POPULARITY
Innkastið eftir 7. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Magnús Þórir Matthíasson. Blikar tróna einir á toppnum eftir kvöldið, vandræði ÍA halda áfram, leiðinlegasti leikur sumarsins var í Eyjum, markaregn í Mosó og Lengjudeildarhorn.
Það er Grænlandsþema þessa vikuna á Rás 1, á mánudaginn heyrðum við í þættinum viðtal við Jósep og Skúla um Kalak, vinfélags Íslands og Grænlands og í dag kom Ragnar Axelsson ljósmyndari til okkar. Ragnar, eða RAX, hefur ferðast um Grænland í um 40 ár og hefur á þeim árum og tekið magnaðar ljósmyndir og safnað sögubrotum af harðri lífsbaráttu Grænlendinga í sambýli við besta vin mannsins, sleðahundinn. Við fengum Ragnar til að segja okkur frá Grænlandi, þessu stórbrotna landi og því fólki sem hann hefur kynnst þar og þeim breytingum sem hann hefur orðið vitni að á þessum fjórum áratugum. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Kort dagsins kemur frá Eyjum og segir frá endurminningum Magnúsar um Bítlana og Liverpool á meðan hann var úti í Berlín í liðinni viku. Hann rifjar upp ferð sína á tónleika með Paul McCartney í Liverpool og segir hvernig borgin hefur breyst á þeim næstum fjörutíu árum frá því að hann kom þar fyrst til að heimsækja slóðir fjórmenninganna sem höfðu heillað hann í æsku. Tónlist í þættinum í dag: Hvíl í ró / Lay Low og Fjallabræður (Lay Low) Here Comes the Sun / The Beatles (George Harrison) Penny Lane / The Beatles (Lennon & McCartney) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Gestur vikunnar er enginn annnar en Hermann Hreiðarsson. Hermann er eini Íslendingurinn sem hefur unnið FA cup bikarinn og hefur spilað 332 leiki í Premier League á 15 árum í ensku deildinum. Í þessum fyrri hluta þáttarins fórum við yfir árin í Eyjum og í ensku úrvalsdeildinni. Við ræddum Harry Redknapp, Atla Eðvalds, Joe Royle, Alan Curbishley og fleiri góða menn. Njótið vel!Styrktaraðilar þáttarinns eru: Visitor FerðaskrifstofaHafið FiskverslunBudweiser BudvarWorld ClassLengjan
Fjölmennasta skátafélag landsins Hraunbúar Hafnarfirði fagnar 100 ára afmæli um þessar mundir og félagsforinginn Bjarni Freyr Þórðarsson segir að aðalatriðið í skátastarfinu snúist um að undirbúa fólk fyrir lífið. Skátastarfið snúist ekki um bikara og medalíur heldur veganesti út í lífið, sjálfsbjargarviðleitni og að efla sjálfstæða einstaklinga og leiðtoga. Við ræddum við Bjarna og Hörpu Hrönn Grétarsdóttur sveitaforingi, í dag. Það er ríkt í okkur að vilja láta gott af okkur leiða, en það eru ekki allir sem vita hvernig á að snúa sér þegar að því kemur. Eins getur verið snúið að ganga ekki of nærri sér á þeirri vegferð. Sigurborg Kr. Hannesdóttir sagði okkur í dag frá sinni reynslu, en hún hefur sjálf upplifað að ganga of nærri sér á slíkri vegferð og nú vill hún leiðbeina fólki í svipuðum sporum með því að nota þeirra eigin sögu, á netnámskeiði sem hún kallar Sagan af þér að breyta heiminum. Við fengum svo póstkort í dag frá Magnúsi R. Einarssyni og kort dagsins barst nú frá Vestmannaeyjum því Magnús er kominn heim frá Grænhöfðaeyjum. Hann sagði frá ýmsu því sem við er að eiga í Eyjum þessa dagana. Þar er tekist á um samgöngur, sem hafa verið í nokkru lamasessi vegna óveðurs í febrúar, sem og sandburðar í Landeyjahöfn. Hann sagði líka frá deilum sem hafa skapast vegna minnismerkis um gosið 1973, en um það verður haldin íbúafundur næsta föstudag. Tónlist í þættinum í dag Miðvikudagur / Þokkabót (Ingólfur Steinsson, texti Steinn Steinarr) Breaking up is Hard to Do / Neil Sedaka og Sissel Kyrkjebö (Neil Sedaka & Greenfield) Lazy Sunday / Small faces (Marriott Lane) Girl From Before / Blood Harmony (Örn Eldjárn Kristjánsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON Við byrjuðum þennan síðasta þátt ársins með því að spá í veðrið auðvitað. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingurinn fór með okkur yfir veðurárið sem er að líða. Það var um margt óvenjulegt. Hér fyrir neðan er uppgjörið í textaformi í fullri lengd. Hann fór svo auðvitað aðeins yfir áramótaveðrið og veðrið næstu vikuna. Guðjón Helgi Ólafsson sendi okkur í dag síðasta vinkillinn að sinni og fjallaði hann um jólahefðir, heimsósóma, persónulegan ósóma og fréttir á jóladagsmorgun. Við kveðjum Guðjón Helga sem hefur verið fastagestur hjá okkur á mánudögum sl. tvö árin og þökkum honum fyrir góða vinkla, en þeir eru 107 talsins. Ljósmengun var umfjöllunarefni póstkortsins sem við fengum í dag frá Magnúsi R. Einarssyni. Hann sagði fyrst frá hinum íburðarmiklu jólaljósaskreytingum í Eyjum þar sem snarhækkandi orkuverð hefur ekkert dregið úr jólaljósadýrðinni í Vestmannaeyjum. Í framhaldinu sagði hann frá því hvernig raflýsingin, sem hefur aðeins verið til í rúma öld, getur haft skaðleg áhrif á heilsu fólks með því að trufla hina náttúrulegu hrynjandi ljóss og myrkurs á jörðu og ennfremur hvernig ljósmengunin hefur rænt okkur fegurð næturinnar og stjörnuhiminsins. Ársuppgjör Einars Sveinbjörnssonar - veðrið 2024 Árið 2024 verður í veðurfarslegu tilliti helst minnst fyrir það hve kalt það reyndist. Í það minnsta ef mið er tekið af síðustu tveimur áratugum eftir að tók að hlýna um og fyrir aldamótin. Ísland sker sig því verulega úr hvað hita jarðar áhrærir, en 2024 stefnir á heimsvísu í að verða enn eina ferðina hlýjasta ár frá upphafi mælinga. Í Reykjavík verður árið það kaldasta frá 1995 og á landsvísu trúlega frá því 1998. Hitafarið líkist frekar því sem var hér á árabili sem kallast kalda tímabilið og varði frá um 1965 – 1995. En líklega er þetta fráviksár eitt af mörgum sem verða hér alltaf annað slagið, sem skera sig úr, enda veðráttan hér þekkt fyrir afar mikinn breytileika eins og við þekkjum. Sérstaklega þótti síðari hluti sumars vera kaldur sem og haustmánuðirnir. Í raun athyglisvert og fréttnæmt að í Reykjavík mældist hitinn undir meðallagi átta mánuði í röð, frá maí – des. Þá er miðað við meðaltalið 1991-2020. Úrkoma var hins vegar í meðallagi í Reykjavík, en um 20% meiri en í meðalári á Akureyri. Dálítið misskipt og eigum eftir að fá samanburð fyrir Suðurland og eins Vesturland þar sem ég held að endurteknar stórrigningar í sumar vegi þungt. Mikið vatnsveður á Snæfellsnesi 13.-14 júlí og sólarhringsúrkoma 227 mm. í Grundarfirði og jafnframt met á þeim stað. Svo mikil rigning að sumarlagi heyrir til tíðinda. Í raun má segja að júlímánuður hafi verið sannkallaður rigningarmánuður sunnan- og vestanlands og þannig voru sólskinsstundir í Reykjavík markvert færri en að jafnaði. En gerum upp árið að öðru leyti: Janúar þótti fremur kaldur og umhleypingasamur þegar frá leið. Eins var kalt í febrúar, en talsvert um froststillur. Litlar breytingar í mars, en þá var NA-átt ríkjandi og snjóaði norðan- og austanlands. Dálítið um það að snjóflóð féllu á vegi, en annars var veturinn að mestu laus við mikið óveður eða alvöru vetrarlægðir. Apríl var stilltur, en fremur kaldur og áfram ríkjandi NA- og N-áttir. Sólin skein linnulítið suðvestanlands og með sólríkari aprílmánuðum í Reykjavík. Það voraði vel, svona heilt yfir, eða þar til sló verulega í bakseglin með nokkuð langvinnu norðanhreti sem gekk yfir landið í byrjun mánaðarins. Snjóaði óvenju mikið norðanlands, mældust þannig 43 sm. í Vaglaskógi. Af hlaust fugladauði og tjón fyrir bændur. Eins voru umtalsverðar samgöngutruflanir miðað við árstíma. Sjálfur mat ég það svo að ekki hefði gert jafn slæmt hret á þessum árstíma í trúlega 90 ár og eldri bændur norður í Þingeyjasýslu með gott veðurminni voru sama sinnis. Sumarið þótti frekar slappt og endasleppt. Það gerði góðan kafla austanlands seint í júní og sunnan- og vestanlands náðust ágæt hey áður en lagðist í vætutíð. Aftur koma ágætur kafli í nokkra daga um miðbik júlí og þá komst hitinn í 27,5 stig á Egilsstaðaflugvelli sem jafnframt var hæsti hiti ársins. Fyrir mánaðarmótin lagðist í N-áttir og hófst þá afbrigðilegur veðurkafli sem stóð fram í september. Kalt og úrkomusamt um land allt og með lægsta meðalhita á þessari öld. Hún var einkennileg staða veðurkerfanna sem sást best á því að í ágúst mældist lægsti meðalloftþrýstingur, a.m.k. suðvestanlands, frá upphafi mælinga 1820. Kalda tíðin hélt áfram og september var sá kaldasti á landinu í 19 ár. Áfram var kalt fram á haustið, en tíðin fremur hæglát. Veðrið skipti síðan algerlega um ham snemma í nóvember, þegar gerði tveggja vikna nokkuð óvenjuleg hlýind með nokkuð hvössum sunnanáttum. Voru slegin nóvemberhitamet á fjölda veðurstöðva. Hvergi hlýrra en á Kvískerjum með 23,8 stig. Hæsti hiti sumarsins í Reykjavík var til samanburðar 17,4 stig! Leysingar og vatnavextir fylgdu með grjóthruni og skriðuföllum. Um miðjan mánuðinn snerist síðan aftur í kaldar N-áttir og umskiptin voru mjög glögg. Endaði mánuðinn á því að vera undir hitameðaltalinu um nánast allt land. Desember er ekki liðinn, hann verður enn einn kaldi mánuður ársins. Markverðar voru leysingar með talsverðum vatnavöxtum í kring um 10.des og síðan útsynningurinn um jólin með ófærð á milli landshluta, einkum á þorláksmessu og jóladag. Tónlist í þættinum: Myrkur og mandarínur / Hljómsveitin Eva (Hljómsveitin Eva - Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasardóttir) Nýársmorgunn / Sigurður Guðmundsson(Bragi Valdimar Skúlason) Ding Dong / Kór Langholtskirkju (erl. útsetning Anders Örwall, texti Gunnlaugur V. Snævarr) Á jólunum er gleði og gaman / Eddukórinn (Höf. ókunnur, texti Friðrik G. Þorleifsson)
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, betur þekktur sem Binni í Vinnslustöðinni, og Stefán Einar Stefánsson fara yfir stöðuna. Rætt er meðal annars um hvalveiðar, stöðuna í sjávarútvegi, áhrif loðnubrests, lífið í Eyjum, stöðuna í pólitíkinni, tilraun fjármálaráðherra til að siga löggunni á samkeppnina og svar dómsmálaráðherra við því, menntastefnu sem hefur litlum árangri skilað og margt fleira.
Geðveikin í Eyjum og hrun Mosfellinga var til umræðu í þættinum. Auk þess var sjónvarpsmálin rædd í 100x skipti og ótrúleg endurkoma Fjölnismanna sem eru mættir í Olís-deildina.
Það lá gosmóða og gasmengun yfir höfuðborginni í gær. Gosmóða eða blámóða hefur einkennandi blágráan lit sem myndast er sólarljósið brotnar á ögnum/úða og getur orsakað slen, höfuðverk, ertingu í augum og hálsi auk flensueinkenna. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn eiga að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu. Þeir sem eru síður viðkvæmir geta einnig fundið fyrir einkennum. Ekki er mælt með því að láta ung börn sofa úti í vagni við þessar aðstæður. Við fengum Helga Guðjónsson, verkefnastjóra í einingu vöktunar hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur til að fræða okkur frekar um gasmengun og gosmóðu í dag. Við hringdum svo í Björgu Jónsdóttur, verkefnisstjóra Barnamennigarhátíðarinnar sem stendur nú yfir í Reykjavík. Það er fjölbreytt dagskrá og ókeypis er inn á alla viðburði á dagskránni, en hana er hægt að nálgast á barnamenningarhatid.is Svo er fræddumst við um Vor í Árborg og barnabókahetjur heimsins. En í grunn- og leikskólum Árborgar eru töluð yfir 30 tungumál og á morgun, sumardaginn fyrsta, verður opnuð sýning á Bókasafni Árborgar þar sem verða kynntar barnabækur á öllum þessum tungumálum og sérstaklega söguhetjur úr bókunum sem munu lifna við í skrúðgöngu Skátafélagsins Fossbúa á morgun. Margrét Blöndal, deildarstjóri menningar- og upplýsingadeildar Árborgar kom í þáttinn og sagði frá. Svo fengum við póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni og í korti dagsins voru Vestmannaeyjar til umfjöllunar. Vorið hefur verið blítt hingað til í Eyjum. Magnús segir frá skömmum sem hann fékk þegar hann sagði Helgafellið fegurra en Heimaklett, en Heimaklettur er nánast heilagur í huga eyjamanna. Hann segir líka frá ferðamönnunum sem eru farnir að streyma til Eyja á nýjan leik eftir og allir vilja þeir sjá lundann sem er eins og eyjamenn segja ljúfastur allra fugla. Tónlist í þættinum Ítalskur Calypso / Erla Þorsteinsdóttir (erlent lag, texti Loftur Guðmundsson) Turistens klagan / Cornelis Vreesjwik (Cornelis V.) Allt í gúddí / Ólöf Arnalds (Ólöf Arnalds) Heitt Toddý / Ellen Kristjánsdóttir (erlent lag, texti Friðrik Erlingsson) Things We Said Today / The Beatles (Lennon & McCartney) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Við fræddumst í dag um það hvernig kennararnir Ármann Halldórsson, ensku- og heimspekikennari við Verslunarskólann og dr. Sveinn Guðmundsson, mannfræðingur og jafnréttisfulltrúi við Háskóla Íslands, nýta sér dægurmenningarfyrirbærin Star Trek og Harry Potter í kennslu. Í gegnum þessa söguheima skoða þeir hvernig dægurmenning getur dregið fram umdeild málefni samfélagsins og jafnvel virkað sem breytingarafl þegar kemur að þeim. Þeir Ármann og Sveinn sögðu okkur frá því hvernig söguheimar galdradrengsins og geimferða nýtast þeim í kennslu í þættinum. Svo kynntumst við Delta, Kappa, Gamma, sem er samtök kvenna í fræðslustörfum. Samtökin hafa starfað hér á landi í tæp 50 ár, í þeim eru um 340 konur í alls kyns störfum sem tengjast menntamálum á öllum skólastigum, í ráðuneytum og fleiri stofnunum innan menntageirans. Markmið samtakanna eru m.a. að efla persónulegan og faglegan þroska félagskvenna og styðja hvers konar viðleitni til umbóta í menntamálum. Árný Elíasdóttir, forseti landssambands DKG, og Málfríður Þórarinsdóttir varaforseti, komu í þáttinn í dag og sögðu okkur frekar frá samtökunum og vorráðstefnu þeirra sem fram fer 20. apríl á Hótel Vesturlandi í Borgarnesi. Við fengum svo að lokum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Póstkort dagsins fjallar til að byrja með um veðrið í Eyjum, en þrátt fyrir skaplegt veður að undanförnu flykkjast Eyjamenn til Tenerife, eða Tene eins og þeir kalla eyjuna sér til hægðarauka. Ferðamönnum hefur hins vegar fjölgað svo mikið að heimamönnum þar syðra er farið að ofbjóða og boða til mótmæla. Það ríkir neyðarástand á Tene vegna vatnsskorts. Undir lokin er fjallað aðeins um hina miklu leit að vellíðan og hamingju. Tónlist í þættinum: Hún hring minn ber / Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar og Vilhjálmur Vilhjálmsson (erl.lag - texti Baldur Pálmason) Where Do You Go To My Lovely / Peter Sarstedt (Peter Sarstedt) Goodbye Yellos Brick Road / Elton John (Elton John & Bernie Taupin) Svona er ástin / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson og Jónas Fririk Guðnason) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Farið var yfir sigur Hauka á FH, ÍBV á Aftureldingu og Stjörnunnar á KA og miklu meira til.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom í sitt vikulega veðurspjall og við spjölluðum við hann um andstæður í veðrinu um þessar mundir. Milt í N-Ameríku en fáheyrðar frosthörkur í Finnlandi og Norðurlöndunum og svo hæglátt veður hér á landi. Einar sagði okkur svo frá Norður-Atlantshafssveiflunni (NAO) og hvernig líklegt sé að hún móti veður á Íslandi a.m.k. fram eftir janúar. Við veltum líka fyrir okkur hvernig 2023 kom út hitafarslega á landinu. Við fengum fyrsta póstkort ársins 2024 frá Magnúsi R. Einarssyni. Í því sagði hann frá hátíðahöldum um jól og áramót í Eyjum. Síðan sagði Magnús frá ljósmengun, en hún truflar líkamsklukkuna og eykur líkur á ýmsum sjúkdómum. Hann sagði líka frá París sem er fyrirmynd flestra borga vegna skipulags og borgarlegs lífernis. Í lokin sagði svo af ferðalögum sínum á liðnu ári og þá sérstaklega af þeim níu ferðum sem hann fór til Berlínar í Þýskalandi. Svo að lokum fengum við vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Að þessu sinni fjallaði vinkillinn um að ákveða að það sem maður þarf að gera sé skemmtilegt eins og t.d. áramótauppgjörið eins og það horfir við sjálfstæðum atvinnurekendum. Vinkillinn fjallaði líka um gamalt og nýtt drasl og vandamál sem tengjast gangtruflunum gamalla bensínvéla. Tónlist í þættinum í dag: Sjaddi mollo / South River Band (Ólafur Þórðarsson og Magnús Einarsson) Horfðu á mánann / Haukur Morthens (erlent lag, texti Pálmar Ólason) Tregagleði / Hljómar (Gunnar Þórðarson og Einar Már Guðmundsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, kom á Morgunvaktina og ræddi um stjórnmálaárið sem er að líða. Hann sagði árið hafa einkennst af því að óstöðugleiki hafi snúið aftur í íslensk stjórnmál. Mikil verðbólga og háir vextir, auk erfiðleika í stjórnarsamstarfinu, valdi því. Á næsta ári verða kjarasamningar eitt stærsta viðfangsefni stjórnvalda, auk þess sem líklegt er að orkumál, útlendingamál og sjávarútvegsmál verði stór. Við héldum líka áfram að líta yfir farinn veg í aðdraganda áramóta. Þó jarðhræringar á Reykjanesi hafi verið í brennidepli undanfarið var þess minnst fyrr á árinu að 50 ár voru liðin frá því að gaus í Vestmannaeyjum. Þá ræddum við hér á Morgunvaktinni við Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra í Eyjum, en hún var eins árs þegar fjölskylda hennar, eins og aðrar, þurftu að fara upp á land. Og í síðasta hluta þáttarins rifjuðum við upp viðtal við Ársæl Arnarson prófessor við Háskóla Íslands um húmor. Tónlist: Hljómsveit Ole Höyer, Hallbjörg Bjarnadóttir - Ennþá man ég hvar. Mannakorn - Samferða Mannakorn - Óralangt í burtu Helena Eyjólfsdóttir - Gamla gatan.

Gestir Vikulokanna eru Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði, Páll H. Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta, og Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona og Vestmannaeyingur. Sunna Valgerðardóttir ræðir við þau um hamfarirnar á Suðurnesjum, söguna, túristagosin þrjú og hamfarirnar í Eyjum, mikilvægi sáluhjálpar og hvers vegna Íslendingar eru slakir í forvörnum. Lydía Grétarsdóttir stýrir útsendingu.

Magnea Tómasdóttir söngkona hefur um árabil helgað sig tónlistarstörfum með eldra fólki og fólki sem er með heilabilunarsjúkdóm. Hún kennir námskeiðið Tónlist og heilabilun og býður upp á tónlistarnámskeið í Seiglunni hjá Alzheimersamtökunum og heldur námskeið hjá Mími fyrir starfsfólk hjúkrunarheimila og aðstandendur heilabilaðra um það hvernig hægt er að nota tónlist í umönnun fólks. Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins, kom til okkar í dag og við ræddum við hana um upphrópunarmerkið. Nú á tímum samfélagsmiðla, þar sem fólk skrifar færslur um allt milli himins og jarðar, allt frá því að auglýsa fjáröflun fyrir skólaferð barna sinna til alls þess sem helst brennur á þeim og stærstu hitamála samtímans. Það er mjög áhugavert að skoða mismunandi notkun fólks á upphrópunarmerkinu. Sum nota það óspart, jafnvel mörg í einu, eftir nánast hverja einustu setningu, á meðan önnur nota það talsvert minna og jafnvel ekki. Anna ræddi við okkur um upphrópunarmerkið, merkingu þess, notkun og sögu í þættinum. Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Það hefur verið erfiður tími undanfarið í Eyjum, samgöngur strjálar, ÍBV fallið um deild og veiðibann á lundanum blasir við. Magnús segir frá þessu og æðruleysi eyjaskeggja gagnvart mótlætinu. Hann segir líka frá heimsóknum sínum til Liverpool til að fara á slóðir Bítlanna. Fyrst 1978 og svo aftur 2015. Tónlist í þættinum í dag: Herra Reykjavík / Stuðmenn (Sigurður Bjóla Garðarsson og Valgeir Guðjónsson) Violently Happy / Björk (Björk Guðmundsdóttir & N. Hooper) Þú komst við hjartað í mér / Hjaltalín (Páll Óskar Hjálmtýsson og Toggi) Alelda / Nýdönsk (Daníel Ágúst Haraldsson og Jón Ólafsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Jóhanna Vilhjálmsdóttir fjölmiðlakona er mikil áhugamanneskja um heilsu og hefur um árabil sökkt sér niður í rannsóknir á heilsu og forvörnum gegn sjúkdómum og hún er einnig höfundur tveggja heilsubóka út hafa komið hér á landi undir heitinu Heilsubók Jóhönnu: Eiturefnin og plastið í daglegu lifi okkar og Heilsubók Jóhönnu: Matur, lífsstíll, sjúkdómar. Jóhanna verður hjá okkur annað slagið í vetur og byrjaði í dag. D-vítamín var umræðuefni dagsins. Tónlistarhátíðin Líf og dauði verður haldin í fjórða sinn nú á laugardaginn í Gamla Bíói. Svanlaug Jóhannsdóttir söngkona fer yfir það í tónum og tali hvernig hugmyndir Dags hinna dauðu í Mexíkó gætu nýst okkur til þess að gæða lífið meiri dýpt og gleði.Lifum brosandi til þess að deyja glöð segir fólk í Mexíkó. Þau gleðjast yfir þeim sem á undan hafa farið, fagna lífinu, dauðanum og minnast fólksins síns með litríkri gleði og veisluhöldum. Svanlaug kom í þáttinn í dag. Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og veðrið í Eyjum var Magnúsi hugleikið í þetta sinn. Hann segir frá haustlægðinni sem olli fjögurra daga stormi í liðinni viku. Í framhaldinu segir af vinsælustu dýrlingum kaþólsku kirkjunnar og einnig af vondri spá um loftslagsbreytingar. Í lokin kemur svo aðeins upplífgandi frétt af tilraunum vestan hafs með jarðvarma en þær lofa góðu með framhaldið. Tónlist í þættinum í dag: Þau gengu tvö / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir og Hannes Pétursson) Bráðum vetur / KK (KK) Mexico / Jakob Frímann Magnússon (Jakob Frímann Magnússon) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Kristjana Arngrímsdóttir söngkona og tónlistarkona sem búsett er í Svarfaðardal er búin að gefa út glænýjan geisladisk með 10 frumsömdum lögum, flest samin við ljóð skáldkvenna. Við hittum Kristjönu á kaffihúsi í miðvænum á Akureyri og spjölluðum við hana um tónlistina og heima og geima. Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni og hann kemur víða við í póstkortinu að þessu sinni. Hann byrjar á að tala um veðrið og veðrametin í Eyjum. Því næst talar hann um samgöngur og leggur leið sína til Sviss en þar þykja samgöngur til fyrirmyndar. Svo liggur leiðin til Svalbarða en þar hefur stríðið í Úkraínu haft versandi áhrif á sambúð rússa og norðmanna. Rússar reka þarna kolanámu og eru farnir að sýna norskum yfirvöldum hroka og vanvirðingu. Tónlist: Á sjó/Hljómsveit Ingimars Eydal,Þorvaldur Halldórsson syngur(erl-Ólaf Ragnarsson) Máninn/Kristjana Arngrímsdóttir(Kristjana Arngrímsdóttir-Halla Eyjólfsdóttir) Útþrá/Kristjana Arngrímsdóttir( Kristjana Arngrímsdóttir-Elísabet Geirmundsdóttir?Listakonan í fjörunni?)

Úrslitakeppni neðri hlutans í Bestu er lokið og það er ÍBV sem kveður deildina. Blikar rönkuðu við sér eftir dapurt gengi að undanförnu og eru aftur komnar í Evrópusæti. Framundan eru landsleikir og Meistaradeildarævintýri og það er margt að ræða. Elíza Gígja Ómarsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin með Mist Rúnarsdóttur. Í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.
Við fræddumst í dag um PTMF, sem er nýtt skýringarmódel andlegrar vanlíðunar sem gefur annan valmöguleika en hefðbundin geðgreiningarkerfi. Í því er skoðað samband á milli félagslegra þátta, eins og fátæktar, mismununar og misréttis, ásamt áföllum til þess að lesa í afleiðingarnar. Kristín I. Pálsdóttir frá Rótinni kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá þessari aðferð, en aðalhöfundur PTMF, Lucy Johnstone, verður leiðbeinandi á vinnustofu á vegum Rótarinnar sem verður haldin á morgun á Hótel Grand Reykjavík. Fyrir hartnær tuttugu árum fékk Gréta S. Guðjónsdóttir ljósmyndari hugmynd þegar hún var að kenna 19 ára ungmennum ljósmyndun við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Margir nemenda hennar höfðu sterkar lífsskoðanir sem oftar en ekki gengu gegn viðhorfum eldri kynslóða sem þeim fannst að hefðu engan skilning á þeirra lífi. Rifjaðist það þá upp fyrir Grétu að einmitt svona hefði henni liðið á þessum árum og fór þá að hugsa um hvernig lífið endurtekur sig í sífellu. Á næstu tuttugu árum fylgdi Gréta níu nemendum sínum eftir í myndum, tók reglulega af þeim ljósmyndir og bað þau líka um að skrifa niður hugleiðingar sínar um hvar þau eru stödd í lífinu þá stundina og hvar þau sjá sig eftir fimm ár og tíu ár. Á laugardaginn verður opnuð sýning á þessum verkum Grétu, ljósmyndum og textum, hún kom í þáttinn í dag. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni og í korti dagsins segir Magnús frá uppáhaldsgönguleið sinni í Eyjum, en sú leið geymir dramatíska sögu af ungum manni sem tókst að klífa sextugan hamar í vondu veðri, hamar sem talinn er vera ófær eða í besta falli stórhættulegur. Magnús segir okkur líka frá Luis Rubiales, fyrrum forseta spænska fótboltasambandsins sem varð að segja af sér vegna kossins sem hann þröngvaði á einn leikmann spænska kvennalandsliðsins sem varð heimsmeistari á dögunum. Tónlist í þættinum En hvað með það / Ragnar Bjarnason, Pétur Kristjánsson og Stefán Hilmarsson (C. Mattone og Ómar Ragnarsson) I valet og kvalet / Helena Eriksson (Jan Johansson) (Helena syngur Monika Zetterlund) Come Prima / Haukur Heiðar og hljómsveit (Mario Panzeri, S. Paolo-Tacini og Mary Bond) What He?s Done for Me / The Five Blind Boys of Alabama (Clarence Fountain) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Fótboltakonan og næringafræðingurinn Elísa Viðarsdóttir mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi fótboltamanninum og dönsku kennaranum Rasmus Christiansen.Elísa spilar þessa stundina með Val en sitja þær einmitt í efsta sæti Bestu deildarinnar og virðist fátt benda til þess að það muni eitthvað breytast. Elísa er einnig fastamaður í Íslenska landsliðinu í fótbolta og mikil fyrirmynd. Fyrir utan fótboltann er Elísa næringarfræðingur hjá Heil heilsustofnun og vinnur einnig sem slíkur hjá Feel Iceland svo það er nóg að gera.Rasmus hefur komið víða við á fótbolta ferli sínum hér á landi en hann kom ungur til landsins frá Danmörku og byrjaði að spila fyrir ÍBV. Rasmus var þó lengst af í Val en er hann í dag að vinna hörðum höndum að því að koma Aftureldingu í fyrsta skipti í efstu deild karla á Íslandi. Rasmus starfar einnig sem kennari í Hagaskóla en kennir hann að sjálfsögðu dönsku við skólann.Rasmus og Elísa kynntust fyrst þegar Rasmus var að stíga sín fyrstu skref í boltanum hérna heima, þá í ÍBV, en var Elísa einmitt líka að ryðja sér til rúms í sama liði kvenna meginn enda ættuð úr Eyjum. Þau urðu fljótt miklir vinir og héngu mikið saman, hvort sem það var í kringum boltann eða á rúntinum um bæjinn. Það tók þau þó töluvert langann tíma að festa ráð sitt en voru þau bæði mjög fókuseruð á fótboltann og vildu síður festa sig í einhverju sem gæti skemmt fyrir því. Þau gáfust þó upp þegar þau bjuggu í sitthvoru landinu stuttu seinna og áttuðu sig á því að þau ættu bara að vera par og hafa þau verið saman allar götur síðan og eiga í dag eina dóttur.Í þættinum ræddum við fótboltann, ferilinn, landsliðið, hvernig það er að sameina boltann og fjölskyldu, utanlandsferðir, rómantíkina og vináttuna, ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Elísa lét mömmu sína prjóna á hann ullarpeysu furðu snemma.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Leiklistar Akademían - https://www.sportabler.com/shop/tonlistarfelagarbaejarSmitten - https://smittendating.com/
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net í verslunarmannahelgargírnum laugardaginn 5. ágúst. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas taka púlsinn á fólki um allt land og erlendis líka, skoða umferðina með Palla og ræða um fótbolta. Evrópuleikirnir, Besta deildin, Lengjudeildin, Fótbolti.net bikarinn, enski boltinn og fleira. Arnar Laufdal gefur skýrslu úr brekkunni. Hvaða leikmenn eru í Eyjum? Unnar Ari Hansson, fyrirliði KFA, er á línunni frá Akureyri og Birgir Baldvinsson, leikmaður KA, í beinni frá Belfast.
Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn í Innkasti vikunnar í Thule stúdíóinu. Þorsteinn Haukur kemur með skýrslu úr Vesturbænum. Evrópuleikirnir, 15. umferðin í Bestu og úrvalslið tímabilsins til þessa í Lengjudeildinni. Parken bíður eftir Blikum, KR-ingar sátu í súpunni en unnu samt mikilvægan sigur gegn FH, Kjartan Henry vildi ekki viðurkenningu, gæðaleysi í Árbænum og Eyjum, Stjarnan var miklu betri en Valur, heil umferð í Lengjudeildinni, þjálfaraskipti í Njarðvík og læti í göngunum á Seltjarnarnesi.
Forsætisráðherrar Norðurlandanna og Kanada funda í dag í Vestmannaeyjum. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum tók á móti ráðherrunum við komuna í gær. Við ræddum við hana um fundinn og aðra viðburði sumarsins í Eyjum. Björn Malmquist fréttamaður flutti tíðindi frá Brussel. Hann fór yfir viðbrögð vestrænna leiðtoga við atburðum helgarinnar í Rússlandi og yfirvofandi fundarhöld hjá ráðamönnum í ESB og EFTA. Talsvert hefur verið fjallað undanfarið um málefni fatlaðra barna sem ekki fá inngöngu í framhaldsnám að lokinni skólaskyldu. Salvör Nordal, umboðsmaður barna, var gestur Morgunvaktarinnar og ræddi þetta og vítt og breitt um málefni barna. Tónlist: Yellow Brick Road ? Elton John Don't Let The Sun Go Down On Me - Elton John Góða ferð - BG & Ingibjörg Monday Morning - Melanie Fiona Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni var Matthías Matthíasson söngvari eða Matti Matt eins og hann er oftast kallaður. Matti hefur komið víða við í tónlistarbransanum og var ungur þegar hann steig fyrst fram á svið. Hann var til dæmis meðlimur í eftirfarandi hljómsveitum: Reggea on Ice, Dúndurfréttum, Pöpum o.fl. Hann söng líka öll lögin fyrir íþróttaálfinn í Latabæ, bæði á íslensku og ensku og svo er það hæfileikinn sem hann uppgötvaði ekki fyrr en á fullorðins aldri, að geta farið með heilu setningarnar afturábak nánast án þess að þurfa að hugsa um það. Síðustu misserin hefur hann klárað húsasmíðanám og nú síðast opnað nýstárlega búð sem selur náttúrulegar svefnvörur. Sigurlaug Margrét var stödd í Vestmannaeyjum hvar hún kannaði matarmenninguna sem hún sagði okkur frá í matarspjalli dagsins. Þar er auðvitað að finna dásamlegt ferskt sjávarfang og miklu fleira sem Sigurlaug tæpti á í þættinum. Tónlist í þættinum í dag Út í eyjum / Stuðmenn (Egill Ólafsson og Jakob Frímann Magnússon) A Better day / Matti Matt (Matthías Matthías og Helgi Reynir Jónsson) Í berjamó / Reggea on Ice (Matthías Matthíasson, Stefán Örn Gunnlaugsson og Hrólfur Sæmundsson) It must have been love / Roxette (Per Gessle) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Atli Hrafn Andrason er uppalinn KR-ingur sem farið hefur víða á sínum ferli þrátt fyrir ungan aldur. Atli er 24 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem skrifaði undir hjá HK í desember. Hann varð Íslandsmeistari með 3. flokki KR árið 2014 og samdi við Fulham sumarið 2016. Hann var á Englandi í tvö og hálft ár. Næsta stopp var Víkingur, svo Breiðablik, næst ÍBV og loks HK. Atli lék á sínum tíma 25 leiki fyrir yngri landsliðin. Í spjallinu við Sæbjörn Steinke fór hann yfir ferilinn til þessa. Hann fer yfir tímann hjá Fulham, sumarið 2019 með Víkingi, þjálfarana Óskar Hrafn og Arnar Gunnlaugsson, tímann í Eyjum og ákvörðunina að fara í HK.
Edda Flak eða Edda Falak. Eru Eyjamenn í ruglinu ? Efling hefur engan áhuga á samningum, elska vesen og vilja verkföll. Hvenær ertu í sjálfsfróunarneyð, Lögregludagbókin og Harry Prins er alveg að missa coolið. Þetta og margt annað í þætti vikunar sem er mættur í eyrun á þér, þér að kostnaðarlausu. Góða skemmtun !
Golden Globes - sjónvarps og kvikmyndaverðlaun samtaka erlendra blaðamanna í Hollywood, Hollywood Foreign Press - fóru fram í áttugasta skipti í gær. Í Beverly Hills á Beverly Hilton hótelinu. Nokkrar þakkarræður vöktu mikla athygli og við rýnum í þær. Eyrún Lóa Eiríksdóttir rýnir í sjónvarpsþættina Kaleidoscope sem sýndir eru á Netflix. Við hugum líka að hinu karnívalíska. Það fór eflaust ekki framhjá neinum að þrettándahátíð í Vestmannaeyjum síðastliðinn föstudag rataði í sviðsljósið fyrir umdeild tröllalíkneski sem þar gengu um. Hátíðarhöld tengd þrettándanum eiga sér langa og ríka hefð í Eyjum og lengi hefur það þekkst að skapa ófrýnilegar verur sem tákna þjóðþekktar persónur sem tengjast tíðarandanum, fólk sem gert er stólpagrín að. Við fengum til okkar þjóðfræðing sem segir okkur hvernig þessi hátíð tengist öðrum svokölluðum búninga- og heimsóknarhátíðum og hvernig karnívalið getur hjálpað okkur að setja atburðina í Vestmannaeyjum í skýrara samhengi.

Dominos
Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn í Innkastinu eftir 21. umferð Bestu deildarinnar. KA nálgast Evrópu, Víkingar á flugi, tíu Leiknismenn unnu glataða Valsara, Gummi Magg með tvö í Eyjum, Stjarnan í frjálsu falli og Skagamenn leiddir til slátrunar í Krikanum. Næsta umferð er skoðuð, vangaveltur um þjálfaramál. Er Gamla bandið að mæta aftur? Sverrir Örn kemur með skýrslu úr Keflavík, við heyrum hljóðið í leikmönnum deildarinnar og í lokin er svo Nökkvi Þeyr Þórisson í viðtali frá Belgíu.
Útvarpsþátturinn í verslunarmannahelgargír laugardaginn 30. júli. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir það helsta í íslenska boltanum. Breiðablik og Víkingur í Sambandsdeildinni og félagaskiptaglugginn eru til umræðu. Enska úrvalsdeildin er handan við hornið. Við hverju má búast? Tryggvi Páll ræðir um Man Utd. Arnar Daði í beinni frá Eyjum og Þórir Hákonar fer yfir peningamál og fleira.
Við heyrðum í og sáum Boga Adolfsson formann Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík reglulega í fjölmiðlum í fyrra, þegar gaus í Geldingadölum. Sveitin stóð þá vaktina vikum saman við alls kyns aðstæður svo oft reyndi verulega á. Við slógum á þráðinn til Boga og heyrðum aðeins af stöðunni í dag og verkefnum sveitarinnar. Pétur Markan biskupsritari birti í fyrradag bréf á samfélagsmiðlum sem honum og konu hans barst í pósti fyrir helgi. Bréfið er óundirritað og þau kölluð krípí fólk sem stundar úrkynjaða hegðun, svo eitthvað sé nefnt. Pétur kom til okkar og ræðir bréfið, hatursorðræðu og baráttuna sem hvergi er nærri lokið. Ferðasumarið á Íslandi er að ná hæstu hæðum og nú er mesta ferðahelgi ársins framundan. Neyðarlínan 1-1-2 biðlar til fólks að sýna ábyrgð, halda meðvitund og hafa lítinn öryggivörð á öxlinni á sér. Við fengum Tómas Gíslason aðstoðarframkvæmdastjóra Neyðarlínunnar til okkar í kaffi til að fara yfir þessi mál. Í ár verður tónleikahátíðin Innipúkinn, sem fram fer um verslunarmannahelgi í Reykjavík, 20 ára en hátíðinni hefur verið aflýst með stuttum fyrirvara síðustu tvö ár vegna Covid. Ásgeir Guðmundsson svarar fyrir hátíðina en hann olli titringi hjá Eyjamönnum í gær þegar hann sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að aldrei sé betra að vera í Reykjavík en þegar fíflin eru farin til Eyja. Bæjarstjórinn í Eyjum, Íris Róbertsdóttir, var ekki hrifin af orðavalinu og gerði athugasemd á Facebook síðu sinni. Ásgeir kom til okkar í létt spjall. Hulda brá sér í heimsókn á Árbæjarsafnið þar sem alltaf er nóg um að vera. Sigurlaugur Ingólfsson verkefnastjóri og íbúi á safninu tók á móti henni og sagði henni af viðburðum framundan og hvernig er að búa inni á miðju safni. Tónlist: Una Torfadóttir - En. Jónas Sig - Milda hjartað. John Mayer - Something like Olivia. GDRN - Vorið. Taylor Swift - Style. Flott - Flott. Dua Lipa - Love again. Krassasig - 1-0. Aldous Harding - The barrel. Pink - Irrelevant.

Umsjón: Rúnar Róbertsson og Hulda Geirsdóttir Ásmundur Friðriksson alþingismaður er ekki óvanur að grípa í pennann og nýverið kom út hans nýjasta bók, Strand í gini gígsins þar sem brugðið er upp mynd af mannlífinu í Eyjum á tímum Surtseyjargossins og sagt frá ýmsum svaðilförum er því tengjast. Ásmundur kom til okkar í morgunkaffi og sagði okkur frá bókinni og við spyrjum hann í leiðinni út í árlega Skötumessu að sumri sem hann skipuleggur í júlí til styrktar góðu málefni ásamt því að spyrja hann útí nýjustu vendingar vegna kaupa Síðdarvinnslunar á Vísi í Grindavík. En Ásmundur er þingmaður Suðurkjördæmis. Óskar Hallgrímsson, íbúi í Kænugarði og ljósmyndari, hefur fylgst vel með atburðarrásinni í Úkraínu og fjölmiðlar hringt reglulega í hann. Hann er nú staddur á Íslandi og var í símanum hjá okkur. Hann hefur séð og upplifað margt sem venjulegur íslendingur er ekki vanur að upplifa og sagði okkur frá sinni upplifun. Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 24% undanfarna tólf mánuði en það hækkaði um 3,0% í maí. Síðan þá hefur Seðlabankinn gripið í taumana, ef svo má að orði komast. Dregið hefur úr aðgengi að lánsfé og vextir hafa hækkað. En hvernig stendur fasteignamarkaðurinn núna? T.d. miðað við annars staðar, í löndum sem við berum okkur saman við. Páll Heiðar Pálsson, fasteignasali, kom með greiningu. Við heyrðum vikulegan pistil frá sagnfræðingnum og rithöfundinum Vali Gunnarssyni en hann var í síðustu viku í borginni Lviv en segir nú frá um 10 tíma lestarferðalagi sínu til höfuðborgarinnar Kiev, Kænugarðs. Hann kemur nú til borgarinnar eftir tveggja ára fjarveru. Hvernig hefur hún breyst? Í lok þáttar kom Sævar Helgi Bragason til okkar, eins og hann gerir hálfsmánaðarlega, og fer yfir fréttir úr vísindaheiminum. Í dag er nefnilega stór dagur. Fyrstu myndir frá Webb geimsjónaukanum verða birtar í dag og Sævar Helgi sagði okkur meira af því. Tónlist: Stuðmenn - Popplag í G-dúr Tame impala - Turn up the sunshine Hjaltalín - Stay by you Queen - Somebody to love Dua Lipa & Elton John - Cold heart Sam Ryder - Space man

Þáttur dagsins er stútfullur af glensi og fróðleik. Arnar fékk slæma útreið af internetriddurum eftir umdeilda skoðun sína á Marvel úr síðasta þætti. Hvernig var að vakna þunnur á Íslandi á landnámsárum? Tyrkir drápu og rændu fólki úr Vestmannaeyjum árið 1627 í svokölluðu Tyrkjaráni - Er hægt að líkja því geimveru innrás í dag? Svo að lokum fær Aron milljarð dollara viðskiptahugmynd sem hann sér eftir að hafa sagt frá. Þetta og meira til þennan sunnudaginn.
Innkastið gerir upp 6. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke í hljóðverinu á Krókhálsi. Blikar með fullt hús, allt aðrir Víkingar en í fyrra, KA dansar í takt, Silfurskeiðin vaknar, Valsmenn í vandræðum með að finna taktinn, KR byrjað að safna stigum, Framarar unnu sinn fyrsta leik, fallfnykur í Breiðholti og Eyjum, Lengjudeildarhornið, Rauði baróninn gefur ráð og fleira.
Í Hismi vikunnar förum við yfir atlögu að virðingu Alþingis, prófkjör í Eyjum þar sem Hismið lýsir í fyrsta sinn opinberlega yfir stuðningi við frambjóðenda, söluna á Íslandsbanka og stöðuna í Úkraínu. Þá fara umsjónarmenn yfir umdeildar myndir sem birtust af þeim á Smartlandinu í vikunni.
“Gísli, hvað ertu að gera í Eyjum þegar þú getur komið til Reykjavíkur og orðið ríkur.” - "Ég er í Vestmannaeyjum, þetta er einn af fallugustu stöðum í heimi. Ég er með veitingastað þar sem get gert hvað sem ég vil. Ég á 4 börn og konu sem ég elska út af lífinu... ég held ég gæti bara ekki verið ríkari. Þó svo að Slippurinn sé ekki að skila einhverjum peningum þá bara skiptir það ekki máli - hvað vill maður gera við peninga?" Gísli Matthías fór á sjóinn til þess að átta sig á því að hann langaði aldrei þangað aftur. Hann vann við framkvæmdir á veitingastað þegar einn daginn mætti ekki uppvaskari. Gísli hljóp í hans skarð og fann sig allt í einu á 16 tíma kokkavöktum, takandi fyrstu skrefin í áttina að því að verða einn besti kokkur landsins. Hann opnaði Slippinn, veitingastað í Vestmannaeyjum, á sumrin og safnaði sér pening sem hann eyddi svo á veturna til að læra af bestu kokkum heims á þriggja Michelinstjörnu veitingastöðum í New York og elda fyrir milljarðarmæringa í skíðaskálum.