Vikulokin

Follow Vikulokin
Share on
Copy link to clipboard

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Þátturinn er í umsjá Bergsteins Sigurðssonar og Önnu Kristínar Jónsdóttur og er á dagskrá á laugardögum kl. 11-12.

RÚV


    • Jun 21, 2025 LATEST EPISODE
    • weekly NEW EPISODES
    • 55m AVG DURATION
    • 856 EPISODES


    More podcasts from RÚV

    Search for episodes from Vikulokin with a specific topic:

    Latest episodes from Vikulokin

    Diljá Mist Einarsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Pawel Bartoszek

    Play Episode Listen Later Jun 21, 2025 57:39


    Stríðið á milli Íran og Ísrael hefur staðið yfir í níu daga. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðað inngrip í stríðið, mögulega hernaðarlegt. Diplótmatísk lausn er líka möguleg með aðkomu Bandaríkjanna. Á meðan geisar stríðið á Gaza og berst Ísraelsher nú á tveimur vígstöðvum. Átök hafa einnig geisað hér heima fyrir, það er að segja pólitísk átök á Alþingi. Stjórnarandstaðan berst gegn nokkrum málum ríkisstjórnarinnar af fullri hörku, sérstaklega veiðigjöldunum og bókun 35, og liggja þinglok ekki fyrir. Um hvað er deilt? Þingmennirnir Pawel Bartozek úr Viðreisn, sem er formaður utanríkismálanefndar, og Diljá Mist Einarsdóttir úr Sjálfstæðisflokknum, sem er nefndarmaður í utanríkismálanefnd og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi þingmaður og fyrrverandi utanríkisráðherra, ræða þessi mál í Vikulokunum . Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson Tæknimaður: Þráinn Steinsson

    Halla Hrund Logadóttir, Jón Gnarr og Sigurþóra Bergsdóttir

    Play Episode Listen Later Jun 14, 2025 57:54


    Gestir Vikulokanna voru Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknarflokksins, Jón Gnarr þingmaður Viðreisnar og Sigurþóra Bergsdóttir, varamaður á þingi fyrir Samfylkinguna. Málefni barna með sértækan vanda, meðferðarúrræði fyrir börn og ungmenni, þingstörfin og loftslagsmál voru til umræðu. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Kári Guðmundsson

    Diljá Mist Einarsdóttir, Sigmar Guðmundsson og Stefán Vagn Stefánsson

    Play Episode Listen Later Jun 7, 2025 57:51


    Gestir Vikulokanna voru þau Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, og Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Til umræðu voru meðal annars þingstörfin, frumvörp um veiðigjöld og strandveiðar og mál drengs frá Kólumbíu sem vísa átti úr landi. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Jökull Karlsson

    Jón Ólafur Halldórsson, Arna Lára Jónsdóttir og Breki Karlsson

    Play Episode Listen Later May 31, 2025 57:51


    Gestir Vikulokanna eru Jón Ólafur Halldórsson formaður Samtaka atvinnulífsins, Arna Lára Jónsdóttir þingmaður Samfylkingarinnar og Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna. Þau ræddu meðal annars verðbólgu og vaxtamál, kílómetragjöld, nýtt fasteignamat, Íslandsbankasölu og samrunaviðræður á bankamarkaði. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

    gu halld arna umsj samtaka samfylkingarinnar neytendasamtakanna breki karlsson
    Dagbjört Hákonardóttir, Erlingur Erlingsson og Þórir Jónsson Hraundal

    Play Episode Listen Later May 24, 2025 57:46


    Í Vikulokunum var rætt við Dagbjörtu Hákonardóttiu, þingmann Samfylkingarinnar og nefndarmann í utanríkismálanefnd Alþingis, Erling Erlingsson, hernaðarsagnfræðing, og Þóri Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum við Háskóla Íslands, og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í síma frá útlöndum. Til umræðu var meðal annars ástandið á Gaza og hvað alþjóðasamfélagið getur gert, og friðarviðræður Rússlands og Úkraínu. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Sigríður Á. Andersen og Sigurjón Þórðarson

    Play Episode Listen Later May 17, 2025 57:52


    Gestir Vikulokanna eru Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks, Sigríður Á. Andersen þingmaður Miðflokks og Sigurjón Þórðarson þingmaður Flokks fólksins. Þau ræddu meðal annars frumvarp atvinnuvegaráðherra um veiðigjald, sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka og stöðuna á Alþingi. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

    Njáll Trausti Friðbertsson, Eiríkur Björn Björgvinsson og Jónína Brynjólfsdóttir,

    Play Episode Listen Later May 10, 2025 58:19


    Gestir Vikulokanna eru Njáll Trausti Friðbertsson úr Sjálfstæðisflokknum, Eiríkur Björn Björgvinsson frá Viðreisn og Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Múlaþings og varaþingmaður Framsóknarflokksins. Þau ræddu meðal annars um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar, auglýsingaherferð Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, sjókvíaeldi á Austfjörðum, rekstrarerfiðleika kísilverksmiðju PCC á Bakka við Húsavík og umfjöllun Kastljóss um stórfelldan gagnastuld lögreglumanna frá embætti sérstaks saksóknara. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson Tæknimaður: Þráinn Steinsson

    Halla Gunnarsdóttir, Lilja Alfreðsdóttir og Eiríkur Hjálmarsson

    Play Episode Listen Later May 3, 2025 57:50


    Gestir Vikulokanna eru Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokks og fyrrverandi ráðherra og Eiríkur Hjálmarsson sjálfbærnistjóri hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Þau ræddu meðal annars fyrstu 100 daga Donalds Trump í embætti forseta Bandaríkjanna, njósnamálið, gervigreind, menntamál, vinnumarkaðinn og rafmagnsleysi á Spáni og í Portúgal. Umsjónarmaður: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

    Linda Dröfn Gunnarsdóttir, Jakob Bjarnar Grétarson og Guðbrandur Einarsson

    Play Episode Listen Later Apr 26, 2025 57:48


    Gestir vikulokanna eru Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra kvennaathvarfsins, Jakob Bjarnar Grétarson fjölmiðlamaður og Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar.

    Ásta Guðrún Helgadóttir, Björn Ingi Hrafnsson og Ragnar Kristjánsson

    Play Episode Listen Later Apr 19, 2025 59:49


    Gestir Vikulokanna eru Ásta Guðrún Helgadóttir aðstoðarmaður þingflokks Samfylkingarinnar, Ragnar Kristjánsson hagfræðingur á málefnasviði Viðskiptaráðs og Björn Ingi Hrafnsson aðstoðarmaður formanns Miðflokksins. Þau ræddu meðals annars um tollastefnu Bandaríkjanna og áhrif hennar á alþjóðaviðskipti, stefnu Trumps gagnvart háskólum í Bandaríkjunum, hatursorðræðu á samfélagsmiðlum og fasteignamarkaðinn á Íslandi. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

    Play Episode Listen Later Apr 12, 2025 57:47


    Gestir Vikulokanna voru Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kynjafræðikennari, Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Snæbjörn Guðmundsson, jarðfræðingur og formaður Náttúrugriða. Meðal annars var rætt um innflutningstolla Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, áhrif stefnu Bandaríkjastjórnar á stöðu hinsegin fólks, jafnréttismál og fleira. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason

    Katrín Ólafsdóttir, Heiðar Guðjónsson og Jónas Már Torfason

    Play Episode Listen Later Apr 5, 2025 57:44


    Gestir Vikulokanna eru Katrín Ólafsdóttir lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík, Heiðar Guðjónsson hagfræðingur og fjárfestir og Jónas Már Torfason, lögfræðingur og formaður Félags frjálslyndra jafnaðarmanna. Þau ræddu tollahækkanir Trumps, fjármálaáætlun, stöðu Grindvíkinga og áhrif samfélagsmiðla á börn. Umsjón: Urður Örlygsdóttir Tæknimaður: Kári Guðmundsson

    Lára Ómarsdóttir, Jón Kaldal og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

    Play Episode Listen Later Mar 29, 2025 57:49


    Gestir Vikulokanna eru Lára Ómarsdóttir almannatengill, Jón Kaldal talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi. Þau ræddu mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur, breytingar á veiðigjaldi, stöðu ríkisstjórnarinnar, Signal-lekann og Grænland. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason

    Eiríkur Bergmann, Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir, Stefanía Óskarsdóttir

    Play Episode Listen Later Mar 22, 2025 57:52


    Gestir Vikulokanna voru þau Eiríkur Bergmann og Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingar, og Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir, forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Þau ræddu meðal annars afsögn barna- og menntamálaráðherra, úrræðaleysi í málefnum barna með fjölþættan vanda og rektorskjör í Háskóla Íslands. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Kári Guðmundsson

    Play Episode Listen Later Mar 15, 2025 57:47


    Svandís Svavarsdóttir, Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir

    Play Episode Listen Later Mar 8, 2025 57:44


    Gestir Vikulokanna voru þær Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi í Garðabæ og samskipta- og kynningarstjóri Samtakanna '78. Til umræðu var meðal annars staðan í alþjóðastjórnmálum, áhrif ákvarðana Bandaríkjaforseta á réttindi kvenna og hinsegin fólks og breytt heimsmynd.

    Eva H. Önnudóttir, Magnús Þór Jónsson og Baldur Þórhallsson

    Play Episode Listen Later Mar 1, 2025 57:33


    Gestir Vikulokanna eru Eva H. Önnudóttir prófessor í stjórnmálafræði, Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins og Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði. Þau ræddu um blaðamannafund Bandaríkjaforseta með forseta Úkraínu, sviptingar í alþjóðamálum, kjarasamninga kennara og stöðuna á vinnumarkaði, formannsskjör í Sjálfstæðisflokknum og nýjan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason

    Grímur Grímsson, Kolbrún Baldursdóttir og Valur Gunnarsson

    Play Episode Listen Later Feb 22, 2025 57:50


    Gestir Vikulokanna eru: Grímur Grímsson þingmaður Viðreisnar, Kolbrún Baldursdóttir þingmaður Flokks fólksins og Valur Gunnarsson sagnfræðingur og fjölmiðlamaður. Þau ræddu meðal annars um nýjan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur, Úkraínu og sviptingar í alþjóðamálum, kjaradeilu kennara við ríki og sveitarfélög, kosningarnar í Þýskalandi og þingstörf. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

    Hildur Sverrisdóttir, Guðmundur Ari Sigurjónsson og Halla Hrund Logadóttir

    Play Episode Listen Later Feb 15, 2025 57:45


    Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar, Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknarflokksins og Hildur Sverrisdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins ræða fréttir vikunnar. Umræður vikunnar fjölluðu meðal annars um deilur um þingflokksherbergi, stefnuræðu forsætisráðherra, þingmálalista ríkisstjórnarinnar, frumvarp umhverfisráðherra um breytingar á raforkulögum, borgarmál í Reykjavík, ofbeldi meðal barna í Breiðholtsskóla og kjör ræstingafólks hér á landi.

    Heiða Björg Hilmisdóttir, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Jón Gnarr

    Play Episode Listen Later Feb 8, 2025 57:51


    Gestir vikulokanna voru þau Heiða Björg Hilmisdóttir, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, og Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi borgarstjóri. Þau ræddu meðal annars vendingar í borgarstjórn þar sem meirihlutinn er sprunginn og viðræður um myndun nýs meirihluta standa yfir, stöðuna í kjaradeilu kennara og alþjóðamál út frá yfirlýsingum Bandaríkjaforseta í vikunni.

    Ásgeir Brynjar Torfason, Friðjón Friðjónsson og Sigríður Á. Andersen

    Play Episode Listen Later Feb 1, 2025 57:44


    Gestir Vikulokanna voru þau Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, Friðjón Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, og Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins. Þau ræddu meðal annars varnarmál, stöðuna í alþjóðastjórnmálum, hagræðingu í ríkisrekstri og formannskjör í Sjálfstæðisflokknum. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Davíð Berndsen

    sj andersen sigr umsj brynjar torfason dav berndsen
    Sigmar Guðmundsson, Bryndís Haraldsdóttir og Víðir Reynisson

    Play Episode Listen Later Jan 25, 2025 57:41


    Gestir Vikulokanna eru: Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar, Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks og Víðir Reynisson þingmaður Samfylkingarinnar. Þau ræddu meðal annars um rýmingar í Neskaupstað og á Seyðisfirði, samgöngumál, Donald Trump bandaríkjaforseta, vopnahlé á Gaza, kjaradeilu kennara og komandi formannskjör í Sjálfstæðisflokknum. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

    Jóhann Thoroddsen, Guðmundur Gunnarsson og Sigurður Örn Hilmarsson

    Play Episode Listen Later Jan 18, 2025 57:34


    Jóhann Thoroddsen, sálfræðingur, Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar og Sigurður Örn Hilmarsson, lögmaður voru gestir þáttarins. Þeir ræddu meðal annars snjóflóðið í Súðavík og ofanflóðavarnir, vopnahlé á Gaza og framkvæmd kosninga til Alþingis. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason

    Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, Stefán Pálsson og Davíð Stefánsson

    Play Episode Listen Later Jan 11, 2025 57:47


    Gestir Vikulokanna eru Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi VG og Davíð Stefánsson formaður Varðbergs. Þau ræddu meðal annars um Trump og Grænland, komandi formannskjör í Sjálfstæðisflokknum og Álfabakkamálið. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

    Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata.

    Play Episode Listen Later Jan 4, 2025 56:57


    Gestir Vikulokanna voru þær Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata. Þæru ræddu um stöðuna í íslenskum stjórnmálum, atburði liðins árs og framtíðarhorfur. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Davíð Berndsen

    Play Episode Listen Later Dec 28, 2024 57:49


    Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Jón Pétur Zimsen og Halla Hrund Logadóttir

    Play Episode Listen Later Dec 21, 2024 57:49


    Gestir Vikulokanna eru Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður Miðflokks, Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokks og Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknarflokks. Þau ræddu meðal annars nýja ríkisstjórn, komandi þingstörf, orkumál og árið sem er að líða. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason

    Baldur Þórhallsson, Halla Gunnarsdóttir og Jens Garðar Helgason.

    Play Episode Listen Later Dec 14, 2024 57:47


    Gestir Vikulokanna laugardaginn 14. desember voru Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði, Halla Gunnarsdóttir nýr formaður VR og Jens Garðar Helgason nýkjörinn þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Þau ræddu ólgu í alþjóðamálum og aukin hernaðarumsvif á Miðnesheiði, stjórnarmyndunarviðræður Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins og fleira. Umsjón: Ásta Hlín Magnúsdóttir Tæknimaður: Kári Guðmundsson

    Andrés Ingi Jónsson, Freyja Steingrímsdóttir og Hafsteinn Birgir Einarsson

    Play Episode Listen Later Dec 7, 2024 57:42


    Andrés Ingi Jónsson, fráfarandi þingmaður Pírata, Freyja Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands, og Hafsteinn Birgir Einarsson, stjórnmálafræðingur, voru gestir Vikulokanna laugardaginn 7. desember. Þau ræddu meðal annars um niðurstöður nýafstaðinna Alþingiskosninga og stjórnarmyndunarviðræður Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Auk þess þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar, starfandi matvælaráðherra, að veita hvalveiðileyfi til fimm ára. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason

    Helgi Pétursson, Lára Ómarsdóttir og Jakob Bjarnar Grétarsson

    Play Episode Listen Later Nov 30, 2024 57:42


    Gestir Vikulokanna eru Helgi Pétursson formaður Landssambands eldri borgara, Lára Ómarsdóttir almannatengill og Jakob Bjarnar Grétarsson fjölmiðlamaður. Þau ræddu alþingiskosningarnar, kosningabaráttuna, stöðuna í stjórnmálum og fleira. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

    gu helgi umsj landssambands
    Eva H. Önnudóttir, Jón Ólafsson og Eva Marín Hlynsdóttir

    Play Episode Listen Later Nov 23, 2024 57:37


    Gestir Vikulokanna eru þau Eva H. Önnudóttir, Jón Ólafsson og Eva Marín Hlynsdóttir. Þau starfa öll sem prófessorar við Háskóla Íslands. Rætt er við þau um komandi Alþingiskosningar, kosningabaráttuna hingað til, um hvaða mál er kosið, rýnt í þýðingu skoðanakannana og spáð í spilin um mögulegar stjórnarmyndanir eftir kosningar. Einnig var rætt um íbúakosningu um mölunarverksmiðju þýska fyrirtækisins Heidelberg í Ölfusi. Kosningin hefst mánudaginn 25. nóvember og stendur til 9. desember. Þriðja umræðuefnið er eldgosið sem hófst á Reykjanesi í vikunni og hin fordæmalausa staða Grindavíkur sem bæjarfélags síðastliðið ár. Spilað er viðtal við Grindvíkinginn og körfuboltakappann fyrrverandi, Pál Axel Vilbergsson, þar sem hann ræðir um líf sitt og fjölskyldu hans frá því eldsumbrotin hófust í nóvember í fyrra og þau þurftu að yfirgefa heimili sitt. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason

    Guðmundur Heiðar Helgason, Haukur Arnþórsson, og Kristín Gunnarsdóttir

    Play Episode Listen Later Nov 16, 2024 57:56


    Guðmundur Heiðar Helgason, almannatengill, Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur, og Kristín Gunnarsdóttir, markaðsstjóri og hlaðvarpsstjórnandi, ræða uppljóstrun njósnafyrirtækis á fullyrðingum sonar Jóns Gunnarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um að Jón hafi þegið sæti á framboðslista gegn því að komast í að­stöðu til veita veiði­leyfi til Hvals hf. Einnig um stöðu Þórðar Snæs Júlíussonar, eftir að í ljós kom að hann hafði skrifað niðrandi um konur, undir dulnefni, árin 2004 til 2007, og um stöðuna í bandarískum stjórnmálum eftir sigur Donalds Trump. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Kári Guðmundsson

    Guðmundur Hálfdanarson, Sigríður Margrét Oddsdóttir og Magnús Sveinn Helgason

    Play Episode Listen Later Nov 9, 2024 57:38


    Gestir Vikulokanna eru Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði, Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Magnús Sveinn Helgason hagsögufræðingur. Þau ræddu forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, þróun heimsmála, komandi alþingiskosningar og stöðuna á vinnumarkaði. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason

    Björn Ingi Hrafnsson, Jón Gunnar Ólafsson og Margrét Stefánsdóttir

    Play Episode Listen Later Nov 2, 2024 57:44


    Björn Ingi Hrafnsson, fjölmiðlamaður og ritstjóri Viljans, Jón Gunnar Ólafsson, lektor í fjölmiðlafræði við HÍ og Margrét Stefánsdóttir, almannatengill hjá Pipar, ræddu kosningabaráttuna fyrir alþingiskosningarnar og um fyrstu leiðtogaumræður forystumanna flokkanna í sjónvarpssal. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Kári Guðmundsson

    Andrés Jónsson, Eiríkur Bergmann og Eygló Harðardóttir

    Play Episode Listen Later Oct 26, 2024 57:43


    Gestir Vikulokanna voru Andrés Jónsson, almannatengill og hlaðvarpsstjórnandi, Eygló Harðardóttir, verkefnastjóri afbrotavarna hjá Ríkislögreglustjóra og fyrrverandi félags- og húsnæðismálaráðherra, og Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, Þau ræddu meðal annars um úrræðaleysi vegna barna í neyð og kosningabaráttuna og uppstillingu framboðslista fyrir Alþingiskosningarnar í nóvember.

    Orri Páll, Bryndís Haraldsdóttir og Hanna Katrín

    Play Episode Listen Later Oct 19, 2024 57:44


    Gestir Vikulokanna eru Orri Páll Jóhannsson þingflokksformaður Vinstri grænna, Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks og Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar. Þau ræddu stjórnarslit, þingstörfin og komandi kosningar. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

    Play Episode Listen Later Oct 12, 2024 57:38


    Silja Bára Ómarsdóttir, Friðrik Jónsson, Þórir Jónsson Hraundal

    Play Episode Listen Later Oct 5, 2024 57:50


    Gestir Vikulokanna voru þau Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum við Háskóla Íslands, og Friðrik Jónsson, sendiherra í Varsjá og fyrrverandi hermálafulltrúi Íslands hjá NATO. Þau ræddu stöðuna fyrir botni Miðjarðarhafs, forsetakosningar í Bandaríkjunum og innrás Rússa í Úkraínu. Umsjónarmaður: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Kári Guðmundsson

    nato gu bandar umsj silja b hraundal
    Steinunn Þóra Árnadóttir, Sandra Hlíf Ocares, Gísli Rafn Ólafsson

    Play Episode Listen Later Sep 28, 2024 57:45


    Gestir Vikulokanna eru Steinunn Þóra Árnadóttir þingmaður Vinstri grænna, Sandra Hlíf Ocares varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og Gísli Rafn Ólafsson þingmaður Pírata. Þau ræddu meðal annars orkumál, rannsókn lögreglu í byrlunarmálinu, starfsmannaleigur, efnahagsmál og stöðuna í stjórnmálunum. Umsjónarmaður: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason

    Arnar Þór Jónsson, Embla María Möller Atladóttir, María Rut Kristinsdóttir

    Play Episode Listen Later Sep 21, 2024 57:01


    Vansæld, einmanaleiki og aukin harka eykst enn meðal ungs fólks og hvorki skýring né lausn í sjónmáli. Tekist var á um orsakir og afleiðingar þess í vikunni auk máls Yazans og fjölskyldu, sem lyktaði með frestun brottvísunar og áframhaldandi málsmeðferð. Þá var rætt um sitjandi ríkisstjórn og komandi kosningar, með viðkomu í áformum Arnars Þórs, Maríu Rutar og Emblu á vettvangi stjórnmála.

    Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Tótla I. Sæmundsdóttir og Willum Þór Þórsson

    Play Episode Listen Later Sep 14, 2024 57:44


    Gestir þáttarins voru þau Ásthildur Lóa Þórs­dóttir, þingmaður Flokks fólksins, Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, og Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra. Þau ræddu meðal annars aðgerðaráætlun gegn ofbeldi meðal barna, húsnæðismál og geðheilbrigðismál. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Inga Sæland, Einar Þorsteinsson

    Play Episode Listen Later Sep 7, 2024 57:50


    Gestir Vikulokanna eru Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra, Inga Sæland formaður Flokks fólksins og Einar Þorsteinsson borgarstjóri Reykjavíkur. Þau ræddu meðal annars fjárhagsstöðu Reykjavíkur, málefni innflytjenda, vopnaburð ungmenna og almenn stjórnmál. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

    Claim Vikulokin

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel