POPULARITY
Í Skagafirði er unnið að því að endurheimta skóglendi, í Brimnesskógum, en þar var blómlegur skógur á landnámsöld. Steinn Kárason garðyrkjumeistari og umhverfishagfræðingur er frumkvöðull að þessu, hann kemur í þáttinn og segir okkur allt um þetta. Í síðustu viku fjölluðum við um mót gervigreindar og tónlistar – og veltum því fyrir okkur hver væri höfundur verks sem framleitt er af gervigreind. Í dag nálgumst við svipaðar spurningar frá allt annarri átt – frá sjónarhorni lögfræðinnar. Hvaða áhrif hefur þróun gervigreindar á höfundarétt? Hafliði K. Lárusson lögmaður kíkir til okkar og spjallar við okkur um gervigreind og lögfræði. Samfélagið gluggaði í dómskjöl úr safni Þjóðskjalasafnins - um sifjaspellsmál í Dalasýslu á 18. öld - þar sem ung kona, Kristín Bjarnadóttir, var dæmd til refsingar fyrir að eignast barn með stjúpföður sínum. Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skjalavörður á Þjóðskjalasafninu segir okkur frá máli Kristínar. Tónlist í þættinum í dag: Borges, Lô, Nascimento, Milton - Cravo e canela. Silvana Estrada - Chega de Saudada/No more blues
Sjötti maðurinn var að vanda að taka upp á sunnudagskvöldi. Farið var yfir leiki sunnudagsins en sömuleiðis var farið yfir leikina á fimmtudags og föstudags. Margir fastir liðir, margar pælingar og útlendingamál rædd í lok þáttarins. Fyrsta deildin fékk áframhaldandi sviðsljós, topp 5 listi og margt, margt fleira. Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
Sjötti maðurinn var með hefðbundinn þátt í dag. Farið var vel yfir Bónus deild karla, ítarleg greining á hvern einasta leik síðustu umferðar. Þá eru fastir liðir á sínum stað og í lokin spurningar og svör.Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
Næstkomandi laugardag heldur Félag um átjándu aldar fræði málþing undir yfirskriftinni Rannsóknir ungra sagnfræðinga á sögu Íslands á átjándu og nítjándu öld. Þór Martinsson, sagnfræðingur og kynningarfulltrúi Reykjavíkur Akademíunnar, er fundarstjóri á málþinginu, hann kom í þáttinn í dag ásamt Kolbeini Sturlu G. Heiðusyni sagnfræðingi, en hann heldur erindi á málþinginu um eigur vinnuhjúa í Skagafirði um miðja nítjándu öld. Í ár er 25 ára afmæli Bleiku slaufunnar fagnað. Slagorðið í ár er „Þú breytir öllu“ og er sjónum beint að aðstandendum og þeim þakkað, þeim sem hvorki búast við né ætlast til að fá þakkir, fólkinu sem er svo mikilvægt en á það til það að gleymast. Athyglinni er beint að aðstæðum þeirra, því mikilvæga hlutverki sem þeir gegna í alvarlegum veikindum en líka þeim áhrifum sem veikindi ástvinar hafa óhjákvæmilega á líf þeirra. Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur og ráðgjafi hjá Krabbameinsfélaginu kom til okkar. Breytingaskeiðið er miklu meira en „bara“ hitakóf. Þetta tímabíl í lífi okkar kvenna, er langt og margar konur eru með margþætt og óþægileg einkenni eins og svefntruflanir, streitu, heilaþoku, minnisleysi, blæðingatruflanir, liðverki, þurrk í slímhúð og þrálátar blöðrubólgur. Fleiri hundruð konur hafa sótt námskeið Þorbjargar Hafsteinsdóttur Konur, hormónar og hollusta. Þorbjörg hefur skrifað margar bækur um samspil mataræðis og heilsu og haldið ótal mörg námskeið hér heima og erlendis. Þorbjörg kom til okkar í dag sagði okkur líka frá mataræði sem gagnast við gigt og bólgum. Tónlist í þættinum: Í minni skel – Bogomil Font og Salsakommúnan (Sölvi Rögnvaldsson, texti Sæmundur Rögnvaldsson ásamt Sölva) Bíldudals grænar baunir / Jolli og Kóla (Valgeir Guðjónsson) Í gegnum hollt og hæðir / Þursaflokkurinn (Egill Ólafsson, texti Þórarinn Eldjárn) (If paradise is) Half as Nice / Amen Corner (Battisti, Fishman & Mogol) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Sjötti maðurinn tók upp frumraun sína í hlaðvarpsheiminum þar sem þeir tóku spá sjötta mannsins fyrir komandi bónus deildar tímabil, einnig fóru þeir yfir hverjir áttu slæma/góða viku í íslenska körfubolta samfélaginu. Undir lokin fóru þeir síðan yfir kraftröðun þeirra á könum deildarinnar.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
AB VARAHLUTIR - BÍLJÖFUR - Á FERÐ OG FLUGI - BÍLAPUNKTURINN Bragi og Magnús Þórðarsynir fjalla um Ljómarallið sem fór fram í Skagafirði um helgina Mynd: Gamli Feiti Bitri Gaurinn
Hér er tekið saman efni og lesið úr Í ljósi minninganna, bernskuminningum Sigríðar Björnsdóttur (1891-1965) frá Miklabæ. Hún lýsir á fallegan og næman en um leið hispurslausan hátt uppvexti í Skagafirði, þar sem lífið var svo rólegt og fábreytt að koma vegavinnumanna var sannkallað ævintýri og molasykur var ígildi hins stóra heims.
Viðmælandi þáttarins er Halla Tómasdóttir, forstjóri B-Team og frambjóðandi til forsetakosninga Íslands árið 2024. B-Team eru samtök alþjóðlegra leiðtoga sem vinna saman að sjálfbærni, jafnrétti, jöfnuði og aukinni ábyrgð í forystu og viðskiptum. Halla er fædd árið 1968 og ættuð af Vestfjörðum og úr Skagafirði en alin upp á Kársnesinu í Kópavogi. Hún er rekstrarhagfræðingur frá Auburn University of Montogomery og með MBA gráðu frá Thunderbird School of Global Management í Bandaríkjunum. Hún stundaði einnig um nokkurra ára skeið nám til doktorsgráðu við Cranfield University í Bretlandi þar sem hún lagði stund á rannsóknir í leiðtogafræði. Halla hóf sinn feril hjá stórfyrirtækjunum Mars og Pepsi Cola þar sem hún vann í mannauðsmálum. Eftir að hún kom aftur til Íslands tók Halla tók virkan þátt í uppbyggingu Háskólans í Reykjavík þar sem hún leiddi meðal annars fyrstu ár Opna Háskólans og verkefnið, Auður í krafti kvenna, ásamt því að vera ein af stofnendum Þjóðfundsins árið 2009. Hún gegndi fyrst kvenna framkvæmdastjórastöðu Viðskiptaráðs á árunum 2006-7, og var ein af stofnendum Auðar Capital, fyrsta fjármálafyrirtæki í forystu kvenna sem lagði áherslu á mannleg gildi og ábyrgð í fjárfestingum. Halla hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja og er vinsæll fyrirlesari á alþjóðlegum vettvangi ásamt því að hafa gefið út bókina, Hugrekki til að hafa áhrif, árið 2023. Þátturinn er kostaður af Krónunni, Icelandair og Arion banka.
Kæru hlustendur , gleðilega hátíð. Síðasti þáttur Endalínunnar árið 2023 - Gestur þáttarins : Sigurvegarinn , Landsliðsmaðurinn, Goðsögnin og núverandi þjálfari Íslandsmeistara Tindastóls : Pavel Ermolinski. Við förum hratt yfir hans ferðalag sem leikmaður sem byrjaði á Skaganum þegar Pavel var 11 ára í fyrsta sinn á skýrslu í meistaraflokk. Atvinnnumannatíminn og Landsliðin , vinskapurinn við Jón Arnór en þungamiðjan í spjallinu snýst um hans starf í dag sem þjálfara í Skagafirðinum hjá Íslandsmeisturunum. Var auðvelt að taka slaginn sem þjálfari þar sem pressan er mest ? Hvernig var að berjast um titilinn sem þjálfari ? Liðsamsetningin og kanamálin og brösugt gengi með miklum meiðslavandræðum á hans fyrsta heila tímabili sem þjálfari. 1 á 1 með Pavel Ermolinski á Endalínunni í boði Viking Lite , Cintamani , Soho , Brons , Miðherja , Fiskbúð Reykjaness , Macland og Bónus.
Ríkisfjármálin voru til umfjöllunar þegar Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, kom í vikulegt spjall. Fjárlagafrumvarpið hefur breyst töluvert frá því það var lagt fram og enn eru útgjöld þessa árs aukin, eins og sjá má í frumvarpi til fjáraukalaga. Við ræddum líka um gengi frumkvöðla í viðskiptalífinu vestan hafs, sem er fallvalt, eins og við komumst að. Olaf Scholz er óvinsælasti kanslari Þýskalands frá upphafi mælinga. Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur hvernig á því stendur í Berlínarspjalli. Pisa-könnunin var einnig á dagskrá en það er engu minni óánægja með niðurstöður hennar í Þýskalandi en hér. Afskaplega kalt hefur verið í Skagafirðinum undanfarið, svo að þurft hefur að biðja íbúa að spara heita vatnið og láta ekki renna í heita potta. En það er ýmislegt fleira á seyði þar, eins og Sólborg S. Borgarsdóttir, forseti sveitarstjórnar í Skagafirði, ræddi við okkur. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: It's a blue world - Ray Eberle River - Joni Mitchell Angstfrei - Herbert Grönemeyer Veðrið er herfilegt - Sigurður Guðmundsson og Memfismafían, Andrea Gylfadóttir.

Rennsli eykst enn í Skaftá, en hægt hefur á aukningunni. Búið er að loka Hólaskjóli - hálendismiðstöðinni. Enn er óljóst úr hvorum Skaftárkatli hleypur. Rætt var við Áróru Bryndísi Ásgeirsdóttir sem starfar í Hólaskjóli og Þorstein Þorsteinsson, sérfræðing í jöklarannsóknum á Veðurstofunni. Vaxtamunur hefur ekki minnkað þrátt fyrir bætta afkomu og minni rekstrarkostnað bankanna. Gjaldskrár eru óskýrar og oft óljóst fyrir hvað fólk er að borga. Skógareldarnir í Grikklandi eru þeir mestu innan Evrópusambandsins frá aldamótum. Regnbogatröppur á Akureyri voru spreyjaðar svartar í nótt. Þetta er í annað skipti á þremur dögum sem skemmdarverk hafa verið unnin á regnbogaskreyttum gönguleiðum. Linda Björk Pálsdóttir forvarna- og félagsmálaráðgjafi hjá Akureyrarbæ telur hugsanlegt að innblástur af verknaðinum hafi verið fenginn af svipuðu skemmdarverki á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Svifryksmengun er alvarlegasta heilsufarsógnin sem steðjar að jarðarbúum segir í nýrri skýrslu um ástand loftslagsmála í heiminum. Ef dregið yrði úr henni sem næmi markmiðum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar lengdi það ævi þeirra um 2,3 ár að meðaltali. Viðskiptabankarnir þrír hafa heilt yfir náð fram verulegri hagræðingu í starfsemi sinni og arðsemi bankanna er núna almennt nokkuð hærri en hjá bönkum af svipaðri stærðargráðu á öðrum Norðurlöndunum. Og vaxtamunur bankanna er mun meiri hér en þar. Erfitt getur verið fyrir neytendur að átta sig á hvaða þjónustu þeir eru að kaupa. Þetta eru meginniðurstöður starfshóps sem Lilja Alferðsdóttir viðskiptaráðherra skipaði fyrir ári, til að skoða um gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Breka Karlsson formann Neytendasamtakanna sem sat í starfshópinum. Fuglaflensa hefur komið hart niður á loðdýrabúum í Finnlandi. Hennar hefur orðið vart á um 25 búum og þegar er búið að lóga öllum dýrum á þeim, meira en 120 þúsund minkum og refum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Einar Eðvald Einarsson á Syðra-Skörðugili í Skagafirði. Hann er formaður loðdýradeildar Bændasamtakanna. Einar hefur ekki miklar áhyggjur af fuglaflensa berist í loðdýr hér, aðstæður á búunum séu aðrar. Umsjónarmaður var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Jón Þór Helgason. Annalísa Hermannsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

Við fjölluðum meðal annars um vatn í þættinum í dag. Nýverið var greint frá því að Jón Ólafsson athafnamaður og sonur hans Kristján hefðu selt erlendum fjárfestum drjúgan hlut í vatnsátöppunarfyrirtæki sínu Icelandic Water Holdings. Við þessi tíðindi vakna spurningar um vatnið; eignarhald og aðgengi, mikilvægi og verðmæti. Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri spjallaði um vatn, vítt og breitt. Tæplega 200 Rótarý-félagar komu saman til Umdæmisþings á Sauðárkróki um helgina. Rótarý-hreyfingin hefur starfað í 118 ár og tæp 90 á Íslandi. Hún stendur fyrir mannúðar- og menningarstarfi og hvetur til góðvildar og friðar. Við ræddum við Ómar Braga Stefánsson, umdæmisstjóra Rótarý, um gildin og starfið. Kona var nefnd Valgerður Skaftadóttir. Hún fæddist 1762, hún var frá Hofi í Norður-Múlasýslu. Valgerður var langa-langa-langa-langa-langamma Nönnu Rögnvaldardóttur matarsögugrúskara. Fátt var vitað um Valgerði en fyrir nokkru lagðist Nanna í heimildaöflun um þessa formóður sína og ýmislegt merkilegt kom í ljós. Frá því segir Nanna á Kakalaþingi í Skagafirði á laugardaginn en fyrst gerði hún það stuttlega hér á Morgunvaktinni. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir Tónlist Stevens, Cat - Moonshadow. Newton, Juice - Angel of the morning. Olsen, James, Tríó Björns Thoroddsen, Kristjana Stefánsdóttir - Barmahlíð. Gammar - Mongo. Gammar - Bright colors.

AB VARAHLUTIR - Á FERÐ OG FLUGI - BÍLJÖFUR - BÍLAPUNKTURINN - PÚST HJÁ EINARI Bragi og Guðni Freyr fjalla um Ljómarallið í Skagafirði, aðeins 7 bílar af 12 kláruðu keppni eftir mikið drama! Mynd: Gamli Feiti Bitri Gaurinn
Velkomin í Síkið ! Kæru hlustendur , það var roadtrip á Endalínuna þennan þriðjudaginn og alvöru veisla í Skagafirðinum. Leikur 2 í lokaúrslitum og Valsmenn mættu allavega inná vellinum og sýndu afhverju þeir eru handhafar allra titla á landinu í dag. Hversu mikilvæg er byrjunin í Síkinu ? Snöggar sóknir vs. skipulagður sóknarleikur , andlega hliðin og hvað gerist í leik 3 ?... Við fáum Kristófer Acox í settið og ræðum um leikinn og allt þar á milli. Endalínan í boði Viking Lite , Cintamani , Soho , Brons Keflavík og North West.
Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga var haldin á dögunum í tengslum við Sæluvikuna þar. Gunnar Rögnvaldsson á Löngumýri sagði okkur frá úrslitunum og fór með vísur. Internetið og samfélagsmiðlar hafa breytt miklu í samskiptum fólks, og í miðlun upplýsinga. Þar er svo kölluðum falsfréttum dreift; lygum, til að hafa mótandi áhrif á skoðanir almennings. Af þessu hafa yfirvöld og fleiri áhyggjur og reyna að sporna við. Fram eru komnar tillögur að aðgerðum sem samnorræn hugveita vann fyrir stjórnvöld Norðurlandanna. Við fjölluðum um þær með Elfu Ýri Gylfadóttur, framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar. Ásgeir Brynjar Torfason beindi kastljósinu að Christine Lagarde, seðlabankastjóra Evrópu. Það hefur mætt á henni í verðbólgunni og lífskjarakrísunni síðustu misseri og skiptar skoðanir eru um hvort hún hafi staðið sig nægilega vel. Vera Illugadóttir rifjaði upp krýningar Englandskonunga langt aftur í aldir. Þar er allt gert eftir kúnstarinnar reglum, og mikið um gull og gersemar. Tónlist: Crosby, Bing, Grier, Jimmy and his Orchestra - Thanks. Þokkabót - Miðvikudagur. Crosby, Bing - Love in bloom.

Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor í næringarfræði, bauð upp á ráðlagðan dagskammt en þar var meðal annars fjallað um hreinleika matvæla, tíma sem fer í að undirbúa og nærast. Eins matarsóun og sumarmat. Gunnar Rögnvaldsson á Löngumýri sagði frá Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga sem er haldin árlega á Sæluviku Skagfirðinga. Gunnar fór með þá fyrriparta sem fólk er beðið um að botna í þættinum en þeir tengjast vorkomunni. Eins mælir Gunnar með því að vísnasmiðir spreyti sig á að yrkja um tíðar sólarlandaferðir Íslendinga, skoðun seðlabankastjóra á þeim og afleiðingar að hans mati en þess má geta að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er einmitt úr Skagafirði, nánar tiltekið Hólum í Hjaltadal. Stella Soffía Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Alþjóðlegu bókmenntahátíðarinnar, ræddi hátíðina sem hófst á miðvikudag og lýkur á sunnudaginn. Fjölmargir viðburðir eru í boði og bæði hægt að mæta á staðinn eða fylgjast með í streymi. Tónlist: Vikivaki (vorið kemur) - Diddú, Stars fell on Alabama - Cannonball og Coltrane, Sea of love - Iggy Pop. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Í vikulegu spjalli Önnu Sigríðar Ólafsdóttur, prófessors í næringarfræði, um mat og næringu var fyrst rætt um frétt í Fréttablaðinu í dag um verðhækkanir á matvörum. Verð á grænmeti hefur hækkað um 16 prósent og af því hefur Anna Sigríður áhyggjur. Hún óttast að fólk dragi úr neyslu grænmetis og var hún ekki næg fyrir, sé litið til neysluvenja og manneldismarkmiða. Þá var rætt um mikilvægi trefjaneyslu og upplýsingamengun en auglýsingum um mat og fæðubótarefni er stöðugt beint að fólki, ekki síst ungu fólki. Í spjalli um ferðamál sagði Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, frá nýrri könnun Ferðamálastofu á ferðavenjum erlendra ferðamanna. Sem fyrr dregur náttúran flesta ferðamenn til landsins. Um áratugaskeið hefur Þjóðkirkjan starfrækt orlofsbúðir fyrir eldri borgara á Löngumýri í Skagafirði. Þórey Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Eldriborgaráðs Reykjavíkurprófastdæma, sagði frá. Tónlist: Get ready - The Temptations, Love is blue - Paul Mauriat, Sugar, sugar - Wilson Pickett, Ferð án enda - Sú Ellen, Sestu hérna hjá mér - Álftagerðisbræður. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Ævistarf tengir saman efni þáttarins, auk þess sem Noregur tengir viðmælendur þáttarins sterkt saman. Við byrjum í heimsókn hjá skógarbóndanum Hrefnu Jóhannesdóttur á Silfrastöðum í Skagafirði, en Hrefna ákvað snemma að gera skógræktina að sínu ævistarfi. Því næst kynnumst við organistanum og kórstjórnandanum Torvald Gjerde sem stendur nú á tímamótum eftir að hafa starfað sem organisti við Egilsstaðakirkju í rúm 20 ár. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Að þessu sinni var rætt við Lindu Fanney Valgeirsdóttur, framkvæmdastýru nýsköpunarfyrirtækisins Alor sem er að þróa umhverfisvænar álrafhlöður. Linda Fanney ólst upp á bænum Vatni á Höfðaströnd í Skagafirði og er faðir hennar, Valgeir einn af stofnendum Alor. Í þættinum segir Linda Fanney frá fyrirtækinu Alor og hvernig er að starfa við nýsköpun.
Morgunblaðið fjallaði í gær um hugmyndir um að styrkja Alexandersvöll á Sauðárkróki svo hann geti verið til vara fyrir millilandaflugið. Nokkuð hefur verið rætt um að eldgos á Reykjanesskaga sethi hugmyndir um flugvöll í Hvassahrauni í uppnám. Við ræddum við Sigfús Inga Sigfússon, sveitarstjóra í Skagafirði, um kosti og galla Alexandersvallar. Um hálf átta ræddum við við Gylfa Magnússon, prófessor í viðskiptafræði, um kosti og galla vegtolla og aðrar leiðir til að fjármagna rekstur vegakerfisins, en hann fjallar um málið í nýjasta tölublaði Vísbendingar. Í grein sinni segir hann meðal annars að líklega væri hægt að eyða flestum umferðarhnútum á höfuðborgarsvæðinu með skynsamlegri verðlagningu. Hún gæti bæði fært umferð einkabíla til í tíma og rúmi og búið til eðlilega hvata til að nota aðrar samgönguleiðir þar sem það er samfélagslega hagkvæmt. Í gær ræddum við hvernig skólar og vinnustaðir eða önnur lítil samfélög geta brugðist við þegar kynferðisbrot kemur upp innan hópsins - en málefni fjölbrautarskólans á suðurlandi hafa verið mikið í deiglunni frá því um helgina. Þar kom fram að mikilvægt væri að stofnanir hefðu skýra aðgerðaáætlun gegn kynferðisofbeldi, ekki plagg sem er allt loðið varðandi orðalagið, heldur skýra áætlun og verkferla sem virkuðu. Við ræddum þetta enn frekar í dag við þær Eygló Harðardóttur verkefnastjóra aðgerða gegn ofbeldi hjá Ríkislögreglustjóra og Benediktu Sörensen skólastjóra Ofbeldisforvarnaskólans. Flokksráð Vinstri grænna setti veiðigjöldin aftur á dagskrá um nýliðna helgi en flokksfólk í VG vill hækka veiðigjöldin. Þetta sætir ákveðnum tíðindum í núverandi ríkisstjórn VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar - og setur eflaust aukinn þrýsting á Svandísi Svavarsdóttur sem er ráðherra málaflokksins um þessar mundir. Við fengum til okkar tvær þingkonur úr atvinnuveganefnd Alþingis til að ræða veiðigjöldin; þær Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur þingkonu VG og Hönnu Katrínu Friðriksson frá Viðreisn. Bestu köldu pottar höfuðborgarsvæðisins voru afhjúpaðir í kvöldfréttum Stöðvar 2 á sunnudaginn, eftir að niðurstöður lágu fyrir í óformlegri könnun fréttastofunnar. Kristín Ólafsdóttir, fréttakona og sundspekingur, heimsótti besta - og versta - kalda pottinn en hún hafði áður kortlagt heitustu heitu pottana. Við ræddum niðurstöðurnar við Kristínu og áhrif þeirra köldu á líkamlega og andlega heilsu. Guðmundur Jóhannsson, tæknispekúlant, kom til okkar í lok þáttar, eins og alltaf annan hvern þriðjudag og ræddi heim tækninnar.

AB VARAHLUTIR - TÆKJAFLUTNINGAR NORÐURLANDS - BÍLJÖFUR - BÍLAPUNKTURINN - OLÍS Bragi og Baldur Arnar fara yfir þriðju umferð Íslandsmótsins í ralli sem fram fór í Skagafirði. Sekúndu slagur var um fyrsta sætið í báðum flokkum. Mynd: Gamli Feiti Bitri Gaurinn
Illugi Jökulsson heldur áfram að lesa frásöguþátt um Rögnvald Jónsson, hinn halta, eins og hann var kallaður. Hörmundar Rögnvaldar og fjölskyldu hans eftir móðuharðindin voru ótrúleg. Að þessu sinni er sagt frá því þegar hann reyndi að leita sér lækninga og endaði þá í Skagafirði.

Í Hismi vikunnar gerum við upp tvo stóra viðburði undanfarna viku - sveitastjórnarkosningarnar og oddaleik Vals og Tindastóls í körfubolta - með Atla Fannari Bjarkasyni fjölmiðlamanni. Við förum yfir stemminguna í Skagafirðinum, geitina í Val, meirihlutaviðræður og störukeppni flokkanna í fjölmiðlum, og meistara sem hjólaði í vinnuna á Selfoss úr Þingholtunum.
Það var magnað kvöld í Origo höllinni í gærkvöldi og fyrir okkur sem lifum fyrir íslenskan körfubolta þá má segja að þetta hafi verið ,,eitthvað annað,, ! Oddaleikurinn um Íslandsmeistaratitlinn fyrir framan meira en 2000 aðdáendur í ótrúlegri stemningu er ákkurat það sem maður vonast eftir sem körfuboltaáhugamaður þegar tímabilið fer af stað á haustin. VALUR eru Íslandsmeistarar í fyrsta skipti í 39 ár , TIL HAMINGJU VALSARAR! Stuðningurinn úr Skagafirði á heimsmælikvarða Frábær byrjun en svo arfa slakur sóknarleikur og vond hittni Reynslulyktin kom yfir mann í síðari hálfleik Hjálmar Stefánsson leikurinn Game control allt Valsmegin , þurftu Stólarnir betri adjustment ? VÖRN VINNUR TITLA Endalínan í boði WhiteFox , Viking Lite , Cintamani og KefRestaurant & Diamond Suites.
Kæru hlustendur. Það er hátíðarstemning í íslenskum körfubolta um þessar mundir - alvöru stemning , alvöru spenna og alvöru körfubolti. Það er komið að uppgjöri fyrir 4 Liða úrslit - Leikdag 2 og fengum við okkar besta mann Skúla Sig með í för til að leysa Scuba Steve af hólmi í þetta skiptið. Tindastóll 2 - Njarðvík 0 - Ótrúleg endurkoma Stólanna , Má ég heyra ? - Run & Gun style og opin lay up - Prinsinn af Skagafirði , Pétur Rúnar , ENDURFÆDDUR - Njarðvík hætta að framkvæma og engin lausn í vörn - Reynslumestu mennirnir með rookie move - Skagafjörðurinn iðar !!!! Valur 2 - Þór Þ 0 - Troðin Origo höll og geggjaðir Valsmenn , jú þetta er körfubolti! - Meistarabragur , svör við öllu varnarlega og með shot making ability ! - Pavel er HERSHÖFÐINGINN ! - Ekki sama Þórslið og í fyrra , vantar shooting center og íslenskan stöðugleika - Kyle og Luciano stoppa boltann og taktinn meira en Þórsliðið vill. - Geta Íslandsmeistararnir komið tilbaka úr þessu ? Já troðfullur klukkutími af playoffs basketball á Endalínunni í boði WhiteFox , Cintamani , Viking Lite ( Léttöl ) og KefRestaurant&DiamondSuites
Í kvöld fer fram á Hofsósi í Skagafirði, útgáfuhóf fyrir tíunda og síðasta bindi byggðasögu Skagafjarðar sem Hjalti Pálsson hefur ritað og ritstýrt í tuttugu og sex ár. Hjalta reiknast til að um 55 starfsár hafi farið í verkið og sjálfur frestaði hann því í tíu ár að fara á eftirlaun til að klára verkið. Við heyrðum í Hjalta í upphafi þáttar. Á fimmtudag var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu nýtt íslenskt verk, Hliðstætt fólk, eftir leikhópinn Huldufugl, sem gerist alfarið í sýndarveruleika. Áhorfendur eru semsagt þátttakendur í verkinu, sjá allt sem í því gerist með sýndarveruleikagleraugum og geta haft áhrif á útkomu verksins. Nanna Gunnars, leikkona og leikstjóri verksins kíkti til okkar og sagði okkur frá þessu sýndarveruleikaverki. Salan á Íslandsbanka hefur vakið hörð viðbrögð eftir að listi yfir þá fjárfesta sem fengu að taka þátt í útboðinu var birtur á miðvikudag. Í gærkvöldi sendi Íslandsdeild Transparency International frá sér ályktun þar sem salan var sögð skólabókardæmi um spillingu, aðstöðubrask, vanhæfni og óheilbrigða menningu. Við ræddum við Atla Þór Fanndal framkvæmdastjóra Transparency International á Íslandi. Við hófum í síðustu viku málefnaumræðu okkar um sveitarstjórnarkosningarnar sem framundan eru. Að þessu sinni beinum við sjónum okkar að leikskólamálum um land allt og fengum Sigurð Sigurjónsson, formann félags stjórnenda leikskóla, til að ræða stöðu mála með okkur. Félagar í Samtökum hernaðarandstæðinga keyrðu nú í morgunsárið upp í Hvalfjörð en þar stendur til að halda landgönguæfingu bandaríska hersins, sem félagsmenn hyggjast mótmæla. Við heyrðum í Guttormi Þorsteinssyni formanni Samtaka hernaðarandstæðinga um mótmælin og hvort enn sé útlit fyrir að af þessari landgönguæfingu hersins verði nú þegar hernaðarandstæðingar eru mættir á svæðið. Hljómsveitin Gus Gus hélt á dögunum langþráða afmælistónleika við mikinn fögnuð. Sveitin hefur starfað í rúma kvartöld í ýmsum myndum og þykir ein sú frumlegasta og athyglisverðasta í íslenskri listasenu. Nú stendur til að kortleggja feril sveitarinnar í heimildamynd. Stefán Árni kvikmyndagerðarmaður og stofnfélagi í Gus Gus leit við hjá okkur. Svo fórum við yfir íþróttafréttir helgarinnar með Einari Erni Jónssyni íþróttafréttamanni í lok þáttar. Tónlist: Stjórnin - Við eigum samleið. James Taylor - Carolina in my mind. Geirmundur Valtýsson - Nú er ég léttur. Birgir Steinn - Hold on. Harry Styles - As it was. Kylie Minogue - In your eyes. Gus Gus - Over. Miley Cyrus - Malibu.

Fæðuöryggi, birgðahald, olíuverð og viðbrögð stjórnvalda vegna áhrifa stríðsins í Úkraínu voru þingmönnum hugleikin í óundirbúnum fyrirspurnum við upphaf þingfundar (líkt og í sérstöku umræðunni sem sagt var frá fyrr í fréttatímanum). Ráðherrar sögðu fyllstu ástæðu til að efla innlenda framleiðslu en hvorki væri ástæða til óttast fæðu né fóðurskort hér í ár. Tvær sameiningar sveitarfélaga voru samþykktar um helgina. Annars vegar fara Langanesbyggð og Svalbarðshreppur á Norðausturlandi í eina sæng og hins vegar Helgafellssveit og Stykkishólmsbær á Snæfellsnesi. Við sameiningu verður til nýtt 600 manna sveitarfélag á Norðurlandi eystra og 1250 manna fyrir vestan. Helgafellssveit og Svalbarðshreppur eru með fámennustu sveitarfélögum landsins, með innan við 100 íbúa hvort. Frá því í fyrrasumar hafa íbúar í 19 sveitarfélögum kosið um sameiningu; í Suður-Þingeyjarsýslu, tvisvar í Austur-Húnavatnssýslu, á Suðurlandi, Snæfellsnesi og í Skagafirði. Sumt var fellt, og annað samþykkt. Sigurður Ármann Snævarr er sviðstjóri hag og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sveitarfélögin sem samþykktu sameiningu um helgina höfðu áður ýmist kollfellt sameiningu, eða hún verið kærð og felld úr gildi. Hvað hefur breyst að mati Sigurðar? Bjarni Rúnarsson ræddi við Sigurð. Hópur alls óþekktra tónlistarmanna hefur náð mikilli spilun á streymisveitunni Spotify, með einfaldri, oft endurtekningasamri tónlist. Að baki tónlistarmönnunum er sænskt útgáfufyrirtæki sem hefur hagnast vel en forsvarsmenn þess vilja sem minnst segja um árangurinn. Kári Gylfason segir frá. Helstu atriði frétta: Fimm þúsund manns hið minnsta eru talin hafa beðið bana í hafnarborginni Mariupol í Úkraínu síðan Rússar hófu umsátur um borgina. Þar er enn mikil neyð og þúsundir innlyksa. Talið er að eitrað hafi verið fyrir erindrekum sem tóku þátt í friðarviðræðum Úkraínumanna og Rússa í byrjun mánaðarins. Þeirra á meðal er rússneski auðmaðurinn Roman Abramovich. Á tímabilinu 2010 til 2020 voru sex myrtir af maka sínum. Í fimm af þessum sex tilvikum voru karlar gerendur og konur þolendur. Miklir vatnavextir hafa verið síðustu daga víða um land. Bóndi í Ásahreppi segist ekki hafa séð jafnmikil flóð allan sinn tólf ára búskap í hreppnum. Kostnaður sveitarfélaga á hvern grunnskólanemanda er allt að fimmfalt meiri hjá minni sveitarfélögum en hjá þeim stóru. Sveitarfélögum fækkar um tvö eftir að sameining var samþykkt um helgina. Akureyrarbær hefur hafnað ósk ríkisins um að byggja bílakjallara undir fyrirhugaða heilsugæslustöð. Forsætisráðherra boðar

Byggðaráð Skagafjarðar hefur biðlað til Alþingis að færa fjóra virkjanakosti í jökulám úr verndarflokki og í biðflokk í næstu samþykkt rammaáætlunar. Þórarinn Magnússon bóndi á bænum Frostastöðum í Skagafirði er einn þeirra sem vill ekki sjá að árnar verði virkjaðar og hefur beitt sér gegn þessum hugmyndum um margra ára skeið. Hann verður á línunni hjá okkur nú í morgunsárið Fimmti dagur innrásar er nú að renna upp í Úkraínu. Sprengjudrunur kváðu við snemma í morgun í Kænugarði, Kharkiv og öðrum borgum landsins. Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti segir að næsti sólarhringur geti reynst ögurstund í baráttunni við innrásarher Rússa. Við ætlum að heyra í Ingólfi Bjarna Sigfússyni, fréttamanni RÚV, sem var í gær staddur við landamæri Úkraínu og Póllands. Ásmundur Einar Daðason, mennta-og barnamálaráðherra, hefur ákveðið að hætta frekari málarekstri í tengslum við brot Lilju Alfreðsdóttur, forvera hans í starfi, á jafnréttislögum og greiða Hafdís Helgu Ólafsdóttur miskabætur. Þessu máli er nú loks að ljúka með ákvörðun Ásmundar og við ætlum að heyra í Hafdísi sem segir málarekstur Lilju gegn sér hafa verið íþyngjandi. Hlutirnir hafa gerst hratt um helgina varðandi viðbrögð Evrópusambandsins og fleiri þjóða gegn Rússum. En það er þó ekki svo að Rússar sé algjörlega einangraðir á alþjóðavísu. Guðbjörg Rikey Thoroddsen Hauksdóttir doktorsnemi rannsakar um þessar mundir samband Rússlands og Kína á norðurslóðum. Við ræddum við Óskar Hallgrímsson, ljósmyndara, sem er búsettur í Kyiv um stöðuna núna í morgunsárið. Og við renndum yfir íþróttafréttir helgarinnar með Helgu Margréti Höskuldsdóttur í lok þáttar. Tónlist: Stutt skref - Moses Hightower Baby Blue - Sigrún Stella Baltimore - Nina Simone Let it Be - Beatles Supertime - Berndsen Bona Fide - Krummi Vortex - Nick Cave and the Bad Seeds Please don't hate me - Lay Low Smokin' Out the Window - Silk Sonic

Fyrrverandi stjórnarmaður KSÍ hefur beðist afsökunar á að hafa farið með rangt mál í skýrslu um ofbeldi innan knattspyrnuhreyfingarinnar. Ráðgjafi forsætisráðherra Bretlands hefur sagt af sér eftir að myndskeið birtist í fjölmiðlum þar sem hún grínaðist með jólasamkvæmi sem haldið var í Downingstræti 10 í fyrra, þegar strangar fjöldatakmarkanir voru í gildi. Um 300 eru heimilislausir í Reykjavík sem er fækkun frá fyrri árum. Átta eru á vergangi við slæmar aðstæður. Fræðimaður sakar seðlabankastjóra um ritstuld. Hann hafi stuðst mjög við fimm ára gamla bók um landnám Íslands án þess að geta heimilda. Bólusetning er ekki ný af nálinni hér á landi. Sölvi Helgason var t.d. bólusettur norður í Skagafirði fimm ára gamall, fyrir tæpum tvö hundruð árum. Lengri umfjallanir: Þrjátíu ár eru liðin frá falli Sovétríkjanna. Rússnesk kona sem fæddist eftir hrunið segir margt af því slæma sem einkenndi Sovétríkin eiga sér samsvörun í stefnu Pútíns í dag. Nýgengi sykursýki 2 hefur rokið upp á Íslandi undanfarin ár. Óvissa ríkir um hvernig heilsufar þjóðarinnar og lífslíkur eiga eftir að þróast næstu árin því rannsóknir skortir.
Við byrjuðum morguninn á að ræða niðurstöður Hinseginkvarðans, sem er úttekt Samtakanna 78 á stefnu stjórnmálaflokkanna þegar kemur að hinsegin málum. Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður samtakanna, mætti til okkar. Í síðustu viku ræddum við um vöktun og gagnaöflun á netinu þar sem hægt er að safna ýmis konar upplýsingum um okkur, hegðun okkar og áhugasvið. Við ræddum m.a. möguleikann á því að hafa áhrif á kosningar með dreifingu upplýsinga til ákveðinna hópa. Í fyrra gaf Persónuvernd út álit á notkun stjórnmálasamtaka á samfélagsmiðlum fyrir kosningar til Alþingis 2016 og 2017 þar sem fjallað er um þá vinnslu persónuupplýsinga sem stjórnmálasamtök á Íslandi viðhöfðu fyrir kosningarnar til að afmarka markhópa og beina markaðssetningu að þeim. Vigdís Eva Líndal sviðsstjóri hjá Persónuvernd kom til okkar og ræddi við okkur um hver staðan er núna fyrir komandi kosningar. Bjarni Páll Vilhjálmsson og föruneyti hans úr Draumaferðinni svokölluðu reið í hlað heima í Saltvík fyrir helgi eftir 57 daga langa hestaferð um Ísland. Við slógum á þráðinn til Bjarna og heyrðum af þessu ótrúlega afreki manna og hesta. Riða greindist á bæ í Skagafirði fyrir nokkrum dögum og framundan er niðurskurður á 1500 fjár. Bóndinn á bænum sagði í fréttum í gærkvöldi að endurskoða þyrfti hvernig tekið er á málum sem þessum og við veltum fyrir okkur hvort það er hægt? Við heyrðum í starfandi yfirdýralækni, Sigríði Björnsdóttur, um riðu og aðgerðir gegn henni. Svo voru það íþróttir helgarinnar, en Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður fór yfir helstu tíðindi. Tónlist: KK - Þjóðvegur 66. Elín Hall - Komdu til baka. Leon Bridges - Steam. Sigurður Guðmundsson - Kartöflur. Alan Parsons Project - Eye in the sky. U2 - Stay faraway so close. Nýdönsk - Ég kýs.
Það eru eðlileg mannréttindi að geta farið út undir bert loft, segir Maríanna Bernharðsdóttir, deildarstjóri fíknigeðdeildar Landspítalans, en það er ekki hægt á lokuðum geðdeildum við Hringbraut. Sunna Valgerðardóttir ræddi við hann. Hlaup er hafið í Vestari-Jökulsá í Skagafirði Sex hundruð manns eru á biðlista eftir húsnæði hjá Öryrkjabandalaginu og á annað hundrað bíða árum saman hjá borginni. Það blasir við hverjum manni að svona gengur þetta ekki lengur með húsnæðismál fatlaðra, segir Grétar P. Geirsson, formaður Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu. Þýska lyfjaþróunarfyrirtækið BioNTech, sem þróaði Pfizer-bóluefnið gegn COVID-19, hyggst sækja um markaðsleyfi fyrir covid-bóluefni fyrir börn á aldrinum 5-11 ára fyrir miðjan október, meðal annars í Evrópu. Hildur Margrét Jóhannsdóttir sagði frá. Framkvæmdastjóri bresku öryggisþjónustunnar óttast að valdataka Talibana í Afganistan auki á hryðjuverkaógn í Bretlandi. Undanfarin fjögur ár hafi rúmlega þrjátíu hryðjuverkaárásum verið afstýrt þar. Ný skýrsla sýnir að hver íbúi Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps hefur greitt sem svarar um 50 þúsund krónum á ári með rekstri hjúkrunar- og dvalarheimilisins Nausts á Þórshöfn. Heimilið er í eigu sveitarfélagsins og hefur rekstrarsamning við Sjúkratryggingar Íslands. Jónas Egilsson, sveitarstjóri segir það neyðarbrauð að skila rekstrinum til ríkisins. Óðinn Svan Óðinsson talaði við hann. Íbúi bjargaði nágranna sínum þegar eldur kviknaði í kjallaraíbúð við Týsgötu í Reykjavík í dag. Töluverður reykur var í íbúðinni þegar slökkvilið kom á vettvang. Kristín Sigurðardóttir talaði við Hjálmar Hallgrímsson, varðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Breiðablik er komið í riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í fótbolta, fyrst íslenskra liða. Það ætti að hvetja önnur félög til að leggja enn meiri áherslu á kvennaboltann segir Helena Ólafsdóttir sparkspekingur við Einar Örn Jónsson fréttamann. --------- Á geðdeild í Bretlandi, sem færð var úr aldargömlu húsnæði yfir í nýtt, fækkaði legudögum og dró úr árásargirni sjúklinga. Rannsóknir á arkitektúr sýna að náttúruleg birta og gott aðgengi að gróðri hefur áhrif á líðan sjúklinga segir Hildigunnur Sverrisdóttir, deildarforseti arkitektadeildar Listaháskólans. Áratugum saman hefur kosninga- og stjórnmálahegðun íslenskra kjósenda verið könnuð í Íslensku kosningarannsókninni. Jón Gunnar Ólafsson, nýdoktor í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands, heldur utan um fjölmiðahluta þessarar stóru rannsóknar og þar er verið að bæta í, skoða miðlun pólitískra upplýsinga í ko
Það er óhætt að segja að Már Gunnarsson sundmaður sem keppir nú á Ólympíuleikum fatlaðra hafi slegið í gegn með framgöngu sinni. Hann hefur í tvígang komist í úrslit en svo hefur hann líka gert stórskemmtileg myndbönd á samfélagsmiðlum, segist nýta frítímann í að semja Eurovisionlag og svo syngur hann fyrir keppinauta sína enda tónlistarmaður í besta flokki. Már grínaðist með að hann hefði verið að gefa keppinaut undir fótinn og virðist með því vera kominn út úr skápnum og það eru fréttir til næsta bæjar þegar kemur að afreksíþróttafólki. Við slógum á þráðinn til Más í Tokyo og heyrðum hvað hann er að bardúsa. Félag kvenna í atvinnulífinu stendur fyrir svokölluðum opnunarviðburði á fimmtudaginn undir heitinu Orkustöð FKA, í tilefni af nýju starfsári. Þær Unnur Elva Arnardóttir nýr varaformaður FKA og Birna Bragadóttir forstöðumaður Elliðaárstöðvar litu við og sögðu okkur frá skógarbaði, upplifunargöngu og fleiru spennandi, auk þess sem við fræddumst um félagið og gildi þess fyrir konur. Í síðustu viku fór fram prufumót í alþjóðlegri þolkappreið sem Landssamband hestamannafélaga stóð fyrir. Riðið var úr Skagafirði, yfir Kjöl, á Þingvelli. Sigurvegarinn Iðunn Bjarnadóttir er ekki alls óvön því að ferðast á hestum, en hún kom fyrst í mark eftir spennandi fjögurra daga keppni. Iðunn var á línunni hjá okkur og sagði okkur af þessu krefjandi ferðalagi. Hræðilegt atvik á geðdeild Landsspítalans hefur enn vakið umræðu um þvinganir gagnvart fólki sem glímir við geðræn vandamál. Geðhjálp hefur um árabil reynt að koma málinu á dagskrá og mun á næstunni funda með forsætisráðherra um vandann. Formaður Hugarafls sagði í fjölmiðlum að Landsspítalinn notist við hugmyndafræði sem leyfði þvinganir. En um hvað er rætt þegar talað er um þvinganir gagnvart fólki með geðrænan vanda? Héðinn Unnsteinsson formaður Geðhjálpar kom í morgunútvarpið. Guðmundur Jóhannsson opnaði dyrnar að tæknihorninu upp úr hálfníu og sagði okkur frá ströngum takmörkunum á tölvuleikjanotkun í Kína og hvernig má varast svindl símtöl, tölvupósta og skilaboð er tengjast netglæpum. Tónlist: Mannakorn - Garún. Ásgeir Trausti - Sunday drive. Már og Iva - Barn. Sigurður Guðmundsson - Kartöflur. Blondie - Call me. Eivör Pálsdóttir - Rain. Maneskin - Zitti e buoni. Leon Bridges - Steam. Snorri Helgason - Haustið 97.
Í byrjun ágúst barst Byggðasafninu í Skagafirði pakki frá Þýskalandi sem innihélt þrjá gamla muni. Engin útskýring fylgdi pakkanum og starfsmenn safnsins klóruðu sér í höfðinu yfir þessari dularfullu sendingu. Svo kom í ljós að munirnir í pakkanum reyndust vera safngripir sem hurfu af safninu fyrir ríflega 50 árum. Við hringdum í Ingu Katrínu Magnúsdóttur verkefnastjóra og forvitnuðumst um þetta athyglisverða mál. Nú er mikið um að vera í Vestmannaeyjum enda pysjutímabilið svokallaða hafið. Þá leitar fólk uppi villuráfandi lundapysjur sem sækja í ljósin á landi og kemur þeim til hafs. Marinó Sigursteinsson, eða Mari eins hann er gjarna kallaður, þekkir vel til lundans og pysjunnar og hann var á línunni hjá okkur frá Eyjum og sagði okkur frá lundum og söl. Helga Hilmisdóttir rannsóknardósent á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum vinnur nú, ásamt teymi sínu, verkefnavinnu sem leggja á grunn að nýrri talmálsorðabók á netinu. Í orðabókinni verður lögð sérstök áhersla á orð og orðasambönd sem erfitt er að skilgreina með hefðbundnum orðabókarskýringum. Þar er átt við t.d. orð, eða orðræðuagnir, eins og sko, nú og ja. Við hringdum í Helgu og heyrðum af þessu forvitnilega verkefni. Rannsóknarboranir eru að hefjast í Þormóðsdal á vegum kanadíska náma- og endurvinnslufélagsins St-Georges Eco-Mining Corp sem er móðurfélag Iceland Resources ehf., en íslenska félagið hefur í sinni umsjá rannsóknargögn og sýni úr fyrri gullleitum á Íslandi og hefur unnið að því að rýna þau gögn og rannsaka að nýju. Þórdís Björk Sigurbjörnsdóttir forstjóri Iceland Resources kom til okkar. Nú er Ólympíuleikunum lokið og okkar fólk á heimleið svo ekki hringjum við til Japans í þetta skiptið, en Helga Margrét Höskuldsdóttir hoppaði til okkar af íþróttadeildinni og spjallaði um lokadaga leikanna og fleira íþróttatengt frá helginni. Tónlist: Mannakorn - Samferða. Elvis Costello - Alison. Churces og Robert Smith - How not to drown. Hjalti og Lára Sóley - Eina nótt. Mö - Live to survive. Helgi Björnsson - Ekki ýkja flókið. Eiríkur Hauksson - Gull. Dua Lipa - Love again. Tómas R. og Ragga Gísla - Ávarp undan sænginni. Sigrid - Mirror. Ed Sheeran - Bad habits.