POPULARITY
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Ólafía Hrönn Jónsdóttir, leikkona, söngkona og lagahöfundur. Hún hefur auðvitað leikið fjölda hlutverka á sviði og í sjónvarpi og kvikmyndum og svo er hún meðlimur í Heimilistónum og Hljómsveit Jarþrúðar og hefur sungið víða. Framundan er Sumarkjólaball Heimilistóna í Gamla Bíói, en við fórum auðvitað aftur í tímann með Ólafíu, á æskuslóðirnar, í Reykjavík, á Höfn í Hornafirði og á Laugarvatni. Við fórum svo með henni á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag og spjallið leiddi okkur á skemmtilegar slóðir, til dæmis þegar hún sagði frá því hvaðan draumurinn um að verða leikkona kom, grínið og hljómsveitirnar, en hún er nýbúin að stofna tríó sem ber nafnið Mamma þín. HP sósan var svo til umfjöllunar í Matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti, en í síðustu viku fjölluðum við um Worchestershire sósuna. Svo ræddum við hugmyndir að þjóðlegum smáréttum og partýmat sem sniðugt gæti verið að bera á borð á kosningavökunni annað kvöld. Tónlist í þættinum í dag: Nú liggur vel á mér / Ingibjörg Smith (Óðinn G Þórarinsson og Númi Þorbergs) Tuð / Hljómsveit Jarþrúðar (Ólafía Hrönn Jónsdóttir) Haltu utan um mig / Heimilistónar (Ólafía Hrönn Jónsdóttir) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Henný Björk Birgisdóttir hjúkrunarfræðingur kom til okkar í dag og fræddi okkur um stafræna heilbrigðistækni en hún hefur nýtt sinn hjúkrunarfræðigrunn og er að vinna með fyrirtækinu Helix með stafræna lausn í smáforritinu Iðunni sem Helix er að þróa og getur sparað hjúkrunarfræðingum töluverðan tíma svo þeir hafi meiri tíma að til að sinna sjúklingum. Semsagt vísir að ákveðinni byltingu í störfum hjúkrunarfræðinga sem í dag eyða stórum hluta vinnunnar í tímafreka skriffinnsku. Henný Björk sagði okkur meira frá þessu í dag. Alla miðvikudaga í maí verður boðið upp á menningar- og fræðslugöngur í Skálholti. Um er að ræða fræðsluerindi og göngur sem tengjast Skálholti á einhvern hátt. Á á laugardaginn mun Tómas Grétar Gunnarsson, fuglafræðingur á Laugarvatni og forstöðumaður rannsóknaseturs HÍ á Suðurlandi, leiða gesti um Skálholtslandið og fræða þá um þá fugla sem þar finnast. Tómas sagði okkur frá fuglum á þessu svæði og göngunni í dag. Jónatan Garðarsson kom aftur til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá leik- og söngkonunni Soffíu Karlsdóttur. Hún varð þekkt í tengslum við revíu- og kabarettsýningar, svo ekki sé minnst á nokkur lög sem urðu gríðarlega vinsæl um miðja síðustu öld, til dæmis Bílavísur og Það er draumur að vera með dáta. Soffía leit sjálf ekki á sig sem söngkonu, en eins og Jónatan sagði okkur frá í dag þá eru hún engu að síður meðal allra fyrstu dægurlagasöngkvenna Íslands. Tónlist í þættinum í dag: Dagar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg) Segðu mér satt / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson) Það er draumur að vera með dáta / Soffía Karlsdóttir (Edward Brink, texti Bjarni Guðmundsson) Bílavísur / Soffía Karlsdóttir (Holmes, texti Jón Sigurðsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Alltaf nettur þéttur er þaggi bara. Fórum yfir Söngvakeppnina á RÚV og histerínuna sem greip landan um helgina. Dífðum tánni í Wok On málið, rasismi kennara á Laugarvatni og afhverju er ekki löngu komið risa parísarhjól í Reykjavík? Eins og áður þá bjargar 70min podcast kynlífi hjóna í hverri viku og ekki veitir af. Góða skemmtun !
Stýrivaxtahækkun Seðlabankans var harðlega gagnrýnd á Alþingi í dag. Ríkisstjórnin þurfi að bregðast við. Umboðsmaður skuldara telur blikur á lofti og ástæða sé til að hafa áhyggjur af þeim sem skulda mikið. Boris Johnson segir að það hefði verið ómögulegt að virða samkomutakmarkanir í Downingstræti 10 vegna þrengsla. Hann kveðst hafa sagt þinginu satt og rétt frá - eftir því sem hann vissi á sínum tíma. Oddviti Vinstri grænna í Hafnarfirði segir fullt tilefni til að krefjast íbúakosningar vegna hugmynda um förgun koldíoxíðs í Hafnarfirði. Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir aðgengi fatlaðs fólks að stafrænum lausnum vera ábótavant. Ráðherrar á Norðurlöndunum undirrituðu í dag yfirlýsingu um að bæta þar úr. Þjóðaröryggi snýst um fleira en varnir og varnarmál, þó að þau séu vissulega áleitin þegar barist er í Evrópu. Þjóðaröryggi snýst líka um samfélag, efnahag, umhverfi og stjórnmál segir prófessor í alþjóðasamskiptum . ----- Þjóðaröryggi felur í sér miklu meira en varnir lands þó að umræða um þær sé orðin áleitnari nú en hún hefur verið um langa hríð segir Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands. Hún var þátttakandi á ráðstefnu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í dag þar sem varpað var fram þeirri spurningu hvernig nýta megi alþjóðasamstarf til að tryggja öryggi þjóðar á breyttum tímum. Forsætis- og utanríkisráðherra ávörpuðu gesti í upphafi og nýleg heimsókn þeirra beggja til Úkraínu var þeim hugleikin. Utanríkisráðherra ræddi þar um hvað og hvernig Ísland gæti beitt sér þrátt fyrir og í krafti smæðar sinnar. Mikilvægt væri fyrir herlausa þjóð að verða verðugur þátttakandi á alþjóðavettvangi. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Silju Báru Ómarsdóttur prófessor í alþjóðasamskiptum. Í gær var tilkynnt að loka eigi Ungmennabúðum Ungmennafélags Íslands á Laugarvatni. Ástæðan er sú að mygla greindist í húsnæðinu sem búðirnar hafa til umráða, gamli Íþróttakennaraskólinn á Laugarvatni. Dvöl í búðunum er oft mikið ævintýri fyrir börn í 9. bekk. Vikudvöl úti í sveit utan skarkala hversdagsins. Markmið með dvölinni er að styrkja félagsfærni ungmenna, efla vitund þeirra fyrir umhverfi sínu og samfélagi ásamt mikilvægi þess að hafa heilbrigðan lífsstíl að leiðarljósi. Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri Bláskógabyggðar segir að framtíð hússins verði ákveðin á fundi sveitarstjórnar á mánudag. Framkvæmdir yrðu of dýrar og það sé í raun ekki hlutverk sveitarfélaga að eiga og reka húsnæði sem nýtist starfsemi þess ekki. Hún segir líklegt að húsið verði auglýst til sölu á næstunni, en

Viðmælandi þáttarins er Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Grid. Grid þróar hugbúnað sem auðveldar vinnu með tölur, myndrit og útreikninga og skákar þannig hefðbundnum töflureiknum á borð við Excel og Google Sheets. Hjálmar er fæddur árið 1976 og er alinn upp í Borgarfirðinum. Hann byrjaði að forrita 12 ára gamall og seldi sitt fyrsta hugbúnaðarleyfi aðeins 15 ára gamall. Hann gekk í Menntaskólann á Laugarvatni og þaðan lá leið hans í tölvunarfræði í Háskóla Íslands þar sem hann staldraði stutt við þar sem hann stofnaði ásamt félögum sínum tölvuleikjafyrirtækið Lon&Don. En síðar stofnaði hann farsímalausnafyrirtækið Maskínu og bókamerkja- og leitartæknifyrirtækið Spurl, sem hélt utan um bókamerki fólks á netinu (e. social bookmarking) og þróaði leitartækni sem var seld til Símans. Hjálmar vann síðan hjá Símanum í tvö ár sem yfirmaður viðskiptaþróunar. Árið 2008 stofnaði síðan Hjálmar, Datamarket, sem var fyrirtæki sem þróaði hugbúnað sem auðveldaði viðskiptavinum að finna og birta göng á myndrænan hátt. Datamarket var síðan selt fyrir 1,6 milljarð íslenskra króna ($15m) til bandaríska tæknifyrirtækisins til Qlik. Hjálmar starfaði sem framkvæmdastjóri gagna (VP of Data) hjá Qlik í um þrjú ár þangað til hann stofnaði nýtt fyrirtæki, hugbúnaðarfyrirtækið Grid, þar sem hann starfar sem framkvæmdastjóri í dag. Hjálmar hefur einnig verið að fjárfesta í sprotafyrirtækjum í gegnum fjárfestingafélagið, Investa, og setið í ýmsum stjórnum t.d. eins og hjá fjölmiðlinum Kjarnanum, Trackwell og Tal. Þátturinn er í boði Icelandair.
Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni hefur verið brennidepli frétta hér undanfarna daga. Sveitastjórn Bláskógarbyggðar hefur ákveðið að leigja ekki út land lengur fyrir byggðina og allir verði að pakka saman og fara. Það ríkir sorg hjá fólkinu sem hefur haft sína litlu húsvagna, sumir jafnvel á fimmta tug ára. Ég heimsótti byggðina á Flakkinu sumarið 2014 í blíðskapar veðri og heilsaði uppá fólk. Rætt er við Guðberg Ástráðsson þáverandi formann, íbúa í hjólhýsabyggðinni á Laugarvatni og Hrafnhildi Bjarnadóttur núverandi formann Samhjól.

Umfjöllun um erlend málefni var fyrirferðarmikil í þættinum í dag. Stjórnmálasamband Íslands og Eystrasaltsríkjanna; Eistlands, Lettlands og Litháen verður í brennidepli en á morgun föstudag verður 31 ár liðið frá því að það komst á, á ný með undirritun yfirlýsingar í Höfða í Reykjavík. Í aðdraganda þess höfðu ríkin þrjú sagt sig úr sambandi Sovétríkja og Ísland viðurkennt sjálfstæði þeirra, fyrst ríkja í heiminum. Forsetar Eystrasaltsríkjanna koma til Íslands í dag ásamt mökum og sendinefndum og mikil dagskrá stendur fyrir dyrum. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, kom til okkar og ræddi Eystrasaltsríkin, söguna og samband okkar. Allt stefnir í spennandi kosningar í Svíþjóð eftir rúmar tvær vikur. Fylkingarnar tvær, sú rauða og sú bláa, mælast nánast hnífjafnar í skoðanakönnunum, en hreyfing er á fylginu innan þeirra. Við ræddum stöðuna þegar Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Framhaldsskólarnir hófust flestir í vikunni. Það átti við um Menntaskólann að Laugarvatni sem var settur í gærmorgun. Tekið var á móti nýnemum og þeim sýnd ný húsakynni fyrr í vikunni - ML er jú heimavistarskóli. Þetta var fyrsta skólasetning skólameistarans, Jónu Katrínar Hilmarsdóttur, en sagði okkur frá starfinu, lífinu og tilverunni í sveitinni fögru. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Walk on by - Dionne Warwick Across the universe - Bítlarnir Three little birds - Bob Marley

Hallgrímur Ólafsson, eða Halli Melló eins og hann er gjarnan kallaður, mætti til mín í áhugavert og skemmtilegt spjall nú á dögunum ásamt sínum betri helmingi Matthildi Magnúsdóttur.Halli er leikari og hefur verið fastráðinn við Þjóðleikhúsið undanfarin ár og getið sér þar gott orð. Hann hefur komið víða við í leiklsitinni en ættu margir að kannast við hann til dæmis sem manninn sem aldrei náði húinu í hinu víðfræga atriði í áramótaskaupinu hér um árið.Matthildur er lögfræðingur að mennt og hefur starfað hjá skattinum allar götur síðan hún útskrifaðist.Halli þakkar Matthildi fyrir að þau séu saman í dag, en allt hófst þetta á örlagaríku facebookaddi sem Halli var ekki lengi að samþykkja en hann kannaðist við Matthildi af störfum hennar sem þula og hafa þau verið saman nær allar götur síðan.Í dag eru þau gift eiga saman tvo stráka en átti Halli fyrir eina dóttur úr fyrra sambandi.Í þættinum fórum við um víðan völl en ræddum við meðal annars lífið í sjávar-bæjunum, fyrstu og síðustu fjölskyldu útileguna, leiklistina & fjölskyldulífið, athyglisbresti og margt fleira ásamt því að við heyrðum margar skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Halli fékk það staðfest að Matthildur væri framtíðarkonan í pulsusjoppu á Laugarvatni.Blush.is - https://blush.is/Bagel 'n' Co - https://https://www.bagelnco.is/Dominos - https://www.dominos.is/Promennt - https://www.promennt.is/is
Í síðustu viku var greint frá því að hjólhýsabyggðin á Laugarvatni - sem hefur verið þar í fimmtíu ár og haft leigusamning við sveitarfélagið - verði lögð af. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar ákvað að ganga ekki að skilyrtu tilboði hjólhýsaeigendanna því sveitarfélaginu væri það óheimilt. Við ræddum við Hrafnhildi Bjarnadóttur, formann Samhjóls, félags hjólhýsaeigendanna, um þessa ákvörðun og framhaldið. Í nánustu framtíð gætu Strætó og rafskútuleigur farið í samstarf sem kæmi báðum aðilum til góða. Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdarstjóri rafskútuleigunnar Hopp, var gestur okkar. Tuttugu og tveggja ára gamall maður er í haldi lögreglu vegna skotárásarinnar í verslunarmiðstöðinni Field's í Kaupmannahöfn í gær. Minnst þrjú létust í árásinni og fjögur til viðbótar eru lífshættulega særð. Við ræddum við Svein H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúa utanríkisráðuneytisins, um viðbrögð ráðuneytisins og borgaraþjónustunnar í gær og næstu daga. Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar, gagnrýndi í þætti okkar í síðustu viku samráðsleysi við gerð tillögu Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, um að afnema löggildingu sautján iðngreina. Við ræddum við Áslaugu um frumvarpið og mögulegar breytingar - en einnig um gagnrýni á starfsauglýsingu ráðuneytis síns þar sem íslenskukunnátta er ekki skilyrði. Tvær íslenskar stúlkur voru að störfum í versluninni Lindex í Field's í Kaupmannahöfn þegar skotárásin varð um hálf sex leytið í gær. Við ræddum við aðra þeirra, Jónu Öllu Axelsdóttur, sem tókst að flýja út um neyðarútgang verslunarinnar þegar hún heyrði skothljóð og óttaslegið fólk segja frá því að í verslunarmiðstöðinni væri vopnaður maður. Í lok þáttar ræddum við íþróttir helgarinnar, eins og alltaf á mánudögum, í þetta skipti með Eddu Sif Pálsdóttur, íþróttafréttakonu. Tónlist: Erla og Gréta - Ég á heiminn með þér Hjálmar og GDRN - Upp á rönd Una Torfadóttir - En The Moldy Peaches - Anyone else but you No Doubt - Underneath it all Emilíana Torrini - Lay down U2 - Pride Kusk og óviti - Elsku vinur Rolling stones - Start me up GCD - Sumarið er tíminn

Á fimmtudag var greint frá því að indverski höfundurinn Geetanjali Shree hlýtur alþjóðlegu Booker verðlaunin í bókmenntum í ár. Það er viðurkenning fyrir skáldskap þýddan á ensku. Hún fær verðlaunin fyrir skáldsöguna Tomb of Sand sem kom fyrst út á hindi árið 2018 og í enskri þýðingu 2021. Þetta í fyrsta sinn sem þýðing úr hindi fær verðlaunin. Þýðandi verksins á ensku, Daisy Rockwell, deilir verðlaunafénu með Shree sem hljóðar upp á 50 þúsund pund. Við fjöllum um Geetanjali Shree og ræðum við Öldu Sigurðardóttur sem rekur Gullkistuna miðstöð sköpunar á Laugarvatni en Geetanjali dvaldi þar í júlí 2014. Tvær sýningar standa yfir í Hafnarborg um þessar mundir. Þar mætast þeir Sigurður Ámundason, með sýninguna What?s Up, Ave Maria? og Gunnar Örn Gunnarsson með sýninguna Í undirdjúpum eigin vitundar, en sýningarstjóri hennar er Aldís Arnardóttir, listfræðingur. Víðsjá kíkti í heimsókn suður í Hafnarborg og tók þau Aldísi og Sigurð tali. Björn Halldórsson flytur sjötta og síðasta pistli sinn í Víðsjá. Í dag horfist Björn í augu við takmarkanir sínar sem álitsgjafi og pistlahöfundur og endurnýjar kynnin við ritgerðina Hvers vegna ég skrifa eftir George Orwell, í von um að komast til botns í því hvað það var sem dreif hann sjálfan út á ritvöllinn. Við fáum einnig leikhúsgagnrýni um einleikinn Stelpur og strákar eftir breska leikskáldið Dennis Kelly sem var fyrst settur upp árið 2018 í Royal Court Theatre í London. Það er sviðslistahópurinn Fullorðið fólk sem setur verkið í íslenskri þýðingu Matthíasar Tryggva Haraldssonar. Verkið var frumsýnt í Gaflaraleikhúsinu fyrir skemmstu en er nú á flakki um landið. Nína Hjálmarsdóttir rýnir betur í uppsetninguna. Umsjón: Jóhannes Ólafsson

S01E89 – Broddi Kristjánsson er goðsögn. Hann hefur unnið yfir 40 íslenska titla, hefur farið á fleiri heimsmeistaramót en hann hefur tölu á og keppti á ólympíuleiknum í Barcelona árið 1992. Hann er sagnakista og ljúfmenni, lítillátur og góðlegur. Það er þó ekki erfitt að sjá keppnisskapið í gegnum þetta allt enda kemst enginn á þennan stað nema með vinnu og ákveðni. Hann vann ekki fyrsta titilinn fyrr en furðuseint, en eftir það fékk ekkert stoppað hann. Hann lærði til íþróttakennara á Laugarvatni á sama tíma og hann var að spila sig inn á ólympíuleika, fann einhvers staðar tíma til þess að næla sér í lífsförunaut og til þess að sjá Bubba spila á Borginni. Honum bregður fyrir í Rokk í Reykjavík og er ekki alveg hættur að spila þótt mjöðm og hné séu búin og golfið að taka við. Gott spjall. – Síminn Pay býður upp á STVF. Þessa vikuna býður Kore í samstarfi við Símann Pay upp á allar vefjur á aðeins 1.000 krónur. Tilboðið gildir frá þriðjudegi fram á þriðjudag og aðeins þegar þú pantar og greiðir gegnum Símann Pay appið. – FlyOver Iceland býður upp á STVF. The Real Wild West er nýjasta sýning FlyOver Attractions. Í henni er flogið yfir Vesturríki Bandaríkjanna, t.d. Utah, Kaliforníu, Arizona og Montana. Hægt er að bóka tíma á vefnum: www.flyovericeland.is – Bónus býður upp á STVF. Í Bónus er hægt að fá allt í þorramatinn. Harðfisk. Sviðasultu. Rófustöppu. Hákarl. Og miklu fleira auðvitað. Þessu raðar þú svo saman í þitt trog og blótar þorrann af afli. – Hljóðkirkjan býður upp á 5 þætti í viku. Dómsdagur á mánudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
Hrafnhildur Halldórsdóttir ræðir við Þóru Valnýju Yngvadóttur stjórnenda- og fjármálamarkþjálfa. Þóra segir frá uppvextinum í Bárðardal, því þegar hún flutti í Garðabæinn og breytingunum sem urðu við að flytja á mölina. Hún segir frá vistinni á heimavistarskóla á Laugarvatni, bílslysi sem hún lenti í þar sem einn vinurinn lést og hvernig það mótaði hana til lífstíðar. Hún segir frá ævintýraþránni, árunum í Versló, búsetu sinni á Englandi, vinnunni hjá Kaupþingi og Landsbankanum. Hún segir frá ferðaþránni og atvikum sem hún hefur lent, m.a. í í Feneyjum á Ítalíu og í Víetnam. Loks segir hún frá starfi sínu sem fjármálamarkþjálfi og detox-meðferðum sem hún stendur fyrir í Hveragerði.

Í þessum þætti fékk ég til mín frábæra gesti þau Birki Már Sævarsson og eiginkonu hans og hans betri helming, Stefaníu Sigurðardóttur eða Stebbu eins og hún er gjarnan kölluð. Birkir Már hefur gegnt lykilhlutverki í íslenska karlalandsliðinu í fótbolta um árabil en var hann til að mynda fastamaður í byrjunarliði landsliðsins bæði á evrópumótinu í Frakklandi árið 2016 og heimsmeistaramótinu í Rússlandi árið 2018. Birkir Már hafði verið í atvinnumennsku í átta ár bæði Noregi og Svíþjóð áður en hann fluttist aftur heim til Íslands ásamt fjölskyldu sinni í lok árs 2017 þar sem hann hefur spilað með Val sem er hans uppeldisklúbbur og má til gamans geta að hann er bókstaflega með valsmerkið tattúverað á sig. Þrátt fyrir velgengni Birkis á vellinum má segja að það hafi farið lítið fyrir honum í fjölmiðlum en er hann hógværðin uppmáluð og var því sérstaklega gaman að fá hann og Stebbu til mín í spjall þar sem skín í gegn hversu jarðbundin þau bæði eru og taka þau sig síður en svo hátíðlega.Stebba er íþróttafræðingur og starfar sem leikskólakennari í dag ásamt því að þjálfa yngri flokka í knattspyrnu en þau Birkir segja skemmtilega frá því í þættinum þegar leiðir þeirra lágu saman á Laugarvatni þar sem þau voru saman í bekk í íþróttafræði en á þeim tíma hvatti hún Birki þó eindregið til þess að finna sér konu á sínum aldri enda er hún heilum þremur árum eldri en hann. Hann fór þó blessunarlega ekki að þeim ráðum og hafa þau verið saman allar götur síðan, eiga saman fjögur börn og giftu sig árið 2009. Í þættinum fórum við meðal annars yfir upphaf sambandsins á Laugarvatni og þeirra helsta sameiginlega áhugamál sem eru íþróttir en vita þau fátt skemmtilegra en að fara saman á leiki í hinum ýmsu íþróttum hvort sem það er hjá úrvalsdeildarliðum eða yngri flokkum. Við ræddum einnig atvinnumennskuna og landsliðsferilinn, árin þeirra í Noregi og Svíþjóð og deildu þau með mér góðum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal einni beint af fæðingardeildinni. Aha.is - https://aha.isBlush.is - https://blush.is/Bagel 'n' Co - https://https://www.bagelnco.is/Ajax
Komið á Patreon! www.patreon.com/skodanabraedur Auður Ómarsdóttir er myndlistarkona nýkominn úr mastersnámi í Noregi. Einnig hefur hún spilað handbolta semi-pro, þannig að hún er fact fyrsti karlmaður vikunnar sem hefur haft atvinnu af íþróttum. Myndlist og handbolti! Tvenna guðs. Talað um það hér ásamt ýmsu öðru eins og; bælingar og peningar íslenskra útgerðarmanna, Britney Spears & Billie Eilish, Peyote seremóníur á Laugarvatni, útistöður við leigusala og Tinder í Noregi, Listaháskóli Íslands, íslenski skorturinn og ágæti íslenskra myndlistarmanna.
Á morgun mun Akureyrarstofa ásamt Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi Eystra efna til rafræns málþings um störf óháð staðsetningu. Málþingið heitir Fólk færir störf og þar verður rætt um þau tækifæri og áskoranir sem felast í störfum óháð staðsetningu. Gígja Hólmgeirsdóttir forvitnaðist um málþingið og ræddi við Rebekku K. Garðarsdóttur, verkefnastjóra SSNE, í hljóðstofu á Akureyri. Mikið fannfergi hefur verið víða á landinu undanfarið og leiðindaveður. Óvissustig er í gildi vegna snjóflóðahættu á Norður- og Austurlandi sem og norðanverðum Vestfjörðum. Færð hefur víða spillst og vonskuveður geisað. Við heyrðum í Katrínu Sigurjónsdóttur sveitarstjóra á Dalvík og spurðum út í ástandið í hennar nágrenni en þar hefur snjó kyngt niður undanfarið líkt og víðar. Hjólreiðakeppnin KIA Gullhringurinn fagnar tíu ára afmæli í sumar og gerir það með því að færa sig frá Laugarvatni og til Árborgar. Þórir Erlingsson er mótstjóri Víkingamótanna en KIA Gullhringurinn er hluti af þeim. Við heyrðum í Þóri. Líðan þjóðar á tímum Covid-19 er vísindarannsókn á vegum Háskóla Íslands, embættis Landslæknis og sóttvarnarlæknis sem miðar að því að auka þekkingu á áhrifum faraldursins á líðan og lífstíl landsmanna. Rannsóknin er hluti af alþjóðlegu rannsóknarverkefni á þessu sviði og er opin öllum einstaklingum 18 ára og eldri. Unnur Anna Valdimarsdóttir prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands kom til okkar og sagði okkur nánar af rannsókninni. Og svo var það Spánarspjall dagsins þar sem Jóhann Hlíðar Harðarson fór yfir tíðindi að sunnan, m.a. af nokkurs konar búsáhaldabyltingu og fólki sem vill troða sér fram fyrir röðina í bólusetningu. Tónlist: Emilíana Torrini - Perlur og svín. Helgi Björns og Salka Sól - Saman (höldum út). Oscar Leone - Aloha. Ed Sheeran - Afterglow. Al Green - Here I am (Come and take me). Auður - Enginn eins og þú. The Pretenders - Back on the chain gang. U2 - Mysterious ways. Nýju fötin keisarans - Ég er tilbúinn að elska.

Einhugur er í velferðarnefnd Alþingis um að ráðast þurfi í rannsókn á málefnum Arnarholts, en ekki um hver á að annast hana. Tekist er á um sóttvarnaraðgerðir og tveir stjórnarþingmenn fara fremstir í flokki gagnrýnenda á ríkisstjórnina. Þá hefur verið tekist á um samgöngur og hjúkrunarheimili og málaferli vegna brota ráðherra á jafnréttislögum. Þetta er á meðal þess sem hefur gerst í stjórnmálunum hér á landi undanfarna daga, en Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir þingfréttamaður fór yfir þingstörfin. Öll þekkjum við nafn Guðjóns Samúelssonar húsameistara og hans helstu verk. Ég nefni bara aðalbyggingu Háskóla Íslands, Landspítalann við Hringbraut, Þjóðleikhúsið, Héraðsskólann á Laugarvatni, Akureyrarkirkju og Hallgrímskirkju. Listinn er langur. Guðjón afkastaði furðulega miklu á rúmlega 30 ára starfsferli og mannfélagið nýtur verka hans í starfi og leik. Pétur H. Ármannsson arkitekt hefur skrifað mikla bók um Guðjón og hann kom á Morgunvaktina. Og svo eru það ferðamálin. Á dögunum bárust bæði slæmar fréttir og góðar. Horfur eru á að ferðaþjónusta í heiminum taki seinna við sér en áður var vonað. Hér heima reiknar Seðlabankinn með að færri heimsæki Ísland á nýju ári en talið var í ágúst og sömu sögu er að segja frá Bandaríkjunum. Þar í landi var hins vegar tilkynnt að Max þoturnar frá Boeing væru orðnar öruggar. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, ræddi þessi mál og önnur ferðamál. Tónlist: If we fall in love tonight - Rod Stewart Stay with me - Sam Smith

Einar Þór jónsson sagði frá uppvextinum í Bolungarvík, góðum æskuárum í faðmi vestfiskra fjalla. Hann sagði frá veikindum móður sem mótaði líf fjölskyldunnar sem endaði með því að móðir hans lést langt um aldur fram. Hann sagði frá árinu á Laugarvatni, síðar í trésmíðanámi, og í framhaldinu dvöl í Bretlandi þegar Einar leitaði að sjálfum sér. Þar kom hann út úr skápnum, hann sagði frá árunum í framhaldi fordómum og öðru sem samkynhneigðir þurftu að glíma við á þessum árum. Hann sagði frá HIV og baráttunni við þennan alvarlega sjúkdóm, sínum veikindum og því að missa nána vini og kærasta. Hann sagði frá bróðurmissi sem tók mikið á alla fjölskylduna og hvernig er hægt að lifa af slíka reynslu. Hann sagði frá árunum í Svíþjóð, eiginmanninum Stig og góða tímanum þeirra saman, veikindum Stig, baráttunni hjá aðstandendum heilabilaðra og ýmsu fleiru. Unnur Birna Karlsdóttir sagnfræðingur sagði frá uppvextinum í sveitinni í Glæsibæjarhreppim, skólaheimavistinni í Þelamörk og síðar MA. Hún sagði frá sagnfræðinni, fjölskyldunni, og því hvernig það kom til að hún hefur nú sent frá sér bók um hreindýrin á Íslandi sem ber heitið Öræfahjörðin.

Guðni og Guðmundur kynna hljóðvarpið og ræða saman um útinám í Bláskógaskóla Laugarvatni.
Kristín Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Pieta samtakanna sagði frá uppvextinum í Garðabæ, menntaskólaárunum á Laugarvatni, dvöl og starfi í Luxemborg og öllu því sem hún hefur starfað við sem er mjög fjölbreytt flóra. Hún sagði frá sonum sínum, áskorunum í lífinu, samsettri fjölskyldu og núverandi starfi hjá Pieta samtökunum. Gunnlaugur Bragi Björnsson sagði frá uppvextinum á Höfn í Hornafirði, menntaskólaárunum í MH, viðskiptafræðinámi, starfi í Arion banka og síðar starfinu sem formaður Hinsegin daga. Hann sagði frá áskorunum í einkalífi áhugamálum og ýmsu öðru.

Þórhallur Heimisson sagði frá uppvextinum fyrst i Reykjavík, Seyðisfirði, Skálholti síðar menntaskólaárunum á Laugarvatni. Síðan hélt hann í háskóla íslands byrjaði í sagnfræði og tók svo próf í guðfræði og hefur starfað sem prestur sl. þrjátíu árin. Hann ræddi áhugamálin, námskeiðin sem hann hefur haldið fyrir hjón og fjölskyldur, ristörfin, farastjórnina fjölsylduna og áhugamálin. Arndís Hrönn Egilsdóttir leikkona sagði frá lífi sínu og starfi, námi í Frakklandi, útvarpsmennskunni og leiklistinni en hún hefur undanfarið fengið mörg stór hlutverk bæði í leikhúsi og í bíómyndum en Arndís leikur aðalhlutverkin í myndinni Héraðið eftir Grím Hákonarson. Hún ræddi áhugamálin fjölskylduna og ýmislegt fleira.

Ég skrapp í heimsókn til Menntaskólans á Laugarvatni þar sem ég fræddi nemendur um KYNSJÚKDÓMA. BÚMM. Og það var kalt úti.