Podcasts about Haukur

  • 87PODCASTS
  • 304EPISODES
  • 1h 9mAVG DURATION
  • 5WEEKLY NEW EPISODES
  • Jun 15, 2026LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026


Best podcasts about Haukur

Latest podcast episodes about Haukur

Víðsjá
Kichin, Njáluhöfundur og Himna

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 15, 2026 50:59


Í Hvelfingu Norræna hússins stendur yfir sýningin Himna; Goðsagnir & skáldskapur úr jörðu. Sýningin er samsýning átta listamanna sem koma víðsvegar að en verk þeirra skoða endurnýjun jarðvegs sem grundvallarferli sem gerir jörðina byggilega og lífi kleift að kvikna, dafna og endurnýja sig. Í þætti dagsins gerum við okkur ferð í Norræan húsið og tökum sýningarstjórann Thomas Pausz tali um Himnu. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor, segir okkur frá skáldunum sem sömdu Íslendingasögurnar og endar á Njáls sögu. Var höfundurinn einhver frændi Snorra Sturlusonar - eða kannski frænka hans? Gallerí Kichin var stofnað af þeim Skúla Thayer og Silju Rún Högnadóttur en upphafi miðaðist galleríið við eina óræða mublu sem þau fundu í Góða hirðinum. Mublan fékk heimili í vinnustofu þeirra í Listaháskólanum og með tímanum umbreyttist hún í sýningarrými. Í fyrra fór Kichin svo í samstarf við listahátíð í Reykjavík og úr urðu sex sýningar sem hófu göngu sína við upphaf listahátiðar og opna með viku millibili fram í júlí. Í þættinum lítum við inn í Kling og Bang og fáum að heyra af verkefninu.

Víðsjá
Samfélag í bleyti til Feneyja, Sinfóárið framundan, Haukur Þorgeirs pistill #11

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 8, 2026 56:09


Sinfóníuhljómsveit Íslands sendi frá sér dagskrárbækling fyrir næsta tónleikaár og verður þar ýmsu til tjaldað. Nýr Aðalhljómsveitarstjóri, Barbara Hannigan, tekur við. Nýr staðarlistamaður og staðartónskáld taka til starfa og margar stórstjörnur sígildrar tónlistar koma að utan. Guðni Tómasson, framkvæmdarstjóri sveitarinnar, heimsækir okkur og segir frá tónleikaárinu. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor fræðir okkur um sagnakvæðið Gullkársljóð en þar segir frá konungsdótturinni Æsu sem verður ástfangin af álfi í skarlatsklæðum. En við byrjum á arkitektúr. Í síðustu viku var tilkynnt hverjir fara fyrir Íslands hönd á tvíæringinn í arkitektúr í Feneyjum, en verkefni Basalt arkitekta, Samfélag í bleyti, hefur verið valið framlag Íslands. Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, kemur í heimsókn og segir frá því sem koma skal.

Víðsjá
Samfélag heilagra, Franziscuskóli á Skriðuklaustri, Haukur Þorgeirs pistill #10

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 2, 2026 50:59


Í Víðsjá dagsins rennum við upp að herrasetrinu á menningar- og sögustaðnum Skriðuklaustri og hittum þar Oddnýju Eir Ævarsdóttur, nýjan forstöðumann Gunnarsstofnunar, sem tók við því starfi í janúar síðastliðnum. Meðal þess sem hún er með í farvatninu er glænýr skóli fyrir skrifandi fólk sem hún kallar Franziscuskóla. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor, segir okkue frá Kálfi munki á 14. öld sem orti ekki bara helgikvæði heldur samdi líka barnaefni. Og við kynnum okkur nýútkomið bókverk úr smiðju Birtings, hóps rithöfunda í Ritlist við Háskóla Íslands og tveggja ritstjóra úr Hagnýtri ritstjórn og útgáfu við sama skóla. Bókin Samfélag heilagra er sagnasveigur sem hverfist um rannsókn á mannlegu samfélagi þar sem umbreytandi tímamót í lífi og dauða fólks eru krufin.

eir sam f haukur skri hagn oddn
Víðsjá
Bókmenntir Venesúela, viðgerð á brothættri skál, Haukur Þorgeirs pistill #9

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 26, 2026 52:07


„Það sem bókmenntin hefur er að draga fólk saman. Við getum ekki elskað það sem við kunnum ekki. Þannig að það er minn heiður að geta gefið eitthvað út frá Venesúela, sem kannski kynnir fyrir Íslendingum hvernig við erum sem þjóð í Venesúela,“ segir Helen Cova rithöfundur og bókaútgefandi hjá Karíba útgáfunni, en hún var að gefa út fyrstu íslensku þýðinguna á skáldsögu frá Venesúela, Mamma mjöll og minningar hennar eftir Teresu da la Parra í þýðingu Kristínar Guðrúnar Jónsdóttur. Þær verða báðar gestir okkar í dag en á morgun verða þær einnig með erindi í Veröld á viðburði um bókmenntir Venesúela og svo aftur um helgina á Bókmenntahátíð Flateyrar. Meira um hana og Mömmu Mjöll í þætti dagsins. Einnig er sviðslistakonan Steinunn Knúts Önnudóttur heimsótt og Haukur Þorgeirsson flytur pistil um rímur frá 15.öld um frúna Ólíf

Bylgjan
Bítið - þriðjudagur 26. maí 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later May 26, 2026 92:21


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Hrönn Stefánsdóttir, formaður Gigtarfélags Íslands, settist niður með okkur og ræddi gigt.  Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands, fór yfir úttekt á örorkubótakerfinu. Þorsteinn Siglaugsson, sérfræðingur í röklegu umbótaferli, ræddi við okkur um Icelandair og vandræðin þar. Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir, stjórnendur Skuggavaldsins, ræddu samsæriskenningar um geimverur og geimför. Jóhannes Haukur, leikari mætti til okkar og ræddi um He-man-myndina. Sigga Ósk, Ungfrú Ísland, settist niður með okkur og fór yfir það sem er á döfinni hjá henni. Aron Guðmundsson, íþróttafréttamaður Sýnar, fór yfir síðustu umferðina í enska boltanum. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur Vegagerðarinnar og hjá Blika.is, fór yfir hretið sem kemur mögulega á fimmtudag.  

stef bergmann eir kristj icelandair sigga haukur heimi ungfr vegager einar sveinbj
Fotbolti.net
Enski boltinn - Verðlaun fyrir tímabilið

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later May 25, 2026


Ensku úrvalsdeildinni 2025/26 er formlega lokið. Arsenal er meistari, Sunderland og Bournemouth komust í Evrópudeildina og Tottenham náðu að halda sér uppi. Í lokaþætti tímabilsins af Enski boltinn hlaðvarpinu voru ýmis verðlaun gefin, svo sem lið ársins, leikmaður ársins, besti stjórinn og versti stjórinn. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur sjá um þáttinn sem er í boði Coke.

Gullkastið á Kop.is
Gullkastið – Erfiður Heimavöllur?

Gullkastið á Kop.is

Play Episode Listen Later May 12, 2026 57:38


Anfield Road í vetur hefur verið völlurinn þar sem lið í frjálsu falli geta mætt og fengið sjálfstraust á ný. Amorim vann sem stjóri United, Totenham og Chelsea voru búin að tapa sex leikjum í röð áður en þau mættu á Anfield, Sean Dyche náði í 3-0 sigur áður en hann var rekinn og ekkert af nýliðunum hefur tapað á Anfield. Frammistaðan og leikurnn gegn Chelsea var alveg á pari við þessa verslu leiki og stuðningsmenn á Anfield orðnir það langþreyttir að baulað var hraustlega á liðið, það er ekki eðlilegt ástand á Anfield. Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er ekki staðfest ennþá en Liverpool fær gott tækifæri á Villa Park á föstudaginn. Sigurvegari í þeim leik verður í Meistaradeildinni á næsta tímabili. Staða Arne Slot hefur töluvert mikið verið til umræðu þessa vikuna Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Óli Haukur Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf

Víðsjá
Gabríela Friðriksdóttir, Hinsegin Salka Valka, Haukur Þorgeirs pistill #7

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 11, 2026 52:47


„Ef maður er ekki alltaf að, þá er hjartað manns ekki opið fyrir tækifærunum. Í gamla daga voru menn oft að vinna bara fyrir ákveðnar sýningar, en ég held að þetta sé öfugt. Þú bara gerir og gerir og þá kemur sýningin til þín. Þetta er þannig sem þetta virkar,“ segir Gabríela Friðriksdóttir. Í vikunni verður sýndarveruleika innsetningin Playing with Fire, sem hún gerði í samstarfi við píanóstjörnuna Yuja Wang og leikstjórann Pierre-Alain Girraud, frumsýnd í Cannes, en verkið er tilnefnt til Gullpálmans í flokki alltumlykjandi innsetninga. Verkið var frumflutt í Fílharmóníunni í París fyrr í vetur og verður sýnt víða um heim í framhaldinu, en Gabríela segir það vera einskonar mannkynssögu fyrir skilningarvitin. Meira um það í þætti dagsins. Ásta Kristín Benediktsdóttir, bókmenntafræðingur, lítur einnig við og segir frá hinsegin lestri á skáldsögunni Sölku Völku eftir Halldór Laxness, og Haukur Þorgeirsson veltir fyrir sér raunveruleikanum á bak við helgikvæði um konur sem dóu fyrir trúarsannfæringu sína.

Víðsjá
Suðurríkjaherforingi frá Big Sur, Margot Gamm, Haukur Þorgeirs pistill#6

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 4, 2026 50:20


Í þætti dagsins ræðum við við Þórð Sævar Jónsson, þýðanda og skáld, um þýðingu sem hann var að senda frá sér á skáldsögu bandaríska rithöfundarins Richard Brautigans, Suðurríkjaherforingi frá Big Sur. Haukur Þorgeirsson fer með okkur aftur til hins kaþólska Íslands og heyrum við brot úr Katrínardrápum og öðrum kvæðum um heilagar meyjar. Við sláum einnig á þráðinn austur á Höfn í Hornafjörð en þar opnaði nýverið sýningin Hlýja og handverk í Svavarssafni þar sem gefur að líta verk eftir kennarann og handverkskonuna Margot Gamm en hún auðgaði líf menningarlíf Hornarfjarðar með listfengi sínu í áratugi.

Víðsjá
Ymur, Máría, Éditions Grasset og Pissuskálin

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 27, 2026 54:03


Friðrik Margrétar-Guðmundsson sendi frá sér plötuna Ymur um helgina. Hann verður gestur Víðsjár og segir frá tilurð verksins og umfjöllunarefni hennar. Haukur Þorgeirsson, málfræðingur og rannsóknarprófessor við Árnastofnun, heldur áfram að fjalla um íslenska ljóðlist fyrri alda, í dag segir Haukur okkur frá Máríu, móður guðs, í kvæðum íslenskra skálda á miðöldum. Við heyrum af pólitískum menningarvendingum í Frakklandi sem varða Éditions Grasset útgáfufyrirtækið og rifjum upp pistil um Pissuskálina, listaverk sem jafnan hefur verið eignað franska listamanninum Marcel Duchamp en gæti hafa verið úr smiðju myndlistakonunnar Elsu von Freytag-Loringhoven

gu hann grasset marcel duchamp margr haukur frakklandi freytag loringhoven
Mannlegi þátturinn
Haukur Holm föstudagsgestur og matarspjall um snittubrauð

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 24, 2026 50:00


Haukur Holm fréttamaður, öllu heldur fyrrverandi fréttamaður, hefur yfir 40 ára reynslu á þeim vettvangi en er nú hættur, nýorðin sjötugur. Haukur vann lengst af á fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar en þar áður meðal annars á Alþýðublaðinu, Vikublaðinu Reykjavík og nú síðast hér á fréttastofu RÚV. Við fórum auðvitað aftur í tímann með Hauki, á æskuslóðirnar og upphaf fréttamannaferilsins, til dæmis viðtal hans við Leonard Cohen, sem var hans fyrsta verkefni í faginu. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað og í dag skoðuðum við aðeins Eldhúsbókina og svo gáfum við snittubrauðinu gaum, hvernig á að baka það og margvíslegum notagildum þess. Tónlist í þættinum í dag: Vorátak / Söngflokkurinn í Mosfellsbæ, Diddú, Hafdís Huld o.fl. (Thorbjörn Egner, texti Hafdís Huld) Banger / Virgin Orchestra (Stefanía Pálsdóttir, Rún Árnadóttir og Starri Holm, texti Stefanía Pálsdóttir) Democracy / Leonard Cohen (Leonard Cohen) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

rv leonard cohen holm reykjav thorbj egner haukur huld hafd mosfellsb sigurlaugu margr
Podcast með Sölva Tryggva
Gamalt og gott: Jóhannes Haukur með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Apr 23, 2026 120:52


https://solvitryggva.is/ Jóhannes Haukur Jóhannesson er einn þekktasti leikari Íslands á erlendri grundu. Eftir að hafa getið sér gott orð í leikhúsi og bíómyndum hér heima lá leiðin út fyrir landsteinana, þar sem hann hefur að mestu alið manninn undanfarin misseri. Í þættinum ræða Sölvi og Jóhannes Haukur íslandsmetið í Covid-prófum, leiklistina og almennt um lífið og tilveruna. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/

Fotbolti.net
Enski boltinn - Guð blessi Norður-London

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 20, 2026


Enski boltinn á mánudegi eftir stærsta leik tímabilsins til þessa. Manchester City hafði betur gegn Arsenal í svakalegum fótboltaleik í gær. Ef bæði þessi lið vinna rest þá ræðst deildin á markatölu. Hvaða lið verður eiginlega meistari? Manchester United fór langt með að tryggja sér Meistaradeildarsæti, Chelsea er í dimmum dal en ekki dimmari dal en Tottenham. Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Kári Snorrason fóru yfir allt það helsta.

Víðsjá
Staðarandi og steinsteypa, Tálkvendi í 79 af stöðinni, Haukur Þorgeirs pistill#5

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 20, 2026 51:38


Í þætti dagsins ræðum við við Birgittu Björgu Guðmarsdóttur, rithöfund, um erindi sem hún flutti á aldarafmælismálþingi um rithöfundinn Indriða G. Þorsteinsson, þar sem hún greindi persónu Gógóar í skáldsögunni 79 af stöðinni sem tálkvenndi. Birgitti heimsækir þáttinn og skýrir frá greiningunni. Haukur Þorgeirsson, málfræðingur, heldur áfram með sína vikulegu pistla um íslenska ljóðlist fyrri alda. Í dag segir hann frá refhvörfum og listrænni togstreitu í heimi síðustu hirðskáldanna. Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt, veltir fyrir sér staðaranda og steinsteypu í pistli sínum og þeim úrelta hugsunarhætti að rífa byggingu eftir að notkun hennar er hætt.

Víðsjá
Heiðvirðir einstaklingar í Hafnarborg, Lunga skólinn, Haukur Þorgeirs pistill #4

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 13, 2026 50:52


Í Hafnarborg sýnir um þessar mundir pólska listamanna tvíeykið Austur-Íslendingar, en það skipa þau Weronika Balcerak og Lukas Bury. Titill sýningarinnar, Heiðvirðir einstaklingar, er sóttur í auglýsingu sem birtist í smáauglýsingablaði Tímans árið 1991, en sýningin hverfist um samskipti á milli Póllands og Íslands. Samskipti, sem hófust með viðskiptum löngu áður en Pólverjar urðu stærsti hópur innflytjenda á Íslandi. Við ræðum við Lukas og Weroniku í þætti dagsins. Karólína Rós Ólafsdóttir segir frá listamannadvöl í Lunga lýðháskólanum á Seyðisfirði og Haukur Þorgeirsson fer með okkur inn í heim norrænna ljóða á 12.öld.

hei kar lunga sey haukur samskipti austur titill
Víðsjá
Gáttir Benedikt Hjartarson, Haukur Þorgeirs #3, Töfrafugl/ rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 7, 2026 52:13


Við munum heyra í Benedikti Hjartarsyni prófessor í almennri bókemenntafræði og meningarfærði við háskóla íslands, en hann gaf nýverið út bókina Gáttir, heimsbókmenntir á Íslandi 1913-1943. Í Gáttum hugar Benedikt að áhrifum heimsbókmenntanna á íslenskt menningarlíf á fullveldis árunum. Mikil áhersla var lögð á að byggja upp íslenska nútímamenningu og liður í því verkefni var að kynna nýjustu strauma alþjóðlegra bókmennta fyrir íslensku lesendum. Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í ljóðabókina Söngur tímafuglsins og fleiri ljóð, eftir Ægi Þór Jähnke. En við hefjum þáttinn á því að hverfa aftur til 11.aldar með Hauki Þorgeirssyni.

benedikt haukur soff mikil birgisd benedikt hjartarson
Víðsjá
Barrokkbandið Brák, Haukur Þorgeirs #2, Spaðar

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 30, 2026 55:35


Reykjavík Early Music Festival er alþjóðleg barokkhátíð sem haldin er hér í Reykjavík, í þriðja sinn í ár, en þar leika íslenskir og erlendir hópar, sem sérhæfa sig í upprunaflutningi, tónlist frá miðöldum, endurreisnartímanum, barokktímabilinu og rómantíska tímanum. Opnunartónleikarnir fara fram annað kvöld í Hörpu og eru í höndum Barrokkbandsins Brákar og í þættinum lítum við inn á æfingu hjá bandinu. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, flytur í dag erindi um kvæðið Velleklu og hugarheim hirðskáldanna, og bendir á að dróttkvæði mætti líka kalla: óskiljanlega orðræðu í bergmálshelli hinnar menntuðu elítu. Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og tónlistarmaður, heimsækir einnig þáttinn og segir frá hljómsveitinni Spöðum sem hafa komið víða við á löngum ferli og munu stíga á stokk í Hilton Nordica í vikunni á Blúshátíð Reykjavíkur.

gu reykjav haukur andri thorsson
Handkastið
Framlengingar, Hiti í stúkunni og Valsarar á flautunni

Handkastið

Play Episode Listen Later Mar 26, 2026 75:56


Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíó´Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Valur þurfti framlengingu og smá hjálp við að leggja HK. Fáliðaðir KA-menn náðu að halda út í tvíframlengdum leik í Eyjum. Stuðningsmenn Fram máttu ekki sitja hvar sem er þegar FH vann gífurlegar sterkan sigur. Haukur rúlluðu yfir Mosfellinga. Stelpurnar fara af stað um helgina. Þjálfarar hverfa á braut í Olís deild karla. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Víðsjá
Loji Höskulds í Köben, Vörumerkið Laxness, Haukur Þorgeirs um Ragnarsdrápu

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 23, 2026 54:52


Myndlistarmaðurinn Loji Höskuldsson opnaði sýninguna Nágranna á dögunum í Kaupmannahöfn. Útsaumsverk Loga eru löngu orðin áhugafólki um myndlist hér á landi kunn en hann hefur á síðustu árum einnig haslað sér völl í Danmörku. Listamaðurinn segir aukna viðveru sína í konungsríkinu óneitanlega hafa haft áhrif á myndmál sitt en hann tvinnar hönnunarvörur saman við hversdagslega hluti neyslumenningarinnar í verkum sýningarinnar. Grétar Þór Sigurðsson hittir Loga í Köben í þætti dagsins. Og í dag tekur til máls nýr pistlahöfundur, Haukur Þorgeirsson, en hann er málfræðingur og rannsóknarprófessor við Árnastofnun. Haukur mun á næstu vikum ferðast með okkur um forna ljóðlist og fara vítt og breitt um hugarheim miðalda. Í sínum fyrsta pistli segir Haukur okkur frá Ragnarsdrápu, elsta kvæðið sem varðveitt er í íslenskum handritum. Og við ræðum við Gunnlaug Bjarnason um hönnun á bókverkum HKL og vörumerkið Laxness.

Fotbolti.net
Uppbótartíminn - Landsliðið, stutt í Bestu og hvert fer Sara Björk?

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Mar 9, 2026


Uppbótartíminn, hlaðvarp um kvennaboltann á Íslandi, heilsar á mánudegi. Íslenska landsliðið byrjaði undankeppnina fyrir HM á því að mæta tveimur sterkustu þjóðum Evrópu og það gekk heldur brösulega. Það er einn og hálfur mánuður í Bestu deildina og nóg til að ræða um í tengslum við hana. Svo er spurning hvort Sara Björk Gunnarsdóttir, ein besta fótboltakona í sögu Íslands, sé á heimleið. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur fóru yfir allt það helsta.

Fotbolti.net
Enski boltinn - Heimskur Neto, trylltur Sesko og Spurs í djúpum skít

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Mar 2, 2026


Það er spenna á öllum vígstöðum í ensku úrvalsdeildinni þessa stundina. Arsenal og Manchester City eru að berjast á toppnum, Meistaradeildarbaráttan er hörð og á hinum enda töflunnar eru nokkur lið í fallbaráttu. Er Tottenham versta lið deildarinnar þessa stundina? Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Kári Snorrason fóru yfir allt það helsta eftir umferðina.

Handkastið
Strákarnir Okkar losuðu um handbremsuna og settu allt í botn

Handkastið

Play Episode Listen Later Jan 25, 2026 54:31


Stymmi Klippari, Einar Ingi og Geiri Sly mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp frábæran sigur Íslands á Svíþjóð í dag. Íslenska geðveikin mætti til leiks og léku allir strákarnir við hvern sinn fingur. Viggó Kristjánsson velkominn til leiks! Haukur Þrastarson varnarlega! Elliði og Ýmir með 20 löglegar stöðvanir! Viktor Gísli, Gísli Þorgeir, allir strákarnir okkar voru magnaðir í þessum sigri. Örlögin eru í okkar höndum og þurfum við núna að vinna tvo síðustu leikina til þess að vinna milliriðilinn og fara í undanúrslit. Olísdeild kvenna kláraðist um helgina og eru Valskonar komnar einar á toppinn eftir sigur á ÍBV. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið
Lífið er yndislegt og Ungverjar bíða á þriðjudaginn

Handkastið

Play Episode Listen Later Jan 18, 2026 46:59


Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Siggi Bond gerðu upp sigur íslenska landsliðsins á Pólverjum strax eftir leik í Kristianstad. Ýmir Örn var stórkostlegur í vörninni. Elliði svaraði fyrir lélegan leik a´ föstudaginn. Haukur var með frábæra innkomu. Var móment í síðari hálfleik kveikti í stúkunni. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Mannlegi þátturinn
Haukur Gröndal fimmtugur, jólabók Blekfjelagsins og mannleg samskipti um áramót

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 29, 2025 50:00


Saxófón- og klarínettleikarinn, tónskáldið og útsetjarinn Haukur Gröndal fagnar 50 ára afmæli með stórtónleikum í Norðurljósasal Hörpu annað kvöld. Haukur á að baki yfir þrjátíu ára feril í íslensku og alþjóðlegu tónlistarlífi, þar sem hann hefur skapað sér einstakan sess fyrir frumlega rödd. Við fórum aðeins með honum yfir ferilinn í dag og hann sagði okkur frá tónleikunum. Blekfjelagið er félag meistaranema í ritlist og árlega kemur út bók fyrir jólin sem heitir einfaldlega jólabókin. Þetta er í fjórtanda sinn sem jólabókin kemur út, sú fyrsta kom árið 2012 og þá máttu sögurnar einungis innihalda 100 orð auk titils. Á hverju ári fækkar orðunum um eitt og fyrir vikið mega sögurnar í ár einungis innihalda 87 orð. Í ár er þemað "Kyngja", og samanstendur bókin af örsögum og ljóðum eftir 17 höfunda. Undanfarin ár hafa þau komið í Mannlega þáttinn og lesið upp verkin sín og svo er einnig í ár. Við heyrðum fyrri hluta örsagnanna í dag og svo verður seinni hlutinn á dagskrá í þættinum á morgun. Höfundar í fyrri hluta: Móeiður Helgadóttir, Sigurlína Hermannsdóttir, Sturla Óskarsson, Ásta H. Ólafsdóttir, Jóhannes Árnason, Áslaug Ýr Hjartardóttir, Inga Maren Rúnarsdóttir, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Vala Hauks. Svo fengum við Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafa, sem hefur leitt okkur í gegnum mannlegu samskiptin á fimmtudögum í þættinum, enda geta samskipti verið afar flókin. Nú eru að koma áramót og því skoðaði Valdimar ýmislegt sem kemur upp á slíkum tímamótum og hvernig getur verið gott að snúa sér. Tónlist í þættinum: Þá komu jólin / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Roy Orbison og Joe Melson, texti Bragi Valdimar Skúlason) A Trip to Florina / Byzantine Silhouette (Byzantine Silhouette) Better Than Snow / Laufey og Norah Jones (Laufey & Norah Jones) Fairytale of New York / The Pogues & Kirsty McColl (Jem Finer & Shane MacGowan) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

trip gu roy orbison sax lov sigur svo sturla haukur helgad valdimar hermannsd samskipti undanfarin sigurl hjartard new york the pogues memfismaf rut kristj haukur gr
Fotbolti.net
Uppbótartíminn - Ein sú besta kveður sviðið, kraftröðun og slúður

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Dec 15, 2025


Það er komið að sérstökum jólaþætti af Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur komu sér vel fyrir í Pepsi Max stúdíóinu og ræddu við Fanndísi Friðriksdóttur, eina öflugustu fótboltakonu sem Ísland hefur átt, en hún lagði skóna á hilluna á dögunum. Fanndís fór yfir ferilinn og ákvörðun sína að hætta. Í lokin á þættinum var liðunum í Bestu deild kvenna kraftraðað eins og staðan er núna í desember og smá slúður tekið fyrir í kvennaboltanum.

Lestin
Ár með Trump: Íslendingar í Ameríku, Haukur Már og Staðreyndirnar

Lestin

Play Episode Listen Later Nov 5, 2025 54:39


Við tökum stöðuna á Íslendingum sem búsettir eru í Bandaríkjunum og spyrjum þá hvað hefur breyst síðan Trump var kjörinn? Að hvað miklu leiti finna þau breytingar á eigin skinni? Hvaða áhrif hefur þetta haft á nærumhverfi þeirra? Svo ræðum við við rithöfundinn og heimspekingin Hauk Má Helgason um nýútkomina bók hans Staðreyndirnar. Upplýsingaóreiða og vitvélar koma við sögu í skáldsögu sem fjallar um flokksgæðingin Stein, sem hefur fengið vinnu á nýrri stofnun, Upplýsingastofu, sem hefur það hlutverk að þróa opinberan staðreyndagrunn sem á að vera aðalvopn stjórnvalda í baráttunni gegn upplýsingaóreiðu.

Fotbolti.net
Innkastið - Þjálfarakapall og Víkingar meistarar

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Sep 29, 2025


Innkastið eftir 24. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Magnús Haukur. Davíð Smári hætti með Vestra eftir skell gegn ÍBV. Víkingar syngja um að þeir séu Íslandsmeistarar en KR-ingar syngja um fall. Hvaða þjálfarahræringar verða á næsta tímabili? Lengjudeildarhorn og ýmislegt fleira!

Fotbolti.net
Uppbótartíminn - Besta lið Íslandssögunnar?

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Sep 23, 2025


Núna skiptist Besta deild kvenna en það er margt óráðið þrátt fyrir að Breiðablik verði að öllum líkindum tvöfaldur meistari. Breiðablik hefur verið á ótrúlegu skriði að undanförnu og óhætt að tala um eitt besta lið Íslandssögunnar. Það er enn barátta um Meistaradeildarsæti og við falldrauginn. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur fara yfir allt það helsta í íslenska kvennaboltanum í Uppbótartímanum en í þessum þætti er einnig farið yfir landsliðið, Lengjudeildina og þróun fótboltans.

Fotbolti.net
Uppbótartíminn - Ræðst allt saman á fimmtudaginn

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Aug 31, 2025


Það var nóg að ræða í Uppbótartímanum á þessu sólríka sunnudagskvöldi. Úrslitaleikur Mjólkurbikars kvenna var hin mesta skemmtun og þá voru Breiðablik og Valur að spila í Evrópu. Svo eru bara þrjár umferðir eftir fram að skiptingu í Bestu deild kvenna. Næstkomandi fimmtudagur verður svakalegur en nánar var rætt um það í þættinum. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur fara yfir allt það helsta í kvennaboltanum.

Fotbolti.net
Uppbótartíminn - Lygilegt hjá Ljónynjum, Blikar í toppmálum og fallbaráttan harðnar

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jul 28, 2025


Það var nóg að ræða í Uppbótartímanum í dag þar sem Besta deild kvenna sneri aftur eftir langa EM pásu. Í þættinum í dag ræddu þeir Magnús Haukur og Guðmundur Aðalsteinn um sigur Englands á Evrópumótinu og árangur Íslands í Sviss, sigur Breiðabliks á Þrótti í toppslag, framtíðarlandsliðskonur á Sauðárkróki og margt fleira. Einnig var snert á Lengjudeildinni og 2. deild kvenna í lok þáttar.

Flugvarpið
#116 - Flugnámið – olnbogabarn í íslensku menntakerfi en breytingar í vændum – Anna Elvíra Herrera Þórisdóttir og Haukur Gunnarsson

Flugvarpið

Play Episode Listen Later Jun 19, 2025 56:22


Rætt er við Önnu Elvíru Herrera Þórisdóttur og Hauk Gunnarsson um stöðu atvinnuflugnáms á Íslandi. Námið hefur um langt skeið verið olnbogabarn í kerfinu og menntunin ekki verið metin að neinu leyti til eininga á háskólastigi eins og víða tíðkast í skólum í nágrannalöndunum. Nú hillir undir breytingar og allt útlit fyrir að Háskólinn á Bifrös muni í fyrsta sinn bjóða nám þar sem atvinnuflugmannsskírteinið er metið til eininga. Haukur og Anna segja gríðarleg sóknarfæri til staðar fyrir háskólasamfélagið að vinna í auknum mæli með þessari stóru atvinnugrein, þar sem mikil þörf og eftirspurn er eftir sérfræðingum á ýmsum sviðum til starfa.

Fotbolti.net
Uppbótartíminn - EM hópurinn og þrjú lið jöfn á toppnum

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jun 18, 2025


Það var nóg að ræða í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann á Íslandi, í dag. EM hópurinn var valinn síðasta föstudag og ljóst er hvaða 23 leikmenn verða fulltrúar Íslands á EM í Sviss. Hvaða leikmenn eru svekktastir með valið? Þá hefur Besta deildin ekki verið eins skemmtileg í mörg ár. Þrjú lið eru jöfn á toppnum og risi er í veseni. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur fóru yfir sviðið en einnig var aðeins snert á Lengjudeildinni og 2. deild í þættinum.

Podcast með Sölva Tryggva
Brot af því besta: Fjölnir Tattoo, Heiðar Logi og Jóhannes Haukur

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Jun 11, 2025 74:54


https://solvitryggva.is/ Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Biofit - https://biofit.is/ Exoquad - https://www.exoquad.is

Grænvarpið
Orkan í orkuskiptunum - Sigríður Mogensen og Haukur Ásberg Hilmarsson

Grænvarpið

Play Episode Listen Later Jun 2, 2025 24:57


Þóra ræðir við Sigríði Mogensen hjá Samtökum iðnaðarins og Hauk Ásberg Hilmarsson hjá Landsvirkjun um vefinn orkuskipti.is, sem fjallar um það hvernig Íslendingar geta skipt út milljón tonnum af olíu á ári fyrir loftslagsmarkmið, orkuöryggi, hreinna loft og orkusjálfstæði.

Fotbolti.net
Uppbótartíminn - Nýtt lið á toppnum og mikilvægir landsleikir

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later May 26, 2025


Það voru vendingar í síðustu umferð Bestu deildar kvenna eins og rætt er um í nýjum þætti af Uppbótartímanum, sérstökum hlaðvarpsþætti um kvennaboltann. Þróttur Reykjavík er á toppnum eftir að FH tókst að leggja Breiðablik að velli í Kaplakrika. Rætt er um síðustu umferð sem er að baki og einnig um mikilvæga leiki sem eru framundan hjá kvennalandsliðinu gegn Noregi og Frakklandi. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur sjá um þáttinn en Hertz er stoltur stuðningsaðili kvennaboltans á Fótbolta.net.

Norse Mythology: The Unofficial Guide
Episode 38 - Eating Hearts and Drinking Blood

Norse Mythology: The Unofficial Guide

Play Episode Listen Later May 18, 2025 27:41


This time we dig into a rarely discussed aspect of Norse mythology: stealing your enemy's power by eating their heart or drinking their blood. But just who's power can be stolen by way of this gory ritual? Animals? Monsters? Humans? Let's find out together.Sources:“Heimskringla Volume 1, The Beginnings to Óláfr Tryggvason” transl. by Alison Finlay and Anthony Faulkes, 2011“Gesta Danorum” transl. by Karsten Friis-Jensen and Peter Fisher, 2015“The Saga of King Hrolf Kraki” transl. By Jesse Byock, 1998“The Dating of Eddic Poetry: Evidence from Alliteration” by Haukur Þorgeirsson, 2016“Dating the Old Norse Poetic Edda” by Christopher Sapp, 2022"Eaten hearts and supernatural knowledge in Eiríks saga rauða" by Andrea Maraschi, 2018“The Poetic Edda”, transl. by Edward Pettit, 2023“The Prose Edda”, transl. by Anthony Faulkes, 1995Contact:Write in: waelhraefn (at) gmail (dot) comJoin the Discord: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠https://discord.gg/Nvw5hmkRsW⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Music:Celebration by Alexander Nakarada (www.serpentsoundstudios.com) Licensed under Creative Commons BY Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/

Mannlegi þátturinn
Jóhannes Haukur föstudagsgestur, matarspjall um skrýtnar samsetningar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 16, 2025 52:34


Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson. Hann hefur mikið látið að sér kveða eftir að hann útskrifaðist úr leiklistarskólanum, bæði í leikhúsi og fyrir framan myndavélina þar sem hann hefur leikið margvísleg hlutverk. En svo fyrir rúmum tíu árum fékk hann fyrsta hlutverk sitt í erlendu kvikmyndaverkefni og þá fór boltinn að rúlla. Í dag flýgur hann heimshornanna á milli og leikur í gríðarstórum kvikmyndum og sjónvarpsþáttaröðum, Game of Thrones, Succession, nýjustu ofurhetjumyndinni um Captain America og nú er hann að leika í kvikmynd um He-Man, eða Garp eins og hann kallaðist á íslensku. Við fórum með Jóhannesi aftur á æskuslóðirnar, en hann ólst að hluta til upp í Færeyjum og brunuðum svo með honum í gegnum lífið til dagsins í dag. Í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti tókum við framhaldsumræðu um af makkarónur með hangikjöti og kokteilsósa og pítusósa með pizzum og aðrar skrýtnar, eða að minnsta kosti óvenjulegar samsetningar á mat. Ef þið lumið á sögum af slíku, samsetningu á mat sem er kannski þekkt í einhverjum fjölskyldum, eða í einhverjum landshlutum, en gætu þótt sérkennilegar annars staðar, þá endilega sendið okkur á mannlegi@ruv.is. Tónlist í þættinum í dag: Pabbi vill mambó / Páll Óskar og Milljónamæringarnir (Al Hoffman, Bix Reichner, Dick Manning, textahöfundur ókunnur) Hvað er ástin? / GDRN (Friðrik Dór Jónsson og Jón Jónsson) Rólegur kúreki / Bríet (Bríet Ísis Elfar og Pálmi Ragnar Ásgeirsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Bylgjan
Bítið - 13. maí 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later May 13, 2025 111:25


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari Úlf   Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, prófessor og deilarforseti félagsvisindadeildar háskólans á Bifröst, ræddi við okkur um ráðstefnu sem fer fram á fimmtudag. Kristín Hermannsdóttir, fagstjóri veðurþjónustu Veðurstofunnar, fór yfir veðurviðvaranir og fleira.   Sonja Magnúsdóttir og Svavar Jóhannsson, fósturforeldrar Oscars frá Kólumbíu, settust niður með okkur.   Una Emilsdóttir, sérnámslæknir í atvinnu- og umhverfislæknisfræði, var á línunni og ræddi eiturefni í vörum og fatnaði. Guðbrandur Jónatansson sagði okkur sögu sína, en hann lenti í ömurlegu atviki þar sem bílnum hans var stolið á Spáni.   Grímur Atlason frá Geðhjálp sagði okkur frá áhugaverðri ráðstefnu í vikunni. Björn Baldvinsson og Jón Haukur ræddu við okkur um æfingabúðir í körfubolta sem fara fram í ágúst.

oscars bj ge gu ve krist kjer haukur bifr atlason heimi hermannsd baldvinsson
Fotbolti.net
Frábær þrenna, tvö stig og einn rosalega skrítinn leikur

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 9, 2025


Íslenska kvennalandsliðið tók tvö stig í leikjum sínum gegn Noregi og Sviss í Þjóðadeildinni. Stelpurnar fara í eiginlegan úrslitaleik við Noreg um annað sætið í riðlinum í næsta mánuði. Það var margt jákvætt í þessum tveimur leikjum en líka heilmargt sem hefði mátt fara betur. Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Sverrir Örn fóru yfir það helsta þegar Ísland á núna þrjá leiki fram að Evrópumóti.

Besta platan
#0246 Toto – Toto

Besta platan

Play Episode Listen Later Feb 28, 2025 103:15


„Rönnið“ sem Toto átti á árunum 1978–1982 á sér fáar hliðstæður. Fyrsta platan, sem er samnefnd sveitinni, er kannski ekki heilsteyptust, en hún er áberandi best. Því heldur Haukur a.m.k. fram.

Karfan
Aukasendingin: Haukur Helgi um landsliðið, lokamótin og hvern hann tæki með sér í The Purge

Karfan

Play Episode Listen Later Feb 18, 2025 24:31


Aukasendingin hitti fyrir leikmann íslenska landsliðsins Hauk Helga Briem Pálsson á hóteli liðsins í Berlín í gærkvöldi, en þar æfir liðið þessa dagana fyrir lokaleiki undankeppni EuroBasket 2025.Fyrri leikurinn er í Ungverjalandi gegn heimamönnum komandi fimmtudag og svo lýkur undankeppninni með leik heima í Laugardalshöll komandi sunnudag.Haukur Helgi var aðeins 19 ára gamall árið 2011 þegar hann var fyrst valinn í íslenska landsliðið og því spannar ferill hans með liðinu að verða 14 ár. Á þessum tíma hefur Haukur að sjálfsögðu verið einn af burðarásum liðsins sem meðal annars tryggði sig inn á lokamót EuroBasket 2015 og aftur tveimur árum seinna 2017.Þá hefur Haukur að sjálfsögðu verið gífurlega farsæll sem leikmaður, fyrst með stórum skólum í Bandaríkjunum, en eftir það sem atvinnumaður á meginlandi Evrópu.Í nokkuð óhefðbundnu spjalli við Aukasendinguna fer Haukur yfir hin ýmsu málefni, meðal annars upphaf ferilsins í Bandaríkjunum, hverja hann tæki með sér í The Purge, hvernig hafi verið með íslenska liðinu á þessum fyrstu tveimur stórmótum 2015 og 2017 og hvernig liðið hafi svo breyst til dagsins í dag.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

Segðu mér
Haukur Ingi Jónasson

Segðu mér

Play Episode Listen Later Feb 5, 2025 40:00


Haukur Ingi Jónasson er doktor í guðfræði og starfaði sem sjúkrahúsprestur í New York.

Ólafssynir í Undralandi
Hálfgerð Jóla-nostalgía (ft. Jóhannes Haukur)

Ólafssynir í Undralandi

Play Episode Listen Later Dec 22, 2024 58:49


Já þið lásuð rétt kæru hlustendur. Nú fara jólin að nálgast og að sjálfösgðu hentum við í jóla-nostalgíu eins og fyrri ár. Eins og oft vill þó gerast þá fór umræðan um víðan völl og meðal annars poppaði Jóhannes Haukur upp hjá okkur. Gleðilega hátíð kæru hlustendur og hafið það huggulegt yfir hátíðarnar!

Fotbolti.net
Enski boltinn - Er Ödegaard þá Charlie Adam?

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Dec 5, 2024


Arsenal fór með sigur af hólmi gegn Manchester United í gær og var það fyrsta tap Rúben Amorim sem stjóra United. Hornspyrnurnar fóru illa með Man Utd. Arsenal hefur verið kallað hið „nýja Stoke City" eftir sigurinn en það er fyndinn samanburður. Liverpool gerði þá 3-3 jafntefli við Newcastle í ótrúlegum leik, Chelsea spilaði blússandi sóknarbolta og Manchester City komst aftur á sigurbraut. Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Haraldur Örn fóru yfir síðustu leiki og sögulínur í enska boltanum.

Besta platan
#0238 The White Stripes – De Stijl

Besta platan

Play Episode Listen Later Nov 22, 2024 77:16


The White Stripes áttu sinn þátt í að lækna heiminn af númetal-þynnkunni. Haukur er á því að De Stijl sé besta platan þeirra, en er eitthvað til í því?

Vikulokin
Guðmundur Heiðar Helgason, Haukur Arnþórsson, og Kristín Gunnarsdóttir

Vikulokin

Play Episode Listen Later Nov 16, 2024 57:56


Guðmundur Heiðar Helgason, almannatengill, Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur, og Kristín Gunnarsdóttir, markaðsstjóri og hlaðvarpsstjórnandi, ræða uppljóstrun njósnafyrirtækis á fullyrðingum sonar Jóns Gunnarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um að Jón hafi þegið sæti á framboðslista gegn því að komast í að­stöðu til veita veiði­leyfi til Hvals hf. Einnig um stöðu Þórðar Snæs Júlíussonar, eftir að í ljós kom að hann hafði skrifað niðrandi um konur, undir dulnefni, árin 2004 til 2007, og um stöðuna í bandarískum stjórnmálum eftir sigur Donalds Trump. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Fotbolti.net
Haukur Heiðar - Bikarúrslit, Deano og Alexander Isak

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Sep 17, 2024


Á laugardag fer fram bikarúrslitaleikur KA og Víkings á Laugardalsvelli; annað árið í röð mætast liðin í úrslitaleiknum. Í tilefni af því var KA-maðurinn Haukur Heiðar Hauksson fenginn til að hita aðeins upp fyrir leikinn. Haukur lagði skóna á hilluna eftir tímabilið 2021. Hann er uppalinn hjá KA, varð svo Íslands- og bikareistari með KR áður en hann tók skrefið út í atvinnumennsku og varð sænskur meistari með AIK. Stiklað er á stóru á ferli Hauks, í viðtalinu er rætt um Dean Martin, Alexander Isak, tilboð frá Leeds, EM 2016 og meiðslin sem settu strik í reikninginn.

Genius Leadership: Overcoming Everything Podcast
Overcoming Burnout: Mental Resilience Lessons from a Serial Entrepreneur

Genius Leadership: Overcoming Everything Podcast

Play Episode Listen Later Aug 28, 2024 64:26


How do you stay resilient when faced with personal and professional hardships? What steps can you take to understand and manage burnout effectively? Imagine pushing through multiple business challenges while also dealing with stress, anxiety, and personal loss. How do you keep moving forward and stay passionate about your work? This week's guest is Haukur Gudjonsson, a seasoned entrepreneur with over 20 years of experience and a passion for building startups that solve problems and create value. Haukur has a diverse portfolio, from investing in real estate to running startups focused on tech and education. He is the CEO and founder of Sundra, a SaaS captioning solution that automates the transcribing of subtitles and captions. During the episode, Haukur shares his journey of overcoming mental health challenges and the pivotal moments that shaped his approach to business and life. He opens up about the critical lessons learned from his experiences with burnout, the importance of self-awareness, and how he managed to rebuild his life and career.  In this episode, you will learn about: Haukur's entrepreneurial journey and the challenges he had to face the impact of anxiety, stress and personal loss on Hakur's career and life identifying and managing different levels of burnout a surprising benefit that several days of anti-anxiety medication can give the role of mental health in personal and professional success strategies for detaching from work and finding balance the importance of building a supportive network Stay safe and #standwithukraine, Anna   Resources: Connect with Haukur on LinkedIn: https://www.linkedin.com/in/haukurgud/  Learn more about Sundra: https://www.sundra.io  Join the free yoga classes I teach every Monday and Thursday: https://annaliebel.as.me/lytmorning  Book a Mindshifting Intensive: https://annaliebel.as.me/strategycall   Support Ukraine: https://u24.gov.ua/ 

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“Þú varst eins og þokulúður að syngja þetta lag” -#492

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Aug 1, 2024 8:29


Kæru áskrifendur hér er annar þáttur uppfullur af skemmtilegum gullmolum liðinna ára. Strákarnir ræða afmælisveislur þar sem allt gekk eins og í sögu. Siffi 3000 fór til sálfræðings og ræddi vandamál sín. Haukur hringdi í Útvarp Sögu og ræddi hvað allt er ódýrt á Costa Blanca. Haraldur Hallgrímur Haraldsson kom með skilaboð til Kristínar Theadórsdóttur.Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!

Podcast með Sölva Tryggva
Jóhannes Haukur með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Jun 7, 2024 121:27


Nálgast má þáttinn án auglýsinga í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Jóhannes Haukur Jóhannesson er einn þekktasti leikari Íslands á erlendri grundu. Eftir að hafa getið sér gott orð í leikhúsi og bíómyndum hér heima lá leiðin út fyrir landsteinana, þar sem hann hefur að mestu alið manninn undanfarin misseri. Í þættinum ræða Sölvi og Jóhannes Haukur íslandsmetið í Covid-prófum, leiklistina og almennt um lífið og tilveruna. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/ Fiskikóngurinn - https://www.facebook.com/fiskikongurinn.is/?locale=is_IS Heitirpottar.is - https://heitirpottar.is/ Kjötkompaní - https://kjotkompani.is/ Holistic - https://holistic.is/