Morðaforði

Follow Morðaforði
Share on
Copy link to clipboard

Í Morðaforða hittast tvær morðista vinkonur til að sötra og spjalla um morð.

Morðaforði


    • Jan 5, 2022 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 52m AVG DURATION
    • 45 EPISODES


    Search for episodes from Morðaforði with a specific topic:

    Latest episodes from Morðaforði

    41. Bjúgfen og Survivor

    Play Episode Listen Later Jan 5, 2022 73:56


    Þáttur 41 er mættur eftir langt og gott sumarfrí hjá okkur morðsystrum. Höfum saknað þess svo að hittast, sötra og spjalla um viðbjóð. Við skemmtum okkur allavega konunglega við upptökur á þættinum, vonum að skemmtið ykkur líka. Skál! Þátturinn er í boði Ölverk og við smökkuðum hvorki meira né minna en þrjá ólíka bjóra frá þeim, en það voru Eilífur, Rótandi og Quexcomate. Mælum hiklaust með! Við erum báðar staddar í Bandaríkjunum samt líka Mexikó. Raðmorðinginn Ronald Dominique og Survivor producerinn Bruce Beresford-Redman. facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    40. Heilagrufl og Sigti

    Play Episode Listen Later Jun 16, 2021 49:38


    Þáttur 40 er mættur en hann er sá síðasti áður en við tökum okkur smá sumarfrí.  Þátturinn er í boði Viking Brugghús og við smökkuðum á Bróðir (Milkshake IPA) og Sumaröli (Hveitibjór með jarðaberja vibes). Einstaklega góðir báðir tveir, þeir fá hæstu meðmæli frá okkur bjórsystrum.  En annars vorum við báðar í Bandaríkjunum með nokkuð keimlík mál. Stella tók fyrir mál hans Kevin Davis á meðan Lára fjallaði um morðið á Iönu Kasian.  Alveg hrottalegur viðbjóður sem er kannski viðeigandi svona korter í frí.  Takk fyrir að hlusta kæru vinir, skál fyrir ykkur! facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    39. Bakaraofnar og Hákarlar

    Play Episode Listen Later Jun 9, 2021 35:17


    Alltaf er það sama viðbjóðslega gleðin á miðvikudögum, ekki satt? Þessi þáttur er í boði Viking Brugghús og við smökkuðum frá þeim bjórinn Pink (Mango og Cherry White Ale). Hann er alveg einstaklega góður og sumarlegur! Lára tók fyrir mál frá Finnlandi og Stella brá sér til Ástralíu. Bæði málin eiga það sameiginlegt að vera óupplýst svo hvað segiði kæru hlustendur um að leysa þessi mál kannski bara með okkur? Skál fyrir ykkur! facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    38. Tannlæknar og Forsetar

    Play Episode Listen Later Jun 2, 2021 54:56


    Þátturinn í dag er í boði Ölvisholt Brugghúss og veislan heldur bara áfram! En við smökkuðum Hercule Peró (Peru og Engifer Skyrsúr) og Forseta (Session IPA). Mælum hiklaust með því að þið smakkið öll! En Stella tók Indverskt mál og fjallaði um dularfulla morðið á Aarushi Talwar, en það hefur t.d. verið kallað hið indverska Jon Benet Ramsey. Lára braut blað í sögu Morðaforða og tók fyrir fyrsta íslenska málið! Takk fyrir að hlusta, skál í botn og restina í hárið vinir. facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    37. Eltihrellar og Limsugur

    Play Episode Listen Later May 26, 2021 63:36


    Þáttur dagsins er í boði Ölvisholt Brugghúss og það var sannkölluð veisla hjá okkur. Við brögðuðum á TVEIMUR eðalbjórum sem heita þeim ljúfu nöfnum Baldur (Munich Helles Lager) og Freyja (Bláberja Witbier). Við mælum hiklaust með því að þið smakkið þessa, Freyjan var sérstaklega skemmtileg! Annars erum við báðar staddar í BNA og herregud hvað það leynist mikill viðbjóður þar alltaf. Lára sagði frá dularfullum dauða Morgan Ingram og Stella frá einstaklega sorglegum dauða Cassie Jo Stoddart. Allt saman svo erfitt en samt eitthvað svo áhugavert. Skál fyrir ykkur! facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    36. Rassaíkveikjur og Systkinaerjur

    Play Episode Listen Later May 19, 2021 74:36


    Jú komið fagnandi! Hvílík ánægja að miðvikudagurinn komi alltaf aftur. Þáttur dagsins er í boði Ölvisholt Brugghús en við dreyptum á Hoppy Saison bjórnum þeirra sem heitir Hlín. Og það má segja að hann hafi tikkað í öll box! Við mælum með. Annars er Stella með frekar mikið bömmer mál þar sem hún segir frá limsugunni honum Albert Fish frá Bandaríkjunum. Við treystum því á Láru að koma með nokkra brandara og hún sveikst ekki undan því en kom svo með neglu frá Englandi. Það mál er kallað The Twilight Murders. Halelúja! facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    35. Baðferðir og Særingar

    Play Episode Listen Later May 12, 2021 63:25


    Morðaforða miðvikudagur enn á ný og í dag brögðum við á dýrindis bjór frá FLAK. Eins og þau segja sjálf frá þá er FLAK listhneigt samkomuhús og sjávarfangssjoppa í gömlu verbúðinni við Patreksfjarðarhöfn. Bjórinn þeirra var einstaklega góður og við mælum hiklaust með því að þið skottist öll á Patró og smakkið amk. einn hélaðann Flak bjór. Annars töluðum við alveg frekar mikið í þessum þætti. Góð prósenta í okkur og sólarstemmser. Stella fjallaði um hvarfið á Bobby Dunbar frá Bandaríkjunum á meðan Lára brá sér til Bretlands og fjallaði um eina lauflétta særingu eða exorcism.  Takk fyrir að hlusta kæru vinir og gluðið nú í ykkur svalandi drykk í sólinni með okkur.  facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    34. Jónur og Horgöndlar

    Play Episode Listen Later May 5, 2021 56:44


    Miðvikudagur enn á ný og við Morðsysturnar skálum fyrir því með einni hélaðri Systir frá Viking. Hún var alveg einstaklega ljúf.  Við biðjumst velvirðingar á nefmælskunni í okkur, en kvefið bankaði uppá hjá okkur og lítið sem ekkert sem við gátum við því gert.  En Lára kom með eitt stykki banger frá Bandaríkjunum. Hún fjallaði um the Briley Brothers og vá, hvað gekk eiginlega á hjá þeim? Stella smellti sér til Hvíta-Rússlands og sagði frá einum klassískum raðmorðingja að nafni Gennedy Mikhasevich. Við vonum að þið hafið gaman af, Takk fyrir að hlusta

    33. Krakkhausar og Nunnur

    Play Episode Listen Later Apr 28, 2021 63:14


    33 - Lukkutalan svarar. Bjórinn í dag er eitt stykki hélaður Hundur frá Viking. Stella sagði frá málinu sem kom henni á true crime vagninn en það er málið um The West Memphis 3. Mjög mikið satanískt shit sem átti sér stað þar. Lára hélt sig við Evrópu og tók Rúmenska neglu. Þar voru nunnur og kannski smá satanískt vibe líka. Þarf alltaf að vera satan? Takk fyrir að hlusta og ef þið eruð í spariskapi endilega gefið okkur stjörnur eða ummæli eða sendið okkur good vibes. facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    Smámál 3 - Draugar

    Play Episode Listen Later Apr 24, 2021 35:50


    Jæja morðfýlur. Ekki svo mikið smámál nr. 3 er komið í gagnasafnið. Sturlaður þáttur að okkar mati, dæmi hver fyrir sig. Hlusaðu og láttu okkur vita hvað þér finnst. Ekki vera feiminn, vertu frekar hrædd/ur við draugana sem eru í kringum þig. Já, því við erum svo aldeilis ekki ein á þessari jörð ef þú heldur það. Skál fyrir þér og góða helgi kæri vinur, takk fyrir að hlusta. facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    32. Fljúgandi Limir og Eistu vol.II

    Play Episode Listen Later Apr 21, 2021 27:02


    Morðaforða Miðvikudagur mættur enn á ný. Halelúja! En það er óvenjulega stuttur þáttur í dag, við biðjumst velvirðingar á því en bætum upp fyrir það með smámáli sem kemur út á laugardaginn. HALDIÐ YKKUR FAST! Í þessum þætti tekur Stella fyrir eistneskt mál og segir frá honum Johannes-Andreas Hanni. Hvílíkur og annar eins viðbjóður! Takk fyrir að hlusta og fyrir að vera þið sjálf.  facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    31. Fljúgandi Limir og Eistu vol. I

    Play Episode Listen Later Apr 14, 2021 47:06


    Thirty one - The dirty one. Nei, nei, segjum bara svona. Við brögðuðum á bjórnum Flying Kock, mælum með! Lára réðst ekki á garðinn þar sem hann var lægstur og tók fyrir dauða Brittany Murphy. En það var ýmislegt grunsamlegt í kringum það. Lára talaði líka alveg rosalega mikið og lengi svo hennar ljós fær að skína í þessum þætti. Stella tekur við í næstu viku. Farið vel með ykkur, elskuleg. facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    30. Vatnaballerínur og Víddir

    Play Episode Listen Later Apr 7, 2021 38:36


    Þá er það þáttur þrjátíu þið þrælgóðu þvengir.  Bjórinn í dag: Hvítur, Belgian Wit. Niðurstaða: Assskoti góður. Mælum með! Stella smellti sér til Malasíu og lifði þar draumnum. Eða sagði allavega frá draumum hennar Monu Fandey. Lára skellti sér aftur í tímann til hins gamla góða Englands og sagði frá vægast sagt furðulegum atburðum.  Takk fyrir að hlusta, ruslið nú í ykkur bjór. Skál! facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    Smámál 2 - Náriðlar

    Play Episode Listen Later Apr 4, 2021 33:27


    Smámál númer tvö á þessum fagra Páskadegi. Er nokkuð annað við hæfi en að opna umræðuna á náriðlum? Alltof margir virðast ekki geta rætt þetta en hér er okkar innlegg í málefnið. Gleðilega páska kæru hlustendur. Borðið nóg og njótið vel. facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    29. Heilaslettur og Skítseiði

    Play Episode Listen Later Mar 31, 2021 57:57


    Helvítis gleði alltaf hreint. En nú er það svart.  Bjórinn er Eldfell því jú, það er eldgos.. Lára fjallaði um glundroðann sem var í kringum norsku hljómsveitina Mayhem. Þvílíkur glundroði. Stella brá sér til Ástralíu og tók fyrir the Sharpe family murders. Sorglegt shit og ó svo pirrandi.  En hey, hafið það gott um páskana! facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    28. Sólríkir Sumardagar og Satan

    Play Episode Listen Later Mar 24, 2021 58:27


    Satan er hér, Satan er þar, hann Satan leynist jú alls staðar.  Bjór dagsins er til dæmis Satan og okkur þótti hann bara prýðis góður. Einnig leynist Satan í málum okkar beggja en Stella fór til Lundúna og sagði frá morðinu á Rachel Nickell. Lára smellti sér til BNA og sagði frá afar sorglegu máli.  Skálið með okkur, deilið skoðunum ykkar á málunum og njótið lífsins. ok? Heyrumstumst facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    27. Öldurhús og Hænur

    Play Episode Listen Later Mar 17, 2021 46:16


    Jú komið fagnandi! Morðaforða Miðvikudagur enn á ný, við Lára og Stella alltaf á okkar stað með bjór í hönd.  Bjórinn í þetta skiptið er Tomorrow's Dreams frá Lady Brewery, mælum hiklaust með honum. Lára reið á vaðið með spánskri vampíru. Vampíran af Barselóna nánar tiltekið, alveg með eindæmum skrýtið mál sem væri áhugavert að komast dýpra í. Stella tók við keflinu og fór til Júgóslavíu sem var og hét. Vinko Pintaric sem af einhverjum óskiljanlegum ástæðum fékk viðurnefnið Hrói Höttur. Átti það að okkar mati ekki skilið enda frethólkur mikill. Takk fyrir að hlusta kæru vinir, skál fyrir ykkur! facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    Smámál 1 - Morðkvendi

    Play Episode Listen Later Mar 14, 2021 25:39


    Haldiði að það sé nú! Aukaþáttur! Hann er stuttur og góður, fullkominn í sunnudagsþrifin eða hina blessuðu sunnudags sælu.  Mikið er til af morðkvendum en oft lítið til af heimildum um þær. Stella brá sér til Japan og Lára til Afganistan, alltaf sama flakkið á okkur morðsystrum ha. Elskið friðinn og strjúkið kviðinn. Heyrumstumst! facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    26. Svarti Galdur og Lögregluklúður vol. II

    Play Episode Listen Later Mar 10, 2021 36:43


    Jú biðjið fyrir ykkur, það er kominn miðvikudagur enn á ný. Og þar sem er miðvikudagur þar er Morðaforði. Júhú! Haldiði að við höfum ekki bara bragðað á okkar eigins gromsi enn á ný en þessi var nýr úr bruggsmiðju okkar Morðaforða systra. Og prýðis góður var hann! Þar sem Stella samkjaftaði ekki í síðasta þætti þá fær ljós hennar Láru okkar allra að skína sem skærast núna. Hún segir frá máli sem átti sér stað í Ástralíu og inniheldur eftirfarandi: Lindt kúlur, gíslatökur, svarta galdur og helvítis helling af klúðri. Njótið kæru vinir og við biðjum ykkur vel að lifa.  facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    25. Samsæri og Lögregluklúður vol. I

    Play Episode Listen Later Mar 3, 2021 45:12


    Spennið sætisólar og hækkið í tækjunum, það er kominn Morðaforða Miðvikudagur!! Bjórinn sem við smökkuðum var hin grjótharða Úlfrún frá Borg og hún var alveg ýlfrandi góð.  Þessi þáttur er með aðeins öðruvísi sniði þar sem Stella sökkti sér ofan í hyldýpið sem málið í kringum horbjóðinn hann Marc Dutroux er. Þetta er hyldýpi sem virðist vera botnlaust og því talaði Stella svolítið mikið en örvæntið eigi, Lára kemur sterk aftur til leiks í næstu viku með annan háklassa viðbjóð. Ekki gleyma að elska friðinn og strjúka kviðinn, og endilega deilið (m)orðinu, fylgið okkur sem víðast og gefið okkur stjörnur, ást og góða strauma þegar það á við.  Við sendum það svo margfalt tilbaka á ykkur. Heyrumstumst! facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    24. Svín og Trúarathafnir

    Play Episode Listen Later Feb 24, 2021 53:47


    Miðvikudagur enn á ný. En sú lukka! Einstaklega mikil spenna í loftinu í þessum þætti en bjór dagsins er alveg einstaklega einstakur. Spennó. Lára með sinn fallega ameríska hreim skellti sér til Ameríkunnar og sagði frá hreint út sagt skelfilegu svíni. Svínin eru þó ekki bara í Ameríkunni heldur fann Stella eitt svipað dýr í Indlandi. Fyrsti kvenkyns raðmorðingi Indlands, það er eitthvað.  We love you so. Endilega fylgið okkur sem víðast og dreifið (m)orðinu! facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    23. Nauðgaragleraugu og Nasistar

    Play Episode Listen Later Feb 17, 2021 47:37


    Talan er 23. Bjórinn er Frábært Tækifæri frá Lady Brewery og þátturinn er í boði Bjórbaðanna. Hvílík og önnur eins lukka, ekki satt? Stella brá sér til Belgíu og sagði þar frá einu vænu freti sem gengur undir nafninu András Pandy. Lára fjallaði um eitthvað nasistafret sem hét Paul Ogorzow svo endilega hlustið til að kynnast þeim betur. Eða verr?  Heyrumstumst! faceook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    22. Kynlífsfíklar og Slys

    Play Episode Listen Later Feb 10, 2021 69:21


    Bráðum kemur ekki betri tíð. En morðatíðin er ávallt til staðar og það er nú gott. Lára sá um þema dagsins og það var svokölluð negla. Bjórinn var enginn annar en Stella Artois. Negla. Hún tók fyrir bandarískt mál sem sneri að konu að nafni Stella Nickel. Önnur negla.  Slysin gera svo víst ekki boð á undan sér og fáið þið að heyra eitt slíkt taka sér stað. Biðjumst velvirðingar á því, en góða skemmtun samt.  Stella vissi ekki af þemanu svo hún fór bara til Skotlands og sagði frá World’s End Murders. Pirrandi dæmi. Heyrumstumst! Endilega kíkið á okkur á samfélagsmiðlum og fylgið okkur á þeirri veitu sem þið hlustið.

    21. Fallbyssukúlur og Pyntingar

    Play Episode Listen Later Feb 3, 2021 53:50


    Þáttur númer 21. Það er nefnilega þannig. Sótvartur húmor í takt við sótsvarta bjórinn sem við smökkuðum. Það var hann Krummi frá Viking Brugghúsi. Kom skemmtilega á óvart og við mælum hiklaust með! Lára tók flugið til Síberíu og sagði frá Alexander Spesivtsev eða The Siberian Ripper. Með eindæmum viðbjóðslegt! Stella sló ekki slöku við og brá sér til Bandaríkjanna þar sem hún sagði frá keimlíkum viðbjóði en þar var það The Kansas City Butcher.  Við vörum viðkvæma við innihaldi þáttarins og biðjum ykkur um að vera góð við hvort annað.  facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    20. Húðgrímur og Ömmur

    Play Episode Listen Later Jan 27, 2021 44:23


    Tuttugasti þáttur og hann er ansi óþægilegur þessi. Samt alltaf eitthvað svo næs. Við smökkum á fögru Vetraröli í boði Viking brugghúsi og hann yljar sko aldeilis á þessum köldu vetrardögum.  Stella smellti sér til Írlands og sagði frá miður skemmtilegum barnamorðingjum. Lára tók við og sagði frá einum klikkuðum tilfinningarússíbana frá Ameríkunni. Ansi mikil reiði, mikill viðbjóður og almenn skemmtilegheit bara.  Heyrumstumst! Endilega subscribe-ið og followið okkur á samfélagsmiðlum.  facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    19. Meyjar og Mafíósar

    Play Episode Listen Later Jan 20, 2021 54:44


    Morðaforða miðvikudagur mættur með meiriháttar morð. Mjöðurinn mýkir maga magnaðra meyja.  Og hvað eru mörg M í því? Mjöðurinn er Bóndi frá Viking brugghúsi, mælum sannarlega með honum! Morðin eru the Tea cup killer frá Bretlandi í boði Láru og pirrandi skúrkar frá Litháen í boði Stellu. Hlustið til að fá afsláttarkóða á skuggafall.is, sem er vefsíða umhverfisvænu hárgreiðslustofunnar Skuggafall.  Skál vinir! facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi  

    18. Þvottaklemmur og Fret

    Play Episode Listen Later Jan 13, 2021 46:01


    Haldiði að það sé ekki bara kominn Morðaforða Miðvikudagur enn eina ferðina? Hvílík lukka! Við dreyptum á bjórnum Festival sem var ekkert annað en veisla.  Stella hvarf aftur í tímann í gömlu góðu Bandaríkjunum og sagði frá henni Ma Barker. Lára tók við keflinu og segir frá ansi miklu og frönsku freti. Heyrumstumst! Þáttur dagsins er í boði Pennans Eymundsson. facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    17. Sjallar og Mannar

    Play Episode Listen Later Jan 6, 2021 48:03


    Sautján er góð tala til að byrja nýtt Morðaforða ár og það gerðum við með eina hélaða Sunnu í hönd. Fölöl af bestu gerð, mælum með. En mál dagsins eru ekki af verri endanum, eða jú frekar slæm svona heilt yfir litið. Lára brá sér til Indónesíu með góða dæmifrásögn af einum shaman og endaði málið í svo heitum umræðum að hún strunsaði úr settinu. Stella hélt sér í Evrópu, Þýskalandi nánar tiltekið og sagði frá Hinterkaifeck morðunum.  Svo mikill viðbjóður. Þáttur dagsins er í boði Pennans Eymundsson. facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    16. Taflborð og Jólasveinar

    Play Episode Listen Later Dec 30, 2020 45:03


    Gleðileg jól morðistar nær og fjær! Bjórinn sem við smökkuðum að þessu sinni heitir Ekkert sérstaklega jólaleg jól. Svolítið við hæfi þessi skrýtnu jól á þessum fordæmalausu tímum ha.. Annars stóðum við okkar plikt og komum með hvern viðbjóðinn á fætur öðrum. Stella sagði frá the Chessboard Killer sem var rússneskur raðmorðingi en Lára brá sér yfir til hennar Kanödu þar sem hún sagði frá miður skemmtilegum jólasveinamorðingja. Tóm gleði og hamingja að vanda. Heyrumstumst! Þáttur dagsins er í boði Pennans Eymundson. facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    15. Tölvudýr og Sítrónutré

    Play Episode Listen Later Dec 23, 2020 38:59


    Þorláksmessuþáttur og lítið sem ekkert dregið úr veðbjóðnum. Bjórinn að þessu sinni var Eitthvað fallegt? og fallegur var hann. Fallegt bragð og falleg flaska. Lára sagði frá barnamorðingja. Barn sem myrti. Málið hennar átti sér stað í hinu íðilfagra Japan en málið var ekki eins fagurt. Stella skrapp til Spánar í smá sól og sorglegt mál en þar fjallaði hún um hollensku blakstjörnuna Ingrid Visser. Þáttur dagsins er í boði Pennans Eymundson. Gleðileg jól! facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    Ekki er allt sem sýnist 1 - Overpopulation

    Play Episode Listen Later Dec 19, 2020 35:48


    Í þessum fyrsta aukaþætti af Morðaforða skoðum við aðeins samsæriskenningar sem tengjast overpopulation og population control. Enginn bjór í þetta skiptið en óvart allt kaffið.  facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    14. Fjölskyldutré og Tásusmellir

    Play Episode Listen Later Dec 16, 2020 45:44


    Fjórtándi þáttur og fjórtándi jólsveinninn er kominn til byggða, Tásusmellir. Nei djók. Við brögðuðum á bjór sem kallast Bjúgnakrækir, hann bragðast ekkert eins og bjúgu sem betur fer en var samt mjög góður. Stella sagði frá gömlu óupplýstu máli sem endar ansi óvenjulega og skemmtilega? Lára brá sér til Ástralíu og sagði frá vægast sagt ógeðslegu máli sem átti sér stað þar. Endilega fylgið okkur þar sem þið hlustið og gefið okkur review ef ykkur líður þannig. Heyrumstust! facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    13. Pullur og Vændiskonur

    Play Episode Listen Later Dec 9, 2020 66:00


    Morðaforða miðvikudagurinn þrettándi. Þáttur dagsins er í boði Viking brugghús og nú var það Thule jólabjórinn sem við smökkuðum. Lára sagði frá horgöndlinum Gary Michael Heidnick frá Bandaríkjunum og Stella brá sér til Svíþjóðar og sagði frá dularfulla morðinu á Lilly Lindeström. Skál kæru vinir. facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    12. Landamæra sálfræðingar og Aðstoðarmenn skjávarpa

    Play Episode Listen Later Dec 2, 2020 84:05


    Morðaforða miðvikudagurinn langi? nei bara extra langur þáttur. En frábært!! Þátturinn er í boði Viking og smökkuðum við Viking jólabjór í þetta skiptið, eintóm jólagleði og jólahamingja. Stella skrapar viðbjóðsbotninn og segir frá the Tool Box Killers og vörum við hlustendur við grafískum lýsingum. Í alvöru. Lára sló ekki slöku við og brá sér til Bretlands, kom með góða fræðslu og sagði svo frá náriðlinum og raðmorðingjanum John Christie. Hamingjan sanna hvað þetta er djúsí. facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi  

    11. Jósefar og Fingradjöflar

    Play Episode Listen Later Nov 25, 2020 58:22


    Nýr Morðaforða middari, nýr viðbjóður. Þáttur dagsins er í boði Viking og brögðuðum við morðsystur á ljúfa mandarínu white ale-inum, Hvít Jól. Það þarf ekki að segja annað um það en að við mælum með! Stella fór til hins íðilfagra Hollands og sagði frá morðinu á Nicky Verstappen. Það er mikill tilfinningarússíbani að komast í gegnum það mál en vel þess virði, treystið okkur. Lára smellti sér svo til Bandaríkjanna þar sem viðbjóðurinn er á hverju strái. Það var engin undantekning í þetta skiptið og shit. Joseph Kallinger heitir umræddur vibbi, einnig kallaður The Shoemaker. Lame. Við vonum að þið njótið með okkur, skál kæru morðistar! facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi  

    10. Kínland og Samningaviðræður

    Play Episode Listen Later Nov 18, 2020 58:40


    Þáttur númer tíu og skemmtunin er uppá 10, allavega skemmtum við okkur vel. Við hófum jólabjórsmakkið í þessum þætti með einum laufléttum og góðum frá Færeyjum, ekki Finnlandi. Færeyjum. Á meðan við dreyptum á þessum dýrindis mjöð skutlaðist Lára yfir til Taiwan þar sem miður skemmtilegir atburðir áttu sér stað. Stella hélt skutlinu ótrauð áfram og endaði í Bandaríkjunum að þessu sinni.  Þvílík og önnur eins gleði alltaf hreint. Takk fyrir að hlusta! We appreciate it, eins og kaninn segir.   facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi

    9. Skriðdrekar og Pulsupartí

    Play Episode Listen Later Nov 11, 2020 58:55


    Morðaforða miðvikudagur enn á ný! Ó þessi lífsins lukka! Rigningin dundi á okkur en við stöllur létum það ekki á okkur fá. Ónei, við dreyptum á dýrindis bjórnum First Lady og dýfðum okkur svo með höfuðið fyrst í viðbjóð dagsins. Stella skrapp til Suður Kóreu og sagði frá einum alræmdasta raðmorðingja landsins honum Lee Choon-jae. Lára tók við keflinu og fór til Þýskalands og þar leyndist nú aldeilis mannfýla mikil. Mannfýla sú er einnig þekkt undir nafninu Armin Meiwes. Mikil gleði, mikill vibbi og miklar pælingar. Heyrumstumst! instagram.com/mordafordi facebook.com/mordafordi

    8. Satanískt Panikk og Líkkistur

    Play Episode Listen Later Nov 4, 2020 66:24


    Morðaforða miðvikudagur enn á ný, en frábært! Það er alltaf sama gleðin hér á bæ, minna fliss en síðast og minni draugagangur, hvorugt tveggja mikið gleði efni. En við stöndum okkur alltaf í stykkinu þegar kemur að viðbjóðnum og í dag er nóg af honum, halelúja! Bjórinn klikkaði ekki, Lára datt í satanic panic á ítölskum slóðum og Stella fann ógeðis durg í Bandaríkjunum. Vá hvað þetta er alltaf gaman! ekki satt? heyrumstumst facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi mordafordi@gmail.com

    7. Unaðsbunur og Hellisbúar

    Play Episode Listen Later Oct 28, 2020 67:47


    Úff.. þessi er svolítið svakalegur. En samt svo skemmtilegur. HallóVínið var flauelsmjúkt og stóðst allar væntingar. Lára fann einn þýskan viðbjóð sem er í hæsta gæðaflokki, eða kannski lægsta? Stella skrapp laangt aftur í tímann til Skotlands. Þetta er allt saman töfrum líkast og kannski leynist ein galdraþula í þættinum, hver veit? Við fengum miður skemmtilega heimsókn frá draugi í settið sem gerir kannski gott efni í hlaðvarp en gerði okkur dauðhræddar. Við viljum vara viðkvæmt fólk og unga einstaklinga við þessum þætti, hann er erfiður. 

    6. Ræstitæknar og Aðalsfólk

    Play Episode Listen Later Oct 21, 2020 73:58


    Sjötti þátturinn er súr rétt eins og bjórinn sem við smökkum að þessu sinni. Við morðsysturnar förum á flakk um Evrópu eins og okkur einum er lagið. Stutt og laggott stopp í Makedóníu í boði Stellu og svo fer Lára með okkur til Frakklands og segir frá einu af hennar uppáhalds málum. Heyrumstumst! facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi mordafordi@gmail.com

    5. Nærbuxnagrímur og Rottur

    Play Episode Listen Later Oct 14, 2020 54:04


    Þáttur vikunnar inniheldur mjög mörg OMG. Búið ykkur undir viðbjóð á háu stigi, við mælum með að hafa Sopa í hönd, eða einhvað annað ferskt. Upptökur fara fram í teppavirki og má segja að viðbjóðurinn sem við bjóðum uppá að þessu sinni er virkilega áhugaverður. Make love not murder. Pís át. instagram.com/mordafordi facebook.com/mordafordi

    4. Asíur og Sjúkir Fantar

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2020 40:56


    Mánaðarafmæli! Því ber að fagna og með hverju öðru en bjór? og meðalmatskeið af viðbjóð? Víða leynist viðbjóður mikill og í þessum þætti fundum við hann báðar í Asíu. Nánar tiltekið í Kína og Japan. Ef þið viljið sjá meira, bæta orðum í morðaforðann eða bara segja hæ: instagram.com/mordafordi facebook.com/mordafordi mordafordi@gmail.com 

    3. Játningar og Lúxusvillur

    Play Episode Listen Later Sep 30, 2020 54:35


    Allt er þegar þrennt er, samt ekki. Hér er þriðji þátturinn og við að sjálfsögðu með nýjan mjöð í hönd. Við stöllurnar erum báðar staddar í Evrópu á hlýjum og nýjum slóðum. Mikið er þetta alltaf hreint gaman! Þið finnið okkur svo á Instagram og Facebook undir því góða nafni Morðaforði. Skál!

    2. Kata og Lægðin

    Play Episode Listen Later Sep 23, 2020 43:14


    Það er kominn Morðaforða Miðvikudagur. Loksins! Í þessum þætti smökkum við morðsysturnar á nýjum bjór og segjum frá vibbum dagsins sem eru bæði í Finnlandi og Póllandi.  Endilega fylgið okkur á þeirri veitu sem þið notið og svo erum við líka á instagram og facebook.  Við leggjum ekki meira á ykkur!

    1. Nornir og heitir pottar

    Play Episode Listen Later Sep 14, 2020 41:50


    Í þessum fyrsta þætti af Morðaforða kynnum við þáttinn og okkur. Við sötrum á góðum bjór og spjöllum um ansi sjúkar morðkonur. Er hægt að biðja um eitthvað meira? Þið finnið okkur á instagram og facebook undir Morðaforði og svo eru allar ábendingar velkomnar á mordafordi@gmail.com

    Claim Morðaforði

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel