristjánsdóttir - Ástin mín ein. Van Morrison - Meet me in the Indian summer. Mezzoforte - Garden Party (brot og undir viðtali). Mezzoforte - This is the night. Davíð Ólafsson - Truth. Vök - Spend the love. Duran Duran - Anyone out there. David Bowie - Space Oddity. Stebbi, Eyfi og Björgvin - Borgarljós. Ian Brown - First world problems. Jónas Sig - Milda hjartað.
Magnús Þór Sigmundsson varð sjötugur fyrir skemmstu og Rokkland vikunnar er tileinkað honum, eins og þátturinn fyrir tveimur vikum. Magnús hélt upp á afmælið með tvennum afmælistónleikum í Háskólabíó núna í vikunni sem leið, á fimmtudag og föstudag. Þar var mikið fjör og allskonar góðir gestir eins og Jóhann Helgason, Þórunn Antonía dóttir hans, Ragnheiður Gröndal, Fjallabræður, Jónas Sigurðsson, Stefán Hilmarsson, Páll Óskar og hljómsveitin Árstíðir t.d. En Magnús var líka að senda frá sér plötu með nýjum lögum ásamt árstíðum og flutti á tónleikunum nokkur lög af þeirri plötu ásamt árstíðum. Þátturinn fyrir hálfum mánuði var tileinkaður Magnúsi. Þar sagði hann frá fyrri hluta ævinnar og ferilsins og þessi er líka tileinkaður Magnúsi, þetta er seinni hlutinn, framhaldið. Við vorum komin að árinu 1993 þegar við kvöddum Magga síðast og byrjum þar sem við enduðum þá. Magnús segir í þættinum frá því hvernig það vildi til að hann flutti af Laugaveginum og í Hveragerði á sínum tíma. Frá samstarfinu við Ragheiði Gröndal sem syngur lagið hans Ást, frá samstarfinu við Fjallabræður sem hefur t.d. fætt af sér tvö Þjóðhátíðarlög. Hann talar um ADHD og þunglyndi og margt fleira.

Helgi Jóhannesson lögmaður sagði frá uppvextinum í Hjálmholti,sumrunum í sveitinni í Hrútafirði, árunum í Æfingadeildinni, síðar Versló og lögfræði í HÍ. Hann ræddi föðurmissi, ættleiðingu tveggja barna og fæðingu þriðja barnsins. Hann sagði frá því hvernig það er að upplifa það að barnið manns komi út sem trans og hversu mikilvægt það er að hafa umræðuna opna og eðlilega. Hann ræddi útivistina og áhugann á öllu sem tengist útivst, hvers vegna hann hefur aldrei bragðað vín og ýmsu fleiru. Guðjón Ragnar Jónasson menntaskólakennari ræddi uppvöxt í Breiðholti, árunum í sveitinni á suðurlandi og síðar fimm háskólagráðunum sem hann tók. Hann sagði frá áhuganum á bókmenntum og íslenskri tungu og síðan sagði hann frá nýrri bók sem hann var að senda frá sér og heitir Hin hliðin en þar er að finna grátbroslegar sögur úr leikhúsi næturlífsins á Laugaveginum og rifjar upp áfanga úr langri og strangri baráttu fyrir réttindum og sýnileika.

Gestur Füzz í kvöld er ævintýramaðurinn og plötusalinn Kristinn Sæmundsson (Kiddi Kanína) sem margir muna eftir úr plötubúðinni Hljómalind á Laugaveginum. Margir vilja meina að Kiddi hafi alið upp amk. eina kynslóð tónlistaráhugafólks með því að vera sífellt með puttann á púlsinum og selja fólki eitthvað annað en það kom í búðina (Hljómalind) til að kaupa. Kiddi mætir með upppáhalds ROKKplötuna sína um kl. 21. Plata þáttarins er fyrsta stóra plata Jeff Beck frá árinu 1968, platan Truth. Jeff Beck yfirgaf Yardbirds síðla árs 1966 og árið eftir sendi hann frá sér tvær litlar plötur undir eigin nafni þar sem hann söng sjálfur, og eina ´68 þar sem enginn söngur var. Allar þessar litlu plötur urðu vinsælar í Bretlandi og svo var komið stórri plötu í ágúst 1968. Þar voru með honum Ron Wood sem síðar átti eftir að spila með Faces og ganga á endanum til liðs við Rolling Stones. Og söngvarinn Rod Stewart sem þarna vakti fyrst athygli og sló í gegn í kjölfarið um allan heim. Við heyrum þrjú lög af plötu þáttarins í kvöld. Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20; GARG-fréttir eru á sínum stað og A+B.