POPULARITY
Mánudagurinn 7. október Vinstrið, pólitíkin, kannabis, þjóðarmorð og rauðar heimsbókmenntir Við höldum fund með rótum Vg: Rósa Björk Brynjólfsdóttir fyrrverandi þingkona, Einar Ólafsson skáld og bókavörður, Margrét Pétursdóttir verkakona og Guðmundur Auðunsson hagfræðingur, sem öll hafa verið í Vg, ræða um stöðu vinstrisins í dag. Í Þinginu ræðir Björn Þorláks við Ólaf Harðarson stjórnmálafræðing. VG og framtíð ríkisstjórnarinnar ber þar hæst. Við ræðum hamp og kannibis við fjórar konur: Lára Bryndís Pálmadóttir hefur tekið inn cbd-olíu vegna verkja, Brynhildur Arthúrsdóttir er móðir stúlku með flogaveiki sem hefur líka notað cbd, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er aðstandandi sjúklings sem tók inn kannabisolíur og Þórunn Jónsdóttir er stofnandi og varaformaður Hampfélagsins og stendur fyrir ráðstefnu um hamp. María Lilja ræðir við mótmælendur á tímamótum sem hafa staðið vaktina með Palestínu síðasta árið. Bókmenntafræðingarnir Anna Björk Einarsdóttir og Benedikt Hjartarson eru gestaritstjórar Ritsins sem fjalla um rauða heimsbókmenntirnar. Þau segja okkur frá áhrifum þeirra á menningu og pólitík.
Víðsjá rifjar í dag upp þátt frá árinu 2010 um súrrealismann. Aðalviðmælandi í þættinum er Benedikt Hjartarson bókmenntafræðingur.
Víðsjá rifjar í dag upp þátt frá árinu 2010 um súrrealismann. Aðalviðmælandi í þættinum er Benedikt Hjartarson bókmenntafræðingur.
Poppstjarnan Prettyboitjokko sendi frá sér smáskífuna PBT á dögunum og á fjögur efstu lögin á íslenska topp-listanum á Spotify. Hver er þessi fáklædda, tanaða poppstjarna sem hefur náð miklum vinsældum á skömmum tíma? Á fyrri hluta síðustu aldar gerðu sósíalistar meðvitaða tilraun að skapa nýja heimsbókmenntahefð, nýja kanónu, fjarri evrópsku höfuðborgunum - þar sem hin borgaralega skáldsagnahefð átti sitt heimili. Þessar rauðu heimsbókmenntir, asískar, afrískar, suðuramerískar og íslenskar, verða til umfjöllunar á alþjóðlegu málþingi í Háskóla Íslands síðar í vikunni. Benedikt Hjartarson og Anna Björk Einarsdóttir segja frá. Við kíkjum á æfingu hjá Jófríði Ákadóttur og Joshua Wilkinson, sem eru að hefja tónleikaferð um Evrópu, til að fylgja eftir þriðju breiðskífu JFDR, Museum, sem kom út í lok apríl.

Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs Háskóla Íslands og Hið íslenska bókmenntafélag standa saman að hlaðvarpinu Lærdómsrit þar sem fjallað er um einstök verk í þessari hálfrar aldar gömlu ritröð. Jón Ólafsson, prófessor við Hugvísindasvið og ritstjóri Lærdómsritanna, stýrir umræðum og fær til sín gesti sem ýmist fjalla um einstakar bækur, lesa úr verkunum eða ræða um efni sem tengjast einstökum ritum. Í þessum fyrsta þætti ræðir Jón við Svanhildi Óskarsdóttur og Benedikt Hjartarson um nýjustu bókina, Minnisblöð Maltes Laurids Brigge eftir Rainer Maria Rilke, en það er 100. verkið sem kemur út á vegum Lærdómsritanna. Benedikt þýddi ritið og skrifaði inngang og skýringar.
Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Benedikt Hjartarson bókmenntafræðing sem þýtt hefur skáldsöguna Minnisblöð Malte Laurids Brigge eftir Rainer Maria Rilke. Bókin kom fyrst út árið 1910 og var eina skáldsaga Rilkes, sem var eitt af fremstu ljóðskáldum Evrópu á 20. öld. Benedikt segir frá þessari merku bók og þessu merka skáldi í Víðsjá í dag en þýðing hans er komin út í Lærdómsritaröð Hins íslenska bókmenntafélags. Einnig verður farið í tónlistarferðalag með Arnljóti Sigurðssyni undir yfirskriftinni Heyrandi nær, í dag mun Arnljótur rýna í sögu lagsins víðfræga Misirlou, en saga þess nær eitthvað um hundrað ár aftur í tímann og margt forvitnilegt sem kemur upp úr dúrnum við söguskoðunina. Og farið verður í jólagjafaleiðangur í Marshallhúsið úti á Granda en Nýlistasafnið heldur nú í annað sinn bazar í aðdraganda jóla þar sem hægt er að finna myndlist eftir félaga safnsins Umsjón: Eiríkur Guðmundsson

Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Benedikt Hjartarson bókmenntafræðing sem þýtt hefur skáldsöguna Minnisblöð Malte Laurids Brigge eftir Rainer Maria Rilke. Bókin kom fyrst út árið 1910 og var eina skáldsaga Rilkes, sem var eitt af fremstu ljóðskáldum Evrópu á 20. öld. Benedikt segir frá þessari merku bók og þessu merka skáldi í Víðsjá í dag en þýðing hans kemur út í Lærdómsritaröð Hins íslenska bókmenntafélags í næsta mánuði. Einnig verður slegið á þráðinn til Seyðisfjarðar en í Skaftfelli er Bjargey Ólafsdóttir að sýna verk sín þessa dagana. Ljósmyndasýningu sína kallar Bjargey Tíru en hún fer í framhaldinu einnig á Neskaupsstað. Björn Þór Vilhjálmsson fjallar um My Dark Vanessa eftir Kate Elizabeth Russell sem út kom í síðasta mánuði og hefur þegar vakið mikla athygli fyrir umfjöllun sína um kynferðisofbeldi og margflókna stöðu fórnarlambsins. Og Maístjarnan, ljóðabókaverðlaun Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafns, verða afhent í dag, hlustendur Víðsjár heyra í nýjum verðlaunahafa í þættinum í dag. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson.

Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Benedikt Kristjánsson tenorsöngvara en hann flytur á morgun Jóhannesarpassíu Bachs í óvenjulegri útgáfu þar sem undirleikur er aðeins í höndum slagverksleikara og orgelleikara sem einnig leikur á sembal. Flutningurinn fer fram í Hallgrímskirkju annað kvöld en útgáfa þessi hefur fengið mikið lof í Þýskalandi og Hollandi og til stendur að tónlistarfólkið flytji hana víða um lönd í framhaldinu. Einnig verður í þættinum í dag fjallað um nýja kennsluskrá, skrá yfir skyldulesningu, sem gefin hefur verið út í Ungverjalandi þar sem ýmsir helstu höfundar þjóðarinnar koma ekki við sögu. Þeirra á meðal er Imre Kertész sem var fyrstur Ungverja til að hljóta Nóbelsverðlaun í bókmenntum, árið 2002, verðlaun sem hann hlaut ekki síst fyrir skáldsögu sína Örlögleysi, þar sem fjallað erum lífið í fangabúðum nasista. Nýji listinn hefur vakið athygli, og umtal, enda stjórnvöld í Ungverjalandi afar umdeild, málið verður rætt í Víðsjá í dag, gestur þáttarins verður Benedikt Hjartarson, prófessor í almennri bókmenntafræði og menningarfræði við Háskóla Íslands. Gauti Kristmannsson bókmenntagagnrýnandi fjallar í dag um um sjálfsævisöguna Þýski krókódíllinn eftir þýska rithöfundinn ljoma Mangold en hún vakti mikla athygli þegar hún kom út árið 2017. Mangold hefur komið til Íslands á bókmenntahátíð og er þekktur höfundur og menningarblaðamaður í Þýskalandi. Og Snæbjörn Brynjarsson leiklistargagnrýnandi fjallar í dag um Rhythm of Poison, glænýtt verk eftir finnska danshöfundinn Elinu Pirinen, sem Íslenski dansflokkurinn frumsýndi á Nýja sviði Borgarleikhússins á föstudag. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson
Í Lestinni í dag er meðal annars fjallað um Notre dame kirkjuna í París þar sem upp kom eldur í gær. Kirkjan var reist á árunum 1163 til 1345, geymir mikla menningarsögu og skipar stóran sess í hjörtum Frakka. Gestur Lestarinnar verður Ragnheiður Gyða Jónsdóttir sem bjó lengi í París og þekkir sögu Kirkju vorrar frúar mjög vel. Fontain, Uppsprettan, er listaverk sem margir hafa klórað sér í hausnum yfir. Árituð klósettskál úr öllu samhengi. Lengst af hefur verkið verið eignað listamanninum Marcel Duchamp en spurningar hafa vaknað um það hver raunverulegur upphafsmaður þess sé. Mögulega er það listakonan Baroness Elsa von Freytag-Loringhoven. Rætt verður um þetta dularfulla listaverk og eignaréttinn á því í Lestinni í dag, gestur þáttarins verður Benedikt Hjartarson bókmenntafræðingur. Í pistli sínum í dag heldur Tómas Ævar Ólafsson áfram Evrópu-ferðalagi sínu og endar að þessu sinni í Sansevero-kapellunni í Napólí sem reist var á 16. öld. Í kjallara byggingarinnar rekst hann á óhugnanlega fyrirboða um framtíðarmanneskjuna og segir frá í þætti dagsins. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og fjallar í dag um handtökuna á ástralska blaðamanninum Julian Assange, stofnanda Wikileaks.
Gestir í Lestarklefanum voru þau Benedikt Hjartarson, Gísi Ásgeirsson og Lilja Birgisdóttir Umræðuefnin var nekt í Seðlabankanum, Sýningin Líffærin í Ásmundarsal og Leikritið Núna 2019 í Borgarleikhúsinu. Umsjón: Guðrún Sóley Gestsdóttir.

Golden Globe kvikmyndaverðlaunahátíðin fór fram í Hollywood í nótt, og þar kom ýmislegt á óvart. Við skoðum markverðustu tíðindin í Lestinni í dag. Við ætlum líka í þætti dagsins að fjalla um Jón Árnason þjóðsagnasafnara og bókavörð, en í ágúst á þessu ári, nánar tiltekið þann 17. ágúst, verða 200 ár liðin frá fæðingu hans. Ýmislegt verður gert til að minnast Jóns á þessu ári, ráðstefnuhald og fleira, gestur okkar verður Vilhjálmur Bjarnason fyrrverandi Alþingismaður, en hann er mikill áhugamaður um það mikilvæga starf sem Jón Árnason vann á sinni tíð, þegar hann safnaði þjóðsögum sem komu út í tveimur bindum í Leipzig á árunum 1862 og 1864, undir yfirskriftinni Íslenskar þjóðsögur og æfintýri, og síðar í sex bindum í Reykjavík á árunum 1954-1961. Áslaug Torfadóttir fjallar í sjónvarpspistli dagsins um þáttaröðina Sorry for your Loss sem frumsýnd var í september og hefur vakið mikla athygli gagnrýnenda. Sorry for your loss eru dramaþættir um sorgina sem hafa vakið bæði athygli og aðdáun og hægt er að horfa á ókeypis á facebook. Meira um það í þættinum í dag. Og heimildarmyndin Hitler's Hollywood fjallar um kvikmyndagerð nasista á árunum 1933 til 1945 og það hvernig nasistar földu áróður sinn oftar en ekki í Hollywood-legu léttmeti. Þórður Ingi Jónsson segir frá myndinni í Lestinni í dag. Heimildarmaður hans verður Benedikt Hjartarson bókmenntafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands. Fjallað verður um áróður og fjölmiðlalæsi í þættinum í dag.
Efni Lestarinnar í dag: Heimildarmyndin Hitler's Hollywood fjallar um kvikmyndaheim nasista frá árinu 1933 til ársins 1945 og það hvernig nasistar földu áróður sinn oft og tíðum í Hollywood-legu léttmeti. Þórður Ingi Jónsson segir frá myndinni í Lestinni í dag. Heimildarmaður hans verður Benedikt Hjartarson, prófessor við Háskóla Íslands. Veturinn er kominn og híðishegðun mannsins nú auðséðari en áður. Á tímum sem þessum er gott að verja kvöldstund fyrir framan sjónvarpsskjáinn með eina vel valda kvikmynd í tækinu. Lestin kynnir nýjan vetrardagskrárlið í þætti dagsins þar sem þáttarstjórnendur fá gesti til að mæla með kvikmyndum til að horfa á. Spurt er: Hvaða kvikmynd eigum við að horfa á í kvöld? Og hvers vegna. Í dag er það Una Björg Magnúsdóttir, listakona, sem velur mynd. Í byrjun 20. aldar taldi sálgreinandinn Wilhelm Reich sig hafa náð að mæla sjálfa lífsorkuna og gaf henni hið fallega nafn, Orgón. Í pistli sínum í dag skoðar Tómas Ævar Ólafsson þessi djörfu gervivísindi og veltir fyrir sér hvort eitthvað vit sé að finna í Orgón lækningum. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
Í bókmenntaþættinum Orð um bækur er fjallað drauminn um hið fullkomna tungumál og íslenskar bókmenntir á esperantó. Í þættinum er farið yfir sögu tilbúinna mála og sagt frá íslenskum bókmenntum á esperantó. Sagt er frá ljóðum og þýðingum Baldurs Ragnarssonar á esperantó og rætt við Benedikt Hjartarson um Þórberg Þórðarsson og tengsl hans við alþjóðlegu esperantóhreyfinguna á fyrri hluta síðustu aldar. Umsjónarmaður er Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir og lesari er Jóhannes Ólafsson.

Alþjóðleg kvikmyndahátíð Reykjavíkur, RIFF, hefst í dag. Kvikmyndagerðamaðurinn og ljóðskáldið Jonas Mekas er heiðursgestur hátíðarinnar í ár og mun Víðsjá gera listamanninum skil í þætti dagsins. Rætt er við Benedikt Hjartarson, prófessor í bókmenntafræði og menningarfræði við Háskóla Íslands um Jonas Mekas, sem hefur verið kallaður guðfaðir amerísku framúrstefnunnar. Harbinger sýningarrými við Freyjugötu verður heimsótt en þar sýnir Ragnheiður Káradóttir verk sín þessa dagana og kallar sýninguna Utan svæðis. Þar koma moppur, drullusokkar og víddaflakk við sögu. Í dag hefst Bókamessan í Gautaborg og er bókasafnið alltaf stór hluti af þeim viðburði. Halla Þórlaug Óskarsdóttir fékk sér sæti á einu slíku þar í borg og lét hugann reika um bókasöfn, heimili, einsemdina og hversdagsleikann. Einnig verður tónlistakonan Tinna Þorsteinsdóttir gestur þáttarins en hún og myndlistakonan Æsa Björk unnu nýverið fyrstu verðlaun á Alþjóðlegri glerlistasýningu í Japan.
Rætt er við gesti þáttarins þau Benedikt Hjartarson prófessor við Háskóla Íslands og Kristínu Dagmar Jóhannesdóttur listfræðing og forstöðumann Gerðarsafns um bók vikunnar, Tabula Rasa eftir Sigurð Guðmundsson. Umsjón: Jórunn Sigurðardóttir.

Út er komið ritið „Utopia: The Avant-Garde, Modernism and (Im)possible Life“ sem gefið er út af hinu virta forlagi De Gruyter. Benedikt Hjartarson, prófessor í almennri bókmenntafræði og menningarfræði við Hugvísindasvið HÍ, er einn af fjórum ritstjórum verksins. Hann ræðir um útópíu, módernisma og framúrstefnu.