POPULARITY
Hollar skólamáltíðir fyrir loftslagið og líðan barna er yfirskrift málþings sem verður haldið þann 13. maí í samstarfi Menntavísindasviðs HÍ og Aldins, samtaka eldri borgara gegn loftslagsvá. Meginmarkmiðið er að varpa ljósi á tengsl hollra skólamáltíða, umhverfis og líðan barna í námi og starfi. Málþingið er öllum opið og séstakir gestir koma frá Finnlandi og Svíþjóð og lýsa reynslu sinni af fyrirkomulagi skólamáltíða . Laufey Steingrímsdóttir næringarfræðingur kom í þáttinn og sagði frá. Þörf fyrir samfélagsbreytingar 2025 er yfirskriftin á ráðstefnu og vinnustofum sem Geðhjálp stendur fyrir. Þar munu koma fram fyrirlesarar sem hafa beitt sér á alþjóðavettvangi fyrir breyttri nálgun í geðheilbrigðismálum, nálgun sem hefur skilað árangri. Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar kom til okkar í dag og sagði okkur meðal annars frá áfallameðvituðu fangelsiskerfi og fleiru sem rætt verður um á ráðstefnunni. Upplýsingar um ráðstefnuna má finna hér: https://socialchange.is/ Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í korti dagsins talaði Magnús um Lundahlaupið, The Puffin Run eins og það heitir opinberlega, en það er nú að baki í Vestmannaeyjum og þótti takast einstaklega vel. Magnús segir frá því að hann missti gersamlega af öllu því tilstandi því hann var að fylgjast með úrslitaleiknum í snóker sem fór fram á sama tíma. Hann segir aðeins frá sögu þessa vinsæla leiks og ennfremur af helstu snókerstjörnu samtímans, Ronnie O'Sullivan sem Magnús segir að sé gallaður snillingur. Tónlist í þættinum í dag: Sjáumst aftur / Páll Óskar (Orlande de Lassus, texti Páll Óskar Hjálmtýsson) Vegbúi / Una Torfa og Elín Hall (KK) Stella í orlofi / Diddú (Valgeir Guðjónsson) Froðan / Jón Jónsson og Ragnar Bjarnason (Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, texti Ásgeir Sæmundsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í hartnær hálfa öld hefur Þorsteinn Tómasson plöntuerfðafræðingur unnið að kynbótum á íslensku ilmbjörkinni – með góðum árangri: birkiyrki úr hans smiðju hefur meðal annars verið flutt til ræktunar í birkilandinu mikla Finnlandi. Þorsteinn heldur fyrirlestur um kynbætur á birki á fræðslufundi hjá Skógræktarfélagi Íslands í kvöld – og verður gestur Samfélagsins hér á eftir og segir frá kynbótum sínum og rannsóknum. Hvernig gengur okkur að takast á við fátækt á Íslandi? Þetta er spurning sem Halldór Sigurður Guðmundsson og Kolbeinn Stefánsson, dósentar, kennarar og rannsakendur við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands, vörpuðu fram á félagsráðgjafaþingi síðasta föstudag. Samfélagið var á þinginu og við ræddum við þá félaga um fátækt og félagsráðgjöf. Og í lok þáttar fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi og föstum pistlahöfundi Samfélagsins.
Helgi og Keli fara yfir fréttir vikunnar og leik Víkinga við Panathinaikos.Í lok þáttar heyra þeir svo í Jóhanni Berg, sem spilar í sólinni í Saudi.
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Landsliðsþynnka einkenndi árið 2016 eftir þennan ótrúlega dag á Arnarhóli. Við skröltum af stað, á sama tíma og ferill Charlie Keller fór á flug. Rúnar Eff sigraði hug og hjörtu þjóðarinnar þegar hann söng um hversdagslegan dag í lífi einstaklings á listamannalaunum og Fókushópurinn stappaði stálinu í íslensku þjóðina eftir erfiðan dag í Finnlandi og kallaði eftir því að við gætum ekki lifað í eftirsjá. Hendiði í Leiðrettingahornið!
Það er fimbulkuldi á höfuðborgarsvæðinu og fjöldi fólks vinnur úti allan daginn í frosthörkunum. Við förum í heimsókn á byggingasvæði í Kópavogi og ræðum við starfsmenn frá ýmsum löndum - það er mikilvægt að huga að örygginu, hálka og ísing víða, og þekkt að vinnuslys í byggingariðnaði eru mun algengari á veturna en á sumrin. Neytendalögin gilda ekki um heilbrigðisþjónustu. Við heyrum í Brynhildi Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna um réttindi sjúklinga og meðferð kvartana vegna heilbrigðisþjónustu hér og í Finnlandi. Edda Olgudóttir, vísindamiðlari, segir okkur frá tilraunum kínverskra vísindamanna til þess að geta músarunga með frumum úr tveimur karlkyns músum. Tónlist: Laura Marling - Ghosts. THE BEATLES - Blackbird.
Ný ríkisstjórn verður kynnt á morgun, ríkisráðsfundur verður á Bessastöðum og lyklaskipti á sunnudag. Fáir vita hins vegar hverjir verða ráðherrar nema kannski leiðtogar stjórnarflokkanna þriggja. Andrés Ingi Jónsson og Eva H Önnudóttir stóðust ekki freistinguna og rýndu í ráðherrakapal og hvernig stjórnarsáttmálinn kemur til með að líta út. Og svo er það Lúsían í Finnlandi sem hefur kallað fram það versta en líka það besta í Finnum. Hún heitir Daniela Owusu, á ætti að rekja til Ghana og er dökk á húð og hár.
Brauðtertan hefur fylgt okkur Íslendingum lengi og hún er borin á borð bæði á gleði- og sorgarstundum. Sagan segir að danska leikskáldið Ludwig Holmberg hafi kynnt til sögunnar samlokutertu í leikverki um aldamótin 1700 en það var svo í kringum 1940 sem samlokutertur, eða brauðtertur (smårgåstorta), urðu vinsælar í Svíþjóð og stuttu síðar í Finnlandi og svo hér á Íslandi var fjallað um brauðtertur í íslenskum tímaritum árið 1953. Brauðterta með rækjusalati er það sem flestir kalla hina klassísku brauðtertu en margir elska hangikjötsbrauðtertuna og enn aðrir skinkusalatsbrauðtertuna. Í dag er brauðtertugerð orðin að keppnisgrein á Íslandi. Friðrik V. Hraunfjörð og Erla Hlynsdóttir eru tvö af sex höfundum Stóru Brauðtertubókarinnar sem var að koma út og þau komu í brauðtertuspjall í þáttinn í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og þessi var sá 100. í röðinni frá honum. Guðjón Helgi fjallaði að þessu sinni um svæði sem stundum lendir í fréttum hjá okkur, borgina Karachi í Pakistan. Rætt er um fasteignaauglýsingu sem bar fyrir augu pistlahöfundar á rápi sínu um internetið, en þar eru falboðnar nokkrar lóðir við sjóinn í Karachi og auk þess var minnst á mannskætt flóð sem var á þessum slóðum fyrir fjórum árum. Og lesandi vikunnar í þetta sinn var Steinunn Lilja Emilsdóttir verkefnastjóri á Ónæmisfræðideild Landspítalans. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum lífið. Tónlist í þættinum Bakkelsi / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlason) Waterloo Sunset / The Kinks (Ray Davies) Afturábak / Moses Hightower (Magnús Trygvason Eliassen, Steingrímur Karl Teague og Andri Ólafsson, texti Andri Ólafsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Íris Stefanía Skúladóttir kom í þáttinn í dag. Hún er að fara af stað með námskeiðið Kynveran í Kramhúsinu. Hún hefur þróað það í tvö ár í framhaldi af lokaverkefni hennar frá LHÍ sem kallaðist „Þegar ég fróa mér“. Eftir útskrift hefur verkefnið lifað góðu lífi og vaxið og dafnað. Hún hefur meðal annars farið með það á leiklistarhátíð í Finnlandi nýlega, einnig til Hollands og Akureyrar. Íris sagði okkur frá því hvernig þetta verkefni varð til, þær viðtökur sem hún fékk þegar hún sýndi þessum málum áhuga ung að aldri og því hvernig þau misgóðu viðbrögð gerðu hana enn ákveðnari í að rannsaka kynveruna í okkur og að láta ekki skömmina stjórna sér. Eins og hún segir, því betur sem við tengjumst kynverunni í okkur sjálfum, því fyrr byrjum við að elska okkur og sættast við okkur sjálf. Við fræddumst svo um ný netnámskeið sem verða tekin í gagnið á næstunni. Þau eru á vegum Geðverndarfélags Íslands í samvinnu við bresk heilbrigðisyfirvöld. Námskeiðin, sem eru sem sagt á vefnum https://inourplace.co.uk/iceland/ og verða opin fyrir alla án endurgjalds. Þau eru hugsuð fyrir fjölskyldur, foreldra, aðstandendur, ömmur og afa og einnig verða námskeið eingöngu fyrir unglinga. Námskeiðin eru 17 talsins og verða öll á íslensku, en fyrsta námskeiðið sem búið er að þýða á íslensku er „Að skilja barnið - frá smábarni til unglings“. Kjartan Valgarðsson, framkvæmdastjóri Geðverndarfélagsins, kom í þáttinn og sagði okkur frekar frá þessum námskeiðum og hvernig þau virka. Tónlist í þættinum: Ég bíð við bláan sæ / Anna Vilhjálms og Vilhjálmur Vilhjálmsson (Phil Spector, texti Jón Sigurðsson) Unforgettable / Aretha Franklin (Irwing Gordon) Grasaferð / Snorri Helgason (Snorri Helgason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
,,Gaman að kynnast þér" er yfirskrift tónleika sem fara fram í Mengi í kvöld. Þar mætast sex tónlistarmenn með mjög ólíkan bakgrunn og ólík hljóðfæri; barokkhljóðfæri, víetnömsk hljóðfæri og gervigreindarhljóðfæri. Halla Steinunn Stefánsdóttir, barokkfiðluleikari Nordic Affect, og Nicola Privato, sem leikur á snjallhljóðfærið Stacco segja okkur frá tilraunaverkefninu, sem unnið er í samstarfi við Intelligent Instruments Lab í Reykjavík og víetnamsk-sænska tónlistarhópinn Six Tones. Einnig heyrum við ritdóm frá Grétu Sigríði Einarsdóttur. Hún var að lesa Hildi, skáldsögu eftir Satu Remö, sem kom út í Finnlandi 2022 en kom nýverið út í íslenskri þýðingu Erlu Elíasdóttur Völudóttur. En við byrjum á Akureyri, í menningarhúsinu Flóru í Sigurhæðum. Þetta er undurfagurt og einstakt hús sem er í eigu Akureyrarbæjar og hýsir ótrúlega fjölbreytta menningarstarfi. Halla hitti Kristínu Þóru Kjartansdóttur, verkefnastjóra og staðarhaldara í Sigurhæðum, sem leiddi hana um húsið. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Samfélagið sendir út frá alþjóðlegu Mývatnsráðstefnunni - Mývatn Conference 2024 - sem haldin er í félagsheimilinu Skjólbrekku í Mývatnssveit. Lífríki Mývatns er einstakt og hefur verið rannsakað í þaula í hálfa öld og kannski má segja að þessi ráðstefna sé uppskeruhátíð. Hér er fjöldi vísindamanna saman kominn frá ýmsum löndum, Íslandi, Bretlandi, Finnlandi og eflaust fleirum - og í erindunum er farið vítt og breitt. Hornsíli koma meðal annars við sögu, fuglarnir, kúluskíturinn og að sjálfsögðu mýið. Við byrjum þáttinn á að ræða við Bjarna Kristófer Kristjánsson, prófessor við Háskólann á Hólum og Guðna Guðbergsson, sviðsstjóra ferskvatns- og eldissviðs á Hafró. Næst fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi, sem ætlar að fjalla um loftslagskvíða. Í lok þáttar færum við okkur svo inn á svið hugvísindanna, án þess að skilja náttúruvísindin alveg eftir. Við fáum til okkar Auði Aðalsteinsdóttur, forstöðumann Rannsóknarseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit, og Sigurlínu Tryggvadóttur, verkefnastjóra hjá náttúruhugvísindasetrinu Huldu, til að spjalla um náttúru- og umhverfishugvísindi. Tónlist úr þættinum: ARLO PARKS & PHOEBE BRIDGERS - Pegasus. Pálmi Gunnarsson - Á áfangastað. Dina Ögon - Oas.
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Logi Gunnarsson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.Logi er Njarðvíkingur að upplagi og eftir að hafa leikið upp yngri flokka félagsins hóf hann að leika með meistaraflokki þeirra 16 ára gamall árið 1997. Í þrigang varð hann svo Íslandsmeistari með félaginu á þessum fyrstu árum sínum í meistaraflokki og var hann valinn besti leikmaður deildarinnar árið 2001. Árið 2002 hélt hann í atvinnumennskuna á meginlandi Evrópu þar sem hann í yfir 10 ár lék fyrir félög í Finnlandi, Svíþjóð, Frakklandi, Þýskalandi og á Spáni. Árið 2013 kom hann svo aftur heim til Njarðvíkur og lék þar í 10 ár áður en hann lagði skóna á hilluna í fyrra. Meðfram þessum glæsilega feril með félagsliðum lék Logi 147 leiki með landsliði Íslands.Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Bónus og Lengjunnar.
Þórarinn ræðir við Guðmund Skúla Johnsen, formann lesblindrafélagsins. Guðmundur telur að mikið af þeim samfélagsmálum sem eigi sér stað megi með beinum eða óbeinum hætti rekja að miklu leiti til lesblindu. Stjórnvöld geri ekki nægilega mikið til þess að koma til móts við fólk með lesblindu, ungt fólk, og sérstaklega strákar, verði því fyrir mismunun sem brýst út í óæskilegri hegðun. Þeir einstaklingar sem að eru ekki greindir með lesblindu séu einnig í mun meiri áhættuhóp til þess að fara út af sporinu og færir Guðmundur Skúli rök fyrir sínu máli með því að benda á að 80% fanga í Finnlandi séu lesblindir.Til að styrkja þetta framlag má fara inn á www.pardus.is/einpaeling
Mánudagurinn 10. júní Þingið, veik ríkisstjórn, meintur orkuskortur og Evrópusambandið Þingmennirnir Þórarinn Ingi Pétursson formaður atvinnuveganefndar og Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður pírata ræða hvort ríkisstjórnin springur á morgun ásamt Maríu Rut Kristinsdóttur sem situr nú á þingi fyrir Viðreisn. Bjarni Bjarnason fyrrum forstjóri Orkuveitunnar rökstyður álit sitt um að það þurfi lítið að virkja, að orkuskortur sé ekki fyrirsjáanlegur. Við ræðum svo úrslit kosninga til Evrópuþingsins við Íslendinga í ESB: Rósa Björk Brynjólfsdóttir í Frakklandi, Jón Sigurður Eyjólfsson á Spáni, Þorfinnur Ómarsson í Belgíu, Steingrímur Jónsson í Svíþjóð og Áslaug Hersteinsdóttir-Hölttä í Finnlandi.
Afsakið frönskuna. Ég er staddur í Finnlandi með kettinum Tító og okkur líður vel þrátt fyrir langt ferðalag að baki. Helsinki er flott borg og hér á hótelinu er sána og rækt. Í þættinum fjalla ég um ferðasöguna frá Japan og heimspekina á bakvið einveru erlendis.Kæri hlustandi, ef þú vilt fullan aðgang að öllu efni Heimsendis, þá vitið þér hvar skal leita. Takk fyrir að hlusta!
Lengjum í gleðinni kallast óbrigðult sparnaðarráð sem stjórnandi þáttarins deildi með hlustendum. Tom Waits fékk hellings tíma í þættinum og kominn tími til! Annars var þetta bara hefðbundið á flestan máta með fjölbreyttri tónlist og m.a.s. heyrðist lag frá Finnlandi.
5. febrúar 2024 Því er spáð að verðbólgan í Argentínu fari yfir 250 prósent í ár. Lífskjör landsmanna versna stöðugt. Meira en fjórir af hverjum tíu eru undir fátæktarmörkum. Verslun með notuð föt hefur aukist hér á landi undanfarin ár og verslunum með notaðan fatnað fjölgað mikið. Þetta er breyting í anda hringrásarhagkerfisins segir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. Hins vegar er engu minna hent af textíl. Flutt hafa verið út um 2500 tonn af textíl á ári undanfarin sjö ár og virðist það ekki vera að dragast saman. Finnar velja sér forseta 11. febrúar. Það er seinni umferð í kosningunum og valið stendur milli þeirra Alexanders Stubbs og Pekka Haavistos.
Niðurskurður samkeppnissjóða Vísinda- og tækniráðs nemur rúmum milljarði á árinu, samkvæmt fjárlögum. Vísindafólk hefur mótmælt þessu og jafnvel talað um að þetta jafngildi hópuppsögn á ungum vísindamönnum því færri fái tækifæri til að stunda rannsóknir. Erna Magnúsdóttir dósent og Eiríkur Steingrímsson prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands ræddu þetta. Kjósa þarf milli tveggja efstu frambjóðenda til forseta í Finnlandi, en fyrri lotu kosninga lauk í gær án þess að einn frambjóðandi fengi afgerandi kosningu. Helga Hilmisdóttir rannsóknardósent hjá Árnastofnun fór yfir finnsku forsetakosningarnar með okkur. Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, var gestur okkar í síðasta hluta þáttarins. Við forvitnuðumst um stöðu atvinnuleysis í fyrra og útlitið fyrir þetta ár, og töluðum líka um stöðu Grindvíkinga. Umsjón: Þórunn Elísabet Bogadóttir og Eyrún Magnúsdóttir. Tónlist: Mitchell, Joni - Carey. Asa Trio - Cold Feet. Sigríður Thorlacius - Svefnljóð (Ef sofnað ég get ekki síðkvöldum á). Stewart, Dave, Jagger, Mick - Old habits die hard.
Aðalefni Heimsgluggans var viðtal Boga Ágústssonar við Jón Óskar Sólnes um stöðuna í bandarískum stjórnmálum og einkum framboðsmál repúblikana. Jón Óskar var lengi fréttamaður hjá RÚV en hefur verið búsettur í Washington síðustu ár. Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu einnig stöðu NATO-umsóknaraðildar Svía við Boga og nýjustu skoðanakannanir fyrir forsetakosningarnar í Finnlandi.
Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann í þætti dagsins. Svíar eru einu skrefi nær aðild að Atlantshafsbandalaginu og kosningar verða um helgina í Finnlandi og hlaupin er spenna í þær. Og svo eru það kosningarnar í Bandaríkjunum - Bogi ræddi við Jón Óskar Sólnes sem er búsettur í Washington um stöðu mála. Áföll og ofbeldi hafa mikil áhrif á heilsufar kvenna, en orsakasamband þarna á milli er til skoðunar í langtímarannsókninni Áfallasaga kvenna. Edda Björk Þórðardóttir lektor í faraldsfræði kom til okkar og sagði frá þessari merku rannsókn. Fólk safnar ýmsu. Sumir safna frímerkjum eða merktum pennum, Guðlaug Vilbogadóttir fornleifafræðingur safnar öðru - hún safnar upplýsingum um gömul hús sem hafa verið flutt á milli staða. Guðlaug sagði okkur frá því hvernig það kom til að hún fór að safna húsum - og hverju hún hefur komist að. Tónlist: James, Etta - Sunday kind of love. Elín Eyþórsdóttir Söebech - Get away. Campbell, Mairi - Auld Lang Syne. Simply Red - Holding back the years.
Í tilefni af forsetakosningum á Íslandi 1. júní var endurleikið viðtal við Svan Kristjánsson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, frá sumri 2020 þegar síðast voru forsetakosningar. Hann rifjaði upp tilurð forsetaembættisins og kosningabaráttuna 1952 og fjallaði um embættið. Forsetakosningar verða í Finnlandi 28. janúar. Baráttan stendur milli tveggja fyrrverandi ráðherra Aleksander Stubb og Pekka Haavisto. Helga Hilmisdóttir málvísindamaður sem bjó lengi í Finnlandi spjallaði um kosningabaráttuna sem þykir heldur daufleg. 140 ár eru í dag síðan fyrsta íslenska góðtemplarastúkan var stofnuð. Af því tilefni kom Björn Sævar Einarsson, formaður Bindindishreyfingarinnar IOGT á Íslandi, í þáttinn og sagði frá starfinu í dag og skaðsemi áfengis. Tónlist: Johnny one time - Brenda Lee, Turn! Turn! Turn! - The Byrds, Can´t hide love - M_unit, Sinulle, Sofia - J. Karjalainen, Sir Duke - Stevie Wonder.
Við huguðum að aðgengismálum í upphafi þáttar þegar Akureyringurinn Sigrún María Óskarsdóttir kom í spjall til okkar. Sigrún María notar hjólastól og hún lenti í óskemmtilegri reynslu á milli jóla og nýjars þegar hún ákvað að skella sér í bíó. Þegar þangað var komið var hjólastólalyftan í bíóinu biluð og þá tóku við ýmiskonar vandræði. Sigrún María sagði betur frá þessari upplifun sinni í þættinum og hún ræddi líka um hjólastólaaðgengi sérstaklega fyrir norðan. Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Undir vinklinum í þetta skipti lenda nokkrar jólabækur, líka ævintýri frá Finnlandi auk þess sem umsjónarmaður stendur sig að því að vera örlítið farinn að hlakka til þess að komast á Þorrablót. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Sólveig Auðar Hauksdóttir hjúkrunarfræðingur. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og svo auðvitað hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sólveig talaði um eftirafarandi bækur og höfunda: The Great Alone e. Kristin Hannah The Bee Sting e. Paul Murray North Woods e. Daniel Mason The Goblin Emperor e. Catherine Addison Neverwhere e. Neil Gaiman Ævintýrið e. Vigdísi Grímsdóttir Tónlist í þættinum í dag: Í löngu máli / Una Torfadóttir (Una Torfadóttir) Come Down Easy / Carole King (Carole King og Toni Stern) Eldar minninganna / Ellý Vilhjálms, Svanhildur Jakobsdóttir og Einar Hólm (lag Mason & Carr, texti Benedikt Axelsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom í sitt vikulega veðurspjall og við spjölluðum við hann um andstæður í veðrinu um þessar mundir. Milt í N-Ameríku en fáheyrðar frosthörkur í Finnlandi og Norðurlöndunum og svo hæglátt veður hér á landi. Einar sagði okkur svo frá Norður-Atlantshafssveiflunni (NAO) og hvernig líklegt sé að hún móti veður á Íslandi a.m.k. fram eftir janúar. Við veltum líka fyrir okkur hvernig 2023 kom út hitafarslega á landinu. Við fengum fyrsta póstkort ársins 2024 frá Magnúsi R. Einarssyni. Í því sagði hann frá hátíðahöldum um jól og áramót í Eyjum. Síðan sagði Magnús frá ljósmengun, en hún truflar líkamsklukkuna og eykur líkur á ýmsum sjúkdómum. Hann sagði líka frá París sem er fyrirmynd flestra borga vegna skipulags og borgarlegs lífernis. Í lokin sagði svo af ferðalögum sínum á liðnu ári og þá sérstaklega af þeim níu ferðum sem hann fór til Berlínar í Þýskalandi. Svo að lokum fengum við vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Að þessu sinni fjallaði vinkillinn um að ákveða að það sem maður þarf að gera sé skemmtilegt eins og t.d. áramótauppgjörið eins og það horfir við sjálfstæðum atvinnurekendum. Vinkillinn fjallaði líka um gamalt og nýtt drasl og vandamál sem tengjast gangtruflunum gamalla bensínvéla. Tónlist í þættinum í dag: Sjaddi mollo / South River Band (Ólafur Þórðarsson og Magnús Einarsson) Horfðu á mánann / Haukur Morthens (erlent lag, texti Pálmar Ólason) Tregagleði / Hljómar (Gunnar Þórðarson og Einar Már Guðmundsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir ræddu við Boga Ágústsson um leiðtogafund ESB þar sem málefni Úkraínu verða á dagskrá, þingkosningar í Serbíu, ungfrú alheim sem er í ónáð stjórnvalda í Níkaragúa og komandi forsetakosningar í Finnlandi. Leiðtogafundur Evrópusambandsins í dag snýst að miklu leyti um málefni Úkraínu, annars vegar áframhaldandi fjárhagslegan og hernaðarlegan stuðning, hins vegar tillögu framkvæmdastjórnar ESB um að bjóða Úkraínu að hefja aðildarviðræður. Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, er því andsnúinn og getur hindrað stuðning og aðildarviðræður þar sem samþykki allra þarf. Þingkosningar verða í Serbíu á sunnudaginn og útlit er fyrir að stjórnarflokkurinn haldi völdum. Það yrði enn einn sigur popúlista því landið hefur verið á stöðugri leið til hins verra frá 2012 er Framfaraflokkurinn komst til valda. Þar hefur þróun orðið svipuð og í Ungverjalandi, vegið að sjálfstæði dómstóla, fjölmiðla og annarra lýðræðislegra stofnana, spilling hefur stóraukist undir forystu forsetans Aleksandar Vucic. Að auki hafa Serbar troðið illsakir við granna sína á Balkanskaga. Annað einræðisríki er Níkargúa og kjör Miss Universe hefur hrætt Daniel Ortega einræðisherra sem ekki hefur þolað fjöldasamkomur frá því að hann barði niður lýðræðiskröfur almennings 2018 þar sem hundruð manna voru myrt. Sheynnis Alondra Palacio, Ungfrú Níkargúa, var kjörinn ungfrú alheimur í nóvember og þá þusti mannfjöldi út á götur og fagnaði. Bláhvítum fána landsins var veifað en Ortega og Sandinstahreyfing hans vill ekki að þeir litir séu notaðir, rautt og svart eru litir Sandinista og þá vill forsetinn sjá. Þess vegna virðist hann og ættarveldi hans líta á það sem pólitísk mótmæli að fegurðardrottningin var í hvítum kjól með ljósbláa slá um herðarnar þegar hún var krýnd. Í lokin var fjallað um forsetakosningarnar í Finnlandi þar sem Alexander Stubb nýtur mests fylgis. Stubb er fyrrverandi forsætis-, utanríkis- og fjármálaráðherra. Hann er 55 ára, nam stjórnmálafræði í Bandaríkjunum, Evrópuháskólanum í Belgíu og við Sorbonne háskóla í París. Hann varði svo doktorsritgerð í Evrópufræðum frá London School of Economics. Hann starfaði í finnska utanríkisráðuneytinu og fyrir Evrópusambandið uns hann settist á Evrópuþingið 2004. Stubb dró sig út úr finnskum stjórnmálum 2016 þegar hann tapaði leiðtogakosningum í flokki sínum, Kokoomus/Samlingspartiet, fyrir Petteri Orpo núverandi forsætisráðherra. Stubb er mikill íþróttaáhugamaður, lék íshokkí í æsku og var um tíma í finnska golflandsliðinu og ætlaði að verða atvinnumað

10. október 2023 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að afsögn fjármálaráðherra sé virðingarverð. Hún hafi óhjákvæmilega áhrif á ríkisstjórnina en milli þeirra ríki traust. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur lýsir ánægju með að fjármálaráðherra hafi ekki látið reyna á hæfi sitt í embætti fyrir dómstólum heldur frekar vikið. Ráðherrar sem yfirmenn framkvæmdavaldsins þurfi að fylgja flóknu regluverki í sínum verkefnu og megi ekki hygla einni atvinnugrein eða frændfólki. Hólmganga Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins segir formaður miðflokksins um afsögn fjármálaráðherra. Stjórnvöld í Finnlandi segja einsýnt að skemmdarverk hafi verið unnin á gasleiðslu sem liggur yfir Finnska flóa til Eistlands. Þau neita að tjá sig um um hver hafi verið að verki. Í stríði milli Ísraels og Hamas, eins og í öðrum stríðum, eru það börn sem þjást mest, segir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Rafmagns- og vatnsleysi á Gaza sé lífshættulegt. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kári Guðmundsson. Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir

Rennsli eykst enn í Skaftá, en hægt hefur á aukningunni. Búið er að loka Hólaskjóli - hálendismiðstöðinni. Enn er óljóst úr hvorum Skaftárkatli hleypur. Rætt var við Áróru Bryndísi Ásgeirsdóttir sem starfar í Hólaskjóli og Þorstein Þorsteinsson, sérfræðing í jöklarannsóknum á Veðurstofunni. Vaxtamunur hefur ekki minnkað þrátt fyrir bætta afkomu og minni rekstrarkostnað bankanna. Gjaldskrár eru óskýrar og oft óljóst fyrir hvað fólk er að borga. Skógareldarnir í Grikklandi eru þeir mestu innan Evrópusambandsins frá aldamótum. Regnbogatröppur á Akureyri voru spreyjaðar svartar í nótt. Þetta er í annað skipti á þremur dögum sem skemmdarverk hafa verið unnin á regnbogaskreyttum gönguleiðum. Linda Björk Pálsdóttir forvarna- og félagsmálaráðgjafi hjá Akureyrarbæ telur hugsanlegt að innblástur af verknaðinum hafi verið fenginn af svipuðu skemmdarverki á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Svifryksmengun er alvarlegasta heilsufarsógnin sem steðjar að jarðarbúum segir í nýrri skýrslu um ástand loftslagsmála í heiminum. Ef dregið yrði úr henni sem næmi markmiðum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar lengdi það ævi þeirra um 2,3 ár að meðaltali. Viðskiptabankarnir þrír hafa heilt yfir náð fram verulegri hagræðingu í starfsemi sinni og arðsemi bankanna er núna almennt nokkuð hærri en hjá bönkum af svipaðri stærðargráðu á öðrum Norðurlöndunum. Og vaxtamunur bankanna er mun meiri hér en þar. Erfitt getur verið fyrir neytendur að átta sig á hvaða þjónustu þeir eru að kaupa. Þetta eru meginniðurstöður starfshóps sem Lilja Alferðsdóttir viðskiptaráðherra skipaði fyrir ári, til að skoða um gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Breka Karlsson formann Neytendasamtakanna sem sat í starfshópinum. Fuglaflensa hefur komið hart niður á loðdýrabúum í Finnlandi. Hennar hefur orðið vart á um 25 búum og þegar er búið að lóga öllum dýrum á þeim, meira en 120 þúsund minkum og refum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Einar Eðvald Einarsson á Syðra-Skörðugili í Skagafirði. Hann er formaður loðdýradeildar Bændasamtakanna. Einar hefur ekki miklar áhyggjur af fuglaflensa berist í loðdýr hér, aðstæður á búunum séu aðrar. Umsjónarmaður var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Jón Þór Helgason. Annalísa Hermannsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

Ný ríkisstjórn var mynduð í Finnlandi fyrir nokkrum vikum síðan en nú þegar hefur einn ráðherrann sagt af sér embætti eftir hneykslismál og vantrauststillögu. Helga Hilmisdóttir bjó lengi í Finnlandi og fylgist vel með málum þar, hún var gestur Morgunvaktarinnar og ræddi stöðuna. Minni fjárráð Evrópubúa virðast ekki hafa dregið úr eftirspurn eftir ferðalögum, heldur reynir fólk frekar að finna ódýrari áfangastaði og ferðast utan háannatíma. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu ferðamálaráðs Evrópusambandsins. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, fór yfir þetta og önnur tíðindi úr heimi ferðamála. Fjöldi tónlistarmanna, erlendir sem innlendir, koma fram á þjóðlagahátíð á Siglufirði sem nú stendur sem hæst. Mikil stemmning er í bænum og tónleikar fjölsóttir. Gunnsteinn Ólafsson, listrænn stjórnandi hátíðarinnar, var á línunni frá Siglufirði. Tónlist: A Beautiful Morning - The Rascals Jolene - Congo Cowboys Óbyggðirnar kalla - KK & Maggi Eiríks Salvacion del Rey - Reynir del Norte Chokolade Pandekage - Marvara Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Rasmus Gjedsø Bertelsen var gestur Heimsgluggans. Rasmus er Dani sem talar íslensku og er prófessor í norðurslóðafræðum í Tromsø og Nansen-prófessor við Háskólann á Akureyri. Þeir Bogi Ágústsson ræddu stöðu Norðurskautsráðsins og samskipti þjóða á norðurslóðum. Rasmus segir að Norðurskautsráðið sé nánast í dauðadái. Björn Þór Sigbjörnsson, Guðrún Hálfdánardóttir og Bogi ræddu svo þættina Skuggastríð, sem norrænu almannaþjónustustöðvarnar í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi hafa unnið í sameiningu. Þættirnir fjalla um njósnir Rússa. Í síðustu viku var sagt frá njósnum í Eystrasalti og Norðursjó með svokölluðum rannsóknarskipum og fiskiskipum. Í þáttunum hefur verið afhjúpað að ekki færri en þrjátíu og átta Rússar sem hafa starfað í sendiráðum Rússlands hafa haft njósnir að aðalstarfi. Þeir eru nafngreindir í þáttunum. Eftir að sýning þáttanna hófst hafa norsk stjórnvöld vísað fimmtán rússneskum sendiráðsstarfsmönnum úr landi og Svíar fimm. Danir ráku 15 úr landi í fyrra. Rússar hafa svarað með því að reka tíu starfsmenn sendiráðs Noregs úr landi. Georg Lárusson, forstjóri íslensku Landhelgisgæslunnar, segir ekki hafa komið á óvart að rússnesk skip stundi njósnir og kortleggi sæstrengi og vindmyllur, Nokkur athygli hefur beinst að Færeyjum vegna rússneskra skipa sem koma mjög oft til hafnar þar. Færeyingar hafa verið með fiskveiðisamning við Rússland síðan 1977 og er hann endurnýjaður árlega. Mikill þrýstingur er á Færeyinga að rifta þessum samningi. Færeyingar hafa á hagnast verulega á útflutningi fisks til Rússlands á undanförnum árum eftir að Rússar svöruðu refsiaðgerðum vestrænna þjóða með því að banna innflutning frá ríkjunum. Færeyingar hafa hins vegar mátt selja fisk í Rússlandi. Færeyingar eru að endurskoða fiskveiðisamninginn og lögmaður hefur boðað ákvörðun innan tíðar. Málið hefur valdið spennu í samskiptum Færeyinga og Dana og vakið spurningar um hver eigi að taka ákvarðanir þegar málefni skarast innan danska ríkissambandsins. Ákvarðanir í sjávarútvegs- og efnahagsmálum eru á ábyrgð færeysku stjórnarinnar en Danir fara með utanríkis- og varnarmál.

690 kindum verður lógað á bænum Bergsstöðum í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu eftir að riða greindist á bænum. Þetta er í fyrsta sinn sem riða greinist í Miðfjarðarhólfi. Valur Grettisson sagði frá. Konur koma meira en helmingi sjaldnar fyrir en karlar í auglýsingu fyrir Bestu deildir karla og kvenna í fótbolta. Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna gera athugasemd við auglýsinguna og vilja að konum sé gert hærra undir höfði. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir segir frá. Líklegt þykir að aukin áhersla verði á efnahagsmál ef Petteri Orpo nær að mynda ríkisstjórn í Finnlandi. Óánægja kjósenda sneri fyrst og fremst að aukinni skuldsetningu ríkisins sem sýndi sig í kosningunum um helgina. Finnar ganga formlega í NATO á morgun. Fólk af erlendum uppruna upplifir fordóma á íslenskum vinnumarkaði. Nýleg rannsókn sýnir að ósýnilegar hindranir mæta þeim, líka fólki sem hefur alist upp og er menntað hér; ekki síst þegar nafn eða útlitseinkenni gefa vísbendingu um erlendan uppruna. ----- Ný ríkisstjórn er í smíðum í Finnlandi eftir kosningar um helgina. Líklegt er að nýr forsætisráðherra taki við stjórnartaumunum af Sönnu Marin þrátt fyrir að flokkur hennar hafi bætt við sig fylgi í kosningunum. Á sama tíma eru Finnar komnir að dyragættinni inn í Atlantshafsbandalagið. En hvers vegna hlutu Sósialdemókratar, flokkur Sönnu Marin forsætisráðherra, ekki sama stuðning nú og í seinustu kosningum? Bjarni Rúnarsson ræðir við Tapio Koivukari rithöfund og þýðanda. Fólk af erlendum uppruna upplifir fordóma á íslenskum vinnumarkaði. Nýleg rannsókn sýnir að ósýnilegar hindranir mæta þeim, líka fólki sem hefur alist upp og er menntað hér; ekki síst þeim sem bera nafn eða útlits sem einkenni sem gefa vísbendingu um erlendan uppruna. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Moniku Jovisic. Stríðsfréttabloggarinn Vladen Tatarsky birti á samfélagsmiðlinum Telegram pistil og kallaði Vecherny Vladen, eða Kvöld Vladen. Þar fjallaði hann um gang innrásarinnar í Úkraínu, sem stuðningslið hennar, rússneskt jafnt sem erlent, kallar alla jafna "sértæka hernaðaraðgerð".Rödd Tatarskys er þögnuð. Hann lést í gær í sprengjutilræði á kaffihúsi í Pétursborg þar sem hann flutti fyrirlestur um innrásina fyrir hóp fólks. Ásgeir Tómasson fjallar um málið. Spegillinn 3. apríl 2023. Umsjón: Bjarni Rúnarsson. Tæknimaður: Jón Þór Helgason. Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

Það kerfishrun, sem varð á alþjóðlegum fjármálamörkuðum haustið 2008, er með því stærsta orðið hefur síðastliðna öld. Hrun bankakerfisins hér á landi í framhaldinu er síðan einn afdrifaríkasti atburður í Íslandssögunni. Það hefur löngum verið deilt um áhrif erlendis frá, á þá atburðarás sem leiddi til hruns íslenskra banka 2008, og þá hversu mikil þau voru. Það verður hins vegar ekki um það deilt að kreppan 2008 hófst í Bandaríkjunum og dreifðist síðan um heimsbyggðina. Það rann því mörgum kalt vatn milli skinns og hörunds í byrjun síðasta mánaðar, þegar tveir bankar féllu vestanhafs ? svo að segja í einu vetfangi ? og þegar krísan virtist hafa smitast nokkrum dögum síðar til Sviss og fest klærnar í 167 ára gamlan, sögufrægan banka með þeim afleiðingum að hann hrundi. En hvað er að gerast? Hversu alvarlegt er ástandið? Römbum við á barmi alþjóðlegs fjármálahruns, eins og 2008, eða er ekkert að óttast? Svo fjöllum við um þingkosningar í Finnlandi sem verða á sunnudaginn. Sanna Marin forsætisráðherra Finnlands berst þar fyrir pólitísku lífi sínu. Hún varð yngsti forsætisráðherra heims eftir síðustu kosningar og nýtur enn mikilla vinsælda, en þrátt fyrir það gæti ríkisstjórnin fallið, því fylgi flokksins hennar heldur ekki í við persónufylgið. Búist er við erfiðum stjórnarmyndunarviðræðum en þrír flokkar eru hnífjafnir samkvæmt skoðanakönnunum og því er mikil spenna fyrir því hverjum þeirra tekst að tryggja sér mest fylgi og þar með umboð til að mynda nýja stjórn. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

THEM er verk um karla að díla við eitraða karlmennsku og konur að díla við karla - og öll að reyna bara að fá að vera… bara vera! Fjórar konur frá Íslandi og Finnlandi kafa ofan í heim karla og segja sögur af ást, stolti, föðurhlutverkinu og óttanum við að vera öðrum byrði. Með því að heimsækja líf annarra leitast leikkonurnar við það að skilja sína eigin stöðu í heimi sem ekki er hannaður fyrir þær. Leikverkið THEM er sýnt aðeins einu sinni í viðbót þann 14. mars í Tjarnarbíói (miðar á TIX) og er afrakstur af viðtalsrannsókn við fjölda karla á Íslandi og Finnlandi. Leitast leikarnir við að varpa ljósi á karlmennsku af mýkt og næmni, án þess að dæma en þó þannig að áhorfandinn geti speglað sig og sín eigin viðhorf. Við spjöllum um leikverkið, tilurð þess, áhrif metoo byltingarinnar sem kemur inn í mitt sköpunarferlið og það hvort og hvers vegna konum leyfist að gera leiksýningu um karlmennsku. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Viðmælendur: Bergdís Júlía Jóhannsdóttir og Tinna Þorvalds Önnudóttir leikkonur. Veganbúðin, ÖRLÖ, BM Vallá og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þáttinn. Þú getur gerst bakhjarl á karlmennskan.is/styrkja
Íslenska heimildamyndin Togolísa var nýverið valin besta heimildamyndin á City of Angels hátíðinni, sem er kvikmyndahátíð kvenna í Los Angeles. Togolísa fjallar um rokkbúðir fyrir unglingsstúlkur í Togo, en er fyrst og fremst ástaróður til stúlknasamfélagsins í búðunum og til kvenna almennt, hvar sem er í heiminum, svo vitnað sé í leikstjóra myndarinnar Öldu Lóu Leifsdóttur, sem leit hér við í morgun. Þær Alda Lóa og Rut Sigurðardóttir, sem sá um myndatöku, verða gestir þáttarins Frá Vesturbyggð til Venezúela - Vestfirskar heimsbókmenntir - er yfirskrift bókmenntaviðburðar sem fram fer í menningarhúsinu Edinborg næstkomandi fimmtudagskvöld. Þar mæta til leiks fimm höfundar sem hafa allir ólíka tengingu við svæðið og ólíkan uppruna: Hin finnska Satu , sem hefur nýverið skrifað sinn fyrsta krimma, sem gerist á Ísafirði og rauk beint á topp metsölulistanna í Finnlandi; Helen Cova frá Venesúela, formaður Ós pressunar, rithöfundasambands höfunda af erlendum uppruna á Íslandi, og hin litháíska Greta Letúnínkæte, sem auk þess að kenna ritlist á Ísafirði hefur gefið út vinsæla bók í Litháen. Þá lesa þau Birta Ósmann Þórhallsdóttir, skáld og aðstandandi bókaforlagsins Skriðu á Patreksfirði; og Eiríkur Örn Norðdahl, rithöfundur, úr sínum verkum við tækifærið, en Eiríkur stóð auk þess að skipulagi viðburðarins. Við forvitnumst nánar um fjölbreytt samfélag rithöfunda á Vestfjörðum. Í dag tekur líka til máls nýr pistlahöfundur hér í Víðsjá, tónlistarkonan Jelena Ciric. Jelena mun í pistlum sínum fara með okkur í ferðalög vítt og breitt um strauma og stefnur hinna ýmsu tónlistarstefna, og til ólíkra landa. Að þessu sinni förum við upp á hásléttu í Mexíkó, en Jelena dvaldi í tvö ár í litlu fjallaþorpi þar í landi áður en hún settist að hér við norðurpólinn.

Umsjón: Ingvar Þór Björnsson og Rúnar Róbertsson Norðurlandameistaramót í eldsmíði hefst á Akranesi í dag en helstu markmið mótsins er að viðhalda áhuga og þekkingu á hinu forna handverki á Norðurlöndunum. Kappkostað sé að viðhalda gæðum við kennslu og vinnslu og styrkja samstarf eldsmiða. Allir keppendur munu fá sama verkefnið, sem er að smíða Akkeri. Keppendur og dómarar koma frá Íslandi, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Danmörku í öllum keppnisgreinum. Anna Leif Auðar Elídóttir er upplýsingafulltrúi mótsins og hún kom til okkar og ríkjandi meistarinn Beate Stormo í Kristnesi í Eyjafirði var á línunni. Íslenskar orkurannsóknir, ÍSOR, hafa gengið frá samningi við eitt stærsta olíufyrirtæki Indlands vegna undirbúnings jarðvarmavirkjunar í Kasmírhéraði. Við ræddum við Daða Þorbjörnsson, sem fer fyrir verkefninu, en þetta yrði fyrsta jarðvarmaorkuverið á Indlandi. Við ætlum að halda áfram að ræða fjármögnun íslenska heilbrigðiskerfisins - í þetta skiptið við Ásgeir Haraldsson, prófessor í barnalækningum og yfirlækni og forstöðumann fræðasviðs á Barnaspítala Hringsins. Hann segir spítalann tæpast rísa undir nafni sem háskólasjúkrahús sem fyrr en síðar komi niður á árangri. Verkefnið Römpum upp Reykjavík og nú Ísland er hugarfóstur Haraldar Þorleifssonar en hann er stjórnandi hjá Twitter. Ramparnir hafa rokið upp í höfuðborginni sem hluti af verkefninu Römpum upp Reykjavík og voru settir upp eitt hundrað stykki en í vikunni var sá hundraðasti utan borgarinnar vígður á Eyrabakka. Stefnt er að því setja upp 1000 rampa um allt land á næstu fjórum árum. Með römpunum?er?stefnt að því að gera öllum kleift að sækja veitingastaði og verslanir á landinu öllu.?Haraldur Þorleifsson kom til okkar í spjall. Bæjarhátíðin Blómstrandi dagar í Hveragerði fara fram nú um helgina og byrjar reyndar í dag en um er að ræða fjölskyldu, menningar og heilsuhátíð. Veitt er til að mynda verðlaun fyrir fegurstu garðar Hveragerðisbæjar eins og vera ber. Jóhanna Margrét Hjartardóttir, menningar og frístundafulltrúi Hveragerðis var á línunni hjá okkur. Í lok þáttar vorum við í beinni frá mótmælum í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem foreldrar sem eru ekki með dagvistun fyrir börnin sín gera kröfu á borgarráð, sem fundar klukkan níu venju samkvæmt, að grípa til aðgerða. Ekki er útlit fyrir að öll tólf mánaða gömul börn í Reykjavík fái leikskólapláss í haust, eins og stefnt var að. Rætt var við Kristínu Tómasdóttur, sem skipulagði mótmælin og Einar Þorsteinsson forseta borgarstjórnar ásamt nokkrum foreldrum.

Spegillinn 16.maí 2022 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Óformleg samtöl milli oddvita stjórnmálaflokkanna í Reykjavík um hugsanlegt meirihlutasamstarf hafa farið fram í dag. Óvíst er hvort Framsókn hallar sér til hægri eða vinstri í formlegum viðræðum. Utanríkisráðherra ætlar að leggja fyrir Alþingi síðar í vikunni þingsályktunartillögu um að ísland samþykki væntanlegar umsóknir Finna og Svía um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Ríkisstjórnin samþykkti þetta á aukafundi í morgun. Recep Tayyip Erdogan forseti Tyrklands ætlar ekki að samþykkja umsóknir Finna og Svía um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Hann sagði skömmu fyrir fréttir ótækt að samþykkja umsóknina þar sem ríkin hefðu ekki beitt sér af nægri hörku gegn hryðjuverkasamtökum. Þau hefðu skotið rótum í Finnlandi og Svíþjóð. Öll bandalagsríkin, Tyrkland þar með talið, þurfa að samþykkja nýjar aðildarumsóknir og því ljóst að afstaða Tyrkja þarf að breytast ef Finnland og Svíþjóð eiga að fá inngöngu í bandalagið. Læknir sem sætir lögreglurannsókn, grunaður um að hafa valdið ótímabæru andláti níu sjúklinga, er farinn í leyfi frá störfum á Landspítalanum. Rúm milljón hefur smitast af kórónuveirunni í Norður Kóreu. Kim Jong-un einræðisherra landsins kennir embættismönnum og stjórnendum innan heilbrigðiskerfisins um misheppnuð viðbrögð við veirunni. Lengri umfjöllun: Það fylgir lýðræðislegum kosningum, hvort sem er til þings eða sveitarstjórna, að sumir vinna, aðrir tapa og einhverjir standa í stað. Frambjóðendur, flokkar og stuðningsmenn túlka síðan úrslitn eftir sínu höfði og oft snýst tap upp í sigur og sigur í tap eftir því hver talar og skrifar. Það er þó tæplega hægt að deila um að tveir af sigurvegurum sveitarstjórnarkosninganna á laugardag eru þau Halla Karen Kristjánsdóttir oddviti Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ og Guðmundur Árni Stefánsson sem leiddi lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Framsóknarmenn voru með engan bæjarfulltrúa í Mosfellsbæ og fengu 2,9 prósent atkvæða í kosningunum fyrir fjórum árum. Núnar fékk flokkurinn 32,2 prósent atkvæða og fjóra bæjarfulltrúa undir forystu Höllu Karenar. Samfylkinging í Hafnarfirði með Guðmund Árna efstan jók fylgi sitt úr 20,1 prósenti í 29 prósent og fékk fjóra bæjarfulltrúa en var með tvo áður. Halla Karen Kristjánsdóttir og Guðmundur Árni Stefánsson ræða við Kristján Sigurjónsson. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur lýst yfir óvissustigi vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga. Þar hafa orðið 16 skjálftar yfir þremur að stærð síðustu tvo só

Vilhjálmur Birgisson var kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins í morgun. Hann hlaut 70 atkvæði af 130 sem greidd voru í formannskjörinu, það eru tæp 54 prósent. Þórarinn G. Sverrisson, formaður Öldunnar stéttarfélags, hlaut 60 atkvæði, sem eru rúm 46 prósent. Vilhjálmur tekur við formennsku af Birni Snæbjörnssyni sem tilkynnti í upphafi þessa kjörtímabils að það yrði hans síðasta. Ágúst Ólafsson, fréttamaður á Akureyri ræddi við Vilhjálm skömmu eftir kjörið í dag. Kaup rússneskra auðmanna á fasteignum, sem gætu verið hernaðarlega mikilvægar, hafa aftur komist í sviðsljósið í Finnlandi og Svíþjóð eftir innrás Rússa. Illa heppnað hótel eða vel heppnað hernaðarmannvirki? Íbúðarhús í niðurníðslu eða herskálar, tilbúnir til notkunar? Þetta eru þær undarlegu spurningar sem spurt er í umræðunni um fasteignir rússneska olígarka í Finnlandi og Svíþjóð. Kári Gylfason talar frá Stokkhólmi. Helstu atriði frétta: Rússnesk yfirvöld segja um 1.300 hermenn hafa fallið í Úkraínu. Evrópusambandið og Bandaríkin hafa náð samkomulagi sem miðar að því að draga verulega úr kaupum Evrópuríkja á rússnesku jarðgasi. Eftir innrás Rússa í Úkraínu hefur orðið fimmföldun í kortlagningu á íslenska netkerfinu, segir sviðsstjóri CERT-IS. Netþrjótar geti þannig aflað sér upplýsinga sem hægt sé að nýta til netárása eða innbrota. Rannsókn á máli læknis hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur undið upp á sig. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir málið eiga sér engin fordæmi í íslenskri réttarsögu Þriðja hvert ungmenni hér á landi notar nikótínpúða. Þingmenn stjórnar og stjórnarandstöðu gagnrýna frumvarp heilbrigðisráðherra um bann við slíkum púðum. Spegillinn 25. mars 2022 Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson Tæknimaður var Mark Eldred Fréttaútsendingu stjórnaði Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir

Hvers vegna er það að hamla þér að taka of mikið á því? Hvernig veistu hvort líkaminn sé úthvíldur eða útkeyrður? Er grunn og ör öndun að halda aftur af þér? Hvernig eykuru hlutfall fitubrennslu á móti kolvetnabruna í líkamanum og af hverju skiptir það máli? Sigurður Ragnarsson er útpældur og ofurþjálfaður íþróttamaður með verkfræðilega nálgun á sína íþrótt. Þegar maður setur 25-30 klukkustundir á viku í æfingar er eins gott að tímanum sé vel varið. Siggi hefur bestað ferlið og fer hér yfir heilsutengda hluti sem almenningur getur nýtt sér til að auka hreysti, langlífi, úthald og almenna heilsu. Árangurinn leynir sér ekki, Siggi hefur verið valinn þríþrautarmaður ársins síðustu 3 árins ásamt því að vera bikar- og Íslandsmeistari. Besti árangur hans í atvinnumannaflokki í hálfum IronMan er 8. sæti í Finnlandi 2019 á tímanum 4 klst og 3 mínútur. Þið finnið Sigga á Instagram @sigurdurragnars_tri og fyrir upplýsingar um þjálfun á Facebook.com/srthjalfun