POPULARITY
Rannsókn héraðssaksóknara á samkeppnislagabrotum fjögurra starfsmanna Samskipa og Eimskips var hætt í desember þar sem of langt hlé hafði verið gert á rannsókninni og hún taldist því fyrnd. Fjórir voru með réttarstöðu sakbornings í nærri sjö ár. Héraðssaksóknari og Samkeppniseftirlitið ætla að ræða stöðuna við dómsmálaráðherra. Formaður Neytendasamtakana segir samkeppnislagabrot hafa lítinn fælingarmátt ef engin sætir ábyrgð. Freyr Gígja Gunnarsson rýndi í málið og ræddi við Ólaf Þór Hauksson og Breka Karlsson. Sveitarstjórnir víða um land hafa lýst efasemdum um þær breytingar sem ríkisstjórnin hefur boðað á strandveiðum svo tryggja megi 48 daga samfellda vertíð. Ekki hafi verið sýnt fram á hvert eigi að sækja veiðiheimildir fyrir aukna strandveiði. Það megi ekki skerða kvóta til annarra útgerða. Ágúst Ólafsson fjallar um þetta og ræðir við Gylfa Ólafsson og Jón Björn Hákonarson. Í dag lýkur alþjóðlegri, tveggja daga ráðstefnu í Jerúsalem, um gyðingahatur og hvernig skuli takast á við það. Ráðstefnan er haldin á vegum ráðuneytis um málefni gyðinga utan Ísraels og baráttu gegn gyðingahatri, undir yfirskriftinni: Hver eru helstu öflin á bak við gyðingahatur nútímans? Umræðuefnið er aðkallandi, því andúð og hatur í garð gyðinga hefur sannarlega farið vaxandi í hinum vestræna heimi undanfarin misseri. Þátttaka fjölda evrópskra öfga-hægrimanna hefur hins vegar vakið mikla gagnrýni og margir hættu við þátttöku. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 22. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hlutanum er farið yfir fréttir vikunnar, dramatíkina alla í kringum skipti Gylfa yfir til Víkings og Evrópuleik Víkings gegn Panathinaikos. Í seinni hlutanum mætir Þórir Hákonarson, bæjarstjóri og sérfræðingur um fótboltapólitíkina, í tilefni af ársþingi KSÍ.
Það voru risastór tíðindi í íslenskum fótbolta í dag þar sem Gylfi Þór Sigurðsson skipti frá Val í Víking. Kaupverðið er um 20 milljónir króna. Víkingur og Breiðablik lögðu fram tilboð í Gylfa sem voru samþykkt, en Víkingur hafði betur í baráttunni. Það myndaðist ákveðin drasmatík í kringum þessi skipti en formaður Vals hefur sakað Gylfa um vanvirðingu gagnvart liðsfélögum sínum og félaginu. Þessar fréttir auka spenninginn fyrir Bestu deildina sem hefst í byrjun apríl. Guðmundur Aðalsteinn, Valur Gunnarsson og Víkingurinn Tómas Guðmundsson fóru yfir þessar risastóru fréttir í stuttu hlaðvarpi í dag en hægt er að hlusta á það í spilaranum hér að ofan og í hlaðvarpsveitum.
Tómas Þór og Benedikt Bóas sigla flaggskipinu á X977 þessa vikuna. Farið er yfir fréttir vikunnar, þar á meðal umræðuna um Gylfa. Sögulegur sigur Víkings gegn Panathinaikos í Helsinki er auðvitað gerður upp. Þá mætir Sigurður Ragnar Eyjólfsson og ræðir um stöðu ungra íslenskra leikmanna og notkun á þeim.
Doc, Jói Már og Tómas Guðmundsson Víkingur mættu til Dr. Football.
Aron Jóhannsson, leikmaður Vals, settist niður með Baldvini Má Borgarssyni, fréttamanni Fótbolta.net, eftir tap Valsmanna gegn ÍA í Lengjubikarnum í gær. Í spjallinu fór Aron aðeins yfir leikinn, komu Gylfa Þórs Sigurðssonar til félagsins, nýjan samning sinn á Hlíðarenda og Cole Campbell sem ákvað nýverið að spila fyrir bandaríska landsliðið.
Dominos
Söngvarinn og trommarinn Ari Jónsson syngur íslensk dægurlög í þættinum. Hann lögin Tifar tímans hjól, Ég skemmti mér og Þegar sólin sest eftir Geirmund Valtýsson, Ég man það vel eftir Karl B. Örvarsson, Mánadísin eftir Jón Jónsson frá Hvanná, Þú ert vagga mín haf eftir Tólfta september, Ég er á leiðinni eftir Magnús Eiríksson, Ég hvísla yfir hafið og Kátur ég geng eftir Gylfa Ægisson og Á hundrað eftir Jóhann G. Jóhannsson. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Gylfi Þór Sigurðsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Val og ætlar sér að verða Íslandsmeistari með liðinu. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke ræða þessar fréttir í sérstökum hlaðvarpsþætti sem tekinn var upp í ljósi þessara risatíðinda. Þá ræðir Sæbjörn við Börk Edvardsson formann Vals um komu Gylfa.
Eru til 12 lítrar af vatni á hvern heimilismeðlim, þurrmatur, hleðslubanki, prímus. Hér á landi er lagt upp með að fólk geti bjargað sér í þrjá daga ef neyðarástand skapast og innviðir bresta, til dæmis vegna náttúruhamfara. Við ætlum að ræða viðlagakassann við Gylfa Þór Þorsteinsson, teymisstjóra hjá Rauða krossinum, ekki síst í ljósi yfirstandandi hamfara á Reykjanesskaganum. Trukkaveitan - hvað er nú það? Hrefna Hallgrímsdóttir forstöðumaður hitaveitu hjá Veitum ræðir þetta við okkur. 1800 tonn af heitu vatni á 10 tankbílum sem fóru um 140 ferðir með fulla tanka af 80 gráðu heitu vatni koma við sögu og úrræðagóðir veitustarfsmenn. Í dag er sprengidagur og eflaust margir hlustendur saddir og sælir eftir hádegismatinn. Við ætlum í tilefni dagsins að rifja upp viðtal frá árinu 2010 þar sem rætt var við Árna Björnsson, þjóðháttafræðing, um sprengidag, saltkjöt og baunir fyrir Síðdegisútvarpið á Rás 2. Við fáum svo pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi í lok þáttar.
Það eru núna ellefu ár síðan Bose-mótið var stofnað en mótið hefur verið fastur liður af undirbúningstímabilinu hér á Íslandi síðan. Fótboltaþjálfarinn Ágúst Gylfason á stóran þátt í mótinu en hann kom á skrifstofu Fótbolta.net í dag þar sem hann ræddi um stofnun mótsins og þróun þess. Framundan er stórleikur þar sem erkifjendurnir Breiðablik og Víkingur eigast við í úrslitaleik. Leikurinn fer fram annað kvöld á Kópavogsvelli. Í seinni hluta þáttarins ræddi Gústi um viðskilnaðinn við Stjörnuna og sína framtíð. Umsjónarmaður þáttarins er Sæbjörn Steinke.
Ávextir og grænmeti, rosleg kvikmynd og undarlegt upphaf er meðal þess sem rætt er í þættinum.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 14. október. Umsjónarmenn: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur er Hannes Þór Halldórsson fyrrum landsliðsmarkvörður. Landsleikur Íslands og Lúxemborgar er gerður upp, rætt um endurkomu Gylfa og einkunnagjöf leikmanna skoðuð. Hannes ræðir um landsliðið og nýja sjónvarpsþætti um ÍA sem fara af stað á mánudaginn. Rætt er um íslenskt slúður og þjálfarakapalinn. Jörgen Freyr Ólafsson er í beinni frá Haugesundi.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikkonan, grínarinn og ísbúðareigandinn Anna Svava Knútsdóttir. Hún hefur leikið í fjölda kvikmynda- og sjónvarpsverkefna, t.d. gamanþáttunum Ligelglad, Verbúðinni og fjölda áramótaskaupa. Hún hefur verið talsvert mikið í uppistandi og stofnaði svo og rekur ísbúðina Valdísi ásamt manni sínum, Gylfa Þór Valdimarssyni. Við fórum með henni aftur í tímann, forvitnuðumst um æskuna og uppvaxtarárin í Fossvoginum, grínið, ísbúðina og ferðalagið í gegnum lífið til dagsins í dag. Svo var auðvitað matarspjallið á sínum stað, eða í dag hefði kannski frekar átt að kalla það nammispjallið. Því við hófum umræðu um nammi í síðustu viku sem við náðum bara rétt að snerta yfirborðið á. Við komumst reyndar ekki nálægt því að tæma umræðuna um nammi í dag, en við gerðum að minnsta kosti tilraun til þess. Tónlist í þættinum í dag: Nú er ég léttur / Geirmundur Valtýsson (Geirmundur Valtýsson) Let Go Of Your Plans / Lukas Nelson and Promise of the Real & Madison Ryann Ward (Lukas Nelson) You Can?t Hurry Love / Phil Collins (Brian Holland, Eddie Holland & Lamont Dozier) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Albert Ingason og Laufdal mættu í Tíuna og ræddu allan boltann
Sunna Valgerðardóttir ræðir við Höllu Signýju Kristjánsdóttur, varaformann þingflokks Framsóknarflokks, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, þingmann Viðreisnar og fyrrverandi saksóknara, og Eyþór Arnalds, fyrrverandi oddvita Sjálfstæðisflokks í Reykjavík og Árborg. Niðurfelling rannsóknar bresku lögreglunnar á máli Gylfa Þórs Sigurðssonar, riðan, sveitarstjórnarmálin og vandræðagangurinn hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga eru í brennidepli. Tæknimaður þáttarins er Jón Þór Helgason.

Hrafnhildur Halldórsdóttir ræðir við Gylfa Ólafsson forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Umsjón: Hrafnhildur Halldórsdóttir.

Samfélagið heimsækir húsnæði Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða hér á Ísafirði og ætla á eftir að spjalla við Gylfa Ólafsson forstjóra þeirrar góðu stofnunar um starfið , áskoranir fyrir heilbrigðisþjónustu utan höfuðborgarsvæðisins og ýmislegt fleira. Við ætlum svo að kíkja í ráðhúsið á Akureyri, hitta fyrir matreiðslumeistarann Svein Thorarensen sem ræður öllu í mötuneytinu þar, Sveinn hefur tileinkað sér í störfum sínum ýmsar leiðir til að berjast gegn matarsóun - og þetta hefur gengið vel, það er ekki mikið sem fellur til eða fer til spillist hjá okkar manni - við fáum að vita hvernig hann fer að Svo er það Sesselja Ingibjörg Barðdal, hún er framkvæmdastjóri hjá afar athyglisverðu verkefni sem heitir Eimur - og snýst um bætta nýtingu orkuauðlinda, sjálfbærni og nýsköpun í orkumálum á norðausturlandi. Við röltum með henni um miðbæinn á Akureyri og ræðum um tækifæri og áskoranir. Svo er málfarsmínútan á sínum stað

Þjálfarinn og heilsusérfræðingurinn Rafn Franklín Hrafnsson mætti til mín ásamt sínum betri helmingi, þjálfaranum og markaðsdrottningunni Kareni Ósk Gylfadóttur í mjög áhugavert og skemmtilegt spjall.Rafn var nánast alinn upp í innan veggja líkamsræktarinnar og hefur áhugi hans á hreyfingu og heilsu verið ríkjandi allt frá barnæsku en í dag er hann starfandi þjálfari, næringarráðgjafi og fyrirlesari ásamt því að halda úti hlaðvarpinu 360°heilsa og hefur hann einnig gefið út bókina Borðum betur.Karen er einnig þjálfari en kennir hún hóptíma í Hreyfingu ásamt því að stýra markaðsteymi Lyfju en var hún áður markaðsstjóri Nova.Saman halda þau úti námskeiðinu Heilsubyltingin í Hreyfingu sem fór af stað í byrjun janúar og komust færri að en vildu.Það kemur því kannski fæstum á óvart að þau hittust einmitt fyrst í Hreyfingu en var Rafn alltaf niðursokkin í bækur svo Karen spáði ekkert mikið í honum þá. Það var ekki fyrr en nokkru seinna á staffa djammi í Danmörku að hjólin fóru að snúast en sneru þau ansi hægt þar sem aldursmunurinn var eitthvað að trufla Kareni. Þegar hún hætti að láta það trufla sig gerðust hlutirnir þó hratt og örugglega og hafa verið saman síðan og eiga þau í dag tvö börn saman.Í þættinum ræddum við meðal annars um heilsuna og hvernig er best að viðhalda heilsusamlegum lífsstíl, íþrótta bakgrunninn, hreyfingu, rómantíkina, fjölskyldulífið og margt fleira, ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar hrotur Rafns héldu vöku fyrir Kareni.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Meðal um 500 líka, sem fundist hafa í fjöldagröfum við úkraínsku borgina Izyum, eru líkamsleifar fólks sem grafið var með hendur bundnar fyrir aftan bak og jafnvel með snöru um hálsinn. Oddur Þórðarson sagði frá. Svo gæti farið að opna þurfi fjöldahjálparstöð fyrir flóttamenn ef ekki finnst húsnæði handa þeim öllum. Aðgerðastjóri segir róið öllum árum að því að koma í veg fyrir slíka stöðu. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir talaði við Gylfa Þór Þorsteinsson. 16 sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna innflutnings á fíkniefnum í gegnum flugstöð Leifs Eiríkssonar. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að efla þurfi eftirlit með fíkniefnainnflutningi til muna. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir talaði við Úlfar Lúðvíksson. Ferðaþjónusta í Grímsey býr við óvissu vegna útboðs á rekstri ferjunnar sem gengur milli lands og eyjar. Ekki er hægt að bóka ferðir lengra en fram í apríl. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við G. Pétur Matthíasson. ------------------------------------------------------------------------------------- Þörf er á fjölbreyttum lausnum til að efla íslenskukennslu fyrir útlendinga, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann er ekki sannfærður um ágæti þess að setja íslenskukennslu á vinnutíma inn í kjarasamninga heldur treystir fremur á nýsköpun og segir máltækni tilvalinn vettvang fyrir frumkvöðla. Það sé verkefni alls samfélagsins að tryggja að fólk sem flytur til landsins geti aðlagast samfélaginu. Alexander Kristjánsson talaði við Halldór Benjamín Þorbergsson. Psilocybin, virka efnið í ofskynjunarsveppum, gæti staðið fólki með meðferðarþrátt þunglyndi til boða innan örfárra ára. Þetta segir prófessor í geðlækningum. Fjöldi rannsókna gefur tilefni til að binda vonir við virkni þess gegn meðferðarþráu þunglyndi. Það er þunglyndi sem svarar illa meðferð. Talið er að 15-30 prósent þeirra sem glíma við þunglyndi svari illa meðferð. Hafdís Helga Helgadóttir tók saman og ræddi við Engilbert Sigurðsson, prófessor í geðlækningum, og Árný Jóhannesdóttur, sérnámslæknir í geðlækningum,

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn eru Arnar Laufdal Arnarsson og Kristinn Helgi Jónsson. Eftir langt sumarfrí þáttarins fjalla drengirnir um Mathys Tel (2005 / Bayern Munchen) sem var nýlega keyptur frá Rennes á 20 milljónir evra, sem og Charlie McNiell (2003 / Man Utd) sem á yfir 600 mörk fyrir yngri lið Man City og Man United. Ísak Andri Sigurgeirsson og Guðmundur Baldvin Nökkvason tveir af mörgum Ungstirnum í Garðabæ eru gestir að þessu sinni en þar er talað um áhuga erlendis, hvernig tímabilið hefur verið að ganga, Gústi Gylfa alltaf léttur og spurningar frá hlustendum sem og margt fleira.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Feðgar sluppu ómeiddir þegar skotið var á bíl sem þeir voru í við leikskóla í Hafnarfirði í morgun. Karlmaður á sjötugsaldri var handtekinn grunaður um að hafa skotið þar á tvo bíla. Ásta Hlín Magnúsdóttir tók saman, rætt við íbúa; Berglindi Bjarneyju Ásgeirsdóttur og Sigurlaugu Jakobínu Vilhjálmsdóttur. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra furðar sig á að aðeins þrjár umsóknir hafi borist um stöðu dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Hún vonar að fleiri umsóknir berist um stöðuna nú þegar auglýst er að nýju. Urður Örlygsdóttir ræddi við Katrínu. Hátt í nítján hundrað flóttamenn hafa komið til landsins það sem af er ári og hafa aldrei verið fleiri. Nærri tveir þriðju þeirra eru frá Úkraínu. Rebekka Líf Ingadóttir tók saman og talaði við Gylfa Þór Þorsteinsson, aðgerðastjóra vegna komu flóttamanna frá Úkraínu. Þrír ráðherrar í ríkisstjórn Emmanuels Macron hafa verið sakaðir um kynferðisbrot. Ráðherra þróunaraðstoðar er sakaður um að hafa beitt tvo skjólstæðinga ofbeldi þegar hann starfaði sem læknir. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá. Laun áheyrnarfulltrúa í nefndum og ráðum Akureyrarbæjar voru hundrað milljónir á síðasta kjörtímabili, það finnst Hlyni Jóhannssyni (M) bæjarfulltrúa meirihlutans of mikið. Anna Þorbjörg Jónasdóttir talaði við Hlyn og Sunnu Hlín Jóhannsdóttur, bæjarfulltrúa (B). -------- Stýrivextir voru enn hækkaðir í morgun í sjöunda sinn á rúmu ári til að reyna að hemja verðbólgu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Jón Þór Sturluson, hagfræðing og deildarstjóra Viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Þórunn Wolfram, doktor í umhverfisfræðum segir að beita þurfi aðferðum móður jarðar til að hjálpa íslenskri náttúru að græða sig sjálf. Lúpínan sé komin til að vera en of mikill asi hafi einkennt sáningu hennar til að byrja með. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við Þórunni um áhrif lúpínu á náttúruna.

Þýska fjármálaeftirlitið gerði í síðasta mánuði húsleit hjá Deutsche bank vegna gruns um grænþvott - þ.e. að fullyrðingar dótturfyrirtækis bankans um sjálfbærar og umhverfisvænar fjárfestingar stæðust ekki skoðun. Við ræddum þetta áhugaverða mál og um grænþvott í fjárfestingum almennt við Evu Margréti Ævarsdóttur, lögmann og ráðgjafa í sjálfbærni. Fréttablaðið ræddi í gær við íbúa við Óðinsgötu í Reykjavík sem sögðu ástand við hús númer 14a og 14b við götuna óviðunandi. Húsin, sem hafa verið umsjónarlaus í um fjögur ár, hafa verið í algjörri niðurníðslu og íbúar gagnrýna að ekkert hefði verið aðhafst. Við ræddum við Gylfa Ástbjartsson hjá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, um hvað sveitarfélög geta - og hafa - gert til að koma í veg fyrir að eigendur húsa láti þau standa auð og grotna niður. Bændasamtökin hafa áhyggjur af því að aukinn innflutningur á landbúnaðarvörum frá Úkraínu geti haft neikvæð áhrif á íslenska bændur, í ljósi erfiðrar stöðu í íslenskum landbúnaði sökum gríðarlega hækkana á aðföngum. Þetta kemur fram í umsögn samtakanna við frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra, sem fjallar um niðurfellingu tolla á vörur sem eru upprunnar í Úkraínu. Við ræddum við Gunnar Þorgeirsson, formann Bændasamtaka Íslands, um viðhorf þeirra til málsins. Við tókum forskot á sæluna í ljósi þess að á morgun, föstudag, er 17. júní - og kryfjum fréttir vikunnar með góðum gestum í dag. Að þessu sinni komu til okkar þau Karen Kjartansdóttir og Óttarr Proppé. Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands ákvað í gær að lækka veðsetningarhlutfall fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur. Við ræddum við Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóra, sem segir tilganginn vera að bregðast við hækkandi fasteignaverði og mikilli skuldsetningu ungs fólks. Tónlist: Love from 99 - Hjaltalín Warning Signs - Band of Horses Getting started - Sam Fender Ingileif - Snorri Helgason Embarrassment - Madness A Driver Saved My Night - Sigrid

Gylfi Þór Þorsteinnsson aðgerðarstjóri fyrir móttöku flóttafólks frá Úkraínu: Heimsókn í móttökumiðstöð flóttafólks í Reykjavík. Rætt við Gylfa um bresti, áskoranir og vandamál sem hafa komið upp við móttökuna sem og ávinning og gengi. Nýsköpunarsamfélagið á Íslandi er í hraðri þróun og hinir ýmsu klasar hafa verið settir á laggirnar. Fyrir tæpum fjórum árum bættist Fjártækniklasinn í hópinn. Spjallað við Gunnlaug Jónsson, framkvæmdastjóra Fjártækniklasans og fræðst um fjártækni og starfsemi klasans. Anna Sigríður Þráinsdóttir í málfarsspjalli um unglingamál, eðli þess og réttmæti.

Þrjár kærur bárust úrskurðarnefnd vegna nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga. Úrskurðarnefnd kosningamála hefur synjað tveimur þeirra og vísað einni frá. Alma Ómarsdóttir sagði frá. Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn sendi teymi til Úkraínu í dag til að rannsaka meinta stríðsglæpi Rússa. Teymið er það fjölmennasta í sögu dómsins. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá. Þingmaður breska Íhaldsflokksins hefur verið handtekinn vegna gruns um kynferðisbrot sem hafa verið til rannsóknar frá því í janúar 2020. Leggja þarf í mikinn kostnað á Seyðisfirði við að koma húshitunarmálum þar í lag eftir að RARIK lokar fjarvarmaveitu staðarins. Engin ódýr lausn virðist í sjónmáli og stefnir í að hitunarkostnaður heimila og fyrirtækja eigi eftir að stóraukast. Rúnar Snær Reynisson sagði frá. Lengri umfjöllun: Finnar og Svíar standa á sögulegum krossgötum og sækja nú um aðild að Atlantshafsbandalaginu eftir að hlutleysi hefur verið kjarninn í utanríkisstefnu beggja ríkja um langa hríð. Formlegri umsókn beggja ríkja um aðild verður skilað á morgun. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Baldur Þórhallson um málið. Þúsund flóttamenn hafa komið hingað frá Úkraínu það sem af er ári. Stærsta áskorunin virðist vera að útvega húsnæði fyrir fólkið. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Gylfa Þór Þorsteinsson og Svein Rúnar Sigurðsson um það.

Við kynnum okkur staði og hefðir sem eiga sér langa sögu, en þó mjög mislangar. Á dögunum var tilkynnt að fjarlægja bæri hús Bifreiðastöðvar Oddeyrar á Akureyri sem á sér 60 ára sögu. Við hittum Margréti Imsland, framkvæmdastjóra BSO. Þá höldum við í reykhús á Skútustöðum við Mývatn en það er áratuga hefð að reykja Mývatnssilung. Ágúst Ólafsson hitti Gylfa bónda á Skútustöðum. Og að lokum stökkvum við aftur í tímann og kynnum okkur skipulagsmál fyrir þúsund árum og heyrum af kenningum Páls Pálssonar frá Aðalbóli í Hrafnkelsdal. Efni í þáttinn unnu Óðinn Svan Óðinsson, Ágúst Ólafsson og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Halla Ólafsdóttir.

Aron og Gunni hittust og ræddu síðustu umferðir í Fantasy og stemminguna í kringum leikinn þessa dagana, en hlutirnir ganga nokkuð erfiðlega. Meðal efnis í þættinum: - Reece James og brotin loforð - Á að selja Tottenham menn? - Á að Free Hitta í umferð 36 eða 37? - Hvað er að frétta af Gylfa? - Verða róteringar hjá Liverpool?P.S. eftir að þátturinn var tekinn upp kom í ljós að leikur Wolves og Man City verður í umferð 36 og því eiga þau lið bæði tvöfalda umferð þá.
Spegillinn 1. apríl 2022 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Rauði krossinn frestaði í dag að bjarga fólki úr umsetnu hafnarborginni Mariupol. Ekki tókst að komast til borgarinnar enda öryggi ekki nægilega tryggt. Heilbrigðisráðherra hefur endurvakið starfshóp um öryggi sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks. Starfsfólk fæðingarþjónustu Landspítala ætlar að læra af frásögnum kvenna sem í vikunni hafa lýst mistökum í heilbrigðiskerfinu. Varnir sjóleiða og mikilvægra öryggisinnviða við Ísland verða æfðar næstu tvær vikur. Varnaræfingin Norður Víkingur hefst á morgun með þátttöku ríflega 700 manns frá fimm NATÓ ríkjum Rússneskar steikur, pizzuberar og heimsendingar á hestbaki vöktu athygli landsmanna í dag, fyrsta apríl. Ætla má að allnokkrir Íslendingar hafi hlaupið apríl. Eftir langvinna og mannskæða borgarastyrjöld hafa stríðandi fylkingar í Jemen sammælst um vopnahlé að undirlagi Sameinuðu þjóðanna. Lengri umfjöllun: Nú eru um 560 flóttamenn frá Úkraínu komnir hingað til lands. Rúmlega 300 manns eru hér í leit að skjóli frá öðrum löndum. Það gengur nokkuð vel að finna þessu fólki dvalarstað hér á landi, en um 1.800 íbúðir hafa verið boðnar fram til skamms tíma og um 200 til lengri tíma. Bólusetningastaða í Úkraínu er allt önnur en hér á landi, ekki aðeins gagnvart covid-19, heldur einnig gagnvart öðrum smitsjúkdómum eins og berklum. Nokkuð minna er af börnum í hópi flóttamanna en áætlanir gerðu ráð fyrir. Af 560 manns eru þau um 150, en þeim sem koma þarf að koma í skóla. Þar þarf að mæta börnunum þar sem þau eru, og bjóða þeim nám við hæfi. Nú þegar hafa um 26 sveitarfélög veitt vilyrði fyrir að taka á móti fólki á næstu vikum. Á mánudaginn verður móttökumiðstöð fyrir flóttafólk í Domus medica við Snorrabraut í Reykjavík tekin í notkun. Þar á fólk að geta skráð sig og fengið dvalarleyfi og önnur réttindi. Bjarni Rúnarsson ræddi í dag við Gylfa Þór Þorsteinsson, aðgerðastjóra yfir móttöku flóttafólks um gang móttökunnar. Blaðamannadagurinn er í dag. Fjölmiðlar margir hverjir opnuðu dyr fyrir almenningi og kynntu starfsemi sína. Nú stendur yfir athöfn þar sem Blaðamannaverðlaunin fyrir 2021 eru afhent. Kristján Sigurjónsson ræðir við Friðrik Þór Guðmundsson, margreindan blaðamann og stundakennara í blaða og fréttamennsku við Háskóla Íslands.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 12. mars. Umsjón: Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson. Gestir: Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Leiknis og Ágúst Gylfason þjálfari Stjörnunnar. Rætt um Bestu deildina og fótboltafréttir vikunnar, bæði hér heima og erlendis.
Umsjón: Rúnar Róbertsson og Drífa Viðarsdóttir. Svifstígar eða svífandi göngustígar, er ekki bara atriði í vísindaskáldskáldsögu eða Sci-fi bíómynd, heldur erum við að tala um nýja lausn fyrir viðkvæmt landslag þar sem þörf er á góðu aðgengi. Hönnunin er íslensk, unnin af Alternance - arkitektúr og skipulag, og kallast verkefnið Hovering Trails. Stígarnir eru komnir í notkun í Hveradölum við Hengil. En er þetta bráðabirgðalausn eða lausn til framtíðar? Við hringdum í Steinunni Baldursdóttur, kynningarfulltrúa Hovering Trails, sem sagði okkur betur frá þessu. Druslugangan verður gengin í tíunda skiptið þann 24. júlí nk. Druslugangan er samstöðuganga með þolendum kynferðisofbeldis og vopn gegn þöggun, skömm og ofbeldi. Við fengum Evu Sigurðardóttur úr skipalagsteyminu til okkar. Sóttvarnarhús eru farin að fyllast á nýjan leik. Bólusett fólk er að smitast, misalvarlega þó því sumir finna ekkert fyrir smitinu. Við fengum til okkar Gylfa Þór Þorsteinsson forstöðumann Sóttvarnarhúsa Rauða krossins til að fara yfir stöðuna þar með okkur. Sérstaklega núna eftir helgina þar sem bara í gær, sunnudag, komu 48 flug til landsins. Og í lok þáttar kom Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður og fór yfir íþróttir helgarinnar með okkur. Tónlist: Grafík - Prinsessan Emilíana Torrini - Perlur og svín Á móti Sól - Þetta þokast GDRN - Vorið Lorde - Solar power Kaleo - Hey gringo Bjarni Arason - Þegar sólin sýnir lit U2 - I still haven't found what I'm looking for Gabríel, Opee og Unnsteinn Manúel - Sólskin Bjartmar og Bergrisarnir - Á ekki eitt einasta orð Sálin hans Jóns míns - Fyrir utan gluggan þinn
Ákvörðunartæki Krabbameinsfélagsins er fjölþætt og gagnvirkt tæki sem hjálpar körlum að skilja og meta þörf á krabbameinsskimun miðað við aldur, fjölskyldusögu og lífsmynstur. Tækið er unnið af sérfræðingum Krabbameinsfélagsins í forvörnum og fræðslu og þar hefur Sigrún Elva Einarsdóttir, lýðheilsufræðingur, komið að. Hún kíkti til okkar og sagði okkur betur af ákvörðunartækinu og hvernig hægt er að nýta það. Við heyrðum í Ómari R. Valdimarssyni, lögmanni eins þeirra sem kærðu til héraðsdóms vistunina í sóttvarnarhúsi eftir heimkomu til landsins. Héraðsdómur kvað upp úrskurð sinn í gær varðandi þær kærur sem þangað bárust og var niðurstaðan sú að stjórnvöld máttu ekki skikka fólkið í sóttvarnarhús ef þau gætu farið í sóttkví heima hjá sér. Ekki var uppi ágreiningur um að fólkið þyrfti að fara í sóttkví. Reykjanesið hefur verið í sviðsljósinu undanfarnar vikur og mánuði eftir jarðhræringar og svo eldgos. Skömmu áður hafði Reykjanes UNESCO Global Geopark gefið út veglega bók um svæðið þar sem finna má fjölda ljósmynda af einstökum Reykjanesskaganum og tilvísanir í menningu og sögu þessa landshluta sem kalla má hliðið inn í landið. Þráinn Kolbeinsson ljósmyndari tók myndirnar í bókinni og þekkir svæðið vel, enda búsettur í Grindavík um tíma, og við heyrðum aðeins í honum áður en hann lagði í verkefni dagsins. Og við spáðum meira í Reykjanesskagann og eldsumbrotin þar, en eins og allir vita væntanlega opnuðust þar tvær nýjar sprungur í gær. Við fengum Halldór Geirsson jarðeðlisfræðing til að spá í spilin með okkur og fara yfir þessa nýju stöðu. Við spjölluðum líka við Sævar Helga Bragason sem ræddi drónaflug á Mars í Vísindahorni vikunnar. Það hefur mætt mikið á Gylfa Þór Þorsteinssyni, umsjónarmanni sóttvarnarhúsa, og starfsfólki hans hjá Rauða krossinum. Við hringdum í Gylfa og spurðum hvernig gekk um páskahelgina. Tónlist: Ellen Kristjáns og John Grant - Veldu stjörnu. Toto - Rosanna. Tryggvi - Við erum eitt. Valdimar - Slétt og fellt. Auður - Enginn eins og þú. Feist - 1234. Bubbi Morthens og Bríet - Ástrós.
Alls hafa um 1300 jarðskjálftar mælst á Reykjanesskaga síðan stóri skjálftinn varð í gær Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu mega ekki bera merki sem ekki tengjast lögreglunni á búningi sínum og var það áréttað í dag. Ásgeir Þór Ásgeirsson segir mynd sem birtist í dag af lögreglukonu með merki á vestinu sem tengd eru öfgaskoðunum og kynþáttahatri. Samherji Holding, sem er félag tengt Samherja hf., hefur eignast ríflega 30% hlut í Eimskipafélagi Íslands og hyggst gera öðrum hluthöfum tilboð í þeirra hluti, eins og lög kveða á um. Haukur Holm segir frá. Áhöfn togarans Júlíusar Geirmundssonar fékk að fara frá borði í dag. 22 úr henni hafa smitast af COVID-19. Þar af eru þrettán þeirra með virkt smit og þurfa því að sæta einangrun. Þetta segja niðurstöður sýnatöku sem fór fram um borð í gær. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir sagði frá og talaði við Gylfa Ólafsson, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Sóttvarnaaðgerðir verða hertar enn frekar í Tékklandi vegna kórónuveirufaraldursins. Ásgeir Tómasson sagði frá. Kórónuveirusmit eru komin yfir eina milljón á Spáni. Keppni í efstu deildum í fótbolta hefst aftur 8. nóvember og á vera lokið þann þrítugsta. ---- Þing ASÍ krefst þess að atvinnuleysisbætur verðu hækkaðar þegar í stað og að bótatímabilið verði lengt um 6 mánuði. Formaður VR var kjörinn þriðji varaforseti ASÍ á þinginu í dag. Arnar Páll Hauksson sagði frá og talaði við Drífu Snædal. Veikburða eldra fólki var kerfisbundið neitað um sjúkrahússvist í Stokkhólmi og nágrenni, á fyrstu mánuðum Covid-faraldursins. Oft var líknandi meðferð fyrirskipuð án þess að læknir hitti sjúklinginn. Hávær gagnrýni er nú uppi á framgöngu yfirvalda og margir spyrja hvort lög hafi verið brotin. Greina má breytingar á viðhorfum dansks almennings og ekki síst ungra kvenna sem hafa drifið áfram umræður um kynferðislega áreitni og stjórnmál undanfarnar vikur og hefur orðið til þess að tveir leiðtogar Jafnaðarmannaflokksins og Radikale venstre hafa sagt af sér. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Rósu Guðrúnu Erlingsdóttur stjórnmálafræðing og Thomas Brorsen Smidt verkefnisstjóra hjá Alþjóðlega jafnréttisskólanum. Heyrist líka í Ritt Bjerregaard. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Gísli Kjaran Kristjánsson
Við sitjum við tölvur meirihluta dagsins, stöndum upp til þess að setjast svo í bílsætið okkar, keyrum heim og sitjum þar þangað til það er kominn tími til að sofna. Vissulega fara margir hverjir á æfingu í millitíðinni en stífar æfingar í bland við 10 klukkutíma kyrrsetu á dag er líklega ein af ástæðunum fyrir því að sjúkraþjálfarar hafa aldrei haft jafn mikið að gera og í dag. Gauti Grétarsson fór sem sjúkraþjálfari á ólympíuleikana í Atlanta 96, Sidney árið 2000, Salt Lake 2002, Peking 2008 og London 2012. Hann var sjúkraþjálfari og tæknilegur ráðgjafi meistaraflokks KR, Badmintonlandsliðs Íslands, Golfsambandi Íslands, hefur setið í heilbrigðisráði ÍSÍ frá 1992 og stundað mælingar á afkastagetu afrekíþróttafólks á borð við Guðjóns Vals og Gylfa Þórs Sigurðssonar. Þrátt fyrir að vera talsmaður gegn kyrrsetu samþykkti Gauti að setjast niður með mér og fræða okkur um heilsubyltinguna, bæði það sem vel er gert og hvar við förum út af brautinni. Sú umræða þræðir mörg málefni á borð við sjálfstraust, mental toughness, muninn á mönnum og öpum, virkni rassvöðva og af hverju það er mikilvægt að þjálfa þá, mjólkursýrumælingar, endurheimt eftir æfingar, kostir þess að æfa tvisvar á dag og hreyfigetu í heild sinni.