Podkastalinn

Follow Podkastalinn
Share on
Copy link to clipboard

Emmsjé Gauti og Arnar Úlfur ræða málin ásamt Arnari Steini sem stýrir útsendingu. Pínu ruglingslegt en það verður bara að hafa það. Í Podkastalanum eru litlu málin tekin fyrir, þau sem gefa tilveru okkar raunverulega lit, ljós og skugga.

Podkastalinn


    • Sep 13, 2022 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 1h 6m AVG DURATION
    • 68 EPISODES


    Search for episodes from Podkastalinn with a specific topic:

    Latest episodes from Podkastalinn

    #67 back 2 work

    Play Episode Listen Later Sep 13, 2022 67:27


    The boys are back in town. Afhverju neitar Gauti að taka lög eftir Gnarls Barkley á tónleikunum. Hvað má gera í steggjunum. Arnar sem er ekki með andlit segir frá hörmungum sem hann upplifði í flugvél. Hversu oft má nota handklæði? 

    #67 Kenny West

    Play Episode Listen Later Jun 1, 2021 67:37


    Lokaþáttur fyrir sumarfrí. Lengi lifi Kenny West.

    #66 Muscled fingers

    Play Episode Listen Later May 18, 2021 57:53


    Af hverju eru Scarpa skór reimaðir alla leið undir tábergið? Hversu öruggur þarftu að vera? Er kenningin hans Arnars sönn að allir sem eiga mannbrodda eigi líka Scarpa skó? Hversu margir úr grunnskólanum þínum fóru úr fangelsi? Hvað þarf að ryksuga heimilið sitt oft? Hver er Lalli letisuga? Hvað er spítt vinátta? Fangelsi, náttúruböð, heitir gaurar, einelti, B5 og fleiri mál eru tekin fyrir í þessum þætti af Podkastalanum.  

    #65 Righty tighty lefty loosey

    Play Episode Listen Later May 11, 2021 53:20


    Ef þú ert í vafa um skrúfganginn er gott að muna righty tighty lefty loosey. Er séns að Gauti muni þessa einföldu reglu ef honum text ekki einu sinni að muna hvar barnið hans er? Hvað gerðist? Að bregða fólki getur verið ágætis hlæ hlæ en það er samt siðlaus hrekkur. Hvaða tala er besta tala í heimi? Sannleikurinn getur verið sár en ef þú ert karlmaður á þrítugsaldri eru 99% líkur á því að þú sért búinn að kaupa rafmynt. Vegglímmiðar, grímur, einkavæðing skólakerfisins og önnur lítil mál eru tekin fyrir í þessum þætti.

    #64 Yeah boi!

    Play Episode Listen Later May 4, 2021 70:36


    #63 427 Blaze it

    Play Episode Listen Later Apr 27, 2021 70:29


    Í þessum þætti höldum við upp á alþjóðlega kannabisreykingadagin nema við gerum það viku of seint. Hvort er betra, spliffa og vídjó eða hasskaka og skríða inn á bað? Við förum í allar áttir, ræðum kannabis og kryfjum risa skandal úr fortíð Arnars og Gauta sem tengist því hvaða ömurlega munch Arnar keypti fyrir Gauta þegar hann var of freðinn til að þora inn í sjoppu í Breiðholtinu?   Þessi þáttur er bannaður öllum yngri en 22,5 árs svo það er það á ykkar ábyrgð ef krakkarnir ykkar taka þátt í Jeezy Cup einn daginn.

    #62 Ég hef aldrei séð eiturlyf

    Play Episode Listen Later Apr 20, 2021 67:10


    „Ég hef aldrei séð eiturlyf herra forseti“ sagði mesti lúði Íslandssögunnar og þambaði volgan bjór úr dós. Young Thug er hins vegar svalasti maður íslandssögunnar og við snertum á hans tilvist í þessum þætti. Hver er NBA Youngboy og af hverju er hann svona svalur? Það eru allir fullir all the time en við skulum finna út hversu mikil prósenta af þjóðinni drekkur áfengi. Ætti Podkastalinn að byrja með only fans? Til hamingju með afmælið mamma hans Gauta og til hamingju með daginn smokers!

    #61 Podkastalinn x Bannað að dæma

    Play Episode Listen Later Apr 13, 2021 111:06


    Podkastalinn er staddur fyrir norðan. Gauti fór í heimsókn og tók upp þátt með podcastinu “Bannað að dæma”. Eru Akureyringar hjálpsamari en Reykvíkingar? Er hægt að fara í hot yoga í Vaðlaheiðargöngunum. Hvernig eiga sumarbústaðir að vera og eru fiskar með miðtaugakerfi? Þessum spurningum er að okkur minnir svarað í þessum þætti.

    #60 Spaghetti og smokkar

    Play Episode Listen Later Apr 8, 2021 67:19


    Má bjóða þér eina jelly bean? Má bjóða þér að fá pínulítið af súkkulaðikúlum í allt of stórum plastumbúðum. Fáðu þér páskaegg! Gauti segir okkur frá dularfullum hlutum sem hann gerir með tungunni og hræðilegum hlutum sem hann gerir með nefinu. Hvað eiga smokkar og spaghetti sameiginlegt? Eruði sammála Arnari að lögreglan megi berja drukkið fólk í miðbænum? En ef það er hráka í spilinu? Podkastalinn tekur litlu málin fyrir. Misgóð svör við ágætum spurningum.

    #59 Alvarlegi þátturinn: Part 2

    Play Episode Listen Later Apr 6, 2021 63:10


    #58 Tekastalinn

    Play Episode Listen Later Apr 1, 2021 49:51


    #57 Alvarlegi þátturinn: Part 1

    Play Episode Listen Later Mar 30, 2021 48:14


    #56 Eldgos og sígó

    Play Episode Listen Later Mar 25, 2021 55:16


    Helvíti vellur í rólegheitum úr jörðu í Geldingadal. Jörðin er hætt að titra en í staðin er byrjað eldgos. Hættulegt en um leið svo fallegt og forvitnilegt... Alveg þangað til fólkið mætir. Helvítis fólkið með sígaretturnar, beikonið og illa klæddu börnin. Podkastalinn bíður ykkur velkomin í klukkutíma nöldur um skítlegt eðli mannfólksins.

    #55 Chilli hnetur

    Play Episode Listen Later Mar 23, 2021 58:52


    Lífið heldur áfram að malla eins og leiðinlegt túristagos. Hvað er að frétta? Ekki mikið en örugglega eitthvað. Hvað er langt síðan Arnar Noface var tekinn í kóngastól síðast? Muniði eftir bandí? Skautaíþróttin þar sem þú ert ekki í skautum. Má bjóða þér chilli hnetur á meðan við tökum alvarlegt viðtal um líf þitt? Punghár, blæðingar, lýtaaðgerðir og margt fleira. Leyfðu Podkastalanum að ASMR sleikja á þér eyrun og komdu með okkur í ferðalag.

    #54 Járnbrekkan

    Play Episode Listen Later Mar 18, 2021 64:49


    Jörðin skelfur og jarðeðlisfræðingarnir aka giskararnir halda áfram að segja bara eitthvað í fjölmiðlum. Er hægt að lifa af í hrapandi lyftu ef maður hoppar rétt áður en hún lendir? Rúllustigar eru ágæt uppfinning en járnbrekkur bjóða upp á miklu skemmtilegri möguleika sem við förum yfir í þættinum.

    #53 Verðlaunahross feat. Herra Hnetusmjör

    Play Episode Listen Later Mar 16, 2021 86:14


    Það skiptir engu máli hvort þú skiljir hvað Thugga segir í laginu Lifestyle, það er besta lag sem hefur verið samið og það er ekki til umræðu. Er Kendrick Lamar nettur eða algjör lúði? Hvað kostar að halda uppi verðlaunahrossi í mánuð? En gullfisk sem borðar bara krydd? Herra Hnetusmjör mætir seint í þáttinn eins og alvöru rokkstjörnu sæmir og segir okkur frá köfurum í Dubai.

    #52 Olíusmurt höfuð

    Play Episode Listen Later Mar 11, 2021 53:42


    Hvar er Arnar Freyr? Gaurinn sem var alltaf í Podkastalanum. Gaurinn með mannsnúðinn. Við skulum komast að því saman og smyrja höfuð hans með olíu. Er „Drottinn er minn hirðir“ banger? Hvernig var að búa í Reykjavík fyrir hundrað árum? Voru englar guðs úr biblíunni litlir ógeðis perrar? Arnar sem enginn veit hver er fer yfir hluti sem pirra hann í umferðinni.

    #51 Riddarar III feat. Memes

    Play Episode Listen Later Mar 9, 2021 80:35


    Eftir að hafa verið snitchaðir af mömmum sínum mæta Podkastalinn memes í settið og taka þá í að svara spurningum sem brenna á riddurum Podkastalans. (sendið okkur umræðuefni, spurningar, vandamál sem þarf að leysa, sögur o.s.frv. og við tökum það fyrir í næsta Riddaraþætti kastalans. Við tökum á móti efni í DM á instagram og faceook)

    #50 Geit í holu

    Play Episode Listen Later Mar 4, 2021 56:55


    Hvort er hættulegra að hoppa yfir fljótandi eldhraun eða vera með hring? Hvort er hættulegra fyrir puttana? Vita vísindamenn eitthvað um geiminn eða er starf þeirra endalaust gisk? Er unglingavinnan tilgangslaus eða gerir hún eitthvað gagn fyrir samfélagið? Ert þú umferðarguð? Kveiktu á Podkastalanum og komdu með í ferðalag um sléttur litlu málanna.

    #49 Gangsta shit feat. Birgir Hákon

    Play Episode Listen Later Mar 2, 2021 89:43


    Alltaf að muna að sleikja pokann svo Víkingasveitin brjóti ekki upp hurðina heima hjá ykkur. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins sér um að selja fullorðnu fólki lögleg eiturlyf en hver sér um börnin? Eru bjórsalar að deyja út? Hvað er hættulegasta hverfið í Breiðholtinu og hvað í fjandanum er langa vitleysan? Birgir Hákon mætir seint í þáttinn eins og alvöru rappstjörnu sæmir og fer yfir málin með okkur.

    #48 Mannát og orgíur

    Play Episode Listen Later Feb 25, 2021 72:28


    #47 Tribal geimvera

    Play Episode Listen Later Feb 23, 2021 52:22


    Það er manneskja sem hittir ykkur öll einu sinni á ári og þrífur ykkur. Manneskja sem sér ykkur vaxa og dafna. Hver er það? Hvenær á fólk að byrja að afskræma líkamann sinn? Eiga börn að fá sér tattú og gulltennur? Af hverju fékk Gauti sér tribal geimveru á magann? Hvernig eru reglurnar í kringum það að bögga frægt fólk á djamminu? Margir muna eftir því þegar fólk tók í hendina á hvort öðru. Ætti að vera ólöglegt að gera of löng handshakes? (Þessi þáttur Podkastalans er í boði Birtu CBD. Birta CBD er íslenskt fyrirtæki sem einblínir á snyrti- og heilsuvörur sem innihalda hágæða kannabídíól (CBD) einangrað úr iðnaðarhampi. hlustendur Podkastalans fá 20% afslátt á www.birtacbd.is út febrúar 2021 hlustaðu á þáttinn til að fá afláttarkóðann)

    #46 Þekki götuna eins og Rotta

    Play Episode Listen Later Feb 18, 2021 56:49


    Ef þú drepst þá ferðu yfir móðuna miklu en ef þú dreps áfengisdauða fórstu að öllum líkindum bara í móðuna á Prikinu. Hvað myndi gerast ef neanderdals Gunnar Nelson myndi hitta neanderdals Hafþór Júlíus? Að vera rappari? Er það besta vinna í heimi eða bara blekking sem Arnar sem enginn veit hver er lifir í. Er Gauti rottan sem hann segist vera í laginu silfurskotta?      

    #45 Mamma þín er snitch

    Play Episode Listen Later Feb 16, 2021 68:14


    #44 Brókaður fyrir Norðan (Agureyri seinni hluti ásamt Birki Bekk og Dóra Ká)

    Play Episode Listen Later Feb 11, 2021 59:59


    Podkastalinn heldur sigurgöngu sinni um norðurlandið áfram. Við klæddum okkur í hot brók og ræddum málin. Pylsa eða pulsa? Hverju er ekki drullusama? Af hverju var Harrybrúin byggð? Hvað veit Arnar sem enginn veit hver er um Akureyri? Gauti fer yfir þessi mál og mörg fleiri ásamt góðvinum þáttarins Birki Bekk og bæjarstjóranum Dóra Ká.   (Þessi þáttur Podkastalans er í boði Birtu CBD. Birta CBD er íslenskt fyrirtæki sem einblínir á snyrti- og heilsuvörur sem innihalda hágæða kannabídíól (CBD) einangrað úr iðnaðarhampi. hlustendur Podkastalans fá 20% afslátt á www.birtacbd.is út febrúar 2021 hlustaðu á þáttinn til að fá afláttarkóðann)    

    #43 Pulsa á Sjallanum á Agureyri (ásamt Birki Bekk og Dóra K)

    Play Episode Listen Later Feb 9, 2021 69:16


    Í botni Eyjarfjarðar í nóvember árið 1989 voru lögð fyrstu drög að Podkastalanum. Podkastalinn ferðast því norður á Akureyri að leita upprunans og fer yfir málin ásamt góðvinum þáttarins Birki Bekk og bæjarstjóranum Dóra K.   (Þessi þáttur Podkastalans er í boði Birtu CBD. Birta CBD er íslenskt fyrirtæki sem einblínir á snyrti- og heilsuvörur sem innihalda hágæða kannabídíól (CBD) einangrað úr iðnaðarhampi. hlustendur Podkastalans fá 20% afslátt á www.birtacbd.is út febrúar 2021 hlustaðu á þáttinn til að fá afláttarkóðann)

    #42 Stutta píka

    Play Episode Listen Later Feb 4, 2021 77:11


    Vinkona Podkastalans Stella Rósenkranz mætir í settið og ræðir litlu málin sem brenna á allra vörum. Er stæðið hliðin á fatlaðrastæðum um það bil 40% fatlaðra stæði? Er það siðblinda að leggja í fjölskyldustæðin hjá Krónunni ef maður er einhleypur? Við könnumst öll við þumalfingur og löngutöng en hvað í fjandanum heitir horny táin í miðjunni? (ath. hljóðið er smá skrítið vegna viftu sem gleymdist að slökkva á og þið verðið bara að fyrirgefa okkur það)

    #41 Kramin kókdós

    Play Episode Listen Later Feb 2, 2021 59:35


    Gauti sem allir vita hver er ræðir við Arnar sem enginn veit hver er um heimsmálin. Hryllingsferð í trampólín garðinn Rush, the dark side of barneignir og almennar reglur um sundferðir eru meðal umræðuefna í þættinum.  

    #40 Riddarar II

    Play Episode Listen Later Jan 28, 2021 87:24


    Kæru riddarar, í dag er orðið ykkar. Í þættinum leysum við vandamál hlustenda, hugleiðum hugleiðingar og skoðum skoðanir þeirra. Engin rödd er of veik til að óma innan veggja kastalans. Nú eru það við sem hlustum.    

    #39 Siðblindur í 12min

    Play Episode Listen Later Jan 26, 2021 66:32


    #38 Er Nökkvi með bars?

    Play Episode Listen Later Jan 21, 2021 67:51


    Nú þegar Kastalinn er orðinn vel established miðill sem fólk trúir og treystir á er tími til kominn að mynda sér stefnu og taka upp gildi eins og almennilegum business sæmir. En hver og afhverju þau en ekki þessi hér? Pressan sem fylgir væntingunum fólks til season 2 er farin að hafa veruleg áhrif, bara ef við hefðum gildi til að vísa okkur veginn. En eins og gauti er alltaf að segja "what doesn't kill you makes you stronger" :)

    #37 Q með Atla Fannari

    Play Episode Listen Later Jan 19, 2021 117:48


    QAnon er sennilega það allra heitasta í samsæriskenningageiranum þessa dagana. Hver á ekki laufléttan frænda á facebook sem trúir því staðfast að Trump sé frelsari vorra tíma, að Obama borði börn með bestu list og að það sé eitthvað STÓRT handan við hornið? Í þættinum kemur Atli Fannar í heimsókn til að ræða Q, kenningarnar, stuðið og stemninguna.  

    #36 Gestalæti

    Play Episode Listen Later Jan 14, 2021 80:58


    Í fyrsta sinn í sögu kastalans hefur gestur hreiðrað um sig í turninum háa. Hann er langur og mjór eins og fyndið typpi, heitir Björn Geir og er vinur okkar frá Keflavík. Í þættinum segir hann okkur lauslega frá því hvernig er að vera gaur sem er til, fyrst í keflavík og svo 7 ár í oakland, california.  

    #35 Podkastalandinn

    Play Episode Listen Later Jan 12, 2021 72:09


    #34 Svartur beanie

    Play Episode Listen Later Jan 7, 2021 57:35


    Húfur: Yfir eyrun eða aðeins rétt á toppi höfuðsins eins og smokkur áður en maður hefst handa við að renna honum niður skaftið? Og talandi um höfuð:Treystiru heilaskurðslækni sem sem ætlar að krukka í þér ef hann kaus Guðmund Franklín? Litlu málin eru HUGE í dag. Gauti segir frá óþolandi leyndarmáli um áramótaskaupið og yo hvaða 3d tónleika stunt var þetta á eftir skaupinu?

    #33 Síðasta sjoppuferðin

    Play Episode Listen Later Jan 7, 2021 72:40


    Podkastalamenn eru mættir feitir og endurnærðir eftir gott frí. Hvern hefði grunað að það yrði annað season? Eflaust öllum sem hlusta reglulega á þáttinn. Podkastalinn dembir sér beint í djúpu laugina eða öllu heldur á djúpa vefinn og Arnar reynir að komast að því hvað það kostar að drepa Gauta. Sú upphæð er eflaust ódýrari en að vera með skemmtipakka í áskrift frá Stöð 2. Afhverju eru menn alltaf að hverfa? Eru þetta dularfull sakamál eða bara þetta klassíska „ég hata fjölskylduna mína og það hlýtur að vera betra líf í boði“. Rannsóknarblaðamennirnir í Podkastalanum kafa í málin.

    #32 Season eitt FINALE

    Play Episode Listen Later Dec 22, 2020 81:15


    2020, what a ride! Alvöru böllur á þessu ári. Kastalinn var endurbyggður á einni nóttu í sumar og hefur síðan þá sett sterkan svip á borgarmyndina með háum, skökkum turnum og fallbyssuskotum. Í dag fögnum við og kveðjum og hlæjum og grátum í einum rykk því líkt og árið er season 1 á enda. Þetta var frábært season, það besta segja sumir, en þetta er komið gott. Season 2 hefst á nýja árinu og það er einlæg trú okkar að það gefi season 1 ekkert eftir. Takk fyrir okkur og gleðileg jól!

    #31 Friends bloopers

    Play Episode Listen Later Dec 17, 2020 60:54


    Fólk treystir meira á varalestur en það gerir sér grein fyrir og það hlustar af ekki af jafn mikilli athygli og það lætur í ljós. Hvað gerist þá þegar varir eru huldar með þar til gerðum grímum svo fólk þarf alfarið að treysta á hlustun í munnlegum samskiptum? Hlustið og þér munið amk komast að því hvernig Gauti dílar við það. Í þættinum ræða strákarnir líka cool dót eins og flash mob og stomp tónlist og leysa svo hvorki meira né minna en frá skjóðunni um hver HIN FULLKOMNA JÓLAGJÖF er (þú trúir þessu ekki!!!)

    #30 Sænskir Handrukkarar

    Play Episode Listen Later Dec 15, 2020 54:27


    Hvernig tókst Gauta að eyða sólarhring í að kaupa tóbak? Afhverju fór hann ekki bara að hitta sænsku handrukkarana sem eru búnir að opna útibú útum allan bæ? Eru vapesölumenn svölustu gaurar í heimi? Svarið er augljóst en því er svarað í þætti númer þrjátíu af Podkastalanum. Uppeldisaðferðir Podkastalans koma fram í þættinum en svo fer umræðan aftur að nikótíni. Það eru miklar líkur á því að þú byrjir að reykja eða nota nikótín á einhvern hátt eftir þennan þátt. En engar áhyggjur! Gauti veit um bók sem hann er alltaf að tala um og hún á að redda manni frá fíkninni… höldum við.    

    #29 Himmelbjerget

    Play Episode Listen Later Dec 10, 2020 63:49


    Eftir stuttar barsmíðar á brekkunni Himmelbjerget í Danmörku kafar Podkastalinn í pósthólfin sín. Þar er að finna allskonar heimspekilegar vangaveltur um hina og þessa hluti úr daglegu lífi hlustenda. Hvort sem það er umræðuefni, ástarjátningar, spurningar um lífið eða spam þá hvetjum við hlustendur kastalans að senda okkur skilaboð (instagram/facebook). Finndu Podkastalann á samfélagsmiðlum @podkastalinn

    #28 mömmurapp

    Play Episode Listen Later Dec 8, 2020 58:59


    30. júlí 2020 sendir Gauti frá sér tweet sem hefur afleiðingar. Fólk snappar. Afhverju skrifaði Gauti tweetið? Afhverju snappaði fólk? Hefur Gauti recoverað að fullu? Arnar rannsakar málið og slakar ekki á fyrr en öll kurl eru komin til grafar.

    #27 Geislavirkur úrgangur

    Play Episode Listen Later Dec 3, 2020 67:48


    #26 Hvíslenska

    Play Episode Listen Later Dec 1, 2020 59:14


    #25 Á hálum ís

    Play Episode Listen Later Nov 26, 2020 68:43


    #24 1997

    Play Episode Listen Later Nov 24, 2020 70:08


    Árið er 1997. Hárið er aflitað og spiky, hjartað í þér slær fyrir Sarah Michelle Gellar og þú ert með nýja bók um galdrastrák sem er víst helvíti góð. Nema hvað árið er 2020, hárið á þér er niðurdrepandi náttúrulegum lit, Sarah hefur verið hamingjusamlega gift Freddie Prinze Jr. síðan 2002 og J.K. Rowling hefur verið aflýst. Hvað gerðist?

    #23 Shang Tsung

    Play Episode Listen Later Nov 19, 2020 56:40


    Þegar siðrofið hefst og fólk fer að éta hvert annað, með hverjum myndaru teymi til að komast af: rafíþróttamönnum eða röppurum? Ha?? Þetta og svo margt fleira, t.d. nautaat (horn á bólakaffi í bossanum í níðingum), fótboltalandsliðið (víkingaklappið, hot or not?) og þegar fólk annaðhvort rennur í hálku eða feykist um í vindi við sæbrautina og starfsmenn Advania ná því á video.

    #22 Mjólk og byssur

    Play Episode Listen Later Nov 17, 2020 67:50


    Í þættinum kemst Gauti að því hvað gerist ef maður kallar Arnar Sauðkrækling en ekki SauðkræKing. Strákarnir ræða áhugaverða hlið á hori sem er sjaldan rædd, velta því fyrir sér hvenær ólæst hjól verða almannaeign og stefna á lásasmiðanám. Rapparinn Ungi Besti spyr stóru spurningarinnar og karlmönnum í óléttumyndatökum er cancellað.

    #21 Gauti Fischer

    Play Episode Listen Later Nov 12, 2020 62:29


    Flestir vita að Gauti kann að rappa en fæstum grunar að hann sé skákmeistarinn sem hann er. En er skák íþrótt? Og enn fremur, eru tölvuleikir íþrótt? Seinast voru það töframenn og parkour hópar en nú er það eSamfélagið sem mun snappa. Það verður bara að hafa það. Strákarnir ræða ofsjónir, hor, 400 grömm af kókaíni, lottóvinninga og big ass pharma. Pakkaður þáttur þar sem það er vaðið úr einu í annað í hitt og þetta.

    #20 Funny chicken logo

    Play Episode Listen Later Nov 10, 2020 59:33


    Er rétt að þessa dagana sé blómlegur svartur markaður fyrir þá sem þrá ekkert heitar en fresh cut og axlanudd? Svo sannarlega. Kastalinn hvetur samt alla til þess að sýna styrk og safna hári og vöðvabólgu. Strákarnir halda áfram að hata símana sína, nú með sérstakri áherslu á minningarnar sem öll helstu öppin ota að manni frá morgni til kvölds en þeir jafna út hatrið með ást sinni á Hananum og öllum sprellunum í nýju nova auglýsingunni.

    #19 Beyglan í rjóðrinu?

    Play Episode Listen Later Nov 5, 2020 64:11


    Gauti og dóttir hans lenda í hremmingum í elliðarárdalnum sem á orðið meira sameiginlegt með aðstæðum í i am legend með big willie en grænu fjölskylduvænu svæði á besta stað í Reykjavík. Við fáum að heyra frásögn af því og allar vekjaraklukkurnar í símanum hans Gauta. Félagarnir lesa og svara fyrirspurnum frá nokkrum hlustendum og verða meira að segja pínu alvarlegir á köflum.

    #18 Riddarar Podkastalans

    Play Episode Listen Later Nov 3, 2020 70:51


    Af hverju rukka tannlæknar svona sturlaðar upphæðir fyrir að putta mann í munninn? Er tannlæknirinn þinn mögulega goth undir hvíta gallanum. Gauti segir frá því þegar hann fór í covid test og var svo skammaður af sjö manneskjum í Melabúðinni fyrir að vera tillitslaus asni. Strákarnir fara yfir innsend skilaboð frá riddurum kastalans og reyna að ráða úr misgáfulegum málefnum sem berast þangað inn.

    Claim Podkastalinn

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel