My name is Sigga Dogg and I am an Icelandic sex educator and writer. My mission is to change the way we talk about sex by using humor, honesty and facts. - Feel free to take a peak inside my brain by listening to the podcast! - I always carry with me a collection of various genital photographs (…
Muniði þegar ég keyrði um landið og blaðraði stjórnlaust um allskonar? Ég veit þú trúir því kannski ekki...en fólk er búið að vera biðja um MEIRA SVOLEIÐIS! Og þar sem kynfræðslan er að fara svona hressilega af stað og ég er að fara rúnta um landið (enn eina ferðina) þá ætla ég að bjóða þér að vera með mér. Ef þú ert nýr hlustandi þá já - hljóðgæðin eru ekki góð. Það er bara þannig. Stefni ekki á að laga það. Og ég fann ekki upphafs og endalagið mitt en ég mun leita að því, lofa. Og ég fer um sjúklega víðan völl - við erum að tala um allskonar alltaf. Njóttu :)
Ég hef verið að pæla lengi í fantasíum (ÞVÍ ÞÆR ERU SVO MIKILVÆGAR!) og ætla af því tilefni að hendast í að halda kvöldstund um það fyrirbæri! Hverjar eru algengustu fantasíurnar og hvað þýða þær? Má fantasera um hvað sem er og hvern sem er, hvernig sem er? Hvað segir fantasían manns um mann? Hvernig býr maður til fantasíu? Hvernig aðgreinir maður á milli fantasíu og raunveruleika? Hvernig skapar maður öruggt rými í sambandinu sínu til að ræða fantasíuna sína? Viðburðurinn fer fram fimmtudaginn 24.september kl.19:30 - 22.30 í lokuðu rými í versluninni Losta /vinnurými Siggu Daggar kynfræðings í Borgartúni 3. ATH - Takmarkaður fjöldi þátttakanda. Verð fyrir einstakling: 3900 kr Verð fyrir par: 6900 kr Nánari upplýsingar: instagram.com/sigga_dogg_sexologist/ facebook.com/siggadogg.is
Maður á svölunum, edik í brúsa með blómadropum, skilnaður, bókaskrif, hor og kaffibolli - bara beisikk mánudagur.
Hljóðgæðin eru ekki frábær...en ég LOFA að pælingarnar eru það... eða kannski ekki! Úff, datt á smá trúnó og allskonar pælingar um ást og ástarsorg en svo kom svo hressileg vindhviða að ég hætti í miðri hugsun og fór að hlusta á tónlist og syngja og dansa með! En hér er ég, meðfram Sæbraut, að syrgja ástina og hoppa á steinum.
Spurt & Svarað með Siggusinni! Hvað töluðum við EKKI um? Kynlíf á túr, að koma út sem bi í gagnkynhneigðu sambandi, líkamsímynd, slit, þröngar píkur, grindarbotninn, samskipti, undirgefni, ástarsorg, sambönd, ástina, kynlíf, sjálfsfróun, fullnægingar og svo meira kynlíf - minnir mig...!
Seinni hluti píkupartísins sem fer aðeins meira inn á sjálfsfróun og fullnægingar og skvört og g-blettinn og vörurnar sem geta leyst allskyns píkukvillaleiðindi - meira hér https://florealis.is/vorur/
Ég var með beina útsendingu á INSTAGRAM um píkuna a til ö! Það var talað um píkuna, bara píkuna og EKKERT annað því það má! og þarf! Við auðvitað byrjuðum á að skilgreina hvað einkennir góða píkuheilsu - bráðnauðsynlega upplýsingar að hafa, ættum eiginlega að gera segul til að setja á ísskápinn! En hvað töluðum við ekki um...?! Bólur, útferð, lykt, bleyta, skvört, gbletturinn, snípurinn, leghálsinn, unaður, fullnægingar, barmar, lýtaaðgerðir, nærbrækur og sjálfsfróun...og margt margt fleira því spurningalistinn var næstum endalaus! Anna Lind læknir heiðraði okkur með nærveru sinni og fróðleik um allt PÍKUTENGT - ég meina, vissirðu að maður þarf að pissa rétt? Og að læra inn á útferðina sína? Og það má nota píkusápu í andlitið?! Ég lærði svo ótal margt og ég vona að þið hafi gert það líka! Ég náði meira að segja ekki að fara yfir allt sem ég þurfti að segja og því bætti ég við part 2 - hann er þáttur no.60! Takk fyrir að hlusta og vera með! Þessi þáttur var í samstarfi við Florealis - bestu píkuvörurnar fyrir allskyns píkukvilla! Sjá meira hér https://florealis.is/vorur/
I AM FREEZING MY CLIT OFF! snow storm and social distancing and corona virus and hornyness and fantasies - are you here for it all?
Fólk virðist vera að kafna úr greddu - það er bara þannig! En við skulum ekki alveg missa okkur og gleyma grindarbotninum, typpi og píkur, gerið það með mér á meðan þið hlustið! Koma svo, kreppa sleppa kreppa sleppa...
SÓL ÞAÐ VAR SÓL Í DAG! Og ég fór á hótel yfir helgina með titrarana mína og sleipiefni - það er sjálfsást í lagi!
Ertu í sóttkví? Óttastu samgöngu og/eða útgöngubann? Ertu bara heima hjá þér að kafna úr greddu og langar að fá smá gott í kroppinn en ert líka með Covid kvíða? Gjörðusvovel - símasex!
Ertu í sóttkví? Ertu á leið í sóttvkí? Ertu með Corona kvíða? Ertu búin að horfa á Love is Blind? Þetta er þátturinn fyrir ÞIG!
jájájájá ég veit ég veit, ég er búin að vera andlega fjarverandi! En hvernig er það að reyna að finna ástina í dag? Ég er svolítið búin að vera pæla í þessu og ræða þetta við mann og annan, aðallega samt raddirnar í hausnum mínum og við sjónvarpið. Er hægt að finna ástina á tímum raunveruleikasjónvarps og smáforrita?!
Einstakur viðburður í sögunni. (var það ekki annars?!) Við þrjú leiddum saman hesta okkar og spjölluðum um allskonar á IG í vikunni en hér er upptakan af því spjalli - NJÓTTU! og GLEÐILEGA HÁTÍÐ!
Ég er í Helsinki í vinnuferð og viti menn - kemur í ljós að bandaríski tónlistamaðurinn T.I. fer árlega með dóttur sína til læknis til að staðfesta órofið meyjarhaft. Hvar á ég að byrja?! Þetta er stutt og laggott en mikilvægt!
Ég lenti í skemmtilegri uppákomu á Konukvöldi í Hveragerði um helgina og það fékk mig til að hugsa um allskonar... mikilvægi munnmaka, druslustimpilinn, karlmennsku og karlmenn og bara lífið almennt. Eða svona þannig.
I am going to Mexico in just under a week and I CAN NOT WAIT! But I also have so much going on at the moment - it is CRAZY! I am organising my CockChat event here in Iceland, and participating in a workshop for the Prime Ministers Ministry, doing stand-up all over and going to Finland for Sexpos 50year celebration! So yeah. PARTY as always!
Hefurðu pælt í lengdinni á typpinu þínu? Hefurðu mælt á þér typpið? Hvað finnst þér um punginn þinn? Þrífurðu typpið fyrir notkun með félaga? Hvar finnst þér best að rúnka þér? Ég er aðeins að pæla í typpum þessa dagana... og með könnun, endilega taktu þátt - bara gaman :) https://forms.gle/4YjTBqLDxYnDMMM96
Ég var með foreldramorgun í bókasafni Kópavogs og nýtti tímann á leiðinni og tók upp pælingar um æsandi armkrika, glæra sáðvökvann sem kemur úr kóngnum við kelerí, kynfræði í HR og hvernig megi nota húmor í kynfræðslu. Eins og venjulega, allskonar og útum allt.
Djöfull var það gott á mig að taka upp þennan þátt og finnast ég vera best í heimi bara til að koma heima og lenda á jörðinni og finnast allt vera glatað og ég vera glötuð.... En svona er þetta líf, upp og niður! Og þannig er dagurinn pínu í dag. Pínu niður. Eins og þynnka, en er ekki svindl að vera þunn þegar ég datt ekki einu sinni í það?! Það ætti að vera bannað! Allavega - smá svona röfl og pælingar um allskonar - ein ást til ykkar allra sem hlustið!
Getur túrbikar fests eða týnst í leggöngunum? Má fróa sér með gosflösku? Í hvaða átt er best að skeina sér? Hver er þessi „legháls“? (hint - cervix) Þú færð svör við öllu þessu og meiru til! OG ég er farin á fullt að bóka kynfræðslu inn í haustið og veturinn!
HAPPY PRIDE ICELAND! I am currently working on finishing my fourth book (second novel!) and i am knee deep in penile experiences - so much fun! Oh and I love love love pride! and its here and its queer! woohhooo! oh and - should I auction vulva casts for charity?
Hvað geriru ef kynlífstæki festist í rassinum á þér? Finnst þér pirrandi að pissa í samfesting? Vantar þig að fara á viðburð sem bætir líf þitt? - TIX.IS - Er hægt að ríða OF LENGI? (já) allt þetta og svo miiiiklu meira...
I got a question from a Hungarian listener regarding the sex scene in Iceland and here is my reply... Also, a lot about armpit hair. Why does it bother OTHER people so?
Fjöruferð, krabbatínsla, fullnægingar, túrverkir, fávitar, fantasíur, Normið og sjálfsfróun. Bara meðaldagur.
TW - TALKING ABOUT ABORTION and RELATIONSHIP ISSUES So Iceland recently passed a law that made abortion the sole decision of the woman and it is allowed up to week 22. Here I share my story of my first pregnancy and abortion. And yes, abortion is a human right And yes, Iceland has achieved a lot in women's right and equality, in part due to easy access to abortion.
Sumar Sól Borgarnes Farfuglaheimili Kynlífsvélmenni Borgarleikhúsið Og vandræðalegasta uppistand lífs míns í hörpu
I love love love going to conferences and presenting (duh well that might be a bit obvious) and I have to on the horizon this year! Woohooo! Oh and I had a pap smear and paid undir 40$ for it and it took under 20 minutes from start to finish. (that's the photo attached) Just in case you read the trending twitter link about the american women who love the Icelandic health care system. It is pretty great.
Ég datt í að semja nokkur ljóð um afar streituvekjandi umhverfikvíðann minn og ég fór í kirkjugarð til að velta tilgangi lífsins fyrir mér. Það er aldrei langt í þjáða unglinginn Góðar stundir LJÓÐ Ertu ekki með viðbótarlífeyrissparnað? Nei Heyrðu góða mín, hvernig ætlaru að hafa það í ellinni? Ég held ég verði ekki gömul nú? Já ég held að heimurinn verði dauður Áður en ég verð gömul Hvaða neikvæðnis raus er þetta í þér? Ég hef aldrei heyrt aðra eins afsökun fyrir því að greiða ekki í sparnað! Þú veist að þú tapar mjög miklu á því að spara ekki Ég lifi í núinu Ég nenni ekki að hanga á krónum sem verða verðlausar og horfnar Þegar ég ætla, kannski, að nota og njóta Ég er til í dag Ég veit ekkert hvað gerist á morgun Svona svona, ástand mála er nú ekki svona slæmt Jú reyndar, og það er ykkur að kenna Okkur ? Hvað gerðum við? Þið keyrðið útum allt, krefjist nýrra bíla, amerísks þvottaefnis sem mengar höfin, þið flokkið ekki, þið borðið bara það sem ykkur langar til að borða þegar ykkur langar í það, þið dettið í það í útlöndum þegar ykkur hentar og þið eigið alltof mikið af öllu Nei þetta get ég ekki fallist á! Við vorum nýtna kynslóðin Þess vegna lögðum við fyrir Svo við getum haft það gott í ellinni já, endilega hafðu það notalegt í ellinni En þú skalt vita eitt Þín elli er á kostnað minnar elli Þitt æviskeið kostaði mig mína framtíð Svo viltu að ég láti þig líka fá aurana mína og krónur?
Ást? Ástarsorg? Hvernig kynlíf? Plana kynlíf?! Umferðaröngþveiti Samskiptaskítur Allt í einum þætti!
Nú skal STÓRA baðbombumálið afhjúpað fyrir fullt og allt! Og ég fann bílagrafreit og skemmti mér konunglega að ruslast aðeins í honum en ég er í kynfræðsluferð á Egilstöðum í sumarblíðskaparveðri og dásamlegri lykt.
So I am being totally censored on IG and FB, what's a sexologist to do?! Also, I found my first totally white pubic hair!! Party the house down, all day, every day.
Ég fann mitt fyrsta GRÁA kynfærahár! Má það bara? fyrir fertugt?! Ég talaði líka við 101 radio um sársauka í kynlífi, og allskonar annað. PARTÍ!
Ég hitti þrjár peppaðar Kvennaskólapíur uppi í Tækniskóla eftir fyrirlestur um daginn og spjölluðum við um allskonar undir sólinni er tengist kynfræðslu og kynlífi. Dömurnar sem ég spjallaði við heita Magdalena Radwanska, Ilmur Arnarsdóttir og Anna Sigrún Davíðsdóttir en þetta viðtal var hluti af verkefni sem þær unnu fyrir skólann. Hljómgæðin eru ekki frábær en spjallið er það!
Vissuru að smokkar og sleipiefni eru MIKLU ódýrari í Svíþjóð OG það er hægt að fá kynlífstæki í apótekum?! Ég er að vinna í þessu (að við fylgjum stóru frændum í þessu eins og öðru), ég lofa!
SHOUT OUT TO SWEDEN! Going to Stockholm! And apparently I organised an orgy? But missed it? What? Oh and I am going on a vulva trip!
Allt að gerast! Ég var í spjalli við Sólborgu hjá IG - Fávitar og er að druuukkna í nafnlausum spurningum...og ég elska það!
Sumum finnst ég fyndin. Ekki öllum. Kannski sérstaklega ekki mér. Mér finnst ég ekki mjög fyndin. En ég hlæ stundum að mér. En ekki af því mér finnst ég fyndin. En þeim sem finnst ég fyndin finnst stundum góð hugmynd að fá mig til að segja grín og jafnvel stjórna veislum! Snar! Aldrei í mínum villtustu draumum myndi mig gruna að ég myndi þykja fyndin. En svona er þetta. Stundum. Ha?!
We need to talk about Sex robots - like now! Are they sex toys or are they partners? Should femme-looking bots have penises or vibrating tongues? Can bots replace romantic blood pulsing partners? Would you buy a bot if it were cheaper? SO MANY QUESTIONS! This one is all about robotic romance and sex!
Ég er í fræðsluferð á NorðVesturlandi og mun fræða unglinga og foreldra þeirra á Sauðárkróki, Hofsósi og Varmárhlíð. Og eins og mér er einni lagið þá fer ég í göngutúr, röfla, skoða inn um glugga, og tíni flöskur. Vei!
ÉG FÉKK VERÐLAUN!! „Ár hvert veitir Uppreisn verðlaun til einstaklings og félagasamtaka sem hafa sýnt markvert og óeigingjarnt starf í þágu frjálslyndis og almannahagsmuna. Verðlaunin eru hvort tveggja, viðurkenning og þakklætisvottur. Stjórn Uppreisnar var einróma í sinni ákvörðun um að starfið sem þú hefur sinnt í frjálslyndri viðhorfsbreytingu á kynlífi og kynfræðslu, sér í lagi ungs fólks, er merkilegt og ber að fagna.“ og svo rúntaði ég á Sauðárkrók!
Rölt um 101 Reykjavík með túrbikar í klofinu og túr á heilanum. PARTÍ!
What is with this notion that something makes you gay? And, can picking cans and bottles for recycling be a great date idea? And, what is love anyways? So you know, your everyday ponderings!
Nokkrar áhugaverðar staðreyndir: ég elska að trufla hommafordóma fólks, ég kaus í Júróvisjón, ég skilgreini rómantík sem að plokka dósir og endurvinna, og ég elska mat á 50% afslætti. Og svo er eitthvað allskonar annað þarna. Vei!
I stepped out into the freezing cold winter air to go into a steaming hot hot tub all by myself and as I star gazed I am thinking about my listeners all over the world, stars that fly in the sky, the power of water and trying to find and connect with my dragon. now that's a lot to unpack! AND - not driving! Also - a how to guide to finding your dragon!
Ég skrapp í heimsókn til Menntaskólans á Laugarvatni þar sem ég fræddi nemendur um KYNSJÚKDÓMA. BÚMM. Og það var kalt úti.
PARENT and ADULTS - This one is for you! Language and being appropriate is soooo important! So if you are a teen - share this with the adult in your life. Please. They want to be there but they dont know how! Help these old people out.
Í þessu fyrsta hlaðvarpi ársins er farið yfir víðan völl á meðan ég rúnta til Hvolsvallar með kynfræðslu. Ég vann m.a. Facebook geirvörtu deilu, pæli í Skaupinu, nekt í list, umhverfisvænni og ódýrari bílum og brundi. og allskonar.