Podcasts about austurbr

  • 5PODCASTS
  • 25EPISODES
  • 1h 21mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Feb 17, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about austurbr

Latest podcast episodes about austurbr

Mannlegi þátturinn
Akureyrarklíníkin, húsnæðislánin á mannamáli og Jón Knútur lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 17, 2025 50:00

Akureyrarklínikin er fyrst sinnar tegundar í heiminum sem rekin er af hinum opinbera en um er að ræða samstarfsverkefni Sjúkrahússins á Akureyri og Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, sem þekkingar– og ráðgjafamiðstöð fyrir ME sjúkdóminn og eftirstöðvar Covid 19. Akureyrarklínikin samanstendur af þverfaglegu teymi lækna, sjúkraþjálfa, félagsráðgjafa, iðjuþjálfa og hjúkrunarfræðings. Teyminu er ætlað að sinna ME sjúklingum á landsvísu, bæði í staðarviðtölum en einnig fjarviðtölum. Bati getur verið mjög hægur og í sumum tilfellum lítill sem enginn. Það þarf frekari vitundarvakningu um eðli sjúkdómsins, meðferð og batahorfur. Ingunn Eir Eyjólfsdóttir og Lilja Sif Þórisdóttir, félagsráðgjafar, sögðu okkur meira frá í þættinum í dag. Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í heimilisbókhaldi, kom til okkar í dag með það sem við köllum fjármálin á mannamáli. Í þetta sinn fræddi hann okkur efni sem er mörgum hugleikið, húsnæðislánin. Þetta eru yfirleitt stærstu lánin sem fólk tekur á ævinni og lánaumhverfi á Íslandi er talsvert flókið, því var áhugavert að fá útskýringar á mannamáli um það sem hafa ber í huga varðandi val á láni. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Jón Knútur Ásmundsson, skrifstofumaður á Reyðarfirði, starfsmaður Austurbrúar, ljóðskáld og hundaeigandi. Hann sagði okkur frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Jón talaði um eftirfarandi bækur og höfunda Fólkið í kjallaranum e. Auði Jónsdóttur Í skugga trjánna e. Guðrúnu Evu Mínervudóttur Norwegian Wood og Novelist as a Vocation e. Haruki Murakami On Writing e. Stephen King Aðlögun e. Þórdísi Gísladóttur. Innanríkið – Alexíus e. Braga Ólafsson. Teiknimyndabækur æsku hans, Svalur og Valur, Tinni og fleiri Bloggarar, blaðamenn og pistlahöfundar um aldamótin, til dæmis Karl Th. Birgisson, Illugi Jökulsson og Egill Helgason. Tónlist í þætti dagsins: Alltígóðulagi / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Steingrímur Karl Teague og Andri Ólafsson) Money / Pink Floyd (Roger Waters) Borgarfjarðarminning / Stefán Helgi Stefánsson og Davíð Ólafsson (Óli H. Þórðarson, texti Böðvar Guðmundsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Samfélagið
Stúdentahreyfingar, STEM Húsavík, starfamessa á Austurlandi

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 20, 2024 59:15

Í dag ætlum við að fjalla um stúdentahreyfingar; íslenskar, útlenskar, alþjóðlegar. Þessa dagana dvelja fulltrúar Landsambands Íslenskra Stúdenta í Póllandi og taka þátt í þingi fyrir evrópskar stúdentahreyfingar. Við fáum til okkar Lísu Margréti Gunnarsdóttur, forseta Landssambands Íslenskra Stúdenta, fræðumst um hvað á sér stað á þessu þingi, og hvað ber hæst í hagsmunabaráttu stúdenta, hér á Íslandi og annars staðar. Í dag ætlum við að fjalla um stúdentahreyfingar; íslenskar, útlenskar, alþjóðlegar. Þessa dagana dvelja fulltrúar Landsambands íslenskra stúdenta í Póllandi og taka þátt í þingi fyrir evrópskar stúdentahreyfingar. Við fáum til okkar Lísu Margréti Gunnarsdóttur, forseta Landssambands íslenskra Stúdenta, fræðumst um hvað á sér stað á þessu þingi, og hvað ber hæst í hagsmunabaráttu stúdenta, hér á Íslandi og annars staðar. Síðan bregðum við okkur til Húsavíkur. Samfélagið er nýkomið úr ferðalagi um Norðurland, og í dag flytjum við viðtöl sem tekin voru þegar við heimsóttum glerskála við Húsavíkurhöfn, þar sem Huld Hafliðadóttir og Bridget Burger starfrækja STEM Húsavík, verkefni sem hefur það að markmiði að auka færni Húsvíkinga í hinum svokölluðu STEM-greinum. Í gær fór starfamessa Austurlands fram á Egilsstöðum, og það hljóp á snærið hjá Samfélaginu, sem var alls ekkert á Austurlandi því Jón Knútur Ásmundsson, verkefnastjóri Austurbrúar var á svæðinu og tók viðtöl við gesti og gangandi fyrir hlaðvarpsrás Austurbúar og gaf okkur leyfi til að nota það. Austurbrú eru hagsmunasamtök sem vinna að því að Austurland verði staður fólks, fyrirtækja og fjárfesta sem vilja byggja upp sjálfbært samfélag og starfamessan er hugsuð til að kynna þau störf sem unnin eru á Austurlandi fyrir ungu fólki. Meira um það á eftir.

stem kn meira margr sam f gunnarsd austurlandi egilsst austurlands landssambands austurb austurbr
Samfélagið
Seigla Seyðfirðinga, vetnisskip, málfar og safnaspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Apr 17, 2023 55:00

VIð ætlum að rýna í rannsókn sem skoðar upplifanir og líðan Seyðfirðinga í kjölfar aurskriðanna sem þar urðu fyrir þremur árum. Mikið áfall fyrir bæinn og íbúa hans, ótti, ringulreið og óvissa gripu um sig - en það fannst líka einstakur baráttuhugur, samstaða, seigla og kærleikur. Við ræðum við Tinnu Halldórsdóttur yfirverkefnastjóra og Ernu Rakel Baldvinsdóttur verkefnastjóra, báðar hjá Austurbrú. Samskip hafa samið um að láta smíða fyrir sig tvö vetnisknúin skip til siglinga á styttri leiðum í Evrópu. Við ætlum að forvitnast um þetta og skref í átt að orkuskiptum í skipaflutningum og ræða við Þórunni Ingu Ingjaldsdóttur sem er forstöðumaður markaðs- og samskiptadeildar Samskipa. Málfarsmínútan verður á sínum stað og svo kemur Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV með eitthvað bitastætt til okkar úr safninu.

Samfélagið
Seigla Seyðfirðinga, vetnisskip, málfar og safnaspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Apr 17, 2023

VIð ætlum að rýna í rannsókn sem skoðar upplifanir og líðan Seyðfirðinga í kjölfar aurskriðanna sem þar urðu fyrir þremur árum. Mikið áfall fyrir bæinn og íbúa hans, ótti, ringulreið og óvissa gripu um sig - en það fannst líka einstakur baráttuhugur, samstaða, seigla og kærleikur. Við ræðum við Tinnu Halldórsdóttur yfirverkefnastjóra og Ernu Rakel Baldvinsdóttur verkefnastjóra, báðar hjá Austurbrú. Samskip hafa samið um að láta smíða fyrir sig tvö vetnisknúin skip til siglinga á styttri leiðum í Evrópu. Við ætlum að forvitnast um þetta og skref í átt að orkuskiptum í skipaflutningum og ræða við Þórunni Ingu Ingjaldsdóttur sem er forstöðumaður markaðs- og samskiptadeildar Samskipa. Málfarsmínútan verður á sínum stað og svo kemur Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV með eitthvað bitastætt til okkar úr safninu.

Morgunvaktin
Austurland, ítölsk pólitík og hatursorðræða

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 18, 2022

Þýska flugfélagið Condor tilkynnti í síðustu viku að það myndi hefja áætlunarflug til Akureyrar og Egilsstaða næsta vor. Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar, tók þátt í að kynna Austurland sem áhugaverðan áfangastað fyrir stjórnendum Condor. Áætlunarflugið mun væntanlega hafa mikil áhrif á ferðaþjónustuna bæði á Austurlandi og Norðurlandi. Dóra Sif Tynes, lögmaður og sérfræðingur í Evrópurétti, fór yfir ítölsku pólitíkina en forsætisráðherra Ítalíu, Mario Draghi, bauðst til að segja af sér á fimmtudag en forseti landsins hafnaði afsagnarbeiðninni. Draghi hefur tíma til miðvikudags til að mynda starfhæfa stjórn og atvinnulífið vill að hann verði áfram forsætisráðherra. Moldóva og Úkraína eru formlega orðin umsækjendur um aðild að Evrópusambandinu en sambandið stendur sterkt um þessar mundir. Ef eitthvað er þá þjappaði innrás Rússa inn í Úkraínu ríkjunum 27 enn frekar saman. Daníel E Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna?78, ræddi þá hatursorðræðu sem hinsegin fólk hefur mætt hér á landi síðustu tvö ár og óttast að orðræðan geti færst yfir í líkamlegt ofbeldi. Samtökin eru í viðræðum við lögregluna um að halda skrá yfir það þegar slíkt ofbeldi á sér stað vegna kynhneigðar fólks. Transbörn hafa fallið fyrir eigin hendi vegna hatursorðræðu sem þau mæta í samfélaginu, það er jafnvel gelt á þau og hrækt á þau. Ofbeldi sem verður að koma í veg fyrir. Tónlist: Summer's gone - Kristjana Stefánsdóttir, When I fall in love - Natalie og Nat king Cole, Undraveröld - Ingunn Huld Sævarsdóttir, Bigmouth strikes Back - The Smiths, Aðeins eitt kyn - Hjálmar. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Play Episode Listen Later Jul 18, 2022 130:00

Morgunútvarpið
30. sept.-Austurland, viðburðir, andleg heilsa, rafrænar kosningar ofl

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 30, 2021 130:00

Í dag hefst viðburður, eða viðburðir, undir heitinu Okkur að góðu á Austurlandi. Þar koma við sögu matvælaframleiðsla, ferðamennska og nýsköpun, svo eitthvað sé nefnt. Viðburðirnir dreifast um Austurland og okkur lék forvitni á að vita meira og heyrðum í Halldóru Dröfn Hafþórsdóttur verkefnastjóri hjá Austurbrú austur á Djúpavogi. Fjölmörgum viðburðum hefur ýmist verið frestað eða aflýst á meðan samkomutakmarkanir hafa verið í gildi hérlendis vegna kórónuveirufaraldursins. Þar á meðal eru tónleikar, og jafnvel heilu tónlistarhátíðarnar, með erlendum listamönnum. Við veltum fyrir okkur hvernig gengur að endurbóka erlenda listamenn og koma viðburðum á að nýju? Björgvin Rúnarsson, viðburðarhaldari sagði okkur frá áskorunum sem hann hefur staðið frammi fyrir og því sem fram undan er. Nú þegar flestir hafa snúið aftur til starfa í kjölfar heimsfaraldurs vakna ýmsar spurningar og sálfræðingar og mannauðsfólk verður vart við meiri þörf á ráðgjöf og stuðningi. Sumir eru óöruggir og finnst nýr raunveruleiki krefjandi, hvað má og hvað má ekki, hvað með heimavinnuna, stemmingu og vinnustaðamenningu? Verður þetta nokkurn tíma eins og það var? Á sama tíma er hörð orðræða í samfélaginu um samskipti og mörk, meðvirkni og þöggun. Allt er þetta krefjandi í nú þegar krefjandi umhverfi covid faraldurs. Bryndís Einarsdóttir sálfræðingur og ráðgjafi í mannauðsmálum hjá Líf og Sál ræddi þessi mál við okkur. Í gær ræddum við við tölvunarfræðing sem sagði nánast útilokað að standa að öruggum kosningum á rafrænan máta. Theódór Ragnar Gíslason tæknistjóri hjá netöryggisfyrirtækinu Syndis er á öðru máli og segir að tæknilega standi ekkert í vegi fyrir rafrænni kosningu. Hann kom til okkar og ræddi málið. Önnur þáttaröð um hina dularfullu Stellu Blómkvist fer í loftið í dag. Sem fyrr er það Heiða Reed sem fer með aðalhlutverkið, en leikstjórarnir eru tveir, þau Óskar Þór Axelsson og Þóra Hilmarsdóttir og þau voru gestir okkar og ræddu þættina og kvikmyndagerð í Covid. Tónlist: Thin Jim and the Castaways - Confessions. Mark Knopfler - Beryl. Hipsumhaps - Meikaða. Marc Martel - Somebody to love. Nýdönsk - Apaspil. Kacey Musgraves - Justified. Magnús Þór Sigmundsson - Blue Jean Queen. Post Malone - Only wanna be with you. Eddie Vedder - Long way.

Morgunútvarpið
30. sept.-Austurland, viðburðir, andleg heilsa, rafrænar kosningar ofl

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 30, 2021

Uppbygging á Seyðisfirði, mæðgnasamband

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 20, 2021 55:00

Gauti Jóhannesson formaður verkefnisstjórnar Seyðisfjarðarverkefnisins: Uppbygging Seyðisfjarðar er þriggja ára verkefni sem stjórnvöld, Múlaþing og Austurbrú hafa sett af stað til að byggja upp atvinnulíf á Seyðisfirði eftir hamfarirnar í desember. Hluti þess er Hvatasjóður og fyrsta úthlutun úr honum hefur þegar farið fram. Maria Finster Úlfarsson: Marie gerði meistaraverfni og rannsakaði reynslu dætra á að eiga aldraða móður á hjúkrunarheimili og áhrif þess á mæðgnasambandið. Emilía Borgþórsdóttir, umhverfisspjall um að rækta garðinn á umhverfisvænan hátt.

Samfélagið
Uppbygging á Seyðisfirði, mæðgnasamband

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 20, 2021

Gauti Jóhannesson formaður verkefnisstjórnar Seyðisfjarðarverkefnisins: Uppbygging Seyðisfjarðar er þriggja ára verkefni sem stjórnvöld, Múlaþing og Austurbrú hafa sett af stað til að byggja upp atvinnulíf á Seyðisfirði eftir hamfarirnar í desember. Hluti þess er Hvatasjóður og fyrsta úthlutun úr honum hefur þegar farið fram. Maria Finster Úlfarsson: Marie gerði meistaraverfni og rannsakaði reynslu dætra á að eiga aldraða móður á hjúkrunarheimili og áhrif þess á mæðgnasambandið. Emilía Borgþórsdóttir, umhverfisspjall um að rækta garðinn á umhverfisvænan hátt.

Landsbyggðir
#137 Austfirðir - Jóna Árný Þórðardóttir og Þráinn Lárusson

Landsbyggðir

Play Episode Listen Later Apr 27, 2021 26:46

Staðan í atvinnulífinu á Austurlandi í upphafi ársins. Karl Eskil Pálsson talar við Jónu Árnýju Þórðardóttur framkvæmdastjóra Austurbrúar og Þráinn Lárusson athafnamann.

Morgunvaktin
Atvinnulíf á Seyðisfirði stendur frammi fyrir miklum vanda

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 16, 2021 130:00

Viðskiptabankarnir þrír högnuðust um samtals 30 milljarða króna á síðasta ári. Það hlýtur að teljast þónokkuð enda kreppuástand í landinu í fyrra. Þórður Snær Júlíusson rýndi í afkomu bankanna í spjalli um efnahag og samfélag. Við fjölluðum líka um atvinnuástandið en alltof margir hafa verið án atvinnu í alltof langan tíma. Þótt mjög hafi dregið úr kórónuveirusmitum í Þýskalandi upp á síðkastið stendur ekki til að slaka á sóttvarnaráðstöfunum þar, í bili. Því taka forsvarsmenn í atvinnulífinu óstinnt upp, líkt og Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur frá í Berlínarspjalli. Hann fór líka yfir áhrif faraldursins og ráðstafana vegna hans á eitt og annað í þýsku þjóðlífi, en meðal þess sem dregið hefur úr er bjórdrykkja. Bjór er jú þjóðardrykkur Þjóðverja og þeim finnst grábölvað að fá ekki að fara á krána og ræða málin og kneyfa svolítið öl. Aurskriðurnar á Seyðisfirði í desember höfðu víðtæk áhrif á samfélagið í bænum. Ekki er nóg með að fólk missti heimili sín og ljóst er að búseta á tilteknum svæðum verður ekki heimil þar á ný heldur stendur atvinnulíf frammi fyrir fjölþættum vanda. Á vegum Austurbrúar sem vinnur að ýmsum hagsmunamálum fólks á Austurlandi hefur farið fram greining á vandanum. Jóna Árný Þórðardóttir hjá Austurbrú gerði grein fyrir stöðunni. Tónlist: Hveragerði - Bergþóra Árnadóttir Regnbogans stræti - Bubbi Morthens

Morgunvaktin
Atvinnulíf á Seyðisfirði stendur frammi fyrir miklum vanda

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 16, 2021

25. sept. - BRAS, Grenivík, dvalarleyfi og Eurogarðurinn

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 25, 2020 130:00

Í september og október stendur yfir á Austurlandi BRAS - menningarhátíð barna og ungmenna. Hátíðin hefur fest sig í sessi en þetta er í þriðja sinn sem hún er haldin. Við hringdum austur á Djúpavog og heyrðum í Halldóru Dröfn Hafþórsdóttur verkefnisstjóra hjá Austurbrú sem veit meira um þessa skemmtilegu hátíð og hún sgði okkur frá. Í sumar opnaði mathöllin Milli fjöru og fjalla í gamla kaupfélagshúsinu á Grenivík í Grýtubakkahreppi, og þar er íslenska lambakjötið í hávegum haft. Gígja Hólmgeirsdóttir brá sér til Grenivíkur og forvitnaðist um þennan nýja veitingastað í spjalli við Höllu Sif Guðmundsdóttur sem rekur staðinn ásamt fjölskyldu sinni. Egypska fjölskyldan, sem mikið hefur verið til umfjöllunar og verið í felum að undanförnu, var í gær veitt dvalarleyfi af mannúðarsjónarmiðum. Þetta varð ljóst í gær eftir að kærunefnd útlendingarmála féllst á endurupptökubeiðni hennar. Magnús Davíð Norðdahl, lögmaður fjölskyldunnar, kom til okkar. Eurogarðurinn er nafn á nýrri sjónvarpsþáttaröð sem fer í loftið um helgina. Úrvalslið leikara og grínara fer þar með helstu hlutverk en í Eurogarðinum segir frá drykkfelldum miðaldra braskara með vafasaman viðskiptaferil sem kaupir Húsdýragarðinn og hefur uppi stór plön um framtíð og þróun hans. Þau Anna Svava Knútsdóttir og Dóri DNA eru meðal þeirra sem koma að þessu verkefni og þau kíktu við og sögðu okkur meira. Tónlist: Krummi - Frozen teardrops. Sycamore Tree - Home again. Coldplay - Adventure of a lifetime. Hreimur og Fríða Hansen - Lítið hús. Auður - Enginn eins og þú. Suede - Beautiful ones. KK - Þetta lag er um þig. Bryan Ferry - Dont stop the dance. The Beatles - Drive my car. Hjálmar - Taktu þessa trommu. Queen - Youre my best friend. Stjórnin - Ég lifi í voninni. Janelle Monáe - Turntables.

Morgunútvarpið
25. sept. - BRAS, Grenivík, dvalarleyfi og Eurogarðurinn

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 25, 2020

Ferðavenjukönnun 2109. Vísindavefurinn

Samfélagið

Play Episode Listen Later Mar 25, 2020 55:00

Þorsteinn R Hermannsson samgöngustjóri Rvkborgar: Farið yfir helstu tölur í Ferðavenjukönnun 2109 fyrir höfuðborgarsvæðið. Ferðum á dag fækkar, notkun almenningssamgangna eykst sem og hjólreiðar. Jóna Árný Þórðardóttir framkv.stjóri Austurbrúar: Ferðavenjukönnunin 2019 og hvað hún segir um ferðavenjur fólks á landsbyggðinni. Jón Gunnar Þorsteinsson ritstjóri Vísindavefsins: Rætt um nýja vefsíðu tileinkaða Covid-19 og veirum almennt. Síðan var opnuð fyrir skemmstu til að svara mikilli eftirspurn almennings á traustum upplýsingum á tímum heimsfaraldursins.

covid-19 fer austurbr
Samfélagið
Ferðavenjukönnun 2109. Vísindavefurinn

Samfélagið

Play Episode Listen Later Mar 25, 2020

Þorsteinn R Hermannsson samgöngustjóri Rvkborgar: Farið yfir helstu tölur í Ferðavenjukönnun 2109 fyrir höfuðborgarsvæðið. Ferðum á dag fækkar, notkun almenningssamgangna eykst sem og hjólreiðar. Jóna Árný Þórðardóttir framkv.stjóri Austurbrúar: Ferðavenjukönnunin 2019 og hvað hún segir um ferðavenjur fólks á landsbyggðinni. Jón Gunnar Þorsteinsson ritstjóri Vísindavefsins: Rætt um nýja vefsíðu tileinkaða Covid-19 og veirum almennt. Síðan var opnuð fyrir skemmstu til að svara mikilli eftirspurn almennings á traustum upplýsingum á tímum heimsfaraldursins.

fer austurbr
Samfélagið
Olíuslys. Sóknaráætlun Austurlands. Flóra Suður-Afríku.

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 7, 2019 55:00

Lára Jóhannsdóttir prófessor í umhverfis- og auðlindafræðum við HÍ: Áhætta á olíuslysum. Jóna Árný Þórðardóttir framkvæmdastjóri Austurbrúar: Sóknaráætlun Austurlands 2020-2024. Hafdís Hanna Ægisdóttir: Flóra Suður-Afríkur.

afr hafd austurlands austurbr
Samfélagið
Olíuslys. Sóknaráætlun Austurlands. Flóra Suður-Afríku.

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 7, 2019

#58 Jóna Árný Þórðardóttir

Landsbyggðir

Play Episode Listen Later Aug 28, 2019 28:35

Staðan - væntingar - ógnanir - tækifæri Jóna Árný Þórðardóttir framkvæmdastjóri Austurbrúar er gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum

sta austurbr
Morgunvaktin
Mette Frederiksen líklega næsti forsætisráðherra Danmerkur.

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 6, 2019 130:00

Eftir stutt spjall um nýjustu fréttir var sagt frá Guðbrandsbíblíunni en 435 ár eru í dag síðan prentun hennar lauk á Hólum í Hjaltadal. Í Heimsglugga dagsins ræddi Bogi Ágústsson um úrslit dönsku kosninganna. Vinstri blokkin hlaut meirihluta og allt bendir til að Mette Frederiksen, leiðtogi jafnaðarmanna, verði næsti forsætisráðherra Danmerkur. Gangi það eftir verður hún yngsti forsætisráðherrann í sögu landsins. Loftlagsváin fær sífellt meira vægi á vettvangi stjórnmálanna í Evrópu. Nýlegar kosningar til Evrópuþingsins bera það með sér og eins þingkosningar í nokkrum ríkjum álfunnar að undanförnu. Rætt var um þessa auknu umræðu við Margréti Marteinsdóttur blaðamann sem skrifað hefur um loftlagsmál í Stundina. Veðrið hefur verið leiðinlegt á Norður- og Austurlandi það sem af er sumri og tíðin haft áhrif á ferðaþjónustu og landbúnað. Jón Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar, sagði Austfirðinga taka þessu leiðinda veðri með jafnaðargeði, þeir bíða þetta bara af sér. Tónlist: Kveðja - Bubbi Morthens Denmark - Shubidua Besame mucho - Bítlarnir

Samfélagið
Samfélagsleg - og umhverfisáhrif Keflavíkurflugvallar. Tækifæri Egilss

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 6, 2019 55:00

Hrönn Ingólfsdóttir, forstöðumaður verkefnastofu Isavia: Samfélagsskýrsla ISAVIA, umhverfisáhrif starfseminnar, árangur í að draga úr hljóðmengun og hvernig unnið er út frá heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Jóna Árný Þórðardóttir framkvæmdastjóri Austurbrúar: Tækifæri Egilsstaðarflugvallar. Edda Olgudóttir: Vísindamaðurinn Rosalind Franklin, sem aldrei fékk Nóbelinn.

Morgunvaktin
Heimsmarkmið SÞ nást ekki nema dregið verði úr drykkju

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 30, 2018 130:00

Við byrjuðum austur á Eskifirði og töluðum við Maríu Hjálmarsdóttur, verkefnisstjóra hjá Austurbrú, sem hefur umsjón með eflingu Egilsstaðaflugvallar, heldur utan um Áfangastaðinn Austurland og stýrir markaðsstarfi Austurbrúar. Hún lýsti ferðasumrinu fyrir austan og væntingum heimamanna. - Bogi Ágústsson ræddi kosningarnar framundan í Svíþjóð, málefni Suður-Ameríkuríkja og ýmislegt fleira. - Áfengisdrykkja er mjög útbreidd á Íslandi. Níu af hverjum tíu íslenskum körlum yfir fimmtán ára drekka áfengi en hlutfallið er aðeins lægra meðal kvenna. Drykkjan hefur aukist með árunum og við höfum aldrei drukkið eins mikið og í fyrra. Ofan í þessar staðreyndir berast okkur niðurstöður nýrrar rannsóknar um skaðsemi áfengis. Alþjóðlega góðtemplarahreyfingin, IOGT, hefur starfað á Íslandi í 134 ár. Aðalsteinn Gunnarsson, framkvæmdastjóri IOGT á Íslandi, sagði frá baráttunni fyrir bindindi. - Íslenskt súkkulaði sópaði að sér verðlaunum á Evrópumóti í súkkulaðigerð - hlaut ellefu verðlaun, þar af fimm gullverðlaun. Þetta er Omnom-súkkulaðið, gæðasúkkulaði - bragðbætt með lakkrís, salti og ýmsu öðru. Súkkulaðigerðarmaðurinn Kjartan Gíslason, stofnandi Omnom, sagði frá fyrirtækinu, sigrunum og súkkulaðinu. - Tónlist: Anne Queffélec - Gnossienne no.1