Hismið hlaðvarp

Follow Hismið hlaðvarp
Share on
Copy link to clipboard

Hlaðvarp um ekkert.

Hismið hlaðvarp


    • Jul 1, 2022 LATEST EPISODE
    • weekly NEW EPISODES
    • 1h 3m AVG DURATION
    • 155 EPISODES


    Search for episodes from Hismið hlaðvarp with a specific topic:

    Latest episodes from Hismið hlaðvarp

    Lokadans Hismisins - Takk fyrir okkur!

    Play Episode Listen Later Jul 1, 2022 64:34


    Hismið þakkar fyrir sig og kveður eftir níu góð ár í loftinu. Í lokaþættinum, sem tekinn var upp í beinni í brugghúsinu Ægisgarði að viðstöddum 160 manns, förum við yfir upphafið, söguna, helstu rekstrartölur þáttarins, fáum til okkar góða gesti og gösum um ekkert í síðasti skipti. Takk fyrir okkur!

    Hismið - Allt hey heim í hlöðu

    Play Episode Listen Later Jun 23, 2022 60:55


    Hismið mætir í síðasta sinn saman í höfuðstöðvum þáttarins og ræðir meðal annars um undirbúning live shows og lokaþáttinn í næstu viku. Farið er yfir vinnubrögð í unglingavinnunni, stöðuna á miðunum, hvalveiðar og árásir Sea Shepard samtakanna á hvalveiðaflota Kristjáns Loftssonar árið 1986. Grétar fer yfir kaup sín á Costco korti og greiningu á hrávörumarkaði og við förum yfir hvers konar alpha-hundar veljast í að vera formenn íþróttafélaga.

    Hismið - Er stormur í aðsigi?

    Play Episode Listen Later Jun 16, 2022 56:40


    Í Hismi vikunnar tökum við vandaða 360 gráðu greiningu á efnahagslífinu, ræðum pólitíkina og væringar um formannsembætti Samfylkingarinnar, fáum stöðuna á undirbúningi Árna fyrir Laugavegshlaupið og greinum frá undirbúningi fyrir lokaþátt Hismisins sem tekinn verður upp í beinni.

    Hismið - Stjórnmálin eru eins og gamanleikur

    Play Episode Listen Later Jun 9, 2022 60:10


    Hismið fær engan annan en Sigtrygg Magnason, hinn íslenska Kasper Juul, í settið og ræðir sigurgöngu Framsóknarflokksins að undanförnu og landslagið í pólitíkinni yfir höfuð, nekt, hlaup og jóga og kónginn í Boston.

    Hismið - Hvítar tennur og skrifstofumannaaxlir

    Play Episode Listen Later Jun 2, 2022 45:30


    Í Hismi vikunnar förum við yfir ferð Grétars til meginlandsins, skrifstofumannaaxlir, tannhvíttunarferli Árna og meirihlutaviðræður í borginni.

    Hismið - Odd(vit)aleikur í körfu og pólitík

    Play Episode Listen Later May 19, 2022 74:36


    Í Hismi vikunnar gerum við upp tvo stóra viðburði undanfarna viku - sveitastjórnarkosningarnar og oddaleik Vals og Tindastóls í körfubolta - með Atla Fannari Bjarkasyni fjölmiðlamanni. Við förum yfir stemminguna í Skagafirðinum, geitina í Val, meirihlutaviðræður og störukeppni flokkanna í fjölmiðlum, og meistara sem hjólaði í vinnuna á Selfoss úr Þingholtunum.

    Hismið - Gamli skólinn snýr aftur

    Play Episode Listen Later May 12, 2022 63:25


    Í Hismi vikunnar förum við yfir kosningarnar á laugardaginn, kröfur sem við gerum á stjórnmálamenn, endurkomu hjá gamla skólanum og baráttu við kerfil í Litla Stokkhólmi.

    Hismið - Hvor er glæsilegri - Dagur B eða Einar Þorsteins?

    Play Episode Listen Later May 5, 2022 54:40


    Í Hismi vikunnar byrjum við á tímamótayfirferð um veitingastaðaflóruna á Grandanum, förum svo yfir sveitastjórnarkosningarnar, besta íslenska bloggarann og starfslok hjá gamla skólanum.

    Hismið - Mislæg gatnamót í Viðey

    Play Episode Listen Later Apr 28, 2022 66:25


    Í þætti dagsins er farið yfir bankasölu málið, sveitarstjórnarkosningar sem eru framundan og ítarlega útfærðar pælingar um að breyta Viðey í mislæg gatnamót og metnaðarfullan ríkisforstjóra sem er búinn að 2.0-væða Ríkiskaup og búa til nýja stefnumótun í formi geimflaugar.

    Hismið - Sjomlar á markaði og í Liverpool

    Play Episode Listen Later Apr 7, 2022 55:05


    Í Hismi vikunnar förum yfir rólega fréttaviku og gerum upp ummæli Sigurðar Inga og sjomla söluna á Íslandsbanka. Þá förum við yfir nýja loftbrú til Liverpool, 15 mínútna hverfið, hlaupahóp Árna og hugsanlegan nýjan feril Grétars.

    Hismið - Að vera leiðinlega hamingjusamur

    Play Episode Listen Later Mar 31, 2022 58:55


    Í Hismi vikunnar förum við yfir leiðinlegasta fólk í heimi samkvæmt vönduðum rannsóknum, afstöðu kjósenda flokkana til borgarlínu og þéttingar byggðar, og vöntun á þjónustu í nýjasta hverfi borgarinnar. Þá fáum við fréttir af undirbúningi Árna fyrir Laugavegshlaupið og flettum blöðum dagsins.

    Hismið - Hvítur Monster í Eyjum

    Play Episode Listen Later Mar 24, 2022 74:15


    Í Hismi vikunnar förum við yfir atlögu að virðingu Alþingis, prófkjör í Eyjum þar sem Hismið lýsir í fyrsta sinn opinberlega yfir stuðningi við frambjóðenda, söluna á Íslandsbanka og stöðuna í Úkraínu. Þá fara umsjónarmenn yfir umdeildar myndir sem birtust af þeim á Smartlandinu í vikunni.

    Hismið - Verðbólgin augu og lýðræðisveisla

    Play Episode Listen Later Mar 18, 2022 61:30


    Í Hismi vikunnar förum við yfir New York ferð Grétars, verðbólguna, hlaupaáskorun Árna, miðaldra hjólahóp sem festist á Spáni, lýðræðisveisluna sem prófkjörin eru og í hverju góð þjónusta felst.

    Hvað heitir mamma hans Niki Lauta?

    Play Episode Listen Later Mar 11, 2022 71:30


    Hismismenn snúa aftur eftir stutta ferð í skíðabrekkurnar á meginlandið og kryfja upplifun Árna af sinni fyrstu skíðaferð, helstu slagarana af Aprés og mætingu umsjónarmanna í morgunmat. Þá er farið yfir stöðuna í Úkraínu, viðskiptatækifæri í Heiðarlegu Kauphöllinni og skærgræn hlutabréf í Andreas Tegnell, fyrrum sóttvarnalækni Svía.

    Hismið - Rafbílaraunir og skyrbarsvæðingin

    Play Episode Listen Later Feb 24, 2022 63:00


    Í Hismi vikunnar er farið yfir stóra fréttaviku, afléttingar á sóttvörnum og innrás Rússa í Úkraínu með Karli Pétri Jónssyni, almannatengli. Endalok Dóra í Mjóddinni eru einnig krufin og Árni fer yfir það hvernig hlutabréfin í honum tóku stóra dýfu á dögunum.

    Hismið - Hvernig verður sería tvö af Verbúð?

    Play Episode Listen Later Feb 10, 2022 65:15


    Í Hismi vikunnar förum við yfir nýtt #current ráðuneyti, áhugaverðar afléttingar, hvernig sería tvö af Verbúðinni gæti litið út, átökin í Eflingu og rekstrarumhverfið í Eyjum.

    Hismið - Heiðarleiki og nýsköpun

    Play Episode Listen Later Feb 3, 2022 59:30


    Sóttvarnaráætlun Hismisins hefur verið virkjuð og vinnur tæknideild þáttarins enn eitt þrekvirkið í þætti vikunnar, en þar förum við yfir stöðu mála í faraldrinum, alvöru hagstjórn í Tyrklandi, bullandi vöruþróun hjá Sigga Royal, ákveðin hápunkt nýsköpunarsenunnar og stóra samlokumálið sem hefur legið þungt á Árna.

    Fjárfestakynning Hismisins: Sigurður Orri Kristjánsson

    Play Episode Listen Later Jan 27, 2022 68:20


    Í Hismi vikunnar fáum við til okkar Sigurð Orra Kristjánsson, körfuboltaspeking, stjórnmálafræðing, landsbyggðamann og Vesturbæing, og förum yfir það helsta með okkar manni en það eru öll bréf græn í honum þessa dagana. Pólitíkin, meginlandið, landsbyggðin og handboltinn.

    Handkastið snýr aftur. Og Hismið.

    Play Episode Listen Later Jan 20, 2022 70:45


    Hismið snýr aftur á nýju ári, og gerir upp brimrót síðustu viku þegar þátturinn féll óvænt niður. Þá förum við yfir handboltann, sem er aftur orðinn þjóðaríþrótt Íslendinga og óvæntan utandeildarferil Grétars, bæjarstjóramálin í kraganum, upprisu gingseng kóngsins, og uppáhald allra - Covid.

    Jólabomba Hismisins

    Play Episode Listen Later Dec 17, 2021 55:50


    Jólabomba Hismisins í ár ber merki þess að umsjónarmenn eru að verða miðaldra; Mogganum er flett, Grétar segir frá aðild sinni að Skógræktarfélaginu og Árni ræðir um erfiða morgna í hundauppeldinu. Þá er athyglisverð auglýsing efasemdarfólks um sóttvarnir skoðuð sem og hinn strangheiðarlegi morgunmatur á Landspítalanum.

    Hismið + #ársins 2021

    Play Episode Listen Later Dec 9, 2021 77:00


    Eins og undanfarin ár þá fáum við best skipulagða gest í sögu þáttarins, Guðmund Hauk, manninn á bak við #ársins til að rifja upp með okkur það helsta sem gerðist á árinu.

    Hismið - Þingmaður ársins og körfukjúlli

    Play Episode Listen Later Dec 2, 2021 57:00


    Í Hismi vikunnar förum við yfir nýja ríkisstjórn og atvinnulífsvæðingu stjórnmálanna, hlutabréfin í Jóa Fel, skyndibitaleikinn í sexunni og tannheilsu landsmanna.

    Hismið - Hrímaður í gleri á meginlandinu er fullkomnun

    Play Episode Listen Later Nov 25, 2021 66:20


    Í Hismi vikunnar fáum við Björn Teitsson úrbanista í heimsókn og förum yfir meginlandið, lífið í níunni, sterkan mat og skipulagsmál. Þá er Árni settur on the spot varðandi hugsanlegan bæjarstjórastól á Nesinu.

    Hismið - Dreypa á dýru koníaki og falsa strætómiða

    Play Episode Listen Later Nov 18, 2021 59:50


    Í Hismi vikunnar förum við yfir hvernig vandaðri vinnu Birgis Ármannssonar og co miðar, ungu kynslóðina, dýrt koníak og stökk Strætó inn í framtíðina.

    Hismið - Kalla-kallinn er ekki lengur sexy

    Play Episode Listen Later Nov 11, 2021 63:05


    Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas - a.k.a DD- Unit er gestur Hismisins þessa vikuna og fer yfir þetta helsta með okkur: stöðuna í Covid, verkalýðsbaráttuna í Bandaríkjunum, Biden stjórninna, Elon Musk, kynþokkafyllsta mann heims og fleira.

    Hismið - Kapítalísk stemning í Eflingu

    Play Episode Listen Later Nov 4, 2021 69:35


    Í Hismi vikunnar förum við yfir hækkandi smittölur og hvað það þýðir í Vísindahorni þáttarins, ræðum ólguna í Eflingu, vistvænt hverfi án almenningssamgangna og loftlagsráðstefnuna í Glasgow.

    Hismið - Dorada glussun og brotajárn

    Play Episode Listen Later Oct 30, 2021 77:24


    Í Hismi vikunnar förum við yfir ferðalag Árna til eyjunnar grænu, tökum stöðuna á brotajárnsmarkaðnum, ræðum áhugafólk um flug, fluglest til Keflavíkur og skipulagsmál í 102 og heyrum áhugaverða raddtvíbura.

    Hismið - Morgunsmugan með Káti

    Play Episode Listen Later Oct 14, 2021 71:25


    Hismi vikunnar förum við yfir 35 ára afmæli leiðtogafundarins, old money kongungsfjölskyldur, stinna herferð ASÍ og vesen í veitingahúsageiranum. Þá fáum við söguna af Árna og Káti.

    Hismið - Flösulaust í Eyjum

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2021 60:00


    Í Hismi vikunnar förum við yfir mjög trausta skipun í formann kjörbréfanefndar, kaup ársins í viðskiptalífinu, mikinn leik Róberts Wessmanns og þegar Árni var grunaður um fikniefnasmygl til Eyja.

    Hismið - Strangheiðarlegt íslenskt fúsk

    Play Episode Listen Later Sep 30, 2021 66:50


    Í Hismi vikunnar förum við yfir úrslit kosningana, mikla innkomu Árna í kosningasjónvarpið og bíóið í norðvesturkjördæmi. Þá er vönduð yfirferð um svitalyktareyða og hártísku umsjónarmanna þáttarins í gegnum tíðina.

    Hismið x Steve Dagskrá: Kosningabomba

    Play Episode Listen Later Sep 24, 2021 98:55


    Hismismenn setjast niður með Steve Dagskrá og kryfja kosningarnar framundan. Farið er yfir frammtistöðu flokkanna, leiðtoganna, stjórnarmyndunarviðræður og margt fleira. Vilhjálmur fer yfir mikla borgarferð alla leið úr Kórahverfinu, Grétar gerir grein fyrir rituali úr Litla-Stokkhólmi þar sem bestu synir hverfisins hittast og vaxa Barbour-jakkana sína auk þess sem skákhorn þáttarins er á sínum stað þar sem Árni fer yfir það þegar hann tók viðtal við Bobby Fischer.

    Hismið - Í jakkaseglum með íhaldsmönnum

    Play Episode Listen Later Sep 16, 2021 57:25


    Í Hismi vikunnar förum við yfir skjálfa á mörkuðum vegna kosninga, hnausþykkt aukablað Moggans í dag um XD í Kraganum og harðar skærur hjá mönnum sem heita Fíllinn og Ufsinn. Þá förum við yfir ættarnafnaleikinn sem atvinnulífið er djúpt í þessi misserin og rifjum upp mikla ferð Árna til Birmingham 2008.

    Gult spjald frá Hisminu

    Play Episode Listen Later Sep 11, 2021 57:30


    Hismið gerir upp stóru bakmeiðsli Grétars þar sem Hismishlustendur stóðu á öndinni yfir ástandinu á okkar besta manni en fundu svo fyrir almennum létti þegar kappinn var mættur í Vikuna í þverfaglegan panel. Hent er fram léttri kosningaspá og rætt er um kosningar, auglýsingar flokkanna, blanka Pírata, einkunnagjöf alls konar samtaka á stefnu stjórnmálaflokka og þrætugjarnan umsækjanda um opinbert starf.

    Hismið - KSÍ-sprengjan og kosningabaráttan

    Play Episode Listen Later Sep 2, 2021 72:35


    Í Hismi vikunnar förum við yfir málefni KSÍ með Fanneyju Birnu Jónsdóttur, kosningabaráttuna sem fór formlega af stað með kappræðum á RÚV, ræðum um tímamótarannsókn á ástæðum þess að Íslendingar flykkjast til Tene og skoðum nýjan keppinaut á hlaðvarpsmarkaðnum.

    Last Dance hjá Hisminu

    Play Episode Listen Later Aug 26, 2021 64:50


    Hismið byrjar sitt níunda og síðasta tímabil og fer yfir stöðuna. Krufin eru góð jargon-svör við málefnum Fossvogsskóla, blaðamannafundur KSÍ sem virkaði á köflum eins og hann hefði verið tekinn upp 1987, kosningarnar framundan, neysluóða Íslendinga á tjaldstæðum og margt fleira.

    Hismið - Lýðræðisveisla á hlutabréfamarkaði

    Play Episode Listen Later Jun 24, 2021 61:55


    Í Hismi vikunnar förum við yfir lýðræðisveislu Sjálfstæðisflokksins, stórleik BK kjúklings í markaðsmálum, mikla auglýsingu frá FÍFL, kveðjur frá fræga fólkinu gegn greiðslu og stinnan hlutabréfamarkað.

    Þjóðhátíðarbomba Hismisins

    Play Episode Listen Later Jun 17, 2021 65:55


    Í 17. júní þætti Hismisins fara umsjónarmenn yfir það hvernig var að láta bólusetja sig, hvort ferðaþjónustan þurfi að nudda Íslendinginn betur og strangheiðarlega díla í sumarbústaða/hjólhýsa hagkerfinu. Þá er farið yfir mikla menningarferð til Berlínar norðursins, Keflavíkur.

    Hismið - Skrifstofumenn og leiðtogar

    Play Episode Listen Later Jun 3, 2021 57:30


    Í Hismi vikunnar förum við yfir mikla stafræna vegferð Reykjavíkurborgar og viðbrögð Vigdísar Hauksdóttur við henni, fararstjóra stafrænna lausna og leiðtoga í atvinnulífinu, gamaldags erjur í skotklúbbi, bólusetningarlottóið, óvænta leikmenn á hlutabréfamarkaðnum og stanslausar áhyggjur allra af öllu.

    Hismið - Skákmenn voru áhrifavaldar áttunnar

    Play Episode Listen Later May 27, 2021 57:05


    Í Hismi vikunnar förum við yfir vandað menningaruppeldi Árna í vesturbænum, kynslóðir sem verða sífellt sjálfhverfari, skákhetjur fortíðarinnar, ræðum á hvaða tíma hefði verið áhugavert að vera á lífi, tökum snúning á Samherjamálinu og mikilli seríu Vals og KR í körfuboltanum.

    Hismið - Leiðtogafundur í Mathöll Borgartúni

    Play Episode Listen Later May 20, 2021 62:10


    Í Hismi vikunnar förum við yfir stórveldaskákina í Hörpu og kynnumst tónlistarmanninum (og utanríkisráðherranum) Anthony Blinken, miðaldra hlaupaklúbb Árna, ferðasumarið framundan og dónalega Íslendinga, framleiðni í skólafríum og ólíka nálgun Þjóðverja og Bandaríkjamanna á lífið.

    Hismið - Það þarf alltaf að vera gaman!

    Play Episode Listen Later May 14, 2021 67:15


    Í Hismi vikunnar förum við yfir stemmninguna hjá 68´kynslóðinni hinni síðari í bólusetningum í Höllinni, loftbrúnna til Tene og í alpana sem verður héðan eftir Covid, amerískar sjónvarpsstöðvar sem stela íslenskum þáttum, mikla auglýsingu í Mogga um aukaverkanir bóluefna, ólík hlutverk á vinnustöðum í kjölfar Covid og Ásmund Friðriksson sem vill kanna hvort Alþingi sé ekki örugglega vímuefnalaus vinnustaður.

    Hismið - Listin að geta gasað um allt

    Play Episode Listen Later May 6, 2021 67:00


    Í Hismi vikunnar fáum við Gylfa Ólafsson, heilsuhagfræðing og forstjóra Heilbrigðistofnunar Vestfjarða, í heimsókn í Litla Stokkhólm og förum yfir það helsta úr vikunni. Rekstur Vilko á síðasta ári, flugfélagið Play sem kemur stórt inn, uppsafnaða ferðaþörf Íslendinga, pizzaleikinn á Ísafirði, bólusetningar, strandveiðar sem hófust í vikunni og listina við vinnustaðaheimsóknir stjórnmálamanna.

    Hismið - Glyshagkerfið í örflæði

    Play Episode Listen Later Apr 29, 2021 71:45


    Í Hismi vikunnar gerum við upp aggressíva aðsenda grein Mörtu Guðjónsdóttur um Gísla Martein, förum yfir kalla að rífast í fjölmiðlum en það er nægt framboð af slíku þessar vikurnar, heyrum af heimsókn Árna í raunhagkerfið, förum yfir nýsköpunarsenuna, forstjóra í LSD-örflæði og hendum fram mikilli nýsköpunarhugmynd.

    Hismið - Roaring twenties 2.0

    Play Episode Listen Later Apr 15, 2021 64:20


    Í Hismi vikunnar fáum við stöðuna á baráttunni við veiruna frá up-beat Árna, rýnum í hatramma umræðu í kjölfar hvatningar þingkonu um barneignir, förum yfir skelfilega hluti sem hefðu getað gerst, flugfélagið Play sem fer stórt inn í sumarið, nýtt innheimtufyrirtæki sem mætti með látum inn á markaðinn og kirkjuna sem er alltaf jafn #current

    Hismið - Styttist í Freedom day

    Play Episode Listen Later Apr 8, 2021 66:20


    Í Hismi vikunnar eru aðsendar greinar í Mogganum fyrirferðamiklar en við förum líka yfir viðburð í alþjóðapólitíkinni þar sem allir prótókólar voru mölbrotnir, 13. október, sem er dagsetningin sem Kári Stefánsson segir að allt verði orðið eins og það á að vera, og glæstan feril Ingva Hrafns sem er frumkvöðull á íslenskum fjölmiðlamarkaði.

    Hismið - Hátt spennustig

    Play Episode Listen Later Apr 1, 2021 86:10


    Í Hisminu förum við yfir risastóra viku og skellinn sem umsjónarmenn Hismisins urðu fyrir þegar Þórólfur lokaði skíðasvæðum um páskana. Gerum upp muninn á viðbrögðum samfélagsins þegar Engihjallaóveðrið gekk yfir árið 1981 og núna, förum yfir gosið, mann sem er á lífi og á afa fæddan 1790 og förum yfir breytingar sem okkar maður, Aðalsteinn Leifsson, er að innleiða hjá ríkissaksóknara. Þá ræðum við illa tímasetta bombu frá Viðreisn.

    Hismið - Neyðarástand í Litla-Stokkhólmi

    Play Episode Listen Later Mar 25, 2021 62:10


    Í Hismi vikunnar förum við yfir háar smittölur í Litla Stokkhólmi, þar sem Grétar býr, nýtt samkomubann, versnandi viðhorf til Svía, bóluefnabíó, vandaða atvinnulífs starfshætti hjá Alvogen, skrýtna konfektmolann sem Sunnudagsmogginn er, rándýra ráðningu Harry bretaprins og hvernig breska konungsfjölskyldan þarf að fá góðan breytingastjórnanda til að gera sig aðeins meira current.

    Hismið - Íslendingar elska að hringja beint í stjórnmálamenn

    Play Episode Listen Later Mar 18, 2021 65:00


    Hismið fer yfir það helsta úr vikunni, stórafmæli Heimis Karlssonar úr Bítinu og nýtt lag sem hann kynnti til leiks við það tilefni sem heitir Ó góði Jesús, bólusetningarvegabréfin, förum yfir mikla grein um unglingadrama hjá bresku pari, manninn sem steig fram og taldi sig draumaprins Lindu Pjé sem DV pikkaði upp, nálægðina á Íslandi við stjórnmálamenn og frægt fólk, mikið tvít forsetans á þýsku og grein um stafrænt ferðalag LinkedIn-atvinnulífsins.

    Hismið x Sigurður Ingi

    Play Episode Listen Later Mar 11, 2021 70:40


    Gestur Hismisins þessa vikuna er límið í ríkisstjórninni, Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu og sveitastjórnaráðherra, en hann tók á móti pjökkunum á skrifstofu sinni í ráðuneytinu og fór yfir sviðið með okkur. Hvernig körfuboltamaður er Sigurður Ingi? Hvernig var að fara í opinbera heimsókn til Obama og Biden? Hvernig byrjaði hann í pólitík? Hvernig var að labba niður stigann með Bjarna í kjölfarið á Höskuldi Þórhallssyni eftir myndun ríkisstjórnar? Hvar eru bestu pizzurnar í sveitinni? Sigurður rifjar upp þegar reynt var að koma saman vinstristjórn eftir síðustu kosningar með sítengda Pírata og rifjar upp uppgjörið við Sigmund Davíð og hvernig Miðflokkurinn hefur þróast.

    Hismið - Kristján Már í beinni hangandi úr þyrlu

    Play Episode Listen Later Mar 4, 2021 65:45


    Í viku hamfara og jarðhræringa fær Hismið Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttur, stúdent í jarðfræði, í settið til að greina stöðuna með yfirveguðum hætti. Við förum yfir nýjar sjónvarpsstjörnur úr hópi jarðvísindamanna, fréttamenn í þyrlum, hamfarablæti þjóðarinnar og hvernig við þurfum að fá stöðugar fréttir um sviðsmyndir og helstu nýyrði, eins og óróapúls og kvikuinnskot.

    Hismið - Rýming Reykjavíkur

    Play Episode Listen Later Feb 25, 2021 65:20


    Í Hismi vikunnar er farið yfir mál málanna, jarðhræringar á Reykjanesi og rykið dustað af áætlunum um rýmingu höfuðborgarsvæðisins og hvering verður hægt að koma 200 þúsund kröfuhörðum borgarbúum á öruggan stað en þó þannig að þetta sé notalegt og henti til að deila á Instagram. Ræðum einnig örlög Quiznos á Íslandi og möguleg kaup á bóluefni af Svisslendingnum og hvering sterkt byrjunarlið Íslands gæti verið í samningaviðræðunum.

    Claim Hismið hlaðvarp

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel