POPULARITY
Spjall við Söru Lind Annþórsdóttur um Tik Tok viðburðinn með Ásthildi, ást & kynlífsfík og fleira.. við fórum einnig yfir skemmtileg Insta Poll úr Losta story og hvað er eiginlega að vera góð/góður í rúminu??Takk fyrir að hlusta! Fylgið okkur á IG: @losti.isKíkið í heimsókn í búðina!Borgartún 3 & losti.is Sendu okkur línu!
Í dag heimsækir Samfélagið neyslurýmið Ylju í Borgartúni. Þar getur fólk 18 ára og eldra - sem notar vímuefni í æð komið og notað lyfin sín í hreinu og öruggu umhverfi - og fengið lágþröskuldarheilsbrigðisþjónustu. Við ræðum við starfsfólk Ylju í dag um hvernig reynslan hefur verið síðan Ylja opnaði í Borgartúni síðasta sumar - og við heyrum líka í skjólstæðingi Ylju sem segir okkur frá sinni reynslu af þjónustunni. Og síðan fáum við pistil frá Esther Jónsdóttur, pistlahöfundi Samfélagsins, sem fjallar í dag um hvað það þýði að upplifa söguna. Tónlist úr þættinum: Bon Iver - Re: Stacks. K.óla - Vinátta okkar er blóm. Aretha Franklin - Somewhere
Er erfitt fyrir þig að eiga frumkvæði? Förum yfir nokkur góð ráð til að eiga auðveldara með það. Að hrista upp í kynlífinu er góð skemmtun en hvernig gerum við það? Það þarf ekki neitt EXTREME til að breyta & bæta. Breyttu og "tweakaðu" litlum hlutum og prófið ykkur áfram!Takk fyrir að hlusta :)Fylgið okkur á IG: @losti.isKíkið í heimsókn í búðina!Borgartún 3 & losti.isSendu okkur línu!
Valentínusardagurinn nýbúinn og Konudagurinn er handan við hornið!Tölum um basic píku örvun og hvað er gott að hafa bak við eyrað þegar kemur að því að örva píkur með fingrum, tungu, munni, etc..Njótið!Munið að fylgja okkur á:IG:@losti.isOg kíkið í heimsókn í búðina!Borgartún 3 & losti.isSendu okkur línu!
Þórarinn og Árni Helgason, lögmaður og fyrrum hlaðvarpsstjórnandi, stinga á hin ýmsu kýli. Rætt erum rétttrúnaðinn og hvernig stjórnmálin hafa breyst á undraskömmum tíma. - Hvað gerir vinstrið þegar pendúllinn sveiflast til baka?- Er búið að reka Gretu Thunberg sem orkumálastjóra heimsins? - Hvað ef Trump ásælist Ísland?- Hvaða áhrif hefur menningarmunur í byggingariðnaði?- Þarf Javier Milei að koma til Íslands?- Hvað finnst Helga um mál Helga Magnúsar og Sigríðar Friðjónsdóttur?- Afhverju nær Sjálfstæðisflokkurinn ekki til "the average Joe"?Þessum spurningum er svarað hér.Til að styðja við þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling
Það fæðast að meðaltali 70 börn á ári með hjartagalla á Íslandi, mörg þeirra þurfa flóknar aðgerðir og ævilanga eftirfylgni. Þrátt fyrir að læknisfræðilegri aðstoð hafi fleygt fram, þá gleymist oft andlegi og félagslegi þátturinn, til dæmis hvernig börnin og aðstandendur þeirra upplifa lífið með hjartagalla. Guðrún Kristín Jóhannesdóttir, formaður Neistans, styrktarfélags barna með hjartagalla og Óskar Ericsson, framkvæmdastjóri félagsins komu í þáttinn í dag og fræddu okkur um málefni barna með hjartagalla og vitundarvikuna sem er framundan. Dalrún Kaldakvísl Eygerðardóttir er með doktorspróf í sagnfræði og hún er sérfræðingur í sögu hákarlamanna fyrr á öldum og mun flytja erindi á málþingi næsta laugardag í boði Félags um átjándu aldar fræði. Dalrún mun fjalla um samband hákarlamanna við hákarlinn á 19.öld.En hún leggur stund á rannsóknir á náttúrusögu Íslands. Við fengum hana til að segja okkur frá hákörlum og samspilinu milli hákarla og hákarlamanna 19.öld, á blómaskeiði hákarlaveiði á Íslandi. Hraðstefnumót fyrir eldri borgara verður í Bíó Paradís í tilefni af frumsýningu myndarinnar Eftirlætis kakan mín (My Favourite Cake) í aðdraganda Valentínusardagsins en frumsýningin verður á miðvikudaginn 12. febrúar kl 14:00. Sett verða upp borð á kaffihúsi Bíó Paradís þar sem kaffi og kleinur verða í boði. Hver þátttakandi fær 5 mínútur á hverju borði og leiðbeinandi spurningarblað við komu þar sem fólk getur kynnst hvort öðru. Ása Baldursdóttir dagskrárstjóri Bíó Paradís kom og sagði okkur frá þessum viðburði í dag. Tónlist í þættinum í dag: Skítaveður / Bogomil Font og Greiningardeildin (Bragi Valdimar Skúlason) Borgartún / Snorri Helgason (Snorri Helgason) Vonarströnd / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson) Lítið og væmið / Valdimar (Valdimar Guðmundsson) Til þín ástin mín / Stefán Helgi Stefánsson (Óli H. Þórðarson, texti Viktor A. Guðlaugsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í meira en fjóra áratugi hefur kaffistofa Samhjálpar tekið við fólki sem hafa ekki tök á að sjá sér fyrir mat sjálft, veitt þeim tímabundið húsaskjól og gefið þeim að borða. Starfsemi kaffistofunnar hefur þróast og breyst í gegnum árin og segja má að starfsemin hafi aldrei verið mikilvægari en í dag. Þó er framtíð kaffistofunnar óljós, en Samfélagið kíkti í heimsókn til að fræðast um starfsemina í Borgartúni. Á dögunum varð eftirlitsmaður Fiskistofu fyrir því að skotið var á dróna sem hann nýtti til eftirlits. Þetta var í þröngum firði vestur á fjörðum og skotin glumdu, þrjú í röð. Manninum var brugðið - enda skammt undan sjálfur, að stjórna drónanum. Viðar Ólason, sviðsstjóri veiðieftirlitssviðs, fiskistofu, er gamall sjómaður. Hann bindur vonir við að atvikið hafi verið undantekning en veit að andúð í garð Fiskistofu grasserar í sumum hópum. Við ræðum þetta alvarlega atvik við Viðar og einnig um fiskveiðieftirlitskerfið í heild, kosti og galla. Tónlist í þættinum: BARR - Allt haf.
Það eru umbrotatímar í pólitíkinni. Við heyrum hvað fólki á förnum vegi finnst um stjórnarslitin og framtíðina - gefum fólki sem í morgun var á rölti um Kringluna, Borgartún, Katrínartún og Snorrabraut orðið. Og úr pólitíkinni yfir í önnur stórmál, kannski á öðrum skala. Freðinn risi úr öðru sólkerfi hefur undanfarið tekið þátt í að lýsa upp næturhimininn - við fáum Sævar Helga Bragason, jarðfræðing og vísindamiðlara með meiru, til þess að segja okkur frá Halastjörnunni Tsuchinshan-Atlas C/2023 A3. Við förum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafn Íslands - þar segir Jón Torfi Arason, skjalavörður, okkur frá harmþrungu ástarbréfi sem fannst inni í vegg gamals húss á Ísafirði fyrir tæpum fimmtíu árum og skilaði sér nýlega til safnsins. Það reyndist vera frá manni sem skrifaði konu sinni frá holdsveikispítalanum í Laugarnesi. Tónlist: Nelson, Willie - Georgia on my mind. Una Torfadóttir - Í löngu máli.
Fanney Sigurðardóttir, miðlari, í einu orði. Við spjöllum um innsæið, hvernig við tengjumst því, styrkjum það og getum notað það dags daglega og lærum að treysta innæinu. Hvað er skylirðislaus ást? Er hún til? Takk kærlega fyrir að hlusta.Ert þú með umræðuefni eða spurningu sem þú vilt að sé tekið fyrir?Sendu okkur línu!Þú getur fylgst með okkur inn á IG: losti.is Verslun okkar er staðsett í Borgartúni 3Og netverslunin er ALLTAF opin.Njótið!Sendu okkur línu!
ÖRþáttur, enn einn.. stutt & laggott þar sem ég tek fyrir spurningabox sem ég var með fyrir stuttu á IG. Spurningin var "Hvað er helsta ástæða þess að þú/þið stundið ekki kynlíf jafn oft og þú/þið mynduð vilja?"Það voru mörg og fjölbreytt svör sem ég fékk.Takk fyrir að hlusta!Fylgdu okkur á IG: losti.isKíktu í heimsókn til okkar í Borgartún 3.Fyrir upplýsingar um Kynlífsmarkþjálfun: https://losti.is/pages/kynlifsmarkthjalfunSendu okkur línu!
Örstuttur þáttur bara rétt til að þakka fyrir okkur! En LOSTI fagnaði 4 árum nýlega.Takk fyrir okkur! What a ride...Takk fyrir að hlusta.Fylgdu okkur á IG: losti.isKíktu í heimsókn til okkar í Borgartún 3.Sendu okkur línu!
ÖRþáttur- Góður fylgjandi spurði mig nýlega : " Hvað NKL ertu að meina þegar þú talar um sameiginlega sjálfsfróun?" Mér fannst þessi spurning eiga skilið sér þátt!Stundar þú sameiginlega sjálfsfróun með þínum maka?Vissir þú að það eykur nándina og dýpkar tengslin? við mælum með!Takk fyrir að hlusta.Fylgdu okkur á IG: losti.isKíktu í heimsókn til okkar í Borgartún 3.Sendu okkur línu!
Viðmælandi þáttarins er elsku Birna Gustafsson, she´s back!Bland í poka þáttur, almennt spjall og svo skemmtilegar spurningar úr Insta spurningaboxi sem við Birna svörum. Takk fyrir að hlusta.Njótið!Followið okkur á IG:@losti.is@bbirna LOSTI er staðsett í Borgartúni 3 og er netverslunin losti.is alltaf opin! Sendu okkur línu!
Aldís Þorbjörg sálfræðingur og kynlífsráðgjafi kom til mín í spjall um unað kvenna, kynlöngun og kynlíf á forsendum kvenna og gefur okkur ýmis ráð og fróðleiksmola.Njótið!Followið okkur á IG:@losti.is@aldisthorbjorgLOSTI er staðsett í Borgartúni 3 og er netverslunin losti.is alltaf opin!
Squirt er ansi HOT topic! Við fáum báðar iðulega fjölmargar spurningar um squirt.Birna Kynfræðingur svarar algengustu spurningum; meðal annars:"Hvað er squirt?!""Geta allar píkur squirtað?" Og við fáum leiðarvísi um hvað ætti að virka fyrir þau sem vilja squirta!Njótið!Followið okkur á IG:@losti.is@bbirna LOSTI er staðsett í Borgartúni 3 og er netverslunin losti.is alltaf opin!
Stuttur þáttur út frá spurningu sem við lögðum fyrir fylgjendur okkar á Instagram nýlega: "Hvað einkennir góðan forleik?" Til að skoða vöruúrvalið bendum við á vefverslunina losti.isog tökum alltaf vel á móti þér í Borgartúni 3.
Saga og Birna kynfræðingur ræða brund, sæði, að kyngja eða ekki og margt fleira!Followaðu okkur á IG :@bbirna@losti.isLosti er staðsett í Borgartúni 3 & netverslun okkar losti.is er alltaf opin.Takk fyrir að hlusta.
Viðmælandi þáttarins er Katla.Katla starfar sem "Dominatrix" eða Drottning. Við ræðum meðal annars um hvað felst í því að starfa sem drottning og hvernig það er að fá svona mikið vald yfir annarri manneskju. Kötlu getur þú fundið inn á Snapchat undir nafninu: dommekatla LOSTI er staðsett í Borgartúni 3 og netverslunin losti.is er alltaf opin!Takk fyrir að hlusta.
Ágústa Kolbrún er viðmælandi þáttarins og deilir hún með okkur magnaðri upplifun frá Guatemala, talar um Píkuheilun, að standa með sjálfri sér og margt fleira. Við setjum Trigger Warning á þáttinn þar sem umræðan snertir á kynferðisofbeldi.Til að skoða vöruúrval Losta bendum við á losti.is vefverslun og verslun okkar í Borgartúni 3.Takk fyrir að hlusta.
Þórhildur Magnúsdóttir heldur úti miðlinum Sundur&Saman og er viðmælandi þáttarins. Við fáum að skyggnast inn í námskeiðið "Þitt er Valið" og ræðum sambönd, sambandsform og margt fleira!Til að skoða vöruúrval Losta bendum við á netverslun okkar losti.is og tökum alltaf vel á móti ykkur í Borgartúni 3.Takk fyrir að hlusta!
Birna Gustafsson, kynfræðingur með meiru kemur sem viðmælandi í þáttinn. Við ræðum tæki, unað, örvun og fleira og fáum að heyra hvað Birna hefur verið að bralla frá því hún flutti frá Íslandi fyrir rúmu ári síðan.Til að skoða vöruúrval Losta bendum við á losti.is vefverslun og verslun okkar í Borgartúni 3.Takk fyrir að hlusta.
we finally review the new john wick and explain how we could easily defeat him
Naglbíturinn, leikarinn, rithöfundurinn og dagskrárgerðarmaðurinn Vilhelm Anton Jónsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum Betri helmingi ljósmyndaranum, leikstjóranum og listakonunni Sögu Sigurðardóttur.Vilhelm eða Villi Naglbítur eins og margir þekkja hann, hefur komið víða við á sínum ferli en er hann alveg einstaklega fjölhæfur maður. Þetta hófst allt hjá honum með hljómsveit sinni 200 þúsund Naglbítum en hefur hann síðan þá meðal annars stýrt sjónvarpsþáttum, skrifað fjölda barnabóka, leikið í barnaefni, komið á svið leikriti og gæti ég haldið lengi áfram.Saga er einn okkar allra vinsælasti ljósmyndari en hefur hún í gegnum tíðina unnið fyrir margar risastórar alþjóðlegar keðjur og má sem dæmi nefna Apple, Nike, Victoria secret og Topshop. Ásamt ljósmynduninni hefur hún undanfarin ár leikstýrt fjölda auglýsinga á milli þess sem hún málar frábær listaverk.Villi og Saga kynntust fyrst í gegnum instagram en sendi Villi henni emoji gátu að hún hélt og út frá því myndaðist samtal. Þau ákváðu í kjölfarið að hittast en mætti Saga á spilakvöld til vina Villa og var þá ekki aftur snúið. Hlutirnir mölluðu hjá þeim í rólegheitunum í einhvern tíma en eru þau í dag nýbakaðir foreldrar, en fyrir átti Villi tvo drengi. Ég vil nýta tækifærið og óska þeim innilega til hamingju með nýja barnið en var Saga einmitt á seinustu metrum óléttunar þegar þau mættu til mín í spjall.Í þættinum ræddum við meðal annars tónlistina, sjónvarpið, ljósmyndunina og árin í London rómantíkina í Borgartúninu og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Villi lenti í útistöðum við Rússnesku mafíuna.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/
www.pardus.is/einpaelingGunnar Smári Egilsson mætir enn á ný. Rætt er um kjaradeilur Eflingar og Samtaka atvinnulífsins, veruleika hinna lægstlaunuðu í samanburði við mann í rúllukragapeysu í Borgartúni og fleira. Er Vilhjálmur Birgisson skúrkurinn? Hvernig á að takast á við verðhækkanir húsnæðismarkaði? Virka verkföll? Öllum þessum spurningum er svarað hér.
Tveir menn hafa haft áhrif á mig varðandi arkitektúr og skipulag, það eru þeir Guðni Pálsson arkitekt og Pétur Ármannsson byggingalistfræðingur, við heyrum í báðum í þættinum, sem fjallar um Guðna Pálsson arkitekt. Farið yfir feril Guðna, rætt um ýmsar byggingar sem hann hefur hannað. Rætt um skipulag Kvosarinnar frá 1986, Hvítu blokkirnar við Skúlagötu, 3 hús í Borgartúni, nýtt hverfi í Hamranesi í Hafnarfirði sem er að rísa, auk þess um íbúðaklasa eins og Guðni vill kalla nýjung í byggingu fjölbýlishúsa, sem enn hefur ekki risið. Rætt við Pétur Ármannsson byggingalistfræðing um Guðna og og störf Péturs á stofunni hans. Fyrir tilstilli Húsafrðunarnefndar var einbýlishús Guðna við Litlu Bæjarvör 4 á Álftanesi friðað í fyrra sem gott dæmi um arkitektúr níunda áratugarins.
Vin er dagsetur fyrir fólk með geðraskanir. Vin sækja notendur sem margir hverjir glíma við langvinna geðrofssjúkdóma (t.d. geðklofa), og þeir hafa gegnum tíðina mótað úrræðið að sínum þörfum. Rauði Krossinn sá um rekstur Vinjar í nærri þrjá áratugi en í fyrra tók Reykjavíkurborg við rekstrinum og fyrir skemmstu samþykkti borgarráð niðurskurðartillögur sem hafa sett starfsemi úrræðisins í uppnám. Gestir Vinjar eru viðkvæmur hópur og þessar fréttir hefur komið þeim í óþægilegt óvissuástand. Halldóra Pálsdóttir, mannfræðingur og forstöðukona á Vin og Bjarni Kristinn Gunnarsson sálfræðingur hjá Reykjavíkurborg komu í þáttinn í dag og fóru með okkur yfir stöðuna og sögðu frá samstöðufundi og afhendingu undirskriftarlista sem fram fer í dag kl.17 við Ráðhúsið. Kaffistofa Samhjálpar var opnuð árið 1981 en hafði þá bækistöðvar við Hverfisgötu í Reykjavík. Seinna fluttist kaffistofan í Borgartúnið þar sem hún hefur verið um árabil. Kaffistofan er ætluð þeim sem eru í neyð og hafa ekki tök á að sjá sér fyrir mat sjálf. Þangað sækir meðal annars fólk sem neytir áfengis- og fíkniefna auk fólks sem glímir við andleg og líkamleg veikindi af ýmsum toga. Aðsóknin hefur aukist og þörfin sjaldan verið meiri. Rósý Sigþórsdóttir verkefnisstjóri og forstöðumaður kaffistofunnar kom í þáttinn í dag. Tónlist í þættinum í dag: Það snjóar / Sigurður Guðmundsson (Norman Newell, Iller Pattacini og Bragi Valdimar) Undrastjarna / Hljómar (höf.óþekktur, texti Rúnar Júlíusson) Jólasnjór /Ellý og Vilhjálmur Vilhjálms (Jón Sigurðsson og Jóhanna G. Erlingsson) Allt er gott um jólin / Bjarni Ara (Bjarni Ara og Kristinn G. Bjarnason) Anda inn / Heimilistónar (Katla Margrét Þorgeirsdóttir) Ef ég nenni / Helgi Björnsson(Adelmo Zucchero Fornaciari og Jónas Friðrik Guðnason) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Þar sem í dag eru lóðirnar Borgartún 29-36 var áður tún hjáleigunnar Fúlutjarnar eða Lækjarbakka. Þessi jarðarskiki var byggður úr jörðinni Rauðará en landamerki á milli Laugarness og Rauðarár lágu um Fúlatjarnarlæk, sem rann að mestu vestan við núverandi Kringlumýrarbraut. Lækurinn var afrennsli frá Kirkjumýri og Kringlumýri og dró nafn sitt af Fúlutjörn, sem var hálfgert sjávarlón sunnan við Kirkjusand og lyktaði af rotnandi gróðri. Fúlutjarnarlækur var settur í stokk árið 1957 og um 1960 hafði verið fyllt upp í Fúlutjörn og hvorugt er því sýnilegt lengur, segir í skýrslu Borgarsögusafns frá 2017. Ferðinni er heitið í Borgartún í dag. Rætt við Gunnar Sigurðsson arkitekt hjá Andakt. Nú stendur til að rífa þær byggingar sem tilheyrðu fyrirtæki Guðmundar Jónassonar og byggja 100 íbúða fjölbýli, um er að ræða horn Kringlumýrarbrautar og Borgartúns á bak við Cabin hótelið Borgartún 34 - 36. EInnig rætt við Pawel Bartoszek varaformann umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar um framtíðarsýn í Borgartúni.
Spegillinn 4.október 2022 Fjöldahjálparstöð sem verið er að opna í Borgartúni í Reykjavík getur tekið á móti fyrsta flóttafólkinu í kvöld eða á morgun. Stjórnvöld voru uppiskroppa með húsnæði og neyddust til að biðja Rauða krossinn um aðstoð. Rússar viðurkenndu í dag ósigra á nokkrum vígstöðvum í Úkraínu. Bandaríkjaforseti lofar Úkraínu frekari hernaðaraðstoð Hávær mótmæli hafa staðið yfir í Menntaskólanum við Hamrahlíð frá því í gær. Varaformaður nemendafélagsins segir ótækt- að þolendur ofbeldis mæti aðgerðaleysi skólastjórnenda Hundruð hugmynda hafa borist í hugmyndasöfnunina Hverfið mitt. Hugmyndir reykvískra skólabarna eru einu orði sagt skrautlegar. Staða svissneska bankans Credit Suisse hefur valdið óróa á fjármálamörkuðum. Hlutabréfaverð í bankanum hefur hríðlækkað síðustu misseri og bankinn áformar fjöldauppsagnir. Greinendur segja kaup í bankanum aðeins fyrir þá djörfu. Ekki er þó ástæða til að óttast um of áhrifin á íslenskan markað, segir hlutabréfagreinandi. Hafrannsóknastofnun lagði í morgun til að loðnukvóti fyrir komandi vertíð verði ekki meiri en rúm 218.000 tonn. Það er 180 þúsund tonnum minna en upphafsráðgjöf gaf til kynna eftir mælingar í fyrrahaust. Þá var talið óhætt að veiða um 400.000 tonn á komandi vertíð og á síðustu vertíð var gefinn út kvóti upp á tæp 870 þúsund tonn sem var með allra mesta móti í áraraðir. Þessu koma sjávarbyggðir landsins til með að finna fyrir á komandi vetri með færri störfum og áhrifin á efnahagskerfið óhjákvæmileg. Það gefur augaleið að það kemur minna í kassann. Spegillinn ræddi við Guðmund J Óskarsson, sviðstjóra uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar. Sameinuðu þjóðirnar fara fram á rúmlega átta hundruð milljónir dollara vegna neyðarástands í Pakistan af völdum flóða síðastliðið sumar. Stór hluti landsins er enn umflotinn vatni og erfiðleikar íbúanna aukast stöðugt. Fjárhæðin er fimm sinnum hærri en áður var talin þörf á- til að koma íbúunum til hjálpar. Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson Tæknimaður: Markús Hjaltason Stjórn fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.

Verðbréfasalinn Jordan Belford fær vinnu hjá eftirsóttu fyrirtæki í fjármálageiranum og hann er ekki lengi að komast upp á lagið með að afla sér tekna á vafasaman máta. Fljótlega kemur hann upp sínu eigin fyrirtæki sem stóreykur umsvif á markaðnum á skömmum tíma. Myndin er byggð á raunverulegri sögu af verðbréfabraskara sem kunni sér ekki...
Verðbréfasalinn Jordan Belford fær vinnu hjá eftirsóttu fyrirtæki í fjármálageiranum og hann er ekki lengi að komast upp á lagið með að afla sér tekna á vafasaman máta. Fljótlega kemur hann upp sínu eigin fyrirtæki sem stóreykur umsvif á markaðnum á skömmum tíma. Myndin er byggð á raunverulegri sögu af verðbréfabraskara sem kunni sér ekki hóf.
Þá er komið að því! Stöllurnar sívinsælu láta loks í sér heyra eftir annasamar vikur. Afmælishátíðarhöld, vídeókvöld og hámhorf hafa verið í forgangi. En nú er danskortið autt og þær Móa og Lóa gefa sér tíma til að skeggræða þetta alltsaman fyrir ykkur til að njóta. Díönuhornið er í forgrunni í þessum þætti en einnig taka þær fyrir Borgartúnsþættina geysivinsælu og svo fá garðyrkjugullfræin og galdrabaunirnar að fljúga inn á milli.
S01E93 – Sandra er frá Akureyri en samt frá Chile. Hún lærði lögfræði þrátt fyrir góðan slurk af ADHD, eignaðist börnin á réttum aldri og gerði upp gamalt hús með hjálp vina og vandamanna. Hún hefur starfað við allskonar ólíka hluti og vill einfalda það sem flókið er. Hún er mjög berorð og beinskeytt. Mjög. Gott spjall. – Síminn Pay býður upp á STVF. Sæktu þér pizzu á Natalía í Borg 29, Borgartúni á aðeins 1.500 krónur! – Bónus býður upp á STVF. Ef þú þarf tösku utan um kúrekastígvélin þín meðan þú túrar með rokksveitinni þinni gerir Bónuspokinn sitt gagn. Aðalbjörn í Sólstöfum getur vitnað um það. – Hljóðkirkjan býður upp á 4 þætti í viku. Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
S01E81 – Lára Sóley er framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands og er fullkomin í djobbið. Hún er Húsvíkingur í grunninn, var fyrirmyndarbarn og -unglingur, lærði á fiðlu og fór snemma að skipuleggja viðburði. Allt sem hún lærði lærði hún vel, og mögulega stundum aðeins of vel. Árum saman var hún stór hluti af tónlistarlífi Akureyrar, kom að uppbyggingu Hofs og þjónaði starfi framkvæmdastjóra þar um tíma. Fram og til baka hefur hún numið tónlist og tónlistarstjórnun erlendis og lauk meistaranámi í listastjórnun í þann veginn sem hún settist í sætið sitt í Hörpu. Hún hefur starfað mikið sjálfstætt og er manneskja sem lætur hlutina gerast. Hún lætur ferilinn ekki stoppa sig í að halda fjölskyldu og á sálfræðing fyrir mann og þrjú börn. Þegar róast aðeins um hjá okkur báðum ætla ég að spyrja hvort hún vilji vera með mér í hljómsveit — en bara þegar við verðum búin að koma upp menningarhúsi á Húsavík. Gott spjall. – Síminn Pay býður upp á STVF. Sæktu þér vinsælustu pizzu Natalía í Borg 29, Borgartúni á aðeins 1.500 krónur! Tilboðið gildir frá þriðjudegi til þriðjudags og aðeins þegar þú pantar og greiðir í gegnum Síminn Pay appið. – Omnom býður upp á STVF. Íslenski veturinn einkennist af snævi þöktu, ísköldu vetrarhúminu og endalausu myrkri. Í aðventuöskjunni má finna fjögur hólf með girnilegu handgerðu aðventunammi sem opna á í aðdraganda jólanna. – Hljóðkirkjan býður upp á 5 þætti í viku. Dómsdagur á mánudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
Spegillinn 11.október 2021 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Rýmingu hefur verið aflétt að hluta vegna skriðuhættu á Seyðisfirði. Hættustig er þó enn í gildi og íbúar fimm húsa mega ekki snúa aftur heim. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir hafa komið sér á óvart að Birgir Þórarinsson sem kosinn var á þing fyrir Miðflokkinn hafi boðið þingflokki sjálfstæðismanna krafta sína. Skipt verður um forystusveit Kristilegra demókrata í Þýskalandi á næstu vikum. Flaggað er í hálfa stöng í Borgartúni í Reykjavík í dag til að vekja athygli á að miklu fleiri karlar en konur stýra fyrirtækjum. Um 320 þúsund manns hafa nú gengið að gosstöðvunum frá því að gos hófst 19. mars. Kvikmyndin Dýrið er orðin tekjuhæsta íslenska myndin sem sýnd hefur verið í bandarískum kvikmyndahúsum. Tekjur af miðasölu í Bandaríkjunum um helgina námu yfir milljón Bandaríkjadala. Ekki er lengur talin þörf á að takmarka æskulýðs-, íþrótta- og félagsstarf barna og unglinga á grunnskólaaldri á Akureyri. Erfitt hefur reynst undanfarið að halda hita á sundlaug, heitum pottum, gufubaði og sturtum í sundlaug Hvergerðinga í Laugaskarði. Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Liechtenstein á Laugardalsvelli í kvöld í undankeppni heimsmeistaramótsins Lengri umfjöllun: Um 320 þúsund manns hafa nú gengið að gosstöðvunum á Reykjanesskaga frá því að teljarar voru settir upp við gönguleiðir skömmu eftir að gos hófst 19. mars. Heimamenn settu sig þá strax í stellingar. Þuríði Aradóttur forstöðukona Markaðsskrifstofu Reykjaness var í viðtali í Speglinum á fjórða degi í gosi og lýsti sinni sýn á hvernig bregðast skyldi við væntanlegum áhuga íslendinga og erlendra ferðamanna á gosinu. Nú eru tæpir sjö mánuðir frá því gosið hófst. Hvernig hefur til tekist? Kristján Sigurjónsson ræðir við Þuríði. Þegar Bretar gengu úr Evrópusambandinu í ársbyrjun í fyrra var gerð sérstök bókun um Norður-Írland til að tryggja opin landamæri milli Írlands og Norður-Írlands í anda friðarsamningsins frá 1998. En blekið var varla þornað á gjörningnum þegar breska stjórnin fór að kvarta yfir að það væri ekki hægt að framfylgja bókuninni. Brexit er því ekki búið og nú er að hefjast ein atrennan til að leysa Norður-Írlandsvandann. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Gríðarlegt úrhelli sem veldur flóðum, hækkandi sjávarmál og hverskyns veðuröfgar. Þessara afleiðinga loftslagsbreytinga er þegar farið að gæta víða um heim. Í Svíþjóð ber sveitarfélögum skylda til að undirbúa varnir gagnvart komandi hamförum. En það er afar misjafnt hve vel það gengur. Kári Gy

Í Hismi vikunnar förum við yfir stórveldaskákina í Hörpu og kynnumst tónlistarmanninum (og utanríkisráðherranum) Anthony Blinken, miðaldra hlaupaklúbb Árna, ferðasumarið framundan og dónalega Íslendinga, framleiðni í skólafríum og ólíka nálgun Þjóðverja og Bandaríkjamanna á lífið.
Borgartúnið í Reykjavík er ein undarlegasta gatan í Reykjavík að mati umsjónarmanns. Það er eins og hún viti ekki hvert hún er að fara og þannig virðist það hafa verið frá upphafi, þvílíkt er sundurleitið ef maður getur sagt sem svo. Margar nýjar hábyggingar hafa risið undanfarin ár, en einnig stakstæðar stórbyggingar, svo sem Höfðaborg, Arion banki, og svo austar Nýherji, Hús Samtaka Atvinnulífsins o.fl. Einnig hafa risið háar íbúðablokkir í Túnunum og nú er ein slík að fara að rísa við horn Nóatúns og Borgartúns. Margar þessara bygginga eru fínustu hús, en tala ekki endilega alltaf saman. Stundum er Reykjavík kölluð borg "sundurleitninnar" og þarna stendur sú lýsing fullkomlega undir nafni. Rætt við Frey Frostason arkitekt hjá THG, Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúa og Magnús Magnússon framkvæmdastjóra E3, sem er framkvæmdaaðili lóðarinnar. Umsjón: Lísa Pálsdóttir.
Borgartúnið í Reykjavík er ein undarlegasta gatan í Reykjavík að mínu mati - það er eins og hún viti ekki hvert hún er að fara ? og þannig virðist það hafa verið frá upphafi, þvílíkt er sundurleitið ef maður getur sagt sem svo. Margar nýjar hábyggingar hafa risið undanfarin ár, en einnig stakstæðar stórbyggingar, svo sem Höfðaborg, Arion Banki, og svo austar Nýherji, Hús Samtaka Atvinnulífsins o.fl., einnig hafa risið háar íbúðablokkir í túnunum og nú er ein slík að fara að rísa við horn Nóatúns og Borgartúns. Margar þessara bygginga eru fínustu hús, en tala ekki endilega alltaf saman. Stundum er Reykjavík kölluð borg ?sundurleitismans? og þarna stendur sú lýsing fullkomlega undir nafni. Rætt við Frey Frostason arkitekt hjá THG, Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúa og Magnús Magnússon framkvæmdastjóra E3, sem er framkvæmdaaðili lóðarinnar.
Hismið er tekið upp að kveldi til og fer yfir áhrifavaldaferð Árna og Birgittu Lífar til Akureyrar, hrifnæma Borgartúnsketti, sterkan Mogga sem er að henda sér í nýmiðlunarleikinn undir áhrifum Churchill, firnasterka og bandaríska yfirlýsingu frá Lyin' Ted Cruz, geðvonda bæjarstjóra og listin að vera erfiður á fundum.
Ég hef verið að pæla lengi í fantasíum (ÞVÍ ÞÆR ERU SVO MIKILVÆGAR!) og ætla af því tilefni að hendast í að halda kvöldstund um það fyrirbæri! Hverjar eru algengustu fantasíurnar og hvað þýða þær? Má fantasera um hvað sem er og hvern sem er, hvernig sem er? Hvað segir fantasían manns um mann? Hvernig býr maður til fantasíu? Hvernig aðgreinir maður á milli fantasíu og raunveruleika? Hvernig skapar maður öruggt rými í sambandinu sínu til að ræða fantasíuna sína? Viðburðurinn fer fram fimmtudaginn 24.september kl.19:30 - 22.30 í lokuðu rými í versluninni Losta /vinnurými Siggu Daggar kynfræðings í Borgartúni 3. ATH - Takmarkaður fjöldi þátttakanda. Verð fyrir einstakling: 3900 kr Verð fyrir par: 6900 kr Nánari upplýsingar: instagram.com/sigga_dogg_sexologist/ facebook.com/siggadogg.is

Í ljósi aðstæðna í samfélaginu hefur Hismið ákveðið að henda nokkrum eldri þáttum í loftið. Við byrjum hér með þætti sem fór í loftið í nóvember 2016 en þar rekur Árni frækna ferð sína austur á Egilsstaði þar sem hann fór léttklæddur á lakkskóm í Borgartúns-úlpu að leita að týndri rjúpnaskyttu með strangheiðarlegum austanmönnum.
Við þurfum að skipta okkur af krökkunum, sérstaklega þeim sem koma nýir í skólana. Þetta segir Þorlákur Helgason, framkvæmdastjóri Olweusaráætlunarinnar á Íslandi. Hann brýnir skólana að standa sig, því einelti sé að aukast innan þeirra. Eineltið sé minnst í 10. bekk hjá stúlkum en 7. bekk hjá strákum. Olweusaráætlunin snýr ekki aðeins að einelti heldur líðan barna í skólum. Þorlákur var á línunni. Án skimana myndu hátt í 15 konur árlega deyja úr leghálskrabbameini. Vonir standa til að með bólusetningu verði leghálskrabba nær útrýmt í fyllingu tímans. Hreyfing er forvörn gegn krabbameini og því er hlaupið á sunnudag til að vekja athygli á krabbameini í kvenlíffærum. Kolbrún Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Lífs styrktarfélags, og Sigrún Elva Einarsdóttir, sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu, voru gestir Morgunútvarpsins en þessi félög standa að hlaupinu. Aðstæður hafa breyst í auglýsingageiranum og auglýsingastofur finna fyrir samdrætti. Þetta segir Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri hjá Brandenburg. Auglýsingatekjur í sjónvarpi séu að dragast saman. Við ætlum að ræða breytt landslag auglýsinganna með breyttu efnahagsástandi, samfélagsmiðlum og hugmyndum um að taka RÚV af auglýsingamarkaði. Mikla athygli vakti í gær þegar tæknifyrirtækið Advania flaggaði regnbogafánanum til stuðnings hinsegin fólki í Borgartúni í gær. Fyrirtækið er til húsa rétt við Höfða, þar sem Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, eyddi hluta dagsins, en hann er þekktur fyrir að bregða fæti fyrir réttindabaráttu hinsegin fólks. Advania fékk mikið hrós á samfélagsmiðlum fyrir uppátækið en einnig nokkra gagnrýni. Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania, var á línunni hjá okkur. Snorri Ásmundsson, listamaður, kom í spjall til okkar en hann ætlar að bjóða til hugleiðslustundar í Egilshöll um helgina þar sem dýrðlingurinn Hilarion mun líkamnast í listamanninum.

Spegillinn verður að mestu helgaður heimsókn Mike Pence varaforseta Bandaríkjanna til Íslands í dag. Hann byrjaði á því að hitta forsetahjónin og síðan sat hann fund með utanríkisráðherra í Höfða ásamt fulltrúum úr íslensku atvinnulífi og frá bandarískum fyrirtækjum. Rætt við Albert Jónsson sérfræðing í alþjóðamálum um komu Mike Pence til landsins Heimsókn varaforseta Bandaríkjanna hefur ekki farið fram hjá landsmönnum. Fólk sem vinnur í nágrenni Höfða varð mörgu ekki mikið úr verki í dag þar sem margir lágu úti í glugga eða fóru jafnvel út á stétt til að fylgjast með. Nokkrir gerðu sér sérstaka ferð í Borgartúnið til að berja bílalest varaforsetans augum. Kristín Sigurðardóttir fréttamaður kynnti sér málið.
“Við getum sagt að þetta sé merkjasending um það að þessi hluti heimsins tilheyrir áhrifasvæði Bandaríkjanna. Það er ekki verið að boða nein átök en að þið skuluð vita það að þetta er okkar svæði og við munum bregðast við,“ segir Albert Jónsson. Rætt var við hann í Speglinum. Heimsókn varaforseta Bandaríkjanna hefur ekki farið fram hjá landsmönnum. Fólk sem vinnur í nágrenni Höfða varð mörgu ekki mikið úr verki í dag þar sem margir lágu úti í glugga eða fóru jafnvel út á stétt til að fylgjast með. Nokkrir gerðu sér sérstaka ferð í Borgartúnið til að berja bílalest varaforsetans augum. Kristín Sigurðardóttir fréttamaður kynnti sér málið.
Yfir 1000 stúlkur taka þátt í viðburðinum Stelpur og tækni sem haldinn er í sjötta sinn. Viðburðurinn verður nú fjölmennari en nokkru sinni fyrr en tilgangurinn er að kynna möguleika í tækninámi og tæknistörfum fyrir stúlkum í 9. bekk grunnskóla, kynna þær fyrir fyrirmyndum í tækni og opna augu þeirra fyrir framtíðarmöguleikum sem tæknigreinar bjóða. Við fengum þær Margréti H. Þóroddsdóttur, verkefnastjóra atvinnulífstengsla hjá HR og Rakel Óttarsdóttur, framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs Arion banka í þáttinn til að segja okkur frekar frá. Þjóðlagahátíðin Vaka var fyrst haldin á Akureyri árið 2014 en er nú haldin í höfuðstaðnum í fyrsta sinn. Dillandi þjóðlagatónlist frá Evrópu og fjörugir þjóðdansar munu fylla gamla niðursuðudósaverksmiðju í Borgartúni og einnig verða áhugaverðar vinnustofur settar upp og markmiðið er að styrkja þjóðlagatónlistarsenuna á Íslandi. Við hringdum í Linus Orra Cedarborg í þættinum. Hrannar Björn Arnarsson er nýkjörinn formaður Norræna félagsins í Reykjavík. Hann var lengi aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og framkvæmdastjóri þingflokks Jafnaðamanna í Norðurlandaráði svo fátt eitt sé nefnt. Hrannar kom í þáttinn og við spurðum hann meðal annars: Hvað gerir Norræna félagið á Íslandi? UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
“My name is Nicky and I identify as ‘Apple’.” This time on Bogart and Hansen; Hansen goes to the bar and Borgart isn’t even in this episode! Meanwhile, Ariel and Dante are joined by Nicky and Anthony of Satyourday Radio and these two podcasting dynamic duo’s exchange coke stories, podcast success, pictures of Spider-Man and end with a haunting “10 Million Dollars but-”. Don’t miss it!
Uppbyggingin í miðborg Reykjavíkur hefur vakið athygli flestra og flestir hafa ýmsar skoðanir á útliti og skipulagi, hvað er verið að byggja, hvers konar íbúðir og hver á að reka verslanir í öllum þeim verslunarrýmum sem bæstst hafa við. Fyrir 100 árum síðan gekk hér á land ungur arkitekt, sá fyrsti sem var með háskólapróf í arkitektúr. Guðjón Samúelsson setti svo sannarlega svip sinn á borgina með mörgum lykilbyggingum, svo sem Þjóðleikhúsinu, Hallgrímskirkju, Háskóla Íslands og fleirum. En hann var líka sá fyrsti sem hugaði að skipulagi í borginni og uppbygging kvosarinnar með Reykjavíkurapóteki, Hótel Borg og fleiri byggingum varð afar umdeild og margt og mikið skrifað í blöð um Guðjón, með og á móti. Nú 100 árum síðar er svipur borgarinnar að breytast og einn þeirra arkitekta sem er hvað mest umdeildur nú um stundir er Pálmar Kristmundsson sem er höfundur Turnsins og Foss hótels í Borgartúni, en hann er einnig höfundur Hafnartorgs, mjög áberandi staður vestan Arnarhóls. Nú er Hafnartorgið að verða fullbyggt, með íbúðum, skrifstofurými og fjölda verslunarrýma. Pálmar hefur verið gagnrýndur fyrir þessa hönnun, byggningmagn og útlit, kannski ekki mikið skrifað í blöð en á samfélagsmiðlum spretta upp umræður hvað eftir annað. Við ætlum að fjalla um Hafnartorg í þættinum í dag. Gestir eru Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi og fyrrverandi formaður umhverfisráðs, þegar ákveðið var að byggja reitinn og Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt og fræðimaður. Hafnartorg er heimsótt í fylgd Pálmars Kristmundssonar arkitekts.

Við heyrðum af nýrri stöð, OsteoStrong, sem staðsett er í Borgartúni og býður uppá aðferð við að þétta bein með sérstöku Spectrum kerfi, sem eru 4 tæki, nokkurs konar líkamsræktartæki . Spectrum kerfið var fundið upp af Dr. John Jaquish, sem er höfundur bókarinnar „Osteogenic Loading“ en hann hefur flutt fjölda erinda á heimsþingi um beinþynningu og sat áður í stjórn American Bone Health sem eru samtök um beinheilsu í Bandaríkjunum. Nokkrar mínútur í tækjunum einu sinni í viku er nóg , segja hjónin Örn og Svanlaug sem opnuðu útbú á Íslandi í janúar sl. Mannlegi þátturinn skoðaði málið. Tíundi bekkur Nesskóla í Neskaupstað fór með sigur af hólmi í Fjármálaleiknum 2019, spurningakeppni í fjármálalæsi. Alls tóku þrjátíu skólar á landsvísu þátt í leiknum að þessu sinni með samtals um 500 nemendur. Hver nemandi í bekknum þurfti að svara 60 fjölbreyttum krossaspurningum um fjármál. Við hringdum austur og heyrðum í Eysteini Þór Kristinssyni, skólastjóra Nesskóla og Ester Rún Jónsdóttur nemanda. Þann 9. mars kom nýr bátur til hafnar í svokallaðri Kokkálsvík þar sem er hafnaraðstaða Drangsnesinga. Haldið var upp á daginn með pompi og prakt, og Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, mætti á staðinn og spjallaði skipstjórann Ingólf Haraldsson, föður hans Harald Ingólfsson og Finn Ólafsson Oddvita, auk þess sem heyrðist í Óskari Torfasyni, framkvæmdastjóra útgerðarinnar á staðnum. UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í Víðsjá dagsins lítum við inn í Hallgrímskirkju þar sem Kristín Reynisdóttir sýnir verkið Synjun/Refusal. Við ræðum við Kristínu um tilurð innsetningarinnar en hluti hennar eru form sem minna á kristinn kross, nú eða krossa sem haka þarf við á umsóknum um hæli en krossarnir eru jafnmargir þeim sem synjað hefur verið um hæli hér á landi. Í fyrrasumar fundust sex kuml á Dysnesi við Eyjafjörð og hefur rannsókn á þeim varpað nýju ljósi á greftrunarsiði í heiðni. Á Þjóðminjasafni Íslands er verið að undirbúa sýninguna Heiðnar grafir í nýju ljósi þar sem úrval gripa úr uppgreftrinum á Dysnesi verða til sýnis. VIð hittum Hildi Gestsdóttur fornleifafræðing á safninu. Guja Dögg Hauksdóttir fjallar um elsta hús Reykjavíkur og Borgartúnið í pistli sínum um borgarskipulag og Dagur Hjartarson les úr bók sinni, Síðustu ástarjátningunni, sem er bók vikunnar á Rás1. En við byrjum á nokkrum orðum um skoðanir. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
Vel var mætt á fund Hugarafls sem haldinn var í Borgartúni 17. apríl. Á fundinum var rædd staða Hugarafls og GET (Geðheilsa Eftirfylgd) sem stendur til að leggja niður. Fjórir stólar stóðu þó auðir, en þeir voru fráteknir fyrir fulltrúa frá velferðarráðuneytinu, Embætti landlæknis og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Í þessum þætti munum við heya þrjú erindi, en þau eru eftirfarandi: Málfríður Hrund Einarsdóttir - Formaður Hugarafls Auður Axelsdóttir - einn stofnenda Hugarafls og forstöðumaður GET Fanney Björk Ingólfsdóttir - Formaður Unghuga