Podcasts about ingi j

  • 30PODCASTS
  • 309EPISODES
  • 1h 4mAVG DURATION
  • 1EPISODE EVERY OTHER WEEK
  • Apr 16, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about ingi j

Latest podcast episodes about ingi j

Lestin
Anna María Tómasdóttir, LucasJoshua, Salóme Katrín á Aldrei

Lestin

Play Episode Listen Later Apr 16, 2025 55:27

Anna María Tómasdóttir leikstjóri vill hafa húmor í leikhúsi. Það er ekki nauðsynlegt að vera í hláturskasti allan tímann, en það verður að vera eitthvað fyndið. Hún vill sjá fleiri íslensk leikrit, því þau eru það besta, og henni þætti einnig sniðugt ef Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið myndu stilla saman strengi sína. En fyrst og fremst vantar hér leiksvið. LucasJoshua er 17 ára gamall raftónlistarmaður. Hann hlaut verðlaunin Rafheili Músíktilrauna í ár. Þórður Ingi Jónsson sló á þráðinn til hans. Salóme Katrín Magnúsdóttir er í bíl á leiðinni vestur og í dag kom út lagið hennar Always and forever. Una Schram spjallar við Salóme um Aldrei fór ég suður, sem fer fram um páskana á Ísafirði.

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - fimmtudagur 10. apríl 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Apr 10, 2025 64:00

Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Ragnhildur Þórðardóttir Ragga nagli sálfræðingur um vorhreingerningu á fólki Finnbogi Jónasson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá greiningadeild ríkislögreglustjóra Þóra Jóhanna Jónasdóttir yfirdýralæknir hjá Mast um blóðmerahald Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins og Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins Björgmundur Örn Guðmundsson ráðgjafi í nýsköpun um nútíð og framtíð gervigreindar Örlygur Hnefill Örlygsson safnstjóri Eurovisionsafnsins á Húsavík

Bylgjan
Bítið - Öskudagur 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Mar 5, 2025 95:40

Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari   Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóðanna, ræddi við okkur um hlutverk lífeyrissjóðanna þegar kemur að fjárfestingum í innviðum. Andrés Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri Dýraverndarsambands Íslands og Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður sambandsins, ræddu við okkur um blóðmerarhald. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokks ræddu um hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar. Marta Jóns Hjördísardóttir, talskona sjúklinga á Landspítala, ræddi við okkur um áhyggjur og kvartanir sjúklinga.   Njáll Gunnlaugsson situr í stjórn Sniglanna og er afar ósáttur með kílómetragjaldið. Erla Gísladóttir, eigandi Urðar, ræddi við okkur um pungsápur til styrktar góðu málefni. Gummi Ben og Bjöggi ræddu við okkur um Spurningasprett.

Segðu mér
Haukur Ingi Jónasson

Segðu mér

Play Episode Listen Later Feb 5, 2025 40:00

Haukur Ingi Jónasson er doktor í guðfræði og starfaði sem sjúkrahúsprestur í New York.

Lestin
Lífvana leikhús? Ásgeir H. Ingólfsson kvaddur, Masaya Ozaki

Lestin

Play Episode Listen Later Feb 4, 2025 57:23

Við kveðjum skáldið, gagnrýnandann og menningarblaðamanninn Ásgeir H. Ingólfsson sem lést eftir snörp veikindi 25. janúar síðastliðinn, aðeins 48 ára gamall. Ásgeir var reglulegur gestur í Lestinni með pistla um kvikmyndir og kvikmyndahátíðir. Við heyrum brot úr nokkrum pistlum og ljóðalestri Ásgeirs. Við veltum fyrir okkur stöðu leikhússins á Íslandi árið 2025. Á næstu vikum ætlar Lóa að ræða við viðmælendur sem koma sviðslistum við - um framtíð sviðslista - Hvernig lítur framtíð leikhússins út? Hvernig getur leikhús farið inn í þá framtíð? Hvað er listrænt spennandi? Hvert er hlutverk gagnrýnenda? Hvernig náum við ungu fólki í leikhús? Og af hverju ætti ungt fólk að fara í leikhús? Af hverju að fara í leikhús yfirhöfuð? Rannsóknin hefst á samtali við sviðslistamann sem hætti í sviðslistum, Karl Ágúst Þorbergsson. Við ræðum svo við japanska tónlistarmanninn Masaya Ozaki sem býr og starfar í Reykjavík. Þórður Ingi Jónsson spjallaði við hann eftir tónleika í kjallara Hörpu á Myrkum músíkdögum.

Lestin
Heimsókn til Sisimiut, OG Maco, eftirmálar HM95, óskarstilnefningar

Lestin

Play Episode Listen Later Jan 23, 2025 56:11

Fyrir þrjátíu árum síðan ríkti mikil bjartsýni og stórhugur meðal íslenskra handboltaunnenda, en þá, árið 1995 hélt Ísland einmitt heimsmeistaramótið í handbolta - fyrsta og eina skiptið sem Ísland hefur haldið stórmót í boltaíþrótt. Að þessu tilefni höfum við verið að endurflytja örseriuna “Þegar Ísland hélt stórmót” sem við Anna Marsibil Clausen gerðum hér í Lestinni fyrir nokkrum árum um þetta sögulega mót - mót sem var mjög umdeilt á sínum tima, og er það kannski enn. Í þætti dagsins heyrum við fjórða og síðasta þátt seríunnar og þá verður rætt um afleiðingar og eftirmála keppninnar. Við heyrum líka um bandaríska rapparann OG Maco sem lést í lok síðasta árs, en hann var rétt rúmlega þrítugur. Maco spilaði á Íslandi árið 2017 og vakti mikla athygli fyrir sviðsframkomu sína. Þórður Ingi Jónsson minnist rapparans og ræðir um hann við Lexa Picasso. Katrín Helga Ólafsdóttir tónlistarkona og pistlahöfundur í Lestinni ferðaðst til Sisimiut á vesturströnd Grænlands í desember í fyrra og kynnti sér land og þjóð. Í dag flytur hún okkur pistil um það hvernig þjóðarsálin kemur henni fyrri sjónir: litaval á húsum, skammdegið, jólaljós, kóramenning, mótmæli vegna foreldraprófa, endurvakning gamalla hefða, Allt þetta og margt fleira kemur við sögu í innslaginu. Við nefnum líka tilnefningar til Óskarsverðlaunanna sem voru kunngjörðar fyrr í dag.

Chess After Dark
#216 Sigurður Ingi Jóhannsson

Chess After Dark

Play Episode Listen Later Jan 23, 2025 111:29

Gestur Chess After Dark í kvöld er Siguður Ingi Jóhannsson þingmaður og formaður Framsóknarflokksins.Sigurður Ingi er sömuleiðis fyrrum forsætisráðherra, fjármálaráðherra, innviðaráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfisráðherra.Umræðuefni í þættinum:Fréttir vikunnar.Nýafstaðnar Alþingiskosningar.Áfengi.Útlendingamál.Halla Hrund.Lífið í stjórnarnandstöðu.Atburðarásin 2016.Evrópusambandið.Sjálfstæðisflokkurinn.Framsóknarflokkurinn.Riddaraspurningar.Hraðaspurningar.Njótið vel kæru hlustendur.Þessi þáttur er í boði:Autocenter.Serrano.Orka Náttúrunnar.Dokobit.Play.TM.Kontakt fyrirtækjaráðgjöf.Lengjan.Suit Up.Búllan.Budvar.Subway.Dave&Jons.Frumherji.KEMI.Bónus.

Rauða borðið
Rauða borðið 16. jan - Samtakamáttur, hjólabúar, sálfræðingar og Pusswhip

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 16, 2025 152:02

Fimmtudagur 16. janúar Samtakamáttur, hjólabúar, sálfræðingar og Pusswhip Við hefjum leika á þremur Seyðfirðingum hjá Oddnyju Eir sem segja okkur frá baráttu íbúa Seyðisfjarðar gegn áformum um sjóakvíaeldi. Þetta eru þau Guðrún Ásta Tryggvadóttir, kennari Benedikta Guðrún Svavarsdóttir og Magnús Guðmundsson. Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, baráttukona og hjólabúi missti allt sitt í bruna og ræðir við mig um áfallið og stríðið við borgina sem ekkert hefur aðhafst. Hans Hektor Hannesson, sálfræðingur ræðir um kjaramál stéttarinnar nú þegar samningar eru lausir. Þórður Ingi Jónsson, Lord Pusswhip tónlistarmaður ræðir LA lífið, tónlistina og allt þar á milli.

Spegillinn
Hverjir verða ráðherra og svört Lúsía kallar fram það versta og besta í Finnum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 20, 2024 19:49

Ný ríkisstjórn verður kynnt á morgun, ríkisráðsfundur verður á Bessastöðum og lyklaskipti á sunnudag. Fáir vita hins vegar hverjir verða ráðherrar nema kannski leiðtogar stjórnarflokkanna þriggja. Andrés Ingi Jónsson og Eva H Önnudóttir stóðust ekki freistinguna og rýndu í ráðherrakapal og hvernig stjórnarsáttmálinn kemur til með að líta út. Og svo er það Lúsían í Finnlandi sem hefur kallað fram það versta en líka það besta í Finnum. Hún heitir Daniela Owusu, á ætti að rekja til Ghana og er dökk á húð og hár.

Lestin
Þau sjá okkur ekki í myrkrinu, japanska nýbylgjan, sovéskar röntgenplötur

Lestin

Play Episode Listen Later Dec 16, 2024 52:34

Kristín Eiríksdóttir, rithöfundur, segir frá nýju útvarpsverki Þau sjá okkur ekki í myrkrinu, sem verður flutt á Rás 1 um jólin. Verkið er skáldverk byggt á viðtölum við tvo Palestínumenn, Fadia og Ahmed, sem eru bæði búsett hér á landi. Þórður Ingi Jónsson fjallar um japönsku nýbylgjuna í kvikmyndagerð út frá myndunum Pale Flower og Woman in the Dunes. Og svo fáum við sendingu frá raftónlistarmanninum Jónasi Þór Guðmundssyni. Hann segir frá sovésku fyrirbæri, því þegar fólk greip til þess að nota röntgen myndir til að gera vínyl-plötur.

Vikulokin
Andrés Ingi Jónsson, Freyja Steingrímsdóttir og Hafsteinn Birgir Einarsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Dec 7, 2024 57:42

Andrés Ingi Jónsson, fráfarandi þingmaður Pírata, Freyja Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands, og Hafsteinn Birgir Einarsson, stjórnmálafræðingur, voru gestir Vikulokanna laugardaginn 7. desember. Þau ræddu meðal annars um niðurstöður nýafstaðinna Alþingiskosninga og stjórnarmyndunarviðræður Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Auk þess þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar, starfandi matvælaráðherra, að veita hvalveiðileyfi til fimm ára. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Rauða borðið
Rauða borðið 3. desember: Kosningar, spilling, kosningakerfi, vinstrið, fangar og bridge

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Dec 3, 2024 233:31

Þriðjudagur 3. desember Kosningar, spilling, kosningakerfi, vinstrið, fangar og bridge Var nógu mikið rætt um spillingu fyrir kosningarnar? Veltur á því hvaða flokkar skipa stjórn hve mikið aðhald verður gegn spillingu? Þau Marínó G. Njálsson kerfisfræðingur, Jasmina Vajzovic ráðgjafi og Atli Þór Fanndal ráðgjafi, ræða úrslit kosninganna og framtíðina. Það gera líka Þorvaldur Gylfason prófessor, einkum brotið kosningakerfi, og Andrés Ingi Jónsson fyrrum þingmaður Vg og Pírata, einkum um stöðu vinstrisins. Sindri Freysson hefur skrifað bók um íslenska fanga Breta á hernámsárunum og segir okkur sá sögu. Í lokin segir Matthías Imsland framkvæmdastjóri Bridgesambandsins hvers vegna hugaríþróttir efla rökhyggju ungmenna.

Bylgjan
Sprengisandur 01.12.02024 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Dec 1, 2024 87:19

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og Sanna Magdalena Mörtudóttir um úrslit kosninga. Þorgerður Katrín formaður Viðreisnar og Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar um úrslit kosninga. Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins, Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks og Bergþór Ólafsson Miðflokki um úrslit kosninga. Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur og Eva H. Önnudóttir stjórmálafræðingur um úrslit kosninga.

Lestin
Á vettvangi, gamalreyndir graffarar, ríki og samfélag

Lestin

Play Episode Listen Later Nov 25, 2024 54:30

Jóhannes Kr. blaðamaður er gestur þáttarins. Við ræðum nýja hlaðvarpsseríu, Á vettvangi, en í henni er Jóhannes á Bráðamóttökunni. Hlustunin er streituvaldandi, svo fátt eitt sé sagt. Blaðamanninum þótti mikilvægt að þættirnir kæmu út fyrir kosningar, enda heilbrigðismál stórt kosningamál. Þórður Ingi Jónsson ræðir við þrjá gamalreynda graffarar, tilefnið er nýútkomin heimildarmynd um graffítimenningu á Íslandi og undirgöngin við Klambratún, myndin Göngin. Hvað er ríki? Hvað er samfélag? Heimspekingarnir Páll Skúlason og Björn Þorsteinsson veltu þessu fyrir sér í þættinum Sunnudagsspjall um hugmyndir, gamlar og nýjar frá árinu 2013, sem var í umsjón Ævars Kjartanssonar. Við rifjum upp hluta af spjallinu af gefnu tilefni, nú þegar styttist í kosningar.

Stundin
Formannaviðtöl #3: Margt sem gengur rosalega vel en enginn vill heyra það

Stundin

Play Episode Listen Later Nov 15, 2024

Sig­urð­ur Ingi Jó­hanns­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og formað­ur Fram­sókn­ar­flokks­ins, ræð­ir um vanda­mál­in í ís­lensku sam­fé­lagi og lausn­irn­ar sem Fram­sókn býð­ur fram í ít­ar­legu við­tali við Heim­ild­ina.

Ein Pæling
#351 Sigurður Ingi Jóhannsson (B) - Alþingiskosningar 2024

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Oct 28, 2024 79:14

Sigurður Ingi mætir í settið til þess að fara yfir áherslur Framsóknar fyrir næstu kosningar. Rætt er um ríkisstjórnina, húsnæðismálin, útlendingamálin og margt fleira

Lestin
Topp 10 möst, jólabókunum slaufað, Jamie XX, Fred again.., Osamu Sato

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 15, 2024 57:12

Ólöf B. Torfadóttir frumsýndi aðra kvikmynd sína á dögunum, grínmyndina Topp 10 Möst. Í aðalhlutverkum eru Tanja Björk og Helga Braga, sem leika strokufanga og gjaldþrota myndlistakonu. Við heimsækjum Ólöfu upp á Akranes. Í september gáfu tveir breskir danstónlistarmenn af svipaðri kynslóð út langþráðar plötur, Jamie XX og Fred again.. Davíð Roach Gunnarsson rýnir í plöturnar í þætti dagsins. Við fræðumst um hinn goðsagnakennda og síkadelíska tölvuleik LSD: Dream Emulator. Þórður Ingi Jónsson á tölvupóstsamskiptum við höfund leiksins, tónlistar- og myndlistarmanninn Osamu Sato. Og svo setjumst við niður og horfum á Kiljuna eða Silfrið eða Kiljuna eða Silfrið.

Rauða borðið
Synir Egils 29. sept - Byrlun, vinnumansal, pólitísk átök og skuldir ríkissjóðs

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 29, 2024 132:26

Sunnudagur 29. september Synir Egils: Byrlun, vinnumansal, pólitísk átök og skuldir ríkissjóðs Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Lára Zulima Ómarsdóttir almannatengill, Jón Gnarr listamaður og pólitíkus og Hjördís Rut Sigurjónsdóttir upplýsingafulltrúi og ræða fréttir vikunnar og stjórnmálaástandið. Þeir bræður munu taka púlsinn á pólitíkinni og síðan koma þrír þingmenn til að ræða stöðu ríkisfjármála, skuldasöfnun og vaxtabyrði: Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir þingmaður Framsóknar, Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata, Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Oddný Harðardóttir þingmaður Samfylkingar.

Spegillinn
Fjárlagafrumvarp, sameiningarmál Skorrdælinga, ofsóknir á hendur rússneskum vísindamönnum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 9, 2024 20:02

Sigurður Ingi Jóhannsson kynnir á morgun , klukkan níu, sitt fyrsta fjárlagafrumvarp. Þetta verður söguleg stund í íslenskri stjórnmálasögu því Sigurður Ingi er fyrsti Framsóknarmaðurinn í nærri hálfa öld til að vera fjármálaráðherra. Freyr Gígja Gunnarsson reifar það helsta sem búast má við í frumvarpinu og ræðir það við Finnbjörn Hermannsson, formann ASÍ. Skorradalshreppur er eitt af fámennustu sveitarfélögum landsins og hefur ítrekað hafnað sameiningu við stærri sveitarfélög. Meirihluti hreppsnefndar samþykkti að hefja formlegar sameiningarviðræður við Borgarbyggð í júlí en stjórnsýslukæra og undirskriftasöfnun íbúa gætu sett þær í uppnám. Gréta Sigríður Einarsdóttir fjallar um málið og ræðir við Jón Eirík Einarsson, oddvita Skorradalshrepps. Rússnesk yfirvöld, með leyniþjónustuna FSB í broddi fylkingar, hafa á síðustu árum handtekið, ákært og dæmt á annan tug vísindamanna í margra ára fangelsi vegna meintra landráða. Vísindamennirnir eru sakaðir um að hafa deilt háleynilegum vísindagögnum með útsendurum erlendra ríkja. Þeir - og verjendur þeirra - benda á að þeir komi hvergi nærri hönnun þeirra hátæknvopna sem þeir eru sakaðir um að tala óvarlega um í annarra eyru, og hafi einungis starfað við grunnrannsóknir og fræðastörf á sínu sviði. Þeir hafi einungis rætt viðtekin vísindi og alþekktar kenningar á ráðstefnum erlendis, en engin ríkisleyndarmál. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred.

Bylgjan
Sprengisandur 25.08.2024 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Aug 25, 2024 96:31

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.   Í þessum þætti:   Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastjóri Carbfix um Coda Terminal verkefnið í Hafnarfirði.   Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármálaráðherra um efnahagsmál, húsnæðismál og samgöngumál.   Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur og Jón Ólafsson, prófessor við HÍ um alþjóðamál.    

Þjóðmál
#239 – Viðtal – Sigurður Ingi Jóhannsson fer yfir stöðuna

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Aug 21, 2024 60:52

Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármálaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, ræðir um stöðuna í hagkerfinu, ákvörðun Seðlabankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum, gagnrýni á fjármálastjórn ríkisstjórnarinnar, fjármögnunarþörf ríkisins, hvort að breytinga sé að vænta á skattamálum eða tollamálum og fleira. Þá er jafnframt rætt um stöðuna á stjórnarheimilinu, stöðu Framsóknarflokksins bæði á landsvísu og í borginni, hvað hafi breyst í stjórnmálunum frá því að hann settist á þing fyrir 15 árum, leiðtoga stjórnarflokkanna og margt fleira.

Rauða borðið
Rauða borðið 19. ágúst - Áfengi og pólitík, Gaza, stjórnsýslan og þátttaka í lýðræðinu

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 19, 2024 217:57

Mánudagurinn 19. ágúst Áfengi og pólitík, Gaza, stjórnsýslan og þátttaka í lýðræðinu Jódís Skúladóttir þingmaður VG varpar sprengju í umræðuna og upplýsir að hún hafi gert athugasemd innan forsætisnefndar Alþingis vegna drykkju þingmanna við þinglok í vor. Magga Stína segir fréttir af Gaza og Þorvaldur Ingi Jónsson, þrautreyndur ríkisstarfsmaður segir mikla sóun eiga sér stað í stjórnsýslunni og að spara mætti stórfé með betri vinnubrögðum. Ole Anton Bieltvedt kaupsýslumaður og dýraverndarsinni skrifar oft greinar um samfélagsmál. Hann kemur til okkar og segir hvers vegna.

Spegillinn
Hvalveiðar og þingkosningar í Frakklandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 12, 2024 20:00

12. júní 2024 Forstjóri Hvals hf sagðist í morgun vera efins um að fyrirtækið myndi veiða hval á þessari vertíð vegna seinagangs matvælaráðherra. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, telur orð forstjórans vera viðbrögð við minni eftirspurn á Japansmarkaði og Þórarinn Ingi Pétursson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, segir Hval hafa nægan tíma til stefnu. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við þá. Innan við þrír sólarhringar eru liðnir frá því Emmanuel Macron, forseti Frakklands, boðaði óvænt til þingkosninga sem hefjast um næstu mánaðarmót, og kosningabaráttan, með alls kyns vendingum og átökum franskra stjórnmálaflokka - er komin í fullan gang. Macron kom fram á blaðamannafundi í morgun, þar sem hann hvatti lýðræðissinnaða flokka til að sameinast gegn því sem hann kallaði öfgaöfl, og skömmu síðar ákvað stjórn Repúblikanaflokksins að sparka sitjandi forseta flokksins, eftir að hann vildi ganga til samstarfs við Þjóðfylkingu Marine Le Pen. Björn Malmquist segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Lestin
Strákasveitin Spark, framritun í baksýnisspeglinum, KUSK

Lestin

Play Episode Listen Later Jun 5, 2024 54:43

Við rifjum upp gleymda gersemi úr íslenskri tónlistarsögu, plötuna Lífið er leikur með strákasveitinni Spark, sem kom út árið 2005 þegar meðlimir sveitarinnar voru 10 og 11 ára gamlir. Kolbrún Óskarsdóttir, Kusk, sendi frá sér plötuna Rammar undir lok maímánaðar. Hún lítur við í hljóðveri og segir okkur frá. Þórður Ingi Jónsson sendir okkur línu frá Kaliforníu, hann ræddi um framritunartónlist við DJ_Dave og c_robo_ sem eru búsett þar en verða með tónleika á Radar í Reykjavík annað kvöld ásamt íslenskum listamönnum.

Spegillinn
Eiríkur Ingi Jóhannsson, Pétur Jökull ákærður fyrir 100 kg kókaínsmygl, sýndarveruleiki í dómsal

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 21, 2024 20:00

Rætt er við Eirík Ingi Jóhannsson, forsetaframbjóðanda. Pétur Jökull Jónasson, 45 ára gamall Íslendingur, hefur verið ákærður fyrir aðild að innflutningi á nærri hundrað kílóum af kókaíni til landsins, í timbursendingu fyrir tveimur árum. Fjórir hlutu þunga dóma vegna málsins. Það getur valdið þolendum miklum kvíða að mæta gerendum sínum fyrir dómi. Nemendur í tölvunarfræði hafa hannað dómsal í sýndarveruleika sem líkir eftir einum af sölum hérðasdóms. Þannig getur fólk búið sig undir að mæta gerendum augliti til auglitis.

Spegillinn
Forsetaframboð,, forsetaembættið og framtíð pósthúsa

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 4, 2024 20:00

4. apríl 2024 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra staðfesti í gær að hún hefði íhugað forsetaframboð af mikilli alvöru. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, aflýsti för sinni á 75 ára afmælisfund Atlantshafsbandalagsins í Brussel og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins frestaði boðuðum fundarhöldum á Austurlandi. Heimildir fréttastofu herma að þeir tveir eigi nú í viðræðum við Guðmund Inga Guðbrandsson, varaformann Vinstri grænna, um framhald ríkisstjórnarsamstarfs flokkanna þriggja. Flest - og jafnvel allt - bendir því til þess að Katrín ætli í framboð og muni tilkynna það áður en þing kemur saman á mánudag, líklega strax á morgun. Ævar Örn Jósepsson ræðir þessa dæmalausu stöðu við Eirík Bergmann Einarsson stjórnmálafræðing. Forsetakosningarnar í sumar verða sögulegar, hvernig sem á það er litið. Fari forsætisráðherra fram, sem flest bendir til að verði niðurstaðan, er það stefnubreyting og opnar um leið ákveðna möguleika fyrir forsetaembættið. Þetta segir Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur í samtali við Frey Gígju Gunnarsson. Í sumar verða tuttugu og sjö pósthús og samstarfspósthús eftir á landinu öllu. Þau voru meira en tvöfalt fleiri fyrir fimmtán árum. Sveitarstjórar í smærri byggðarlögum hafa áhyggjur af þjónustuskerðingu og segja að póstbox komi ekki í stað pósthúss. Ólöf Rún Erlendsdóttir tók saman og ræddi við Björn Bjarka Þorsteinsson, Unni valborgu Hilmarsdóttur og Jón Björn Hákonarson. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Bylgjan
Sprengisandur 24.03.2024 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Mar 24, 2024 96:05

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Finnur Beck framkvæmdastjóri Samorku um orkumál. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM um kjaramál. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Sigmar Guðmundsson alþingismaður um stjórnmál. Sara Dögg Svanhildardóttir verkefnastjóri um réttindamál fatlaðs fólks.

Lestin
Söngvaskáld á SoundCloud, Taugadeildin, Natatorium rýni

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 5, 2024 55:16

Kolbeinn Rastrick, kvikmyndarýnir Lestarinnar, rýnir í Natatorium, fyrstu mynd leikstjórans og handritshöfundarins Helenu Stefánsdóttur í fullri lengd. Á vefsíðunni SoundCloud þrífst blómlegt samfélag ungra söngvaskálda sem eru við það að brjóta sér leið upp á yfirborðið. Sigríður Langdal er ein þeirra. Þórður Ingi Jónsson mælti sér mót við meðlimi Taugadeildarinnar. Um er að ræða goðsagnakennda nýbylgjusveit sem hefur haft mikil áhrif á jaðarrokk hér á landi þrátt fyrir afar stuttan feril. Lagalisti: neonme, Ilmur - Hvers vegna varst' ekki kyrr? Pálmi Gunnarsson - Hvers vegna varst' ekki kyrr? SoundCloud samtíningur hljodmaskinavif - kyrrð (desember lag nr. 19) Steinka - skolasund Stirnir - Mörgæsastrætó Einakróna - Stella Laglegt - þessi á rennur til sjávar (voice memo demo) róshildur - keyra/bremsa Laglegt - sárið (voice memo demo) Einakróna - safnast upp (í mér) hljodmaskinavif - uppí rúmi (desember lag nr. 22) Lúkas - Project 12 HáRún - Enda alltaf hér (upptaka af Músíktilraunum 2022) Laglegt - sarið (voice memo demo) Taugadeildin - Lög af samnefndri stuttskíf

Bylgjan
Sprengisandur 11.02.2024 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Feb 11, 2024 92:50

Kristján Kristjánsson stýrir kraftmikilli umræðu um þjóðmálin. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur og Hlökk Theodórsdóttir skipulagsfræðingur um skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins. Páll Erland forstjóri HS Veitna, Gunnar Axel Axelsson sveitarstjóri Voga og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar um stöðuna á Suðurnesjum. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra um stöðuna á Suðurnesjum.  Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR um kjaramál.

Spegillinn
Grindavík, staða og horfur

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 22, 2024 19:58

Fulltrúar ríkisstjórnarinnar hétu því í dag að eyða þeirri óvissu sem Grindvíkingar hafa búið við síðustu vikur og mánuði og gera þeim kleift að tryggja sér húsnæði til framtíðar – skemmri, millilangrar eða varanlegrar framtíðar, eins og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra orðaði það. Hvernig það verður gert liggur ekki endanlega fyrir, en stefnt er að því að leggja fram lagafrumvarp þar að lútandi í næsta mánuði og brúa bilið þangað til með því að bæta í þau bráðabirgða- eða skammtímaúrræði sem þegar hefur verið gripið til og hækka hvort tveggja húsnæðis- og launastyrki. Langtímaúrræðin eru öllu flóknari við að eiga enda að mörgu að hyggja, eins og Þórdís greinir frá í stuttu máli. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tekur í sama streng, en heyra má brot úr viðtölum Höskuldar Kára Schram, fréttamanns, við ráðherrana í upphafi þáttar. Lungi þáttarins er hins vegar lagður undir ítarlegt viðtal sem Ævar Örn Jósepsson tók við Fannar Jónasson, bæjarstjóra Grindavíkur í beinni útsendingu. Þar fara þeir yfir víðan völl; boðaðar aðgerðir stjórnvalda, vilja íbúa - eða tregðu - til að flytja aftur til Grindavíkur þegar og ef aðstæður leyfa, aðstæður til atvinnurekstrar og rekstrar bæjarfélagsins í því óvissuástandi sem nú ríkir og fleira. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Lestin
Snjallsími góða fólksins, hýr illmenni í hundrað ár, goth Atlanta rapp

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 16, 2023 55:00

Aðstæður verkafólks í Kína, kolefnisfótspor, barnaþrælar í kóbaltnámum í Kongó. Það er ýmislegt sem hönnuður siðferðilega þolanlegs snjallsíma þarf að hafa í huga. Nú er í fyrsta skipti hægt að kaupa siðlega snjallsímann, snjallsíma góða fólksins, Fairphone, á Íslandi. Við pælum í snjallsímum og siðferði með Bjartmari Oddi Þey Alexanderssyni blaðamanni. Í dag, 16. Október á Disney fyrirtækið 100 ára afmæli. Við ætlum að halda upp á það í þættinum í dag og rifja upp þætti fyrrum lestarstjórans Önnu Marsý frá árinu 2021 - Veröldin hans Walts. Í þriðja þætti í seríunni ræddi hún við Sigríði Jónsdóttur, sérfræðing á leikminjasafni Íslands og leikhúsgagnrýnanda Fréttablaðsins. Þær íhuga Disney illmenni, sem virðast öll, þegar betur er að gáð, meira og minna hinsegin. Við spjöllum við rapparana Suavi Gualla og Lil Lowlife frá Atlanta, höfuðborg rappsins um þessar mundir, um stemninguna þar í borg, borið saman við nýja heimili þeirra Los Angeles. Þórður Ingi Jónsson ræðir við þessa meðlimi tónlistarhópsins Ball Hogg Records sem notið hefur mikillar athygli í heimi neðanjarðarrapps undanfarið.

Lestin
Snjallsími góða fólksins, hýr illmenni í hundrað ár, goth Atlanta rapp

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 16, 2023

Sprengisandur 15.10.2023 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Oct 15, 2023 94:44

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Valur Gunnarsson rithöfundur um Úkraínu. Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar um stjórnmál. Albert Jónsson sérfræðingur í alþjóðamálum um átök Ísrael og Palestínu.

Spegillinn
Hernaður Ísraela og Hamas, fundur stjórnarflokkanna, kvennaverkfall

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 13, 2023

13. október 2023 Samstaða var með stjórnarflokkunum á sameiginlegum vinnufundi þeirra á Þingvöllum í dag, segja Katrín Jakobsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson, forystumenn flokkanna. Kvikugangur er að myndast undir Fagradalsfjalli að mati vísindamanna Veðurstofunnar. Það sýnir hröðun á landrisi undanfarið. Fyrirskipun Ísraelshers um að 1,1 milljón íbúa Gazaborgar komi sér suður á bóginn fyrir miðnætti hefur vakið undrun og óhug víða um heim. Búist er við að landherinn ráðist fljótlega inn á Gazasvæðið. Hernaðurinn á eftir að reynast erfiðari en oft áður að mati Erlings Erlingssonar hernaðarsagnfræðings. Stjórnkerfi og fyrirtæki búa sig undir snúinn þriðjudag 24. október þegar boðað er til sólarhrings kvennaverkfalls. Hvorki ríki né borg ætla að draga af launum kvenna og kvára vegna þátttöku í skipulagðri dagskrá. Rætt var við Gerði Óskarsdóttur, Helga Grímssyni og Maríu Fjólu Harðardóttir. Edda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar, segir húsakost Kaffistofu samtakanna löngu sprunginn vegna þess hve gestum hefur fjölgað síðustu mánuði. Í mars heimsóttu ríflega 200 gestir kaffistofuna. Í september fór fjöldinn upp í tæplega þúsund. Um 70 prósent vilja að Bjarni Benediktsson, fráfarandi fjármála- og efnahagsráðherra, hætti alfarið í ríkisstjórn. Flestir eru ánægðir með ákvörðun hans. Fólki ber ekki saman um hvort ákvörðunin styrki eða veiki ríkisstjórnina. Sænska matvælaeftirlitið hefur varað við uppskriftum sem fólk fer eftir þegar fólk býr sig undir veturinn með því að sjóða niður, sulta og safta. Rætt var við Höllu Halldórsdóttur, gæðastjóra hjá Matís.

Spegillinn
Hernaður Ísraela og Hamas, fundur stjórnarflokkanna, kvennaverkfall

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 13, 2023 9:08

Besta afsögn ársins, Julie Byrne, goðsagnakenndir eyðimerkurtónleikar

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 10, 2023 55:00

Risafréttir úr íslenskum stjórnmálum. Bjarni Benediktsson hefur sagt af sér sem fjármálaráðherra. Snemma í morgun birtist álit umboðsmanns Alþingis á sölu ríkisins á hlut sínum í Íslandsbanka í fyrra. Pabbi Bjarna var meðal þeirra sem keyptu hlut í bankanum. Umboðsmaður segir Bjarna hafa verið vanhæfan. Og Bjarni bregst við með að segja af sér. Sumir hafa túlkað þetta sem snjallan pólitískan leik hjá teflon-Bjarna sem sé núna að setja pressu á Svandísi Svavarsdóttur og ætli svo bara að verða utanríkisráðherra, en margir aðrir hafa hrósað honum fyrir að axla ábyrgð, og fyrir virða lýðræðislegar stofnanir - þó hann sé ósammála þeim. Við ætlum hins vegar að rýna í sjálfa afsagnarræðuna, orðin. Árið 1983 voru haldnir þrennir tónleikar í Mojave eyðimörkinni í Kaliforníu þar sem margar af framsæknustu rokksveitum þess tíma komu fram: Sonic Youth, Einstürzende Neubauten og Minuteman. Þessi goðsagnalegu tónleikar, Mojave Exodus, eru oft sagðir hafa lagt grunninn að tónlistarhátíðum á borð við Burning Man og Coachella. Maðurinn á bakvið tónleikana var Stuart Swezey, en hann er viðfangsefni nýrrar heimildamyndar sem nefnist Desolation Center. Þórður Ingi Jónsson útsendari Lestarinnar í Los Angeles ræddi við Stuart um tónleikahald á pönkárunum. Hildur Maral Hamíðsdóttir fjallar um nýja plötu bandarísku indí-kassagítarsöngkonunnar Julie Byrne, The Greatest Wing. Plötu sem er kláruð í skugga fráfalls hennar helsta samstarfsmanns og kærasta Erics Littman.

Lestin
Besta afsögn ársins, Julie Byrne, goðsagnakenndir eyðimerkurtónleikar

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 10, 2023

Burning Man, kveikjuviðvaranir, samkvæmisdans í L.A.

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 7, 2023 55:00

Óli Hjörtur Ólafsson rifjar upp ævintýralega heimsókn sína á Burning Man hátíðina í Nevada eyðimörkinni árið 2011. Hátíðin var mikið í fjölmiðlum undanfarnar daga en 72 þúsund hátíðargestir voru innlyksa á hátíðinni sökum rigningar. Rigningin hafði breytt uppþornuðum vatnsbotninum sem kallaður er Playa af hátíðargestum, í forarsvað sem ómögulegt var að keyra í. Þórður Ingi Jónsson ræðir við samkvæmisdansarann Þorkel Jónsson sem búsettur í Los Angeles og við rifjum upp innslag frá því í ágúst í fyrra þegar Kristján Guðjónsson kynnti sér tilgang og virkni kveikjuviðvarana eða trigger warnings.

Lestin
Burning Man, kveikjuviðvaranir, samkvæmisdans í L.A.

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 7, 2023

Óli Hjörtur Ólafsson rifjar upp ævintýralega heimsókn sína á Burning Man hátíðina í Nevada eyðimörkinni árið 2011. Hátíðin var mikið í fjölmiðlum undanfarnar daga en 72 þúsund hátíðargestir voru innlyksa á hátíðinni sökum rigningar. Rigningin hafði breytt uppþornuðum vatnsbotninum sem kallaður er Playa af hátíðargestum, í forarsvað sem ómögulegt var að keyra í. Þórður Ingi Jónsson ræðir við samkvæmisdansarann Þorkel Jónsson sem búsettur í Los Angeles og við rifjum upp innslag frá því í ágúst í fyrra þegar Kristján Guðjónsson kynnti sér tilgang og virkni kveikjuviðvarana eða trigger warnings.

Spegillinn
Inniviðaráðherra um samgöngusáttmála og orðstír Giulianis

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 28, 2023 9:56

Spegillinn 28. ágúst 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins er stórt verkefni og eðlilegt að hann sé endurskoðaður, en hann er hluti af stærra verkefni samgangna í landinu öllu segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, þar þurfi að finna jafnvægi og leiðir til tekjuöflunar. Pétur Magnússon talaði við hann. Afar lítill munur er á verði á þeim vörum sem eru í verðgátt stjórnvalda og hún virðist ekki hafa ýtt undir samkeppni verslana. Valgerður Gréta Gröndal tók saman og ræddi við Vilhjálm Hilmarsson hagfræðing hjá BHM og Magnús Sigurbjörnsson, forstöðumann Rannsóknarseturs Verslunarinnar Landsvirkjun hagnaðist um tæpa 16 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Hörður Arnarson forstjóri að kerfið sé nánast fullnýtt og til að skapa svigrúm sé verið að ýta gagnaverum með rafmyntagröft út. Haukur Holm tók saman. Hægt er að bæta aðferðir við veiðar á stórhvölum, að mati starfshóps matvælaráðherra, sem skilaði skýrslu um málið. Ari Páll Karlsson sagði frá. --------------- Væntingar voru miklar og tímalínan brött þegar Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins var undirritaður fyrir fjórum árum, segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra en það vissu allir. Á fimmtán ára samningstíma sé eðlilegt að hlutir séu endurskoðaðir en samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins sé bara eitt púsl af mörgum í heildarmyndinni. Pétur Magnússon ræddi við Sigurð. Rudy Giuliani var mikils metinn alríkissaksóknari og barðist ötullega gegn glæpum þegar hann var borgarstjóri í New York. Nú er hann meðal þeirra sem eru sóttir til saka fyrir að hafa reynt að snúa niðurstöðum forsetakosninganna í Bandaríkjunum þegar Donald Trump tapaði fyrir Joe Biden, þykir undarlegur í háttum og orðstír hans til fárra fiska metinn. Ásgeir Tómasson sagði frá. Innflytjendum á Íslandi hefur fjölgað um tugi þúsunda frá aldamótum. En það eru ekki aðeins erlendir ríkisborgarar sem flytja hingað, heldur flytja þúsundir Íslendinga líka til annarra landa á ári hverju. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Ólöfu Garðarsdóttur, prófessor í sagnfræði.

Spegillinn
Inniviðaráðherra um samgöngusáttmála og orðstír Giulianis

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 28, 2023

Óveðurslægðin Hans veldur usla og þolmörk ferðaþjónustunnar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 9, 2023 9:26

Spegillinn, 9. ágúst 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Stífla virkjunar norðaustur af Osló í Noregi er brostin og óttast er að járnbrautarbrú í Ringebu gefi sig. Óveðrið Hans hefur valdið miklu eignatjóni. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir sagði frá. Kristín Eysteynsdóttir, rektor Listaháskólans segir það stóran áfanga að búið sé að fjármagna samkeppni um breytingar á framtíðarheimili skólans í Tollhúsinu í Reykjavík. Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra hefur lagt Grænbók um skipulagsmál fram í samráðsgátt stjórnvalda Rúmfatalagerinn breytist brátt í JYSK. Örn Úlfar Sævarsson textasmiður segir Íslendinga frekar vilja íslensk heiti en útlensk. Arnar Björnsson talaði við hann, Þórarinn Gunnarsson, Bryndísi Eggertsdóttur og Önnu Guðjónsdóttur. Google vill að áströlsk stjórnvöld breyti höfundarréttarlögum svo hægt sé að nota efni til að að þjálfa gervigreind án sérstaks leyfis höfunda. Ragnar Jónasson varaformaður Rithöfundasambandsins og kennari í höfundarétti segir að þetta myndi snúa höfundaréttarlögum haus. Ísak Regal tók saman. ---------------- Enn sér ekki fyrir endann á tjóni því sem óveðrið Hans hefur valdið í Noregi en það hleypur á milljörðum. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Gísla Kristjánsson, fréttaritara í Noregi. Það helst ekki í hendur við sjálfbæra þróun að ferðamönnum fjölgi um tugi prósenta ár eftir ár að dómi Önnu Dóru Sæþórsdóttur prófessors í ferðamálafræði sem telur að ríkið hafi ekki staðið sig við uppbyggingu innviða vegna ferðamennsku. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana. Átta hafa tryggt sér rétt til að taka þátt í vali á forsetaframbjóðanda Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum. Fyrstu kappræðurnar verða að hálfum mánuði liðnum. Ásgeir Tómasson sagði frá. Heyrist í Donald Trump fyrrverandi forseta, Döshu Burns, Ron DeSantis og Chris Christie.

Spegillinn
Óveðurslægðin Hans veldur usla og þolmörk ferðaþjónustunnar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 9, 2023

Ábyrgð stjórnenda Íslandsbanka og traust til kerfisins

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 27, 2023

Spegillinn 27. júní 2023. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra telur ekki að stjórnvöld hafi verið of bláeyg með því að treysta stjórnendum Íslandsbanka fyrir sölu á hlut í bankanum. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir að fólk sem ítrekað brjóti lög, blekki vísvitandi og ljúgi, njóti ekki trausts og þurfi að íhuga stöðu sína. Útleiga hoppukastala er ekki leyfisskyld starfsemi og ekkert formlegt eftirlit er með leigunni. Elva Rakel Jónsdóttir, staðgengill forstjóra umhverfisstofnunnar segir að breyta eigi reglugerðum. Ásta Hlín Magnúsdóttir talaði við hana. Yfirvöld í Póllandi, Lettlandi og Litáen óttast komu Wagner-málaliðahreyfingarinnar til Belarús. Þau hvetja NATO til þess að efla viðveru sína í austustu bandalagsríkjunum til að gæta öryggis þeirra. Róbert Jóhannsson sagði frá. Kynntar hafa verið hugmyndir í ríkisstjórn um að fjárfesta í færanlegum einingum til að koma mögulegum móttökubúðum flóttamanna á fót hér á landi. Þetta segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra. Ekkert lát er á hitabylgju sem hefur plagað Texas-búa í meira en tvær vikur. Hiti fór upp í 40 gráður í gær og áfram er spáð steikjandi hita út vikuna. Ólöf Ragnarsdóttir sagði frá. Þreifingar hafa verið á milli Árvakurs og Sýnar um kaup Árvakurs á Bylgjunni. Vefurinn Vísir.is er líka falur. Valur Grettisson sagði frá. ------------ Trúverðugleiki og traust eru orð sem hafa verið mörgum á tungu síðustu daga þegar rætt er um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka og þann áfellisdóm sem felldur er í skýrslu fjármálaeftirlitsins um söluna og þátt bankans sjálfs. Guðmundur Jónsson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands hefur fjallað um hagsögu og efnahagskreppur, og telur það skipta miklu hvort fólk treystir bönkum og fjármálakerfi en traust sé margþætt. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann Fresta þarf þúsundum læknisaðgerða ef af fimm daga verkfalli unglækna á sjúkrahúsum á Englandi verður í næsta mánuði. Ásgeir Tómasson sagði frá. Steven Barclay, heilbrigðisráðherra. Robert Laurenson unglæknir. Norðurlöndin eiga að verða samþættasta svæði heims og unnið er að því hörðum höndum í ráðherranefndum á vegum Norðurlandaráðs að tryggja að svo verði segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Guðmund Inga um Norðurlandsamstarf, flutning, ferðalög og nám Norðurlandabúa milli landa og stjórnsýsluhindranir sem ryðja þarf úr vegi. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Markús Hjaltason. Stjórn útsendingar: Sandra Silfá Ragnarsdóttir.

Spegillinn
Ábyrgð stjórnenda Íslandsbanka og traust til kerfisins

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 27, 2023 9:33

Hvalveiðar, átök í ríkisstjórn og næringarráðleggingar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 20, 2023 9:53

Fyrirvaralaust og ámælisvert, segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, um stöðvun hvalveiða út sumarið. Ríkið gæti verið bótaskylt standi ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra sem segir spurningu hvort atvinnugrein þar sem ekki sé hægt að tryggja velferð dýra eigi sér framtíð. Óskiljanleg ákvörðun segir Árni Sverrisson, formaður skipstjórnarmanna. Nú er rétti tíminn fyrir ríkið til að koma inn í húsnæðismarkaðinn að dómi Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra sem kynnti í dag aukinn stuðning við íbúðabyggingu fyrir tekjulága og breytingar á hlutdeildarlánum. Sonur Bandaríkjaforseta viðurkenndi í dag fyrir rétti að hafa svikið undan skatti og ólöglega eign á skotvopni. Dómari í réttarhöldum yfir fyrrverandi forseta boðar að þau hefjist síðsumars. Skoðanir eru skiptar innan ríkisstjórnarinnar um ýmis mál, hvalveiðar og útlendingamálin bera nú hæst. Pólitík snýst um átök, segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra; stjórnarsamstarfið sé þó ekki hættu. Fanney Lilja Harðardóttir sem setti flöskuskeyt á flot fyrir 14 árum segir gaman að skeytið hafi ratað í hendur stelpu sem er jafngömul og hún var sjálf þegar hún sendi það af stað. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir tók saman. Uppselt er á leik Íslands og Portúgals í fótbolta karla á Laugardalsvelli í kvöld. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður segir að löngu fyrir leik hafi margir verið mættir og eftirvæntingin mikil ekki síst eftir því að sjá stjörnur Portúgals eins og Christiano Ronaldo. ------------------- Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra kynnti í morgun ákvörðun sína um að stöðva veiðar á á langreyði til 31. ágúst. Niðurstaða fagráðs um velferð dýra var að veiðiaðferðir samræmist ekki lögum. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir skiptar skoðanir innan ríkisstjórnarinnar um hvalveiðar og styður ekki stöðvun þeirra. Vilhjálmur Birgisson formaður verkalýðsfélags Akraness telur vegið fyrirvaralaust að afkomu félagsmanna sinna sem hafi í fyrra haft góðar tekjur í hvalnum. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS telur að meðalhófs hafi ekki verið gætt, ámælisvert að stöðva veiðar degi áður en þær áttu að hefjast á grundvelli álits fagráðsins þegar MAST hafi komist að þeirri niðurstöðu að veiðarnar brytu ekki í bága við lög. Baunir, grænmeti og ávextir eiga að vera aðaluppistaðan í næringu landsmanna, samkvæmt nýjum Norrænum næringarráðleggingum sem kynntar voru í dag. Íslendingar ættu ekki að neyta meira en 350 gramma af rauðu kjöti á viku - en neyta nú um 560 gramma. Skera þyrf

Spegillinn
Hvalveiðar, átök í ríkisstjórn og næringarráðleggingar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 20, 2023

Fasteignamat 2024, ríkissáttasemjari hættir og hærri bílprófsaldur

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 31, 2023

Spegillinn 31. maí 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Aðalsteinn Leifsson er hættur sem ríkissáttasemjari. Ástráður Haraldsson skipaður tímabundið hans stað. Fasteignamat íbúðarhúsnæðis hækkar mest í Skagabyggð og í Reykhólahreppi, það er um tæplega 44%. Að meðaltali er hækkun fasteignamats tæp tólf prósent. Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans segir horft til nýs fasteignamats í bankanum strax á morgun, til dæmis þegar kemur að endurfjármögnun lána. Heiða Björg Hilmisdóttir. Formaður Sambands sveitarfélaga segir báða deilendur verða að gefa eftir í kjaradeilunni við BSRB. Ekki komi til greina að samningar nái lengra aftur en til 1. apríl. Eigendur bandaríska lyfjafyrirtækisins Purdue Pharma, sem setti oxycontin á markað, hafa samið um friðhelgi frá lögsóknum í tengslum við ópíóíðafaraldur en greiða í staðinn sex milljarða dollara næstu árin. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir sagði frá. Mikið hefur borið á því að netsvindlarar sendi tölvupóst undir yfirskini lögreglu eða dómsmálaráðuneytisins til að reyna að hafa af fólki fé. Þar stendur að verið sé að rannsaka viðkomandi í tengslum við barnaklám eða barnaníð. Ísak Regal tók saman. ÍBV og Haukar útkljá það í oddaleik í kvöld hvort liðið hampar Íslandsmeistaratitili í handbolta. Edda Sif Pálsdóttir ræddi við stuðningsmennina Tryggva Rafnsson (ÍBV) og Jóhann Ólaf Sveinbjarnason (Haukar). ---------------- Aðalsteinn Leifsson segist hafa verið vakinn og sofinn í embætti ríkissáttasemjara og tímabært að hætta og snúa sér að öðru. Átök og dómsmál í tengslum við deildu Eflingar og SA í vetur hafi e.kki haft áhrif ákvörðun hans.. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hann. Lilja Björk Einarsdóttir segir að hraðar vaxtahækkanir og staða lántakenda sé áhyggjuefni en vanskil einstaklinga hafi ekki aukist. Stígur Helgason ræddi við Lilju. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lagt til að almenn ökuréttindi á EES-svæðinu verði bundin við 18 ára aldur. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra telur ekki ástæðu til að hverfa frá því að bílprófið geti fólk fengið 17 ára hér. Björn Malmquist sagði frá.

Vikulokin
Hanna Katrín Friðriksson, Kjartan Magnússon og Andrés Ingi Jónsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Mar 25, 2023 55:00

Höskuldur Kári Schram ræðir við Hönnu Katrínu Friðriksson þingmann Viðreisnar, Kjartan Magnússon borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Andrés Inga Jónsson þingmann Pírata um efnahagsmál, ríkisstjórnarsamstarfið, húsnæðismál, rafbyssur og verðbólgu. Tæknimaður Kári Guðmundsson.

Vikulokin
Hanna Katrín Friðriksson, Kjartan Magnússon og Andrés Ingi Jónsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Mar 25, 2023